Podcasts about hallfr

  • 14PODCASTS
  • 54EPISODES
  • 1h 58mAVG DURATION
  • 1MONTHLY NEW EPISODE
  • Feb 26, 2025LATEST

POPULARITY

20172018201920202021202220232024

Best podcasts about hallfr

Latest podcast episodes about hallfr

Rauða borðið
Rauða borðið 26. feb - Rannsóknablaðamennska, karlmennska, Ragnar Þór, reynsluboltar og Öskjuhlíð

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Feb 26, 2025 248:40

Miðvikudagur 26. febrúar Rannsóknablaðamennska, karlmennska, Ragnar Þór, reynsluboltar og Öskjuhlíð Við hefjum leik á umræðu um spillingu og skyldum fjölmiðla að sporna gegn spillingu í stað þess að strjúka henni. Hefur fallið á trúverðugleika Fjórða valdsins með flokkadráttum? Sigurjón Magnússon Egilsson og Björn Þorláks ræða málin auk þess sem Sigurjón segir frá erfiðasta fréttamáli sem hann hefur glímt við. Viktor Gunnarsson, mma-kappi og Brynjar Karl körfuboltaþjálfari velta fyrir sér líðan karla og lausnum til að vinna úr vanda þeirra. María Lilja ræðir við þá undir yfirskriftinni Karlmennska á krossgötum. Sigurjón Magnús Egilsson kallar Reynsluboltana til leiks í þjóðmálaumræðunni. Þau Hallfríður Þórarinsdóttir mannfræðingur, Bolli Héðinsson hagfræðingur og Páll Ásgeir Ásgeirsson fjallamaður og fyrrverandi blaðamaður ræða saman um púlsinn í íslensku samfélagi. Einn umtalaðasti þingmaður dagsins í dag, Ragnar Þór Ingólfsson, situr fyrir svörum og ræðir persónulegt líf sitt í seríunni Óþekkti þingmaðurinn. Björn Þorláks spyr nýja þingmanninn spjörunum úr og ber biðlaunamálið á góma. Og Oddný Eir Ævarsdóttir lýkur þættinum með viðtali við Maríu Ericsdóttir Panduro sem kallar skógarhöggið í Öskjuhlíð ekkert annað en eyðileggingu.

Rauða borðið
Rauða borðið 5. feb - Spilling, vítissódi, vextir, leiklist, reynsluboltar og neytendamál

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Feb 5, 2025 219:31

Miðvikudagur 5. febrúar Spilling, vítissódi, vextir, leiklist, reynsluboltar og neytendamál Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna, kemur og bregst við stýrivaxtalækkun Seðlabankans. Er til góðs að ný ríkisstjórn leggi fram nýtt búvörufrumvarp? Breki svarar því. Sigurjón Magnús Egilsson fær landslið reynslubolta til að ræða ýmis mál. Þau Jakob Frímann Magnússon, Erna Indriðadóttir, fyrrum fréttakona og Einar Kárason rithöfundur láta gamminn geysa – ekki missa af því. Einnig verður áhugaverð menningarumfjöllun í þættinum. Gunnar Smári ræðir við Björk Jakobsdóttur leikstjóra, Óla Gunnar Gunnarsson leikara og handritshöfund og Vigdísi Höllu Birgisdóttur leikkonu. Leikverkið Tóm hamingja verður til umfjöllunar, leikrit sem Gaflaraleikhúsið hefur sett upp í Borgarleikhúsinu. Þorvaldur Logason heimspekingur og rithöfundur og Hallfríður Þórarinsdóttir doktor í menningarmannfræði koma og ræða hvaða áhrif geta orðið af umfjöllun um spillingu á þessu litla og skrýtna skeri okkar. Þorvaldur er höfundur Eimreiðarelítunnar, sem vakið hefur mikla athygli. Við endum Rauða borðið á áhugaverðu deilumáli í Hvalfirði. Þar á að setja mikið magn af vítissóda í sjóinn innan skamms og sýnist sitt hverjum um ágæti þess. Haraldur Eiríksson sem hefur hagsmuna að gæta kemur og ræðir við okkur.

Rauða borðið
Rauða borðið 22. jan - Kveikja, Reynsluboltar, Óöld, Heimsendakvíði og Ungfrú Ísland

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Jan 23, 2025 285:54

Miðvikudagur 22. janúar Kveikja, Reynsluboltar, Óöld, Heimsendakvíði og Ungfrú Ísland Í tilefni af opnu húsi fyrir feminista og kvennréttindakonur og í upphafi kvennaárs koma fjórar konur, sem líka eru frummælendur á viðburðinum Kveikja, til spjalls um stöðu baráttunnar og helstu baráttumál. Sara Stef Hildar, Guðný S. Bjarnadóttir, Ólöf Tara Harðardóttir og María Hjálmtýsdóttir. Mjöll Matthíasardóttir formaður Félags grunnskólakennara segir að ofbeldismál innan grunnskólanna sem verði opinber séu aðeins toppurinn á ísjakanum. Reynsluboltarnir taka við í spjalli við Sigurjón Magnús, gestir hans eru þau Viðar Eggertsson, Lísa Pálsdóttir, Hallfríður Þórarinsdóttir og Bjarki Bjarnason. Þau tala um það sem helst brennur á okkur. Sæunn kjartansdóttir, sálgreinir og rithöfundur ræðir um heimsendakvíða, hlýnun jarðar, og gáfaða dýrið sem þarf að hlusta á og ræða við til að komast út úr svart-hvítri heimsmynd og líðan. Við ræðum síðan um Ungfrú Ísland í Borgarleikhúsinu við aðstandendur, um erindi verksins við samfélagið, söguna og okkur sjálf. Auður Ava Ólafsdóttir höfundur, Gréta Kristín Ómarsdóttir leikstjóri, og leikararnir Fannar Arnarsson og Íris Tanja Flygenring koma að Rauða borðinu.

Rauða borðið
Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 1

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Jan 3, 2025 80:07

Föstudagur 3. janúar Vikuskammtur: Vika 1 Í fyrsta þætti Rauða borðsins á glænýju ári, Vikuskammti, fær Björn Þorláksson til sín góða gesti til að gera upp líðandi stundu og ræða helstu fréttir og tíðaranda. Þau Viðar Eggertsson leikari, Margrét Tryggvadóttir rithöfundur, Hallfríður Þórarinsdóttir mannfræðingur og Matthías Imsland framkvæmdastjóri ræða stöðu samfélagsins og horfur næstu vikur - nú þegar hrein valdaskipti hafa orðið á Alþingi og sitthvað gæti tekið breytingum. Þá fær Áramótaskaupið sérstaka athygli í umræðunni.

