Leikfangavélin er hlaðvarp sem hóf göngu sína haustið 2019 og er í umsjón Atla Hergeirssonar. Tónlist, tónlistarfólk, hljómsveitir, umfjallanir og viðtöl, íslenskt og erlent. Fróðleikur, skemmtun og afþreying. Bara að það sé tónlist (með örfáum undantekningum þó). Finnið Leikfangavélina einnig á Facebook og smellið endilega í eins og eitt "like". Get bonus content on Patreon See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.
Ósungin lög eða instrumental er málefni Jónsmessu hinnar þrettándu. Í þættinum komum við afar víða við, allt frá tölvupoppi í gegnum kvikmyndatónlist og klassískt rokk en þó með dassi af heiðarlegum metal og jafnvel trommusólóum, ásamt mun fleiru til. Þátturinn er hið minnsta svo sannarlega út um hvippinn og hvappinn að þessu sinni. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Í þessari tólftu Jónsmessu í Leikfangavélinni kemur Jón Agnar með rafdúettinn Boards of Canada að borðinu. Í raun er voða lítið vitað um þennan skoska dúet svona heilt yfir, en það sem þó er vitað veit sennilegast einmitt Jón Agnar einna best. Ljóst er að hér er um að ræða afar furðulegt band en því er þó alls ekki að neita að það er verulega áhugavert engu að síður, já og svo ekki sé talað um aðdáendahóp þeirra. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Jónsmessa númer 11. Það var í Jónsmessu þeirri sjöttu sem kom Jón Agnar með Skóglápið og nú er nokkurs konar framhald af þeim þætti. Við kíkjum saman á tónlistarstefnu sem hlaut heitið Draumapopp, eða „Dream pop“. Stefnan á ættir sínar að rekja til Bretlandseyja eins og svo margar aðrar, og eru þau furðumörg böndin sem hafa framið þessa tegund af tónlist. Við heyrum nokkur vel valin tóndæmi í þættinum, þætti sem varð óvart eiginlega líka framhald af síðasta þætti, þegar við tókum fyrir valdar kvenraddir, það eru nefnilega stelpurnar sem eru nokkuð fyrirferðamiklar í dag líkt og síðast. Njótið vel munið auðvitað eftir stjörnugjöfinni og umsögnum ásamt auðvitað Facebook síðu Leikfangavélarinnar. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Söngkonur eða kvenraddir er það sem Jón Agnar mætti með í Jónsmessu númer 10. Þær eru margar söngkonurnar sem við tökum fyrir í þættinum og allar eiga þær það sameiginlegt að hafa frábæra söngrödd og allar hafa þær hrifið okkur á einhverjum tímapunkti í lífinu. Við erum ekki að tala hér um eiginlega upptalningu á bestu söngkonum veraldar, heldur meira svona það sem þáttastjórnendur "fíla". Í þættinum förum við Jón því um víðan völlinn og erum eiginlega út og suður allan tímann. Það voru reyndar ansi margar söngkonur eftir á listanum hjá okkur þegar tíminn rann út, en skilaboðunum var sennilegast komið alla leið til skila. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Í Jónsmessu hinni níundu nördum við svolítið. Svolítið mikið, og kominn tími til. Við fórum nefnilega núna í einkasafnið og fundum til vel valin dæmi af framúrskarandi bassaleik, bassahljóðum, bassadrunum, bassaleikurum og svo framvegis. Jón Agnar kom skemmtilega á óvart þegar hann tilkynnti þema þáttarins sem er að þessu sinni einfaldlega bassi. Ó það sem bassinn getur gert fyrir eitt stykki lag. Við heyrum fullt af tóndæmum í þættinum og heyrum einnig sögur á bakvið nokkur vel valin lög. Góða skemmtun gott fólk, takk fyrir að hlusta og ekki gleyma stjörnugjöfinni þar sem þú hlustar á Leikfangavélina. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Það er komið að áttundu Jónsmessu. Í þetta skiptið tökum við "óskaþátt" fyrir hlustanda sem hafði samband og hreinlega bað um þennan þátt. Við ætlum að taka fyrir frábæran lagahöfund og hreint út sagt æðislega söngkonu. Það hafa flestir heyrt lögin hennar hvort sem viðkomandi veit af því eða ekki. Afköstin hennar hafa verið ótrúleg í gegnum tíðina, eða síðustu 60 ár eða svo. Við erum að tala um hina einu sönnu Carole King. Í þættinum förum við Jón Agnar yfir lífshlaup hennar og feril. Við skoðum alla þessa slagara! Allar þessar melódíur. Alla hittarana sem og lög sem ekki fóru eins hátt! Af nægu er að taka, svo mikið er víst þegar kemur að Carole King. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Frábær lög sem ekki völdust til að vera smáskífur. Oft blasir það hreinlega við hvaða lög eru líkleg til vinsælda af væntanlegum breiðskífum og valið þar af leiðandi borðleggjandi. En margoft fá stórkostlega góð lög ekki útgáfu á smáskífu eða hið minnsta ekki fyrr en um seint og síðar meir. Í þessum fyrsta þætti af annarri þáttaröð Jónsmessu förum við yfir vel valin dæmi og veltum því fyrir okkur hvers vegna þau lög urðu ekki smáskífa? Við förum um víðan völlinn í þessum þætti sem fyrr, allt frá hugljúfum tónum og upp í argasta þungarokk, og svo auðvitað allt þar á milli. Ekki gleyma að gefa þáttunum stjörnur og/eða skrifa við þá ykkar hugleiðingar eða athugasemdir hvort sem um er að ræða á t.d Spotify eða á Facebook síðu Leikfangavélarinnar. