POPULARITY
Þriðjudagur 8. apríl Trump, Woke, varnarsamningur, vindmyllur, Gaza, ríkisborgararéttur og Geðbrigði Hagfræðingarnir Þorsteinn Þorgeirsson og Gylfi Magnússon ræða um um tolla og efnahagsstefnu Trump. Og eru ekki á sama máli í samtali við Gunnar Smára. Þorsteinn segir þá leiða til góðs en Gylfi til ills. Brynjar Karl Sigurðsson körfuboltaþjálfari og Valgerður Þ. Pálmadóttir, kennari í Háskóla Íslands í kynjafræði og hugmyndasögu koma í spjall við Rauða borðið og fara yfir í líflegri samræðu við Oddnýju Eir og Björn Þorláks yfir átökin um kynjafræðina, wókið, umræðuna, ofbeldið, rétttrúnaðinn og samræðuna. Guttormur Þorsteinsson formaður Samtaka hernaðarandstæðinga og Elvar Ástráðsson skjalavörður samtakanna ræða um leyni-varnarsamning íslenskra stjórnvalda við Bandaríkin þar sem bandaríski herinn hefur allan rétt að leggja undir sig land og innviði. Andrés Skúlason, verkefnisstjóri hjá Landvernd og Kristín Helga Gunnarsdóttir rithöfundur í stjórn Landverndar ræða um yfirgengileg áform um vindmyllugarða á Íslandi og fórnarkostnaðinn. Hjálmtýr Heiðdal formaður félagsins Ísland Palestína segir fréttir af þjóðarmorði ásamt Maríu Lilju.Natan HK, Íslendingur í Kaleforníu, gagnasérfræðingur og forritari segir frá umsókn sinni um íslenskan ríkisborgararétt og frá ljónunum í veginum. Agnes Ósk Ægisdóttir og Ásthildur Emma Ingileifardóttir meðlimir hljómsveitarinnar Geðbrigði, sigurvegarar Músíktilrauna mæta til Maríu Lilju ásamt Esther Bíbí bassaleikara Kolrössu sem jafnframt eru fyrrum sigurvegarar keppninnar.
Fimmtudagur 21. nóvember Sjókvíaeldi, ESB, húsnæðiskrísa, smáfyrirtækjaskattamál, Gaza Í beina útsendingu í kvöld mæta vaskir frambjóðendur og talsmenn, þau Karl Héðinn Kristjánsson, Sósíalisti, Gísli Rafn Ólafsson, Pírati, Mörður Árnason, Samfylkingu og Björg Eva Erlendsdóttir, Landvernd til að ræða um sjókvíeldi, eldgos og önnur eldheit kosningamál. Þau Haraldur Ólafsson hjá Heimssýn og Helga Vala Helgadóttir hjá Evrópuvaktinni eru á öndverðum meiði um hvort Ísland eigi að ganga í ESB. Við heyrum rökræðu þeirra á millum. Við höldum síðan áfram að ræða húsnæðiskrísuna á markvissan máta með fulltrúa Leigjendsamtakanna, Yngva Ómari Sighvatssyni sem tekur frambjóðendur nokkura flokka í próf og í dag mæta þeir Jóhann Páll Jóhannsson, frambjóðandi Samfylkingarinnar, Grímur Grímsson, frambjóðandi Viðreisnar og Ragnar Þór Ingólfsson, frambjóðandi Flokks fólksins. Spurning dagsins er hvernig líður almenningi í samfélaginu, við spyrjum fólk á förnum vegi. Síðan segir Sigmar Vilhjálmsson, formaður Atvinnufélagsins okkur frá hvernig skattaumhverfi fyrirtækja hyglir hinum stóru á kostnað smáfyrirtækja og Benjamín Julian, verkefnastjóri Verðlagseftirlits Alþýðusambandsins, fræðir okkur um samkeppnina á dagvörumarkaði. Illugi Jökulsson, rithöfundur segir okkur frá allri fegurðinni sem finna má í hversdeginum en hann hefur í nokkur ár fangað lítil augnablik, glefsur úr lífum fólks og gefið út í bókinni "Rétt áðan". Í Radió Gaza koma þau saman Gígja Sara Björnsson, Valgeir Skorri Vernharðsson, Hjálmtýr Heiðdal og Snæbjörn Brynjarsson sem öll standa fyrir viðburðum á næstu vikum. Áherslurnar og aðferðirnar eru kannski ólíkar en meginstefið er það sama, mannréttindi. Að lokum heyrum við í oddvita Sósíalista í Norðvesturkjördæmi, Guðmundi Hrafni sem spjallar við Sigurjón Magnús Egilsson í Oddvitaspjalli Rauða borðsins.
Vikuskammtur í dag, 27. september Efnahagsmál, náttúruvernd, pólitík, rasismi og vinnubrögð lögreglu verða meðal umræðuefna í Vikuskammti að þessu sinni. Gestir eru Gunnar Sigurðsson leikari, Sigmundur Ernir Rúnarsson blaðamaður, Þorgerður María Þorbjarnardóttir, Landvernd og Sigmar Guðmundsson þingmaður. Umsjónarmaður er Björn Þorláks
Rauða borðið: Ungt fólk, Gaza, vanlíðan, vindmyllur og fyndni Í Rauða borði kvöldsins ræðir Björn Þorláksson við Gunnhildi Fríðu Hallgrímsdóttur varaþingmann og Harvard-nema í hagfræði sem útilokar ekki að íslensk efnahagsstjórn kunni að vera sú versta í heimi. Magga Stína segir okkur fréttir frá Gaza og Grímur Atlason framkvæmdastjóri Geðhjálpar mætir til skrafs við Björn og Steinunni Ólínu um geðheilbrigði ungmenna sem er framhald af umræðu Samstöðvarinnar sem hófst í vikunni um stöðu og líðan ungs fólks í landinu. Halla Hrund Logadóttir orkumálastjóri kemur síðan til okkar og ræðir kosti og galla vindorkugarða á Íslandi. Hún er sammála Landvernd um að klára þurfi stefnumótun og að tímaröð framkvæmda þeirra sem fyrirhugaðar eru kunni að vera röng. Að lokum ræðir Gunnar Smári við sagnfræðinginn og rithöfundinn Þórunni Valdimarsdóttur en á dögunum komu út eftir hana ljóðabók og önnur merk bók um það kostulega en rannsóknarverða fyrirbæri, íslenska fyndni.
Þriðjudagurinn 13. ágúst Vindmyllur, málfrelsi, rafbækur og risamálheildin Björg Eva Erlendsdóttir hjá Landvernd kemur og ræðir fyrsta vindorkuverið á Íslandi. Svala Magnea Ásdísardóttir formaður Málfrelsis ræðir þöggun og stýringu umræðunnar. Barbara Helga Guðnadóttir borgarbókavörður ræðir um skort á rafbókum í rafbókasafninu. Hermann Stefánsson rithöfundur fjallar um risamálheildina. og hættunni sem að henni steðjar.
Fyrir helgi var Netaprent, fyrirtæki í eigu fjögurra Verslunarskólanema, valið fyrirtæki ársins í fyrirtækjasmiðju Ungra frumkvöðla – JA Iceland. Þetta fyrirtæki, Netaprent, framleiðir þrívíddarprentefni úr notuðum fiskinetum og var eitt þeirra 30 fyrirtækja frá 15 framhaldsskólum sem komust í úrslit og mun taka þátt í Evrópukeppni Ungra frumkvöðla sem fer fram á Sikiley í sumar. Við forvitnumst um Unga frumkvöðla og Netaprent hér á eftir - tölum við Petru Bragadóttur,framkvæmdastjóra Ungra frumkvöðla, og tvo úr hópnum sem stendur að baki fyrirtækis ársins, þá Andra Clausen og Erik Gerritsen. Við mælum okkur mót við Þorgerði Maríu Þorbjarnardóttur, formann Landverndar, samtökin standa í flutningum og enginn veit hvað átt hefur fyrr en flutt hefur. Saga félagsins spannar rúma hálfa öld og starfsfólk fann við undirbúning flutninganna fjölda kassa með áhugaverðum skjölum - við kíkjum í einn slíkan og ræðum við Þorgerði um áherslur umhverfisverndarhreyfingarinnar fyrr og nú. Við heyrum málfarsmínútu í umsjón Önnu Sigríðar Þráinsdóttur málfarsráðunautar og í lok þáttar heimsækjum við Þjóðskjalasafn Íslands og fræðumst um rafræna skjalavörslu, þar tekur Haukur Kristófer Bragason á móti okkur. Tónlist: ELVIS COSTELLO & THE ATTRACTIONS - Good Year For The Roses.