Rauða borðið
Rauða borðið 6. nóv - Trump, efnahagur, stjórnarskrá, neytendur, rödd almennings, verkfallsvakt

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Nov 6, 2024 216:32

Miðvikudagur 6. nóvember Trump, efnahagur, stjórnarskrá, neytendur, rödd almennings, verkfallsvakt. Við Rauða borðið í kvöld verður tekið á grundvallarmálunum og nýjustu fréttum. Sigurjón Magnús Egilsson tekur á móti góðum gestum í beina útsendingu til að ræða meðal annars um úrslit kosninganna í Bandaríkjunum; Eva Bergþóra Þorbergsdóttir, samskiptastjóri Reykjavíkurborgar, Gunnnar Hólmsteinn Ársælsson, kennari, Hallfríður Þórarinsdóttir, mannfræðingur, Sigurður Gylfi Magnússon, prófessor í sagnfræði í Háskóla Íslands. Efnahagsstjórnin hér hefur gengið frekar illa, ríkissjóður er rekinn með halla ár eftir ár. Hvers vegna er það og hvað er unnt að gera til að snúa þessu við? Við fáum fjóra góða hagfræðinga til að greina stöðuna. Þeir eru: Þórólfur Matthíasson, prófessor emeritus, Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, hagfræðingur hjá BSRB, Ólafur Garðar Halldórsson, hagfræðingur hjá SA og Róbert Farestveit, hagfræðingur hjá ASÍ. Hjörtur Hjartarson og Katrín Oddsdóttir Stjórnarskrárfélaginu setja nýja stjórnarskrá á dagskrá og útskýra hvers vegna það er kosningamál sem liggur til grundvallar öllum helstu kröfum okkur og draumum um betra líf og réttlátara. Benjamín Julian fer yfir neytendafréttir og fólk á förnum vegi svarar spurningum um stjórnarskrá sem kosningamál og hvað þurfi til að gera til að bjarga ríkissjóði úr halla. Á Verkfallsvakt Rauða borðsins ræðir Haukur Hilmarsson, smíðakennari í Reykjanesbæ um kennara sem blóraböggla en hann skrifaði samninganefndunum skeyti í formi dagbókar kennara sem varpar ljósi á umfang starfsins sem er vanmetið.

Rauða borðið
Rauða borðið 26. sept - Óspilltir blaðamenn, nýir Íslendingar, VG, líðan barna, alþjóðakerfið, kúrekar og dýraníð

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Sep 26, 2024 259:50

Fimmtudagur 26. september Rauða borðið: Óspilltir blaðamenn, nýir Íslendingar, VG, börn og þeirra líðan, alþjóðakerfið, kúrekar og dýraníð. Aðalsteinn Kjartansson sem hefur um árabil haft réttarstöðu sakbornings ásamt fjölda annarra blaðamanna ræðir ákvörðun lögreglu fyrir norðan að hætta rannsókn á umtöluðu máli. Við fjöllum um innflytjendamál. Þau Morgane Priet-Mahéo stuðningsfulltrúi hjá Rétti barna á flótta, Hallfríður Þórarinsdóttir doktor í menningarmannfræði, Sema Erla Serdaroglu formaður Sólaris og Jasmina Vajzović stjórnmálfræðingur ræða stöðu nýrra Íslendinga, flóttafólks og fólks af erlendum uppruna. Hlynur Hallsson VG-félagi telur ekki ráðlegt að sprengja ríkisstjórnina. Hann hyggur að viðspyrna sé á næsta leyti. Geðheilsa barna verður til umfjöllunar. Þórhildur Ólafsdóttir barnasálfræðingur setur hnífamálið í stærra samfélagslegt samhengi. Ögmundur Jónasson segir okkur frá gagnrýni Alfred de Zayas, prófessors í alþjóðalögum, á veiklað alþjóðakerfið, en de Zayas heldur fyrirlestur á vegum Ögmundar í Þjóðmenningarhúsinu á laugardaginn. Árni Sveinsson leikstjóri og Jón Oddi Víkingsson aka Johnny King tónlistarmaður ræða Kúreka. Og við endum á umfjöllun um dýraníð og dýravernd. Linda Karen Gunnarsdóttir, formaður Dýraverndarsambands Íslands gagnrýnir sinnuleysi.

Rauða borðið
Synir Egils 25. feb - Kjaramál, pólitík og innflytjendur

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Feb 25, 2024 162:00

Synir Egils 25. febrúar Kjaramál, pólitík og innflytjendur Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða helstu fréttir og pólitík við gesti. Að þessi sinni koma Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, Þórarinn Eyfjörð formaður Sameykis og Hallfríður Þórarinsdóttir mannfræðingur og ræða fréttir vikunnar og stöðuna í pólitíkinni. Þeir bræður taka svo stöðuna á pólitíkinni en fá svo að Rauða borðinu innflytjendur til að ræða innflytjendamál. Jasmina Vajzović Crnac sérfræðingur í málefnum flóttafólks og innflytjenda, Qussay Odeh aðgerðarsinni í málefnum Palestínumanna og Wiktoria Joanna Ginter túlkur og aktívisti í málum innflytjenda ræða breyttan tón í umræðu um innflytjendastefnu.

Rauða borðið
Aðgerðaáætlun, rasismi og útlendir fangar

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Jan 22, 2024 168:52

Mánudagurinn 22. janúar Aðgerðaáætlun, rasismi og útlendir fangar Hörður Guðbrandsson formaður Verkalýðsfélags Grindavíkur og Páll Valur Björnsson kennari koma að Rauða borðinu og gera upp aðgerðarpakka ríkisstjórnarinnar til að tryggja öryggi Grindvíkinga. Er þetta nóg? Eða nógu skýrt? Hallfríður Þórarinsdóttir mannfræðingur ræðir um rasisma á Íslandi í tilefni af Facebook-færslu Bjarna Benediktssonar utanríkisráðherra og formanns Sjálfstæðisflokksins þar sem hann sagði mótmælastöðu fólks frá Palestínu á Austurvelli vera hörmungin ein. Í lokin kemur Helgi Gunnlaugsson afbrotafræðingur og fjallar um erlenda fanga í íslenskum fangelsum, en um fjölda þeirra hefur verið fjallað í umræðunni og bent á sem dæmi um varasamar afleiðingar fjölgunar innflytjenda

er gu sj rau palest grindav rasismi austurvelli verkal hallfr
Rauða borðið
Ástandið & kynþáttahyggja

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Nov 20, 2023 151:52

Mánudagurinn 20. nóvember Ástandið & kynþáttahyggja Við ræðum um ástandsstúlkur við þrjá sagnfræðinga: Báru Baldursdóttur, Kristínu Svövu Tómasdóttur og Láru Magnúsardóttur. Og einn lögmann, Katrínu Theodórsdóttur. Er möguleiki á að þær stórkostlegu persónunjósnir geti endurtekið sig? Síðan kemur Hallfríður Þórarinsdóttir og segir okkur frá rasisma, kynþáttahyggju og þjóðrembu í samhengi við fjölda innflytjenda á Íslandi.

