POPULARITY
Þriðjudagur 27. maí Lýðræði. list og gervigreind, ölæði, Landbúnaðarháskólinn og náttúruvefur Valur Ingimundarson sagnfræðingur og Jón Ólafsson heimspekingur ræða við Gunnar Smára um lýðræðið í austustu Evrópu og lýðræðisþróun í okkar heimshluta. Trump ber á góma ásamt hinum ýmsu Evrópuleiðtogum í bland við stríð, pólitík og uppgang fasisma. Hlynur Helgason, myndlistarmaður, dósent i listfræði HÍ og varaformaður Sambands íslenskra myndlistarmanna ræðir um gervigreind, myndlist, falsanir og höfundarrétt við Oddnýju Eir. Margt bendir til þess að fjárhagsleg afkoma íþróttafélaga ráði för þegar áfengi er selt á viðburðum í kringum börn. Spurt er hvort vegi þyngra, fjármál eða lýðheilsa barna. Árni Guðmundsson forvarnarfulltrúi segir áfengismenninguna út úr kú. Björn Þorláks ræðir við hann. Christian Schultze, umhverfisskipulagsfræðingur og landslagsarkitekt, sviðsstjóri rannsókna- og alþjóðamála í Landbúnaðarháskóla Íslands kemur þar á eftir til Oddnýjar Eirar og segir okkur frá alþjóðasamstarfi og nýjustu verkefnum og ræðir mikilvægi öflugs rannsóknarumhverfis á sviði landbúnaðar á nýjum tímum. Sólrún Harðardóttir, kennari og námsefnishöfundur lokar svo samtali kvöldsins einnig með Oddnýju og ræðir við hana um nýjan náttúruvef fyrir borgarbörn og önnur náttúrubörn.
Gestur Chess After Dark í kvöld er Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra.Hún er viðskiptakona og fyrrum landsliðskona í handbolta sömuleiðis.Hanna Katrín var kjörin á Alþingi fyrir Viðreisn árið 2016 og hefur verið á þingi síðan.Umræðuefni í þættinum:Fórum yfir nýjasta útspil menntamálaráðherra að minnka vægi einkunna í innritun framhaldsskóla.Hækkun á veiðigjöldum.Sjávarútvegur krufinn til mergjar.Er þessi ríkisstjórn að hækka skatta?Landbúnaður.Sér hún eftir því að hafa farið í samstarf með Flokki fólksins?Er Viðreisn orðinn vinstri flokkur?ESBKalda kariðRiddaraspurningarÞessi þáttur er í boði:KaldiAutoCenterSerranoOrka NáttúrunnarDineoutACRO - þóknanalaus apríl - allir að næla sér í ACRO appið.TMSjöstrand - 15 % afsláttur með kóðanum CADPaydayLengjanBúllanSubwayDave&JonsFrumherjiKEMINjótið vel kæru hlustendur og eigið yndislega páska.
Þriðjudagur 25. febrúar Lögregluofbeldi, þýsk stjórnmál, kvikmynd um flóttafólk og íslenskur landbúnaður Daníel Thor Bjarnason, Pétur Eggerz, mótmælendur og Oddur Ástráðsson lögmaður ræða við okkur um Mótmælin í skuggasundinu, afleiðingar þess og málaferlin við ríkið. Við spyrjum almenning og heyrum skoðanir fólks á valdbeitingu lögreglumanna. Halldór Guðmundsson bókaútgefandi með meiru rýnir í úrslit kosninganna í Þýskalandi. Hann segir uppgang fasisma mikið áhyggjuefni og ræðir nýja stöðu Íslands í alþjóðlegu tilliti í varnarmálum. Anastasia Bortuali og Helgi Felixsson kvikmyndagerðarfólk segja okkur frá heimildamyndinni Temporary Shelter sem frumsýnd var í gær. Anastasia er flóttakona frá Úkraínu og vill með myndinni byggja brú milli tveggja heima; flóttafólks og innfæddra. Erna Bjarnadóttir, hagfræðingur hjá Mjólkursamsölunni, ræðir landbúnað, stóra ostatollamálið, ESB og stöðu bænda hér á landi nú um stundir. Hún segir að þungt hljóð hafi verið hjá bændum sem fjölmenntu á fund með Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra í síðustu viku.
Ef tækin tala ekki íslensku þá erum við ekki með í stafrænu veröldinni. Tækin og íslenska verða til umfjöllunar hjá Eyrúnu Magnúsdóttur í dag. Hún ræðir um máltækni við Lilju Dögg Jónsdóttur framkvæmdastjóra Almannaróms, sem er miðstöð máltækni hér á landi. Og við ætlum líka að fjalla um það sem við vitum og það sem við vitum ekki um losun gróðurhúsalofttegunda frá votlendi. Endurheimt votlendis gæti verið góð leið til að minnka losun gróðurhúsalofttegunda en það er ýmislegt í sambandi við votlendið sem kemur á óvart. Rannsakendur við Landbúnaðarháskólann rannsökuðu hversu mikið magn af hláturgasi verður til í votlendi í Borgarfirðinum og Gréta Sigríður kom við á Keldnaholti til að heyra meira. Í lok þáttar ætlum við að pæla aðeins í afleiðingum forsetakosninga í Bandaríkjunum; þó ekki þeirra sem eru nýafstaðnar, þegar Donald Trump sigraði Kamölu Harris – heldur þeirra sem fóru fram í nóvember 2016, þegar Donald Trump sigraði Hillary Clinton og varð forseti í fyrsta sinn. Þá komu niðurstöðurnar mörgum á óvart og margir voru jafnvel í smá uppnámi. Þá tók Þórhildur Ólafsdóttir, sem var umsjónarmaður Samfélagsins á þessum tíma, viðtal við Kolbrúnu Baldursdóttur sálfræðing um kvíða og hræðslu sem börn fundu fyrir í kjölfar þessara kosninga.
