POPULARITY
Margir sem komnir eru á efri ár muna vel eftir rauðu eplunum sem komu til landsins fyrir jólin og hægt var að kaupa í búðunum. Fyrir nokkrum árum var rifjuð upp í Landanum saga um siglingu skips sem flutti eplin til Íslendinga fyrir jólin og lenti í miklum sjávarháska. Við heyrðum söguna af eplaskipinu svokallaða en þau komu í þáttinn, Gísli Einarsson og Þórdís Claessen úr Landanum, og sögðu okkur frá Jóla Landanum sem verður bæði í útvarpi og sjónvarpi þessi jólin. Í innslaginu um eplaskipið tóku þau viðtal við Egil Kristjánsson. Kvartettinn Barbari hefur komið áður í Mannlega þáttinn í desember og sungið fyrir okkur og nú komu þeir aftur og sungu fyrir okkur í beinni útsendingu tvö lög án undirleiks eins og rakarakvartettar gera. Kvartetinn Barbara skipa þeir Gunnar Thor Örnólfsson, Karl Friðrik Hjaltason, Páll Sólmundur H. Eydal og Ragnar Pétur Jóhannsson. Jólatónleikar þeirra eru á föstudaginn í Háteigskirkju. Við fengum svo póstkort frá Magnúsi R. Einarssyni í dag og í þessu korti, þegar líður að áramótum, sagði Magnús frá hugsunum sínum um óttann, frumstæðastu og máttugustu mannlega tilfinninguna að margra mati. Hann sagði frá kenningu ítalska höfundarins Macchiavelli um óttann, sem máttugra afl en kærleikann. Óttinn við náttúruna hefur dvalið með manninum frá upphafi og minnkar síður en svo með aukinni þekkingu. Í lokin sagði Magnús svo frá sjóslysum og baráttunni við hafið. Tónlist í þættinum: Klukkur klingja / Ragga Gröndal (Ragnheiður Gröndal) Úti er alltaf að snjóa / Jón Múli og Jónas Árnasynir (Jón Múli Árnason og texti Jónas Árnason) 2 lög með Barbara kvartettnum: Let it Snow / Barbari Jólalalag / Barbari Hátíð í bæ / Borgardætur (Smith, Smith & Bernard, texti Ólafur Gaukur Þórhallsson) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Við fáum stundum ábendingar eða óskir frá dyggum hlustendum um umfjöllunarefni í þáttinn og nýlega barst ein slík um stöðuna á heilsugæslunni. Það er að segja viðkomandi var að reyna að fá tíma hjá heimilislækni og fékk tíma í júní. Þriggja mánaða bið. Hvað veldur? Læknaskortur og aukið álag er eitthvað sem við heyrum reglulega. Sigríður Dóra Magnúsdóttir forstjóri heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins kom í þáttinn og fór með okkur yfir stöðuna. Stóri plokkdagurinn verður haldinn í sjöunda sinn um allt land sunnudaginn 28.apríl. Það er Rótarýhreyfingin á Íslandi sem skipuleggur daginn. Markmiðið er að fyrirtæki, vinnufélagar, nágrannar, húsfélög, heilu hverfin eða jafnvel sveitarfélögin geta skipulagt hreinsunarátak á þeim degi í nágrenni sínu og sínu nærumhverfi. Það þarf ekki mikið til, kannski bara hanska og/eða tangir og glæran poka til að safna ruslinu sem plokkað er af jörðinni. Ómar Bragi Stefánsson umdæmisstjóri Rótarý á Íslandi kom í þáttinn og sagði okkur meira frá plokkdeginum og aðkomu Rótarý hreyfingarinnar. Að lokum kom Jónatan Garðarsson til okkar og hélt áfram að fræða okkur um íslenskt tónlistarfólk. Hann hefur nýlega sagt okkur frá Berta Möller, Erlu Stefánsdóttur, Sigrúnu Jónsdóttur, Bergþóru Árnadóttur og fleirum. Í dag fræddi hann okkur um Finn Eydal tónlistarmann og klarinettuleikara frá Akureyri. Finnur var gríðarlega hæfileikaríkur tónlistarmaður og fjölhæfur, hann lést langt fyrir aldur fram aðeins 56 ára gamall. Tónlist í þættinum: Mikki / Stuðmenn (Jakob Frímann Magnússon) Sleðaferð / Magnús Þór og KK (Magnús Þór Sigmundsson) Bjórkjallarinn / Hljómsveit Finns Eydal (Ludwig Fischer) Stakir Jakar / Hljómsveit Ingimars Eydal (Finnur Eydal) UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Við töluðum í dag við þær Álfheiði Steinþórsdóttur og Guðfinnu Eydal, þær eru báðar sérfræðingar í klínískri sálfræði. Eftir 45 ára samstarf, þar af hafa þær rekið Sálfræðistöðina í fjörutíu ár, ákváðu þær að loka stöðinni, líklegast