Mánudagurinn 22. apríl Aum stjórnsýsla, sjókvíaeldi, öryrkjar og Vg Mikil umræða hefur orðið um eldmessu Katrínar Oddsdóttur lögmanns um sjókvíaeldi í þættinum Synir Egils á Samstöðinni í gær. Björg Eva Erlendsdóttir hjá Landvernd og Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur greina stöðuna. Er ástandið jafn hrikalegt og Katrín segir? Alma Ýr Ingólfsdóttir formaður ÖBÍ bregst við fjármálaáætlun, þar sem segir að öryrkjar verði látnir borga fyrir kjarapakka stjórnvalda vegna samninga á almennum markaði. Í lokin kemur Pétur Hrafn Árnason sagnfræðingur og höfundur ævisögu Vg, Hreyfingin rauð og græn, og segir okkur frá sögu þessa flokks sem nú er sannarlega í vanda.
Viðræður um sameiningu Íslandsbanka og Kviku um sameiningu eru að hefjast. Samruninn myndi stækka efnahagsreikning Íslandsbanka um 20 prósent. Um tuttugu þúsund manns hafa fundist látin í Tyrklandi og Sýrlandi vegna jarðskjálftana á mánudag. Mikil eyðilegging blasir við íslenskum björgunarsveitarmönnum sem eru í Tyrklandi. Enn finnst fólk á lífi í rústunum Síðasta vaxtahækkun Seðlabankans er í boði ríkisstjórnarinnar og kyndir undir verðbólgubálinu, segir miðstjórn ASÍ. Hagfræðingur samtakanna segir það pólitíska ákvörðun að láta aðgerðir gegn verðbólgu bitna á alþýðu manna frekar en stöndugum stórfyrirtækjum. Sviðsstjórar hjá Hafrannsóknarstofnun fagna skýrslu Ríkisendurskoðunar. Bæta þurfi í fé til rannsókna og eftirlits með sjókvíaeldi Eitt fremsta og afkastamesta popptónskáld heims, Burt Bacharach er látinn, 94 ára að aldri. ------ Þúsundir hafa látist vegna jarðskjálfta í Tyrklandi á mánudaginn. Enn fleiri töpuðu öllu sínu - björgunarstarf stendur yfir og er hvergi nærri lokið. Fjöldi hjálparsamtaka sendi liðsauka til landsins í þeirri von að bjarga fólki úr rústum húsa sem hrundu. Meðal þeirra er níu manna hópur frá Íslandi sem vinnur að samhæfingu aðgerða. Þau lögðu af stað fyrr í vikunni og eru nú komin til Hatay Expo. Sólveig Þorvaldsdóttir fer fyrir hópnum. Við skulum heyra lýsingu hennar á störfum hópsins. Eftir síðustu hækkun eru stýrivextir Seðlabankans 6,5 prósent og hafa ekki verið hærri síðan 2010. Stýrivextir voru í lágmarki í apríl 2021, 0,75 prósent, - hafa því hækkað um 5,75 prósentustig og þannig nær sexfaldast á innan við tveimur árum. Þessi síðasta hækkun, sem nam 0,5 prósentustigum, hefur verið harðlega gagnrýnd, jafnt af stjórnvöldum og aðilum vinnumarkaðarins, og þótt yfirlýstur tilgangur stýrivaxtahækkana sé að hamla gegn verðbólgu er hækkunin nú sögð virka sem olía á verðbólgubálið sem brennur þó glatt fyrir, en verðbólga mælist nú 9,9 prósent. Og matarkarfan hækkar og hækkar. Auður Alfa Ólafsdóttir er sérfræðingur ASÍ í neytendamálum. Ríkisendurskoðun fer hörðum orðum um stjórnsýslu, eftirlit og umsjón með sjókvíaeldi hér á landi í skýrslu sem gefin var út í vikunni. Gagnrýni hefur komið úr ýmsum áttum, bæði frá veiðifélögum, siðfræðingum, náttúruverndarsamtökum og fleirum og er hún yfirleitt á þá lund að stjórnkerfið sé veikburða og jafnvel að pólitísk spilling hafi sett mark sitt á greinina. Landvernd og Landssamband veiðifélaga hafa kallað eftir að sjókvíaeldi verði hætt án tafar. Bjarni Rúnarsson ræddi við Guðna Guðbergsson sviðstjóra ferskvatns og eldissviðs Hafrann

Dóra Svavarsdóttir er matreiðslumeistari og eigandi Culina, sem stendur fyrir ýmis konar námskeiðum og fræðslu sem tengist matreiðslu. Dóra hefur meðal annars staðið fyrir matargöngutúrum með túrista, útbúið jóladagatal með vörum frá smáframleiðendum og haldið utan um námskeið í samstarfi við Vakanda, Landvernd og Kvenfélagasamband Íslands sem hún kallar Eldað úr öllu. Í þessum mánuði heldur hún utan um svipað námskeið í Hússtjórnarskólanum, sem hún kallar Matur og loftlagsbreytingar. Markmið námskeiðanna er að kenna fólki leiðir til þess minnka matarsóun og velja hráefni sem bera ekki með sér þung kolefnisspor. Við ræddum við Dóru í þættinum og fengum hana til þess að gefa okkur einhver ráð í þessum málum. Á mánudaginn næsta, 23. janúar, eru fimmtíu ár liðin frá gosinu í Heimaey þegar íbúar Vestmannaeyja voru vaktir um miðja nótt og þurftu að yfirgefa heimili sín í snarhasti. Gosið hófst um klukkan 2 um nótt en útsending Ríkisútvarpsins hófst tveimur tímum síðar þegar starfsmenn voru ræstir til vinnu í útvarpshúsinu við Skúlagötu. Í þættinum Það gýs í Eyjum eru fyrstu klukkustundirnar í útsendingu Ríkisútvarpsins teknar saman og þannig dregin upp sú brotakennda mynd sem hlustendum útvarpsins var miðlað á fyrstu klukkustundum atburðanna. Við fengum Guðna Tómasson, sem hefur umsjón með þættinum, til að segja okkur betur frá honum. Og síðasta mánudag, 16.jan. sögðum við frá því í upphafi þáttarins þegar við vorum að rifja upp sögu dagsins að þann dag, 16 janúar árið 1947 hafi verið opnað talsímasamband milli Íslands og Bandaríkjanna í fyrsta sinn. Sigurður Harðarson rafeindavirki heyrði þetta og sendi okkur hljóðupptöku af þessu fyrsta talsímtali vestur um haf auk kafla úr bókinni Rafeindatækni í 150 ár, þar sem þessum viðburði er lýst. Við höfðum samband við Sigurð og fengum hann til að koma í þáttinn til að segja okkur betur frá þessu og við heyrðum brot af þessari merku upptöku frá árinu 1947. Tónlist í þættinum í dag: Drullukalt / Langi Seli og skuggarnir (Axel Hallkell Jóhannesson, Jón Þorleifur Steindórsson (Jón Skuggi)) Heimaey / Brynjólfsbúð (Árni Sigfússon) Grænmetisvísur / Úr sýningu Þjóðleikhússins (Thorbjörn Egner og Kristján frá Djúpalæk) Í síma / KK (Ólafur Haukur Símonarson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG MELKORKA ÓLAFSDÓTTIR

Þriðjudagurinn 13. desember - Samningar, verkföll, laxar og landsdómur Við ræðum við Ragnar Þór Ingólfsson formann VR um kjarasamninga sem hann undirritaði en segir ekki góða. Hver er staðan í stéttabaráttunni? Guðmundur Auðunsson segir okkur frá verkföllum og átökum í Bretlandi. Deilt er um laxeldi á Íslandi. Við förum yfir þau mál næstu kvöld, byrjum á Auði Önnu Magnúsdóttur hjá Landvernd. Við ræðum síðan við Jón Ólafsson prófessor um landsdómsmálið yfir Geir H. Haarde. Og förum yfir fréttir dagsins.
