POPULARITY
Mýrdalshlaupið hefur tryggt sér sess meðal bestu og stærstu utanvegahlaupaviðburða á Íslandi síðustu ár og fer nú fram í 12. skipti þann 31. maí að Vík í Mýrdal. Allt skipulag og utanumhald hlaupsins er í höndum einnar fjölskyldu frá Vík og hlaupið er ræst í fjörunni í Vík og hlaupa allir keppendur upp á Reynisfjall vestan við þorpið þar sem leiðir skilja. Hlaupið er eitt mest krefjandi utanvegahlaup á Íslandi vegna mikillar hækkunar og lækkunar, mikils bratta og fjölbreytts undirlags. Guðni Páll Pálsson, einn af skipuleggjendunum og meðlimur fjölskyldunnar sem stendur að hlaupinu, kom til okkar í dag og með honum var Þorsteinn Roy Jóhannesson sem er einn besti utanvegahlaupari landsins. Veðrið og margbreytileiki er auðvitað fyrirferðamikið í umræðunni, enda hefur það mikil áhrif á okkar daglega líf hér á eyjunni í Norður-Atlantshafi. Nú hefur opnað nýr veðurvefur á ruv.is og er hann síuppfærður með veðurupplýsingum frá Veðurstofu Íslands. Lögð er áhersla á að greina frá veðurspánni á myndrænan hátt þar sem hægt er að skoða allar veðurstöðvar landsins og nágrenni þeirra og fá langtímaspár og ýmislegt fleira. Við heyrðum í Birgi Þór Harðarsyni vefstjóra ruv.is fengum hann til að segja okkur betur frá þessum nýja vef sem hægt er að finna á www.ruv.is/vedur og á www.vedurspa.is. Í Landnámu er sagt frá landnámsmanninum Bjólfi, sem fyrstur nam Seyðisfjörð. Ekki er mikið meira fjallað um ferðir Bjólfs, en sagan segir að hann sé heygður hátt uppi í fjallinu. Baugur Bjólfs er hringlaga útsýnispallur sem mun sitja á Bæjarbrún, fyrir neðan Baugstind, þar sem er einstakt útsýni yfir Seyðisfjörð og í raun til allra átta. Við slógum á þráðinn austur og töluðum við Aðalheiði Borgþórsdóttur, atvinnu- og menningarmálastjóri hjá Múlaþingi og fyrrum sveitarstjóri Seyðisfjarðar, og fengum hana til að segja okkur betur frá þessu verkefni í dag. Tónlist í þættinum í dag: Dúddi rádd'okkur heilt / Stuðmenn og Eggert Þorleifsson (Sigurður Bjóla Garðarsson, Valgeir Guðjónsson og Egill Ólafsson) Stingum af / Mugison (Örn Elías Guðmundsson) Perlur og svín / Emilíana Torrini (Ólafur Gaukur Þórhallsson, texti Hallgrímur Helgason) Simple pleasures / Blood harmony (Ösp Eldjárn) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Í þættinum er rætt við Tómas Ingason framkvæmdastjóra tekju-, þjónustu- og markaðssviðs Icelandair. Nú fer í hönd umfangsmesta áætlun í sögu félagsins og markmiðið er að draga úr árstíðarsveiflunni og auka flugið utan háannatíma. Tómas fer hér m.a. yfir þá breytingu sem er að verða á félaginu með nýjum og langdrægari flugflota, samkeppnina við bæði stóru flugfélögin yfir Atlantshafið og ekki síður við lággjaldaflugfélögin sem fljúga til og frá landinu. Tómas segir að stöðugt sé unnið að þróun á áætlun félagsins bæði til skemmri og ekki síður lengri tíma. Þar er horft til þess hvernig best megi tengja fjarlægari áfangastaði inn í leiðakerfið og efla Keflavíkurflugvöll sem öfluga tengimiðstöð í samvinnu við ISAVIA.
Flestir Íslendingar eru að einhverju leyti hjátrúarfullir og þekkja þetta helsta að forðast að ganga undir stiga og berja í tré og segja 7-9-13. Nú er komin út ný bók hjátrú; Svartir kettir, fullt tungl og rauðhærðar konur. Hér er fjallað um hjátrú af ýmsum toga, innlenda, erlenda, gamalgróna og nýja. Þjóðháttafræðingurinn Símon Jón Jóhannsson er höfundur bókarinnar og hann kom í þáttinn í dag. Við fengum svo vinkil frá Guðjóni Helga Ólafssyni og vinkill dagsins fjallar um mismunandi nálgun manneskjunnar á að „lenda í“ hinum ýmsu aðstæðum, hvernig sum okkar eru bara kærulaus og lenda í þessu og hinu og hvernig önnur segjast bara hafa „lent í“ ýmsu, en hafa í raun stefnt að því ljóst og leynt. Örlítið er fjallað um írska þjóðtrú í því samhengi og dæmi eru tekin af tveimur mönnum sem hafa mismunandi tengingar við eyjur í Atlantshafi. Báðir eru þeir dugnaðarforkar og jafn merkilegir, annar er svolítið frægur en hinn ekki. Svo var það lesandi vikunnar, í þetta sinn var það Ástrós Hind Rúnarsdóttir, bókmenntafræðingur og sviðslistakona. Við fengum að vita hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og svo hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Tónlist í þættinum Hvað kostar hamingjan? / Nýdönsk og Sinfó (Ólafur Hólm, texti Björn Jörundur Friðbjörnsson) For the good times / The Little Willies (Kris Kristofferson) Suma daga / Moses Hightower (Andri Ólafsson, Steingrímur Teaque, Magnús Trygvason Elíasen og Daníel Friðrik Böðvarsson) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Norðurhjálp tekur við og selur allskyns notaðar vörur; fatnað, heimilisbúnað, húsgögn, bækur, smádót, listaverk og margt fleira. Allur ágóði fer í að styrkja einstaklinga og fjölskyldur á svæðinu sem ekki hafa mikið á milli handanna. Fjórar konur sem hafa starfað lengi við sjálfboðavinnu tóku höndum saman og vinna nú 6 daga vikunnar við að taka á móti vörum og við afgreiðslu. Við heimsóttum Norðurhjálp í rúmlega 400 fm. skemmu sem þær leigja undir starfsemina rétt hjá Glerártorgi. Sæunn Ísfeld Guðmundsdóttir tók á móti okkur. Svo heyrðum við í Snorra Vilhjálmssyni í Austurríki, en hann starfar þar við golfvallahönnun hjá fyrirtæki sem kennt er við einn frægasta kylfing heims. Snorri lærði