POPULARITY
Saga Garðarsdóttir leikkona var föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn. Hún leikur eitt aðahlutverkið í nýrri kvikmynd Hlyns Pálmasonar, Ástin sem eftir er sem frumsýnd var í Cannes fyrr í mánuðinum og fékk ljómandi góðar viðtökur. Saga er tiltölulega nýlent eftir viðburðaríka daga í Cannes en hún hefur auðvitað verið á sviðum leikhússanna síðustu ár ásamt því að vera sjálfstætt starfandi gamanleikkona og grínisti um allar trissur. Hún er byrjuð að æfa leikritið ÍBÚÐ 10B eftir Ólaf Jóhann Ólafsson í leikstjórn Baltasars Kormáks sem frumsýnt verður í Þjóðleikhúsinu í haust. Við fórum í ferðalag í gegnum lífið með Sögu Garðarsdóttur í þættinum í dag. Svo var auðvitað matarspjallið með Sigurlaugu Margréti á sínum stað, en hún er stödd í þetta sinn á Krít hvaðan hún var í beinu sambandi. Lambakjöt, sósur, fetaostur, safaríkar melónur, hunang og olía úr fjöllunum er meðal þess sem hún sagði okkur frá í dag. Tónlist í þættinum í dag: Reyndu aftur / Mannakorn (Magnús Eiríksson) Í draumalandinu / Space Station (Björgúlfur Jes Einarsson) Það sem enginn veit / Eysteinn Pétursson (Þórbergur Þórðarson) UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG HELGA ARNARDÓTTIR
Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Karl Olgeirsson tónlistarmaður. Hann hóf nýlega störf sem organisti í Ástjarnarkirkju og þar stofnaði hann kirkjukór. Hann hefur samið tónlist nánast frá því hann fékk hljóðfæri fyrst í hendurnar. Við fórum með honum aftur í tímann á æskuslóðirnar í Hlíðunum, til Svíþjóðar og aftur heim og fórum svo á handahlaupum í gegnum lífið til dagins í dag. En hann er í nýju hlutverki á morgun þegar hann er aðalsöngvarinn í dagskrá þar sem flutt verða bestu lög Steely Dan og Donald Fagen í Hörpu. Í matarspjalli dagsins með Sigurlaugu Margréti héldum við svo áfram að skoða skrýtnar og óvenjulegar samsetningar á mat og fórum í gegnum nokkra tölvupósta frá hlustendum þess efnis. Og svo skoðuðum við hvort þessar breytingar í veðrinu hafi áhrif á matarval okkar. Tónlist í þættinum í dag: Smells Like Teen Spirit / Raggi Bjarna og Milljónamæringarnir (Kurt Cobain, Dave Grohl og Krist Novoselic) Gríptu draum / Sigríður Eyrún Friðriksdóttir og Karl Olgeirsson (Karl Olgeirsson) I.G.Y. / Karl Olgeirsson og Reykjvik Tribute Orchestra (Donald Fagen) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var leikarinn Jóhannes Haukur Jóhannesson. Hann hefur mikið látið að sér kveða eftir að hann útskrifaðist úr leiklistarskólanum, bæði í leikhúsi og fyrir framan myndavélina þar sem hann hefur leikið margvísleg hlutverk. En svo fyrir rúmum tíu árum fékk hann fyrsta hlutverk sitt í erlendu kvikmyndaverkefni og þá fór boltinn að rúlla. Í dag flýgur hann heimshornanna á milli og leikur í gríðarstórum kvikmyndum og sjónvarpsþáttaröðum, Game of Thrones, Succession, nýjustu ofurhetjumyndinni um Captain America og nú er hann að leika í kvikmynd um He-Man, eða Garp eins og hann kallaðist á íslensku. Við fórum með Jóhannesi aftur á æskuslóðirnar, en hann ólst að hluta til upp í Færeyjum og brunuðum svo með honum í gegnum lífið til dagsins í dag. Í matarspjalli dagsins með Sigurlaugu Margréti tókum við framhaldsumræðu um af makkarónur með hangikjöti og kokteilsósa og pítusósa með pizzum og aðrar skrýtnar, eða að minnsta kosti óvenjulegar samsetningar á mat. Ef þið lumið á sögum af slíku, samsetningu á mat sem er kannski þekkt í einhverjum fjölskyldum, eða í einhverjum landshlutum, en gætu þótt sérkennilegar annars staðar, þá endilega sendið okkur á mannlegi@ruv.is. Tónlist í þættinum í dag: Pabbi vill mambó / Páll Óskar og Milljónamæringarnir (Al Hoffman, Bix Reichner, Dick Manning, textahöfundur ókunnur) Hvað er ástin? / GDRN (Friðrik Dór Jónsson og Jón Jónsson) Rólegur kúreki / Bríet (Bríet Ísis Elfar og Pálmi Ragnar Ásgeirsson) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Föstudagsgesturinn okkar að þessu sinni var enginn annar en Bjarni Arason söngvari sem tók þátt í Söngvakeppninni um síðustu helgi og stóð sig glimrandi vel. Bjarni va elsti þáttakandinn í ár og lagið sem hann söng, Aðeins lengur, mun hann sennilega syngja aðeins lengur því síminn hefur varla stoppað hjá Bjarna eftir keppnina. Bjarni hóf feril sinn mjög ungur, söng 16 ára Elvis lög í sjónvarpi og vann ári síðar söngvakeppnina Látúnsbarkann og varð landsfrægur á augabragði. Við fórum með Bjarna yfir söngvasviðið og lífið í þættinum. Matarspjallið var svo að helgað bolludeginum og sprengideginum sem eru eftir helgi. Það skoðuðum við eilífðarspurninguna; hvort ertu vatnsdeigs- eða gerbollur betri? Og eru allir spenntir fyrir saltkjöti og baunum? Bollur, saltkjöt og túkall í matarspjalli dagsins með Sigurlaugu Margréti. Tónlist í þættinum í dag: Hringur og Bítlagæslumennirnir / Stuðmenn (Jakob Frímann Magnússon, Valgeir Guðjónsson og Egill Ólafsson) Aðeins lengur / Bjarni Arason (Jóhann Helgason, texti Björn Björnsson) Beautiful Maria / Bjarni Arason (Robert Kraft, texti Arne Glimcher) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Vala Kristín Eiríksdóttir leikkona og handritshöfundur var föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn. Hún hefur auðvitað leikið fjölmörg hlutverk á sviði og í sjónvarpi undanfarin ár, jafnhendis í gríni og dramatík. Hún skrifaði sex þáttaraðir af grínþáttunum Venjulegt fólk ásamt Júlíönnu Söru Gunnarsdóttur og nú er hún annar handritshöfunda, ásamt Ólafi Agli Ólafssyni, af nýrri leiksýningu, Þetta er Laddi, um líf og grín Ladda, Þórhalls Sigurðssonar. Við fórum auðvitað aftur í tímann með Völu Kristínu á æskulóðirnar í Garðabænum og svo á handahlaupum til dagins í dag. Svo var það matarspjallið með Sigurlaugu Margréti, í dag var það snúðadagurinn mikli. Við smökkuðum snúða, þessa gömlu góðu með súkkulaðiglassúr úr fjórum bakaríum, það var þó ekki kókómjólk