Alþjóðlegar byggráðstefnur, landslagsarkítektúr, hinn sögufrægi Kollubar og leikskóli sem vantar börn. Þetta er meðal þess sem fjallað er um í þætti dagsins. Pétur Magnússon heimsótti Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri, ræddi við nemendur og kennara og kynntist samfélaginu. Helga Lára Þorsteinsdóttir, safnstjóri Ríkisútvarpsins, segir frá sjötíu ára gömlum tökuorðum sem rædd voru í hinum sígilda þætti Daglegu Máli, sem þá var í umsjón Árna Böðvarssonar. Vísindaspjall með Eddu Olgudóttur, vísindamiðlara Samfélagsins. Tónlist: NEUTRAL MILK HOTEL - King Of Carrot Flowers, Pt 1. HELGI BJÖRNSSON & REIÐMENN VINDANNA - Það er svo geggjað
Eftir rúma viku rennur upp kjördagur á Bretlandi og í kvöld mætast Keir Starmer leiðtogi Verkamannaflokksins og Rishi Sunak forsætisráðherra Íhaldsflokksins í sjónvarpskappræðum í Nottingham. Kosningaspár gera ráð fyrir stórsigri Verkamannaflokksins. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Höllu Gunnarsdóttur alþjóðastjórnmálafræðing, sem stödd var í Lundúnum. Forstjóri Hvals kvartaði undan stjórnsýslueftirliti með félaginu og sagði samskipti á köflum vera í of djúpum skotgröfum og einkennast af tortryggni. Úr þessu mætti gjarnan bæta þar sem fjölmörg dæmi væru um uppbyggileg og skilvirk samskipti. Freyr Gígja Gunnarsson segir frá. Talið er að rekja megi allt að þriðjungi losunar gróðurhúsalofttegunda til landbúnaðargeirans, þar af kemur helmingurinn frá búpeningi en hinn helminginn má rekja til landnotkunar, orkunotkunar og annarra þátta. Danska ríkisstjórnin hefur nú gert það sem öðrum hefur ekki tekist: Að semja við alla hagsmunaaðila um gjaldtöku vegna losunar frá landbúnaði. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Jón Þór Helgason
I tusindvis af år var op mod 40 procent af Island dækket af store skove, men det sluttede, efter at mennesket ankom i 800-tallet. I de seneste årtier har man gjort en aktiv indsats for at genskabe noget af den natur, som vikingerne og deres efterkommere forandrede, men det er er svært på en ø, hvor der både kan være koldt og meget blæsende. En ung, dansk forsker er i gang med at undersøge, hvordan islændingene kan være få mere af den birkeskov, som deres forfædre næsten helt fjernede fra øen. I programmet bliver vi også klogere på, hvorfor vi i Danmark ikke kan undgå skov, hvis man lader jord ligge urørt. Medvirkende: Anna Mariager Behrend, ph.d.-studerende ved Landbúnaðarháskóli Íslands/Agricultural University of Iceland, og Nané Køllgaard Pedersen, landskabsarkitekt og ph.d. Vært: Peter Løhde See omnystudio.com/listener for privacy information.
Í dag er fyrsti febrúar og hann er merkisdagur í Íslandssögunni. Það var jú 1. febrúar 1904 sem við Íslendingar fengum heimastjórn frá Dönum. Fyrir 120 árum í dag. Af því tilefni rifjuðum við upp þessi tímamót í íslenskri stjórnskipan og samskiptunum við Dani. Til okkar kom Gunnar Þór Bjarnason sagfræðingur, sem kann þessa sögu vel; hefur rannsakað hana og skrifað um hana bækur. Bændur bera sig illa víða í álfunni og hafa mótmælt svo eftir er tekið, í t.d. bæði Þýskalandi og Frakklandi. Íslenskir bændur - ekki síst ungir bændur - hafa líka vakið athygli á erfiðri stöðu í verðbólgu og hávöxtum. Er um reglubundið upphlaup að ræða eða stendur landbúnaður á tímamótum? Hefur smátt og smátt fjarað undan hefðbundnum búskap? Við veltum þessu fyrir okkur með Vigdísi Häsler, framkvæmdastjóra Bændasamtakanna. Við töluðum um gamlar bækur; bækur sem prentaðar voru í Íslendingabyggðum í Vesturheimi á síðustu áratugum nítjándu aldar og fram á miðja tuttugustu öld. Slíkum prentgripum safnaði Ragnar H. Ragnar sem ungur hélt vestur um haf og nam tónlist. Árnastofnun hefur fengið safn Ragnars að gjöf. Sonur hans, Hjálmar H. Ragnarsson tónskáld kom til okkar. Tónlist: Naissoo, Tõnu Trio, Naissoo, Tõnu, Melvin, Brian, Krokfors, Ulf - Don't say goodbye. Hljómsveit Jörn Grauengård, Haukur Morthens, Erla Þorsteinsdóttir - Þrek og tár. Hljómsveit Jörn Grauengård, Haukur Morthens - Frostrósir. Baggalútur - Sólskinið í Dakota.
Miðvikudagurinn 13. desember Efnahagsleg krísa, andkristur, skólar og lífrænn landbúnaður Við fáum Ásgeir Brynjar Torfason sérfræðing í fjármálum til að segja okkur frá minnkandi hagvexti, mikill verðbólgu, háum vöstum og fallandi krónu. Sigríður Þorgeirsdóttir prófessor segir okur frá Andkristi um Nietzsche, Jesús og Páli postula og konunum sem hafa bætt hugsun þeirra allra. Benedikt Sigurðarson fyrrverandi skólastjóri segir okkur frá sínu mati á niðurstöðum Pisa og Kristján Oddsson bóndi á Neðri-Hálsi í Kjós segir okkur frá hvernig hann stundar sinn lífræna búskap.
3. nóvember 2023 Antony Blinken, utanríkmisráðherra Bandaríkjanna, lagði að ráðamönnum Í Ísrael að fylgja alþjóðlegum mannúðarlögum í stríði þeirra við Hamas hryðjuverkasamtökin og heimila neyðaraðstoð til íbúa Gazasvæðisins. Ásgeir Tómasson sagði frá. Fjallað var um áhrif þeirrar miklu hlýnunar sem orðin er á norðurslóðum á íslenskan jarðveg. Ævar Örn Jósepsson ræddi við Bjarna Diðrik Sigurðsson skógvistfræðing og prófessor við Landbúnaðarháskóla Íslands. Þjóðtrú er enn rík í sumum Íslendingum; sérstaklega konum, eldra fólki og íbúum á landsbyggðinni, en efasemdir hafa samt aukist verulega hin síðari ár, og raunar margfaldast í sumum tilfellum. Brynjólfur Þór Guðmundsson ræddi þetta málefni við Terry Gunnell þjóðfræðing. Umsjónarmaður: Ásgeir Tómasson. Tæknimaður: Mark Eldred

Síðasta sólarhring hefur Ísraelsher gert árásir á 600 skotmörk á Gaza. Forsætisráðherra Ísraels sagði í dag að árangur væri að nást gegn Hamas. Forsætisráðherra Íslands vissi ekki að Ísland myndi sitja hjá við atkvæðagreiðslu um tillögu um vopnahlé á Gaza fyrr en eftir að fundur um hana hófst. Tölvupóstur þess efnis var sendur starfsmanni forsætisráðuneytisins ellefu mínútum áður en fundurinn hófst. Stjórnarandstaðan vill að boðað verði til þingfundar hið fyrsta. Enn rís land á Reykjanesskaga norðvestan við Þorbjörn hjá Svartsengi og skjálftavirkni er viðvarandi. Nýjar gasmælingar sýna engar breytingar og samkvæmt fyrstu drögum að úrvinnslu á glænýjum myndum virðist vera að draga úr landrisi. Kínverska byggingafyrirtækið Evergrande fær fimm vikna frest til að semja við lánardrottna um rúmlega 45 þúsund milljarða króna skuldir. Ella blasir gjaldþrot við. Birna Stefánsdóttir hlýtur Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar í ár. Hvernig er hægt að verja hina mikilvægu innviði við Svartsengi fari að gjósa þar? Hvað tekur langan tíma að reisa varnargarða fyrir Grindavík og jarðvarmavirkjun HS orku í Svartsengi? Hvernig er hægt að verja vatnsból og lagnir? Rætt er við Ara Guðmundsson verkfræðing sem fer fyrir vinnu á vegum almannavarna um varnir innviða á Reykjanesskaga. Hvort er hin fyrirsjáanlega mikla hlýnun og gjörbreyttu aðstæður hér góðar fréttir eða slæmar fyrir íslenskan landbúnað og ræktun almennt? Bjarni Diðrik Sigurðsson, skógvistfræðingur er spurður út í áhrif loftslagsbreytinga. Dómari í Hong Kong gaf í dag stjórnendum kínverska fasteignafélagsins Evergrande fimm vikna frest til að leggja fram áætlun um með hvaða hætti þeir ætluðu að greiða skuldir sínar. Ella yrði það tekið til gjaldþrotaskipta. Evergrande er skuldugasta fasteignafyrirtæki í heiminum. Gjalþrotið gæti haft alvarleg áhrif á þjóðarhag í Kína. Ragnhildur Thorlacius hafði umsjón með Speglinum. Magnús Þorsteinn Magnússon var tæknimaður. Margrét Júlía Ingimarsdóttir stjórnaði fréttaútsendingu.

