POPULARITY
Bogi Ágústsson settist við Heimsgluggann og með var honum Magnús Þorkell Bernharðsson, doktor og prófessor í sögu Mið-Austurlanda. Til umræðu var ástandið og átökin fyrir botni Miðjarðarhafs. 150 ár eru í dag síðan Friðriksgáfa, hús amtmannsins á Möðruvöllum í Hörgárdal, brann. Þetta var hvorki fyrsti né síðasti húsbruninn á prests- og menntasetrinu Möðruvöllum; brunasagan er raunar með miklum ólíkindum. Við hringdum til Möðruvalla og spjölluðum við Odd Bjarna Þorkelsson prest sem þar hefur þjónað í að verða tíu ár. Við töluðum um söguna en líka um lífið og tilveruna, og trúna. Og úr Eyjafirðinum lá leiðin vestur á firði. Hjá Vestfjarðastofu er nú unnið markvisst að kynningu landshlutans til að laða að fjárfestingu sem nýtir gæði og náttúruauðlindir á ábyrgan hátt. Í þessu augnamiði hefur nýjum vef verið hleypt af stokkunum; slóðin er Inwest.is - vaffið er tvöfalt; þetta er leikur að orðum og stöfum. Sigríður Kristjánsdóttir, framkvæmdastjóri Vestfjarðastofu, sagði okkur frá þessu en gangi öll áform eftir þarf meðal annars að byggja um eittþúsund íbúðir á næstu árum. Tónlist: Haukur Morthens, Tríó Jörn Grauengård - Suður um höfin. Haukur Heiðar Ingólfsson og félagar - You belong to me. Ljótu hálfvitarnir - Paradísarmissir.
Óttar Guðmundsson geðlæknir og rithöfundur var föstudagsgesturinn okkar í dag. Hann hefur skrifað fjölmargar bækur, blaðagreinar og hefur verið fastur penni hér og þar í fjölmiðlaheiminum. Hann hefur auðvitað lengi látið sig geðheilbrigðismál varða, vímuefnamálin og transmálin, en hann hlaut hlaut heiðursmerki Samtakanna 78 árið 2012. Óttar hefur stundum verið umdeildur en alltaf óhræddur við að viðra skoðanir sínar. Við fórum með Óttari aftur í tímann á æskuslóðirnar, drauma hans um að verða knattspyrnumaður og leikari. Hvernig það atvikaðist að hann fór í læknisfræðina, áhugi hans á Þýskalandi og þýskri menningu og áhuga hans grúsk hans í dag til dæmis um 19.aldar skáldið Sigurð Breiðfjörð. Það var um nóg að tala við Óttar í þættinum í dag. Svo var það auðvitað matarspjallið. Sigurlaug Margrét talaði þar um vonina, vonina um vorið sé að koma og það hvernig matarplönin geta breyst eftir veðrinu og árstíðunum. Salat og léttari matur í matarspjallinu. Tónlist í þættinum í dag: Þrek og tár / Haukur Morthens og Erla Þorsteinsd. (Otto Lindblad og Guðmundur Guðmundsson) Einskonar eftirmáli / Jóhanna V. Þórhallsdóttir (Jóhanna Þórhallsdóttir og Guðmundur Sigurðsson) Eitt lítið kaffitár / Jóhanna V. Þórhallsdóttir (Catulo Castillo og Sveinbjörn I. Baldvinsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var leikkonan Helga Braga Jónsdóttir. Hana þarf auðvitað varla að kynna, hún hefur glatt fólkið í landinu með húmor sínum og gamanleik, bæði á sviði, í sjónvarpi og á kvikmyndatjaldinu, í Fóstbræðrum og fjölda Áramótaskaupa svo fátt eitt sé nefnt, auk þess að vera auðvitað líka frábær dramatísk leikkona. Við fórum með henni aftur í tíma, á æskuslóðirnar á Akranesi þar sem hún rifjaði upp fyrstu skrefin á leiksviðinu þar sem hún lék titilhlutverkið í Línu langsokki. Svo fórum við á handahlaupum í gegnum lífið til dagsins í dag, með viðkomu í leiklistarskólanu, París og svo leikhúsunum. Svo ræddum við að lokum við Helgu um hennar nýjasta hlutverk í gamanmyndinni Fullt hús, sem var frumsýnd var fyrir skemmstu. Svo var auðvitaða matarspjallið á sínum stað. Eftir helgi eru bolludagurinn og sprengidagurinn, það var því ekki úr vegi að ræða þessa daga undir styrkri stjórn Sigurlaugar Margrétar í dag. Tónlist í þættinum í dag: Sjóddu frekar egg / Bogomil Font (Bragi Valdimar Skúlason) Kaupakonan hans Gísla í Gröf / Haukur Morthens (erlent lag, texti e. Loftur Guðmundsson) Ég vil fara upp í sveit / Ellý Vilhjálms (erlent lag, texti e. Jón Sigurðsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Mannlegi þátturinn var sendur í dag út frá Síðumúla, nánar tiltekið úr Múlabæ dagþjálfun fyrir aldraða og öryrkja. Hugmyndin að þessari fyrstu dagdvöl landsins varð reyndar til á ári aldraðra, 1982 en verkefnið þróaðist svo í samvinnu þriggja félagasamtaka og var Múlabær opnaður í janúar árið 1983, fyrsta dagdvöl landsins ætluð öldruðum. Múlabær á sér farsæla sögu og hafa sömu aðilar staðið að rekstrinum nánast frá upphafi. Í dag er stjórn staðarins skipuð af aðilum frá SÍBS, Félagi eldri borgara í Reykjavík og Reykjavíkurdeild Rauða krossins. Við töluðum í dag við Þórunni Bjarney Garðarsdóttur, forstöðumann Múlabæjar, um starfsemina og sögu Múlabæjar sem varð 40 ára í fyrra. Svo töluðum við við Eddu Jónasdóttur,Sigurð Daníelsson og Ragnheiði Sigurðardóttur, sem öll nýta sér þjónustuna og dagdvölina. Tónlist í þættinum í dag: Áður oft ég hef / Haukur Morthens og Hljómsveit Sigurd Jansen (erlent lag, texti e. Egil Bjarnason) Ljúfa vina / Ragnar Bjarnason og Sigrún Jónsdóttir (Jón Sigurðsson og Ólafur Gaukur Þórhallsson, texti Indriði G Þorsteinsson og Ólafur Gaukur) Sun aint gonna shine anymore / Walker brothers Hringdansar / Kokkurinn (syrpa)/ Harmónikkutríó Jan Mórávek UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Í dag er fyrsti febrúar og hann er merkisdagur í Íslandssögunni. Það var jú 1. febrúar 1904 sem við Íslendingar fengum heimastjórn frá Dönum. Fyrir 120 árum í dag. Af því tilefni rifjuðum við upp þessi tímamót í íslenskri stjórnskipan og samskiptunum við Dani. Til okkar kom Gunnar Þór Bjarnason sagfræðingur, sem kann þessa sögu vel; hefur rannsakað hana og skrifað um hana bækur. Bændur bera sig illa víða í álfunni og hafa mótmælt svo eftir er tekið, í t.d. bæði Þýskalandi og Frakklandi. Íslenskir bændur - ekki síst ungir bændur - hafa líka vakið athygli á erfiðri stöðu í verðbólgu og hávöxtum. Er um reglubundið upphlaup að ræða eða stendur landbúnaður á tímamótum? Hefur smátt og smátt fjarað undan hefðbundnum búskap? Við veltum þessu fyrir okkur með Vigdísi Häsler, framkvæmdastjóra Bændasamtakanna. Við töluðum um gamlar bækur; bækur sem prentaðar voru í Íslendingabyggðum í Vesturheimi á síðustu áratugum nítjándu aldar og fram á miðja tuttugustu öld. Slíkum prentgripum safnaði Ragnar H. Ragnar sem ungur hélt vestur um haf og nam tónlist. Árnastofnun hefur fengið safn Ragnars að gjöf. Sonur hans, Hjálmar H. Ragnarsson tónskáld kom til okkar. Tónlist: Naissoo, Tõnu Trio, Naissoo, Tõnu, Melvin, Brian, Krokfors, Ulf - Don't say goodbye. Hljómsveit Jörn Grauengård, Haukur Morthens, Erla Þorsteinsdóttir - Þrek og tár. Hljómsveit Jörn Grauengård, Haukur Morthens - Frostrósir. Baggalútur - Sólskinið í Dakota.
Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur kom í sitt vikulega veðurspjall og við spjölluðum við hann um andstæður í veðrinu um þessar mundir. Milt í N-Ameríku en fáheyrðar frosthörkur í Finnlandi og Norðurlöndunum og svo hæglátt veður hér á landi. Einar sagði okkur svo frá Norður-Atlantshafssveiflunni (NAO) og hvernig líklegt sé að hún móti veður á Íslandi a.m.k. fram eftir janúar. Við veltum líka fyrir okkur hvernig 2023 kom út hitafarslega á landinu. Við fengum fyrsta póstkort ársins 2024 frá Magnúsi R. Einarssyni. Í því sagði hann frá hátíðahöldum um jól og áramót í Eyjum. Síðan sagði Magnús frá ljósmengun, en hún truflar líkamsklukkuna og eykur líkur á ýmsum sjúkdómum. Hann sagði líka frá París sem er fyrirmynd flestra borga vegna skipulags og borgarlegs lífernis. Í lokin sagði svo af ferðalögum sínum á liðnu ári og þá sérstaklega af þeim níu ferðum sem hann fór til Berlínar í Þýskalandi. Svo að lokum fengum við vinkil frá Guðjóni Helga Ólafssyni. Að þessu sinni fjallaði vinkillinn um að ákveða að það sem maður þarf að gera sé skemmtilegt eins og t.d. áramótauppgjörið eins og það horfir við sjálfstæðum atvinnurekendum. Vinkillinn fjallaði líka um gamalt og nýtt drasl og vandamál sem tengjast gangtruflunum gamalla bensínvéla. Tónlist í þættinum í dag: Sjaddi mollo / South River Band (Ólafur Þórðarsson og Magnús Einarsson) Horfðu á mánann / Haukur Morthens (erlent lag, texti Pálmar Ólason) Tregagleði / Hljómar (Gunnar Þórðarson og Einar Már Guðmundsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Fyrsti gestur þáttarins var Halla Hrund Logadóttir orkumálastjóri. Hún sagði frá aðkomu Orkustofnunar að málum tengdum jarðhræringunum á Reykjanesskaga og talaði um fyrirhugaða breytingu á lögum um orkumál þar sem kveða á um forgang fólks að orku í orkuskorti fram yfir fyrirtæki. Valgerður María Guðjónsdóttir var meðal þeirra Grindvíkinga sem yfirgefa þurftu heimili sín í skyndi að kvöldi föstudagsins 10. nóvember. Valgerður, sem er 95 ára, býr á dvalarheimilinu Víðihlíð en hefur dvalið á Grund síðustu tvær vikur. Ingibjörg Reynisdóttir fór til Grindavíkur fyrir 30 árum til að vinna þar í fjórar til sex vikur. Hún býr enn í bænum. Rætt var við Valgerði og Ingibjörgu. Ólafur Dýrmundsson búvísindamaður hefur skrifað sögu sauðfjárbúskapar í Reykjavík. Hann hefur líka haldið kindur í höfuðborginni frá 1957. Ólafur sagði sögur af kindum og mönnum. Tónlist: Stína, ó Stína - Haukur Morthens, Secret garden - Bruce Springsteen, All shook up - Elvis Presley. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Eyrún Magnúsdóttir.