golfvallahönnun í Skotlandi og vinnur nú að hönnun og byggingu glæsilegra golfvalla um nánast allan heim. Það er ekki víst að margir viti hvað felst í starfi golfvallahönnuðar. Við fengum Snorra til að segja okkur í dag. Einar Sveinbjörnsson kom svo í veðurspjallið í dag. Í þetta sinn sagði hann okkur frá kaldri tungu sjávar undan Vestfjörðum og Húnaflóa um þessar mundir og hvernig hún mótar hitafarið. Svo talaði Einar um veðurstöðina Grímsstaði á Fjöllum. Þar er ríkir hálfgert meginlandsloftslag og hann ætlar að skoða kuldana undanfarna daga einmitt þar. Og að lokum veltum við því fyrir okkur hvort fellibyljatímanum á Atlantshafi sé lokið. Tónlist í þættinum í dag: Pínulítið lengur / Stefán Hilmarsson (D. Gates, texti Stefán Hilmarsson) Litli tónlistarmaðurinn / Elly Vilhjálms (Freymóður Jóhannsson eða Tólfti September) Build Me Up Buttercup / The Foundation (A. G. Instone, M. D'Abo og T. Macaulay) Veðurglöggur / Spilverk Þjóðanna (Spilverk Þjóðanna) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Þeir eru eflaust fáir sem hugsa um okkar kalda sker í Norður-Atlantshafi þegar þeir heyra afróbeats-tónlist - en héðan sprettur þó slík tónlist. Nonykingz er rúmlega þrítugur tónlistarmaður, fæddur og uppalinn í Nígeríu en búsettur hér undanfarin 8 ár. Frá 2016 hefur hann sent frá sér fjölda laga um ástina, kynlíf og partý. Við ræðum við Nonykingz um afrobeat, tónlistarbransann, um Nígeríu og ástina sem dróg hann til Íslands frá Filippseyjum. Hvað þýðir það þegar sjálfsmynd kemst í tísku? Er lesbíu-endurreisn í gangi? Ein vinsælasta poppstjarna sumarsins var hin bandaríska Chappel Roan, sem syngur á einlægan hátt um ástarsambönd sín við konur. Við ræðum þetta, Billie Eilish og Lady Gaga við Steinunni og Katrínu Lóu, sem hafa velt þessu mikið fyrir sér. Og við forvitnumst um Extreme Chill, sveimtónlistarhátíðina, sem hófst í gær í fimmtánda sinn.
Ólympíuleikarnir verða settir í París eftir 123 daga. Enn er óljóst hversu margir keppendur verða þar fyrir Íslands hönd en nokkrir eru líklegir og einn hefur þegar tryggt sér þátttökurétt. Vésteinn Hafsteinsson, afreksstjóri ÍSÍ og margfaldur Ólympíufari, sem keppandi og þjálfari, er bjartsýnn á að hópurinn verði fjölbreyttur. Hann hefur mikinn metnað fyrir hönd íslensks afreksíþróttafólks og telur að innan margra ára eigi Íslendingar að geta hampað gullverðlaunum á Ólympíuleikum. En til þess þarf að spýta í lófana á ýmsum vettvangi. Atlantshafið er miklu heitara en venjan er og hefur verið frá því í haust, þetta er einkennilegt, sérstaklega í ljósi þess að það er El Nino-ár, og El Nino-veðurfyrirbærið er vanalega bundið við Kyrrahafið. Við fáum Halldór Björnsson, sérfræðing á Veðurstofu Íslands, í loftslagsspjall eins og við höfum gert reglulega í vetur - meðal annars tölum við um hvernig árið 2024 fer af stað og hvort ítrekuð hitamet séu hætt að koma vísindamönnum á óvart. Við heyrum málfarsmínútu og rifjum svo upp gamla upptöku úr safni RÚV. Að þessu sinni eru það frásagnir af matarveislum á Patreksfirði í desember árin 1995 og 1996 þar sem refakjöt var á boðstólnum. Tónlist: Erla Stefánsdóttir, Póló og Erla - Lóan er komin. COMMODORES - Easy.
24. janúar 2024 Íslenski þorskstofninn er nokkuð sterkur og hefur verið um alllanga hríð, öfugt við flesta þorskstofna aðra í Norður-Atlantshafi. Nýleg rannsókn Hafrannsóknastofnunar leiddi í ljós að honum má skipta gróflega í minnst tvær stofneiningar. Í erlendri rannsókn sem birt var í fyrra kemur fram að þorskstofnar í Norður-Atlantshafi séu um 20 talsins og að af þeim séu aðeins tveir í nógu góðu formi til að óhætt sé talið að veiða úr þeim svo nokkru nemi; sá íslenski og svo stofninn í Barentshafi. Ævar Örn Jósepsson ræddi þessar niðurstöður við Jónas Pál Jónasson, sviðsstjóra botnsjávarsviðs á Hafrannsóknastofnun. Búast má við milljónum skráninga í tjónaskrá vegna stríðsins í Úkraínu, segir Róbert Spanó stjórnarformaður skrárinnar. Almennir borgarar eiga sjálfir að geta skráð tjón sitt á netinu. Ragnhildur Thorlacius ræðir við Róbert. Stutt er í fomlega opnun nýjasta sendiráðs Íslands, í Freetown, höfuðborg Afríkuríkisins Síerra Leóne. Ásdís bjarnadóttir, forstöðukona sendiráðsins, segir mörg spennandi verkefni fyrir höndum á komandi misserum. Þorgils Jónsson ræddi við hana. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred
Við fræðumst um nýjan landnema, sæsnigil sem nýlega fannst í fjöru við innanverðan Breiðafjörð og hefur ekki fundist áður í Norður-Atlantshafi. Snigillinn er um margt sérstakur og ýmsar spurningar sem brenna á þeim Svanhildi Egilsdóttur, sérfræðingi hjá Hafrannsóknastofnun sem fyrst uppgötvaði kvikindið og Áka Jarli Lárussyni, stofnerfðafræðingi hjá sömu stofnun. Dómur yfir manni sem mun ekki sæta neinni refsingu fyrir heimilisofbeldi vakti athygli í vikunni. Maðurinn játaði brot sín en er talinn ósakhæfur þegar hann framdi þau. Hann var þó ekki dæmdur í neins konar geðræna meðferð og þolandinn gengur um með öryggishnapp. María Rún Bjarnadóttir lögfræðingur hjá ríkislögreglustjóra kemur til okkar til að ræða þennan málaflokk í aðeins víðara samhengi. Vera Illugadóttir kemur svo til okkar, eins og oft á föstudögum að vísu ekki að ræða um dýr, heldur rannsóknir sem unnið hafa til verðlauna.