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Í þessum þætti ætlum við að kíkja á nokkuð sérstaka tónlistarstefnu sem kallast Shoegaze eða Skógláp. Það hafa ekki allir verið sammála um það í gegnum tíðina hvort það sé niðrandi nafn eða ekki á þessa stefnu, en eitt er víst að um er að ræða réttnefni. Ekki urðu öll böndin sem stunduðu skógláp þó neitt gríðarlega stór eða fræg en það eru alltaf einhverjar undantekningar. Í Jónsmessu númer 6 kynnum við okkur Skóglápið betur og rýnum í nokkrar slíkar hljómsveitir, og allt er þetta í boði Budweiser Budvar (0,0%). Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Í Jónsmessu #5 kemur Jón Agnar að borðinu með ansi skemmtilegt málefni sem gaman er að velta sér upp úr, enda er víða komið við í þættinum. Við erum að tala um hljómsveitir sem náðu ekki almennilegu flugi þrátt fyrir að hafa samt í rauninni nóg fram að færa. Einhver gæði sem urðu til þess að margir héldu að flugið yrði hærra en úr varð. Bönd sem kannski sigldu undir radarinn að mestu? Fyrir því geta verið ótal ástæður og þær hljómsveitir sem við kíkjum á urðu auðvitað misstórar, bara náðu einhvern veginn ekki að springa almennilega út. Rangir aðilar á röngum stað á röngum tíma? Já, stundum. En dauðsföll, áhugaleysi, óheppni og margt fleira kemur einnig við sögu þegar við félagarnir kíkjum á nokkur valin dæmi og heyrum sögurnar þar á bakvið. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Coverlög, tökulög eða ábreiður. Lög eftir aðra. Er eitthvað sem jafnast á við orginalinn? Eða taka honum jafnvel fram? Eða er frummyndin ávallt best? Hér görfum við í beðinu fram og aftur í þessari fjórðu Jónsmessu og sláum jafnvel fram umdeildum skoðunum. Mörg góð lög hafa verið flutt enn betur með öðrum en þeim sem flutti þau fyrst. Þá hafa mörg verri lög einmitt orðið mun betri í annarra höndum. En svo eru það lögin sem voru þegar slæm en urðu jafnvel enn verri þegar aðrir tóku þau fyrir. Hér er hið minnsta af nægu er að taka og komu því mun færri lög að en "vildu". Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Frank Sinatra - Röddin, Bláskjár gamli. Stjórnarformaðurinn. Í ár eru 25 ár síðan hann lést og sífellt minna heyrist frá þessum líkast til mesta skemmtikrafti 20. aldarinnar, þegar mið er tekið af langvinnum tónlistarferli hans og vel heppnuðum frama í kvikmyndum meðfram tónlistinni, en m.a hlaut hann tvenn óskarsverðlaun! Það má segja að herra Sinatra hafi stýrt þessu öllu með sínum hætti um tíma, og jafnvel með hjálp manna sem ekki kölluðu allt ömmu sína (eða svo segir sagan hið minnsta). En hver var Frank Sinatra? Hvaðan koma hann og hver er hans saga? Á tónlistin hans afturkvæmt einn daginn? Kemst hann aftur í móð einhvern tímann? Jón Agnar er einn af fremstu aðdáendum Frank Sinatra hér á landi og saman veltum við þessu öllu fyrir okkur og fleiru til í þessari þriðju Jónsmessu í Leikfangavélinni. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Hliðarspor út frá þekktum hljómsveitum er þekkt fyrirbæri. Fullt af frægum böndum hafa getið af sér hliðarverkefni sem hafa verið afskaplega forvitnileg í gegnum tíðina. Mörg hafa þessi „spin-offs“ náð allt frá litlum árangri og upp í framúrskarandi árangur. Í þessari annarri Jónsmessu kíkjum við á nokkur slík dæmi og komum ansi víða við líkt og áður. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Það er gott að breyta til. Við hefjum því þennan fimmta árgang Leikfangavélarinnar á nýjum lið sem við skulum kalla "Jónsmessu". Ég fékk til liðs við mig Jón Agnar Ólason tónlistarspekúlant með meiru og saman förum við í þessari fyrstu Jónsmessu í gegnum næntís áratuginn og hvað hann hafði að geyma. Jón lagði áhersluna á gleymd 90's bönd á meðan ég tók fyrir nokkra valda einsmellunga úr ýmsum áttum frá sama tíma. Það má segja að næntísið hafi verið áratugurinn þar sem rokkið varð „mainstream“. Margt af því sem kom þá fram er enn í gildi, annað hefur fallið í gleymsku þrátt fyrir vinsældir og/eða gæði. Sumt er þess virði að grafa upp, en annað má moka yfir á ný. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Eftir kærkomið og gott frí störtum við nú Leikfangavélinni að nýju. Það er komið heilt ár síðan ég fékk til mín viðmælanda hingað í þáttinn og því fannst mér svo sannarlega tími til kominn að bjóða velkominn aldeilis hreint frábæran gest. Alexander Örn Númason er fæddur þann 20. Nóvember árið 1993 og er uppalinn í Hafnarfirði. Hann er með betri bassaleikurum landsins og spilar með einni stærstu rokksveit Íslands, og hefur gert svo núna í rétt 10 ár, hljómsveitinni frábæru The Vintage Caravan. Hann lifir draum margra íslenskra ungmenna en passar þó ávallt vel upp á að sökkva ekki ofan í rokkstjörnu lífernið fræga. Alexander kom í heimsókn í Leikfangavélina og saman áttum við skemmtilegt og fræðandi "bassaspjall". Get bonus content on Patreon See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.
