POPULARITY
Í þætti dagsins heyri ég fyrst í Kristni Kærnested. Við förum ítarlega í Bestu deild karla þegar tíu umferðir eru búnar og síðan förum við í Þjóðadeildina og fréttir af Liverpool. Þóroddur Hjaltalín formaður dómaranefndar KSÍ er síðan á línunni um dómaramál til þessa á Íslandsmótinu. Ég legg margar spurningar fyrir hann og Þóroddur svarar af einlægni eins og ávallt. Því næst heyri ég í Svanhvíti og við tölum um leikinn Ísland-Frakkland í Þjóðadeild kvenna. Tölum síðan um Lengjudeildina og förum síðan í fréttir og slúður í boltanum. Njótið og takk fyrir að hlusta.
Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Valdimar Hafsteinsson framkvæmdastjóri Kjöríss ræddi við okkur um ásakanir um magnskerðingu Fjölnir Sæmundsson formaður Landssambands lögreglumanna ræddi við okkur um njósnamálið Símatími Atli Stefán Yngvason hjá Tæknivarpinu Svava Þórhildur Hjaltalín læsisfræðingur grunnskólakennari og verkefnastjóri kveikjum neistann við Rannsóknarsetur um menntun og hugarfar Benjamín Julian verkefnastjóri verðlagseftirlits ASÍ um hækkun matvöruverðs Sigrún Ósk Kristjánsdóttir fjölmiðlakona og dagskrárgerðarmaður um þættina „Stóra stundin“ sem sýndir eru á Stöð 2 á sunnudögum
Í þætti dagsins heyri ég í Þórhalli Dan og við tölum um Evrópuboltann, Man.Utd. Onana og fleira þar. Þá förum við yfir Bestu deildina en heil umferð er á dagskrá á sunnudag og á mánudag. Tóti spáir í leikina en hann hafði fjóra leiki rétta í fyrstu umferð. Þóroddur Hjaltalín yfirmaður dómaramála hjá KSÍ er á línunni um dómgæsluna í fyrstu umferð og fleira tengt því einsog hvenær kemur VAR. Svanhvít er svo í spjalli um úrslitakeppnina í körfubolta karla og kvenna og þar er af nógu að taka. Við tölum einnig um Mo Salah og enska boltann um helgina og rýnum í daginn í dag. Njótið og takk fyrir að hlusta og takk BK-kjúklingur fyrir að vera með okkur.
Á morgun standa Landssamtökin Þroskahjálp og diplómanám HÍ fyrir málþingi þar sem fatlað fólk er í aðalhlutverki. Yfirskrift málþingsins er „Hvað um okkur?“ Þar verða flutt erindi og svo fer fram óformlegt sófaspjall þar sem fólk með fötlun deilir sinni reynslu úr atvinnulífinu, menntun, aðgengismálum og bara lífinu sjálfu. Það eru hindranir og áskoranir á öllum þessum sviðum og þau sem upplifa þær daglega eru auðvitað best í því að miðla því hverjar þær eru. Hekla Björk Hólmarsdóttir og Jóhanna Brynja Ólafsdóttir komu í þáttinn og sögðu frá sinni reynslu og með þeim kom Anna Lára Steindal framkvæmdastjóri Þroskahjálpar. Fyrirtækið Livefood ehf. var stofnað í nóvember 2019 með það að markmiði að framleiða hágæða íslenska grænkera osta. Livefood festi kaup á iðnaðarhúsnæði í Hveragerði sem hefur aðgengi að jarðvarma þar sem þau rækta mikið af því hráefni sem notað er í þeirra vörur. Kartöfluostar eru sérstaða ostanna, eða ástanna, og þróunarvinna hefur staðið í langan tíma þar sem áherslan var lögð á að geta framleitt plöntuost úr íslensku hráefni. Þessa osta er hægt að rífa, sneiða, smyrja og bræða og við fengum Erlend Eiríksson ástagerðarmeistara og Ingólf Þór Tómasson, viðskiptafélaga hans til að segja okkur allt um þetta ævintýri í þættinum í dag. Tónlist í þættinum í dag: Þú komst við hjartað í mér / Hjaltalín (Toggi, Þorgrímur Haraldsson og Páll Óskar Hjálmtýsson) Samferða / Mannakorn (Magnús Eiríksson Þusund sinnum segðu já / Our Lives og Toggi (Rúnar Þórisson, Rafn Jónsson, Helgi Björnsson og Örn Jónsson, texti Helgi Björnsson) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Í þætti dagsins heyri ég í Þóroddi Hjaltalín yfirmanni dómaramála hjá KSÍ. Við förum yfir lagabreytingar fyrir fótboltann í sumar en Besta deild karla hefst eftir 21 dag ásamt að við tölum um VAR og fleira. Haraldur Hróðmarsson þjálfari Grindavíkur í fótbolta er á línunni og við tölum um evrópuboltann í vikunni og svo ítarlega um fyrsta landsliðshóp Arnars Gunnlaugssonar ásamt fleiru. Svanhvít er svo í spjalli um Bónusdeildina, enska boltann um helgina, spænska boltann og þann ítalska og sitthvað fleira. Njótið helgarinn og takk BK-kjúklingur fyrir að vera með okkur.
Í þætti dagsins heyri ég í Kristni Kærnested og við tölum um Víking í Sambandsdeildinni, Everton-Liverpool, Meistaradeildina, enska boltann og fleira til ásamt einni Krummasögu. Þóroddur Hjaltalín yfirmaður dómaramála hjá KSÍ er á línunni vegna áhersluatriða dómara fyrir komandi leiktíð en þar eru mörg áhugaverð atriði. Einar Jónsson spjallar við mig um Olísdeildina í handbolta, bikarinn og allt sem tengist handboltanum og komum aðeins inná þjóðarhöllina sem ekkert bólar á. Svanhvít er svo í spjalli og við förum í Bónusdeildina í körfubolta, Lengjubikarinn í fótbolta, enska boltann og einnig þýska og ítalska ásamt fleiru. Takk fyrir að hlusta og takk BK-kjúklingur fyrir að vera með okkur.
