POPULARITY
Fimmtudagur 15. maí Trump, Vesturbugt, kvíði, Starmer, skoðanakúgun og kynjaþing Eiríkur Bergmann prófessor ræðir áhrif Trump á stjórnmálin utan Bandaríkjanna við Gunnar Smára. Gunnar Smári ræðir hverfið sem byggja á vestan við Slippinn við Reykjavíkurhöfn við Ástu Olgu Magnúsdóttur, íbúa á svæðinu og verkefnastjóra, Egil Sæbjörnsson, myndlistarmann og aðgerðasinna í byggingarlist og Pál Jakob Líndal, doktor í umhverfissálfræði og stofnanda Envalys. Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson, íþrótta- og æskulýðsfulltrúi og rithöfundur ræðir við Oddnýju Eir um nýútkomna bók sína ,,Ég er ekki fullkominn” þar sem hann fjallar á persónulegan og skemmtilegan hátt um viðureign sína við kvíða. Gunnar Smári slær á þráðinn til Guðmundar Auðunssonar hagfræðings í London og ræðir við hann um stöðuna í breskum stjórnmálum, ekki síst hraðleið Verkamannaflokks Keir Starmer til hægri. Allt snýst um tengsl og klíkur á Íslandi er kemur að störfum og tækifærum segir nemi í félagsráðgjöf og ljósmyndari, Sigga Svanborgardóttir, sem býr í Danmörku. Björn Þorláks ræðir við hana. Oddný Eir ræðir við Auði Önnu Magnúsdóttur, framkvæmdastýru Kvenréttindafélags Íslands, um nýliðið kynjaþing, norræna kvennasamstöðu og stöðuna á kvennasamstöðunni.
Um helgina hélt Kvenréttindafélag Íslands kynjaþing í sjöunda skipti. Í ár var þingið haldið í Fjölbrautaskólanum við Ármúla og ýmislegt var rætt – meðal annars hin svokallaða anti-gender-hreyfing, vesturnorræn jafnréttisbarátta og þungunarrofslöggjöf í Færeyjum. Samfélagið kíkti við á þinginu á laugardag til að ræða við þau sem þarna voru saman komin, og við heyrum af því í þættinum í dag. Og samkvæmt venju annan hvern mánudag heimsækjum við Þjóðskjalasafn Íslands, þar sem Njörður Sigursson aðstoðarþjóðskjalavörður tekur á móti okkur og segir okkur frá vægast sagt athyglisverðum þýskum ræðismanni á Íslandi árið 1939.
Fimmtudagur 14. nóvember Kosningar, spilling, list, inngilding og fjölmiðlar Í beina útsendingu við Rauða borðið í kvöld koma þau Henry Alexander Henryson, siðfræðingur, Snorri Ásmundsson, myndlistarmaður, Sigurður Haraldsson, rafvirkjameistari og Ása Lind Finnbogadóttir, framhaldsskólakennari og plötusnúður til að ræða málefni líðandi stundar í aðdraganda kosninganna. Í málefnaumræðu um mikilvægustu málefni kosninganna ræðum við um spillingu á Íslandi og þau Guðrún Johnsen, hagfræðingur og deildarforseti Viðskiptadeildar Háskólans á Bifröst, Jón Þórisson, fyrrum aðstoðarmaður Evu Joly, Björn Þorláksson, höfundur og blaðamaður og Auður Önnu Magnúsdóttir, framkvæmdastýra Kvenréttindafélags Íslands ræða um stöðu og umfang spillingarinnar á Íslandi og velta fyrir sér spillingarvörnum, tjáningarfrelsi og ótta í ljósi nýliðinna atburða og annarra eldri. Til að ræða annað mikilvægt mál sem sumir telja að sé tískuorð forréttindahópa en er í raun réttindabarátta upp á líf og dauða koma þau Margrét M. Norðdahl, Þórir Gunnarsson, Elín Sigríður María Ólafsdóttir listafólk hjá Listvinnzlunni. Þau ræða um lokaðar dyr sem fatlaðir einstaklingar og listamenn rekast á og um sína eigin sáru reynslu af jaðarsetningu og útilokun frá skólakerfinu og skora á stjórnvöld og samfélagið allt að taka skref og taka þátt í inngildingu, skapandi starfi og samræðu sem opnar dyr. Við heyrum svo í Skapta Hallgrímssyni ritstjóra á Akureyri sen fer yfir helstu màl norðan heiða, brjàlaða veðurspá og afmæli mikilvægs vefmiðils.
Miðvikudagurinn 16. október 2024 Stjórnmál, samfélagið, klassísk tónlist og landflótti Íslendinga. Við hefjum leik á pólitíkinni og stöðunni sem upp er komin. Við munum kjósa í svartasta skammdeginu eftir nokkrar vikur. Stór hópur fólks hittist í beinni útsendingu og ræðir hvað ber að varast, auk þess sem óskalista kosningamála ber á góma. Þau Jódís Skúladóttir, þingmaður VG, Þórhildur Sunna, þingmaður pírata, Auður Önnu Magnúsdóttir hjá Kvenréttindafélaginu, Henry Alexander siðfræðingur, Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur, Sara Óskarsdóttir móðir og listamaður og Ólafur Arnarsson blaðamaður ræða við Björn Þorláks. Að lokinni pólitíkinni kemur Michael Clarke, tónlistarmaður á Akureyri, og ræðir norðlenska tónlistarsögu og stofnun Hljómsveitar Akureyrar. Rúsínan í pylsuendanum er Hlín Agnarsdóttir rithöfundur og leikhúsmanneskja. Hún ræðir alöru þess að hrekjast úr landi, en hnyttnin er aldrei fjarri þegar Hlín er annars vegar.
