Podcasts about umhverfisstofnunar

  • 6PODCASTS
  • 52EPISODES
  • 1h 3mAVG DURATION
  • 1MONTHLY NEW EPISODE
  • Sep 19, 2024LATEST

POPULARITY

20172018201920202021202220232024

Best podcasts about umhverfisstofnunar

Latest podcast episodes about umhverfisstofnunar

Spegillinn
Hvítabjörn, Líbanon og sígarettusmygl rafrettukónga

Spegillinn

Play Episode Listen Later Sep 19, 2024 20:00

Fyrsti hvítabjörninn sem gengið hefur á land síðan 2016 var felldur í fjörunni á Höfðaströnd í Jökulfjörðum skömmu fyrir klukkan fjögur í dag. Helgi Jensson, lögreglustjóri á Vestfjörðum, segir dýrið hafa verið aflífað eins snyrtilega og hægt var en vill ekki gefa upp hverjir það voru sem felldu björnin en bæði lögreglumenn frá lögreglunni á Vestfjörðum og séraðgerðardeild Landhelgisgæslunnar voru á staðnum, lögreglumennirnir á björgunarbátnum Kobba Lák en sérðagerðardeildin um borð í þyrlu Landhelgisgæslunnar. Freyr Gígja Gunnarsson ræddi við Sigrúnu Ágústsdóttur, forstjóra Umhverfisstofnunar, um verklagið sem er viðhaft þegar hvítabjörn gengur á land á Íslandi. Á fjórða tug létust og á fjórða þúsund særðust, þar af eru nær þrjú hundruð með lífshættulega áverka, þegar þúsundir símboða og talstöðva voru sprengdar í loft upp í Líbanon í gær og fyrradag. Talið er að litlu magni af mjög öflugu sprengiefni hafi verið komið fyrir í tækjunum á einhverju stigi framleiðslunnar, og sprengibúnaðurinn svo virkjaður með því að senda boð í tækin. Allt þykir benda til þess að Ísraelar hafi verið að verki, nánar tiltekið ísraelska leyniþjónustan Mossad. Vesturlandabúar búast flestir við því að allt verði nú vitlaust í herbúðum Hezbollah, sem hyggi á skjótar og grimmilegar hefndir. Guðrún Margrét Guðmundsdóttir mannfræðingur, sem þekkir vel til í Líbanon, segir það misskilning. Ævar Örn Jósepsson ræðir við hana. Tveir karlmenn, sem báðir hafa hagnast vel á rafrettusölu til Íslendinga, hafa verið ákærðir fyrir eitt mesta sígarettusvindl Íslandssögunnar ásamt starfsmanni flutningafyrirtækis. Á árunum 2015 til 2018 eru athafnamennirnir tveir sagðir hafa flutt til landsins rúmlega 125 þúsund karton af sígarettum í gegnum félag án þess að greitt væri tóbaksgjald af vörunum upp á rúmlega 740 milljónir. Freyr Gígja Gunnarsson segir frá. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred

Spegillinn
J.D. Vance, vatnsfrek starfsemi og stjórn vatna

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jul 17, 2024 10:21

Donald Trump kynnti í gær varaforsetaefni sitt og, ef nýjustu skoðanakannanir ganga eftir, að öllum líkindum næsta varaforseta Bandaríkjanna. Sá heitir James David Vance, iðulega kallaður J.D., og er öldungadeildarþingmaður Repúblikana fyrir Ohio. Hann hefur ekki alltaf verið aðdáandi Trumps, eins og Ævar Örn Jósepsson rekur. Ísland er ríkt af vatni en sókn eftir því til ýmissar starfsemi, ekki síst fiskeldis, fer stöðugt vaxandi og það verður að umgangast auðlindina af virðingu segir Sigrún Ágústsdóttir, forstjóri Umhverfisstofnunar og ekki sé vanþörf á að skerpa lagarammann um eldið. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við hana.

donald trump ohio hann bandar sigr anna krist umhverfisstofnunar
Samfélagið
Kynfræðsla í grunnskólum, landvarðanámskeið og málfarsspjall með Önnu Sigríði

Samfélagið

Play Episode Listen Later Feb 6, 2024 59:11

Hvernig á að fá grunnskólakennara til að kenna kynfræðslu? Hvernig má styðja betur við þá og gera kennsluna markvissari? Þetta rannsakaði Íris Valsdóttir í meistaraverkefni sínu í kennslufræðum. Íris hefur sjálf kennt á miðstigi í grunnskóla og þekkir óöryggi þegar kemur að kynfræðslu og hvernig skuli bera sig að af eigin raun. Í rannsókninni tók hún viðtöl við sjö skólastarfsmenn; umsjónarkennara, náttúrufræðikennara, íþróttakennara og skólahjúkrunarfræðing og í þessum viðtölum kom fram að það skorti yfirsýn og samræmda nálgun, að það beri enginn einn ábyrgð á kynfræðslunni, hún sé oft af skornum skammti og kennarar einir á báti þegar kemur að því að útfæra hana. Nú stendur yfir reglulegt námskeið á vegum Umhverfisstofnunar fyrir landverði en þeir sinna fjölbreyttum verkefnum í þjóðgörðum og á öðrum náttúruverndarsvæðum um allt land. Kristín Ósk Jónasdóttir hefur umsjón með landvarðanámskeiðum Umhverfisstofnunar og ræðir þau við okkur. Anna Sigríður Þráinsdóttir, málfarsráðunautur, ræðir við okkur um íslenskt mál og gaurinn sem við grípum stundum til þegar við viljum lýsa einhverju sem við munum ekki hvað heitir, vitum ekki hvað heitir eða vantar einfaldlega orð á íslensku yfir.

krist hvernig sigr valsd grunnsk anna sigr umhverfisstofnunar
Samfélagið
Líffræðileg fjölbreytni, slóðar á hálendinu og ungmennaeftirlitið

Samfélagið

Play Episode Listen Later Oct 2, 2023 55:00

Líffræðilegur fjölbreytileiki á alls staðar undir högg að sækja og hnignun tegunda er bæði hröð og ógnvekjandi. Fyrir þremur árum skipaði hópur líffræðinga samráðsvettvanginn Biodice og hefur síðan unnið að því að auka skilning, rannsóknir, umræðu og aðgerðir í tengslum við líffræðilegan fjölbreytileika á Íslandi. Ragnhildur Guðmundsdóttir, sérfræðingur hjá Náttúruminjasafni ætlar að ræða við okkur um lífríkið í kringum okkur og málstofu sem fer fram RIFF kvikmyndahátíðinni á morgun. Fréttir af 14 tonna trukki sem tætti upp land í Þjórsárverum hafa vakið mikla athygli enda sláandi myndir sem við sáum af því í sjónvarpsfréttum í gær. Daníel Freyr Jónsson, sérfræðingur í náttúruverndarteymi Umhverfisstofnunar, sagði í hádegisfréttum að ferðamaðurinn hafi ekki ekið utan vegar - þarna séu slóðar. Aksturslag hans sé þó langt frá því að vera til fyrirmyndar. En hvenær er slóði slóði og hvenær eru menn utan vegar? Við ræðum nánar við Daníel á eftir. Akstur utan vega á sinni könnu Málfarsmínúta. Við bregðum okkur á Þjóðskalasafnið eins og við gerum reglulega. Að þessu sinni tekur Benedikt Eyþórsson á móti okkur í lestrarsal safnsins en hann er fagstjóri upplýsingaþjónustu. Ástandsárin og unmennaeftirlitið til umfjöllunar.

riff fyrir umhverfisstofnunar
Samfélagið
Líffræðileg fjölbreytni, slóðar á hálendinu og ungmennaeftirlitið

Samfélagið

Play Episode Listen Later Oct 2, 2023

Marokkó, bein í Ráðherrabústaðnum, fullkomnir gasmælar á Reykjanes

Spegillinn

Play Episode Listen Later Sep 11, 2023

Björgunarsveitum í Marokkó gengur seint að koma til aðstoðar fólki sem missti allt í jarðskjálftanum á föstudagskvöld. Hátt í 2.700 hafa fundist látin. Höfuðkúpu­bein úr manni fund­ust í fyrri viku und­ir gólf­fjöl­um í risi Ráðherra­bú­staðar­ins við Tjarn­ar­götu, þar sem end­ur­bæt­ur standa yfir. Margrét Hallgrímsdóttir, skrifstofustjóri í forsætisráðuneytinu og fyrrverandi Þjóðminjavörður, gerir ráð fyrir að beinunum hafi verið komið fyrir í húsinu eftir að það var flutt frá Önundarfirði, þar sem það stóð upphaflega. Geðhjálp segir að því fari fjarri að fatlað fólk sé ofþjónustað. Fjármálaráðherra sendi fötluðu fólki kaldar kveðjur þegar hann segir að skoða þurfi hvort því sé veitt þjónusta umfram það sem lög bjóða. Setja á fullkomna gasmæla í hvern þéttbýliskjarna á Reykjanesskaga þar sem búast má við fleiri eldgosum á skaganum. Verið er að bæta viðbúnað Umhverfisstofnunar við eldgosum, í stað þess að redda mælum þegar gos er hafið. Formaður deildar sauðfjárbænda segir að göngur og réttir hafi gengið vel í haust en hefur áhyggjur af því að fleiri bændur bregði búi. Landbúnaðurinn hefur ekki aðgang að sama fé og fjárfestar sem kaupi upp jarðir. Laufey Lín Jónsdóttir tónlistarkona hefur slegið met Lady Gaga og Tonys Bennett á streymisveitunni Spotify í flokki djasstónlistar. Þing verður sett á morgun. Fjármálaráðherra hefur boðað miklar aðhaldsaðgerðir. Í vor og sumar hefur mikið verið rætt um ágreining eða núning milli stjórnarflokkanna og þá helst Sjálfstæðisflokksins og Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs. Eva Heiða Önnudóttir, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, segir alltaf erfitt að sjá fyrir hvað veldur helst ágreiningi en útlendingamálin og boðaður niðurskurður í fjárlögum sé til þess líklegur. Umsjónarmaður Spegilsins var Ragnhildur Thorlacius. Tæknimaður var Mark Eldred. Útsendingu stjórnaði Annalísa Hermannsdóttir.

