POPULARITY
Viljum við að færri fái krabbamein? Það ætti að vera auðvelt að svara þessari spurningu, en hún er einmitt yfirskriftin á málþingi sem Krabbameinsfélagið stendur fyrir næsta laugardag. Þar verður rætt um hvort það séu vannýtt tækifæri til þess að fækka þeim sem fá krabbamein í íslensku samfélagi og sóknarfæri í forvörnum. Sigrún Elva Einarsdóttir, sérfræðingur og teymisstjóri fræðslu og forvarna hjá Krabbameinsfélaginu, og Vigdís Eva Guðmundsdóttir, sérfræðingur í fræðslu og forvörnum hjá Krabbameinsfélaginu, komu í þáttinn í dag, en þær halda báðar erindi á málþinginu. Við heyrðum svo í Ívari Dagssyni, en hann rekur 20 osteopatastofur í Danmörku og 140 osteopatar starfa fyrir fyrirtækið. Hann stofnaði fyrirtækið fyrir 11 árum, eftir að hann lauk námi. Hann áformar nú að opna stofur í fleiri löndum og sína fyrstu osteopata stofu á Íslandi í júní. En það er ekki víst að allir viti hvað osteopatar gera, því fengum við Ívar til að segja okkur allt um það og frá velgengninni í Danmörku og víðar. Að lokum fengum við póstkort frá Magnúsi R. Einarssyni. Í korti dagsins fjallar Magnús fyrst um fyrrum forseta Urugays, sem lést fyrir nokkrum dögum. Hann varð frægur um allan heim fyrir látlausan lífstíl og róttækar umbætur sem hann gerði í heimalandi sínu. Í seinni hlutanum segir frá vaxandi sniðgöngu á bandarískum vörum og framleiðslu vegna tollapólitíkur bandaríkjaforseta. Tónlist í þættinum í dag: Hinn elskulegi garðyrkjumaður / Kristjana Stefánsdóttir (Páll Torfi Önundarson) Í sól og sumaryl / Stebbi og Eyfi (Gylfi Ægisson) Sumarlandið / Jón Jónsson og KK (Jón Jónsson, texti Jóns Jónsson og Martina Vigdís Nardini) Sumargestur / Ásgeir Trausti (Ásgeir Trausti Einarsson, texti Einar Georg Einarsson) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra kallar eftir hugmyndum um nýtt nafn fyrir félagið. Þegar félagasamtökin voru stofnuð, um miðja síðustu öld, geysaði skæð farsótt, lömunarveikin, sem lagðist af þunga á fjölmörg börn og ungt fólk. Tímarnir hafa breyst og margt hefur breyst til hins betra í samfélaginu og enn er ýmsir þröskuldar á vegi fólks með fötlun, áþreifanlegir og óáþreifanlegir. Bergljót Borg, framkvæmdastjóri Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra, kom í þáttinn og sagði okkur sögu samtakanna og leitinni að nýja nafninu, sem þau vilji að verði einkennandi fyrir gildi, starfsemi og framtíðarsýn félagsins. Jazzsöngkonur koma saman síðasta vetrardag og syngja lög þekktra söngkvenna eins og Peggy Lee, Judy Garland, Julie London og fleiri. Rebekka Blöndal, Kristjana Stefáns og Silva Þórðar, þrjár af fimm söngkonum sem koma fram á tónleikunum, komu til okkar í dag og spjölluðu um líf jazzsöngkonunnar og þau verkefni sem þær eru að fást við. Svo kom Einar Sveinbjörnsson til okkar í veðurspjallið, en í dag ræddi við okkur um borgarskóga og áhrif þeirra á til dæmis veðurfar. Hann talaði um umskiptin í veðrinu framundan og hugtakið páskahret og svo auðvitað að skoðaði hann aðeins páskaveðrið sem lítur bara nokkuð vel út víðast hvar um landið. Tónlist í þættinum í dag: Ég hef heyrt / BG og Ingibjörg (Lois Armstrong, texti BG og Ingibjörg) Fever / Peggy Lee (John Davenport og Eddie Cooley) Tenderly / Rosemary Clooney (Walter Cross og J.Lawrence) Sukiyaki / Kyu Sakamoto (Hachidai Nakamura & Rokusuke Ei) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Nefnd skipuð af fyrrverandi heilbrigðisráðherra birti í samráðsgátt stjórnvalda á dögunum svokallaða Grænbók, þar sem skoðuð er staðan í málum tengdum ADHD á Íslandi. Skoðaðir eru til dæmis langir biðlistar eftir greiningu og algengi lyfjameðferðar. Mat nefndarinnar er að gæðum sé ábótavant, bæði þegar kemur að greiningum og lyfjameðferð. Formaður ADHD samtakanna sagði í síðustu viku að þær ályktanir sem fram koma í Grænbókinni muni valda mikilli ólgu hjá félögum samtakanna og hjá þeim sem bíða greiningar og að þar sé ýmislegt sem þurfi að skoða betur. Hrannar B. Arnarsson, framkvæmdastjóri ADHD samtakanna, var hjá okkur í dag og fór með okkur yfir niðurstöður Grænbókarinnar og tók undir áhyggjur formannsins, að ef farið yrði eftir þeim ályktunum sem þar koma fram þá gæti það verið skref aftur á bak, eða í það minnsta gæti það kallað á stöðnun í málefnum ADHD á Íslandi. Helga Arnardóttir kom svo til okkar og fór yfir það sem hún hefur fjallað um á Heilsuvaktinni á liðnu ári. Þar kennir margra grasa, t.d. blóðsykur, gjörunnar matvörur, ofþyngd barna, heilbrigði þarmaflórunnar, öndun til að róa taugakerfið, heilaörvunarmeðferð við þunglyndi, mikilvægi þess að fara í krabbameinsskimun, reynslusögur og margt fleira. Við rifjuðm upp það helsta frá Heilsuvaktinni árið 2024 með Helgu í dag og hún fór aðeins yfir það hvað yrði til umfjöllunar á nýju ári og auglýsti eftir hugmyndum og ábendingum frá hlustendum í því tilliti. Þær er hægt að senda á netfang þáttarins: mannlegi@ruv.is Tónlist í þættinum: Hvar er tunglið? / Kristjana Stefánsdóttir (Sigurður Flosason, texti Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson) Godess / Laufey (Laufey Lin Jónsdóttir) Why can't you behave? / Ella Fitzgerald (Cole Porter) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Í Fram og til baka þennan morguninn fengum við góðan gest, nefnilega sómadrenginn Aðalbjörn Tryggvason sem er útvarpsmaðurinn á rokkstöðinni X-inu og fer fyrir rokksveitinni Sólstöfum. Hljómsveitin Sólstafir hefur verið starfandi á þriðja áratug og á sér risastóran áhangendahóp um allan heim. Aðalbjörn, eða Addi, deildi með hlustendum fimm hlutum sem eru honum afar kærir. Hlutirnir tengdust æsku hans, rokklífinu og nýju lífi sem faðir, lífi í fullum fókus án aukaefna og nýjum vettvangi í framleiðslu íslensk náttúruilmvatns fyrir öll kyn. Í seinni hluta þáttar var boðið upp á áhættuatriði þegar þáttastjórnandi lagði af stað úr Efstaleiti í hringferð um tónlistarlandið Ísland - á 33 snúningum. Tónlist alls staðar að af landinu, frá Akranesi, Stykkishólmi, Vestfjörðum, Eyjafirði og Húsavík. Hraðferð yfir Austfirðina, Suðurlandsundirlendið, Reykjanes og endað í Breiðholtinu. Allt var þetta gert á löglegum hraða. Hér er lagalistinn: Frá kl. 08-09: Elton John - Daniel. Sólstafir - Ísafold. Hljómar - Ástarsæla. Hringferðin frá kl. 09-10: Dúmbó og Steini - Frækorn og flugur. Vinir vors og blóma - Frjáls. Jón Kr. og Gísli Ægir - Ég er frjáls. Geirmundur Valtýsson - Nú er ég léttur. Árný Margrét - Verum í sambandi. Stuðkompaníið - Þegar allt er orðið hljótt. Ljótu hálfvitarnir - Förum hringinn. Bloodgroup - Hips Again. Drangar - Bál. Júníus Meyvant - Gold laces. Kristjana Stefánsdóttir og Sólskuggarnir - Reykjavíkurblús. Fríða Dís - Myndaalbúm. Hljómsveitin Ég - Tíu fingur og tær.
Við kíktum niður í Hörpu á æfingu hjá kvennakórnum Kötlu en þær eru með árlega vortónleika næstu helgi og kórinn er fjölmennur, en um 80 konur eru skráðar í hann og sérstök áhersla er lögð á búninga, leikmuni og gleði. Þær vilja líka láta gott af sér leiða í okkar samfélagi. Samstýrur kórsins, Hildigunnur Rúnarsdóttir og Lilja Dögg Gunnarsdóttir, sögðu okkur frá starfinu og einnig var rætt við konur í búninganefnd kórsins, þær Ragnheiði Bjarnadóttur og Elínu Hörpu Valgeirsdóttur og svo að lokum stjórnarkonurnar Guðrúnu Helgadóttur, Söndru Harðardóttur og Sólveigu Ingólfsdóttur . Við fengum svo póstkort frá Magnúsi R. Einarssyni í dag. Í Þýskalandi standa núna yfir réttarhöld yfir næstum þrjátíu manns sem eru ákærðir fyrir að skipuleggja vopnaða byltingu gegn stjórn landsins. Aðalsprautan í hópnum er sjötíu og tveggja ára fasteignasali sem kallar sig prins Hinrik þrettánda. Frá þessu var sagt í póstkorti dagsins, en Magnús er nýkominn frá Þýskalandi þar sem þetta er ein aðalfréttin í fjölmiðlum. Hann sagði líka frá heimsókn sinni í pyntingartækjasafn í borginni Rothenburg, en safnið geymir ótrúleg tæki og tól frá miðöldum sem voru notuð til knýja fram játningar hjá sakamönnum aðallega konum sem voru kærðar fyrir galdra. Sjónaukinn, árleg ráðstefna heilbrigðis-, viðskipta- og raunvísindasviðs Háskólans á Akureyri fór fram í síðustu viku. Þar voru flutt fjölmörg fjölbreyttu erindi en stór hluti af erindum á ráðstefnunni eru kynningar nema sem eru að ljúka meistaranámi í heilbrigðisvísindum á rannsóknarverkefnum sínum. Vera Sif Rúnarsdóttir kynnti niðurstöður rannsóknar á tengslum áfalla í æsku við almennt heilsufar á fullorðinsárum. Vera sagði okkur meira frá því í þættinum í dag. Tónlist í þættinum í dag: Þín hvíta mynd / Kristjana Stefánsdóttir og Svavar Knútur Kristinsson (Sigfús Halldórsson og Tómas Guðmundsson) Everybody's Talkin' / Harry Nilson (Fred Neil) Adios Muchachos / Stanley Black (Sanders & Vedani) UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Við fræddumst í dag um heimildarmyndina Tölum um ENDÓ, þar sem rætt er við konur á ýmsum aldri um einkenni og áhrif sjúkdómsins endómetríósu á þeirra líf og störf. Sjúkdómurinn var áður kallaður legslímuflakk, en nú er talað um endó í daglegu tali. Þóra Karítas Árnadóttir, leikstjóri og framleiðandi myndarinnar kom í þáttinn og sagði okkur frá myndinni, með henni kom Karen Ösp Friðriksdóttir, en hún deilir sinni reynslu af endómetríósu í myndinni, auk þess að vera gjaldkeri Endósamtakanna. Mörg hlaðvörpin hafa litið dagsins ljós undanfarin ár og fjalla þau um nánast allt milli himins og jarðar. Litli mallakúturinn heitir eitt þeirra og þar má finna viðtöl við fólk sem á það sameiginlegt að hafa gengist undir aðgerð á maga vegna offitu. Sá sem stjórnar og stýrir því heitir Gunnar Ásgeirsson, kerfisstjóri, og við ræddum við hann í dag. Einar Sveinbjörnsson kom svo til okkar í dag í veðurspjall. Hann talaði við okkur í dag um hafís og áhrif hans á vorveðráttuna, en hafísinn er í meiri útbreiðslu nú en undanfarin ár. Hann rifjaði svo upp þegar ís fyllti firði og flóa vorið 1979. Svo að lokum skoðaði hann með okkur veðurspána framundan, þar sem hitinn fer loksins hækkandi, að minnsta kosti í bili. Tónlist í þættinum Bolur inn við bein / Brimkló (erlent lag, texti Jónas Friðrik og Björgvin