Mánudagurinn 27. maí Kosningar, snjóflóð, friður, fátækt og kynjaþing Baldur Héðinsson stærðfræðingur segir okkur frá kosningaspá sinni og Þorkell Helgason stærðfræðingur og Þorvaldur Gylfason hagfræðingur segja okkur frá írsku aðferðinni í kosningum, sem meðal annars kemur í veg fyrir að óvinsæll frambjóðandi nái kjöri með takmarkað fylgi. Fjallið það öskrar er heimildarmynd um snjóflóðið á Súðavík. Hafsteinn Númason eftirlaunamaður, Daníel Bjarnason leikstjóri og Aron Guðmundsson meðframleiðandi og höfundur samnefndra útvarpsþátta koma að Rauða borðinu og ræða myndina og hina hryllilegu atburði. Ástþór Magnússon forsetaframbjóðandi ræðir við okkur um frið og stríðsógn og Ásta Lóa Þórsdóttir þingkona um fátækt. Í lokin koma þær Sonja Þorbergsdóttir formaður BSRB, og Tatjana Latinovic formaður Kvenréttindafélagsins og segja okkar frá kynjaþingi og spá í stöðuna á kvenfrelsisbaráttunni.
Það brá mörgum í brún í gær þegar fréttir voru sagðar af rannsóknum á fiskiolíum á borð við lýsi og omega 3 fitusýrum þar sem sterkar vísbendingar virðast koma fram um að fiskiolía eða lýsi geti beinlínis verið óhollt. Þvert á það sem okkur hefur verið kennt um - kannski ekki aldir - en býsna lengi. Samkvæmt þessum rannsóknum eykur neysla á bætiefnum á borð við lýsi sem innihalda omega 3, líkurnar á gáttatifi og heilablóðföllum hjá vissum hópi fólks. Við ræðum þetta við Þórhall Inga Halldórsson, prófessor í matvæla- og næringarfræði við HÍ. Á morgun stendur Kvenréttindafélag Íslands fyrir Kynjaþingi í Fjölbrautaskólanum við Ármúla. Þetta er lýðræðislegur og feminískur vettvangur sem félagið skapar fyrir almenning, félagasamtök og hópa sem vinna að jafnréttismálum í víðum skilningi - og það er í mörg horn að líta. Við ræðum áherslur í jafnréttisbaráttunni og dagskrá þingsins við Auði Önnu Magnúsdóttur, framkvæmdastýru Kvenréttindafélags Íslands. Við heyrum eina málfarsmínútu og svo kemur Vera Illugadóttir til okkar í dýraspjall - um albatrosaömmuna Visku. Tónlist: FLEETWOOD MAC - Dreams. ELLEN KRISTJÁNSDÓTTIR OG ÞORSTEINN EINARSSON - Hluthafi í heiminum.
Þingkosningar í haust, Jón Gnarr forsetaframbjóðandi og skortur á samkennd íslenskra grunnskólabarna verður til umræðu við Rauða borðið á Samstöðinni í kvöld, mánudaginn 08. apríl. Brynjar Níelsson, Sjálfstæðisflokki og Jóhann Pál Jóhannsson, þingmaður Samfylkingarinnar takast á um stöðuna í ríkisstjórninni og þingmál fram undan. Auður Önnu Magnúsdóttir tekur þátt í umræðunni en hún er framkvæmdastýra Kvenréttindafélagsins, fyrrum Landverndarkona. Ómar Örn Magnússon skólastjóri Hagaskóla kemur og ræðir mælingar sem staðfesta minni samkennd meðal íslenskra nemenda í grunnskólum en hjá öðrum nemendum á hinum Norðurlöndunum. Hvað veldur? Undir lok þáttarins ræðir Gunnar Smári ítarlega við Jón Gnarr, leikara rithöfund og forsetaframbjóðanda. Jón segir framboð Katrínar Jakobsdóttur orka tvímælis.
Þórarinn Eyfjörð, formaður Sameykis, var gestur þáttarins í dag. Rætt var um kjaramálin vítt og breitt og ástand og horfur í samfélaginu. 130 ár eru í dag frá stofnun Hins íslenska kvenfélags. Af því tilefni kom Erla Hulda Halldórsson, prófessor í sagnfræði við HÍ, og ræddi um upphaf jafnréttisbaráttunnar og helstu baráttumálin fyrstu árin. Styttan af séra Friðriki var í vikunni færð af stallinum í miðborg Reykjavíkur og sett í geymslu. Anna María Bogadóttir, arkitekt og menningarfræðingur, ræddi um styttur vítt og breitt. Umsjón í dag Björn Þór og Eyrún. Tónlist: Esjan - Bríet, Bara að hann hangi þurr - Hljómsv. Ingimars Eydal, Í Reykjavíkurborg - Kristjana Stefánsdóttir, Mack the knife - Bobby Darin.