Lendir þú stundum í því að klóra þér í kollinum á listsýningum? Eða stígur þú helst ekki færi inn á listasafn? Þá ætlum við að fjalla um viðburð í þættinum í dag sem gæti einmitt verið fyrir þig. Þar verður meðal annars tekið á vangaveltum eins og: Er þetta list? Ég hefði getað gert þetta! Það sem fólki dettur í hug! Um er að ræða viðburð á vegum Listasafns Reykjavíkur og þau Markús Þór Andrésson, deildarstjóri sýninga og miðlunar hjá safninu og Halla Margrét Jóhannesdóttir verkefnastjóri miðlunar, sögðu okkur meira frá þessu í þættinum. Svo kom Elín Björk Jónasdóttir til okkar í dag í sitt vikulega veðurspjall. Í dag fræddi hún okkur um rigningu en þetta veðurspjall var reyndar það síðasta með henni í bili þar sem hún er að byrja í nýrri vinnu. En við erum þó alls ekki hætt að ræða veðrið hér í Mannlega þættinum, nema síður sé því Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur verður með okkur annan hvern þriðjudag í veðurspjalli í vetur. Kristín Aðalsteinsdóttir kennari og fræðimaður heldur úti vinsælum Facebookhópi um brauðbakstur þar sem hún miðlar af þekkingu sinni en Kristín hefur nánast aldrei keypt brauð úr búð síðan árið 1974. Svo var það um daginn að Kristínu var boðið að halda fræðsluerindi á Amtsbókasafninu á Akureyri um fyrirbæri sem tengist brauði sterkum böndum - sem sagt fræðsluerindi um álegg. Við skruppum í heimsókn til Kristínar og fengum að vita meira. Tónlist í þættinum Ó borg mín borg / KK & Björk (Haukur Morthens og Vilhjálmur Guðmundsson) Don?t Know What?s Normal / Shintaro Sakamoto (Shintaro Sakamoto) Gvendur á Eyrinni / Dátar (Rúnar Snæland Gunnarsson og Þorsteinn Eggertsson) Heim í Búðardal / Ðe Lónlí Blú Bojs (Gunnar Þórðarson og Þorsteinn Eggertsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GÍGJA HÓLMGEIRSDÓTTIR

