POPULARITY
Símennt eru samtök fræðslu- og símenntunarmiðstöðva, en 11 símenntunarmiðstöðvar um allt land eiga aðild að samtökunum. Mikilvægt er að vinna að símenntun og framhaldsfræðslu á Íslandi þar sem lögð er áhersla á að efla þekkingu og hæfni einstaklingsins. Það er margt í boði fyrir fólk sem hefur t.d. hætt framhaldsskólanámi og vill bæta við sig, þá er í boði raunfærnismat sem hægt er að fá metna reynslu af vinnumarkaði. Við töluðum við Guðjónínu Sæmundsdóttur forstöðukonu miðstöðvar símenntunar á Suðurnesjum, hún er einnig formaður heildarsamtakanna. Eftir áramót byrjuðum við með það sem við köllum Fjármálin á mannamáli, þar sem Georg Lúðvíksson, sérfræðingur í fjármálum heimilanna, fræðir okkur um ýmsar hliðar á fjármálunum. Í dag sagði hann okkur frá áhugaverðri rannsókn frá Danmörku, þar sem kemur fram að danskir ellilífeyrisþæegar nýti sér afar lítið af ævisparnaði sínum á efri árum. Lesandi vikunnar í þetta sinn var Guðjón Friðriksson, sagnfræðingur og rithöfundur. Hann sendi frá sér tvær stórar og miklar bækur á síðasta ári. Annars vegar Rauði krossinn á Íslandi - hundrað ára saga og hins vegar Börn í Reykjavík. Við spurðum hann aðeins út í þessar bækur og fengum svo auðvitað að vita hvaða bækur hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Guðjón talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Móðurást e. Kristínu Ómarsdóttur Himintungl yfir heimsins ystu brún e. Jón Kalman Stefánsson Jörundur hundadagakonungur e. Sarah Bakewell Sögur Jóns Trausta, t.d. Anna frá Stóruborg, Sögur úr Skaftáreldum Tónlist í þættinum: January / Pilot (David Paton) June in January / Dean Martin (Ralph Rainger og Leo Robin) January / Elton John (Elton John & Bernie Taupin) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Í gær var tilkynnt að Ásta Fanney Sigurðardóttir verður fulltrúi Íslands á Feneyjatvíæringnum í myndlist árið 2026. Valið var tilkynnt við hátíðlega athöfn í Listasafni Íslands í gær þar sem kampavín og kaka komu við sögu. Við ræðum við Ástu Fanneyju í þætti dagsins. Fyrir skömmu sendu GDRN og Magnús Jóhann frá sér sönglagaplötuna Nokkur jólaleg lög. Á plötunni flytja þau þekkt jólalög og vetrarlög í lágstemmdum en einlægum útgáfum ásamt nokkrum góðum gestum. Tómas Ævar sest niður með þeim Magnúsi og Guðrúnu og ræðir við þau um gerð plötunnar. Við heyrum einnig rýni í nýja skáldsögu Halldórs Armand, Mikilvægt rusl, í þætti dagsins, en Sölvi Halldórsson hefur nýlokið við lesturinn. Og við fáum einnig ferðasögu frá Helsinki frá Trausta Ólafssyni, einn af leikhúsrýnum þáttar, en hann var þar í mikilli leikhúsreisu.
Nálgast má þáttinn í heild sinni án auglýsinga inn á; https://solvitryggva.is/ Reynir Traustason er einn reyndasti blaðamaður Íslandssögunnar. Hann hefur ritstýrt fjölmörgum fjölmiðlum og oft komist í fréttir fyrir að lenda upp á kant við valdhafa. Hér ræða Reynir og Sölvi um sjómennskuna, áratuga feril í fjölmiðlum, hvernig Reynir tók heilsu sína í gegn þegar hann óttaðist um líf sitt og margt fleira. Þátturinn er í boði; Ozon - https://www.ozonehf.is/ Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Outdoor Tactical Sport - https://www.otsport.is/ Gullfoss - https://gullfoss.is/ Fiskikóngurinn - https://www.facebook.com/fiskikongurinn.is/?locale=is_IS Heitirpottar.is - https://heitirpottar.is/ Kjötkompaní - https://kjotkompani.is/ H-Berg - https://hberg.is/
Í þætti dagsins heyrum við af upplifun Trausta Ólafssonar af gamanrokksöngleiknum Hark sem frumsýndur var í síðustu viku í Tjarnabíói. Síðan tekur svipmynd af Skáldakollektífunni Yrkjum við. Yrkjur er skáldakollektífa ungra kvenna sem stofnuð var í byrjun árs 2022. Markmið þeirra er að skapa samfélag þar sem ungir höfundar geta komið saman, lært hver af öðrum og komið sér á framfæri, hvort sem er á upplestrarkvöldum, í vinnustofum eða með bókaútgáfu. Yrkjur hófu starfsemi sínu með því að bjóða upp á ritsmiðju á Hátíðinni á Borðeyri en vöktu mikla athygli þegar þær hleyptu af stað ljóðakvöldum í Mengi síðasta vor þar sem ungskáld úr öllum áttum fengu tækifæri til að koma fram, tjá sig, prófa sig áfram og kynnast hvert öðru. Kollektífuna Yrkjur skipa þær Ása Þorsteinsdóttir, Eyrún Úa Þorbjörnsdóttir, Jana Björg Þorvaldsdóttir, Ragnheiður Guðjónsdóttir og Steinunn Kristín Guðnadóttir. Þær eiga það allar sameiginlegt að skrifa og leggja stund á nám allt frá bókmenntafræði yfir í ensku, frönsku, kennaranám og myndlist. Fyrir svipmynd dagsins fáum við tvo meðlimi kollektífunnar í hljóðstofu, þær Ásu Þorsteinsdóttur og Ragnheiði Guðjónsdóttur og ræðum við þær vítt og breitt um kollektífuna.
