POPULARITY
Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Vala Höskuldsdóttir. Hún er söngkona og lagahöfundur og annar helmingur Hljómsveitarinnar Evu, hinn helmingurinn er Sigríður Eir Zophoníasardóttir. Auk tónlistarinnar hefur Vala unnið sem ráðgjafi, leikkona, leiklistarkennari, hér í útvarpinu og ýmislegt fleira. Vala er að norðan og við fórum með henni aftur í tímann á æskuslóðirnar á Eyrinni á Akureyri og fórum svo á handahlaupum í gegnum tíðina til dagsins í dag. Vala er að eigin sögn mikið tilfinningablóm og hún glímir og við ræddum meðal annars við hana um stórar tilfinningar tengdar jólunum og það að horfast í augu við þær. Hún segist vera loksins byrjuð að samþykkja það að jólaskapið sé alls konar og eftir að hún hætti að streitast á móti tilfinningunum þá losnaði um stíflu og hún hefur varla hætt að hlægja síðan. Svo var það matarspjallið, þar sem meirihluti þáttakenda var norðan heiða, en Sigurlaug Margrét var ásamt Guðrúnu í hljóðveri RÚV á Akureyri. Við ræddum meðal annars um soðbrauð og kæfu, sem þær gæddu sér á undir spjallinu. Tónlist í þættinum: Það er allt í lagi að leggja sig á daginn / Hljómsveitin Eva (Jóhanna Vala Höskuldsdóttir, Sigríður Eir Zophoníasardóttir, Sveinbjörn Thorarensen og Ívar Pétur Kjartansson) Thank You / half.alive (Brett Kramer, J.Tyler Johnson, James Alan, Joshua William Taylor, Michael Coleman) Both Sides Now / Joni Mitchell (Joni Mitchell) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Rætt er við Hannes S. Thorarenssen flugvirkja sem unnið hefur fyrir fjölda íslenskra og erlendra flugfélaga í gegnum árin. Hann var í áratug bæði flugvirki og flugmaður á DC 3 í landgræðsluflugi og er enn að sinna viðhaldi á Þristinum þótt vélin sé nú eingöngu safngripur. Hannes segir hér frá sínum merkilega ferli í fluginu og einstakri sögu af því þegar hann stökk úr fallhlíf á Grænlandi til að útbúa þar lendingastað fyrir flugvélar.
Í síðustu viku var fundur á vegum norrænu samtakanna NIKK, þar sem fjallað var um stöðu hinsegin eldra fólks á Norðurlöndunum og hvað væri hægt að gera til að bæta hana. Á fundinum voru kynntar tvær skýrslur um stöðuna og við fengum Þorbjörgu Þorvaldsdóttur, verkefnastjóri hjá Samtökunum '78 og Ragnhildi Sverrisdóttur, sem var fundarstjóri á norræna fundinum til þess að segja okkur frá því hvað kom fram í þessum skýrslum og á fundinum um stöðu hinsegin eldra fólks á Norðurlöndunum. Í nóvember síðastliðnum fór íslenska jólamyndin Jólamóðir í bíó. Hún er gefin út í nýrri útgáfu fyrir þessi jólin og verður sýnd alveg fram á þrettándann í völdum kvikmyndahúsum víðsvegar um landið. Og af fleiri jólaævintýrum, Ævintýri í Jólaskógi er farið af stað fjórða árið í röð, þar er um að ræða vasaljósaleikhús í Guðmundarlundi og alltaf með nýjum sögum í hvert skipti. Og eins og þetta sé ekki nóg, þá opnaði Jólalundur í Kópavogi við hátíðlega athöfn þar sem fjölskyldum gefst tækifæri á að mæta frítt á jólaball, fara í ratleik og fleira skemmtilegt. Anna Bergljót Thorarensen kemur að öllum þessum viðburðum og við ræddum við hana í þættinum í dag. Meistaranemar í ritlist við Háskóla Íslands hafa undanfarin ár verið í samstarfi við Rás 1 í desember vegna útgáfu Jólabókar Blekfjelagsins út en Blekfjelagið er nemendafélag Ritlistar. Þetta er í tólfta sinn sem þetta er gert, fyrst voru sögurnar 100 orð en svo fækkar orðunum með hverju árinu og nú eiga sögurnar því að vera nákvæmlega 89 orð hver og þemað í ár er Órói. Við heyrðum höfundana sjálfa lesa þriðja og síðasta hluta þessara örsagna í þættinum í dag. Höfundarnir voru í dag Karólína Rós Ólafsdóttir, Katrín Mixa, Guðrún Friðriks, Valgerður Ólafsdóttir, Birgitta Björk Bergsdóttir, Áslaug Ýr Hjartardóttir, Kolbrún Dögg Kristjánsdóttir, Birgitta Björg Guðmarsdóttir og Svala Jónsdóttir. Tónlist í þættinum í dag: Jólin eru dásamleg / Jóhann Sigurðarson og Þór Breiðfjörð (Guðmundur Jónsson) The girls from Grindavik / Matti Kallio (Matti Kallio) Have Yourself a Merry Little Christmas / Laufey & Norah Jones (Hugh Martin & Ralph Blane) Jólabros í jólaös / Egill Ólafsson og barnakór Kársnesskóla (Ingibjörg Þorbergs) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Calling in all the way from Iceland, the Marketing Director of Lauf Cycles, Oli (Olafur) Thorarensen speaks to us about Iceland riding, the new Lauf Úthald, and shares some experiences he's had at races around the country! To donate to the Haleakala Climb For Good, for your chance to win the New Lauf Uthald, head over to the link below! https://pledgeit.org/haleakala-climb-for-good
Gestur Felix í fimmunni er Birkir Blær Óðinsson en hann sló eftirminnilega í gegn í Svíþjóð á síðasta ári þegar hann kom, sá og sigraði í sænska Idolinu. Birkir segir okkur af fimm plötum sem breyttu lífi hans og ræðir ferilinn og framtíðina í Svíþjóð. Í síðari hluta þáttarins koma þau Anna Bergljót Thorarensen og Jakob Hákonarson og ræða nýja íslenska kvikmynd, Jólamóður, en hún verður frumsýnd á Þorláksmessu.

