Podcasts about kvikmyndager

  • 14PODCASTS
  • 64EPISODES
  • 1h 33mAVG DURATION
  • 1EPISODE EVERY OTHER WEEK
  • Apr 9, 2025LATEST

POPULARITY

20172018201920202021202220232024

Best podcasts about kvikmyndager

Latest podcast episodes about kvikmyndager

Bíóblaður
#313 The Last of Us með Agli Nielsen

Bíóblaður

Play Episode Listen Later Apr 9, 2025 134:44

Kvikmyndagerðarmaðurinn Egill Nielsen er rosalegur The Last of Us aðdáandi og hann kíkti til Hafsteins til að ræða hina vinsælu HBO seríu sem hefur vakið mikla lukku meðal áhorfenda og gagnrýnenda. Strákarnir ræða einnig tölvuleikinn, The Last of Us Part II, hversu góð Pedro og Bella eru í sínum hlutverkum, hvort það hefði ekki mátt vera aðeins meiri hasar í seríunni, hvort peningurinn hafi klárast í síðasta þættinum, hversu góð aðlögun serían er og margt, margt fleira.00:00 - Intro00:15 - Egill er grjótharður The Last of Us maður01:38 - The Last of Us tölvuleikurinn 201304:54 - The Last of Us Part II 202006:20 - The Last of Us - HBO serían1:46:41 - The Last of Us Part II - SPOILERSPJALL

Bíóblaður
#310 Óskarinn 2025 með Agli, Ísrael og Teiti

Bíóblaður

Play Episode Listen Later Mar 2, 2025 206:05

Kvikmyndagerðarmaðurinn Egill Nielsen, Óskarsverðlaunasérfræðingurinn Ísrael Daníel Hanssen og kvikmyndagerðarmaðurinn Teitur Magnússon eru allir miklir Óskarsverðlaunaáhugamenn og þeir kíktu til Hafsteins til að ræða þessar tíu kvikmyndir sem eru tilnefndar sem besta kvikmynd ársins. Í þættinum ræða þeir myndirnar The Brutalist, Wicked, Emilia Peréz, Dune: Part Two, The Substance, Nickel Boys, A Complete Unknown, Anora, Conclave og I'm Still Here.00:00 - Intro00:15 - Lélegar myndir í ár?05:10 - The Brutalist34:55 - Wicked48:34 - Emilia Peréz1:10:06 - Dune: Part Two1:27:28 - The Substance1:52:29 - Nickel Boys2:03:55 - A Complete Unknown2:21:58 - Anora2:47:03 - Conclave3:03:18 - I'm Still Here3:23:02 - Lokaorð

Bíóblaður
#311 Bíóblaður spurningaspil: Egill vs. Ísrael vs. Teitur

Bíóblaður

Play Episode Listen Later Mar 2, 2025 51:22

Kvikmyndagerðarmaðurinn Egill Nielsen, Óskarsverðlaunasérfræðingurinn Ísrael Daníel Hanssen og kvikmyndagerðarmaðurinn Teitur Magnússon mættu til Hafsteins í Óskarsverðlaunaþátt en Hafsteinn kom þeim fyrst á óvart með stuttri spurningakeppni. Hafsteinn er að vinna í kvikmyndaspurningaspili sem hann ætlar að gefa út fyrir næstu jól og honum datt í hug að prófa nokkrar spurningar á strákunum. Úr varð skemmtileg keppni sem enginn má missa af!

hanssen teitur egill hafsteinn teitur magn kvikmyndager
Víðsjá
Heimildamynd Yrsu Roca Fannberg um Grund, Natasha S. um rússneskar bókabúðir

Víðsjá

Play Episode Listen Later Feb 18, 2025 53:10

Kvikmyndagerðakonan Yrsa Roca Fannberg hefur starfað á hjúkrunarheimilinu Grund undanfarin 16 ár meðfram því að búa til heimildamyndir og kenna skapandi heimildamyndagerð í Háskóla Íslands. Árið 2014 frumsýndi hún Salóme en hún fjallaði um móður Yrsu og samband þeirra mæðgna en líka um samband kvikmyndagerðamanns við viðfangsefni sitt. Árið 2019 kom Síðasta haustið, mynd um síðasta haust ábúenda á afskekktum sauðfjárbæ á Ströndum. Og innan skamms frumsýnir hún sína þriðju mynd, Jörðin undir fótum okkar, en hún fjallar um lífið á Grund, sem Yrsa hefur skrásett með sínum hætti undanfarin 3 ár. Við ræðum við Yrsu í þætti dagsins, og einnig Skúla Jónasson, einn af heimilismönnum Grundar sem koma fyrir í myndinni. Þar að auki verður Natasha S. gestur okkar og segir frá rússneskum bókabúðum og samtímabókmenntum.

Segðu mér
Hrafnhildur Gunnarsdóttir kvikmyndagerðarmaður

Segðu mér

Play Episode Listen Later Feb 12, 2025 40:04

Hrafnhildur segir að heimildarmyndir geta auðveldlega verið öflugt pólitískt hreyfiafl. Hún segir frá heimildarmyndinni sinni um kvennafrídaginn 1975.

Bíóblaður
#305 Stanley Kubrick: Part I með Teiti Magnús

Bíóblaður

Play Episode Listen Later Jan 12, 2025 122:56

Kvikmyndagerðarmaðurinn Teitur Magnússon kíkti til Hafsteins til að ræða einn merkilegasta kvikmyndagerðarmann allra tíma, Stanley Kubrick. Í þessum fyrri hluta fara strákarnir yfir fyrstu myndir Kubrick og ræða meðal annars Fear and Desire, Killer's Kiss, The Killing, Paths of Glory, Spartacus, Lolita, Dr. Strangelove og margt, margt fleira. 00:00 - Intro 00:15 - Loksins er komið að Kubrick! 01:37 - Stanley Kubrick var snillingur 06:36 - Hvernig ranka strákarnir Kubrick myndirnar? 08:22 - Hver var Stanley Kubrick? 22:20 - Fear and Desire 1953 40:35 - Killer's Kiss 1955 44:09 - The Killing 1956 53:12 - Paths of Glory 1957 1:10:32 - Spartacus 1960 1:28:17 - Lolita 1962 1:48:02 - Dr. Strangelove 1964

Bíóblaður
#306 Stanley Kubrick: Part II með Teiti Magnús

Bíóblaður

Play Episode Listen Later Jan 12, 2025 175:56

Kvikmyndagerðarmaðurinn Teitur Magnússon kíkti til Hafsteins til að ræða einn merkilegasta kvikmyndagerðarmann allra tíma, Stanley Kubrick. Í þessum seinni hluta ræða strákarnir meðal annars myndirnar 2001: A Space Odyssey, A Clockwork Orange, Barry Lyndon, The Shining, Full Metal Jacket og Eyes Wide Shut. Strákarnir ræða einnig sínar uppáhalds Kubrick myndir, samsæriskenningar, hinn sérstaka Leon Vitali og margt, margt fleira. 00:00 - Intro 00:40 - Topp 5 Kubrick myndirnar 04:32 - 2001: A Space Odyssey 1968 43:57 - A Clockwork Orange 1971 1:12:34 - Barry Lyndon 1975 og Leon Vitali 1:43:17 - The Shining 1980 og samsæriskenningar 2:09:08 - Full Metal Jacket 1987 2:24:00 - Eyes Wide Shut 1999 og Tom Cruise

Bíóblaður
#301 Hot Takes með Arnari Tómas

Bíóblaður

Play Episode Listen Later Nov 20, 2024 92:53

Kvikmyndagerðarmaðurinn Arnar Freyr Tómasson stakk upp á skemmtilegri hugmynd og Hafsteinn var svo sannarlega til í hana. Í þættinum varpa strákarnir fram sínum eigin umdeildum fullyrðingum varðandi eitthvað sem tengist kvikmyndum eða sjónvarpsseríum. Þeir ræða meðal annars hvort Prisoners sé betri en Seven, hvort Stranger Things séu ofmetnustu þættir allra tíma, hvort þessi Nicolas Cage hype lest sé fáránleg, hvort Star Wars sökki og margt, margt fleira.

