POPULARITY
Við fáum leikstjórann Egil Heiðar Anton Pálsson í samtal um leikhúsið, í seríuna um framtíð sviðslista. Tilkynnt var um það á dögunum að Egill Heiðar hefði verið ráðinn Borgarleikhússtjóri. Hann tekur við starfinu í lok mánaðar. En hvers vegna gerir hann leikhús? Og hvað þarf að vera til staðar í samfélaginu til að listalífið blómstri? Katrín Helga Ólafsdóttir flytur okkur pistil um myndina Animality eftir listamanninn Ai Wei Wei, sem hún sá á CPH:DOX, alþjóðlegri heimildamyndahátíð í Kaupmannahöfn.
Feneyjatvíæringurinn í arkitektúr fer fram í 19. sinn á næsta ári og Ísland tekur þá þátt í fyrsta sinn. Tilkynnt var um það í síðustu viku að verkefni s.ap arkitekta, Hraunmyndanir hefur verið valið sem framlag Íslands. Það er Miðstöð hönnunar og arkitektúrs sem hefur umsjón með verkefninu og Gerður Jónsdóttir er verkefnastjóri þátttöku Íslands. Við ræðum við hana í þætti dagisns. Katla Ársælsdóttir segir frá uppistandinu Belonging þar sem fimm innflytjendur stigu á stokk og fjölluðu á kómískan hátt um reynslu sína af því að búa á íslandi. Nýlega sendi tónlistarmaðurinn Sigmar Þór Matthíasson frá sér nýja plötu sem nefnist Uneven Equator, en á henni blandar hann saman jazzi og austrænni heimstónlist. Tómas Ævar ræðir við Sigmar í þætti dagsins.
Félaganarnir fyrrverandi, Vladimír Pútín og Jevgení Prígósjín, voru til umræðu þegar Bogi Ágústsson settist við Heimsgluggann. Staða Rússlandsforsetans hefur veikst eftir atburðina um síðustu helgi, þar sem Wagner-liðar Prígósjíns tóku yfir hernaðarlega mikilvæga borg og voru nálægt því að fara inn í Moskvu. Bogi fór yfir málið og sagði frá umsvifum Wagner-sveitanna í Afríku. Í þessari viku fer fram í Hörpu stór alþjóðleg ráðstefna um efnafræði stórhringja og millisameinda. Þátt taka um 500 efnafræðingar frá öllum heimshornum. Páll Þórðarson, prófessor í efnafræði við Háskólann í Nýju Suður-Wales í Sydney, er einn forsvarsmanna ráðstefnunnar. Hann sagði frá ráðstefnunni, frá rannsóknum sínum og kollega sinna og vísindasamfélaginu í Sydney. Tilkynnt var um breytingar á leikskólakerfinu í Kópavogi í gær, sem er ætlað að skapa meiri stöðugleika og vellíðan í leikskólum, börnum, foreldrum og starfsfólki til hagsbóta. Leikskólastjórarnir Gerður Magnúsdóttir og Sóley Gyða Jörundsdóttir voru í starfshópnum sem lagði breytingarnar til og þær ræddu málið á Morgunvaktinni. Tónlist: Sólarsamba - Góss Það sýnir sig - Una Torfadóttir Í löngu máli - Una Torfadóttir Umsjón: Vera Illugadóttir og Þórunn Elísabet Bogadóttir.

Hilmar Þór Hilmarsson prófessor við Háskólann á Akureyri var gestur Morgunvaktarinnar og ræddi um alþjóðamál, samvinnu Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna, málefni Atlantshafsbandalagsins, stöðuna í Úkraínu og sendiráð Íslands í Rússlandi. Á föstudaginn hlaut Bríet Breiðfjörð Einarsdóttir verðlaun fyrir meistararitgerð sína og rannsókn á upplifun fjölmiðla- og stjórnmálafólks af óvæginni umræðu og áreitni á netinu. Bríet var gestur Morgunvaktarinnar í janúar og flutt var viðtal við hana að því tilefni. Tilkynnt var á dögunum að fjárfestirinn og auðmaðurinn George Soros hafi eftirlátið stjórn á viðskiptaveldi sínu syni sínum, Alexander, George Soros er enda orðinn 92 ára gamall. Soros er umdeildur maður. Hann hefur verið sakaður um að bera ábyrgð á flóttamannastrauminum til Evrópu, og covid-faraldrinum, jafnvel sagt að hann vilji stjórna heiminum á bak við tjöldin. Við fjölluðum um ævi Soros og feril. Tónlist: Monday Morning - Peter, Paul & Mary The Ballad of Lucy Jordan - Marianne Faithful Repulj madar, repulj - Muzsikás Umsjón: Vera Illugadóttir og Þórunn Elísabet Bogadóttir.