Anna Bergljót handritshöfundur og Jakob leikstjóri segja frá kvikmyndinni Jólamóðir sem er fjölskyldu og ævintýramynd um Grýlu og jólasveinana. Myndin var tekin upp í raunverulegum hellum á Suðurlandi.

Pan Thorarensen hefur farið ótroðnar slóðir í lífinu, foreldrar hans líka. Pan lifir fyrir tónlistina og listina. Hann er menntaður bakari og segir það hugleiðslu líkast að baka brauð. Hann er í fjölda tónlistaverkefna þar á meðal Stereo Hypnosis með föður sínum. Einnig hefur hann verið að búa til og gefa út tónlist með yngsta syni Chaplin, Christopher Chaplin heitir sá. Pan rekur einnig verslun á Skólavörðustíg sem heitir Space Oddysey og svo er tónlistarhátíðin Extreme Chill Festival hans.

Um lítið annað hefur verið rætt á kvikmyndamiðlum um helgina en slysaskotið í Hollywood. Á fimmtudag lést kvikmyndatökukonan Halyna Hutchins auk þess sem leikstjórinn Joel Souza slasaðist þegar skot hljóp úr byssu leikarans Alec Baldwin við tökur á vestranum Rust. Öryggisaðstæður á kvikmyndatökustað virðast hafa verið óviðunandi, tökuliðið hafði gengið út og slysið því engin tilviljun.Við hringjum til London og spjöllum við bardagalekarann Hallvarð Jes Gíslason um öryggi í kvikmyndabransanum. Tónlistarmaðurinn Sveinbjörn Thorarensen eða Hermigervill hefur safnað vínylplötum frá unga aldri. Gamalt rykfallið íslenskt rokk, fönk og diskó, svo ekki sé talað um öll gömlu trommusólóin. Tónlistin á þessum gömlu plötum hafa svo verið byggingarefni í tónlist Sveinbjörns. Við kíkjum í heimsókn til Hermigervils, sem vinnur nú að yfirgripsmiklu verkefni sem snýr að endurútgáfu á gömlum og oft á tíðum gleymdum gullmolum. Og við hugum að ást og ólíkum lestri á Facebook færslu í hverfishóp Vesturbæjar, um eitt augnarráð, örstutt samskipti, sem toga í rómantískt minni okkar en kannski einnig í nýrra minni, um óumbeðna athygli.

September er upp runninn og þá rifjum við upp góðar leiðir til að draga úr plastnotkun eins og átakið Plastlaus september ber með sér. Við fengum góð ráð frá Þórdísi V. Þórhallsdóttur, sem er ein þeirra er standa að baki átakinu. ABBA gladdi aðdáendur sína með tveimur nýjum lögum og tilkynningu um nýja og glæsilega tónleikasýningu, Voyage, sem hefst á næsta ári í London. Herlegheitin voru kynnt í sérstöku streymi á Youtube úr veislum út um allan heim og þar á meðal í Sky Lagoon í Kópavogi. Við hittum þar Elvu Rut Erlingsdóttur upplifunar- og markaðsstjóra lónsins og sjálfan Hermigervil eða Sveinbjörn Thorarensen sem tryllti lýðinn með skemmtilegri tónlist. Í gær var tónlistarhátíðinni Iceland Airwaves frestað um eitt ár, annað árið í röð. Ísleifur Þórhallsson hjá Senu segir tónleikahaldara eyðilagða yfir því að þurfa að fara þessa leið, en miðað við núverandi samkomutakmarkanir og óvissu sem ríkir um framhaldið sé annað útilokað. Á sama tíma er stórtónleikahald komið á fullt víða um heim þar sem litlar takmarkanir gilda, þó sum staðar sé gerð krafa um bólusetningu gesta. Ísleifur var á línunni. Við rýndum í fréttir vikunnar með góðum gestum að venju, en að þessu sinni voru það þau Andrés Jónsson almannatengill og Jóhanna Vigdís Arnardóttir verkefnastjóri og leikkona. Svo eru það hégómavísindin, en Freyr Gígja Gunnarsson kom til okkar með fréttir af ríka og fræga fólkinu. Þar komu James Bond, Top Gun og Fresh Prince of Bel Air við sögu. Tónlist: KK og Rúnar Júlíusson - Ég er vinur þinn. Lights on the highway - Leiðin heim. ABBA - I still have faith in you. ABBA - Dont shut me down. Daði og gagnamagnið - Think about things. Celeste - Tonight tonight. Creedence Clearwater Revival - Lookin out my back door. Billie Eilish - Bad Guy. Todmobile - Ég vil brenna.