16.000 Evrópubúar létust vegna mikils hita í fyrra. Íbúar álfunnar þurfa búa sig undir fleiri hættulegar hitabylgjur. Þetta kemur fram í nýrri loftslagsskýrslu. Anna Hulda Ólafsdóttir, skrifstofustjóri loftslagsþjónustu og aðlögunar hjá Veðurstofu Íslands, segir stjórnvöld víða um heim ekki gera nóg. Karitas M. Bjarkadóttir sagði frá og ræddi við Önnu Huldu. Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfis- orku og loftslagsráðherra segir ekki hafa komið til tals að hann skipti um ráðuneyti. Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir ræddi við Guðlaug. Guðrún Hafsteinsdóttir varð í dag níunda manneskjan til að taka við embætti dómsmálaráðherra eftir hrun. Brynjólfur Þór Guðmundsson sagði frá. Formaður Félags heyrnarlausa á Íslandi segir að heyrnarskert börn fái ekki þá þjónustu sem þau þurfi vegna þess ástands sem nú ríki hjá Heyrnar- og talmeinastöðinni. Benedikt Sigurðsson ræddi við Heiðdísi Dögg Eiríksdóttur, í gegnum túlk. Lítill kafbátur sem notaður er til þess að skoða flak skemmtiferðaskipsins Titanic finnst hvergi. Stúlka sem fann 14 ára gamalt flöskuskeyti í Sprite-plastflösku í Breiðafirði í gærkvöld, leitar sendandans. Þeir sem reiknuðu með snöggum viðsnúningi í Úkraínustríðinu þegar úkraínski herinn hóf gagnsókn sína hafa þurft að draga töluvert úr björtustu væntingum sínum. Rússneski andstæðingurinn var greinilega vel undirbúinn. Jón Björgvinsson fréttaritari RÚV er í Zaporizhzhia þar sem hörðusta bardagarnir geisa. Jón ræddi við Yuriy Malashko héraðsstjóra, Maxim herlækni og hermennina Volodymyr og Vitali. Kvenréttindadagurinn er í dag og þess minnst að konur eldri en fertugar fengu flestar kosningarétt þann 19. júní 1915. Á aðalfundur European Womens Lobby, regnhlífasamtökum kvennréttindasamtaka í Evrópu var tekist á um réttindi trans kvenna. Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir, ráðgjafi Kvenréttindafélagsins á fundinum. Hún segir fámennan en háværan hóp afvegaleiða umræðuna og draga athyglina frá öðrum mikilvægum málum. Ragnhildur Thorlacius ræddi við Brynhildi. Það er eins og heyrnarskertir á Íslandi séu afgangsstærð - þetta sé ekki nógu mikil fötlun til að veita þjónustu, segir Kristján Sverrisson forstjóri Heyrnar- og talmeinastöðvarinnar. Fleiri en eitt þúsund bíða eftir að komast að í heyrnarmælingu, ráðgjöf og val á heyrnartækjum. Biðin gæti tekið um tvö ár ef ekkert verður að gert. Benedikt Sigurðsson fréttamaður talaði við Kristján. Umsjónarmaður Spegilsins var Ragnhildur Thorlacius, tæknimaður Jón Þór Helgasson, Margrét Júlía Ingimarsdóttir stjórnaði fréttaútsendingu.

Tatjana Latinovic var endurkjörin formaður Kvenréttindafélags Íslands á aðalfundi félagsins í síðustu viku. Fundurinn sendi einnig frá sér tvær ályktanir með hvatningu til stjórnvalda. Annars vegar um að kynjafræði skuli vera skyldufag í kennaramenntun á Íslandi og hins vegar áskorun til íslenskra stjórnvalda að sýna femíníska og pólitíska forystu og ábyrgð gagnvart mannréttindabrotum á konum. Tatjana kom i þáttinn og fræddi okkur meira um þessar tvær ályktanir. Á föstudaginn, 31.mars, stendur Krabbameinsfélagið fyrir málþingi sem ber yfirskriftina Ekki humma fram af þér heilsuna. Meðal þeirra sem taka til máls eru Sigríður Gunnarsdóttir forstöðumaður rannsókna- og skráningaseturs Krabbameinsfélagsins sem mun segja frá niðurstöðu könnunar á reynslu þeirra sem greindust með krabbamein á árunum 2015-1019 af greiningar- og meðferðarferlinu. Þorri Snæbjörnsson, sálfræðingur og teymisstjóri hjá ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins talar einnig á málþinginu, erindi hans ber titilinn: Ástæður þess að karlmenn humma fram af sér heilsuna. Sigríður og Þorri komu í þáttinn í dag. Við fengum svo póstkort frá Magnúsi R. Einarssyni í dag og í korti dagsins sagði hann spítalasögu, sögu Charité spítalans í Berlín sem er sagður einn sá besti í Evrópu. Magnús kynnti sér spítalann af eigin raun á dögunum og meðan hann dvaldi á Charité þá hugsaði hann meðal annars um dans, en almenn dansiðkun hefur snarminnkað í hinum vestræna heimi. Dansstaðir eru varla til lengur, diskótekin horfin úr flestum borgum og dansiðkun, ein af frumþörfum mannsins, fer hverfandi. Hvers vegna og hvað kom í staðinn? Tónlist í þættinum í dag Sjaddi Mollo / South River Band (Ólafur Þórðarson og Magnús R. Einarsson) Ástarorð / Ragga Gröndal (Ragga Gröndal) Mississippi / The Cactus Blossoms (Torrey) Quinteto Fuga / El Cambá UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Spegillinn 27. janúar 2023 Umsjón: Ásgeir Tómasson Tæknimaður: Mark Eldred Stjórn útsendingar: Valgerður Þorsteinsdóttir Fimm hafa verið ákærðir fyrir líkamsmeiðingar af gáleysi vegna fjögurra barna sem slösuðust í hoppukastala á Akureyri fyrir átján mánuðum. Forseti bæjarstjórnar á Akureyri er meðal sakborninga, samkvæmt heimildum fréttastofu Ríkisútvarpsins. Ólöf Rún Erlendsdóttir sagði frá. Starfsgreinasambandið bættist síðdegis í hóp þeirra félaga sem gagnrýna ákvörðun ríkissáttasemjara að leggja fram miðlunartillögu í deilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins. Fyrr í dag sendu BHM, BSRB og Kennarasambandið út yfirlýsingu þess efnis. Kristján Þórður Snæbjarnarson, forseti Alþýðusambands Íslands, hefur áhyggjur af fordæminu sem fylgir ákvörðun ríkissáttasemjara. Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands, hefur áhyggjur af því hvaða áhrif miðlunartillagan hefur á komandi kjaraviðræður kennara. Andri Yrkill Valsson tók saman. Evrópusambandið framlengdi í dag viðskiptarefsingar sínar gagnvart Rússlandi um sex mánuði til viðbótar. Refsingarnar ná allt aftur til ársins 2014, þegar Rússar innlimuðu Krímskaga. Jóhanna Sigurðardóttir, sem var heiðruð af Kvenréttindafélagi Íslands í dag, segir baráttuna ganga of hægt þó hún sé bjartsýn fyrir hönd unga fólksins. Kvenréttindafélag Íslands fagnaði 116 ára afmæli sínu í Iðnó í dag og heiðraði þrjár félagskonur fyrir framlag sitt til kvenréttinda og femínískrar baráttu jafnt hér á landi sem og á heimsvísu, þær Esther Guðmundsdóttur, Kristínu Ástgeirsdóttur og Jóhönnu. Hafdís Helga Helgadóttir talaði við hana. Alþjóðalögreglan Interpol lýsir eftir singapúrskri konu á sextugsaldri sem var dæmd fyrir prófsvindl í borgríkinu. Hún var dæmd ásamt þremur öðrum konum sem allar sitja inni vegna málsins. Róbert Jóhannsson tók saman. Breytingar á alþjóðasamningi um verndun votlendis farfugla sem Ísland er aðili að felur medal annars i sér að banna skuli veidar a gragæsum. Bændur eru uggandi yfir þessu, enda gæsir ekki sérlega velkomnar á túnum og ökrum. Bjarni Rúnarsson sagði frá og talaði við Sigurð Á Þráinsson sérfræðing hjá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu. Forsætisráðherra Svíþjóðar segir stöðu Svía í öryggis- og alþjóðamálum þá alvarlegustu frá síðari heimsstyrjöldinni. Kári Gylfason sagði frá. Eldri borgurum fjölgar víða um heim. Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna samþykkti árið 2020 að lýsa árin 2021 til '30 áratug heilbrigðrar öldrunar. Ásgeir Tómasson sagði frá.