Í þættinum heyrum við afar áhugaverða sögu Manic Street Preachers. Pönkband sem stofnað var í Wales árið 1986 en þróaðist síðar meir í allt aðra átt. Samt er og hefur ávallt verið afar stutt í pönkið í þeim. James Dean Bradfield, Sean Morris og Nicky Wire skipa sveitina í dag en allir eru þeir stofnmeðlimir bandsins. Þeir tóku þó inn fjórða manninn um árið og er þeirri sögu gerð sérstök skil í þættinum, enda einkar áhugaverð frásögn þar á ferð. Manic Street Preachers, eða The Manics, búa yfir ótrúlegri breidd í sínu lagasafni. M.a Pönk, Grunge, Popp og Metall. Það eru þó auðvitað ekki öll lögin þeirra góð, en í þessu safni má samt heyra með betri lögum úr hinni Bresku rokksögu, en einnig eru þar lög sem erfitt er að þola. Og ef þú þolir þau, þá verða börnin þín jafnvel næst. Þannig að passið ykkur. En hvort sem þú ert aðdáandi The Manics eða ekki, þá hvet ég þig til að hlusta á þáttinn. Það er alls ekki ósennilegt að Manic Street Preachers verði nýja uppáhalds hljómsveitin þín. Get bonus content on Patreon See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.
Þegar Írska hljómsveitin The Cranberries var stofnuð árið 1989 hét hún reyndar The Cranberry saw us. Hlutirnir fóru þó ekki að gerast fyrir alvöru fyrr en söngvari þeirra hætti og sveitin fann söngkonuna Dolores O´Riordan til að koma í hans stað. Hæfileikar hennar við lagasmíðar og hvað þá söng urðu til þess að bandið sló í gegn snemma á tíunda áratug síðustu aldar og voru The Cranberries á tímabili ein allra stærsta rokksveit heims. En frægð og frami getur líka tekið sinn toll. Við kynnumst hinni stórkostlegu Dolores O´Riordan "The Queen of Limerick" sem og öðrum í The Cranberries í þessum þætti og stiklum á stóru yfir farsælan feril þessa frábæra bands, allt þar til yfir lauk. Get bonus content on Patreon See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.
Ef Nirvana og U2 eignuðust barn? Hljómsveitina Placebo þarf vart að kynna fyrir mörgum enda eru þeir fyrir löngu búnir að sanna sig sem ein fremsta rokkhljómsveit okkar tíma. Forsprakki þessarar sveitar er afar hæfileikaríkur tónlistarmaður og með einstaka rödd. Svo er hann framúrskarandi lagahöfundur líka. Hann heitir Brian Molko og hér förum við yfir sögu hans og hljómsveitarinnar Placebo sem hann stofnaði seint á síðustu öld. Hljómsveit sem reis til frægðar afar snögglega, heldur betur. Rokk & ról og svo fullt af Íslands-tengingum í þessum þætti. Get bonus content on Patreon See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.
Hljómsveitin KENT var ein skærasta vonarstjarna Svíþjóðar seint á síðustu öld. Í þessum þætti af Leikfangavélinni kíkjum við á upprisu, fall og loks dauða einnar vinsælustu rokkhljómsveitar Svíþjóðar. KENT var stofnuð árið 1990 og náðu þeir hápunkti frægðar sinnar á alþjóðlegum markaði á árunum 1998-1999. En hvað gerðist svo fyrir þetta frábæra band sem virtist svo sannarlega eiga framtíðina fyrir sér á heimsvísu? Og hver er baksaga bandsins? Allt um það í þessum þætti. Saga KENT í Leikfangavélinni í þetta sinn. Get bonus content on Patreon See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.
Dimebag Darrell (fæddur Darrell Lance Abbott) var gítarleikari hinnar goðsagnakenndu trash metal hljómsveitar PANTERA allt frá stofnun þeirra og þar til yfir lauk. Dimebag sem hefði orðið 55 ára í ágúst 2021, hlaut skelfilegan dauðdaga í desember árið 2004 og kenna margir endalokum Pantera þarna ári fyrr, um það hvernig fór fyrir honum, m.a bróðir hans, hann Vinnie Paul Abbott, trommari Pantera. Við skoðum málið nánar í þættinum og fáum innsýn í líf og feril Pantera en með áhersluna á Dimebag Darrell. Afar athygliverð saga sem sögð er í þessum 37. þætti af Leikfangavélinni. Get bonus content on Patreon See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.
Roland Gift er án vafa einn af bestu og vinsælustu söngvurum níunda áratugarins enda söngrödd hans einstök sem hrífur flesta með sér. Sem söngvari hljómsveitarinnar Fine Young Cannibals náði hann toppi sínum eftir útgáfu plötu þeirra The Raw And The Cooked árið 1989. Roland Gift er 60 ára í dag (28.maí 2021) og hér förum við yfir feril hans sem og hinnar mögnuðu sveitar Fine Young Cannibals, feril sem varði þó allt of stutt í raun. Get bonus content on Patreon See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.
Mark Knopfler er einn af betri gítarleikurum heims ásamt því að vera frábær laga og textahöfundur. Hann var frontmaður hinnar mögnuðu hljómsveitar Dire Straits sem hann stofnaði ásamt bróður sínum og fleirum árið 1977, og allt þar til bandið pakkaði saman árið 1995. Saga Mark Knopfler og Dire Straits í þessum þætti Leikfangavélarinnar. Get bonus content on Patreon See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.