Þrátt fyrir að öflug umhverfissamtök, hópar og jafnvel einstaklingar hafi sett mikla orku í hreinsun strandlengjunnar á Íslandi virðist af nógu af taka. Blái herinn hefur komið að mörgum slíkum verkefnum og við heyrðum í Tómasi Knútssyni herforingja um næstu verkefni. Gríðarlegir skógareldar hafa geisað við Miðjarðarhafið að undanförnu en miklar hitabylgjur og þurrkar hafa ríkt á svæðinu. Eðlilegt er að að skógareldar kvikni við slíkar aðstæður, en þar með er ekki öll sagan sögð. Yfirvöld á Ítalíu kenna nefnilega mafíunni um mikinn hluta þeirra skógarelda sem geisað hafa í landinu í sumar. Umhverfisráðherra Ítalíu telur til að mynda að yfir 70 prósent eldanna sé afleiðing vísvitandi íkveikju, og margir þeirra hafa kviknað í þjóðgörðum. Til að ræða þetta fengum við til okkar land- og sagnfræðinginn René Biasone, sem þekkir vel til í umhverfismálum sem og sögu glæpasamtaka í heimalandi sínu Ítalíu. Nýuppteknar kartöflur, radísur, rófur, blómkál, grænkál . Allt eru þetta dæmi um lostæti sem ræktendur keppast nú við að uppskera úr görðum sínum. En hvernig veit maður að grænmetið sé tilbúið til uppskeru, á að rífa upp með rótum eða klippa bara stilkinn, og hvernig er svo best að geyma og nýta sem best alla þessa flóru matjurta. Til að svara slíkum spurningum fengum við til okkar garðyrkjufræðinginn Jóhann Thorarensen frá Matjurtagörðum Akureyrar. Margir þekkja söguna af kúnni Sæunni og hún var reyndar sett á bók fyrir nokkrum misserum. Sagan hverfist um sund Sæunnar og undanfarin ár hefur verið boðið upp á sjósund henni til heiðurs þar sem synt er klaufför hennar. Sundið féll niður í fyrra, en nú stendur til að halda sundið um komandi helgi og Bryndís Sigurðardóttir, sem veit allt um það, kom til okkar og sagði okkur meira. Sævar Helgi Bragason færði okkur fróðleik úr heimi vísindanna í vísindahorni dagsins þar sem skröltormar, loftslagsmál og stjörnuskoðun komu við sögu. Tónlist: Þursaflokkurinn - Í gegnum holt og hæðir. Svavar Knútur og Irish Mythen - Hope and fortune. Jack Johnson - Sitting, waiting, wishing. Ceasetone, Rakel og JóiPé - Ég var að spá. Billie Eilish - NDA. Hákon - Barcelona. The Weeknd - Take my breath.

Nú eru margir farnir að huga að grænmetisræktuninni fyrir sumarið. Það búa þó ekki allir svo vel að hafa aðgang að garði, og þá nýta margir áhugasamir ræktendur sér garða sem sveitarfélögin bjóða uppá til leigu. Gígja Hólmgeirsdóttir heimsótti Ræktunarstöð Akureyrarbæjar, sem heldur utan um matjurtarðana þar í bæ, og þar tók á móti henni garðyrkjufræðingurinn Jóhann Thorarensen, sem sagði henni allt um starfsemina og matjurtargarðana sem þar eru. Rúna Hauksdóttir Hvannberg, forstjóri Lyfjastofnunar, var á línunni hjá okkur en í gær birtist auglýsing í Morgunblaðinu með villandi og röngum upplýsingum um aukaverkanir bóluefna og héldu margir að um auglýsingu frá lyfjastofnun væri að ræða. Rúna segir að um grafalvarlegt mál sé að ræða. Önnur æfingin hjá Daða og gagnamagninu í Rotterdam fór fram í gær og var hún tekin upp og verður notuð komi eitthvað uppá á meðan á beinu útsendingunni stendur. Eurovision keppnin fer fram á laugardaginn eftir viku en íslenska atriðið kemur fram í seinni undanúrslitakvöldinu og freistar þess að ná inn á lokakvöldið. Felix Bergsson er farastjóri hópsins og við settum okkur í samband við hann. Eins og vanalega á föstudögum tökum við létt spjall um fréttir vikunnar. Að þessu sinni með þeim Eyrúnu Magnúsdóttur blaðamanni og Herði Magnússyni íþróttalýsanda á Viaplay. Eyjatónleikar með sumarlegu ívafi fara fram í beinni um allan heim á morgun, laugardag. Tónleikarnir fara venjulega fram í janúarmánuði en vegna heimsfaraldursins var þeim frestað í ár. Bjarni Ólafur Guðmundsson eyjapeyji hefur haft veg og vanda að skipulagninu þessara tónleikaraðar frá byrjun. Hann kom til okkar í létt spjall. Tónlist: Hipsumhaps - Bleik ský Land og synir - Ástarfár Grafík - Himnalagið Daði og gagnamagnið - 10 years Maneskin - Zitti e buoni Madness - Embarassment Sverrir Bergmann, Friðrik Dór og Fjallabræður - Ástin á sér stað Barbara Pravi - Voila Queen - I want to break free