Í fyrsta hluta þáttarins var fjallað stuttlega um Barnamenningarhátíðina Púkann sem hefst á Vesfjörðum í dag og stendur í tíu daga. Skúli Gautason, menningarfulltrúi Vestfjarðastofu, sagði frá. Finnbjörn A. Hermannsson, forseti ASÍ, ræddi um ástand og horfur í samfélaginu. Verkalýðsfélögin vinna að kröfugerðum fyrir komandi kjaraviðræður. Finnbjörn telur mikilvægast að verja kaupmátt launafólks en hann hefur rýrnað mjög á síðustu misserum með aukinni verðbólgu og vaxtahækkunum. Björn Malmquist fjallaði um stjórnmál í Evrópu í spjalli frá Brussel. Fyrir dyrum standa kosningar í Póllandi og Slóvakíu og enn hefur ekki tekist að mynda ríkisstjórn á Spáni eftir kosningarnar þar í júlí. Forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins flytur stefnuræðu á miðvikudag. Í síðasta hluta þáttarins var fjallað um staðla. Hægt er að kaupa og taka upp staðla fyrir hitt og þetta í flestri starfsemi samfélagsins og tryggja þar með að bestu leiðir séu farnar við ákvarðanatöku og framkvæmd. Til dæmis eru til staðlar gegn mútum og annarri spillingu. Helga Sigrún Harðardóttir, framkvæmdastjóri Staðlaráðs, var gestur. Tónlist: Bátarnir á firðinum - Haukur Morthens, Hann Tumi fer á fætur - Björgvin Halldórsson, Sagan af Sigga - Ragnheiður Gröndal, Minkurinn í hænsnakofanum - Ómar Ragnarsson, Ég ætla að mála allan heiminn elsku mamma - Kristín Lilliendahl. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson.

Teepa Snow er iðjuþjálfi, aðstandandi og með yfir 30 ára starfsreynslu af starfi fyrir fólk með heilabilun, bæði í beinni þjónustu og fræðistarfi. Hún heldur fyrirlestra víða um heim og er þekkt fyrir nálgun sína og lifandi aðferðir við að miðla þekkingu sinni og í dag heldur Teepa fyrirlestur á Íslandi í dag á vegum samtakanna Verndrum veika og aldraða. Við fengum Áslaugu Dröfn Sigurðardóttur, aðstandanda, og meðlim í samtökunum til að segja okkur meira frá Teepu og viðburðinum í þættinum í dag. Jazzklúbburinn Múlinn heldur áfram með sumardagskrá sína með spennandi tónleikum og á morgun í Flóa í Hörpu koma fram Ife Tolentino og Óskar Guðjónsson ásamt hljómsveit. Þegar Óskar og Ife, sem er frá Brasilíu, voru búnir að vinna saman í talsvert mörg ár fundust þó nokkuð af skúffulögum í fórum Ife sem hann hafði aldrei gert neitt með. Þarna var kominn efniviður sem Óskar vildi ekki láta fara forgörðum og hafist var handa við upptökur. Nú er platan að koma út og á útgáfutónleikum verður hún leikin ásamt fleiri brasilískum lögum af þeim félögum ásamt frábærri hljómsveit. Við hringdum í Óskar í þættinum. Við sem búum á höfuðborgarsvæðinu gleymum stundum hvað það er skemmtilegt að fara útí Viðey. Á sumrin er boðið uppá dagskrá um helgar eins og td. núna á laugardaginn 1.júlí. Börnum verða sagðar þjóðsögur í Viðey í skemmtilegri náttúrugöngu og sögukonan er Björk Bjarnadóttir umhverfis- og þjóðfræðingur. Spáð verður í jurtirnar, nöfn þeirra, athugað verður hvort það fylgi þeim einhver þjóðtrú, nytjar þeirra skoðaðar og fjallað um lækningamátt þeirra. Við heyrðum í Björk í þættinum. Tónlist í þættinum: Rock Calypso í réttunum / Haukur Morthens (erlent lag /Jón Sigurðsson) Southern cross / Crosby Stills and Nash (Stephen Stills, Michael Curtis og Richard Curtis) Nao Tem Misterio / Ife Tolentino (Ife Tolentino) Austurstræti / L?amour Fou (Þórhallur Sigurðsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Í spjalli um næringu og mataræði fjallaði Anna Sigríður Ólafsdóttir, prófessor í næringarfræði, um saltneyslu. Við borðum víst of mikið salt, samkvæmt neyslukönnunum. Saltið er víða þótt það blasi ekki við, t.d. er jafnan mikið salt í unnum kjötvörum. Anna Sigríður fjallaði líka um merkingar matvæla sem oft eru ruglingslegar. Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur talaði um kuldann síðustu og næstu daga. Hugsanlegt er að frostið fari í og yfir 20 stig um helgina. Veturinn hefur verið óvenju köflóttur, skipst á með skinum og skúrum. Í vikunni voru sjötíu ár frá stofnun Lúðrasveitar verkalýðsins. Af því tilefni kom Þórunn Ármannsdóttir, altó-saxófónleikari og formaður sveitarinnar, í þáttinn og spjallaði vítt og breitt. Tónlist: Mercy, Mercy - Sálin hans Jóns míns, Suður um höfin - Haukur Morthens, Láttu mig vera - 200 þúsund naglbítar og Lúðrasveit verkalýðsins, Almost hear you sigh - Rolling Stones. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir

Þórður Snær Júlíusson ritstjóri kom til okkar. Meðal þess sem hann ræddi var ný skýrsla Oxfam, þar sem kemur fram að ríkasta 1 prósent heimsbyggðarinnar hafi eignast tvo þriðju þess auðs sem orðið hefur til frá því að heimsfaraldur skall á. Sömuleiðis fer sárafátækt vaxandi, í fyrsta sinn í aldarfjórðung. Arthúr Björgvin Bollason sagði okkur frá nýjustu vendingum í þýskum stjórnmálum í Berlínarspjalli. Tilkynnt verður um nýjan varnarmálaráðherra í dag, enda munu varnarmálaráðherrar NATO ríkjanna koma saman á föstudag til að ræða aukna aðstoð við Úkraínu. Í lok þáttarins ræddum við um brauð og kökur, og rekstur bakaría. Sigurður Már Guðjónsson bakarameistari og formaður Landssambands bakarameistara kom til okkar að ræða þau mál. Tónlist: Ég skal bíða þín - Haukur Morthens

Messur verða með hefðbundnum hætti þessi jólin, öfugt við síðustu tvenn þegar samkomutakmarkanir vegna kórónuveirufaraldursins komu í veg fyrir messuhald. Sveinn Valgeirsson, prestur í Dómkirkjunni, spjallaði um jólamessur og trú og ýmislegt fleira. Kirkjusókn hefur ekki verið jafnmikil að undanförnu og hún var fyrir faraldur. Óveðrið síðustu daga setti allt úr skorðum í Sandgerði. Þar þurfti m.a. að slá af litlu jólin í Sandgerðisskóla. Bylgja Baldursdóttir skólastjóri sagði frá því og ófærð og fleiru í stuttu spjalli. Jólahjól með Sniglabandinu er lon og don á aðventunni. Þetta óvenjulega jólalag hefur verið mjög vinsælt síðan það kom út fyrir 35 árum. Skúli Gautason höfundur sagði hlustendum hvernig lagið varð til á sínum tíma og spjallaði um vinsældir þess. Tónlist: Hvít jól - Elly og Vilhjálmur, Hátíð í bæ - Haukur Morthens, Er líða fer að jólum - Sigríður Thorlacius og Sigurður Guðmundsson, Jólahjól - Sniglabandið. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir.

Leikin eru lög eftir hjónin Felice og Boudleaux Bryant, í flutningi íslenskra söngvara og hljómsveita. Fleytendur eru: The Boys, Helena og Óðinn ásamt Atlantic kvartettinum, Haukur Morthens og Hljómsveit Gunnars Ormslev, Yfirliðsbræður, Eilífðarbræður, Hljómar, Lónlí blú bojs, Rúnar Júlíusson og Vilhjálmur Vilhjálmsson. Umsjón: Jónatan Garðarsson.

Október er alþjóðlegur vitundarmánuður fólks með ADHD og ADHD samtökin standa fyrir fjölbreyttum viðburðum til að vekja athygli á málefnum fólks með ADHD. Gera má ráð fyrir að hátt í 20.000 Íslendingar séu með ADHD - greint eða ógreint, börn og fullorðnir. Í ár verður athyglinni sérstaklega beint að mikilvægi greininga, meðferðar og lyfja fyrir fólk með ADHD og því ástandi sem í þeim málum ríkir hér á landi, en biðtími eftir þessari mikilvægu þjónustu er um tvö ár. Yfirskrift mánaðarins er ADHD - greining, meðferð og lyf bjarga lífum! Hrannar Björn Arnarsson, framkvæmdastjóri ADHD samtakanna, og Anna Tara Andrésdóttir, doktorsnemi í heila- hugarstarfsemi og hegðun í Háskólanum í Barcelona komu í þáttinn í dag. Bókin Undir gjallregni er frásögn lögreglumannsins Ólafs Ragnars Sigurðssonar af eldgosinu í Eyjum 1973. Ólafur var nýráðin lögregluþjónn í Vestmannaeyjum þegar eldgosið hófst aðfaranótt 23.janúar 1973. Ragnar varð eftir í eynni við björgunarstörf næstu vikur og skráði hjá sér minnisverða atburði, stóra og smáa og eru þeir uppistaðan í bókinni. Ólafur og barnabarn hans Marí Linda Jóhannsdóttir, sem aðstoðaði við skrifin, komu í þáttinn. Við fengum svo póstkort frá Magnúsi R. Einarssyni í dag. Í póstkorti dagsins segir hann frá skemmtanalífi og veisluhaldi Vestmannaeyinga og svo frá ferðalöngun Magnúsar frá því að hann var strákur austur á fjörðum. Hann segir frá frægri veggmynd á múrnum í Berlínaborg sem er nú orðin eitt helsta tákn borgarinnar. Hann segir líka frá deilum sem eru risnar millum Breta og Indverja vegna gimsteins sem Indverjar segja breta hafa stolið en prýðir nú kórónu væntanlegrar drottningar. Tónlist í þættinum í dag: Þrek og tár / Haukur Morthens og Erla Þorsteinsdóttir (Otto Lindblad og Guðmundur Guðmundsson) Gakktu alla leið / Hjálmar (Smokey Robinson, Ronald White og Bragi Valdimar Skúlason) Hr. Reykjavík / Stuðmenn (Valgeir Guðjónsson og Sigurður Bjóla Garðarsson) Heima / Sextett Ólafs Gauks (Oddgeir Kristjánsson og Ási í Bæ) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Í spjalli um efnahag og samfélag fjallaði Þórður Snær Júlíusson meðal annars um verðlækkun íslenskra hlutabréfa, bólumyndun á húsnæðismarkaði og yfirvofandi vaxthækkanir á óverðtryggðum húsnæðislánum. Aukinn skattur á orkuframleiðslu og fiskeldi í Noregi var einnig til umræðu. Milljón flóttamenn hafa komið til Þýskalands það sem af er ári. Langflestir frá Úkraínu en einnig frá Afganistan, Pakistan og Sýrlandi. Arthúr Björgvin Bollason fjallaði meðal annars um vaxandi áhyggjur þýskra yfirvalda af stöðinni en örðugt er að útvega öllum húsnæði og vinnu. Arthúr sagði líka frá rithöfundinum og rannsóknarblaðamanninum Gunter Wallraff sem varð áttræður á dögunum. Hann varð frægur á sínum tíma fyrir bók sem hann skrifaði og afhjúpaði ómannúðlega meðferð og framkomu gagnvart innflytjendum í Þýskalandi á árunum eftir síðari heimsstyrjöld. Við þurfum að taka miklu betur á móti fólki sem sest hér að en við gerum nú. Það segir Berglind Ásgeirsdóttir, fyrrverandi sendiherra, sem telur íslenskt samfélag fara á mis við mikið við að hvetja ekki og hjálpa nýjum Íslendingum að taka virkan þátt í lífinu og tilverunni í landinu. Það á að nýta mannauðinn, segir hún. Berglind hefur helgað sig málefninu að undanförnu og hélt um það erindi nýverið á fundi Hins íslenska þjóðvinafélags. Hún er bjartsýn á að hlutirnir færist til betri vegar. Tónlist: Þrek og tár - Haukur Morthens og Erla Þorsteinsdóttir, Ó hve glöð ég er - Elly Vilhjálms, Vagg og velta - Erla Þorsteinsdóttir. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson.

