Podcasts about hagstofunnar

  • 7PODCASTS
  • 57EPISODES
  • 1h 23mAVG DURATION
  • 1MONTHLY NEW EPISODE
  • Dec 20, 2023LATEST

POPULARITY

20172018201920202021202220232024

Best podcasts about hagstofunnar

Latest podcast episodes about hagstofunnar

Morgunvaktin
Líklegt að dragi úr barneignum

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Dec 20, 2023 130:00

Samkvæmt nýrri mannfjöldaspá Hagstofunnar eru líkur á að landsmenn verði hálf milljón fyrir miðja öldina og 600 þúsund árið 2074. Mannfjöldaspár eru ónákvæm vísindi en gefa vísbendingar um líklega þróun. Ólöf Garðarsdóttir, prófessor í félagssögu við HÍ, ræddi vítt og breitt um mannfjölda og horfurnar fram undan. Búist er við að enn fjölgi í heiminum eftir því sem líður á öldina en þá taki fólki að fækka. Ólöf telur að barneiginum á Íslandi muni fækka í framtíðinni. Arthúr Björgvin Bollason flutti okkur tíðindi frá Þýskalandi. Mikið er fjallað um eldgosið á Reykjanesskaga í þarlendum fjölmiðlum en af öðru sem rætt var voru m.a. mótmælaaðgerðir þýskra bænda á mánudag, þeir óku dráttarvélum sínum til höfuðborgarinnar til að mótmæla fyrirhuguðu afnámi niðurgreiðslu á dísilolíu til landbúnaðar. Í síðasta hluta þáttarins var fjallað um þjóðtrú í tilefni af niðurstöðum nýrrar könnunar sem sýna að dregið hefur úr þjóðtrú landsmanna. Þá voru lesnar tvær sögur úr Þjóðsögum Jóns Árnasonar. Blue moon - Elvis Presley, Tsintskaro - Hamlet Gonashvili, Litli Stúfur - Borgardætur, Tempó prímó - Eyþór Gunnarsson, Gymnopédie no. 1 - Trio Jacques Loussier. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Eyrún Magnúsdóttir.

Morgunvaktin
Líklegt að dragi úr barneignum

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Dec 20, 2023

Spegillinn
Missti allt í brunanum, fjöldamorð á flóttamönnum, þörungar í vatni

Spegillinn

Play Episode Listen Later Aug 21, 2023 9:15

Ævar Sigmar Hjartarson Formaður húsfélags í húsi við Hvaleyrarbraut, sem brann í gær, segist sjálfur ítrekað hafa bent bæjaryfirvöldum á að ólögmæt búseta væri í húsinu. Leigusalar virðast fela fyrir nágrönnum sínum að þeir leigi út rými í atvinnuhúsnæði til búsetu. Landmæraverðir í Sádi-Arabíu fremja fjöldamorð á flóttafólki frá Eþíópíu sem reynir að komast inn í landið, samkvæmt nýrri skýrslu Mannréttindavaktarinnar. Um 850 er enn saknað eftir mikla gróðurelda á Havaí. Eldarnir eru þeir mannskæðustu í Bandaríkjunum í meira en öld. Staðfest er að 114 hafa látist. Bandaríkjaforseti sækir eyjarnar heim í dag. Grænþörungar í vatnsbóli Skagamanna ollu að öllum líkindum óbragði af drykkjarvatni þar. Vatnsbólið hefur verið hreinsað. Steingrímur Örn Ingólfsson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins Kvarna sem selur sorpkvarnir segir eftirspurn og áhuga á kvörnunum hafa aukist merkjanlega eftir að nýtt flokkunarkerfi var tekið í gagnið á höfuðborgarsvæðinu. Jón Trausti Kárason forstöðumaður vatns og fráveitu hjá Veitum segir veitukerfið ekki í stakk búið til þess að taka á móti lífrænum úrgangi. Neyðarástand ríkir í húsnæðismálum Háskólans á Hólum, segir Hólmfríður Sveinsdóttir rektor. *** Í byrjun árs í fyrra er talið að tæplega tvö þúsund hafi búið í ósamþykktu atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu. Líklegt er að þeir séu mun fleiri í dag. Stefnt er að því að breyta regluverki svo fólk geti tímabundið skráð lögheimili sitt í atvinnuhúsnæði. Anna Kristín Jónsdóttir ræddi við Regínu Valdimarsdóttur, teymisstjóra á brunavarnasvið Húsnæðis -og mannvirkjastofunar. Miðað við nýútkomna tölfræði Hagstofunnar má gera ráð fyrir að rúm 60% þeirra sem hefja nám á framhaldsskólastigi núna ljúki því innan sex ára. Það er í það minnsta raunin með þá sem hófu nám haustið 2017. Nú er byrjað að greina sérstaklega hvort innflytjendur klára framhaldsskólann. Þá kemur í ljós að tæp 67% þeirra sem fluttu til landsins fyrir sjö ára aldur, og byrjuðu í framhaldsskóla luku náminu, en aðeins tæp 37% þeir sem fluttu til landsins sjö ára eða eldri. Ragnhildur Thorlacius ræddi við Stellu Blöndal dósent við HÍ. Volodymyr Zelensky, forseti Úkraínu, var hrærður þegar hann þakkaði Dönum á þeirra eigin tungu fyrir að ætla að gefa Úkraínuher nítján F-16 orrustuþotur. Jafnframt taka Danir að sér að þjálfa úkraínska flugmenn, flugvirkja og starfslið til að þjónusta þoturnar. Ásgeir Tómasson sagði frá. Umsjónarmaður Spegilsins var Ragnhildur Thorlacius. Tæknimaður var Jón Þór Helgason. Fréttaútsendingu stjórnaði Margrét Júlía Ingimarsdóttir.

arab allt ing sta volodymyr zelenskyy reg hava bandar ney margr helgason umsj steingr danir sveinsd mannr valdimarsd jafnframt anna krist stefnt hagstofunnar
Spegillinn
Missti allt í brunanum, fjöldamorð á flóttamönnum, þörungar í vatni

Spegillinn

Play Episode Listen Later Aug 21, 2023

Ævi Oppenheimers á við grískan harmleik

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Jul 25, 2023 130:00

J. Robert Oppenheimer eðlisfræðingur er jafnan kallaður faðir atómsprengjunnar. Hann stýrði Manhattan-verkefni Bandaríkjastjórnar en afrakstur þess voru sprengjurnar sem varpað var á Hirosima og Nagasaki í síðari heimsstyrjöldinni. Kvikmynd um Oppenheimer er nú sýnd í kvikmyndahúsum um alla heim og hefur hlotið mikla aðsókn og einróma lof. Tómas Jóhannesson jarðeðlisfræðingur er búinn að sjá myndina, hann ræddi um eðlisfræðina sem birtist á hvíta tjaldinu og líf og feril Oppenheimers. Arthúr Björgin Bollason í Berlín rakti mál ljónynjunnar sem leitað var að í úthverfi borgarinnar á dögunum en reyndist ekki vera ljónynja, og sagði einnig frá árlegri hátíð hinsegin fólks sem haldin var í Berlín um helgina. Fyrir tuttugu árum voru hér á landi aðeins tæplega 400 geitur. Nú eru þær nálega 1900 talsins samkvæmt tölum Hagstofunnar. Geitum fer fjölgandi ár frá ári og geitfjárbændum sömuleiðis. Jóhanna Bergmann Þorvaldsdóttir bóndi á Háafelli í Hvítársíðu í Borgarfirði er frumkvöðull í geitarækt á Íslandi. Hún spjallaði við okkur um sögu geitaræktar á Íslandi, um margvíslegar afurðir geitarinnar og gáfur dýrsins og hæfileika.

Morgunvaktin
Ævi Oppenheimers á við grískan harmleik

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Jul 25, 2023

Efling úr SGS, Heilsuvera, svelt hjúkrunarheimili, skólamál og Erdogan

Spegillinn

Play Episode Listen Later May 11, 2023

Spegillinn 11. maí 2023 Umsjónarmaður: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon Stjórnandi fréttaútsendingar: Annalísa Hermannsdóttir Félagar í Eflingu samþykktu í dag að félagið segði sig úr Starfsgreinasambandinu. Fimm prósent félagsmanna tóku þátt í atkvæðagreiðslunni og sjötíu prósent þeirra samþykktu úrsögn. Formaður Eflingar fagnar niðurstöðunni og formaður Starfsgreinasambandsins segir hana ekki koma á óvart. Faðir langveikrar stúlku gagnrýnir að hafa misst aðgang að Heilsuveru hjá dóttur sinni eftir að hún varð sextán ára. Hún er ekki fær um að sækja sjálf um rafræn skilríki og stendur þar af leiðandi réttindalaus. Fjöldi sveitarfélaga hefur gefist upp á að reka hjúkrunarheimili fyrir ríkið og hafa mörg þeirra skilað rekstrinum til að þurfa ekki að borga tugi milljóna með honum á hverju ári. Starfsfólk Landspítala er hætt að fá sérstakar viðbótargreiðslur tengdar covid faraldrinum. Starfsfólk bráðamóttöku spítalans fær þó greiðslur í maí. Lífslíkur ómenntaðra eru talsvert lægri en þeirra sem hafa háskólamenntun. Þetta kemur fram í nýlegum tölum Hagstofunnar. Lífslíkur ómenntaðra kvenna hafa lækkað mest frá heimsfaraldri. ----- Félagar í Eflingu samþykktu í dag að félagið myndi segja sig úr Starfsgreinasambandinu. Tæplega 70 prósent þeirra sem greiddu atkvæði samþykktu úrsögnina. Einungis 5 prósent félagsmanna tóku þátt í atkvæðagreiðslunni. Rætt er við Sólveigu Önnu Jónsdóttur, formann Eflingar, og Vilhjálm Birgisson, formann SGS. Á vormánuðum skipaði mennta- og barnamálaráðherra stýrihóp um eflingu framhaldsskóla. Að hans frumkvæði er hafið samtal um sameiningu Verkmenntaskólans og Menntaskólans á Akureyri, Kvennaskólans í Reykjavík og Menntaskólans við Sund, Fjölbrautaskólans á Suðurnesjum og Keilis, og svo Flensborgar og Tækniskólans. Þessi vinna er í fullum gangi og skýrslu um kosti og galla á að skila fyrir lok mánaðar. Sýnist sitt hverjum eins og komið hefur fram í fréttum, gagnrýnisraddir verið nokkuð háværar. Af hálfu ráðuneytisins hefur meðal annars verið vísað til þess að efla þurfi verk- og starfsnám og auka farsæld barna og ungmenna. Hildur Ingvarsdóttir skólameistari í Tækniskólanum fagnar því sem gert er til að efla starfsnám. Áform Receps Tayyips Erdogans, forseta Tyrklands, um að lengja tuttugu ára valdatíma sinn um fimm ár að minnsta kosti virðast vera að renna út í sandinn. Samkvæmt skoðanakönnun sem tyrkneska rannsókna- og ráðgjafarfyrirtækið Konda birtir í dag mælist fylgi hans fyrir forsetakosningarnar á sunnudag 43,7 prósent. Helsti keppinautur hans, Kemal.