Rauða borðið
Synir Egils: Afsögn, spilling, stríð og mótmæli

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Oct 16, 2023 136:22

Sunnudagurinn 15. október Synir Egils: Afsögn, spilling, stríð og mótmæli Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða helstu fréttir og pólitík við Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur þingkonu, Sólveigu Önnu Jónsdóttur formann Eflingar og Guðmund Andra Thorsson rithöfundur. Þeir bræður fara líka yfir daginn og veginn og Atli Þór Fanndal fer með pistilinn. Í lokin mæta í stúdíóið fólkið sem stóð fyrir mótmælunum Bjarna burt! og meta árangurinn: Hallfríður Þórarinsdóttir, Karl Héðinn Kristjánsson, Birgir Þórarinsson, Guðmundur Hrafn Arngrímsson og Kári Jónsson.

Rauða borðið
Vikuskammtur: Vika 40

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Oct 6, 2023 72:05

Föstudagurinn 6. október Vikuskammtur: Vika 40 Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Erling Ingvason tannlæknir, Hallfríður Þórarinsdóttir mannfræðingur, Hlín Agnarsdóttir leikstjóri og Sverrir Norland rithöfundur og ræða fréttir vikunnar sem einkenndist af skætingi, deilum, sorg og sárindum.

Lestin
Fiðluteknó Geigen, Rauða bókin hans Jung og Forest Swords

Lestin

Play Episode Listen Later Sep 6, 2023 55:00

Fiðluteknótvíeykið Geigen sem er skipað þeim Gígju Jónsdóttur og Pétri Eggertssyni, þau fagna útgáfu tveggja platna með tónleikum í Iðnó annað kvöld. Tónlist Geigen verður til inni í skálduðum vísindasagnaheimi úr þeirra eigin ranni og flutningur hennar tekur oftar en ekki á sig mynd gjörnings eða sýningar, nú síðast með Íslenska dansflokknum, en samstarfssýning þeirra Geigengeist sem sett var upp í Borgarleikhúsinu í fyrra vann til þriggja Grímuverðlauna, meðal annars fyrir tónlist ársins. Rauða bókin er ferðalag eins merkasta geðlæknis 20. aldarinnar um eigin dulvitund. Rauða bókin er skrautskrifuð og myndskreytt bók sem Carl Gustav Jung dundaði sér við í 16 ár á fyrri hluta síðustu aldar. Anna Gyða Sigurgísladóttir skoðaði sögu þessa merka verks í Lestinni 2018 og við ræddi við Hallfríði J. Ragnheiðardóttur, sem þekkir vel til verka Jungs. Ný plata er væntanleg frá tónlistarmanninum Matthew Barnes sem kallar sig Forest Swords, sú fyrsta frá árinu 2017. Barnes sver sig í ætt við James Blake, Burial og Four Tet og tónlist hans kallar upp myndir af öllu og engu í senn, það er hægt að hlusta á hana aftur og aftur, í nýju samhengi og nýjum aðstæðum, með athygli eða fjarrænum eyrum. Í lok þáttar heyrum við nokkur lög af plötunni sem heitir Bolted og kemur út í október.

Lestin
Fiðluteknó Geigen, Rauða bókin hans Jung og Forest Swords

Lestin

Play Episode Listen Later Sep 6, 2023

Rauða borðið 31.ágúst: Innflytjendur, íslenskan og pólitíkin

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Sep 1, 2023 181:32

Hallfríður Þórarinsdóttir kemur að Rauða borðinu og ræðir um erlent verkafólk á Íslandi, hvernig það er misnotað og haldið niðri. Eiríkur Rögnvaldsson lítur við og ræðir um íslenskuna, hvernig hún veikist og velkist í breyttum heimi. Í lokin verður ný liður, Synir Egils. Bræðurnir og blaðamennirnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka stöðuna á pólitíkinni.

Rauða borðið
Búsáhaldabyltingin, ASÍ, Súdan og geðlækningar

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Apr 25, 2023 194:18

Þriðjudagurinn 25. apríl 1. Fréttir dagsins. 2. Ragnar Þór Ingólfsson. kallaði eftir mótmælum í gær, sagði þörf á annarri og árangursríkari Búsáhaldabyltingu. Við ræðum stöðuna við virka þátttakendur úr Búsáhaldabyltingunni, Árna Daníel Júlíusson, Hjört Hjartarson og Hallfríði Þórarinsdóttur. 3. Finnbjörn Hermannsson fyrrum formaður Byggiðnar býður sig fram sem forseta Alþýðusambandsins. Við spyrjum hann um átökin innan hreyfingarinnar og hvert hún eigi að stefna. 4. Súdan logar. Við fáum Helen Ólafsdóttir öryggisfulltrúa til að lýsa ástandinu. 5. Geðhjálp stendur fyrir ráðstefnu þar sem þekkt andófsfólk gegn meginstraums-geðlækningum mætir. Við spjöllum við Elínu Ebbu Ásmundsdóttur varaformann Geðhjálpar um erindi ráðstefnunnar, auka vanlíðan í samfélaginu og oftrú á lyfjum.

Víðsjá
Íslenskar prósaflugur, ævintýraópera og umbreytingarafl lista

Víðsjá

Play Episode Listen Later Sep 1, 2022 55:00

Á krefjandi tímum er mikilvægt að halda í vonina, bjartsýnina og trúna á mannkynið, samtalið og umbreytingarmátt listarinnar. Nokkurnvegin svona er inntakið í Goethe morph, menningarviðburði fullum af sýningum og málstofum sem hefjast um helgina og fara fram í Norræna húsinu í samstarfi við Goethe Institut. Arnbjörg María Daníelsen, sýningarstjóri, segir frá fjölbreyttri dagskrá í Norræna húsinu næstu tvær vikurnar. Í kvöld verður frumflutt í Gamla bíó ný íslensk ópera eftir gömlu ævintýri, Mærþöll. Þórunn Guðmundsdóttir er höfundur bæði tónlistar og libretto, en hún hefur skrifað fjölda leikrita, söngleikja og ópera síðustu ár. Tónverk eftir Þórunni verður líka frumflutt á tónleikum í Langholtskirkju næstkomandi sunnudag, sem Íslenski flautukórinn heldur utan um og haldnir eru í minningu flautuleikarans Hallfríðar Ólafsdóttur, sem lést fyrir réttum tveimur árum, langt fyrir aldur fram. Þórunn kemur í hljóðstofu og segir okkur frá óperunni og tónverkinu Hafblik. Þegar best tekst til getur hausinn á lesandanum stækkað jafnmikið við að lesa eina örsögu eins og eina skáldsögu. Þessa tilvitnun í Elísabetu Jökulsdóttur er að finna í bók sem kom út í vikunni: Með flugur í höfðinu, sýnisbók íslenskra prósaljóða og örsagna 1922-2012. Safnritið er yfirlit um íslensk prósaljóð og örsögur, eftir tugi skálda sem hafa fengist við þessi heillandi en vandmeðförnu bókmenntaform. Kristín Guðrún Jónsdóttir, prófessor í spænsku, og Óskar Árni Óskarsson, skáld, önnuðust útgáfuna og eru gestir dagsins í Víðsjá. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir

Víðsjá
Íslenskar prósaflugur, ævintýraópera og umbreytingarafl lista

Víðsjá

Play Episode Listen Later Sep 1, 2022

Morgunútvarpið
24. maí - Miðflokkurinn, hælisleitendur, vændi, íslenskan, Úkraína

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later May 24, 2022 130:00

Meirihlutaviðræður í Grindavík tóku óvænta stefnu á dögunum. Sjálfstæðisflokkurinn leiðir nú viðræður við Framsókn og Rödd unga fólksins - sem Hallfríður Hólmgrímsdóttir, oddviti Miðflokksins í Grindavík - sagði algjörlega galið og gegn vilja fólksins. Miðflokkurinn var sigurvegari kosninganna þar í bæ og fékk 32,4%. Við ræddum við Hallfríði í byrjun þáttar. Vændi og kynlífsvinna hefur verið falið undir yfirborðinu á Íslandi um áratugaskeið. Töluverð breyting hefur orðið á viðhorfi til kynlífsvinnu undanfarin ár, sérstaklega með innreið vefsíðunnar Only Fans á íslenskan markað og málflutningi aðgerðarsinna sem krefjast aukinna réttinda fyrir kynlífsverkafólk. Aðrir tala um að vændið sem hvert annað kynferðisofbeldi sem skilji eftir sig merki áfalla og streitu. Í dag kemur út bókin Venjulegar konur sem fjallar um vændi á Íslandi sem skrifuð er af Brynhildi Björnsdóttur í samstarfi við Evu Dís Þórðardóttur. Reglulega er rætt um stöðu íslenskunnar og að ensk orð og orðatiltæki séu orðin sumu fólki tamari en móðurmálið. Óttar Guðmundsson, geðlæknir og pistlahöfundur, sagði í grein í Fréttablaðinu í síðustu viku að honum leiddist undanhald íslenskunnar og þætti það skrítið að íslenskufræðingurinn Eiríkur Rögnvaldsson skyldi reka flóttann og segja málvillur vera ásættanlega og eðlilega þróun. Við ræddum við Eirík sem svaraði Óttari í Facebook hópnum Málspjalli um helgina. Fyrirhugað er að vísa um 300 hælisleitendum úr landi nú þegar brottvísanir eru hafnar á ný eftir Covid-19 faraldurinn. Fólkið hefur dvalið á landinu í langan tíma en í fyrsta fasa þessara brottvísana stendur til að fljúga þeim til Grikklands en mannúðarsamtök hafa ályktað að aðstæður þar séu flóttafólki óboðlegar. Á sama tíma hafa forsvarsmenn atvinnulífsins kallað eftir auknum heimildum til handa útlendinga að koma og setjast hér að þar sem mikinn mannskap vanti í ýmsa geira. Jón Gunnarsson, dómsmálaráðherra, var gestur okkar til að svara fyrir þessi mál. Ekkert lát er á stríðinu í Úkraínu en innrás Rússa hefur orðið til þess að fjöldi fólks á flótta er kominn yfir hundrað milljónir. Við ræddum stöðuna í Úkraínu við Jón Ólafsson, prófessor og sérfræðing í málefnum Rússlands. Að vanda renndum við yfir sviðið í heimi tækninnar með Guðmundi Jóhannssyni eins og annan hvern þriðjudag. Tónlist: Skýjaglópur - Júníus Meyvant og KK Gimme! Gimme! Gimme! - ABBA Leave The Door Open - Silk Sonic Maðkur í Mysunni - Prins Póló Wrecking Ball - Miley Cyrus

Morgunútvarpið
24. maí - Miðflokkurinn, hælisleitendur, vændi, íslenskan, Úkraína

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later May 24, 2022

Vinnuskúrinn
14. maí

Vinnuskúrinn

Play Episode Listen Later May 14, 2022 67:33

Til að ræða fréttirnar í kosningaviku koma í Vinnuskúrinn þau Fjölnir Sæmundsson formaður Landssambands lögreglumanna, Steinunn Þórðardóttir formaður Læknafélags Íslands, Sonja Þorbergsdóttir formaður BSRB og Hallfríður Þórarinsdóttir sem verið hefur fundarstjóri á mótmælunum á Austurvelli að undanförnu, en segja má að Austurvöllur sé eitt af almannasamtökum landsins. Við ræðum kosningar og pólitík, dýrtíð og vaxtahækkanir, húsnæðiskreppu og heilbrigðiskerfið en líka Júróvison og kappræður.Samstöðin á FacebookSamstöðin á YouTubeSamstöðin á vefnumAlþýðufélagið styrkir Samstöðina. Alþýðufélagið hefur það markmið að auðga og bæta umræðu í samfélaginu. Allir geta gengið í Alþýðufélagið og styrkt þar með efni og útbreiðslu Samstöðvarinnar. Takk fyrir stuðninginn

fj takk allir steinunn austurvelli bsrb austurv hallfr landssambands
Rauða borðið
Salan á Íslandsbanka

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Apr 7, 2022 60:24

Við ræðum söluna á Íslandsbanka við Rauða borðið í kvöld. Ásta Lóa Þórsdóttir þingkona og formaður Hagsmunasamtaka heimilanna, Benedikt Sigurðarson fyrrum skólastjóri, Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar og Hallfríður Þórarinsdóttir mannfræðingur og einn af skipuleggjendum mótmæla á Austurvelli á laugardaginn. Hvað gerðist? Er það líðandi? Hvað getur almenningur gert?Samstöðin á FacebookSamstöðin á YouTubeSamstöðin á vefnumAlþýðufélagið styrkir Samstöðina. Alþýðufélagið hefur það markmið að auðga og bæta umræðu í samfélaginu. Allir geta gengið í Alþýðufélagið og styrkt þar með efni og útbreiðslu Samstöðvarinnar. Takk fyrir stuðninginn 

Morgunútvarpið
20. sep - Bann, atvinnuleysi, samskiptafærni, innflytjendur og sport