Landbúnaðarmál Vigdís Häsler, framkvæmdastjóri Bændasamta Íslands. Gjaldþrot blasir við fjölda bænda. Kvennaverkfall 24. október Rakel Adolphsdóttir, safnvörður Kvennasögusafni Íslands og Finnborg Salóme Steinþórsdóttir, aðjúnkt við HÍ. Kvennaverkfall vekur heimsathygli. Húsnæðismál Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins. Seðlabankinn heldur húsnæðismarkaðinum niðri með handafli. Stríð í Ísrael/Gaza Þórdís Ingadóttir, dósent við HR og Þórir Jónsson Hraundal, lektor í Mið-Austurlandafræðum við HÍ. Enginn vafi um stríðsglæpi í átökum Ísraels og Palestínumanna.
Samtök atvinnulífsins hefðu viljað verja óvæntum tekjuauka ríkissjóðs til að greiða niður skuldir fremur en að auka útgjöld. Anna Hrefna Ingimundardóttir aðstoðarframkvæmdastjóri SA telur að í fjárlagafrumvarpinu sé ekki nógu mikil áhersla lögð á aðgerðir til að draga úr verðbólgu og lækka vexti. Sjávarútvegurinn hefur dregið úr losun gróðurhúsalofttegunda um allt að helming síðasta aldarfjórðung. Daði Már Kristófersson hagfræðiprófessor telur að fiskveiðistjórnunarkerfið hafi skipt þar sköpum; Íslendingar séu leiðandi við samdrátt í losun við matvælaframleiðslu. Réttað verður yfir Birni Höcke, svæðisleiðtoga þjóðernisflokksins AfD í Þýskalandi. Hann er ákærður fyrir að nota slagorðið ?allt fyrir Þýskaland? í framboðsræðu sinni í maí 2021. Tveir fangar eru á flótta í Frakklandi. Þeir voru í vettvangsferð úti í skógi, sögðust þurfa að kasta af sér vatni og létu sig hverfa. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra flytur stefnuræðu sína í kvöld eins og venja er í byrjun þings. Stefnt er að því að ný þjóðarhöll fyrir innanhúsíþróttir verði tilbúin í árslok 2026 eða byrjun árs 2027, segir Gunnar Einarsson formaður framkvæmdarnefndar. Það er ári síðar en áður var ráðgert. Mikið sjónarspil varð á himninum yfir Íslandi í gærkvöld þegar vígahnöttur sveif í gegnum norðurljós og sprakk. ------------- Full ástæða er til að taka hatursorðræðu gegn hinsegin fólki alvarlega, að mati Maríu Rúnar Bjarnadóttur lögfræðings hjá Ríkislögreglustjóra. Embættinu hafa borist fleiri tilkynningar um hatursorðræðu og hatursglæpi í ár en í fyrra. Vladimír Pútín, forseti Rússlands, og Kim Jong Un, einvaldur í Norður-Kóreu hittust í dag á tveggja klukkustunda fundi í geimferðastöð í Síberíu. Ekkert hefur verið látið uppi um viðræður þeirra. Ásgeir Tómasson tók saman. Óheft lausaganga fjár fer ekki saman við endurheimt landgæða, að mati Ólafs G. Arnalds prófessors við Landbúnaðarháskólann. Ný rannsókn sýnir að vistkerfi víða um land eru illa farin upp til fjalla. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon. Stjórn útsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir

Björgunarsveitum í Marokkó gengur seint að koma til aðstoðar fólki sem missti allt í jarðskjálftanum á föstudagskvöld. Hátt í 2.700 hafa fundist látin. Höfuðkúpubein úr manni fundust í fyrri viku undir gólffjölum í risi Ráðherrabústaðarins við Tjarnargötu, þar sem endurbætur standa yfir. Margrét Hallgrímsdóttir, skrifstofustjóri í forsætisráðuneytinu og fyrrverandi Þjóðminjavörður, gerir ráð fyrir að beinunum hafi verið komið fyrir í húsinu eftir að það var flutt frá Önundarfirði, þar sem það stóð upphaflega. Geðhjálp segir að því fari fjarri að fatlað fólk sé ofþjónustað. Fjármálaráðherra sendi fötluðu fólki kaldar kveðjur þegar hann segir að skoða þurfi hvort því sé veitt þjónusta umfram það sem lög bjóða. Setja á fullkomna gasmæla í hvern þéttbýliskjarna á Reykjanesskaga þar sem búast má við fleiri eldgosum á skaganum. Verið er að bæta viðbúnað Umhverfisstofnunar við eldgosum, í stað þess að redda mælum þegar gos er hafið. Formaður deildar sauðfjárbænda segir að göngur og réttir hafi gengið vel í haust en hefur áhyggjur af því að fleiri bændur bregði búi. Landbúnaðurinn hefur ekki aðgang að sama fé og fjárfestar sem kaupi upp jarðir. Laufey Lín Jónsdóttir tónlistarkona hefur slegið met Lady Gaga og Tonys Bennett á streymisveitunni Spotify í flokki djasstónlistar. Þing verður sett á morgun. Fjármálaráðherra hefur boðað miklar aðhaldsaðgerðir. Í vor og sumar hefur mikið verið rætt um ágreining eða núning milli stjórnarflokkanna og þá helst Sjálfstæðisflokksins og Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs. Eva Heiða Önnudóttir, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, segir alltaf erfitt að sjá fyrir hvað veldur helst ágreiningi en útlendingamálin og boðaður niðurskurður í fjárlögum sé til þess líklegur. Umsjónarmaður Spegilsins var Ragnhildur Thorlacius. Tæknimaður var Mark Eldred. Útsendingu stjórnaði Annalísa Hermannsdóttir.