Bíóblaður
#298 Joker: Folie á Deux með Teiti Magnús

Bíóblaður

Play Episode Listen Later Oct 16, 2024 70:29

Kvikmyndagerðarmaðurinn Teitur Magnússon kíkti til Hafsteins til að ræða eina umtöluðustu mynd seinni ára, Joker: Folie á Deux. Í þættinum ræða strákarnir meðal annars hvernig þeim fannst myndin, hvort Todd Philips hafi skuldað áhorfendum eitthvað, hvernig það heppnaðist að hafa söngatriði í myndinni, hvernig Lady Gaga stóð sig og margt, margt fleira.

Víðsjá
Svipmynd - Lilja Ingólfsdóttir

Víðsjá

Play Episode Listen Later Oct 2, 2024 53:04

Kvikmyndagerðarkonan Lilja Ingólfsdóttir var komin með nóg af klisjukenndum kvenpersónum þegar hún hófst handa við að skrifa Elskling. Aðalpersóna Elskling er ófullkomin og þreytt fjögurra barna móðir sem reynir að sinna starfsframanum um leið og hún reynir að halda hjónabandinu gangandi. Elskling hefur sópað að sér verðlaunum og góðri gagnrýni frá því að hún var frumsýnd í sumar, en hún er er fyrsta kvikmyndin í fullri lengd sem Lilja bæði skrifar og leikstýrir. Hún á að baki fjölda stuttmynda og einnig fjórar kvikmyndir sem hún var handritshöfundur að, og segir Lilja sjálf að hún líti fyrst og fremst á sig sem handritshöfund, hún sé leikstýrandi handritshöfundur. Lilja er dóttir norska þýðandans Tone Myklebost, sem er margverðlaunuð fyrir þýðingar úr íslensku yfir á norsku, og Ingólfs heitins Margeirssonar, blaðamanns og rithöfundar sem lést vorið 2011. Hún ólst upp bæði á Íslandi og í Noregi en lærði kvikmyndagerð í London og Prag. Hún bjó um tíma í París þar sem hún gerði yfir 20 stuttmyndir en býr í dag í Osló þar sem hún kennir við kvikmyndaháskólann og elur upp börnin sín fjögur auk þess að starfa við kvikmyndagerðina. Lilja Ingólfsdóttir, handritshöfundur og kvikmyndaleikstjóri, er gestur okkar í svipmynd dagsins. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir

ing prag lilja osl umsj noregi melkorka kvikmyndager
Bíóblaður
#295 007: Pierce Brosnan með Agli, Ísrael og Teiti

Bíóblaður

Play Episode Listen Later Sep 4, 2024 160:39

Kvikmyndagerðarmaðurinn Egill Nielsen, Óskarsverðlaunasérfræðingurinn Ísrael Daníel Hanssen og kvikmyndagerðarmaðurinn Teitur Magnússon eru allir grjótharðir James Bond aðdáendur og þeir kíktu til Hafsteins í annan James Bond þátt en að þessu sinni var fjallað um Pierce Brosnan og hans fjórar Bond myndir. Í þættinum ræða þeir meðal annars hvort Martin Campbell sé besti Bond leikstjórinn, hversu æðisleg Famke Janssen er í Goldeneye, hversu kjánalegur kvennabósi Bond getur verið, hvort Denise Richards sé trúverðug sem kjarnorkuvísindamaður í The World is not Enough, hversu fáránleg Die Another Day er og margt, margt fleira. Þátturinn er í boði Sambíóanna og Smash.

Bíóblaður
#290 007: Daniel Craig með Agli, Ísrael og Teiti

Bíóblaður

Play Episode Listen Later Jun 5, 2024 182:24

Kvikmyndagerðarmaðurinn Egill Nielsen, Óskarsverðlaunasérfræðingurinn Ísrael Daníel Hanssen og kvikmyndagerðarmaðurinn Teitur Magnússon eru allir grjótharðir James Bond aðdáendur og þeir kíktu til Hafsteins í fyrsta James Bond þátt Bíóblaðurs. Í þetta skiptið er fókusinn á myndirnar sem Daniel Craig lék í. Í þættinum ræða þeir meðal annars hversu vel Craig hafi passað sem Bond, hvort það hafi verið sniðug hugmynd að hafa eina tengda sögu yfir allar fimm myndirnar hans, hversu frábærlega Martin Campbell byrjaði þetta með Casino Royale, hversu hræðileg Quantum of Solace er, hversu vel þeim tókst til með að nútímavæða Bond og margt, margt fleira. Þátturinn er í boði Sambíóanna og Smash.

Lestin
Fyrsta íslenska kvikmyndagerðarkonan, Trailer Todd, John McAfee

Lestin

Play Episode Listen Later Aug 29, 2022

Fyrsta íslenska kvikmyndagerðakonan, Rut Hansson, var frumkvöðull í íþrótta og danskennslu á þriðja áratugi 20. aldarinnar. Rut vildi kynna landsmenn fyrir stefnum og straumum í dansi, ferðaðist um evrópu til að læra nýja dansa og lét svo gera dansmynd sem var sýnd í viku í desember 1927. Þangað til myndin var dregin fram í dagsljósið á ný var Svala Hannesdóttir talin fyrsta íslenska kvikmyndagerðakonan. Gunnar Tómas Kristófersson doktorsnemi segir okkur frá. Hávært gítardrifið rokk með flóknum töktum og taktskiptingum. Þannig mætti lýsa því sem kallast stærðfræðirokki. Reykvíska hljómsveitin Trailer Todd lofar endurkomu stærðfræðirokksins á plötunni Trukk Ópus sem kom út fyrir helgi. Þrír fjórði hluti Trailer Todd sest um borð í Lestina og ræðir meðal annars samnefndan hjólhýsasölumann í Missouri og aðdáun þeirra á hljómsveitinni Weezer. Heimildamyndin Running with the Devil kom út á streymisveitunni Netflix á dögunum, hún fjallar um skrautlegt lífshlaup John McAfee, mannsins sem fann upp McAfee vírusvörnina. Atli Fannar Bjarkason er búinn að horfa

netflix devil missouri weezer mcafee john mcafee rut krist fyrsta reykv kvikmyndager atli fannar bjarkason lestina
Lestin
Fyrsta íslenska kvikmyndagerðarkonan, Trailer Todd, John McAfee

