Search for episodes from Leikjavarpið with a specific topic:

Latest episodes from Leikjavarpið

Leikjavarpið #48 - Astro Bot og PlayStation 5 Pro

Play Episode Listen Later Sep 25, 2024 53:56


Daníel Rósinskrans, Sveinn Aðalsteinn og Bjarki Þór fjalla um PlayStation 5 Pro sem er væntanleg í verslanir næstkomandi nóvember. Við hverju má búast og hvernig er Pro útgáfan öflugri en hefðbundna PlayStation 5? Tríóið ræðir einnig um einn af betri leikjum ársins, Astro Bot, sem er fyrsti leikurinn fær fimm stjörnur af fimm mögulegum hjá okkur nördunum. Tónlist: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed under Creative Commons: By Attribution 4.0 License http://creativecommons.org/licenses/by/4.0/

Leikjavarpið #47 - Summer Game Fest, Xbox Games Showcase og Nintendo Direct

Play Episode Listen Later Jul 19, 2023 100:04


Daníel Rósinskrans og Bjarki Þór fjalla um þrjár stórar leikjakynningar - Summer Game Fest, Xbox Games Showcase og Nintendo Direct. Til umfjöllunar eru leikir á borð við Starfield, Super Mario Bros. Wonder, Mortal Kombat 1 og fjöldi annara leikja sem margir hverjir eru væntanlegir á komandi mánuðum.   Upptaka frá 4. júlí 2023.   Tónlist: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed under Creative Commons: By Attribution 4.0 License http://creativecommons.org/licenses/by/4.0/

Leikjavarpið #46 - PlayStation Showcase 2023 og The Legend of Zelda: Tears of the Kingdom

Play Episode Listen Later Jun 1, 2023 91:05


Sveinn, Daníel og Bjarki fara yfir helstu leikina sem kynntir voru á PlayStation Showcase 2023 sýningunni. Undanfarna daga hafa strákarnir svo verið að spila The Legend of Zelda: Tears of the Kingdom og í síðari hluta þáttar segja þeir frá sínum fyrstu hughrifum á leiknum (umræður án söguspilla).    Tónlist: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed under Creative Commons: By Attribution 4.0 License http://creativecommons.org/licenses/by/4.0/

Leikjavarpið #45 - Týndi þátturinn

Play Episode Listen Later May 30, 2023 88:27


Ofurdúóið Daníel Rósinkrans og Sveinn Aðalsteinn tækla allt það helsta úr heimi tölvuleikja!  Þar á meðal Xbox Developer_Direct, Hi-Fi Rush, FM 2023 fyrir PS5, DualSense Edge, Live Service leikina og síðast en ekki síst Forspoken. Athugið. Þátturinn var tekinn upp snemma í febrúar en upptakan fór á flakk og týndist. Upptakan fannst loks. Afleiðingar fylgdu í kjölfarið. Tæknimaður okkar var rekinn, ráðinn aftur, faðmaður og honum fyrirgefið.   Mynd: Midjourney Tónlist: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed under Creative Commons: By Attribution 4.0 License http://creativecommons.org/licenses/by/4.0/

Leikjavarpið #44 - Best of 2022 í tölvuleikjum

Play Episode Listen Later Jan 18, 2023 107:17


Þeir eru mættir aftur til leiks eftir vetrardvala! Daníel Rósinkrans, Sveinn og Bjarki fara saman yfir það sem stóð upp úr af nýliðnu leikjaári og gefa hlustendum smjörþefinn af leikjaárinu 2023. Strákarnir velja topp 3 bestu leiki ársins 2022 af sínu mati, ræða God of War: Ragnarök og fleira og fleira.    Tónlist: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed under Creative Commons: By Attribution 4.0 License http://creativecommons.org/licenses/by/4.0/

Leikjavarpið #43 - Stray, PowerWash Simulator og hinsegin í tölvuleikjum

Play Episode Listen Later Aug 9, 2022 104:10


Í þættinum er ofurkrúttlegi kisuleikurinn Stray tekinn fyrir en leikurinn hefur náð að heilla marga spilara upp úr skónum og hefur auk þess verið nokkuð áberandi á netinu og samfélagsmiðlum. Fyrst þarf þó að klæða sig í gulu gúmmíhanskana þar sem háþrýstiþvottur í PowerWash Simulator verður tekinn fyrir og enginn skítur skilinn eftir! Farið er yfir reynslusögur af því að steyma leikjum beint í gegnum PlayStation-leikjatölvuna og rætt um fréttir sem tengjast PlayStation 5, PSVR2 og Quest 2 sýndarveruleikagleraugunum. Í lok þáttar er fjallað um bílaleikinn Hot Wheels Unleashed sem býður spilurum meðal annars upp á það að búa til sínar eigin brautir. Allt þetta og fleira í fertugasta og þriðja þætti af Leikjavarpinu, hlaðvarpsþætti Nörd Norðursins! Efni þáttar: Hvað er verið að spila? Háþrýstiþvottur í PowerWash Simulator Kisuleikurinn Stray Hvernig virkar að streyma PS-leikjum? PS5 með stuðning við 1440p skjái PSVR2 upplýsingar og Quest 2 hækkar í verði Hot Wheels Unleashed    Myndir úr Stray og PowerWash Simulator, Pride fáninn ásamt digital töfrum Bjarka Tónlist: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed under Creative Commons: By Attribution 4.0 License http://creativecommons.org/licenses/by/4.0/

Leikjavarpið #42 - Elden Ring, Grow og Ísland í tölvuleikjum

Play Episode Listen Later Jul 12, 2022 120:42


Bjarki, Daníel og Sveinn spjalla um sjóðheitar tölvuleikjafréttir ásamt að taka fyrir Grow: Song of the Evertree og stórleikinn Elden Ring. Yfirlit þáttar: Í spilun Ísland í tölvuleikjum Útgáfudagur God of War Skull and Bones kynning og útgáfudagur Forspoken seinkað Ekkert RDR eða GTA 4 Remake Gollum stiklan Grow: Song of the Evertree leikjarýni Eldheitar Elden Ring umræður   Myndir úr Elden Ring (4) og Grow: Song of the Evertree (2)   Tónlist: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed under Creative Commons: By Attribution 4.0 License http://creativecommons.org/licenses/by/4.0/

bones gta elden ring bjarki sveinn overworld kevin macleod
Leikjavarpið #41 - TMNT: Shredder's Revenge, Nintendo Direct og Kirby