Halldórsson) Lítið ljóð/ Rebekka Blöndal (Rebekka Blöndal og Ásgeir Ásgeirsson, texti Rebekka Blöndal og Stefán Örn Gunnlaugsson) Betri tíð/ Hildur Vala (Valgeir Guðjónsson og Þórður Árnason) Þín hvíta mynd / Kristjana Stefánsdóttir og Svavar Knútur (Sigfús Halldórsson og Tómas Guðmundsson) UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Við kynntum okkur starfsemi Heimilisfriðar í þættinum í dag. Heimilisfriður er meðferðar- og þekkingarmiðstöð um ofbeldi í nánum samböndum, og er með meðferðarúrræði fyrir einstaklinga sem beita, eða hafa beitt, ofbeldi í nánum samböndum. Heimilisfriður býður upp á sálfræðimeðferð fyrir þau sem eiga erfitt með að stjórna skapi sínu og skaða þá sem þau elska, jafnvel þó þau vilji það ekki. Jóhanna Dabgjartsdóttir sálfræðingur hjá Heimilisfriði kom til okkar í dag og sagði okkur meira frá starfseminni og niðurstöðum úttektar sem Félagsvísindastofnun HÍ gerði á starfseminni á síðasta ári. Við fengum svo Guðríði Helgadóttur garðyrkjufræðing og líffræðing, því nú er vorið að nálgast, sólin er komin hærra á loft og fuglarnir eru farnir að syngja. Er ekki kominn tími til að huga að garðverkunum? Það er að mörgu að hyggja, en hvar eigum við að byrja? Hvaða garðverk þurfum við að huga að á þessum tíma árs? Við komum auðvitað ekki að tómum kofanum hjá Guðríði, hún er full af fróðleik eins og fyrri daginn og fór með okkur í gegnum vorverkin og gaf okkur góð ráð í dag. Tónlist í þættinum: Hverjum hefði getað dottið í hug? / Svavar Knútur og Kristjana Stefánsdóttir (Svavar Knútur Kristinsson) Jolene / Lay Low (Dolly Parton) Ævilagið / Hljómsveitin Eva (Jóhanna Vala Höskuldsdóttir og Sigríður Eir Zophoniasardóttir) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Blöðruhálskirtilskrabbamein er algengasta krabbamein karla, 240 greinast árlega að meðaltali. Blöðruhálskirtilkrabbamein hagar sér að mörgu leiti öðruvísi en önnur krabbamein og rannsóknir benda til að allt að 80% af öllum körlum 80 ára og eldri séu með blöðruhálskirtilskrabbamein í einhverri mynd. Málþing í tilefni af Mottumars verður haldið í húsnæði Krabbameinsfélagsins í Skógarhlíð á morgun kl.16:30. Þar verður fjallað um blöðruhálskirtilskrabbamein út frá víðu sjónarhorni. Rafn Hilmarsson, þvagfæraskurðlæknir á Landspítala, verður með erindi á málþinginu undir yfirskriftinni Skimun eða ekki - meðferðarkostir - ávinningur og aukaverkanir. Rafn kom til okkar í dag og sagði frá erindi sínu og með honum kom Halla Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins. Í haust mun ferðaskrifstofan VITA bjóða uppá siglingu um firði Alaska. Landslagið er stórbrotið, tignarleg fjöll með hvíta toppa, djúpgrænir regnskógar og falleg höfuðborg Juneau sem ekki er auðvelt að komast til nema fljúga þangað eða sigla. Héðinn Svarfdal Björnsson verður fararstjóri í þessari ferð fyrir Íslendinga en pláss er fyrir um 25 manns. Við heyrðum í honum í þættinum í dag. Svo kom Einar Sveinbjörnsson til okkar í veðurspjallið. Í þetta sinn rifjaði hann upp með okkur upp frægt óveður, Hákonarhretið sem skall á í dymbilvikunni 1963 og svo skoðuðum við með honum páskaveðrið. Tónlist í þættinum: Gleðin með þér / Þuríður Sigurðardóttir (A Jaén og Helgi Pétursson) If paradise is half as nice / Amen Corner (Battisti, Fishman, Mogol) Alaska / Maggie Rogers (Doug Schadt & Maggie Rogers) Árstíðirnar þrjár/Karl Olgeirsson Orgeltríó og Kristjana Stefánsdóttir (Karl Olgeirsson ) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Heimildarinnar, fór ítarlega yfir kjarasamningsmál á Morgunvaktinni í dag. Búið er að semja fyrir hönd tugþúsunda, aðrir eru enn eftir, en ríkið hefur sýnt á sín spil. Hið opinbera leggur til 80 milljarða króna pakka, sem þó hefur ekki verið sagt hvernig nákvæmlega verður fjármagnaður. Ræddum einnig um Landsvirkjun og metafkomu fyrirtækisins. Árás var gerð á verksmiðju Tesla bílaframleiðandans fyrir utan Berlín í síðustu viku. Kveikt var í, og bæði verksmiðjan og stór hluti Brandenburgar-fylkis urðu rafmagnslaus með miklum afleiðingum. Arthur Björgvin Bollason sagði okkur frá málinu í Berlínarspjalli eftir morgunfréttirnar klukkan átta. Hann sagði okkur líka frá skólamálum og kröfugöngu á alþjóðlegum baráttudegi kvenna. Katrín prinsessa af Wales kom sér í klandur um helgina þegar hún birti það sem virtist vera sakleysisleg mynd af henni og börnum sínum þremur. Myndin var þó fljótlega tekin úr umferð af helstu fréttaveitum enda talið að átt hefði verið við hana með myndvinnsluforriti og Katrín þurfti síðan að biðjast afsökunar á birtingunni. Við ræddum myndbirtingar og hverju er hægt að treysta við þau Kjartan Þorbjörnsson, Golla, fréttaljósmyndara og Svanhildi Grétu Kristjánsdóttur ráðgjafa og ljósmyndara. Cilla Black - Anyone Who Had a Heart. When sunny gets blue - Kristjana Stefánsdóttir. Ich hab die Schnauze voll von rosa - Suli Puschban