fa forma af recep tayyip erdogan magn fj stj reykjav kemal sund sgs akureyri vilhj umsj konda fimm birgisson landsp menntask hermannsd samkv eflingar efling tyrklands eflingu hagstofunnar
Spegillinn
Efling úr SGS, Heilsuvera, svelt hjúkrunarheimili, skólamál og Erdogan

Spegillinn

Play Episode Listen Later May 11, 2023 30:00

Spegillinn 11. maí 2023 Umsjónarmaður: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon Stjórnandi fréttaútsendingar: Annalísa Hermannsdóttir Félagar í Eflingu samþykktu í dag að félagið segði sig úr Starfsgreinasambandinu. Fimm prósent félagsmanna tóku þátt í atkvæðagreiðslunni og sjötíu prósent þeirra samþykktu úrsögn. Formaður Eflingar fagnar niðurstöðunni og formaður Starfsgreinasambandsins segir hana ekki koma á óvart. Faðir langveikrar stúlku gagnrýnir að hafa misst aðgang að Heilsuveru hjá dóttur sinni eftir að hún varð sextán ára. Hún er ekki fær um að sækja sjálf um rafræn skilríki og stendur þar af leiðandi réttindalaus. Fjöldi sveitarfélaga hefur gefist upp á að reka hjúkrunarheimili fyrir ríkið og hafa mörg þeirra skilað rekstrinum til að þurfa ekki að borga tugi milljóna með honum á hverju ári. Starfsfólk Landspítala er hætt að fá sérstakar viðbótargreiðslur tengdar covid faraldrinum. Starfsfólk bráðamóttöku spítalans fær þó greiðslur í maí. Lífslíkur ómenntaðra eru talsvert lægri en þeirra sem hafa háskólamenntun. Þetta kemur fram í nýlegum tölum Hagstofunnar. Lífslíkur ómenntaðra kvenna hafa lækkað mest frá heimsfaraldri. ----- Félagar í Eflingu samþykktu í dag að félagið myndi segja sig úr Starfsgreinasambandinu. Tæplega 70 prósent þeirra sem greiddu atkvæði samþykktu úrsögnina. Einungis 5 prósent félagsmanna tóku þátt í atkvæðagreiðslunni. Rætt er við Sólveigu Önnu Jónsdóttur, formann Eflingar, og Vilhjálm Birgisson, formann SGS. Á vormánuðum skipaði mennta- og barnamálaráðherra stýrihóp um eflingu framhaldsskóla. Að hans frumkvæði er hafið samtal um sameiningu Verkmenntaskólans og Menntaskólans á Akureyri, Kvennaskólans í Reykjavík og Menntaskólans við Sund, Fjölbrautaskólans á Suðurnesjum og Keilis, og svo Flensborgar og Tækniskólans. Þessi vinna er í fullum gangi og skýrslu um kosti og galla á að skila fyrir lok mánaðar. Sýnist sitt hverjum eins og komið hefur fram í fréttum, gagnrýnisraddir verið nokkuð háværar. Af hálfu ráðuneytisins hefur meðal annars verið vísað til þess að efla þurfi verk- og starfsnám og auka farsæld barna og ungmenna. Hildur Ingvarsdóttir skólameistari í Tækniskólanum fagnar því sem gert er til að efla starfsnám. Áform Receps Tayyips Erdogans, forseta Tyrklands, um að lengja tuttugu ára valdatíma sinn um fimm ár að minnsta kosti virðast vera að renna út í sandinn. Samkvæmt skoðanakönnun sem tyrkneska rannsókna- og ráðgjafarfyrirtækið Konda birtir í dag mælist fylgi hans fyrir forsetakosningarnar á sunnudag 43,7 prósent. Helsti keppinautur hans, Kemal.

fa forma af recep tayyip erdogan magn fj reykjav kemal sund sgs akureyri vilhj konda fimm birgisson landsp menntask samkv eflingar efling tyrklands eflingu hagstofunnar
Lestin
Eurovision í Mjóddinni, nýfútúrismi, menningartölfræðingur talar

Lestin

Play Episode Listen Later May 10, 2023

Eurovision í gær, Eurovision á morgun, og aftur á laugardag. Það eru, að því er virðist, allir að horfa og allir með skoðun. Við gerum okkur ferð niður í Mjódd og ræðum við fólk um Eurovision. Við heyrum um uppáhaldslög, umdeildar skoðanir og spáum í spilin fyrir helgina. Undanfarnar vikur hefur Haukur Már Helgason rithöfundur flutt pistla hér í Lestinni þar sem hann hefur pælt í gervigreind og velt fyrir sér merkingu og áhrifum þessarar yfirstandandi tækniþróunar. Í pistli dagsins beinir hann sjónum sínum að þeirri heimspeki og hugmyndaheimi sem drífur áfram marga af forsvarsmönnum þessarar tækni, langtímahyggju og nýfútúrisma. Listafólk og þau sem starfa í menningartengdum greinum eru ekki beint þekkt fyrir að liggja yfir hagtölum um sínar starfsgreinar og þær hafa hvort sem er lengst af ekki verið til, þar til núna. Erla Rún Guðmundsdóttir sérfræðingur hjá Hagstofu Íslands sérhæfir sig í menningartölfræði og hún heimsækir lestina og útskýrir svokallaðan menningarvísi Hagstofunnar og uppfærðar tölur sem birtust í dag.

Lestin
Eurovision í Mjóddinni, nýfútúrismi, menningartölfræðingur talar

Lestin

Play Episode Listen Later May 10, 2023 55:00

Eurovision í gær, Eurovision á morgun, og aftur á laugardag. Það eru, að því er virðist, allir að horfa og allir með skoðun. Við gerum okkur ferð niður í Mjódd og ræðum við fólk um Eurovision. Við heyrum um uppáhaldslög, umdeildar skoðanir og spáum í spilin fyrir helgina. Undanfarnar vikur hefur Haukur Már Helgason rithöfundur flutt pistla hér í Lestinni þar sem hann hefur pælt í gervigreind og velt fyrir sér merkingu og áhrifum þessarar yfirstandandi tækniþróunar. Í pistli dagsins beinir hann sjónum sínum að þeirri heimspeki og hugmyndaheimi sem drífur áfram marga af forsvarsmönnum þessarar tækni, langtímahyggju og nýfútúrisma. Listafólk og þau sem starfa í menningartengdum greinum eru ekki beint þekkt fyrir að liggja yfir hagtölum um sínar starfsgreinar og þær hafa hvort sem er lengst af ekki verið til, þar til núna. Erla Rún Guðmundsdóttir sérfræðingur hjá Hagstofu Íslands sérhæfir sig í menningartölfræði og hún heimsækir lestina og útskýrir svokallaðan menningarvísi Hagstofunnar og uppfærðar tölur sem birtust í dag.

Morgunvaktin
Tískubylgjur í heilsu, áhrif kulda og ólík fjölskylduform

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Jan 16, 2023 130:00

Fjölmargir heimilislæknar hafa íhugað að fara í veikindaleyfi eða minnka við sig vinnuna vegna mikils álags. Margrét Ólafía Tómasdóttir er formaður félags heimilislækna. Hún ræddi þessi mál og líka um tískubylgjurnar sem koma úr fjölmiðlum og af samfélagsmiðlum og inn til heimilislækna. Kuldinn hefur aldeilis áhrif á okkur en við hækkum bara í ofnunum og klæðum okkur vel - en hvað gera dýrin? Eða öllu heldur hvernig fer kuldinn í dýrin stór og smá? Við spurðum Helgu Gunnarsdóttur dýralækni í Eyjafirði. Við fjölluðum líka um fjölskyldu- og sambúðarform landsmanna. Með grófri alhæfingu má segja að áður fyrr hafi fjölskylda samanstaðið af konu karli og börnum þeirra og þau búið saman þar til börnin fluttu út og stofnuðu sína eigin fjölskyldu. Nú er fjölskyldan fjölbreytt og allavega. hjónabönd eru samkynja, börn eiga tvö heimili, fólk kýs að búa eitt, börnin eru lengur heima, vinir búa saman og svo framvegis. við skoðuðum hvernig fjölskyldumynstrið hefur breyst og þróast í gögnum Hagstofunnar. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir. Tónlist: The look of love - Nina Simone Rainy days and Mondays - The Carpenters Close to you - The Carpenters Ljúfa líf - Ellen Kristjánsdóttir Ó, ljúfa líf - Flosi Ólafsson

bj fj margr umsj sigbj flosi eyjafir hagstofunnar helgu gunnarsd
Morgunvaktin
Tískubylgjur í heilsu, áhrif kulda og ólík fjölskylduform

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Jan 16, 2023

Úkraínuher nær Khersonborg og hagvöxtur hér yfir 6% í ár

Spegillinn

Play Episode Listen Later Nov 11, 2022

Spegillinn 11.11. 2022 Umsjón: Ásgeir Tómasson Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon Útsendingarstjórn: Valgerður Þorsteinsdóttir Verðbólguhorfur hafa versnað að dómi Hagstofu Íslands sem telur þó að verðbólgan hafi náð hámarki í sumar. Ferðaþjónustan er nærri því að hafa náð fyrri styrk og útlit fyrir að hækkunum linni á fasteignamarkaði. Hagvöxturinn verður að líkindum rúmlega sex próent í ár og tæp tvö prósent á því næsta. Anna Kristín Jónsdóttir ræddi horfurnar í efnahagsmálum við Marinó Melsted, deildarstjóra rannsóknar- og spádeildar Hagstofunnar, sem sagði áhrif kórónuveirufaraldursins fjara að mestu leyti út á þessu ári. Úkraínskar hersveitir héldu í dag inn í borgina Kherson í samnefndu héraði í suðurhluta landsins. Úkraínski fáninn var dreginn að húni í miðborginni. Rússar segjast hafa flutt allt herlið sitt austur fyrir ána Dnépr. Brynjólfur Þór Guðmundsson sagði frá. Bæjarráð Akureyrarbæjar leggur til að vinabæjarsamstarfi við Múrmansk í Rússlandi verði slitið, ásamt aðild að samtökunum Northern Forum. Ástæðan er innrás Rússa í Úkraínu. Amanda Guðrún Bjarnadóttir tók saman og ræddi við Heimi Örn Árnason, bæjarráðsmann. Svíar ná ekki markmiðum sínum í loftslagsmálum fram til 2030, að sögn fjármálaráðherra landsins. Fjöldi þingmanna, meðal annars þingmenn sem verja stjórnina falli, virðist ekki telja að mikið liggi við. Kári Gylfason fréttaritari í Gautaborg fjallaði um málið. Hætt er við að dragi úr hvata til byggingar húsnæðis verði drög að nýju frumvarpi að lögum sem heimilar sveitarfélögum að krefjast þess að fjórðungur þess sem byggt er í formi íbúðarhúsnæði, verði á hagstæðu verði. Þetta segir Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins í viðtali við Kristínu Sigurðardóttur. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segist ekki hafa komist á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, COP-27, vegna fundar Evrópuráðsins í síðustu viku. Athygli hefur vakið að loftslagsráðherra komst ekki heldur, - vegna fótbrots. Ráðstefnan stendur í tvær vikur og fer matvælaráðherra á ráðstefnuna fyrir hönd ríkisstjórnarinnar í seinni viku hennar. Þórdís Arnljótsdóttir ræddi við Katrínu. Halldór Gunnar Ólafsson, oddviti sveitarfélagsins Skagastrandar, segir það hafa afhjúpað alvarlega veikleika öryggisinnviða sveitarfélagsins þegar það varð sambandslaust við umheiminn í sex klukkustundir við að ljósleiðari fór í sundur í vegaframkvæmdum í Refasveit. Hann kveðst feginn því að enginn slasaðist meðan ástandið varði. Finna þurfi tæknilegar lausnir til að koma í veg fyrir að svona lagað komi upp aftur. Rúmleg