fyrir fullt og allt, í lok ársins. Við spjölluðum við þær um þeirra langa og merkilega feril, en þær hafa, auk þess að skrifa saman fjölmargar bækur um sálfræði og mismunandi æviskeið, haldið fjölmörg námskeið og ráðstefnur meðal annars um breytingaskeiðið og vinnustaðasálfræði. Það var um nóg að tala við þær stöllur, Álfheiði og Guðfinnu, á þessum tímamótum. Það er ekki algengt að sjá auglýsta tónleika hér á landi þar sem eingöngu er flutt klassísk tyrknesk tónlist en í næstu viku verður flutt svokölluð klassísk tyrknesk Ottoman tónlist. Tónlistarstíll þessi nær aldir aftur í tímann og voru tyrknesku tónskáldin oft innblástur fyrir vestrænu tónskáldin. Tónlistarhefð þessi inniheldur framandi hljóðfæri fyrir okkur Íslendinga og er gríðarlega krefjandi fyrir flytjendur þar sem óvenjulegir taktar og míkrótónar eru mikið notaðir. Ásgeir Ásgeirsson tónlistarmaður hefur á undanförnum árum sótt tíma á tyrkneskt oud hjá nokkrum af færustu oud leikurum veraldar og hann ásamt Phaedon Sinis, sem er bandarísk/grískur hljóðfæraleikari, mynda Sinis-Ásgeirsson duo. Við heimsóttum Ásgeir og skoðuðum meðal annars þessi hljóðfæri. Tónlist í þættinum í dag: Big Jumps / Emiliana Torrini (Emiliana Torrini & Dan Carey) Sing, Sing, Sing / Benny Goodman (Louis Prima) Ólafur reið með björgum fram / Ásgeir Ásgeirsson og félagar (Þjóðlag og Ásgeir Ásgeirsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Næsta sunnudag verður á dagskrá sjónvrapsins sérstakur jólaþáttur af þáttunum vinsælu, Fyrir alla muni, en ný þáttaröð hefur göngu sína í febrúar. Í jólaþættinum bregða Sigurður Helgi Pálmason og Viktoría Hermannsdóttir sér í ferðalag og skoða sögu íslenskra jóla. Þau velta fyrir sér jólahefðum og hvers vegna við höldum jólin eins og við gerum. Sigurður Helgi kom í þáttinn í dag. Við fengum svo að heyra af söfnunartónleikum fyrir fjölskyldur úr Grindavík sem fara fram í kvöld í Bústaðakirkju. Þar munu koma fram bæði Barnakór og kór Grindavíkurkirkju, gestasöngvarar úr Óháða kórnum og kór FÍH ásamt hljómsveit. Tónlistin er öll af jólaplötu Mariah Carey, Merry Christmas. Kristján Hrannar Pálsson, organisti Grindavíkurkirkju kom til okkar í dag ásamt Ninu Ricther, konu sinni, en hún átti hugmyndina að breyta jólatónleikum, sem höfðu verið í undirbúningi síðan í sumar, í söfnunartónleika vegna ástandsins í Grindavík. Þau sögðu okkur betur frá tónleikunum og aðdragandanum í þættinum í dag. Og við héldum áfram að vera jólaleg og fengum til okkar kvartettinn Barbara en sá kvartett kom einmitt til okkar fyrir ári síðan og flutti nokkur jólalög í beinni. Nú komu þeir aftur til okkar, við færðum okkur niður í studio 12 og sungu í forláta hljóðnema sem við vorum búin að láta setja upp fyrir þá. Þeir halda tónleika í Dómkirkjunni á mánudaginn nk. þar sem þeir eru að safna fyrir keppnisferð á norðurlandamót rakarakvarteta. Barbari samanstendur af Gunnari Thor Örnólfssyni, Karli Friðriki Hjaltasyni, Páli Sólmundi H. Eydal og Ragnari Pétri Jóhannssyni. Þeir sungu lögin Hippopotamus, White Christmas og Auld Lang Syne. Tónlist í þættinum í dag: Hvít jól / Ragnar Bjarnason og Elly Vilhjálms (erl.lag, texti Stefán Jónsson) Jólaómur / Pálmi Gunnarsson og Sigurður Helgi Pálmason (Vincy Martinet & Kristján frá Djúpalæk) Hark! The Herald Angels Sing / Mariah Carey (Mariah Carey & Mariah Carey, Loris Holland, Traditional & Walter Afanasieff) Nounous et pioupious/ The Metropole Orkest í stjórn Jan Stulen (Roger Roger) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Það er brjálað að gera hjá Marín þessa dagana. Arnór Steinn spjallar við hana um Skyrim, streymi, Starfield og margt, MARGT fleira. Við fáum líka EXCLUSIVE SKÚBB um ekki bara eitt, heldur TVÖ leyniverkefni sem hún er með í bígerð. Hlustið, horfið og njótið! Þátturinn er í boði Elko Gaming og Serrano.