Hann er atvinnumaður í hlaðvarpsgerð og er sem slíkur m.a helmingurinn af hinum vinsælu Draugum fortíðar. En hann er líka afburða tónlistarmaður og hefur þar komið víða við. T.d Skálmöld, Ljótu hálfvitarnir, Dætrasynir, Innvortis, Morðingjarnir o.fl. Þá er hann einn af stofnendum Leikhópsins Lottu. Baldur Ragnarsson er fæddur á Húsavík og hér förum við yfir hans líf og feril í frábærum og líflegum þætti. Get bonus content on Patreon See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.
Gestur þessa þáttar af Leikfangavélinni gefur í raun ekki oft færi á sér í viðtal sem þetta, en hann gaf sig loks eftir rúmlega árs viðreynslu. Hann er vatnsgreiddur með sólgleraugu, í leðurjakka og kragann uppi, enda er hann forsprakki einnar svölustu hljómsveitar sem Ísland hefur alið af sér. Þar erum við að tala um „pönka-billy“ sveitina Langa Sela & Skugganna. Þeir félagar slógu í gegn árið 1988 með laginu „Breiðholtsbúggí“ en árið 1990 kom svo fyrsta breiðskífan þeirra út, hin magnaða plata „Rottur & Kettir“. Hér fer sjálfur Langi Seli (Axel Hallkell) yfir þessa plötu í frábæru spjalli okkar sem teygði svo anga sína mun víðar. Get bonus content on Patreon See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.
KK kom eins og stormsveipur inn í íslenskt tónlistarlíf þegar platan Lucky One kom úr árið 1991. Þessi fyrsta plata hans lagði svo sannarlega grunninn að glæsilegum tónlistarferli hans sem ekki sér fyrir endan á enn þann dag í dag, sem betur fer. Ári síðar, eða 1992 kom svo út platan Bein Leið sem er plata þessa þáttar. KK mætti í stúdíó Leikfangavélarinnar einn morgun í febrúar 2021 og við hlustuðum saman á plötuna, ræddum hana og komum víða við. Sannkölluð gæða stund með KK. Get bonus content on Patreon See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.
Ray Manzarek var arkitektinn að hljómi The Doors. Framúrstefnuleg og dáleiðandi spilamennska hans á hljómborðið þar sem hann blandaði saman rokki, djass, blús, klassík og fjölda annarra stíla var einstök. Þannig varð til einhver ævintýralegur hljómur sem ekki hafði heyrst áður, eitthvað alveg nýtt og töfrandi. Ray kynntist Jim Morrison í kvikmyndanámi í UCLA skólanum og í sameiningu stofnuðu þeir The Doors og í sameiningu lögðu þeir heiminn að fótum sér ásamt þeim John Densemore og Robby Krieger. En með Jim Morrison um borð var þetta ekki allt dans á rósum, síður en svo. Saga The Doors í Leikfangavélinni í síðasta þætti ársins, en með áherslu á hinn einstaka Ray Manzerek. Get bonus content on Patreon See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.
Eric Carr (fæddur Paul Charles Caravello) tók við af Peter Criss sem trommuleikari KISS árið 1980. The Fox 1950 - 1991. Get bonus content on Patreon See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.
Í miðri þriðju bylgju COVID faraldursins er lítið um gestagang í vélarúmi Leikfangavélarinnar. Þessi þáttur er því „sóló“ þar sem við kynnum okkur Bandarísku sveitina STATIC-X og þá sérstaklega söngvara þeirra, sjálfan Wayne Static. STATIC-X sem sendu frá sér frumburð sinn, hina stórgóðu plötu Wisconsin Death Trip árið 1999 gáfu út sína sjöundu breiðskífu sumarið 2020. Það er meira að segja von á þeirri áttundu líka sem er í raun stórmerkilegt..... „út af dottlu“. Frábært band sem við gerum góð skil ásamt fullt af tónlist í bland. Metall og fyrsta flokks iðnaðarrokk úr Leikfangavélinni í þetta skiptið. Get bonus content on Patreon See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.
Bassaleikarinn Jakob Smári Magnússon á að baki ótrúlegan feril. Eftir að hafa verið meðlimur í böndum eins og Tappa Tíkarrass, Das Kapital, MX-21, Stríð & Friður, Grafík, SSSól, Egó, Reiðmenn vindanna og mun fleirum fékk hann tækifærið sem hann, líkt og flestir aðrir tónlistarmenn, þráði alltaf. Það var þegar John Grant tók hann með á túr þar sem hann spilaði með honum á stórum tónleikum hér og þar um heiminn. En allt byrjaði þetta í raun með Tappa Tíkarrass. Hér hlustum við Jakob saman á frumburð þeirrar sveitar sem ber heitið „Bitið fast í vitið“ frá árinu 1982 og komum víða við á ferli þessa magnaða tónlistarmanns. Bassaskáldið í Leikfangavélinni í þetta skiptið. Get bonus content on Patreon See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.
Hafnarfjarðarsveitin Botnleðja var stofnuð með það að markmiði að vinna Músíktilraunir árið 1995 sem gekk svo eftir. Að launum fengu þeir nokkra tíma í hljóðveri þar sem þeir tóku upp sína fyrstu skífu, Drullumall. Átján mánuðum síðar voru þeir komnir á tónleikaferð um Bretland ásamt Blur. Halli trommari Botnleðju kíkti í Leikfangavélina og rifjaði upp Drullumallið ásamt öðru frá Botnleðju árunum. Þá kemur Pollapönkið við sögu, Eurovision og reyndar svo margt fleira. Get bonus content on Patreon See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.