Í Svipmynd dagsins hittum við tvo meðlimi Sviðslistahópsins Óðs, þau Þórhall Auð Helgason og Sólveigu Sigurðardóttur, en hópurinn var á dögunum valin Listhópur Reykjavíkur fyrir árið 2024. Óður hefur það yfirlýsta markmið að útrýma þeim háa þröskuldi sem almennir áhorfendur upplifa við að horfa á óperur. Þau neitar að geyma óperur í glerkössum og vilja miklu frekar taka þær upp, hrista af þeim rykið og leika sér að þeim. Einnig heyrum við rýni Trausta Ólafssonar á sviðslistaverkinu Moltu eftir danshöfundinn Rósu Ómarsdóttur sem frumsýnt var í Gerðarsafni síðustu viku. Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson
Í Gerðarsafni var fyrsti fasi sjónlistasýningarinnar Venjulegir staðir opnaður um síðustu helgi. Venjulegir staðir er sýning þar sem sjónarhorn ljósmyndarinnar er kannað með verkum sem vísa í staðleysur, hversdagsleika og brenglun hans. Við ræðum við ljósmyndarann Ívar Brynjólfsson og sýningarstjórann Brynju Sveinsdóttur í þættinum. Einnig fáum við að heyra hvað Trausta Ólafssyni finnst um nýtt íslenskt Dansverk; Árstíðirnar sem frymsýnt var í Borgarleikhúsinu um helgina. Danska verðlaunaverkið Kannibalen, sem frumsýnt verður í Tjarnarbíói í vikunni, fjallar um einn umtalaðasta mannátsglæp síðari ára. Aðstandendur verksins segja það ekki vera neitt hryllingsklám, heldur einlæga leit að skilningi á slíkum verknaði. Ekkert sé skafað af ofbeldinu en jafnvel meira sláandi er það sem mæti áhorfendum þegar kafað sé undir yfirborð þessara einstaklinga. Við ræðum við leikstjórann Adolf Smára Unnarsson og leikarana tvo, Fjölni Gíslason og Jökul Smára Jakobsson, í þætti dagsins.
Nálgast má þáttinn í heild sinni inn á; https://solvitryggva.is/ Reynir Traustason er einn reyndasti blaðamaður Íslandssögunnar. Hann hefur ritstýrt fjölmörgum fjölmiðlum og oft komist í fréttir fyrir að lenda upp á kant við valdhafa. Hér ræða Reynir og Sölvi um sjómennskuna, áratuga feril í fjölmiðlum, hvernig Reynir tók heilsu sína í gegn þegar hann óttaðist um líf sitt og margt fleira. Brotið er í boði; Fitness Sport - https://www.fitnesssport.is/ Ozon - https://www.ozonehf.is/ Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Nýja vínbúðin - https://nyjavinbudin.is/
Riðlakeppni Meistaradeildarinnar kláraðist í gærkvöldi og má svo sannarlega tala um ótrúlega niðurstöðu. FC Kaupmannahöfn frá Danmörku komst áfram úr riðli sem innihélt Bayern München og Manchester United, en síðarnefnda liðið endaði á botni riðilsins. Í þessari sérstöku aukaútgáfu Enski boltinn hlaðvarpinu í dag var hringt til Danmerkur og rætt við íþróttafréttamanninn Runólf Trausta Þórhallsson. Spjallað er við hann um magnaðan árangur FCK, unglingaliðið sem er einnig er að ná frábærum árangri og svo auðvitað um Manchester United. Á United einhvern möguleika gegn Liverpool núna um helgina? Þá er auðvitað minnst á niðurstöðu í öðrum riðlum og dráttinn sem er framundan. Það er spilað í Evrópudeildinni og Sambandsdeildinni í kvöld, og þá verður enski boltinn á sínum stað um helgina.
Gestur Felix í Fimmu dagsins er Guðmundur Kristinn Jónsson sem alla jafna gengur undir nafninu Kiddi Hjálmur. Kiddi hefur marga fjöruna sopið í íslenskum tónlistar og hljóðheimi en er þekktastur fyrir starf sitt í Hjálmum og Baggalúti auk þess að vinna að tónlist með frábærum ungum tónlistarmönnum eins og Ásgeiri Trausta og Árnýju Margréti. Kiddi segir bransasögur í fimmunni sem fjallar um fimm mistök, ja eða amk neyðarlegar uppákomur! Í síðari hlutanum rifjar Felix upp sögu Annie Lennox og Eurythmics og spilar nokkur vel valin tóndæmi

Þórarinn ræðir við Trausta Breiðfjörð Magnússon, sem er borgarfulltrúi sósíalista. Rætt er um launamál, myglumál, reksturinn og margt fleira.