Lestin

Play Episode Listen Later Aug 29, 2022 55:00

#175 The Northman með Teiti Magnús

Bíóblaður

Play Episode Listen Later Apr 29, 2022 116:41

Kvikmyndagerðarmaðurinn Teitur Magnússon kíkti til Hafsteins til að ræða nýjustu mynd leikstjórans Robert Eggers en myndin heitir The Northman.   Í þættinum ræða strákarnir meðal annars hversu vel leikararnir standa sig, hvort list sé mikilvægari en skemmtanagildi, hversu góðar The Witch og The Lighthouse eru, hversu orkumikil og ofbeldisfull The Northman er, hversu sturluð kvikmyndatakan er og margt, margt fleira.   Þátturinn er í boði Subway, Sambíóanna, Celsius Energy og Popp Smells frá Nóa Síríus.

witches lighthouses subway robert eggers northman magn samb kvikmyndir teitur magn kvikmyndager hladvarp
Bíóblaður
#170 Bransaspjall með Teiti Magnús

Bíóblaður

Play Episode Listen Later Apr 8, 2022 134:32

Kvikmyndagerðarmaðurinn Teitur Magnússon var að gefa út sína fyrstu kvikmynd í fullri lengd en myndin heitir Uglur. Teitur lærði kvikmyndagerð í Kvikmyndaskóla Íslands og hefur lengi vel haft gríðarlega mikla ástríðu fyrir kvikmyndum og kvikmyndagerð.   Í þættinum ræðir hann meðal annars sinn bakgrunn, námið, hverjir eru hans uppáhalds leikstjórar, hversu góð The Dark Knight er, kjarkaða leikara eins og Heath Ledger, ferlið á bakvið Uglur, hvernig handritaferlið gengur fyrir sig og margt fleira.   Þátturinn er í boði Subway, Sambíóanna, Celsius Energy og Popp Smells frá Nóa Síríus.

movies subway dark knight heath ledger magn samb teitur kvikmyndir teitur magn kvikmyndager hladvarp
Bíóblaður
#136 Tarantino: Vol. 2 með Snævari Sölva

Bíóblaður

Play Episode Listen Later Dec 3, 2021 99:28

Kvikmyndagerðarmaðurinn Snævar Sölvason kíkti til Hafsteins til að ræða leikstjórann Quentin Tarantino og hans feril.   Í þessum seinni hluta ræða strákarnir meðal annars hversu góð samtölin eru í Reservoir Dogs, ofbeldið í Django Unchained, hversu vel samtölin hans QT virka á öðrum tungumálum en ensku í Inglourious Basterds, hversu góð Uma Thurman er í Kill Bill og tímalausa meistaraverkið, Pulp Fiction.   Þátturinn er í boði Popp Smells frá Nóa Síríus, Subway og Sambíóanna.

Bíóblaður
#135 Tarantino: Vol. 1 með Snævari Sölva

Bíóblaður

Play Episode Listen Later Dec 1, 2021 121:32

Kvikmyndagerðarmaðurinn Snævar Sölvason kíkti aftur til Hafsteins og í þetta skipti ræddu þeir Quentin Tarantino og hans feril. Strákarnir blöðruðu endalaust og því var ákveðið að skipta QT umræðunni í tvo þætti.   Í Vol. 1 þá ræða strákarnir meðal annars af hverju Death Proof klikkaði, hversu gott chemistry var á milli DiCaprio og Pitt í OUATIH, Pam Grier og hennar hlutverk sem Jackie Brown, hversu góður penni QT er og margt, margt fleira.   Þátturinn er í boði Popp Smells frá Nóa Síríus, Subway og Sambíóanna.

Segðu mér
Magnea Björk Valdimarsdóttir kvikmyndagerðakona

Segðu mér

Play Episode Listen Later Nov 9, 2021 38:39

Magnea segir frá nýju heimildarmyndinni sinni Hvunndagshetjur sem fjalla um fjórar konur sem eiga það sameiginlegt að hafa búið á Íslandi í tuttugu ár. Fæddar í Bosníu, Jamaíku, Póllandi og Tyrklandi ? allar hafa þær sína sögu af því hvað leiddi þær hingað.

Segðu mér
Magnea Björk Valdimarsdóttir kvikmyndagerðakona

Segðu mér

Play Episode Listen Later Nov 9, 2021

Magnea segir frá nýju heimildarmyndinni sinni Hvunndagshetjur sem fjalla um fjórar konur sem eiga það sameiginlegt að hafa búið á Íslandi í tuttugu ár. Fæddar í Bosníu, Jamaíku, Póllandi og Tyrklandi ? allar hafa þær sína sögu af því hvað leiddi þær hingað.

Bíóblaður
#118 80's horror með Óla Bjarka

Bíóblaður

Play Episode Listen Later Sep 29, 2021 166:19

Kvikmyndagerðarmaðurinn Óli Bjarki Austfjörð kíkti aftur til Hafsteins og í þetta skipti ræddu þeir 80's hryllingsmyndir.   Í þættinum ræða þeir meðal annars hversu ógeðsleg Hellraiser er, muninn á 80's hryllingsmyndum og 90's hryllingsmyndum, hversu misvel John Carpenter myndir eldast, Cronenberg og The Fly, Sam Neill og hans hryllingsmyndir, Lovecraftian horror og margt, margt fleira.   Þátturinn er í boði Popp Smells frá Nóa Síríus, Doritos frá Ölgerðinni, Subway og Sambíóanna.

Bíóblaður
#110 The Dark Knight með Mána og Óla

Bíóblaður

Play Episode Listen Later Aug 27, 2021 140:55

Batman partýið heldur áfram!   Kvikmyndagerðarmaðurinn Óli Bjarki og kvikmyndaáhugamaðurinn Máni Freyr ræða ásamt Hafsteini Batman þríleikinn hans Christopher Nolan, þessa mögnuðu frammistöðu hjá Heath Ledger í The Dark Knight, Hardy og Bane útgáfuna hans, Affleck tímabilið, hversu spenntir þeir eru fyrir næstu Batman mynd sem Matt Reeves leikstýrir og margt, margt fleira.   Þátturinn er í boði Popp Smells frá Nóa Síríus, Doritos frá Ölgerðinni, Subway og Sambíóanna.

Bíóblaður
#109 Batman með Óla og Mána

Bíóblaður

Play Episode Listen Later Aug 25, 2021 138:22

Kvikmyndagerðarmaðurinn Óli Bjarki og kvikmyndaáhugamaðurinn Máni Freyr kíktu aftur til Hafsteins og í þetta skipti ræddu þeir bestu ofurhetju allra tíma, Batman.   Í þættinum ræða þeir meðal annars af hverju þeir eru svona hrifnir af Batman, hvernig Jack Nicholson stóð sig sem Joker, hvernig Batman Returns er eins og The Last Jedi, hvernig WB vildi selja fleiri leikföng með Batman Forever, hversu yndisleg Batman & Robin er og margt, margt fleira.   Þátturinn er í boði Popp Smells frá Nóa Síríus, Doritos frá Ölgerðinni, Subway og Sambíóanna.