Flosi hefur oft sagt að hægt sé að gera nær allt áhugavert, nema mögulega landbúnaðarsögu Albaníu. Þetta er svona göngugrína (e. running gag) sem hlustendur þekkja ágætlega. Í hverjum þætti fá styrktaraðilar á Patreon að velja um þrjú umfjöllunarefni. Hið hlutskarpasta verður svo tekið fyrir í einum þætti. Það er Flosi sem sér um að koma með tillögur að þætti. Hins vegar er frestunarárátta hans stundum svo alvarleg að Baldur þarf rækilega að minna hann á. Síðast er þetta átti sér stað setti Baldur honum þá afarkosti að vera tilbúinn á tíma með efnið, ellegar myndi Baldur velja þrjú efni og yrði Flosi að hlíta niðurstöðunni. Flosi brást og því gátu hlustendur valið um eftirtalin þrjú atriði: 1. Saga vatnshelds klæðnaðar. 2. Gláka. 3. Landbúnaðarsaga Albaníu. Er skemmst frá því að segja að númer þrjú vann með yfirburðum. Hægt er að saka Flosa um margt, enda breyskur maður með afbrigðum en hugleysi býr hann þó ekki yfir. Því brást hann vel við þessari áskorun og þátturinn fjallar um sögu Albaníu með fókus á landbúnað. Tókst Flosa að gera efnið áhugavert? Dæmið sjálf. Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunum Umræðuhópur Drauganna á Facebook
Verjandi 17 ára stúlku sem sætir gæsluvarðhaldi vegna morðsins í Hafnarfirði furðar sig á því að henni skuli ekki hafa verið sleppt eftir yfirheyrslur í gærkvöld. Hún sé vitni í málinu, ekki gerandi. Formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga segir að hjúkrunarfræðingar sýni stjórnvöldum rauða spjaldið með því að samþykkja naumlega fyrsta kjarasamninginn í tíu ár. Koma verði í veg fyrir flótta úr stéttinni. Ofbeldisbrotum, og sérstaklega brotum þar sem hnífum er beitt, hefur fjölgað mikið síðustu misseri. Afbrotafræðingur segir að bregðast verði hart við en það sé ekki rétt að setja ungt fólk í fangelsi. Það geri það ekki að betri manneskjum. Tíu ár gæti tekið að byggja upp riðulausa sauðfjárstofna á Íslandi. Þetta sýna frumniðurstöður Landbúnaðarháskóla Íslands. Ólöf Rún Erlendsdóttir ræddi við Jón Hjalta Eiríksson. ------ Undanfarin misseri hefur fjölgað mjög brotum þar sem vopnum er beitt, sérstaklega hnífum. Fjögur ungmenni voru handtekin fyrir helgi, grunuð um að hafa orðið manni að bana í Hafnarfirði á fimmtudagskvöld. Þau sæta gæsluvarðhaldi til fmmtudags. Þrjú þeirra eru ekki orðin átján en það fjórða er á nítjánda ári. Maðurinn var stunginn oftar en einu sinni með hnífi og lést af sárum sínum. Árásin var tekin upp á myndband sem lögregla hefur undir höndum og hún telur sig hafa nokkuð skýra mynd af því sem gerðist. Heimildir fréttastofu herma að samskipti ungmennanna og mannsins sem lést hafi byrjað á bar í grenndinni og færst svo yfir götuna á bílastæðið við Fjarðarkaup. Margrét Valdimarsdóttir, afbrotafræðingur og dósent við Háskóla Íslands, telur þetta mál dæmi um ógnvekjandi þróun sem sjáist víðar en hér, en hún varar við refsigleði. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Margréti. Mörg okkar eiga erfitt með að lesa, skrifa og stafa. Lesblinda háir mörgum í námi, leik og starfi allt frá æsku. En því fyrr sem brugðist er við, því betra. Rúmlega fimmta hvert ungmenni á aldrinum átján til tuttugu og fjögurra ára er með lesblindu. Þetta segja niðurstöður nýrrar rannsóknar á vegum Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands. Hvernig gengur skólakerfinu að takast á við lesblindu? Ásdís Aðalbjörg Arnalds er forstöðumaður Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands. Bjarni Rúnarsson ræðir við hana. Engar vísbendingar eru um að stríðandi fylkingar í Súdan ætli að leggja niður vopn þrátt fyrir tilraunir margra þjóðarleiðtoga til að stilla til friðar. Josep Borrell, utanríkismálastjóri Evrópusambandsins, sagði þegar hann kom til fundar með utanríkismálaráði sambandsins í Lúxemborg í morgun að hann hefði verið í samb

Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Stefán Ólafsson prófessor um samfélagsþróun. Ásdís Hlökk Theódórsdóttir aðjúnkt við HÍ um skipulagsmál. Ólafur Arnalds prófessor við Landbúnaðarháslólann um mold.
Í byrjun þáttar voru leikin brot úr gömlum grínþáttum; t.d. Úllen dúllen doff. Þorgrímur Einar Guðbjartsson, bóndi á Erpsstöðum í Dölum, var fyrsti viðmælandi. Hann og kona hans Helga Elínborg Guðmundsdóttir eru handhafar Landbúnaðarverðlaunanna í ár. Þorgrímur sagði frá lífinu á Erpsstöðum og spjallaði um landbúnaði vítt og breitt. Viðtalið hófst þó á miður góðum nótum því þau hjónin voru nýstigin út úr fjósinu þar sem ein kýrin bar dauðan kálf snemma í morgun. Ásgeir Brynjar Torfason fjallaði um alþjóðleg efnahagsmál. Hann fór m.a. yfir hvernig seðlabankastjórar víða um heim kynna vaxtaákvarðanir en þeir beina orðum sínum jafnan að fjárfestum sem miklu ráða um gang mála í efnahagslífinu. Endurleikið var viðtal frá desember 2021 við Hjalta Pálsson Byggðasögu Skagafjarðar en Hjalti hlaut á dögunum viðurkenningu Hagþenkis fyrir ritröðina sem telur tíu bindi. Tónlist: Tívolí - Stuðmenn, Búkolla - Laddi, Í bláum skugga - Stuðmenn. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson

Landbúnaður, undarlegur dauðdagi, sérvitur stjörnufræðingur og heilkenni sem margir kannast við er meðal þess sem kemur fyrir í þættinum.