Á næsta ári verða 50 ár liðin frá heimkomu fyrstu handritanna 21. apríl 1971. Af því tilefni hefur Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum hafið undirbúning að verkefni sem miðar að því að kynna öllum sjöttubekkingum landsins sögu íslenskra miðaldahandrita og menningararfleifðina sem í þeim býr. Og nú er einnig verið að þróa afþreyingu/leik út frá gagnasöfnum Árnastofnunar og það er Vinafélag Árnastofnunnar sem stendur að því verkefni. Eva María Jónsdóttir, frá Árnastofnun, og Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir, sem er í stjórn Vinafélags Árnastofnunar, komu í þáttinn og sögðu okkur meira frá þessu í þættinum. Fjórtánda sumarið í röð leggur Leikhópurinn Lotta land undir fót og ferðast með glænýja fjölskyldusýningu um landið þvert og endilangt. Í sumar er það fjölskyldusöngleikur byggður á þjóðsögunum um Bakkabræður og að sjálfsögðu með svokölluðu Lottutvisti. Kórónuveirufaraldurinn setti strik í æfingaferlið og það var áskorun að æfa saman söngleik í gegnum Zoom í tölvunni. Þórunn Lárusdóttir leikstjóri og Anna Bergljót Thorarensen höfundur, komí þáttinn. Gríðarlega athygli vakti þegar Angelina Jolie leikkona tilkynnti fyrir nokkrum árum að hún væri með braca 1 brjóstakrabbameinsgenið. Þá fjölgaði verulega þeim sem óskuðu eftir viðtali við erfðaráðgjafa Landspítalans sem tala um erfðafaraldra þegar aðsókn eykst vegna umfjöllunar í fjölmiðlum. Þrír erfðafaraldrar hafa geysað hér á landi. Bergljót Baldursdóttir heimsótti Vigdísi Stefánsdóttur og Eirnýju Þórólfsdóttir hjá erfðaráðgjöf Landspítalans á Heilsuvaktinni. UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Vísbendingar eru um að COVID-19 faraldurinn sé að færast í aukana hér á landi, segir Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir. Alls eru 330 staðfest tilfelli hér á landi, sem er fjölgun um 80 frá því í gær. Á veirufræðideild Landspítalans hafa verið staðfest 73 smit, eða um 15 prósent af innsendum sýnum. Sú prósentutala hefur hækkað. Hún var 10 prósent í gær. Þjóðir heims verða að taka höndum saman til að koma í veg fyrir COVID-19 sjúkdómurinn berist til fátækustu ríkja heims. Ella er hætta á að hann verði milljónum manna að bana, segir framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna. Fleiri hafa látist af völdum veirunnar á Ítalíu en á meginlandi Kína. Ekki sér fyrir endann á verkfalli Eflingar í fimm sveitarfélögum. Sex skólar eru enn lokaðir. Klögumálin ganga á víxl, og deilendur virðast ekki reiðubúnir að slaka á kröfum sínum. Þrítugur karlmaður, sem handtekinn var í nótt, grunaður um aðild að eldsvoðanum á skemmtistaðnum Pablo Discobar í miðborg Reykjavík, er sá hinn sami og olli stórhættu í síðustu viku, þegar hann stal steypubíl í miðborginni og ók honum meðal annars á móti umferð. Prófessor í sagnfræði segir ekki miklar líkur að forseti Íslands fái mótframboð. Þær séu líklega enn minni vegna ástandsins sem nú ríkir. Kjörtímabili forsetans lýkur í lok júní. Arnar Páll Hauksson talar við Guðmund Hálfdánarson. Lagaprófessor segir að ekki sé hægt að útiloka, ef til forsetakosninga kemur, að þeim verði frestað vegna COVID-ástandsins. Þó að ákvæði séu um tímasetningu forsetakosninga í stjórnarskrá er mögulegt að fresta þeim á grundvelli óskráðra neyðarréttarsjónarmiða. Arnar Páll Hauksson talar við Björgu Thorarensen. COVID-19 tilfellum fjölgar nú hratt í Bretlandi, staðfest smit nú rúmlega 2600, 103 látnir. Breska stjórnin hefur verið gagnrýnd fyrir að hafa verið alltof værukær. Nú lofar stjórnin miklum efnahagsaðgerðum en gagnrýnin í þinginu í dag kom ekki frá stjórnarandstöðunni heldur þingmönnum stjórnarflokksins, Íhaldsflokksins. Sigrún Davíðsdóttir segir frá.

Leikhópinn Lottu þekkja flestir enda hefur hópurinn skemmt börnum og fullorðnum á Íslandi um margra ára skeið. Núna stendur leikhópurinn fyrir hópsöfnun á Karolina fund því fyrir dyrum stendur að búa til smáforrit utan um öll útvarpsleikritin ásamt kvikmynduðum leikritum Lottu og fleira verður vafalítið týnt til. Þau Baldur Ragnarsson og Anna Bergljót Thorarensen komu til okkar og sögðu okkur frá. Auður Jónsdóttir, rithöfundur, kom til okkar en bók hennar Tilfinningabyltingin hefur vakið talsverða athygli og umtal enda skrifar hún um skilnað sinn og það rót sem því fylgir. Hún endurnýjaði kynni sín við barina og samskipti við hitt kynið með öllum því flækjum og óraunveruleika sem því fylgir. Hulda og Sigmar tóku bíóspjall og fjölluðu um kvikmyndirnar Ford v Ferrari og The Irishman. Við fórum yfir íþróttir helgarinnar með Hauki Harðarsyni íþróttafréttamanni. Tónlist: Raggi Bjarna og Lay Low - Þannig týnist tíminn. David Bowie - Wild is the wind. Between Mountains - Little lies. Leon Bridges - Bad Bad news. Helgi Björns - Einn af okkur allra bestu mönnum. George Michael - Fast love. Unnur Birna, Björn Thoroddsen og félagar - Mother goose. Retro Stefson - Minning. Elvis Costello - Everyday I write the book. Baggalútur - Upp í bústað. Marcus King Band - Homesick.