Rúnar Þór Pétursson gaf út plötuna Eyðimerkurhálsa til styrktar SÁÁ árið 1988. Hér förum við yfir þessa 10 laga plötu saman lag fyrir lag ásamt því að gera upp líf og feril Rúnars en hann hefur starfað við tónlist allt sitt líf. Skemmtilegt spjall sem fer allt frá því þegar Rúnar sótti Bjarnastaða beljurnar syngjandi 1.12.87 í huganum þá 12 ára, gegnum unglingsárin á Ísafirði, tónlistina, drykkjuna, Bítlana og þar til hann var mættur sjálfur ásamt hljómsveit í Abbey Road hljóðverið. Get bonus content on Patreon See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.
Clifford Lee Burton fæddist árið 1962. Hann varð annar bassaleikari Metallica á eftir Ron McGovney, þegar hann gekk til liðs við bandið í desember 1982. Þá var hann búinn að leika með nokkrum hljómsveitum og fanga athygli þeirra Lars og James fyrir framúrskarandi bassaleik og framkomu á sviði. Mögnuð saga Cliff Burton sem lést aðeins 24 ára er hann var á tónleikaferðalagi um Evrópu árið 1986 með Metallica. 100% rock n´ roll !! Get bonus content on Patreon See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.
Ef þú hefur einhvern tíma heyrt tónlist þá hefur þú hlustað á Carol Kaye. Hún er fædd árið 1935 og hefur verið einn af þeim fremstu bassaleikurum í sögu rokksins í meira en 50 ár. Þetta er bassaleikarinn sem menn hringdu í þegar fara átti í plötuupptökur, bassalínur hennar, grúvið og sándið er engu líkt. Session bassaleikari, "Hired gun". Þvílíkur ferill og ævistarf hjá Carol. The Beach Boys, Elvis Presley, The Doors, Sonny & Cher, Nancy Sinatra, Frank Sinatra, Tina Turner, Joe Cocker og margir fleiri. Ofan á þetta hefur hún meira að segja einnig spilað inn á eina íslenska plötu. Ég fer hér yfir líf og feril Carol Kaye og fæ einnig til mín Jakob Frímann Magnússon mér til aðstoðar. Geggjuð hún Carol. Get bonus content on Patreon See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.
Bruce Kulick tók við gítarnum úr höndum Mark St. John í hljómsveitinni Kiss árið 1984. Því starfi hélt hann í 12 ár eða allt þar til upprunalegu meðlimir bandsins komu saman á ný og skelltu málningunni framan í sig aftur. Bruce og fyrrnefndur Mark eru þeir einu í sögu Kiss sem ekki hafa borið hina frægu andlitsmálningu. Ég hringdi í Bruce og við fórum yfir ýmis mál, allt frá upphafsdögum hans og í gegnum Kiss árin, Michael Bolton, Meatloaf, Íslandsheimsóknirnar hans 1988 & 2014 og fleira til. Goðsögn í rokkheimum í Leikfangavélinni. Get bonus content on Patreon See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.
Sigrún Stella er höfundur og flytjandi vinsælasta lags landsins í dag (þegar þetta er tekið upp í lok mars árið 2020), Sideways. Hún býr í Kanada þar sem hún er reyndar fædd en ólst upp að mestu leyti á Akureyri. Í þessu skemmtilega spjalli við þessa hressu og hæfileikaríku tónlistarkonu förum við yfir líf hennar og feril ásamt því að skoða hvað er framundan. Get bonus content on Patreon See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.
Einar Hrafn Stefánsson er trommuleikari, gítarleikari og bassaleikari ásamt reyndar mörgu öðru. Þá var hann nýlega ráðinn sem markaðsstjóri Íslenska Dansflokksins en er auk þess í tveimur af vinsælustu hljómsveitum landsins, þeim VÖK og HATARA. Með þeim síðarnefndu vakti hann mikla athygli þegar þeir félagar kepptu fyrir Íslands hönd í lokakeppni Eurovision í Ísrael árið 2019. Hver man ekki eftir því? Hér skyggnumst við á bakvið tjöldin og skoðum upphafið að þessu öllu saman allt frá æskuárum Einars til dagsins í dag. Allt samkvæmt áætlun í Leikfangavélinni. Get bonus content on Patreon See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.
Kvikmyndagerðamennirnir Örn Marinó Arnarson og Þorkell Harðarson sem saman mynda tvíeykið Markelsbræður eru gestir þáttarins. Þeir eru mennirnir sem gerðu hina vinsælu og bráðfyndnu gamanmynd „Síðasta veiðiferðin“. Við skyggnumst á bakvið tjöldin við gerð hennar ásamt mun fleiru til en Markelsbræður hafa gert fjölmargar aðrar myndir. Þar má finna sumar afar áhugaverðar heimildamyndir eins og „Lónbúann“, „Trend Beacons“ og hina mögnuðu „Feathered Cocaine“ en við gerð þeirrar síðastnefndu fundu þeir "doltið" sem allir voru að leita að en enginn vildi svo þegar uppi var staðið. Upphafið af samstarfinu þeirra, allar myndirnar og gagnrýnin ásamt ISIS og Al-Qaeda í þessum afar fróðlega þætti. Get bonus content on Patreon See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.