Kristján Kristjánsson stýrir skeleggri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Halldór Benjamín Þorbergsson framkvæmdastjóri SA um vinnumarkaðinn. Friðrik Jónsson formaður BHM og Kristján Þórður Snæbjarnarson formaður RSÍ um verkalýðshreyfinguna. Ásgeir Haraldsson læknir og prófessor um Landspítalann og framhaldið. Guðrún Schmidt sérfræðingur hjá Landvernd um þolmarkadag jarðar.
Síðasti gestur fyrir sumarfrí er Vigdís Fríða Þorvaldsdóttir en hún lauk BA-gráðu í félagsfræði frá HÍ árið 2017 og MA-gráðu í opinberri stjórnsýslu með áherslu á fjölmiðla og boðskipta árið 2020. Síðan hún útskrifaðist hefur Vigdís nýtt félagsfræðigráðuna sína á ýmsan hátt, en hún hefur meðal annars starfað hjá Umboðsmanni barna sem starfsmaður ungmennaráðs, komið að skuggakosningum framhaldsskólanna, gefið út handbók fyrir ungmennaráð sveitafélaga og skýrslu um hvað það er sem fær ungt fólk til að kjósa. Í dag starfar Vigdís sem verkefnastjóri hjá Landvernd. Þar hefur hún meðal annars sinnt verkefninu Ungt Umhverfisfréttafólk (Young Reporters for the Environment). Þær Sigrún spjalla um þessi fjölbreyttu störf, í hverju þau felast og af hverju samfélagsþátttaka ungs fólks á mismunandi vettvangi er Vigdísi Fríðu einstaklega hugleikin.
Veitinga- og kaffistaðurinn Sumarlína á Fáskrúðsfirði hefur notið talsverðra vinsælda síðan hann var opnaður þar fyrir sextán árum. Sumarlína hefur hins vegar verið í sölu um tveggja ára skeið. Við ætlum að ræða við Óðinn Magnason, eiganda og vert. Við þekkjum það nú eflaust flest að grípa til afsökunarinnar "ég er svo ómannglögg" þegar við þekkjum ekki einhvern í kjörbúðinni sem við eigum sannarlega að kannast við. Sú afsökun er nú varla gild nema fyrir um 2% okkar sem þjást af svokallaðri andlitsblindu. Nú ætlar Sálfræðideild Háskóla Íslands að ráðast í rannsókn á þessu fyrirbæri þar sem markmiðið er að skilja hvers vegna sumir eiga auðvelt með að þekkja fólk á förnum vegi en aðrir geti varla gert greinar mun á andlitum ömmu síns og afa. Heiða María Sigurðardóttir doktor í taugavísindum var gestur okkar. Málþing Siðfræðistofnunar um dánaraðstoð fer fram á næstu dögum en þar er fyrirhugað að kynna niðurstöður nýrrar rannsóknar á viðhorfum íslenskra lækna til dánaraðstoðar. Við ræddum við Svan Sigurbjörnsson, lækni og MA í hagnýtri siðfræði. Við hér í Morgunútvarpinu höfum síðustu mánudaga fjallað um málefni sem tengjast sveitarstjórnarkosningunum 14. maí. Í þetta skiptið ræddum við við Auði Önnu Magnúsdóttur, framkvæmdastjóra Landverndar, um umhverfismál og landvernd. Systkinin sem stíga á stokk fyrir hönd okkar Íslendinga í Eurovision eiga skammt eftir í undirbúningi fyrir keppnina. Við hringdum suður til Torino í Felix Bergsson fararstjóra íslenska hópsins. Já og svo fórum við yfir íþróttir helgarinnar með Helgu Margréti Höskuldsdóttur íþróttafréttakonu, eins og alla mánudaga. Tónlist: GDRN - Vorið Florence and the Machine - Cosmic Love Arlo Parks - Caroline Lily Allen - LDN Teitur Magnússon - Vinur vina minna Beyonce - Crazy in Love Sigga, Beta og Elín - Með hækkandi sól Björk - Bella Símamær

Enn er hættustig á Seyðisfirði og í Kaldakinn í Þingeyjarsveit og búist við aukinni úrkomu á þessum svæðum í kvöld. Ekki voru allir íbúar skráðir í þeim húsum sem þurfti að rýma á Seyðisfirði. Kvensjúkdómalæknir sem stóð að rannsókn um tilkynntar aukaverkanir í tengslum við bólusetningu gegn Covid-19 óttast mest að umræðan um tengsl við bólusetningar komi í veg fyrir að konur fari til læknis. Erlendum ferðamönnum verður heimilt að koma til Indlands að nýju frá miðjum október. Landamærin hafa að mestu verið lokuð í hálft annað ár. Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra hefur kallað eftir kröfum um sanngirnisbætur fyrir misgjörðir á opinberum stofnunum fyrir fötluð börn. ---- Samkvæmt nýrri eldsneytisspá er ljóst að stjórnvöld þurfa að bretta upp ermar til að ná markmiðum sínum í loftslagsmálum. Í viðræðum stjórnarflokkanna, sem nú standa yfir, er ljóst að tekist er á um hvað leiðir á að fara á næstu árum. Kjörtímabili næstu ríkisstjórnar lýkur 2025 þegar langt verður liðið á tímabilið sem Parísarsamningurinn kveður á um. Landvernd, Náttúrverndarsamtök Íslands og Ungir umhverfissinnar segja í yfirlýsingu að ekkert bendi til þess að Ísland muni standa við skuldbindingar sínar gagnvart Parísarsamkomulaginu. Samtökin krefjast þess að ný ríkisstjórn girði sig í brók og leggi fram skýr tímasett og mælanleg markmið. Arnar Páll Haukson talar við Auði Önnu Magnúsardóttur og Árna Finnsson. Flokksþingi Íhaldsflokksins lauk í gær með hlátrasköllum undir hressilegri ræðu Borisar Johnsons forsætisráðherra og flokksleiðtoga. En forsætisráðherra nefndi hvorki vanda eins og vöru- og eldsneytisskort, né að einmitt í gær voru félagslegarbætur skertar. Bæði innan flokksins og utan velta menn fyrir sér hvort kjósendur meðtaki bjartsýnistal forsætisráðherra. Sigrún Davíðsdóttir segir frá.