Bíóblaður
#99 Geggjað eða glatað með Arnari Tómas

Bíóblaður

Play Episode Listen Later Jul 16, 2021 119:52

Kvikmyndagerðarmaðurinn og kvikmyndaáhugamaðurinn, Arnar Freyr Tómasson, kíkti aftur til Hafsteins og í þetta skipti ræddu þeir eitthvað geggjað eða eitthvað glatað.   Í þættinum ræða þeir meðal annars leikstjóra sem þeim finnst vera glataðir, geggjuð byrjunaratriði, hvernig þeim fannst Katla, hversu flottur leikari Hugh Jackman er, nýju stuttmyndina hans Arnars sem hann er að leggja lokahönd á og margt, margt fleira.   Þátturinn er í boði Popp Smells frá Nóa Síríus og Doritos frá Ölgerðinni.

movies hugh jackman doritos katla arnars kvikmyndir kvikmyndager hladvarp
Morgunútvarpið
8. júl - Hinsegin hátíð, kvikmyndagerð, efnahagsmál og ný bók

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Jul 8, 2021 130:00

Um helgina fer fram fyrsta Hinseginhátíð Vesturlands en nýstofnað félag, Hinsegin Vesturland, stendur að henni en hún er fyrsti stóri viðburður félagsins og markmiðið er að hún flakki á milli allra sveitarfélaganna á Vesturlandi, til að auka sýnileika hinsegin fólks um allan landshlutann. Hápunktur helgarinnar er gleðiganga sem verður laugardaginn. Bjargey Anna Guðbandsdóttir sem er framkvæmdarstýra hátíðarinnar var á línunni og sagði okkur meira. Það hefur vakið athygli margra sem fylgjast með streymisveitum að sjá íslenska leikara skjóta upp kollinum aftur og aftur, jafnvel í stórum hlutverkum í sumum þeirra þáttaraða eða kvikmynda sem boðið er uppá. Þá má oft sjá íslensk nöfn í kreditlistum yfir starfsmenn í þessum myndum. Ásgrímur Sverrisson kvikmyndagerðarmaður og ritstjóri klapptrés sagði okkur betur frá þessu en hann er líka á leiðinni í spennandi sögugöngu um kvikmyndaborgina Reykjavík. Í gær var birt skýrsla OECD þar sem horfur á mjúkri lendingu efnahagslífsins er spáð og er þá fyrst og fremst horft til ferðmannastraumsins. Samkvæmt skýrslunni stóð Ísland storminn sem fylgdi COVID-19 faraldrinum betur af sér en flestar aðrar þjóðir og viðsnúningur er framundan. Fjármálaráðherra sagði í fréttum í gær að þetta megi þakka góðri stöðu ríkisfjármála fyrir faraldur. En hverjir koma best út úr kófinu, hinir betur stæðu eða er það jafnt yfir línuna? Við fengum Katrínu Ólafsdóttur hagfræðing og dósent við Viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík til að ræða horfurnar og Árelía Eydís Guðmundsdóttir hefur vakið athygli fyrir skáldsögur sínar sem flestar fjalla um konur á miðjum aldri og þær áskoranir sem þeim mæta. Sú nýjasta, Slétt og brugðið, fór beint inn á metsölulista og við fengum Árelíu til að segja okkur af þessari nýju sögu og viðfangsefnum vinkvennanna sem hún fjallar um. Tónlist: Hljómar - Lífsgleði Hjaltalín - Feels like sugar Páll Óskar - Söngur um lífið Stuðmenn - Slá í gegn Joy Cookes - Feet don't fail me now Jet black Joe - I, you, we Foo fighters - Waiting on a war Á móti sól - Stjörnublik Albatross - Ég sé sólina Notorious B.I.G. - Mo money, mo problems U2 - Red hill mining town (2017 mix)

Morgunútvarpið
8. júl - Hinsegin hátíð, kvikmyndagerð, efnahagsmál og ný bók

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Jul 8, 2021

#90 Bransaspjall með Snævari Sölva

Bíóblaður

Play Episode Listen Later Jun 16, 2021 206:11

Kvikmyndagerðarmaðurinn Snævar Sölvason kíkti til Hafsteins í áhugavert bransaspjall. Snævar hefur gert þrjár kvikmyndir en þær kvikmyndir fjármagnaði hann að mestu leyti sjálfur og Hafsteinn var spenntur að heyra um "indie" bransann á Íslandi.   Í þættinum ræða þeir meðal annars harkið við indie kvikmyndagerð, hvernig Snævar fékk áhugann á kvikmyndum, Martin Scorsese, hversu mikið Snævar elskar Sci-Fi og margt, margt fleira.   Þátturinn er í boði Popp Smells frá Nóa Síríus og Doritos frá Ölgerðinni.

Bíóblaður
#88 Rocky með Óla Bjarka

Bíóblaður

Play Episode Listen Later Jun 9, 2021 132:40

Kvikmyndagerðarmaðurinn Óli Bjarki kíkti aftur til Hafsteins og í þetta skipti ræddu þeir Rocky seríuna.   Í þættinum ræða þeir meðal annars hversu vanmetinn Sylvester Stallone er sem handritshöfundur og leikstjóri, hvernig Rocky er einn besti karakter kvikmyndasögunnar, hversu mikill brjálæðingur Mickey er, hver er uppáhalds Rocky myndin hans Óla og margt, margt fleira.   Þátturinn er í boði Popp Smells frá Nóa Síríus og Doritos frá Ölgerðinni.

movies sylvester stallone doritos bjarki kvikmyndir bjarka kvikmyndager hladvarp
Síðdegisþátturinn á K100
7. júní: Katla breytir leiknum í íslenskri kvikmyndagerð

Síðdegisþátturinn á K100

Play Episode Listen Later Jun 8, 2021 61:01

Logi Bergmann og Siggi Gunnars stýra Síðdegisþættinum á K100. Taktu skemmtilegu leiðina heim með þeim félögum alla virka daga milli 16 og 18. Hér getur þú hlustað á alla þættina án auglýsinga og tónlistar.

katla k100 taktu logi bergmann kvikmyndager siggi gunnars
Bíóblaður
#63 Horror með Óla og Mána

Bíóblaður

Play Episode Listen Later Mar 12, 2021 126:51

Kvikmyndagerðarmaðurinn Óli Bjarki og kvikmyndaáhugamaðurinn Máni Freyr kíktu til Hafsteins og ræddu við hann um alls kyns hrollvekjur. Óli og Máni hafa undanfarna mánuði sökkt sér í hryllingsmyndir og Hafsteini fannst því mjög spennandi að ræða við þá.   Í þættinum ræða þeir meðal annars af hverju Mike Flanagan er svona góður í að gera hrylling, hvernig vampíruhryllingur hefur þróast síðan Bram Stoker skrifaði bókina sína, hvernig er best að gera góð "jumpscares", hvort strákarnir trúi á alvöru drauga og margt, margt fleira.   Þátturinn er í boði Popp Smells frá Nóa Síríus.