Play Episode Listen Later Jul 6, 2022 98:25


Sveinn, Daníel og Bjarki fjalla um allt það helsta úr heimi tölvuleikja! Farið er yfir hvað kom fram á nýjustu Nintendo Direct Mini kynningunni, spjalla um leikina Teenage Mutant Ninja Turtles: Shredder's Revenge, Horizon: Forbidden West og Kirby and the Forgotten Land, ræða kosti og galla nýjustu PlayStation áskriftarleiðanna og fleira.   Tónlist: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed under Creative Commons: By Attribution 4.0 License http://creativecommons.org/licenses/by/4.0/

Leikjavarpið #40 - E3-farinn Bjössi mætir í spjall

Play Episode Listen Later Jun 24, 2022 70:07


Bjössi úr Gamestöðinni mætir í Leikjavarpið og ræðir E3 ferðina sína árið 2018. Einnig segir Sveinn frá ferðalagi sínu þegar hann heimsótti Gamescom í Köln árið 2012.   Mynd: Myndblanda - Bjössi, Sveinn og Daníel og Wikimedia Commons (Dronepicr) Tónlist: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed under Creative Commons: By Attribution 4.0 License http://creativecommons.org/licenses/by/4.0/

e3 bj einnig spjall sveinn overworld kevin macleod
Leikjavarpið #39 - Summer Game Fest og Xbox & Bethesda Games Showcase

Play Episode Listen Later Jun 14, 2022 89:36


Sveinn Aðalsteinn og Daníel Rósinkrans fjalla um Summer Game Fest og Xbox & Bethesda Games Showcase leikjakynningarnar sem fóru fram fyrir stuttu. Á kynningunum var sýnt úr og fjallað um væntanlega leiki sem flestir eru væntanlegir á þessu eða næsta ári. Þar á meðal eru leikirnir Redfall, The Callisto Protocol, High on Life og fjöldi annara leikja. Ef þú vilt vita hvað er framundan í leikjaheiminum er þessi þáttur algjört möst!   Tónlist: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed under Creative Commons: By Attribution 3.0 License creativecommons.org/licenses/by/3.0/

Leikjavarpið #38 - State of Play, Diablo Immortal og Sonic Frontiers

Play Episode Listen Later Jun 7, 2022 61:53


Tölvuleikjasérfræðingarnir Daníel Rósinkrans og Sveinn Aðalsteinn hjá Nörd Norðursins fjalla um það allt það helsta úr heimi tölvuleikja. Aðalefni þáttarins er State of Play leikjakynningin hjá Sony en einnig er fjallað um ýmislegt fleira eins og Diablo Immortal, Star Wars Jedi: Survivor, Sonic Frontiers og hvað er framundan í sumar.   Tónlist: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed under Creative Commons: By Attribution 3.0 License creativecommons.org/licenses/by/3.0/

Leikjavarpið #37 - Væntanlegt árið 2022, PSVR 2 og Inscryption

Play Episode Listen Later Jan 11, 2022 110:00


Daníel Rósinkrans, Bjarki, Sveinn og hinn Daníel ræða allt það helsta úr heimi tölvuleikja í þrítugasta og sjöunda þætti Leikjavarpsins, sem er jafnframt fyrsti Leikjavarpsþáttur ársins 2022. Stóra umræðuefni þáttarins eru væntanlegir leikir á komandi ári en auk þess er fjallað um PSVR 2, E3 2022 og tölvuleikina Inscryption, Death's Door og Halo Infinite.  Efni þáttar: Hvað er verið að spila? Daníel og Sveinn leggja lokadóm á Halo Infinite Inscryption, fyrstu hughrif Sony kynnir PSVR 2 Death's Door leikjarýni E3 2022 verður á netinu Væntanlegir tölvuleikir árið 2022 Leikjaklúbburinn   Tónlist:  "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed under Creative Commons: By Attribution 3.0 License creativecommons.org/licenses/by/3.0/ Neon Laser Horizon by Kevin MacLeod Link: https://incompetech.filmmusic.io/song/7015-neon-laser-horizon License: https://filmmusic.io/standard-license

death e3 hva halo infinite psvr inscryption bjarki sveinn neon laser horizon overworld kevin macleod
Leikjavarpið #36 - Leikir ársins 2021

Play Episode Listen Later Dec 13, 2021 124:54


Daníel Rósinkrans, Sveinn Aðalsteinn og Bjarki Þór fjalla um það helsta úr heimi tölvuleikja og gera upp tölvuleikjaárið 2021. Farið er yfir hvaða leikir unnu til verðlauna á The Game Award og fjallað um ný sýnishorn úr leikjum sem sýnd voru á hátíðinni. Strákarnir fara yfir þá fimm leiki sem stóðu upp úr á árinu að þeirra mati og svo er Tölvuleikjaklúbburinn á sínum stað. Allt þetta og fleira til í þrítugasta og sjötta þætti Leikjvarpsins!   Efni þáttar: Í spilun Chorus leikjaumfjöllun Halo Infinite Allt það helsta frá The Game Awards Hellblade 2 sýnishornið The Matrix Awakens: An Unreal Engine 5 Experience Sony með GamePass kerfi í bígerði Leikaklúbburinn (NUTS) Leikir ársins að mati Nörd Norðursins   Tónlist:  "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed under Creative Commons: By Attribution 3.0 License creativecommons.org/licenses/by/3.0/ Neon Laser Horizon by Kevin MacLeod Link: https://incompetech.filmmusic.io/song/7015-neon-laser-horizon License: https://filmmusic.io/standard-license   Mynd: Frá vinstri: Deathloop (2021), It Takes Two (2021), The Game Awards (2021), Returnal (2021), Ratchet & Clank: Rift Apart (2021)

game awards allt str game pass returnal deathloop it takes two fari ratchet clank rift apart bjarki matrix awakens an unreal engine neon laser horizon overworld kevin macleod
Leikjavarpið #35 - Viðtal við Ara Þór hjá Epic Games