Við hófum þáttinn á ráðlögðum dagskammti í boði Önnu Sigríðar Ólafsdóttur, prófessors í næringarfræði. Spjallað var um ráðlagða kaffidrykkju, hvers vegna föstur eru svona vinsælar og páskaegginn sem eru byrjuð að prýða hillur matvöruverslana. Því næst var fjallað um dreng sem fæddist 12. febrúar 1873 norður á Melrakkasléttu og fékk nafnið Guðmundur Magnússon. Þessi drengur varð betur þekkur sem Jón Trausti og þekkt eru kvæði hans og sögur. Ævi hans og verkum verða gerð skil á sérstöku hátíðarmálþingni í Iðnó á sunnudaginn. Guðrún Nordal prófessor sagði okkur nánar frá lífi Jóns Trausta og málþinginu. Að lokum forvitnuðumst við um sjónvarpslausa fimmtudaga á Dalvík. Þá tekur samfélagið höndum saman og býður upp á allskonar afþreyingu á fimmtudagskvöldum. Björk Hólm Þorsteinsdóttir, forstöðumaður safna og Menningarhússins Bergs í Dalvíkurbyggð var á línunni og sagði okkur betur frá þessu. Umsjónarmenn: Björn Þór Sigbjörnsson og Gígja Hólmgeirsdóttir Tónlist: Walk on by - Dionne Warwick I say a little Prayer - Dionne Warwick Ég vil elska mitt land - Hvanneyrarkvartettinn Draumsnillingar - Blood Harmony

Áhrifavaldurinn og dansarinn Ástrós Traustadóttir mætti til mín ásamt sínum betri helmingi Adam Karli Helgasyni í virkilega skemmtilegt spjall nú á dögunum.Ástrós hefur verið áberandi undanfarin ár á samfélagsmiðlum og talar hún um að það hafi í raun allt byrjað eftir að hún tók þátt í sjónvarpsþáttunum Allir geta dansað þar sem hún var fengin til að dansa og þjálfa einn keppandann. Ástrós var um tíma atvinnu dansari og kennir nú dans samhliða hinum fjölbreyttu verkefnum sem berast á borð hennar sem áhrifavaldur.Adam er stofnandi fyrirtækisins ZOLO sem er hlaupahjólaleiga og hefur slegið rækilega í gegn og er alltaf nóg um að vera hjá þeim og reksturinn fer ört stækkandi.Ástrós og Adam kynntust fyrst við módelstörf löngu áður en þau fóru að slá sér upp enda bæði í sambandi þá, Adam varð þó strax heillaður af henni, en var það þó ekki fyrr en töluvert síðar að að Adam lét til skarar skríða og var þá búinn að frétta af því að Ástrós væri á lausu. Hann ákvað þá að bjóða henni á stefnumót sem Ástrós afþakkaði þó pent en þrautseigja Adams skilaði sér svo sannarlega og eiga þau nú von á sínu fyrsta barni saman.Í þættinum fórum við um víðan völl en ræddum við meðal annars um áhrifavaldamennskuna og dansinn, ZOLO ævintýrið, rómantíkina, ferðalög og fengum að heyra margar sögur úr þeirra sambandstíð þar á meðal þegar Adam reyndi allt til þess að gera sjóferð óléttrar og sjóveikrar Ástrósar bærilega.Bagel 'n' Co - https://https://www.bagelnco.is/Dominos - https://www.dominos.is/Smitten - https://smittendating.com/Brynjuís - https://brynjuis.is/Augað - https://www.augad.is/
Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon. Stjórn hluthafafélagsins Festar þröngvaði forstjóra fyrirækisins, Eggerti Þór Kristinssyni, til að segja upp eða hann yrði rekinn. Áður hafði stjórnin tilkynnt til Kauphallar að Eggert hefði sjálfur sagt upp. Ekki eru forsendur fyrir áframhaldandi sauðfjárbúskap hér á landi, nema til komi meiri stuðningur og breyting á starfsumhverfi bænda. Trausti Hjálmarsson, sauðfjárbóndi segir að grípa þurfi til aðgerða strax. Anna Lilja Þorvaldsdóttir talaði við Trausta. Manni sem sat ellefu mánuði í gæsluvarðhaldi á Ítalíu og Íslandi en fékk svo tveggja mánaða dóm fyrir peningaþvætti hafa verið dæmdar 19 milljónir í miskabætur. Brynjólfur Þór Guðmundsson tók saman. Bragi Björnsson, lögmaður mannsins segir dóm Landsréttar marka tímamót. Allar björgunarsveitir á Suðurlandi hafa verið kallaðar út vegna slyss í Reynisfjöru, en talið er að einstaklingur hafi farið í sjóinn. Vatnslaust varð á Seyðisfirði í dag þegar þrýstipípa Fjarðarárvirkjunar sprakk og reif í sundur vatnslögnina. Davíð Kristinsson, hótelstjóri á Öldunni segir þetta hafa gerst á erfiðum tíma, hótelið fullt og gisting annars staðar á Austurlandi vandfundin. Landsréttur staðfesti í dag niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur í máli Marek Moszczynski fyrir að hafa orðið valdur að eldsvoða á Bræðraborgarstíg í Reykjavík sumarið 2020. Innlögnum á covid-göngudeild Landspítalans hefur fjölgað undanfarna daga. Már Kristjánsson, yfirlæknir á smitsjúkdómadeild Landspítalans, segir að það sé alltaf íþyngjandi fyrir spítalann. Urður Örlygsdóttir tók framan. Niceair aflýsti í dag öllu fyrirhuguðu áætlunarflugi sínu milli Akureyrar og Bretlands í júní. Í morgun var flogið til Keflavíkur og farþegum útvegað flug þaðan til London. Mismikil ánægja var með þessa lausn. Amanda Guðrún Bjarnadóttir ræddi við farþegana Heklu Rán Arnaldsdóttur, Elmar Freyr Arnaldsso og Heiðdísi Austfjörð Óladóttur. ------------- Apabóla hefur lengi fundist í Vestur- og Mið-Afríku, í að minnsta kosti hálfa öld, veiran er flókin og harðgerð segir Vilhjálmur Svansson, dýralæknir og veirufræðingur hjá Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum. Anna Kristín Jónsdóttir ræddi við hann. Tæknihalli verður þegar að tölvukerfi sem þjálfuð eru á raunverulegum málgögnum fara óumbeðin að endurspegla samfélagslegan ójöfnuð á borð við kynja- og kynþáttahalla óháð ásetningi þeirra sem búa kerfin til. Doktorsnemarnir Dagbjört Guðmundsdóttir og Lilja Börk Stefánsdóttir, ásamt Agnesi Sólmundsdóttur BA-nema og Antoni Karli Ing

Í Rokklandi í dag eru tveir tónlistarmenn í brennidepli. Annarsvegar ung og áhugaverð tónlistarkona að vestan, og svo ný-látinn tónlistarmaður frá Englandi. Unga tónlistarkonan heitir Árný Margrét, en hún sendi frá sér fyrstu fjögurra laga plötuna núna á föstudaginn, Intertwined, sem kemur út um allan heim á vegum One Little Independent Records sem gefur t.d. út Björk og Ásgeir Trausta. Tátni tónlistarmaðurinn er svo Gary Brooker, forsprakki hljómsveitarinnar Procol Harum, en hann lést núna 19. Febrúar, 76 ára að aldri. Gunnlaugur Sigfusson útvarpsmaður með meiru segir okkur frá Gary Brooker og Procul Harum.