Spegillinn
Úkraínuher nær Khersonborg og hagvöxtur hér yfir 6% í ár

Spegillinn

Play Episode Listen Later Nov 11, 2022 30:00

Þjóðhagsspá, skoðanakúgun og norrænt samstarf

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Sep 27, 2022 130:00

Ný þjóðhagsspá Íslandsbanka var til umfjöllunar í spjalli við Þórð Snæ Júlíusson, ritstjóra Kjarnans. Bankinn spáir að verðbólga og vextir taki að lækka á næsta ári. Gjaldtaka af fiskeldi og eignir Íslendinga í útlöndum voru einnig til umfjöllunar. Íslendingar - eða íslenskir aðilar, eins og það er orðað í gögnum Hagstofunnar - eiga 676 milljarða króna í útlöndum og eru þá eignir lífeyissjóðanna ekki taldar með. Í Þýskalandsspjalli sagði Arthúr Björgvin Bollason frá nýútkominni bók þar sem fjölmiðlar fá á baukinn fyrir að gera ekki skil skoðunum og sjónarmiðum sem ekki þykja æskileg (e. main stream). Höfundar hennar átelja fjölmiðla fyrir að hleypa aðseins að skoðunum sem "fjöldinn" aðhyllist og stunda þannig skoðanakúgun. Bókin hefur vakið mikla athygli í Þýskalandi. Aldarafmæli Norræna félagsins á Íslandi er fagnað um þessar mundir. Af því tilefni kom Ragnheiður Helga Þórarinsdóttir, varaformaður félagsins, í þáttinn og ræddi um ágæti norræns samstarfs. Tónlist: Julia - Bítlarnir, Hala ste ra ndermend per mu - Mazllum Mejzini, Nesten Hjemme - Ane Brun og Turab, Hvilelöse hjerte - Kim Larsen. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir.

Morgunvaktin
Þjóðhagsspá, skoðanakúgun og norrænt samstarf

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Sep 27, 2022

Samfélagið
Launajafnrétti og jafnverðmæt störf, Biskupsbeygjan og dýr með Veru

Samfélagið

Play Episode Listen Later Sep 17, 2021

Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BRSB: Alþjóðlegi jafnlaunadagurinn er á morgun. Rætt um nýja skýrslu Hagstofunnar þar sem kemur fram að launamunur kynjanna mælist enn nokkur hér á landi. Fjallað líka um leiðir og aðgerðir til að ná honum niður, þá með mælingum og mati á virði og gildi starfa. Reynir Georgsson, verkfræðingur Vegagerðarinnar á tæknideild Vestursvæðis: biskupsbeygjan á Holtvörðuheiði, tilurð hennar og framkvæmdin við að breyta henni. Vera Illugadóttir: ignobel-verðlaunin

veru fjalla vera illugad vegager hagstofunnar
Samfélagið
Launajafnrétti og jafnverðmæt störf, Biskupsbeygjan og dýr með Veru

Samfélagið

Play Episode Listen Later Sep 17, 2021 55:00

Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BRSB: Alþjóðlegi jafnlaunadagurinn er á morgun. Rætt um nýja skýrslu Hagstofunnar þar sem kemur fram að launamunur kynjanna mælist enn nokkur hér á landi. Fjallað líka um leiðir og aðgerðir til að ná honum niður, þá með mælingum og mati á virði og gildi starfa. Reynir Georgsson, verkfræðingur Vegagerðarinnar á tæknideild Vestursvæðis: biskupsbeygjan á Holtvörðuheiði, tilurð hennar og framkvæmdin við að breyta henni. Vera Illugadóttir: ignobel-verðlaunin

veru fjalla vera illugad vegager hagstofunnar
Spegillinn
Spegillinn 13 apríl 2021

Spegillinn

Play Episode Listen Later Apr 13, 2021 30:00

Spegillinn 13 apríl 2021 Umsjón: Kristján Sigurjónsson Tæknimaður: Mark Eldred Ekki verður byrjað að nota bóluefnið frá lyfjaframleiðandanum Janssen fyrr en niðurstaða liggur fyrir hjá Lyfjastofnun Evrópu um hvort einhver tengsl séu milli bóluefnisins og blóðtappa Bandaríkjaforseti, hvatti Rússa í dag til að minnka spennu við landamæri Rússlands að Úkraínu. Biden ræddi við Vladimír Pútín, Rússlandsforseta og lagði til að þeir myndu hittast á fundi á næstunni. Hægt er að minnka svifryksmengun um allt að 40% með því að draga úr hraða bifreiða. Þetta er niðurstaða nýrrar íslenskrar rannsóknar. Vegagerðin heggur nú leið í gegnum birkið í Teigsskógi í Gufudalssveit, þar sem nýr Vestfjarðavegur á að liggja. Það er gert til þess að leita af sér allan grun um þar leynist fornleifar. Kvennalandslið Íslands og Ítalíu í fótbolta skildu jöfn í vináttulandsleik ytra í dag. Lengri umfjöllun: Joe Biden hefur nú setið 83 daga í embætti forseta Bandaríkjanna. Hvernig hefur honum farnast í embætti það sem af er? Hvernig hefur honum tekist að kljást við Covid faraldurinn, flóttamannastraum frá Mexíkó og ekki síst óróa á milli kynþátta í miðjum réttarhöldum í Minneapolis vegna drápsins á George Floyd. Kristján Sigurjónsson talar við Silju Báru Ómarsdóttur prófessor í stjórnmálafræði við HÍ. Í fyrra fluttu ríflega 2.000 fleiri til Íslands en frá landinu; 540 fleiri íslenskir ríkisborgarar fluttu heim en að heiman og 1.540 fleiri erlendir ríkisborgarar settust hér að en fóru frá landinu. Rétt er að taka fram að Hagstofan hefur ekki tekið saman heildarfjölda flutninga til og frá landinu í fyrra, það verður gert eftir mánuð eða svo. Þessir útreikningar eru byggðir á ársfjórðungstölum Hagstofunnar og ættu að gefa nokkuð góða mynd. Ólöf Garðarsdóttir, prófessor í sagnfræði og forseti hugvísindasviðs Háskóla Íslands, hefur lengi skoðað fólksflutninga. Ólöf skoðaði að beiðni Spegilsins fólksflutninga á hinu óvenjulega ári 2020 og bar saman þrjá ársfjórðunga af fjórum við sömu ársfjórðunga önnur ár. Ólöf bendir á að Íslendingar séu gjarnari á að flytja á milli landa en margar grannþjóðir og nánast enginn munur sé á konum og körlum. Ragnhildur Thorlacius ræðir við Ólöfu. Þorvaldur Þórðarson, prófessor í eldfjallafræði, segir að framleiðslan í gígunum á Reykjanesskaga sé að nálgast 15 rúmmetra á sekúndu. Hann telur að hraunið frá gosinu muni ekki renna langar leiðir. Nýju gígarnir sem spretta upp virðast vera viðbót. Kvikugangurinn, aðfærsluæð gossins, sé samfellt heild. Arnar Páll Hauksson talar við Þorvald.

Spegillinn
Spegillinn 13 apríl 2021

Spegillinn

Play Episode Listen Later Apr 13, 2021

Mannlegi þátturinn
Kári Stefánsson - getum við náð 150 ára aldri?

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Mar 25, 2021

Samkvæmt tölum Hagstofunnar frá árinu 2016 var meðalævilengd karla á Íslandi 80,7 ár og meðalævilengd kvenna 83,7 ár. Þessar tölur hafa hækkað stöðugt síðustu hundrað ár. Í þættinum í dag ætlum við að velta því fyrir okkur hversu lengi það getur haldið áfram. Og það sem meira er, geta framfarir í læknavísindum undanfarið jafnvel gefið okkur von um að mannfólkið geti lifað talsvert lengur? Jafnvel orðið 150 ára eða eldri? Það sem kveikti áhuga okkar á þessu var að einn þekktasti vísindamaður í heiminum á þessu sviði, David Sinclair hjá læknadeild Harvard háskóla, hefur talað um það í ræðu og riti að ekki sé nóg með að hægt sé að hægja á og jafnvel stöðva aldurstengda hrörnun líkamans, heldur sé jafnvel hægt að snúa slíkri þróun við. Í rauninni sé hægt að yngja fólk samkvæmt þessu. Þetta, ef satt reynist, er auðvitað einhver stærsta frétt sem hefur komið fram og þetta snertir alla, eða hlýtur að gera það. Þá var ekkert annað að gera en að fá okkar þekktasta vísindamann til þess að fara með okkur yfir það hvað væri til í þessu. Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar kom í þáttinn í dag og fór yfir það hvort honum fyndist eitthvað til í þessu og hvort þessar fullyrðingar Sinclair héldu vatni. Er 150 ára mannfólk handan við hornið? UMSJÓN GUNNAR HANSSON

Mannlegi þátturinn
Kári Stefánsson - getum við náð 150 ára aldri?

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Mar 25, 2021 55:00

Grásleppa, fjármálaáætlun, lokanir í Þýskalandi og dagur Norðurlanda

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Mar 23, 2021 130:00

Grásleppuvertíðin hefst í dag. Ágúst Ólafsson fréttamaður ræddi í gær við Jón Þorsteinsson grásleppusjómann á Grenivík og við hlusutðum á samtal þeirra. Hagkerfið tekur við sér í ár og hagvöxtur verður 2,6%, samkvæmt þjóðhagsspá Hagstofunnar sem birt var í gær. Landsframleiðslan dróst saman um 6,6% í fyrra. Við skoðuðum þessa nýju spá með Þórði Snæ Júlíussyni í spjalli um efnahag og samfélag. Ný fjármálaáætlun var einnig til umfjöllunar, og hlutabréfaverð í samhengi við rekstur fyrirtækja og forstjóralaun komu líka við sögu. Ástand Covid-mála í Þýskalandi hefur farið hratt versnandi og í gær var ákveðið að framlengja harðar takmarkanir þar fram yfir páska hið minnsta. Arthúr Björgvin Bollason var með okkur í Berlínarspjalli dagsins og ræddi þýsk málefni. Eldgosið í Geldingadölum var líka rætt, því Þjóðverjar eru áhugasamir um íslensk eldgos. Í dag er dagur Norðurlandanna, hann er 23. mars ár hvert,; norrænu samstarfi er fagnað og bent á mikilvægi þess. Af því tilefni fjöllum við um norræna menningu; hingað komu tveir starfsmenn Norræna hússins, þær Arnbjörg María Danielsen og Fanney Karlsdóttir og sögðu okkur frá því sem þær eru að lesa, hlusta á og horfa á þessa dagana.

