Podcasts about Malmquist

  • 48PODCASTS
  • 283EPISODES
  • 1hAVG DURATION
  • 1MONTHLY NEW EPISODE
  • May 21, 2025LATEST

POPULARITY

20172018201920202021202220232024


Best podcasts about Malmquist

Latest podcast episodes about Malmquist

Spegillinn
Utanríkisráðherra um Gaza, stýrivaxtalækkun og menning í ferðaþjónustu

Spegillinn

Play Episode Listen Later May 21, 2025 20:00


Staðan á Gaza og aðgerðir Evrópusambandsins var umræðuefni á ráðherrafundi EES ríkjanna í Brussel í dag, þar sem Kaja Kallas utanríkismálastjóri ESB var meðal þátttakenda. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir tók þátt í þessum fundi; hún segir það ánægjulegt að aðildarríki ESB séu að ná samstöðu um harðari aðgerðir gagnvart Ísrael. Viljayfirlýsing um nánara samstarf á sviði utanríkis og öryggismála var einnig staðfest á þessum fundi. Björn Malmquist fréttamaður ræddi við Þorgerði Katrínu í Brussel í dag. Peningastefnunefnd Seðlabankans lækkaði stýrivexti í dag um 0,25 prósentustig, úr 7,75 prósent í 7,5. Þórarinn G. Pétursson varaseðlabankastjóri segir að verðbólgan þurfi að hjaðna í sumar til að hægt verði að halda vaxtalækkunarferlinu áfram. Horfur í efnahagsmálum séu góðar en óvissa á alþjóðamörkuðum út af tollastríði gæti sett strik í reikninginn. Menningarferðaþjónusta er nú í fyrsta sinn formlega skilgreind sem hluti af ferðamálastefnu stjórnvalda enda er menning talin afar mikilvægur þáttur í ferðaþjónustu og ferðamenn sem hingað koma njóta íslenskrar menningar með ýmsum hætti um allt land.

Heimskviður
219 - Pólland og Pamela Anderson

Heimskviður

Play Episode Listen Later May 3, 2025 38:43


Pólverjar kjósa sér nýjan forseta um miðjan þennan mánuð og það má segja að það séu mikilvægar kosningar fyrir Donald Tusk, sem leiðir ríkisstjórnina, af því að hann lofaði miklu fyrir síðustu kosningar en það hefur gengið hægt að standa við öll kosningaloforðinn, og Tusk hefur oft skellt skuldinni á núverandi forseta, Andrzej Duda, og vonar sjálfsagt að hann fái vinveittari forseta. Þau Björn Malmquist og Margrét Adamsdóttir segja okkur frá frambjóðendum og kosningabaráttunni. Fyrir 35 árum skaust Pamela Anderson fram á sjónvarsviðið sem kyntákn - bæði í tímaritum og sjónvarpsþáttunum um Strandverðina sem slógu í gegn um allan heima. Nú er hún farin að leika aftur í kvikmyndum og hefur meira að segja verið tilnefnd til verðlauna. Það hefur gengið á ýmsu í hennar lífi þess á milli en hún hefur meðal annars notað stöðu sína til að berjast fyrir sínum hugðarefnum, meðal annars dýravernd og frelsun Julian Assange ritstjóra Wikileaks. Hallgrímur Indriðason rýnir í níu líf Pamelu Anderson.

Spegillinn
Sjómenn og veiðigjöld, mótmæli í Tyrklandi, aðstæður úkraínskra barna

Spegillinn

Play Episode Listen Later Mar 26, 2025 20:00


Fiskverð skiptir sjómenn öllu, segir Valmundur Valmundsson, formaður Sjómannasambandsins. Ef verð á uppsjávarfiski hefur verið vanmetið árum saman eiga sjómenn inni hjá útgerðinni og hljóta að sækja það aftur í tímann - þó ekki sé enn ljóst hvernig. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Valmund. Mótmæli brutust út í Istanbúl og fleiri borgum Tyrklands í liðinni viku, þegar út spurðist að borgarstjórinn Ekrem Imamoglu hefði verið handtekinn og úrskurðaður í gæsluvarðhald, sakaður um spillingu og hryðjuverkastarfsemi. Áður hafði Istanbúl-háskóli ógilt háskólagráðu hans, en háskólapróf er forsenda þess að menn geti farið í forsetaframboð í Tyrklandi - en Imamoglu þykir manna líklegsastur til að geta fellt Recep Tayyip Erdogan í forsetakosningum eftir þrjú ár. Sema Erla Serdaroglu stjórnmálafræðingur og aðjúnkt segir það ekki nýtt, að ráðist sé að pólitískum andstæðingum Erdogans með þessum hætti. Ævar Örn Jósepsson ræðir við hana. Evrópuráðið ákvað nýlega að skipa Þórdísi Kolbrúnu Gylfadóttur fyrrverandi utanríkisráðherra sem sérstakan sendifulltrúa ráðsins í málefnum barna í Úkraínu. Þórdís var í síðustu viku í Kyiv til að kynna sér aðstæður. Björn Malmquist fréttamaður var þá staddur í borginni og ræddi við Þórdísi. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Kormákur Marðarson

Spegillinn
Morðmál, ÍL-sjóður og tollastríð

Spegillinn

Play Episode Listen Later Mar 13, 2025 20:05


Fjórir eru í haldi lögreglunnar á Suðurlandi, þar af þrjú í gæsluvarðhaldi í tengslum við rannsókn á manndrápi, fjárkúgun og frelsissviptingu. Sá fjórði var handtkeinn í dag; þau sem eru í gæsluvarðhaldi eru landsþekktur ofbeldismaður, kona á fertugsaldri og piltur um tvítugt. Málið hefur vakið óhug en maðurinn, sem er á sjötugsaldri, var skilinn eftir á göngustíg í Gufunesi. Hann var fluttur á sjúkrahús en lést skömmu síðar. Tollastríð Bandaríkjastjórnar við Evrópusambandið er skollið á fyrir alvöru og það gæti verið að færast í aukana. Rúmur sólarhringur er liðinn síðan fyrstu aðgerðirnar tóku gildi - þegar Bandaríkjamenn hækkuðu tolla á stál og álvörur...nokkrum klukkustundum síðar tilkynnti Evrópusambandið um mótaðgerðir - og í dag byrjaði svo önnur umferð. Björn Malmquist hefur verið að fylgjast með þróun mála í gær og í dag. Um tuttugu ára sögu Íbúðalánasjóðs sem breyttist í ÍL-sjóð fyrir nokkrum árum virðist vera að ljúka - með tillögum að uppgjöri sem kynntar voru í vikunni. VIðræðunefnd fjármála- og efnahagsráðherra og ráðgjafar lífeyrissjóða sem eru stærstu kröfuhafar sjóðsins leggja til að ríkissjóður gefi út ný skuldabréf fyrir 540 milljarða, til að gera upp eldri skuld við ÍL-sjóð, og ríkisábyrgð á skuldbindingum sjóðsins.

Spegillinn
Trump, Úkraína, Evrópa og Nató, mögulegar hagræðingaraðgerðir á Landspítalanum og í heilbrigðiskerfinu öllu

Spegillinn

Play Episode Listen Later Feb 13, 2025 20:00


„Við áttum gott símtal, yfir klukkutíma langt, og ég átti líka gott símtal við Zelensky eftir það,“ sagði Donald Trump á fréttafundi í gær, aðspurður um símtal þeirra Vladimírs Pútíns Rússlandsforseta. Þetta símtal og yfirlýsingar Trumps og varnarmálaráðherra hans um friðarviðræður við Rússa, útlokun á NATO-aðild Úkraínu og fleira, vöktu mikil viðbrögð meðal bandamanna Bandaríkjanna í NATO. Ævar Örn Jósepsson fer yfir helstu ágreiningsmál og Björn Malmquist ræðir við Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra, sem sótti hvorutveggja fund varnarmálaráðherra NATO í dag og stuðningsríkja Úkraínu í Brussel í gær. Landspítalinn er stærsta stofnun ríkisins - þar vinna sex þúsund og þrjú hundruð manns og árlega renna þangað hundrað milljarðar, sirka sjö prósent af heildarútgjöldum. Runólfur Pálsson, forstjóri Landspítalans, sendi forsætisráðherra og fjármálaráðherra hagræðingartillögur í lok janúar, að beiðni ráðherranna. Hann segir Landspítalann alltaf þurfa meira fé því verkefnin séu alltaf að aukast og það sé ekkert sér-íslenskt vandamál heldur þekkist líka í nágrannalöndunum. Stöðugt sé verið að reyna hagræða innan spítalans til að geta aukið þjónustu. Freyr Gígja Gunnarsson talaði við Runólf. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Kormákur Marðarson

Heimskviður
206 - Stækkunarmöguleikar og staða Evrópusambandsins og aldarafmæli The New Yorker

Heimskviður

Play Episode Listen Later Feb 1, 2025 42:13


Áform um þjóðaratkvæðagreiðslu hér á landi um framhald aðildarviðræðna Íslands hafa þegar vakið upp umræðu um kosti þess og galla fyrir okkur að verða hluti af þessu bandalagi. En hvernig er staðan á stækkunarmálum hjá Evrópusambandinu almennt? Nú eru að verða tólf ár síðan nýtt ríki bættist í hópinn og það eru meira en tveir áratugir síðan stóra stækkunin átti sér stað, þegar tíu ríki, flest þeirra í austurhluta Evrópu, fengu inngöngu. Það fækkaði svo auðvitað um eitt, þegar breskir kjósendur samþykktu útgöngu í þjóðaratkvæðagreiðslu árið 2016. Það voru einmitt fimm ár í gær frá því að Bretar gengu endanlega úr Evrópusambandinu. En hvernig standa þessi mál núna og við hverju mætti búast á næstu misserum, fari svo að við ákveðum að halda áfram með viðræður? Björn Malmquist fjallar um málið. Í síðari hluta þáttarins fjöllum við um aldarafmæli tímaritsins The New Yorker. fögnum aldarafmæli tímaritsins The New Yorker. Tímaritið er eitt það mest lesna í heiminum og þykir bæði veita innsýn inn í hugarheim New York-borga og Bandaríkjamanna um leið. Blaðið er frjálslynt í efnisvali sínu, en hampar á sama tíma því sem stendur tímans tönn og margt í blaðinu hefur lítið breyst þau 100 ár sem það hefur verið gefið út. Oddur Þórðarson flettir með okkur í gegnum 100 ára sögu New Yorker og ræðir við Halldór Baldursson, teiknara, sem á risastóra bók með öllum þeim mörgþúsund skrýtlum sem birst hafa í blaðinu.

