Podcasts about valdimar gu

  • 21PODCASTS
  • 153EPISODES
  • 2h 11mAVG DURATION
  • 1MONTHLY NEW EPISODE
  • Mar 19, 2025LATEST

POPULARITY

20172018201920202021202220232024

Best podcasts about valdimar gu

Latest podcast episodes about valdimar gu

Mannlegi þátturinn
Borgarlínan, Tannverndarvika og þáttaka barna með fötlun og af erlendum uppruna í íþróttastarfi

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Mar 19, 2025 54:09

Í hverri viku bætast að meðaltali um 50-60 nýir bílar í umferðina á höfuðborgarsvæðinu og við ákváðum að forvitnast um Borgarlínuna í þættinum í dag. Framkvæmd Borgarlínunnar er skipt í 6 lotur og fyrsta lota nær frá Hamraborg í Kópavogi að Krossmýrartorgi í Reykjavík og áætlað er að hún verði fullbúin árið 2031. Atli Björn Levy tók við starfi forstöðumanns Verkefnastofu Borgarlínunnar fyrir nokkrum mánuðum. Hann er samgönguverkfræðingur og leiðir Borgarlínuverkefnið og hann kom í þáttinn í dag og fór með okkur yfir stöðuna. Nú stendur yfir Tannverndarvikan og til okkar í dag kom Jóhanna Bryndís Bjarnadóttir tannlæknir og fyrrverandi formaður Tannlæknafélagsins. Lögð er áhersla á rétta tannhirðu, tengsl munnheilsu og andlegrar vellíðunar, forvarnir gegn verkjum og sýkingum og fleira sem Jóhanna fræddi okkur um tannheilsu í þættinum. Svo heyrðum við um verkefni á Suðurnesjum, þar sem er til dæmis kortlögð íþróttaiðkun barna með fötlun og aðgerðaráætlun með það fyrir augum að auka þáttöku þeirra og barna af erlendum uppruna í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi. Þáttaka meðal einstaklinga með fötlun í skipulögðu íþróttastarfi er ekki nema 4% og sú prósenta er jafnvel enn lægri á Suðurnesjum. Sigurður Friðrik Gunnarsson og Petra Ruth Rúnarsdóttir, svæðisfulltrúar ÍSÍ og UMFÍ á Suðurnesjum, komu í þáttinn og sögðu okkur meira frá þessu. Tónlist í þættinum í dag: Kata rokkar / Björk Guðmundsdóttir og Tríó Guðmundar Ingólfssonar (Theódór Einarsson) Waterloo Sunset / The Kinks (Ray Davies) Líttu sérhvert sólarlag / Sigríður Thorlacius og Valdimar Guðmundsson (Bragi Valdimar Skúlason) Ástarsæla / Hljómar (Gunnar Þórðarson, texti Þorsteinn Eggertsson) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Mannlegi þátturinn
Farsæld barna og áföll og áskoranir í nútímanum og Systrasamlagið