Við byrjuðum þáttinn á að slá á þráðinn til Nýja-Sjálands og fjalla um stöðuna eftir eyðilegginguna af völdum hitabeltisstormsins Gabríellu, sem gekk yfir landið í byrjun þessarar viku. Teiknarinn og rithöfundurinn Rán Flygenring býr um þessar mundir í borginni Aukland og við heyrðum í henni um stöðu mála í landinu. Bogi Ágústsson settist við Heimsgluggann. Fjallað var um óvænta afsögn Nicolu Sturgeon og Arne Treholt sem lést á dögunum, norðmaðurinn sem dæmdur var fyrir njósnir fyrir Sovétmenn og Íraka. Einnig var sagt frá litlu umburðarlyndi stjórnvalda á Indlandi í garð fjölmiðla. Við tókum einnig stöðuna í kjaradeilu Samtaka atvinnulífsins og Eflingar. Gylfi Dalmann Aðalsteinsson vinnumarkaðsfræðingur og dósent við Háskóla Íslands ræddi verkfallið núna og fyrri verkföll, vinnulöggjöfina og fleira. Að lokum fjölluðum við um framtíðarfæðu okkar mannfólksins. Það segja nefnilega margir að skordýr verði æ stærri hluti af fæðu okkar, enda stútfull af næringarefnum. Og tilraunir eru hafnar með að rækta skordýr hér á landi og er það gert við Landbúnaðarháskóla Íslands. Við ræddum við Ragnheiði Ingu Þórarinsdóttur, rektor Landbúnaðarháskólans um skordýrarækt. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Gígja Hólmgeirsdóttir Tónlist: Baby, I love you - Aretha Franklin Nature - Fourmyula De smukke unge mennesker - Kim Larsen

"Róttækar" og "afdrifaríkar" eru orðin sem forstjóri Landhelgisgæslunnar notaði í samskiptum við dómsmálaráðuneytið um nauðsynlegar niðurskurðarleiðir ef ekki fengjust frekari fjárheimildir. Meðal hugmynda voru sala flugvélar og varðskips. Samfylkingin fær mest fylgi allra flokka í nýjum Þjóðarpúlsi Gallup í fyrsta sinn síðan 2009 og mælist stærri en Sjálfstæðisflokkurinn. Velferðarráð Reykjavíkurborgar ákvað í gær að hækka gistináttagjald annarra sveitarfélaga í gistiskýlum borgarinnar. Um þriðjungur þeirra sem dvelja í skýlunum er frá öðrum sveitarfélögum. Landbúnaðar- og matvælaráðherra stendur að eigin sögn alls staðar frammi fyrir sömu áskorunum. Þar á meðal hvernig draga megi úr losun og gera landbúnað aðlaðandi fyrir ungt fólk þegar raunin er sú að býlum fækkar. Vladimír Pútín líkir innrásarstríði Rússa í Úkraínu við það þegar Sovétríkin hrintu innrás nasista í síðari heimsstyrjöld. Áttatíu ár eru í dag frá lokum orrustunnar við Stalíngrad. Votlendissjóður er hættur að selja kolefniseiningar til kolefnisjöfnunar en Landgræðslan gerir sér vonir um að alþjóðleg vottun fáist á þetta verkefni fyrir árslok. ------------------------ Búvörusamningar þeir sem nú eru í gildi voru gerðir til tíu ára 2016. Í þeim er fjallað um stjórn á framleiðslu búvara og framlög til landbúnaðar. Um 18 milljörðum króna er ráðstafað til greinarinnar árlega. Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra segir að tækifæri til endurskoðunar gefist tvisvar á gildistíma samningsins. Í seinni endurskoðun hans, sem gerð verður á þessu ári, segir hún stefnt að einföldun samningsins. Ráðstefna Arctic Frontiers var haldin í Tromsö í Noregi vikuna 30. janúar til 3. febrúar. Um 900 manns sóttu ráðstefnuna, sem haldin var í skugga Úkraínustríðsins. Þar komu saman stjórnmálamenn, vísindamenn, fulltrúar staðbundinan samfélaga, þar á meðal frumbyggja, og leiðtogar fryirtækja og hagsmunaaðila á norðurslóðum til skrafs og ráðagerða. Rússar, sem gegndu formennsku í samtökunum til skamms tíma, voru ekki á staðnum en þó allt yfir og allt um kring. Votlendissjóður hefur hætt sölu kolefniseininga til kolefnisjöfnunar og mun draga úr allri starfsemi þar til alþjóðleg vottun hefur fengist. Sjóðurinn hefur stundað sína endurheimt í samstarfi við Landgræðsluna að hluta, en Landgræðslan stundar líka sína eigin votlendisendurheimt. Spegillinn 2. febrúar 2023 Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon Stjórn Fréttaútsendingar: Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir.

Við kynntum okkur hugmyndafræði jákvæðrar heilsu í dag. Þær Rannveig Eir Helgadóttir geðhjúkrunarfræðingur og Rannveig Björk Gylfadóttir, sérfræðingur í krabbameinshjúkrun, standa að námskeiðinu Heilsuhjólið mitt hjá Endurmenntun Háskóla Íslands þar sem kynnt verður ný skilgreining á hugmyndafræði á heilsu, sem sagt jákvæð heilsa. En hvað er átt við með því og hvað er heilsuhjólið? Þær nöfnur Rannveig Eir og Rannveig Björk svörðuðu því í þættinum. Í kvöld verða fluttar helstu dægurlagaperlur Steingríms M. Sigfússonar í Salnum í Kópavogi en það er barnabarn hans, Gísli Magna Sigríðarson, sem heldur síðbúna útgáfutónleika en hann gaf út plötu með lögum afa síns en vegna heimsfaraldursins náðist ekki að halda tónleika fyrr. Gísli kom í þáttinn og sagði okkur frá afa sínum, Steingrími, í dag og við heyrðum lag af plötunni. Einn þeirra sem fékk heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu frá forseta Íslands í upphafi árs var Hafberg Þórisson, garðyrkjumaður og forstjóri, en hann fékk orðuna fyrir frumkvöðlastarf í ræktun og vistvænni grænmetisframleiðslu. Hafberg rekur Lambhaga garðyrkjustöð sem er svo að segja í miðri borginni. Hann er þessa dagana staddur í Þýskalandi á Landbúnaðarráðstefnu og við slógum á þráðinn til hans í þættinum. Tónlist í þættinum í dag: Í löngu máli / Una Torfa (Una Torfa) Aguas de Marco / Antonio Carlos Jobim & Elis Regina (Antonio Carlos Jobim) Mikið var gaman að því / Gísli Magnason (Steingrímur M Sigfússon) Græna byltingin / Spilverk Þjóðanna (Spilverk þjóðanna) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Nú í lok síðasta mánaðar bárust fréttir af klórslysi í Grafarvogslaug þar sem fimm þurftu að leita til bráðamóttöku eftir að hafa andað að sér klórgasi. Þetta efni - klór - sem er sett í laugar og potta stuðlar að hreinlæti baðgesta og mörg okkar tengjum jafvel klórlykt við það. En klór er vandmeðfarið eins og sýndi sig í Grafarvogslaug og í Samfélaginu í dag spyrjum við hvað er þetta efni og af hverju er það í sundlaugum? Rætt við Kristján Erling Jónsson tæknistjóra ÍTR og Ágúst Kvaran efnafræðing Það var annar í aðventu í gær, og í fyrsta sinn í vetur þurfti ég að skafa smá af bílnum mínum í morgun - því veturinn hefur verið óvenjulega mildur um allt land - skíðafólk er eðlilega að fara á límingunum - og í náttúrunni, umhverfinu okkar, er allt aðeins öðruvísi, það fréttist af mýflugum á sveimi, mýs eru allsstaðar, fuglar syngja, sumarblóm standa keik, Er mildur vetur góður eða slæmur fyrir gróður og dýr? Við ætlum að setjast niður og ræða við náttúrufræðinginn og prófessorinn Bjarna Diðrik Sigurðsson hjá Landbúnaðarháskólanum. Málfarsmínútan er á sínum stað - og í við fáum svo þriðja viðtalið í örþáttaséríu Þorgeirs Ólafssonar um samfélag og samfélagsmiðla - í dag ræðir hann við Maríu Rún Bjarnadóttur lögfræðing um hatursorðræðu.