með í för eins og gjarnan í gamla daga. Sannkallað snúðaferðalag í þættinum í dag. Tónlist í þættinum í dag Sóley / Björgvin Halldórsson og Katla María (Gunnar Þórðarson, texti Ólafur Haukur Símonarson) Freknótta fótstutta mær / Laddi og Brunaliðið (Þórhallur Sigurðsson) Mamma og ég / Halli og Laddi (Þórhallur Sigurðsson) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Þór Freysson útsendingarstjóri, upptökustjóri, framleiðandi og tónlistarmaður var föstudagsgesturinn okkar að þessu sinni. Þór hefur mikla reynslu af að stjórna stórum beinum útsendingum í sjónvarpi og er einmitt núna að stýra útsendingum Söngvakeppninnar. Þór byrjaði ungur á Stöð tvö sem hljóðmaður og vann sig svo upp, eins og algengt er í þessum bransa. Þór er gítarleikari í Baraflokknum frá Akureyri en þar liggja einmitt hans rætur, í Eyjafirði. Við fórum aftur í tímann og spjölluðum um lífið, tónlistina og vinnunna í sjónvarpinu með Þór Freyssyni í dag. Matarspjallið með Sigurlaugu Margréti var svo á sínum stað og í dag töluðum aðallega um fisk og sósur með fiski. Sigurlaug lumaaði að sjálfsögðu á einni franskri sem hún deildi með okkur. Tónlist í þætti dagsins: Mig dregur þrá / Hljómsveit Ingimars Eydal (Merle Kilgore, Claude King, texti Kristján frá Djúpalæk) Matter of time / Bara flokkurinn (Ásgeir Jónsson) Black days / Hvítá (Róbert Marshall) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Ásta Arnardóttir. Ásta er eigandi og framkvæmdastjóri Yogavin, hún er menntuð leikkona, leiðsögukona og yogakennari og hún hefur tekið virkan þátt í náttúruvernd og var til dæmis tilnefnd til Nátturu- og umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs 2009. Við fórum með henni aftur í tímann á æskuslóðirnar og svo á handahlaupum í gegnum lífið til dagsins í dag með viðkomu meðal annars í Englandi, Póllandi og Bandaríkjunum. Svo var það auðvitað matarspjallið með Sigurlaugu Margréti á sínum stað. Í síðustu viku tengdum við matarspjallið við gular veðurviðaranir sem þá höfðu verið og töluðum um gulan mat. Þá lá beinast við að fjalla í dag um appelsínugulan og rauðan mat í þetta sinn eftir viðvaranir og veðrið þessarar viku. Tónlist í þættinum í dag: Herbergið mitt / Brimkló (Arnar Sigurbjörnsson og Vilhjálmur frá Skáholti) We are Family / Sister Sledge (Bernard Edwards & Nile Rodgers) Lokah Samasta / Deva Premal & Miten (M. Done) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var annar hluti tvíeykisins í Hraðfréttum, Bennni, eða Benedikt Valsson. Við þekkjum hann auðvitað fyrst og fremst úr Hraðfréttum, en hann hefur gert ýmislegt annað, vissulega flest með Fannari félaga sínum, leikstýrt og skrifað Skaupið, verið kynnir í Söngvakeppninni og nú hafa þeir hleypt af stokkunum nýju hlaðvarpi sem þeir kalla Hraðvarpið. En við fórum auðvitað aftur í tímann með honum á æskuslóðirnar og fórum svo á handahlaupum í gegnum lífið til dagsins í dag. Í matarspjallinu með Sigurlaugu Margréti brydduðum við upp á nýjung, í tilefni allra þessara gulu viðvarana að hafa gult þema og skoða hvaða matur er gulur og hversu girnilegur hann er. Auk þess heyrðum við líka tillögur hlustenda að eftirréttum með þorramatnum. Tónlist í þættinum í dag: Glugginn / Flowers (Rúnar Gunnarsson, texti Þorsteinn Eggertsson) Birta / Friðrik Dór og Snorri Helgason (Friðrik Dór Jónsson) I've Got a Message to You / Keith Urban og Barry Gibb (Maurice Gibb, Barry Gibb og Robin Gibb) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Tinna Hrafnsdóttir, leikstjóri, leikkona handritshöfundur og framleiðandi. Hún er annar leikstjóra sjónvarpsþáttanna um Vigdísi Finnbogadóttur, hún gerði kvikmyndina Skjálfta upp úr bók Auðar Jónsdóttur, hún leikstýrði sjónvarpsþáttunum Heima er best auk þess að skrifa handritið ásamt tveimur öðrum og hún hefur leikið í fjölda verkefna á sviði og fyrir framan myndavélina. Við fórum með Tinnu aftur í tímann, á æskuslóðirnar og svo á handahlaupum í gegnum lífið til dagsins í dag. Svo var það matarspjallið með Sigurlaugu Margréti, sem auðvitað var á sínum stað í dag eins og aðra föstudaga. Í dag er bóndadagur, fyrsti dagur í þorra, og það er þorramaturinn sem verður umræðuefnið í dag. Íslenski þorramaturinn komst á alþjóðlegan lista sem er ekki endilega listinn til að vera á, sem við skoðuðum aðeins. Sviðakjammi, sviðasulta, rófustappa, súrir hrútspungar og allt þetta góðgæti sem við elskum en vekja jafnvel furðu hjá öðrum þjóðum. Tónlist í þættinum: Okkar eigin Osló / Valdimar Guðmundsson og Memfismafían (Helgi Svavar Helgason, texti Bragi Valdimar Skúlason) Af því að pabbi vildi það / Jonee Jonee (Jonee Jonee) Morning has Broken / Cat Stevens (Cat Stevens & Eleanor Farjeon) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Egill Eðvarðsson myndlistamaður og leikstjóri er föstudagsgesturinn okkar að þessu sinni. Egill útskrifaðist úr Myndlista- og handíðaskóla Íslands árið 1971 og árið 2019 fékk hann heiðursverðlaun Eddunnar en hann hefur starfað við íslenska sjónvarps- og kvikmyndagerð í hartnær 50 ár lengst af við dagskrárgerð og upptökustjórn hjá RÚV. Við fórum með Agli aftur í tímann á æskuslóðirnar á Akureyri, á ljósmyndastofu föður hans og fleira og fórum svo á handahlaupum í gegnum lífið til nútímans, en Í dag sinnir Egill myndlistinni sinni og hann sagði okkur frá hvað annað hann hefur verið að bardúsa þessa dagana. Hann er síður en svo sestur í helgan stein og hann hefur sterkar skoðanir á því kerfi sem er við lýði þar sem fólk er nánast sett út í kuldann þegar það er komið á vissan aldur. Matarspjallið með Sigurlaugu Margréti var svo auðvitað á sínum stað og í dag og við töluðum um áhrif kvikmynda og sjónvarpsefnis þegar kemur að mat. Matur spilar stórt hlutverk í mörgum kvikmyndum og sjónvarpsþáttum og oft er hann svo girnilegur að áður en við vitum að erum við farin að elda það sama. Tónlist í