Í síðasta þætti af Þú veist betur ræddum við ketti, kosti þeirra og galla, hvernig væri best að gera þá hamingjusama og þar fram eftir götunum. Það leiðir okkur eftir ákveðnum krókaleiðum að viðfangsefni dagsins. Mér var nefnilega einu sinni sagt að appelsínugulir kettir hefðu komið til Íslands með víkingum, því þeir væru svo miklir sjókettir. Hvort það sé satt eða ekki þá liggur beinast við að fara frá köttum, til sjómennsku. Það einfaldlega gefur augaleið. Sjómennska er nefnilega eitthvað sem ég held að við höfum öll hugmynd um hvað sé, hvort sú hugmynd sé sú sama á milli okkar allra er frekar ólíklegt enda eru frekar litlar líkur á því að við höfum nokkurtíman stundað sjómennsku sjálf. En þó eru allar líkur á því að við höfum einhverja tengingu, hvort sem það er í gegnum fjarskyldan frænda eða bara foreldra okkar. Sjómennska og fiskveiðar eru okkur í blóð borin, annað væri í raun stórfurðulegt verandi eyja út á miðju Atlantshafi. En hvað þýðir það að vera sjómaður, hvað hefur það þýtt í gegnum tíðina og hvað hefur breyst varðandi sjómennsku á öllum þessum árum síðan fólk kom til þessa lands. Til að svara þessu hef ég fengið til mín Valmund Valmundsson og Hólmgeir Jónsson sem þekkja þetta inn og út, svo við settumst niður og þeir leyfðu mér að spyrja sig eins og landkrabbinn sem ég er. Umsjón: Atli Már Steinarsson Viðmælendur: Valmundur Valmundsson og Hólmgeir Jónsson

Breski Íhaldsflokkurinn stendur í miklum innanflokksátökum á sama tíma og verðbólga og vextir valda mörgum Bretum miklum áhyggjum. Og fáir telja Brexit hafa reynst vel samkvæmt nýrri könnun. Sigrún Davíðsdóttir var gestur Morgunvaktarinnar og fór yfir stöðuna í stjórnmálum og efnahag á Bretlandi. Íslensku flugfélögin leggja aukna áherslu á að koma ferðamönnum til landsins, en ekki láta þá stoppa hér stutt á ferð yfir Atlantshafið. Það er því allt útlit fyrir að met verði slegin í fjölda ferðamanna í sumar. Kristján Sigurjónsson, ritstjóri Túrista, fjallaði um þetta í ferðaspjalli. Það verða haldnir viðburðir í flestum skógum landsins um helgina. Stærsti viðburðurinn er líklega Skógardagurinn mikli í Hallormsstaðaskógi. Þar er Bergrún Arna Þorsteinsdóttir aðstoðarskógarvörður, hún ræddi við Morgunvaktina um skógardaginn og skógrækt. Tónlist: Sólbjart vor - Þuríður Sigurðardóttir More than you know - Silva Þórðardóttir og Steingrímur Teague Visa vid midsommartid - Anita Lindblom Styttur bæjarins - Spilverk þjóðanna Ekkert þras - Egill Ólafsson Umsjón: Vera Illugadóttir og Þórunn Elísabet Bogadóttir.

Nýafstaðin ráðstefna sem Geðhjálp hélt fyrir stuttu, Þörf fyrir samfélags breytingar: nýjar leiðir til að hugsa um geðheilbrigðismál, undirstrikaði mikilvægi þess að stokka upp í þeirri hugmyndafræði sem ráðið hefur ríkjum síðustu áratugi í þjónustunni. Eitt dæmi sem kynnt var á fyrrnefndri ráðstefnu er ráðning starfsmanna með reynslu af að hafa veikst og þurft á geðheilbrigðiskerfinu að halda, svokallaðir jafningastarfsmenn. Starfsfólk með þennan bakgrunn hefur haslað sér völl víða um heim og í fyrsta skipti á Íslandi er í boði fimm daga námskeið fyrir jafningastarfsmenn og nú þegar hafa 31 einstaklingar útskrifast. Við fræddumst meira um þetta hjá þeim Elínu Ebbu Ásmundsdóttur varaformaður Geðhjálpar og Jóni Ara Arasyni sem hefur nýlokið við námskeið. Erlendum ríkisborgurum á Íslandi hefur fjölgað úr 10 þúsund í 65 þúsund á rúmlega 20 árum. Hvaða fólk er þetta sem kýs að koma til Íslands, afskekktrar eyju í Norður-Atlantshafi? Hvaðan kemur það og af hverju flytur það búferlum á milli landa? Þær Margrét Blöndal og Guðríður Haraldsdóttir ræða við 11 einstaklinga sem mætti kannski kalla nýja Íslendinga, í nýrri bók sem var að koma út og heitir Þá breyttist allt . Sumir fluttu til Íslands vegna átaka heima fyrir, aðrir eltu ástina eða fluttu vegna vinnu. Sögurnar á bak við hvern og einn eru jafn ólíkar og þær eru margar. Eitt eiga þær þó sameiginlegt; þegar þetta fólk flutti til Íslands þá breyttist allt. Þær Margrét og Guðríður komu og sögðu frá bókinni. Listasumar á Akureyri var sett í gær en þá er boðið upp á fjölbreyttar uppákomur og upplifanir fyrir gesti og bæjarbúa á Akureyri. Það var Egill Andrason sumarlistamaður Akureyrarbæjar sem hleypti hátíðinni af stokkunum með tónleikum á þaki inngangs Listasafnsins á Akureyri. Við fengum Egil til okkar í hljóðstofu á Akureyri og forvitnumst um hvað fleira er fram undan hjá sumarlistamanni Akureyrarbæjar, auk þess sem Almar Alfreðsson verkefnastjóri sagði okkur nánar frá hátíðinni.