Dagbjört Jónsdóttir lögfræðingur hefur síðastliðin ár verið að þróa og hanna bók fyrir fólk sem vill halda utan um fjármálin sín með skipulögðum hætti. Í hverjum mánuði eru áskoranir til að takast á við, sem hún segir að geri verkefnið enn skemmtilegra. Bókin heitir Fundið fé - njóttu ferðalagsins og hugsun Dagbjartar með bókinni er að fá lesendur með sér í fjárhagslegt ferðalag þar sem það fær yfirsýn yfir fjármál sín á einungis fimm mínútum á dag. Dagbjört sagði okkur betur frá í þættinum í dag. Sunnudaginn 27. janúar 1907 komu saman nokkrar konur að Þingholtsstræti 18 í Reykjavík, heimili Bríetar Bjarnhéðinsdóttur. Tilgangurinn var að ræða stofnun félags sem gengist fyrir ýmsum breytingum á löggjöf landsins sem snerti konur og börn og framkvæmd laganna, eða eins og segir í 2. gr. fyrstu laga félagsins: Að starfa að því að íslenskar konur fái fullt stjórnmálajafnrétti á við karlmenn, kosningarétt, kjörgengi svo og rétt til embætta og atvinnu með sömu skilyrðum og þeir. Kvenréttindafélag Íslands fagnar 116 ára afmæli sínu með formlegum hætti á föstudaginn og við ræddum við framkvæmdastýru félagsins Rut Einarsdóttur af því tilefni í dag. Elín Björk Jónasdóttir veðurfræðingur kom svo til okkar í dag í okkar vikulega veðurspjall. Í dag ræddi hún meðal annars við okkur um gömlu vindorðin; golu, kalda, stinningskalda, rok, storm, og fleiri. Tónlist í þættinum í dag: Litla músin / Jóhann Helgason (Jóhann Helgason) Ride up / Kristin Asbjörnssen (höf. ókunnur) When I stop dreaming / Don Henley og Dolly Parton (Charles Louvin og Ira Louvin) Dægurfluga / Brimkló (Björgvin Halldórsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Þessi þáttur er í áskrift. Skráið ykkur á patreon.com/heimsendir fyrir fullan aðgang að öllum þáttum!Kvenréttindi, hinsegin og kynsegin fólk, rasismi og menningarnám. Er þriðja stærsta hagkerfi heims eins framarlega í woke-menningu eins og það er í kapítalisma? Það er spurning dagsins.
Ferðalangar um Flugstöð Leifs Eiríkssonar undanfarið hafa tekið eftir hálftómum hillum í Fríhöfninni og segja starfsmenn þar að páskatraffíkin hafi verið slík að birgðir hafi einfaldlega klárast. Við heyrðum í Gunnhildi Erlu Vilbergsdóttur deildarstjóra verslunar- og veitinga hjá ISAVIA. Menntasjóður Mæðrastyrksnefndar veitir menntunarstyrki til tekjulágra kvenna. Þær Anna Pétursdóttir formaður Mæðrastyrksnefndar og Ásta Kristmannsdóttir, fyrrum styrkþegi úr sjóðnum, fræddu okkur um sjóðinn og hverju hann hefur komið til leiða. Flestum sérfræðingum á sviði orkumála hefur borið saman um að til að af orkuskiptum geti orðið þurfi að virkja meira. Bjarni Bjarnason forstjóri Orkuveitunnar segir það hins vegar ekki réttlætanlegt því of lítið vatn hafi verið að fá undanfarin ár. Hann fullyrðir jafnframt að ekki þurfi að virkja meira vegna orkuskipta. Bjarni fór yfir málið. BSRB hefur ráðist í rannsókn á stöðu leikskólamála, en samtökin hafa lengi gert þá kröfu að ríki og sveitarfélög grípi til aðgerða svo öllum börnum verði tryggð leikskólapláss að loknu fæðingarorlofi og segja að umönnunarbilið hafi neikvæð áhrif á jafnrétti. Sonja Þorbergsdóttir, formaður BSRB, kom til okkar og ræddi helstu niðurstöður rannsóknarinnar. Lög um afplánun samfélagsþjónustu í stað fangelsisvistar voru rýmkuð í heimsfaraldrinum og nú er svo komið að á bilinu 250 til 280 manns sinna samfélagsþjónustu hverju sinni, hér á landi, í stað þess að sitja af sér dóm í fangelsum landsins sem rúma mun færri. En hvað er fólkið að gera í samfélagsþjónustunni og hvernig hefur verkefnið gengið? Við ræddum málin við Brynju Rós Bjarnadóttur sérfræðing hjá Fangelsismálastofnun. Gærdagurinn var spennuþrunginn í Bandaríkjunum þegar gögnum úr Hæstarétti landsins var lekið þar sem fram komu áform um að snúa við merkum dómi, Roe gegn Wade, sem markaði tímamót í réttindum kvenna til að fara í þungunarrof þegar hann féll árið 1973. Evrópskir leiðtogar og mannréttindasamtök brugðust m.a. ókvæða við tíðindunum í gær, þar á meðal Kvenréttindafélag Íslands sem ályktaði gegn mögulegri niðurstöðu Hæstaréttar Bandaríkjanna. Við ræddum við Brynhildi Heiðar- Ómarsdóttur, sérfræðing hjá Kvenréttindafélaginu, og Sigrúnu Gísladóttur lögmann sem lærði lögfræði í Harvard skóla í Bandaríkjunum. Tónlist: Júníus Meyvant. Ellen Kristjánsdóttir og John Grant - Veldu stjörnu. Halli Reynis - Vinátta. Sigga, Beta, Elín - Með hækkandi sól. Post Malone - Only wanna be with you. Klassart - Gamli grafreiturinn. 10.000 Maniacs - Whats the matter here? Lenny Kravitz - Low.