Í þætti dagsins er nóg um að vera. Þóroddur Hjaltalín yfirmaður dómaramála KSÍ er á línunni og við tölum um VAR á Íslandi. Er VAR á leiðinni á næstu leiktíð? Kristinn Kærnested spjallar við mig um VAR, enska boltann og fleira til. Svanhvít fer yfir gang mála í körfuboltanum hér heima, Subway deildina, þjálfaraskipti, leikmannaskipti og næstu leiki ásamt því að spá í leikina í enska boltanum. Einar Jónsson þjálfari karlaliðs Fram í handbolta ræðir svo við mig um Olísdeildina og næstu leiki, íslenska kvennalandsliðið á EM og stórleikinn gegn Þýskalandi og einnig um Ómar Inga Magnússon og meiðslin sem hann varð fyrir um helgina. Takk fyrir að hlusta og takk BK-kjúklingur.
Gervigreind hefur tekið mikið pláss í umræðunni undanfarið, sérstaklega eftir að opnað var fyrir aðgengi almennings að ýmis konar tólum eins og ChatGPT, þar sem gervigreindinni virðast engin takmörk sett með hvað hún getur skrifað og jafnvel framkvæmt á ógnarhraða. Það er þó bara ein birtingarmynd gervigreindar, hún er í rauninni allt í kringum okkur og ekki er víst að allir viti nákvæmlega hvað hún er. Við erum bara rétt að sjá toppinn af ísjakanum þegar kemur að mögulegri notkun gervigreindar og ýmist er talað um hana sem spennandi þróun með endalausa möguleika eða það er varað við henni og að hún sé misnotuð. Grímur Sæmundsson, verkefnastjóri gagna og gervigreindar hjá Crayon, kom í þáttinn og fræddi okkur um það sem hann kallar gervigreind fyrir venjulegt fólk, sem hann hefur verið að kenna á námskeiði hjá Opna háskólanum í HR. Út er komin bók sem heitir Drottningin í dalnum. Þetta er saga Guðrúnar Margrétar Þorsteinsdóttur, tveggja eiginmanna og sona hennar í Vatnsdal. Saga Guðrúnar Margrétar er um margt merkileg. Foreldrar hennar urðu að láta hana frá sér vegna fátæktar og ómegðar þegar hún var aðeins þriggja ára. Hún eignaðist þrjú börn og varð ekkja í annað sinn 42 ára. Í kjölfarið tókst hún á við það verkefni að kaupa jörðina Haukagil og þar bjó hún með reisn í 26 ár. Hér er um að ræða heimildarrit sem bregður ljósi á hag- og samfélagssögu Íslendinga í tæplega eina og hálfa öld. Eggert Ágúst Sverrisson er höfundur bókarinnar en hann fór í sagnfræðinám eftir að hann hætti að vinna og segir það hafa verið eina af betri ákvörðunum lífs síns. Við spjölluðum við Eggert í dag. Tónlist í þættinum: Þannig týnist tíminn / Ragnar Bjarnason og Lay Low (Bjartmar Guðlaugsson) Þú komst við hjartað í mér / Hjaltalín(Páll Óskar, Sveinbjörn Bjarki Jónsson og Toggi, Þorgrímur Haraldsson) Í hjarta þér / Katrín Halldóra (Jón Múli og Jónas Árnasynir) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Heil og sæl. Í dag spjalla ég við Svanhvíti og Þórodd Hjaltalín. Fótboltinn hér heima, Arnar Grétars, Óskar Hrafn, Mikki og KFA, Besta deild karla, fréttir og slúður og svo dómaramál. Þar sem Þóroddur er spurður um málið með Gunnar Odd dómara í leiknum Þróttur-Fjölnir og fleira tengt dómaramálum. Takk BK-kjúklingur fyrir að vera með okkur
Heil og sæl. Það er nóg um að vera í dag. Ásamt þessu venjulega, Bestu deild karla og kvenna og körfuboltanum og Lengjudeildinni hér heima, þá eru tvö viðtöl. Þóroddur Hjaltalín yfirmaður dómaramála hjá KSÍ er mjög góðu og athyglisverðu spjalli og við hringjum til Grikklands í afmælisbarn dagsins, Björgvin Pál Gústavsson, en Valur leikur á morgun seinni leikinn í úrslitum European Cup í handknattleik. Við förum einnig í fréttir og slúður og alla bikarúrslitaleikina um helgina og spáum í spilin þar. Takk fyrir að hlusta og TAKK BK-kjúklingur, Marpól og Slysalogmenn.is
Velkomin til leiks. Það er aldeilis nóg um að vera í dag. Besta deildin er að fara af stað. Við spáum í spilin fyrir tímabilið og fyrstu umferð auk þess sem yfirmaður dómaramála, Þóroddur Hjaltalín, fer yfir áherslur í dómgæslunni í sumar og varar spurningunni um VAR og fleira. Körfuboltinn er tekinn fyrir, Ísland-Pólland kvenna í fótbolta í EM, Ísland Færeyjar í EM kvenna í handbolta. Nokkrar Krummasögur detta inn hér og þar. Enski boltinn fær að sjálfsögðu sitt pláss og við minnum á BK-Tippleikinn á Facebook síðu þáttarins fyrir leik Víkings og Stjörnunnar. Þetta og sitthvað fleira. Njótið helgarinnar og takk BK-kjúklingur, Marpól og Slysalogmenn.is
Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var söngkonan Sigríður Thorlacius. Flest tókum við líklega fyrst eftir henni í hljómsveitinni Hjaltalín, en ferill hennar er gríðarlega fjölbreyttur. Hún hefur meðal annars sungið í tríóinu GÓSS, með Tómasi R. Einarssyni, Bógómil Font, Heiðurspiltum og Uppáhellingunum bara til að nefna nokkur verkefni. Hún hefur fengið Íslensku tónlistarverðlaunin, bæði sem rödd ársins og söngkona ársins og svona mætti lengi telja. En eins og við gerum alltaf með föstudagsgestinum þá fórum við aftur í tímann með Sigríði, á æskuslóðirnar, heyrðum hvenær söngurinn kom inn í hennar líf og förum svo á handahlaupum í gegnum lífið til dagsins í dag. Svo kom Sigurlaug Margrét auðvitað til okkar í matarspjallið í dag. Í þetta sinn ræddum við um meðlæti, sem sagt kartöflurétti, gulrætur og fleira. Tónlist í þættinum í dag: Kossar án vara / GÓSS (Bubbi Morthens) We Have All the Time in the World / Louis Armstrong (Hal David & John Barry) Everybody's Talkin / Harry Nilson (Fred Neil) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Magnea Tómasdóttir söngkona hefur um árabil helgað sig tónlistarstörfum með eldra fólki og fólki sem er með heilabilunarsjúkdóm. Hún kennir námskeiðið Tónlist og heilabilun og býður upp á tónlistarnámskeið í Seiglunni hjá Alzheimersamtökunum og heldur námskeið hjá Mími fyrir starfsfólk hjúkrunarheimila og aðstandendur heilabilaðra um það hvernig hægt er að nota tónlist í umönnun fólks. Anna Sigríður Þráinsdóttir, málfarsráðunautur Ríkisútvarpsins, kom til okkar í dag og við ræddum við hana um upphrópunarmerkið. Nú á tímum samfélagsmiðla, þar sem fólk skrifar færslur um allt milli himins og jarðar, allt frá því að auglýsa fjáröflun fyrir skólaferð barna sinna til alls þess sem helst brennur á þeim og stærstu hitamála samtímans. Það er mjög áhugavert að skoða mismunandi notkun fólks á upphrópunarmerkinu. Sum nota það óspart, jafnvel mörg í einu, eftir nánast hverja einustu setningu, á meðan önnur nota það talsvert minna og jafnvel ekki. Anna ræddi við okkur um upphrópunarmerkið, merkingu þess, notkun og sögu í þættinum. Við fengum póstkort frá Magnúsi R. Einarssyni í dag. Það hefur verið erfiður tími undanfarið í Eyjum, samgöngur strjálar, ÍBV fallið um deild og veiðibann á lundanum blasir við. Magnús segir frá þessu og æðruleysi eyjaskeggja gagnvart mótlætinu. Hann segir líka frá heimsóknum sínum til Liverpool til að fara á slóðir Bítlanna. Fyrst 1978 og svo aftur 2015. Tónlist í þættinum í dag: Herra Reykjavík / Stuðmenn (Sigurður Bjóla Garðarsson og Valgeir Guðjónsson) Violently Happy / Björk (Björk Guðmundsdóttir & N. Hooper) Þú komst við hjartað í mér / Hjaltalín (Páll Óskar Hjálmtýsson og Toggi) Alelda / Nýdönsk (Daníel Ágúst Haraldsson og Jón Ólafsson) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Á málþingi sem haldið er í tilefni alþjóðadags krabbameinsrannsókna, kl.16:30 í dag í húsi Krabbameinsfélagsins, verður veitt innsýn í mikilvægi krabbameinsrannsókna, þar sem vísindafólk og læknar og fólk sem nýtur ávinnings af framförum í meðferð sinna krabbameina tala á mannamáli um sína reynslu. Í dag fengum við í heimsókn til okkar Valgerði Jakobínu Hjaltalín, sem hefur unnið að fjölmörgum rannsóknum tengdum myndun og meinvörpun æxla þar sem notast er við ávaxtaflugur og við heyrðum einnig í Sigurbirni Árna Arngrímssyni, sem greindist með fjórða stigs sortuæxli fyrir rúmum tveimur árum. Í dag er alþjóðlegur Alzheimerdagur og í tilefni þess halda Alzheimersamtökin ráðstefnu undir heitinu Er mamma bara með heilabilun þrisvar sinnum í viku? - Úrræði og þjónusta fyrir fólk með heilabilun á landsvísu. Meðal þeirra sem munu taka til máls á ráðstefnunni eru systurnar Dagný Björg Gunnarsdóttir og Hera Kristín Óðinsdóttir sem ætla að segja frá upplifun sinni af því þegar móðir þeirra fékk staðfesta greiningu fyrir Alzheimer og tímanum eftir greiningu. Einnig mun Bergþóra Guðmundsdóttir segja frá reynslu sinni á ráðstefnunni, en hún er líka aðstandandi Alzheimersjúklings. Við ræddum við þær Dagnýju, Heru og Bergþóru í þættinum í dag. Samtökin Landsbyggðin lifi er hreyfing fólks sem vill örva og efla byggð um land allt, bæði í efnahags- og menningarmálum. Samtökin taka þátt í