Play Episode Listen Later Dec 7, 2021 99:39


Í þrítugasta og fimmta þætti Leikjavarpsins spjalla þeir Bjarki Þór og Daníel Rósinkrans við Ara Þór sem starfar sem boðberi (evangelist) hjá Epic Games. Í þættinum fer Ari yfir feril sinn í leikjaiðnaðinum en hann hefur meðal annars komið að gerð Angry Birds tölvuleiks og Returnal sem var gefin út fyrir PlayStation 5 leikjatölvuna. Í þættinum er einnig fjallað um Unreal leikjavélina, upphaf HRingsins, PS5 prótótýpuna, íslenska tölvuleikjafyrirtækið Gogogic (sem gaf meðal annars út leikinn Vikings of Thule) tölvuleikjabransann og margt fleira.    Tónlist (intro): Voxel Revolution by Kevin MacLeod Link: https://incompetech.filmmusic.io/song/7017-voxel-revolution License: https://filmmusic.io/standard-license

Leikjavarpið #34 - Cyberpunk 2077, Just Dance 2022 og The Game Awards tilnefningar

Play Episode Listen Later Nov 29, 2021 100:21


Efni þáttar: Leikir í spilun - Hvað hafa strákarnir verið að spila frá því seinast? The Game Awards tilnefningar - Daníel Rósinkrans leiðir umræðuna og skoðar hvaða leikir eru tilefndir í ár. Cyberpunk 2077 - Ár er liðið frá útgáfu, hefur eitthvað breyst? Steinar Logi segir frá því hvernig leikurinn er að keyra á PS5 í dag. Hvaða leikir voru keyptir á Black Friday? - Eru veskin nokkuð orðin tóm?! Kena: Bridge of Spirits - Daníel Rósinkrans heldur áfram að gagnrýna þennan fallega leik. Just Dance 2022 - Bjarki fer í dansskóna og rýnir í nýjast Just Dance leikinn. Battlefield 2042 - Sveinn fer yfir stöðuna á Battlefield 2042 sem hefur verið að glíma við ýmiskonar vandamál. Halo Infinite - Fyrstu hughrif. Leikjaklúbburinn - Donut County og NUTS - Daníel Páll leiðir okkur áfram í gegnum Kleinuhringjasýslu og næsti leikur er kynntur til sögunnar; NUTS!   Tónlist:  "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed under Creative Commons: By Attribution 3.0 License creativecommons.org/licenses/by/3.0/ Neon Laser Horizon by Kevin MacLeod Link: https://incompetech.filmmusic.io/song/7015-neon-laser-horizon License: https://filmmusic.io/standard-license   Mynd: Cyberpunk 2077 (CD Projekt), Kena: Bridge of Spirits (Ember Lab) og Just Dance 2022 (Ubisoft)

Leikjavarpið #33 - Staðan á PS5 og Xbox Series X ári eftir útgáfu

Play Episode Listen Later Nov 15, 2021 115:53


Strákarnir í Leikjavarpinu fjalla um allt það helsta úr heimi tölvuleikja, þar á meðal nýju Halo Infinite og Elden Ring leikjakynningarnar. Þrír tölvuleikir eru teknir fyrir í þættinum; adrenelínleikurinn Riders Republic, þægilega rólegi indíleikurinn Unpacking og ævintýraleikurinn Kena: Bridge of Spirits. Ár er liðið frá útgáfu PlayStation 5 og Xbox Series X leikjatölvunum og strákarnir yfir hvað hefur staðið upp úr á liðnu ári, farið yfir helstu kosti og galla leikjatölvanna. Fjallað er um notendaviðmót, kælingu, hvort tölvurnar séu hljóðlátar eða háværar, hraða, geymslupláss, gæði, leikjaúrval, persónulega upplifun og fjarstýringar svo eitthvað sé nefnt. Leikjaklúbburinn er á sínum stað þar sem fjallað er um leikinn Papers, Please og nýr leikur settur á leikjalistann.   Strákarnir í Leikjavarpinu fjalla um allt það helsta úr heimi tölvuleikja, þar á meðal nýju Halo Infinite og Elden Ring leikjakynningarnar. Þrír tölvuleikir eru teknir fyrir í þættinum; adrenelínleikurinn Riders Republic, þægilega rólegi indíleikurinn Unpacking og ævintýraleikurinn Kena: Bridge of Spirits. Ár er liðið frá útgáfu PlayStation 5 og Xbox Series X leikjatölvunum og strákarnir yfir hvað hefur staðið upp úr á liðnu ári, farið yfir helstu kosti og galla leikjatölvanna. Fjallað er um notendaviðmót, kælingu, hvort tölvurnar séu hljóðlátar eða háværar, hraða, geymslupláss, gæði, leikjaúrval, persónulega upplifun og fjarstýringar svo eitthvað sé nefnt. Leikjaklúbburinn er á sínum stað þar sem fjallað er um leikinn Papers, Please og nýr leikur settur á leikjalistann.   Efni þáttar: Leikir í spilun Halo Infinite kynningin Staða Xbox Series S/X einu ári eftir útgáfu Elden Ring kynning Sveinn ræðir Riders Republic Fleiri seinkannir á vélum vegna íhlutaskorts Bjarki og Daníel spila Unpacked á Switch Nintendo fréttir Daníel fjallar um Kena: Bridge of Spirits, Staða PlayStation 5 einu ári eftir útgáfu Leikjaklúbburinn (Paper, Please)   Tónlist: Neon Laser Horizon by Kevin MacLeod Link: https://incompetech.filmmusic.io/song/7015-neon-laser-horizon License: https://filmmusic.io/standard-license  "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed under Creative Commons: By Attribution 3.0 License creativecommons.org/licenses/by/3.0/ Mynd: PlayStation 5 og Xbox Series X

Leikjavarpið #32 - Guardians of the Galaxy, State of Play og Nintendo Expansion Pack

Play Episode Listen Later Nov 1, 2021 100:55


Þrítugasti og annar þátturinn af Leikjavarpinu, hlaðvarpi Nörd Norðursins, er nú kominn á allar helstu hlaðvarpsveitur! Að þessu sinni eru það Sveinn Aðalsteinn, Daníel Rósinkrans og Bjarki Þór sem eru mættir til leiks til að ræða allt það helst úr heimi tölvuleikja. Það er úr ýmsu að taka og má þar meðal annars nefna nýjar fréttir varðandi útgáfu Cyberpunk 2077 og The Witcher, ný stikla úr Uncharted kvikmyndinni, Nintendo Expansion Pack-ið skoðað og Sveinn rýnir í Guardians of the Galaxy. Allt þetta og margt fleira í nýjasta þætti Leikjavarpsins!   Efni þáttar: Cyberpunk og Witcher uppfærslurrnar seinkað Fyrsta stiklan fyrir Uncharted kvikmyndina skoðuð God of War væntanlegur á PC GTA þríleikurinn væntanlegur á þessu ári Nintendo Expansion Pack nú fáanlegt Sveinn gagnrýnir Guardians of the Galaxy State of Play yfirferð - væntanlegir leikir á PlayStation (Leikjaklúbburinn geymir umfjöllun og spilar áfram Paper, Please fyrir næsta þátt)   Tónlist: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed under Creative Commons: By Attribution 3.0 License creativecommons.org/licenses/by/3.0/ Mynd:  Guardians of the Galaxy (2021)

