POPULARITY
Milljarðamæringurinn Elon Musk sagði í síðustu viku að efnahagskreppa væri í vændum, en það væri af hinu góða því peningum hafi rignt yfir vitleysinga í of langan tíma. Ýmsar hagtölur eru áhugaverðar þessa dagana og við ræddum efnahagsmálin við Hafstein Hauksson, greinanda hjá Kvikubanka í Lundúnum, en hann hefur fylgst með þróuninni þar og annars staðar. Mikil umræða hefur skapast um grein Stundarinnar þar sem dregin eru í efa gæði þeirrar læknismeðferðar sem trans börnum og ungmennum býðst hér á landi. Greinin hefur meðal annars verið gagnrýnd fyrir vísun í óáreiðanleg vísindi og viðmælendaval sem endurspeglar ekki færustu sérfræðinga landsins í málefnum trans barna. Einn andmælenda greinarinnar er Sigríður Birna Valsdóttir ráðgjafi hjá Samtökunum 78 og hún var gestur okkar. Tæplega 200 manns eru á lista stoðdeildar ríkislögreglustjóra yfir fólk sem á að vísa úr landi. Þar af eiga 44 að fara til Grikklands, en flóttabörnum sem vísað er til Grikklands bíður líf sem er engu barni bjóðandi, samkvæmt nýrri skýrslu Rauða kross Íslands. Íris Ellenberger, sagnfræðingur og dósent við Menntavísindasvið Háskóla Íslands, hefur rannsakað fólksflutninga í gegnum tíðina, og við ræddum við hana um söguna í þessu samhengi. Vinnuvika yfir 3000 starfsmanna í 60 fyrirtækjum í Bretlandi styttist úr fimm í fjóra daga í næsta mánuði. Fyrirtækin taka þátt í tilraunaverkefni næstu sex mánuði en sambærilegar tilraunir hafa til að mynda verið gerðar hér á landi og víðar. Íslendingar hafa í gegnum tíðina unnið mun lengri vinnudag en þær þjóðir sem við berum okkur saman við, en samið var um styttingu vinnuvikunnar í mörgum kjarasamningum árið 2020. Nokkuð hefur hins vegar verið deilt um hvernig til hefur tekist að stytta vinnuvikuna hér á landi og við ræddum þau mál við Sonju Ýri Þorbergsdóttur, formann BSRB. Við höfum verið dugleg að fjalla um alls kyns göngur á hálendinu, en það er nú líka þannig að sum kjósa að ferðast um óbyggðir akandi. Nýlega kom út uppfærð útgáfa Hálendishandbókarinnar sem hefur um árabil reynst góður ferðafélagi þeirra sem ferðast um hálendið. Við fengum höfundinn Pál Ásgeir Ásgeirsson til okkarGunnar Birgisson íþróttafréttamaður leit við og fór yfir það helsta af íþróttum helgarinnar. Tónlist: Guðmundur R. - Finnum út úr því. Michael Kiwanuka - One more night. Helena Eyjólfsdóttir - Reykur. Purple Disco Machine - In the dark. Moses Hightower og Prins Póló - Maðkur í mysunni. First Aid Kit - My silver lining. Creedence Clearwater Revival - Have you ever seen the rain. John Grant - Pale Green Ghosts.

Reykjanesbær leitar nú eftir nöfnum sem enda á -dalur og eru til sóma fyrir nýtt hverfi, svokallað Dalshverfi 3 sem er í Innri-Njarðvík. En hvað má og hvað má ekki í nafnagiftum á götum í bæjarfélögum? Eysteinn Eyjólfsson er formaður Umhverfis- og skipulagsráðs Reykjanesbæjar. Hann var á línunni. Íslendingar áttu aðeins fjóra keppendur á Ólympíuleikunum í Tókýó sem nú standa yfir, en við áttum líka tvo dómara sem dæmdu fimleika, þau Björn Magnús Tómasson og Hlín Bjarnadóttur. En hvernig starf er þetta, hvernig er skipulagið á leikunum og hvernig er stemming á staðnum? Hlín var á línunni hjá okkur, en hún var á heimferð og stödd á Heathrow flugvelli í London. Næstkomandi föstudag og laugardag ætlar Bjarni Harðarson bóksali og rithöfundur að skemmta gestum Hellanna við Hellu þar sem hann freistar þess að leysa ráðgátuna um uppruna Íslendinga í keltneskri eldmessu. Áleitnum spurningum verður varpað fram, t.d. hvort að Gunnar á Hlíðarenda hafi verið írskur prins? Við slógum á þráðinn til Bjarna sem sagði okkur meira af þessu forvitnilega neðanjarðar uppistandi. Stutt er í að skólastarf hefjist en margt er óljóst enn varðandi skólana, í ljósi stöðu covid faraldursins um þessar mundir. Starfsfólk skólanna er boðað í viðbótarbólusetningu um þessar mundir, en í gær sagði heilbrigðisráðherra að engar takmarkanir yrðu á skólastarfi og undirbúningur ætti að miðast við það. Við heyrðum í Þorsteini Sæberg formanni Skólastjórafélagsins um þessi mál. Metfjöldi hefur greinst með Covid-19 undanfarna daga hafa tölurnar aldrei verið hærri hér á landi. Metfjöldi hefur líka mætt í sýnatökur og mikið mæðir á starfsfólki þar. Sú sem ber hitann og þungann af að halda utan um allt skipulag varðandi sýnatökur er Ingibjörg Steindórsdóttir verkefnastjóri sýnatöku hjá Heilsugæslunni á höfuðborgarsvæðinu. Við spurðum Ingibjörgu meðal annars hvort skimunum hafi fjölgað nú í kjölfar verslunarmannahelgarinnar. Tónlist: Snorri Helgason - Haustið 97. Guðni Þór - Ive been waiting. Eyþór Ingi og Lay Low - Aftur heim til þín. Stuðmenn - Grái fiðringurinn. HAIM - The steps. Vök - Skin. Whitney Houston - One moment in time. Michael Kiwanuka - One more night.