Spegillinn
ESB-umsókn, árásir Ísraelshers á „örugg svæði“ á Gaza, meðferð utankjörfundaratkvæða

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jan 15, 2025 20:00


Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segir jákvætt að Evrópusambandið líti þannig á að aðildarumsókn Íslands frá 2009 sé enn virk. Talsmaður framkvæmdastjórnar ESB staðfesti þetta í dag - en Þorgerður átti síðdegis fund með Maros Sefcovic, einum af framkvæmdastjórum ESB, sem fer með viðskiptamál og samskiptin við EES ríkin, Ísland, Noreg og Lichtenstein. Þorgerður hitti einnig Kaju Kallas, utanríkismálastjóra Evrópusambandsins. Björn Malmquist fréttamaður hitti Þorgerði síðdegis. Frá því í maí í fyrra hefur Ísraelsher gert minnst níutíu og sjö árásir á svæði á Gaza, sem herinn hafði áður skilgreint sem svokölluð mannúðarsvæði og hvatt palestínskan almenning til að leita þar skjóls til að tryggja öryggi sitt og sinna. Þetta er niðurstaða rannsóknarteymis breska ríkisútvarpsins BBC, BBC Verify, sem hefur unnið að því undanfarna mánuði að sannreyna fregnir af slíkum árásum. Ævar Örn Jósepsson rýnir í skýrslu teymisins. Í þremur tilfellum sem fjallað hefur verið um síðustu daga komust utankjörfundaratkvæði í alþingiskosningunum ekki til skila. Í Kópavogi urðu 25 utankjörfundaratkvæði innlyksa á bæjarskrifstofum og var ekki komið til talningar, í Norðausturkjördæmi fékk yfirkjörstjórn kassa með atkvæðum 11 dögum eftir að kosið var og ekki er vitað hve mörg þau voru, og tvö utankjörfundaratkvæði skiluðu sér ekki frá Seltjarnarnesi á talningarstað. Í kosningum er alltaf eitthvað um að utankjörfundaratkvæði berist ekki í tæka tíð - En er hægt að horfa til einhverra sérstakra kringumstæðna og telja atkvæði sem koma of seint? Anna Kristín Jónsdóttir ræddi þetta við Bergþóru Sigmundsdóttur lögfræðing og stjórnmálafræðing, sem sá lengi um utankjörfundaratkvæðagreiðslu hjá sýslumanni. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon

Spegillinn
Andlát ungrar konu á Skeggjagötu, nýr orkumálaráðherra um orkumál, öfgahægristjórn í kortunum í Austurríki

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jan 9, 2025 20:00


Tveir dómkvaddir matsmenn telja að læknisfræðileg rannsókn vegna andláts ungrar konu eftir handtöku lögreglu hafi verið ófullkomin. Lögmaður fjölskyldu hennar segir ríkið verða að bera hallann af því. Andlát hennar megi að líkindum rekja til samspils tveggja þátta; ástands ungu konunnar og aðgerða lögreglu - en ómögulegt sé að segja til um umfang áhrifa hvors orsakaþáttar fyrir sig. Freyr Gígja Gunnarsson segir frá. Orkuframleiðsla og orkunýting standa á krossgötum. Orkuframleiðendur anna ekki eftirspurn eftir orku og hart er deilt um nýja orkukosti. Í upphafi ráðherratíðar sinnar leggur Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra áherslu á þrjú atriði: Forgang almennings og minni fyrirtækja að raforku án samkeppni við stórnotendur; liðka fyrir aukinni orkuöflun með einfölduðu leyfisveitingakerfi, og að rjúfa kyrrstöðuna í tengslum við rammaáætlun. Gréta Sigríður Einarsdóttir tók saman og ræddi við Jóhann Pál. Austurríski Frelsisflokkurinn eygir nú í fyrsta sinn möguleikann á að leiða ríkisstjórn í landinu. Flokkurinn er lengst til hægri í stjórnmálum í Austurríki og vann stóran sigur í kosningunum þar í september. Björn Malmquist segir frá. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred

Spegillinn
Búseti og skemman stóra, Ísland og Úkraína, svakalega sveiflukennt rafmagnsverð á Norðurlöndum

Spegillinn

Play Episode Listen Later Dec 18, 2024 20:00


Búseti fór þess á leit við byggingarfulltrúa Reykjavíkurborgar um miðjan nóvember að framkvæmdir við vöruhúsið sem nú rís við Álfabakka yrðu stöðvaðar. Þetta kemur fram í gögnum sem Spegillinn fékk afhent í dag. Vöruhúsið byrgir íbúum fjölbýlishúss við Árskóga sjö sýn, blokk sem Búseti byggði. Í bréfi Búseta frá í nóvember kom meðal annars fram að á lóðinni væri verið að reisa fjögurra hæða hús, tólf metra háa byggingu, sem ætti sér enga stoð í útgefnu byggingarleyfi eða svörum skipulagsfulltrúa við fyrirspurn frá áhyggjufullum hjónum sem óttuðust að birtan yrði tekin frá þeim ef svona hátt hús myndi rísa á reitnum. Verkefnisstjóri hjá skipulagsfulltrúa sefaði áhyggjur hjónanna og taldi sig nánast geta fullyrt að slíkt myndi ekki gerast. Freyr Gígja Gunnarsson fjallar um þetta og ræðir við Hildi Björnsdóttur, oddvita Sjálfstæðisflokks í borgarstjórn. Staðan í Úkraínu, mögulegar friðarviðræður og hugmyndir um friðargæslulið verða líklega á dagskrá fundar í Brussel kvöld, þar sem Volodymyr Zelensky Úkraínuforseti hittir leiðtoga Evrópusambandsins og nokkurra Evrópuríkja, þar á meðal Íslands. Zelensky fundaði með leiðtogum tíu Evrópuríkja í gær, þeirra á meðal Mette Fredriksen, forsætisráðherra Danmerkur, og Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlads, sem Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, starfandi utanríkisráðherra, segir hafa fengið afgerandi skilaboð í veganesti. Björn Malmquist ræðir við Þórdísi Kolbrúnu. Þetta er galið raforkukerfi og Svíþjóð getur ekki búið við kerfi sem er svona háð duttlungum veðráttunnar, sagði Ebba Busch, orkumálaráðherra Svíþjóðar þegar rafmagnsverð þar rauk upp úr öllu valdi í síðustu viku. Danir supu líka hveljur þegar þeim varð litið á rafveitu-öppin sín, sem birta rafmagnsverð í rauntíma – en á fimmtudaginn var, klukkan fjögur síðdegis, kostaði kílóvattstundin ellefu danskar krónur – rúmar tvö hundruð íslenskar, sem þýðir að passlega heit fimm mínútna sturta kostaði þúsundkall. Ævar Örn Jósepsson skoðaði málið. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon

Heimskviður
203 - Meintur morðingi í New York og Stonehenge

Heimskviður

Play Episode Listen Later Dec 14, 2024 42:20


Forstjóri tryggingafyrirtækis var skotinn til bana úti á götu í New York í Bandaríkjunum í síðustu viku. Morðið hefur vakið mikla athygli og það má segja að það veki athygli á brotalömum í bandaríska heilbrigðiskerfinu. Meintur morðingi var handtekinn í vikunni og morðið og ástæður þess verið mikið í fjölmiðlum alla þessa viku, og má segja að honum hafi verið hampað af mörgum. Aðallega af því að hann er að ráðast á kerfið, heilbrigðiskerfið bandaríska sem svo margir eru ósáttir við og sérstaklega gagnvart tryggingafyrirtækjum, þau græða á tá og fingri á meðan fólkið þarf að greiða fúlgur fjár fyrir heilbrigðisþjónustu. Og það er líka algengt að þeir sem brjóta reglurnar vekja athygli fólks og það vill skilja hvers vegna hann gerir þetta. Af því að þessi maður sem er í haldi, Luigi Mangione, var fyrirmyndarnemandi og fátt sem benti til þess að hann væri líklegur til að fremja morð. Í seinni hluta þáttarins förum við til Stonehenge en fyrr á þessu ári komu fram nýjar upplýsingar um þetta dularfulla og heillandi mannvirki á Salisbury-sléttunni í suðvesturhluta Englands. Upplýsingar sem varpa betra ljósi á uppruna steinanna sem mynda Stonehenge - en vekja líka upp áhugaverðar spurningar um hvernig það var skipulagt og reist fyrir um fimm þúsund árum. Í vísindagrein í Nature er sýnt fram á að einn af lykilsteinunum í þessu mannvirki - Altarissteinninn svonefndi, sem vegur um sex tonn - var fluttur alla leið frá norðurhluta Skotlands, um sjö hundruð og fimmtíu kílómetra leið. Nýjar upplýsingar, sem vekja upp nýjar spurningar. Það er Björn Malmquist sem ætlar að reyna að svara einhverjum þeirra. Eins og til dæmis, hvernig steinninn komst alla þessa leið og hvernig Stonehenge var reist á sínum tíma.

Crushing Classical
Eric Malmquist: Being a Working Composer

Crushing Classical

Play Episode Listen Later Dec 5, 2024 36:43


I have this imaginary story of what a composer does all day - and it's based on Mozart and Beethoven biopics and a sort of La Boheme-ish romantic image of starving artists. In this generous interview, Eric Malmquist takes us behind the scenes of a recent commission and offers great tips for anyone wanting to work in our business!  Eric Malmquist (b. 1985) writes earnestly heartfelt and engaging music. He draws on a deep love of early music and modern influences to produce works that are focused and emotional.   He has been commissioned and performed by the Collaborative Arts Institute of Chicago, Baroque on Beaver Island, Chicago Composers Orchestra, the Chicago Youth Symphony Orchestra, tubist Scott Tegge, historical keyboardist Charles Metz, historical flutist Leighann Daihl Ragusa, Chatter, Constellation Men's Ensemble, the International Chamber Artists, the Newberry Consort and the Wicker Park Choral Singers. Recent performances include City Music with the Chicago Youth Symphony Orchestras Accelerando Strings; Open, Clear & Free, a 25-minute men's choir cycle on parks for Constellation Men's Ensemble; A History of Fatherhood in Sante Fe and Albuquerque with Chatter; and a concerto grosso for Baroque on Beaver Island entitled Great Lake Music.  His music has been performed across the US and has been featured repeatedly on 98.7WFMT. Recordings of his music are on sale: “Music in Bloom” featuring period instruments, on the disc “New Song” and by pianist Jonathan Hannau. Check out Eric at his website, EricMalmquist.com.   Thanks for joining me on Crushing Classical!  Theme music and audio editing by DreamVance. You can join my email list HERE, so you never miss an episode! I help people to lean into their creative careers and start or grow their income streams.  You can read more or hop onto a short discovery call from my website. I'm your host, Jennet Ingle. I love you all. Stay safe out there!      