Segðu mér
Anna Hildur Hildibrandsdóttir kvikmyndagerðakona

Segðu mér

Play Episode Listen Later Feb 23, 2021 38:00

Anna Hildur Hildibrandsdóttir fylgdi Hatara-hópnum til Ísraels þegar hljómsveitin tók eftirminnilega þátt í Eurovision árið 2019 og gerði heimildarmynd um ferðalagið. Hópnum tókst að valda nokkrum pólitískum titringi á svæðinu og þegar stigin voru kynnt á úrslitakvöldinu supu margir hveljur þegar liðsmenn sveitarinnar drógu upp palenstínska fánann og veifuðu honum fyrir framan myndavélarnar. Anna Hildur Hildibrandsdóttir kvikmyndagerðar- og fjölmiðakona er nýflutt heim frá London þar sem hún var búsett í þrjá áratugi. Í Segðu mér á Rás 1 sagði hún frá borgarlífinu í London, fjölmiðlabransanum og Eurovision-myndinni A song called hate sem hefur ferðast um heiminn og fer loksins að rata á skjáinn. Hefur kjark til að gera það sem öðrum finnst erfitt Anna Hildur tekur undir að hún sé kjörkuð og segist hafa hugrekkið frá foreldrum sínum. ?Pabbi heitinn og mamma, sem er enn á lífi, eru bæði ótrúlega dugleg og klár og þau hafa gert margt skemmtilegt í lífinu. Mér finnst gaman að ögra og takast á við áskoranir,? segir hún. ?Ég hef oft kjark til að gera það sem öðrum finnst erfitt að gera.?

eurovision hefur pabbi hatara kvikmyndager anna hildur hildibrandsd
Bíóblaður
#55 Bíóspjall með Arnari Tómas

Bíóblaður

Play Episode Listen Later Feb 12, 2021 130:38

Kvikmyndagerðarmaðurinn og kvikmyndaáhugamaðurinn, Arnar Freyr Tómasson, kíkti til Hafsteins og ræddi við hann um kvikmyndanámið, stuttmyndirnar sem hann hefur gert og sinn almenna kvikmyndaáhuga.   Í þættinum ræða þeir meðal annars hversu erfitt er oft fyrir unga kvikmyndagerðarmenn að fá styrki á Íslandi, hversu mikla ástríðu Arnar hefur fyrir kvikmyndatöku, hversu mikið Arnar elskar Marvel myndirnar, hversu dýr Spiderman búningurinn var sem Arnar lét sérsauma fyrir sig og margt, margt fleira.

movies marvel spider man arnar spjall kvikmyndir kvikmyndager hladvarp
Lestin
The Crown, Dýralif, Jólalagatal og Sumarið sem aldrei kom

Lestin

Play Episode Listen Later Dec 4, 2020

Kvikmyndagerðarmaðurinn Frosti Jón Runólfsson á heiðurinn að nýju tónlistarmyndbandi Jónsa (í Sigur Rós eins og hann er jafnan kallaður) við lagið Sumarið sem aldrei kom. Myndbandið er tekið upp á ferð og flugi um höfuðborgarsvæðið og sýnir ýmsar dagsdaglegar senur úr lífi landsmanna: þær sem við viljum sjá - svo sem börn á fimleika æfingu og eldri borgarar að dansa - en líka þær sem við hunsum, eins og fólkið á bekkjunum. Katrín Guðmundsdóttir flytur okkur sjónvarpspistil. Eins og svo margir hefur hún verið að horfa á fjórðu seríu The Crown á Netflix og varð starsýnt á myndmálið Við kynnum fyrir ykkur nýjan lið í Lestinni í desember. Jóladagatal Lestarinnar, eða öllu heldur Jólalagatal. Ívar Pétur Kjartansson, plötusnúður og tónlistarmaður, trommari hljómsveitarinnar FM Belfast, hefur umsjón með jólalagatalinu. Á hverjum degi í desember kynnir Ívar Pétur hlustendur fyrir einu athyglisverðu en lítið þekktu jólalagi, og útskýrir hvað það er við jólatónlist sem gerir hana svo umdeilda - heillandi eða óþolandi. Við heimsækjum forsætisráðherrahjónin Katrínu Jakobsdóttur og Gunnar Sigvaldason og ræðum við þau um nýútkomna þýðingu þeirra á bókinni Dýralíf eftir suður-afríska nóbelsverðlaunahafann J.M. Coetzee. Nóvellan Dýralíf var upprunalega flutt sem tveir fyrirlestrar við Princeton háskóla, en þar segir frá virtum skáldsagnahöfundi sem er beðinn um að flytja fyrirlestur við frægan háskóla, en í stað þess að flytja hefðbundinn fyrirlestur um bókmenntir talar hann herskátt um dýravernd og fordæmir hryllinginn sem felst í verksmiðjuvæðingu kjötáts.

Morgunvaktin
Undirbúningur að háskólanámi í kvikmyndagerð langt kominn

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Jul 16, 2020 130:00

Listaháskóli Íslands hefur glímt við húsnæðisvanda um árabil en starfsemi hans er dreifð um fjögur hús í tveimur póstnúmerum. Fyrir skömmu var svo greint frá því að samkvæmt frumathugun Framkvæmdasýslu ríkisins er Vatnsmýri ákjósanlegasta staðsetningin fyrir framtíðarhúsnæði Listaháskólans. Fríða Björk Ingvarsdóttir rektor Listaháskóla Íslands ræddi húsnæðismál skólans á Morgunvaktinni. Hún sagði líka frá því að Listaháskóli Íslands gerir ráð fyrir því að bjóða upp á nám í kvikmyndagerð frá haustinu 2021. Bakslag hefur orðið í norrænni samvinnu vegna kórónuveirunnar, eins og Bogi Ágústsson fór yfir þegar hann sest við Heimsgluggann eftir morgunfréttirnar klukkan átta. Hann ræddi líka um samskipti Kínverja við vestræn ríki og hlut Huawei í 5G uppbyggingunni. 250 ár eru í dag frá fæðingu eins frægasti íslenskættaði listamaður sögunnar, Bertel Thorvaldsen, fæddist. Bertel var einn helsti myndhöggvari Dana, bjó lengst af í Róm og var talinn einn fremsti myndhöggvari nýklassíska stílsins. Sigurður Trausti Traustason, safnfræðingur og deildarstjóri safneignar og rannsókna hjá Listasafni Reykjavíkur og Aldís Snorradóttir, listfræðingur og verkefnastjóri miðlunar hjá Listasafni Reykjavíkur leiða göngu tileinkaða honum í kvöld. Tónlist: Jutta Hipp - Violets for your furs, Rigning og súld - KK

Morgunvaktin
Undirbúningur að háskólanámi í kvikmyndagerð langt kominn

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Jul 16, 2020

Spegillinn
Spegillinn 12.05.2020

Spegillinn

Play Episode Listen Later May 12, 2020 30:00

Umsjón: Pálmi Jónasson Ferðamenn geta farið í skimun á Keflavíkurflugvelli í stað þess að sæta tveggja vikna sóttkví, eigi síðar en 15. júní. Kvikmyndagerðarfólk og íþróttamenn geta komið til landsins frá og með föstudegi, án þess að fara í tveggja vikna sóttkví. Forseti ASÍ segir það lengi hafa verið draum Icelandair að lækka laun flugfreyja. Hins vegar sé ekki hægt að ganga að samningi sem feli í sér 40 prósenta kjaraskerðingu. Aðalráðgjafi Bandaríkjaforseta í viðbrögðum við COVID-19 farsóttinni varar við því að aflétta útgöngubanni of snemma. Það geti haft alvarlegar afleiðingar. Fyrirtækin Össur hf. og Iceland Seafood hafa ákveðið að endurgreiða ríkinu hlutabætur.