Hvernig hljómar framtíðin á Íslandi? Hvernig hljómar hnattræn hlýnun og yfirgefnar og sokknar borgir? Þetta eru þær spurningar sem Sveinbjörn Thorarensen, betur þekktur sem Hermigervill, veltir fyrir sér á nýtti plötu, The Future Sound of Iceland sem kom út í sumar. Hermigervill tekur sér far með Lestinni í dag. Dauðinn er kósý en kraftmikill, lífið hráslagalegt og brothætt skrifar breski heimspekingurinn Timothy Morton í nýlegri bók sinni Being Ecological. Tómas Ævar Ólafsson skoðar bókina og pælir í kenningu Mortons um vist-veruna. Framleiðslu samnefndrar þáttaraðar um táningsspæjarann Veronicu Mars var hætt árið 2007 en árið 2014 var gerð kvikmynd um kvenhetjuna. Sú hlaut heldur dræma dóma en aðdáendur þyrsti í meira og nú hefur fjórða serían litið dagsins ljós. Áslaug Torfadóttir rýnir í Veronicu fyrr og nú. The Joker, Jókerinn, upprunasaga illmennisins síglottandi úr sagnaheimi Leðurblökumannsins, Batman, hlaut um helgina gullljónið, aðalverðlaunin á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum. Þetta er í fyrsta skipti sem kvikmynd byggð á sagnaheimi ofurhetjanna hlýtur aðalverðlaun á A-lista kvikmyndahátíð - einni af virtustu kvikmyndahátíðum heims. Við heyrum fréttir frá Feneyjum.

Viðskiptafræðingurinn Karl Ferdinand Thorarensen verður með örnámskeið um Dallas-þættina sem hófu göngu sína 1978 og voru vinsælasta sjónvarpsefni heims á níunda áratugnum. Hann segir að hugmyndin á bak við námskeiðið sé ekki bara að þylja upp staðreyndir heldur líka rýna í umhverfið sem þættirnir spruttu úr. „Reyna að kryfja stemmninguna í kringum Dallas, af hverju varð þetta svona vinsælt um allan heim?“ Í þáttunum segir af ástum, örlögum, en aðallega illindum, forríkra fjölskyldna í Dallas. Siðspillti olíubarónninn J.R. Ewing varð fljótlega einn vinsælasti karakterinn, en einn frægasti þáttur sjónvarpssögunnar fjallar um hver skaut hann, Who shot J.R.? Fleiri horfðu á þann þátt í Bandaríkjunum en kusu í forsetakosningunum árið 1980, um 83 milljónir. Karl segir einnig frá dvöl sinni Rússlandi þar sem hann lærði sögu og bókmenntir og segir að sá tími hafi kennt honum hvernig hann horfir á heiminn.

Þórunn Lárusdóttir og Anna Bergljót Thorarensen segja frá ævintýrunum sem gerast í leikhópnum Lottu, en þetta er þrettánda sumarið sem leikhópurinn fer á stað. Í ár er það ævintýrið um Litlju hafmeyjuna en inn í það blandast aðrar ævintýraverur. Þær Þórunn og Anna eru einnig að skrifa handrit og stefna á að framleiða kvkmynd, þær vilja Lottu á hvíta tjaldið. Þær segja að í ævintýri er hægt að segja sögu án þess asð fara eftir reglum og leikhópurinn hefur einnig fra´byrjun lætt húmor fyrir fullorðna inn í verkin.
Leikhópurinn Lotta hefur nú verið starfræktur til fjölda ára og árleg hefð margra fjölskyldna að sækja sumarsýningar hópsins. Verk ársins er Litla hafmeyjan en frumsýning er 22. maí. Við heyrðum í Önnu Bergljótu Thorarensen hjá Lottu. Lilja Guðríður Karlsdóttir, samgönguverkfræðingur, kom til okkar og fjallaði um kosti borgarlínu en því var haldið fram í þættinum í gær að borgarlína byggði á gömlum hugmyndum um almenningsamgöngur og hefði þar af leiðandi skaðleg áhrif á umhverfið. Nú eru rétt um þrjár vikur í að Eurovison söngvakeppnin hefjist í Ísrael og þar verður sviðslistahópurinn Hatari fulltrúi Íslands. Á ýmsu hefur gengið í aðdraganda keppninnar og sumir farið fram á að Hatara verði vikið úr keppni. Felix Bergsson fararstjóri íslenska Eurovision hópsins leit við hjá okkur í morgunkaffi og fór yfir stöðuna og stemminguna. Hreiðar Hermannsson, hótelstjóri, var á línunni úr flugvél á meginlandinu, en hann er í forsvari fyrir nýtt fyrirhugað lággjaldaflugfélag. Nokkrir fyrrverandi starfsmenn WOW air eru með í verkefninu en félagið hyggst reka fáar vélar, fljúga á fáa áfangastaði og halda öllum kostnaði og umgjörð í algjöru lágmarki. Guðmundur Jóhannsson kom til okkar í sitt vikulega tæknispjall og fræddi okkur um nýjan samanbrjótanlegan síma frá Samsung sem fer brösulega af stað. Tónlist: Hjálmar - Ég teikna stjörnu. Kacey Musgraves - Space Cowboy. Ian Brown - First world problems. Moses Hightower - Bílalest út úr bænum. Hatari - Hatrið mun sigra. Lay Low - Bye bye troubles. Peter Gabriel - Sledgehammer. Hr. Hnetusmjör - Sorry Mamma (ft. Huginn). Prins Póló - Niðri á strönd. Júníus Meyvant - Love child.