Fimmtudagar í Mannlega þættinum í september eru helgaðir sviðslistum. Í dag tengdumst við hljóðveri RÚV á Akureyri, þar var Marta Nordal leikhússtjóri hjá Leikfélagi Akureyrar. Við fengum að vita hvernig ástandið í kófinu hefur farið með leikhúslífið fyrir norðan og forvitnuðumst um dagskrá vetrarins sem er rétt nýhafinn. Svo fengum við Trausta Valsson, prófessor emiritus í skipulagi við Umhverfis- og byggingarverkfræðideild Háskóla Íslands, í þáttinn. Hann skrifaði bók fyrir 15 árum sem heitir How the World will Change... With Global Warming. Þessi bók var líklega fyrsta bókin í heiminum sem lýsir, með aðferðum skipulagsfræði, hvernig hnattræn mynstur byggða og kerfa mun breytast ef ekki tekst að stöðva hlýnunina. Og í bókinni dró hann upp það sem hann kallaði Plan B. Sem sagt hvað væri hægt að gera ef jarðarbúar myndu ekki ná markmiðum sínum í að halda hlýnun jarðar niðri. Nú 15 árum síðar ætlar hann að halda fyrirlestur um málið, kl. 12 á morgun, föstudag, í Þjóðminjasafninu, þar sem hann fer yfir stöðuna og skoðar þetta Plan B, miðað við stöðu mála í dag. Við fengum Trausta til að segja okkur betur frá þessu í þættinum. Þess má geta að fyrirlestrinum verður streymt á netinu, ef fólk leitar að Trausta Valssyni á facebook verður hægt að sjá hlekk sem hægt verður að smella á til að annað hvort horfa á í beinni útsendingu, eða að horfa á upptökuna. UMSJÓN GUNNAR HANSSON

Veðrið, viðskiptin og aðferðafræði Trausta.
Hálfur Álfur er titill nýrrar íslenskrar heimildamyndar í leikstjórn Jóns Bjarka Magnússonar sem fjallar um vitavörðinn Trausta sem tengist sínum innri álfi á meðan hann undirbýr hundrað ára afmælið eða eigin jarðarför. Á sama tíma hörfar Hulda eiginkona hans inn í heim horfinna ljóða með aðstoð stækkunarglersins síns. Þau Trausti og Hulda eru amma og afi kvikmyndagerðarmannsins og við fengum hann til okkar ásamt Hlín Ólafsdóttur framleiðanda, til að ræða þessa einlægu sögu sem þarna er sögð. Á þriðja tug Covid-19 smita greindust um helgina og var mörgum brugðið við tíðindin í gær. Við ræddum stöðuna við Svandísi Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra og fengum hennar viðbrögð, ræddum gang bólusetninga hér á landi og hugsanlega hertar sóttvarnaraðgerðir. Þórunn Sveinbjörnsdóttir, formaður landsambands eldri borgara, kom til okkar en landsambandið lét gera skoðanakönnun meðal almennings sem leiddi í ljós töluverðan stuðning við framboð eldri borgara til Alþingis í haust. Hún sagði okkur nánar frá helstu niðurstöðum og baráttumálum. Björgunarsveitir hafa haft í nógu að snúast við gosstöðvarnar á Reykjanesskaga undanfarna daga. Fjöldi fólk hefur lagt leið sína til að skoða gosið og er misvel útbúið til göngu við erfiðar aðstæður. Margir þurfa aðstoð og sú vinna björgunarsveitanna er unnin í sjálfboðavinnu. Páll Valur Björnsson, íbúi í Grindavík, varaþingmaður og fyrrverandi alþingismaður, skoraði á ríkisstjórnina að stíga inn í málið og styrkja ríkulega björgunarsveitirnar á Facebook síðu sinni í gær. Við hringdum í Pál. Sævar Helgi Bragason leit við í vísindahorninu sínu og færði okkur fróðleik eins og honum einum er lagið, þar komu bæði drónar á Mars og eldgos á Íslandi við sögu. Tónlist: Emilíana Torrini - Blame it on the sun. Olivia Rodrigo - Drivers license. Teitur Magnússon - Pistol packin mama. Eyþór Ingi og Lay Low - Aftur heim til þín. Daði og Gagnamagnið - Think about things. Grover Washington Jr. - Just the two of us. Birnir og Páll Óskar - Spurningar. Kenny Rogers - The Gambler. Rag N Bone man - All you ever wanted.