Spegillinn
Marokkó, bein í Ráðherrabústaðnum, fullkomnir gasmælar á Reykjanes

Spegillinn

Play Episode Listen Later Sep 11, 2023 9:57

Afmæli blóðbankans, losunarbókhald og langreyðar

Samfélagið

Play Episode Listen Later Sep 1, 2023 55:00

Blóðbanki snýst um miklu meira en að taka fólki blóð. Blóðbanki Landspítalans á sjötíu ára afmæli og því er fagnað þessa dagana, meðal annars með ráðstefnuröð þar sem meðal annars er fjallað um vefjaverkfræði og stofnfrumur. Við ræðum við Ólaf E. Sigurjónsson en hann stýrir rannsóknum og nýsköpun hjá Blóðbankanum. Bráðabirgðatölur Umhverfisstofnunar um losun Íslands benda til þess að losunin hafi staðið í stað árið 2022, allt útlit er hins vegar fyrir að hún aukist í ár og heljarinnar átak framundan ætli stjórnvöld að standa við loftslagsloforð. Rafn Helgason, sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun ræðir við okkur um þetta. Málfarsmínúta. Dýraspjall. Edda Elísabet Magnúsdóttir, hvalafræðingur, fræðir okkur um langreyðar - að gefnu tilefni.

magn sigurj landsp umhverfisstofnun umhverfisstofnunar
Samfélagið
Afmæli blóðbankans, losunarbókhald og langreyðar

Samfélagið

Play Episode Listen Later Sep 1, 2023

Blóðbanki snýst um miklu meira en að taka fólki blóð. Blóðbanki Landspítalans á sjötíu ára afmæli og því er fagnað þessa dagana, meðal annars með ráðstefnuröð þar sem meðal annars er fjallað um vefjaverkfræði og stofnfrumur. Við ræðum við Ólaf E. Sigurjónsson en hann stýrir rannsóknum og nýsköpun hjá Blóðbankanum. Bráðabirgðatölur Umhverfisstofnunar um losun Íslands benda til þess að losunin hafi staðið í stað árið 2022, allt útlit er hins vegar fyrir að hún aukist í ár og heljarinnar átak framundan ætli stjórnvöld að standa við loftslagsloforð. Rafn Helgason, sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun ræðir við okkur um þetta. Málfarsmínúta. Dýraspjall. Edda Elísabet Magnúsdóttir, hvalafræðingur, fræðir okkur um langreyðar - að gefnu tilefni.

magn sigurj landsp umhverfisstofnun umhverfisstofnunar
Spegillinn
Vopnakaup ríkislögreglustjóra, reiðufé, lestarslys á Indlandi

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jun 2, 2023 9:32

Spegillinn 2. Júní 2013 Umsjón: Ásgeir Tómasson Tæknimaður: Mark Eldred Stjórn fréttaútsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir Ríkislögreglustjóri keypti skotvopn og skotfæri fyrir 185 milljónir króna vegna leiðtogafundar Evrópuráðsins. Annar búnaður kostaði 150 milljónir til viðbótar. Benedikt Sigurðsson ræddi við Runólf Þórhallsson aðstoðaryfirlögregluþjón. Gunnar Jakobsson, varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika, segir jákvætt að færri noti reiðufé í viðskiptum sínum þó hann vilji ekki að notkun þess leggist alfarið af. Hins vegar eigi það eftir að gerast einn daginn og annað taka við. Sunna Karen Sigurþórsdóttir ræddi við hann. Óttast er að tugir hafi látist í lestarslysi á Indlandi í dag. Minnst tvö hundruð slösuðust. Gæsluvarðhald hefur verið framlengt yfir karlmanni vegna rannsóknar á andláti konu á Selfossi í apríl. Starfshópur á vegum félagsmálaráðherra vill að skoðað verði hvort tilefni sé til þess að láta eltihrella og þá sem ítrekað hafa rofið nálgunarbann til að sæta rafrænu eftirliti. Starfshópurinn telur þjónustu við þolendur kynbundins ofbeldis ómarkvissa. Valur Grettisson sagði frá. Atkvæðagreiðsla um verkfallsaðgerðir félaga Rafiðnaðarsambandsins sem starfa hjá Landsneti hefst í næstu viku. Landsliðskonan Sveindís Jane Jónsdóttir verður í eldlínunni með þýska liðinu Wolfsburg sem mætir Barcelona í úrslitaleik meistaradeildarinnar í fótbolta á morgun. Sveindís segir að pressan sé öll á Barcelona og að hún ætli að njóta þess að spila á stærsta sviðinu. Björn Malmquist talaði við hana. Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra vonast til þess að afkoma ríkissjóðs á þessu ári verði betri en fram kom í fyrri efnahagsspám. Elsa María Guðlaugs Drífudóttir talaði við hann. Atlantshafsbandlagið eykur þrýsting á Tyrki að hleypa Svíum í Evrópusambandið. Ásgeir Tómasson sagði frá. Þverfaglegur starfshópur starfar á vegum Umhverfisstofnunar með það að leiðarljósi að veita faglega ráðgjöf um áhrif umhverfis á heilsu fólks. Ævar Örn Jósepsson ræddi við Ragnhildi Guðrúnu Finnbjörnsdóttur, verkefnisstjóra hópsins.

Spegillinn
Vopnakaup ríkislögreglustjóra, reiðufé, lestarslys á Indlandi

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jun 2, 2023

Gæti Last of us gerst í alvörunni? Strandhreinsun og kræklingur

Samfélagið

Play Episode Listen Later May 19, 2023 55:00

Byrjum á að ræða um afar aðkallandi mál við Pétur Henry Petersen prófessor í taugavísindum, nefnilega hvort heimsfaraldur af völdum sveppa sem breyta mannfólki í uppvakninga geti gerst í alvörunni. Í sjónvarpsþáttunum Last of us sem njóta gríðarlegra vinsælda geysar slíkur sveppafaraldur og hefur lagt heiminn í rúst - og þessir uppvakningasveppir: þeir eru til í alvörunni! Hafa hingað til bara lagst á skordýr - EN erum við næst?! Við verðum líka beint frá Geldinganesi en þar var Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfis-, orku- og loftlagsráðherra ásamt forstjóra Umhverfisstofnunar að opna nýja vefsíðu, strandhreinsun.is sem eins og nafnið bendir til snýst um hreinsun á strandlengjunni. Þarna verður t.d. hægt að taka frá svæði til að hreinsa, fyrir einstaklinga, stofnanir og félagasamtök. Og þetta er allt saman hluti af átaki sem umhverfisráðuneyti réðist í árið 2021. Rætt við Guðlaug og Katrínu Sóley Bjarnadóttur sérfræðing hjá Umhverfisstofnun. Málfarsmínúta. Svo er dýraspjallið á sínum stað, Halldór Pálmar Halldórsson er náttúruvísindamaðurinn sem fær að sitja fyrir svörum í dag. Halldór er sérfræðingur í kræklingi - sem flestir vita að er gómsætur, en það er svo margt fleira algerlega magnað við þessa lífveru - og Halldór segir okkur allt um það.

last of us gu katr halld svo gerst hafa bjarnad umhverfisstofnun umhverfisstofnunar
Samfélagið
Gæti Last of us gerst í alvörunni? Strandhreinsun og kræklingur

Samfélagið

Play Episode Listen Later May 19, 2023

Lofstlagsmál, riða, Súdan, villtur lax og alinn, og Evrópuráðsfundur

Spegillinn

Play Episode Listen Later Apr 19, 2023

Spegillinn 19. apríl 2023 Enn er leitað að stað til að urða um sjö hundruð kindahræ frá Syðri Urriðaá í Miðfjarðarhólfi. Veirufræðingur á tilraunastöðinni á Keldum segir urðun besta kostinn ef ekki er hægt að brenna hræin. Um þrjú hundruð almennir borgarar hafa fallið í Súdan, í átökum sem stigmagnast með degi hverjum. Vatn og matur er víða af skornum skammti og erfitt að koma særðum undir læknishendur. Fjármálaráðuneytið og Skatturinn geta veitt stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd allar upplýsingar varðandi tollafgreiðslu á pítsuosti og gögn þar að lútandi, segir fjármálaráðherra Innheimtustofnun sveitarfélaga þarf að endurgreiða samtals sjötíu milljónir sem rukkaðar voru ólöglega sem innheimtuþóknun. Heildarkostnaður við uppbyggingu Landspítalans er áætlaður 210 milljarðar króna. ----- Í nýrri skýrslu Umhverfisstofnunar um losun gróðurhúsalofttegunda er því spáð að Íslendingar nái að minnka losun um 24 prósent fram til ársins 2030, en Ísland hefur skuldbundið sig gagnvart ESB til að minnka hana um 29 prósent. Og það sem meira er, þá eru þessar skuldbindingar í þann mund að hækka, að líkindum upp í um það bil 40 prósenta samdrátt. Það er því ljóst að Ísland er fjarri því að standa við gildandi markmið og skuldbindingar gagnvart Evrópusambandinu, enn fjær því að standa við væntanlegar skuldbindingar sínar og víðs fjarri enn metnaðarfyllri markmiðum íslenskra stjórnvalda um 55 prósenta samdrátt. Ísland virðist eina von stofns Atlantshafslaxins sem óðum fer minnkandi. Lega landsins, lítil mengun og fátt fólk eru meðal ástæðna. Laxeldi í sjó er þó ógn. Þetta segir umsvifamesti eigandi íslenskra laxveiðiáa og jarða sem þeim tengjast, breski auðkýfingurinn Jim Ratcliffe. Tæpur mánuður er þangað til meira en fjörtíu evrópskir þjóðarleiðtogar koma til Íslands, á leiðtogafund Evrópuráðsins - þann fyrsta sem haldinn er í átján ár, og aðeins þann fjórða í sögu ráðsins. Ísland fer nú með formennsku í Evrópuráðinu og stór hluti af undirbúningi fyrir leiðtogafundinn hefur fallið á fastanefnd Íslands í höfuðstöðvum Evrópuráðsins í Strassborg í Frakklandi. Umsjónarmaður: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Lýdía Grétarsdóttir Útsendingarstjóri fréttahluta: Valgerður Þorsteinsdóttir