Bandaríski rithöfundurinn Cormac Mccarthy er allur. Tilkynnt var um andlát hans í gær. McCarthy var 89 ára og á hann að baki afskaplega farsælan feril sem skáldsagnahöfundur, einn þekktasti samtímahöfundur Bandaríkjanna. Meðal þekktustu verka hans eru Blood Meridian, The Road og hinn svokallaði landamæraþríleikur - All the pretty horses, The Crossing og Cities of the plain. Hann var alamerískur bókmenntarisi, líkt við Faulkner og Hemingway og það þarf að takast á um þá, eins og Einar Kári Jóhannsson bókmenntafræðingur og útgefandi segir okkur frá í þætti dagsins. Myndlistarkonan Hildur Ásgeirsdóttir Jónsson, sem sýnir um þessar mundir í Hafnarborg. hefur búið meirihluta ævi sinnar í Cleveland í Ohio. Hún kemur reglulega hingað til lands og tekur þá ljósmyndir sem hún vinnur síðan úr þegar heim er komið. Helsta viðfangsefni hennar er náttúra Íslands og sú sérstaka birta sem hér er að finna. Hún tengir viðfangsefni sitt þó ekki endilega við ræturnar eða þjóðernið, heldur vill hún miðla þeirra tilfinningu að vera manneskja í víðáttumikilli veröld. Við ræðum við Hildi og Aldísi Arnardóttur sýningarstjóra í þætti dagsins. Við heyrum líka örsnöggt í kanadísku hljómsveitarstjóranum og söngkonunni Barböru Hannigan sem kemur fram á loka tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands annað kvöld.

Norski fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik kemur ítrekað fyrir í samskiptum mannanna tveggja sem grunaðir eru um að skipuleggja hryðjuverk hér á landi. Áður óbirt samskipti mannanna koma fram í nýrri ákæru sem var tekin fyrir í héraðsdómi í morgun. Tvímenningarnir neita sök. Sveinn Andri Sveinsson, lögmaður annars mannsins gagnrýndi fyrri ákæru fyrir að vera óskýra og þótt þessi sé skýrari finnst honum enn vanta upp á. Alexander Kristjánsson sagði frá. Formaður borgarráðs, Einar Þorsteinsson, gerir ekki ráð fyrir að kjörnir fulltrúar borgarinnar fái hærri krónutöluhækkun á launum en samið var um á almenna markaðinum. Að óbreyttu eiga laun margra kjörinna fulltrúa sveitarstjórna að hækka, samkvæmt launavísitölu, um næstu mánaðamót. Benedikt Sigurðsson sagði frá. Á sama tíma og níu kjaradeilur eru á borði ríkissáttasemjara er undirbúin gerð stórra samninga sem losna á næsta ári. Sigríður Þuríður Runólfsdóttir ræddi við Ragnar Þór Ingólfsson og Önnu Hrefnu Ingimundardóttur. Tilkynnt verður um framlag Íslands til mannúðarmála til flóttafólks í Sýrlandi og víðar á árlegri áheitaráðstefnu ESB í vikunni. Björn Malmquist sagði frá. Veggjalús hefur tekið sér bólfestu í íslenskum rúmum. Rætt er við Steinar Smára Guðbergsson meindýraeyði. Veitingastaðurinn Moss í Bláa lóninu var sæmdur Michelin-stjörnu í dag . Agnar Sverrisson, yfirkokkur á veitingastaðnum, segist enn vera að melta fréttirnar. Mun fleiri hafa skráð eignir sínar í ferðamannaleigu nú en undanfarin ár. Auka á eftirlit með heimagistingu og leyfa sveitarfélögum að takmarka hana. Ragnhildur Thorlacius ræddi við Sigríði Kristinsdóttur sýslumann á höfuðborgarsvæðinu. Davíð Oddsson, fyrrverandi forsætisráðherra, minnist Silvios Berlusonis með hlýju. Þeim var vel til vina um tuttugu ára skeið. Berlusconi hefur víða verið minnst í dag sem litríks en umdeilds stjórnmálamanns. Arnar Björnsson ræddi við Davíð Oddsson. Ásgeir Tómasson tók saman. Vísindafólk hjá Íslenskri erfðagreiningu fann á dögunum fyrstu erfðabreytuna í genamengi mannsins, sem vitað er til að hafi áhrif á tónhæð mannsraddarinnar Ævar Örn Jósepsson ræddi við Kára Stefánsson og Rósu S. Gísladóttur, dósent í málvísindum við HÍ. Leikinn var söngur bræðranna Þorsteins og Ásgeirs Trausta Einarssona. Umsjón hafði Ragnhildur Thorlacius. Tæknimaður var Magnús Þorsteinn Magnússon. Margrét Júlía Ingimarsdóttir stjórnaði fréttaútsendingu.