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Sep 20, 2021 130:00

Nýlega stofnuðu ríkisstjórnir Danmerkur og Kosta Ríka til samvinnuverkefnis sem nefnist Jarðefnaeldsneytislaus framtíð. Aðilar að verkefninu banna leit eftir og vinnslu á nýjum jarðefnaeldsneytisauðlindum. Landvernd hefur fagnað þessu framtaki og hvetur íslensk stjórnvöld til að gerast aðilar að verkefninu. Auður Önnu Magnúsdóttir, framkvæmdarstjóri Landverndar, kom til okkar og fór nánar yfir málið. Alls fækkaði atvinnulausum að meðaltali um ríflega eitt þúsund á milli júlí og ágúst og hefur ekki verið lægra síðan fyrir Covid. Skráð atvinnuleysi á Íslandi var 5,5% í ágúst og lækkaði úr 6,1% í júlí. Unnur Sverrisdóttir forstjóri Vinnumálastofnunar kom og fór yfir þetta með okkur ásamt því að hún sagði okkur aðeins af nýrri ársskýrslu en ársfundur stofnunarinnar var á fimmtudaginn. Þjálfun starfsfólks í þjónustufyrirtækjum er gríðarlega mikilvæg enda starfsmaðurinn andlit fyrirtækisins gagnvart viðskiptavininum. Þróun hefur orðið í þjálfun starfsmanna en sýndarveruleikatækni er nú t.d. notuð í að þjálfa samskiptafærni. Þar er starfmaðurinn þjálfaður í viðbrögðum við erfiða viðskiptavini í sýndarveruleika. Margrét Reynisdóttir frá fyrirtækinu Gerum betur, sem býður uppá þessa nýjung, kom til okkar og sagði okkur meira. Innflytjendum hefur fjölgað mikið hér á landi síðastliðna áratugi og nú eru erlendir ríkisborgarar um 14% þjóðarinnar. Þessi hópur er mikilvægur hluti af íslenskum vinnumarkaði og á mörgum vinnustöðum starfar fjöldi innflytjenda. Samkaup er eitt slíkra fyrirtækja, en þar er fjórðungur starfsfólks innflytjendur og hefur fyrirtækið ráðist í átaksverkefni þar sem áhersla er lögð jafnrétti og fræðslu. Gunnur Líf Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri mannauðssviðs Samkaupa, og Hallfríður Þórarinsdóttir, sérfræðingur í innflytjendamálum og framkvæmdarstjóri Mirru rannsóknarseturs, sögðu okkur betur frá þessu verkefni, en Hallfríður var fengin til að sjá um fræðslu fyrir starfsfólk Samkaupa. Og í lokin kíktum við á íþróttir helgarinnar með Evu Björk Benediktsdóttur. Tónlist: Ásgeir Trausti - Sunday drive Phil Collins - Against all odds Kacey Musgraves - Space cowboy Ed Sheeran - Bad habits Friðrik Dór - Hvílíkur dagur Flott - Þegar ég verð 36 Spandau Ballet - Gold Bubbi ásamt Bríeti - Ástrós Abba - Don't shut me down

covid-19 magn jar bann alls skr hv margr gunnarsd danmerkur benediktsd vinnum landverndar hallfr landvernd atvinnuleysi
Morgunútvarpið
20. sep - Bann, atvinnuleysi, samskiptafærni, innflytjendur og sport

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Sep 20, 2021

Sögur af landi
Flakkað um Eyjafjarðarsveit

Sögur af landi

Play Episode Listen Later Jun 11, 2021

Við ferðumst um Eyjafjarðarsveit í þessum þætti. Ferðalagið hefst á bænum Kristnesi þar sem við forvitnumst um risakúna Eddu sem nú er í smíðum hjá bóndanum Beate Stormo. Kúnni er ætlað að verða einkennistákn Eyjafjarðarsveitar enda er mjólkurframleiðsla eitt af sérkennum sveitarinnar. Því næst fræðumst við um Matarstíg Helga magra hjá Mariu Holmgrimsdóttur, verkefnastjóra matarstígsins. Þaðan förum við í heimsókn í Dyngjuna listhús þar sem Guðrún H. Bjarnadóttir segir frá staðnum og þeirri starfsemi sem hún rekur þar. Við ljúkum ferðalaginu á Smámunasafni Sverris Hermanssonar og spjöllum þar við safnstýruna Sigríði Rósu Sigurðardóttur um starfsemi safnsins og forvitnumst líka um húsið sjálft sem hýsir safnið. Viðmælendur í þættinum voru Beate Stormo, Maria Holmgrimsdóttir, Guðrún Hallfríður Bjarnadóttir og Sigríður Rósa Sigurðardóttir. Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir.

Hrafninn flýgur, leikhús í lokunum, Bassi gegn Bjarna Ben

Lestin

Play Episode Listen Later Mar 29, 2021 50:00

Ungur maður að nafni Bassi Maraj skapaði mikla ólgu á netheimum um helgina, eftir að hafa svarað tísti frá fjármálaráðherra Íslands fullum hálsi. Stjórnmálafræði prófessorinn Hannes Hólmsteinn Gissurarson blandaði sér í málin en uppskar einnig væna - ef glettnislega - pillu úr ranni Bassa. Bassi þessi á vinsælt lag um þessar mundir, nefnt eftir honum sjálfum, en hann er þó best þekktur úr raunveruleikaþáttunum Æði, þar sem áhrifavaldarnir Binni Glee, Patrekur Jaimie (Hæme) og auðvitað Bassi eiga sviðið. Við fáum leikstjóra þáttanna, Jóhann Kristófer Stefánsson, til að kryfja atburði helgarinnar. Við rifjum upp snilldina Hrafninn flýgur eftir Hrafn Gunnlaugsson, víkingamynd sem sækir jafnt í íslenskan sagnaarf sem ítalskra spagettívestra og japanskra samúræjamyndir. Við heyrum um ástæður þess að nánast hver einasti skandinavi þekkir þessa línu úr myndinni. Og Gígja Sara Björnsson heldur áfram að kynna sér sviðslistir í samkomubanni. Fyrir tveimur vikum ræddi hún við Friðrik Friðriksson framkvæmdastjóra Tjarnarbíós, en nú sest hún niður með Hallfríði Þóru Tryggvadótttur, listrænum stjórnanda, amerísk-skandinavíska sviðslistahópnum í New York sem hefur þurft að fara nýjar leiðir til að kynna sviðslistir norðurlanda í heimsfaraldri.

Lestin
Hrafninn flýgur, leikhús í lokunum, Bassi gegn Bjarna Ben

Lestin

Play Episode Listen Later Mar 29, 2021

Vistvænar íbúðir, Hjartsláttur Ástu Ólafsdóttur og Býr Íslendingur hér

Víðsjá

Play Episode Listen Later Sep 15, 2020 55:00

Víðsjá 15. september 2020 Í sumar var tekin skóflustunga að nýjum vistvænum íbúðum fyrir ungt fólk í Gufunesi. Íbúðirnar verða á bilinu 30 til 68 fm og munu kosta frá 17-34 milljónir. Á bak við jafn hagkvæmar einingar liggja miklar rýmispælingar sem Sólveig Berg, arkitekt hjá Yrki, mun segja betur frá í Víðsjá í dag. Einnig verður haldið í heimsókn í Nýlistasafnið þar sem nú stendur yfir yfirlitssýningin á verkum Ástu Ólafsdóttur en sýningin heitir Hjartsláttur. Auk þess verður fjallað um bók vikunnar á Rás 1 að þessu sinni en það er bókin Býr Íslendingur hér? Minningar Leifs Muller skráðar af Garðari Sverrissyni. Þar segir Leifur frá hremmingum sínum í heimsstyrjöldinni síðari; hvernig hann var svikinn í hendur Gestapo í Noregi, fangelsaður og síðar sendur til Sachsenhausen-fangabúðanna skammt frá Berlín. Garðar Sverrisson verður gestur Víðsjár, segir frá bókinni og les upp úr henni brot. Auk þess leikur Hallfríður Ólafsdóttir heitin Dans sælu andanna úr Orfeus og Evridís eftir Gluck.