Íslenskt söng- og tónlistarfólk flytur nokkur lög eftir bandaríska lagasmiðinn og söngvarann Neil Sedaka. Flytjendur eru Helena Eyjólfsdóttir, Ragnar Bjarnason, Haukur Morthens, Ríó tríó, Katrín Sigurðardóttir, Óðinn Valdimarsson, Randver, Guðrún Gunnarsdóttir, The Boys og Stúlknakór Tónlistarskóla Keflavíkur. Umsjón: Jónatan Garðarsson.

Leiknar eru nokkrar sönglagasyrpur með Silfurkórnum af plötum sem gefnar voru út árið 1978 til 1980, auk þess sem Fjórtán Fóstbræður syngja eina syrpu og Haukur Morthens syngur eina lagasyrpu. Umsjón: Jónatan Garðarsson.

Í byrjun þáttar var rifjað upp að fimmtíu ár eru í dag síðan landhelgi Íslands var færð út í 50 mílur. Umfjöllun Guðrúnar Hálfdánardóttur um málefni útlendinga hélt áfram. Rætt var um atvinnu- og dvalarmál við Guðmund Inga Guðbrandsson, félagsmála- og vinnumarkaðsráðherra, og þingkonurnar Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur, Helgu Völu Helgadóttur og Arndísi Önnu Kristínardóttur Gunnarsdóttur. Í Heimsglugga dagsinsins fjallaði Bogi Ágústsson m.a. um kosningabaráttu í Svíþjóð og Brasilíu og nýja vindmyllugarða í Norðursjó. 50 ár eru í dag síðan Bobby Fischer varð heimsmeistari í skák. Þá gaf Boris Spassky lokaskákina og þar með var ljóst að hann næði ekki Fischer að vinningum. Helgi Ólafsson stórmeistari rifjaði lokaskákina og aðrar upp og ræddi vítt og breitt um einvígið. Tónlist: Perhaps love - John Denver, Í landhelginni - Haukur Morthens, Autumn sun - Emilíana Torrini, Landgrunnið allt - Ómar Ragnarsson. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson.

Leiknar eru nokkrar sönglagasyrpur með Silfurkórnum af plötum sem gefnar voru út árið 1978 til 1980, auk þess sem Fjórtán Fóstbræður syngja eina syrpu og Haukur Morthens syngur eina lagasyrpu.
Kristín Ingvarsdóttir, lektor í japönskum fræðum er í Japan, þekkir vel til stöðu mála í Japan en einhver áhrifamesti stjórnmálamaður Japan, Shinzo Abe, var skotinn til bana á kosningafundi á föstudag. Kosningar voru svo haldnar í gær, þar sem stjórnarflokkarnir bættu við sig fylgi. Hún fjallaði um niðurstöðu kosninganna og hugmyndir um að gera breytingar á stjórnarskrá landsins. Glæpatíðni er afar lág í Japan og ofbeldi þar sem skotvopnum er beitt álíka algengt hjá þessari tæplega 130 milljóna þjóð og hjá Íslendingum. Gunnar Tryggvason, starfandi hafnarstjóri Faxaflóahafna, fór yfir þær breytingar sem eru að eiga sér stað varðandi rafvæðingu skemmtiferðaskipa og fraktskipa. Nú eru fraktskipin tengd við rafmagn þegar þau eru í höfn og styttist í að það sama verði með stóran hluta skemmtiferðaskipa. Það þýðir minni hávaða- og loftmengun. Iða Marsibil Jónsdóttir hefur verið ráðin sveitarstjóri í Grímsnes- og Grafningshreppi og tekur við starfinu 25. júlí. Iða Marsibil hefur verið forseti bæjarstjórnar í Vesturbyggð síðustu fjögur árin en hún var búsett þar í átta ár. Iða Marsibil segir skipulagsmál eitt helsta verkefni sveitarstjórnar í Grímsness- og Grafningshreppi á meðan samgöngumálin voru það í Vesturbyggð. Tónlist: Ég ann þér enn - Þuríður Sigurðardóttir, Open up your door - Richard Hawley, Ó borg mín borg - Haukur Morthens og tríó Eyþórs Þorlákssonar, Farmaður hugsar heim - Ellý Vilhjálms/hljómsveit Svavar Gests, With You - Rebekka Blöndal. Umsjón: Guðrún Hálfdánardóttir og Þórunn Elísabet Bogadóttir.

Leikin eru nokkur lög frá rokkárunum. Guðbergur Auðunsson syngur lögin Lilla Jóns, Út á sjó og Adam og Eva, Óðinn Valdimarsson syngur Ég vil lifa, elska, njóta og Óðinn og Helena Eyjólfsdóttir syngja Segðu nei. Ragnar Bjarnason syngur Óli rokkari. Haukur Morthens syngur lögin Lóa litla á Brú og Ég er kominn heim. Erla Þorsteinsdóttir syngur lögin Vagg og velta og Í tangó tvö ein. Skapti Ólafsson flytur lögin Syngjum hátt og dönsum, Ef að mamma vissi það og Allt á floti. Umsjón: Jónatan Garðarsson.

Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans, rakti feril auðmannsins Elon Musk en hann er ríkasti maður heims samkvæmt lista Forbes. Auður hans er einkum tilkomin vegna Teslu og SpaceX. Nú hefur Musk keypt rúmlega 9% hlut í samfélagsmiðlinum Twitter við litla hrifningu ýmissa. Hann hafnaði boði um að setjast í stjórn félagsins og boðar óvinveitta yfirtöku. Arthúr Björgvin Bollason sagði frá pólitískri umræðu í Þýskalandi varðandi ákvörðun forseta Úkraínu um að taka ekki á móti þýskum starfsbróður, Frank Walter Steinmeier. Ástæðan eru tengsl hans við Rússland, ekki síst varðandi lagningu gasleiðslu frá Rússlandi til Þýskalands. Friðargöngur voru haldnar um páskana í um 120 borgum og bæjum Þýskalands en þær hafa verið haldnar þar árum saman. Kristín Hjálmtýsdóttir, framkvæmdastjóri Rauða krossins, fór yfir störf Rauða krossins þegar kemur að móttöku flóttafólks og fjölgun þeirra undanfarnar vikur. Flestir sem koma hingað eru frá Úkraínu og hefur almenningur tekið vel í að styðja við bakið á komu þeirra. Vegna ákvörðunar dómsmálaráðuneytisins fyrr á árinu um að framlengja ekki samning við Rauða krossinn um réttaraðstoð og talsmannaþjónustu fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd hefur öllum lögfræðingum félagsins verið sagt upp störfum og hætta þeir síðustu nú um mánaðamótin. Þetta þýðir að verkefnið er komið í hendur Útlendingastofnunar. Tónlist: That's the way it should have been - Tammy Wynette, Loretta Lynn og Dolly Parton, Hjarta mitt - Sigríður Thorlacius og Sigurður Guðmundsson, Hæ Mambó - Haukur Morthens og I say a little prayer - Aretha Franklin. Umsjón höfðu Björn Þór Sigbjörnsson og Guðrún Hálfdánardóttir.
Már Kristjánsson, yfirlæknir og formaður farsóttarnefndar, fór yfir stöðuna á Landspítalanum og horfur næstu vikur. Það stefnir í að smittoppnum verði náð í kringum þrettándann í omikrón-bylgjunni en að það verði samt sem áður nokkur hundruð smit á dag fram í byrjun mars. Hann er ekki hlynntur því að herða reglur heldur eigi að halda sig við svipaðar reglur og nú eru í gildi. Byrjað er að kalla inn starfsmenn á spítalanum úr sóttkví og ekki útilokað að það verði gert með starfsmenn sem eru einkennalausir í einangrun. Halda verði Landspítalanum gangandi. Helga Þórisdóttir, forstjóri Persónuverndar, segir að um 100 lagabálkar vísi til persónuverndarlaga. Persónuverndarlög girða ekki fyrir vísindarannsóknir en það verður að fara að lögum. Vel sé hægt að vinna hratt en það verður að vera með réttum hætti. Nýsköpunarfyrirtæki fara til að mynda stundum með forrit í loftið án þess að kanna hvort þau samræmast persónuverndarlögum. Flest málin sem koma á borð Persónuverndar eru tengd því að farið er of snemma af stað. Það þurfa allir að fara að lögum segir Helga spurð út í ákvörðun varðandi Íslenska erfðagreiningu. Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar fer fram á það fyrir hönd fyrirtækisins að ríkisstjórnin lýsi vanþóknun sinni á þeirri ákvörðun Persónuverndar að Íslensk erfðagreining hafi brotið lög með mótefnamælingunum. Í sumar voru liðin 35 ár frá því að 5.000 króna seðillinn var settur í umferð. Í þætti dagsins var endurleikið viðtal við Ásgeir Jónsson seðlabankastjóra um seðla og peninga, rafrænar greiðslur og rafmyntir. Viðtalið var fyrst á dagskrá Morgunvaktarinnar 10. júní. Tónlist: Heimkynni bernskunnar - Haukur Morthens. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Guðrún Hálfdánardóttir.

Hilmar Þór Hilmarsson prófessor við Háskólann á Akureyri þekkir vel til í Austurvegi og fór yfir rætur þessara deilna sem nú eru milli vestrænna ríkja og Rússlands. Upphafið má rekja til ákvörðunar um að bjóða Úkraínu og Georgíu aðild að Atlantshafsbandalaginu. Forsetar Bandaríkjanna og Rússlands ræddu saman í gær en fjölmennt lið rússneska hersins er við landamæri Úkraínu. Hilmar Þór telur að þær efnahagsþvinganir sem Bandaríkin og fleiri ríki, þar á meðal Ísland, beita Rússa skili ekki árangri og það hafi verið röng ákvörðun hjá íslenskum stjórnvöldum að taka þátt. Borgþór Arngrímsson sagði í Danmerkurpistli frá átökum skipulagðra glæpasamtaka í Danmörku en undanfarna daga hafa þrír verið skotnir til bana og fjórir særst í skotárásum þar í landi. Hann sagði frá átökum sem áhöfn dönsku freigátunnar Esbern Snare lenti í nýverið á Gíneuflóa við sjóræningja. Mikið snjóaði á Jótlandi í síðustu viku og var fólki ráðlagt að leggja bílunum og halda sig heima. En stöðumælaverðir létu snjóinn ekki stöðva sig og sektuðu bíleigendur í gríð og erg. Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri og Guðmundur Baldvin Guðmundsson, formaður bæjarráðs Akureyrar fóru yfir fjárhags- og framkvæmdaáætlun Akureyrarbæjar fyrir árin 2022 til 2025 í viðtali við Óðinn Svan Óðinsson fréttamann á Akureyri. Áætluð rekstrarniðurstaða Akureyrarbæjar ársins 2022 er neikvæð um 672 m.kr í samstæðunni allri. Því er ljóst að skera þarf niður og hagræða í rekstri. Tónlist: Þrek og tár - Haukur Morthens og Erla Þorsteins, Vichnaya Pamyat - Hildur Guðnadóttir, Smuk og dejlig ? Shit & Chanel, Din sol ? Shit & Chanel. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Guðrún Hálfdánardóttir.

Allskonar tónlist þar sem sungið er um trú, von og kærleika eða trúna á eitthvað allt annað. Flytjendur eru Haukur Morthens, Ríó tríó, Piltur og stúlka, Bubbi Morthens, Rúnar Júlíusson, Sverrir Bergmann, Magni Ásgeirsson, Sigríður Beinteinsdóttir og Upplyftingþ
Allskonar tónlist þar sem sungið er um trú, von og kærleika eða trúna á eitthvað allt annað. Flytjendur eru Haukur Morthens, Ríó tríó, Piltur og stúlka, Bubbi Morthens, Rúnar Júlíusson, Sverrir Bergmann, Magni Ásgeirsson, Sigríður Beinteinsdóttir og Upplyfting. Umsjón: Jónatan Garðarsson.