Die aus Jakarta stammende Wati wandert nach Island aus, um dort ein neues Leben zu beginnen und eine Zukunft für ihre beiden Kinder zu schaffen, die sie so schnell wie möglich nachholen möchte. Als sie den 41-jährigen Maurermeister Hákon Eydal kennen und lieben lernt, glaubt sie, ihr Glück gefunden zu haben. Wie sehr die junge Frau sich doch irrt...
Við keyrðum til Dalvíkur og heimsóttum Hafstein Pálsson bónda í Miðkoti sem meirihluta ævi sinnar hefur safnað allri íslenskri útgáfu á plötum, diskum og kassettum. Þetta er stærðarinnar safn og margir krókar og kimar á heimilinu eru fullir af þessum dýrmæta fjársjóði, frá gólfi uppí loft sumsstaðar. En nú er hann hættur að safna og komin tími til segir hann. Hópurinn ÁLFkonur er áhugaljósmyndarafélag fyrir konur sem hefur ljósmyndun að áhugamáli. Það er árlegur viðburður hjá þeim að sýna ljósmyndir sínar fyrir gesti og gangandi í Lystigarðinum á Akureyri og að þessu sinni er það vetrarríkið sem birtist í verkum þeirra - frost og kuldi í sólinni og gróðrinum í Lystigarðinum. Við fengum til okkar tvær ÁLFkonur, þær Agnesi Heiðu Skúladóttur og Ingu Dagnýju Eydal . Það var mikið um dýrðir á Ólafsfirði um sjómannadagshelgina enda fagnar Sjómannafélag Ólafsfjarðar 40 ára afmæli sínu í ár. Af því tilefni var gefin út vegleg afmælisbók þar sem farið er yfir sögu félagsins í máli og myndum og bókinni var fyrir helgi dreift til allra heimila á Ólafsfirði. Atli Rúnar Halldórsson er höfundur bókarinnar og hann kom og sagði okkur frá viðtökunum og hvernig var að skrásetja þessa umfangsmiklu sögu.

Marín Eydal er tölvuleikjastreymari en hún streamar reglulega hjá GameTíví undir nafninu Gameveran. Marín elskar ekki bara tölvuleiki heldur elskar hún líka kvikmyndir og þá sérstaklega jólamyndir. Í þættinum ræðir hún meðal annars myndirnar The Holiday, The Nightmare Before Christmas, Spirited, The Family Man, Scrooged og margt, margt fleira. Þátturinn er í boði Popp Smells frá Nóa Síríus, Subway og Sambíóanna.
Á landinu er starfandi rakarakvartett, kvartettinn Barbari. Sá var stofnaður af ungum menntskælingum árið 2013 og þeir segja sjálfir að þeir séu fremsti rakarakvartett landsins. Nú er Barbari komin í jólaskap og þeir komu í þáttinn og sungu þrjú lög í beinni útsendingu. Við töluðum svo við tvo þeirra, Gunnar Thor Örnólfsson og Pál Sólmund Eydal og forvitnuðumst um sögu kvartettsins, söngkeppni í Las Vegas og hvort einhver þeirra væri raunverulega rakari. Gestir í útvarpshúsinu fengu að njóta söngsins á kaffitorginu í Efstaleitinu, en hinir tveir meðlimir kvartettsins eru Karl Friðrik Hjaltason og Ragnar Pétur Jóhannsson. Hvenær leiddist þér síðast? Þessi spurning er fyrirsögn á grein sem Daðey Albertsdóttir og Silja Björk Egilsdóttir, sálfræðingar hjá Geðheilsumiðstöð barna, skrifuðu ásamt Skúla Braga Geirdal verkefnastjóra miðlalæsis hjá Fjölmiðlanefnd. Greinin birtist til dæmis á visir.is og á akureyri.net og þar eru þau að kasta fram nokkrum tölulegum staðreyndum og spurningum til umhugsunar sem snúa að skjátíma og samfélagsmiðlaneyslu. Þessari grein, og spurningunum í henni, er beint til foreldra. Daðey og Skúli komu í þáttinn í dag og við töluðum við þau um þetta mikilvæga mál í viðtalinu. Tónlist í þættinum í dag: Leppur, Skreppur og Leiðindaskjóða / Halli og Laddi (Gunnar Þórðarson, Gísli Rúnar Jónsson, Halli og Laddi) It?s Beginning to Look a Lot Like Christmas / Kvartetinn