Leikjavarpið #31 - Nintendo fréttir, Metroid Dread og SSD diskar í PS5

Play Episode Listen Later Oct 18, 2021 84:46


Daníel Rósinkrans, Sveinn og Bjössi hjá Gamestöðinni eru mættir til að fjalla um allt það helsta úr heimi tölvuleikja. Í þættinum er ákveðið Nintendo þema þar sem fjallað er um væntanlega Animal Crossing viðbót, Nintendo Online viðbótaráskrift sem gerir áskrifendum kleift að spila gamla N64 og Sega Genesis leiki á Switch og að lokum rýnir Rósinkrans í Metroid Dread sem margir Nintendo-spilarar hafa beðið spenntir eftir.  Auk þess fjalla þremenningarnir um Gotham Knights, Suicide Squad og Back 4 Blood sem kom út í seinustu viku. Tölvuleiknum var streymt á Twitch-rás Nörd Norðursins fyrir nokkrum dögum þar sem nördarnir börðust hetjulega gegn óðum zombískrímslum. Tæknimál koma einnig við sögu þar sem Sveinn upplýsir hlustendur um hvað ber að hafa í huga þegar verið er að uppfæra geymsluplássið á PS5 leikjatölvunni. Umræðuefnið tengist grein sem var nýlega birt á heimasíðu Nörd Norðursins þar sem verð og framboð á SSD diskum fyrir PS5 hér á landi var sérstaklega skoðað. Samhliða þeirri umfjöllun hefur Nörd Norðursins birta leiðbeiningar um hvernig er hægt að bæta við SSD diski við PS5 tölvuna. Allt þetta og meira til í nýjasta þætti Leikjavarpsins!   Efni þáttar: *Back 4 Blood *Animal Crossing viðbót *SSD ævintýri Sveins *Nintendo Online viðbótar áskrift *Gotham Knights og Suicide Squad á DC Fandome *Metroid Dread   Tónlist: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed under Creative Commons: By Attribution 3.0 License creativecommons.org/licenses/by/3.0/ Mynd af Metroid í Metroid Dread (Nintendo)

Leikjavarpið #30 - Far Cry 6, FIFA 22 og Battlefield 2042 Beta

Play Episode Listen Later Oct 11, 2021 113:50


Tölvuleikjanördarnir Bjarki Þór, Steinar Logi, Sveinn Aðalsteinn og Daníel Páll fara um víðan völl í þrítugasta þætti Leikjavarpsins. Steinar segir frá Alan Wake Remastered sem var gefinn út í byrjun mánaðar, Sveinn gagnrýnir Far Cry 6 en hann hefur spilað allar Far Cry leikina og þekkir seríuna því mjög vel, Bjarki skellir sér í takkaskóna og tæklar FIFA 22 og Hypermotion-tæknina sem EA notaði við gerð leiksins, Daníel heldur áfram með Leikjaklúbbinn og kynnir næsta leik sem klúbburinn ætlar að spila. Allt þetta og margt fleira í nýjasta þætti Leikjavarpsins!   Efni þáttar: Hvað er verið að spila? Alan Wake Remastered Windows 11 Verðið á Nintendo Switch OLED á Íslandi Battlefield 2042 Beta Auka SSD diskar fyrir PS5 Far Cry 6 FIFA 22 Leikjaklúbburinn GTA Definitive Edition safnið Streymi planað: Back 4 Blood   Tónlist: Neon Laser Horizon by Kevin MacLeod Link: https://incompetech.filmmusic.io/song/7015-neon-laser-horizon License: https://filmmusic.io/standard-license  "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed under Creative Commons: By Attribution 3.0 License creativecommons.org/licenses/by/3.0/ Mynd: Haninn Chicharrón úr Far Cry 6

Leikjavarpið #29 - Deathloop, Nintendo Direct og NBA2K22

Play Episode Listen Later Sep 27, 2021 114:54


Tölvuleikjanördarnir Sveinn Aðalsteinn, Steinar Logi, Bjarki Þór og Daníel Páll fara yfir allt það helsta úr heimi tölvuleikja í nýjasta þætti Leikjavarpsins, hlaðvarpsþætti Nörd Norðursins. Í þættinum rýnir Sveinn í fyrstu persónu skotleikinn Deathloop sem kom í verslanir fyrr í þessum mánuði. Leikurinn hefur hlotið lof gagnrýnenda og gefa leikjasíðurnar IGN og Gamespot leiknum 10 af 10 mögulegum í einkunn. Nýjasta Nintendo Direct kynningin er krufin þar sem Nintendo kynnti nýtt efni úr væntanlegri Mario kvikmynd, sýndi úr Bayonetta 3 og margt fleira. Steinar fræðir hlustendur um körfuboltaleikinn NBA2K22 þar sem spilarar þurfa ekki eingöngu að hugsa um troðslur og varnarleikinn heldur þurfa einnig að huga að tískumálum, pósum og töffara stigum.  Nýr dagskrárliður er kynntur til sögunnar sem kallast Leikjaklúbburinn. Þar eru hlustendur hvattir til að spila valda smelli með strákunum í Leikjavarpinu, fyrsti leikur Leikjaklúbbsins er Day of the Tentacle Remastered frá árinu 2016. Hlustendur geta svo fylgst með gang mála, tekið þátt í umræðum og komið með hugmyndir að leik til að spila í Leikjaklúbbnum á Instagrammi Nörd Norðursins. Þetta er aðeins brot af því sem fjallað er um í þættinum en einnig eru teknar fyrir ferskar tölvuleikjafréttir, rýnt í Diablo II: Resurrected og Death Stranding Director's Cut á PlayStation 5. Hægt er að hlusta á þáttinn á heimasíðu Nörd Norðursins og öllum helstu hlaðvarpsveitum.   Tónlist: Neon Laser Horizon by Kevin MacLeod Link: https://incompetech.filmmusic.io/song/7015-neon-laser-horizon License: https://filmmusic.io/standard-license  "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed under Creative Commons: By Attribution 3.0 License creativecommons.org/licenses/by/3.0/ Mynd: Breytt mynd úr Deathloop og NBA2K22