Hagar er stærsta fyrirtæki landsins á smásölumarkaði. Undir hatti þess eru næstum fjörutíu verslanir og 25 bensínstöðvar. Reksturinn gengur vel, hagnaðurinn á síðasta ári var um fjórir milljarðar króna og hagnaðurinn á fyrstu mánuðum þessa árs tæpur milljarður. Líklegt verður að telja að drjúgur hluti landsmanna skipti við Haga, stundum eða reglulega; með innkaupum í Bónus eða Hagkaup eða með bensínkaupum hjá Olís. Finnur Oddsson, forstjóri Haga, var gestur okkar. Kristján Sigurjónsson ritstjóri Túrista var með okkur í dag að vanda og ræddi mál tengd ferðalögum og ferðaþjónustu. Hvaða áhrif hafa versnandi efnahagsástands og orkuskortur á greinina? Við spyrjum að því. Og líka hvort útlit sé fyrir að margt fólk leggi leið sína til Katar til að horfa á leiki á Heimsmeistaramótinu í knattspyrnu sem hefst þar eftir rúman mánuð. Bændur og fleiri koma saman á Hóteli við Suðurlandsbraut í Reykjavík í dag og ræða saman um áskoranir og framtíðarverkefni landbúnaðarins. Og hvernig verður landbúnaðurinn í framtíðinni? Hann verður grænn. Græn framtíð er í það minnsta yfirskrift fundarins í dag. Ein af þeim sem flytur erindi á málþinginu er Eygló Björk Ólafsdóttir, bóndi í Vallanesi á Héraði. Hún kom og ræddi græna framtíð landbúnaðarins. Landbúnaður var einnig til umfjöllunar í upphafi þáttar. Spiluð var upptaka úr safni útvarpsins sem Jónas Jónsson þáverandi Búnaðarmálastjóri flutti þann 1. janúar 1981. Tónlist: Baby I'm Yours - Bargara Lewis Every Grain of Sand - Bob Dylan Le long de la route - Zaz Hinn elskulegi garðyrkjumaður - Kristjana Stefánsdóttir Umsjónarmenn: Björn Þór Sigbjörnsson og Gígja Hólmgeirsdóttir

Í þættinum verður forvitnast um starfsemi þriggja menntastofnana. Við heimsækjum fyrst Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri. Raghildur Helga Jónsdóttir aðjúnkt og safnstjóri Landbúnaðarsafns Íslands segir okkur frá staðnum og starfsemi safnsins. Því næst er ferðinni heitið í Tónlistarskóla Borgarfjarðar og ræðum þar við Árna Frey Jónsson tónlistarkennara en hann fer fyrir nýjum áfanga við skólann sem nýtir hljóðver sem hljóðfæri. Að lokum er ferðinni heitið á Hóla í Hjaltadal þar sem Hólmfríður Sveinsdóttir nýr rektor skólans segir okkur frá sjálfri sér og skólanum. Umsjón: Gígja Hólmgeirsóttir

Guðni Þorvaldsson. jarðræktarfræðingur hjá Landbúnaðarháskóla Íslands: Hvernig vita bændur hvenær grasið er tilbúið fyrir slátt? Hvað gerir gott hey? Hvað gerir góð tún? Hvernig ræktar fólk gott gras? Guðný Ljósbrá Hreinsdóttir: Guðný gerði meistarverkefni um matartúrisma og matarferðalög á Íslandi og rannsakaði upplifun ferðamanna og fann meðal annars út hvaða sóknarfæri liggja í þessari tegund ferðamennsku. Málfarsmínúta Vísindaspjall með Eddu Olgudóttur: Áhrif streitu á ónæmiskerfið.

Töluvert meiri þensla og kvikusöfnun mælist skammt norðvestan við fjallið Þorbjörn en í byrjun mánaðar og hátt í fjögur þúsund jarðskjálftar hafa mælst síðustu daga á þessum slóðum. Bjarni Benediktsson (D) fjármálaráðherra segir að nú eigi ríkisfjármál ekki að vera örvandi fyrir hagkerfið. Stjórnarandstaðan gagnrýnir hann fyrir þensluhvetjandi aðgerðir. Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, þingmaður Viðreisnar, segir stöðuna flókna en ráðherra megi ekki fara fram úr sér. Forseti Hvíta-Rússlands hefur undirritað nýja löggjöf sem heimilar dauðarefsingu hryðjuverkamanna. Fjöldi stjórnarandstæðinga í landinu hefur verið sakaður um og dæmdur fyrir hryðjuverk. Þórgnýr Einar Albertsson sagði frá. Síðustu daga hafa fleiri dauðar súlur sést á vefmyndavélum í Eldey en áður. Sigurður Harðarson sem heldur úti myndavélinni óttast er að fuglaflensan hafi breiðst út í eynni. Pétur Magnússon talaði við hann. Mennta- og barnamálaráðherra hefur tekið fram fyrir hendur skólanefndar Menntaskólans á Akureyri og skipað utanaðkomandi hæfninefnd við ráðningu skólameistara. Tilkynningum hefur fjölgað um óþekkta fljúgandi hluti á undanförnum tuttugu árum. Þetta kemur fram í máli Scotts Brays, háttsetts embættismanns bandaríska varnarmálaráðuneytisins frammi fyrir þingnefnd. Hann segir þó fátt benda til að farartækin séu frá fjarlægum hnöttum. Markús Þórhallsson tók saman. --------- Kynntar hafa verið tillögur að fæðuöryggisstefnu þar sem megináhersla er á öryggi fæðuframboðs en jafnframt að neyðarbirgðir geti skipt sköpum í öryggisviðbúnaði. Jóhannes Sveinbjörnsson, dósent við Landbúnaðarháskóla Íslands samdi tillögurnar. Anna Kristín Jónsdóttir talaði við hann. Að minnsta kosti þrjú hundruð þúsund aðgerðir með bótox eða fylliefnum eru gerðar á ári hverju í Svíþjóð. Eftirlitið var hverfandi og litlar kröfur gerðar til þeirra sem framkvæmdu - þar til í fyrra, að ný lög voru sett. Síðan þá hafa meira en þúsund tilkynningar eða kvartanir borist til yfirvalda. Kári Gylfason sagði frá. Erlingur Sigurður Jóhannsson, prófessor á menntavísindasviði HÍ vill að hugað verði að fræðslu um skaðsemi skjánotkunar strax í ungbarnavernd. Sífellt fleiri börn leita á barna- og unglingageðdeild Landspítalans vegna skjáfíknar en fíkn þarf ekki að vera til staðar til að skjánotkun hafi neikvæð áhrif á heilsu barna og unglinga.