Spegillinn
Lofstlagsmál, riða, Súdan, villtur lax og alinn, og Evrópuráðsfundur

Spegillinn

Play Episode Listen Later Apr 19, 2023 9:20

HM að hefjast, matarsóun og hungursneyð

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jan 12, 2023

Spegillinn 12. janúar 2023. Náttúruverndarsinnar fagna því að framkvæmdaleyfi Hnútuvirkjunar hafi verið fellt úr gildi. Sveitarstjóri í Skaftárhreppi segist vera vonsvikinn. Íslenska karlalandsliðið í handbolta er í þann mund að reima á sig skóna og klína harpixi í lófann. Fyrsti leikur liðsins á heimsmeistaramótinu er í kvöld gegn Portúgal. Þrátt fyrir vitundarvakningu og áskoranir er ennþá einum þriðja af öllum mat sem er framleiddur í heiminum hent beint í ruslið. Gríðarlega stór rannsókn á matarsóun er farin af stað hér á landi og skal ná til allrar virðiskeðjunnar. Nýliðið ár var það fimmta heitasta frá upphafi mælinga. Árið markaðist af fordæmalausum öfgum í veðurfari, sem verða bæði líklegri og hættulegri vegna loftslagsbreytinga, segir Alþjóða veðurfræðistofnunin. Það er engin ein einföld lausn í öldrunarþjónustu, vandinn er flókinn og lausnirnar margar segir skrifstofustjóri öldrunarmála hjá Reykjavíkurborg. Þó hafi verið ljóst áratugum saman að bæta þyrfti verulega í uppbyggingu hjúkrunarheimila. ----- Um þriðjungur matar sem framleiddur er í heiminum, endar í ruslinu. Og það er ekkert smá magn. Á sama tíma glíma milljónir við hungursneyð. Matarsóun er hvað mest í ríkari löndum heims, til að mynda hér á landi. Mælingar á vegum Umhverfisstofnunar frá árinu 2019 benda til þess að hvert og eitt okkar hendi samtals um 90 kílóum af mat á hverju ári, þar af eru 20 kíló á mann það sem telst nýtanlegur matur. Lítið hefur breyst í þessum efnum þrátt fyrir áskoranir og vitundarvakningu um að gera betur. Bjarni Rúnarsson fjallar um matarsóun. Matvælaöryggi versnar hratt í heiminum að mati sérfræðinga Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Þeir segja að sultur blasi við allt að milljarði jarðarbúa. Yfirmaður sjóðsins varaði við því í síðustu viku að framundan væru efnahagserfiðleikar í Bandaríkjunum, Kína og Evrópuríkjum á þessu ári. Þá stefndi í efnahagslægð hjá fjölda ríkja.Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn bætti um betur í dag þegar hann spáði því að greiðslufall blasti við fjölmörgum ríkjum í heiminum vegna hárra vaxta. Mark Flanagan, aðstoðarframkvæmdastjóri stefnumótunar- og endurskoðunardeildar AGS, skýrði frá þessari slæmu stöðu í viðtali við breska ríkisútvarpið. Flanagan er reyndar fyrrverandi yfirmaður sendinefndar stofnunarinnar hér á landi, þótt það komi málinu ekkert við. Ásgeir Tómasson segir frá. Það er engin ein einföld lausn í öldrunarþjónustu, vandinn er flókinn og lausnirnar margar segir skrifstofustjóri öldrunarmála hjá Reykjavíkurborg. Þó hafi verið ljóst áratugum saman að bæta þyrfti verulega í uppb

Spegillinn
HM að hefjast, matarsóun og hungursneyð

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jan 12, 2023 10:36

Umhverfisstofnun, Grænland og ferðaþjónusta

Samfélagið

Play Episode Listen Later Aug 18, 2022

Við ætlum að forvitnast um starfsemi Umhverfisstofnunar, sem er stór stofnun meða afar vítt starfssvið. Forstjórinn Sigrún Ágústsdóttir sest hjá okkur. Svo ætlum við að heyra fréttir frá Grænlandi. Af hreindýraveiðum, ferðaþjónustu, ráðstefnuhaldi og sterkasta manni Grænlands, svo eitthvað sé nefnt. Inga Dóra Guðmundsdóttir í Nuuk verður á línunni. Við veltum líka fyrir okkur ferðasumrinu 2022 hér á landi og hvernig haustið og veturinn líta út. Jóhannes Þór Skúlason framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar segir okkur allt um það.

af gu svo sigr nuuk samtaka forstj umhverfisstofnun umhverfisstofnunar

Play Episode Listen Later Aug 18, 2022 55:00

Morgunútvarpið
20. okt. - Míuverðlaun, efni, aldurstakmörk, nektarmyndir og Naglinn

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Oct 20, 2021 130:00

Míuverðlaunin eru verðlaun sem heiðra þau sem koma að þjónustu langveikra barna á einn eða annan hátt. Hægt er að tilnefna heilbrigðisstarfsmann í hvaða starfstétt sem er, hvar á landinu sem er. Þær Þórunn Eva G. Pálsdóttir og Fríða Björk Arnardóttir komu til okkar í morgunkaffi til að segja okkur meira, en þær vita allt um málið. Talið er að um 10 milljónir efna bætist við á hverju ári í hóp efna sem skaðleg eru fólki og rannsóknir taka sinn tíma, svo niðurstöður liggja ekki alltaf strax fyrir. Það leiðir til þess að stjórnvöld ná ekki að setja reglur til að takmarka eða banna framleiðslu og notkun þeirra nógu tímalega. Í hádeginu í dag er opinn fyrirlestur um skaðleg efni á heimilinu á vegum Umhverfisstofnunar og við fengum Bergdísi Björk Bæringsdóttur, sérfræðing á sviði efna, eftirlits og veiðistjórnunar til að segja okkur aðeins af þessu. Við veltum fyrir okkur aldurstakmörkunum á kvikmyndum, en athygli vekur að íslenska kvikmyndin Leynilögga sem frumsýnd er í þessari viku, er í boði annars vegar fyrir 12 ára og eldri og hins vegar 16 ára og eldri. Í hverju liggur munurinn og hverjar eru reglurnar? Er regluverkið hér það sama og erlendis eða annað? Hallgrímur Kristinsson formaður Félags rétthafa í sjónvarps- og kvikmyndaiðnaði kom til okkar og fræddi okkur um þetta. Í sjónvarpþættinum Kveik í gærkvöldi á RÚV kom fram að nærri 60 prósent stelpna í 10. bekk hafa verið beðnar um að senda af sér nektarmynd eða ögrandi mynd og rúm 30 prósent hafa þegar gert það. Í þættinum var talað við tvær grunnskólastúlkur sem seldu af sér kynferðislegar myndir og notaðar nærbuxur í fyrrasumar, þá 13 ára. Mörgum er brugðið eftir umfjöllunina og foreldar vilja vita hvernig bregðast á við og fræða börn sín, af öllum kynjum. Foreldrar hafa verndarskyldu gagnvart börnum, en vankunnátta og skortur á þekkingu kemur oft í veg fyrir að hún skili sér. Til að ræða þessi mál kom til okkar Margrét K. Magnúsdóttir forstöðumaður Barnahúss. Ragnhildur Þórðardóttir, sálfræðingur og einkaþjálfari, einnig þekkt sem Ragga Nagli, er einn þekktasti heilsu ráðgjafi landsins. Hún er þó ekki búsett á Íslandi, heldur í Danmörku, en er stödd á landinu um þessar mundir og við gripum því tækifærið og fengum hana í heimsókn í smá heilsuspjall að hausti. Tónlist: Geiri Sæm og Hunangstunglið - Er ást í tunglinu? GDRN - Næsta líf. Lorde - Mood ring. Adele - Easy on me. Gugusar - Röddin í klettunum. U2 - Pride in the name of love. Dua Lipa - Love again. Herbert Guðmundsson - Með stjörnunum. Lenny Kravitz - Let love rule. Lón - Earthquake.