Gestur þáttarins er fæddur í Salvador í Brasilíu þann 16.desember 1980. Hann kom hingað til lands sem skiptinemi árið 1998 og ætlaði sér að stoppa í 1 ár. Síðan þá eru ss liðin öll þessi ár en hann hefur verið hér á Íslandi meira og minna alla tíð síðan. George Leite er ljósmyndari, veitingamaður, sundknattleiksmaður, leikari o.fl. og hér segir hann sína sögu í góðu spjalli okkar þar sem hann fer yfir æskuárin sín í Brasilíu og allt til dagsins í dag. Get bonus content on Patreon See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.
Gestur minn í Leikfangavélinni er meira en nóg í þetta skiptið. Akureyringurinn Alda Karen Hjaltalín fer hér yfir líf sitt og feril í stórskemmtilegum og áhugaverðum þætti. Allt frá knattspyrnuferli hennar í gegnum menntaskólaárin, Ghostlamp og Reykjavíkurdætur til fyrirlestranna vinsælu sem hún heldur í dag og við þekkjum flest sem Life Masterclass. Alda er búsett í New York en gaf sér tíma í heimsókn sinni til landsins að koma í Leikfangavélina. Mæli svo sannarlega með. Get bonus content on Patreon See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.
Nördar og sannar lygasögur, ó já. Og núna ætla ég að freista þess að skoða hvað er hinumegin við móðuna miklu og ná þannig fram ótrúlegri frásögn í bland við svolítinn nörd frá viðmælanda mínum honum Jóni Birki Lúðvíkssyni. Jón Lúðvíks er einn af vinsælustu miðlum landsins en hóf ekki að sinna þessari gáfu sinni fyrr en á fullorðinsaldri þrátt fyrir að vera gæddur henni síðan hann var barn. Við heyrum söguna hans Jóns en hún er þyrnum stráð að hluta þar sem hann reyndi að loka á þetta allt saman með hjálp ýmiskonar vímugjafa á unglingsárunum. Þá reyndi Jón að komast í Bandaríska herinn og lærði þá kvikmyndaáhættuleik í kjölfarið út í Bandaríkjunum. Mögnuð frásögn Jóns sem ég að venju mæli með. Get bonus content on Patreon See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.
Sóley Kristjánsdóttir eða DJ Sóley er algjör nagli sem kallar hreint alls ekki allt ömmu sína. Hún er í þotuliðinu má segja og er með þekktustu plötusnúðum landsins. Hún er fyrrverandi fyrirsæta, sjónvarpskona og útvarpskona svo eitthvað sé nefnt. Hún er nokkuð gömul sál og kann að fara með lengri ljóð en flestir og það á afar faglegan hátt. Hún elskar að vinna í garðinum sínum og hlustar á sinfóníur heima við á milli þess sem hún sinnir fjölskyldu sinni eða hænunum sínum. Sóley er jákvæð, hress og skemmtileg manneskja sem hefur gaman að lífinu sem hefur þó ekki alltaf leikið við hana. Unglingsárin, fyrirsætustörfin hér heima og erlendis, upphaf DJ Sóleyjar, árin í útvarpinu og á Skjá Einum ásamt hestamennskunni, framboðunum, veikindunum sínum og mun fleiru til í þessum skemmilega þætti. Get bonus content on Patreon See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.
Heiðar Aðaldal Jónsson er smitaður af KISS veirunni líkt og reyndar sjálfur þáttastjórnandinn. Heiðar er sveitastrákur að norðan en býr í höfuðborginni þar sem hann lifir sannkölluðum KISS lífstíl. Hann er einn af stofnendum KISS ARMY ICELAND sem er aðdáendaklúbbur hljómsveitarinnar KISS hér á landi. Hann hefur farið á allnokkra tónleika með goðunum ásamt öðrum einstökum eventum þeim tengdum og jafnvel með einhverjum af þeim í för. Þá hefur hann farið á tvær siglingar um Karabíska hafið með bandinu, svokallað KISS KRUISE. Hann var einn af þeim sem flutti inn fyrrverandi KISS gítarleikarann Bruce Kulick um árið þegar sá síðarnefndi tróð upp með MEIK á skemmtistaðnum SPOT í Kópavogi. Hér ræði ég við Heiðar af miklum myndarskap um hljómsveitina KISS og við förum yfir flestar plötur þeirra í góðu spjalli, en hljóðversplöturnar frá þeim eru orðnar alls 20 talsins. KISS nördaskapur af bestu gerð. Get bonus content on Patreon See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.
"Nördar og sannar lygasögur" er það sem við skulum kalla þáttaröð númer 2 af Leikfangavélinni. Fyrstur á svið er Kristinn Sæmundsson, Kiddi Kanína, Kiddi í Hljómalind. Hér talar hann opinskátt um líf sitt og feril. Unglingsárin, Grammið, Hljómalind, Bubbleflies, Sigur Rós, UXI ´95 og mótlætið, endurkoma Utangarðsmanna, árin í Bæjarbíó, Þrastarskógur og svo margt fleira kemur við sögu. Verulega „Gott bít“ í Leikfangavélinni ! Get bonus content on Patreon See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.