75 ár eru í dag síðan Atómstöðin eftir Halldór Laxness kom út. Af því tilefni var leikið brot úr lestri skáldsins á sögunni. Rúm tvö ár eru síðan Donald Trump lét af embætti Bandaríkjaforseta en enn er hann fréttaefni. Hann stendur í ströngu á mörgum vígstöðvum og hefur lýst yfir framboði á ný. Silja Bára Ómarsdóttir, prófessor í stjórnmálafræði við HÍ, sagði frá þeim málum sem Trump stendur í þessa dagana, fór yfir þau sem tilkynnt hafa þátttöku í forkosningum Repúblikana fyrir næstu kosningar og talaði einnfremur um Biden forseta og Harris varaforseta. Enn er verðbólga víðast hvar í heiminum og vextir hafa verið hækkaðir. Ásgeir Brynjar Torfason, sérfræðingur í fjármálum, fór yfir ástand og horfur. Tilkynnt verður um vaxtaákvörðun í Bandaríkjunum seinna í dag. Meginvextir hér voru hækkaðir um eitt prósentustig meðan á þættinum stóð; sú mikla hækkun kom Ásgeiri Brynjari á óvart. Unnið er að því að fá íslensku sundlaugamenninguna og laufabráðið á skrá UNESCO yfir óáþreifanlegan menningararf. Vera Illugadóttir sagði frá ýmsu sem er á skránni. Tónlist: Do you want to know a secret - Bítlarnir, Don?t cry for me Argentina - Madonna, Anna (Go to him) - Bítlarnir, Ask me why - Bítlarnir, Disco frisco - Guitar Islandico. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson.

Víðsjá dagsins hefst á gleðitíðindum úr bókmenntalífinu. Tilkynnt var um það í hádeginu að rithöfundurinn og skáldið, handrits- og textahöfundurinn Sjón, Sigurjón Birgir Sigurðsson fái árið 2023 hin svokölluðu Norrænu verðlaun Sænsku Akademíunnar fyrir framlag sitt til fjölbreyttra bókmennta og texta ýmis konar. Við skjótumst í heimsókn og hittum höfundinn að þessu tilefni. Ragnheiður Gyða Jónsdóttir heldur áfram að rekja sig í gegnum forn verkföll. Ragnheiður Gyða er með hugann við Grikkland, þá miklu lýðræðis og menningarvöggu vesturlanda. Kvennaverkfall úr leiklistarsögunni verður tekið fyrir. Við höldum líka í Hverfisgallerí og spjöllum við Daníel Magnússon myndlistarmann sem þar býður upp á Konstrúktívan vandalisma, eða það er a.m.k. heitið á einkasýningunni hans þar á bæ. Daníel er í verkunum að velta fyrir sér horfinni heimsmynd, þeim tíma þegar jörðin var álitin í miðju sólkerfisins okkar áður en annað kom í ljós. Listin er einræði segir Daníel, við heyrum nánar af því hér í síðari hluta Víðsjár í dag. Við sögu koma út- og innhöf, myndgert blátt hljóð, hárspennur og heiti á klámstjörnum, gömlum og nýjum.

Fjallað var um stóuspeki. Svavar Hrafn Svavarsson, prófessor í heimspeki, sagði frá uppruna og inntaki þessa merkilega heimspekikerfis. Vera Illugadóttir sagði frá Amaturk, stofnandi þess Tyrklands sem við þekkjum í dag. Tilkynnt var um enn eina vaxtahækkunina í morgun. Björn Snæbjörnsson, formaður Einingar-Iðju, var ósáttur við ákvörðun peningastefnunefndar Seðlabankans. Í byrjun þáttar var leikinn Eyjapistill frá 8. febrúar 1973 en þáttaröðin var sett á dagskrá eftir að Vestmannaeyjagosið hófst. Umsjónarmenn voru Arnþór og Gísli Helgasynir. Tónlist: San Francisco - Scott McKenzie, Blítt og létt - Rúnar Gunnarsson, Sjávarþel - Friðrik Karlsson, Evlerinde makine - Yalcin Özsoy & Nejat Burata, Reiknaðu með mér - Björn Jörundur & Ragheiður Gröndal, Ástarorð - Ragnheiður Gröndal. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson

Þórður Snær Júlíusson ritstjóri kom til okkar. Meðal þess sem hann ræddi var ný skýrsla Oxfam, þar sem kemur fram að ríkasta 1 prósent heimsbyggðarinnar hafi eignast tvo þriðju þess auðs sem orðið hefur til frá því að heimsfaraldur skall á. Sömuleiðis fer sárafátækt vaxandi, í fyrsta sinn í aldarfjórðung. Arthúr Björgvin Bollason sagði okkur frá nýjustu vendingum í þýskum stjórnmálum í Berlínarspjalli. Tilkynnt verður um nýjan varnarmálaráðherra í dag, enda munu varnarmálaráðherrar NATO ríkjanna koma saman á föstudag til að ræða aukna aðstoð við Úkraínu. Í lok þáttarins ræddum við um brauð og kökur, og rekstur bakaría. Sigurður Már Guðjónsson bakarameistari og formaður Landssambands bakarameistara kom til okkar að ræða þau mál. Tónlist: Ég skal bíða þín - Haukur Morthens