Stærsta skip sem smíðað hafði verið lagði af stað í sína jómfrúarferð yfir Atlantshafið árið 1912. Á skipinu var fjöldi fólks úr öllum þjóðfélagsstigum og segir sagan frá ungum elskendum sem kynnast um borð í fleyinu og örlögum þeirra og hinna farþeganna þegar það sigldi á ógnarhraða og lenti á ísjaka og sökk stuttu síðar, öllum að óvörum því skipið var sagt ósökkvanlegt.
Mataræði okkar flestra fylgir talsverð losun gróðurhúsalofttegunda sem hlýst af framleiðslu matvæla. Það er umhverfisvænna að borða grænmeti heldur en kjöt. Þurfum við að breyta um mataræði umhverfisins vegna, og getum við það? Auður Viðarsdóttir þjóðfræðingur vinnur að rannsókn um málið við Háskóla Íslands. Hún ræddi þessi mál við okkur. Kosið verður til þings í Bandaríkjunum á þriðjudag. Eins og staðan er núna er útlit fyrir að demókrötum farnist ekki sérlega vel. Joe Biden Bandaríkjaforseti ávarpaði þjóðina í gær, og sagði meðal annars að lýðræðið í landinu sé í hættu. Silja Bára Ómarsdóttir prófessor í stjórnmálafræði fór yfir stöðu mála. Bogi Ágústsson talaði frá Stokkhólmi að þessu sinni og sænsk málefni á dagskrá; aðalefnið var hins vegar Grænland og öryggis- og varnarmál á Norður-Atlantshafi. Við heyrðum í Múte B. Egede, formanni grænlensku landsstjórnarinnar. Umsjónarmenn Morgunvaktarinnar eru Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir. Tónlist: Funnel of love - Wanda Jackson Meet me in Stockholm - Wanda Jackson Fritiof i Akadien - Evert Taube Don't try to fool me - Jóhann G. Jóhannsson

Anna Heiða Ólafsdóttir, fiskifræðingur hjá Hafró: Í sumar var farinn umfangsmikill rannsóknarleiðangur þar sem magn uppsjávarfiska í norðaustur Atlantshafi var metið. Í leiðangrinum í sumar mældist útbreiðsla makríls mun meiri við Ísland samanborið við síðustu tvö ár. Arna Laufey Steinarsdóttir: Við heyrum um áhugaverða meistarannsókn í viðskiptafræði sem kannaði áhrif persónuleika fólks á skattasiðferði og áform um skattsvik. Hvað er það við persónueinkenni fólks sem hefur mótandi áhrif á skattasiðferði þeirra, það er hversu líkleg þau eru til að borga skattana sína með glöðu geði eða hvort þau reyna að skjóta undan skatti við hvert tækifæri. Anna Sigríður Þráinsdóttir, málfarsráðunautur: Má kalla pizzu pissu? Og fleiri pælingar um framburð á til að mynda kaffidrykkjum, bakkelsi og réttum sem koma erlendis frá.

Minjavernd samþykkti á dögunum að innilaug Sundhallarinnar í Reykjavík verði brotin niður og steypt upp að nýju. Nokkrar breytingar verða gerðar á lauginni en svæðið þar sem stökkbrettin eru verður til að mynda endurnýjað og þar verður sérstök dýfingarlaug fyrir stökkbrettin. Við ræddum við Drífu Magnúsdóttur, forstöðumann Sundhallarinnar. Á fyrsta fundi nýrrar bæjarstjórnar Vestmannaeyja í síðustu viku var samþykkt að taka upp samtal við stjórnvöld um að kanna fýsileika á gerð jarðgangna milli lands og Eyja. Við ræddum þær hugmyndir við Njál Ragnarsson, bæjarfulltrúa E listans, sem lagði fram tillöguna. Í nýjasta tölublaði The Economist segja sérfræðingar að fellibyljatímabilið á vestanverðu Atlantshafi verði óvenju slæmt - þrátt fyrir að engir stærri fellibyljir hafi komið á land það sem af er tímabilinu, sem hefst um mánaðarmótin maí/júní og lýkur í lok nóvember. Við spjölluðum við Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðing, um fellibylji og mögulegar afleiðingar þeirra á næstu mánuðum. Í lok síðustu viku afgreiddi fjárlaganefnd tillögur fjármálaráðherra til að sporna við þenslu og verðbólgu en þar kennir ýmissa grasa; afsláttur á áfengisgjaldi í fríhöfninni verður lækkaður og sérstakt gjald lagt á ferðamenn svo fátt eitt sé nefnt. Við fengum til okkar tvö úr fjárlaganefnd til að ræða þessar aðgerðir, þau Kristrúnu Frostadóttur þingkonu Samfylkingar og Vilhjálm Árnason þingmann Sjálfstæðisflokksins. Já og umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis samþykkti frá sér þriðja áfanga rammaáætlunar á föstudag. Samþykktin sætir tíðindum en reynt hefur verið að klára þetta mál síðan 2015. Til okkar kom Auður Önnu-Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Landverndar. Svo förum við auðvitað yfir íþróttir helgarinnar eins og venja er á mánudögum. Að þessu sinni settist hjá okkur Edda Sif Pálsdóttir íþróttafréttakona. Tónlist: Í skýjunum - Stjórnin Dreadlock Holiday - 10cc Tryllt - Todmobile Enjoy the Silence - Depeche Mode A Driver Saved my life - Sigrid Manstu - Hjálmar Baby Blue - Sigrún Stella Face - Jói P X Pally Sign of Times - Harry Styles

Þann 1 júní 2009 hvarf Airbus breiðþota frá Air France yfir Atlantshafi með 228 mann innanborðs. Eftir að svörtu kassarnir fundust kom óhugnalegur sannleikur um örlög vélarinnar raunverulega í ljós.