Nýlega stofnuðu ríkisstjórnir Danmerkur og Kosta Ríka til samvinnuverkefnis sem nefnist Jarðefnaeldsneytislaus framtíð. Aðilar að verkefninu banna leit eftir og vinnslu á nýjum jarðefnaeldsneytisauðlindum. Landvernd hefur fagnað þessu framtaki og hvetur íslensk stjórnvöld til að gerast aðilar að verkefninu. Auður Önnu Magnúsdóttir, framkvæmdarstjóri Landverndar, kom til okkar og fór nánar yfir málið. Alls fækkaði atvinnulausum að meðaltali um ríflega eitt þúsund á milli júlí og ágúst og hefur ekki verið lægra síðan fyrir Covid. Skráð atvinnuleysi á Íslandi var 5,5% í ágúst og lækkaði úr 6,1% í júlí. Unnur Sverrisdóttir forstjóri Vinnumálastofnunar kom og fór yfir þetta með okkur ásamt því að hún sagði okkur aðeins af nýrri ársskýrslu en ársfundur stofnunarinnar var á fimmtudaginn. Þjálfun starfsfólks í þjónustufyrirtækjum er gríðarlega mikilvæg enda starfsmaðurinn andlit fyrirtækisins gagnvart viðskiptavininum. Þróun hefur orðið í þjálfun starfsmanna en sýndarveruleikatækni er nú t.d. notuð í að þjálfa samskiptafærni. Þar er starfmaðurinn þjálfaður í viðbrögðum við erfiða viðskiptavini í sýndarveruleika. Margrét Reynisdóttir frá fyrirtækinu Gerum betur, sem býður uppá þessa nýjung, kom til okkar og sagði okkur meira. Innflytjendum hefur fjölgað mikið hér á landi síðastliðna áratugi og nú eru erlendir ríkisborgarar um 14% þjóðarinnar. Þessi hópur er mikilvægur hluti af íslenskum vinnumarkaði og á mörgum vinnustöðum starfar fjöldi innflytjenda. Samkaup er eitt slíkra fyrirtækja, en þar er fjórðungur starfsfólks innflytjendur og hefur fyrirtækið ráðist í átaksverkefni þar sem áhersla er lögð jafnrétti og fræðslu. Gunnur Líf Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri mannauðssviðs Samkaupa, og Hallfríður Þórarinsdóttir, sérfræðingur í innflytjendamálum og framkvæmdarstjóri Mirru rannsóknarseturs, sögðu okkur betur frá þessu verkefni, en Hallfríður var fengin til að sjá um fræðslu fyrir starfsfólk Samkaupa. Og í lokin kíktum við á íþróttir helgarinnar með Evu Björk Benediktsdóttur. Tónlist: Ásgeir Trausti - Sunday drive Phil Collins - Against all odds Kacey Musgraves - Space cowboy Ed Sheeran - Bad habits Friðrik Dór - Hvílíkur dagur Flott - Þegar ég verð 36 Spandau Ballet - Gold Bubbi ásamt Bríeti - Ástrós Abba - Don't shut me down

Nú er leitað að 100 unglingum á aldrinum 12- 18 ára, til að taka þátt í gjörningi sem tengist ljóði Halldórs Laxness, Únglingurinn í skóginum. Gjörningurinn verður frumsýndur í Öskjuhlíðaskógi á listahátíðinni Plöntutíð í byrjun september, þar sem öll verkin eru á einhvern hátt tengd gróðri eða plöntum. Listakonan og dansarinn Ásrún Magnúsdóttir sem stendur fyrir leitinni að unglingunum og gjörningnum, sagði okkur betur frá þessu. Íslenska hugbúnaðarfyrirtækið FLOW hefur vakið athygli í Bretlandi eftir að BBC fjallaði um það í nýsköpunar- og tækniþættinum Click, sem nær til 350 milljóna áhorfenda á heimsvísu. FLOW framleiðir hugleiðslubúnað byggðan á sýndarveruleika þar sem notendur geta m.a snúið sér í 360 gráðu hring og skoðað sig um á gossvæðinu í Geldingadölum, á meðan þeir eru leiddir í gegnum hugleiðsluæfingu undir íslenskri tónlist. Stefán Árni Þorgeirsson og Tristan Elisabeth Gribbin stofnendur FLOW komu til okkar og sögðu okkur frá FLOW. Við forvitnuðumst um fjallahjólaleiðir í Fljótsdal og heyrðum í Júlíu Hjartardóttur fyrir austan sem rekur Hel-fjallahjólaferðir. Sífellt fleiri leiðir eru skráðar inn á Fatmap sem er þrívíddarkort fyrir útivistarfólk. Við slógum á þráðinn austur. Landvernd sendi í gær frá sér harðorða yfirlýsingu í kjölfar skýrslu IPCC um loftslagsmál. Landvernd krefst róttækra breytinga á loftslagsstefnu Íslands og að loftslagsaðgerðir verði ríkjandi kosningamál allra flokka og fjölmiðla í komandi alþingiskosningum. Niðurstöður skýrslunnar séu engar nýjar fréttir og nú verði að grípa til aðgerða. Þær Auður Önnu Magnúsdóttir framkvæmdastjóri og Þórhildur Fjóla Kristjánsdóttir varaformaður Landverndar komu til okkar og fóru yfir málið. Thule ferðavörufyrirtækið, sem er eitt af þeim stærri í heiminum, ætlar að taka upp allt sitt markaðsefni á Íslandi í þessum mánuði og þeim næsta. Um risavaxið verkefni er að ræða og kemur fjöldi þekktra jaðaríþróttamanna fram í myndefninu þar sem íslensk náttúra verður í forgrunni. Bjarni Ingimar Júlíusson sölustjóri hjá Stillingu sagði okkur meira af þessu. Tónlist: Vilhjálmur Vilhjálmsson - Ég fer í nótt. Helgi Björnsson - Ég fer á Land Rover frá Mývatni á Kópasker. Selma Björnsdóttir - If I had your love. The Beatles - Day tripper. Snorri Helgason - Haustið 97. Foxy Brown - Oh yeah. Hipsumhaps - Bleik ský. Lorde - Solar power. Leon Bridges - Steam. Svavar Knútur og Irish Mythen - Hope and fortune. U2 - Beautiful day. Sigrid - Mirror.

Körfuknattleikssamband Íslands hefur valið sjö manna landslið sem mun keppa fyrir Íslands hönd á föstudaginn á Playstation í tölvuleik. Þetta er í fyrsta sinn sem KKÍ, og Ísland, tekur þátt í rafíþróttamóti á vegum FIBA, Alþjóðasambands körfuboltans. En hverjir keppa fyrir Íslands hönd, hvernig fer þetta fram, í hvaða tölvuleik er keppt og hvernig er hægt að fylgjast með? Kristinn Geir Pálsson, afreksstjóri KKÍ sagði okkur allt um málið. Vitundarvakning um fatasóun er verkefni Kvenfélagasambands Íslands og Leiðbeiningastöðvar heimilanna og er styrkt af Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu. Verkefnið hófst í gær og stendur til 25. apríl nk. en ætlunin er að minnast þess að þann 24. apríl 2013 hrundi Rana Plaza byggingin í Bangladesh sem hýsti fjöldann allan af fataverksmiðjum þar sem störfuðu um 5000 manns, mest ungar konur. Jenný Jóakimsdóttir hjá Kvenfélagasambandi Íslands fræddi okkur um þetta verkefni. Í dag fer fram opið málþing undir yfirskriftinni Hver ber ábyrgð á náttúrunni á höfuðborgarsvæðinu? Það eru Landvernd og Náttúruverndarsamtök Íslands sem standa að þinginu þar sem ræða á skipulag grænna svæða á og nálægt höfuðborgarsvæðinu. Ein þeirra sem flytur erindi er Helena Guttormsdóttir lektor við Landbúnaðarháskóla Íslands, en hún ætlar að tala um gildi náttúru í nærsamfélaginu. Við slógum á þráðinn til Helenu. Guðmundur Felix Grétarsson, sem fékk grædda á sig handleggi í Lyon í Frakklandi fyrr á árinu, getur nú séð handleggi sína hreyfast í gegnum sýndarveruleikagleraugu sem vonast er til að geti hjálpað honum við endurhæfingu. Góðgerðarsamtökin Góðvild bjóða Guðmundi upp á þjónustuna en Piotr Loj heitir maðurinn sem stendur að baki tækninni sem hann hefur þróað með stórum háskólum í Bandaríkjunum, þar á meðal MIT í Boston. Sigurður Hólmar Jóhannesson er framkvæmdarstjóri Góðvildar og hann var á línunni hjá okkur. Og svo fórum við suður á bóginn og heyrðum í Jóhanni Hlíðar Harðarsyni á Spáni sem lumaði á fjölbreyttum tíðindum þaðan og úr næsta nágrenni. Tónlist: Mugison - Stingum af. Jón Ólafs - Frétt númer þrjú. Emilíana Torrini - Baby blue. Sting - Brand new day. Kristín Sesselja - W.A.I.S.T.D. (what am I supposed to do). Simple Minds - Promised you a miracle. Elíza Newman - Fagradalsfjalls (youre so pretty). Bruce Springsteen - Ill see you in my dreams. Bonnie Tyler - Total eclipse of the heart.