þættinum: Reiknaðu með mér / Björn Jörundur og Ragnheiður Gröndal (Björn Jörundur Friðbjörnsson) My Little Grass Shack / Leon Redbone og Ringo Starr (Bill Cogswell, Johnny Noble & Tommy Harrison) Vetrarsól / Björgvin Halldórsson (Gunnar Þórðarson og Ólafur Haukur Símonarson) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Þorleifur Örn Arnarsson leikstjóri. Eftir að hann útskrifaðist úr leikstjóranámi frá einum virtasta leiklistarháskóla Evrópu hefur hann sett upp fjölda leiksýninga og ópera hér á landi, víða í Þýskalandi og í fleiri löndum. Hann var um hríð yfirmaður leiklistarmála hjá hinu fræga Volksbühne í Berlín. Hann hefur hlotið þýsku leiklistarverðlaunin fyrir leikstjórn og Grímuverðlaunin hér á landi fyrir leikstjórn. Hann hefur leikstýrt hverri stórsýningunni á fætur annarri og hans nýjasta sýning er Köttur á heitu blikkþaki eftir Tennessee Williams sem verður frumsýnd í Borgarleikhúsinu 28.desember. Við spjölluðum við Þorleif Örn um lífið, tilveruna, leikhúsið, leikstjórnina, fórum til Þýskalands, Sviss og víðar í þættinum. Matarspjallið með Sigurlaugu Margréti var á sínum stað og í dag kom hún með matreiðslubók að heiman sem er Jólamatreiðslubók Nigellu Lawson. Í byrjun ræddum við líka aðeins matreiðslubók sem gefin var út af Íslandsbanka á sínum tíma. Tónlistin í þættinum Jólin koma / GDRN og Magnús Jóhann (Eiríkur Guðmundsson) Everything in Its Right Place / Radiohead (Colin Greenwood, Ed O'Brien, Jonny Greenwood, Philip Selway & Thom Yorke) Life on Mars / David Bowie (David Bowie) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG HELGA ARNARDÓTTIR
Föstudagsgestir Mannlega þáttarins í dag voru söngdívurnar og Frostrósirnar Margrét Eir og Dísella Lárusdóttir. Þær eru báðar á kafi í undirbúningi tónleika og ekki bara Frostrósatónleika heldur eru þær út og suður eins og margt tónlistarfólk þessa daganna. Við ræddum við þær í dag um lífið og tilveruna, Frostrósirnar og vertíðina í desember. Svo var það matarspjallið með Sigurlaugu Margréti. Í dag töluðum við um gamla uppskriftarbæklinga sem fengust gjarnan í verslunum sem innihalda uppskriftir að hátíðarmatnum. Einn bæklinganna innihélt meðal annars uppskriftir að kengúrusteik og hérasteik, sem voru í boði til skamms tíma hér á landi. Tónlist í þættinum: It's Christmas / Jamie Cullum (Jamie Cullum) Af álfum / Frostrósir - Margrét Eir og Friðrik Ómar (Karl Olgeirsson samdi lag og texta) Friður á Jörð / Frostrósir - Margrét Eir, Dísella og Hera Björk (Lowell Mason, texti Þorsteinn Eggertsson) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Föstudagsgestur þáttarins í þetta sinn er þjóðþekktur fyrir afrek sín í íþróttum og kvikmyndagerð. Út er komin bókin Handritið mitt um Hannes Halldórsson fyrrverandi markvörð, landsliðsmann og kvikmyndagerðarmann, sem var einmitt föstudagsgestur okkar í dag. Bókina skrifar Magnús Örn Helgason sem lýsir knattspyrnuferli Hannesar frá upphafi til enda, allt frá Shellmótinu árið 1994 þar sem hann var valinn besti markvörðurinn til haustsins 2021 þegar hann lagði skóna á hilluna eða markmannshanskana sína öllu heldur. Hannes var lykilmaður í landsliðinu sigursæla sem þjóðin fylgdist með en þó með allt annan bakgrunn og öðruvísi líf en flestir liðsfélagar hans. Hann fór seint í atvinnumennsku, glímdi við erfið meiðsl fyrir tvítugt, sem kostuðu hann mikið, en aldrei gafst hann upp. Við ræddim við Hannes í dag, gerðum upp knattspyrnuferilinn og ræddum hina ástríðu hans, auglýsinga- og kvikmyndaleikstjórn, en nýlega kom út þáttaröð tvö af vinsæla strákabandinu ICE GUYS á Sjónvarpi Símans sem Hannes leikstýrir og framleiðir. Markmannshanskar, vítaspyrna Messi, axlameiðsli, kvikmyndagerðin og verkefnin framundan voru meðal þess sem rætt var við Hannes. Svo var það matarspjallið með Sigurlaugu Margréti. Í dag ræddum við um smákökur og piparkökur. Það eru auðvitað uppskriftirnar, sortirnar og allt það sem sækir að okkur á þessum árstíma. Tónlist í þættinum: Ævilagið / Hljómsveitin Eva (Jóhanna Vala Höskuldsdóttir og Sigríður Eir Zophoníasardóttir) Vetrarsól / Krummi Björgvinsson (Gunnar Þórðarson, texti Ólafur Haukur Símonarson) Þegar vetur / Iceguys (Friðrik Dór Jónsson, Jón Jónsson, Ásgeir Orri Ásgeirsson, Árni Páll Árnason, Aron Can Gultekin, Rúrik Gíslason) UMSJÓN HELGA ARNARDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Ástvaldur Zenki Traustason tónlistarmaður, prestur og kennari hjá Zen á Íslandi var föstudagsgesturinn okkar í dag. Hann hefur iðkað Zen hugleiðslu undir handleiðslu bandarísks Zen meistara síðan árið 1998 og hlotið þjálfun meðal annars í Japan. Ástvaldur nam tónlist í FÍH og í bandaríska tónlistarskólanum Berklee College of Music og rak um tíma tónlistarskólann Tónheima. Hann starfar einnig sem organisti og kórstjóri í Bessastaðakirkju. Við fórum með honum aftur í tímann í Dalina, þar sem hann var hjá ömmu sinni og afa á sumrin, hann sagði okkur frá áhugaverðri reynslu sem hann varð fyrir ungur að aldri, sem kallaðist svo á við það þegar hann hóf að stunda Zen hugleiðslu. Við ræddum tónlistarferil hans og samband hans við Ragnar Bjarnason og hann talaði meðal annars um núvitund og frið föstudagspjallinu í dag. Svo var það matarspjallið með Sigurlaugu Margréti sem var auðvitað á sínum stað í dag. Í svona veðri, gulri og appelsínugulri viðvörun, ákváðum við að tala um „huggu mat“ eða „hyggemad“ og að hafa það kósi. Að mati Sigurlaugar er best að djúpsteikja matinn á svona dögum og hún sagði meðal annars frá djúpsteiktum rækjum og þrísteiktum kartöflum. Tónlist í þættinum Sólóður / Milljónamæringarnir og Bjarni Arason (Ástvaldur Traustason, texti Stefán Hilmarsson) Just One of Those Things / Ragnar Bjarnason Hljómsveit Ástvaldar Traustasonar (Cole Porter) Víst ertu Jesús kóngur klár / Ástvaldur Traustason (höf. ókunnur) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Föstudagsgesturinn