erlendum verkefnum með öðrum jaðarbyggðum, til dæmis í Evrópusambandinu, þar sem þau meðal annars deila reynslu sinni af því að vinna gegn fólksfækkun og glötun menningar í heimabyggð. Framundan er aðalfundur félagsins og málþing á Egilsstöðum og við fengum þær Hildi Þórðardóttur og Sigríði Svavarsdóttur til að segja okkur meira frá samtökunum, aðalfundinum og hvað er á döfinni hjá þeim. Tónlist í þættinum Brúnaljósin brúnu / Páll Óskar Hjálmtýsson ( Jenni Jóns) I?m still standing / Elton John (Elton John & Bernie Taupin) Falling Slowly / The Swell Season (Glen Hansard & Markéta Irglová) Aftur heim til þín / Eyþór Ingi og Lay Low (Baldur Hjörleifsson og Jónína Guðrún Eysteinsdóttir) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GÍGJA HÓLMGEIRSDÓTTIR

Stofnfundur Þróunarfélags Hríseyjar var haldinn í síðustu viku, en þróunarfélaginu er ætlað að vera leiðandi í almennri byggða- og uppbyggingaþróun í Hrísey í samvinnu við íbúa, fyrirtæki og félög í Hrísey ásamt Akureyrarbæ. Við fræddumst nánar um félagið og áform þess í Mannlega þættinum og slógum á þráðinn til Ásrúnar Ýrar Gestsdóttur, verkefnastjóra Áfram Hríseyjar, í þættinum í dag. Við fengum svo vinkil frá Guðjóni Helga Ólafssyni í dag. Í þetta sinn lagði hann vinkilinn að niðursuðudósum og bótúlisma. Svo var það lesandi vikunnar sem var í þetta sinn María Elísabet Bragadóttir rithöfundur. Við fengum að vita hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. María talaði um eftirtaldar bækur: Austan Eden e. John Steinbeck Rúmmálsreikningur I e. Solvej Ball My Body e. Emily Ratajkowski Svo talaði hún um Wuthering Heights e. Emily Bronte, Tove Ditlevsen og ítalska rithöfundinn Nataliu Ginzburg Tónlist í þættinum: Síðan eru liðin mörg ár / Brimkló (Chip Taylor og Þorsteinn Eggertsson) Sjómannavalsinn / Hjaltalín (Svavar Benediktsson og Kristján frá Djúpalæk) Bíldudals grænar baunir / Jolli & Kóla (Valgeir Guðjónsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GÍGJA HÓLMGEIRSDÓTTIR

Í þættinum hljóma allskonar sjómannalög, sem hafa verið hljóðrituð í seinni tíð, flest eru þau endurgerð frá fyrri tíð, en ekki öll. Ragnar Bjarnason syngur Sjómenn og Háseta vantar á bát, Skapti Ólafsson og Sniglabandið flytja lagið Sófasjómaðurinn, Roðlaust og beinlaust flytja Kyrrlátt kvöld við fjörðinn, Hjaltalín flytur Sjómannavalsinn, Ari Jónsson syngur Þú ert vagga mín haf, Magnús Eiríksson og KK flytja lagið Þórður sjóari, Bubbi Morthens syngur Stína, ó, Stína, Björgvin Halldórsson syngur Bátarnir á firðinum, Heiðurspiltar flytja Sjómenn íslenskir erum við og Ljótu hálfvitarnir flytja lagið Sonur hafsins. Umsjón: Jónatan Garðarsson.

Hvað áttu að gera ef þú rekst á mögulegar fornminjar á víðavangi? Það gerist nefnilega frekar reglulega á Íslandi að almenningur gangi fram á fornleifar, þekkt dæmi eru til að mynda rjúpnaskytturnar sem fundu sverð frá víkindaöld og göngufólkið sem fann skrautprýddar líkamsleifar konu frá 10. öld uppi á heiði. Þór Hjaltalín sviðstjóri hjá Minjastofnun Íslands fer yfir þetta með okkur, kemur með ráðleggingar og sögur og ýmsar vangaveltur. Mjaldurinn Hvaldimir, sem hefur verið grunaður um að vera rússneskur njósnahvalur, sást nýlega á sundi við strendur Svíþjóðar. Áður hafði hann sóst eftir félagsskap sjómanna við Noreg. Við vitum ekki hvaðan hann kemur eða hvert hann er að fara blessaður, en hann hefur augljóslega alist upp í haldi manna. Edda Elísabet Magnúsdóttir hvalasérfræðingur og lektor við Háskóla Íslands ætlar að segja okkur frá Hvaldimir, mjöldrum og sjávarspendýrum sem hafa verið í haldi manna. Við fáum málfarsmínútu að hætti hússins og svo kemur Edda Olgudóttir til okkar í vísindaspjall. Hún ætlar að fræða okkur um leiðir til að veita ungum börnum með hnetuofnæmi meðferð. Svokallaða afnæmingu.

Helgi Sigurðsson þjálfari Grindavíkur ræðir komandi átök en spennandi verkefni bíða liðsins á næstunni eftir fína byrjun í Lengjudeildinni. Þorlákur Árnason, þjálfari Þórs ræðir svo sigurinn í bikarnum í gær og það sem er á döfinni hjá Þórsurum. Loks ræðir Þóroddur Hjaltalín, yfirmaður dómaramála hjá KSÍ um þá alvarlegu stöðu að tveimur dómurum hefur verið hótað lífláti á undanförnum dögum. Þátturinn er í boði Netgíró og Slippfélagsins.