Þátturinn hófst á pistli Freys Eyjólfssonar í Bandaríkjunum sem að þessu sinni fjallaði um skýrslu Roberts Muellers, sérstaks saksóknara, um meint afskipti stjórnvalda í Rússlandi af forsetakosningunum í Bandaríkjunum 2016. Freyr sagði bæði frá efni skýrslunnar og umræðum um hana. Sumarið verður almennt hlýtt en vætusamt á suður- og vesturlandi, samkvæmt veðurlagsspá sem nær til þriggja mánaða. Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur sagði frá spánni og spjallaði líka vítt og breitt um veðrið. Hann spáir að hátt í 80 ára hitamet falli í Reykjavík á morgun, sumardaginn fyrsta. Metið er 15,2 gráður en Einar spáir 16 stiga hita í höfuðborginni á morgun. Vera Illugadóttir sagði frá Sri Lanka þar sem 359 létust og fjölmargir slösuðust alvarlega í sprengjutilræðum á páskadag. Undir lok þáttar ræddi Úlla Árnadóttir, fréttamaður á Akureyri við Guðrúnu Kristínu Björgvinsdóttur, umsjónarmann Lystigarðsins, og Jóhann Thorarensen, garðyrkjumann hjá Ræktunarstöð Akureyrarbæjar, um vorverkin í garðinum. Frelsarans slóð - Bubbi Morthens I won´t back down - Tom Petty Frelsi ég finn - Borgardætur Ran Tharakawan - Jagath Wickramasinghe
Borgaraleg ferming nýtur síaukinna vinsælda og nú er svo komið að ákveðnar dagsetningar eru hreinlega upppantaðar. Siggeir F. Ævarsson, framkvæmdastjóri Siðmenntar, var á línunni og ræddi þessa þróun og fleira. Margar mýtur um mat eru ansi lífseigar og getur reynst erfitt að leiðrétta þær. Gréta Jakobsdóttir doktor í næringarfræði segir sölumennsku oft að baki og í raun passi allur matur inn í okkar mataræði. Gréta kíkti til okkar í morgunkaffi og ræddi mýtur og mat. Félagið Ungar athafnakonur var stofnað árið 2014 með það að markmiðið að stuðla að jafnrétti, hugarfarsbreytingu og framþróun á samfélaginu. UAK dagurinn svokallaður verður haldinn 16. mars nk. undir yfirskriftinni Brotið glerþak til frambúðar og Sigyn Jónsdóttir, formaður Ungra athafnakvenna, sagði okkur frá því hvað félagið er að gera til að mölva þakið. Björg Thorarensen, lagaprófessor, kom til okkar og ræddi við okkur um þá stöðu sem upp er komin í dómskerfinu eftir dóm mannréttindadómstóls Evrópu. Anna Sigríður Þráinsdóttir kom til okkar með sinn vikulega pistil um íslenskt mál og þar ræddum við m.a. það að stíga til hliðar. Tónlist: Klassart - Gamli grafreiturinn. Eagles - Take it easy (live). Bubbi Morthens - Jakkalakkar. Hafdís Huld - The bargain store. Mumford and sons - Beloved. Robbie Williams - Feel. Valdimar - Blokkin.
Part II of our catch up with the authors we interviewed this past year included- Alice Castle, T.G. Campbell, Hilder sif Thorarensen, Ellen Butler, Nick van der Leek, Cathy Ace, Dennis Palumbo and Desmond P. Ryan.
On today's episode we will interview Hildur Sif Thorarensen from Norway and discuss her book "Loner." We then interview Joanne Sinchuk former owner and current manager of "Murder on the Beach" mystery bookstore in Delray Beach, Florida.
MANNLEGI ÞÁTTURINN MÁNUUDAGINN 28.MAÍ - KYNNING Á EFNI Umsjón í dag, Guðrún Gunnarsdóttir og Lísa Pálsdóttir Fátt var eldfimara á hernámsárunum en sambönd íslenskra kvenna við erlenda setuliðsmenn, oftast kallað „ástandið“. Ástandið hefur með tímanum orðið ein helsta táknmynd stríðsáranna á Íslandi. Hinsvegar eru ekki öll kurl komin til grafar. Þegar innsigli voru rofin á skjölum forstöðukonu Ungmennaeftirlits lögreglunnar, Jóhönnu Knudsen, árið 2012, komu gögn Ungmennaeftirlitsins í ljós. Hafdís Erla Hafsteinsdóttir sjálfstætt starfandi sagnfræðingur hefur rýnt í gögnin en þau veita nána innsýn í aðgerðir yfirvalda til að sporna við „ástandinu“, og nýja innsýn í samspil fjölmiðla, yfirvalda og þrýstihópa sem með einum eða öðrum hætti komu að því að búa til þjóðarógn úr samböndum íslenskra kvenna og erlendra hermann. Sögubíllinn Æringi var vígður við leikskólann Tjarnarborg í febrúar 2008 og hefur hann farið á leikskóla, frístundaheimili og verið á ýmsum hátíðum á vegum borgarinnar alla tíð síðan. Bíllinn tekur um 12 börn í einu en þau sitja á púðum og hlusta á sögur á meðan sögumaður situr í stól. Ólöf Sverrisdóttir leikkona hefur séð um Æringja síðan haustið 2008 og segir okkur frá hvernig haldið verður uppá 10 ára afmæli. Lesandi vikunnar er Anna Bergljót Thorarensen leikskáld, sem skrifar og starfar með Leikhópnum Lottu, sem nýlega frumsýndi Gosa í Elliðaárdalnum.