Spegillinn
Amnesty segir Ísraela seka um þjóðarmorð og utanríkisráðherra á Natófundi

Spegillinn

Play Episode Listen Later Dec 5, 2024 20:00


Alþjóðlegu mannréttindasamtökin Amnesty International saka Ísraelsmenn um að fremja hópmorð, eða það sem í daglegu tali er kallað þjóðarmorð, í hefndarstríðinu sem þeir hófu á Gasa í kjölfar hryðjuverkaárásar Hamas í Ísrael 7. október í fyrra. Þetta er afrakstur viðamikillar rannsóknar samtakanna á framgöngu Ísraelshers og ísraelskra yfirvalda frá fyrsta degi og fram í júlíbyrjun, og rennir stoðum undir málatilbúnað Suður-Afríku fyrir Alþjóðadómstólnum í Haag og mál Alþjóðlega glæpadómstólsins gegn Benjamin Netanyahu forsætisráðherra Ísraels og fyrrverandi varnarmálaráðherra hans Skemmdarverk, netárásir og tilraunir til að skapa sundrungu í vestrænum samfélögum - þetta var á dagskrá utanríkisráðherra NATO ríkjanna sem komu saman í Brussel í gær - og það er vaxandi vitund um að þetta tengist átökunum í Rússlandi. Björn Malmquist, fréttamaður okkar í Brussel fylgdist með þessum fundi. Þegar bandaríska sendiráðið fékk augastað á föngulegu húsi við Sólvallagötu fjórtán fyrir þremur árum var utanríkisráðuneytið látið vita. Og þegar bandaríska utanríkisþjónustan gekk frá kaupunum varð Sólvallagata fjórtán ekki lengur venjulegt hús í grónu og friðsælu íbúðahverfi heldur hluti af alþjóðlegum skuldbindingum

Spegillinn
Kjörseðillinn á laugardag, barnsrán Rússa í Úkraínu og spenna vegna forsetakjörs í Rúmeníu

Spegillinn

Play Episode Listen Later Nov 28, 2024 20:00


Hvað þarf kjósandi að hafa með sér á kjörstað í Alþingiskosningum og hvað ber að forðast ef ekki á að ógilda kjörseðilinn. Freyr Gígja Gunnarsson ræðir við Ástríði Jóhannesdóttur framkvæmdastjóra Landskjörstjórnar. Víst þykir að Rússar hafi numið tæplega 20.000 úkraínsk börn á brott síðan þeir réðust inn í Úkraínu og rökstuddur grunur er um að þau séu mun fleiri. Tetiana Fedosiuk er úkraínskur sérfræðingur hjá rannsóknarsetri í utanríkis- öryggis- og varnarmálum í Tallin í Eistlandi segir að fjölmörg þeirra séu vistuð á stofnunum í Rússlandi, Belarús eða hernumdum svæðum Úkraínu, en önnur ættleidd af rússneskum fjölskyldum. Stjórnvöld í Rúmeníu vilja rannsaka hvort samfélagsmiðillinn TikTok hafi farið eftir reglum Evrópusambandsins um auglýsingar í aðdraganda forsetakosninganna þar á sunnudaginn. Óháður frambjóðandi, Călin Georgescu, sigraði óvænt í fyrri umferð kosninganna, á meðan leiðtogi stærsta stjórnmálaflokks Rúmeníu datt út. Björn Malmquist ræðir við Radu Magdin, stjórnmálaskýranda frá Rúmeníu.

Heimskviður
199 - Kvennamorð í Bretlandi og síðasti geirfuglinn

Heimskviður

Play Episode Listen Later Nov 16, 2024 40:36


Umfangi heimilisofbeldis gegn konum á Bretlandseyjum hefur verið lýst sem neyðarástandi. Talið er að tvær milljónir breskra kvenna verði fyrir einhvers konar ofbeldi á ári hverju. Undanfarin ár er að meðaltali ein kona drepin þriðja hvern dag á Bretlandseyjum. Blaðamaður hjá Guardian, sem hefur tekið saman upplýsingar um kvennamorð það sem af er ári, segir að refsingar við morði innan veggja heimilis séu alla jafna mun vægari en þegar konur eru drepnar á götum úti. Svo heyrum við af heimsókn Björns Malmquist fréttamanns á belgíska náttúruminjasafnið í Brussel þar sem hann stóð augliti til auglitis við síðasta geirfuglinn, sem talið er að hafi verið drepinn í Eldey fyrir rúmum 180 árum - sumarið 1844. Björn talaði við Gísla Pálsson, fyrrverandi prófessor í mannfræði við Háskóla Íslands, sem hefur fjallað ítarlega um sögu og útdauða geirfuglsins. Hann segir geirfuglinn og sögu hans svo mikilvæga því hún sannfærði menn um að aldauði af mannavöldum væri stórt vandamál og því þyrfti að snúa vörn í sókn.

Spegillinn
Forsetakosningar, fjárhagsáætlun og verkföll kennara

Spegillinn

Play Episode Listen Later Nov 5, 2024 20:00


Formaður kennarasambandsins óttast að dragist kjaradeila kennara við ríki og sveitarfélög enn á langinn segi margir upp, löngu sé tímabært að fjárfesta í kennurum. Rætt verður við hann síðar í Speglinum og líka fjallað um fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar - hagræðing eða ekki hagræðing, þar liggur efinn. En fyrst eru það forsetakosningarnar í Bandaríkjunum, Björn Malmquist er staddur í Fíladelfíu, þó ekki við tröppurnar sem Rocky hljóp upp en þó í næsta nágrenni.

Spegillinn
Kosningar í Bandaríkjunum og á Íslandi

Spegillinn

Play Episode Listen Later Nov 4, 2024 20:00


Það fer ekki framhjá neinum að á morgun verða haldnar forsetakosningar vestur í Bandaríkjunum. Þar takast þau á, Kamala Harris, frambjóðandi Demókrata, og Donald Trump, frambjóðandi Repúblikana. Nú er innan við sólarhringur þar til fyrstu kjörstaðir verða opnaðir og enn er allt í járnum, varla tölfræðilega marktækur munur á frambjóðendunum, hvorki á landsvísu né í hinum svokölluð sveifluríkjum. Ævar Örn Jósepsson ræðir við Björn Malmquist fréttamann, sem er í einu þessara ríkja, Pennsylvaníu. Kynjamunur er ekkert nýtt í bandarískum stjórnmálum, þar sem konur hafa verið hallari undir Demókrata og karlarnir snoknari fyrir Repúblikana síðustu fjóra áratugi hið minnsta. En munurinn hefur aldrei verið jafnmikill og afgerandi og nú, og hefur raunar tvöfaldast á síðustu tuttugu og fimm árum ef marka má niðurstöður skoðanakönnunar sem birt fyrir tveimur vikum eða svo. Samkvæmt henni munar heilum þrjátíu prósentustigum á fylgi Harris og Trumps meðal kvenna sem hyggjast nýta atkvæðisrétt sinn, Harris í vil, en hjá körlum er munurinn 12 prósentustig, Trump í hag. Þetta er talið geta ráðið úrslitum í hnífjöfnum kosningum. Ævar Örn Jósepsson segir frá. Stjórnmálaflokkarnir geta ekki hagað sér eins og þeir vilja þegar þeir reyna að ná til kjósenda á samfélagsmiðlum. Samfélagsmiðlarnir sjálfir hafa sett ákveðnar reglur sem flokkarnir verða að virða og áhrifavaldar sem þiggja greiðslu frá stjórnmálaafli geta átt á hættu að vera úthýst frá Tiktok. Freyr Gígja Gunnarsson kynnti sér málið og ræddi við Elfu Ýr Gylfadóttur framkvæmdastjóra fjölmiðlanefndar. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred.

Spegillinn
Þingstörf á óvissutímum, brestur í almannavarnakerfinu og málefni flóttafólks í Evrópu.

Spegillinn

Play Episode Listen Later Oct 16, 2024 20:00


Þingflokksformenn Framsóknar og Viðreisnar eru nokkuð bjartsýnar á að þingið afgreiði fjárlagafrumvarpið. Þær segja að ekkert verði hefðbundið við þingstörf næstu daga. Freyr Gígja Gunnarsson ræðir við þær Ingibjörgu Isaksen og Hönnu Katrínu Friðrikson. Fjarskiptakerfi á norðan- og austanverðu landinu lágu niðri í um tuttugu mínútur um miðjan dag í gær. Netið fór, það var ekki hægt að hringja og tetrakerfi sem viðbragðsaðilar reiða sig á brást líka. Öll þessi kerfi voru hýst á sama stað hjá Mílu. Þetta er grafalvarlegt, segir ríkislögreglustjóri í samtali við Önnu Kristínu Jónsdóttur. Málefni flóttafólks og hælisleitenda verða í forgrunni á leiðtogafundi Evrópusambandsins í lok vikunnar. Afstaðan til þessara mála hefur harðnað í mörgum ríkjum ESB - ekki síst vegna uppgangs hægri flokka á undanförnum árum. Björn Malmquist segir frá. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred

Heimskviður
194 - Jólin komin í Venesúela og stóra Lego-slysið

Heimskviður

Play Episode Listen Later Oct 12, 2024 38:40


Saga Edgar Ochoa er ein nærri átta milljóna sem flóttamenn frá Venesúela hafa að segja af ástandinu í heimalandinu. Hann kom til Íslands fyrir um tveimur árum og hlaut íslenskan ríkisborgararétt nýverið. Hann fór til Venesúela í sumar og tók þátt í forsetakosningum, þar sem kjörstjórn lýsti Nicolas Maduro sigurvegara. Þriðja kjörtímabil hans er nýhafið og má segja að stjórnartíð hans hafi verið ansi stormasöm. Róbert Jóhannsson skoðaði sögu Venesúela og þá staðreynd að júlunum var hleypt af stokkunum þar fyrr en áður til að reyna að friða ósátta íbúa landsins. Fimm milljón Legó-kubbar eða stykki úr Legó-leikfangasettum enduðu í sjónum austur af Bretlandi í febrúar 1997, þegar flutningaskipið Tokyo Express fékk á sig brotsjó og meira en sextíu vörugámar féllu útbyrðis. Næstu vikur og mánuði fóru allskonar Legó hlutir að finnast á ströndum í suðvesturhluta Bretlands og víðar, og reyndar eru þeir enn að dúkka upp. Stóra Legóslysið, eins og þetta óhapp hefur verið kallað, hefur ekki aðeins snert taugar þeirra sem ólust upp við að leika sér að Legói heldur líka beint enn frekar athyglinni að þeim milljónum tonna af plasti sem rekur um heimsins höf. Björn Malmquist segir okkur frá.

Spegillinn
Staðan í Sjálfstæðisflokknum, friðarverðlaun og átök í Brussel

Spegillinn

Play Episode Listen Later Oct 11, 2024 20:00


Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins fundaði í dag, skyndilega eða ekki, um stöðu ríkisstjórnarinnar og næstu skref. Það kvað við svolítið nýjan tón eftir fund ríkisstjórnarinnar í morgun þar sem ráðherrar virtust ekki útiloka að kosningar væru handan við hornið. Friðjón Friðjónsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, og Sigríður Á. Andersen, fyrrverandi þingmaður og ráðherra Sjálfstæðisflokksins, fóru yfir stöðuna. Það eru víða átök en í Brussel hafa menn tekist á um ræðu Victors Orbans, forsætisráðherra Ungverjalands. Björn Malmquist rekur þessu átök. Það eru hins vegar öllu meiri friður yfir Gísla Kristjánssyni sem útskýrir hvaða japönsku samtök fengu friðarverðlaun Nóbels í dag.