Spegillinn
Spegillinn 12.05.2020

Spegillinn

Play Episode Listen Later May 12, 2020

Umsjón: Pálmi Jónasson Ferðamenn geta farið í skimun á Keflavíkurflugvelli í stað þess að sæta tveggja vikna sóttkví, eigi síðar en 15. júní. Kvikmyndagerðarfólk og íþróttamenn geta komið til landsins frá og með föstudegi, án þess að fara í tveggja vikna sóttkví. Forseti ASÍ segir það lengi hafa verið draum Icelandair að lækka laun flugfreyja. Hins vegar sé ekki hægt að ganga að samningi sem feli í sér 40 prósenta kjaraskerðingu. Aðalráðgjafi Bandaríkjaforseta í viðbrögðum við COVID-19 farsóttinni varar við því að aflétta útgöngubanni of snemma. Það geti haft alvarlegar afleiðingar. Fyrirtækin Össur hf. og Iceland Seafood hafa ákveðið að endurgreiða ríkinu hlutabætur.

Hlaðvarp Kjarnans
180° Reglan – Kvikmyndagerð í skugga COVID-19

Hlaðvarp Kjarnans

Play Episode Listen Later Apr 9, 2020 48:23

Covid-19 hefur haft áhrif á alla heimsbyggðina, og síðastliðinn mánuð höfum við Íslendingar fundið fyrir því svo um munar. Kvikmyndageirinn hefur ekki farið varhluta af þeim áhrifum, og þá sérstaklega þeir sem eru sjálfstæðir verktakar. Freyja vildi ræða ástandið nánar og sló á þráðinn til formanna WIFT og FK, en það eru þær Anna Sæunn Ólafsdóttir og Sigríður Rósa Bjarnadóttir.

180⁰ Reglan
#18 Kvikmyndagerð í skugga Covid-19

180⁰ Reglan

Play Episode Listen Later Apr 3, 2020 48:18

Covid-19 hefur haft áhrif á alla heimsbyggðina, og síðastliðinn mánuð höfum við Íslendingar fundið fyrir því svo um munar. Kvikmyndageirinn hefur ekki farið varhluta af þeim áhrifum, og þá sérstaklega þeir sem eru sjálfstæðir verktakar. Ég vildi ræða þetta ástand nánar og sló á þráðinn til formanna WIFT og FK, en það eru þær Anna Sæunn Ólafsdóttir og Sigríður Rósa Bjarnadóttir. WIFT á Íslandi (Women in Film and Television) FK (Félag Kvikmyndagerðarmanna) Tónlist: "Entidy" eftir Keosz

Víðsjá
Hönnun og skilaboð, tómur miðbær, Íslensk kvikmyndagerð og Dimmumót

Víðsjá

Play Episode Listen Later Mar 25, 2020 55:00

Víðsjá 25.03.2020 Í Víðsjá í dag verður meðal annars hugað að hönnun og skilaboðum til fjöldans vegna veirufaraldursins, en í því sambandi verða Búi Bjarmar Aðalsteinsson hönnuður og Borghildur Sturludóttir tekin tali. Boðið verður upp á svipmynd úr fámennri miðborg Reykjavíkur. Björn Þór Vilhjálmsson fjallar um A History of Icelandic Film eftir Steve Gravestock, nýútkomna bók eftir einn af skipuleggjendum kvikmyndahátíðarinnar í Toronto, þar sem leitast er við að segja sögu íslenskrar kvikmyndagerðar. Bók vikunnar að þessu sinni á Rás 1 er ljóðabókin Dimmumót eftir Steinunni Sigurðardóttur. Hlustendur heyra í Steinunni í þætti dagsins en hún var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna fyrir bókina á síðasta ári. Og áfram verður haldið að flytja ljóð fyrir þjóð, þar sem Baldur Trausti Hreinsson les Til eru fræ eftir Davíð Stefánsson. Umsjón: Guðni Tómasson og Eiríkur Guðmundsson

history toronto bj gu reykjav eir vilhj umsj hlustendur skilabo steinunni kvikmyndager dav stef steinunni sigur
Leikfangavélin
Markelsbræður

Leikfangavélin

Play Episode Listen Later Mar 18, 2020 100:42

Kvikmyndagerðamennirnir Örn Marinó Arnarson og Þorkell Harðarson sem saman mynda tvíeykið Markelsbræður eru gestir þáttarins. Þeir eru mennirnir sem gerðu hina vinsælu og bráðfyndnu gamanmynd „Síðasta veiðiferðin“. Við skyggnumst á bakvið tjöldin við gerð hennar ásamt mun fleiru til en Markelsbræður hafa gert fjölmargar aðrar myndir. Þar má finna sumar afar áhugaverðar heimildamyndir eins og „Lónbúann“, „Trend Beacons“ og hina mögnuðu „Feathered Cocaine“ en við gerð þeirrar síðastnefndu fundu þeir "doltið" sem allir voru að leita að en enginn vildi svo þegar uppi var staðið. Upphafið af samstarfinu þeirra, allar myndirnar og gagnrýnin ásamt ISIS og Al-Qaeda í þessum afar fróðlega þætti. Get bonus content on Patreon See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.

Fríhöfnin
Þræðir: Kvikmyndagerð íslenskra kvenna 4/4

Fríhöfnin

Play Episode Listen Later Mar 11, 2020

Fjórði og síðasti þáttur um íslenskar kvikmyndagerðarkonur. Hverjir eru áhrifavaldar íslenskra kvikmyndagerðarkvenna? Nína Dögg Filipusdóttir, Helga Rakel Rafnsdóttir, Margrét Örnólfsdóttir og Ísold Uggadóttir eru gestir þáttarins. Umsjón: Þóra Tómasdóttir. (Frá 2015)

Fríhöfnin
Þræðir: Kvikmyndagerð íslenskra kvenna, 1/4

Fríhöfnin

Play Episode Listen Later Mar 11, 2020

Fyrsti þáttur af fjórum um íslenskar kvikmyndagerðarkonur. Hversvegna drepa konur? Kristín Jóhannesdóttir leikstjóri hefur leitað svara við þessu í áraraðir og ræðst nú í upptökur á kvikmynd um þetta umfjöllunarefni. Forvitnast er um hugðarefni Kristínar og hæðir og lægðir á litríkum leikstjóraferli hennar. Umsjón: Þóra Tómasdóttir.

krist fyrsti umsj kvikmyndager
Fríhöfnin
Þræðir: Kvikmyndagerð íslenskra kvenna 2/4

Fríhöfnin

Play Episode Listen Later Mar 11, 2020

Annar þáttur af fjórum um íslenskar kvikmyndagerðarkonur. Kvikmyndaleikstjórinn Sólveig Anspach var meðvituð um að lífið gæti endað skyndilega og varð meðal afkastamestu leikstjóra íslenskrar kvikmyndasögu. Hún lést í ágúst aðeins 54 ára gömul og skildi eftir sig 14 litríkar kvikmyndir. Farið er yfir feril Sólveigar og rætt við vini og samstarfsfólk hennar. Umsjón: Þóra Tómasdóttir. (Frá 2015)