Ef færa þarf Landspítalann af óvissustigi yfir á hættustig verður að draga úr starfsemi og valkvæðum aðgerðum. Tilkynnt var í dag um fjölgun rýma á Landakoti til að létta undir með Landspítalanum. Kristín Sigurðardóttir sagði frá og ræddi við Þórólf Guðnason, sóttvarnalækni. Um og yfir 30 prósent þeirra sem sinna grunnskólakennslu á Vestfjörðum, Austurlandi og Suðurnesjum eru án kennsluréttinda. segir Þorgerður Laufey Diðriksdóttir, formaður Félags grunnskólakennara. Tölvuþrjótar réðust á póstþjón Háskólans í Reykjavík?í síðustu viku og dulkóðuðu skrár. Ragnhildur Helgadóttir rektor segir ekki koma til greina að verða við kröfum lausnargjald fyrir gögn. Undirbúningsnefnd fyrir rannsókn kjörbréfa fer í vettvangsferð til Borgarness á morgun, segir Birgir Ármannsson formaður nefndarinnar sem segir að síðar í vikunni verði rætt við kærendur. Þingmenn á breska þinginu minntust í dag félaga síns Davids Amess, sem var stunginn til bana fyrir helgi. Ásgeir Tómasson sagði frá. ------------ Það er kennaraskortur í grunnskólum landsins, en mismikill eftir landshlutum. Ástæðurnar eru margþættar segir Þorgerður Laufey Diðriksdóttir formaður Félags grunnskólakennara. Kristján Sigurjónsson ræddi við hana. Kórónuveiran verður hér áfram og faraldurinn gufar ekki upp á meðan fáir eru bólusettir á stórum svæðum. Þó standa vonir til þess að sýkingarmáttur veirunnar dvíni svo hún verði bara ein af þeim veirum sem valda öndunarfærasýkingum segir Magnús Gottfreðsson, prófessor í smitsjúkdómum. Anna Kristín Jónsdóttir ræddi við hann. Morðið á breska þingmanninum David Amess leiðir athyglina að hörkunni í pólitískri umræðu. Það sést ekki úti í samfélaginu að vináttubönd stjórnmálamanna ganga iðulega þvert á flokkslínurnar. En svívirðingar og gífuryrði á samfélagsmiðlunum vekja ugg. SIgrún Davíðsdóttir tók saman. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnúson. Stjórn útsendingar fréttahluta: Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir

Farið var yfir 12. umferð í 2. og 3. deild ásamt því sem úrvalslið úr umferð 1-11 voru tilkynnt úr hvorri deild fyrir sig. Sverrir og Gylfi voru mættir í stúdíóið eins og venjulega og fóru yfir stöðutöflurnar. Þvílíkt toppbarátta í báðum deildum. Hvaða lið á að stöðva Þróttarana? Er Völsungi og KF alvara með að ætla að taka þátt í toppbaráttunni? Eru allir á Dalvík að hlusta? Hversu stór er sokkaskúffa Gunnars Heiðars? Ástríðan er í boði Bola, Ice-nikótínpúða, JAKO sport og Sóma safanna. Hlustaðu í spilaranum hér að ofan, í gegnum Podcast forrit eða á Spotify.
Bæði forsætisráðherra og heilbrigðisráðherra segja að dagurinn í dag sé stór dagur. Tilkynnt var í dag að frá miðnætti verði öllum samkomutakmörkunum aflétt innanlands. Það á við um meðal annars grímuskyldu, nándarreglu og fjöldatakmarkanir. Tekjur fótboltafélaga hafa snarminnkað í faraldrinum vegna fækkunar áhorfenda. Framkvæmdastjóri KSÍ segir mikið tilhlökkunarefni að halda inn í sumarið án hólfaskiptinga og grímuskyldu. Eftirspurn eftir tónleika- og ráðstefnusölum tók kipp í hádeginu eftir að heilbrigðisráðherra tilkynnti að öllum sóttvarnaaðgerðum hefði verið aflétt innanlands. Framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar fagnar afléttingu sóttvarna, en segist hafa vonast eftir því að kröfur um tvöfalda skimun og sóttkví á landamærunum hefðu ekki verið látnar gilda fram í miðjan ágúst. Mikil gleði ríkir með afléttingar samkomutakmarkana og vegfarendur eru á einu máli um að þetta sé gleðidagur. 24 þúsund skammtar af bóluefni AstraZeneca koma til landsins á morgun. Bólusett verður með því á miðvikudag og fimmtudag. Þjóðin hefur væntanlega tekið gleði sína aftur því á morgun falla allar takmarkanir innanlands niður vegna covid 19. 16 mars í fyrra var gefin út fyrsta reglugerðin um samkomutakmarkanir. Frá þeim tíma hafa verið gefnar út 90 reglugerðir og heilbrigðisráðherra hefur fengið 60 minnisblöð fá sóttvarnalækni. Hún hefur líka flutt 10 munnlegar skýrslur á Alþingi um ástandið og stigið 240 sinnu í ræðustól vegna þess. En voru einhverjar efasemdir um að taka ávörðun um að aflétta öllum talmörkunum innanlands? Arnar Páll Hauksson talar við Svanhvíti Svavarsdóttur, Katrínu Jakobsdóttur og Þórólf Guðnason. Til stendur að bora ofan í kvikupoka við Kröflu, koma þar fyrir mælitækjum og beintengjast þannig kvikunni. Verkefnið kallast Krafla Magma Testbed og er hluti af fyrirhugaðri 100 milljóna bandaríkjadala tilraunastofu í kviku- og eldfjallafræði við Kröflu. Ragnhildur Thorlacius talaði við Hjalta Pál Ingólfsson framkvæmdastjóriaGEORGS - rannsóknarklasa í jarðhita.