Það hefur heldur betur reynt á mannauðsmál í heimsfaraldrinum sem m.a. ýtti úr vör ýmsum breytingum sem enginn átti von á strax. Við ræddum þennan málaflokk í tengslum við alþjóðlega mannauðsdaginn og til þess komu þær Ásdís Eir Símonardóttir og Íris Sigtryggsdóttir úr stjórn Mannauðs, félags mannauðsfólks á Íslandi. Við ræddum íslenskt mál við Önnu Sigríði Þráinsdóttur eins og flesta fimmtudaga og þar kom þróun stafsetningarreglna við sögu. Kringlan kynnti í gær viðamestu breytingar sem gerðar hafa verið á húsinu síðan að það var tengt saman við Borgarkringluna á sínum tíma. Um er að ræða algjöra breytingu á þriðju hæðinni þar sem er að finna bæði Bíóganginn svokallaða og Stjörnutorgið. Kostnaður hleypur á milljarði og mun taka um tvö ár. Sigurjón Örn Þórsson, framkvæmdastjóri Kringlunnar, kom til okkar til að fara yfir málið. Í dag hefst ráðherrafundur Norðurskautsráðsins í Reykjavík eins og flestum er kunnugt. En hvað er til umfjöllunar á þessum fundi, hverjir mæta og hverju skiptir fundurinn t.d. fyrir Ísland? Magnús Geir Eyjólfsson fréttamaður á RÚV kom til okkar og fór yfir málið. Á föstudaginn fara fram tónleikar í Eldborg í Hörpu þar sem hljómsveitin Korda Samfonia, sem verður til úr samfélagslegu tónlistarverkefni, heldur sína fyrstu tónleika. Korda Samfónía er skipuð 35 manns úr ólíkum áttum, samsett af hljóðfæraleikurum Sinfóníuhljómsveitar Íslands, nemendum Listaháskóla Íslands og skjólstæðingum Hugarafls og Starfsendurhæfingastöðva á Vestur og Suðvesturlandi. Sigrún Sævarsdóttir- Griffiths leiðir verkefnið og hún kemur til okkar ásamt Ásu Valgerði Sigurðardóttur sem tekur þátt. Tónlist: Helgi Björnsson - Ég fer á Land Rover frá Mývatni á Kópasker. Michael Kiwanuka - One more night. Á móti sól - Sæt. Gjons tear - Tout lunivers. Madness - It must be love. Kings of Convenience - Rocky trail. Valdís - Breathe. Stefán Hilmarsson - Hvernig líður þér í dag? Bjartmar og Bergisarnir - Á ekki eitt einasta orð.

Vetrarhátíð við Mývatn er framundan en hátíðin hefur skipað sér sess sem einn skemmtilegasti vetrarviðburður Norðurlands, að sögn viðburðahaldara. Stundaðar eru hefðbundnar sem og óhefðbundnar vetraríþróttir og þar á meðal er Íslandsmeistaramót Sleðahundaklúbbs Íslands svo eitthvað sé nefnt. Við hringdum í Anton Frey Birgisson, heimamann sem er forsvarsmaður skíðasvæðisins og eigandi Geotravel snjósleðaleigu og hann sagði okkur frá fjörinu í Mývatnssveit. Við ræddum íslenskt mál við Önnu Sigríði Þráinsdóttur málfarsráðunaut, m.a. örnefnin Fjörður og Nesjar sem og nýyrði á borð við óróapúls. Viktoría Hermannsdóttir dagskrárgerðarkona leitar nú að hvunndags hetjum fyrir nýja þætti sína. Hún kíkti við hjá okkur og sagði okkur um hvað málið snýst og hvert má snúa sér með ábendingar. Í dagskráliðinn fréttir vikunnar þennan föstudaginn fengum við tvo valinkunna fréttamenn sem nýlega skiptu um starfsvettvang. Þau Lára Ómarsdóttir, fyrrum fréttamaður á RÚV og í Kveik og Jóhann K. Jóhannsson, sem er aftur kominn á fréttastofu Stöðvar2 eftir nokkra mánuði hjá Almannavörnum. Og svo var það Hégómavísindahornið sívinsæla með Frey Gígju Gunnarssyni þar sem málefni bresku konungsfjölskyldunnar voru til umræðu. Tónlist: Jón Ólafsson - Frétt númer þrjú. Michael Kiwanuka - One more night. Nik Kershaw - The riddle. The Housemartins - Happy hour. U2 - Angel of Harlem. Queen - I want it all. Mono town - Peacemaker.