Morgunútvarpið
20. okt. - Míuverðlaun, efni, aldurstakmörk, nektarmyndir og Naglinn

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Oct 20, 2021

Hvalreki, sýklalyfjanotkun og uppstoppuð dýr

Samfélagið

Play Episode Listen Later Oct 1, 2021 55:00

Á norðanverðu Álftanesi liggur nú hræ af hrefnutarfi sem rak þar á land. Hann er talinn fullvaxinn, tæpir átta metrar og virðist hafa drepist á hafi úti. Sérfræðingar Hafrannsóknastofnunar hafa rannsakað hvalinn og nú þarf að ákveða hvað verður um dýrið - það er nefnilega ekki sama hvað maður gerir við slíkar skepnur. Örlög hræsins verða ráðin í samráði Umhverfisstofnunar, sveitarfélagsins Garðabæjar, heilbrigðiseftirlits og landeiganda og það eru nokkrir möguleikar í stöðunni. Við fórum suður á Álftanes í rokinu í morgun, skoðuðum dýrið og spjölluðum við Rakel Sigurveigu Kristjánsdóttur, sérfræðing hjá umhverfisstofnun. Á undanförnum fjórum árum hefur heildarnotkun sýklalyfja í íslensku heilbrigðiskerfi dregist saman um nær þriðjung. Þetta eru góðar fréttir vegna þess að mikil og óþörf notkun sýklalyfja getur gert bakteríur ónæmar fyrir þessum lífsnauðsynlegu lyfjum. Hinsvegar er notkun sýklalyfja enn alltof mikil og miklu meiri hér en í löndunum í kringum okkur. Valtýr Thors barnasmitsjúkdómalæknir á Barnaspítala Hringsins ætlar að ræða sýklalyf, noktun þeirra og baráttuna við ónæmar bakteríur. Við heimsækjum svo Gerðarsafn - þar fer fram athyglisverð sýning, þar sem samspil manna og dýra er skoðað - meðal annars út frá uppstoppun dýra. Og við ræðum við konu sem er hamskeri - uppstoppari - og ræðum um fagið, bæði út frá ýmsum aðferðum og hugmyndum sem því tengjast en líka út frá náttúrunni, hvort og hvernig það að stoppa upp dýr tengist náttúru- og dýravernd. Anna Sigríður Þráinsdóttir málfarsráðunautur fræðir okkur líka um íslenskt mál í málfarsmínútunni.

gar hann valt thors anna sigr hafranns umhverfisstofnunar
Samfélagið
Hvalreki, sýklalyfjanotkun og uppstoppuð dýr

Samfélagið

Play Episode Listen Later Oct 1, 2021

4. júní - Bláskelin, ónæmisbældir, nám, fréttaspjall og hégómavísindi

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Jun 4, 2021 130:00

Sigrún Ágústsdóttir forstjóri Umhverfisstofnunar var fyrsti gestur okkar í dag, en hún ræddi Bláskelina, viðurkenningu fyrir framúrskarandi lausnir við að minnka plastnotkun ásamt fleiri plast tengdum málum. Í gær heyrðum við í Halldóri Halldórssyni fyrsta hjarta- og lungnaþeganum hér á landi sem sagði okkur frá því að hann væri fullbólusettur en mælist þó ekki með mótefni. Við veltum fyrir okkur áhrifum bólusetninga á þá sem eru á ónæmisbælandi lyfjum og heyrðum í Birni Rúnari Lúðvíkssyni yfirlækni ónæmisfræðideildar Landspítala og prófessor í ónæmisfræði við læknadeild Háskóla Íslands til að fá betri upplýsingar þar um. Félagsvísindadeild Háskólans á Bifröst býður í haust upp á nýtt diplómanám í heimspeki, hagfræði og stjórnmálafræði, HHS. Í náminu fléttast saman þrjár grunngreinar hug- og félagsvísinda sem yfirleitt eru kenndar hver í sínu lagi. En hver er pælingin að baki því og fyrir hverja er þetta nám? Magnús Árni Skjöld Magnússon dósent við háskólann á Bifröst kom við og sagði okkur meira. Við litum aðeins yfir helstu tíðindi vikunnar með góðum gestum sem að þessu sinni voru þau Hulda Bjarnadóttir, fyrrum fjölmiðlakona sem nú starfar á mannauðssviði Marels og Sveinn Waage, samskiptasérfæðingur og leiðbeinandi hjá HR. Og svo enduðum við vikuna með innliti í Hégómavísindahornið vinsæla þar sem Freyr Gígja Gunnarsson situr í hásæti og hann færði okkur fréttir af fræga fólkinu. Þar komu Bennifer og James Bond m.a. við sögu. Tónlist: Ásgeir Trausti - Minning. Flott - Mér er drull. Coldplay - Flags. Hipsumhaps - Á hnjánum. Will Smith - Miami. Prince - Kiss.

Morgunútvarpið
4. júní - Bláskelin, ónæmisbældir, nám, fréttaspjall og hégómavísindi

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Jun 4, 2021

1. sept. - Ljósið, laxveiði, textílvandinn, Friðrik Ómar og vísindi

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Sep 1, 2020 130:00

Gerður hefur verið samningur á milli Ljóssins, Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis og Heilbrigðisráðuneytis um fjarheilbrigðisþjónustu í endurhæfingu krabbameinsgreinda. Um er að ræða tveggja ára tilraunaverkefni sem ætlað er að auka þjónustu við krabbameinsgreinda úti á landi. Erna Magnúsdóttir forstöðukona Ljóssins var á línunni og sagði okkur meira. Hvað klikkaði í laxveiðinni í sumar spyr Eggert Skúlason, sem skrifar um veiði á mbl.is. Að hans mati veldur veiði sumarsins vonbrigðum þótt hún hafi vissulega verið misjöfn á milli landshluta. Í pistlinum veltir hann því líka upp hvort veiðileyfi séu ekki of dýr miðað viðað við litla veiði í ár og mörg vonbrigðasumur á síðasta áratug. Eggert var á línunni hjá okkur. Spjaraþoni, hugmyndasmiðju Umhverfisstofnunar um textílvandann lauk fyrir skemmstu og stóð hugmyndin um Spjarasafnið uppi sem sigurvegari eftir tveggja daga hugmyndavinnu. Við forvitnuðumst um þessa verðlaunahugmynd og til okkar kom Þorbjörg Sandra Bakke sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun. Tónlistarmenn og fleira listafólk hafa orðið fyrir miklu tekjutapi á tímum kórónuveirunnar og enn sér ekki fyrir endann á því ástandi. Hundruðum tónleika og viðburða hefur verið aflýst og telja margir að listamenn hafi setið eftir, bæði hvað úrræði varðar sem og í samfélags umræðunni. Þeirra tap sé ekki minna en t.d. ferðaþjónustunnar. Friðrik Ómar Hjörleifsson tónlistarmaður og eigandi RIGG viðburða settist hjá okkur. Sævar Helgi Bragason leit við í sitt vikulega vísindahorn þar sem hann sagði okkur m.a. af smáforritum sem nýtast við stjörnuskoðun o.fl. Tónlist: Teitur Magnússon - Nenni. Inspector Spacetime - Teppavirki. The Cardigans - Erase/Rewind. Belle and Sebastian - Another sunny day. Hr. Hnetusmjör - Stjörnurnar. Friðrik Ómar - Hvað ef ég get ekki elskað? Men at work - Who can it be now? Blood Harmony - Summer leaves. Bogomil Font og Flís - Þvo sér hendur.

men hva hj lj stj rigg eggert sindi samg heilbrig teitur magn helgi bragason umhverfisstofnun bogomil font umhverfisstofnunar
Mannlegi þátturinn
Spjarasafnið, Söngsteypan og viðhald vita

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Sep 1, 2020 55:00

Spjaraþoni svokölluðu, hugmyndasmiðju Umhverfisstofnunar um textílvandann, lauk fyrir helgi. Hugmyndin Spjarasafnið stóð uppi sem sigurvegari eftir tveggja daga hugmyndavinnu. Spjarasafnið er einskonar Airbnb fyrir fatnað og gerir notendum kleift að leigja út og fá lánaðar flíkur til skamms tíma og eftir hentisemi. Við fengum tvær úr sigurteyminu , Ásgerði Heimisdóttur og Patriciu Önnu Thormar til að segja okkur meira frá þessari sniðugu hugmynd og hvert framhaldið er. Í Síðumúla og Ármúla er að finna mörg forvitnileg fyrirtæki og við heimsóttum eitt slíkt sem heitir HÁS Sköpunarsetur og Söngsteypan. Söngsteypan er söngskóli sem sérhæfir sig í söngtækni sem heitir Complete vocal tecnic og margir landsfrægir söngvarar hafa tileinkað sér. Þar er líka hægt að leigja sér hljóðklefa, t.d. ef maður þarf næði til að syngja, æfa sig, öskra eða taka upp hlaðvarp svo eitthvað sé nefnt. Við bönkuðum á dyr og spjölluðum við skólastýruna Aldísi Fjólu Borgfjörð Ásgeirsdóttur. Við hugsum mögulega ekki útí það dagsdaglega hversu mikil vinna og mannfrek það er að mála og halda við öllum hinum fjölmörgu vitum sem vísað hafa sjófarendum leiðina í gegnum árin. Kristín Einarsdóttir hitti Þorbirnu Björgvinsdóttur á bryggjunni í Kokkálsvík þar sem hún var að koma frá því að mála vitann í Grímsey. Umsjón: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Morgunútvarpið
1. sept. - Ljósið, laxveiði, textílvandinn, Friðrik Ómar og vísindi