covid-19 bj af berl norr danielsen arth dagur snj arnbj greniv bollason hagstofunnar
Morgunvaktin
Grásleppa, fjármálaáætlun, lokanir í Þýskalandi og dagur Norðurlanda

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Mar 23, 2021

Einn af hverjum þremur háður símanum

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Jun 15, 2020 130:00

Við fögnum lýðveldisstofnunni á miðvikudaginn og af því tilefni förum við 76 ár aftur í tímann og skoðum nokkrar hagstærðir. Árið 1918 fór næstum helmingur allra útgjalda heimilanna í matvörur. Hundrað árum síðar, er hlutfallið rúmlega tíu af hundraði. En hvernig var þessu háttað 1944 og hvað kostuðu helstu nauðsynjar? Við blöðuðum í gögnum Hagstofunnar sem varðveitir allskonar upplýsingar um samfélagið. Á Morgunvaktina kom Heiðrún Erika Guðmundsdóttir deildarstjóri á Hafstofunni. Frá deginum í dag geta Þjóðverjar ferðast hindrunarlaust til allra landa Evrópusambandsins, auk Stóra-Bretlands, Norður-Írlands og Schengen- ríkjanna, þar á meðal Íslands. Þjóðverjar eru eftirsóknarverðir ferðamenn víða í Evrópu, en samkvæmt nýrri könnun ætla aðeins 13 prósent þeirra að fljúga á næstu mánuðum. Fleiri ætla sér að keyra í ferðalög. Arthúr Björgvin Bollason ræddi þetta, og einnig um efnahagsaðgerðir stjórnvalda þar í landi, en nú á að lækka virðisaukaskatt tímabundið til að örva neysluna. Þá minntist Arthúr Björgvin á þau tíðindi að einn af hverjum þremur aðspurðum í þýskri könnun viðurkennir símafíkn. Líklega eru því ennþá fleiri háðir þessum tækjum, en notkun á þeim hefur aukist verulega undanfarin ár. Nú á sunnudag, 14. júní, voru 120 ár síðan Hawaii-eyjar urðu formlega sjálfstjórnarsvæði, territory, innan Bandaríkja Norður-Ameríku. Bandaríkin innlimuðu Hawaii eftir að Bandaríkjamenn búsettir þar steyptu síðustu drottningu eyjanna af stóli - nokkuð sem að Bandaríkjastjórn baðst afsökunar á hundrað árum síðar, en enn tilheyra eyjarnar þó Bandaríkjunum. Vera Illugadóttir fór yfir sögu Hawaii-eyja. Tónlist: When sunny gets blue - Kristjana Stefánsdóttir, Taimane - Fire

hawaii bj hei amer schengen bandar hundra evr arth einn fleiri bretlands kristjana stef vera illugad bollason hagstofunnar
Morgunvaktin
Einn af hverjum þremur háður símanum

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Jun 15, 2020

Spegillinn 20. apríl 2020

Spegillinn

Play Episode Listen Later Apr 20, 2020

Spegillinn 20.apríl 2020 Umsjón: Kristján Sigurjónsson Tæknimaður: Mark Eldred Unglingspiltarnir sem bjargað var úr höfninni í Hafnarfirði í janúar voru í hjartastoppi í tvo tíma. Þeir eru einu Íslendingarnir sem hafa lifað af svo langt hjartastopp. Þeir eru nú báðir komnir heim af spítala. Ekki er tímabært að hefja mótefnamælingar vegna COVID-19 hér á landi vegna þess að ekki hefur fengist úr því skorið hvaða aðferð gagnist best. Þetta segir Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir. Aðeins tvö tilfelli greindust síðasta sólarhring, bæði á Vestfjörðum. 10 hafa nú látist vegna COVID-19 sjúkdómsins hér á landi. Hertum aðgerðum verður aflétt á Suðureyri, Flateyri, Súðavík og Þingeyri eftir viku. Þá munu sömu takmarkanir gilda þar og annars staðar á landinu. Strangari aðgerðir verða áfram í gildi í Bolungarvík, á Ísafirði og í Hnífsdal til 4. maí hið minnsta. Verð á tunnu af bandarískri hráolíu fór í síðdegis niður fyrir tvo dollara. Það hefur ekki verið jafn lágt í áratugi. Páll Matthíasson forstjóri Landspítalans þakkaði erlendu starfsfólki spítalans fyrir framlag þess á upplýsingafundi almannavarna, fólki sem bæði starfar sem fagmenn og einnig þeim sem sinna þrifum og fleiru. Ekkert staðfest smit er nú á Norðurlandi vestra og einungis þrír eru í sóttkví. Þar með er stórum áfanga náð en fyrstu tilfelli fjórðungsins komu upp fyrir nákvæmlega mánuði, 20. mars í Húnaþingi vestra. Tvær tegundir af örplasti fundust í drykkjarvatni á Akureyri samkvæmt rannsóknum við Háskólann á Akureyri. Töluvert meira plast mældist í sjávarseti í Eyjafirði en við Stafangur í Noregi, sem er tíu sinnum fjölmennara svæði. Lengri umfjöllun: Íslendingar eru ánægðastir með frammistöðu stjórnvalda vegna COVID-19 samkvæmt alþjóðlegri könnun Gallups. 92% Íslendinga telja að útbreiðsla kórónuveirunnar hafi orðið með náttúrulegum hætti. Arnar Páll Hauksson segir frá. Breytt staða blasir við mörgum stéttarfélögum í COVID-19 faraldrinum. Félagsmenn hafa misst vinnu, starfa í skertu starfshlutfalli og margir hafa þurft að sinna vinnu heiman frá sér. Í vinnumarkaðsrannsókn Hagstofunnar á síðasta ársfjórðungi síðasta árs kom fram að þriðjungur launafólks á aldrinum 25-64 ára vinnur aðalstarf sitt venjulega eða stundum heima. Bráðabirgðatölur fyrir fyrsta ársfjórðung 2020 sýna nokkra aukningu á fjarvinnu launafólks af völdum COVID-19 en endanlegar niðurstöður ársfjórðungsins liggja ekki fyrir. Framhaldsskólakennarar hafa ekki þurft að óttast atvinnumissi en vinnan þeirra hefur gjörbreyst. Kristján Sigurjónsson ræðir við Guðjón Hrein Hauksson

tv gu gallup matth hn kristj ekki akureyri sigurj umsj ekkert hafnarfir hauksson landsp vestfj flateyri arnar p eyjafir bolungarv lengri hagstofunnar
Spegillinn
Spegillinn 20. apríl 2020

Spegillinn

Play Episode Listen Later Apr 20, 2020 30:00

covid-19 tv gu gallup matth hn kristj ekki akureyri sigurj ekkert hafnarfir hauksson landsp vestfj flateyri arnar p eyjafir bolungarv lengri hagstofunnar
Spegillinn
Læknar hafa áhyggjur af verkföllum

Spegillinn

Play Episode Listen Later Mar 5, 2020

Forstjóri heilsugæslunnar á höfuðborgarsvæðinu hefur áhyggjur vegna yfirvofandi verkfalla BSRB. Hann segir að vegna COVID-19 veirunnar þurfi heilbrigðisstofnanir á öllu sínu fólki að halda. Hann hvetur aðila til að semja Tíu greindust í dag með COVID19 veiruna. Alls hafa því 26 greinst hér á landi . Á fjórða hundrað manns eru í sóttkví. Rúmlega hundrað eru látnir úr COVID-19 veirunni á Ítalíu. Staðfest tilfelli þar í landi eru nú um þrjú þúsund. Talið er að mun fleiri séu smitaðir en hafa fengið greiningu. Michael Bloomberg hefur ákveðið að hætta við framboð sitt í forkjöri Demókrata fyrir forsetakosningarnar í Bandaríkjunum í nóvember. Stjórnvöld stefna að því að árið 2030 verði helmingi færri undir fátæktarmörkum en nú. Félagsráðgjafi hjá Hjálparstarfi kirkjunnar vill leggja Tryggingastofnun niður og koma í veg fyrir að fólk eigi á hættu að verða tekjulaust mánuðum saman. Arnhildur Hálfdánardóttir talar við Vilborgu Oddsdóttur. Samgöngustofa getur ekki svarað því, út frá reglum sem gilda um rétt flugfarþega, hver er réttur þeirra sem settir eru í sóttkví erlendis og missa af fluginu heim. Reglurnar eru hins vegar skýrar þegar flugi er aflýst vegna hættuástands í öðru landi. Arnar Páll Hauksson talar við Þórhildi Elínu Elínardóttur Hlutfall nemenda í framhaldsskólum sem læra erlend tungumál hefur lækkað og fjöldi þeirra mála sem þeir læra á hverjum tíma líka, að því fram kemur í tölum Hagstofunnar sem birtust fyrir nokkru. Hólmfríði Garðarsdóttur, prófessor í spænsku við Háskóla Íslands og formanni samtaka tungumálakennara þykir miður að þróunin sé þessi en hún hafi ekki verið ófyrirséð. Samtökin hafi á sínum tíma lagst gegn styttingu framhaldsskólans. Anna Kristín Jónsdóttir talaði við Hólmfríði Garðarsdóttur.

Spegillinn
Læknar hafa áhyggjur af verkföllum

Spegillinn

Play Episode Listen Later Mar 5, 2020 30:00

Síld var lengi helsti gjaldmiðill Íslendinga.

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Nov 26, 2019 130:00

Heildartekjur fyrirtækja í landinu voru samtals 4.400 milljarðar króna á síðasta ári og hækkuðu um 6% eða rúmlega 250 milljarða frá 2017. Eigið fé fyrirtækjanna jókst um rúm 10% milli ára. Þetta kemur fram í nýrri samantekt Hagstofunnar sem Þórður Snær Júlíusson rýndi í í spjalli um efnahag og samfélag. Hann fór líka yfir þau fyrirtæki sem sitja í efstu sætum nýs lista Frjálsrar verslunar yfir 300 stærstu fyrirtæki landsins. Þá spjallaði hann um kvótaþakið sem nefnd sjávarútvegsráðherra vinnur að útfærslu á skilgreiningu á. Í Berlínarspjalli sagði Arthúr Björgvin Bollason m.a. frá ráninu í Grænu hvelfingunni í Dresden í gærmorgun en fágætum demöntum var stolið úr þessu mikla safni í borginni. Lögreglan er ráðþrota enda stóðu þjófarnir fagmannlega að málum. Þá sagði hann frá Söhru Wagenknecht, þingkonu vinstri flokksins, Die Linke, sem er efst á lista yfir vinsælustu og áreiðanlegustu stjórnmálamenn Þýskalands. Hún hefur velt Merkel kanslara úr þeim sessi en hún hefur lengi notið mestra vinsælda þýskra stjórnmálamanna. Síld var lengi aðalútflutningsvara Íslendinga og helsti gjaldmiðill í vöruskiptum við aðrar þjóðir og átti sinn þátt í að landið breyttist úr örsnauði þróunarlandi í tæknivætt velferðarríki. Páll Baldvin Baldvinsson hefur sent frá sér stórbók um síldarárin sem tekur yfir tímabilið 1867-1969. Tónlist: Milljón rauðar rósir - Alla Pugacheva, Síldarvalsinn - Sigurður Ólafsson.

bj angela merkel dresden berl sn hann die linke sigur wagenknecht arth frj lengi millj alla pugacheva bollason hagstofunnar
Morgunvaktin
Síld var lengi helsti gjaldmiðill Íslendinga.