Fríhöfnin
Þræðir: Kvikmyndagerð íslenskra kvenna 3/4

Fríhöfnin

Play Episode Listen Later Mar 11, 2020

Þriðji þáttur af fjórum um íslenskar kvikmyndagerðarkonur. Elísabet Ronaldsdóttir klippari segir frá starfi sínu og mikilvægi þess að láta tilfinningar ráða ferðinni þegar kvikmyndum er púslað saman. Umsjón: Þóra Tómasdóttir. (Frá 2015)

umsj kvikmyndager

Ragnar Bragason leikstjóri og handritshöfundur

Segðu mér

Play Episode Listen Later Jan 30, 2020 40:00

Kvikmyndin Gullregn fjallar um fjölskyldur sem alast upp og ala hver aðra upp við að misnota félagslega kerfið. „Þessi mynd fjallar ekki um öryrkja heldur þessa einstöku svörtu sauði sem nýta sér það sem í boði er og af sjálfsbjargarviðleitni,“ segir leikstjóri myndarinnar Ragnar Bragason. Kvikmyndagerðarmaðurinn Ragnar Bragason er kominn í stutt frí eftir að hann frumsýndi kvikmyndina Gullregn á síðasta ári. Myndin er byggð á samnefndu leikriti eftir Ragnar sem var frumraun hans í leikhúsi og vakti svo mikla lukku að færa þurfti sýninguna frá Nýja sviðinu yfir á Stóra sviðið á sínum tíma. Salurinn var smekkfullur kvöld eftir kvöld og látunum ætlaði ekki að linna. Nú hefur sagan gengið í endurnýjun lífdaga en fært sig yfir á hvíta tjaldið og er kvikmyndin Gullregn í sýningu í kvikmyndahúsum landsins. Ragnar nýtir sér tækifærið til að fá smá hvíld, lesa bækur og horfa á kvikmyndir eftir aðra. Honum þykir líka gott, þegar veður leyfir, að kúpla sig út úr annríkinu og fara með fjölskylduna til Súðavíkur þar sem þau eiga hús.

ragnar honum myndin kvikmyndager ragnar bragason
Segðu mér
Ragnar Bragason leikstjóri og handritshöfundur

Segðu mér

Play Episode Listen Later Jan 30, 2020

Davíð Óskar Ólafsson framleiðandi

Segðu mér

Play Episode Listen Later Jan 7, 2020 38:45

Kvikmyndagerðarmaðurinn Davíð Óskar Ólafsson er í raun alinn upp í bransanum en hann varði miklum tíma með móður sinni, Valdísi Óskarsdóttur, í klippiherberginu þegar hann var ungur. Árið hefst með miklum hvelli hjá honum en nýverið voru bæði frumsýndir á RÚV spennuþættirnir Brot sem Davíð framleiddi og leikstýði og kvikmyndin Gullregn sem hann framleiddi og grét sjálfur úr hlátri á frumsýningunni á.

Segðu mér
Davíð Óskar Ólafsson framleiðandi

Segðu mér

Play Episode Listen Later Jan 7, 2020

Kvikmyndagerðarmaðurinn Davíð Óskar Ólafsson er í raun alinn upp í bransanum en hann varði miklum tíma með móður sinni, Valdísi Óskarsdóttur, í klippiherberginu þegar hann var ungur. Árið hefst með miklum hvelli hjá honum en nýverið voru bæði frumsýndir á RÚV spennuþættirnir Brot sem Davíð framleiddi og leikstýði og kvikmyndin Gullregn sem hann framleiddi og grét sjálfur úr hlátri á frumsýningunni á.

Segðu mér
Hrafnhildur Gunnarsdóttir kvikmyndagerðarmaður

Segðu mér

Play Episode Listen Later Aug 1, 2019 40:00

Gestur þáttarins er Hrafnhildur Gunnarsdóttir, kvikmyndagerðarmaður. Hrafnhildur lauk kvikmyndagerðarnámi í Bandaríkjunum fyrir 30 árum. Hún hefur gert mikinn fjölda heimildamynda og einnig unnið að gerð ýmissa þátta fyrir sjónvarp sem hún segir að hún hafi gert "til að fjámagna fíknina". Í haust verður frumsýnd ný heimildamynd hennar Vasulka-áhrifin, sem fjallar um hjónin og listamennina Steinunni og Woody Vasulka. Þá verður einnig frumsýnd á RÚV í haust þáttaröð hennar í 5 hlutum, Svona fólk, sem fjallar um sögu samkynhneigðra á Íslandi frá áttunda áratug síðustu aldar fram á okkar daga. Umsjón hefur Viðar Eggertsson.

Segðu mér
Hrafnhildur Gunnarsdóttir kvikmyndagerðarmaður

Segðu mér

Play Episode Listen Later Aug 1, 2019

Gestur þáttarins er Hrafnhildur Gunnarsdóttir, kvikmyndagerðarmaður. Hrafnhildur lauk kvikmyndagerðarnámi í Bandaríkjunum fyrir 30 árum. Hún hefur gert mikinn fjölda heimildamynda og einnig unnið að gerð ýmissa þátta fyrir sjónvarp sem hún segir að hún hafi gert "til að fjámagna fíknina". Í haust verður frumsýnd ný heimildamynd hennar Vasulka-áhrifin, sem fjallar um hjónin og listamennina Steinunni og Woody Vasulka. Þá verður einnig frumsýnd á RÚV í haust þáttaröð hennar í 5 hlutum, Svona fólk, sem fjallar um sögu samkynhneigðra á Íslandi frá áttunda áratug síðustu aldar fram á okkar daga. Umsjón hefur Viðar Eggertsson.

Mannlegi þátturinn
Bovísk kvikmyndagerð, gamanþáttur frá 1960 og Afríkufræði

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Mar 6, 2019 50:00

Íslenska kvikmyndin Eden verður frumsýnd 9. maí næstkomandi en leikstjóri og höfundur myndarinnar er Bolvíkingurinn Snævar Sölvi Sölvason. Eden er önnur mynd Snævars Sölva sem ratar í kvikmyndahúsin en fyrri myndin var gamanmyndin Albatross sem kom út árið 2015. Albatross var gamanmynd sem fjallaði um líf og störf golfvallarstarfsmanna í Bolungarvík en kvikmyndin Eden er samkvæmt kynningu villt blanda af spennu og kómík en hún segir frá pari sem framfleytir sér með fíkniefnasölu en þráir ekkert heitar en að elta drauma sína. Við hringdum í Snævar í þættinum í dag, en hann er staddur í Malmö þar sem hann er að skrifa handrit að næstu mynd. Við opnuðum gullkistu safnsins hér í Útvarpinu. Við heyrum brot úr útvarpsþáttaröð sem var á dagskrá 1960, þessir þættir voru skemmti og gamanþættir og hétu Klippt og skorið. Ummsjónarmenn voru engir aðrir en Gunnar Eyjólfsson, leikari og Jónas Jónasson, útv. maður. Bandarískur prófessor í Afríkufræðum spáir því í komandi bók að flóðbylgja ungra ómenntaðra Afríkubúa muni skella á Evrópu á næstu þrjátíu árum. Hann segir að hundrað til tvö hundruð milljónir munu streyma til Evrópu vegna hinnar gífurlegu mannfjölgu sem á sér stað í Afríku og fer vaxandi með hverju ári. Magnús skoðaði málið í pistli dagsins. UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Morgunútvarpið
Mezzoforte, ferðaþjónusta, Laugavegur og málfar