Til þess að hjálpa mér við uppgjör þáttanna fékk ég góðan mann með mér sem er jafnframt minn helsti gagnrýnandi. En auðvitað þar sem hann var mættur í studio þá förum við hér einnig yfir feril hans í tónlist, enda tónlistarmaður að norðan, en eins og dyggir hlustendur vita þá fjallaði fyrsta þáttaröðin einmitt um það. Hann er reyndar í dag þekktastur fyrir leikstjóraferil sinn enda okkar fremsti maður þegar kemur að leikstjórastólnum. Þetta er sjálfhverfur þáttur þar sem tónlistarsaga gestar míns er samofinn minni eigin. Gestur minn í þessum þætti er nefnilega einn af mínum betri vinum og var ég því ekkert viss hvort að ég myndi gefa út þáttinn sökum skyldleika ferils okkar í tónlist. En við prófuðum að taka upp þáttinn og útkoman er mjög skemmtileg þannig að mér er óhætt að kynna hér gest lokaþáttar, sjálfan Baldvin Z. Hér förum við yfir feril hans frá því hann stofnaði sína fyrstu hljómsveit og til dagssins í dag. Einnig tökum við að sjálfsögðu aðeins á kvikmyndagerðinni sem á auðvitað hug hans allan í dag. Get bonus content on Patreon See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.
Gestur þáttarins er sjálfur Kristján Ingimarsson látbragðsleikari, trúður, dansari, danshöfundur, leikari, leikskáld, leikstjóri og svo einnig bassaleikari í „Lúnu Skrospýjunni“ ásamt svo „Svörtu Köggunum“ sem var heinræktað töffaraband á sínum tíma frá Akureyri. Hann var stórhuga þegar hann stofnaði sína eigin útvarpsstöð á Akureyri árið 1988 þá aðeins tvítugur, Ólund FM 100,4 sem lifði þó aðeins í nokkra mánuði. Hann féll svo alfarið fyrir leiklistinni stuttu síðar eftir tíma sinn með Freyvangsleikhúsinu og leikhópnum Sögu og var þá loks stolið af danskri snót yfir til Danmerkur þar sem hann hefur að mestu búið síðan 1992 og menntað sig í leiklistinni í þremur mismunandi skólum þar ytra. Hann er einn af þekktustu látbragðsleikurum Danmerkur í dag og hefur sett upp ýmsar leiksýningar sem hafa hlotið gríðarlegt lof. Þar á meðal er hið geggjaða verk BLAM! sem hann hlaut hin virtu dönsku Reumert verðlaun fyrir árið 2012 og kom svo með sýninguna til Íslands ári síðar. Hann var valinn bæjarlistamaður Akureyrar árið 2007 og er vel að því kominn. Svo vígði hann ekki bara Menningarhúsið Hof á Akureyri á sínum tíma heldur tók hann einnig fyrstu skóflustunguna en þó í leyfisleysi. Hér fer Kiddi yfir sína sögu í stórskemmtilegu og áhugaverðu spjalli. Get bonus content on Patreon See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.
Gestur minn þetta sinnið hefur starfað með og svo í Sniglabandinu með einhverjum hléum þó í rúm 30 ár en hann var rekinn úr hljómsveitinni um árið. Diddi fer hér yfir stórkostlega sögu bandsins og hvernig það kom til að hann, þá starfandi sem hljóðmaður þeirra tók við bassanum og hvernig fyrsta giggið hans gekk. Við ræddum för Sniglabandsins til Sovétríkjanna árið 1989 sem stóð yfir í mánuð, innhélt 18 tónleika með mafíuna á hælunum og markaði næstum því endalok bandsins. Þarna rökuðu þeir inn rúbblunum og bjuggu til milljónamæring úr nýjum vini sínum frá Litháen. Hver man svo ekki eftir Sniglabandinu spilandi óskalög í beinni á Rás 2 að ógleymdu hljóðfæri dagsins. Í þessum vinsælu þáttum sem tóku mikið á bandið urðu lög til eins og „Britney“, „Selfoss er“ og „Heim“ sem samið var í minningu Heiðars Jóhannssonar, vinar þeirra sem lést langt fyrir aldur fram af slysförum í júlí 2006. Við ræddum gömlu leikaradrauma hans sem og tímann sem útgáfustjóri íslenskrar tónlistar hjá Skífunni. Þá koma allar „læf“ plötunar við sögu ásamt Rjúpunni, PLAST, Olsen genginu og BéPé svo eitthvað sé nefnt. Get bonus content on Patreon See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.
Við höfðum um það mikið að spjalla við Kalli að þessi tíundi þáttur er rúmlega tvöfaldur að lengd sökum þessa en stútfullur af skemmtun. Kalli hefur gert óskaplega mikið á sínum langa ferli sem hófst fyrir alvöru þegar þeir félagar í Stuðkompaníinu sigraðu Músiktilraunir árið 1987. Áður en Stuðkompaníið lagði landið undir sig framdi Kalli nokkur önnur verkefni eins og Helfró, Zýkkklana og Bandalagið, en eftir Stuðkompaní var það auðvitað Eldfuglinn, Hunang og Trúboðarnir. Kalli var einnig mjög virkur í hinum og þessum söngleikjum ásamt tónleika og –söngsýningum á árum áður. Þetta allt ásamt eftirhermunni, bransasögum, öllum systkinunum og pabba hans, útvarpsmanninum Kalla, afahutverkinu sem er nýtt fyrir honum, jólalaginu fræga og STEF gjöldunum, dassi af Eurovision og Landslagi, teiknimyndunum og nasaþefi hans af kvikmyndabransanum, veiðinni, Grænlandsförinni, David Bowie og öllum þessum 1700 vindstigum ásamt fleiru til. Bónus-track í lokin af því að “okkur langar ekki til að fara sofa” – Upplestur steiktasta blaðaviðtals sögunnar sem tekið var við Stuðkompaníið um Verslunarmannahelgina árið 1986 af Sigurði Ingólfssyni fyrir Dagblaðið Dag. Get bonus content on Patreon See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.