Heimskviður halda í dag til Afganistan og Frakklands. Talibanar skerða nú réttindi kvenna í Afganistan með reglulegum lagabreytingum, þvert á loforð um hið gagnsstæða þegar þeir náðu aftur völdum í landinu í ágúst í fyrra. Stúlknaskólum hefur verið lokað og konur mega ekki lengur ferðast með flugvélum án þess að hafa karlkyns ættingja með í ferð. Þróunin er einmitt í þær áttir sem mörg óttuðust, að kvenréttindi yrðu fótum troðin á nýjan leik kæmust Talibanar aftur til valda í Afganistan. Þegar Emannuel Jean-Michel Fréderic Macron tók við embætti Frakklandsforseta í maí 2017, var hann yngsti forsetinn í sögu lýðveldisins, aðeins 39 ára gamall. Hann kom eins og stormsveipur inn í franska pólitík, en það hefur gengið á ýmsu á forsetatíð hans. Nýverið tilkynnti Macron að hann sæktist eftir endurkjöri, en fyrri umferð forsetakosninganna fer fram á sunnudaginn eftir viku. Macron þykir eiga sigurinn næsta vísan - en vika er langur tími í pólitík og nýtt hneykslismál tengt forsetanum er í uppsiglingu - mál sem gæti haft alvarlegar afleiðingar fyrir Macron. Við ræðum við Torfa Túliníus, prófessor við Háskóla Íslands, um kosningarnar sem eru framundan. Heimskviður er fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi. Ritstjórar og umsjónarmenn þáttarins eru Birta Björnsdóttir og Guðmundur Björn Þorbjörnsson.

Föstudagsgestur þáttarins í þetta sinn var Rut Einarsdóttir, ný framkvæmdastýra Kvenréttindafélags Íslands. Hún hefur átt vægast sagt áhugaverðan feril, en hún fór í háskóla í Japan og lærði viðskiptafræði og japönsku. Svo hefur hún ferðast víða um heim, til fjölda landa í Asíu, Afríku og Evrópu þar sem hún hefur sótt ráðstefnur, unnið að margvíslegum verkefnum, tengdum loftslagsmálum, sorphirðu, réttindabaráttu ýmiskonar, friðarmálum og borgaralega vitund. Hún hafði verið í stjórn Kvenréttindafélagsins í tvö ár áður en hún gerðist núna framkvæmdastýra félagsins. Það var um nóg að tala við Rut í þættinum í dag. Í matarspjalli dagsins fengum við Albert Eiríksson, besta vin besta vinar bragðlaukanna. Hann hefur undanfarna viku verið að deila uppskriftum að úkraínskum réttum á facebook og á síðunni sinni www.alberteldar.is. Við fengum að vita hvaða matur og réttir eru þekktastir frá Úkraínu og hvaðan hann fékk uppskriftirnar í matarspjallinu í dag. UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG SIGURLAUG MARGRÉT JÓNASDÓTTIR

Rafn M. Jónsson, verkefnisstjóri áfengis- og vímuvarna hjá embætti landlæknis, segir að áfengisneysla Íslendinga hafa aukist á undanförnum árum og sé mjög mikil meðal ungra karlmanna. Konur hafa einnig sótt í sig veðrið og drykkja þeirra aukist. Aftur á móti reykja Íslendingar sáralítið. Sigrún Davíðsdóttir fjallaði í Lundúnaspjalli um óvænta afsögn Cressidu Dick úr embætti lögreglustjóra í Lundúnum í síðustu viku og aðkomu breskra stjórnvalda að tilraunum til að slaka á spennunni á landamærum Rússlands og Úkraínu. Tatjana Latinovic formaður Kvenréttindafélagsins og Hólmfríður Garðarsdóttir hjúkrunarfræðingur og ljósmóðir sem starfað hefur sem sendifulltrúi Rauða krossins sögðu frá reynslu sinni í mannúðarstörfum á alþjóðavettvangi. Tónlist: Sandy - John Travolta Með þér - Ragnheiður Gröndal Hoppsabomm (á skíðum skemmti ég mér) - Helena og hljómsveit Ingimars Evening of love - Etta James. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Guðrún Hálfdánardóttir.

Undanfarnar vikur hafa deilur um kyrkingar og kynfræðslu klofið feministarhreyfinguna á íslandi. Hlédís Maren Guðmundsdóttir fjallar um hugmyndfræðilegar deilur og kvenréttindi í Lest dagsins. Við fjöllum um kanadíska klifrararann Marc-André Leclerc sem er viðfangsefni heimildarmyndarinnar The Alpinist. Á unga aldri skrifaði þessi hófsama hetja nafn sitt á spjöld klifursögunnar, en hann stundaði það að klífa þverhnípta tinda án nokkurrar tryggingar eða öryggisbúnaðar. Margrét Rún Rúnarsdóttir segir frá þessari rómantísku hetju og harmrænum örlögum hennar. Þórður Ingi Jónsson hefur verið að kynna sér það nýjasta í kínverskri jaðarmenningu. Hann hitti kínverska myndlsitarmanninn, Tianzhuo Chen að máli og ræddi við hann um kínverska framúrstefnu og partý á tímum kóvid.