Við rákum augun í grein á visir.is, afskaplega áhrifaríka og fallega sögu þar sem ung kona, Fanney Ýr Gunnlaugsdóttir, fann blóðmóður sína í gegnum lygilega atburðarás. Fanney var ættleidd frá Sri Lanka til Íslands sem ungabarn árið 1985. Fanney ólst upp á Akranesi og býr þar enn ásamt eiginmanni og börnum. Foreldrar hennar töluðu alltaf mjög opið um ættleiðinguna og það var aldrei neitt feimnismál að ræða allar þær spurningar sem hún hafði um uppruna sinn og þau voru að auki með upplýsingar sem hún mátti skoða, fæðingarvottorð og heilsufarsupplýsingar sem fylgdu með henni í ættleiðingunni. Með aldrinum fóru spurningar og áhugi um fortíð hennar að aukast, til dæmis í sambandi við blóðmóður hennar og jafnvel að ná sambandi við hana. Þegar Fanney svo horfði á sjónvarpsþættina Leitin að upprunanum í umsjón Sigrúnar Óskar Kristjánsdóttur á Stöð 2 þá kviknaði á einhverju hjá henni sem setti af stað atburðarrásina sem við nefndum í upphafi sem leiddi til þess að hún fann blóðmóður sína. Fanney Ýr kom til okkar í dag og sagði okkur sína sögu í þættinum í dag. Svo kom Ólafur Wallevik, prófessor í iðn- og tæknifræði við Háskólann í Reykjavík, til okkar og fræddi okkur um það að lofta út, en hann segir að Íslendingar kunni það ekki jafn vel og margar aðrar þjóðir. Ef það er ekki vel gert þá geti það valdið rakaskemmdum og skaðlegu innilofti. Ólafur fræddi okkur um mikilvægi þess að lofta rétt út í þætti dagsins. Tónlist í þættinum: Við erum eins / Halli Reynis (Haraldur Reynisson) Knowing me knowing you/Kristjana Stefánsdóttir (Björn Ulveas og Benny Abba) Saturday Sun / Nick Drake (Nick Drake)
Alexei Navalny hefur bæst í hóp andstæðinga Pútíns Rússlandsforseta sem deyja – beint eða óbeint - vegna andstöðunnar við forsetann. Við fórum yfir nokkur dæmi um þessi andlát þegar Bogi Ágústsson settist við Heimsgluggann. Við ræddum líka um nýja stefnu Grænlands í utanríkis-, öryggis- og varnarmálum þar sem stefnt er að aukinni samvinnu meðal annars við Ísland. Margar spurningar hafa vaknað tengdar virði og mati á fasteignum í tengslum við uppkaup ríkisins á íbúðahúsnæði í Grindavík. Um 600 umsóknir um endurmat á brunabótamati hafa borist vegna eigna í bænum. Tryggvi Már Ingvarsson framkvæmdastjóri fasteigna hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnum ræddi við okkur um brunabótamat og umsögn stofnunarinnar um frumvarp um uppkaup fasteigna í Grindavík. Heiða Kristín Helgadóttir, framkvæmdastjóri Íslenska sjávarklasans ræddi við okkur um nauðsyn þess að efla nýsköpun í bláa hagkerfinu - í sjávarútvegi. Þó margt hafi breyst til hins betra í nýtingu fiskafurða má enn gera betur. Hún sagði okkur líka frá stefnumóti fjárfesta og frumkvöðla hjá Sjávarklasanum og fleiri verkefnum sem miða að því að tengja saman hugmyndir og peninga í bláa hagkerfinu. Bye, bye blackbird - Kristjana Stefánsdóttir Årets gang -Sigurður Flosason, Cathrine Legardh Zaz - Sous le ciel de Paris
Barnaheill – Save the Children á Íslandi eru frjáls félagasamtök sem hafa í 35 ár unnið að mannréttindum barna víðs vegar um heiminn. Tótla I. Sæmundsdóttir, nýr framkvæmdastjóri Barnaheilla kom í þáttinn í dag og sagði okkur frá helstu verkefnum samtakanna um þessar mundir, til dæmis á vettvangi í Gaza og Tyrklandi, eftir að stóri jarðskjálftinn reið þar yfir. Hún er nýkomin af fundi framkvæmdastjóra samtakanna í Istanbul þar sem verið var að leggja línurnar fyrir árið og þau verkefni sem samtökin ætla að leggja á og hún sagði okkur frá því í viðtalinu. Ástvaldur Zenki Traustason kom svo í þáttinn og talaði við okkur um heilsuna, Zenbúddisma og tónlist. Hann er með tónleika sem hann nefnir Stefnumót við lífið. Hann sagði okkur betur frá þessu. Að lokum kom til okkar Dr. María Rún Bjarnadóttir, yfirmaður netöryggismála hjá ríkislögreglustjóra, en hún kynnti í gær rannsóknarniðurstöður frá Íslandi, Danmörku og Svíþjóð þar sem varpað var ljósi á gerendur í málum sem snúa að stafrænu kynferðisofbeldi. Gerendur voru kortlagðir út frá aldri, kyni og tengslum þeirra við þolendur og svo voru hvatarnir á bak við brotin skoðuð. María Rún sagði okkur frá helstu niðurstöðunum í þættinum. Tónlist í þættinum í dag: Borð fyrir tvo / Hjálmar (Bragi Valdimar Skúlason) Faðmlag / Kristjana Stefánsdóttir ( Kristjana Stefánsdóttir og Bergur Þór Ingólfsson) Gleym mér ei / Lay Low (Bubbi Morthens) Hagi / Þorgrímur Jónsson (Þorgrímur Jónsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Í þættinum eru leikin lög úr ýmsum áttum, ný og gömul. Fyrsta lagið heitir Draumsýn og er eftir Hörpu Þorvaldsdóttur. Hún syngur það með saxófónleikaranum Kristni Svarssyni og félögum. Hún syngur tvö frumsamin lög til viðbótar með hljómsveitinni Brek, en það eru lögin Athvarf og Soaring Crow. Kristinn Svavarsson og Kristjana Stefánsdóttir flytja lagið Í fjarska eftir Kristinn og hann leikur svo lagið Samferða eftir Magnús Eiríksson. Pálmi Gunnarsson syngur tvö lag, annarsvegar Ég skal breyta heiminum og hinsvegar Í tímavél. Síðan syngur Mjöll Hólm lögin Gamli rokkarinn og Vornætur eftir Ingva Þór Kormáksson og lokalagið er Næturljóð - Gleymdu því aldrei góð sem Hjördís Geirsdóttir syngur. Umsjón: Jónatan Garðarsson.