Á Morgunvaktinni fyrr í vikunni heyrðum við um reynslu Huldu Bjarkar Svansdóttur af því hvernig það var og er að greinast með Duchenne-sjúkdóminn, en sonur hennar Ægir Þór fékk þá greiningu fyrir fjórum árum. En hvernig tekur kerfið okkar almennt utan um langveik börn og fjölskyldur þeirra? Og hvernig stöndum við okkur í samanburði við önnur ríki? Umhyggja er félag sem vinnur að bættum hag langveikra barna og fjölskyldna þeirra, og Árný Ingvarsdóttir framkvæmdastjóri félagsins sagði okkur frá þessu. „Snorri Sturluson kemur fram á sjónarsvið íslenzks þjóðlífs um aldamótin 1200. Á þessari fjölbreyttu öld er hann fjölbreyttasti maðurinn. Auður þessa lífs er furðulegur. Það er eins og nornirnar hafi keppzt hver við aðra yfir vöggu hans að velja úr andlegum og veraldlegum fjársjóðum þjóðar hans og samtíðar handa honum.“ Þannig skrifaði Sigurður Nordal um Snorra í riti sínu um hann sem kom út fyrir hundrað árum. Af því tilefni fjallar Úlfar Bragason, sérfræðingur í miðaldabókmenntum, um Snorra í árlegum Nordal-fyrirlestri í hátíðarsal Háskóla Íslands á mánudag, á fæðingardegi Sigurðar. Úlfar kom á Morgunvaktina. Endurskipulagning skulda, hlutafjáraukning og ríkisábyrgð lána er sú leið sem Icelandair fer til að halda sjó. Flest flugfélög í Evrópu eru í sömu vandræðum enda fáir á ferðinni í kórónuveirufaraldrinum. Kristján Sigurjónsson, ritstjóri Túrista, sagði okkur frá björgunaraðgerðum flugfélaganna í kringum okkur í spjalli um ferðamál. Tónlist: Bátarnir á firðinum - Haukur Morthens, Hagavagninn - Haukur Morthens, Velkomin - Bubbi Morthens

Sýkla- og veirufræðideild Landspítalans er byrjuð að mæla mótefni gegn kórónuveirunni sem veldur sjúkdómnum Covid-19 fyrir þá einstaklinga sem telja sig hafa fengið sjúkdóminn. Mótefnamælingar undanfarna daga hafa leitt í ljós að þeir sem eru með gott mótefnasvar við kórónuveirunni sem veldur Covid-19 virðast verða veikari en þeir sem hafa verra mótefnasvar. Gott mótefnasvar snúist þannig upp í andhverfu sína. Þetta var á meðal þess sem kom fram í máli Más Kristjánssonar, yfirlæknis smitsjúkdóma á Landspítalanum. Hann sagði líka að margir af hans kollegum væru hugsi og jafnvel reiðir yfir þeirri ákvörðun að opna landið á ný. Sigrún Davíðsdóttir fór yfir stöðuna á kórónuveirufaraldrinum í Bretlandi. Meðal annars ræddi hún þá umdeildu ákvörðun að opna skóla á nýjan leik, en þeim fyrirætlunum stjórnvalda hefur ekki verið vel tekið af kennurum, sem óttast um öryggi sitt og barnanna. Frönsk yfirvöld handtóku á laugardag Rúandamanninn Felicien Kabuga, sem grunaður erum að hafa átt stóran þátt í þjóðarmorðinu í Rúanda fyrir meira en aldarfjórðung. Þetta er sögð mikilvægasta handtaka á grunuðum stríðsglæpamanni síðan Bosníu-Serbinn Ratko Mladic var handtekinn 2011. Kabuga var auðmaður og hlutur hans í þjóðarmorðinu ekki síst að fjármagna áróðursstarfssemi og morðsveitir. Vera Illugadóttir fór yfir sögu Kabuga og þjóðarmorðanna. Tónlist: Hagavagninn - Haukur Morthens. Bátarnir á firðinum - Haukur Morthens, Hum-Hum lagið - Ásgeir Ásgeirsson og félagar.

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur staðið í ströngu undanfarnar vikur. Hún kom á Morgunvaktina og ræddi um tilslakanir á samkomubanni, sem tóku gildi í dag, um stöðuna í heilbrigðiskerfinu og um kjarabaráttu hjúkrunarfræðinga. Hún sagði það vera vonbrigði að samningar hafi ekki komist á á milli hjúkrunarfræðinga og ríkisins. Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, er kominn aftur til vinnu eftir að hafa veikst mjög alvarlega af Covid-19. Hann eignaðist svo son í síðustu viku, svo það er skammt stórra högga á milli hjá honum. Bretar hafa farið illa út úr Covid-19 og eru við það að slá sorglegt met Ítalíu um flest dauðsföll í Evrópu vegna sjúkdómsins. Sigrún Davíðsdóttir ræddi þessi mál, og sagði frá nýrri rannsókn sem gefur til kynna að mikill munur sé á dauðsföllum eftir landsvæðum, og þar sem tekjulágt fólk býr deyja mun fleiri en annars staðar. Þrír borgarfulltrúar í Prag, höfuðborg Tékklands, eru í felum eða njóta lögregluverndar vegna gruns um að rússnesk stjórnvöld hafi reynt að, eða vilji, ráða þá af dögum. Rússar neita því staðfastlega að vilja nokkurn Tékka feigan en málið þykir allt hið undarlegasta - við sögu koma meðal annars styttur af sovéskum hershöfðingjum, dularfullir diplómatar, og eitur. Vera Illugadóttir sagði frá þessu máli. Tónlist: Hæ Mambó - Haukur Morthens, Heyr mína bæn - Ellý Vilhjálms, Michelle - Bítlarnir, Góða ferð - B.G. og Ingibjörg

Meðal annarra tónlistarflytjenda í þættinum eru Beth Orton, Motors, Hljómsveitin Eva, Marína Ósk, Stína Ágústsdóttir, Greg Lake og Mike Oldfield.