Spegillinn
Öryggi ferðafólks, handhafar forsetavalds og samskipti Breta og ESB

Spegillinn

Play Episode Listen Later Oct 3, 2024 20:05


Í síðustu viku fórust tveir útlendingar sem voru hér á ferðalagi, annar í bílslysi á Skaga, hinn féll í Hlauptungufoss á Suðurlandi og í sumar dó maður í íshellaferð á Breiðamerkurjökli. Þetta eru þrjú nærtæk dæmi um banaslys erlendra ferðamanna. Hingað koma í ár um tvær milljónir ferðamanna. Er nóg að gert til að tryggja öryggi þeirra gesta sem hingað koma? Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Lilju Dögg Alfreðsdóttur, menningar- og viðskiptaráðherra. 23 fengu greitt fyrir að vera handhafi forsetavalds þau tvö kjörtímabil sem Guðni Th. Jóhannesson var forseti Íslands og námu greiðslurnar samtals 66 milljónum króna. Flestir virðast sammála um að gera þurfi breytingar á forsetakafla stjórnarskrárinnar, en það hefur gengið erfiðlega, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir til þess. Freyr Gígja Gunnarsson tók saman. Leiðtogar Bretlands og Evrópusambandsins ætla sér að bæta samskiptin í kjölfar útgöngu Breta fyrir fjórum árum. Til stendur að halda leiðtogafundi með reglulegu millibili og auka samstarfið, til dæmis á sviði öryggismála. Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands var í Brussel í gær, á fundi með helstu forkólfum Evrópusambandsins - Björn Malmquist fylgdist með. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred

Heimskviður
Sumar-Heimskviður / Kosningar á Indlandi og háleynilegur hálsmenafundur

Heimskviður

Play Episode Listen Later Aug 3, 2024 45:33


Indverjar náðu þeim merka áfanga fyrr á þessu ári að verða fjölmennasta þjóð heims. Og það er ekkert smá umstang þegar fjölmennasta ríki heims gengur til kosninga, eins og var raunin nú í vor. Enda tóku kosningarnar margar vikur. Fyrr í vetur fjallaði Guðrún Hálfdánardóttir um Indland í Heimskviðum, svolítið til að gefa innsýn inn í í hvaða umhverfi þessar umfangsmiklu kosningar fara fram. Mörg af efnuðustu löndum heims keppast við að koma á viðskiptum við Indland enda hvergi í heiminum jafn mikill hagvöxtur og þar. Land þar sem upplýsingaóreiða og um leið hatursorðræða í garð minnihlutahópa fær að blómstra og dafna í skugga þjóðernisflokks hindúa. Þá ætlum að huga að fortíðinni og fornminjum, nánar tiltekið hálsmeni úr skíragulli sem fannst í jörðu í Warvíkurskíri í Bretlandi fyrir um fjórum árum. Gullmenið er merkt Hinriki áttunda Englandskonungi og fyrstu eiginkonu hans, hinni spænskættuðu Katrínu af Aragorn. Þau voru gift í yfir tuttugu ár og skilnaður þeirra var afdrifaríkur fyrir breska menningarsögu. Sérfræðingar hjá Þjóðminjasafni Bretlands, British Museum, hafa legið yfir þessum dýrgrip síðan hann fannst og hafa nú rakið uppruna hans til hátíðahalda sem Hinrik áttundi hélt í febrúar annað hvort 1520, eða 1521. Það ríkti svo mikil leynd yfir rannsókninni að Rachel King, sérfræðingurinn sem stjórnaði henni mátti ekki einu sinni segja eiginmanni sínum af þessu. Það var Björn Malmquist sem fjallaði um þetta.

Spegillinn
Vantraust á matvælaráðherra, deilur í ESB og friðlýsingar og ágangur á ferðamannastöðum

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jun 20, 2024 19:45


Tillaga um vantraust á matvælaráðherra var felld í morgun. Aðeins eru nokkrar vikur síðan ríkisstjórnin í heild stóð af sér síka tillögu. Ráðherra segir tíma þingsins betur varið í annað en stjórnarliði sem sat hjá efast um erindi VG á þingi og segir eðlilegt að ráðherra sem misbeitir valdi sínu víki. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Jóhönnu Vigdísi Hjaltadóttur fréttakonu um málið og við heyrum brot úr málflutningi Bjarkeyjar Olsen Gunnarsdóttur og Jóns Gunnarssonar. Flokkadrættir og átök á Evrópuþinginu eftir kosningarnar um síðustu mánaðarmót draga dilk á eftir sér - ekki síst í hinum hefðbundna stólaleik um mikilvægustu embættin hjá Evrópusambandinu. Björn Malmquist talar frá Brussel. Áfangastaðir ferðamanna, sérstaklega inni á hálendinu, eru viðkvæmir fyrir ágangi í byrjun sumars og svo getur veðrið sett babb í bátinn. Í síðustu viku þurfti að loka að Dettifossi vegna þess hve mikil bleyta og krapi var á göngustígum. Þeir gátu verið varasamir en það var líka hætt við að svæðið træðist niður. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir viðIngu Dóru Hrólfsdóttur, sviðsstjóra hjá Umhverfisstofnun, um friðlýsingar, ástand og heildarstefnu um friðlýsta ferðamannastaði. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon

bj magn brussel vg evr herra umsj vigd matv malmquist anna krist hjaltad umhverfisstofnun
Spegillinn
Hvalveiðar og þingkosningar í Frakklandi

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jun 12, 2024 20:00


12. júní 2024 Forstjóri Hvals hf sagðist í morgun vera efins um að fyrirtækið myndi veiða hval á þessari vertíð vegna seinagangs matvælaráðherra. Andrés Ingi Jónsson, þingmaður Pírata, telur orð forstjórans vera viðbrögð við minni eftirspurn á Japansmarkaði og Þórarinn Ingi Pétursson, formaður atvinnuveganefndar Alþingis, segir Hval hafa nægan tíma til stefnu. Freyr Gígja Gunnarsson ræðir við þá. Innan við þrír sólarhringar eru liðnir frá því Emmanuel Macron, forseti Frakklands, boðaði óvænt til þingkosninga sem hefjast um næstu mánaðarmót, og kosningabaráttan, með alls kyns vendingum og átökum franskra stjórnmálaflokka - er komin í fullan gang. Macron kom fram á blaðamannafundi í morgun, þar sem hann hvatti lýðræðissinnaða flokka til að sameinast gegn því sem hann kallaði öfgaöfl, og skömmu síðar ákvað stjórn Repúblikanaflokksins að sparka sitjandi forseta flokksins, eftir að hann vildi ganga til samstarfs við Þjóðfylkingu Marine Le Pen. Björn Malmquist segir frá. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred

Spegillinn
Grindavík, Evrópuþingkosningar, Úkraína og Rússland

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jun 5, 2024 20:00


5. júní 2024 Það eru um sjö mánuðir síðan Grindavík var rýmd, jarðhræringarnar halda áfram og verkefnin sem við blasa eru mörg og krefjandi. Atvinnu- og húsnæðismálin kannski mest aðkallandi segir Árni Þór Sigurðsson, formaður nýrrar framkvæmdanefndar um málefni Grindavíkur, í viðtali við Önnu Kristínu Jónsdóttur. Um þrjú hundruð og sjötíu milljónir eru á kjörskrá fyrir kosningar til Evrópuþingsins sem hefjast á morgun og standa fram á sunnudag. Þingið var í upphafi valda- og áhrifalítið en hefur í seinni tíð fengið aukið vægi innan Evrópusambandsins. Búist er við að harðlínu-hægriflokkar auki fylgi sitt í kosningunum, þótt líklegt sé talið að hófsamir miðjuflokkar haldi meirihluta. Björn Malmquist, fréttamaður RÚV í Brussel, segir frá. Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, gefur lítið fyrir leiðtoga- og friðarráðstefnu vegna stríðsins í Úkraínu, sem sem haldin verður í Sviss um miðjan mánuð, og varar Frakka við því, að sendi þeir franska hernaðarsérfræðinga til Úkraínu til að þjálfa þarlenda hermenn í notkun franskra og vestrænna vopna, þá teljist þeir lögmæt skotmörk rússneska hersins. Ævar Örn Jósepsson fjallar um ráðstefnuna og afstöðu Rússa. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon

Spegillinn
Forsetaframboð, Georgía og kaffihús á Þingvöllum

Spegillinn

Play Episode Listen Later May 16, 2024 20:00


16. maí 2024 Viðtöl Spegilsins við frambjóðendur til embættis forseta Íslands halda áfram. Í þessum þætti ræðir Freyr Gígja Gunnarsson við Höllu Hrund Logadóttur. Utanríkisráðherrar Íslands og þriggja Evrópusambandsríkja; Eistlands, Lettlands og Litáens, héldu til Georgíu í gær til að ræða við ráðamenn úr stjórn og stjórnarandstöðu og sýna samstöðu með þeim sem mótmælt hafa umdeildum lögum sem Georgíuþing samþykkti í vikunni. Rætt er við Björn Malmquist, fréttaritara RÚV í Brussel, um afstöðu ESB til málsins og líkindi ástandsins í Georgíu nú með ástandinu í Úkraínu 2014. Þingvallanefnd hefur forkaupsrétt að öllum sumarhúsum innan þjóðgarðsins sem fara á markað. Oftast eru þetta gömul og illa farin hús sem flest eru fjarlægð og ekkert byggt í staðinn. Það vakti því nokkra athygli þegar nefndin ákvað síðasta sumar að nýta forkaupsrétt að einu elsta sumarhúsi þjóðgarðsins, en rífa það ekki - að minnsta kosti ekki strax. Freyr Gígja Gunnarsson ræðir við Einar Ágúst Sæmundsen þjóðgarðsvörð um hugmyndir sem uppi eru um að opna aftur kaffihús í þjóðgarðinum. Umsjónarmaður: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred

Heimskviður
182 - Baby Reindeer og skæð fuglaflensa

Heimskviður

Play Episode Listen Later May 4, 2024 38:08


Sjónvarpsþættirnir Baby Reindeer njóta mikilla vinsælda hér á landi og eru þeir vinsælustu á streymisveitunni Netflix um þessar mundir. Þættirnir segja sanna sögu ungs manns sem lendir í eltihrelli. Ólöf Ragnarsdóttir skoðaði fyrirbærið og þættina vinsælu. Skæð fuglaflensa, eða H5N1 eins og núverandi afbrigði er kallað, er vaxandi áhyggjuefni meðal heilbrigðisyfirvalda víða um heim. Vísbending er um að vírusinn sem veldur flensunni hafi mögulega stökkbreyst og geti smitast milli spendýra. Það eru fjölmörg dæmi um að fólk hafi smitast af fuglaflensu og dánartíðnin er uggvænleg; af 889 tilfellum um smit í fólki síðustu 12 mánuði dóu fjögur hundruð sextíu og þrír, eða rúmlega helmingur, sagði yfirmaður hjá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni um miðjan þennan mánuð. Björn Malmquist skoðaði málið.