Barbari (Meredith Wilson) Jólalalag / Kvartetinn Barbari (Vince Clarke og Bragi Valdimar Skúlason) The Christmas Song / Kvartetinn Barbari (Mel Tormé og Robert Wells) White Chirstmas / Bing Crosby (Irving Berlin) Jólin alls staðar / KK og Ellen ( Jón Sigurðsson og Jóhanna G. Erlingsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Bókin Makamissir er nýkomin út, hún er skrifuð af Guðfinnu Eydal og Önnu Ingólfsdóttur og er meðal annars byggð á reynslu þeirra af því að missa maka. Bókin veitir innsýn inn í líf einstaklinga þegar maki þeirra deyr, auk þess sem hún er leiðarvísir fyrir þau sem vilja kynna sér málefnið og sýna stuðning og samkennd. Guðfinna og Anna komu í þáttinn í dag og sögðu okkur betur frá þessari bók. Vellíðan barna er nýútkomin bók og er handbók fyrir foreldra. Í hverjum kafla er að finna ýmsan fróðleik og fjölbreyttar æfingar sem hafa það að markmiði að kenna börnum hagnýtar aðferðir til að efla sig og styrkja. Bókin byggir á aðferðum jákvæðrar sálfræði og höfundarnir eru Hrafnhildur Sigurðardóttir, Ingrid Kuhlman og Unnur Arna Jónsdóttir og þær tvær síðarnefndu komu í þáttinn í dag. Elín Björk Jónasdóttir veðurfræðingur kom í þáttinn í dag í mannlegt veðurspjall. Hún hefur einstakt lag á að útskýra hin ýmsu veðurfyrirbæri og í dag ræddi hún við okkur um samfélagsleg áhrif veðurs og hvernig tækniframfarir og samþætting sérfræðinga hefur minnkað skaða og tjón vegna óveðurs. Tónlist í þættinum í dag: Franskar (sósa og salat) / Stuðmenn (Valgeir Guðjónsson, Egill Ólafsson og Eggert Þorleifsson) Þú komst við hjartað í mér / Hjaltalín (Páll Óskar, Þorgrímur Haraldsson og Sveinbjörn Bjarki Jónsson) Þannig týnist tíminn / Ragnar Bjarnason og Lay Low (Bjartmar Guðlaugsson) Einn ég ríð til fjalla / Helgi Björnsson og reiðmenn vindanna (erlent lag, Helgi Björnsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Marín Eydal er tölvuleikjastreymari en hún streamar reglulega hjá GameTíví undir nafninu Gameveran. Marín elskar ekki bara tölvuleiki heldur elskar hún líka kvikmyndir og sjónvarpsþætti. Marín mætti til Hafsteins með sinn topp 10 lista og í þættinum fara þau yfir hann í sameiningu. Þau ræða meðal annars hvort Marín væri til í að lifa að eilífu, hvort Pöddulíf sé betri en Antz, hversu mögnuð 1917 er, myndina The Man from Earth, Young Frankenstein og Mel Brooks, hversu fyndin Zoolander er og margt, margt fleira. Þátturinn er í boði Subway, Sambíóanna, Celsius Energy og Popp Smells frá Nóa Síríus.
Marín Eydal hefur átt ævintýralegan feril sem streymari. Hún byrjaði að streyma úr einangrun í janúar og er nýbúin að klára seríu af þáttum fyrir GameTíví! Geri aðrir betur! Tölvuleikjaspjallið heldur áfram umfjöllun sinni um íslenska streymara, að þetta sinni er það Marín, eða mjamix eins og hún kallar sig á Twitch, sem kemur í Nóa Síríus stúdíóið og segir okkur frá ferlinum. Við fáum að vita um tölvuleikina sem kveiktu áhugann í æsku, hvernig hún byrjaði að streyma, Iceland RP serverana í GTA Online og margt, margt fleira. Var rætt um Skyrim? Já. Var spurt um stealth archer? Að sjálfsögðu. Við þökkum Marín alveg kærlega fyrir frábæran þátt og hlökkum til að sjá hana aftur! Þið getið fylgt henni á twitch.tv/mjamix Einnig bjóðum við velkominn nýjasta styrktaraðila þáttarins, Yay! Gjafabréf. Setjið appið í símann og skoðið frábært úrval gjafabréfa fyrir þig og þína! Þátturinn er í boði Elko Gaming, Hringdu og Yay!