okkar í þetta sinn var Sigrún Eðvaldsdóttir fiðluleikari og konsertmeistari Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Sigrún hóf fiðlunám 5 ára gömul hjá Gígju Jóhannsdóttur en lauk einleikaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík árið 1984 undir handleiðslu Guðnýjar Guðmundsdóttur og lauk bakkalárprófi frá Curtis tónlistarháskólanum í Philadelphiu í Bandaríkjunum 1988. Hún hefur tekið þátt í fjölda alþjóðlegra fiðlukeppna; varð í öðru sæti í Leopold Mozart keppninni árið 1987, hlaut bronsverðlaun í Síbelíusar-keppninni árið 1990 og önnur verðlaun í Carl Flesch keppninni árið 1992. Sama ár hlaut hún bjartsýnisverðlaun Brøste. Hennar er getið sem eins af áhugaverðustu fiðluleikurum framtíðarinnar í bók Henry Roth og hún hefur gegnt stöðu 1. konsertmeistara Sinfóníuhljómsveitar Íslands frá árinu 1998 og sama ár var hún sæmd Riddarakrossi hinnar íslensku Fálkaorðu fyrir störf sín á sviði tónlistar. Við fórum með Sigrúnu aftur í tímann á æskuslóðirnar í Garðabæ og hún sagði okkur hvenær fiðlan kom inn í hennar líf, hún talaði um námið og keppnisskapið og frá erfiðri reynslu þegar hún handleggsbrotnaði í Svíþjóð árið 2022. Í matarspjalli dagsins með Sigurlaugu Margréti töluðum við aðeins meira um færeysku matreiðslubókina og þær athugasemdir sem komu frá glöggum hlustendum í kjölfarið og svo töluðum við um kjötbollur og kalkúnahakk. Tónlist í þættinum Óvissan / Guðmundur Rafnkell Gíslason (Björn Hafþór Guðmundsson) Minning / Sigrún Eðvaldsdóttir og Selma Guðmundsdóttir (Þórarinn Guðmundsson) Schindler's List meginstef / Sinfóníuhljómsveit Íslands, Sigrún Eðvaldsdóttir (John Williams höfundur, stjórnandi Daníel Bjarnason) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var söngvarinn og leikarinn Helgi Björnsson. Hann heldur þessa dagana upp á fjörutíu ár í tónlistarbransanum með tónleikum þar sem hann fer yfir vinsælustu lögin á farsælum ferli, í hljómsveitunum Grafík og Síðan skein sól og á mörgum hljómplötum í eigin nafni. Við fórum með honum aftur í tímann á æskuslóðirnar, en hann er fæddur og uppalinn á Ísafirði, flutti svo suður, lærði leiklist og hefur leikið fjölda hlutverka á sviði, í kvikmyndum og sjónvarpi. 40 ár af Helga Björns í þættinum í dag. Á morgun er fyrsti vetrardagur og í matarspjalli dagsins með Sigurlaugu Margréti fórum við yfir það sem hún kallar vetrarmat. Gúllas, kássur og fleira í matarspjallinu í dag. Tónlistin í þættinum Tangó / Grafík (Helgi Björnsson, Rafn Jónsson og Rúnar Þórisson) Mér var svo kalt / Síðan skein sól (Helgi Björnsson) Himnasmiðurinn / Helgi Björnsson (Helgi Björnsson og Þormóður Eiríksson) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Föstudagsgesturinn okkar í dag kom úr heimi fjölmiðlana og er manneskja sem hefur bæði unnið í útvarpi og sjónvarpi. Lára Ómarsdóttir, sem lét breyta nafninu sínu fyrir stuttu síðan í Lára Zulima Ómarsdóttir, en móðuramma hennar hét einni Lára Zulima. Lára hefur starfað sem fréttamaður og unnið við margskonar dagskrárgerð, hún hefur meðal annars gert þætti um náttúru Íslands í ferðaþáttum með föður sínum, Ómari Ragnarssyni. Lára rifjaði upp æskuna í Háaleitinu og ÁLftamýraskóla, Kerlingafjöll og tilraunir í tískumálum. Undanfarið hefur hún unnið í almannatengslum og hún hefur svo meðal annars unnið að heimildamynd um gler- og myndlistarkonuna Höllu Har og verður sú mynd sýnd í bíó Paradís fljótlega. Matarspjallið með Sigurlaugu Margréti var svo auðvitað á sínum stað. Við höfum verið að skoða matreiðslubækur undanfarið og héldum því áfram í dag. Sigurlaug kom með ítalska bók sem fjallar að mestu um brauð, brúskettur og ítalska brauðrétti. Tónlist í þættinum: Yakkety yak smacketty smack / Change (Jóhann Helgason) Fjalaköttur / Egill Ólafsson (Gunnar Þórðarson, texti Hrafn Gunnlaugsson) Ég vild'ég væri / Stuðmenn (Valgeir Guðjónsson og Ragnhildur Gísladóttir) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var leikarinn Pálmi Gestsson, nýorðinn 67 ára. Hann þarf auðvitað vart að kynna eftir öll árin í Spaugstofunni, ótal hlutverk á fjölum leikhúsanna, í kvikmyndum og sjónvarpsþáttum. Nú síðast leikur hann í nýju leikriti, Sýslumaður dauðans í Borgarleikhúsinu, þar sem hann leikur föður sem deyr og sonur hans þarf að leysa þrjár þrautir til að heimta föður sinn aftur af biðstofu sýslumanns dauðans. En við fórum auðvitað með Pálma aftur í tímann á æskuslóðirnar fyrir vestan, í Bolungarvík, en þegar hann fór suður til Reykjavíkur í leiklistarnám um tvítugt þá var það aðeins í annað skiptiði sem hann var að koma til höfuðborgarinnar. Í skemmtilegu spjalli fórum við með Pálma á handahlaupum í gegnum lífið til dagsins í dag þar sem til dæmis hæfileikar hans í eftirhermum fengu talsvert pláss.. Svo var það matarspjallið með Sigurlaugu Margréti. Nú var komið að Gunnari að koma með matreiðslubók og deila því sem í henni er með hlustendum. Þessi bók sem hann kom með er engin smá smíði, Stóra matarbókin, sem er er líklega hátt í tíu kíló að þyngd, full af ljósmyndum, uppskriftum og fróðleik. Tónlist í þættinum: Ég lifi í draumi / Björgvin Halldórsson (Eyjólfur Kristjánsson, texti Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson) The Longest Time / Billy Joel (Billy Joel) Can't Keep it In / Cat Stevens (Yusuf/Cat Stevens) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Föstudagsgestir Mannlega þáttarins í þetta sinn voru aftur tveir, eins og í síðustu viku, en í þetta sinn eru það feðgar. Ekki nóg með það heldur leikstýrir faðirinn syninum í leikriti sem fjallar um feðga. Þetta eru þeir Stefán Jónsson, leikari og leikstjóri og Haraldur Ari Stefánsson leikari og tónlistarmaður. Við spjölluðum við þá í dag um lífið, listina og tilveruna. Við fórum með þeim aftur í tímann og fundum hvar leiklistin fór að láta á sér kræla hjá þeim hvorum fyrir