Ingi Tryggva a.k.a Mosi er tónlistarmaður af lífi og sál og hefur hann verið virkur í tónlistinni í rúm 25 ár. Hér fer Ingi yfir sögu sína allt frá því hann var í Peanuts á Akureyri, þá Border sem síðar varð að Flow og í gegnum fyrsta sólóferilinn allt að Mosa Musik og loks einfaldlega Mosa, sem er listamannanafn hans í dag. Hann er menntaður grafískur hönnuður og hannaði m.a umslag plötunnar Neondýrin með 200.000 Naglbítum árið 1998. Þetta allt ásamt mótorsportinu, Airwaves upphafinu, CLUB 13, “Made in Taiwan” og því hvernig hann gaf skít í allt eftir hrunið 2008, hætti í vinnunni og reif utan af sér nokkur lög (layers) til að komast að sínum innri manni og margt fleira til. Að lokum fáum við nasaþefinn af nýjasta verkefni hans sem er nokkuð stórt og verður ansi hreint spennandi að fylgjast með í náinni framtíð. Áhugavert og skemmtilegt spjall við Mosa. Get bonus content on Patreon See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.
Gestur minn að þessu sinni er hinn eini sanni Trausti Heiðar Haraldsson. Hann er eiginlega frumkvöðull norðlenskrar danstónlistar og hefur verið afkastamikill lagahöfundur í gegnum tíðina en hann hefur samið mörg lög sem við þekkjum öll. Trausti hóf ferilinn með því að senda lagið “Til botns” í lagakeppnina Landslagið árið 1992 áður en hann stofnaði danshljómsveitina Fantasíu. Fantasía starfaði svo næstu árin og komst m.a á samning hjá þýska útgáfufyrirtækinu ZYX sem m.a skilaði bandinu á vinsældarlista í Þýskalandi og Portúgal. Árið 1997 mætti segja að hann hafi svo breytt Eurovision keppninni í góðu samstarfi við Pál Óskar Hjálmtýsson þegar þeir félagar fóru til Dublin með framlag okkar íslendinga í keppnina það árið, lagið hans Trausta “Minn hinsti dans” Hann hefur samið fjölda laga í viðbót fyrir Pál Óskar sem mörg hver hafa orðið gríðarlega vinsæl. Trausti samdi lag til konunnar sinnar fyrir brúðkaupið þeirra sem þó síðar varð að feykivinsælu Þjóðhátíðarlagi og þið þekkið öll. Trausti fer hér yfir alla þessa fyrrnefndu hluti ásamt samstarfinu við Filmumenn, Alla feitu kallana (hvar sem þeir nú eru), Stefán Hilmarsson, Jóhönnu Guðrúnu og marga fleiri listamenn sem að ferli hans koma. Get bonus content on Patreon See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.
Gestur Leikfangavélarinnar þessa vikuna er brjálæðislega góður trymbill og enn betri drengur sem hefur heldur betur komið víða við. Þetta er enginn annar en sjálfur Benni Brynleifs, og hér fer hann yfir ferilinn sinn allt frá því hann var ungur drengur í handboltanum hjá KA, í gegnum upphafið í Hann Kafnar, allan jazzinn í hans lífi, 200.000 Naglbíta, dýrmætan vinskapinn við Sjonna Brink og svo Vini Sjonna, Eika Hauks og í raun öll Eurovision árin hans, The Flavors, Mannakorn, Stjórnina, Bó, Todmobile, sjónvarpsvinnuna í beinni og allt hitt sem hann hefur afrekað á sínum frábæra ferli. Einnig fer hann yfir hvað sé framundan og margt, margt fleira sem á daga hans hefur drifið. Skemmtilegt, lifandi og einlægt spjall við einn af okkar fremstu trommuleikurum. Get bonus content on Patreon See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.
Gestur þáttarins að þessu sinni er enginn annar en Rögnvaldur Gáfaði. Einstaklega skemmtilegt spjall við þennan frábæra listamann sem vill þó ekki endilega kalla sig listamann heldur frekar „brasara“.Unglingsárin og upphafið, Zýkkklarnir, Lúna Skrospýjan, Parror, Dægurlagapönksveitin Húfa, LOST, Hún Andar, Hvanndalsbræður, Eurovision þátttakan sem hann var plataður í og mörg önnur tónlistarverkefni koma við sögu ásamt minningum frá uppistandsdögunum. Pinkuponsulitlaplötubúðin, útvarpsferillinn, pólitíkin sem stóð stutt yfir, tíminn í Brighton og auðvitað myndlistin í formi Sebrahesta og Íslensks Brennivíns að ógleymdum Kramer bassanum. Njótið. Get bonus content on Patreon See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.
Við Erna Hrönn Ólafsdóttir settumst niður og ræddum feril hennar hingað til og hvað framundan er. Erna hefur komið víða við á sínum viðburðarríka ferli. Upphafið, Eurovision, hljómsveitirnar, allar bakraddirnar, “Án þín” í teknóútgáfunni, Idolið, táknmálsfræðin, sjónvarpið, brúðkaupið, útvarpsferillinn og margt fleira. Stórskemmtilegt spjall við konuna á bak við tjöldin, þessa frábæru söngkonu, Ernu Hrönn Ólafsdóttur. Get bonus content on Patreon See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.