Metfjölda umsækjenda um alþjóðlega vernd verður vísað úr landi á næstunni. Dómsmálaráðherra segir að verið sé að framfylgja lögum sem ekki hafi verið hægt að gera á meðan sóttvarnatakmarkanir voru í gildi á landamærum. Anna Lilja Þórisdóttir talaði við Jón Gunnarsson og Magnús Davíð Norðdahl. Meðal sviðsmynda sem Almannavarnir skoða vegna jarðhræringa á Reykjanesskaga er að reisa varnargarða til þess að verja byggð í Grindavík og mikilvæga innviði. Anna Lilja Þórisdóttir talaði við Víði Reynisson. 27 prósent starfsmanna Landspítalans finna fyrir kulnunareinkennum. Framkvæmdastjóri mannauðs á spítalanum segir það mikið áhyggjuefni. Sunna Karen Sigurþórsdóttir talaði við Gunnar Ágúst Beinteinsson Rússar hafa tekið ákvörðun um að hætta að senda jarðgas til Finnlands. Flutningar verða stöðvaðir strax í fyrramálið. Urður Örlygsdóttir sagði frá. Forsætisráðherra segir að stjórnarandstöðuflokkarnir ættu mögulega að endurskoða sína stefnu í aðdraganda kosninga, sem hún segir að hafi einkennst af niðurrifi og baktali, þar sem þeir hafi ekki náð góðu gengi í kosningunum. -------------------------------- Það er ekki laust við að setji svolítinn ugg að fólki þegar fréttir berast af nýrri veiru sem farin er að dreifa sér. Yfirvöld í Svíþjóð hafa skilgreint veiruna, apabólu, sem sjúkdóm sem ógni almannaheill eftir að fyrsta tilfelli sjúkdómsins greindist þar í gær. En hvað í ósköpunum er apabóla? Hafdís Helga Helgadóttir talaði við Þórólf Guðnason sóttvarnalækni. Rannsóknir sýna að lög um fæðingar- og foreldraorlof sem sett voru fyrir tuttugu og tveimur árum og hafa síðan verið endurskoðuð, hafa gjörbylt umönnun barna hér á landi. Kristján Sigurjónsson talaði við Guðný Björk Eydal.

estur okkar þessa vikuna er Ásdís Arnalds en hún lauk doktorsprófi í félagsráðgjöf frá Háskóla Íslands í nóvember 2020. Ritgerðin hennar ber heitið „Fjölskyldustefna og foreldrahlutverk: Áhrif íslensku fæðingarorlofslöggjafarinnar á atvinnuþátttöku foreldra og umönnun barna“, en áður en Ásdís hóf doktorspróf í félagsráðgjöf kláraði hún BA- og MA-gráðu í félagsfræði frá Háskóla Íslands. Ásdís starfar sem verkefnastjóri á Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands og mun á næstunni hefja störf sem nýdoktor í verkefni sem þau Guðný Björk Eydal, prófessor í félagsráðgjöf og Ingólfur V. Gíslason, prófessor í félagsfræði stýra. Það verkefni ber heitir „Taka og nýting á fæðingarorlofi meðal foreldra á Íslandi“ en markmiðið er að meta hvernig íslensk löggjöf um fæðingar- og foreldraorlof nýtist foreldrum. Þær Sigrún ræða rannsóknir Ásdísar og fara yfir fæðingarlöggjöf á Íslandi síðustu áratugi, hvaða áhrif hún hefur haft á atvinnu- og fjölskyldulíf á Íslandi og hvernig hún er í samanburði við önnur lönd.
Eyþór Ingi Jónsson, organisti í Akureyrarkirkju, er mikill áhugamaður um náttúruljósmyndun og nýtir hverja lausa stund til að sinna þessu áhugamáli sínu. Nú er hann með sýningu á nokkrum mynda sinna á Glerártorgi á Akureyri. Gígja Hólmgeirsdóttir skrapp á Glerártorg og spjallaði við Eyþór Inga um sýninguna hans. Félagsráðgjafaþing fer fram í dag, en ekki er um hefðbundið þing að ræða að þessu sinni heldur afmælisdagskrá þar sem stuðst verður við tæknina. Guðný Björk Eydal deildarforseti Félagsráðgjafardeildar Háskóla Íslands er ein þeirra sem flytur erindi en hún fjallar um hlutverk félagsráðgjafans við hamfarir. Guðný kom til okkar og sagði okkur frá starfi félagsráðgjafans. Íþróttafélögin Keflavík og Njarðvík hafa sameinast um að bjóða upp á námskeið í körfubolta og knattspyrnu fyrir börn með mismunandi stuðningsþarfir. Hjördís Baldursdóttir íþróttastjóri hjá Keflavík var á línunni og sagði okkur meira. Við fengum reynslubolta til okkar í fréttir vikunnar. Þau Hugrún Halldórsdóttir, fjölmiðlakona, og íþróttafréttamaðurinn fyrrverandi, Arnar Björnsson, komu til okkar og ræddu helstu tíðindi vikunnar. Freyr Gígja Gunnarsson færði okkur svo fréttir af ríka og fræga fólkinu í Hégómavísindahorninu góða. Þar komu við sögu Britney Spears, breska konungsfjölskyldan og Óskarinn. Tónlist: GDRN og Auður - Hvað ef? Sting - If you love somebody set them free. Nýju fötin keisarans - Er ég tilbúinn að elska? Gus Gus - Ladyshave. Freddie Mercury - Living on my own. Dolly Parton - 9 to 5. Sálin hans Jóns míns - Sódóma.