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Feb 20, 2025 51:41

Áföll af ýmsum toga geta haft alvarleg áhrif á þroska og velferð barna til framtíðar litið. Rannsóknir hafa sýnt fram á mikilvægi þess að skólar og aðrar stofnanir mæti þörfum barna sem verða fyrir áföllum. Sigrún Harðardóttir, dósent við Félagsráðgjafardeild HÍ, kom í þáttinn í dag en hún stýrir málstofu um farsæld barna og áföll og áskoranir í nútímanum á Félagsráðgjafaþingi sem fram fer á föstudaginn. Með henni kom Ragnheiður Hergeirsdóttir, lektor við Félagsráðagjafardeild HÍ, en hún heldur erindi á þinginu um börn sem búa við erfiðar aðstæður, eða eru jaðarsett og eru því líklegri en önnur til að búa við langvarandi og alvarlegri vanda í kjölfar samfélagslegra áfalla eða hamfara. Við kíktum í heimsókn í Systrasamlagið, sem nú er til húsa við Óðinsgötu 1, en var stofnað 2013 á Seltjarnarnesi og var á þeim tíma dáldið nýtt konsept í verslunar- og kaffihúsarekstri á Íslandi. Þetta er verslun og lífrænt kaffihús og byggt á þeirri hugsjón að víkka út hugmyndina um heilsubúð og færa nær almenningi og hafa andann alltaf með í efninu. Þannig tóku þær stefnuna systurnar Jóhanna & Guðrún Kristjánsdætur strax í upphafi að bjóða ekki eingöngu upp á holla og góða fæðu, heldur einnig t.d. lífrænan jógafatnað og jógavörur. Þær æfðu handbolta í æsku sem þær segja að hafi kennt sér ákveðið úthald og seiglu sem komi sér vel í svona rekstri þar sem skiptast á skin og skúrir. Tónlist í þættinum í dag Egils appelsín / Spilverk þjóðanna (Egill Ólafsson, Valgeir Guðjónsson, Sigurður Bjóla Garðarsson, texti Egill Ólafss., Valgeir Guðjónss., Sigurður Bjóla, Kristján Jónsson og Sveinbjörn Egilsson) Ameríka / Valdimar Guðmundsson og Þorsteinn Einarsson (Bragi Valdimar Skúlason, texti Magnús Eiríksson) Með hækkandi sól / Systur (Lovísa Elísabet Sigrúnardóttir / Lay Low) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Poppland
Hlið A, hlið B og fleiri hliðar

Poppland

Play Episode Listen Later Feb 17, 2025 195:00

Siggi og Lovísa með sól í hjarta þennan mánudaginn og Poppland þéttpakkað. Ný plata vikunnar kynnt til leiks eins og alltaf á mánudögum, Hlið A, Hlið B með Hreimi, upphitun fyrir úrslit Söngvakeppninnar og allskonar skemmtileg tónlist í bland við fróðleik og tónlistarfréttir. Nýdönsk - Fullkomið farartæki. ARCTIC MONKEYS - Fluorescent Adolescent. HARRY STYLES - Music For a Sushi Restaurant. Thee Sacred Souls - Live for You. Terrell, Tammi - Ain't no mountain high enough. Greiningardeildin, Bogomil Font - Bíttu í það súra. Bubbi Morthens - Jakkalakkar. PAUL SIMON - You Can Call Me Al. Ágúst Þór Brynjarsson - Like You. The Weeknd - Starboy (feat. Daft Punk). Elín Hall - barnahóstasaft. Hreimur - Án þín. Ásgeir Helgi Ásgeirsson - Jimmy House. PAUL McCARTNEY & WINGS - Goodnight Tonight. STUÐMENN - Gógó Partý. DAVID BOWIE - Let's Dance (80). Fat Dog - Peace Song. THE CLASH - Should I Stay Or Should I Go. Valdis, JóiPé - Þagnir hljóma vel. PAUL SIMON - Mother And Child Reunion. Chappell Roan - Pink Pony Club. Stebbi JAK - Set Me Free. RED HOT CHILI PEPPERS - Californication. David, Damiano - Born With A Broken Heart. SIXPENCE NON THE RICHER - Kiss Me. Sigríður Beinteinsdóttir, Celebs - Þokan. Birnir, Margrét Rán Magnúsdóttir - Fallegur dagur. Carpenter, Sabrina - Bed Chem. Júlí Heiðar Halldórsson, Þórdís Björk Þorfinnsdóttir - Fire. Coldplay - ALL MY LOVE. NIALL HORAN - Nice to Meet Ya. HLJÓMAR - Ég elska alla. Júníus Meyvant - When you touch the sky. SÁLIN HANS JÓNS MÍNS - Aldrei Liðið Betur. Árný Margrét - Day Old Thoughts. Teitur Magnússon Tónlistarmaður - Fegurð. MAGNÚS ÞÓR & JÓNAS SIGURÐSSON - Ef ég gæti hugsana minna (Hljómskálinn). Valdimar Guðmundsson Tónlistarm., Issi - Gleyma. Doechii - Denial is a River. FRANK OCEAN - Lost. SHANIA TWAIN - You're Still The One. Wallen, Morgan - Love Somebody. Tinna Óðinsdóttir - Words. JÓN JÓNSSON & KK - Sumarlandið. Hreimur - Hjartasár (feat. Erna Hrönn) BILLY STRINGS -Gild the Lily. OF MONSTERS AND MEN - Wars.