Þátturinn er í boði: Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið Dominos - www.dominos.is - Dr.Teals - Losti.is - www.losti.is Dansdrottningin og samfélagsmiðla mega beib-ið Ástrós Trausta settist niður hjá mér og við fáum innsýn inní dansheiminn ásamt því að kynnast henni. Við töluðum um gildi, slúður, mörk og lífsreglurnar fjórar sem eru svo ótrúlega máttugar. Ástrós stoppaði mig af á dögunum og sagði "Ég vil ekki tala illa um fólk" sem sló mig en það kveikti á perunni hjá mér og ég kunni svo ótrúlega að meta það. Sem tölum meðal annars um það ásamt svoooo mörgu öðru. Það gæti komið fólki á óvart hversu andleg Ástrós er og hún hefur kennt mér mikið og veit að þið eruð mörg þarna úti sem gætu tekið margt gott frá þessu spjalli.
Heimildarmyndin Hálfur Álfur segir sögu manns sem undirbýr hundrað ára afmælið sitt en einnig eigin jarðarför. Í myndinni má merkja mikla nánd milli kvikmyndagerðarmannsins, Jóns Bjarka Magnússonar og viðfangsins, Trausta Breiðfjörð Magnússonar - en Trausti var afi Jóns Bjarka. Þar er nándinni þó ekki lokið, því eftir hverjar tökur kom Jón Bjarki heim til sambýliskonu sinnar, Hlínar Ólafsdóttur, og krufði daginn ? enda er hún meðframleiðandi myndarinnar og þess utan, tónskáld: spilar á gamlar og móðar harmonikkur sem kallast á við 100 ára þanin lungu Trausta. Við heimsækjum ljósmyndagalleríið Ramskram við Njálsgötu en þar opnar um helgina ljósmyndasýningin Rökræður. Jóna Þorvaldsdóttir, ljósmyndari, var viðstödd árlegan rökræðufund tíbetskra búddanunna í Indlandi árið 2012 og skrásetti á svarthvítar filmuljósmyndir. Og Davíð Roach Gunnarsson, tónlistargagnrýnandi Lestarinnar, rýnir í nýjustu plötu tyrknesk-hollensku þjóðalagasíkadelíupartýsveitarinnar Altin Gun.

Loksins loksins loksins, The Real Housewives of Beverly Hills þáttur! Við duttum inn í þessa þætti síðasta sumar og gátum ekki hætt að hugsa um þá, tala um þá, og horfa á þá, þannig augljóslega þurftum við að gera þátt um þá! En þetta er svo sannarlega topic sem við gátum ekki tekið tvær og þess vegna stóð ekki annað til boða en að fá RHOBH drottninguna Ástrós Trausta til þess að koma og ræða þetta með okkur! Tune in til að vita allt um húsmæðurnar í Beverly Hills :* Þátturinn er í boði: Laugar Spa - https://organicskincare.is/ Ísbúð Huppu - https://isbudhuppu.is/
Hér á Flakkinu hefur endrum og sinnum verið fjallað um einstaklinga sem starfað hafa við arkitektúr og skipulag, í dag ræðum við við Trausta Valsson skipulagsfræðing, en Trausti varð 75 ára fyrir skömmu og hefur nú sett allar bækur og greinar endurgjaldslaust á netið, undir flipanum traustivalsson.is og eru 14 bækur hans, og ótal blaða- og fræðigreinar að finna þar, en Trausti var prófessor við Háskóla Íslands í rúm 30 ár. Trausti Valsson hefur ekki legið á skoðunum sínum og tekið þátt í umræðum, fundum og hugmyndavinnu alla starfsæfina. Rætt er við hann um námið, ferilinn, ýmsar hugmyndir m.a. um nýjan innanlandsflugvöll og fl.

Reynir Traustason er einn reyndasti blaðamaður Íslandssögunnar. Hann hefur ritstýrt fjölmörgum fjölmiðlum og oft komist í fréttir fyrir að lenda upp á kant við valdhafa. Hér ræða Reynir og Sölvi um sjómennskuna, áratuga feril í fjölmiðlum, hvernig Reynir tók heilsu sína í gegn þegar hann óttaðist um líf sitt og margt fleira. Þátturinn er í boði: Sjónlags - www.sjonlag.is Fitness Sport - www.fitnesssport.is Fjarðarkaup / Fræið - https://fjardarkaup.is/fraeid/ Lemon - https://www.lemon.is/ Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Þáttastjórnandi - Sölvi Tryggvason (@solvitrygg) Framleiðandi - KIWI (@kiwistofan) Hljóð - Eiður Steindórsson (@oathhljod)