Víðsjá
Vistvænar íbúðir, Hjartsláttur Ástu Ólafsdóttur og Býr Íslendingur hér

Víðsjá

Play Episode Listen Later Sep 15, 2020

Víðsjá 15. september 2020 Í sumar var tekin skóflustunga að nýjum vistvænum íbúðum fyrir ungt fólk í Gufunesi. Íbúðirnar verða á bilinu 30 til 68 fm og munu kosta frá 17-34 milljónir. Á bak við jafn hagkvæmar einingar liggja miklar rýmispælingar sem Sólveig Berg, arkitekt hjá Yrki, mun segja betur frá í Víðsjá í dag. Einnig verður haldið í heimsókn í Nýlistasafnið þar sem nú stendur yfir yfirlitssýningin á verkum Ástu Ólafsdóttur en sýningin heitir Hjartsláttur. Auk þess verður fjallað um bók vikunnar á Rás 1 að þessu sinni en það er bókin Býr Íslendingur hér? Minningar Leifs Muller skráðar af Garðari Sverrissyni. Þar segir Leifur frá hremmingum sínum í heimsstyrjöldinni síðari; hvernig hann var svikinn í hendur Gestapo í Noregi, fangelsaður og síðar sendur til Sachsenhausen-fangabúðanna skammt frá Berlín. Garðar Sverrisson verður gestur Víðsjár, segir frá bókinni og les upp úr henni brot. Auk þess leikur Hallfríður Ólafsdóttir heitin Dans sælu andanna úr Orfeus og Evridís eftir Gluck.

Lestarklefinn
Solastalgia, Tenet og Folklore með Taylor Swift

Lestarklefinn

Play Episode Listen Later Sep 4, 2020

Umræður um menningu og listir. Fjallað er um Solastalgia, Tenet og Folklore. Gestir þáttarins eru Erlingur Óttar Thoroddsen, handritshöfundur og leikstjóri, Hallfríður Þóra Tryggvadóttir, leikhúsframleiðandi og markaðsstjóri og Flosi Þorgeirsson, tónlistarmaður og hlaðvarpsstjórnandi. Umsjón: Anna Marsibil Clausen.

Mannveran og ástin, mistök á Hönnunarmars, Og hverra manna ert þú?

Lestin

Play Episode Listen Later Jun 22, 2020 55:00

Spurningin kann að virðast hversdagsleg en undirniðri er hún eitt af tækjunum sem Íslendingar nota til að kortleggja samfélagið, okkur sjálf og náungann. Við köfum ofan í þessa spurningu með mannfræðingnum Dr. Hallfríði Þórarinsdóttur. Manneskjan er nafli alheimsins. Að minnsta kosti hefur slík mannmiðjukenning verið undirliggjandi forsenda í allri hugmyndasögu vesturlanda undanfarnar aldir. Í þriðja pistli sínum af fjórum um stöðu mannsins í heiminum veltir Karl Ólafur Hallbjörnsson, heimspekinemi við Háskólann í Warwick, fyrir sér einum helsta drifkrafti mannverunnar, ástinni. Hönnunarmars fer fram á óvenjulegum tíma vegna heimsfaraldursins, hefst seinna í þessari viku. Hönnunarsamfélagið iðar því að lífi, undirbúningur í fullum gangi. Í Lestinni í dag tökum við púlsinn á hönnunarteyminu Are we studio? sem frumsýnir ný verk á hátíðinni, verk sem eru innblásin af mistökum.

mist manna warwick stin hallbj hallfr manneskjan
Lestin
Mannveran og ástin, mistök á Hönnunarmars, Og hverra manna ert þú?

Lestin

Play Episode Listen Later Jun 22, 2020

Spurningin kann að virðast hversdagsleg en undirniðri er hún eitt af tækjunum sem Íslendingar nota til að kortleggja samfélagið, okkur sjálf og náungann. Við köfum ofan í þessa spurningu með mannfræðingnum Dr. Hallfríði Þórarinsdóttur. Manneskjan er nafli alheimsins. Að minnsta kosti hefur slík mannmiðjukenning verið undirliggjandi forsenda í allri hugmyndasögu vesturlanda undanfarnar aldir. Í þriðja pistli sínum af fjórum um stöðu mannsins í heiminum veltir Karl Ólafur Hallbjörnsson, heimspekinemi við Háskólann í Warwick, fyrir sér einum helsta drifkrafti mannverunnar, ástinni. Hönnunarmars fer fram á óvenjulegum tíma vegna heimsfaraldursins, hefst seinna í þessari viku. Hönnunarsamfélagið iðar því að lífi, undirbúningur í fullum gangi. Í Lestinni í dag tökum við púlsinn á hönnunarteyminu Are we studio? sem frumsýnir ný verk á hátíðinni, verk sem eru innblásin af mistökum.

mist manna warwick stin hallbj hallfr manneskjan
Rauða borðið
Rauða borðið, 2. júní

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Jun 15, 2020 66:31

Við Rauða borðið í kvöld sest fólk sem bjó í Bandaríkjunum um langa stund og veltir fyrir sér ástandinu þar, séð frá Íslandi: Viðar Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Eflingar; Sólveig Ásta Sigurðardóttir, doktorsnemi í bókmenntum; Snorri Sturluson leikstjóri og Hallfríður Þórarinsdóttir mannfræðingur. Eru Bandaríkin að leysast upp, hvað getur haldið þeim saman? Hvaða áhrif hafa mótmælin nú á stjórnmálin og komandi kosningar?

Víðsjá
Týndar gersemar, Speight, Kim Leine, Mið-Ameríka

Víðsjá

Play Episode Listen Later Feb 20, 2020 55:00

Jórunn Sigurðardóttir segir frá tilnefningum til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs. Hallfríður Ólafsdóttir flautuleikari verður tekin tali um efnisskrá á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar áhugamanna sem fram fara í Seltjarnarneskirkju á laugardag. Hallfríður hefur mikið velt fyrir sér tónlistarsögunni að undanförnu, hvernig ákveðin nöfn hafa þar verið hafin til vegs og virðingar á meðan önnur hafa fallið í gleymskunar dá, en á tónleikunum verða flutt í fyrsta sinn á Íslandi verk úr smiðju Fanny Mendelssohn, Joseph Bologne, Alice Mary Smith og Emilie Mayer. Gauti Kristmannsson bókmenntagagnrýnandi fjallar í dag um skáldsöguna Valdimarsdagur eftir dansk-norska rithöfundinn Kim Leine en bókin kom nýlega út í íslenskri þýðingu Jóns Halls Stefánssonar. Gunnar Kvaran sellóleikari segir frá tónleikum sem haldnir verða í Hannesarholti á sunnudag, þar frumflytja þau Gunnar og Helga Bryndís Magnúsdóttir píanóleikari nýtt verk eftir tónskáldið John Speight en hann fagnar 75 ára afmæli í næstu viku. Og Hólmfríður Garðarsdóttir, prófessor í spænsku við Háskóla Íslands, heldur áfram að horfa til vesturs eins og hún hefur gert í Víðsjá undanfarna fimmtudaga í febrúar. Í dag fer hún með hlustendur í ferðalag til mið-Ameríku, og Mexíkó, og talar meðal annars um flóttamenn.