Spegillinn
Manndrápsmál í Landsrétti, hátækni-sorpbrennsla á Íslandi og innri markaður ESB og EES

Spegillinn

Play Episode Listen Later Apr 18, 2024 20:00


18. apríl 2024 Landsréttur skoðar hvort formgalli í máli hjúkrunarfræðings sem var sýknaður af manndrápsákæru eigi að leiða til þess að sýknudómurinn verði ómerktur og málinu vísað aftur til héraðs. Ákæruvaldið telur sig geta krafist þess að hjúkrunarfræðingurinn verði til vara dæmdur fyrir manndráp af gáleysi, en verjandi hennar segir ekki hægt að skipta um hest í miðri á. Freyr Gígja Gunnarsson segir frá. Byrjað er að draga úr urðun sorps í Álfsnesi og lög kveða á um að hætta skuli urðun að fullu, alstaðar á landinu, sem kallar á að önnur lausn verði fundin fyrir allan þann úrgang sem til fellur og ekki er hægt að endurvinna með einhverjum hætti. Þegar er byrjað að flytja þennan úrgang til Svíþjóðar, þar sem hann er brenndur og orkan úr brennslunni nýtt í fjarvarmaveitu. Í dag kom út skýrsla starfshóps um fýsileika þess að reisa svokallaða hátækni-sorpbrennslu hér á landi. Ævar Örn Jósepsson ræðir við Helga Þór Ingason prófessor og verkefnastjóra, sem fór fyrir starfi skýrsluhöfunda. Innri markaður Evrópusambandsins og EES ríkjanna þarf að taka viðamiklum breytingum, svo efnahagslíf álfunnar dragist ekki enn frekar aftur úr gagnvart samkeppnisaðilum á borð við Bandaríkin og Kína. Þetta er megin niðurstaða nýrrar skýrslu sem kynnt var á leiðtogafundi Evrópusambandsins í Brussel í dag. Auka þarf samþættingu og víkka út markaðinn, svo hann nái yfir geira sem hingað til hafa verið á forræði einstakra ríkja. Björn Malmquist segir frá. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred

Heimskviður
175 - Fólksfækkun í Japan og sprengjuleit í Úkraínu

Heimskviður

Play Episode Listen Later Mar 16, 2024 36:18


Fólksfækkun í Japan er mun hraðari en gert var ráð fyrir og hefur mikil áhrif á samfélagið. Tölur um fjölda barna sem fæddust í Japan í fyrra voru gefnar út á dögunum og urðu víða fréttaefni. Mörgum var brugðið því fólksfækkunin þar í landi hefur orðið hraðari en spár gerðu ráð fyrir. Árið 1983 fæddist ein og hálf milljón barna í Japan. Í fyrra voru þau helmingi færri. Afleiðingar fólksfækkunarinnar eru margar. Til dæmis hefur fjölda grunnskóla verið lokað því nemendum fækkar hratt. Dagný Hulda Erlendsdóttir kynnti sér þetta og ræddi við sendiherra Japans á Íslandi og við ritstjóra The Japan Times. Þegar byssurnar þagna í Úkraínu, hvenær sem af því verður, bíður risavaxið og áralangt verkefni Úkraínumanna; að leita að og eyða sprengikúlum, jarðsprengjum, sprengigildrum og leyfum af þessum hergögnum sem fallið hafa á landið, eða verið komið þar fyrir, síðan allsherjarinnrás Rússa hófst fyrir rúmum tveimur árum. 150.000 ferkílómetrar lands eru talin vera mögulega "menguð" í þessum skilningi - fjórðungur af öllu landi innan landamæra Úkraínu. En á sama tíma og barist er í austur- og suðurhluta landsins, er vinna við sprengjuleit og sprengjueyðingu þegar hafin - alþjóðasamfélagið hefur lagt til fjármagn, tækjabúnað og þjálfun. Íslenskir sprengjusérfræðingar hafa einmitt verið að kenna úkraínskum hermönnum þessa hættulegu starfsgrein á námskeiðum í Litáen. Við fjölluðum um undirbúninginn í Heimskviðum fyrir hálfu öðru ári en núna er komin tólf mánaða reynsla á þetta verkefni. Björn Malmquist fer yfir þann árangur sem hefur náðst og hvernig þetta flókna verkefni gengur.

Spegillinn
Raforkuöryggi og virkjanir, rússneskt fé í aðstoð við Úkraínu og fólksfækkun í S-Kóreu

Spegillinn

Play Episode Listen Later Feb 28, 2024 20:00


28. febrúar 2024 Allnokkrar umsagnir bárust í Samráðsgátt stjórnvalda um fyrirhugaðar breytingar á orkulögum, sem miðuðust að því að tryggja forgang heimila og minni raforkunotenda að rafmagni, ef til skömmtunar kæmi, á kostnað stórnotenda. Sumar umsagnir voru jákvæðar, aðrar neikvæðar, en eitt voru nánast allir umsagnaraðilar þó sammála um: Til að tryggja raforkuöryggi og nægt framboð þarf að virkja meira. Því er Halla Hrund Logadóttir orkumálastjóri í sjálfu sér ekki ósammála, en þar með er vandinn ekki leystur. Ævar Örn Jósepsson ræðir við orkumálastjóra. Rússar gætu endað á því að greiða að stórum hluta fyrir enduruppbyggingu í Úkraínu og jafnvel fyrir vopnasendingar þangað. Það veltur á áformum vestrænna ríkja að nota um þrjú hundruð milljarða evra sem rússnesk stjórnvöld eiga - en eru frystar í bankastofnunum beggja vegna Atlantshafsins. Stærstur hluti þessara fjármuna liggur á reikningum fjármálastofnunar í Brussel. Björn Malmquist segir frá. Áhyggjur stjórnvalda í Suður-Kóreu af sílækkandi fæðingartíðni hafa ratað í fréttir um árabil - og enn aukast áhyggjurnar. Samkvæmt nýrri samantekt hagstofunnar í Seúl dróst hún saman um hátt í átta prósent í fyrra frá árinu á undan. Þetta þýðir að fjöldi barna sem hver suðurkóresk kona eignast á lífsleiðinni er kominn niður í 0,72 en var 0,78 börn árið 2022. Útlit er fyrir að að óbreyttu lækki fæðingartíðnin niður í 0,68 börn á þessu ári. Þetta þýðir að þjóðinni fækkar nokkuð mikið og nokkuð hratt. Ásgeir Tómasson segir frá. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon

Heimskviður
172 - Mannát og Ungverjaland

Heimskviður

Play Episode Listen Later Feb 17, 2024 42:35


Verið er að sýna leikritið Kannibalen hér á landi sem er byggt á sönnum atburðum. Í stuttu máli fjallar það um mann sem langar til að borða annan mann og kemst í kynni við mann sem vill láta borða sig. Þrátt fyrir að það sé ekkert blóð í leikritinu þá eru lýsingarnar í því ítarlegar. Á frumsýningu verksins í Danmörku ældi áhorfandi og hér á landi féll einn í yfirlið. En sem fyrr segir þá er þetta saga sem gerðist í raun og veru og það fyrir ekki svo löngu. Dagný Hulda Erlendsdóttir skoðaði þá sögu og einnig sögu mannáts í mannkynssögunni. Við vörum viðkvæma við lýsingum í umfjölluninni hér á eftir. Stjórnvöld í Ungverjalandi hafa um árabil staðið í stappi við framkvæmdastjórn Evrópusambandsins sem ítrekað hefur farið fram á endurbætur á ungversku réttarkerfi, stöðu fjölmiðla og gagnrýnt setningu laga sem sögð eru skerða almenn réttindi og jafnvel mannréttindi. Nýjasta dæmið er áminning sem framkvæmdastjórnin sendi í síðustu viku vegna nýrrar stofnunar í Búdapest sem ætlað að rannsaka meintar ógnir gegn fullveldi Ungverjalands. Gagnrýnendur segja að stofnunin eigi að rannsaka fólk og samtök sem stjórnvöldum eru ekki þóknanleg, og þagga þannig niður í stjórnarandstæðingum. Einn angi af þessum deilum tengist sjóði sem EES ríkin, Ísland, Noregur og Lichtenstein reka, og kallast Uppbyggingarsjóðurinn - þessi sjóður styrkir alls konar þróunarverkefni í fimmtán fátækari ríkjum Evrópusambandsin, þar á meðal Ungverjalandi en deilur sjóðsins við stjórnvöld í Búdapest, sem hófust árið 2014, hafa leitt til þess að undanfarin ár hefur verið skrúfað fyrir öll framlög til Ungverjalands. Björn Malmquist hefur kynnt sér þessa sögu.

Spegillinn
Ísland og NATO, eldgosataktur og kreppa í Bretlandi

Spegillinn

Play Episode Listen Later Feb 15, 2024 19:54


Bjarni Benediktsson utanríkisráðherra segir það slæm - og röng skilaboð, sem Donald Trump fyrrverandi forseti Bandaríkjanna sendi um helgina, þegar hann sagði að undir sinni stjórn myndu Bandaríkin ekki koma þeim NATO-ríkjum til varnar, sem ekki hefðu varið nægu fé til varnarmála. Þessi umræða var í bakgrunni tveggja daga fundar varnarmálaráðherra NATO sem Bjarni sat fyrir hönd Íslands. Björn Malmquist fréttamaður í Brussel ræddi við Bjarna eftir fundinn. Ef kvika heldur áfram að safnast saman undir Svartsengi með sama hraða og nú má gera ráð fyrir að í lok febrúar eða í byrjun mars aukist líkur á kvikuhlaupi eða eldgosi verulega, samkvæmt tilkynningu Veðurstofunnar fyrr í dag. Stöndum við mögulega frammi fyrir því að það gæti gosið á þessum slóðum á þriggja vikna fresti mánuðum saman? Ragnhildur Thorlacius fréttamaður spurði Halldór Geirsson dósent við Jarðvísindadeild HÍ að því. Efnahagskreppa er skollin á í Bretlandi. Enginn hagvöxtur mældist þar í níu mánuði í fyrra og raunar samdráttur á síðari hluta ársins. Hann var núll komma þrjú prósent síðustu þrjá mánuði ársins, núll komma eitt prósent næstu þrjá mánuðina þar á undan og stóð á núlli í apríl, maí og júní. Ásgeir Tómasson fjallar um málið.