Ísbíllinn er órjúfanlegur hluti af sumrinu og er yfirleitt fagnað hvar sem hann fer, ekki síst á góðviðrisdögum. Hulda hitti á Ísbílinn í lok sólríks dags og spjallaði við Töru Mist Bjarkadóttur íssala sem segir það að selja Íslendingum ís sé frábært starf. Friðrik Agni Árnason hefur alltaf farið sínar eigin leiðir í lífinu. Hann hefur mætt mótlæti en líka skapað sín eigin tækifæri og aldrei gefist upp. Nú vill hann miðla sínum aðferðum með öðru fólki og hefur þess vegna sett saman fyrirlestur um þetta efni. Friðrik Agni settist hjá okkur í morgunkaffi og spjall. Nú styttist í skemmtilegasta tíma ársins hjá mörgum, þ.e. göngur og réttir. En líkt og svo margt annað í samfélaginu í dag þarf að aðlaga þessa árlegu hefð að sóttvarnarreglum sem nú gilda. Við heyrðum í Unnsteini Snorra Snorrasyni framkvæmdastjóra Landssamtaka sauðfjárbænda um hvernig fyrirkomulagið verður í ár. Margrét Kristmannsdóttir, framkvæmdastjóri Pfaff og fyrrverandi varaformaður SA, kom til okkar en í pistli í Fréttablaðinu á dögunum skrifaði hún um troðfull umslög af peningum. Hún vísar þar til laga sem átti að setja um að þrengja að svarta hagkerfinu meðal annars með því að takmarka notkun reiðufjár. Þessar hugmyndir voru umdeildar á sínum tíma en Margrét hvatti til þess í pistlinum að þessum hugmyndum yrði hrint í framkvæmd. Við fórum yfir íþróttir helgarinnar með Einar Erni Jónssyni íþróttafréttamanni, m.a. árangur Bayern Munchen í knattspyrnunni í ár, meistaradeild kvenna, boltann hér heima og landsleikina framundan. Tónlist: Orðin mín - Sigurður Guðmundsson og Memfismafían. Sting og Eric Clapton - Its probably me. Imelda May - Black tears (ft. Jeff Beck). Eyþór Ingi og Lay Low - Aftur heim til þín. Emilíana Torrini - Unemployed in summertime. Warmland - Family. Queen - Somebody to love. Hreimur - Lítið hús (ft. Fríða Hansen). Bruce Springsteen - Hello sunshine. Alice Merton - No roots. Michael Kiwanuka - One more night.

Aron Breki Daníelsson og Benjamín Heimisson eru 18 ára gamlir og ætla að ganga frá Mosfellsbæ að Borgarnesi um helgina ásamt tveimur vinum sínum, alls um 100 km leið. Þeir áætla að gangan muni taka um 48 tíma en þetta gera þeir til að styrkja föður Benjamíns sem greindist með fjórða stigs krabbamein á dögunum. Þeir komu til okkar. Snorri Sigurðsson býr og starfar í Peking ásamt eiginkonu sinni Kolbrúnu Önnu Örlygsdóttur. Þau hjón hafa lítið farið að heiman undanfarnar vikur sökum Covid 19 veirunnar, en mælst er til þess að fólk sé lítið á ferðinni og vinnuveitandi Snorra óskaði eftir því að fólk ynni heima í stað þess að mæta á skrifstofuna. Við slógum á þráðinn til Kína og heyrðum af lífinu í skugga veirunnar. Barnaheill standa fyrir verkefninu Út að borða fyrir börnin sem hófst sl. helgi. Þær Erna Reynisdóttir framkvæmdastjóri Barnaheilla og Linda Hrönn Þórisdóttir verkefnastjóri innlendra verkefna kíktu við hjá okkur og sögðu okkur frá þessu og fleiri verkefnum Barnaheilla sem leggja áherslu á vernd gegn ofbeldi á börnum. Við fjölluðum líka um mál Íranska transdrengins Maní Shahidi sem til stendur að vísa úr landi, en hann hefur sótt um alþjóðlega vernd hér á landi. Hann var lagður inn á BUGL vegna andlegra veikinda og um átta þúsund manns hafa skrifað undir undirskriftalista honum til stuðnings. Hanna Katrín Friðriksson tók málið upp á alþingi í gær og hún ræddi þetta við okkur og einnig Elínborg Harpa Önundardóttir frá samtökunum No Borders. Guðmundur Jóhannsson var á sínum stað með tíðindi af tækni og þar var Elon Musk í brennidepli. Tónlist: Klassart - Gamli grafreiturinn. John Mayer - Waiting on the world to change. Ásgeir Trausti - Upp úr moldinni. Madonna - Frozen. Glowie - Unlovable. Michael Kiwanuka - One more night. Bubbi Morthens - Fallegur dagur. Emilíana Torrini - Sunnyroad. Helgi Björns - Ég fer á Land Rover frá Mývatni á Kópasker. Stevie Wonder - Superstition. GDNR - Lætur mig (ft. Flóni).