Þórarinn Eyfjörð, formaður Sameykis, var gestur þáttarins í dag. Rætt var um kjaramálin vítt og breitt og ástand og horfur í samfélaginu. 130 ár eru í dag frá stofnun Hins íslenska kvenfélags. Af því tilefni kom Erla Hulda Halldórsson, prófessor í sagnfræði við HÍ, og ræddi um upphaf jafnréttisbaráttunnar og helstu baráttumálin fyrstu árin. Styttan af séra Friðriki var í vikunni færð af stallinum í miðborg Reykjavíkur og sett í geymslu. Anna María Bogadóttir, arkitekt og menningarfræðingur, ræddi um styttur vítt og breitt. Umsjón í dag Björn Þór og Eyrún. Tónlist: Esjan - Bríet, Bara að hann hangi þurr - Hljómsv. Ingimars Eydal, Í Reykjavíkurborg - Kristjana Stefánsdóttir, Mack the knife - Bobby Darin.
Þær hamfarir sem nú ganga yfir í Grindavík og nágrenni eru af þvílíkri stærðargráðu að það er eiginlega ómögulegt að setja sig í spor íbúana en eins og einn íbúi sagði um helgina, það er helst að þau sem upplifðu gosið í Vestmanneyjum gætu það. Við fáum þrjá íbúa Grindavíkur til að koma til okkar í hljóðstofu hér í upphafi þáttar en það eru þau Páll Þorbjörnsson fasteignasali, Bryndís Gunnlaugsdóttir lögfræðingur og fyrrum bæjarfulltrúi í Grindavík og Haukur Guðberg Einarsson formaður knattspyrnudeildar UMFG. Þau fóru með okkur yfir stöðuna í dag, bæði hjá þeim persónulega og hjá samfélaginu öllu í Grindavík. Við kynntum okkur svo verkefni sem heitir Tala og spila, sem eru viðburðir sem fara fram í Kópavogi og eru hugsaðir sem notaleg samverustund til að fólk úr ólíkum áttum og úr viðkvæmum samfélagshópum geti kynnst og valdeflst. Vigdís Másdóttir, kynningar og markaðsstjóri MEKÓ, Auður Loftsdóttir, leiðbeinandi sem heldur utan um verkefnið, Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir stofnandi Getu hjálparsamtaka og Maria Gabríella Flores, sem er sjálfboðaliði á viðburðunum, komu í þáttinn. Tónlist í þættinum í dag: Vinátta okkar / Eyjólfur Kristjánsson (Eyjólfur Kristjánsson og Aðalsteinn Ásberg) Ariette / Dag Arnesen trio (Edward Grieg) Undir rós / Egill Ólafsson og Kristjana Stefánsdóttir (Egill Ólafsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Við fáum nýjan forseta 1. ágúst - Guðni Th. Jóhannesson gefur ekki kost á sér til endurkjörs. Hann upplýsti um ákvörðun sína í nýársávarpinu í gær. Um þá ákvörðun fjölluðum við klukkan hálf níu - sem og áramótaávarp Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra á gamlársdag. Eva Heiða Önnudóttir, prófessor við stjórnmálafræðideild Háskólans, var gestur okkar. Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Heimildarinnar, kom líka til okkar. Við spjölluðum um peninga í dag; meðal annars um þær breytingar sem gengu í gildi á skattkerfinu um áramót, þá fjármuni sem verkalýðshreyfingin vill að ríkið leggi af mörkum svo kjarasamningar takist í góðri sátt og plús og mínus tölur í Kauphöllinni. Þá var Berlínarspjall á sínum stað og í dag fór Arthúr Björgvin Bollason yfir það sem hæst bar í þýsku þjóðlífi á nýliðnu ári og sagði frá væntingum Þjóðverja til nýja ársins. Tónlist: Ragnar Bjarnason, Sigrún Jónsdóttir - Ljúfa vina. Svavar Knútur Kristinsson, Kristjana Stefánsdóttir - Hjá lygnri móðu. Holly, Buddy - Heartbeat. In a sentimental mood ? Duke Ellington & John Coltrane Blue in Green - Miles Davies

Í fyrsta viðtali dagsins var rætt við Guðmund Magnússon sagnfræðing um séra Friðrik en bók hans um æskulýðsleiðtogann hefur vakið mikla athygli vegna upplýsinga um kynferðislegar hneigðir hans. Einkum var í viðtalinum fjallað um æsku Friðriks en hann fæddist inn í blásnauða fjölskyldu norður í landi. Færa á nám í skapandi sjálfbærni í Hallormsstaðaskóla á háskólastig. Bryndís Fiona Ford skólameistari sagði frá skapandi sjálfbærni og lífinu á Hallormsstað. Tæknin þróast hratt, ekki síst gervigreindin. Framtíðarnefnd Alþingis hefur fjallað um hana og efnir til málstofu um efnið í dag. Lilja Rannveig Sigurgeirsóttir, alþingismaður og formaður framtíðarnefndar þingsins, spjallaði um gervigreind og stjórnmál. Hún telur hana munu nýtast ræðuskrifa, upplýsingaöflunar og lagasetningar í framtíðinni. Tónlist: Blús í G - Mannakorn, Hagavagninn - Stórsveit Reykjavíkur, Við Vatnsmýrina - Kristjana Stefánsdóttir og Svavar Knútur, Rise up - Júníus Meyvant. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Eyrún Magnúsdóttir.

Við fjölluðum um utanríkisstefnu Íslands í þættinum í dag. Til hennar er annað slagið vitnað og talsvert var um það í tengslum við fræga hjásetu Íslands í atkvæðagreiðslu í Sameinuðu þjóðunum um ályktun vegna átakanna fyrir botni Miðjarðarhafs. En hver er utanríkisstefna Íslands? Er hún til; meitluð í stein og nær yfir helstu álitamál eða er hún kvik í samræmi við hvernig vindar blása í heiminum? Við veltum þessu fyrir okkur með Baldri Þórhallssyni, prófessor við Háskóla Íslands. Utanríkismál Íslands voru einnig á dagskrá eftir Morgunfréttirnar. Ísland á - ásamt Noregi og Liechtenstein - í deilum við Ungverja vegna styrkjamál á vettvangi Evrópusamstarfs. Þau mál verða líklega rædd á fundi Ráðherraráðs EES samningsins í Brussel í dag. Björn Malmquist, fréttamaður í Brussel, sagði frá og ræddi við Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, sem er stödd í Brussel sem hluti af þingmannanefnd. Í síðasta hluta þáttarins var fjallað um völvur. En út er komin bókin Völvur á Íslandi eftir séra Sigurð Ægisson. Sigurður fékk áhuga á völvum þegar hann þjónaði austur á landi fyrir næstum 40 árum og hefur nú loksins lokið við að skrifa um þær bók. Við hringdum í Sigurð til Siglufjarðar þar sem hann hefur þjónað í rúm tuttugu ár. Tónlist: Stewart, Rod - My cherie amour. Una Torfadóttir - Flækt og týnd og einmana. Kristjana Stefánsdóttir - Hvar er tunglið?.