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Nov 26, 2019

Brestir í stjórnarsamstarfi kristilegra og jafnaðarmanna í Þýskalandi

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Nov 5, 2019 130:00

Það ríkir víða órói í heimi stjórnmálanna. Meðal annars í Þýskalandi, en kurr er í mörgum félögum Kristilegra demókrata vegna óánægju með stjórnunaraðferðir hins nýja formanns, Annegret Kramp-Karrenbauer. Sambúð stjórnarflokkanna tveggja, kristilegra og jafnaðarmanna gengur einnig stirðlega og afskiptaleysi Angelu Merkel kanslara af málefnum flokksins hefur ennfremur vakið gremju margra. Hinir svartsýnustu telja jafnvel að stjórnarsamstarfið bresti áður en árið er á enda. Við rýndum í þýsk stjórnmál með Arthúri Björgvin Bollasyni og rifjuðum líka upp að um þessar mundir eru 30 ár liðin frá falli Berlínarmúrsins. Heldur hefur dregið úr vexti í hagkerfinu að undanförnu eftir fáheyrt vaxtaskeið. Þá hefur verðbólga látið á sér kræla á ný en verðhjöðnun var hér í fjögur ár. Við athugum hvort áhrifa þessa gæti í afkomu fyrirtækjanna fyrstu níu mánuði ársins en uppgjör hafa verið kynnt síðustu daga. Svo horfum við til næstu framtíðar en þjóðhagsspá Hagstofunnar var kunngjörð á föstudag. Já og Seðlabankinn kynnir vaxtaákvörðun í fyrramálið. Ætli vextir lækki enn? Þórður Snær Júlísson, ritstjóri Kjarnans, fjallaði um efnahag og samfélag á Morgunvaktinni. Íslenskar bókmenntir eru lesnar víða um heim, þökk sé þýðendum, útgefendum og Miðstöð íslenskra bókmennta. Þetta er mikilvægt og skemmtilegt - vitaskuld fyrir þá höfunda sem í hlut eiga, en einnig fyrir land og þjóð. Nýjustu fréttir af útgáfu íslenskra bókmennta í útlöndum eru þær að hátt í fjörutíu bækur eru ýmist nýútkomnar eða rétt óútkomnar á ensku í Bretlandi og Bandaríkjunum. Allskonar bækur eftir ólíka höfunda. Hrefna Haraldsdóttir, framkvæmdastjóri Miðstöðvar íslenskra bókmennta, sagði hlustendum frá útgáfu íslenskra bóka í útlöndum. Tónlist: Sånt är livet - Anita Lindblom Up Where We Belong - Buffy Sainte-Marie

bj berl sn bandar samb svo annegret kramp karrenbauer arth bretlandi heldur allskonar hinir kjarnans jafna hagstofunnar kristilegra
Morgunvaktin
Brestir í stjórnarsamstarfi kristilegra og jafnaðarmanna í Þýskalandi

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Nov 5, 2019

Félagsvísar. Umhverfi og kapítalismi. Lotukerfið

Samfélagið

Play Episode Listen Later Oct 21, 2019 55:00

Gró Einarsdóttir Hagstofunni: Nýr vefur Hagstofunnar um félagsvísa Þorvaldur Þorvaldsson þýðandi: Rætt um bókina Það sem umhverfissinnar þurfa að vita um kapítalismann. Málfarsmínúta: Orðið slangur Edda Olgudóttir: Vísindaspjall

hagstofunnar
Samfélagið
Félagsvísar. Umhverfi og kapítalismi. Lotukerfið

Samfélagið

Play Episode Listen Later Oct 21, 2019

Gró Einarsdóttir Hagstofunni: Nýr vefur Hagstofunnar um félagsvísa Þorvaldur Þorvaldsson þýðandi: Rætt um bókina Það sem umhverfissinnar þurfa að vita um kapítalismann. Málfarsmínúta: Orðið slangur Edda Olgudóttir: Vísindaspjall

einarsd hagstofunnar
Morgunvaktin
Landsmenn eiga sjö þúsund milljarða og skulda tvö þúsund

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Oct 15, 2019 130:00

Ný samantekt Hagstofunnar á eignum, skuldum og eigin fé landsmanna sýnir að eignirnar nema 6.855 milljörðum og skuldirnar 2.111 milljörðum. Munurinn, 4.744 milljarðar, myndar eigið fé fjölskyldnanna í landinu. Á síðasta ári jukust eignirnar um 790 milljarða eða 13% en skuldir jukust um 7,6%. Hærra fasteignamat skýrir stóran hluta aukningarinnar en húsnæði er um 75% af eigum fólks. Þórður Snær Júlíusson, fjallaði um samantektina, í spjalli um efnahag og samfélag. Ríkustu tíu prósent þjóðarinnar eiga tæpan helming allra eigna landsmanna. Í Berlínarspjalli sagði Arthúr Björgvin Bollason frá vaxandi útlendingahatri í Þýskalandi. Leiðtogar og kjörnir fulltrúar hægri flokksins AfD eru sagðir kynda undir gyðinga- og útlendingaandúð og á dögunum mótmælti fjölmenni slíkri framgöngu. Aðgerðum stjórnvalda í baráttunni við hlýnun jarðar er líka mótmælt en áætlun þeirra sem nú er til meðferðar í þýska þinginu þykir heldur þunnur þrettándi. Hálf öld er síðan breski grínhópurinn Monty Python kom fram á sjónarsviðið. Af því tilefni komu grínistarnir Gísli Rúnar Jónsson og Ari Eldjárn í þáttinn og spjölluðu um hópinn og grín vítt og breitt. Tónlist: Oh happy day - Nana Mouskouri, Always look on the Bright side of life - Monty Python.

Morgunvaktin
Landsmenn eiga sjö þúsund milljarða og skulda tvö þúsund

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Oct 15, 2019

Spegillinn - Hlaðvarp
Innflutningur á gosti, Trump og Úkraínuforseti, Boris sendi þingið hei

Spegillinn - Hlaðvarp

Play Episode Listen Later Sep 25, 2019

Innflutningur á gosi og bragðbættu vatni hefur rúmlega fjórfaldast á innan við tveimur árum. Þetta má lesa úr innflutningsskrá Hagstofunnar. Mest munar um stóraukinn gosdósainnflutning frá Svíþjóð. Verkfræðingur hjá Eflu segir kolefnisspor innfluttra drykkja hærra en þeirra sem framleiddir á Íslandi. Arnhildur Hálfdánardóttir sagði frá. Donald Trump er sakaður um að kúga forseta Úkraínu til að rannsaka Joe Biden sem hefur mælst efstur í forvali Demókrata fyrir forsetakosningarnar á næsta ári. Fyrir síðustu forsetakosningar var Trump sakaður um að vinna með Rússum til að koma höggi á þáverandi andstæðing sinn Hillary Clinton. Pálmi Jónasson segir frá. Ellefu einróma hæstaréttardómarar telja þá ráðstöfun Boris Johnson forsætisráðherra Breta að senda þingið heim ólöglega. Þingstörf eigi því halda áfram eins og ekkert hafi í skorist. Dómur Hæstaréttar Breta varðar grundallarþætti breskrar stjórnskipunar og mun bergmála lengi. Þá líka í komandi kosningum og þá í samhengi við útgöngu Breta úr Evrópusambandinu þó dómurinn snúist ekki um það mál. Sigrún Davíðsdóttir fjallar um málið.

Spegillinn - Hlaðvarp
Innflutningur á gosi fjórfaldast á tveimur árum

Spegillinn - Hlaðvarp

Play Episode Listen Later Sep 24, 2019

Innflutningur á gosi og bragðbættu vatni hefur rúmlega fjórfaldast á innan við tveimur árum. Þetta má lesa úr innflutningsskrá Hagstofunnar. Mest munar um stóraukinn gosdósainnflutning frá Svíþjóð. Verkfræðingur hjá Eflu segir kolefnisspor innfluttra drykkja hærra en þeirra sem framleiddir á Íslandi. Arnhildur Hálfdánardóttir segir frá og talar við Alexöndru Kjeld. Donald Trump er sakaður um að kúga forseta Úkraínu til að rannsaka Joe Biden sem hefur mælst efstur í forvali Demókrata fyrir forsetakosningarnar á næsta ári. Fyrir síðustu forsetakosningar var Trump sakaður um að vinna með Rússum til að koma höggi á þáverandi andstæðing sinn Hillary Clinton. Pálmi Jónasson segir frá. Ellefu einróma hæstaréttardómarar telja þá ráðstöfun Boris Johnson forsætisráðherra Breta að senda þingið heim ólöglega. Þingstörf eigi því halda áfram eins og ekkert hafi í skorist. Dómur Hæstaréttar Breta varðar grundallarþætti breskrar stjórnskipunar og mun bergmála lengi. Þá líka í komandi kosningum og þá í samhengi við útgöngu Breta úr Evrópusambandinu þó dómurinn snúist ekki um það mál. Sigrún Davíðsdóttir.

Spegillinn
Spegillinn 24.09.2019

Spegillinn

Play Episode Listen Later Sep 24, 2019 30:00

Umsjón: Pálmi Jónasson Dómsmálaráðherra vill gera gagngerar breytingar á skipulagi lögreglu. Ríkislögreglustjóri ætlar ekki að tjá sig um víðtækt vantraust í hans garð. Ríkislögmaður bauð afkomendum Sævars Ciesielskis um 240 milljónir króna í bætur í vor. Guðjóni Skarphéðinssyni voru boðnar um 140 milljónir en hann krefst þrettán hundruð milljóna króna. Dómur Hæstaréttar gegn Boris Johnson er tímamótadómur og styrkir þingið til muna að mati stjórnmálafræðings. Innflutningur á gosi og bragðbættu vatni hefur rúmlega fjórfaldast á innan við tveimur árum. Mest munar um stóraukinn innflutning frá Svíþjóð. Slitnað hefur upp úr kjaraviðræðum BSRB við ríkið. Eftir árangurslausan samningafund í dag ákvað samninganefnd BSRB að slíta viðræðunum, sem hafa strandað á styttingu vinnuvikunnar í 35 stundir. Fyrrverandi útibússtjóri Danske Bank í Tallinn í Eistlandi er horfinn sporlaust. Lögregla telur að hann sé í lífshættu. Lengri umfjöllun: Innflutningur á gosi og bragðbættu vatni hefur rúmlega fjórfaldast á innan við tveimur árum. Þetta má lesa úr innflutningsskrá Hagstofunnar. Mest munar um stóraukinn gosdósainnflutning frá Svíþjóð. Verkfræðingur hjá Eflu segir kolefnisspor innfluttra drykkja hærra en þeirra sem framleiddir á Íslandi. Arnhildur Hálfdánardóttir sagði frá. Donald Trump er sakaður um að kúga forseta Úkraínu til að rannsaka Joe Biden sem hefur mælst efstur í forvali Demókrata fyrir forsetakosningarnar á næsta ári. Fyrir síðustu forsetakosningar var Trump sakaður um að vinna með Rússum til að koma höggi á þáverandi andstæðing sinn Hillary Clinton. Pálmi Jónasson segir frá. Ellefu einróma hæstaréttardómarar telja þá ráðstöfun Boris Johnson forsætisráðherra Breta að senda þingið heim ólöglega. Þingstörf eigi því halda áfram eins og ekkert hafi í skorist. Dómur Hæstaréttar Breta varðar grundallarþætti breskrar stjórnskipunar og mun bergmála lengi. Þá líka í komandi kosningum og þá í samhengi við útgöngu Breta úr Evrópusambandinu þó dómurinn snúist ekki um það mál. Sigrún Davíðsdóttir fjallar um málið.