In this episode, Chad talks with Olga Castro (Univ. of Warwick), and translators Jacob Rogers (Galician), Mara Faye Lethem (Catalan), Robin Munby (Asturian), and Aritz Branton (Basque) about literatures from the official (and unofficial) languages of Spain, ways in which the regional governments support translation from these languages, the burden of pitching, challenges and joys, books you should know about, and much more. This week's music is "We Will Live for Ages" by Hjaltalín. Things we discussed that you should check out: The Spanish issue of The Riveter; Booktegi, for access to Basque literature; A recording of The Riveter event at the Cervantes Institute. And just like that, the Three Percent Podcast is back! Stay tuned for additional conversations, diatribes, and info about new and forthcoming translations. As such, if you don't already subscribe to the Three Percent Podcast you can find us on iTunes, Stitcher, and other places. Or you can always subscribe by adding our feed directly into your favorite podcast app: http://threepercent.libsyn.com/rss
Welcome to 66 Degrees of Sound, a show by The Reykjavík Grapevine bringing you all the latest music releases in Iceland. The Reykjavík Grapevine is an English language magazine published 18 times a year, focusing on all things Iceland-related. Launched in 2003, the independent magazine has long been a leading voice in Icelandic culture. In this show made for music lovers and Icelandophiles, Grapevine journalists Rex Beckett and Jóhannes Bjarkason discuss and play some of the latest new music releases in Iceland.In this episode, we cover Faroese artist Heiðrik á Heygum and his Björk songbook, 1970s pocket symphony revivalist Hákon Hjaltalín, darkwave enthusiast deep.serene, and make-out metalheads PORT.Join us every Friday for a new episode full of fresh new tunes. Tune in to 101 Útvarp every Thursday at 17:00 for the full events and new music coverage.This show is produced by the Reykjavík Grapevine, in collaboration with 101 Sambandið.Check out grapevine.is for the full magazine coverage and events.grapevine.is for more upcoming events. Instagram: @rvkgrapevine Facebook: The Reykjavík Grapevine Youtube: The Reykjavík Grapevine
Í dag er alþjóðlegur dagur hamingjunnar og við forvitnuðumst af því tilefni um Qigong lífsorkuæfingar sem hafa verið stundaðar í Kína í 5000 ár. Æfingarnar byggja á djúpri öndun, mjúkum og styrkjandi hreyfingum, með heilandi hugleiðslu. Þorvaldur Ingi Jónsson kom í þáttinn í dag, en hann lærði Qigong hjá Gunnari Eyjólfssyni leikara. Það er mánudagur í dag og því fengum við vinkil í dag frá Guðjóni Helga Ólafssyni. Í þetta sinn bar hann vinkilinn upp við bæði magurt og feitt, eins og hann orðar það, og eins kom Vilhjálmur Stefánsson heimskautafari við sögu. Svo var það lesandi vikunnar sem í þetta sinn var Þóra Kolbrá Sigurðardóttir, ritstjóri matarvefs mbl.is. Við fengum að vita hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Þóra sagði frá forritinu Blinkist og talaði um eftirfarandi bækur og höfund: Á vit hins ókunna e. Erlend Haraldsson The 5 A.M. Club e. Robin Sharma Astrid Lindgren, Enyd Blydon og J.K. Rowling Tónlist í þættinum í dag Er hann birtist / Hljómar (Gunnar Þórðarson og Þorsteinn Eggertsson) Sjómannavalsinn / Hjaltalín (Svavar Benediktsson og Kristján frá Djúpalæk) Hvert örstutt spor / Svavar Knútur Kristinsson (Jón Nordal og Halldór Laxness) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Fjallað er um Ernu Hjaltalín fyrstu flugkonu Íslands sem talin er ein merkasta kona íslenskrar flugsögu. Hún var önnur af sínum kynsystrum til að taka einliðaflugpróf, en fyrsta konan til að taka einkaflugmannspróf, atvinnuflugmannspróf og til að fá réttindi loftsiglingafræðings. Skyggnst er í gamlar og takmarkaðar heimildir um Ernu frá uppvaxtarárum hennar á Siglufirði og hennar baráttu lýst í stuttu máli, ásamt því að heyra viðtalsbrot við Ernu úr safni Ríkisútvarpsins. Lesari með umsjónarmanni er María Kristjánsdóttir.
13 dögum eftir að hinn vestræni heimur heldur jól halda Rússar, og flestir Úkraínubúar jól, eða 7. janúar. Ljóðskáldið, blaðakonan og þýðandinn Natasha S fæddist í Rússlandi en hefur verið búsett á Íslandi í 10 ár. Hún hefur vakið athygli fyrir skrif sín, en hún hlaut nýverið bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar fyrir sína fyrstu ljóðabók, Máltöku á stríðstímum. Natasha kom í þáttinn í dag og sagði okkur frá ljóðabókinni og hvernig það hefur verið að koma frá Rússlandi eftir að stríðið hófst í febrúar. Auk þess sagði hún okkur frá jólahaldi í Rússlandi og af áramótunum, sem hún segir raunar að séu mikilvægari en jólin. Við fengum líka til okkar fulltrúa Hringsjár, sem sérhæfir sig í náms- og starfsendurhæfingu fyrir einstaklinga sem vegna sjúkdóma, slysa, fötlunar eða annarra áfalla þurfa á endurhæfingu að halda til að takast á við nám eða til að stunda atvinnu á almennum vinnumarkaði. Starfsemi Hringsjár snýst um hjálp til sjálfshjálpar og byggir fyrst og fremst á ráðgjöf, námi stoðþjónustu, þverfaglegri starfsendurhæfingu og samvinnu. Helga Eysteinsdóttir, forstöðukona Hringsjár og Jónas Hannes Eyberg nemandi í Hringsjá komu í þáttinn og sögðu