Árás á spítala á Gaza fyrr í vikunni vakti upp gríðarlega reiði og hefur verið fordæmd sérstaklega. Ástæðan er ekki síst sú að það má ekki sprengja upp sjúkrahús - ekki heldur í stríði. Í stríði gilda nefnilega reglur. Hvað má og hvað má ekki? Og hvenær er stríð stríð? Við fórum yfir það með Kára Hólmari Ragnarssyni, lektor í lögfræði við Háskóla Íslands. Það getur verið erfitt fyrir sálina að fylgjast með hörmungum heimsins, hvort sem er vegna frétta hér heima eða úti í heimi. Hvernig er best fyrir okkur að takast á við þetta? Þóra Sigfríður Einarsdóttir sálfræðingur ræddi þetta við okkur. Við fórum yfir í allt önnur mál í síðasta hluta þáttarins. Þá töluðum við um bækur. Við rýndum í jólabækurnar og greinum jólabókaflóðið sem er á næsta leiti með þeim Önnu Leu Friðriksdóttur bókaútgefanda hjá Sölku og Kolbrúnu Ósk Skaftadóttur bókastjóra hjá Bókabeitunni. Umsjón: Eyrún Magnúsdóttir og Þórunn Elísabet Bogadóttir Tónlist: Miller, Glenn and his Orchestra, Eberle, Ray - It's a blue world. Sálgæslan Hljómsveit - Út í myrkrið. Tolentino, Ife - Distante Canção. Svavar Knútur Kristinsson, Kristjana Stefánsdóttir - Þín hvíta mynd. Haden, Charlie, Jarrett, Keith - Don't ever leave me.

Fyrstu gestir okkar voru alþingismenn; til okkar komu Diljá Mist Einarsdóttir og Logi Már Einarsson. Við töluðum einkum um utanríkismál og afstöðu þeirra til þess sem er að gerast í heiminum þessi dægrin, en bæði sitja í utanríkismálanefnd þingsins. Við héldum líka áfram umfjöllun um aðgerðir stjórnvalda til að styrkja fámennari byggðarlög í landinu í gegnum verkefnið Brothættar byggðir. Fyrir liggur úttekt á árangrinum sem kynnt var á málþingi á Raufhöfn í gær. Helga Harðardóttir og Kristján Halldórsson hjá Byggðastofnun ræddu þessi mál. Nú stendur alþjóðleg kennaravika og sjálfur Kennaradagurinn var í gær. Af því tilefni kom formaður Kennarasambandsins, Magnús Þór Jónsson, til okkar. Við spjölluðum við hann um allt það góða og jákvæða við kennarastarfið - létum leiðindi á borð við kjaramál, álag og erfiða foreldra eiga sig að þessu sinni. Tónlist: Haynes, Roy, Malachi, John, Benjamin, Joe, Vaughan, Sarah - They can't take that away from me. Hammond, Albert - It never rains in southern California. Kristjana Stefánsdóttir - Better days blues. Kristjana Arngrímsdóttir - Ég hitti þig.

Briskrabbamein eru erfið viðureignar og þrátt fyrir að vera um einungis 2% af þeim krabbameinum sem greinast á hverju ári hér á landi eru þau fjórða algengasta orsök dauðsfalla af völdum krabbameina. Afar brýnt er að finna leiðir til að auka lifun þeirra sem fá briskrabbamein, meðal annars með því að greina meinin snemma, þegar skurðaðgerð er enn líkleg til árangurs. Ein leiðin til þess er að bæta eftirlit með einstaklingum sem vitað er að eru í hárri áhættu á að fá briskrabbamein út frá erfðaþáttum. Á Landspítalanum er hafinn undirbúningur að slíku eftirliti. Við töluðum við Sigurdísi Haraldsdóttur yfirlækni krabbameinslækninga á Landspítalanum og dósent við Háskóla Íslands í þættinum í dag. Lýðræðið og samfélagsmál verða rauður þráður Lýðræðishátíðarinnar Fundur fólksins verður haldinn á morgun og hinn í við Norræna húsið. Hátíðin er sú áttunda í röðinni og á henni verða fjölbreyttar umræður um fjölbreytt málefni, allt frá ull til dánaraðstoðar. Tilgangur hennar er að skapa vettvang til samtals milli almennings, stjórnmálafólks og frjálsra félagasamtaka. Ingibjörg Gréta Gísladóttir, verkefnastjóri Fundar fólksins sagði okkur meira um fundinn og hvað þar fer fram og með henni kom Ingrid Kuhlman, formaður Lífsvirðingar félags um dánaraðstoð, hún sagði okkur frá tveimur viðburðum sem félagið verður með á fundinum. Við fræddumst svo um ráðstefnuna Eldri og betri, á vegum Sóltúns heilbrigðisþjónustu, sem stóð einmitt yfir í Norðurljósasal Hörpu á sama tíma og þátturinn var í loftinu. Þar var rætt um mögulegar lausnir á áskorunum framundan til þess að geta mætt og sinnt þörfum ört stækkandi hóps aldraðra hér á landi. Sérfræðingar í öldrunarþjónustu fóru yfir stöðuna ásamt því sem erlendir sérfræðingar deildu reynslu af því hvernig önnur lönd gera í þessum málaflokki. Við fengum Höllu Thoroddsen, forstjóra Sóltúns heilbrigðisþjónustu, til að segja okkur frekar frá því helsta sem er rætt um á ráðstefnunni. Tónlist í þættinum Í löngu máli / Una Torfadóttir (Una Torfadóttir) From The Start / Laufey (Laufey & Spencer Stewart) Something Better / Kári (Kári Egilsson) Árstíðirnar þrjár / Karl Olgeirsson og Kristjana