Flest allir landsmenn eru með hugann við talningar, það er að segja atkvæðatalningar, sem hafa verið aðalatriði frétta síðustu daga. Eitt sem við hér í samfélaginu höfum komist að er að það er kúnst að telja. Þess vegna reyna kosningastjórnir að fá til þess verks sérhæft fólk, sem kann á pappír, er með næma fingurgóma og góðan heila. Við fræðumst hér á eftir um besta talningafólkið. Þórir Haraldsson er formaður yfirkjörstjórnar í suðurkjördæmi. Við ætlum svo að tala við Tatiönu Latinovic, formann Kvenréttindafélags Íslands en það góða félag sendi frá sér ályktun í gær vegna endurtalningar á atkvæðum í Alþingiskosningunum, sem leiddi til þess að konum fækkaði um þrjár frá fyrri talningu og konur voru ekki lengur meirihluti þingmanna. Vonbrigði, segir Kvenréttindafélagið og ítrekar kröfu um að flokkarnir tryggi jöfn kynjahlutföll. Við sáum fréttir af því í gær að verð á hlutabréfum hefði hækkað verulega í Kauphöllinni eftir að hafa lækkað nokkuð dagana á undan. Kosningaskjálfti er hugtakið sem notað var til að skýra þessar sveiflur. Björn Berg Gunnarsson deildarstjóri greiningar og fræðslu Íslandsbanka ræðir þetta við okkur. Merkasti jarð- og náttúrufræðingur sem Íslendingar hafa átt lést fyrir 100 árum síðan. Þetta var Þorvaldur Thoroddsen, sem ferðaðist um land allt rannsakaði það og skrifaði um uppgötvanir sínar - í lok þáttar fáum við Snæbjörn Guðmundsson jarðfræðing á Náttúruminjasafninu til okkar.

Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Hildur Fjóla Antonsdóttir réttarfélagsfræðingur um Metoo og ofbeldismál en hún segir brotaþola í kynferðisofbeldismálum vitni í eigin málum. Teitur Guðmundsson læknir og Logi Einarsson formaður Samfylkingarinnar um öldrunarþjónustu en Teitur segir að uppsagnir munu á engan hátt koma niður á ummönun og þjónustu. Albert Jónsson sérfræðingur í alþjóðamálum um aðgerðir Kína í alþjóðlegu samhengi en svo virðist sem þessi öld muni einkennast af samkeppni Kína og Bandaríkjanna. Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir framkvæmdastýra Kvenréttindafélags Íslands um kvenréttindamál en hún segir að staða kvenna sé betri hér en alls staðar annars staðar í heiminum.
Fram og til baka 19.júní 2021 8.05 - 12.20 Umsjón Felix Bergsson Lag dagsins - tengt baráttudegi kvenna 19. Júní Systir - Todmobile frá 2015 Fimman - Ólafur Ásgeirsson - fimm borgir Bordoux Bologna Berlín New York Seyðisfjörður símtal - Jódís Skúladóttir lögfræðingur í Fellabæ á Egilsstöðum Hvað gerðist á deginum? Viðtal - Rakel Adolfsdóttir - Fagstjóri kvennasögusafns Símtal eftir 11.00 - María Pálsdóttir leikkona

Helga Lára Þorsteinsdóttir, safnstýra RÚV: kemur með upptöku úr safni: ?Maddama, kerling fröken frú? er þáttur sem fluttur var á kvenréttindadaginn 19.júní 1969. Flutt var hljóðbrot í flutningi Guðfinnu Ragnarsdóttur jarðfræðings. Eyjólfur Guðnason, rektor Háskólans á Akueyri: um árlega ráðstefnu norðurslóða sem sett var á laugardag og stendur yfir fram á þriðjudag. Jón Guðnason, dósent við verkfræðideild Háskólans í Reykjavík og forstöðumaður Mál- og raddtæknistofu HR: vísindamaður vikunnar um máltækni og stafrænt umhverfi íslenskunnar.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið upplýsti héraðssaksóknara um það þegar börn Þorsteins Más Baldvinssonar keyptu stóran hlut í Samherja í nóvember í fyrra. Þetta kemur fram í svari við fyrirspurn fréttastofu. Hlé var gert á samningafundi hjúkrunarfræðinga og ríkisins á sjötta tímanum í dag. Haldið verður áfram klukkan hálftíu á morgun og reynt til þrautar að ná samningum áður en verkfall hjúkrunarfræðinga hefst á mánudag. Þá var fundað í kjaradeilu flugfreyja og Icelandair í dag. Barnaverndarnefnd Reykjavíkur hefur ekki áður fengið jafnmargar tilkynningar í einum mánuði og hún fékk í maí. Drög að skýrslu Capacent um veika stjórnsýslu loftslagsmála eru ekki áfellisdómur heldur leiðarljós, segir Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfisráðherra. Kvenréttindadagurinn er í dag og þess minnst að 19. júní 1915 fengu íslenskar konur, 40 ára og eldri, kosningarétt og kjörgengi til Alþingis. Sextíu ár eru í dag frá fyrstu Keflavíkurgöngunni. Starfsmaður BYKO í Kópavogi segir ómögulegt að giska á hve margir sólpallar hafa verið smíðaðir úr öllu því timbri sem selst hefur undanfarið. Salan sé mun meiri en undanfarin ár Drög að skýrslu um stjórnsýslu loftslagsmála eru ekki áfellisdómur heldur leiðarljós. Þetta er mat umhverfisráðherra. Þegar hafi verið brugðist við hluta gagnrýninnar í drögunum. Loftslagsráð bað Capacent að vinna skýrsluna en ráðherra pantaði hana. Í stuttu máli lýtur gagnrýnin að því að stjórnsýsla í loftslagsmálum sé veik og óskilvirk, ábyrgðarskipting óljós