Leikjavarpið #28 - PlayStation Showcase 2021, Twelve Minutes og Daði Freyr

Play Episode Listen Later Sep 11, 2021 99:42


Daníel Rósinkrans, Sveinn Aðalsteinn, Steinar Logi og Bjarki Þór fjalla um allt það helsta úr heimi tölvuleikjanna í nýjasta þætti Leikjvarpsins. Áhersla er lögð á PlayStation Showcase 2021 í þættinum en auk þess gagnrýnir Bjarki Twelve Minutes, fjallað er um Xbox Game Pass tónleikana með Daða Frey og nýjustu fréttirnar.   Efni þáttar: Í spilun Epic Games vs Apple Twelve Minutes Horizon Forbidden West útgáfur Daði Freyr með Xbox Game Pass tónleika Heims­meist­ara­mótið í League of Le­g­ends haldið á Íslandi PlayStation Showcase 2021   Byrjunar- og endastef: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed under Creative Commons: By Attribution 3.0 License creativecommons.org/licenses/by/3.0/ Mynd: Thor úr God of War: Ragnarok og PlayStation Showcase 2021 lógóið

Leikjavarpið #27 - Gamescom, Baldo og Arena heimsókn

Play Episode Listen Later Aug 30, 2021 101:22


Bjarki Þór, Sveinn Aðalsteinn, Daníel Rósinkrans og Daníel Páll ræða um allt það helsta úr heimi tölvuleikja í þessum tuttagasta og sjöunda þætti Leikjavarpsins, sem er sérstaklega tileinkaður Gamescom 2021! Auk Gamescom er fjallað um heimsókn Nörd Norðursins til Arena, þjóðarleikvangs rafíþrótta á Íslandi, Ghost of Tsushima Director's Cut, Baldo, gamla góða Quake og fleira.    Efni þáttar: Leikir í spilun Xbox kynningin á Gamescom Arena sneak peak Gamescom (Saints Row, Halo Infinite, CoD Vanguard o.fl.) Psychonauts 2 Baldo: The Guardian Owls Ghost of Tsushima Director's Cut Twelve Minutes Quake uppfærður   Byrjunar- og endastef: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed under Creative Commons: By Attribution 3.0 License creativecommons.org/licenses/by/3.0/

Leikjavarpið #26 - Ratchet & Clank, Steam Deck og Activision Blizzard kæran

Play Episode Listen Later Aug 13, 2021 107:25


Tölvuleikjasérfræðingarnir Steinar, Daníel, Sveinn og Bjarki ræða um allt það helsta úr heimi tölvuleikja í þessum 26. þætti Leikjavarpsins.    Efni þáttar: Hvað er verið að spila? Ratchet & Clank: Rift Apart gagnrýni The Witcher: Monster Slayer Valve kynnir Steam Deck Nintendo kynnir Switch OLED Sveinn kláraði Demon's Souls á PS5! The Legend Of Zelda: Skyward Sword HD umfjöllun Activision Blizzard sakað um kynbundið ofbeldi, kynbundna áreitni og kynferðislega áreitni Hvað er spennandi framundan árið 2021?   Byrjunar- og endastef: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed under Creative Commons: By Attribution 3.0 License creativecommons.org/licenses/by/3.0/ Forsíðumynd: Ratchet & Clank: Rift Apart

Leikjavarpið #25 - Allt það helsta frá E3 2021

Play Episode Listen Later Jun 28, 2021 106:01


Daníel, Sveinn og Bjarki fara yfir allt það helsta frá E3 tölvuleikjaráðstefnunni sem haldin var á netinu fyrr í júnímánuði.    Efni þáttar: Resident Evil Village Returnal Ratchet & Clank: Rift Apart Sony skrópar á E3, aftur! Ubisoft E3 kynningin Samstarf Myrkur Games og Prime Matter (Koch Media Group) Nintendo E3 kynningin Microsoft og Bethesda með sameiginlega kynningu   Byrjunar- og endastef: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed under Creative Commons: By Attribution 3.0 License creativecommons.org/licenses/by/3.0/

Leikjavarpið #24 - Afmæli, martraðir og pöddusnakk

Play Episode Listen Later Apr 18, 2021 110:19


Þríeykið, Sveinn, Daníel og Bjarki, halda upp á 10 ára afmæli Nörd Norðursins og spjalla um leikjaárið 2011 og hvernig tölvuleikir og leikjamenningin hefur þróast síðan þá.    Efni þáttar: Sony fréttir (Last of Us og Days Gone 2) Little Nightmares II Outriders Nörd Norðursins 10 ára! Leikjaárið 2011 Bugnax Maquette Oddworld   Byrjunarstef: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed under Creative Commons: By Attribution 3.0 License creativecommons.org/licenses/by/3.0/

Leikjavarpið #23 - State of Play, Nintendo Direct og PSVR 2

Play Episode Listen Later Mar 2, 2021 94:13


Bjarki lávarður, Sveinn og Daníel fara yfir það helsta úr heimi tölvuleikja. Nintendo hélt Nintendo Direct kynningu þann 17. febrúar þar sem fyrirtækið fór yfir það sem framundan er fyrir Nintendo Switch. Sveinn fjallar um nýtt System Shock sýnishorn sem var birt á dögunum. Sony héldu State of Play kynningu þar sem farið var yfir það sem væntanlegt er á PlayStation 4 og 5. Fyrirtækið hefur einnig tilkynnt að önnur útgáfa af PSVR sýndarveruleikagræjum er væntanleg fyrir PS5. Um þetta og margt fleira er fjallað um í 23. þætti Leikjavarpsins!   Efni þáttar: Nintendo Direct System Shock sýnisorn PSVR-2 væntanlegt fyrir PS5 BlizzcOnline EA hætta við Anthem 2.0 Pokémon Presents State of Play   Byrjunarstef: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed under Creative Commons: By Attribution 3.0 License creativecommons.org/licenses/by/3.0/