Erpur Snær Hansen, fuglafræðingur: Risastórt svæði í miðju Atlantshafi hefur fundist þar sem fimm miljónir sjófugla dvelja hluta vetrar í fæðuöflun. Svæðið fannst eftir að dægurritagögn sýndu ferðir sjófugla á veturna og hefur komið í ljós að fæðan sem fuglarnir afla sér er lífsnauðsynleg og alger forsenda fyrir stærð fjölmargra stofna. Rætt um þessa uppgötvun og fjöldamargar fleiri rannsóknir sem hún hefur leitt af sér. Eva Dögg Sigurðardóttir skilaði nýverið doktorsritgerð sinni í félagsfræði þar sem hún rannsakaði hvernig börn af erlendum uppruna finna sig í íslensku skólakerfi og hvernig þau upplifa að þau tilheyri því og íslenskri menningu. Málfarsmínúta. Edda Olgudóttir: vísindaspjall um hamingju og heilahrörnun.

Þegar Dansk-norska ríkið liðaðist í sundur eftir Napóleonsstyrjaldirnar árið 1814 varð Noregur hluti Svíþjóðar en Danir héldu yfirráðum yfir eyjunum á Atlantshafi: Íslandi, Grænlandi og Færeyjum. Rúmri öld síðar, á fyrri hluta 20. aldar, voru Norðmenn upprennandi veldi á norðurslóðum og Íslendingar stóðu í sjálfstæðisbaráttu og höfðu áætlanir um útrás á fiskimiðin. Þessar gömlu samveldisþjóðir deildu nú um það hver ætti að fara með fullveldi yfir nýlendunni Grænlandi. Íslendingar sögðust hafa fundið og byggt landið fyrst, Noregskonungur hafði slegið eign sinni á það fyrstur valdhafa, en Danir státuðu af því að hafa fyrir 300 árum í ár, fundið það aftur og gerðu tilkall til eyjunnar allrar. Fáir spurðu hvað Grænlendingum sjálfum fannst. Í þessum síðasta þætti af Söguskoðun fyrir sumarfrí ræða Ólafur og Andri um þessa sögu sem ekki mikið hefur verið fjallað um en er þó bæði stórmerkileg og stórfurðuleg.
Eina slökkviskjólan sem Landhelgisgæslan hefur til umráða og hefur nýst vel í baráttu við gróðurelda, er ónýt og slökkvigeta úr lofti er því engin. Almannavarnir hafa miklar áhyggjur af stöðunni, en vonast er til að hægt sé að fá aðra skjólu lánaða frá Svíþjóð. Erfitt er að segja til um hvenær óvissuástandi vegna gróðurelda lýkur. Slökkviliðsstjóri hvetur landsmenn til að hafa varann á í kringum gróður. Atvinnuleysi dróst saman í apríl og var 10,4 prósent. Langtímaatvinnulausum heldur þó áfram að fjölga. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin lýsir yfir áhyggjum af afbrigði kórónuveirunnar sem geisað hefur á Indlandi síðustu mánuði. Það er talið mun meira smitandi en fyrri athuganir gáfu til kynna. Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag vinnuveitanda til að greiða transmanni laun sem hann átti inni vegna veikinda eftir aðgerð, sem væri óaðskiljanlegur hluti transferils hans. Formaður Samtakanna 78 fagnar niðurstöðunni. Örfá leiðangursskip með nokkur hundruð farþega sigla við Íslandsstrendur í sumar. Ekki er von á stórum mörg þúsund manna skemmtiferðaskipum, það verður í fyrsta lagi í haust. Eigandi ferðaskrifstofunnar Atlantik býst við að hafa í ár 5-7 prósent af þeim tekjum sem fyrirtækið hafði árið 2019, en er þó þakklátur fyrir eitthvað, eftir tekjuleysi í rúmt ár. Ragnhildur Thorlacius ræðir við Gunnar Rafn Birgisson einanda ferðaskirfstofunnar Atlantik. Kafbátaeftirlit bandaríska sjóhersins á Norður- Atlantshafi sem stjórnað er frá Keflavík hefur aukist talsvert á síðustu árum. Í fyrra voru P-8 vélar hersins við kafbátaleit í 173 daga, miðað við 21 dag árið 2014 þegar kafbátaeftirlit hófst hér á nýjan leik. Athygli hefur vakið að talsvert umferð herflugvéla hefur verið síðustu daga um Keflavíkurflugvöll. Eftir bæjar- og sveitastjórnarkosningar og aðrar svæðisbundnar kosningar hefur Íhaldsflokkurinn styrkt stöðu sína en þá blasir við glíma við skosku stjórnina um sjálfstætt Skotland. Verkamannaflokknum vegnaði ekki vel og er nú í gamalkunnri stöðu: leiðtoginn umdeildur og heiftug átök innan flokksins. Nema í Wales, þar sem gamalreyndur leiðtogi Verkamannaflokksins sýnir að það er hægt að ná árangri án þess að vera það sem kallast ?heillandi leiðtogi.? Sigrún Davíðsdóttir segir frá.