og það skorti samræmda heildarsýn. Þá liggi ekki fyrir hvernig Ísland hyggst standa við markmið Parísarsamkomulagsins og loforð um kolefnishlutleysi fyrir árið 2040. Arnhildur Hálfdánardóttir ræddi við Guðmund Inga Guðbrandsson. Sáttafundur í kjaradeilu hjúkrunarfræðinga og stóð yfir í allan dag. Hlé var gert á fundi á sjötta tímanum og áfram verður fundað í fyrramálið. Samningamenn voru tregir til að tjá sig en að það sé gert hlé á fundi þýðir að menn eru tilbúnir að halda áfram að ræða saman áður en verkfall hjúkrunarfræðinga hefst á mánudag. Krafa þeirra er að grunnlaun hækki um 25% á samningstímanum. Ef tekið er tillit til hækkunar sem gert var ráð fyrir í kjarasamningi sem var felldur og er í samræmi við lífkjarasamningi þýðir þessi krafa að farið er fram á um 10 prósenta hækkun launa umfram lífskjarasamninginn. Ríkið getur ekki fallist á það. Það geti sprengt forsendur annara samninga. Arnar Páll Hauksson talar við Aðalstein Leifsson ríkissáttasemjara. Arnhildur Hálfdánardóttir talar við Öldu Margréti Hauksdóttur Tæpur þriðjungur l

Vísindafélag Íslands stendur fyrir málþingi á morgun í Þjóðminjasafninu um opinn aðgang að rannsóknarniðurstöðum. Opinn aðgangur (e. open access) er þekkt hugtak í umræðunni um rannsóknir og birtingar fræða- og vísindafólks og snýst um óheftan aðgang almennings, nemenda háskóla og fræða- og vísindafólks um allan heim að rannsóknarniðurstöðum sem unnar hafa verið fyrir almannafé. Sara Stef. Hildardóttir, frummælandi og forstöðukona bókasafns og upplýsingaþjónustu Háskólans í Reykjavík og Eyjólfur Ingi Ásgeirsson, fundarstjóri og dósent við Tækni- og verkfræðideild HR komu í þáttinn. Barnaþing verður haldið helgina 21 og 22.nóv í Hörpu. Þar munu 170 börn koma saman á þjóðfundi en börnin voru valin af handahófi af öllu landinu til að ræða það sem skiptir börn mestu máli. Þingið verður hápunktur afmælisárs barnasáttmálans en í ár eru 30 ár liðin frá því hann var samþykktur af Sameinuðu þjóðunum. Verkefnið tilheyrir umboðsmanni barna, Salvöru Nordal en hún kom í þáttinn og sagði nánar frá. Opinn fundur ofbeldisvarnarnefndar Reykjavíkurborgar, fjölmenningarráðs Reykjavíkurborgar, ASÍ, W.O.M.E.N., Kvenréttindafélagsins og Kvennaathvarfisins var haldinn í Veröld, húsi Vigdísar, á þriðjudag. Þar var fjallað um innflytjendakonur og ofbeldi frá ýmsum hliðum. Sabine Leskopf, borgarfulltrúi og formaður fjölmenningarráðs Reykjavíkurborgar kom í þáttinn og fræddi okkur um það sem þar kom fram. UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Hvað veldur því að kvikmyndagerðarmenn, meira að segja þeir sem búa hinum megin á hnettinum, líta til Vestfjarðakjálkans í leit að erki-þorpinu, þorpinu sem heldur fólki föngnu í klóm örvæntingar? Er skýringarinnar ef til vill að leita í þeirri mynd sem íslenskir kvikmyndagerðarmenn hafa dregið upp af íslenskum þorpum í gegnum tíðina? Hvernig hafa sveit, þorp, bæir og borg(ir) birst á hvíta tjaldinu og hvaða breytingum hefur birtingarmynd slíkra byggða hefur tekið í gegnum tíðina. Brynhildur Þórarinsdóttir rithöfundur á Akureyri staldrar við þorpið sem sögusvið í verkefni sem hún nefnir: Sami gamli þorparinn. Brynhildur kom í þáttinn. Kynjaþing 2019 fór fram á laugardaginn í Norræna húsinu. Á þinginu komu saman félög og fólk sem starfa að jafnrétti, kvenréttindum, hinsegin réttindum, mannréttindum og stjórnmálum. Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir, framkvæmdastýra Kvenréttindafélags Íslands og Sigrún Bragadóttir hannyrðapönkari komu í þáttinn og sögðu frá því sem þar fór fram. Lesandi vikunnar í þetta sinn var Björn Halldórsson rithöfundur og bóksali. Við fengum að vita hvaða bækur eru á náttborðinu hjá honum, hvað hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft áhrif á hann í gegnum tíðina. UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Edda Elísabet Magnúsdóttir sjávarlíffræðingur: Merkisskepnurnar mjaldrar, óvenjulegt sköpulag, hljóðin, samskipti við aðra mjaldra og merkilegur fituhnúður á höfðinu sem mjaldrarnir geta breytt löguninni á. Anna Filbert björgunarsveitarkona: Hálendisvaktin hefur hafið starfsemi í ár. Guðrún Línberg Guðjónsdóttir: Málfarsmínútan - Kvenréttindadagurinn. Edda Olgudóttir: Vísindaspjallið - nóbelsverðlaunahafinn Barbara McClintock.
Brynhildur Heiðardóttir Ómarsdóttir, framkvæmdastýra Kvenréttindafélags Íslands, og Sigurbjörg Erla Egilsdóttir, oddviti Pírata í Kópavogi, ræða við Oktavíu Hrund um áhrif kvenréttindadaga á jafnrétti.
Í tilefni dagsins litu þær Brynhildur Heiðardóttir Ómarsdóttir framkvæmdastýra Kvenréttindafélags Íslands og Sigurbjörg Erla Egilsdóttir oddiviti Pírata í Kópavogi í heimsókn. Umsjón Oktavía Hrund Jónsdóttir.