Ægir Már Þórisson, forstjóri Advania, kom til okkar en fyrirtækið heldur rafræna ráðstefnu þessa vikuna og þar á að ræða hvernig tækla megi áskoranir komandi vetrar með tækinni. Meðal fyrirlesara eru forstjórar Storytell sem hefur átt stóran þátt í að breyta bókamarkaðnum á norðurlöndunum og einnig aðstoðarforstjóri Dell í norður og mið Evrópu sem hefur 17 ára reynslu í því að stýra stórfyrirtæki heiman frá sér. Frumvarp Félagsmálaráðherra um hlutdeildarlán var samþykkt á Alþingi í síðustu viku. Hvaða áhrif, ef einhver, mun það hafa á fasteignamarkaðinn? Og hvernig hefur árið verið hjá fasteignasölum. Kjartan Hallgeirsson er formaður Félags fasteignasala. Hann kom til okkar. Sjónvarpsþáttaröðin Jarðarförin mín hefur verið valin í lokakeppni Berlin TV Series Festival sem fram fer í Þýskalandi síðar í mánuðinum. Þar keppir hún við þekktar þáttaraðir eins og Netflix seríurnar þýsku Unorthodox og Perfect crime og hina austurrísku Freud, svo einhverjar séu nefndar. Hörður Rúnarsson, framkvæmdastjóri Glassriver, sem framleiddi Jarðarförina mína, kom til okkar og sagði okkur meira af velgengni verkefnisins og hvort framhald verður á. Mikil umræða hefur orðið á samfélagsmiðlum eftir að fréttir bárust af tveimur enskum landsliðsmönnum sem brutu sóttkví með því að bjóða tveimur íslenskum stúlkum uppá hótel. Mjög ljót ummæli hafa fallið um stúlkurnar og þær kallaðar öllum illum nöfnum. Sigurður Kristinsson er siðfræðingur og prófessor í Háskólanum á Akureyri. Hann var á línunni. Reynir Traustason, ritstjóri Mannlífs, var á línunni en hann neitar að fjarlægja frétt, að kröfu krabbameinsfélagsins, þar sem rætt er við fyrrverandi starfsmann félagsins undir nafni. Umræddur starfsmaður var nefndur í fréttatilkynningu krabbameinsfélagsins þegar félagið útskýrði hvað gerðist þegar mistök urðu við krabbameinsleit. Reynir segir að nærtækara sé að stjórn Krabbameinsfélagsins segi af sér. Guðmundur Jóhansson var með tæknihornið sitt. Lagalisti: Ásgeir Trausti - Minning Stefán Hilmarsson - Súkkulaði og sykur Eagles - Take it easy Tómas Welding - Go the distance Ed Sheeran - Castle on the hill Hjálmar - Gakktu alla leið Queen & David Bowie - Under pressure Ouse og Auður- Ég verð alltaf hér GDRN - Af og til Dire Straits - Sultans of swing

Umsjón: Matthías Már Magnússon & Lovísa Rut Kristjánsdóttir. Föstudagur í Popplandi, gestangur og mikið fjör. Stuðmenn verða fimmtugir í ár og komu í Stúdíó 12, tóku lagið og spjölluðu við Óla Palla. Söngkonan GDRN kom líka í heimsókn, sagði frá nýrri plötu og frumflutti nýtt lag. Arnar Eggert og Andrea gera upp plötu vikunnar, nýjustu plötu Ásgeirs Trausta þessa vikuna, Sátt. Svo er Söngvakeppnin er á næsta leyti og við skoðum keppendurna í ár. Nýdönsk - Hversdagsprins Berg - What If Myrkvi - Sér Um Sig Dua Lipa - Physical Kylie Minogue - Cant Get You Out Of My Head Tennis - Need Your Love Keane - The Way I Feel Destroyer - Cue Synthesizer The Weeknd - Blinding Lights Ásgeir Trausti - Bernskan Fiction Factory - Feels Like Heaven King Princess - Aint Together Bjarni Ara - Bara Ég og Þú Janelle Monáe - Make Me Feel Air - All I Need Glowie - Unlovable Portugal The Man - Milkshake Stuðmenn í Stúdíó 12 Sea Girls - Ready For More Elísabet Ormslev - Elta Þig Iggy Pop - Passenger Big Thief - Century Of Monsters And Men - Little Talks Strax - Havana GDRN - Af og Til Ariana Grande - Thank You Next Gorillaz - Momentary Bliss Dimma - Andavaka (Stúdíó 12) Bruce Springsteen - Hungry Heart Hjaltalín - Crack In A Stone Ísold & Helga - Klukkan Tifar Fríða Dís - Myndaalbúm Jay Z - 99 Problems Disclosure - Latch Men Without Hats - Safety Dance

Atlas, fyrsta breiðskífa tónlistarmannsins Marteins Sindra Jónssonar, kemur út þann 16. maí næstkomandi á stafrænum miðlum og á vínylplötu um miðjan september 2019 samhliða útgáfutónleikum í Iðnó. Platan var um það bil fjögur ár í smíðum og afraksturinn er víðfeðmur hljóðheimur með kjölfestu í einföldum lagasmíðum þar sem gjarnan bregður fyrir ljóðrænum landslagsmyndum sem sveipaðar eru goðsagnakenndum blæ. Marteinn Sindri verður gestur Lestarinnar í dag og segir frá verkinu. Andi írska leikskáldsins Samuels Becketts hefur svifið yfir vötnum undanfarnar vikur í litlu leikhúsi á Garðatorgi í Garðabæ. Stutt leikrit eftir nóbelskáldið hafa þar lifnað þar við í leikstjórn Trausta Ólafssonar sem einnig þýddi verkin. Rætt verður við Trausta um jaðarleikhús á Íslandi, stutt-leikhús og Beckett-bylgjuna í Garðabæ. Til er tónlist fyrir mannfólk, til er tónlist fyrir plöntur og til er tónlist fyrir ketti. Í pistli sínum í dag fjallar Tómas Ævar Ólafsson um tónsmiðinn og sellóleikarann David Teie sem fyrir þremur árum gaf út plötuna Music for Cats, með tónverkum sem eru sérstaklega ætluð köttum. Og Halldór Armand Ásgeirsson rithöfundur flytur pistil í Lestinni á þriðjudegi.