Í Víðsjá dagsins ætlum við að huga að Leiðinni heim sem er göngusýning í miðborg Reykjavíkur og eins konar upptaktur að Listahátíð í Reykjavík sem hefst í byrjun júní. Við ræðum við Egil Sæbjörnsson myndlistarmann sem tekur þátt í sýningunni og Kathy Clark sýningarstjóra um innsetningu í frístandandi glugga við Hverfisgötu. Við lítum inn á æfingu á verkinu Free Play, tilraunakenndri óperusýningu þar sem raftónlistarmaðurinn Sveinbjörn Thorarensen skapar nýjan hljóðheim upp úr óperunni La Traviata eftir Verdi. Verkið verður flutt í Bingósalnum í Vinabæ næstkomandi laugardag. Við ræðum við Sveinbjörn og tvo af höfundum verksins, óperusöngkonuna Hrafnhildi Árnadóttur og myndlistarkonuna Hrafnhildi Gissurardóttur. Á morgun verður þess minnst að þá verða liðin 150 ár síðan Sr. Friðrik Friðriksson, æskulýðsleiðtogi og brautryðjandi í starfi með ungmennum, fæddist að Hálsi í Svarfaðardal. Meðal annars verður blásið til hátíðardagskrár í Lindakirkju og blómsveigur lagður að leiði Sr. Friðriks. Við ætlum að leyfa rödd Friðriks að hljóma í þætti dagsins. Og við ræðum við rithöfundinn Guðmund Óskarsson um skáldsögu hans Villisumar, sem er bók vikunnar á Rás1. Umsjón: Guðni Tómasson og Halla Harðardóttir.
Tónleikaröð Norræna hússins fer fram í annað sinn í sumar með glæsilegri dagskrá og eftirsóttum norrænum tónlistarmönnum. Svíinn Mikael Lind sér um að skipuleggja þessa tónleikaröð en hann hefur búið á Íslandi í rúm 10 ár og fengist við ýmislegt. Hann segist vera orðin mikill Íslendingur en veðurfarið þetta vorið hafi virkilega reynt á þolrifin. Við ræddum við Mikael um tónleikaröðina og Íslandsdvölina í þættinum í dag. Starfshópur um brunavarnir í gróðri heldur blaðamannafund í dag kl. 14 í húsakynnum Skógræktarfélags Reykjavíkur að Elliðavatni. Þar verður formlega kynntur nýr bæklingur um brunavarnir í gróðri ásamt veggspjöldum og nýrri vefsíðu, grodureldar.is. Við fengum til okkar Pétur Pétursson, slökkviliðsstjóra Brunavarna Árnessýslu, en hann er einnig framkvæmdastjóri Almannavarna Árnessýslu og formaður Félags slökkviliðsstjóra á Íslandi, hann er sem sagt mjög hæfur til að segja okkur frekar frá þessu máli. Á laugardaginn opnar sýningin Free Play í bingósal Vinabæjar í Skipholti. verkið byggt á óperunni La Traviata eftir Giuseppe Verdi. Í verkinu er óperuformið brotið upp; í stað hljómsveitar skapar raftónlistarmaður hljóðheim verksins í samstarfi við sópransöngkonu. Þau Hrafnhildur Gissurardóttir, verkefnastjóri hjá Menningarhúsunum í Kópavogi, Hrafnhildur Árnadóttir, sópransöngkona og Sveinbjörn Thorarensen, einnig þekktur sem raftónlinstarmaðurinn Hermigervill, komu í þáttinn. Umsjón í dag, Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson
Margrét Rósa Einarsdóttir hefur séð um rekstur veitingahússins og veislusalanna í Iðnó undanfarin 17 ár. Nú hefur hún söðlað um og ætlar að miðla af reynslu sinni, en hún stendur fyrir þjónanámskeiði þar sem hún ætlar að kenna ófaglærðum þjónum góð og gagnleg vinnubrögð, það sem er óvenjulegt er að veitingastaðir fá hana til sín og hún sérsníður námskeiðið fyrir hvern stað og starfsfólk hans. Margrét Rósa kom í þáttinn í dag. Fyrsta fjargeðheilbrigðisþjónustan sem rekin er með leyfi embættis landlæknis tók til starfa starfa í apríl. Hún nefnist Mín líðan og býður upp á hugræna atferlismeðferð við vægum til miðlungs einkennum þunglyndis og félagskvíða. Bergljót Baldursdóttir talaði við Tönja Dögg Björnsdóttur, sálfræðing og Svein Óskar Hafliðason hagfræðing og kynnti sér starfsemina á Heilsuvaktinni í dag. Leikhópurinn Lotta hefur fest sig í sessi í menningarlífi landans enda ófáar hringferðinar um landið sem þau hafa farið með ævintýrin í farteskinu og börn hafa fengið að njóta. Í dag eru þau að frumsýna enn eitt barnaleikritið í Elliðaárdalnum og að þessu sinni er það Gosi sem lætur ljós sitt skína. Í vetur hafa þau einnig verið að sýna fyrir börn í Tjarnarbíói fyrir fullu húsi. Aðalsprautan í þessu starfi er Anna Bergljót Thorarensen kom í þáttinn ásamt Stefáni Benedikti Vilhelmssyni sem einmitt leikur Gosa í sýningunni. Umsjón í dag, Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson
Gísli Marteinn Baldursson fjallar um hinar vinsælu teiknimyndabækur um blaðamanninn Tinna og höfundinn Hergé. Viðmælandi: Björn Thorarensen. Lesarar: Guðrún Sóley Gestsdóttir, Bergsteinn Sigurðsson og Einar Þorsteinsson.