Ásdís A. Arnalds og Guðný Björk Eydal prófessor í félagsráðgjöf: Hvaða áhrif hafa lög um fæðingar- og foreldraorlof haft á foreldra, fjölskylduna og atvinnuþáttöku? Ásdísi A. Arnalds sem ver brátt doktorsritgerð sína um þetta efni, leibeinandi hennar er Guðný Björk Eydal prófessor. Rýnt var í kannanir sem hafa verið gerðar og rannsókn Ásdísar tekur saman. Magnús Sævar Magnússon hjá Útfararstofu Kirkjugarðanna heimsóttur og rætt við hann um lífið og dauðan. Páll Líndal doktor í umhverfissálfræði flytur pistil um mikilvægi þess að ríkari áhersla sé lögð á samspil fólks og umhverfis og að sálfræðileg sjónarmið fái sitt rými í hönnunar- og skipulagsferlum.

Sumarþáttaröð Sagna af landi heldur áfram. Í þessum þriðja þætti verður endurflutt viðtal við Guðmund Halldórsson í Bolungarvík sem rifjaði upp frækinn björgunarleiðingur þegar togarinn Egill Rauði frá Neskaupsstað strandaði undir Grænuhlíð í Ísafjarðardjúpi þann 26. Janúar 1955. Í þættinum verður auk þess endurflutt viðtal við Ingu Dagnýju Eydal, þar sem hún talar um persónulega reynslu sína af kulnun. Efni í þáttinn unnu Halla Ólafsdóttir og Gígja Hólmgeirsdóttir. Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir.

Árið 1951 gerðu Íslendingar varnarsamninga við Bandaríkin og hófst þar með einn af veigameiri köflum íslenskrar fullveldissögu. Gjarnan er rætt um þrífót fullveldis, sem tilgreinir þá þætti sem mynda undirstöðu fullvalda ríkis, varnarlegt fullveldi, efnahagslegt fullveldi og menningarlegt fullveldi. Allir þurfa þessir þættir að vera fyrir hendi með einum eða öðrum hætti svo að ríki geti talist fullvalda og allir koma þeir við í sögu þeirra viðburða sem gert er skil í þessum sjöunda þætti hugmyndasögu fullveldisins, "Hundrað ár, dagur ei meir". Marteinn Sindri Jónsson ræðir við Friþór Eydal sem hóf störf árið 1983 sem upplýsingafulltrúi Varnarliðsins, Hauk Ingvarsson bókmenntafræðing og Kristínu Svövu Tómasdóttur sagnfræðingur.