Í tilefni dagsins litu þær Brynhildur Heiðardóttir Ómarsdóttir framkvæmdastýra Kvenréttindafélags Íslands og Sigurbjörg Erla Egilsdóttir oddvita Pírata í Kópavogi, í heimsókn. Þær ræddu við Oktavíu Hrund um áhrif kvennréttindadaga á jafnrétti.
Í tilefni dagsins litu þær Brynhildur Heiðardóttir Ómarsdóttir framkvæmdastýra Kvenréttindafélags Íslands og Sigurbjörg Erla Egilsdóttir oddiviti Pírata í Kópavogi, í heimsókn. Þær ræddu við Oktavíu Hrund um áhrif kvennréttindadaga á jafnrétti.
Helstu fótboltafélög heims eru rekin eins og stórfyrirtæki og tekjur þeirra hafa aukist umtalsvert á umliðnum árum. Greinileg fylgni er á milli peninga og árangurs. Þórður Snær Júliusson, ritstjóri Kjarnans, fjallaði um peninga og fótbolta í spjalli um efnahag og samfélag. Í Berlínarspjalli sagði Arthúr Björgvin Bollason m.a. frá "loftbrúnni" til Berlínar en þess var minnst um síðustu helgi að þá voru 70 ár frá því að henni lauk. Með loftbrúnni er átt við flutning Bandaríkjamanna á mat og öðrum nauðsynjum til Berlínar eftir að Sovétmenn höfðu lokað landleiðinni til borgarinnar. Arthúr Björgvin sagði líka frá endalausri hrakfallasögu nýja flugvallarins við Berlín en enn hefur frestast að taka hann í gagnið. Tatjana Latinovic er nýkjörin formaður Kvenréttindafélags Íslands. Tatjana er Serbi frá Króatíu og hefur búið á Íslandi í 25 ár. Hún hefur tekið virkan þátt í íslensku samfélagi síðustu ár og m.a. setið í Innflytjendaráði, Jafnréttisráði og stjórn Samtaka um kvennaathvarf. Tónlist: Dream a Little Dream of Me - Doris Day Molitvita - Marja Serifivic
Gestir Lestarklefans eru Borgar Magnason tónlistarmaður, Fríða Rós Valdimarsdóttir formaður Kvenréttindasambands Íslands og Kristína Aðalsteinsdóttir starfsmaður Berg Contemporary gallerísins. Þau velta fyrir sér sýningu íslenska dansflokksins: Um hvað syngjum við, myndlistarsýningunni Beirút í Listasafni Íslands og ræða einnig stuttskífuna Sorry með hljómsveitinni Bagdad Brothers. Umsjón hefur Guðni Tómasson

Ragnheiður Kristjánsdóttir , Erla Hulda Halldórsdóttir, Þorgerður Þorvaldsdóttir og Eyja Margrét Brynjarsdóttir: Þær voru allar fyrirlesarar á málþinginu „Minna hot í ár“. Stjórnmálaorðræða á Íslandi, annó 2018, á vegum Rannsóknastofnunar í jafnréttisfræðum við Háskóla Íslands og Kvenréttindafélags Íslands . Pétur Halldórsson form. Ungra umhverfissina: Rætt við Pétur þar sem hann er staddur á loftslagsráðstefnuSÞ í Póllandi. Ungt fólk lætur til sín heyra með ýmsum hætti þar. Gísli Matthías Auðunsson matreiðslumeistari: Um þátt hans í "Óhófi" , átaki gegn matarsóun
Við erum með hugann við kvenréttindi á kvenréttindadaginn. Við tölum við konur, heyrum af konum og minnumst kvenna sem rutt hafa brautina, með einum eða öðrum hætti. Myndasöguhöfundurinn Elín Edda Þorsteinsdóttir, hefur sent frá sér nýja bók sem fjallar um Glingurfuglinn, þar kemur minni og gleymska við sögu og líka konur, þó það sé ekki augljóst svona við fyrstu sýn. Elín Edda verður gestur okkar seinna í þættinum. Bók vikunnar er Samastaður í tilverunni eftir Málfríði Einarsdóttur, en við heyrum upplestur Steinunnar Sigurðardóttur úr bókinni frá árinu 1989. Og íslenskar konur söðla um, bæði lifandi og liðnar, en Guðrún Ósvífursdóttir vaknaði til lífs í framhaldsleikriti sem flutt hefur verið í breska ríkisútvarpinu að undaförnu. Bogi Ágústsson tók saman pistil um efnið, en lesarar auk hans eru Sigurlaug Jónasdóttir, Einar Örn Jónsson, Ísgerður Gunnarsdóttir og Ragnhildur Thorlacius. Catherine Westling er líka gestur þáttarins, en hún flytur í dag einleik um sænskar súffragettur í Kvennaheimilinu Hallveigarstöðum, Föregångerskan / Þær sem mörkuðu brautina. Við ræðum við hana um kvennabaráttuna þá og nú. Við heyrum einnig brot úr þættinum Maddama kerling fröken frú, í umsjón Ástu B. Thoroddsen, Ásdísar Skúladóttur og Guðfinnu Ragnarsdóttur, en þátturinn var sendur var út á Kvenréttindadaginn árið 1969. Umsjónarmaður: Halla Þórlaug Óskarsdóttir
Reykvíkingar dagsins í dag ljá Reykvíkingum frá árinu 1918 rödd sína og lesa valda texta frá því ári. Í þessum þætti les Þóra Björk Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri Safnaráðs úr fundargerð Kvenréttindafélagsins frá 11. mars 1918 en undir hana skrifa Bríet Bjarnhéðinsdóttir og Guðfinna Gísladóttir. R1918 er samstarfsverkefni Listahátíðar í Reykjavík, Landsbókasafnsins og RÚV. Textavinna: Landsbókasafn Íslands-Háskólabókasafn og Bjarni Jónsson.