Marta Kristín Hreiðarsdóttir, deildarsérfræðingur í upplýsinga- og áætlanadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu: ofbeldi, hópslagsmál, unglingar og rafstuðtæki. Vigdís Fríða Þorvaldsdóttir, verkefnisstjóri Ungs umhverfisfréttafólks hjá Landvernd, Axel Bjarkar Sigurjónsson, Hálfdán Helgi Matthíahsson og Sölvi Bjartur Ingólfsson, heimildargerðar og umhverfisfréttamenn: Keppni hjá Landvernd fyrir ungt fólk að miðla upplýsingum til almennings um umhverfismál og heimildarmyndin Mengun með miðlum sem bar situr úr býtum í keppninni í ár. Friðrik Páll Jónsson með pistil um erlend málefni: Offita í Mexíkó og kórónaveiran.

Tryggvi Felixson, formaður stjórnar Landverndar, er gestur Áskels Þórissonar í hlaðvarpsþætti Landgræðslunnar. Landvernd eru stærstu náttúruverndarsamtök Íslands. Samtökin voru stofnuð árið 1969. Þau eru frjáls félagasamtök sem starfa að umhverfismálum til að vernda og bæta lífsgæðin í landinu. Innan Landverndar eru 40 aðildarfélög um allt land en auk þess eru um 6.000 félagar í Landvernd. Tryggvi getur þess í samtalinu að afskipti Landverndar af loftslagsmálum megi rekja allt til ársins 2005 en þá var stofnaður sérstakur lofslagshópur sem sendi frá sér tillögur sem snertu m.a. sjávarútveg, samgöngur, kolefnisbindingu og landbúnað svo eitthvað sé nefnt. Stjórnvöld þess tíma höfðu sent frá sér hugmyndir sem Tryggvi sagði að hefðu verið afar léttvægar – og ekki var hlustað á Landvernd. Það var ekki fyrr en 2018 að fram komu tillögur frá ríkisstjórninni sem Tryggvi sagði að hefðu ekki heldur verið fullnægjandi en von er á skarpari tillögum frá stjórnvöldum. „Við hefðum betur farið af stað með ráð Landverndar í farteskinu árið 2005. Tíminn skiptir svo miklu máli. Við höfum enn tíma en hann er ekki mikill.“
Náttúruhamfaratrygging Íslands tók til starfa árið 1975, þá undir nafninu Viðlagatrygging Íslands. Hulda Ragnheiður Árnadóttir er framkvæmdastjóri Náttúruhamfaratryggingar Íslands kom til okkar og sagði okkur frá því út á hvað slík trygging gengur og hvað hún bætir. Hulda Ragnheiður heimsótti Flateyri og Suðureyri í kjölfar snjóflóðanna í síðustu viku til að kynna sér aðstæður og sagði okkur af því líka. Ekki setja viðskiptavininn í fyrsta sæti því það kann að vera varhugavert og er úreldur hugsunarháttur segir Björgvin Ingi Ólafsson, sviðsstjóri Deloitte Consulting, í grein á vef Viðskiptablaðsins. Mikilvægt sé að meta virði viðskiptavina með gögnum og haga þjónustunni eftir því. Björgvin fór betur yfir þetta með okkur. Snorri West er heiti á áhugaverðu verkefni þar sem íslensk ungmenni heimsækja slóðir Vestur Íslendinga í Kanada og Bandaríkjunum og fara þar um í fjórar vikur. Tómas Helgi Tómasson, þátttakandi árið 2016, og Ástrós Signýjardóttir verkefnastjóri sögðu okkur meira af þessu en ungmenni á aldrinum 18-28 geta sótt um að taka þátt. Það stefnir í að framundan séu nokkur átök um stofnun þjóðgarðs á hálendinu. Fjölmargir sveitastjórnarmenn hafa lýst andstöðu við málið og sömuleiðis eru andstöðu raddir í Sjálfstæðiflokknum og Framsóknarflokknum þótt það sé í stjórnarsáttmálanum að stofna eigi hálendisþjóðgarð. Landvernd styður hinsvegar málið og telur þjóðgarðinn geta styrkt stoðir náttúruverndar. Páll Magnússon, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, og Tryggvi Felixson, formaður Landverndar, voru hjá okkur. Hulda ræddi kvikmyndina 1917 sem er ein þeirra sem tilnefnd er til Óskarsverðlauna, en hún hlaut tíu tilnefningar, m.a. sem besta myndin og fyrir tónlist líka, þar sem hún keppir þar með við Hildi Guðnadóttur. Við heyrðum í Einari Erni Jónssyni íþróttafréttamanni á EM í Malmö í Svíþjóð. Tónlist: Nýdönsk - Flugvélar. Maggie Rogers - Love you for along time. Mark Ronson og King Princess - Happy together. Chris Rea - Road to hell. Klassart - Flugmiði aðra leið. Helgi Björns og Reiðmenn vindanna - Komum ríðandi að austan. Jack Johnson - Sitting, waiting, wishing. Retro Stefson - Minning. Jói Pé og Króli - Geimvera.

Umsjón: Pálmi Jónasson Landspítalinn hefur hafið rannsókn á því hvað gerðist þegar maður lést eftir að hafa verið sendur heim af bráðamóttökunni. Embætti landlæknis vill svör við því hvers vegna spítalinn hefur ekki tilkynnt embættinu um málið. Atlantshafsbandalagið skorar á Írana að binda enda á ofbeldisverk og ögranir til að koma í veg fyrir að ástandið í Miðausturlöndum versni enn frekar. Þjálfun írakskra hermanna hefur verið slegið á frest. Íslensk kona sem býr í Sydney segir Ástrali standa saman á erfiðum tímum. Gremja gagnvart stjórnvöldum fari á sama tíma vaxandi. Landvernd leggst gegn því að heimilt verði að reisa nýjar virkjanir í miðhálendisþjóðgarðinum sem mun þekja þriðjung af flatarmáli landsins. Stent er að því að lög um garðinn taki gildir um næstu áramót. Réttarhöld hófust í dag yfir kvikmyndaframleiðandanum Harvey Weinstein [Wænstín]. Það verður leiðindaveður og bálhvasst næstu daga. Búast má við erfiðri færð í fyrramálið og afur í síðdegisumferðinni á morgun, einkum á höfuðborgarsvæðinu. Donald Trump Bandaríkjaforseti hótar heiftarlegum árásum og eyðileggingu menningarverðmæta í Íran, ætli þeir sér að hefna fyrir morðið á hershöfðingjanum Suleimani. Eyðilegging menningarverðmæta er stríðsglæpur samkvæmt Genfarsáttmálanum. Trump hótar nágrannaríkinu Írak einnig grimmilegum refsiaðgerðum. Pálmi Jónasson fjallar um málið í Speglinum. Íslensk kona sem býr í Sydney segir Ástrali standa saman á erfiðum tímum. Gremja gagnvart stjórnvöldum fari á sama tíma vaxandi. Skógareldarnir í Ástralíu náðu miklum hæðum um helgina en í dag rigndi. Arnhildur Hálfdánardóttir fjallar um málið í Speglinum. Landvernd leggst eindregið gegn því að heimilt verið að reisa nýjar virkjanir innan fyrirhugaðs miðhálendisþjóðgarðs. Það samræmist ekki skilgreiningu á þjóðgarði og gæti gengisfellt hugtakið þjóðgarður. Arnar Páll Hauksson fjallar um málið í Speglinum.