Spennandi kosningar eru á Bretlandi í dag þar sem kosið er til þings í Skotlandi og Wales og til fjölmargra bæjar- og sveitarstjórna. Þá eru aukakosningar um þingsæti í Hartlepool í norðausturhluta Englands. Því er spáð að Íhaldsflokkurinn vinni það sæti, en Verkamannaflokkurinn hefur átt þingmann kjördæmisins frá 1964. Spennan er mest í Skotlandi þar sem Skoski þjóðarflokkurinn, SNP, gæti unnið hreinan meirihluta á skoska þinginu. Undir lok Heimsgluggans ræddu Þórhildur Þorkelsdóttir og Þórunn Elísabet Bogadóttir við Boga Ágústsson um 200 ára ártíð Napóleons Frakkakeisara. Hann lést í útlegð á smáeyjunni Sankti Helenu sem er útnári í miðju Suður-Atlantshafi. Arfleifð hans er afar umdeild í Frakklandi. Napóleon gerbreytti stjórnskipan Frakklands, vann mikla hernaðarsigra en var að lokum borinn ofurliði í orrustunni við Waterloo í Belgíu 1815. Frakkland nútímans ber enn svip af þeim breytingum sem Napóleon gerði. En hann skerti einnig réttindi kvenna og kom þrælahaldi á að nýju í nýlendum Frakka og þess vegna finnst mörgum ótilhlýðilegt að halda upp á ártíð hans. Emmanuel Macron Frakklandsforseti reyndi að skauta fram hjá deilunum í ræðu í gær en sagði að ekki væri hægt að þurrka út fortíðina vegna þess að hún passaði ekki við hugmyndir samtímans. Nei, Napóleon Bonaparte er hluti af okkur, sagði Macron.

Sjaldan hefur verið auðveldara fyrir höfuðborgarbúa að sjá eldgos en einmitt núna, þar sem gýs á Reykjanesskaga, sannkallað túristagos. Gríðarlegur fjöldi hefur gengið á gosstöðvarnar síðustu daga til að upplifa náttúruna og til að finna kraftinn beint í æð. Og nóg hefur verið að gera við að fljúga með fólk yfir gosstöðvarnar á þyrlum og þyrluleigurnar hafa ekki undan. Jón Þór Þorleifsson smali og þyrluflugmaður hefur haft í nægu að snúast undanfarna daga og hann kom til okkar í spjall. Við fórum í heimsókn í Mývatnssveit í þættinum í dag þar sem Gígja Hólmgeirsdóttir ræddi við Sigríði Pétursdóttur sem er ein af stórum hópi Mývetninga sem stendur að rekstri handverkshússins Dyngju. Við forvitnuðumst um starfsemina og hvernig komandi sumar leggst í þau. Rannsókn á fjórum lundastofnum í Norður - Atlantshafi sýnir að lundar fljúga langar leiðir í leit að æti og vegalengdin hefur áhrif á fjölgun í stofnunum. Erpur Snær Hansen, forstöðumaður Náttúrustofu Suðurlands, er einn þeirra sem gerði þessa rannsókn og hann var á línunni hjá okkur og sagði okkur meira af niðurstöðunum og ástandi lundans almennt. Gosstöðvarnar í Geldingadölum eru á svæði Lögreglunnar á Suðurnesjum og lögreglan hefur haft í nógu að snúast ásamt björgunarsveitinni Þorbirni í Grindavík. Mikil hætta er á slysum þegar svo margt fólk gengur að gosstöðvunum og mörg þar á meðal sem eru óvant göngufólk. Svo ekki sé minnst á bílaumferð, utanvega akstur og hvernig fólk leggur faratækjum sínum. Við heyrðum í Úlfari Lúðvíkssyni, lögreglustjóra á Suðurnesjum. Okkar vikulega Spánarspjall var á sínum stað þegar við heyrðum í Jóhanni Hlíðar Harðarsyni og þar kom vorið við sögu m.a. Tónlist: Ellen Kristjáns og John Grant - Veldu stjörnu. Elvis Costello - Olivers Army. Kacey Musgraves - Slow burn. Taylor Swift ásamt Haim - No body, no crime. Hjálmar - Áttu vinur augnablik. KK - Lucky one. Fleetwood Mac - You make loving fun. Retro Stefson - Glow. R.E.M. - Man on the moon. Bubbi Morthens - Ástrós.
Heilbrigðismál eru mörgum hugleikin, og það á ekki bara við í heimsfaraldri eins og nú geisar. Farsóttin hefur haft veruleg áhrif á alla starfsemi Landspítalans undanfarið ár, en hverjar eru afleiðingarnar? Við ræddum um stöðu Landspítalans, bæði með tilliti til Covid en ræðum líka nýlega skýrslu um framleiðni og gæði heilbrigðisþjónustu hér á landi við Pál Matthíasson forstjóra Landspítalans. Eitt stærsta hafverndarsvæði jarðarinnar er nú að finna umhverfis smáeyjuna Tristan da Cunha [Kúnja] í Suður-Atlantshafi. Eyjan, sem tilheyrir Bretlandi, er ein afskekktasta byggð heims. Þar búa um 250 manns, aðeins örfá skip koma þangað á ári og gestir eru ekki velkomnir án leyfis. Vera Illugadóttir sagði okkur frá samfélaginu á þessari afskekktu eyju. Það var líf og fjör á Akureyri síðustu daga. Fólk af höfuðborgarsvæðinu flykktist norður með krakkana í vetrarfríum grunnskólanna; veitingamönnum og hótelhöldurum til mikillar gleði. Óðinn Svan Óðinsson fréttamaður á Akureyri ræddi um ferðaþjónustu í kófinu við Alexander Magnússon á veitingastaðnum Strikinu og Aron Pálsson á Hótel KEA. Tónlist: All the things you are - Charlie Parker
Margrét Sif Sigurðardóttir, formaður og stofnandi félagsins Villikanínur, kom til okkar og sagði okkur frá starfsemi þess. Tölur frá Húsnæðis og mannvirkjastofnun benda til þess að leigverð hafi á undanförnu ári hækkað um 4,3 prósent að meðaltali sem kann að skjóta skökku við þegar ferðamönnum hefur fækkað og stýrivextir lækkað. Una Jónsdóttir, hagfræðingur hjá Landsbankanum, rýndi í tölurnar um leiguverð og hreyfingar á því. Jón Páll Hreinsson, bæjarstjóri í Bolungarvík og stjórnarmaður í Örnu mjólkurvinnslu, skrifaði á dögunum harðorða grein þar sem hann segist gefa einokunarfyrirtækjum góð ráð til að koma keppinautum út af markaði. Það má hverjum vera ljóst að þar á Jón Páll við MS og hann var á línunni. Fram kom í fréttum Stöðvar tvö að hugmyndir eru upp um að gera Keflavíkurflugvöll að rafhleðslustöð fyrir fyrstu kynslóðir rafknúinna flugvéla sem ætlað er að komast yfir Atlantshafið. Pálmi Freyr Randversson, framkvæmdastjóri Kadeco, þróunarfélags Keflavíkurflugvallar, sagði okkur frá Anna Sigríður Þráinsdóttir og málfarshornið.