Leikjavarpið #22 - Hitman 3, Super Mario 3D World og TOHU

Play Episode Listen Later Feb 15, 2021 121:39


Sveinn, Bjarki og Daníel fjalla um allt það helsta úr heimi tölvuleikja í 22. þætti Leikjavarpsins!   EFNI ÞÁTTAR: Resident Evil 8 Xbox Game Pass Vs. Xbox Gold Mass Effect Legendary Edition PS+ áskriftir TOHU Hitman 3 PS5 selst vel Ratchet & Clank: Rift Apart útgáfudagur The Medium Ring Fit Adventure #RingFitFebrúar Super Mario 3D World á Switch The Last of Us HBO leikaraval   Byrjunarstef: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed under Creative Commons: By Attribution 3.0 License creativecommons.org/licenses/by/3.0/

Leikjavarpið #21 – The Legend of Zelda 35 ára

Play Episode Listen Later Feb 13, 2021 108:04


Oddur Bauer og Gylfi Már eru gestir Daníels Rósinkrans í þessum sérstaka The Legend of Zelda þætti Leikjavarpsins. Liðin eru 35 ár frá útgáfu fyrsta Zelda tölvuleiksins en leikurinn var gefinn út í Japan árið 1986 samhliða Famicom leikjatölvunni. Í þættinum fara þeir Daníel, Oddur og Gylfi yfir sögu The Legend of Zelda leikjanna, ræða um tónlistina, framtíð seríunnar og margt fleira.    Efni þáttarins: Saga The Legend of Zelda leikjanna, Majora's Mask Vs. Ocarina of Time, Tónlist úr Zelda, 2D Zelda Vs. 3D Zelda, Uppáhalds Nintendo leikjatölvan, Framtíð Zelda leikjanna.   Tónlist (intro og outro): Voxel Revolution by Kevin MacLeod Link: https://incompetech.filmmusic.io/song/7017-voxel-revolution License: https://filmmusic.io/standard-license

Leikjavarpið #20 - Væntanlegir tölvuleikir 2021

Play Episode Listen Later Jan 18, 2021 83:23


Daníel, Sveinn og Bjarki fara yfir það helsta sem leikjaárið 2021 hefur upp á að bjóða. Má þar nefna titla á borð við Ratchet and Clank: Rift Apart, nýjan Resident Evil leik, The Medium, Far Cry 6, Little Nightmares II, Halo Infinite, Returnal og fleiri leiki. Ætli mörgum leikjum verði frestað til ársins 2022 vegna Covid? Ræðum þetta og fleira í nýjasta þætti Leikjavarpsins!   Mynd: Halo Infinite, Returnal og Far Cry 6. Byrjunarstef: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed under Creative Commons: By Attribution 3.0 License creativecommons.org/licenses/by/3.0/

Leikjavarpið #19 - Leikjaárið 2020 gert upp

Play Episode Listen Later Jan 4, 2021 87:21


Bjarki, Sveinn og Daníel gera upp leikjaárið 2020. Farið er yfir það helsta frá Sony, Microsoft, Nintendo og öðrum tölvuleikjafyrirtækjum. Nýjar leikjatölvur komu á markað á árinu og fjölmargir flottir tölvuleikir. Í lok þáttar er tekinn saman topp fimm listi Nörd Norðursins fyrir tölvuleikjaárið 2020. Fylgist með - í næsta þætti ætlum við að skoða hvað árið 2021 mun bjóða upp á!   Byrjunarstef: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed under Creative Commons: By Attribution 3.0 License creativecommons.org/licenses/by/3.0/

Leikjavarpið #18 - Sæberpönk, grísk goðafræði og Xbox Series X

Play Episode Listen Later Dec 21, 2020 95:41


Í áttjánda þætti Leikjavarpsins ræða þeir Daníel, Sveinn og Bjarki hjá Nörd Norðursins um það helsta úr heimi tölvuleikja. Rennum stuttlega yfir það helsta úr The Game Awards 2020 tölvuleikjaverðlaununum. Bjarki spilaði fyrsta kaflann í Tell Me Why þar sem sterk trans persóna fer með aðalhlutverk og segir aðeins frá sinni upplifun á leiknum. Sveinn er búinn að vera að prufukeyra eina af fáum Xbox Series X á landinu undanfarnar vikur og segir frá helstu kostum og göllum og ber saman við PlayStation 5. Daníel og Sveinn spiluðu Immortals: Fenyx Rising  og segja þeir frá leiknum sem tengist grískri goðafræði. Þátturinn endar svo á Cyberpunk 2077 skandalinum - leikurinn kom út þann 10. desember og síðan þá hefur leikurinn verið harðlega gagnrýndur fyrir tæknilega galla sem hefur áhuga á spilun leiksins.   Efni þáttarins: Game Awards 2020 Tell Me Why  Xbox Series X Immortals: Fenyx Rising Cyberpunk 2077 skandallinn   Þættinum var streymt í beinni á Twitch þann 20. desember og þökkum við áhorfendum og hlustendum kærlega fyrir okkur!   Mynd: Cyberpunk 2077 og Immortals: Fenyx Rising Byrjunarstef: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed under Creative Commons: By Attribution 3.0 License creativecommons.org/licenses/by/3.0/

Leikjavarpið #17 - Víkingar, köngulær og PS5

Play Episode Listen Later Nov 18, 2020 114:30


Í 17. þætti Leikjavarpsins fjöllum við um Hades, Assassin's Creed: Valhalla, Watch Dogs: Legion, og PS5 leikina Spider-Man: Miles Morales og Sackboy: A Big Adventure.  Mynd: Assassin's Creed: Valhalla og Sackboy: A Big Adventure Byrjunarstef: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed under Creative Commons: By Attribution 3.0 License creativecommons.org/licenses/by/3.0/

Leikjavarpið #16 - Spiritfarer, Among Us og Star Wars Squadrons

Play Episode Listen Later Oct 16, 2020 82:06


Í 16. þætti Leikjavarpsins fjöllum við um tölvuleikinn Spiritfarer, Among Us, Star Wars Squadrons, gamla og (mis)góða leiki á YouTube-rásinni okkar, kaup Microsoft á ZeniMax media, tölvuleiki, leikjafréttir og fleira. Mynd: Spiritfarer og Among Us Byrjunarstef: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed under Creative Commons: By Attribution 3.0 License creativecommons.org/licenses/by/3.0/