Segja má að nánast öll alþjóðleg samskipti við Rússa hafi lagst af eftir innrás þeirra í Úkraínu og vegna þeirra hörðu refsiaðgerða sem vestræn ríki hafa gripið til. Þetta gildi einnig um Norðurskautsráðið. Bogi Ágústsson ræddi við dr. Rasmus Gjedssø Bertelsen, alþjóðastjórnmálafræðing og sérfræðing í málefnum norðurslóða. Bertelsen er danskur, prófessor við háskólann í Tromsø í Norður-Noregi en ólst upp að hluta á Íslandi. Hann er nýútnefndur Nansen gestaprófessor við Háskólann á Akureyri. Hann var fyrst spurður um áhrif innrásarinnar á samstarf á norðurslóðum og starf Norðurskautsráðsins. Mikil óvissa hefur ríkt um framtíð Garðyrkjuskólans að Reykjum í Ölfusi. Lilja Alfreðsdóttir, þáverandi menntamálaráðherra, tilkynnti í byrjun seinasta árs að hefja skyldi undirbúning þess að skilja Garðyrkjuskólann frá Landbúnaðarháskóla Íslands og færa til Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi. Námið færist milli stofnananna frá og með næsta hausti. Í byrjun vikunnar var fjórum kennurum við skólann sagt upp störfum. Enginn fastráðinn kennari er því við garðyrkjunámið á Reykjum. Í Garðyrkjuskólanum eru um 100 nemendur, bæði í staðnámi og fjarnámi. Þeir kalla eftir því að skólinn verði sjálfstæður. En í morgun dró til tíðinda í málinu. Að loknum ríkisstjórnarfundi greindi Ásmundur Einar Daðason, mennta og barnamálaráðherra, frá því að samkomulag væri í höfn á milli hans og Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. Garðyrkjuskólinn verður áfram að Reykjum. Bjarni Rúnarsson fjallaði um málið. Um hundrað lögreglumenn eru sárir eftir alvarlegar óeirðir í fjölda sænskra borga. Yfirvöld segja glæpagengi standa að baki óeirðunum sem urðu í kjölfar kosningafunda og bókabrenna hægriöfgamannsins Rasmus Paludans. Kári Gylfason segir talar frá Gautaborg. Helstu atriði frétta: Bretar og Hollendingar ætla að taka þátt í rannsókn Alþjóða sakamála dómstólsins á meintum stríðsglæpum Rússa í Úkraínu. Aðalsaksóknari dómstólsins segir að litið sé á allt landið sem glæpavettvang. Níðstöng blasti við íbúum á Kjalarnesi í morgunb þar sem afskorið hestshöfuð var fest á girðingastaur. Íbúi lítur á stöngina sem hótun. Leikskólinn Furuskógur í Fossvogi er óstarfhæfur vegna myglusveppa. Starfsemin flyst yfir í Safarmýrarskóla, en foreldrar hafa einnig kallað eftir myglumælingum í því húsi. Garðyrkjuskólinn á Reykjum verður áfram starfræktur þar. Kennari við skólann kallar eftir því að uppsagnir kennara verði dregnar til baka. Rasmus Gjedssø Bertelsen, alþjóðastjórnmálafræðingur og sérfræðingur í málefnum norðursl

Aukin aðsókn er í Landbúnaðarháskóla Íslands næsta haust og hefur nemendafjöldi skólans tvöfaldast á undanförnum tveimur árum. Alls sóttu rúmlega 200 nemendur um fyrir haustið og eru flestar umsóknir í nám í búvísindum, næstflestar í landslagsarkitektúr auk þess sem mikil aðsókn er í búfræðinám. Áhugavert er að skoða þróun síðustu ára, rýna í skiptinguna á milli brauta og hvernig þær hafa þróast, sem sýnir að öll fagsviðin eru í sókn. En hver er skýringin á þessari þróun og þessum aukna áhuga á búfræðinámi? Álfheiður Marínósdóttir Kennslustjóri LBHÍ sagði okkur betur frá þessu. Óhætt er að segja að hjónin í Holti undir Eyjafjöllum, Valborg Ólafsdóttir og Orri Guðmundsson sitji ekki auðum höndum, en þau eru tónlistarfólk og bændur og reka auk þess gistiheimili fyrir ferðamenn heima hjá sér. Á milli þess að sinna bústörfum, börnum og ferðamönnum, semja þau og gefa út tónlist og nýverið kom út þeirra fyrsta breiðskífa, Silhouette. Þau dreymir um að geta útbúið aðstöðu fyrir listamenn í Holti til að sinna ólíkri listsköpun. Við spjölluðum við Valborgu um þennan blómlega búskap í sveitinni. Við heyrðum svo í Atla Steini Guðmundssyni tíðindamanni okkar í Noregi og spurðum út í covid stöðuna þar, en Atli var einmitt nýkominn úr seinni bólusetningu þegar við náðum í hann á lestarstöðinni í Osló. Hann flutti nýverið úr höfuðborginni til Tönsberg og sagði okkur líka frá ólíku mannlífi þessara tveggja staða. Við ræddum helstu tíðindi vikunnar eftir átta fréttir og gestir okkar að þessu sinni voru þeir Hafþór Ragnarsson verkefnastjóri hjá Hljóðbókasafni Íslands og Kristjón Kormákur Guðjónsson blaðamaður og fyrrum ritstjóri. Sjálfsævisögulegi heimildasöngleikurinn Góðan daginn faggi verður frumsýndur í Þjóðleikhúskjallaranum í kvöld. Sýningin er samstarfsverkefni Þjóðleikhússins og leikhópsins Stertabendu og eru höfundar og aðstandendur verksins Bjarni Snæbjörnsson, leikari, Gréta Kristín Ómarsdóttir, leikstjóri og Axel Ingi Árnason, tónskáld. Þeir Bjarni og Axel komu til okkar í spjall og við fengum svo að heyra sýnishorn af glænýrri söngleikjatónlist sem prýðir verkið. Tónlist: Jóna Alla Axelsdóttir - Svo birti aftur til. Vilhjálmur Vilhjálmsson - Einbúinn. Benedikt Gylfason - Diamond. Valborg Ólafs - Holiday. Celeste - Tonight, tonight. Bjarni Snæbjörnsson - Góðan daginn faggi. The Weeknd - Take my breath. Dua Lipa - Love again.