Tónlist frá a til ö
Barna- og fræðslustarf S.Í.

Tónlist frá a til ö

Play Episode Listen Later May 11, 2019

Rætt er um fræðslu og barnastarf Sinfóníuhljómsveitar Íslands - rætt við Hjördísi Ástráðsdóttur fræðslustjóra, Hallfríði Ólafsdóttur flautuleikara og höfund Maxímús Músíkús og Halldóru Geirharðsdóttur leikkonu sem kynnt hefur fjöldan allan af tónleikum hljómsveitarinnar m.a. sem trúðurinn Barbara.

Samfélagið
Innflytjendur. Skiptastjóri. Spillivagninn.

Samfélagið

Play Episode Listen Later Apr 10, 2019 55:00

Hallfríður Þórarinsdóttir mannfræðingur og framkvæmdastjóri Mirru: Hlutur innflytjenda í ferðaþjónustunni. Erlendur Gíslason lögmaður á Logos: Hvað gerir skiptastjóri? Guðmundur B. Friðriksson skrifstofustjóri umhverfisgæða hjá Reykjavíkurborg og Þorsteinn Aðalsteinsson íbúi: Spillivagninn er farinn að stað af nýju. Spillivagninn tekur við spilliefnum og litlum raftækjum frá heimilum.

Morgunútvarpið
Stuttmyndin Ég, Brexit, Herjólfur, Landsréttarmál og tækni

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Mar 13, 2019 130:00

Stuttmyndin ÉG vann í vikunni til verðlauna á Vancouver International Women in Film Festival. Höfundar myndarinnar og leikstjórar eru Vala Ómarsdóttir og Hallfríður Þóra Tryggvadóttir en hún byggir á sögu Uglu Stefaníu Kristjönudóttur Jónsdóttur kynjafræðings og trans-aðgerðarsinna. Við heyrðum í Völu Brexit samningurinn sem Theresa May lagði fyrir breska þingið í gær var kolfelldur. Enn er því allt í uppnámu í breskum stjórnmálum og alls óvíst hvert framhaldið verður. Kristján Guy Burgess, alþjóðastjórnmálafræðingur, kom til okkar og fór yfir stöðuna. Í fyrradag birtist myndband á Facebook sem Hólmgeir Austfjörð tók af Herjólfi á leið inn til Eyja í vonskuveðri. Myndbandið ferðaðist víða um heim og vakti mikla athygli. Við heyrðum aðeins í manninum sem var við stýrið, Gísli Valur Gíslason skipstjóri var á línunni. Mál málanna er auðvitað dómur mannréttindadómsins sem kveðin var upp í gær. Íslenska ríkið var þar dæmt brotlegt í Landsréttarmálinu svokallaða. Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, alþingismaður, og Jóhannes Karl Sveinsson, hæstaréttarlögmaður, fóru yfir þetta með okkur. Guðmundur Jóhannsson mætti í sitt vikulega tæknihorn og í dag voru Rússland, Kína og GPS kerfið til umfjöllunar. Tónlist: Ylja - Sem betur fer. Sting - Windmills of your mind. Vök - Erase you. The Smiths - There is a light that never goes out. Susanne Vega - Left of center. The Cardigans - For what its worth. Ed Sheeran - Shape of you. GDNR og Auður - Hvað ef.

Víðsjá
Móðirin í Grafarvogskirkju, Ísak Harðarson, Sinfónískar konur og ástin

Víðsjá

Play Episode Listen Later Nov 21, 2018 55:00

Í Víðsjá dagsins verður myndlistarkonan Kristín Gunnlaugsdóttir sótt heim en verk hennar, Móðirin frá árinu 2012, hangir nú uppi í kapellunni í Grafarvogskirkju. Rætt er við Kristínu um verkið sem vekur meðal annars upp spurningar um sköp kvenna sem tabú í samfélaginu en einnig stöðu konunnar innan kirkjunnar. Gauti Kristmannson sér um bókarýni dagsins, sem í þetta sinn fjallar um nýjustu ljóðabók Ísaks Harðarsonar, Ellefti snertur af yfirsýn. Sinfóníuhljómsveit Norðurlands mun um helgina efna til tónleika undir nafninu Sinfónískar konur í tilefni aldarafmælis Jórunnar Viðar, undir stjórn Hallfríðar Ólafsdóttur. Nánar verður rætt um tónleikana við Hallfríði í þætti dagsins. Og að lokum er rætt við bassasöngvarann Andra Björn Róbertsson sem heldur tónleika í Tíbrár-tónleikaröð Salarins annað kvöld ásamt píanóleikaranum Edwige Herchenroder. Umsjón: Guðni Tómasson og Halla Harðardóttir.

Sunnudagssögur
Sigrún Waage leikkona og Hallfríður Ólafsdóttir flautuleikari

Sunnudagssögur

Play Episode Listen Later Sep 30, 2018 142:00

Sigrún Waage leikkona sagði frá uppvextinum í Laugarneshverfinu þar sem Laugardalurinn var allur í skurðum og börn léku sér mikið á svæðinu. Hún sagði frá dansnáminu en hún lærði klassískan ballett í mörg ár, var ein af stofnendum módel 79 sem sýndu tískusýningar í Hollywood og fleiri stöðum. 21 árs fór Sigrún til New York að læra leiklist en hún hafði tengst leikhúsinu mikið sem barn og unglingur enda tekið þátt í fjölmörgum sýningum þar. Hún fékk hlutverk í Vesalingunum skömmu eftir heimkomu, frestaði því að flytjast með ungan son sinn til barnsföður síns til Florida og var hér heima og lék í fjölmörgum sýningum i leikhúsunum. Sigrún sagði frá erfiðum dótturmissi en hún missti dóttur sína úr heilahimnubólgu þegar hún var aðeins 11 ára gömul. Hún sagði frá erfiðri reynslu sem kom síðar á lífsleiðinni þegar yngsta dóttir hennar steig fram og sagði frá misnotkun sem hafði átt sér stað gegn henni af manni í fjölskyldunni þó ekki blóðtengdum. Sigrún hefur reynt að vinna sig út úr erfiðri reynslu með því að leita til fagaðila og síðan hefur hún ræktað listagyðjuna enn frekar og hefur nú lokið námi sem kennari í Vocal Technik. Hún er að undirbúa frumsýningu á verki sem kallast á íslensku Ég heiti Guðrún og verður frumsýnd í Kassanum í Þjóðleikhúsinu í byrjun okt. Hallfríður Ólafsdóttir flautuleikari í Sinfoníuhljómsveit Íslands sagði frá uppvextinum í Kópavogi, árunum í Skólahljómsveit Kópavogs þar sem hún lék á klarinett en skipti síðar yfir í flautu. Hún fór í frekara nám í flautuleik til London og Parísar, hefur kennt víða og spilað í yfir 20 ár með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Hún fékk hugmyndina af Maximús Músíkús fyrir 13 árum síðan og síðan hafa út komið fimm bækur um þessa músikalísku mús.