Anna Dís frá Pro film segir okkur frá ævintýralegu lífi Guðríðar Guðríður Þorbjarnardóttir sem hafði um miðja 11. öldina orðið víðförulasta kona miðalda. Hún var landkönnuður sem sigldi átta sinnum yfir úfið Atlantshafið og kannaði veröldina allt frá norðurströndum Ameríku og vestur til Vatíkansins í Rómarborg. Leifur Eiríksson bjargaði henni, síðar mágkonu sinni, úr sjávarháska sem varð til þess að hann fékk viðurnefnið “heppni“ en hún “hin víðförla.“
Í tuttugasta og sjöunda þætti Heimskviðna er fjallað um Julian Assange, stofnanda Wikileaks, og framsalskröfu Bandaríkjanna á hendur honum. Assange heldur nú uppi vörnum í Bretlandi, en bresk stjórnvöld hafa fallist á framsalskröfu Bandaríkjanna. Kristinn Hranfsson, ritstjóri Wikileaks, ræðir um réttarhöldin og hvernig niðurstaða þeirra gæti haft áhrif á framtíð blaðamennsku og tjáningarfrelsis í heiminum. Guðmundur Björn fjallar um málið. Mannskæðar óeirðir hafa verið í Delí, höfuðborg Indlands, undanfarnar vikur vegna nýrra laga sem gera ólöglegum innflytjendum kleift að fá ríkisborgararétt - ef þeir eru ekki múslimar. Þeir hafa lengi verið jaðarsettir í landinu. Lagasetningin tengist líka sögulegum flótta múslima frá nágrannaríkjunum og baráttu núverandi stjórnvalda til að halda löndum. Hallgrímur Indriðason skoðar málið nánar. Norður Atlantshaf hefur ætíð haft mikla hernaðarlega þýðingu. Á tímum kalda stríðsins óttuðust þjóðir Atlantshafsbandalagsins mjög að sovéski flotinn réðist á flutningaleiðir frá Bandaríkjunum til Evrópu. Þetta var ein höfuðástæða viðveru bandaríska flotans á Íslandi. Bogi Ágústsson ræddi við bandaríska flota- og herfræðinginn Magnus Nordenman um breytta ógn á Norður-Atlantshafinu. Heimskviður er fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi. Ritstjórar þáttarins eru Guðmundur Björn Þorbjörnsson og Birta Björnsdóttir.

Margir eru uggandi yfir vaxandi spennu á alþjóðasviðinu. Varnaræfing Atlantshafsbandalagsins á Norður-Atlantshafi í haust er stærsta æfing bandalagsins frá 2015. Er skollið á nýtt kalt stríð? Donald Trump, Bandaríkjaforseti, segir að rússnesk stjórnvöld hafi brotið kjarnorkusáttmála Rússlands og Bandaríkjanna frá árinu 1987, um eyðingu meðaldrægra kjarnaflauga. Samningurinn sé því í reynd ekki lengur virkur. Og nýjustu fregnir herma að nú sé verið að endurvekja hina umtöluðu stjörnustríðáætlun frá valdatíð Ronalds Reagan. Freyr Eyjólfsson í New York velti fyrir sér spurningunni um það hvort nýtt vígbúnaðarkapphlaup sé að hefjast. Forseti Frakklands, Emmanuel Macron, hefur viðrað hugmyndir um að settur verði á fót Evrópuher til að vera viðbúinn ógnum frá Rússlandi og Kína, og til að aðstoða borgara í hættuástandi. Frakklandsforseti segir að Evrópa geti ekki treyst á Bandaríkjamenn í hernaðarmálum. Angela Merkel, Þýskalandskanslari, styður líka hugmyndina um Evrópuher. Donald Trump, Bandaríkjaforseti, segist móðgaður, Evrópubúum væri nær að axla meira af útgjöldum NATO. Við ræddum þessar hugmyndir um Evrópuher og samskiptin á alþjóðasviðinu við Kristján Guy Burgess, sérfræðing í alþjóðamálum. Hann lýsti því hversu flókið þetta svið er orðið, öryggi væri ekki einungis tryggt með hernaðarviðbúnaði, heldur samskiptum og samræðu. Leiðtogar Kína, Japan, Ástralíu, Kanada og fleiri ríkja eru nú á leið til Papúa Nýju Gíneu þar sem árlegur fundur APEC, samtaka Asíu- og Kyrrahafsríkja um efnahagssamstarf, verður haldinn um helgina. Papúa Nýja Gínea er langfátækasta land samtakanna og höfuðborgin Port Moresby, þar sem fundurinn fer fram, ein hættulegasta borg heims. Engu hefur þó verið til sparað við undirbúning fundarins. Vera Illugadóttir sagði frá. Bókin Flóra Íslands er komin út, sannkallað stórvirki, með teiknuðum litmyndum eftir Jón Baldur Hlíðberg. Höfundar eru Hörður Kristinsson og Þóra Ellen Þórhallsdóttir. Að baki liggur vinna höfunda í áratugi. Þetta er ítarlegasta rit sem hefur komið út um íslenskar plöntur. Hörður hefur verið einn helsti fræðimaður landsins á sviði grasafræði í rúmlega hálfa öld. Suuna Valgerðardóttir ræddi við Hörð um bókina og plöntulífríkið á Íslandi. - Tónlist: Henrik Metz - En frydefuld sommertid; Errol Garner - I'm in a mood for love; Timo Väänänen - Riposti