Spegillinn
Palestína, stuðningur ESB við Úkraínu og yfirmaður Úkraínuhers

Spegillinn

Play Episode Listen Later Feb 1, 2024 20:46


1. febrúar 2024 Sögulegar og pólitískar ástæður fyrir því að palestínska flóttamannahjálpin er að mestu fjármögnuð af nokkrum öflugum Vesturlöndum. Það gildir líka um ástæður þess að hin vellauðugu olíuríki við Persaflóann skuli ekki einfaldlega taka við keflinu undir þeim aðstæðum sem nú eru uppi, og líka því, að Egyptar vilja ekki opna landamærin að Gaza og taka á móti þeim milljónum Palestínumanna sem þar búa við sárustu neyð. Magnús Þorkell Bernharðsson heldur áfram að skýra nokkrar helstu flækjurnar í þeirri skelfilegu stöðu sem uppi er fyrir botni Miðjarðarhafs. Ungverjar létu í dag af andstöðu sinni við áframhaldandi stuðning Evrópusambandsins við stríðsrekstur Úkraínumanna gegn Rússum. Á þessu er fyrst og fremst ein skýring að mati stjórnmálaskýrenda: Viktor Orban, forseti Ungverjalands, taldi sig ekki komast lengra í andófi sínu gegn stefnu ESB í þessu máli og lúffaði, til að tryggja landi sínu þá 50 milljarða Evra, sem Ungverjar hafa ekki fengið úthlutað úr þróunarsjóði sambandsins. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Björn Malmquist, fréttaritara RÚV í Brussel. Fjölmiðlar í Úkraínu hafa síðustu daga fullyrt og vitnað í ónafngreinda heimildarmenn innan stjórnkerfisins að Volodymyr Zelensky forseti vilji losna við Valerii Zaluzhny hershöfðingja sem æðsta yfirmann hersins. Nokkrir þingmenn á úkraínska þinginu hafa einnig gefið í skyn að yfirmannaskipti liggi í loftinu og Zaluzhny hafi verið boðið að taka við stjórn Þjóðaröryggis- og varnarmálaráðs landsins. Ásgeir Tómasson segir frá. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon

Heimskviður
169 - Íþróttaþvætti Sádi Araba og kosningaeftirlit ÖSE

Heimskviður

Play Episode Listen Later Jan 27, 2024 41:13


Yfirvöld í einræðisríkinu Sádi-Arabíu eru sökuð um íþróttaþvætti (sportswashing á ensku) með því að setja fjármuni í íþróttir víða um heim til að bæta ímynd sína. Þetta hefur víða heppnast vel frá þeirra sjónarhóli. Eitt dæmi um þetta er að síðasta sumar komu margir af bestu knattspyrnumönnum heims í lið í sádiarabísku deildinni gegn himinháum launum. Sú tilraun virðist ekki ganga vel og farið er að bera á ósætti og jafnvel brotthvarfi leikmanna. Hallgrímur Indriðason skoðar ástæðurnar fyrir því, og hvaða áhrif það hefur. Meira en helmingur af heimsbyggðinni gengur að kjörborðinu á þessu ári, rúmlega fjórir milljarðar manna. En þrátt fyrir það á lýðræðið mjög undir högg að sækja, því víða er ekki gert nóg til að tryggja frjálsar og sanngjarnar kosningar. Kjördagur er bara toppurinn á ísjakanum, fyrir þau sem fylgjast með og hafa eftirlit með kosningum í aðildarríkjum ÖSE - Öryggis og samvinnustofnunar Evrópu. Þetta eru þau sammála um, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrum yfirmaður hjá ÖSE, og Albert Jónsson, fyrrum sendiherra í þessari umfjöllun Björns Malmquist. Undanfarin ár hafa þau bæði leitt hópa sérfræðinga sem aðildarríki samtakanna hafa boðið að koma og meta undirbúning og framkvæmd kosninga, en ekki síður hvort stjórnvöld í viðkomandi ríki sjái til þess að stjórnmálaflokkar hafi jöfn tækifæri til að koma sínum málstað á framfæri; hvort kjósendur hafi forsendur til að taka upplýsta ákvörðun. Með öðrum orðum: hvort lýðræðið virkar.

Spegillinn
Grindavík, fjarskiptaöryggi við umheiminn, Hútar og ökklabönd á ofsækjendur kvenna

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jan 18, 2024 20:54


Grindavík er hættulegur staður og verður það áfram næstu mánuði og líklega ár. Um þetta eru flestir jarðvísindamenn landsins sammála. Viðvarandi skjálftavirkni og hætta á fyrirvaralitlum eldgosum, gamlar sprungur sem hafa gliðnað og dýpkað og nýjar sprungur sem eru jafnvel ósýnilegar þar til einhverjum verður á að stíga fæti á örþunnt jarðlagið sem hylur þær gera bæinn í raun óbyggilegan eins og er, og illmögulegt er að spá fyrir um það, hvenær þetta breytist til hins betra. Ákall Grindvíkinga eftir aðgerðum stjórnvalda til að tryggja þeim öruggt húsnæði og forða þeim frá gjaldþroti vegna tvöfalds húsnæðiskostnaðar fer hækkandi eftir að þetta lá endanlega fyrir í kjölfar gossins í bænum 14. janúar. Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir ræðir við Sigurð Inga Jóhannsson innviðaráðherra. Samningaviðræður Íslendinga um aðkomu að nýju öryggisfjarskiptakerfi Evrópusambandsins hefjast innan skamms. Með þessu stendur til að tryggja aðgengi, til dæmis að samskiptum við útlönd og netþjónustu ef innviðir á borð við sæstrengi rofna eða verða fyrir skemmdum. Gerðist það í dag myndi íslenskt samfélag að mestu detta úr sambandi við umheiminn. Björn Malmquist tók pistilinn saman. Nokkur stór skipafélög eru tímabundið hætt að láta kaupskip sín sigla um hið hernaðarlega mikilvæga Bab el Mandeb sund, inn á Rauðahaf, um Súezskurð og til Evrópu eftir að vígamenn húta í Jemen hófu að ráðast á þau með flugskeytum og drónum. Þeir hafa lýst yfir stuðningi við Hamas samtökin á Gaza í baráttu þeirra við Ísraelsher og heitið því að stöðva öll skip sem þeir telja að sigli með vörur um Rauðahaf til Ísraels. En hverjir eru Hútar? Ásgeir Tómasson segir frá. Í Noregi stendur til að rýmka heimildir lögreglu til að láta þá sem ítrekað rjúfa nálgunarbann bera öklaband og takmarka þannig ferðafrelsi þeirra. Þetta er svokallaður fyrirbyggjandi neyðarhnappur. Krafan um að beita þessu úrræði hefur verið háværi í Noregi eftir tíð morð og ofbeldi í nánum samböndum í upphafi þessa árs. Nýjar heimildir til lögreglu eiga að vera tilbúnar fyrir vorið. Gísli Kristjánsson segir frá.

Spegillinn
Bara tveir í fjölskipuðu loftslagsráði, löggjöf um gervigreind, kínversk stjórnvöld vara við sjálfstæðissinna

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jan 11, 2024 20:04


Í lögum um loftslagsmál segir að starfrækja skuli loftslagsráð, sem hafi það meginhlutverk að veita stjórnvöldum aðhald og ráðgjöf um stefnumarkandi ákvarðanir og markmið Íslands sem tengjast loftslagsmálum. Loftslagsráð hefur verið giska duglegt að ráðleggja stjórnvöldum á þeim fimm árum sem það hefur starfað. En þótt formaður og varaformaður nýs loftslagsráðs hafi verið skipaðir í september síðastliðnum hefur eiginlegt, fjölskipað loftslagsráð ekki verið starfandi frá því að skipunartími síðasta ráðs rann út í ágústlok í fyrra og ekki útlit fyrir að það breytist næstu vikurnar hið minnsta. Lagabálkur um gervigreind sem nú er á lokametrunum hjá Evrópusambandinu er fyrsta tilraunin til að setja einhvern ramma utan um þessa tækni sem óðum er að ryðja sér til rúms. Björn Malmquist fréttamaður í Brussel hefur kynnt sér þennan lagabálk og settist á dögunum niður með íslenskum sérfræðingi sem fylgst hefur með því hvernig lögin urðu til. Hernaðarumsvif kínverska hersins umhverfis eyjuna Taívan að undanförnu eru talin vera vísbending til kjósenda um að velja rétt í forsetakosningunum þar í landi á laugardag. Kínversk stjórnvöld vara kjósendur á Taívan við að frambjóðandi Lýðræðislega framfaraflokksins verði kjörinn.Hann sé varhugaverður sjálfstæðissinni.

Spegillinn
Kjaraviðræður, Úkraínustríðið og málefni flóttafólks í ESB

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jan 3, 2024 20:00


3. janúar 2024 Samhljómur og bjartsýni ríkir um gerð kjarasamnings SA og breiðfylkingar landssambanda ASÍ. Ætlunin er að semja til langs tíma og þannig að innistæða sé fyrir því - segir Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífisins. Arnar Björnsson fréttamaður ræddi við hana og Ragnar Þór Ingólfsson formann VR eftir fundinn í dag. Ragnar segir að stjórnvöld þurfi að fara að gefa út yfirlýsingar um að þau ætli að taka þátt - annars sé vinna samninganefnda ekki til neins. Þegar horft er yfir nýliðið ár virðist einhvers konar pattstaða komin upp í Úkraínustríðinu, sem hófst með innrás Rússa í Úkraínu fyrir tæpum tveimur árum. Boðaðar voru og lagt upp í hinar og þessar sóknir og gagnsóknir á víxl og fólk var drepið í tugþúsundatali. En það er ekki að sjá að neinar stórar breytingar hafi orðið á vígstöðunni frá því um síðustu áramót. Ævar Örn fékk Erling Erlingsson, hernaðarsagnfræðing, til að rýna í stöðuna og mögulegt framhald. Vel á fjórða hundrað þúsund farand- og flóttamenn reyndu í fyrra að komast inn fyrir landamæri Evrópusambandsins - álíka tölur hafa ekki sést síðan 2016. Deildar meiningar um meðferð og móttöku þessa fólks eiga að líkindum eftir að einkenna umræðuna í aðdraganda kosninganna til Evrópuþingsins í júní, ekki síst eftir að sögulegt samkomulagt náðist fyrir nokkrum vikum um nýja skipan þessara mála innan Evrópusambandsins. Björn Malmquist fer yfir málið. Umsjónarmaður: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Markús Hjaltason

Spegillinn
Kjaraviðræður, Úkraínustríðið og málefni flóttafólks í ESB

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jan 3, 2024


3. janúar 2024 Samhljómur og bjartsýni ríkir um gerð kjarasamnings SA og breiðfylkingar landssambanda ASÍ. Ætlunin er að semja til langs tíma og þannig að innistæða sé fyrir því - segir Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífisins. Arnar Björnsson fréttamaður ræddi við hana og Ragnar Þór Ingólfsson formann VR eftir fundinn í dag. Ragnar segir að stjórnvöld þurfi að fara að gefa út yfirlýsingar um að þau ætli að taka þátt - annars sé vinna samninganefnda ekki til neins. Þegar horft er yfir nýliðið ár virðist einhvers konar pattstaða komin upp í Úkraínustríðinu, sem hófst með innrás Rússa í Úkraínu fyrir tæpum tveimur árum. Boðaðar voru og lagt upp í hinar og þessar sóknir og gagnsóknir á víxl og fólk var drepið í tugþúsundatali. En það er ekki að sjá að neinar stórar breytingar hafi orðið á vígstöðunni frá því um síðustu áramót. Ævar Örn fékk Erling Erlingsson, hernaðarsagnfræðing, til að rýna í stöðuna og mögulegt framhald. Vel á fjórða hundrað þúsund farand- og flóttamenn reyndu í fyrra að komast inn fyrir landamæri Evrópusambandsins - álíka tölur hafa ekki sést síðan 2016. Deildar meiningar um meðferð og móttöku þessa fólks eiga að líkindum eftir að einkenna umræðuna í aðdraganda kosninganna til Evrópuþingsins í júní, ekki síst eftir að sögulegt samkomulagt náðist fyrir nokkrum vikum um nýja skipan þessara mála innan Evrópusambandsins. Björn Malmquist fer yfir málið. Umsjónarmaður: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Markús Hjaltason

Spegillinn
Úkraínu boðið í viðræður, hryðjuverkaárás afstýrt, landsbyggðarstrætó

Spegillinn

Play Episode Listen Later Dec 14, 2023 20:00


Leiðtogaráð Evrópusambandsins ákvað undir kvöld að bjóða Úkraínu og Moldóvu að hefja viðræður um aðild að sambandinu. Þetta var tilkynnt á fundi leiðtoganna sem nú stendur yfir í Brussel. Fyrirfram hafði verið búist við að Viktor Orban, forsætisráðherra Ungverjalands myndi standa í vegi fyrir þessari ákvörðun. Rætt var við Björn Malmquist sem hefur fylgst með fundinum. Danska lögreglan telur sig hafa komið í veg fyrir hryðjuverkaárás með umfangsmiklum aðgerðum víða um landið í rauðabítið í morgun. Þrír eru í haldi í Danmörku og einn í Hollandi. Notkun Strætó utan höfuðborgarinnar minnkaði um tæpan helming í heimsfaraldrinum og hefur gengið erfiðlega að fjölga farþegum síðan. Framkvæmdastjóri Vegagerðarinnar segist þó vongóð, þar sem þau sjái hægan vöxt milli ára. Umsjónarmaður Spegilsins var Ragnhildur Thorlacius. Tæknimaður var Mark Eldred.