Kári Gunnarsson er hársbreidd frá því að ná takmarki sínu sem er að komast á Ólympíuleika. Hann stendur nú að hópfjármögnun og safnar tveimur milljónum króna til að ná takmarkinu. Hann er 136. sæti á heimslistanum í badminton og þarf að komast ofar fyrir 1. maí. Kári hefur alla tíð búið í Danmörku og var í danska unglingalandsliðinu en ákvað að söðla um og keppa fyrir Íslands hönd. Kári var á línunni. Sólveig Bergsdóttir. landsliðskona í fimleikum, segir að eftir að svokallaðir áhrifavaldar urðu áberandi í samfélaginu og ekki síst á samfélagsmiðlum, sé erfiðara og jafnvel ómögulegt, fyrir afreksíþróttafólk að fá styrki frá fyrirtækjum. Áhrifavaldar þurrki í raun upp markaðinn á meðan keppnisfólk sem borgi jafnvel sjálft nokkur hundruð þúsund í keppnisferðum eigi fyfir vikið minni séns. Sólveig ræddi þetta við okkur. Iceland Airwaves tónlistarhátíðin hefst í dag og stendur fram á sunnudag. Töluverðar breytingar hafa verið gerðar á hátíðinni og margir spenntir að sjá hvernig mun til takast í ár. Airwaves stemmingin er þegar byrjuð að myndast og utan dagskráin, eða off venue, byrjuð, en hátíðardagskráin hefst í dag. Ísleifur Þórhallsson stýrir hátíðinni og hann kíkti til okkar í einn snöggan morgunkaffibolla áður en hann rauk út í daginn og Airwaves gleðina. Óhætt að segja að ákvörðun Útlendingastofnunar um að vísa albanskri konu úr landi, sem komin er rúmar 35 vikur á leið, hafi vakið upp hörð viðbrögð. Alþingismennirnir Brynjar Níelsson og Jón Steindór Valdimarsson komu til okkar og ræddu þetta en Jón Steindór hefur gagnrýnt brottvísunina harðlega og segir að ríkisstjórnarflokkarnir og ráðherra dómsmála, beri ábyrgð á henni. Við þekkjum bíómyndir eins og Robocop og Terminator þar sem vélar og menn renna saman í eitt. En gæti eitthvað slíkt gerst í raunheimum? Íslenska heilbrigðistæknifyrirtækið Össur greindi í gær frá nýju samvinnuverkefni við alþjóðlega rannsóknarstofnun um að þróa áfram svokallaðan IMES-nema sem gerir fólki kleift að stýra gervilimum með hugarafli. Hildur Einarsdóttir verkfræðingur og yfirmaður vöruþróunar hjá Össuri kom til okkar og sagði okkur frá þessu spennandi verkefni. Tónlist: Jóna Alla Axelsdóttir - Svo birti aftur til. Dikta - Breaking the waves. Góss - Eitt lag enn. Vök - In the dark. Auður - Enginn eins og þú. Emilíana Torrini - Tookah. Bill Withers - Lean on me. James Taylor - How sweet it is (To be loved you). Ásgeir - Bernskan. Michael Kiwanuka - One more night.

Við kynntum okkur flot, en það nýtur sívaxandi vinsælda sem góð leið til slökunar og endurnæringar. Þær Sæbjörg Richardsdóttir og Laila Margrét Arnþórsdóttir komu til okkar og fræddu okkur um flot. Mygla raskar nú skólahaldi og finna nemendur í Fossvogsskóla, Varmárskóla og Ártúnsskóla fyrir því. Hvenær er viðgerðum lokið og er nóg að þrífa húsgögn og bækur og halda áfram? Sylgja Dögg Sigurjónsdóttir, fagstjóri hjá verkfræði- og ráðgjafafyrirtækinu Eflu, kom í Morgunútvarpið og ræddi myglu. Sæunnarsund er forvitnilegt sund á Flateyri þar sem synt er í klaufför kýrinnar Hörpu sem stakk sér til sunds þegar leiða átti hana til slátrunar. Bryndís Sigurðardóttir sveitarstjóri á Tálknafirði var á línunni og sagði okkur af þessu sérstaka sundi. Tónlistarmaðurinn Auður söng um hversu freðinn hann væri á Menningarnótt. Ekki voru allir sáttir og til að mynda benti Bjarnheiður Hallsdóttir, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar, á að hann væri að upphefja fíkniefnaneyslu. Arnar Eggert Thoroddsen doktor, í dægurtónlistarfræðum, var á línunni og ræddi þetta mál sem hann sagði ekkert nýtt. Konur veipa orðið meira en karlar sem hafa dregið úr veipinu. Sjö prósent kvenna og fimm prósent karla veipa og hefur notkunin í fyrsta sinn ekki aukist milli ára. Það á þó ekki við um munntóbakið, en bæði kyn taka orðið oftar í vör en áður. Þetta segja tölur Embætti landlækns við ræddum við Viðar Jensson, verkefnastjóra hjá embættinu. Guðmundur Jóhannsson mætti og fór yfir nýjustu tækni, t.d. ný stýrikerfi og kreditkort. Tónlist: Hjálmar - Hvað viltu gera? Krummi - Stories to tell. Coldplay - In my place. Michael Kiwanuka - One more night. Auður - Freðinn. Stuðmenn - Í bláum skugga. Gotye - Somebody that I used to know. The Beatles - Something. Múgsefjun - Sendlingur og sandlóa.