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Sep 1, 2020

Spegillinn 19. nóv. 2019

Spegillinn

Play Episode Listen Later Nov 19, 2019 30:00

Spegillinn 19. nóvember 2019 Umsjón: Kristján Sigurjónsson Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon Ríkisstjórnin samþykkti dag að fá Alþjóðamatvælastofnunina til að gera úttekt á viðskiptaháttum útgerðarfyrirtækja sem stunda veiðar og eiga í viðskiptum með aflaheimildir. Á ríkisstjórnarfundi voru kynntar nokkra leiðir til að bæta orðspor Íslands í kjölfar Samherjamálsins. Samherjamálið getur haft áhrif á niðurstöður þingkosninganna í Namibíu í næstu viku. Namibískur fréttamaður segir að þetta sé að öllum líkindum stærsta hneykslismál í sögu Namibíu sem sjálfstæðs ríkis. Hofsjökull hefur rýrnað meira á undanförnu ári en hann hafði gert síðan 2010. Þetta sýna nýjar mælingar vísindamanna. Þýska efnahagsbrotalögreglan rannsakar nú umfangsmikla peningaflutninga frá Þýskalandi til annarra landa, einkum Tyrklands. Björgólfur Jóhannsson, sem tekið hefur við starfi forstjóra Samherja tilkynnti stjórn Sjóvár-Almennra trygginga hf. á fundi í dag að hann hefði ákveðið að víkja tímabundið sem stjórnarformaður félagsins vegna anna. Rannsókn í Svíþjóð á ásökunum um nauðgun fyrir níu árum á hendur Julian Assange leiðtoga uppljóstrarasíðunnar WikiLeaks hefur verið hætt án ákæru. Héraðsdómur Reykjavíkur hafnaði í dag kröfu Zúista um að ríkið yrði að greiða félaginu dráttarvexti eða skaðabætur vegna dráttar á greiðslu sóknargjalda. Samningafundi Blaðamannafélags Íslands og Samtaka atvinnulífsins lauk nú laust fyrir klukkan sex í kvöld. Annar fundur boðaður klukkan hálf tvö á morgun. Lengri umfjallanir: Sjávarútvegsráðgerra ætlar að hlutast til um það að Alþjóðamatvælastofnunin, FAO, geri úttekt á viðskiptaháttum útgerðarfyrrtækja sem stunda veiðar og viðskipti með aflaheimildir í þróunarlöndum. Þá á að auka gegnsæi í rekstri stórra sjávarútvegsfyrirtækja. Þetta er meðal tillagna sem ráðherrar lögðu fram á ríkisstjórnarfundi vegna Samherjamálsins. Aðgerðir stjórnvalda og viðbrögð vegna Samherjamálsins var aðalviðfangsefnið á ríkisstjórnarfundi í morgun. Samþykkt var að ráðast í 7 verkefni sem miða að því að verja orðspor Íslands og koma á meiri gagnsæi í rekstri sjávarútvegsfyrirtækja og reyndar allra fyrirtækja. Eftir að Kveikur sagði frá meintum mútum og framgangi Samherja í Namibíu var ráðherrum falið að koma með tillögur um viðbrögð og úrbætur. Sigríður Dögg Auðunsdóttir talar við Katrínu Jakobsdóttur og Kristján Þór Júlíuson. Arnar Páll Hauksson tók saman Ef kostnaður fyrirtækja við að framfylgja reglum er hvati til lögbrota þá eru slíkir hvatar ansi víða í kerfinu. Þetta er mat Umhverfisstofnunar. Stofnunin ví

Spegillinn
Spegillinn 19. nóv. 2019

Spegillinn

Play Episode Listen Later Nov 19, 2019

Spegillinn - Hlaðvarp
Vilja að FAO kanni fiskveiðar og kvótakaup

Spegillinn - Hlaðvarp

Play Episode Listen Later Nov 19, 2019

Ríkisstjórnin samþykkti dag að fá Alþjóðamatvælastofnunina til að gera úttekt á viðskiptaháttum útgerðarfyrirtækja sem stunda veiðar og eiga í viðskiptum með aflaheimildir. Á ríkisstjórnarfundi voru kynntar nokkra leiðir til að bæta orðspor Íslands í kjölfar Samherjamálsins. Ef kostnaður fyrirtækja við að framfylgja reglum er hvati til lögbrota þá eru slíkir hvatar ansi víða í kerfinu. Þetta er mat Umhverfisstofnunar. Stofnunin vísar því á bug að það það sé hvati til þess hjá þeim sem vinna með kælikerfi að hleypa öflugum gróðurhúsalofttegundum, svokölluðum F-gösum, út í andrúmsloftið. Stofnunin viðurkennir að reglum um að þeir sem vinna með kælikerfi séu vottaðir hafi ekki verið fylgt en segir að úr því verði bætt á næstunni, þá hafi eftirlit með innflutningi á F-gösum verið hert. Arnhildur Hálfdánardóttir segir frá. Talað er við 'isak Bragason. Stórum hluta af því metani sem er framleitt hér á landi er brennt og nýtist því ekki sem orkugjafi. Þegar ný gas- og jarðgerðarstöð Sorpu verður tekin í notkun næstum tvöfaldast framleiðslugetan. Framkvæmdastjóri Sorpu segist þess fullviss að hægt verði að nýta allt metan þó að það gerist ekki strax. Arnar Páll Hauksson talar við Björn H. Halldórsson hjá Sorpu.

bj ef tala vilja halld hauksson framkv bragason arnar p sorpu umhverfisstofnunar
Samfélagið
Jarðboranir í borginni, Friðland 40 ára. Fimmstjörnuhreyfingin reynir

Samfélagið

Play Episode Listen Later Sep 3, 2019 55:00

Sigrún Tómasdóttir og Fjóla Jóhannesdóttir hjá Veitum: Jarðboranir í Reykjavík til að rannsaka grunnvatnsstöðuna vegna aukinnar úrkomuákefðar sem búist er við vegna loftslagsbreytinga. Hákon Ásgeirsson starfsmaður Umhverfisstofnunar og Anna Dóra Sæþórsdóttir ferðamálafræðingur: Friðland að fjallabaki í 40 ár. Friðrik Páll Jónsson: Fyrsta ríkisstjórn popúlista á evru-svæðinu féll í síðasta mánuði, ríkisstjórn Fimmstjörnuhreyfingarinnar og Bandalagsins á Ítalíu. Ekki var það harmað í aðalstöðvum Evrópusambandsins, sem hefur átt í stöðugum deilum við hana. Og nú er unnið að myndun nýrrar stjórnar Fimmstjörnuhreyfingarinnar og Lýðræðisflokksins, sem er vinstri miðjuflokkur og styður Evrópusambandið. - Ef það tekst ekki verður gengið til kosninga.

Samfélagið
Skriður, loftgæði og Amazon skógurinn.

Samfélagið

Play Episode Listen Later Aug 20, 2019 55:00

Þorsteinn Sæmundsson jarðfræðingur við HÍ: fjallaði meðal annars um skriðuna sem féll í nótt í Reynisfjöru, sagði nýju gps mælitæki sem komið var fyrir á Goðalandi til að rannsaka berghlaupið þar. Ragnhildur Finnbjörnsdóttir: Sagði frá niðurstöðum nýrrar loftgæðaskýrslu Umhverfisstofnunar. Friðrik Páll Jónsson: segir frá stóraukinni eyðingu Amazon skógarins eftir að Jair Bolsonaro tók við forsetaembætti í Brasilíu.

Morgunútvarpið
Norræna, náttúruspjöll, Eyjar, brunavarnir sumarhúsa og tækni

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Jun 19, 2019 130:00

Norræna hefur hafið sumarsiglingar og streyma ferðamenn til landsins með ferjunni, auk þess sem Íslendingar nýta sér fararmátann líka. Við heyrðum í Lindu Björgu Gunnlaugsdóttur framkvæmdastjóra Smyril Line um þennan ferðamáta, hverjir eru að nýta hann og hvert kolefnissporið er þegar ferðast er á sjó í stað þess að fljúga? Náttúruspjöll voru unnin á Helgafelli í Hafnarfirði á dögunum. Fjallið er mjög vinsælt meðal göngufólks og einhverjir skemmdarvargar hafa krafsað nöfn og útlínur getnaðarlima í jarðveginn svo það blasir við öllum. Björn Þorlákssons, upplýsingafulltrúi Umhverfisstofnunar, ræddi þetta við okkur. Það er mikið um að vera í Vestmannaeyjum þessa dagana, nýr Herjólfur kominn heim og mjaldrasysturnar Litla Grá og Litla Hvít væntanlegar í dag. Við slógum á þráðinn til Írisar Róbertsdóttur bæjarstjóra og heyrðum hvernig stemmingin er í Eyjum. Mikið hefur verið rætt um brunavarnir í sumarhúsabyggðinni í Skorradal vegna mikilla þurrka að undaförnu. Ljóst er að brunavarnir eru í ólestri víðar, einkum í eldri sumarhúsabyggðum. Dóra Hjálmarsdóttir, öryggisráðgjafi hjá Verkís, er í stýrihópi sem fer yfir þessi mál, og hún kom til okkar. Guðmundur Jóhannsson mætti í sitt vikulega tæknihorn og í dag fjallaði hann um snjallsjónvörp og Facebook í bankageiranum og nýja rafmynt þeirra. Tónlist: Snorri Helgason - Einsemd. Supertramp - Take the long way home. KK - I got a woman. George Michael - Faith. Angurværð - Ferðalangur. Bjartmar Guðlaugsson - Eyjarós. Soffía Björg - I lie. Bruce Springsteen - Hello sunshine. Roy Orbison - You got it. Markús og Alkemistarnir - Seinasta tegundin. Bryan Ferry - Kiss and tell.

bj gu verk hj miki fer lj norr soff vestmannaeyjum george michael faith eyjum gunnlaugsd herj bjartmar gu umhverfisstofnunar angurv
Spegillinn
Auðlindarákvæði lagt fram

Spegillinn

Play Episode Listen Later May 10, 2019 30:00

Forsætisráðherra segist bjartsýn á að lagðar verði fram breytingatillögur á stjórnarskránni á Alþingi á þessu kjörtímabili og kosið um breytingar á henni eftir næstu kosningar. Formenn allra flokka samþykktu í dag að leggja fram drög að stjórnarskrárbreytingum um umhverfismál og auðlindir í náttúru Íslands. Lögmaður eins hinna sýknuðu í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu segir að bótafjárhæð sem þeim standi til boða sé of lág miðað við fordæmi í málinu. Hann segir að ríkisstjórnin hefði átt að leggja til veglegar bætur. Losun gróðurhúsalofttegunda dregst saman um 19% fram til ársins 2030 samkvæmt útreikningum Umhverfisstofnunar. Forstjórinn er samt bjartsýnn því enn eigi eftir að meta áhrif fjölmargra aðgerða sem boðaðar eru í aðgerðaáætlun stjórnvalda í loftslagsmálum. Arnar Páll Hauksson talar við Kristínu Lindu Árnadóttur. Helmingur landsmanna er andvígur þriðja orkupakkanum, Þetta kemur fram í nýrri könnun MMR. 98 prósent stuðningsmanna Miðflokksins eru á móti orkupakkanum Rafdreifikerfið á höfuðborgarsvæðinu getur annað vaxandi kröfum um rafmagn vegna orkuskipta, segir framkvæmdastjóri Veitna. Þó megi gera ráð fyrir flöskuhálsum og álagsstýringu á rafmagninu. Stjórnvöld þurfi þó að koma að málinu ef tengja á skemmtiferðaskip við rafmagn í höfnum. Viðskiptaveldi Donalds Trumps byggist á sýndarveruleika eða leiktjöldum. Hann var orðinn raunveruleikastjarna áður en sjónvarpið fór að snúast um slíkar persónur. Hann baðaði sig í sviðsljósinu sem farsæll viðskiptajöfur en skattaskýrslur sem The New York Times hefur birt sýna að hann tapaði meira en milljarði bandaríkjadala á einum áratug. Pálmi Jónasson segir frá.