Stefánsdóttir (Karl Olgeir Olgeirsson) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Við fræddumst um ADHD og konur í þættinum í dag. Rannsóknir frá nágrannalöndum okkar sýna að 50-70% stúlkna eru án greiningar og mjög margar konur fá greiningu fyrst á fullorðinsaldri. ADHD einkenni sem eru ógreind og ómeðhöndluð geta haft miklar og neikvæðar afleiðingar á líf kvenna, félagsleg samskipti og sjálfsmynd. ADHD á kvennamáli er heiti á nýju námskeiði sem ADHD markþjálfarnir Kristbjörg Kona Kristjánsdóttir og Sigrún Jónsdóttir bjóða uppá. Þar er lögð áhersla á að skoða ADHD á jákvæðan hátt og horfa til styrkleika, tækifæra og sjálfsmildis. Kristbjörg og Sigrún komu í þáttinn í dag. Svo fjölluðum við um þáttöku- og upplifunarverk sem hefur göngu sína í Heiðmörk um helgina þar sem þáttakendum er boðið í eins konar listræna útgáfu af hlutverkaspili sem er lýst sem völundarhúsi af ólíkum upplifunum í skóginum. Þóranna Björnsdóttir, tónskáld, er ein þeirra sem standa að þessu verki sem kallast Twisted Forest. Þóranna sagði okkur betur frá í þættinum í dag. Tónlist í þætti dagsins: Musik skal byggas utav gledje / Lill Lindfors (Björn Barlach og Anders Ekdahl) Leiðin okkar allra / Hjálmar (Þorsteinn Einarsson og Einar Georg Einarsson) Knowing me knowing you /Kristjana Stefánsdóttir (Benny Anderson, Björn Ulvaeus og Stig Anderson) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Við fjölluðum meðal annars um vatn í þættinum í dag. Nýverið var greint frá því að Jón Ólafsson athafnamaður og sonur hans Kristján hefðu selt erlendum fjárfestum drjúgan hlut í vatnsátöppunarfyrirtæki sínu Icelandic Water Holdings. Við þessi tíðindi vakna spurningar um vatnið; eignarhald og aðgengi, mikilvægi og verðmæti. Halla Hrund Logadóttir orkumálastjóri spjallaði um vatn, vítt og breitt. Tæplega 200 Rótarý-félagar komu saman til Umdæmisþings á Sauðárkróki um helgina. Rótarý-hreyfingin hefur starfað í 118 ár og tæp 90 á Íslandi. Hún stendur fyrir mannúðar- og menningarstarfi og hvetur til góðvildar og friðar. Við ræddum við Ómar Braga Stefánsson, umdæmisstjóra Rótarý, um gildin og starfið. Kona var nefnd Valgerður Skaftadóttir. Hún fæddist 1762, hún var frá Hofi í Norður-Múlasýslu. Valgerður var langa-langa-langa-langa-langamma Nönnu Rögnvaldardóttur matarsögugrúskara. Fátt var vitað um Valgerði en fyrir nokkru lagðist Nanna í heimildaöflun um þessa formóður sína og ýmislegt merkilegt kom í ljós. Frá því segir Nanna á Kakalaþingi í Skagafirði á laugardaginn en fyrst gerði hún það stuttlega hér á Morgunvaktinni. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir Tónlist Stevens, Cat - Moonshadow. Newton, Juice - Angel of the morning. Olsen, James, Tríó Björns Thoroddsen, Kristjana Stefánsdóttir - Barmahlíð. Gammar - Mongo. Gammar - Bright colors.

Leikin eru nýleg íslensk lög sem fjórar tónlistarkonur flytja ásamt aðstoðarfólki sínu. Marína Ósk Þórólfsdóttir flytur lögin Léttfætt og The moon and the Sky, sem eru bæði eftir hana. Rebekka Blöndal flytur lögin Sólarsamban og Lítið ljóð af fyrstu sólóplötu sinni. Marína Ósk og Rebekka syngja saman lagið Góða kík't í kaffi. Kristjana Stefánsdóttir flytur tvö lög, annarsvegar Slyddublús og hinsvegar Árstíðirnar þrjár. Ragnheiður Gröndal syngur tvö lög sem Jóhann Helgason samdi við ljóð Þórarins Eldjárn og þau heita Naflafugl og Sjúðagoggurnar. Umsjón: Jónatan Garðarsson.

Sameiginlegur narsissismi er hugtak sem hefur rutt sér til rúms undanfarin ár og vísar til útblásinnar trúar einhvers á ágæti hóps sem viðkomandi tilheyrir. Bjarki Þór Grönfeldt lektor við Háskólann á Bifröst hefur rannsakað fyrirbærið og sagði frá. Á morgun er 17. júní, lýðveldisdagurinn, og ýmiss konar dagskrá um allt land í tilefni af því. 17. júní er auðvitað frídagur, en á morgun ber hann hvort sem er upp á frídag. Jón Þorvaldur Heiðarsson, lektor við Háskólann á Akureyri, er talsmaður þess að breyta frídagafyrirkomulagi okkar, hann ræddi málið. Á sagnavöku Þjóðdansafélags Reykjavíkur eru sungin fornkvæði og vikivaki stiginn. Gestir eru hvattir til að mæta með skotthúfur. Meðal skipuleggjenda sagnavökunnar eru Atli Freyr Hjaltason þjóðfræðingur og Karl Friðrik Hjaltason tónlistarmaður, þeir voru gestir Morgunvaktarinnar og sögðu frá þjóðdansamenningu. Tónlist: Húfan dýra - Anna Pálína Árnadóttir & Draupner Hverjum hefði getað dottið í hug - Kristjana Stefánsdóttir og Svavar Knútur Murr Murr - Mugison Umsjón: Vera Illugadóttir og Þórunn Elísabet Bogadóttir.