Spegillinn 23. mars 2021 Umsjónarmaður: Bergljót Baldursdóttir Lögreglan á Suðurnesjum reynir nú að fá fólk til að yfirgefa gossvæðið á Reykjanesi vegna gasmengunar. Veðurstofan spáir því að hún verði lífshættuleg í kvöld. Múgur og margmenni hefur verið við eldstöðvarnar í dag. Rætt við Sigurð Bergman aðalvarðstjóra í lögreglunni á Suðurnesjum. Gosið í Geldingadölum gæti varað í mánuði eða ár segir prófessor í jarðefnafræði. Margt sé að varast því sprungur geti opnast hratt og gastegundir streymt af krafti úr þeim. Hólfmríður Dagný Friðjónsdóttir, fréttamaður ræddi við Andra Stefánsson prófessor í jarðefnafræði við gosstöðvarnar í dag. Leitað verður allra leiða til að flýta bólusetningu segir forsætisráðherra. Heilbrigðisráðuneytið skoðar nú bóluefnið spútnik fimm sem framleitt er í Rússlandi. Heyrist í Katrínu Jakobsdóttur, forsætisráðherra og Sigmund Davíð Gunnlaugsson í umræðum á Alþingi í dag Nicola Sturgeon, fyrsti ráðherra Skotlands, stóð af sér vantrauststillögu á þinginu í Edinborg í dag. Íhaldsmenn lögðu hana fram, þar sem hún hefði verið staðin að því að brjóta siðareglur þingsins Breyta þarf lögum eigi að skylda þá sem koma til landsins í sóttvarnahús. Þetta segir formaður Velferðarnefndar. Hertar sóttvarnaráðstafanir á landamærunum eiga að taka gildi 1. apríl. Rætt við Helgu Völu Helgadóttur, þingmann Samfylkingarinnar og formann Velferðarnefndar Alþingis. Lengri umfjöllun: Tilkynnt hefur verið um mjög gróft líkamlegt ofbeldi á öldruðum til þjónustumiðstöðvar borgarinnar og einnig um fjárhagslega misnotkun. Deildarstjóri á þjónustumiðstöð segir að ofbeldi á öldruðum sé mjög falið. Bergljót Baldursdóttir ræðir við Sigrúnu Ingvarsdóttur, félagsráðgjafa og deildarstjóra á þjónustumiðstöð Laugardals- og Háaleitis. Svo virðist sem talsverður áhugi sé meðal fyrirtækja á að nýta ráðningarstyrki til að ráða atvinnulaust fólk. Forstjóri Vinnumálastofnunar segir að fyirtæki sýni ákveðna samfélagslega ábyrgð ef þau nýta ráðningarstyrki til að ráða fólk á atvinnuleysisskrá. Arnar Páll Hauksson ræðir við Unni Sverrisdóttur, forstjóra Vinnumálastofnunar og Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóra Samtaka Atvinnulífsins Ár er síðan Covid-19 faraldurinn lokaði Bretlandi og Bretar horfa nú yfir farinn veg. Bólusetning gengur vel en ennþá er óljóst hvenær lífið kemst í eðlilegt horf. Minnst var á það sorglega met Breta í dauðsföllum með klukknahljómi á hádegi í dag. Sigrún Davíðsdóttir í Lundúnum segir frá

Í Víðsjá í dag verður meðal annars frá ritinu Mondo Cane sem kom út hjá forlaginu Þremur höndum seint á síðasta ári. Ritið hefur að geyma íslenskar þýðingar Áslaugar Agnarsdóttur á safni örsagna eftir belgíska listamannatvíeykið Jos de Gruyter og Harald Thys sem upphaflega fylgdi samnefndri myndlistarsýningu sem sett var upp í belgíska skálanum á Feneyjartvíæringnum árið 2019. Nína Óskarsdóttir útgefandi og myndlistarkona segir frá í Víðsjá í dag. María Elísabet Bragadóttir rithöfundur kveður sér hljóðs öðru sinni í Víðsjá á fimmtudegi, undir yfirskriftinni Sannleikskorn, draugasögur koma við sögu að gefnu tilefni hjá Maríu í dag. Tilkynnt var í Gunnarshúsi, húsi Rithöfundasambands Íslands, í morgun hvaða verk eru tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs að þessu sinni. Af Íslands hálfu eru tilnefnd verkin Aðferðir til að lifa af, skáldsaga Guðrúnar Evu Mínervudóttur frá árinu 2019, og Um tímann og vatnið, eftir Andra Snæ Magnason, sömuleiðis frá árinu 2019. Hlustendur heyra í þeim Guðrúnu og Andra í þættinum í dag. Einnig verður hugað að nýjum handhafa íslensku myndlistarverðlaunanna, fjórir listamenn voru tilnefndir til verðlaunanna að þessu sinni, en afhendingin fór fram í dag, þetta var í fjórða sinn sem Myndlistarráð úthlutar þessum verðlaunum. Og Snæbjörn Brynjarsson leiklistargagnrýnandi Víðsjár fjallar í þættinum í dag um leiksýninguna Stúlkan sem stöðvaði heiminn sem sýnd er á Litla sviði Borgarleikhússins. Sýningin er unnin í samvinnu við sviðslistahópinn 10 fingur en hann hefur um árabil lagt áherslu á að setja upp sýningar sem börn og fullorðnir geta notið saman, og hefur sérhæft sig í listsköpun á mörkum leikhúss og myndlistar. Leikstjóri sýningarinnar er Helga Arnalds.