okkur nánar frá starfseminni. Sóli Hólm, grínari, eftirherma, útvarpsmaður og fleira, kom svo að lokum til okkar til að segja okkur frá sýningunni Loksins eftirhermur sem hann sýndi margoft og víða, en sýningin var svo tekin upp í haust og verður í sjónvarpinu kl. 20 annað kvöld. Hann er glettilega góð eftirherma og leikur í sýningunni ýmsar þjóðþekktar persónur. Við forvitnuðumst í þættinum við Sóla um það hver galdurinn er á bak við góða eftirhermu. Tónlist í þættinum í dag: Myrkur og mandarínur / Hljómsveitin Eva (Vala Höskuldsdóttir og Sigríður Eir Zophoníasardóttir) Það rignir úti / FolkBeat Snefill / Moses Hightower (Steingrímur Karl Teague, Andri Ólafsson, Magnús Tryggvason Elíassen og Daníel Friðrik Böðvarsson) Þú komst við hjartað í mér / Hjaltalín (Þorgrímur Haraldsson (Toggi), Bjarki Jónsson og Páll Óskar Hjálmtýsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG MELKORKA ÓLAFSDÓTTIR

Þekkt er kenningin um víxlverkun launa og verðlags í verðbólgu. Hækki laun, hækkar verð og étur upp launahækkunina. Ný rannsókn sýnir að þannig gerist það ekki. Launahækkanir valda ekki verðbólgu. Ásgeir Brynjar Torfason sagði frá þessu og fleiru í spjalli um efnahagsmál. Samkvæmt lögum öðlast hús og mannvirki sjálfkrafa aldursfriðun við 100 ára aldur, en nú stendur til að breyta því - lagafrumvarp þess efnis er til umfjöllunar á Alþingi. Pétur Ármannsson og Þór Hjaltalín frá Minjastofnun Íslands ræddu hvað þessar breytingar munu hafa í för með sér. Nóvember var einstaklega hlýr og sömuleiðis fyrstu dagar aðventu. En svo tók að kólna og enn kólnar í vikunni og þá hækkar fólk í ofnunum. Við notum líka talsvert meira rafmagn nú en venjulega, jólaljósin eru jú víða og þurfa sitt. Við fjölluðum um orkunotkun, lesum af stóru mælunum hjá Veitum, með Hrefnu Hallgrímsdóttur og Jóhannes Þorleikssyni frá Veitum. Umsjónarmenn Morgunvaktarinnar eru Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir. Tónlist: What the world needs now is love - Dionne Warwick Jingle Bells - Frank Sinatra Mistletoe and holly - Frank Sinatra

Undanfarna tvo daga hefur lestrarkennsla verið mikið rædd í kjölfarið á færslu Ilmar Kristjánsdóttur leikkonu á Facebook, þar gagnrýndi hún sérstaklega áherslu á hraðlestur í lestrarkennslu. Þessi færsla vakti gríðarlega athygli og umræðu og í kjölfarið kom Ilmur í viðtal hingað í Mannlega þáttinn á þriðjudaginn. Í gær voru svo tvö viðtöl hér á Rás 1 um þetta mál, Hermundur Sigmundsson prófessor kom á Morgunvaktina í gærmorgun og Svava Þórhildur Hjaltalín, lestrarkennari í Vestmannaeyjum, var í Samfélaginu í gær. Við fengum í dag Freyju Birgisdóttur, dósent í þroskasálfræði við Háskóla Íslands, til þess að fara með okkur í ljósi umræðunnar aðeins betur í þetta kerfi sem notast er við í lestrarkennslu og hvað felst í hugtakinu lesfimi. Við fjölluðum svo um áhugavert meistaraverkefni í næringarfræði við Háskóla Íslands en næringarfræðingurinn Guðmundur Gaukur Vigfússon komst að því að hefðbundin umönnun á Íslandi er ófullnægjandi fyrir eldra fólk sem útskrifast af spítala með áhættu fyrir vannæringu. Dæmi eru um að fólk sé jafnvel svo vannært eftir að heim er komið að það sé undir hungurmörkum og greinileg tengsl eru á milli endurinnlagna á spítala hjá þeim hópi sem léttist eftir heimkomu. Hins vegar getur fjölþátta næringarmeðferð yfir sex mánuði dregið úr algengi vannæringar ásamt því að hafa jákvæð áhrif á næringarástand aldraðra. Guðmundur Gaukur kom í þáttinn í dag. Svo heyrðum við í Jóhanni Steindórssyni, grenjaskyttu á Breiðdalsvík, en hann hefur safnað hreindýrshornum í nærri tvo áratugi, sem sagt hornum sem hreindýrin fella árlega. Hann hefur nú byggt úr hornunum sem hann hefur safnað rúmlega tveggja metra hátt jólatré sem er um 300 kíló að þyngd. Við fengum Jóhann til að segja okkur aðeins frá þessu og því að vera refaskytta. TÓNLIST Í ÞÆTTINUM Í rökkurró / Helena Eyjólfsdóttir (Nevins, Nevins, Dunn og Jón Sigurðsson) You Turn Me On, I am a Radio / Joni Mitchell (Joni Mitchell) Þrjú tonn af sandi / Haukar (Winfield, Blackwell og Þorsteinn Eggertsson) Enginn Veit / Sigrún Harðardóttir og Oríon (Lennon & McCartney og Eysteinn Jónasson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Það er tekist á um lestur barna, einu sinni sem oftar, en kannski af meiri hörku en áður - manni finnst það kannski. Nú eru lestrarfimiprófin í brennidepli, eru þau mælitækið sem við þurfum til að vinna með og bæta lestrarhæfni barnanna okkar - sitt sýnist hverjum, en hvað er þá rétta leiðin, þarf að kollvarpa öllu, eða fínstilla eitthvað aðeins. Við ræðum við lestrarsérfræðing hér í byrjun þáttar, Svövu Þórhildi Hjaltalín, sem vill breyta töluvert um stefnu og segir okkur ástæðuna fyrir því. Í gær var settur í loftið vefur um orkuskipti hér á landi - orkuskipti.is. Það eru Samtök iðnaðarins, Landsvirkjun, Samorka og Efla sem standa að vefnum sem er ætlað að veita upplýsingar um orkunotkun, orkuskipti og efnahagslegan ávinning Íslands af orkuskiptum. Sigríður Mogensen frá Samtökum iðnaðarins ætlar að fara yfir þessi mál með okkur á eftir. Málfarsmínúta Edda Olgudóttir kemur í vísindaspjall. Hún ætlar að segja okkur frá rannsókn á stofnfrumumeðferð á fóstrum, til að laga klofinn hrygg.