Leikjavarpið #15 - Næsta kynslóð leikjatölva, páfaát og geislasverð

Play Episode Listen Later Sep 21, 2020 97:45


Fimmtándi þáttur Leikjavarpsins er tileinkaður Xbox Series X/S og PlayStation 5 og ræða þeir Bjarki Þór, Sveinn Aðalsteinn og Daníel Rósinkrans um verð, væntingar og útgáfu en leikjatölvurnar eru væntanlegar í verslanir í nóvember á þessu ári. Sveinn segir frá hinum syndsamlega heimi sem er að finna í Crusader Kings 3 og Bjarki tekur upp geislasverð í sýndaheimi og fjallar um Vader Immortal. Þess má geta að þessi þáttur var tekinn upp í beinu streymi sem sýnt var á Facebook Live. Efni þáttarins: • Xbox Series S og X • Crusader Kings 3 • Vader Immortal • PlayStation 5 Mynd: Xbox Series S, PlayStation 5, Vader Immortal og Crusader Kings 3 Byrjunarstef: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed under Creative Commons: By Attribution 3.0 License creativecommons.org/licenses/by/3.0/

Leikjavarpið #14 - The Avengers, Mortal Shell og Super Mario pakki

Play Episode Listen Later Sep 8, 2020 104:56


Í þessum fjórtánda þætti Leikjavarpsins ræða þeir Daníel Rósinkrans, Steinar Logi, Sveinn Aðalsteinn og Bjarki Þór um það helsta úr heimi tölvuleikja. Efni þáttarins: • The Avengers tölvuleikurinn • LEGO Super Mario • Call of Duty Black Ops Cold War • Uppærslur milli leikjatölvukynslóða • Mortal Shell • Super Mario 3D Mynd: LEGO Super Mario Byrjunarstef: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed under Creative Commons: By Attribution 3.0 License creativecommons.org/licenses/by/3.0/

Leikjavarpið #13 - Ghost of Tsushima, Paper Mario og Fall Guys

Play Episode Listen Later Aug 10, 2020 91:59


Í þessum þrettánda þætti Leikjavarpsins ræða þeir Steinar Logi, Sveinn Aðalsteinn, Bjarki Þór og Daníel Rósinkrans um það helsta úr heimi tölvuleikja. Efni þáttarins: • Xbox Game Show • Paper Mario: The Origami King • PS4 State of Play • Fall Guys • Ghost of Tsushima Mynd: Ghost of Tsushima, Fall Guys og Paper Mario (myndblöndun í boði Bjarka) Byrjunarstef: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed under Creative Commons: By Attribution 3.0 License creativecommons.org/licenses/by/3.0/

Leikjavarpið #12 - The Last of Us Part II spilliþáttur

Play Episode Listen Later Jul 10, 2020 63:49


Í þessum sérstaka The Last of Us Part II spoiler-þætti fjalla þeir Sveinn, Bjarki og Daníel um hvernig leikurinn, og þá fyrst og fremst söguþráður leiksins, fór í þá eftir að hafa spilað leikinn til enda. Athugið að þátturinn inniheldur spilla (spoilers) úr The Last of Us Part II. Ef þú hefur ekki klárað leikinn og vilt ekki láta spilla sögu leiksins fyrir þér skaltu stoppa hér, klára leikinn og hlusta svo! Tónlist í byrjun: Virtutes Instrumenti by Kevin MacLeod Link: https://incompetech.filmmusic.io/song/4590-virtutes-instrumenti License: http://creativecommons.org/licenses/by/4.0/

Leikjavarpið #11 - PlayStation 5 og The Last of Us Part II

Play Episode Listen Later Jul 6, 2020 80:23


Daníel, Sveinn og Bjarki ræða um það helsta úr heimi tölvuleikja. Efni þáttarins: • PlayStation 5 (tölvan, leikir, verð o.fl.) • Trivia Royale • Cyberpunk 2077 • E3 dagskráin • The Last of Us Part II (spoiler free umræða) Mynd: The Last of Us II og PlayStation 5 leikjatölvan (myndblöndun í boði Bjarka) Byrjunarstef: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed under Creative Commons: By Attribution 3.0 License creativecommons.org/licenses/by/3.0/

Leikjavarpið #10 - Summer Game Fest, Unreal Engine V og FFVII Remake samantekt

Play Episode Listen Later May 19, 2020 91:00


Bjarki, Daníel og Sveinn ræða um það helsta úr heimi tölvuleikja. Efni þáttarins: • Xbox Series X kynning, • Summer Game Fest sumarhátíðin, • Unreal Engine V • Tony Hawk Proskater 1&2 endurgerð, • EA framleiðir fleiri Switch leiki, • Summer Game Fest dagskráin, • Paper Mario: The Origami King, • Ghost of Tsushima, • GTA V frír á Epic Store, • Final Fantasy 7 Remake samantekt. Mynd: Tæknidemó Unreal Engine V (2020) Byrjunarstef: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed under Creative Commons: By Attribution 3.0 License creativecommons.org/licenses/by/3.0/

Leikjavarpið #9 - Fortnite tónleikar, tölvuþrjótar herja á Nintendo og AC: Valhalla kynntur

Play Episode Listen Later May 7, 2020 70:43


Í níunda þætti Leikjavarpsins ræða Sveinn og Daníel meðal annars um stöðu Stadia frá Google, nýju viðbótina fyrir Fallout 76 og lekann sem herti á The Last of Us Part 2. Að sjálfsögðu spilli-frír þáttur! Efni þáttarins:

Leikjavarpið #8 - FFVII og RES3 Remake, PS5 fjarstýringin og Midgard 2020 aflýst

Play Episode Listen Later Apr 20, 2020 88:15


Daníel, Bjarki og Sveinn fjalla um allt það helsta úr heimi tölvuleikja! Það er einskonar remake-þema þessa dagana í Leikjavarpinu. Strákarnir spiluðu allir Final Fantasy VII Remake sem margir FF aðdáendur hafa beðið lengi eftir og segja sína skoðun á leiknum. Sveinn spilaði zombíleikinn Resident Evil 3 Remake og fjallar um hann. Einnig er fleira til umræðu eins og útlitið á nýju PS5 fjarstýringunni, Crysis Remake, Midgard 2020 og fleira. Efnisyfirlit þáttarins: * The Last of Us Part II seinkar á ný, * Final Fantasy 7 Remake, * Fyrstu myndir af PlayStation 5 fjarstýringunni, * Animal Crossing framhald * Twitch Streams * Midgard 2020 aflýst * Crysis Remaster væntanlegur á allar vélar, * GamesCom verður digital í ár, * Resident Evil 3 Remake. Mynd: Breytt skjáskot úr FF VII Remake(2020) Byrjunarstef: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed under Creative Commons: By Attribution 3.0 License creativecommons.org/licenses/by/3.0/