Tryggvi Felixson formaður Landverndar: Fjallar um sögu Landverndar, áherslur í fortíð og nútíð og sýningu í Norræna húsinu í tilefni af 50 ára afmæli félagsins. Stefán Þór Eyjólfsson lögmaður er formaður kjörstjórnar á Fjótsdalshéraði: Sagði frá fyrirkomulagi íbúakosningar á kjördag á laugardaginn næstkomandi. Stefán Þór Pálsson pípulagningameistari hjá Orkuveitu Reykjavíkur: Rifjaði upp hvernig á að umgangast ofnakerfi í vetrarbyrjun. Guðrún Línberg Guðjónsdóttir: Málfarsmínútan: Að koma í opna skjöldu. Stefán Gíslason: Fjallar um muninn á naumhyggjusinnum og grænum efnishyggjusinnum.

Spegillinn 23. apríl 2019 Umsjón: Kristján Sigurjónsson Tæknimaður: Ragnar Gunnarsson Forsætisráðherra Sri Lanka varaði við því í dag að hryðjuverkamenn væru enn á á ferli eftir hryðjuverkárásirnar í landinu á páskadag. Bæjarráð Vestmannaeyja hefur haft samband við dýpkunarverktaka erlendis og athugað hvort hann geti hjálpað til við dýpkun Landeyjahafnar. Ráðið segir óboðlegt að núverandi verktaki hafi hvorki tækjakost né metnað til að sinna verkinu. Dómari veitti Isavia í dag vikufrest til að svara kröfu bandaríska flugvélagaleigusalans ALC, sem vill fá kyrrsetta flugvél sína afhenta og sakar Isavia um stjórnarskrárbrot. Gróðureldar loga víða í Suður-Svíþjóð. Slökkviliðsmenn og sjálfboðaliðar fá ekki við neitt ráðið. Sænska veðurstofan varar við mikilli eldhættu næstu daga. Lögregla hefur fengið öll gögn sem benda til misferlis hjá bílaleigum, segir forstjóri Samgöngustofu. Enn sé möguleiki á að fyrirtæki, sem hafi orðið uppvís að því að eiga við ökumæla, verði svipt starfsleyfi. Nær allur íslenski uppsjávarflotinn veiðir nú kolmunna í færeysku landhelginni. Lengri umfjallanir: Sviðstjóri hjá verkfræðistofunni Eflu segir að ákvörðun hafi verið tekin um að engin mengandi starfsemi verið í Finnafjarðarhöfn. Hins vegar sé stefnt að uppbyggingu fiskeldis og vetnisframleiðslu á hafnarsvæðinu. Áform séu um að flyja bæði út fisk og vetni. Bæði Landvernd og Umhverfisstofnun gagnrýndu áform um hafnarframkvæmdir í Finnafirði sem gert var ráð fyrir þegar aðalskipulagi Langanesbyggðar var breytt 2012. Gagnrýnin beindist einkum að hafnarsvæðið yrði að hluta í Gunnólfsvík í Finnafirði. Víkin og líka Gunnólfsvíkurfjall eru á náttúruminjaskrá og bæði Landvernd og Umhverfisstofnun lögðust gegn því að iðnaðarsvæði myndi raska náttúrunni þar. Eftir því sem næst verður komist eru sjaldgæfar plöntur að finna þarna eins og til dæmis fjallakræfill sem er á válista, skógfjóla og lyngjafni. Um daginn var stofnað þróunarfélag um þróun og uppbyggingu svæðisins. Bremenports á 66% hlut, verkfræðistofan Efla 26% og Vopnafjörður og Langanesbyggð 8%. En hverju svara eigendur félagsins gagnrýni Landverndar og Umhverfisstofnunar? Hafstein Helgason, sviðsstjóri viðskiptaþróunar hjá Eflu, segir að samkvæmt aðalskipulaginu hafi staðið til að byggja upp hafnarsvæði í Gunnólfsvík og líka sunnan til í firðinum. Hann segir að svæðið hafi verið rannsakað og ekki hafi fundist, hvorki norðan né sunnan megin, sjaldgæfar plöntur. Nú séu ekki áform um að hafnarsvæðið nái til Gúnnólfsvíkur. Arnar Páll Hauksson talar við Hafstein. Morðið á b
Við töluðum dálítið um handbolta í byrjun og lékum tónlist. - Ríkisstjórn Theresu May stóð af sér vantraust í breska þinginu í gærkvöld með nítján atkvæða mun. Tillagan var felld með 325 atkvæðum. 306 studdu tillöguna. Stjórnin heitir því að leiða útgöngu Breta úr Evrópusambandinu. Eftir helgi leggur stjórnin fram nýja áætlun sína um útgönguna. Við fórum yfir þessi mál með Boga Ágústssyni upp úr hálfátta. Stjórnarmyndun í Svíþjóð kom líka við sögu. Hún er ekki þrautalaus. En allt bendir til að Stefan Löfven verði áfram forsætisráðherra. - Vaxandi umræða er um umhverfisáhrif kjötframleiðslu oglandbúnaðar almennt. Staðhæft er að maður gæti dregið meira úr vistspori sínu með því að hætta neyslu kjöts en að skipta úr jarðefnaeldsneyti yfir í rafmagn í bílnum. Umhverfisáhrif matvælaiðnaðar í nútímanum eru gríðarleg: Landnotkun mikil, eyðing lands og tegunda, miklir flutningar og gríðarlegur úrgangur - auk losunar frá sjálfum skepnunum. En beina umhverfis- og náttúruverndarsamtök spjótum sínum nægilega að þessum þáttum? Einmitt í dag verður sýnd heimildamyndin Cowspiracy, þar sem aðgerðaleysi umhverfisverndarsamtaka er gagnrýnt harðlega. Þær komu koma í þáttinn Auður Önnu Magnúsdóttir og Sigríður Bylgja Sigurjónsdóttir frá Landvernd og ræddu áhrif offramleiðslu og ofneyslu. Þær sögðu að umhverfisverndarsamtök gætu ekki staðið þögul hjá. - En við skoðuðum matvælaframleiðslu út frá fleiri sjónarhornum: Íslendingar eru matvælaframleiðsluþjóð og margir eru fullvissir um að við eigum marga ónýtta möguleika í fullvinnslu og þróun nýrra afurða. Til sjávar og sveita er svonefndur viðskiptahraðall, sem starfar í tengslum við Íslenska sjávarklasann. Þar er unnið að því að liðsinna fyrirtækjum við að hraða því ferli að koma vörunm á markað. Aðstandendur segja að tækifærin séu mörg. Verkefnastjórinn Ingi Björn Sigurðsson sagði frá. - Tónlist: Norah Jones - Sunrise; Champion Jack Dupree - Early in the Morning; Ella Fitzgerald og Ink Spots - Cow, cow boogie.