Tilkynnt verður hvaða rithöfundur hlýtur að þessu sinni viðurkenningu úr Rithöfundasjóði Ríkisútvarpsins en hún verður afhent í þættinum. Útvarpað verður frá ávarpi formanns stjórnar Rithöfundasjóðsins, sem og þakkarávarpi rithöfundarins sem hlýtur viðurkenninguna að þessu sinni. Í þættinum verður einnig greint frá því hvaða orð varð fyrir valinu sem orð ársins.

Í Víðsjá í dag verður meðal annars fjallað um sýninguna ÓraVídd sem nú stendur yfir á Kjarvalsstöðum, en um er að ræða yfirlitssýningu á verkum Sigurðar Árna Sigurðssonar, Sigurður verður tekinn tali í Víðsjá í dag. Tilkynnt var fyrir helgi um úthlutanir úr Rannsóknasjóði, Rannís. Um er að ræða stærstu úthlutun sjóðsins frá upphafi en alls bárust 402 gildar umsóknir í Rannsóknasjóð og voru 82 þeirra styrktar eða rúmlega 20% umsókna. Á meðal þeirra sem hljóta nýdoktorsstyrk að þessu sinni er Hjalti Snær Ægisson bókmenntafræðingur en Hjalti fær styrkinn fyrir verkefni sem nefnist Bessastaðaþýðingarnar, rætt verður við Hjalta í Víðsjá í dag. Og í tónlistarhorninu Heyrandi nær lætur Arnljótur Sigurðsson hugann reika um áráttuna fyrir rími og stuðlum, en rímið og stuðlana notar manneskjan sér bæði til gagns og gamans, nær og fjær. Umsjón: Guðni Tómasson og Eiríkur Guðmundsson

Umsjónarmenn: Sigmar Guðmundsson og Rúnar Róbertsson Við tókum púlsinn á starfseminni í sóttvarnarhúsunum. Hvernig voru jólin þar og voru margir í einangrun? Gylfi Þór Þorsteinsson, forstöðumaður sóttvarnarhúsa var á línunni hjá okkur. Við heyrðum í Ester Rut Unnsteinsdóttur, spendýravistfræðingu á Náttúrufræðistofnun, en hún mun annast vísindalega leiðsögn tökuliðs frá BBC sem kemur hingað til lands til að gera heimidlarmynd um íslenska refinn í friðlandinu á Hornströndum. Ester sagði í viðtali við Morgunblaðið í gær að áhugi erlendra kvikmyndagerðafólks væri sífellt að aukast. Það ætti varla að hafa farið fram hjá neinum að bólusetningar hófust hér á landi í dag og við heyrðum í sérnámslækninum Elíasi Sæbirni Eyþórssyni sem verður með þeim fyrstu hér á landi til að fá sprautu i dag. Tilkynnt verður um val á íþróttamanni ársins í kvöld á RÚV en búið er að tilkynna um þá 10 sem voru efstir. Árið hefur verið íþróttafólki erfitt og væntanlega setur það svip á valið. Tómas Þór Þórðarson er formaður Samtaka íþróttafréttamanna. Hann kom til okkar og fór yfir íþróttaárið með okkur. Og Sævar Helgi Bragason gerði upp vísindaárið í vísindapistli dagsins. Tónlist: Nýdönsk - Ég ætla að brosa Hreimur - Skilaboðin mín Ásgeir Trausti - Hringsól Of monsters and men - Visitor Baggalútur - Er ég að verða vitlaus eða hvað U2 - The Unforgettable fire Alicia Keys - Love looks better Magni - If I promised you the world Harry Styles - Golden