sig. Og svo spjölluðum við auðvitað líka um leikritið Sýslumaður dauðans sem þeir eru að vinna saman í, en þetta er í fyrsta skipti sem þeir vinna saman á leiksviði. Matarspjallið með Sigurlaugu Margréti var auðvitað á sínum stað nema að þessu sinni var það í beinni útsendingu frá þeirri mögnuðu borg Róm, en þar hefur Sigurlaug dvalið undanfarna daga við að rannsaka mat og drykk. Róm er margslungin borg og maturinn magnaður. Guðrún var í beinni frá Akureyri og Gunnar var í Efstaleitinu á meðan sólargeislarnir léku um Sigurlaugu á meðan hún talaði meðal annars um spaghetti carbonara og rómveskar pizzur. Tónlist í þættinum: Snefill / Moses Hightower (Steingrímur Karl Teague, Andri Ólafsson, Magnús Trygvason Eliassen og Daníel Friðrik Böðvarsson) Til þín / Haraldur Ari Stefánsson og Unnsteinn Manuel (Laurent Bourque, Ingi Þór Garðarsson, Unnsteinn Manuel Stefánsson, texti Haraldur Ari Stefánsson og Unnsteinn Manuel) Ást / Karlakórinn Fóstbræður (Magnús Þór Sigmundsson, ljóð Sigurður Nordal) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn er tónlistarmaðurinn og leikarinn Björn Jörundur Friðbjörnsson. Hann þarf vart að kynna fyrir hlustendum en hefur auðvitað verið í hljómsveitinni Nýdönsk í vel á fjórða áratug, gefið út tónlist í eigin nafni auk fjölda annarra verkefna í tónlistinni. Hann hefur leikið í fjölda kvikmynda og sjónvarpsþátta, frá því að hann lék sitt fyrsta hlutverk í Sódómu Reykjavík. Nú síðast lék hann annað aðalhlutverkið í kvikmyndinni Ljósvíkingar, sem var frumsýnd í síðustu viku. Svo er það matarspjallið með frú Sigurlaugu Margréti. Í dag fikruðum mig okkur inn í haustið, varlega, og skoðuðum mat sem gott er að ylja sér við í fækkandi hitastigum...ekki hitaeiningum. Tónlist í þættinum: Don't try to fool me / Jóhann G. Jóhannsson (Jóhann G. Jóhannsson) Þá kemur þú / Nýdönsk (Björn Jörundur Friðbjörnsson) Á sama tíma að ári / Nýdönsk og Svanhildur Jakobsdóttir (Björn Jörundur Friðbjörnsson)
Föstudagsgesturinn okkar að þessu sinni er kennari og rithöfundur. Hún hefur skrifað nokkrar matreiðslubækur þar sem hollustan og fjölskyldan er í fyrirrúmi og einnig gert vinsæla matreiðsluþætti fyrir sjónvarp. Hún hefur tekið þátt í dansþáttum í sjónvarpi, þar sem hún sagðist hafa farið verulega út fyrir þægindarammann, og hún hefur einnig spreytt sig sem leikkona. Ebba Guðný Guðmundsdóttir var föstudagsgesturinn okkar í dag. Matarspjallið með Sigurlaugu Margréti hófst á ný í dag og við fórum yfir hvað umsjónarfólki fannst markverðast í matargerð á ferðalögum þeirra í sumar. Hvað stóð upp úr? Japan, Portúgal og Frakkland komu við sögu í matarspjalli dagsins. Tónlist í þættinum: Við saman / Hljómar (Gunnar Þórðarsson, texti Þorsteinn Eggertsson og Gunnar Þórðarsson) Yfir skýin / Lúpína (Grímur Einarsson og Nína Solveig Andersen) Guðirnir / Þríradda, Benedikt (Benedikt Gylfason) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
MANNLEGI ÞÁTTURINN FÖSTUDAGUR 14.JÚNÍ UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG HELGA ARNARDÓTTIR Lilja Sigurðardóttir glæpasagnahöfundur, leikskáld og handritshöfundur var föstudagsgestur hjá okkur í dag. Eftir Lilju liggja ellefu bækur, átta þeirra hafa verið þýddar á erlend tungumál og um milljón eintaka verið seld í tuttugu löndum. Því fylgir að sjálfsögðu mikið kynningarstarf, krefst ferðalaga og viðveru á glæpasagnahátíðum um allan heim. Við heyrðum hvað Lilja er helst að fást við þessa dagana og líka af æsku hennar en foreldrar hennar voru heimshornaflakkarar og bjó hún víða erlendis á sínum mótunarárum. Í matarspjallinu með Sigurlaugu Margréti renndum við yfir þá fjölmörgu pósta sem okkur bárust í síðustu viku vegna pönnukökuspjalls og vörpuðum við þeirri spurningu fram, af hverju festast pönnukökur við pönnukökupönnuna? Síðan hringdum við í frú Sigurlaugu sem brá sér til Parísar til að kanna hina frönsku pönnuköku.
Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Ólafía Hrönn Jónsdóttir, leikkona, söngkona og lagahöfundur. Hún hefur auðvitað leikið fjölda hlutverka á sviði og í sjónvarpi og kvikmyndum og svo er hún meðlimur í Heimilistónum og Hljómsveit Jarþrúðar og hefur sungið víða. Framundan er Sumarkjólaball Heimilistóna í Gamla Bíói, en við fórum auðvitað aftur í tímann með Ólafíu, á æskuslóðirnar, í Reykjavík, á Höfn í Hornafirði og á Laugarvatni. Við fórum svo með henni á handahlaupum í gegnum lífið til dagsins í dag og spjallið leiddi okkur á skemmtilegar slóðir, til dæmis þegar hún sagði frá því hvaðan draumurinn um að verða leikkona kom, grínið og hljómsveitirnar, en hún er nýbúin að stofna tríó sem ber nafnið Mamma þín. HP sósan var svo til umfjöllunar í Matarspjallinu með Sigurlaugu Margréti, en í síðustu viku fjölluðum við um Worchestershire sósuna. Svo ræddum við hugmyndir að þjóðlegum smáréttum og partýmat sem sniðugt gæti verið að bera á borð á kosningavökunni annað kvöld. Tónlist í þættinum í dag: Nú liggur vel á mér / Ingibjörg Smith (Óðinn G Þórarinsson og Númi Þorbergs) Tuð / Hljómsveit Jarþrúðar (Ólafía Hrönn Jónsdóttir) Haltu utan um mig / Heimilistónar (Ólafía Hrönn Jónsdóttir) UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var leikarinn Hallgrímur Ólafsson, eða Halli melló eins og hann er oft kallaður. Hann er fæddur og uppalinn á Akranesi, hann starfaði meðal annars á Akraborginni og fór á sjóinn með pabba sínum. Hann byrjaði ungur að spila tónlist og syngja, fluttist um tvítugt til Reykjavíkur, fór í Leiklistarskólann, þar sem hann tengdi misvel við það sem þar var kennt og hefur svo meira og minna verið að leika í leikhúsunum frá því hann útskrifaðist. Við fórum með Hallgrími á handahlaupum í gegnum lífið til dagsins í dag. Og svo sat Hallgrímur óvænt áfram með okkur og Sigurlaugu Margréti í matarspjallinu. Þar talaði hann um sinn uppáhaldsmat, purusteik, kjötfars, saltfisk og fleira.