Spegillinn
Spegillinn 23. apríl 2019

Spegillinn

Play Episode Listen Later Apr 23, 2019 30:00

Spegillinn 23. apríl 2019 Umsjón: Kristján Sigurjónsson Tæknimaður: Ragnar Gunnarsson Forsætisráðherra Sri Lanka varaði við því í dag að hryðjuverkamenn væru enn á á ferli eftir hryðjuverkárásirnar í landinu á páskadag. Bæjarráð Vestmannaeyja hefur haft samband við dýpkunarverktaka erlendis og athugað hvort hann geti hjálpað til við dýpkun Landeyjahafnar. Ráðið segir óboðlegt að núverandi verktaki hafi hvorki tækjakost né metnað til að sinna verkinu. Dómari veitti Isavia í dag vikufrest til að svara kröfu bandaríska flugvélagaleigusalans ALC, sem vill fá kyrrsetta flugvél sína afhenta og sakar Isavia um stjórnarskrárbrot. Gróðureldar loga víða í Suður-Svíþjóð. Slökkviliðsmenn og sjálfboðaliðar fá ekki við neitt ráðið. Sænska veðurstofan varar við mikilli eldhættu næstu daga. Lögregla hefur fengið öll gögn sem benda til misferlis hjá bílaleigum, segir forstjóri Samgöngustofu. Enn sé möguleiki á að fyrirtæki, sem hafi orðið uppvís að því að eiga við ökumæla, verði svipt starfsleyfi. Nær allur íslenski uppsjávarflotinn veiðir nú kolmunna í færeysku landhelginni. Lengri umfjallanir: Sviðstjóri hjá verkfræðistofunni Eflu segir að ákvörðun hafi verið tekin um að engin mengandi starfsemi verið í Finnafjarðarhöfn. Hins vegar sé stefnt að uppbyggingu fiskeldis og vetnisframleiðslu á hafnarsvæðinu. Áform séu um að flyja bæði út fisk og vetni. Bæði Landvernd og Umhverfisstofnun gagnrýndu áform um hafnarframkvæmdir í Finnafirði sem gert var ráð fyrir þegar aðalskipulagi Langanesbyggðar var breytt 2012. Gagnrýnin beindist einkum að hafnarsvæðið yrði að hluta í Gunnólfsvík í Finnafirði. Víkin og líka Gunnólfsvíkurfjall eru á náttúruminjaskrá og bæði Landvernd og Umhverfisstofnun lögðust gegn því að iðnaðarsvæði myndi raska náttúrunni þar. Eftir því sem næst verður komist eru sjaldgæfar plöntur að finna þarna eins og til dæmis fjallakræfill sem er á válista, skógfjóla og lyngjafni. Um daginn var stofnað þróunarfélag um þróun og uppbyggingu svæðisins. Bremenports á 66% hlut, verkfræðistofan Efla 26% og Vopnafjörður og Langanesbyggð 8%. En hverju svara eigendur félagsins gagnrýni Landverndar og Umhverfisstofnunar? Hafstein Helgason, sviðsstjóri viðskiptaþróunar hjá Eflu, segir að samkvæmt aðalskipulaginu hafi staðið til að byggja upp hafnarsvæði í Gunnólfsvík og líka sunnan til í firðinum. Hann segir að svæðið hafi verið rannsakað og ekki hafi fundist, hvorki norðan né sunnan megin, sjaldgæfar plöntur. Nú séu ekki áform um að hafnarsvæðið nái til Gúnnólfsvíkur. Arnar Páll Hauksson talar við Hafstein. Morðið á b

sri lanka sl sv gunn mor alc hann enn kristj svi eftir sigurj umsj hauksson samg hins hafstein arnar p isavia landverndar vestmannaeyja eflu umhverfisstofnun landvernd lengri umhverfisstofnunar
Morgunvaktin
Telur ólíklegt að lífeyrissjóðir fjárfesti í Wow

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Mar 26, 2019 130:00

Skúli Mogensen, eigandi og forstjóri Wow, rær nú lífróður fyrir félagið. Hann þarf að semja við lánardrottna um að breyta lánum í hlutafé, semja um aðrar áfallnar skuldir og reyna að fá nýja fjárfesta að félaginu. Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans, fór yfir stöðuna og horfurnar. Hann telur ólíklegt að íslenskir lífeyrissjóðir fjárfesti í félaginu, líklegra sé að erlendur fjárfestir leggi því til hlutafé og nefndi hann Bill Franke, eiganda Indigo Partners, í því sambandi. Í Berlínarspjalli dagsins sagði Arthúr Björgvin Bollason frá þeirri tilhneigingu þýskra stjórnmálamanna að kynna stefnumál og tjá sig um pólitísk álitaefni á samfélagsmiðlum frekar en á blaðamannafundum eða í viðtölum við fjölmiðla og losna þannig við gagnrýnar spurningar blaðamanna. Einkum ber á þessu meðal liðsmanna AdF. Hann sagði líka frá óvenjulegri gagnrýni sendiherra Bandaríkjanna í Berlín á lág fjárframlög Þjóðverja til NATÓ og bókastefnunni í Leipzig sem fram fór á dögunum. Sveitarfélögin þurfa að taka sig á í loftlagsmálum segir Kristín Linda Árnadóttir, forstjóri Umhverfisstofnunar. Þau þurfa að móta sér stefnu og framfylgja henni. Málþing um sveitarfélög og loftlagsmál fer fram í Reykjavík á fimmtudag. Tónlist: Je t'aime - moi non plu - Serge Gainsbourg Stop (in the name of love) Diana Ross

bj leipzig berl diana ross sn krist hann adf reykjav bandar mogensen arth indigo partners sveitarf kjarnans bollason umhverfisstofnunar
Spegillinn
Spegillinn 11. desember 2018

Spegillinn

Play Episode Listen Later Dec 11, 2018 30:00

Bára Halldórsdóttir, sem tók upp samtöl sex þingmanna á Klaustri 20. nóvember síðastliðinn, hefur verið boðuð fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur á mánudag til að gefa skýrslu um upptökurnar. Maður sem var vistaður í fangelsinu á Bitru fyrir þrjátíu árum telur mikilvægt að rannsaka aðbúnað fatlaðra þar. Stjórnvöld útiloka ekki að það verði gert. Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður landssamtaka lífeyrissjóða telur að ef lífeyrissjóðir eigi að lána öllum sem standast mat óháð sjóðsaðild, geti það knúið sjóðina til að hækka vexti. Arnhildur Hálfdánardóttir talaði við hann. Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar segir mál Ágústs Ólafs Ágústssonar þingmanns Samfylkingarinnar alvarlegt og aðspurður um hvort það sé tilefni til afsagnar segir formaðurinn þingmaður verði að horfa í eigin barm. Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir ræddi við Loga. Angela Merkel, kanslari Þýskalands þvertekur fyrir að samið verði aftur við bresk stjórnvöld um brotthvarf þeirra úr Evrópusambandinu. Birgir Þór Harðarson segir frá. Hávaði mældist of mikill við húsveggi rúmlega 26.000 íbúða þar sem búa allt að 65 þúsund manns í nýbirtri úttekt Umhverfisstofnunar. Sunna Valgerðardóttir ræðir við Gunnar Alexander Ólafsson sérfræðing hjá Umhverfisstofun. Meirihluti samgöngunefndar og Samgönguráðherra vill breyta samgönguáætlun og heimila vegggjöld á stofnbrautum frá borginni og í helstu jarðgöngum til að fjármagna vegagerð. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Jón Gunnarsson, starfandi formann samgöngunefndar og Runólf Ólafsson, framkvæmdastjóra Félags íslenskra bifreiðaeigenda. Gera má ráð fyrir að gjóskufall verði á öllu landinu ef gos verður í Öræfajökli eins og varð árið 1362. Þetta sýna niðurstöður nýs hættumats þar sem ennfremur má sjá að raflínur eyðileggjast á stóru svæði nálægt gosstöðvunum og vegasamgöngur rofna. Bergljót Baldursdóttir ræðir við Sigrúnu Karlsdóttur, náttúruvárstjóra á Veðurstofu Íslands.

Samfélagið
Metoo og vinnuréttur, kynjaðar staðalímyndir, staðreyndir um glýfosat,

Samfélagið

Play Episode Listen Later Nov 21, 2018 55:00

Magnús Nordal, lögfræðingur ASÍ: Metoo og réttindi starfsmanna. Hvaða reglur gilda um starfsfólk, yfirmenn og fyrirtæki þegar mál tengd kynferðislegri áreitni, einelti eða ofbeldi kemur upp? Þórdís Þórðardóttir dósent í uppeldis og menntunarfræðum við HÍ: kynjaðar staðalímyndir í barnaefni- og menningu og áhrif þess á börn? Björn Gunnlaugsson teymisstjóri í efnateymi Umhverfisstofnunar: Ýmsar staðreyndir um glýfosat. Málfræðimínúta Hermann Sigurðsson, framkvæmdastjóri landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna: könnun á eldvörnum heimila og eldvarnarátak.