Eins og kunnugt er hefur vatnsmagn í ám landsins verið með minna móti síðustu vikur. Hvað gera veiðimenn þá? Þessu ætlar Trausti Hafliðason, ritstjóri Viðskiptablaðsins, er forfallinn áhugamaður um veiðimennsku og hann fór yfir þetta með okkur. Vestahafs velta menn því fyrir sér hvort snertiskjáir og breytt áhugamál séu að hafa áhrif á heilsu fólks en á óvæntan hátt; vilja margir meina að nema í skurðlækningum skorti þá fingrafimi sem nauðsynleg er til að sinna starfinu almennilega. Við ræddum við Guðjón Birgisson, sérfræðing í almennum skurðlækningum. Tónlistarhátíðin Secret Solstice hefst í dag í Laugardalnum. Við slógum á þráðinn til Jóns Bjarna Steinssonar hjá Secret Solstice og heyra aðeins af nýjungum og stemmingunni framundan. Fréttir vikunnar voru á sínum stað en gestir okkar að þessu sinni voru Eyrún Magnúsdóttir framkvæmdastjóri Kjarnans og Gunnar Dofri Ólafsson lögmaður hjá Viðskiptaráði og fyrrverandi blaðamaður. Við dýfðum okkur á bólakaf í hégómavísindahylinn, þar sem Freyr Gígja Gunnarsson ræður ríkjum og heyrðum fréttir af fræga fólkinu. Tónlist: Ellen Kristjáns og Mannakorn - Litla systir. Michael Kiwanuka - One more night. Eric Clapton - Lay down Sally. Warmland - Overboard. Friðrik Dór - Dönsum eins og hálfvitar. Madonna - Papa dont preach. Black Eyed Peas - I gotta feeling.
Vesturbyggð, í samstarfi við Umhverfisstofnun, hratt af stað átaki gegn fatasóun í vikunni með sýningu heimildarmyndarinnar The True Cost. Framundan eru fleiri viðburðir er átakinu tengjast og við slógum á þráðinn vestur og heyrðum í Öldu Hrannardóttur á Patreksfirði sem er tengiliður Vesturbyggðar við verkefnið. Það er óhætt að segja að vitnisburður Michael Cohen, náins samstarfsmanns Donald Trump í áratug, fyrir þingnefnd í gær hafi valdið skjálfta í Washington og víðar. Framburður Cohen gæti reynst forsetanum skeinuhættur og Silja Bára Ómarsdóttir stjórnmálafræðingur fór yfir málið með okkur. Anna Sigríður Þráinsdóttir kemur í sitt vikulega spjall um íslenskt mál og þar komu m.a. tíkallasímar, ljón í og á veginum og kalkipappír við sögu. Vigdís Haukdsóttir, borgarfulltri, kom til okkar en fullyrt hefur verið að hún og nokkrir aðrir borgarfulltrúar gangi allt of langt í gagnrýni sinni á starfsmenn og embættismenn borgarinnar. Fyrrverandi borgarfulltrúi kallaði hana sirkusstjóra í þættinum í gær og komu þau ummæli í framhaldi af færslu Stefáns Eiríkssonar, borgarritari, sem sagði um síðustu helgi að starfsmenn borgarinnar veigri sér við að mæta í vinnu, sitja fundi og klára verkefni vegna óásættanlegrar framkomu kjörinna fulltrúa. Það er óhætt að segja að mikil gróska sé í kóramenningu Íslendinga en fáir geta státað af því að hafa tilheyrt sama kórnum í meira en hálfa öld. Í vikunni bárust þær fregnir að Jón Hallson væri að hætta í Karlakór Reykjavíkur eftir 64 ára starf. Jón, sem er 86 ára, er ekki bara einn reyndasti kórsöngvari þjóðarinnar, heldur getur hann einnig státað af því að hafa tekist að næla sér í konu í karlakór. Jón kom í morgunkaffi til okkar. Tónlist: Júníus Meyvant - Gold laces. Otis Redding - Ive been loving you too long. Magni og Ólöf Jara - Eina nótt. Alice Merton - Learn to live. Úlfur Úlfur - Engar hendur. Michael Kiwanuka - One more night.
Við fræddumst um ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein því Hulda Hjálmarsdóttir, framkvæmdastjóri Krafts kom til okkar. Félagið fagnar 20 ára afmæli í ár og af því tilefni hefur bókin Lífskraftur, fokk ég er með krabbamein, verið endurútgefin til að fræða ungt fólk og aðstandendur þeirra um sjúkdóminn. Við slógum á þráðinn vestur á firði en þar var áhöfnin á Friðriki Sigurðssyni ÁR að taka veðrið og sjá hvernig viðrar til sjóferða í dag. Eins og við sáum í Landanum á sunnudaginn eru Lárus Grímsson skipstjóri og áhöfn hans meðal þeirra sem gert hafa út á veiðar á sæbjúgum. Við heyrðum í Lárusi. Arnar Pétursson, hlaupari, kom til okkar og fór yfir það hvenig best er að setja sér markmið í hlaupum núna í meistaramánuði. Hann verður með tvær opnar æfingar þar sem hann hjálpar fólki að bæta hlaupastílinn og ná betri árangri í hlaupum, og jafnvel hefja undirbúning fyrir Reykjavíkurmaraþonið. Ársþing Knattspyrnusambandsins fer fram um helgina. Þar fer fram, nokkuð óvænt, formannskosning milli Guðna Bergssonar og Geirs Þorsteinssonar. Einungis tvö ár eru síðan Guðni tók við formennsku í sambandinu eftir að Geir lét af formennsku. Um hvað snúast þessar kosningar? Við spurðum þá Guðna og Geir út í það. Guðmundur Jóhannsson flytur sinn fasta pistil um tæknimál. Tónlist: Hjaltalín - Baronesse. Commodores - Easy. Elton John - Daniel. KK og Maggi Eiríks - Á sjó. Between Mountains - Into the dark. Michael Kiwanuka - One more night.