Guðríður Helgadóttir garðyrkjufræðingur kom í þáttinn í dag og fór yfir vorverkin og það sem sniðugt er að gera á þessum árstíma í garðinum eða jafnvel á svölunum. Hvað ber að hafa í huga til dæmis þegar kemur að því að klippa tré og runna, setur næturfrostið strik í reikninginn þegar kemur að því að hreinsa beðin? Guðríður svaraði því í þættinum og sagði einnig frá opnu húsi í Garðyrkjuskólanum við Hveragerði sem er einmitt alltaf á Sumardaginn fyrsta. Þar verður kaffisala, markaðstorg og börn geta farið á hestbak ásamt ýmsu öðru. Svo spurðum við Guðríði líka út í nýju bókina, Fjölærar plöntur. Það verður æ algengara að fólk, til dæmis sem komið er á eftirlaun, ákveði að búa hluta ársins og jafnvel allt árið á hlýrri slóðum, til dæmis á Spáni. Dóra Stefánsdóttir, sérfræðingur í starfsmenntun, fór á eftirlaun fyrir ári síðan og ákvað með eiginmanni sínum, Stefáni Rafni Geirssyni, að dvelja nokkra mánuði á Kanaríeyjum í vetur. Þau eru nýkomin heim og við ákváðum að forvitnast um dvölina þar ytra og heyrðum í Dóru í þættinum. Lög í þættinum í dag: Komdu / Hraun (Hraun og Svavar Knútur) Hinn elskulegi garðyrkjumaður / Kristjana Stefánsdóttir (Páll Torfi Önundarson) My Sweet Lord / George Harrison (George Harrison) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Kristjana og Karl segja frá Ellu Fitzgerald og gleyma sér í því að tala um þá dásamlegu söngkonu.

Umræða hefur skapast um mannréttindi fólks á hjúkrunarheimilum í kjölfar viðtals í Silfrinu við Sigrúnu Huld Þorgrímsdóttur. Þar kom fram að nauðungt væri oft og víða beitt. Slíkt er ólölegt að sögn Brynhildar G. Flóvenz. Hún er dósent í lögum við HÍ og formaður nefndar er veitir undanþágur frá beitingu nauðungar í starfi með fötluðu fólki. Í Heimsglugganum fjallaði Bogi Ágústsson um nýafstaðnar kosningar í Bandaríkjunum og væntanlegar kosningar í Færeyjum. Góð hljóðvist er mikilvæg og eigendum húsa ber að tryggja góða hljóðvist samkvæmt lögum og reglum. Ólafur Hafstein Pjetursson verkfræðingur sagði frá áhrifum slæmrar hljóðvistar á fólk og rétti fólks til að njóta góðrar hljóðvistar. Tónlist: Þú ein - Hljómar, Öldur rísa - Gautar, Faðmlag - Svavar Knútur og Kristjana Stefánsdóttir, An ending - Brian Eno. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Gígja Hólmgeirsdóttir.

Lög eftir erlenda höfunda í flutningi íslenskra söngvara og hljómsveita. Flytjendur eru m.a. Óskar Pétursson, Stjórnin, Trap, Gullfoss, Aldís Fjóla Borgfjörð Ásgeirsdóttir, Kristjana Stefánsdóttir og Djúsí.

Hagar er stærsta fyrirtæki landsins á smásölumarkaði. Undir hatti þess eru næstum fjörutíu verslanir og 25 bensínstöðvar. Reksturinn gengur vel, hagnaðurinn á síðasta ári var um fjórir milljarðar króna og hagnaðurinn á fyrstu mánuðum þessa árs tæpur milljarður. Líklegt verður að telja að drjúgur hluti landsmanna skipti við Haga, stundum eða reglulega; með innkaupum í Bónus eða Hagkaup eða með bensínkaupum hjá Olís. Finnur Oddsson, forstjóri Haga, var gestur okkar. Kristján Sigurjónsson ritstjóri Túrista var með okkur í dag að vanda og ræddi mál tengd ferðalögum og ferðaþjónustu. Hvaða áhrif hafa versnandi efnahagsástands og orkuskortur á greinina? Við spyrjum að því. Og líka hvort útlit sé fyrir að margt fólk leggi leið sína til Katar til að horfa á leiki á Heimsmeistaramótinu í knattspyrnu sem hefst þar eftir rúman mánuð. Bændur og fleiri koma saman á Hóteli við Suðurlandsbraut í Reykjavík í dag og ræða saman um áskoranir og framtíðarverkefni landbúnaðarins. Og hvernig verður landbúnaðurinn í framtíðinni? Hann verður grænn. Græn framtíð er í það minnsta yfirskrift fundarins í dag. Ein af þeim sem flytur erindi á málþinginu er Eygló Björk Ólafsdóttir, bóndi í Vallanesi á Héraði. Hún kom og ræddi græna framtíð landbúnaðarins. Landbúnaður var einnig til umfjöllunar í upphafi þáttar. Spiluð var upptaka úr safni útvarpsins sem Jónas Jónsson þáverandi Búnaðarmálastjóri flutti þann 1. janúar 1981. Tónlist: Baby I'm Yours - Bargara Lewis Every Grain of Sand - Bob Dylan Le long de la route - Zaz Hinn elskulegi garðyrkjumaður - Kristjana Stefánsdóttir Umsjónarmenn: Björn Þór Sigbjörnsson og Gígja Hólmgeirsdóttir

Fyrir tveimur vikum var Margrét Sigfúsdóttir, fyrrverandi skólastýra Hússtjórnarskólans, sérfræðingur þáttarins þar sem hún svaraði spurningum sem hlustendur höfðu sent inn um allt sem viðkom heimilishaldi. Innkaup, þrif, matseld og svo framvegis. Spurningarnar voru svo margar að hún náði ekki að komast í gegnum þær allar, því var hún hjá okkur aftur í dag. Hún tók upp þráðinn frá því síðast og kláraði þær spurningar sem eftir voru og svo svaraði hún fleiri spurningum sem hlustendur höfðu sent okkur. Svo fengum við þær Ragnhildi Gunnarsdóttur og Guðrúnu Rútsdóttur til að segja okkur frá PCOS, eða fjölblöðrueggjastokkaheilkenni, sem ekki margir vita hvað er, en er einn algengasti innkirtlasjúkdómur hjá konum. PCOS samtökin standa fyrir fræðslufundi í kvöld og þær sögðu okkur frá fundinum og fræddu okkur um þetta heilkenni í þættinum. Tónlist í þættinum í dag: Saumakonuvalsinn / Pálmi Gunnarsson (Jón Jónsson og Hreiðar E. Geirdal) Lene Májjá / Mari Boine (Mari Boine, Svein Schultz, Ole Jörn Myklebust) Like an angel passing through my room / Svavar Knútur og Kristjana Stefáns(Benny Andersson og Björn Ulvaeus) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG ÞORGERÐUR ÁSA AÐALSTEINSD.

Kristjana Stefáns sönkona segir frá því þegar hún uppgötvaði að hún gæti sungið jass.