Spegillinn
Fjárlagafrumvarp og þungunarrof á Írlandi.

Spegillinn

Play Episode Listen Later Sep 11, 2018 30:00

Spegillinn 11. september Fréttir: Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, fagnar fyrirhugaðri lækkun tryggingagjalds en segir útgjaldaaukningu í fjárlagafrumvarpi benda til þess að stjórnvöld séu óhóflega bjartsýn. Seðlabankinn greip inn í gjaldeyrismarkaðinn í dag til að sporna gegn gengisveikingu íslensku krónunnar. Líklegt er að tekjur af ferðamönnum aukist í ár þó dregið hafi úr fjölgun þeirra. Hagfræðiprófessor segir hættu á samþjöppun og endurskipulagningu í greininni, verði landið of dýrt. Arnarlax virti ekki viðmið starfsleyfis Umhverfisstofnunar um hvíldartíma á eldissvæði sínu í Arnarfirði fyrr í sumar. Fyrirtækið hefur sótt um undanþágu frá hvíldartíma til Umhverfisráðuneytisins og segir að ástæða þess að seiði voru sett út, sé ósamræmi í starfsleyfi og reglugerð. Lengri umfjallanir: Fjárlagafrumvarpið. Ragnhildur Thorlacius tók saman og ræddi við Bjarna Benediktsson, fjármálaráðherra. Viðbrögð Ragnars Þórs Ingólfssonar, formanns VR við fjárlagafrumvarpi. Arnhildur Hálfdánardóttir. Fólk gat ekki þagað lengur, segir einn forsprakki Já-hreyfingarinnar á Írlandi sem vann stóran sigur í sumar, þegar mikill meirihlutti Íra samþykkti að leyfa fóstureyðingar í landinu. Björg Magnúsdóttir ræðir við Tara Flynn. Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir Tæknimaður: Ragnar Gunnarsson

Spegillinn
Spegillinn 06. September 2018

Spegillinn

Play Episode Listen Later Sep 6, 2018 30:00

Júlíus Vífill Ingvarsson, fyrrverandi borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, neitaði sök þegar mál hans var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur síðdegis. Loftmengun hefur aldrei farið yfir heilsuverndarmörk við Kísilverið á Bakka. Þetta er niðurstaða Umhverfisstofnunar eftir fjórar eftirlitsferðir á jafnmörgum mánuðum. Niðurstöður mælinga voru kynntar á íbúafundi á Húsavík síðdegis. Mikil ólga er á svæðum síta í suðurhluta Íraks. Átta hafa fallið í mótmælum í borginni Basra í þessari viku, þar sem stöðug mótmæli hafa verið að undanförnu. Tvö tilfelli af lóasýki, eða afrískum augnormi, hafa komið upp hér á landi að undanförnu, í fólki sem dvalið hafði í Afríku Á meðan fjöldi fólks hefur kveikt í Nike-skónum sínum í mótmælaskyni, fagna aðrir því að íþróttavöruframleiðandinn hafi gert bandarísku ruðningshetjuna Colin Kaepernick að andliti nýjustu herferðar sinnar. Þótt auglýsingin sé umdeild er þetta aðferð sem svínvirkar, segir prófessor við Listaháskóla Íslands.

Spegillinn
Spegillinn 16. ágúst: Hvalveiðar, heilsugæsla og rauð svæði.

Spegillinn

Play Episode Listen Later Aug 16, 2018 30:00

Fréttir. Lengri umfjallanir: Norskir hvalveiðimenn mega drepa tæplega 1300 hrefnur í ár. Veiðarnar eru óumdeildar í Noregi. Gísli Kristjánsson í Noregi gerir upp vertíðina. Síðastliðin ár hefur fjölgað í hópi þeirra sem stunda sérnám í heimilislækningum. Vandinn sem við blasir er engu að síður stór. Á næsta áratug kemst helmingur starfandi heimilislækna á Íslandi á aldur og nú þegar eru fleiri íbúar á hvern heimilislækni hér á Íslandi en annars staðar á Norðurlöndunum. Hvernig má standa vörð um heilsugæsluna til frambúðar? Arnhildur Hálfdánardóttir ræddi það við Elínborgu Bárðardóttur, kennslustjóra sérnámsins, og Hrafnkel Stefánsson, sérnámslækni. Sem stendur eru sex friðlýst svæði á rauðum lista Umhverfisstofnunar og þrettán á appelsínugulum lista. Rauðu svæðinu eru til dæmis Friðlandið að fjallabaki, Geysir, Skógafoss og Mývatn. Þetta eru allt vinsælir ferðamannastaðir. Ragnhildur Thorlacius forvitnaðist um það hjá Ólafi A. Jónssyni, sviðsstjóra hjá Umhverfisstofnun, hvernig svæðin sem heyra undir stofnunina, komi undan sumri. Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir.

sem rau kristj hvernig vei umsj noregi geysir vandinn umhverfisstofnun heilsug lengri umhverfisstofnunar
Morgunvaktin
Tækifæri frekar en ógnir í umhverfismálum

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later May 9, 2018 130:00

Þrír nýir ráðherrar tóku sæti í dönsku ríkisstjórninni í síðustu viku. Við það tækifæri lagði Lars Lökke Rasmussen, forsætisráðherra, áherslu á breyttar áherslur ríkisstjórnarinnar: umhverfismálum verði gert mun hærra undir höfði en hingað til. En stundum eru orð eitt og athafnir annað, ákvarðanir ríkisstjórnarinnar um flutning ríkisstofnana frá Kaupmannahöfn hafa nánast lamað Dönsku Umhverfisstofnunina, sem ákveðið hefur verið að flytja frá Kaupmannahöfn til Óðinsvéa. Við ræddum þetta og ráðherraskiptin við Borgþór Arngrímsson, sem að þessu sinni var staddur á Jótlandi á heimleið til Íslands. - Íslendingar eru fjarri því að uppfylla alþjóðlegar skuldbindingar um að draga úr losun. Rætt var um stöðuna í loftslagsmálum og verkefnin framundan við Guðmund Inga Guðbrandsson, umhverfisráðherra, sem vill frekar tala um tækifæri en ógnir vegna aðgerða í umhverfismálum. Þá var fjallað almennt um náttúruvernd og betri nýtingu úrgangs. - Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti í gær að Bandaríkin ættu ekki lengur hlutdeild í kjarnorkusamkomulagi við Íran sem undirritað var árið 2015. Ákvörðun forsetans var fyrirséð en gífurlega umdeild. En hvaða áhrif gæti þetta haft, innan Írans og utan? Umsjónarmaður ræddi þessi mál við Veru Illugadóttur. - Cathie O´Sullivan söng írska sönginn The Foggy Dew. - Nú eru rétt rúmar tvær vikur til sveitarstjórnarkosninga. Sjö flokkar bjóða fram á Akureyri, jafn margir og 2014. Kosningabaráttan fór rólega af stað en það er í anda kjörtímabilsins, sem verið hefur friðsamt. Jón Þór Kristjánsson ræddi bæjarmálin og komandi kosningar á Akureyri við Elvu Gunnlaugsdóttur, verkefnastjóra hjá Atvinnuþróunarfélagi Eyjafjarðar, og Björn Þorláksson, upplýsingafulltrúa Umhverfisstofnunar.

Spegillinn
Spegillinn 4. maí 2018

Spegillinn

Play Episode Listen Later May 4, 2018 30:00

Strokufanginn Sindri Þór Stefánsson var úrskurðaður í eins mánaðar farbann í Héraðsdómi Reykjaness nú fyrir stundu. Ekki er búið að gefa út ákæru í máli lögreglu á hendur honum, sem varðar þjófnað á 600 tölvum úr þremur gagnaverum í janúar og febrúar. Þungt hljóð er í ljósmæðrum vegna kjaradeilu þeirra við ríkið. Lítið hefur þokast í samkomulagsátt og samkvæmt heimildum fréttastofu ber mikið í milli í deilunni. Forstjóri Umhverfisstofnunar segir brýnt að landsmenn minnki neyslu og dragi úr myndun úrgangs. Losun gróðurhúsalofttegunda hér verður langt umfram heimildir ef ekki verður gripið til róttækra aðgerða. Fljúgandi hálka, mjög slæm færð og lélegt skyggni er nú á Holtavörðuheiði. Þar hefur verið mokað í allan dag. Ný stjórn hefur verið mynduð á Grænlandi eftir þingkosningar þar í síðustu viku. Kim Kielsen verður áfram formaður landsstjórnarinnar, sem hefur aðeins eins þingsætis meirihluta. Tvö skipsflök, sem fundust á hafsbotni þegar leitað var að flugvél Malaysian Airlines sem hvarf af yfirborði jarðar í mars 2014, eru líklega kaupskip frá 19. öld. Enginn fær Nóbelsverðlaun í ár. Anna Kristín Jónsdóttir talar við Pál Valsson rithöfund og útgáfurstjóra Bjarts. Skrifborðin sem starfsfólk Sjúkratrygginga Íslands hefur til afnota eru með þeim hreinni; engar möppur, engar fjölskyldumyndir, engin tæki eða tól, fyrir utan tölvu, mús og hugsanlega nokkur skjöl. Arnhildur Hálfdánardóttir fjalla um opið vinnuumhverfi. Talar við Frey Halldórsson mannauðsstjóra hjá Sjúkratryggingum, tvo starfsmenn og Steingrím Ara Arason forstjóra Sjúkratrygginga. Skylda skattaparadísir til að birta eigendaupplýsingar. Sigrún Stefánsdóttir segir frá.