Spegillinn 14.11.2018. Umsjónarmaður: Bergljót Baldursdóttir Fyrstu niðurstöður í umfangsmikilli rannsókn á áfallasögu kvenna sýna að fjórðungi kvenna hefur verið nauðgað eða tilraun verið gerð til að nauðga þeim. Arna Hauksdóttir, prófessor í Lýðheilsuvísindum við Háskóla Íslands, segir að það sé hærra hlutfall en hún hafi séð áður bæði í innlendum og erlendum rannsóknum. Um 20 prósent kvennanna höfðu orðið fyrir líkamlegu ofbeldi og helmingur þeirra orðið fyrir kynferðislegri áreitni. Landvernd sendi í dag kvörtun til ESA, eftirlitsstofnunar EFTA, vegna lagasetningar sem heimilar sjávarútvegsráðherra að veita laxeldisfyrirtækjum bráðabirgðaleyfi. Landvernd telur lagasetninguna vera brot á EES-samningnum. Lögregla rannsakar tólf mál þar sem netþrjótar hafa stolið umtalsverðum fjármunum af íslenskum fyrirtækjum. Í einu málanna var áttatíu milljónum stolið. Slíkum málum hefur fjölgað. Málin eiga það sammerkt að brotist er inn í tölvukerfi fyrirtækja og jafnvel inn í tölvupóstsamskipti viðskiptafélaga. Netþrjótarnir látast starfa fyrir þekktan birgi en gefa til dæmis fyrirmæli um að greiða þurfi inn á annan reikning en vanalega. Staðan í stjórnarmyndunarviðræðum í Svíþjóð er erfið og fréttaskýrendur segja vandséð hvernig hægt verði að mynda ríkisstjórn sem njóti stuðnings meirihluta þingsins. Andreas Norlén, forseti þingsins, lét í morgun greiða atkvæði um hvort Ulf Kristersson, leiðtogi hægri flokksins Moderaterna, nyti stuðnings til að mynda stjórn. Eins og spáð hafði verið naut hann aðeins stuðnings eigin flokks, Kristdemókrata og Svíþjóðardemókrata. Hinir flokkarnir í Alliansen, bandalagi mið- og hægri flokka, greiddu atkvæði gegn Kristersson. Þingmenn stjórnarandstöðu sóttu hart að fjármálaráðherra á Alþingi um breytingartillögur meirihluta fjárlaganefndar fyrir aðra umræðu sem fram fer á morgun. Því er haldið fram að öryrkjar hafi setið eftir en fjármálaráðherra er ekki sammála því og segir það rangt. Þorsteinn Víglundsson varaformaður Viðreisnar sagði viðbrögð stjórnvalda nú vera hefðbundin, að skera niður hjá öldruðum og öryrkjum. Fjármálaráðherra segir kaupmátt eldri borgara hafa vaxið umfram kaupmátt allra annarra í landinu. Manchester City hefur sýnt ótrúlega hugmyndaaugði til að komast fram hjá reglum evrópska knattspyrnusambandsins um fjárhagslega háttvísi. Útgjöld verða að tekjum, styrkir hækka og lækka að vild, dagsetningum samninga er breytt og peningarnir koma iðulega frá olíufurstanum í Abu Dhabi með einum eða öðrum hætti, þótt þeir komi stundum við í nokkrum vösum á leiðinni til að fela
Bókabrölt í Breiðholti er skemmtilegt verkefni sem foreldrafélög skólanna í Breiðholti standa fyrir. Verkefnið hefst formlega á morgun og Dröfn Vilhjálmsdóttir bókasafns- og upplýsingafræðingur í Seljaskóla og foreldri sagði okkur meira af þessu. Hvað er hljóðvist og hvaða áhrif hefur hún á okkur mannfólkið? Hvernig er hljóðvistin hér á landi? Þeir Ólafur Hjálmarsson hjá Trivium ráðgjöf og Gunnar Ólafsson hjá Umhverfisstofnun komu til okkar og fóru yfir þessi mál. Læknafélagið sendi nýverið frá sér ályktun þar sem skorað er á stjórnvöld að stöðva strax sölu á rafrettum eftir því fyrirkomulagi sem nú er við lýði. Félagið vill gera þetta þar sem rafrettur eru hættulegar og að þær ógni þeim árangri sem náðst hafi í að minnka reykingar barna sem sé á heimsmælikvarða. Tryggvi Helgason, barnalæknir, ræddi við okkur. Framkvæmdastjóri Sorpu sagðist í þættinum í gær hafa efasemdir um að rétt sé að banna plastpoka, mögulega sé betra að berjast gegn mengun með öðrum leiðum. Hann segir umræðu um plast og bann við notkun þess byggt á tilfinningu frekar en staðreyndum. Rannveig Magnúsdóttir, frá Landvernd, er þessu ósammála og hún kom til okkar og fór yfir málin. Guðmundur Jóhannsson mætir í sitt vikulega tæknispjall að venju og ræddi Huldunetið eða hinn dulda hluta internetsins Darknet. Tónlist: Mannakorn - Gamli góði vinur. Vök - Night and day. Retro Stefson - Skin. Sigríður Thorlacius og Sigurður Guðmundsson - Vindar að hausti. Mugison - George Harrison. Sálin hans Jóns míns - Auður. E.L.O. - Last train to London. Nick Cave og PJ Harvey - Henry Lee. Svala - Karma.
Nái friðlýsingartillögur Náttúruverndarstofnun Íslands fram að ganga eru fyrirhugaðar framkvæmdir við Hvalárvirkjun í uppnámi. Landvernd fagnar tillögunni og hvetur Umhverfisráðherra til að friðlýsa svæðið. Ráðherrar EFTA ríkjanna undirrituðu í dag fríverslunarsamninga við Ekvador og Tyrki. Utanríkisráðherra segir mikilvægt að nýta alþjóðaviðskipti til þess að stuðla að framförum í ríkjum þar sem mannréttindi eru fótum troðin. Nýtt úrræði fyrir börn sem glíma við fíknivanda verður vonandi tekið í gagið með haustinu, segir félagsmálaráðherra. Í apríl boðaði hann það yrði innan tveggja vikna, en erfiðlega gekk að fá fjármagn. Karolinska sjúkrahúsið í Svíþjóð hefur dregið til baka sex greinar um plastbarkaígræðslur sem birtust í þekktum vísindatímaritum. Paolo Macchiarini er aðal höfundur greinanna og segir í tilkynningu frá sjúkrahúsinu að 7 höfundar séu ábyrgir fyrir vísindalegu misferli. Héraðsdómur Austurlands hefur sýknað fyrirtækið Móður jörð fyrir brot á útlendingalögum og lögum um atvinnuréttindi útlendinga. Ákært var vegna fólks sem vann þar fyrir tveimur árum. Lögfræðingur Alþýðusambands Íslands segir ekki sé lengur leyfilegt að fá sjálfboðaliða til starfa í landbúnaði. Athugasemdir hafa verið gerðar af hálfu Fjármálaeftirlitsins við aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka hjá öllum sparisjóðum landsins. Hætt hefur verið við fjölda fyrirhugaðra sýninga á söngleiknum Billy Elliot í Ungverjalandi eftir að gagnrýni um að á sýningunni fyrirfinnist samkynhneigður áróður. Þjóðrækni eða þjóðremba - hvernig birtast þessar systur á heimsmeistaramótinu í knattspyrnu í Rússlandi. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Guðmund Hálfdánarson, prófessor í sagnfræði. Stjórnarþingmenn sem styðja Brexit höfðu ástæðu til að gleðjast í liðinni viku Theresa May forsætisráðherra Breta virtist styðja sjónarmið þeirra. En það er grunnt á trausti Brexit-sinna í garð May. Hún lofar klipptri og skorinni úrgöngu en allar tillögur hennar eru bræðingur þess að vera í og utan ESB. Sigrún Davíðsdóttir segir frá. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir Tæknimaður: Mark Eldred
Benedikt Jóhannesson Talnakönnun: Í nýrri skýrslu sem gerð var fyrir Samtök sparifjáreigenda er farið yfir bónusgreiðslur fyrirtækja, hvernig þeim var háttað fyrir hrun og birt könnun á því hvernig kaupauka í íslenskum fyrirtækjum er háttað í dag. Margrét Hugadóttir Landvernd: Á degi jarðar,24 apríl, verður hleypt af stokkunum strandhreinsunarátaki Landverndar og Bláa hersins, Hreinsum Ísland. Friðrik Páll: Í pistli dagsins fjallar Friðrik um deilur Ísraels og Írans sem hafa magnast að undanförnu og nú er stríð ekki lengur talið útilokað.