Í Sögum af landi í dag verður rætt við Ingu Dagnýju Eydal um nýútkomna bók hennar, Konan sem datt upp stigann, en þar segir hún sögu sína og upplifun af kulnun. Í þættinum verður einnig slegið á þráðinn til Helgu Björgu Eiríksdóttur og spjallað við hana um harðfiskverkun sem komin er á fullt á Borgarfirði eystri. Auk þess verður rætt við fiskifræðinginn og stangveiðimanninn Erlend Steinar Friðriksson um vorið og komandi stangveiðitíma. Efni í þáttinn unnu Gígja Hólmgeirsdóttir, Úlla Árdal og Ágúst Ólafsson. Umsjónarmaður: Gígja Hólmgeirsdóttir

Það er áætlað að á Íslandi séu um 5000 manns með heilabilun Alzheimersamtökin eru með fræðsluverkefni varðandi heilabilun og erum að virkja alla landsmenn til að vinna markvisst í að mæta þörfum fólks með heilabilun og aðstandendum þeirra. Með þessu fræðsluverkefni er áætlunin einnig að minnka fordóma sem fólk með heilabilun og aðstandendur þeirra mæta í samfélaginu og auka fræðslu og vitund fólks um heilabilunarsjúkdóma. Við heyrðum í Sigubjörgu Hannesdóttur, fræðslustjóra Alzheimersamtakanna og verkefnastjóra Heilavina í þættinum í dag, hægt er að fá fræðslu og skrá sig sem heilavin á www.heilavinur.is. Við heyrðum í Ingu Dagnýju Eydal í þættinum, en það er nýútkomin bók eftir hana sem heitir Konan sem datt upp stigann. Þar fjallar hún á opinskáan og einlægan hátt um þær afleiðingar sem hún glímdi við eftir að hafa veikst af of mikilli streitu og ekki getað stundað fasta vinnu síðan hún hætti í erilsömu starfi sem hjúkrunarfræðingur. Árið 2019 kom út hjá Vestfirska forlaginu bókin Er það hafið eða fjöllin? um Flateyri og fólkið þar, eftir þjóðfræðinginn Sæbjörgu Freyju Gísladóttur. Sæbjörg kom í heimsókn í Hveravík á Selströnd til að selja húsráðendum þar Kalksalt en Sæbjörg og eiginmaður hennar Eyvindur Atli Ásmundsson eiga og reka samnefnt fyrirtæki. Kristín Einarsdóttir, okkar kona á Ströndum, ræddi við Sæbjörgu um kalksaltið, snjóflóðin á Flateyir og Súgandafirði og bókina. UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Í hlaðvarpi vikunnar spjallar Sigrún við Guðnýju Björk Eydal, prófessor í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands. Guðný lauk doktorsprófi í félagsfræði frá Háskólanum í Gautaborg árið 2005 og hefur verið mjög öflug í rannsóknum á íslenskum foreldrum, fjölskyldum og fjölskyldustefnu um árabil. Þær Sigrún ræða um hvernig stuðning íslenskar fjölskyldur fá frá ríkisvaldinu, hvernig hann hefur þróast og hvernig hann er í samanburði við önnur Norðurlönd. Guðný hefur skoðað reynslu foreldra og sérstaklega feðra og segir hún okkur frá þeim rannsóknum. Og auðvitað setja þær Sigrún og Guðný hlutina í stærra samhengi, ræða tengsl félagsfræði og félagsráðgjafar sem og hvað fjölskyldufélagsfræði er og af hverju það er mikilvægt að skilja og rannsaka fjölskylduna sem eina grundvallarstofnun samfélagins.
Farið í heimsókn í gamla flugturninn á Reykjavíkurflugvelli en hann er friðaður í fylgd Friðþórs Eydal hjá Isavia, turninn er illa farinn og ekki hefur verið ákveðið hvað þar verður eða hvenær. Saga hans rakin og sagt frá flugstrfssemi á vellinum. Rætt við Guðjón Friðriksson sagnfræðing um Pólana svokölluðu sem var húsnæði byggt fyrir fátækt fólk á millistríðs árunum, um gullgröft í Öskjuhlíðinni, stórar hugmyndir um íþróttaleikvang Reykjavíkur og fl. Rætt við Helga Mána Sigurðsson sagnfræðing um stríðsminjar í Nauthólsvík (viðtal áður í Flakki 2010)

Í Lundúnaspjalli dagsins fjallaði Sigrún Davíðsdóttir um nýja skoðanakönnun í Bretlandi sem sýnir mun minni stuðning við úrsögn landsins úr Evrópusambandinu en áður. Kjósendum í 112 kjördæmum hefur snúist hugur síðan í atkvæðagreiðslunni. Breytingin er rakin til óvissunar um áhrif úrsagnar á breskt þjóðlíf, fækkunar starfa og hræsni brexitsinna í röðum auðmanna sem ýmist hyggjast flytja úr landi eða koma starfsemi sinni fyrir annars staðar. Sigrún sagði líka frá kaupum bandarísks auðkýfings, Stan Kroenke, á fótboltaliðinu Arsenal. Virði bandaríska tæknifyrirtækisins Apple fór nýlega yfir billjón Bandaríkjadali og er það verðmætasta fyrirtæki sögunnar. Már Wolfgang Mixa, lektor í fjármálum við Háskólann í Reykjavík, sagði fyrirtækið 110 sinnum verðmætara en öll fyrirtæki í íslensku kauphöllinni. Fimm