Föstudagsgesturinn Mannlega þáttarins í þetta sinn var Pálmi Guðmundsson, hann var markaðs- og dagskrárstjóri á Stöð 2 í 12 ár og dagskrárstjóri hjá Sjónvarpi Símans í 10 ár en starfar nú sem forstöðumaður stafrænnar þróunar hjá Árvakri, Morgunblaðinu og mbl.is. Pálmi er fjölmiðla- og rekstrarhagfræðingur, lagði stund á fjölmiðlafræði í Arizona í Bandaríkjunum og vann meðal annars hér ár RÚV meðfram náminu. Eftir námið hefur hann meira og minna unnið í fjölmiðlum. Við fórum með honum aftur í tímann á æskuslóðirnar í Árbænum, upphafsárin í útvarpinu á Stjörnunni og Bylgjunni og svo á handahlaupum í gegnum lífið til dagsins í dag. Matarspjallið í dag snéri að öllu leyti um kaffi. Hvað er gott kaffi og hvernig notum við t.d. kaffi í matargerð? Við rifjuðum upp fyrstu kynni okkar af kaffi, kaffisull, Neskaffi og fleira með Sigurlaugu Margréti í dag. Tónlist í þættinum: Ó hvað get ég gert / Hljómsveit Ingimars Eydal (Þorvaldur Halldórsson og Ómar Ragnarsson) Einhversstaðar einhverntíma aftur / Ellen Kristjánsdóttir og Mannakorn (Magnús Eiríksson) Ást er æði / Ragnheiður Gröndal og Björgvin Halldórsson(Sam Brooker, texti e. Kristin G. Bjarnason) UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Árni Magnússon forstjóri Íslenskra orkurannsókna, ÍSOR, var föstudagsgesturinn okkar að þessu sinni. Árni ber líka titilinn fyrrverandi ráðherra og fyrrverandi fréttamaður en síðustu ár hafa orkumál átt hug hans allan. Hann hefur starfað fyrir verkfræðistofuna Mannvit og unnið á þeirra vegum í Ungverjalndi, hann var framkvæmdastjóri endurnýjarnlegrar orku hjá Íslandsbanka og hann hefur setið í stjórn fjölda fyrirtækja,félaga og stofnana innanlands og erlendis ofleira og ofleira. Já Árni var föstudegsturinn okkar í dag og við fengum að kíkja í minningabankann hans í dag. Matarspjallið var svo á sínum stað og í dag töluðum við um nesti fyrir bílferð norður í land. Létt/Ríó Tríó(Gunnar Þórðarsson-Jónas Friðrik) Purple rain/Prince Stjörnurnar/Hnetusmjör (Árni Páll Magnússon)
Föstudagsgesturinn okkar í dag var söngvarinn góðkunni Jón Jósep Snæbjörnsson eða Jónsi í Svörtum fötum. Hann er fæddur 1.júní 1977 og hefur svo sannarlega komið víða við á tónlistarbrautinni. Í dag starfar hann sem viðskiptatengslastjóri hjá Aurbjörgu auk þess að vera enn á kafi í tónlistarbransanum. Jónsi rifjaði upp æskuárin á Akureyri, upphaf tónlistarferilsins, trommuleik í kjallaranum, skólagönguna, þríhornið, hljómsveitina Ringulreið, flutninginn til Reykjavíkur, ABBA sýninguna á Broadway, þegar hann keppti fyrir hönd Íslands í Istanbúl í Eurovision og fleira. Það var matarspjall í dag eins og alltaf á föstudögum. Á bóndadegi var ekki komist hjá því að ræða bóndamat, þorramat og fleira með Sigurlaugu Margréti og það voru skiptar skoðanir eins og svo oft áður. Tónlist í þætti dagsins: Dag sem dimma nátt / Í svörtum fötum (Magnús Þór Sigmundsson og Stefán Hilmarsson) Ég labbaði í bæinn / Vilhjálmur Vilhjálmsson (Jóhann Helgason og Vilhjálmur Vilhjálmsson) Paradís / Í svörtum fötum (Einar Örn Jónsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var söngkonan Þórhildur Örvarsdóttir. Þórhildur er fædd og uppalin á Akureyri og hóf snemma feril sinn sem söngkona enda sannarlega fædd inn í mikla tónlistarfjölskyldu. Á ferlinum hefur hún tekist á við ólíka stíla í tónlistinni, til dæmis óperur og söngleiki, heimstónlist, popp, jazz og kvikmyndatónlist. Þórhildur hefur í mörg ár kennt söng og raddþjálfun víða. Þórhildur sagði okkur betur frá sjálfri sér, æskunni á Akureyri, námsárum í Reykjavík, Danmörku og nú síðast í Skotlandi og svo fengum við að vita hvað hún er að fást við þessa dagana. Svo var það auðvitað matarspjallið með Sigurlaugu Margréti, en í spjallinu í dag tókum við fyrir svokallaðan bíxímat, sem er matur sem fólk hefur mjög misjafnar skoðanir á. Tónlist í þættinum í dag: California / Joni Mitchell (Joni Mitchell) Syngur lóa / Torrek (þjóðlag) Willie Stewart/Molly Rankin / Eddi Reader (af plötunni The Songs of Robert Burns) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GÍGJA HÓLMGEIRSDÓTTIR
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir þingkona var föstudagsgestur Mannlega þáttarins að þessu sinni og við komum víða við í spjallinu með henni. Hún rifjaði upp æsku sína og hvernig hún ætlaði sér að verða dýralæknir lengi vel, hvað henni leið vel í sveitinni en líka hversu gaman það var að alast upp í Breiðholtinu. En hvernig stóð á því að hún fór í stjórnmálin? Hvers vegna fór hún í lögfræði en ekki leiklist? Við heyrðum allt um það í skemmtilegu spjalli við Þorgerði Katrínu. Í matarspjallinu með Sigurlaugu Margréti töluðum við um sósugerð fyrir jólin. Rjúpusósa, sósa með kalkúninum og hamborgarhryggnum. Ekki vorum við öll sammála um hvað má og hvað ekki í þeim efnum en við vorum þó sammála um að góð sósa getur svo sannarlega gert gæfumuninn. Tónlist í þættinum í dag: Bíddu pabbi / Vilhjálmur Vilhjálmsson (lag Callander & Stevens, texti Iðunn Steinsdóttir) Sister Golden Hair / America (Gerry Beckley) Fairytale of New York / The Pogues & Kirsty MacColl (Jem Finer & Shane MacGowan) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Hanna Birna Kristjánsdóttir var föstudagsgestur Mannlega þáttarins í dag. Hún er fyrrum innanríkisráðherra, varaformaður Sjálfstæðisflokksins og borgarstjóri í Reykjavík. Eftir að hún sagði skilið við stjórnmálin hefur hún m.a. verið ráðgjafi á aðalskrifstofu UN Women í New York, verið formaður framkvæmdastjórnar Women Political