Umsjón: Pálmi Jónasson Öll skíðasvæði í Ölpunum eru orðin hluti af áhættusvæðum og þurfa allir sem koma þaðan að fara í tveggja vikna sóttkví. Tilkynnt var í dag að 60 Íslendingar væru smitaðir af COVID-19. Hlutabréfaviðskipti voru stöðvuð í fimmtán mínútur á Wall Street í New York í dag vegna verðhruns við upphaf viðskipta. Öngþveiti skapaðist á Ítalíu í gær þegar þúsundir reyndu að flýja boðaða sóttkví í stórum hluta landsins. Strangt ferðabann er nú í gildi á nokkrum svæðum á Norður-Ítalíu og um sextán milljónir verða þar í sóttkví fram í byrjun apríl. Það er um fjórðungur ítölsku þjóðarinnar. Þó að samningar hafi tekist í nótt við flest BSRB-félögin á enn eftir að semja við fjölmörg félög opinberra starfsmanna. Í þeim hópi eru meðal annars hjúkrunarfræðingar, kennarar og læknar. Ef tækist að rafmagnsvæða alla bílaleigubíla hér á landi myndi það flýta innleiðingu hreinorkubíla og hafa jákvæð áhrif á ímynd Íslands, segir forstöðumaður Grænvangs. Rafvæðing bílaleiguflotans er nú til skoðunar í atvinnulífinu. Öngþveiti skapaðist á Ítalíu í gær þegar þúsundir reyndu að flýja boðaða sóttkví í stórum hluta landsins. Sjö þúsund og fjögur hundruð smit hafa verið staðfest á Ítalíu og 366 dauðsföll, fleiri en nokkurs staðar í veröldinni að Kína frátöldu. Strangt ferðabann er nú í gildi á nokkrum svæðum á Norður-Ítalíu og um sextán milljónir verða þar í sóttkví fram í byrjun apríl. Það er um fjórðungur ítölsku þjóðarinnar. Pálmi Jónasson fjallar um málið í Spegilinum. Þó að samningar hafi tekist í nótt við flest félög innan BSRB á enn eftir að semja við fjölmörg félög opinberra starfsmanna. Hjúkrunarfræðingar telja að stytting vinnuvikurnar hjá vaktavinnufólki hafi í för með sér launalækkun meðal hjúkrunarfræðinga og 11 BHM-félög sætta sig ekki við tvískipta yfirvinnutaxta. Arnar Páll Hauksson tók saman. Eggert Benedikt Guðmundsson forstöðumaður Grænvangs segir að ef tækist að raforkuvæða alla bílaleigubíla myndi það flýta innleiðingu hreinorkubíla hér á landi og hafa jákvæð áhrif á ímynd Íslands. Rafvæðing allra bílaleigubíla á Íslandi er nú til skoðunar hjá aðilum í atvinnulífinu. Bergljót Baldursdóttir tók saman.