verðmætustu fyrirtækin í Bandaríkjunum eru tæknifyrirtæki en ekkert þeirra var á listanum yfir fimm verðmætustu fyrirtæki landsins fyrir áratug. Vera Illugadóttir sagði frá deilum Kanada og Sádí-Arabíu en þær hófust með Twitterfærslu kanadíska utanríkisráðuneytisins þar sem áhyggjum var lýst af mannréttindum í Sádí-Arabíu. Stjórnvöld í Sádí-Arabíu tóku yfirlýsingunni óstinnt upp og kölluðu sendiherra sinn heim og hafa nú slitið viðskiptasamningum og ýmsum öðrum tengslum, t.d. látið af umfangsmiklum kornkaupum frá Kanada og meinað Sádum að stunda nám í Kanada. Gamla flugstöðin á Keflavíkurflugvelli var rifin nýverið. Um hana fóru kynslóðir Íslendinga í fyrsta sinn til útlanda og eiga um hana góðar minningar. Friðþór Eydal, fyrrverandi upplýsingafulltrúi Varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli, sagði sögu flugstöðvarinnar í þættinum en í henni tóku margir upp þá venju að drekka bjór klukkan sex að morgni, áður en lagt var í'ann út í heim. Tónlist: Nan Fon Bwa - Melissa Laveaux Án þín - Trúbrot
Saga Eiðaskóla er löng og merkileg. Skólahald hófst þar 1883 þegar Bændaskóli tók til starfa en á fullveldisárinu 1918 var Alþýðuskólinn, sem svo margir þekkja, settur á fót. Nú stendur til að segja þessa sögu í heimildarmynd. Björn Jóhannsson og Guðmundur Bergkvistsögðu frá verkefninu.Þau okkar sem lakast standa í efnislegu eða heilsufarslegu tilliti verða oft að treysta á að velferðarkerfið komi til aðstoðar. Meðal þeirra sem taka á móti fólki í leit að leiðbeiningum eru félagsráðgjafar, sem vinna að því að auka styrk og getu fólks í samfélaginu. María Rúnarsdóttir, formaður Félagsráðgjafafélags Íslands, og Guðný Björk Eydal, prófessor við Háskóla Íslands, lýstu verkefnum félagsráðgjafa. Snúningur er að verða í starfsemi flugfélagsins Air Iceland Connect. Bretlandsflug þess verður aflagt, sem og flug milli Akureyrar og Keflavíkurflugvöllar. Kristján Sigurjónsson sagði frá þessu og velti fyrir sér framtíð innanlandsflugsins, sagði frá hótelum í Reykjavík og því að starfsfólk Kastrup-flugvallar minnist Henriks prins af hlýju. Sarah Vaughan söng Lush life. Íslendingar eru undrandi og ósáttir vegna þess að þeim er sagt að skólarnir þeirra skili mun lakari nemendum en skólar í nágrannalöndum. Lesskilningur er sagður minni á Íslandi, brottfall meira og stærri gjá milli nemenda af innlendum og erlendum uppruna. Getur verið að í þessu birtist ekki síst mikil og vaxandi stéttaskipting? Berglind Rós Magnúsdóttir, dósent við menntavísindasvið Háskóla Íslands, ræddi skólamálin og varaði við því að PISA-niðurstöður væru teknar sem eini mælikvarðinn á stöðuna. Alþjóðavæðing og efnamunur væru líka veigamiklir áhrifavaldar.
Rætt við Guðfinnu Eydal sálfræðing sem býr efst í Grjótagötunni og hefur gert frá 1980, húsið var nánast endurbyggt, skipt um glugga, kjallari dýpkaður og litir fundnir. Afar fallegt í dag og Guðfinna getur ekki hugsað sér að búa annars staðar. Gengið með Guðjóni Friðrikssyni niður Grjótagötu, sagt frá fólki, sögu og byggingum. Guðbrandur Benediktsson safnstjóri Borgarsögsafns gengur með okkur um Landnámssýninguna, en nýjar mannvistarleifar hafa fundinst undanfarin ár sem breyta öllu varðandi landnám Íslands, líklega var landið numið töluvert miklu fyrr, og ekki einu sinni víst að Ingólfur Arnarson hafi verið til.

Guðrún var fyrir norðan og fékk til sín góða gesti, þær Hildi Eir Bolladóttur og Ingu Eydal. Þær eiga það sameiginlegt að hafa stigið fram af miklu hugrekki og talað um viðkvæm mál, Hildur Eir sendi frá sér persónulega bók fyrir tæpum tveimur árum um kvíða og Inga hefur tjáð sig með bloggi og í viðtölum, en hún varð óvinnufær um svipað leyti af andlegri og líkamlegri örmögnun. Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var kvikmyndaleikstjórinn Ása Helga Hjörleifsdóttir sem frumsýndi Svaninn, sína fyrstu mynd í fullri lengd á dögunum sem byggð er á bók Guðbergs Bergssonar. Myndin hefur fengið góða dóma og vann til verðlauna á kvikmyndahátíðum í Egyptalandi og Indlandi. Við ræddum saman um lífið og listina yfir kaffibolla í þættinum í dag. Umsjón, Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson
Inga Dagný Eydal, hjúkrunarfræðingur, ræðir við Hildi Eir um kulnun í starfi