Hátíðin List í ljósi hlaut í gær menningarverðlaunin Eyrarrósina en hátíðin hefst einmitt um helgina. Um er að ræða listahátíð sem lýsir upp Seyðisfjarðarbæ árlega til að fagna komu sólar eftir fjögurra mánaða fjarveru. Við heyrðum aðeins meira af þessari upplífgandi hátíð og slógum á þráðinn til Sesselju Jónasardóttur framleiðslustjóra Listar í ljósi. Í síðustu viku var greint frá nokkuð áhugaverðum niðurstöðum rannsóknar á veðmálaþáttöku handboltamanna. Þar kom m.a. fram að hluti þeirra segist hafa veðjað á úrslit eigin leikja, sem aftur er ólöglegt, og gæti verið vísbending um að einhverjir kunni freistast til að hagræða úrslitum leikja sinna. Daníel Ólafsson prófessor í sálfræði hefur manna mest rannsakað fjárhættuspil Íslendinga og m.a. komið að þessari rannsókn og fleirum hjá íslenskum íþróttamönnum, var gestur okkar. Forsvarsmenn bílaleigunnar Procar gengust við því í yfirlýsingu seint í gærkvöldi að hafa falsað kílómetrastöður yfir 100 bifreiða í því skyni að auka endursöluvirði þeirra. Þetta gerðu þeir þó ekki fyrr en eftir að fréttaskýringaþátturinn Kveikur hafði greint frá svindlinu stuttu áður, og í þeim þætti hafði talsmaður fyrirtækisins harðneitað fyrir að hafa stundað slíkt svindl. Við ræddum þetta við Aðalstein Kjartansson fréttamann Kveiks og Jón Trausta Ólafsson formann Bílgreinasambandsins. Fjármálaráðherra Bjarni Benediktsson, var á línunni hjá okkur en mikil reiði braust út þegar fréttist af gríðarlegum launahækkunum bankastjóra Landsbankans á dögunum. Laun hennar hafa hækkað um 140 prósent á tæpum tveimur árum. Bjarni og Bankasýslan hafa óskað svara frá bankanum og fleiri ríkisfyrirtækjum sem veitt hafa forstjórum sínum ríflegar launahækkanir frá því þeir voru undanskildir ákvörðunum Kjararáðs. Guðmundur Jóhannsson kom að venju á miðvikudegi og fræddi okkur um tækniheima þar sem m.a. Reddit og Spotify komu við sögu. Tónlist: Emilíana Torrini - Tvær stjörnur. Björk - Kata rokkar. Richard Ashcroft - Thats when I feel it. Svala - Karma. Klassart - Landamæri. Sting - If you love somebody set them free. Hozier - Almost (Sweet music). Cranberries - All over now. Killers - Land of the free.
Í þessum þætti af Sparvarpinu var rýnt í öftustu stöðu vallarins, markmannsstöðuna. Rætt var við Runólf Trausta Þórhallsson, markmanns- og sparkspekúlant, og Neil Andrews, frá vefsíðunni Goalkeepersaredifferent.com. Farið var yfir hvernig staðan hefur breyst frá fyrstu árum markmannshanskanna til dagsins í dag og hvaða leikmenn og hvaða þættir hafa komið að þróa hlutverk markmannsins. Að auki var talað um skrautlega karaktera sem hafa litað markmannsstöðuna í gegnum tíðina. Kjarninn í samstarfi við Storytel býður þér að hlusta frítt á þúsundir hljóðbóka í símanum þínum í 30 daga. Það eina sem þú þarft að gera er að skrá þig á www.storytel.is/kjarninn og byrja að njóta. Storytel.is, þúsundir hljóðbóka í símanum þínum.
Umsjón: Matthías Már Magnússon og Karitas Harpa Davíðsdóttir Glimrandi huggulegur fimmtudagur í Popplandi, upptaka af Ásgeiri Trausta live á Backpackers Airwaves 2017, Svala Björgvins kemur, kynnir og frumflytur sitt nýjasta lag Karma og segir okkur hvað er framundan hjá henni því nóg er framundan. 12.42 - 14.00 MMM Jet Black Joe - I Know Nick Cave & The Bad Seeds - Bring It On Moses Hightower - Ellismellur Shannon Shaw - Broke My Own Hope Sandoval & The Warm Invention - Let Me Get There (ft. Kurt Vile) Blue Öyster Cult - (Don't Fear) The Reaper Ásgeir Trausti - Þennan dag (live á Backpackers Airwaves 2017) Vök - Night & Day Sigurður Ingi Einarsson - Alon The Creek Mugison - Stingum af Bríet - Twin Hozier - Nina Cried Power (ft. Mavis Staples) R.E.M. - Shiny Happy People John Grant - Preppy Boy Eric Clapton - Autumn Leaves Tara Mobee - That Type A Guy Gus Gus - Polyesterday 14.03-15.00 KHD Hjaltalín - Halo Júníus Meyvant - High Alert Aldís Fjóla Borgfjörð - Strong for you The Flaming Lips - Yoshimi Battles the pink robots Catatonia - Mulder and Scully Harry Styles - Two Ghosts Friðrik Dór - Dönsum eins og hálfvitar Robyn - Honey Helgi Björns - Miði aðra leið Mark Knopfler - Good on you son Pálmi J. Sigurhjartarson - Nafnið þitt Hildur - Picture Perfect Cranberries - Just my imagination Matthildur - Heartbeat 15.03-16.00 KHD Svala Björgvinsdóttir - For the night Svala Björgvinsdóttir - KARMA Tina Turner - What's love got to do with it Leon Bridges - If it feels good (then it must be) Pálmi Gunnarsson - Vinir vita það ft. Ninna Pálma Jónas Sig - Dansiði Maggie Rogers - Light On Voidz - All wordz are made up Jón Þór - Ég er kominn og farinn Frank Ocean - Lost Baggalútur - Sorrí með mig
Endalaust af nýrri tónlist í bland við smá gamalt sem við völdum, t.d. Travis Scott sem er alltaf gaman að hlusta á. Svo líka nýtt frá Herra Hnetusmjör, Trausta, 6IX9INE, Nicki Minaj og mörgum fleirum! Tune in or tune out!