Elísabet Ingvarsdóttir, 10 ára lestrarhestur í Borgarhólsskóla á Húsavík, einsetti sér að lesa hundrað bækur á árinu - og viti menn, á dögunum náði hún markmiði sínu. Elísabet sagði okkur frá afreki sínu og bókaáhuga. Kæri Francis. Ég íhugaði einu sinni að verða munkur. Þá dvaldi ég 21 árs gamall í kaþólsku klaustri... svona byrjar opið bréf Guðmundar Inga Guðbrandssonar umhverfis- og auðlindisráðherra til Francis páfa sem ritað var í gærkvöldi. Í nýrri bók segist páfinn hafa áhyggjur af auknum fjölda samkynhneigðra karla innan prestastéttarinnar. Guðmundur Ingi fer í bréfinu yfir að kynhneigð sé ekki lífsstíll - og hvetur páfann til að endurskoða ummæli sín. Guðmundur Ingi var á línunni. Í dag er alþjóðlegur dagur jarðvegs og við heyrðum í Árna Bragasyni landgræðslustjóra af því tilefni og ræddum þessa mikilvægu auðlind sem jarðvegurinn er. Sigmar Vilhjálmsson, atvinnurekandi, hefur að undanförnu bent á að erfitt sé fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki að verða við kröfum verkalýðsfélaga um þær launahækkanir sem farið er fram á. Almennt sé ekki svigrúm til svo mikilla hækkana hjá þessum hópi fyrirtækja og að kröfur launafólks miðist frekar við stöðu stórfyrirtækja en þeirra sem minni eru. Sigmar var í viðtali. Guðmundur Jóhannsson kom í sitt vikulega tæknispjall og ræddi gagnaleka og Youtube stjörnur. Tónlist: KK & Ellen - Jinga linga linga. No doubt - Don't speak. Stefán Hilmarsson & Ragnheiður Gröndal - Jólarómantík. Clean Bandit - Baby (ft. Marina). Hjálmar - Fyrir þig. Pálmi Gunnarsson - Litla húsið. Michael Kiwanuka - One more night. Bobby Helms - Jingle Bell Rock.
Ekki vita allir af því að til er íslensk geimstöð, ekki hefðbundin geimstöð sem slík, heldur '53 módel af Dodge Weapon sem nýttur hefur verið undanfarna áratugi sem trússbíll á Landmannaafrétti. Nafnið mun tilkomið vegna þess að bílinn var áður notaður m.a. til að ferja fólk á böll, þ.e. í geimið, svo geimurinn sem slíkur kemur ekki við sögu. Hulda hitti Olgeir Engilbertsson ökumann Geimstöðvarinnar og ræddi við hann um þessa fornfrægu bifreið. Flugstöð Leifs Eiríkssonar hefur ratað á lista yfir verstu flugvelli í heimi, m.a. hjá vefmiðlinum Airhelp. Pétur J. Eiríksson, sem lengi starfaði í flugbransanum, skrifaði einmitt á dögunum grein um sama mál og hann kom til okkar og ræddi þetta. Vetur konungur hefur bankað upp á og nú er snjór á bæði Hellisheiði og Mosfellsheiði. Við slógum á þráðinn til Theodórs Hervarssonar á Veðurstofu Íslands og tókum stöðuna á veðrinu. Mikil óánægja hefur brotist út með þá ákvörðun VÍS að sameina og loka útibúum á landsbyggðinni sem fyrirtækið segist gera í takt við aukna möguleika á stafrænum lausnum í gegnum síma og heimasíðu fyrirtækisins. Fram hefur komið að átta starfstöðvum verði lokað í október en sex þeirra eru sameinaðar öðrum. Fjöldi sveitarstjórnarmanna, einstaklinga og nokkrir þingmenn hafa mótmælt þessu og hótað að hætta viðskiptum við fyrirtækið. Við ræddum við Silju Dögg Gunnarsdóttur, alþingismann, um málið en hún segir að þetta séu stór mistök hjá VÍS. Sævar Helgi Bragason var á sínum stað með vikulegt vísindaspjall og nú voru það eldfjöll sem voru til umræðu. Tónlist: Toggi - Take me dancing. Michael Kiwanuka - One more night. John Denver - Rocky Mountain high. Bubbi Morthens - Simbi sjómaður. Nýdönsk - Flugvélar. Björk - It's oh so quiet. Tara Mobee - That type a guy. Manic Street Preachers - you stole the sun from my heart. Sade - Flower of the universe. Valdimar - Stimpla mig út. The war on drugs - Holding on.
Lánshæfismat einstaklinga er reiknað út með ákveðnum aðgerðum í kerfi sem CreditInfo hannaði og mörg fyrirtæki í lánastarfsemi nota. En hvaða þættir skipta máli varðandi lánshæfismat og getur fólk haft áhrif á það með einhverjum hætti? Við fengum Brynju Baldursdóttur, forstjóra CreditInfo, til að útskýra þetta fyrir okkur. Anna Þóra Baldursdóttir flutti til Kenýa fyrir þremur árum og setti á stofn heimili fyrir ungar mæður og börn þeirra í þeim tilgangi að skapa þeim skjól og hjálpa þeim að mennta sig, en mjög algengt er að ungar mæður láti börn sín frá sér. Anna Þóra er stödd hér á landi og kíkti til okkar. Framundan er spennandi leikur hjá kvennalandsliðinu í knattspyrnu þegar það mætir firnasterku liði Þýskalands á laugardaginn kemur. Stefnt er að því að setja aðsóknarmet og hefur miðasalan farið mjög vel af stað. Við heyrðum í Klöru Bjartmarz framkvæmdastjóra KSÍ. Haustið er uppskerutími og margir bíða spenntir eftir nýmeti, m.a. kartöflum. En hvaða áhrif ætli rigningarsumarið mikla hafi haft á kartöflurækt og hverjar eru uppskeruhorfurnar? Bergvin Jóhannsson kartöflubóndi á Áshóli var á línunni. Sævar Helgi Bragason var á sínum stað með vikulegt vísindaspjall og ræddi ís og vatn á Mars m.a. Tónlist: Kate Bush - Wuthering heights. Myrra Rós - Kveldúlfur. Jóhann Helgason - Sail on. Michael Kiwanuka - One more night. Jason Mraz - Have it all. Hjálmar - Hættur að anda. Moses Hightower - Háa C. Florence and the Machine - You've got the love. Baggalútur - Sorrí með mig. Magnús Þór Sigmundsson - Jörðin sem ég ann.