Spegillinn 27.03.2018 Talið er að níu manns hafi látist hérlendis vegna ofneyslu á lyfseðilsskyldum lyfjum eða fíkniefnum það sem af er þessu ári. Utanríkisráðherra Rússlands, segir að þau lönd sem ráku rússneska erindreka úr landi í gær hafi verið undir þrýstingi frá ráðamönnum í Washington. Tilskipun Evrópusambandsins í orkumálum sem norska þingið samþykkti síðustu viku, mun ekki taka gildi þar ef Alþingi hafnar henni. Útlit er fyrir að meirihluti Alþingis sé á móti henni. Fimm lífeyrissjóðir hafa kært Magnús Ólaf Garðarsson, fyrrverandi framkvæmdastjóra og stjórnarmann United Silicon, til embættis héraðssaksóknara. Náttúruverndarsamtök Suðurlands og Landvernd hafa kært nýtt framkvæmdaleyfi vegna Brúarvirkjunar, í efri hluta Tungufljóts í Biskupstungum. Ef Alþingi samþykkir ekki þriðju tilskipunina í orkumálum mun hún ekki taka gildi í Noregi. Norska þingið samþykkti hana í síðustu viku. Til að hún öðlist gildi þurfa öll EFTA löndin þrjú að samþykkja. Utanríkisráðuneytið telur óljóst hver lagaleg og pólitísk áhrif yrðu ef Ísland samþykkir ekki. Það telur þó ekki ólíklegt að áhrif slíkrar ákvörðunar á EES- samstarfið yrðu meiri en aðeins þau að gildistöku yrði frestað til bráðabirgða. Arnar Páll Hauksson segir frá. Justin Trudeau, forsætisráðherra Kanada, hefur veitt sex höfðingjum frumbyggja, sem voru líflátnir fyrir 150 árum, sakaruppgjöf og hreinsað mannorð þeirra. Trudeau baðst formlega afsökunar á ódæðinu í kanadíska þinginu. Pálmi Jónasson tók saman. Margir þeirra sem berjast gegn spillingu í heiminum telja London eina allsherjar þvottastöð fyrir illa fengið fé. Sigrún Davíðsdóttir fór í ferð um borgina með samtökum sem berjast gegn þjófræði og peningaþvætti í breskum eignum. Erindið var að sjá húseignir í eigu Rússa í innsta hring Vladimir Pútíns Rússlandsforseta sem sumir telja auðugasta mann í heimi. Tilgangurinn var að minna á þessi tengsl eftir tilræðið við gagnnjósnarann Sergei Skripal og dóttur hans. Sigrún Davíðsdóttir sagði frá.
Þóroddur F Þóroddsson : Landvernd gaf nýlega út stefnumótunar- og leiðbeiningarrit um virkjun vindorku á Íslandi. Rit sem ekki síst er ætlað sveitarfélögum og stjórnvöldum . Þóroddur samdi texta ritsins og ræðir um tilurð þess og hvaða leiðbeiningar felast í því. Snæfríður Ingadóttir: Íbúðaskipti eru að verða æ algengari. Snæfríður hefur drjúga reynslu af þeim og hefur samið bók um íbúaskipti. Friðrik Páll: Stjórnarskránni í Kína hefur verið breytt. Áður mátti forseti aðeins sitja tvö kjörtímabil í röð. Nú getur hann, með stuðningi kommúnistaflokksins, setið í þrjú kjörtímabil ...eða ævilangt. Breytingin eykur völd Xi Jinpings, leiðtoga Kína, en vekur jafnframt gagnrýni. Vestrænir stjórnmálaskýrendur tala um lýðræðislega afturför.
Vinnueftirlitið hefur boðað fulltrúa stærstu samtaka aðila vinnumarkaðarins á fund og muna vekja athygli á mikilvægi forvarna vegna kynferðislegs ofbeldis á vinnustað, einelti og ofbeldi í dag. Þar verður borin upp viljayfirlýsing um aðgerðir gegn ofbeldi og eineltis á vinnustað sem fulltrúar stjórnvalda, aðila vinnumarkaðarins, fyrirtækja, stofnana og félagasamtaka munu undirrita. Til okkar kemur Jóhann F. Friðriksson frá Vinnueftirlitinu. Konur þurfa að hafa náð 25 ára aldri til að mega fara í ófrjósemisaðgerð hér á landi. Tinna Haraldsdóttir, 27 ára barnlaus kona, er á leið í slíka aðgerð síðar í þessum mánuði og hefur ákveðið að skrifa um ferlið á bloggsíðu sinni. Hún segist stöðugt mæta fólki sem vilji reyna að telja henni hughvarf um þessa endanlegu ákvörðun, en staðreyndin sé sú að hana langi ekki í börn. Hún kemur til okkar á eftir og spjallar aðeins um þau viðhorf sem henni mæta í þessari vegferð. Umboðsmaður Alþingis hefur hafið frumkvæðisathugun á því hvernir stærstu sveitarfélög landsins hlúa að heimilislausum og útigangsfólki. Borgarstjóri Reykjavíkur kom til okkar í gær og sagði að langmest framlag til málaflokksins kæmi frá Reykjavík. Í dag kemur til okkar forseti bæjarstjórnar í Hafnarfirði, Guðlaug Kristjánsdóttir, til að ræða hvernig Hafnarfjarðarbær hefur tekið á þessum málaflokki. Árið 2011 ákvað Orkuveita Reykjavíkur að jafna hlut kynja í stjórnunarstörfum og eyða kynbundnum launamun. Það hefur nú tekist. Ný úttekt sýnir að óútskýrður, kynbundinn launamunur er nú í fyrsta skipti konum í vil og mælist 0,2%. Mestur var munurinn árið 2008, 8,4%. Mikið átak og ný verkfæri þurfti til að þetta tækist og kemur Bjarni Bjarnason, forstjóri OR, til okkar og lýsir því hvernig þessi árangur náðist. Samkvæmt nýrri skýrslu sem Landvernd afhenti umhverfisráðherra í gær má meira en tífalda raforkuöryggi á Vestfjörðum með því að setja hluta af raflínum á Vestfjörðum í jörð. Hins vegar geri virkjun Hvalár ekkert til að bæta raforkuöryggið ólíkt því sem talsmenn virkjunarinnar hafi haldið fram. Til okkar koma Salome Hallfreðsdóttir, framkvæmdastjóri Landverndar, og Pétur Halldórsson stjórnarmaður. Við kynnum nýjan, vikulegan dagskrárlið til sögunnar: Jói skoðar heiminn. Jóhann Hlíðar Harðarson fréttamaður
Leikhússtjóra Leikfélags Akureyrar var í gær gert að hætta tafarlaust störfum eftir að hann viðurkenndi kynferðisbrot þegar #metoo-umræðan komst í hámæli. Brotið framdi hann fyrir um áratug. Fimm bjóða sig fram í leiðtogakjör Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor. Kjörið fer fram 27. janúar. Formaður flokksins segir að sér lítist vel á hópinn. Héraðsdómur Austurlands dæmdi skipstjóra hjólabáts í dag til tveggja mánaða skilorðsbundinnar fangelsisvistar. Hann var sakfelldur fyrir manndráp af gáleysi vegna dauða kanadískrar konu við Jökulsárlón. Með því að leggja línur í jörð má rúmlega tífalda raforkuöryggi á Vestfjörðum. Þetta kemur fram í skýrslu sem Landvernd hefur látið gera. Mosfellingar efndu í dag til söfnunar vegna fjölskyldunnar sem missti allt sitt í bruna í gær. Sveitarstjórnarkosningar nálgast. Arnar Páll Hauksson talar við Halldór Halldórsson, oddvita Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík og formann Sambands íslenskra sveitarfélaga og Grétar Þór Eyþórsson prófessor við Háskólann á Akureyri. Það verður að skilgreina hverjir eiga rétt á þjónustunni. Arnhildur Hálfdánardóttir fjallar um NPA og talar við Elínu Oddnýju Sigurðardóttir, formann velferðarráðs Reykjavíkur. Umsjónarmaður Arnar Páll Hauksson Tæknimaður Gísli Kjaran Kristjánsson