Vefurinn vaxtamalid.is fór í loftið í morgun en Neytendasamtökin standa að baki honum. Skilmálar velflestra lána eru ólöglegir að þeirra mati, þar sem ákvarðanir um vaxtabreytingar eru verulega matskenndar og ógegnsæjar og þess vegna ekki hægt að sannreyna hvort þær séu réttmætar. Neytendasamtökin ætla að stefna bönkunum og leita að lántökum sem vilja fara með mál sín fyrir dóm. Við heyrðum í Breka Karlssyni hjá Neytendasamtökunum. Evrópumeistaramótið í 50m laug í sundi fer fram þessa dagana í Búdapest í Ungverjalandi. Þar eiga Íslendingar 5 keppendur. Við tókum stöðuna á íslenska hópnum og hringjum í Hörð J. Oddfríðarson sem er fararstjóri hópsins en hann er jafnframt fyrrverandi formaður Sundsambandsins og núverandi ritari og því öllum hnútum kunnugur. Stofnun Sæmundar fróða um sjálfbæra þróun við Háskóla Íslands býður upp á spennandi verkefni fyrir ungt fólk á aldrinum 18-25 ára sem hefur brennandi áhuga á loftslagsmálum og útivist. Námskeiðið heitir Loftslagsleiðtoginn, en um er að ræða fræðslu, leiðtogaþjálfun og leiðangur um suðursvæði Vatnajökuls. Hafdís Hanna Ægisdóttir forstöðukona stofnunarinnar kom og sagði okkur nánar frá þessu. Þórólfur Guðnason sóttvarnarlæknir var á línunni og við fórum aðeins yfir stöðuna í sóttvarnarmálum með honum. Nú eru Danir að aflétta nánast öllum hömlum hjá sér, en hvað er langt í það hér á landi? Hvað með fullbólusetta, geta þeir um frjálst höfuð strokið? Við ræddum þetta við Þórólf. Vigdís Häsler framkvæmdastjóri Bændasamtakanna kom til okkar eftir áttafréttir, en miklar breytingar standa yfir á félagskerfi bænda og margar áskoranir sem íslenska landbúnaðarkerfið þarf að takast á við. En tækifæri eru líka mörg og mikilvægi landbúnaðar sífellt meira, með tilliti til matvælaöryggis, kolefnisspors og fleira. Við ræddum málefni landbúnaðarins við Vigdísi. Við heyrðum svo í Jóhanni Hlíðar Harðarsyni frá Spáni í síðasta sinn, a.m.k. í bili, en hann sagði okkur frá ströndum Spánar, áfengisfrostpinnum og buxnalausum löggum, svo eitthvað sé nefnt. Tónlist: Bríet - Sólblóm. Hafdís Huld - Synchronised swimmers. Tusse - Voices. Helgi Björns - Ekki ýkja flókið. Jón Jónsson og GDRN - Ef ástin er hrein. Kid Rock - All summer long. Arctic Monkeys - Do I wanna know? Emilíana Torrini - Tookah.
Körfuknattleikssamband Íslands hefur valið sjö manna landslið sem mun keppa fyrir Íslands hönd á föstudaginn á Playstation í tölvuleik. Þetta er í fyrsta sinn sem KKÍ, og Ísland, tekur þátt í rafíþróttamóti á vegum FIBA, Alþjóðasambands körfuboltans. En hverjir keppa fyrir Íslands hönd, hvernig fer þetta fram, í hvaða tölvuleik er keppt og hvernig er hægt að fylgjast með? Kristinn Geir Pálsson, afreksstjóri KKÍ sagði okkur allt um málið. Vitundarvakning um fatasóun er verkefni Kvenfélagasambands Íslands og Leiðbeiningastöðvar heimilanna og er styrkt af Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu. Verkefnið hófst í gær og stendur til 25. apríl nk. en ætlunin er að minnast þess að þann 24. apríl 2013 hrundi Rana Plaza byggingin í Bangladesh sem hýsti fjöldann allan af fataverksmiðjum þar sem störfuðu um 5000 manns, mest ungar konur. Jenný Jóakimsdóttir hjá Kvenfélagasambandi Íslands fræddi okkur um þetta verkefni. Í dag fer fram opið málþing undir yfirskriftinni Hver ber ábyrgð á náttúrunni á höfuðborgarsvæðinu? Það eru Landvernd og Náttúruverndarsamtök Íslands sem standa að þinginu þar sem ræða á skipulag grænna svæða á og nálægt höfuðborgarsvæðinu. Ein þeirra sem flytur erindi er Helena Guttormsdóttir lektor við Landbúnaðarháskóla Íslands, en hún ætlar að tala um gildi náttúru í nærsamfélaginu. Við slógum á þráðinn til Helenu. Guðmundur Felix Grétarsson, sem fékk grædda á sig handleggi í Lyon í Frakklandi fyrr á árinu, getur nú séð handleggi sína hreyfast í gegnum sýndarveruleikagleraugu sem vonast er til að geti hjálpað honum við endurhæfingu. Góðgerðarsamtökin Góðvild bjóða Guðmundi upp á þjónustuna en Piotr Loj heitir maðurinn sem stendur að baki tækninni sem hann hefur þróað með stórum háskólum í Bandaríkjunum, þar á meðal MIT í Boston. Sigurður Hólmar Jóhannesson er framkvæmdarstjóri Góðvildar og hann var á línunni hjá okkur. Og svo fórum við suður á bóginn og heyrðum í Jóhanni Hlíðar Harðarsyni á Spáni sem lumaði á fjölbreyttum tíðindum þaðan og úr næsta nágrenni. Tónlist: Mugison - Stingum af. Jón Ólafs - Frétt númer þrjú. Emilíana Torrini - Baby blue. Sting - Brand new day. Kristín Sesselja - W.A.I.S.T.D. (what am I supposed to do). Simple Minds - Promised you a miracle. Elíza Newman - Fagradalsfjalls (youre so pretty). Bruce Springsteen - Ill see you in my dreams. Bonnie Tyler - Total eclipse of the heart.