Sunnudagssögur
Sigrún Waage leikkona og Hallfríður Ólafsdóttir flautuleikari

Sunnudagssögur

Play Episode Listen Later Sep 30, 2018

Mannlegi þátturinn
Maximús músíkús og Indriði Aðalsteinsson bóndi

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Sep 25, 2018 60:00

Mannlegi þátturinn 24.sept Umsjón Guðrún Gunnarsdóttir og Margrét BLöndal 1)Maximús músíkús/Hallfríður Ólafsdóttir höfundur segir frá útrás bókanna og tónlistarinnar. 2)Kristín Einarsdóttir talar við Indriða Aðalsteinsson bónda á Skjaldfönn um sauðfjárræktina,smalamennsku og sitthvað sem snýr að lífi bóndans.

Flakk
Flakk - Flakkað um Ytri Njarðvík - síðari þáttur

Flakk

Play Episode Listen Later May 12, 2018

Haldið áfram að ganga Borgarveginn í Ytri Njarðvík í fylgd Hallfríðar Þórarinsdóttur mannfræðings. Gengið niður að höfninni, rætt um íbúa, tíðaranda, vinnu á vellinum, fisk og fleira. Farið í heimsókn til Garðars Magnússonar útvegsbónda og sonar hans Gylfa, sem er löngu fluttur í bæinn. Garðar man tímanna tvenna en hann býr í Höskuldarkoti hinu nýja sem faðir hans byggði, en fjölskyldan hefur verið í Njarðvík frá því seint á 18 öld. Garðar rær enn út, verkar fisk og frystir en einnig býr hann til harðfisksflögur. Hanna G. Sigurðardóttir átti spjall við Sigrúnu Benediktsdóttur í þættinum Vítt og breitt árið 2006. Sigrún giftist þelkökkum hermanni af vellinum og segir frá sinni sýn á hermennsku og umhverfi vallarins.

Fyrir forvitna
Hallfríður Þórarinsdóttir í Ytri Njarðvík

Fyrir forvitna

Play Episode Listen Later May 11, 2018

Lísa Páls var á Flakki í Ytri Njarðvík í tvígang, þetta er brot úr seinni þættinum í fylgd Hallfríðar Þórarinsdóttur mannfræðings. Borgarvegurin gengin, en þar ólst Hallfríður upp.

njar hallfr
Flakk
Flakk - um Ytri Njarðvík - fyrri þáttur

Flakk

Play Episode Listen Later May 5, 2018

Flakkað um Ytri Njarðvík, sem í raun rennur alvega saman við Keflavík, eða sveitarfélagið Reykjanesbæ. Borgarvegurinn gengin, sem er elsta gata Njarðvíkur í fylgd Hallfríðar Þórarinsdóttur mannfræðings en hún ólst upp við götuna. Hún segir frá fólkinu sem þar bjó, æskuárunum og fl. Farið í heimsókn í Rokksafnið í fylgd Baldurs Guðmundssonar stjórnarformanns Geimsteins, sagt frá því sem fyrir augu ber, og tilurð safnsins. Einnig er sagt frá sögum um Stapadrauginn, sem sagður er hafa verið mögulega Stjáni blái, sem var vel þekktur á Suðurnesjum.

Lestin
Carl Jung & Rauða bókin, kynjuð málnotkun, hvalveiðar, draumapopp

Lestin

Play Episode Listen Later Apr 18, 2018 55:00

Efni Lestarinnar í dag: Rauða bókin er ferðalag eins merkasta geðlæknis 20. aldarinnar um eigin dulvitund. Rauða bókin er skrautskrifuð og myndskreytt bók sem Carl Gustav Jung dundaði sér við í 16 ár á fyrri hluta síðustu aldar. Lestin skoðar athyglisverða sögu ritsins í þætti dagsins. Heimildarmaður þáttarins verður Hallfríður J. Ragnheiðardóttir, sem þekkir vel til verka Jungs. Karl Ólafur Hallbjörnsson fjallar í pistli dagsins að gefnu tilefni um kynjaða málnotkun og tvíræðni orðsins ,,maður." Og hvalveiðar koma við sögu að gefnu tilefni í Lestinni í dag sem og besta draumapopp-plata allra tíma að mati bandaríska veftímaritsins Pitchfork. Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson

Flakk
Flakk um Landsbókasafn Háskólabókasafn 1. þáttur

Flakk

Play Episode Listen Later Feb 17, 2018

Gengið um safnið í fylgd Ingibjargar Steinunnar Sverrisdóttur landsbókavarðar, en hún segir frá sögu safnsins sem er 200 ára í ár, og því ein elsta stofnun landsins. Farið er í heimsókn á ýmsar deildir safnsins, rætt við Helgu Kristínu Gunnarsdóttur um fræðitímarit og önnur tímarit og innkaup þeirra. LItið við hjá Bryndísi Vilbergsdóttur sem sér um tónlistarsöfnun, bæði prentað og hljóðritað efni. Rætt við Hallfríði Baldursdóttur sem sér um skilduskilin, en öllu útgefnu efni ber að skila til safnsins. Einnig rætt við Hildi Ploder Vigfúsdóttur nema í forvörslu og Hjört Hjörtþórsson bókbindara.

Ingen Ko På Isen
17. snurrsurr eller det behövs bara 100 pers till

Ingen Ko På Isen

Play Episode Listen Later Jun 13, 2017 71:06

I dagens avsnitt 17 så pratar Henric Wauge och jag Stefan Ståhl om : -Hallfråga -Årsmöte på Torsdag -Vm-hockey och spåren av Hammarby Hockey i det svenska landslaget -Vet vi riktigt vad som hände tidigare i Hammarby hockey? -Har vi någonsin varit ett publiklag? -Varför skulle vi inte kunna vända …

Ingen Ko På Isen
12.Det är inte kört än, Bajen hockey i med och motgång

Ingen Ko På Isen

Play Episode Listen Later Feb 4, 2017 54:33

I avsnitt tolv så avhandlar vi Damhockey,Bajenkvällen,publik ,Hallfrågan (jo , än en gång). Ett matigt avsnitt på dryga 50 minuter. Jag efterlyser dessutom sponsring av podden och utrustning så att den kan bli ännu bättre. Medverkande denna gång är förutom jag Stefan Ståhl, Henrik Wauge ,Viktor Nyström och från laget …