Hjalti Vignisson og Arnar Sigurðsson halda úti vinsælli Facebook síðu undir nafninu Grillfeðurnir. Þeir eru metnaðarfullir grillarar og vita allt um grill og grilleldamensku. Þeir félagar kíktu til okkar í sumarlegt grillspjall. Ný skýrsla frá Alþjóðasambandi fuglaverndarfélaga sýnir að 222 fuglategundir í heiminum séu í bráðri útrýmingarhættu og 1469 séu á válista. Unnið er að uppfærðum válista fyrir tegundir hér á landi en ein þeirra tegunda sem talin hefur verið í bráðri hættu er lundinn en alls gætu 25 tegundir lent á válista. Við heyrðum í Erpi Snæ Hansen fuglafræðingi. Þrjátíu og fjögurra ára gömlum karlmanni, sem hlaut alvarlegan heilaskaða, býðst það eitt að vera vistaður á hjúkrunarheimili, þar sem meðalaldurinn er 83 ár. Móðir mannsins og forstjóri hjúkrunarheimilisins segja þetta óboðlegt. Formaður Öryrkjabandalags Íslands, Þuríður Harpa Sigurðardóttur kom til okkar og ræddi þessa stöðu. Guðmundur Jóhannsson mætti í sitt vikulega tæknispjall. Tónlist: Valdimar - Ryðgaður dans. Leon Bridges - Coming home. Fine young cannibals - Not the man I used to be. GCD - Sumarið er tíminn. Helgi Björns - Ég fer á Land Rover frá Mývatni á Kópasker. Ed Sheeran - Happier. Eivör Pálsdóttir - Rain. Michael Kiwanuka - One more night. Borgardætur - Frelsi ég finn. A-ha - Cry Wolf.
Við slógum á þráðinn til listakonunnar Míreyju Samper sem stýrir forvitnilegri listahátíð, Ferskir vindar, í Garði á Suðurnesjum, frumfluttum nýtt lag með Unni Birnu Björnsdóttur, heyrðum lög af plötu vikunnar og svo var það lagalisti fólksins þar sem þemað var lögin í ræktinni. Lagalisti: 12:45-14:00: Land og synir - Öll mín leyndarmál. Michael Kiwanuka - One more night. Supergrass - Mary. Daði Freyr - Seinni tíma vandamál. Chris Rea - Girl in a sports car. Camila Cabello - Havana. Legend - Children of the elements. Noel Gallagher's High Flying Birds - Riverman. East of my youth - Go home. MÍREYJA SAMPER Á LÍNUNNI VEGNA FERSKRA VINDA Í GARÐI. David Bowie - Wild is the wind. Auður - 3D. ROFOROFO - Take me back. 14:03-15:00: Albatross - Ég ætla að skemmta mér. Bjartmar Guðlaugsson - Sumarliði er flúinn. Kiriyama Family - Chemistry. RÚNAR FREYR GÍSLASON Í SPJALLI UM SÖNGVAKEPPNINA 2018. Pondus ft. Shirley Manson - The sun. Unnur Birna Björnsdóttir - Horizon (frumflutningur í útvarpi). Bruno Mars & Cardi B - Finesse. Hósen Gósen - Egill Ólafsson (af plötu vikunnar). The Breeders - Cannonball. 15:03-16:00: Nýdönsk - Fagurt fés. sam Smith - One last song. Michael Jackson - Don't stop 'til you get enough. The White Stripes - Seven nation army. Grýlurnar - Sísí. Led Zeppelin - Immigrant song. Stjórnin - Við eigum samleið. Tina Turner - Proud Mary. Judas Priest - Breaking the law. KISS - Love Gun. Egill Ólafsson - Hér er allt (af plötu vikunnar). Umsjón: Hulda G. Geirsdóttir.