Gísli Marteinn Baldursson ræðir við Björn Thorarensen, son útgefanda Tinnabókanna á Íslandi, sem þýddi bókina Tinni í Sovétríkjunum.
Efni Lestarinnar í dag: Á laugardag hófst hér á Rás 1 ný þáttaröð þar sem Gísli Marteinn Baldursson fjallar um teiknimyndasöguhetjuna Tinna. Hver kynslóðin á fætur annarra naut þess að lesa um ævintýri blaðamannsins knáa sem belgíski myndasöguhöfundurinn Hergé færði til bókar á sínum tíma. Þessar bækur voru þýddar á íslensku og nutu mikilla vinsælda, og njóta enn. Í Lestinni í dag og næstu daga, og raunar vikur, verður ein Tinnabók tekin fyrir í hverjum þætti. Gísli Marteinn byrjar í dag, og fjallar um fyrstu Tinna-bókina, Tinni í Sovétríkjunum, sem kom upphaflega út í janúar árið 1929, Gísli ræðir í dag við þýðanda bókarinnar, Björn Thorarensen, son Þorsteins Thorarensens sem gaf út Tinnabækurnar á sínum tíma. Sjónvarpið sýnir í kvöld tvö síðustu þættina í hinni geysivinsælu þáttröð ,,Brúin." Lestin hitar upp fyrir kvöldið með aðdáanda þáttanna, Áslaugu Guðrúnardóttur, kynningar- og markaðsstjóra. Heiða Vigdís Sigfúsdóttir heldur áfram að fræða hlustendur um hina ýmsu kima mexíkóskrar menningar, í dag er viðfangsefnið Dagur hinna dauðu. Og Þórður Ingi Jónsson skoðar fyrirbærið afró-fútúrisma nánar í þættinum í dag. Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson
Gísli Marteinn Baldursson fjallar um hinar vinsælu teiknimyndabækur um blaðamanninn Tinna og höfundinn Hergé. Viðmælandi: Björn Thorarensen. Lesarar: Guðrún Sóley Gestsdóttir, Bergsteinn Sigurðsson og Einar Þorsteinsson.
Björg Thorarensen prófessor í lögfræði: Lög og reglur sem gilda um ríkisborgararétt á Íslandi Guðrún Alda Harðardóttir doktor í leikskólafræðum: Rannsókn um birtingu kyngervis barna í leikskóla þar sem hlutfall karla er hátt í starfsmannahópnum Rannveig Magnúsdóttir: Umhverfisspjall um ráðstefnuna World cleanup day í Tallin þar sem 115 lönd voru að skipuleggja alheimshreinsun þann 15. september n.k
Formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar segir gögn Landsréttarmálsins styðja niðurstöðu Hæstaréttar um lögbrot ráðherra við dómaraskipan. Dómsmálaráðherra segir að hún þekki það þegar hún sjái það hvenær hún þurfi að víkja úr embætti. Framkvæmdastjóri hjá Odda segir að erlend samkeppni hafi gert það að verkum að fyrirtækið þurfti að segja næstum helmingi starfsmanna sinna upp í gær. Stjórnarformaður Persónuverndar segir að það þurfi allt að því að fjórfalda starfsmannafjöldann hjá stofnuninni til að hún geti sinnt verkefnum vegna nýrra persónuverndarlaga sem eiga að taka gildi eftir fjóra mánuði. Fiskeldisfrumvarpi sem nú er í umsagnarferli er ætlað að bæta umgjörð og skapa sátt um greinina. Kapphlaup um eldissvæði á að heyra sögunni til og útboðsferli kemur í staðinn. Breytingin mun þó ekki hafa áhrif á margar umsóknir á Vestfjörðum og Austfjörðum sem þegar liggja fyrir. Ákvörðun um að nota tákn fyrir guðinn Tý á peysur norska landsliðsins í alpagreinum, hefur vakið upp deilur því nasistar og öfgahreyfingar hafa reynt að gera það að sínu tákni. Þarf að fjórfalda starfsmannafjölda Persónuverndar. Arnar Páll Hauksson fjallar um nýja persónuverndarlöggjöf og talar við Björgu Thorarensen, Davíð Þorláksson og Sölku Sól Styrmisdóttur. Merkur mannfræðifundur í Ísrael. Kristján Sigurjónsson segir frá. Utanríkisverslun Íslendinga frá 900 til 2010. Bogi Ágústsson talar við Guðmund Jónsson sagnfræðing. Umsjón: Arnar Páll Hauksson Tæknimaður: Magnús þorsteinn Magnússon
Fyrirlestur sem Björg Thorarensen flutti á hádegismálþinginu "Siðareglur ráðherra og þingmanna: Möguleikar og markmið" þriðjudaginn 12. maí 2015.