Bókin Makamissir er nýkomin út, hún er skrifuð af Guðfinnu Eydal og Önnu Ingólfsdóttur og er meðal annars byggð á reynslu þeirra af því að missa maka. Bókin veitir innsýn inn í líf einstaklinga þegar maki þeirra deyr, auk þess sem hún er leiðarvísir fyrir þau sem vilja kynna sér málefnið og sýna stuðning og samkennd. Guðfinna og Anna komu í þáttinn í dag og sögðu okkur betur frá þessari bók. Vellíðan barna er nýútkomin bók og er handbók fyrir foreldra. Í hverjum kafla er að finna ýmsan fróðleik og fjölbreyttar æfingar sem hafa það að markmiði að kenna börnum hagnýtar aðferðir til að efla sig og styrkja. Bókin byggir á aðferðum jákvæðrar sálfræði og höfundarnir eru Hrafnhildur Sigurðardóttir, Ingrid Kuhlman og Unnur Arna Jónsdóttir og þær tvær síðarnefndu komu í þáttinn í dag. Elín Björk Jónasdóttir veðurfræðingur kom í þáttinn í dag í mannlegt veðurspjall. Hún hefur einstakt lag á að útskýra hin ýmsu veðurfyrirbæri og í dag ræddi hún við okkur um samfélagsleg áhrif veðurs og hvernig tækniframfarir og samþætting sérfræðinga hefur minnkað skaða og tjón vegna óveðurs. Tónlist í þættinum í dag: Franskar (sósa og salat) / Stuðmenn (Valgeir Guðjónsson, Egill Ólafsson og Eggert Þorleifsson) Þú komst við hjartað í mér / Hjaltalín (Páll Óskar, Þorgrímur Haraldsson og Sveinbjörn Bjarki Jónsson) Þannig týnist tíminn / Ragnar Bjarnason og Lay Low (Bjartmar Guðlaugsson) Einn ég ríð til fjalla / Helgi Björnsson og reiðmenn vindanna (erlent lag, Helgi Björnsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Umsjón: Rúnar Róbertsson og Hulda Geirsdóttir Ásmundur Friðriksson alþingismaður er ekki óvanur að grípa í pennann og nýverið kom út hans nýjasta bók, Strand í gini gígsins þar sem brugðið er upp mynd af mannlífinu í Eyjum á tímum Surtseyjargossins og sagt frá ýmsum svaðilförum er því tengjast. Ásmundur kom til okkar í morgunkaffi og sagði okkur frá bókinni og við spyrjum hann í leiðinni út í árlega Skötumessu að sumri sem hann skipuleggur í júlí til styrktar góðu málefni ásamt því að spyrja hann útí nýjustu vendingar vegna kaupa Síðdarvinnslunar á Vísi í Grindavík. En Ásmundur er þingmaður Suðurkjördæmis. Óskar Hallgrímsson, íbúi í Kænugarði og ljósmyndari, hefur fylgst vel með atburðarrásinni í Úkraínu og fjölmiðlar hringt reglulega í hann. Hann er nú staddur á Íslandi og var í símanum hjá okkur. Hann hefur séð og upplifað margt sem venjulegur íslendingur er ekki vanur að upplifa og sagði okkur frá sinni upplifun. Húsnæðisverð á höfuðborgarsvæðinu hefur hækkað um 24% undanfarna tólf mánuði en það hækkaði um 3,0% í maí. Síðan þá hefur Seðlabankinn gripið í taumana, ef svo má að orði komast. Dregið hefur úr aðgengi að lánsfé og vextir hafa hækkað. En hvernig stendur fasteignamarkaðurinn núna? T.d. miðað við annars staðar, í löndum sem við berum okkur saman við. Páll Heiðar Pálsson, fasteignasali, kom með greiningu. Við heyrðum vikulegan pistil frá sagnfræðingnum og rithöfundinum Vali Gunnarssyni en hann var í síðustu viku í borginni Lviv en segir nú frá um 10 tíma lestarferðalagi sínu til höfuðborgarinnar Kiev, Kænugarðs. Hann kemur nú til borgarinnar eftir tveggja ára fjarveru. Hvernig hefur hún breyst? Í lok þáttar kom Sævar Helgi Bragason til okkar, eins og hann gerir hálfsmánaðarlega, og fer yfir fréttir úr vísindaheiminum. Í dag er nefnilega stór dagur. Fyrstu myndir frá Webb geimsjónaukanum verða birtar í dag og Sævar Helgi sagði okkur meira af því. Tónlist: Stuðmenn - Popplag í G-dúr Tame impala - Turn up the sunshine Hjaltalín - Stay by you Queen - Somebody to love Dua Lipa & Elton John - Cold heart Sam Ryder - Space man

Þýska fjármálaeftirlitið gerði í síðasta mánuði húsleit hjá Deutsche bank vegna gruns um grænþvott - þ.e. að fullyrðingar dótturfyrirtækis bankans um sjálfbærar og umhverfisvænar fjárfestingar stæðust ekki skoðun. Við ræddum þetta áhugaverða mál og um grænþvott í fjárfestingum almennt við Evu Margréti Ævarsdóttur, lögmann og ráðgjafa í sjálfbærni. Fréttablaðið ræddi í gær við íbúa við Óðinsgötu í Reykjavík sem sögðu ástand við hús númer 14a og 14b við götuna óviðunandi. Húsin, sem hafa verið umsjónarlaus í um fjögur ár, hafa verið í algjörri niðurníðslu og íbúar gagnrýna að ekkert hefði verið aðhafst. Við ræddum við Gylfa Ástbjartsson hjá Umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar, um hvað sveitarfélög geta - og hafa - gert til að koma í veg fyrir að eigendur húsa láti þau standa auð og grotna niður. Bændasamtökin hafa áhyggjur af því að aukinn innflutningur á landbúnaðarvörum frá Úkraínu geti haft neikvæð áhrif á íslenska bændur, í ljósi erfiðrar stöðu í íslenskum landbúnaði sökum gríðarlega hækkana á aðföngum. Þetta kemur fram í umsögn samtakanna við frumvarp fjármála- og efnahagsráðherra, sem fjallar um niðurfellingu tolla á vörur sem eru upprunnar í Úkraínu. Við ræddum við Gunnar Þorgeirsson, formann Bændasamtaka Íslands, um viðhorf þeirra til málsins. Við tókum forskot á sæluna í ljósi þess að á morgun, föstudag, er 17. júní - og kryfjum fréttir vikunnar með góðum gestum í dag. Að þessu sinni komu til okkar þau Karen Kjartansdóttir og Óttarr Proppé. Fjármálastöðugleikanefnd Seðlabanka Íslands ákvað í gær að lækka veðsetningarhlutfall fasteignalána fyrir fyrstu kaupendur. Við ræddum við Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóra, sem segir tilganginn vera að bregðast við hækkandi fasteignaverði og mikilli skuldsetningu ungs fólks. Tónlist: Love from 99 - Hjaltalín Warning Signs - Band of Horses Getting started - Sam Fender Ingileif - Snorri Helgason Embarrassment - Madness A Driver Saved My Night - Sigrid

Alex Elliott is joined this week by Joanna Marcinkowska, City of Reykjavík project manager for inclusion and integration, based within the human rights and democracy office. Topics of discussion this week include: Reykjavík's new old mayor, the treatment of severely disabled people, keeping tourists safe, Seamen's Day, and much more. Today's closing song is Sjómannavalsinn, by Hjaltalín.