Lúsmý dreifist um landið og virðist hafa náð góðri fótfestu. Einn þeirra fyrstu sem urðu fyrir barðinu á þessari plágu er tónlistarmaðurinn Kalli Tomm og við slógum á þráðinn til hans og spurðum hann hvort hann hefur fundið einhverja leið til verjast þessum hvimleiða gesti. Nú er víða verið að ráða bæjar- og sveitarstjóra í kjölfar kosninga í vor. Kjartan Már Kjartansson hefur verið endurráðinn bæjarstjóri í Reykjanesbæ og við spjölluðum við hann um mikla fjölgun bæjarbúa og þau verkefni sem framundan eru. Töluverðar afbókanir hópa vegna minnkandi samkeppnishæfni Íslands og mikil aukning á framboði ferða yfir Atlantshafið eru helstu ástæður fyrir því að Icelandair hefur lækkað afkomuspá sína fyrir árið 2018. Í kjölfarið lækkaði verð á hlutabréfum félagsins um fjórðung. En hvað þýðir þetta fyrir ferðaiðnaðinn hér á landi og glímir flugfélagið WOW einnig við erfiðleika? Við spurðum Kristján Sigurjónsson, ritstjóra turisti.is Pólfarinn og Everestfarinn Vilborg Arna Gissurardóttir lætur fátt stoppa sig og nú hefur hún stofnað sitt eigið ferðafyrirtæki. Vilborg Arna kíkti til okkar og sagði okkur frá því sem hún er að fást við þessa dagana. Tónlist: Commodores - Easy. The Pretenders - Hymn to her. Rolling Stones - Harlem Shuffle. John Mayer - New light. Magnús Gunnarsson - Summer nights (ft. Lilja Eivor). Kalli Tomm - Kyrrþeyrinn andar. Paul Simon - 50 ways to leave your lover. Nýdönsk - Uppvakningar. Paul McCartney - Come on to me. Rick Astley - Beautiful life. Dalí - Change you. Portugal the man - Feel it still. Simple Minds - Summer.
Ljósmæður vilja fá 670 þúsund krónur í byrjunarlaun Alþjóðlegir eftirlitsmenn eru á leið til Douma í Sýrlandi til að kanna ásaknir um eiturefnarás. Rússar var vestrænar þjóðir við afleiðingum þess að bera Sýrlandsstjórn sökum og hóta flugskeytaárás en vaxandi samstaða er um aðgerðir gegn Assad. Ásgeir Tómasson segir frá og heyrist í Angelu Merkel, kanslara Þýskalands. Starfandi forstjóri Barnaverndarstofu, staðfestir að myndbandið sem sýnir börn sniffa gas þegar þau voru í helgarleyfi í sumarbústað með starfsmönnum á meðferðarheimilinu hafi komið inn á borð Barnaverndarstofu. Freyr Gígja Gunnarsson segir frá. Áskorun um að nýkjörinn formaður Kennarasambands Íslands, endurnýi umboð sitt var frestað til morguns á þingi sambandsins í dag. Viðreisn ætlar að bjóða fram undir eigin merki í Hafnarfirði í vor eftir að áform um sameiginlegt framboð með Bjartri framtíð runnu út í sandinn vegna ágreinings innan Bjartrar framtíðar. Sveitarstjón Langanesbyggðar óttast, að ef frumvarp um breytingar á stjórn fiskveiða verður að lögum óbreytt, gætu strandveiðar lagst af á vissum landsvæðum. Ágúst Ólafsson ræðir við Elías Pétursson, sveitarstjóra í Langanesbyggð. Sveitarstjórn Reykhólahrepps hyggst fjármagna mat erlendra sérfræðinga á leiðum fyrir Vestfjarðaveg 60 um Gufudalssveit. Sveitarstjórn hafði áður samþykkt að nýr vegur skyldi liggja um Teigsskóg, sem er í samræmi við vilja Vegagerðarinnar. Formaður lögreglustjórafélagsins segir að æðstu stjórnendur innan lögreglunnar sé lítt varðir gagnvart pólitísku áhrifavaldi. Í skýrslu GRECO, samtaka ríkja gegn spillingu, er bent á að dómsmálaráðherra skipi og endurráði alla lögreglustjóra. GRECO-nefndin telur að liggja þurfi fyrir skýr og gagnsæ rök fyrir að endurráða þá ekki. Arnar Páll Hauksson ræðir við Úlfar Lúðvíksson, formann Lögreglustjórafélags Íslands. Hvernig verður þróun á vinnumarkaði næstu ár og áratugi með tilkomu snjalltækja, þjarka og vélmenna. Katrín Ólafsdóttir lektor við Háskólann í Reykjavík hefur tekið þátt í norrænum rannsóknum á framtíð vinnunnar. Anna Kristín Jónsdóttir ræddi við hana um 4 byltingin. Nú er tími farfuglanna og þessa dagana er mikil flugumferð yfir Atlantshafið til Íslands. Sífellt berast fréttir af nýjum tegundum fugla sem leggja leið sína til landsins. En ekki eru allar fuglafréttir góðar fréttir. Smáfuglar í Evrópu eru nú um það bil 500 milljónum færri en þeir voru árið 1980. Í Frakklandi hefur smáfuglum fækkað um þriðjung á fimmtán árum. Stóraukin notkun eiturefna í landbúnaði er talin helsta orsökin. Borgþór Arngrímsson se