donald trump joe biden hillary clinton boris johnson dem gu sv mest dav fyrir eftir sigr evr breta umsj skarph fyrrverandi slitna bsrb eflu verkfr ellefu lengri hagstofunnar
Morgunvaktin
Skoska leiðin kostar upp undir milljarð á ári

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Aug 30, 2019 130:00

Fjallað var um vanda innanlandsflugsins í landinu en farþegum hefur fækkað og flugfélögin hafa fækkað flugvélum og -ferðum. Þingmennirnir Albertína Friðbjörg Elíasdóttir Samfylkingunni og Njáll Trausti Friðbertsson Sjálfstæðisflokki fóru yfir málið. Þau segja nauðsynlegt að ríkið komi að og telja "Skosku leiðina" vænlega en í henni felst að flugferðir fólks sem býr í tiltekinni fjarlægð frá Reykjavík verði niðurgreiddar. Áformað er að reyna þá leið á nýju ári, er miðað við að hver fá fjórar ferðir niðurgreiddar á ári og er reiknað með að kostnaðurinn við það nemi allt að milljarði króna á ári. Í ferðaspjalli dagsins fór Kristján Sigurjónsson, ritstjóri Túrista, m.a. yfir nýjar gistináttatölur Hagstofunnar. Gistinóttum hefur ekki fækkað í sama takti og erlendum ferðamönnum og sumsstaðar á landinu hefur þeim fjölgað. Þá ræddi um eignarhald á flugstöðvum á Norðurlöndunum og í Bandaríkjunum í ljósi frétta í vikunni um hugsanlega sölu Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar. Að endingu fjallaði Kristján um flugsamgöngur milli Keflavíkur og Kaupmannahafnar en þær eru tíðar; í júlí flaug Icelandair að jafnaði fimm sinnum á dag þar á milli. Þá var fjallað um Indónesíu, fjórða fjölmennasta ríki heims og fjölmennasta múslimaríki heims. Andrés Jónsson almannatengill er nýskipaður ræðismaður Indónesíu á Ísland. Hann dvaldi þar sem skiptinemi 1994 og hefur heimsótt landið margsinnis síðan. Tónlist: Like a Rolling Stone - Bob Dylan, Bengwan Solo - Anneke Grönloh, Jaleuleu Ja - Sambasunda Quintet.

Morgunútvarpið
Sniglar á rafhjóli, vegaframkvæmdum mótmælt í Árneshreppi, fámennari s

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Aug 13, 2019 130:00

Snigill fer hringinn á rafmagnsmótorhjóli þessa. Hann er ekki einn því Hringfarinn Kristján Gíslason er með honum. Bifhjólasamtökin eru 35 ára og með hringferðinni prófa þeir nýja orkugjafa, rafmagnið. Þeir lögðu upp frá Seyðisfirði á fimmtudagsmorgun og ætla að ljúka ferðinni á sama staða nú á fimmtudag. Þetta er lærdómur segir Steinmar Gunnarsson, stjórnarmaður í Sniglunum. Hann var á línunni. Landeigendur sem eiga hagsmuna að gæta þegar kemur að undirbúningi vegna hvalárvirkjunar á ströndum leita nú allra leiða til að stöðva framkvæmdir. Guðmundur Arngrímsson, talsmaður hluta landeigenda kom til okkar. Fjölmargir skólar á landsbyggðinni eru mun fámennari nú en þeir voru um aldamót. Til að mynda eru nemendur í skólum Hólmavíkur, Víkur í Mýrdal, Fjallabyggðar og Hornafjarðar og nágrennis 40-50% færri en þá og þriðjungi færri á Ísafirði. Þetta má sjá í tölum Hagstofunnar. Svandís Ingimundardóttir, skólamálafulltrúi Sambands íslenskra sveitarfélaga, ræddi við okkur um stöðuna. Hótelstjórar hafa kvartað undan hárri álagningu hótelbókunarvefjarins Booking og velt upp hugmyndum um íslenskt bókunarkerfi. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ráðherra ferðamála, segir slíkt áhættusamt. Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, segir vert að skoða möguleikann. Hann og Þráinn Lárusson, hótelrekandi á Austurlandi ræddu við okkur Sævar Helgi Bragason kom í sitt vikulega vísindatal.

booking gu fj hann sey kolbr gylfad samtaka arngr sniglar austurlandi svand sambands helgi bragason reykfj hagstofunnar
Morgunvaktin
Verslunin Brynja fagnar 100 ára afmæli

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Aug 2, 2019 130:00

Ein elsta verslun landsins fagnar 100 ára afmæli sínu um þessar mundir, það er verslunin Brynja sem er á miðjum Laugaveginum og þar hefur hún verið svo lengi sem elstu menn muna. Brynjólfur Björnsson, eigandi Brynju kom á Morgunvaktina, við ræddum líka umdeildar breytingar á bílaumferðinni við Laugaveg. Erlendir ferðamenn hafa bókað fleiri næturgistingar á Norðurlandi en áður, þrátt fyrir að ferðamönnum fækki. Þetta má sjá í nýjum gistináttatölum Hagstofunnar. Forstjóri Icelandair boðar hækkanir flugfargjalda með haustinu, en félagið tapaði 11 milljörðum á fyrri helmingi ársins. Boeing hefur boðað að flugfélögum sem notast við Max-vélar þeirra verði greiddar skaðabætur vegna kyrrsetningar vélanna. Kristján Sigurjónsson, ritstjóri Túrista, var í vikulegu ferðaspjalli á Morgunvaktinni. Það er eitt og annað sem Íslendingar reyna að halda að og kynna fyrir erlendum ferðamönnum. Flestum dettur íslenska náttúran eflaust fyrst í hug, en ekki má gleyma matnum. Við förum mörg hver til útlanda til þess að kynnast matarmenningu annarra landa og hví skyldu þá ferðamenn sem sækja Ísland heim ekki vilja kynna sér íslenska matarmenningu. Einn þeirra sem lagt hefur mikla áherslu á að kynna íslenska matarmenningu fyrir erlendum ferðamönnum er Ýmir Björgvin Arthúrsson, hann var gestur Morgunvaktarinnar. Tónlist: Midnight Train to Georgia - Gladys Knight & The Pips Will You Love Me Tomorrow - The Shirelles Dancing In The Street - Martha Reeves & The Vandellas Ágústnótt - Alfreð Clausen Í brekkunni - Bræðurnir Brekkan Límdu saman heiminn minn - Bubbi Morthens

bj boeing kristj midnight train vandellas icelandair arth einn sigurj brynj brynja bubbi morthens forstj laugaveginum erlendir hagstofunnar
Morgunútvarpið
Sumarskata, sterasmygl, ferðaþjónusta, endurmenntun og Marvel

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Jul 16, 2019 130:00

Flestir tengja skötuát og samkomur því tengdu Þorláksmessu, en nú stendur fyrir dyrum Skötumessa um mitt sumar. Ásmundur Friðriksson þingmaður heldur utan um verkefnið sem er til styrktar góðu málefni. Við hringdum í Ásmund og fengum smjörþefinn af skötunni. Lögreglan hér á landi náði hátt í tólf þúsund steratöflum og 1.100 ampúlum í alþjóðlegri rassíu í samstarfi við Europol á fyrri hluta ársins. Ísland er eitt 33 landa sem rannsóknin teygir sig til. Europol segir ólögleg viðskipti með stera hafa aukist gríðarlega á síðustu tuttugu árum. Við eigum okkar mann hjá Europol, en Grímur Grímsson er þar tengslafulltrúi Íslands og starfar í Hollandi. Hann var á línunni. Sala Icelandair á 75 prósent hlut í hótelum sínum til malasíska félagsins Berjaya Land Berhad getur haft jákvæð áhrif á samkeppni milli hótela hér á landi. Þetta segir Friðrik Pálsson, eigandi Hótel Rangár. Samkvæmt skammtímahagvísi Hagstofunnar í ferðaþjónustu fækkar ferðamönnum í maí um 17 prósent en á sama tíma fækkar þeim sem gista á hótelum aðeins um 3 prósent milli ára. Við heyrðum í Friðriki. Amazon tilkynnti á dögunum að fyrirtækið ætli að verja 700 milljón dala á næstu sex árum í endurmenntun þriðjungs starfsmanna sinna í Bandaríkjunum. Þetta er gert til að bregðast við sífellt nýrri tækni og sjálfvirkni í þjónustu en með endurmenntun getið þeir þróast í takt við félagið. Við veltum fyrir okkur hvernig þessu er háttað hér heima og fengum til okkar þau Svölu Guðmundsdóttur, lektor í viðskiptafræði og kennara í mannauðs- og breytingastjórnun, og Sigurð Jóhannesson, mannauðsstjória Advania. Aðdáendur teiknimyndasagna geta glaðst þessa dagana því Marvel myndabækur koma nú út á íslensku í fyrsta sinn. Bjarni Gautur Eydal Tómasson náði samningum um útgáfuna við Marvel. Fyrstu bækurnar eru um Hulk og X-Men. Bjarni kíkti við og sagði okkur frá því af hverju hann réðst í þetta ævintýri. Tónlist: Ylja - Á rauðum sandi. Helgi Björnsson - Ég stoppa hnöttinn með puttanum. Júníus Meyvant - Aint gonna let you down. The Marcus King Band - Homesick. Lily Allen - Smile. Dalí - Joke. Eagles - Witchy woman. Blue Swede - Hooked on a feeling. Myrra Rós og Elín Ey - Savior. Lumineers - Gloria.

amazon marvel xmen hulk gu sv rang hann europol bandar hollandi bjarni fyrstu flestir samkv advania helgi bj myrra r ylja hagstofunnar
Morgunútvarpið
Veiði, séreignarsjóðir, langhlaup, launamál og íþróttir