Alex Elliott ræðir við Peter Weiss forstöðumanni Háskólaseturs Vestfjarða um lífið og vinnu, í tilefni Sjómannadagsins. Lög þáttarins eru: Sjómannavalsinn - Hjaltalín Kein Boarischeer - Die Knödel Haglél - Mugison Grafskript - Hinn Íslenzki Þursuflokkurinn Into the Dark - Between Mountains Kotkan ruusu - Arja Saijonmaa

554.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag heyri í í tveimur mönnum. Þórhallur Dan spjallar við mig um handboltann hér innalands, körfuboltann og svo Bestu deildina í fótbolta. Við förum aðeins í enska boltann og svo einnig í þann ítalska og fleira til. Þóroddur Hjaltalín er svo á línunni um dómaramál og við förum yfir áherslur dómgæslunnar í sumar og fleira. Njótið.
Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Magnús Þór Jónsson formaður Kennarasambands Íslands (KÍ) og Svava Þórhildur Hjaltalín kennari um skólamál. Hildur Björnsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokksins og Dagur B. Eggertsson borgarstjóri um borgarmál. Teitur Björn Einarsson varaþingmaður, Helga Vala Helgadóttir, Halldóra Mogensen og Bjarni Jónsson alþingismenn
Sveitarstjórn Fljótdalshrepps hefur formlega samþykkt viljayfirlýsingu með danska fjárfestingasjóðnum Copenhagen Infrastructure Partners um að skoða kosti vindorkuvera í landi sveitarfélagsins. Við heyrðum í Helga Gíslasyni, sveitarstjóra Fljótsdalshrepps, um samkomulagið og áhrif á svæðið. Hvað veldur því að fólk fær brennandi áhuga á stjórnmálabaráttu í öðrum löndum? Af hverju er fólk tilbúið til að ferðast langar leiðir og taka þátt í hreyfingu, jafnvel stríði, fyrir fólk sem það hefur aldrei hitt? Við ræddum við tvo sagnfræðinga, annars vegar Arnór Gunnar Gunnarsson, sem hefur skrifað um stuðning innan danska ríkisins við sjálfstæði Grikklands, og hins vegar Ara Guðna Hauksson, sem hefur skrifað um íslenska sjálfboðaliða í spænsku borgarastyrjöldinni. Við þekkjum öll .is endinguna en henni er úthlutað í gegnum fyrirtækið ISNIC sem er eitt um það að útvega þessa tegund léna hér á landi. Hagnaður fyrirtækisins er mikill og nú stendur til að eigendur greiði sér ríflega 100 milljónir króna í arð. Jökull Sólberg Auðunsson ráðgjafi vakti athygli á því í gær að ársleigan á .is er dýrari en gengur og gerist í kringum okkur en hann vill meina að ríkið hafi afhent fyrirtækinu algjöra einokunarstöðu og þar með mikinn hagnað sem ætti heima annarsstaðar en hjá einkaaðilum. Í upphafi faraldurs mátti greina aukinn fjölda tilkynninga til barnaverndaryfirvalda. Ólöf Ásta Farestveit, forstjóri Barna- og fjölskyldustofu kom til okkar að ræða stöðu barna á Íslandi eftir faraldurinn, hversu margar þessar tilkynningar hafa verið undanfarið og hvernig börnum á Íslandi líður almennt. Jákvæðasti maður landsins er titill sem ansi margir gera atlögu að en þó er líklega enginn jafn ástríðufullur í jákvæðni sinni og Kristján Hafþórsson, hann skrifar reglulega greinar í fjölmiðla og nánast daglegar samfélagsmiðlafærslur þar sem hann hvetur fólk til að meta eigin verðleika, horfa björtum augum á lífið og þakka fyrir tilveruna. Bókstafurinn Z er orðið tákn þeirra sem styðja Rússa og innrásina í Úkraínu. Við ræddum þennan merkilega bókstaf zetuna við Önnu Sigríði Þráinsdóttur, málfarsráðunaut RÚV, en sú umdeilda ákvörðun var tekin árið 1973 að nema bókstafinn brott úr íslenskum ritreglum. Zetan á sér þó enn stuðningsfólk í íslensku samfélagi en nú er spurning hvort breyting verði á. Tónlist: Þú - Friðrik Dór Wonderful Life - Hurts The Logical Song - Supertramp Move your feet - Junior Senior Car Wash - Rose Royce Eldur í mér - Írafár How Deep is your Love - Bee Gees Heim - Mugison og GDRN Stay by you - Hjaltalín