Karl Olgeirsson og félagar hans flytja lög eftir hann sem heita: Augun blá, Vefðu mig örmum húmið blítt, Hvað get ég gert?, Rósalín og Haukur Morthens, Þegar morgna fer, Hann gat ekki setið kyrr og Skýjaglópar. Kvartett Gerry Mulligan flytur lögin Stardust, I Got Rhythm, The Surrey With A Fringe On The Top, My Heart Belongs To Daddy, When Your Lover Has Gone og Jersey Bounce. Tríó Keith Jarrett flytur lögin The Masquerade Is Over, It Never Entered My Mind, All The Things You Are, Meaning Of The Blues og God Bless The Child.
Víðsjá veltir í dag fyrir sér talsambandi við útlönd, þegar gripið verður niður í þáttinn Heims um ból sem Elín Pálmadóttir hafði umsjón með árið 1963. Þar hringdi Elín í nokkra Íslendinga víða um heim rétt fyrir jólin, einn í hverri heimsálfu. Hlustendur Víðsjár eru beðnir um að leggja við hlustir þrátt fyrir slæm gæði í talsambandinu. Um tónlistina sér Haukur Morthens en hún kemur öll af jóla- og barnalagaplötunni sígildu Hátíð í bæ. Umsjón: Guðni Tómsson og Halla Harðardóttir.
Við sendum út beint úr miðbæ Reykjavíkur í dag,nánar tiltekið frá Skelfiskmarkaðinum, þar sem fór fram formleg dagskrá tileinkuð Degi Íslenskrar tónlistar. Hvernig gefa tónlistarmenn út sína tónlist í dag? Eru veiturnar eini möguleikinn? Lísa Páls hitti Helga Þór Ingason í hljómsveitinni South River Band, en þeir eru að gefa út sinn sjötta disk. Við heyrðu spjall Lísu við Helga og lagið Ég vinn í útvarpi eftir Ólaf Þórðarson við texta Helga Þórs Ingasonar í flutningi South River Band. Þeir Bubbi Morthens og Stefán Hilmarsson settust hjá Guðrúnu og Gunnari á Skelfiskmarkaðnum og fóru yfir stöðu íslenskrar tónlistar. Þeir voru sammála um að hún væri nokkuð góð í nýju landslagi í útgáfumálum, en það þyrfti að styðja betur við til að vernda íslenskuna. Að venju var efnt til þjóðarsamsöngs, en þá var þremur lögum útvarpað í beinni á helstu útvarpsstöðvum landsins og allir landsmenn hvattir til að taka undir, hvar sem þeir eru staddir. Í ár hafa eftirfarandi þrjú lög verið valin: Vikivaki eftir Valgeir Guðjónsson, Hossa, hossa með Amabadama og B.O.B.A. með Jóa Pé og Króla. Með þeim sungu leikskólanemendur úr Öskjuhlíðaskóla og Hjallastefnunni. Í tilefni dagsins verður efnt til nýrrar herferðar sem ber titilinn #IcelandMusicDay- þar sem öll þjóðin er hvött til að taka virkan þátt í markaðssetningu íslenskrar tónlistar á samfélagsmiðlum og hefja hana til vegs og virðingar á erlendri grundu. Fyrsta lag þáttarins var Í hjarta þér, Haukur Morthens söng lag Jóns Múla Árnasonar við texta Jónasar Árnasonar. Umsjón í dag Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson
Söngtextarnir sem hljóma í þættinum snúast á einn eða annan hátt um vín, bjór og þessháttar. Haukur Morthens syngur Vindlingar, viskí og villtar meyjar með Hljómsveit Björns R. Einarssonar. Svavar Lárusson syngur Rósir og vín og Sigurður Ólafsson og Alfreð Clausen syngja Drykkjuvísu úr Bláu kápunni. Rúnar Einarsson syngur lögin Vatn er leiður vökvi og Vín og vatn. Ríó tríó syngur um Romm og kóka kóla og Lónlí blú bojs flytja lögin La Kúba líbra og Það blanda allir landa. Viðar Jónsson flytur eigið lag sem heitir Rósir og vín og Gautar frá Siglufirði flytja lagið Meiri bjór. André Bachmann syngur lagið Bjór á næstu krá og Sniglabandið kyrjar lag sem heitir Tvöfaldur brennivín í kók. GCD slá botninn í þáttinn með reggaelaginu Konur og vín. Umsjón: Jónatan Garðarsson.
Söngtextarnir sem hljóma í þættinum snúast á einn eða annan hátt um vín, bjór og þessháttar. Haukur Morthens syngur Vindlingar, viskí og villtar meyjar með Hljómsveit Björns R. Einarssonar. Svavar Lárusson syngur Rósir og vín og Sigurður Ólafsson og Alfreð Clausen syngja Drykkjuvísu úr Bláu kápunni. Rúnar Einarsson syngur lögin Vatn er leiður vökvi og Vín og vatn. Ríó tríó syngur um Romm og kóka kóla og Lónlí blú bojs flytja lögin La Kúba líbra og Það blanda allir landa. Viðar Jónsson flytur eigið lag sem heitir Rósir og vín og Gautar frá Siglufirði flytja lagið Meiri bjór. André Bachmann syngur lagið Bjór á næstu krá og Sniglabandið kyrjar lag sem heitir Tvöfaldur brennivín í kók. GCD slá botninn í þáttinn með reggaelaginu Konur og vín.
Helgi Björns er gestur Rokklands í dag. Hann sendi nýlega frá sér plötuna Veröldin er ný en hún er fyrsta platan hans með frumsömdu efni í heil 18 ár. Helgi segi okkur hvers vegna svona langur tími hafi liðið milli platna, en þessa nýju plötu gerði hann með ungum mönnum sem hann hafði ekki unnið svona náið með áður. Guðmundur Óskar Guðmundsson (Hjaltalín) samdi flest laganna með Helga og megmið af textunum samdi Helgi með Atla Bollasyni sem var á sínum tíma hljómborðsleikari í Sprengjuhöllinni. Helgi vakti mikla athygli þegar hann byrjaði að syngja með hljómsveitinni Grafík fyrir 30 árum. Hann sló eiginlega í gegn á einni nóttu þessi svipmikli gaur frá Ísafirði. Hann hætti svo í Grafík eftir að hafa gert tvær plötur með sveitinni og stofnaði nýja hljómsveit sem var gefið nafnið Síðan skein Sól sem breyttist svo í SSSÓL. Helgi gaf svo út sólóplötu 1997 og síðan hefur hann verið að leika og syngja, er búinn að gefa út slatta af plötum þar sem hann hefur verið að syngja lög eftir aðra yfirleitt. Plata með lögum Magnúsar Eiríkssonar, plata með lögunum sem Haukur Morthens söng og svo reiðmannaplöturnar. Nýja platan hefur vakið taslverða athygli og Andrea Jóns og Arnar Eggert gáfu henni t.d.fína einkun.