Mannlegi þátturinn
Málþing um intersex fólk, fáir þekkja hættumerkingar og Ragna var lesa

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Feb 19, 2018 57:00

Málþing á vegum Intersex Íslands, Samtakanna '78, Íslandsdeildar Amnesty International og Mannréttindaskrifstofu Íslands var haldið í háskólabyggingunni Öskju á laugardaginn undir yfirskriftinni Mannréttindi intersex fólks: Ný nálgun til framtíðar. Þar töluðu þrír erlendir sérfræðingar í málefnum intersex fólks, sem hafa reynslu af þessum málefnum víða í Evrópu. Til að koma í veg fyrir misskilning þá er ekki verið að tala um kynvitund þegar rætt er um intersex fólk, hér er um að ræða börn sem fæðast með ódæmigerð kyneinkeinni og gangast mörg hver undir stórar skurðaðgerðir fljótlega eftir fæðingu, sem geta oft haft miklar afleiðingar i för með sér. Erfitt er að fá upplýsingar um fjölda aðgerða, ástæður þeirra o.s.frv. Þær Kitty Anderson, formaður Intersex Íslands og María Helga Guðmundsdóttir, formaður Samtakanna '78 sögðu okkur frá því sem þar kom fram, m.a. hvað erlendu fyrirlesararnir höfðu fram að færa. Í nýlegri könnun Umhverfisstofnunar kom í ljós að 32% aðspurðra þekktu hættumerki á neytendavörum en um 45% töldu að úreldar, eldri merkingar væru þær réttu. Þá kom í ljós að konur fara frekar en karlar eftir leiðbeiningum um notkun á vörum sem bera hættumerkingar og eru ólíklegri til að kaupa slíkar vörur. Björn Gunnlaugsson teymisstjóri hjá Umhverfirsstofnun kom í þáttinn og fræddi hlustendur hættumerkin. Lesandi vikunnar var í þetta sinn Ragna Sigurðardóttir fráfarandi formaður stúdentaráðs. Hún sagði okkur frá stúdentapólítíkinni og baráttumálum stúdentaráðs og svo sagði hún frá því hvaða bækur er á náttborðinu hjá henni, sem voru mest megnis ljóðabækur og svo sagði hún frá því hvað hún hefur lesið í gegnum tíðina sem hefur haft áhrif á hana, m.a. Halldór Laxness og Simone de Beauvoir. Umsjón í dag Lísa Pálsdóttir og Gunnar Hansson

Morgunútvarpið
Morgunútvarpið 25.janúar

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Jan 24, 2018 190:00

Ný könnun Umhverfisstofnunar leiðir í ljós að jafn margir Íslendingar reyna að takmarka matarsóun á heimili sínu nú og fyrir tveimur árum síðan. Niðurstöðurnar þykja gefa til kynna að meiri umræða um matarsóun skili sér ekki í raunverulegu átaki hjá neytendum en talið er að matvæli að virði 17 milljarða króna fari í ruslið hér á landi árlega. Til okkar kemur Rakel Garðarsdóttir, stofnandi Vakanda samtaka um aukna vitunarvakningu um sóun matvæla, til að ræða þessa umhverfisvá og hvers vegna aukin umræða skilar sér ekki hjá neytendum. Kísilverksmiðjan United Silicon hefur verið sett í þrot eftir að Arion banki og lífeyrissjóðirnir tóku hana yfir í fyrrahaust í kjölfar greiðslustöðvunar. Saga United Silicon er nánast reyfarakennd og hafa verið vandræði í rekstri hennar nánast frá upphafi. Umhverfisstofnun bárust hundruð kvartana og lét loks loka verksmiðjunni í apríl. Þá er fyrverandi forstjóri og stofnani United Silicon grunaður um að hafa svikið yfir hálfan milljarð króna út úr fyrirtækinu. Í gær var síðan skýrt frá því að Ríkisendurskoðun vinni að úttekt á aðkomu ríkisins að stofnun verksmiðjunnar. Við fáum Þórð Snæ Júlíusson, ritstjóra Kjarnans, til að fara yfir þessa sögu með okkur. Um miðjan febrúar koma fjórar fjölskyldur frá Írak til Fjarðabyggðar og hefja nýtt líf, en fjölskyldurnar hafa lengi dvalið í flóttamannabúðum í Jórdaníu. Alls er um nítján manns að ræða en hópurinn er hluti af þeim kvótaflóttamönnum sem íslenska ríkið hyggst taka við í ár. Við hringjum austur og heyrum í Helgu Elísabet Beck Gauðlaugsdóttur, félagsmálastjóra Fjarðabyggðar um það hvernig undirbúningi fyrir komu fjölskyldnanna er háttað og hvers þau megi vænta við komuna til landsins. Samkeppnisvernd í mjólkuriðnaði er alltaf hitamál hér á landi. Í gær birti Þorsteinn Víglundsson, þingmaður Viðreisnar, mynd sem hann segir sýna að frá því að mjólkuriðnaðurinn fékk undanþágu frá samkeppnislögum árið 2004 hafi mjólk hækkað umtalsvert meira í verði en drykkir sem um ríkir frjáls samkeppni, á borð við gosdrykki og ávaxtasafa. Við fáum Þorstein hingað til okkar en einnig Ara Edwald forstjóra MS til að ræða stöðu mjólkuriðnaðarins gagnvart öðrum greinum og hvort hún sé neytendum til góða eða ekki. Guðmundur Jóhannsson kemur í sína vikulegu heimsókn og ætlar að ræða við okkur um nýju kassalausu matvöruverslun

ms gu alls arion snj fjar kjarnans umhverfisstofnun umhverfisstofnunar
Morgunvaktin
Loft á hreyfingu

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Jan 9, 2018 130:00

Við byrjuðum á spjalli um vonskuveður á suðvesturhorni landsins. Arthúr Björgvin Bollason sagði frá flóðum í Þýskalandi en vatt sér síðan í stjórnmálin. Núverandi stjórnarflokkar, meira nauðugir en viljugir, ætla að reyna að mynda nýja ríkisstjórn í Þýskalandi, þar sem hagsæld ríkir og helst er kvarta undan því að ungmenni fitni of mikið. Aretha Franklin flutti I say a little prayer. Síðan tóku við vangaveltur um veðurfar í heiminum með Haraldi Ólafssyni, veðurfræðingi og prófessor, sem talaði um ýmis veðurkerfi og hitabreytingar og aðferðir til að mæla þær. Oprah Winfrey, fjölmiðlafrömuður og áhrifakona, hlaut í fyrrinótt sérstök heiðursverðlaun Golden Globe kvikmyndaverðlaunanna, sem kennd eru við kvikmyndagerðarmanninn Cecil B. DeMille. Hún hlaut viðurkenninguna fyrir framlag sitt til kvikmynda. Lilja Hjartardóttir, stjórnmálafræðingur, sagði frá ferli sjónvarpskonunnar og tengslum við réttindabaráttu svartra. Brot úr ræðu Oprah Winfrey voru flutt. Um áramót gekk í gildi áætlun um loftgæði fyrir Ísland. Hún nefnist „Hreint loft til framtíðar“ og er meginmarkmið hennar að stuðla að loftgæðum og heilnæmu umhverfi. Kristín Linda Árnadóttir, forstjóri Umhverfisstofnunar og Ragnhildur Finnbjörnsdóttir, sérfræðingur, ræddu áætlunina og nauðsynlegar aðgerðir.

Morgunvaktin
Miklar breytingar í hafinu

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Jan 3, 2018 130:00

Morgunvaktin 3.janúar hófst á Kaupmannahafnarspjalli Borgþórs Arngrímssonar, sem sagði frá áramótaræðum leiðtoganna í Danmörku. Forsætisráðherrann talaði um gjána milli ungra afkomenda innflytjenda og annarra Dana. Hann vill rífa hin svokölluðu gettó sem er að finna í stærstu borgum landsins. Drottningin talaði um nauðsyn fjölbreytninnar í samfélaginu, þörf sé fyrir alla, sum störf væru ekki fínni en önnur. Stofnvísitala þorsks mældist í haust sú hæsta sem mælst hefur, frá upphafi mælinga fyrir tuttugu árum. Sigurður Guðjónsson, forstjóri Hafrannsóknastofnunar, ræddi áhrif þessara niðurstaðna og almennt um ástandið í hafinu vítt og breitt, áhrif loftlagsbreytinga, fiskeldi og sitthvað fleira. Hátt matarverð var helsta kveikjan að mestu mótmælum sem sést hafa í Íran frá 2009 en mótmælendur hafa síðan beint spjótum sínum að spillingu, Hassan Rouhani forseta, gegn klerkaveldinu og sjálfum ajatollanum, æðsta leiðtoga landsins. Mótmælin breiddust á undraverðum hraða um landið í síðustu viku og erfitt þykir að spá fyrir um hverjar afleiðingar þeirra gætu orðið. Þegar hefur á þriðja tug látist í átökum mótmælenda og lögreglu. Mörg hundruð manns hafa verið handteknir. Vera Illugadóttir ræddi þessi mál. Bjarni Pálsson, teymisstjóri veiðisviðs Umhverfisstofnunar, kom í talstofu á Akureyri til Sunnu Valgerðardóttur og ræddi veiðihefðir Íslendinga, stöðu rjúpnastofnsins, hreindýranna, löghlýðni veiðimanna, rafrænu veiðikortin og þær breytingar sem Umhverfisstofnun ætlar að gera með markvissari veiðistjórnun og hvernig er litið til Norðurlandanna sem fyrirmynd í því samhengi. Þættinum lauk á því að Bubbi Morthens flutti lag sitt Sól bros þín.

gu hann fors sigur danm akureyri hassan rouhani bubbi morthens arngr breytingar vera illugad hafranns umhverfisstofnun bjarni p umhverfisstofnunar