Leaders (WPL) og verið í forsvari fyrir alþjóðlega ráðstefnu kvenleiðtoga sem haldin hefur verið í Hörpu. Hanna Birna er fædd og uppalin í Hafnarfirði og við spjölluðum við hana um æskuna og uppvöxtinn, skólagönguna, námið í Edinborg og svo sagði hún okkur frá því hvað hún er að gera í dag. Matarspjallið var svo auðvitað á sínum stað og það var þungt hljóð í Sigurlaugu Margréti þegar hún ræddi um þróun makkintosh molanna. Svo ræddum við einu sinni sem oftar um purusteikina og hvað þarf til að gera vel heppnaða, stökka puru. Tónlist í þættinum í dag: Klukknahljóm / Þórir Baldursson (erlent lag, útsetning Þórir Baldursson og Gunnar Þórðarson) Hótel Jörð / Vilborg Árnadóttir, Heimir og Jónas (Heimir Sindrason og Tómas Guðmundsson) Áfram stelpur / Áfram stelpur hópurinn - Anna Kristín Arngrímsdóttir, Bríet Héðinsdóttir, Guðrún Alfreðsdóttir, Kristín Á. Ólafsdóttir, Margrét Helga Jóhannsdóttir, Sigrún Björnsdóttir og Steinunn Jóhannesdóttir (Dagný Kristjánsdóttir, Gunnar Edander og Kristján Jóhann Jónsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Þorgeir Ástvaldsson, fjölmiðlamaðurinn, tónlistarmaðurinn og skemmtikrafturinn. Hann hóf sinn fjölmiðlaferil 1977 í útvarpsþættinum Popphornið hér á Rás 1, svo stýrði hann vinsælum sjónvarpsþætti, Skonrokki, og svo þegar Rás 2 tók til starfa var Þorgeir ráðinn forstöðumaður stöðvarinnar. Fyrsti útsendingardagur var auðvitað 1. desember 1983, því heldur Rás 2 upp á 40 ára afmæli í dag. Það var um nóg að spjalla við Þorgeir og ljómandi gaman að rifja upp fyrstu daga Rásar 2 í þættinum í dag. En það er auðvitað líka fullveldisdagur í dag og því veltum við fyrir okkur í dag, ásamt Sigurlaugu Margréti, hvað sé tilvalið að fá sé að borða á fullveldisdeginum í matarspjalli dagsins. Tónlist í þættinum í dag: Gamla húsið / Ellen Kristjánsdóttir (Þorgeir Ástvaldsson og Bjartmar Guðlaugsson) Ég labbaði í bæinn / Vihjálmur Vilhjálmsson (Jóhann Helgason og Vilhjálmur Vilhjálmsson) Er líða fer að jólum / Ragnar Bjarnason (Gunnar Þórðarson og Ómar Ragnarsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON

Drífa Snædal var föstudagsgesturinn okkar að þessu sinni. Hún er talskona Stígamóta frá 1.mars síðastliðnum og fyrrverandi forseti ASÍ en hún var fyrsta konan til að gegna því starfi og tók við því 26.okt 2018. Drífa er fædd í Reykjavík en hefur einnig búið á Hellu og í Lundi í Svíþjóð. Við ræddum við hana um æskuna, unglingsárin og ýmislegt fleira. Matarspjallið með Sigurlaugu Margréti var á sínum stað og við vorum með óvæntan gest með okkur á línunni frá Norðurlandi Eystra og sá maður var Magnús Már Þorvaldsson Björgvin Halldórsson - Gullvagninn. Tyler, Bonnie - Total eclipse of the heart. Flott - Hún ógnar mér. Hot Butter - Popcorn. Flott - Mér er drull.

Egill Helgason var föstudagsgesturinn okkar í dag. Hann hóf fjölmiðlaferil sinn sem blaðamaður í fréttablöðum á borð við Alþýðublaðið, Tímann og Helgarpóstinn og stundaði nám fjölmiðlafræði í alþjóðaskólanum Journalistes en Europe í París á árunum 1986-87. Egill hóf störf í sjónvarpi árið 1988, fyrst í sjónvarpsþáttunum Mannlega þættinum, sem fjölluðu um ýmsa þætti íslensks þjóðernis, síðar varð hann fréttamaður, fyrst hjá Ríkisútvarpinu og svo á Stöð 2. Árið 1999 byrjaði Egill með pólitísku spjallþættina Silfur Egils hjá Skjá einum, sem þá var nýstofnaður, og nutu þættirnir fljótt vinsælda og áhrifa. Egill hefur einnig verið umsjónarmaður bókmenntaþáttarins Kiljunnar frá árinu 2007 og hefur unnið að fjölda heimildarþátta m.a. um sagnfræðileg málefni eins og td. Vesturfarar, Steinsteypuöldin, Siglufjörður saga bæjar o.fl. og á sínum ferli hefur hann auðvitað unnið til fjölda Edduverðlauna. Við fórum með Agli aftur í tímann og ræddum æskuárin, námsárin, tónlist sonar hans Kára, Grikkland og fleira. Svo var auðvitað matarspjallið með Sigurlaugu Margréti á sínum stað. Við tjöluðum í dag um heita rétti í hauslægðunum, hægeldað lambalæri, kjúkling og fleira. Tónlist í þættinum í dag: Trúlofun / Bjarni Arason (Bjarni Hafþór Helgason og Arnar Bjarnason) Ring rhyme / Kári Egilsson (Kári Egilsson) Something Better / Kári Egilsson (Kári Egilsson) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Steinunn Sigurðardóttir rithöfundur. Hún sendi frá sér sína fyrstu ljóðabók aðeins nítján ára og hefur síðan sent frá sér tugi verka, ljóðabækur, skáldsögur, smásögur, leikverk og sannsögur. Hún hefur hlotið fjölda viðurkenninga fyrir ritstörf sín, þar á meðal Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar og Íslensku bókmenntaverðlaunin. Bækur Steinunnar hafa verið gefnar út víða í Evrópu við góðar undirtektir og í Frakklandi var gerð kvikmynd eftir einni af hennar þekktustu sögum, Tímaþjófnum. Við fórum í þættinum með Steinunni aftur í upprunann, æskuna og uppvöxtinn og ferðalagið í gegnum lífið til dagsins í dag og svo sagði Steinunn okkur frá sinni nýjustu bók, Ból, sem kemur út 31. október. Matarspjallið með frú Sigurlaugu Margréti var auðvitað á sínum stað og í dag skoðuðum við gamla góða skólanestið. Og við lögðum áherslu á gamla góða því við rifjuðum upp hvað við vorum með í nesti þegar við vorum í grunnskóla. Mjólk í tómatsósuflöskum, brauð með kæfu, sítrónu Svali og fleira kom til tals. Tónlist í þættinum Franskar (sósa og salat) / Stuðmenn (Valgeir Guðjónsson, Egill Ólafsson og Gunnar B. Jónsson) Kavaljersvisan (Det gör detsamma var du stupar) / Lille Bror Söderlundh (Lille Bror Söderlundh) Its raining again / Supertramp (Roger Hodgson og Rich Davies) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON

Föstudagsgestir Mannlega þáttarins í þetta sinn voru tveir, Kormákur Geirharðsson og Skjöldur Sigurjónsson. Þeir hafa verið félagar í hartnær þrjátíu ár og stærstan hluta af því hafa þeir rekið saman fyrirtæki, Herrafataverslun Kormáks og Skjaldar og Ölstofu Kormáks og Skjaldar. Þeir ætluðu sér upphaflega að selja notuð föt í mánuð til að fá smá tekjur, en það þróaðist heldur betur og í dag er meira en helmingur sem þeir selja hannað og framleitt fyrir þá og þeir eru meira að segja að framleiða sitt eigið íslenska tweed. Matarspjallið var svo auðvitað á sínum stað og að þessu sinni heyrðum við í okkar konu Sigurlaugu Margréti frá Spáni hvar hún sinnir skyldum sínum við rannsóknir á mat og matarvenjum Spánverja. Eru Tapasréttir málið í Katalóníu eða alls ekki? Við komumst að því í matarspjalli dagsins þar sem auðvitað komu við sögu tómatar, paella og fransbrauð. TÓNLIST Í ÞÆTTINUM: Eitt lag enn / Stjórnin (Hörður Gunnar Ólafsson og Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson) Sumarauki /Elly Vilhjálms (Sigfús Halldórsson og Guðjón Halldórsson) Fashion/David Bowie UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Björgvin Franz Gíslason leikari var föstudagsgestur Mannlega þáttarins í dag. Hann hefur komið víða við í skemmtanabransanum, hann sá um Stundina okkar í mörg ár, hann hefur auðvitað leikið í fjölda leiksýninga og í kvikmyndum og sjónvarpi, hann veislustýrir, syngur lögin hans Ragga Bjarna á öldrunarheimilum og nú síðustu ár hefur hann leikið hvert stórhlutverkið á fætur öðru hjá Leikfélagi Akureyrar. Í vetur hefur hann farið með stærsta karlhlutverkið í söngleiknum Chicago fyrir norðan og fékk frábæra dóma fyrir. Við ræddum við Björgvin Franz um lífið og tilveruna, ADHD, Jón Gnarr, Björn Hlyn, Ragga Bjarna og fleira og fleira. Matarspjallið með Sigurlaugu Margréti var svo auðvitað á sínum stað í þættinum. Í dag tókum við aftur upp þráðinn frá því í síðustu viku og héldum áfram að tala um samlokusalöt og einnig komu við sögu kartöflur og rauðmagi. Tónlist í þættinum í dag: Ég bið þig forláts / Raggi Bjarna (J.South og Iðunn Steinsdóttir) A ban I bin /Izhar, Cohen og Alpha Beta (Eurovision lag Ísraela 1978) OK / Langi Seli og Skuggarnir (Axel Hallkell Jóhannesson, Jón Skuggi og Erik Kvick) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Sólveig Arnarsdóttir leikkona. Hún er nýstigin úr hlutverki Lafði Macbeth á sviði Borgarleikhússins og leikur nú Jackie Kennedy í leikritinu Prinsessuleikarnir eftir Nóbelsskáldið Elfriede Jelinek í þýðingu Bjarna Jónssonar og leikstjórn Unu Þorleifsdóttur. Sólveig er nátengd leikhúsinu frá því hún man eftir sér, enda eru foreldrar hennar Þórhildur Þorleifsdóttir leikstjóri og Arnar Jónsson leikari. Sólveig hóf að leika sjálf ung og við fengum hana í dag til að segja okkur frá æskunni og uppvextinum, fyrstu skrefunum í leiklistinni, námsárunum og ferlinum í Þýskalandi þar sem hún hefur leikið á sviði, í sjónvarpi og kvikmyndum. Og svo sagði Sólveig okkur auðvitað frá þessu nýjasta verkefni sem hún frumsýnir eftir viku. Í matarspjalli dagsins var rasp til umræðu. Það er hægt að elda ýmislegt með brauðraspi, það eru til ýmsar útfærslur á raspinu sjálfu og meira að segja hvort á að segja rasp eða raspur og við einmitt ræddum það með Sigurlaugu Margréti í dag. Tónlist í þættinum í dag: Heroes / David Bowie (David Bowie & Brian Eno) Endurfundir / Upplyfting (Sigfús E. Arnþórsson) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Eyþór Ingi Gunnlaugsson, söngvari, var greindur með athyglisbrest í öðrum bekk. Mamma hans vildi ekki að hann yrði settur á lyf en ákvað að fara með honum í skólann. Skemmtikrafturinn Eyþór Ingi Gunnlaugsson hefur alla tíð notið athyglinnar og byrjaði ungur að setja upp sýningar fyrir vini og vandamenn. ?Það má kannski segja að ég hafi verið athyglissjúkur, ég veit það ekki,? segir hann við Sigurlaugu Margréti Jónasdóttur í Segðu mér á Rás 1. Man ekki eftir sér öðruvísi en með greiningu Eyþór Ingi ólst upp á Dalvík þar sem hann var greindur með athyglisbrest í öðrum bekk. Þannig vildi til að kennarinn var að læra um greiningar og tók eftir því að einn nemandi hennar var oft úti á þekju. ?Oft fylgir ofvirkni ADHD en hjá mér var þetta meira eins og vanvirkni, það var frekar að ég gleymdist bara,? segir Eyþór Ingi og hlær. ?Ég er heppinn að muna eiginlega ekki eftir mér öðru vísi en að vera með einhvers konar greiningu á bakinu,? segir hann og bætir við að það sé ágætt að hafa hana vegna þess að hann sé enn að týna lyklunum, úrinu og öllu mögulegu. ?Ekki að það sé afsökun fyrir því en það er meira bara áminning á að ég þarf að pæla í svona hlutum.?

Hann skilaði mér eins og pizzu, segir Tyrfingur Tyrfingsson leikskáld sem kynntist manni sínum á Íslandi, en vegna misskilnings þeirra á milli hélt hann að Tyrfingur væri að ímynda sér að hann starfaði í miðasölu Borgarleikhússins og hætti með honum. Tyrfingur frumsýndi nýverið nýtt verk sem byggist að hluta á ævi ömmu hans. Tyrfingur Tyrfingsson leikskáld er alinn upp af fólki, mikið til konum, með mjög svartan húmor. Það er því kannski ekki að undra að leikverk hans einkennist af mikilli kaldhæðni. Meira að segja legnám ömmu minnar varð að brandara, og ekki einum heldur mörgum bröndurum, segir hann í samtali við Sigurlaugu Margréti Jónasdóttur í þættinum Segðu mér á Rás 1. Það mátti gera grín að öllu og svo er bara kalt á Íslandi, maður verður að vera kaldhæðinn.