Salut à tous, amis poditeurs,Enregistré le samedi 18 Mars 2017, nous sommes fiers de vous présenter le vingt-quatrième opus de Geeks et Légendes dont le thème est Quartiers Libres.Vous pourrez trouver l’épisode en téléchargement ICI (Clic droit enregistrer la cible sous … pour une sauvegarde sur votre disque dur).L’émission dure 1h35 avec autour de la table :– Master Phil (@Phliousetsix)– Master Fred (@fcud)– Master StefLa suite de l’épisode Quartiers Libres avec un RepriseCast (passage en revue de reprises musicales) proposé par un Master Stef trés en verve.ATTENTION SPOILER de la playlist (A lire après l’écoute si vous voulez jouer avec nous)Quelques liens assez bordéliques en rapport avec l’émission. Ces titres sont soit les morceaux passés par Stef, soit les versions originales, voire d’autres reprises :¤ La playlist sur YouTube : ICI¤ Pantera – Yesterday don’t mean shit : ICI¤ Frankie Valli – Can’t take my eyes off of you : ICI¤ Kylie Minogue – Can’t get you out of my head : ICI¤ Depeche Mode – Enjoy the silence : ICI¤ The Korgis – Everybody’s got to learn sometime : ICI¤ Aqua – Barbie Girl : ICI¤ Stevie Wonder – We can work it out : ICI¤ The Four Tops – Fool on the hill : ICI¤ ACDC – Highway to Hell : ICI¤ Joey Ramone – What a wonderful world : ICI¤ Ahmet & Dweezil Zappa – Baby one more time : ICI¤ The Bates – Billy Jean : ICI¤ Alien Ant Farm – Smooth Criminal : ICI¤ Shirley Bassey – Light my fire (ce n’est pas le version que Stef nous a passé mais ça devrait lui plaire) : ICI¤ Diana Ross – Reach out : ICI¤ The Bee Gees – Stayin’ Alive : ICI¤ La pompe moderne (Anciennement The Brassens) – Plus, Meilleur, plus rapide, plus fort : ICI¤ Gnarls Barkley – Crazy : ICI¤ Diana Krall – The Look of Love : ICI¤ The Mamas and the Papas – California Dreamin’ : ICILe générique de fin :¤ Michael Kiwanuka – One more Night : ICIPour le plaisir une version en public plus épurée : ICIA bientôt … Pour un long voyage avec ULYSSE !….…..
Kurze Info zum Act: Das Thüringer DJ-Duo Vivid & OneBrotherGrimm erlebte seinen Durchbruch 2012, mit dem Auftritt auf der Red-Bull Stage, beim SonneMondSterne Festival. Seitdem starteten die beiden Partygaranten in der Club-Szene ordentlich durch. Ihr Musik-Stil erstreckt sich von House, Deep-House bis hin zu Tech-House. Bei Ihren Auftritten überzeugen Sie unter anderem durch das schwarze Gold, denn die beiden Jungs spielen die alten Klassiker selbstverständlich auf Vinyl. Seit 2013 sind Sie auch als Produzenten tätig und veröffentlichten 2014 ihre erste EP “Can feel it“. Nach mehreren Remixen schafften Sie es im Mai 2015 als offizielle Artist‘s des Hamburger Label‘s “Ton Liebt Klang“ mit diversen Releases auf die hauseigenen Collections und veröffentlichten dort auch Ihre EP “Jump“. Ihr aktueller Remix von „Deeper Love“ für Chris.I.Am feat. JulS wird in der Clubszene und auf Festivals in fast jedem DJ-Set gespielt. Angetrieben von der Liebe zur Musik, werden wir Vivid & OneBrotherGrimm auch zukünftig durch diverse Releases und grandiose Auftritte in den Clubs und Festivals Deutschlands, wahrnehmen. Tracklist: 1.Tinush – Struggle (Free Edit) 2. Part Time Brothers – Sometimes 3. Sonny Fodera – You & I (feat. Janai) 4. Nora En Pure – Convincing (Original Club Mix) 5. Peter Kreis – Berlin Backbord (Bumich Remix) 6. Michael Kiwanuka – One more night (Shen Kin Remix) 7. Golden Summer – In the city (Claptone Edit) 8. C. Mayfield – Pusherman (Music P Edit) 9. Sugar Hill – Feeling for you (Sugar Hill, Wasabi Rmx) 10. Milk & Sugar – My lovin with Barbara Tucker (Mat.Joe Remix) 11. Sante Sansone – Erosion (Original Mix) 12. Lex Luca – Do it (Original Mix) 13. Patrick K. & Tim Blume – Kleinstadtdschungel (Vivid & OneBrotherGrimm Remix) 14. Above & Beyond feat. Gemma Hayes – Counting down the days (Music P & Marquel Aurel Remix) 15. Bob Moses – Like it or not (Joris Voorn Remix) -.-.-.-.-.-.-.-.-.-.-.-.-.-.-.-.-.-.-.-.-.-.-.-.-.-.-.-.-.-.-.-.-.-.- ♫♬♪ MFK VIBES – Deine Acts, deine Musik! ♪♫ ♬ Diesmal mit: Vivid & OneBrotherGrimm Stil-/Musikrichtung: Tech-House, House Label/Agentur: Ton Liebt Klang / Musikalische Feinkost Facebook-Profil-Link: www.facebook.com/VividandOneBrotherGrimm Soundcloud-Link: www.soundcloud.com/dj-vivid-onebrothergrimm Heimatstadt: Erfurt Mehr zur Musikalischen Feinkost und MFK Vibes im Social Media unter: Soundcloud: bit.ly/1nlMEOn & bit.ly/1K8KzQb Hearthis: bit.ly/1SIpwXy Mixcloud: bit.ly/1SIpAqa Play FM: bit.ly/1PzsSp2 iTunes: apple.co/2026YpD Website: www.musikalischefeinkost.de Instagram: bit.ly/23rcX6H Twitter: bit.ly/1S93bmc Google+: bit.ly/1S93c9H Werde Teil der Community für gute Musik ❤ Folgen, teilen, nichts verpassen!