Leikjavarpið #7 - Doom Eternal, Animal Crossing, PS5 og indíleikir

Play Episode Listen Later Mar 30, 2020 94:07


Sveinn, Daníel og Bjarki fjalla um það helsta í heimi tölvuleikja. Sveinn baðar sig í blóðpollum Doom Eternal og segir okkur frá sinni upplifun. Daníel skellti sér í Animal Crossing og er orðinn stórskuldugur eftir stutta spilun. Bjarki segir frá indíleikjunum Mosaic og Spirit of the North sem sækir innblástur til Íslands. Efnisyfirlit þáttarins: * Ný íslensk eSports-sjónvarpsstöð kynnt til sögunnar, * PlayStation 5 kynningin, * Nintendo Direct Mini, * Doom Eternal, * Mosiac, * Spirit of the North, * Half Life: Alyx, * Animal Crossing, * Væntanlegir leikir.

Leikjavarpið #6 - Heimsfaraldrar, Dreams og Final Fantasy VII

Play Episode Listen Later Mar 15, 2020 84:20


Bjarki, Daníel og Sveinn fjalla um áhrif COVID 19 á tölvuleikjaviðburði ársins en EVE Fanfest og GDC ráðstefnunum hefur meðal annars verið aflýst vegna veirunnar. Einnig fjalla þeir drengir um það sem vitað er um næstu kynslóð leikjatölva og taka fyrir tölvuleikina Plague Inc, A Plague Tale, Dreams og Final Fantasy VII Remake demóið. Efni þáttarins: • Áhrif COVID-19 á leikjaheiminn • EVE Fanfest og GDC 2020 aflýst • Staðan á E3 2020 • Plague Inc. nær aftur vinsældum • A Plague Tale umfjöllun • Dreams umfjöllun og rýni • Final Fantasy 7 Remake demo • Xbox Series X Specs • Cyberpunk 2077 frí uppfærsla á Series X Mynd: Skjáskot úr Dreams (2020) Byrjunarstef: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed under Creative Commons: By Attribution 3.0 License creativecommons.org/licenses/by/3.0/

Leikjavarpið #5 - Væntanlegir leikir 2020 & bestu leikir síðasta áratugar

Play Episode Listen Later Jan 13, 2020 97:15


Daníel Rósinkrans, Sveinn Aðalsteinn og Bjarki Þór fara yfir það sem er væntanlegt á leikjaárinu 2020: Cyperpunk 2077, The Last of Us Part II, Final Fantasy VII Remake og fleira. Einnig velja þeir drengir svo sína topp þrjá tölvuleiki seinasta ártugs, 2010-2019. Sjóðheit tilkynning í lokin: Sony tilkynnir að fyrirtæki mun EKKI taka þátt í E3 á þessu ári! Byrjunarstef: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed under Creative Commons: By Attribution 3.0 License creativecommons.org/licenses/by/3.0/

Leikjavarpið #4 - Leikir ársins 2019

Play Episode Listen Later Dec 16, 2019 81:31


Daníel Rósinkrans, Bjarki Þór og Sveinn Aðalsteinn fara yfir leikjaárið sem er að líða með því að rýna í niðurstöður The Game Awards verðlaunanna og lista upp sína uppáhalds leiki fyrir árið 2019. Byrjunarstef: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed under Creative Commons: By Attribution 3.0 License http://creativecommons.org/licenses/by/3.0/

Leikjavarpið #3 - 1. desember 2019 - Star Wars Jedi: Fallen Order

Play Episode Listen Later Dec 1, 2019 69:50


ÞRIÐJI ÞÁTTUR: Sveinn Aðalsteinn, Daníel Rósinkrans og Bjarki Þór fjalla um Star Wars Jedi: Fallen Order, væntanlega Half-Life leik og The Game Awards.

Leikjavarpið #2 - 19. nóvember 2019 - Death Stranding

Play Episode Listen Later Nov 20, 2019 58:19


ANNAR ÞÁTTUR: Sveinn Aðalsteinn, Daníel Rósinkrans og Bjarki Þór fjalla um Death Stranding frá Kojima Production. Byrjunarstef: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed under Creative Commons: By Attribution 3.0 License http://creativecommons.org/licenses/by/3.0/

Kind fyrir Korn 2. þáttur - Viðtal við Óskar Árnason, spilafréttir og íslensk spil

Play Episode Listen Later Dec 9, 2017 42:12


Kind fyrir Korn er hlaðvarp um allt sem tengist borðspilum, fréttir, umfjallanir, viðtöl eða hvað sem mér dettur í hug. Í öðrum þætti tek ég viðtal við Óskar Árnason sem skellti sér á Essen spilaráðstefnuna, fer yfir nokkrar spilafréttir og ræði um útgáfu íslenskra spila. Hljóð og tónlist: http://incompetech.com/music/ (Deadly Roullette) og http://www.sherlockology.com/downloads (Sherlock Holmes), https://freesound.org/people/mansardian/ (News Jingle), Dances and Dames og Lobby time.

Kind fyrir Korn 1. þáttur - Essen, Pandemic Legacy S2 og Charterstone

Play Episode Listen Later Oct 23, 2017 19:46


Kind fyrir Korn er hlaðvarp um allt sem tengist borðspilum, fréttir, umfjallanir, viðtöl eða hvað sem mér dettur í hug. Í fyrsta þættinum er fjallað um Essen, Pandemic Legacy S2 og Charterstone

Leikjavarpið #1 - 25. júní 2017 - E3 2017

Play Episode Listen Later Jun 24, 2017 72:30


FYRSTI ÞÁTTUR: Bjarki Þór, Daníel Rósinkrans og Steinar Logi ásamt Sveini Aðalsteini frá PSX.is ræða um það besta og versta frá E3 tölvuleikjasýningunni þetta árið, en þar kynntu leikjarisarnir það sem framundan er í leikjaheiminum. Við biðjumst velvirðingar á hljóðtruflunum. Við erum búnir að senda Ant Man í hljóðrásirnar til að kanna málið. Byrjunarstef: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed under Creative Commons: By Attribution 3.0 License http://creativecommons.org/licenses/by/3.0/

Claim Leikjavarpið

In order to claim this podcast we'll send an email to with a verification link. Simply click the link and you will be able to edit tags, request a refresh, and other features to take control of your podcast page!

Claim Cancel