Spegillinn
Úkraínu boðið í viðræður, hryðjuverkaárás afstýrt, landsbyggðarstrætó

Spegillinn

Play Episode Listen Later Dec 14, 2023


Leiðtogaráð Evrópusambandsins ákvað undir kvöld að bjóða Úkraínu og Moldóvu að hefja viðræður um aðild að sambandinu. Þetta var tilkynnt á fundi leiðtoganna sem nú stendur yfir í Brussel. Fyrirfram hafði verið búist við að Viktor Orban, forsætisráðherra Ungverjalands myndi standa í vegi fyrir þessari ákvörðun. Rætt var við Björn Malmquist sem hefur fylgst með fundinum. Danska lögreglan telur sig hafa komið í veg fyrir hryðjuverkaárás með umfangsmiklum aðgerðum víða um landið í rauðabítið í morgun. Þrír eru í haldi í Danmörku og einn í Hollandi. Notkun Strætó utan höfuðborgarinnar minnkaði um tæpan helming í heimsfaraldrinum og hefur gengið erfiðlega að fjölga farþegum síðan. Framkvæmdastjóri Vegagerðarinnar segist þó vongóð, þar sem þau sjái hægan vöxt milli ára. Umsjónarmaður Spegilsins var Ragnhildur Thorlacius. Tæknimaður var Mark Eldred.

Spegillinn
Vatn og brauð á Gaza, fangelsismál, hælisleitendur til Rúanda

Spegillinn

Play Episode Listen Later Dec 5, 2023 20:00


Íbúar á Gaza nærast aðallega á vatni og brauði, segir Gréta Gunnarsdóttir yfirmaður sendiskrifstofu Palestínuflóttamannaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna - UNWRA í New York. Horfur eru á UNWRA geti héðan í frá aðeins dreift einum lítra af vatni til hvers flóttamanns á Gaza. 80 prósent íbúanna eru á vergangi. Í úttekt Ríkisendurskoðunar um Fangelsismálastofnun voru gerðar alvarlegar athugasemdir við illa farinn og heilsuspillandi húsakost á Litla-Hrauni, ónóga mönnun til að tryggja öryggi fanga og fangavarða og fulla nýtingu afplánunarrýma, sem meðal annars hefur leitt til þess að refsingar hátt í þrjú hundruð dæmdra brotamanna féllu niður. Alvarlegustu athugasemdirnar lúta flestar að málum á könnu dómsmálaráðuneytisins. Björn Malmquist fréttamaður ræddi við Guðrúnu Hafsteinsdóttur dómsmálaráðherra. Bretar hafa enn ekki gefist upp á að losa sig við hælisleitendur með því að senda þá til Rúanda, þrátt fyrir að hæstiréttur landsins hafi komist að þeirri niðurstöðu að lögum samkvæmt megi ekki senda þá þangað. Á föstudaginn var Repúblikaninn George Santos rekinn af Bandaríkjaþingi í skugga fjölda ásakana um lygar, fjármálamisferli og fleira. Hann gæti átt yfir höfði sér fangelsisdóm. Umsjónarmaður Spegilsins var Ragnhildur Thorlacius. Hljóðmaður var Kári Guðmundsson.

Spegillinn
Vatn og brauð á Gaza, fangelsismál, hælisleitendur til Rúanda

Spegillinn

Play Episode Listen Later Dec 5, 2023


Íbúar á Gaza nærast aðallega á vatni og brauði, segir Gréta Gunnarsdóttir yfirmaður sendiskrifstofu Palestínuflóttamannaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna - UNWRA í New York. Horfur eru á UNWRA geti héðan í frá aðeins dreift einum lítra af vatni til hvers flóttamanns á Gaza. 80 prósent íbúanna eru á vergangi. Í úttekt Ríkisendurskoðunar um Fangelsismálastofnun voru gerðar alvarlegar athugasemdir við illa farinn og heilsuspillandi húsakost á Litla-Hrauni, ónóga mönnun til að tryggja öryggi fanga og fangavarða og fulla nýtingu afplánunarrýma, sem meðal annars hefur leitt til þess að refsingar hátt í þrjú hundruð dæmdra brotamanna féllu niður. Alvarlegustu athugasemdirnar lúta flestar að málum á könnu dómsmálaráðuneytisins. Björn Malmquist fréttamaður ræddi við Guðrúnu Hafsteinsdóttur dómsmálaráðherra. Bretar hafa enn ekki gefist upp á að losa sig við hælisleitendur með því að senda þá til Rúanda, þrátt fyrir að hæstiréttur landsins hafi komist að þeirri niðurstöðu að lögum samkvæmt megi ekki senda þá þangað. Á föstudaginn var Repúblikaninn George Santos rekinn af Bandaríkjaþingi í skugga fjölda ásakana um lygar, fjármálamisferli og fleira. Hann gæti átt yfir höfði sér fangelsisdóm. Umsjónarmaður Spegilsins var Ragnhildur Thorlacius. Hljóðmaður var Kári Guðmundsson.

Heimskviður
163| Stjórnarkreppa á Spáni og sextugar samsæriskenningar

Heimskviður

Play Episode Listen Later Nov 18, 2023


Stjórnarkreppan sem hefur verið á Spáni síðan í júlí leystist á fimmtudaginn þegar 179 þingmenn á spænska þinginu greiddu atkvæði með tillögu Pedros Sanchez, leiðtoga sósíalista, um meirihlutastjórn. Sanchez er þannig búinn að púsla saman átta flokka meirihluta og verður áfram forsætisráðherra Spánar - eftir umdeilt samkomulag við flokka aðskilnaðarsinna í Katalóníu. Það samkomulag snýst meðal annars um sakaruppgjöf fyrir þrjú til fjögur hundruð manns sem komu að atkvæðagreiðslu um sjálfstæði Katalóníu. En hvernig lítur þetta samkomulag út, um hvað er deilt og hver er forsagan? Björn Malmquist ræddi spænsk stjórnmál við Jóhann Hlíðar Harðarson sem hefur búið á Spáni síðustu ár og Montserrat Riba Cunill, sem er yfirmaður sendinefndar Katalóníu fyrir Norðurlönd og Eystrasaltslöndin. Þann 22.nóvember verða 60 ár liðin frá því að John F. Kennedy, þá forseti Bandaríkjanna, var skotinn til bana í Dallas í Texas í Bandaríkjunum. Í síðasta mánuði fjölluðu flestir stærstu bandarísku fjölmiðlanna um nýja bók leyniþjónustumanns sem var á staðnum þegar Bandaríkjaforsetinn var myrtur. Hann ákvað að gefa út endurminningar sínar sex áratugum eftir atburðinn, en frásögnin hefur enn og aftur þyrlað upp umræðu og kenningum um hver eða hverjir voru að verki þennan örlagaríka dag í Dallas. En af hverju er enn verið að skrifa fréttir um sannarlega sviplegt andlát Kennedys? Alls konar kenningar og samsæriskenningar hafa í gegnum tíðina verið viðloðandi umfjöllun um málið, sem sextíu árum síðar virðist enn tilefni til að fjalla um. Og það gerir Birta Björnsdóttir í þættinum með aðstoð Magnúsar Sveins Helgasonar, sagnfræðings og sérfræðings í bandarískri sögu. Umsjónarmenn þáttarins eru Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

Heimskviður
163| Stjórnarkreppa á Spáni og sextugar samsæriskenningar

Heimskviður

Play Episode Listen Later Nov 18, 2023 40:00


Stjórnarkreppan sem hefur verið á Spáni síðan í júlí leystist á fimmtudaginn þegar 179 þingmenn á spænska þinginu greiddu atkvæði með tillögu Pedros Sanchez, leiðtoga sósíalista, um meirihlutastjórn. Sanchez er þannig búinn að púsla saman átta flokka meirihluta og verður áfram forsætisráðherra Spánar - eftir umdeilt samkomulag við flokka aðskilnaðarsinna í Katalóníu. Það samkomulag snýst meðal annars um sakaruppgjöf fyrir þrjú til fjögur hundruð manns sem komu að atkvæðagreiðslu um sjálfstæði Katalóníu. En hvernig lítur þetta samkomulag út, um hvað er deilt og hver er forsagan? Björn Malmquist ræddi spænsk stjórnmál við Jóhann Hlíðar Harðarson sem hefur búið á Spáni síðustu ár og Montserrat Riba Cunill, sem er yfirmaður sendinefndar Katalóníu fyrir Norðurlönd og Eystrasaltslöndin. Þann 22.nóvember verða 60 ár liðin frá því að John F. Kennedy, þá forseti Bandaríkjanna, var skotinn til bana í Dallas í Texas í Bandaríkjunum. Í síðasta mánuði fjölluðu flestir stærstu bandarísku fjölmiðlanna um nýja bók leyniþjónustumanns sem var á staðnum þegar Bandaríkjaforsetinn var myrtur. Hann ákvað að gefa út endurminningar sínar sex áratugum eftir atburðinn, en frásögnin hefur enn og aftur þyrlað upp umræðu og kenningum um hver eða hverjir voru að verki þennan örlagaríka dag í Dallas. En af hverju er enn verið að skrifa fréttir um sannarlega sviplegt andlát Kennedys? Alls konar kenningar og samsæriskenningar hafa í gegnum tíðina verið viðloðandi umfjöllun um málið, sem sextíu árum síðar virðist enn tilefni til að fjalla um. Og það gerir Birta Björnsdóttir í þættinum með aðstoð Magnúsar Sveins Helgasonar, sagnfræðings og sérfræðings í bandarískri sögu. Umsjónarmenn þáttarins eru Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

Spegillinn
Stækkun ESB, líforkuver á Dysnesi, Rafah landamærastöðin

Spegillinn

Play Episode Listen Later Nov 8, 2023 20:00


Miðvikudagur 8. nóvember 2023 Úkraína og Moldóva gætu orðið næstu aðildarríki Evrópusambandsins, samkvæmt tillögum sem framkvæmdastjórn ESB lagði fram í dag. Björn Malmquist sagði frá. Hægt væri að taka á móti dýraleifum af öllu landinu til förgunar í líforkuveri sem fyrirhugað er að byggja norður í Eyjafirði. Kristín Helga Schiöth, talsmaður verkefnisins, segir að á Íslandi skorti innviði til að takast á við förgun dýraleifa á löglegan og ábyrgan hátt. Ágúst Ólafsson ræddi við hana. Rafah landamærastöðin á landamærum Egyptalands og Gaza er iðulega í fréttum. Henni hefur iðulega verið lokað, opnuð aftur og lokað enn á ný á liðnum árum og áratugum. Ásgeir Tómasson sagði frá. Umsjón: Ásgeir Tómasson. Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon.