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Jan 10, 2019 190:00

Í kvöld verður fyrri hluti nýrrar heimildamyndar um hljómsveitina Mezzoforte sýnd á RÚV. Myndin segir frá fjölbreyttum 40 ára ferli sveitarinnar sem enn er að. Kvikmyndagerðarmaðurinn Ragnar Hansson gerði myndina og hann var á línunni frá Berlín þar sem hann er búsettur. Páll Ásgeir Ásgeirsson, leiðsögumaður, kom til okkar en í pistli á Stundinni nefnir hann nokkra áhugaverða hluti. Til að mynda það að oft hitta ferðamenn sárafáa Íslendinga á för sinni um landið, nema þá helst leiðsögumenn, því starfsmenn fyrirtækjanna séu oftar en ekki útlendingar og oft á kjörum sem Íslendingum finndust slæm en þeir sjálfir eru hinsvegar sáttir við. Hulda Hauksdóttir, eigandi verslunarinnar Flash á Laugavegi, er gagnrýnin á stjórnendur Reykjavíkurborgar vegna stefnunnar í miðbænum og hefur fengið nóg. Hún segir að hennar viðskiptavinir kvarti mikið undan aðgengi því lítið sé um bílastæði og að ekki sé hægt að mæla með bílastæðahúsum vegna óþrifnaðar og útigangsmanna sem stundum hreiðri þar um sig. Hún segist vera að hugsa sinn gang með verslunarreksturinn á Laugaveginum og að nokkrir aðrir kaupmenn séu í sömu hugleiðingum. Hulda var á línunni. Við ræddum við Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóra Samtaka ferðaþjónustunnar, í þættinum en varaði við árásum á greinina í formi verkfalla, í morgunblaðinu í dag. Hann segir líklegt að mörg fyrirtæki fari á hausinn komi til langvarandi verkfalla. Anna Sigríður Þráinsdóttir mætir á sinn stað með málfarshorn vikunnar og við veltum m.a. fyrir okkur frasanum Sautjánhundruð og súrkál. Tónlist: Ellen Kristjánsdóttir - Ástin mín ein. Van Morrison - Meet me in the Indian summer. Mezzoforte - Garden Party (brot og undir viðtali). Mezzoforte - This is the night. Davíð Ólafsson - Truth. Vök - Spend the love. Duran Duran - Anyone out there. David Bowie - Space Oddity. Stebbi, Eyfi og Björgvin - Borgarljós. Ian Brown - First world problems. Jónas Sig - Milda hjartað.

Segðu mér
Þórunn Lárusdóttir leikkona og kvikmyndagerðakona

Segðu mér

Play Episode Listen Later Dec 5, 2018 40:00

Þórunn hefur búið í Sit­ges á Spáni en hún var ein af fáum út­völd­um sem komust inn í kvik­mynda­leik­stjórn í AFilm-kvik­mynda­skól­an­um. Í nám­inu skrifaði hand­rit að kvik­mynd í fullri lengd og leik­stýrði henni ásamt skóla­systkin­um. Myndin var svo sýnt á kvikmyndahátíðinn í Sitges. Þórunn segir frá lífi sínu í Sitges en hún og fjölskylda hennar nutu lífsins og tókust á við ýmsi krefjandi og spennandi verkefni.

sitges runn myndin kvikmyndager
Segðu mér
Valdís Óskarsdóttir klippari og kvikmyndagerðakona

Segðu mér

Play Episode Listen Later Nov 12, 2018 40:00

Gestur þáttarins er Valdís Óskarsdóttir kvikmyndaklippari og kvikmyndagerðarkona. Umsjón: Sigurlaug Margrét Jónasdóttir.

vald gestur umsj kvikmyndager sigurlaug margr
Víðsjá
Framúrstefna á RIFF, Utan svæðis, á bókasafni í Gautaborg og gler í Ja

Víðsjá

Play Episode Listen Later Sep 27, 2018 55:00

Alþjóðleg kvikmyndahátíð Reykjavíkur, RIFF, hefst í dag. Kvikmyndagerðamaðurinn og ljóðskáldið Jonas Mekas er heiðursgestur hátíðarinnar í ár og mun Víðsjá gera listamanninum skil í þætti dagsins. Rætt er við Benedikt Hjartarson, prófessor í bókmenntafræði og menningarfræði við Háskóla Íslands um Jonas Mekas, sem hefur verið kallaður guðfaðir amerísku framúrstefnunnar. Harbinger sýningarrými við Freyjugötu verður heimsótt en þar sýnir Ragnheiður Káradóttir verk sín þessa dagana og kallar sýninguna Utan svæðis. Þar koma moppur, drullusokkar og víddaflakk við sögu. Í dag hefst Bókamessan í Gautaborg og er bókasafnið alltaf stór hluti af þeim viðburði. Halla Þórlaug Óskarsdóttir fékk sér sæti á einu slíku þar í borg og lét hugann reika um bókasöfn, heimili, einsemdina og hversdagsleikann. Einnig verður tónlistakonan Tinna Þorsteinsdóttir gestur þáttarins en hún og myndlistakonan Æsa Björk unnu nýverið fyrstu verðlaun á Alþjóðlegri glerlistasýningu í Japan.

Fred Icelandic Channel » FRED Iceland Podcast
5 – Hver er hvað í kvikmyndagerð? #FilmLiteracy

Fred Icelandic Channel » FRED Iceland Podcast

Play Episode Listen Later Feb 7, 2015 4:03

Fyrir venjulega áhorfendur er erfitt að gera sér grein fyrir vinnunni og þeim fjölda fólks sem tekur þátt í kvikmyndagerð. The post 5 – Hver er hvað í kvikmyndagerð? #FilmLiteracy appeared first on Fred Icelandic Channel » FRED Iceland Podcast. 5 – Hver er hvað í kvikmyndagerð? #FilmLiteracy was first posted on February 7, 2015 at 5:38 pm.©2015 "Fred Icelandic Channel". Use of this feed is for personal non-commercial use only. If you are not reading this article in your feed reader, then the site is guilty of copyright infringement. Please contact me at radio@fred.fm

hver fyrir kvikmyndager filmliteracy
Fred Icelandic Channel » FRED Iceland Podcast
4 – Kvikmyndamálið #FilmLiteracy

Fred Icelandic Channel » FRED Iceland Podcast

Play Episode Listen Later Feb 7, 2015 6:46

Kvikmyndagerðarmenn skapa eigið tungumál, kvikmyndamálið. En kvikmyndir búa yfir eigin tungutaki, sem skapar sínar eigin reglur. The post 4 – Kvikmyndamálið #FilmLiteracy appeared first on Fred Icelandic Channel » FRED Iceland Podcast. 4 – Kvikmyndamálið #FilmLiteracy was first posted on February 7, 2015 at 5:32 pm.©2015 "Fred Icelandic Channel". Use of this feed is for personal non-commercial use only. If you are not reading this article in your feed reader, then the site is guilty of copyright infringement. Please contact me at radio@fred.fm

kvikmyndager filmliteracy