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Jul 15, 2019 130:00

Aðeins 3.200 laxar hafa veiðst það sem af er sumri. Allt árið í fyrra veiddust um 45 þúsund fiskar og því ljóst að það stefnir í afar slakt veiðisumar. Jón Helgi Björnsson, formaður Landssambands veiðifélaga, var á línunni. Landsmenn hafa fært rúma 58,3 milljarða króna úr séreignasjóðum sínum inn á húsnæðislán á þeim fimm árum sem það hefur verið leyfilegt. Ríkið reiknar með að verða af þremur milljörðum króna á ári vegna framlengingar úrræðis sem leyfir landsmönnum að nýta sjóð sinn til niðurgreiðslu lánanna. Úrræðið hefur verið framlengt til ársins 2021. Við ræddum málið við Þóreyju S. Þórðardóttur framkvæmdastjóra Landssamtaka Lífeyrissjóða. Elísabet Margeirsdóttir víðavangshlaupari varð önnur kvenna í Laugavegshlaupi helgarinnar þrátt fyrir að hafa samdægurs hlaupið leiðina fyrir keppnina. Hún hljóp því 110 kílómetra þennan dag. Göngugarpar fara leiðina oft á fjórum dögum en hörðustu hlaupararnir á örfáum klukkustundum. Elísabet hljóp eins og þekkt er 400 kílómetra í Góbí-eyðimörkinni í október. Elísabet ofurhlaupari var á línunni. Helmingur Íslendinga er með yfir 632 þúsund krónur í mánaðalaun en hinn helmingurinn undir. Algengustu heildarlaunin hér á landi á bilinu 550 til 600 þúsund krónur á mánuði en launamenn hjá ríkinu fá hæst laun að meðaltali, rétt yfir 800 þúsund, hærri en eru greidd á almennum markaði. Þetta má sjá í nýjum tölum Hagstofunnar. Athyglisvert er að sjá að aðeins 20% heilbrigðisstarfsmanna hafa yfir milljón á mánuði og 40% starfsmanna heilbrigðis- og félagsþjónustu hafa undir sex hundruð þúsundum króna. Erna Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri BHM og Guðbjörg Pálsdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga komu til okkar og ræddu stöðuna. Við litum yfir íþróttir helgarinnar með Eddu Sif Pálsdóttur íþróttafréttamanni. Tónlist: Sváfnir Sig - Fólk breytist. Elvis Presley - In the ghetto. ABBA - Lay all your love on me. Nýdönsk - Horfðu til himins. Jonathan Wilson - Love to love. KK og Björk - Borg mín borg. Travis - Side. Jón Jónsson - Komið þér sælar. Noel Gallaghers High Flying Birds - Black star dancing. Gossip - Heavy Cross.

bj gu allt sv borg kk bhm komi sigf helgi bj landssambands helmingur hagstofunnar
Spegillinn
Spegillinn 2. apríl 2019

Spegillinn

Play Episode Listen Later Apr 2, 2019 30:00

Spegillinn 2. apríl 2019 Umsjón: Kristján Sigurjónsson Tæknimaður: Mark Eldred Ríkisstjórnin og aðilar vinnumaraðarins ætla að kynna meginlínur kjarasamnings og aðgerðir ríkisstjórnar vegna væntanælegs nýs kjarasamnings nú seint á sjöunda tímanum. Fundahöld hafa staðið yfir hjá ríkissáttasemjara í allan dag. Búist er við að skrifað verði undir kjarasamning í kvöld eða á morgun. Theresa May ætlar að óska eftir því að Bretar fái lengri frest til að segja skilið við Evrópusambandið. Hún biðlar til formanns Verkamannaflokksins að taka þátt í að greiða úr flækjunni sem Brexit er komið í. Greina þarf þörf fyrir vinnuafl og menntun til framtíðar hér á landi því misræmi hefur verið á milli menntunar og framboðs starfa, segir sviðsstjóri hjá Vinnumálastofnun. Búast megi við auknu atvinnuleysi vegna falls WOW air en ekki verði allsherjarsamdráttur. Samtals var 473 starfsmönnum sagt upp í sex hópuppsögnum sem tilkynntar voru til Vinnumálastofnunar í mars. Kaupþing hefur ákveðið að bjóða til sölu 10 prósenta hlut í Arion banka. Miðað við markaðsvirði hlutabréfa bankans í dag nemur verðmæti hlutarins sem til stendur að selja um 15 milljörðum króna. Landbúnaðarráðherra segir að frumvarp sem heimilar innflutning á hráu kjöti tryggi vernd búfjárstofna og bæti samkeppnisstöðu innlendrar matvælaframleiðslu. Heiða Björg Pálmadóttir hefur verið skipuð í embætti forstjóra Barnaverndarstofu. Hún hefur starfað sem settur forstjóri í rúmt ár og var yfirlögfræðingur stofnunarinnar frá árinu 2009. Sex sóttu um embættið þegar það var auglýst. Hrafnhildur Markúsdóttir, ellefu ára nemandi í Hvassaleitisskóla í Reykjavík hefur lesið 83 bækur það sem af er ári. Kennarinn hennar segir lesturinn hjálpa henni í öðrum greinum í skólanum. Hrafnhildur heldur skipulagt bókhald yfir bækur sem hún les. Lengri umfjöllun: Karl Sigurðsson sviðstjóri hjá Vinnumálastofnun segir að misræmi sé milli menntunar og starfa hér á landi og þörf sé fyrir að nýta gögn Hagstofunnar til að greina vinnumarkaðinn til framtíðar. Hann segir að gera megi ráð fyrir því að atvinnuleysi aukist hér á landi um eitt til eitt og hálft prósentustig milli ára vegna falls WOW og tengdra fyrirtækja. Fari úr 2,3 prósentum 2018 í yfir þrjú prósent á þessu ári. Bergljót Baldursdóttir talar við Karl Sigurðsson. Hvort á maður að velja plast- eða pappírspoka undir vörurnar þegar farið er út í búð að kaupa í matinn? Hvort er betra fyrir umhverfið? Eða er best að fara með margnota pokann? Það eru ekki til nein einföld svör við þessum spurningum. Plastpokar og pappírs

sex brexit bj hei theresa may hann reykjav fari kristj arion evr sigurj kaup hvort samtals baldursd hrafnhildur landb berglj vinnum bretar karl sigur lengri hagstofunnar
Mannlegi þátturinn
Björn Breiðvíkingakappi, Hagstofan og Galdrasýningin á Ströndum

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Feb 12, 2019 55:00

Sigurður Hjartarson er ungur sagnamaður frá Stóra-Kambi í Breiðuvík. Foreldrar hans reka hestaleigu á bænum og undanfarin tvö sumur hefur Sigurður boðið ferðafólki upp á söguferðir. Þá er riðið niður á fjöruna og Sigurður segir frá Íslendingasögunum og þá sérstaklega sögu Björns Breiðvíkingakappa, sem er talinn hafa verið fyrsti Evrópumaðurinn í Ameríku samkvæmt heimildum Eyrbyggju. Við hringdum í Sigurð og fengum hann til að segja okkur frá þessum kappa. Hagstofan hefur starfað í rúm hundrað ár við að safna tölulegum upplýsingum um íslenska þjóð. Á vefsíðu Hagstofunnar er hægt að nálgast megnið af þeim upplýsingum sem Hagstofan hefur safnað og þar geta menn nú aldeilis fengið útrás fyrir tölfræðinördinn í sér. Þeir Þorsteinn Þorsteinsson og Ólafur Arnar Þórðarson komu í þáttinn og sögðu frá hinni umfangsmiklu starfsemi Hagstofunnar og þeim miklu breytingum sem hefur orðið á starfseminni sérstaklega með tilkomu internetsins. Anna Björg Þórarinsdóttir er nýráðinn framkvæmdastjori Galdrasýningarinnar á Ströndum eftir sviplegt fráfall hins mikla frumkvöðuls Sigurðar Atlasonar sem verið hafði framkvæmastjóri sýningarinnar frá upphafi. Anna Björg kemur þó ekki ókunnug til safnsins - hún hafði unnið þar áður og þeim Sigurði hafði orðið vel til vina. Kristín Einarsdóttir, okkar kona á Ströndum, hitti Önnu Björg á hinni merku galdrasýningu. UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG MAGNÚS R. EINARSSON

Spegillinn
Spegillinn 28. janúar 2018

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jan 28, 2019 30:00

Umsjón: Kristján Sigurjónsson Tæknimaður: Ragnar Gunnarsson Saksóknari krafðist í héraðsdómi dag meira en fjögurra ára fangelsisvistar yfir manni sem ákærður er fyrir að hafa hrint dyraverði á skemmtistað í Reykjavík með þeim afleiðingum að hann lamaðist fyrir neðan háls. Saksóknari segir að mennirnir hafi sammælst um að ráðast á dyraverðina til að hefna sín fyrir brottrekstur af barnum fyrr um kvöldið. Því hafna sakborningar. Úrganga Bretlands úr ESB án samnings gæti leitt til þess að framboð á ýmsum matvælum minnki og verð hækki í landinu. Þetta segja stjórnendur stærstu matvöruverslanakeðja í Bretlandi. Launamunur kynjanna er mestur hjá starfsfólki í fjármála- og vátryggingarstarfsemi, rúm 40 prósent. Óleiðréttur launamunur kynjanna var rúmlega 15 prósent árið 2017, samkvæmt tölum Hagstofunnar og hefur ekki verið minni. Sólardagurinn á Sigló var haldinn hátíðlegur í dag. Lengri Umfjallanir: Ákvörðun dómara í norska Lögmannsréttinum, um að hafna úrskurði kviðdóms í máli lögreglumanns sem dæmdur var í tuttugu og eins árs fangelsi fyrir spillingu og aðild að smygli á tæpum 14 tonnum af hassi, hefur vakið hörð viðbrögð. Verjandi mannsins hefur áfrýjað ákvörðuninni til Hæstaréttar. Úrskurður kviðdómsins var sá síðasti í rúmlega 130 ára sögu kviðdóms í Noregi. Arnar Páll Hauksson segir frá. Mikil spenna er í Venesúela og þar ríkir upplausn. Svo virðist sem næstu dagar skipti sköpum um það hvort valdaskipti verða í landinu. Hvort Nicolas Maduro forseta tekst að standa af sér gríðarlegan pólitískan þrýsting, jafnt innanlands sem utan og halda völdum, eða hvort forseta þingsins, Juan Guaido (Húan Gvædó), tekst að hrekja hann frá völdum. Guaido, sem fyrir nokkrum dögum lýsti sig réttkjörinn forseta landsins, hvetur almenning til þess að leggja niður vinnu á miðvikudag og safnast saman á mótmælafundum á laugardag til að krefjast þess að Maduro og stjórn hans segi af sér. Kristján Sigurjónsson segir frá. Víða um heim hefur fólki verið auðveldað að kjósa sjálft hvenær og hvernig það yfirgefur þennan heim og fá til þess aðstoð heilbrigðisstarfsmanna eða annarra. Í Hollandi og Sviss hefur líknardráp verið löglegt um árabil, og líknardráp og dánaraðstoð, þar sem einhver aðstoðar annan við að fyrirfara sér, er leyfð í fleiri löndum, til dæmis Kanada, Belgíu, Viktoríufylki í Ástralíu og þó nokkrum ríkjum Bandaríkjanna, þar á meðal því fjölmennasta, Kaliforníu. Í umfjöllun í Guardian nýlega eru því gerðir skórnir að þess sé kannski ekki lengi að bíða að líknardráp verði bara einn kostur af mörgum, hverjum þei