Horfur er á að á næstunni verðir settar upp yfir 150 hleðslustöðvar víðs vegar um landið. Þetta er niðurstaðan eftir að stjórnvöld auglýstu styrki til að koma upp hleðslustöðvum. Alls bárust umsóknir um að setja upp hraðhleðslustöðvar fyrir tæpa 2 milljarða króna. Tilkynnt verður um miðjan október hverjir fá styrki. Arnar Páll Hauksson. „Fyrsta árið var svolítið skrítið, það vantaði svolítið inn í tilveruna.“ Svona lýsir Jóhann Gunnarsson, þeim tímamótum að hætta að vinna. Þetta vandist með tímanum og hann þakkar það ekki síst þátttöku í Körlum í skúrum, verkefni á vegum Rauða krossins. Skúrinn er við Helluhraun í Hafnarfirði og þangað geta karlar á öllum aldri komið og sinnt ýmsum verkefnum. Arnhildur Hálfdánardóttir hitti Jóhann í skúrnum. Elizabeth Warren er einna líklegust til að mæta Donald Trump í forsetakosningunum á næsta ári. Trump kallar hana iðulega indjánann eða Pókahontas eftir amerísku frumbyggjakonunni frá sautjándu öld sem öðlaðist heimsfrægð í túlkun Disney í teiknimynd frá 1995. Pálmi Jónasson segir frá.
Alvarlegt umferðarslys varð á Suðurlandsvegi rétt austan við Eystri Rangá síðdegis. Áætlað er að Suðurlandsvegur verði lokaður í um tvær klukkustundir vegna slyssins Hitamet hafa fallið í Frakklandi í dag þar sem hitinn fór í 45,8 stig í suðurhluta landsins. Tilkynnt hefur verið um nokkur dauðsföll. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segist harma töf á rannsókn á læknamistökum í fæðingu sem urðu til þess að hjón misstu barn. Málinu var vísað til ríkislögmanns og lögreglu árið 2016. Útlenskur faðir, sem var dæmdur í 16 ára fangelsi fyrir manndráp í Hæstarétti, hefur höfðað mál gegn ríkinu til að koma í veg fyrir að hann verði sendur úr landi eftir afplánun. Fimmtíu ár eru í dag liðin frá Stonewall-mótmælunum í New York, sem talin eru marka upphaf réttindabaráttu hinsegin fólks G20-ríkin hafa meira en tvöfaldað fjárframlög sín til kolaiðnaðarins á þremur árum þrátt fyrir loforð um að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu sem var birt fyrir fund ríkjanna sem hófst í dag. Bergljót Baldursdóttir segir frá. Hlé verður gert á kjaraviðræðum í júlí og fram yfir verslunarmannahelgi. Ríkið hefur samið við BRSB og fleiri félög um friðarskyldu fram til 15. september. Formaður samninganefndar ríkisins segist bjartsýnn á að samningar takist fyrir þann tíma. Arnar Páll Hauksson talar við Sverri Jónsson. Kristján Sigurjónsson sagði frá svindli í maraþonhalupum.
Hvernig björgum við íslenskunni? Það er ein þessara stóru spurninga sem við þurfum að svara á næstu árum. Ef við hreyfum hvorki legg né lið myndi íslenskunnar bíða stafrænn dauði - og þá ætti hún ekki langt eftir sem lifandi tæki í samskiptum þeirra sem byggja þetta land. Við ætlum ekki að láta þetta gerast, heldur blása til gagnsóknar. Í fylkingarbrjósti er sjálfseignarstofnunin Almannarómur, sem hefur það hlutverk að stuðla að smíði máltæknilausna fyrir íslensku - gera hana gjaldgenga og nothæfa í tækniheimi nútímasamfélagsins. Við ætlum að fræðast um þetta merkilega starf. Á Morgunvaktina komu Stefanía G. Halldórsdóttir, stjórnarformaður, og Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Almannaróms. - Í gær hófust viðræður milli Icelandair að Wow air eftir að viðræðum Wow og Indigo Partners var slitið. Tilkynnt var um þetta á tíunda tímanum í gærkvöldi. Forsvarsmenn félaganna gefa sér tíma fram á mánudag til að ná samkomulagi um aðkomu Icelandair að Wow sem að óbreittu stefnir í þrot. Gagnvart samkeppnisyfirvöldum er í viðræðunum vísað til sjónarmið samkeppnisréttar um fyrirtæki á fallandi fæti. Ríkisstjórnin fylgist með viðræðunum en mikið er í húfi fyrir íslenskt samfélag. Við ræddum þessa stöðu við Kristján Sigurjónsson í ferðaspjalli dagsins eftir átta fréttirnar. - Hann er einn hæfileikaríkasti og þekktasti tónlistarmaður okkar. Verk hans hafa hljómað um veröldina alla - lög með hljómsveitinni sem segja má að hafi rutt brautina fyrir íslenskt dægurtónlistarfólk út í heim. Um áratuga skeið hafa aðrir tónlistarmenn sóst eftir að fá að njóta hæfileika hans og þær eru orðnar margar upptökurnar og tónleikarnir þar sem hann situr við hljómborðin og spilar. Auðvitað erum við að tala um Eyþór Gunnarsson. Hann var föstudagsgestur Morgunvaktarinnar og talaði um tónlistina og ferilinn. - Tónlist: The Beatles - If I fell; Elvis Presley - Love me; Bob Dylan - Like a Rolling Stone; Mezzoforte - EG blues; Tríó Eyþórs Gunnarssonar - Night and day.
Miðjan er nýr hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net. Þátturinn fer á fulla ferð í vetur en í hverjum þætti fáum við til okkar góðan gest. Við tökum forskot á sæluna í dag með ítarlegu viðtali við Óla Stefán Flóventsson. Tilkynnt var á dögunum að Óli Stefán muni hætta sem þjálfari Grindvíkinga eftir tímabilið eftir magnaðan árangur undanfarin þrjú ár.
Næsta föstudag, 11. maí, mun Heimir Hallgrímsson opinbera landsliðshóp Íslands sem fer á HM í Rússlandi. 23 manna hópur verður valinn og er hart barist um flugmiðana. Hjörvar Hafliðason var gestur í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 þar sem spáð var í valið og mótið framundan. Tómas Þór og Elvar Geir voru á sínum stað.
Réttarhöld í stærsta hassmáli í sögu Danmerkur eru í uppnámi. Tveir saksóknarar sæta rannsókn, sakaðir um að reyna að stjórna framburði vitna. Í héraðsdómi voru 80 menn dæmdir. Málið er situr fast fyrir landsrétti vegna þessa. Borgþór Arngrímsson í Kaupmannahöfn sagði frá þessu og því að danska stjórnin hefur lagt áætlanir um skattalækkanir á hilluna, að hlýnun jarðar veldur því að stór ræktunarlönd danskra bænda liggja nú undir vatni. Loks vare þess minnst að hálf öld er liðin frá því fyrsta kvikmyndin um Olsen-bófana var sýnd. Svo lengi sem elstu menn muna hefur verið talað um mikilvægi þess að efla tækni- og iðnmenntun á Íslandi. Nú hefur ný ríkisstjórn tekið við völdum og í sáttmála hennar segir að iðnnám og verk- og starfsnám verði eflt í þágu fjölbreytni og öflugra samfélags. Jón B Stefánsson, skólameistari Tækniskólans, dró upp mynd af þessum hluta menntakerfisins og hvernig við búum okkur undir fjórðu iðnbyltinguna. Tilkynnt var í gær að Norður-Kórea ætli að senda bæði íþróttamenn og sendinefnd embættismanna á vetrarólympíuleikana í Suður-Kóreu í næsta mánuði. Norður-kóreskir íþróttamenn sátu heima síðast þegar sunnanmenn héldu Ólympíuleika, og gengið hefur á ýmsu í íþróttasögu Kóreuríkjanna tveggja, mannskæðar hryðjuverkaárásir hafa verið gerðar, sjóorustur háðar, en einnig eru dæmi um samvinnu. Vera Illugadóttir sagði frá. Knattspyrnufélag Akureyrar, KA, fagnar 90 ára afmæli um þessar mundir. Mikið stendur til fyrir norðan í tilefni afmælisins og teygja veisluhöld sig fram í næstu viku. Jón Þór Kristjánsson, fréttamaður á Akureyri ræddi um KA og afmælið við Hrefnu Gunnhildi Torfadóttir, formann KA, og Siguróla Magna Sigurðsson, íþróttafulltrúa þess.