Nú stendur yfir mikil hátíð í Víðidal í Reykjavík þar sem landsmót hestamanna fer fram. Hulda var á ferðinni í dalnum í gær og hitti þar hressa hestamenn. þau Gunnar Halldórsson, Kristínu Hermannsdóttur og Heklu Katharinu Kristinsdóttur. Tveir leikir eru á heimsmeistaramótinu í fótbolta í dag, Svíþjóð og Sviss mætast klukkan tvö og Kólumbía og England klukkan sex. Við fengum Runólf Trausta Þórhallsson íþróttafréttamann til okkar til þess að spá í spilin. Nefnd forsætisráðherra um endurskoðun stjórnarskrárinnar hefur tekið til starfa en í sáttmála ríkisstjórnarinnar er kveðið á um að halda skuli áfram heildarendurskoðun hennar. Unnur Brá Konráðsdóttir, fyrrverandi forseti Alþingis, leiðir starf nefndarinnar sem skipuð er formönnum allra flokka. Hún kom til okkar og fór yfir það hvernig vinnunni verður háttað og hvernig samtalið við þjóðina um nýja stjórnarskrá verður háttað. Elísabet Jökulsdóttir stýrir leiklestri á verki föður síns, Jökuls Jakobssonar, á fimmtudag. Verkið heitir Sonur skóarans og dóttir bakarans, og segir Elísabet það eiga óhuggulega mikið erindi inn í samtímann þrátt fyrir að hafa verið skrifað fyrir fjörutíu árum. Í því er sagt frá börnum í búrum, stríði úti í heimi og átökum um umhverfismál. Elísabet kom til okkar. Tónlist: Kate Bush - Wuthering heights. Egill Ólafsson - Hósen Gósen. Tracy Chapman - Give me one reason. Magnús Gunnarsson og Lilja Eivor - Summer nights. Emilíana Torrini - I hope that I don't fall in love with you. Helgi Björns og reiðmenn vindanna - Ríðum, ríðum, ríðum. Katy Perry - Waking up in Vegas. Foster the people - Sit next to me. U2 - Angel of Harlem. Shannon Shaw - Broke my own. Amy Winehouse - I'm no good. John Mayer - New light. GCD - Mýrdalssandur. Red Hot Chili Peppers - Road trippin'.
Reykvíkingar dagsins í dag ljá Reykvíkingum frá árinu 1918 rödd sína og lesa valda texta frá því ári. Í þessum þætti les Hafsteinn Gunnar Hafsteinsson, sáttamiðlari og leikari, úr bréfi Guðmundar Magnússonar, eða Jóns Trausta, prentara og rithöfundar til Dr. Sigfúsar Blöndal, bókavarðar og orðabókarritstjóra. R1918 er samstarfsverkefni Listahátíðar í Reykjavík, Landsbókasafnsins og RÚV. Textavinna: Landsbókasafn Íslands-Háskólabókasafn og Bjarni Jónsson. Tónlist: Úlfur Eldjárn. Samsetning: Þorgerður E. Sigurðardóttir.
Reykvíkingar dagsins í dag ljá Reykvíkingum frá árinu 1918 rödd sína og lesa valda texta frá því ári. Eðvald Einar Stefánsson uppeldisfræðingur hefur mikinn áhuga á tónlist, hann syngur í kór og spilar á trommur og mandólín. Hann skrifar einnig ljóð og nýtur þess að fara í langar gönguferðir. Í þessum þætti les hann úr bréfi Guðmundar Magnússonar, eða Jóns Trausta, prentara og rithöfundar til Dr. Sigfúsar Blöndal bókavarðar og orðabókaritstjóra. Guðmundur lést úr spænsku veikinni í nóvember 1918. R1918 er samstarfsverkefni Listahátíðar í Reykjavík, Landsbókasafnsins og RÚV. Textavinna: Landsbókasafn Íslands-Háskólabókasafn og Bjarni Jónsson. Tónlist: Úlfur Eldjárn. Samsetning: Þorgerður E. Sigurðardóttir.
Daníel Geir Moritz hélt um stjórnartaumana í Evrópu-Innkastinu þessa vikuna. Hann fékk til sín tvo góða gesti, Runólf Trausta Þórhallsson og Halldór Marteinsson af raududjoflarnir.is. Spáð var í spilin fyrir tvo stórleiki sem eru framundan; úrslitaleik FA Cup þar sem Manchester United leikur gegn Chelsea og svo viðureign Real Madrid og Liverpool í úrslitum Meistaradeildarinnar.
Markaðsvarpið ræðir um nýja nálgun til að koma skilaboðum á framfæri frá fyrirtækjum og vörumerkjum með aðstoð samfélagsmiðla. Ghostlamp einbeitir að sér að fá viðeigandi áhrifavalda til að búa til og deila efni á sínum samfélagsmiðlum um vörur og þjónustur til að skapa umtal. Ghostlamp hefur hannað sérstakt forrit sem gerir fyrirtækjum kleift að búa til herferð á nokkrum mínútum og nær til yfir einnar milljón áhrifavalda um allan heim og sér kerfið um að finna líklegasta hópinn sem hefur áhuga á þinni vöru eða þjónustu til að koma henni enn betur á framfæri innan markhópsins. Ghostlamp er nú þegar farið að vinna með fyrirtækjum erlendis eins og McDonalds og hér heima fyrir Lemon, Zo-On og fleiri. Jón Bragi Gíslason, framkvæmdastjóri og Alda Karen Hjaltalín, sölu- og markaðsstjóra Ghostlamp, eru gestir Trausta og Bjarka í Markaðsvarpinu.