Spegillinn
Spegillinn 8. nóvember 2018

Spegillinn

Play Episode Listen Later Nov 8, 2018 30:00

Hæstiréttur staðfesti í dag dóm Héraðsdóms Reykjavíkur um að Seðlabankanum hefði ekki verið heimilt að leggja stjórnvaldssekt á Samherja. Samherjamenn segja að með dóminum ljúki endanlega 7 ára aðför bankans að fyrirtækinu. Utanríkisráðherra segir að allra leiða hafi verið leitað, í samráði við tyrknesk stjórnvöld, til að komast að afdrifum Hauks Hilmarssonar sem hvarf í Sýrlandi. Sífellt fleiri börn stunda launaða vinnu. Þetta kemur fram í úttekt Hagstofunnar. Hátt í sjötíu prósent sautján ára barna eru á vinnumarkaði. Enn er sýking í stofni íslensku sumargotssíldarinnar. Mestöll síldin á nýhafinni vertíð hefur því farið í bræðslu. Formaður Landssambands eldri borgara segir það falda staðreynd að hópur aldraðra eigi í miklu basli fjárhagslega. Um 2500 ellilífeyrisþegar eru að sligast undan hárri húsaleigu og vegna búsetuskerðingar fær um 100 manna hópur aðeins 37 þúsund krónur frá Tryggingarstofnun. Í þeim hópi eru útlendingar fjölmennir. Arnar Páll Hauksson talar við Þórunni Sveinbjörnsdóttur. Ráðgert er að þúsundir íbúða af ýmsum stærðum og gerðum rísi í sveitarfélögunum umhverfis höfuðborgarsvæðið á næstu árum. Forsvarsmenn Árborgar, Voga, Akraness, Grindavíkur, Ölfuss og Reykjanesbæjar eru tilbúnir að skoða finnsku leiðina með félagsmálaráðherra. Svæðisskipulagsstjóri samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varar við mikilli uppbyggingu, markaðurinn geti snöggkólnað. Arnhildur Hálfdánardóttir segir frá og talar við Hrafnkel Proppé.

forma sv mest reykjav enn grindav hauksson sveinbj voga reykjanesb arnar p landssambands hagstofunnar
Morgunvaktin
Þátttakan í HM í Rússlandi kostar 714 milljónir

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later May 22, 2018 5:00

Þátturinn hófst á vikulegu Þýskalandsspjalli Arthúrs Björgvins Bollasonar sem að þessu sinni var í hljóðstofu. Hann sagði m.a. frá fyrirhugaðri för um Ísland með þýskum sjónvarpsmanni en sá er staddur hér til að gera þætti um land og þjóð. Þjóðverjar hafa lengi haft mikinn áhuga á Íslandi og Íslendingum en þann áhuga má m.ö. rekja til Wagners sem studdist við Íslendingasögurnar í Óperum sínum og bóka Jóns Sveinssonar, Nonna, sem voru vinsælar í Þýskalandi á sínum tíma. Klara Bjartmarz, framkvæmdastjóri Knattspyrnusambandsins, sagði frá lokaundirbúningnum fyrir þátttöku karlalandsliðsins á HM í Rússlandi. Hvert skref er vandlega undirbúið, búið er að ákveða matseðla alla dagana í Rússlandi og annað sem máli skiptir. Fjárhagsáætlun KSÍ gerir ráð fyrir að þátttakan kosti 714 milljónir króna. Sigrún Davíðsdóttir sagði m.a. frá konunglega brúðkaupinu á laugardag í Lúndúnarspjalli og áhuganum á því. Hún kom inn á nýjustu stöðuna í Brexit og sagði frá úrsögn Ken Livingston, fyrrverandi borgarstjóra Lúndúna úr Verkamannaflokknum og óvissu um hvort Rússinn Roman Abramovitsj, eigandi knattspyrnuliðsins Chelsea, frá áframhaldandi dvalarleyfi í Bretlandi. Enn eru mun fleiri karlar en konur í æðstu stöðum íslenskra fyrirtækja. Ný athugun Hagstofunnar leiðir það í ljós. Árelía Eydís Guðmundsdóttir, formaður Jafnréttisráðs, sagði niðurstöðuna vonbrigði enda mikilvægt að hlutföll kynjananna séu sem jöfnust. Tónlist: Here comes the sun - Beatles.

Morgunvaktin
Flestir sammála um hvernig bæta megi skólana - en verkin þurfa að tala

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Apr 11, 2018 130:00

Hvorki gengur né rekur í kjaraviðræðum opinberra starfsmanna í Danmörku og viðsemjenda þeirra. Sáttasemjari nýtti sér heimild til að fresta verkfallinu og verkbanni ríkisstjórnarinnar til 22. Apríl. Stjórnarandstaðan segir ríkisstjórnina sjá sér leik á borði til að losna við launagreiðslur, en Lars Lökke Rasmussen forsætisráðherra hefur harðneitað því. Borgþór Arngrímsson sagði frá þessu og líka frá því að flugfélagið SAS hefur gert samninga um kaup á 35 nýjum farþegaþotum og leigusamninga um 15 til viðbótar. Fleira áhugavert barst í tal úr Danaríki. - Þing Kennarasambands Íslands stendur yfir. Áður en því lýkur tekur Ragnar Þór Pétursson við formennsku. Staðan í skólamálum landsins er mjög til umræðu um þessar mundir. Flestir eru sammála um að Íslendingar þurfi að gera betur. Væntanlegur formaður Kennarasambands Íslands lýsti stöðu skólamála og framtíðarsýn. Sænska akademían, sem velur Nóbelsverðlaunahafann í bókmenntum, er svo gott sem óstarfhæf og í verstu krísu í sinni 232 ára sögu. Þrír hafa sagt skilið við akademíuna á síðustu dögum vegna deilna um eiginmann skálds í akademíunni, sem hefur verið sakaður um ótal kynferðisbrot og á þar að auki að hafa lekið nöfnum verðandi Nóbelsverðlaunahafa árum saman. Vera Illugadóttir sagði frá. - Hljómsveit Kerkko Koskinen flutti lagið Modern single man. -Óhætt er að segja að verknám eigi undir högg að sækja. Samkvæmt nýbirtum tölum Hagstofunnar kjósa sífellt fleiri að hefja bóknám frekar en verknám. Á sama tíma berjast verknámsskólar í bökkum og í sumum þeirra þarf reglulega að fresta eða leggja niður námsbrautir því ekki næst tilskilinn nemendafjöldi. Jón Þór Kristjánsson ræddi þessi mál við Sigríði Huld Jónsdóttur, skólameistara Verkmenntaskólans á Akureyri.

Morgunvaktin
Miklabraut í stokk kostar 21 milljarð króna

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Feb 19, 2018 130:00

Þátturinn hófst á Lundúnaspjalli Sigrúnar Davíðsdóttur og fyrst á dagskrá var risnukostnaður breskra þingmanna sem komst í hámæli fyrir um áratug. Djúpt var á upplýsingum og þeim var lekið til fjölmiðla áður en þingið breytti reglum en það birtir nú upplýsingar um allan kostnað þingmanna. M.a. kom í ljós að þingmenn höfðu látið þingið borga ýmsa reikninga alls ótengda þingstörfunum, t.d. lagfæringar á tennisvelli í garði eins og fuglahús í tjörn annars. Sigrún sagði líka frá nýafstaðinni öryggisráðstefnu þjóðarleiðtoga í Munchen þar sem May, forsætisráðherra Bretlands, upplýsti m.a. að ESB-borgarar sem flytja til Bretlands munu ekki njóta sömu réttinda og þeir sem þar búa fyrir. Málefni heimilislausra voru líka rædd en kastljós breskra fjölmiðla hefur beinst að þeim eftir að heimilislaus maður fannst látinn við Westminster í síðustu viku. Árni Freyr Stefánsson, verkfræðingur hjá Mannviti, sagði frá ýmsum tæknilegum atriðum varðandi lagningu Miklubrautar í stokk. Áætlað er að framkvæmdin kosti 21 milljarð króna og að verkið geti tekið þrjú ár. Það yrði umfangsmesta einstaka samgönguframkvæmd landsins. Grafa þarf yfir 30 metra breiðan og um 10 metra djúpan skurð eftir Miklubraut, frá Snorrabraut að Kringlunni, og í hann steyptur stokkur. Hugsanlegt er að byggt verði ofan á stokknum. Vera Illugadóttir sagði frá ákærum bandarískra yfirvalda á hendur þrettán Rússum fyrir óeðlileg afskipti af forsetakosningunum í Bandaríkjunum 2016. Meðal ákærðra er maður sem kallaður er "kokkur Pútins" en sá hefur unnið ýmis verkefni fyrir Rússlandsforseta. Hann er talinn forsvarsmaður leynilegrar stofnunar í Sankti Pétursborg sem árum saman hefur dreift áróðri og lygum um internetið í þágu rússneskra stjórnvalda. Fjallað var um kynjahalla í kvikmyndagerð á Íslandi en ný samantekt Hagstofunnar sýnir að karlar hafa leikstýrt níu af hverjum tíu kvikmyndum sem framleiddar hafa verið. Laufey Guðjónsdóttir, forstöðumaður Kvikmyndamiðstöðvar Íslands, vill grípa til margháttaðra aðgerða til að rétta þennan halla af. Leikin voru lögin Paradísarmissir eftir Högna Egilsson og Hollow talk með Choir of Young Believers úr dönsk/sænsku sjónvarpsþáttaröðinni Brúnni.

dj choir hollow westminster lund hann dav parad esb bandar sigr kostar munchen fjalla egilsson bretlands young believers leikin kringlunni vera illugad stokk hagstofunnar
Morgunvaktin
Vanmetni Frakkinn kvaddur í Danmörku

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Feb 15, 2018 130:00

Við byrjum á því að heyra hljóðið í fulltrúa Vestfirðinga. Þeir hafa eins og oft áður á þessum tíma árs mátt þola ófærð og yfirvofandi snjóflóðahættu. Það á ekki síst við um Súðvíkinga. Flesta morgna að undanförnu höfum við sagt frá því að Súðavíkurhlíð sé lokuð. Það þýðir að aðalleiðin til Ísafjarðar er ekki fær. Sveitarstjórinn í Súðavíkurhreppi og formaður Fjórðungssambands Vestfirðinga, Pétur G Markan, lýsti þessum aðstæðum og gagnrýndi skort á stefnu til úrbóta. Bogi Ágústsson ræddi erlend málefni. Fyrst var Henriks prins minnst. Daninn Rasmus Gjedssø Bertelsen, háskólakennari í Tromsø, sagði landa sína aldrei hafa kunnað að meta Henrik prins. Þá var rætt um enn eina skotárásina í Bandaríkjunum, afsögn Zuma forseta Suður-Afríku, upplausn í stjórnmálum N-Írlands og fleira. Vetrarólympíuleikarnir í PyeongChang eru í fullum gangi. Í hönd fer sjötti keppnisdagurinn en leikarnir standa til 25. febrúar. Rætt var við Andra Stefánsson, aðalfararstjóra íslenska hópsins, um leikana og aðstæður. Lee Morgan og félagar fluttu lagið The Sidewinder. Konur leikstýra aðeins broti af þeim kvikmyndum sem gerðar hafa verið á Íslandi. Ný samantekt Hagstofunnar sýnir að frá 1949 hafa konur leikstýrt einni mynd á móti níu myndum karla. Hlutföllin eru í raun sláandi. En hvernig stendur á þessu, hvaða áhrif hefur þetta og hvað er til ráða til að rétta hlut kvenna? Hingað koma leikstjórarnir Dögg Mósesdóttir og Helga Rakel Rafnsdóttir, nýr og fráfarandi formaður Samtaka kvenna í sjónvarpi og kvikmyndum.