Spegillinn
Stækkun ESB, líforkuver á Dysnesi, Rafah landamærastöðin

Spegillinn

Play Episode Listen Later Nov 8, 2023


Miðvikudagur 8. nóvember 2023 Úkraína og Moldóva gætu orðið næstu aðildarríki Evrópusambandsins, samkvæmt tillögum sem framkvæmdastjórn ESB lagði fram í dag. Björn Malmquist sagði frá. Hægt væri að taka á móti dýraleifum af öllu landinu til förgunar í líforkuveri sem fyrirhugað er að byggja norður í Eyjafirði. Kristín Helga Schiöth, talsmaður verkefnisins, segir að á Íslandi skorti innviði til að takast á við förgun dýraleifa á löglegan og ábyrgan hátt. Ágúst Ólafsson ræddi við hana. Rafah landamærastöðin á landamærum Egyptalands og Gaza er iðulega í fréttum. Henni hefur iðulega verið lokað, opnuð aftur og lokað enn á ný á liðnum árum og áratugum. Ásgeir Tómasson sagði frá. Umsjón: Ásgeir Tómasson. Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon.

Heimskviður
159| Landamæri og kosningar í Póllandi og söguslóðir bardaga í Belgíu

Heimskviður

Play Episode Listen Later Oct 21, 2023


Meðferð flóttafólks á landamærum Póllands og Belarús er eins og andstyggilegur borðtennisleikur, segir aðgerðarsinni sem hefur veitt mannúðaraðstoð á svæðinu. Við ætlum að fjalla um þetta ástand og nýafstaðnar kosningar í Póllandi sem fara líklega í sögubækurnar, ekki síst fyrir metkosningaþátttöku. Ólöf Ragnarsdóttir fór til Varsjár síðustu helgi og segir okkur frá. Stjórnvöld í velflestum ríkjum Evrópu hafa sameinast, undir hatti Evrópusambandsins og Atlantshafsbandalagsins, um að styðja úkraínsk stjórnvöld og milljónir flóttafólks frá Úkraínu hafa fengið skjól í öðrum ríkjum. Innrásin hefur líka haft víðtæk áhrif á hvernig íbúar og stjórnvöld í Evrópuríkjum líta á öryggismál, Finnland lét af áratugalangri stefnu um hlutleysi og fékk aðild að NATO, og Svíþjóð er á sömu vegferð þangað. Háværar raddir innan Evrópusambandsins þrýsta nú á um bjóða fleiri þjóðum, þar á meðal Úkraínu, í þennan klúbb sem upphaflega var stofnaður til að tryggja friðsamleg samskipti þjóða sem iðulega höfðu borist á banaspjótum, síðast fyrir um áttatíu árum. Að þeim tímapunkti ætlum við að beina sjónum okkar í þættinum í dag, nánar tiltekið til Belgíu, á vetrarmánuðum ársins 1944. Okkar maður í Brussel, Björn Malmquist, fór á söguslóðir einnar stærstu einstöku orystu Bandamanna í Evrópu, sem háð var í suðurhluta Belgíu, um það leyti sem jólin voru að ganga í garð fyrir sjötíu og níu árum. Umsjónarmenn þáttarins eru Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

Heimskviður
159| Landamæri og kosningar í Póllandi og söguslóðir bardaga í Belgíu

Heimskviður

Play Episode Listen Later Oct 21, 2023 40:00


Meðferð flóttafólks á landamærum Póllands og Belarús er eins og andstyggilegur borðtennisleikur, segir aðgerðarsinni sem hefur veitt mannúðaraðstoð á svæðinu. Við ætlum að fjalla um þetta ástand og nýafstaðnar kosningar í Póllandi sem fara líklega í sögubækurnar, ekki síst fyrir metkosningaþátttöku. Ólöf Ragnarsdóttir fór til Varsjár síðustu helgi og segir okkur frá. Stjórnvöld í velflestum ríkjum Evrópu hafa sameinast, undir hatti Evrópusambandsins og Atlantshafsbandalagsins, um að styðja úkraínsk stjórnvöld og milljónir flóttafólks frá Úkraínu hafa fengið skjól í öðrum ríkjum. Innrásin hefur líka haft víðtæk áhrif á hvernig íbúar og stjórnvöld í Evrópuríkjum líta á öryggismál, Finnland lét af áratugalangri stefnu um hlutleysi og fékk aðild að NATO, og Svíþjóð er á sömu vegferð þangað. Háværar raddir innan Evrópusambandsins þrýsta nú á um bjóða fleiri þjóðum, þar á meðal Úkraínu, í þennan klúbb sem upphaflega var stofnaður til að tryggja friðsamleg samskipti þjóða sem iðulega höfðu borist á banaspjótum, síðast fyrir um áttatíu árum. Að þeim tímapunkti ætlum við að beina sjónum okkar í þættinum í dag, nánar tiltekið til Belgíu, á vetrarmánuðum ársins 1944. Okkar maður í Brussel, Björn Malmquist, fór á söguslóðir einnar stærstu einstöku orystu Bandamanna í Evrópu, sem háð var í suðurhluta Belgíu, um það leyti sem jólin voru að ganga í garð fyrir sjötíu og níu árum. Umsjónarmenn þáttarins eru Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

The Express Rally Podcast
ER Podcast EP 80 - Adam Malmquist

The Express Rally Podcast

Play Episode Listen Later Oct 5, 2023 49:59


Welcome back to another great episode! We are brought to you by Garage Suites of Arkansas! And we have none other than the founder himself, Adam Malmquist on the show tonight! GSoA is designed for those who need more space to dedicate to their hobbies, more so than what their at-home garage (or spouse) would generally allow! Ranging in many configurations, GSoA is secure, convenient, private, and highly customizable! Tonight we talk about what GSoA has to offer, a bit about Adam's personal background, and what inspired him to take this on! Sit back, relax, crack open a cold one, and enjoy another great episode of the Express Rally Podcast! 

Heimskviður
156| Kjördagur í Slóvakíu og mistök lögreglu við leit að raðmorðingja

Heimskviður

Play Episode Listen Later Sep 30, 2023 40:00


Af öllum þeim kosningum sem fara fram í Evrópu í ár - og þær eru þó nokkrar - eru kosningarnar í Slóvakíu í dag með þeim áhugaverðustu. Skoðanakannanir benda til þess að fyrrverandi forsætisráðherra landsins, Robert Fico sem hrökklaðist úr embætti fyrir fimm árum, geti núna komist aftur til valda, og jafnvel tekið með sér öfgahægriflokka í samsteypustjórn. Í kosningabaráttunni hefur Fico ítrekað tekið upp málstað Rússa gagnvart Úkraínu og margt bendir til þess að utanríkisstefna Slóvaíku gæti tekið afdrifaríkum breytingum og jafnvel rofið skarð í samstöðu aðildarríkja Evrópusambandsins gagnvart innrás Rússa í Úkraínu. Kosningabaráttan í Slóvakíu hefur einnig markast af því sem kallað hefur verið upplýsingaóreiða - hundruð netmiðla í landinu pumpa út fölskum upplýsingum, og upplognum sögum og samsæriskenningum sem til dæmis styðja málstað Rússa. Margir leiðtogar stjórnmálaflokka hafa gripið þessar sögur á lofti og blásið þær upp - ekki síst vegna þess að stór hluti kjósenda er móttækilegur. Björn Malmquist hefur verið að fylgjast með kosningabaráttunni í Slóvakíu. Í vikunni voru frumsýndir í Bretlandi nýjir þættir sem fjalla um leit af raðmorðingja á áttunda áratugnum, leit sem er ein sú tímafrekasta og dýrasta í sögu lögreglunnar í Bretlandi. Þrátt fyrir ómælda vinnu lögreglunnar hefur hún verið harðlega gagnrýnd fyrir framgöngu sína í þessu máli, að hafa ekki tekið raðmorðingjann úr umferð fyrr. Hann var kallaður til yfirheyrslu níu sinnum á þeim fimm árum sem rannsóknin stóð yfir. Og það er ekki það eina sem lögreglan hefur verið gagnrýnd fyrir í þessu máli eins og við heyrum hér á eftir og rannsóknaraðferðum í Bretlandi var breytt eftir niðurstöðu skýrslu sem rannsakaði vinnubrögð lögreglu í þessu máli. Birta kynnti sér málið. Umsjónarmenn þáttarins eru Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

Heimskviður
156| Kjördagur í Slóvakíu og mistök lögreglu við leit að raðmorðingja

Heimskviður

Play Episode Listen Later Sep 30, 2023


Af öllum þeim kosningum sem fara fram í Evrópu í ár - og þær eru þó nokkrar - eru kosningarnar í Slóvakíu í dag með þeim áhugaverðustu. Skoðanakannanir benda til þess að fyrrverandi forsætisráðherra landsins, Robert Fico sem hrökklaðist úr embætti fyrir fimm árum, geti núna komist aftur til valda, og jafnvel tekið með sér öfgahægriflokka í samsteypustjórn. Í kosningabaráttunni hefur Fico ítrekað tekið upp málstað Rússa gagnvart Úkraínu og margt bendir til þess að utanríkisstefna Slóvaíku gæti tekið afdrifaríkum breytingum og jafnvel rofið skarð í samstöðu aðildarríkja Evrópusambandsins gagnvart innrás Rússa í Úkraínu. Kosningabaráttan í Slóvakíu hefur einnig markast af því sem kallað hefur verið upplýsingaóreiða - hundruð netmiðla í landinu pumpa út fölskum upplýsingum, og upplognum sögum og samsæriskenningum sem til dæmis styðja málstað Rússa. Margir leiðtogar stjórnmálaflokka hafa gripið þessar sögur á lofti og blásið þær upp - ekki síst vegna þess að stór hluti kjósenda er móttækilegur. Björn Malmquist hefur verið að fylgjast með kosningabaráttunni í Slóvakíu. Í vikunni voru frumsýndir í Bretlandi nýjir þættir sem fjalla um leit af raðmorðingja á áttunda áratugnum, leit sem er ein sú tímafrekasta og dýrasta í sögu lögreglunnar í Bretlandi. Þrátt fyrir ómælda vinnu lögreglunnar hefur hún verið harðlega gagnrýnd fyrir framgöngu sína í þessu máli, að hafa ekki tekið raðmorðingjann úr umferð fyrr. Hann var kallaður til yfirheyrslu níu sinnum á þeim fimm árum sem rannsóknin stóð yfir. Og það er ekki það eina sem lögreglan hefur verið gagnrýnd fyrir í þessu máli eins og við heyrum hér á eftir og rannsóknaraðferðum í Bretlandi var breytt eftir niðurstöðu skýrslu sem rannsakaði vinnubrögð lögreglu í þessu máli. Birta kynnti sér málið. Umsjónarmenn þáttarins eru Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.