Poppland
Undir yfirborð og ofan

Poppland

Play Episode Listen Later Feb 4, 2025 195:00

Poppland var þétt eins og vanalega, Siggi og Lovísa stýrðu þættinum og spiluðu fjölbreytta tónlist. Árni Matt kíkti undir yfirborðið, plata vikunnar á sínum stað, upphitun fyrir Söngvakeppnina og margt fleira sniðugt. Einar Lövdahl - Um mann sem móðgast. Guðmundur Jónsson Söngvari - Eyjólfur. THE POLICE - Roxanne. HALL & OATES - Family Man (80). MIKE OLDFIELD & MAGGIE REILEY - Moonlight Shadow. Crockett, Charley - Solitary Road. Jade Bird - Uh Huh. JÚNÍUS MEYVANT - Gold laces. Karl Olgeirsson - Janúar. Royel Otis - Murder on the Dancefloor (triple j Like A Version). Ágúst Þór Brynjarsson - Eins og þú. Árný Margrét - Day Old Thoughts. Daniil, Izleifur - Andvaka. ROMY - Enjoy Your Life. Helgi Björnsson - Kókos og engifer. Kiwanuka, Michael - The Rest Of Me. Khruangbin - So We Won't Forget. Daði Freyr Pétursson - I'm not bitter. Bía - Norðurljós. David, Damiano - Born With A Broken Heart. TALKING HEADS - Once In A Lifetime. Ferreira, Sky - Leash. GEORGE MICHAEL - Father Figure (80). THE CRANBERRIES - Linger. Bryan, Zach - This World's A Giant. Jón Jónsson - When You're Around. Superserious - Duckface. Unnsteinn Manuel - Lúser. Valdimar Guðmundsson Tónlistarm., Issi - Gleyma. Salka Sól Eyfeld - Tímaglas. Hildur - Dúnmjúk. Jade - Fantasy. Izleifur - Plástur. Doechii - Denial is a River (Clean). ELECTRIC LIGHT ORCHESTRA - All over the world. BEYONCÉ - Halo. BIRGO - Ég flýg í storminn. Käärijä - Cha Cha Cha. HERRA HNETUSMJÖR - Elli Egils. LÓN - Rainbow. GIGI PEREZ - Sailor Song.

Mannlegi þátturinn
Ný bók um kúk, piss og prump, Hafrót á Eyrabakka og leikhússkóli

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Sep 10, 2024 52:27

Sævar Helgi Bragason kom í þáttinn í dag og sagði okkur frá nýrri bók sinni sem heitir Kúkur, piss og prump. Eins og segir aftan á bókinni, „Allt í náttúrunni er hluti af hringrás. Þú líka! Þar leikur meltingin algjört lykilhlutverk. Heimurinn verður svo fallegur og forvitnilegur þegar við uppgötvum hvernig allt er tengt. Meira að segja kúkur, piss og prump verður bara... spennandi!“ Sævar Helgi fræddi okkur um þessa bók og þessa mikilvægu starfsemi líkama okkar í dag. Í gær hófst alþjóðleg listahátíð og vinnustofa á Eyrarbakka í þriðja sinn, Oceanus/ Hafsjór. Listsýningar, gjörningar og tónlistarflutningur munu fara fram í Kartöflugeymslunni, verksmiðjuhúsnæði ásamt fleiri óhefðbundnum sýningarrýmum víðs vegar um Eyrarbakka. Hafrót er yfirskrift hátíðarinnar að þessu sinni og listamenn erlendir og innlendir taka þátt í sköpuninni næstu vikur. Gestum og gangandi gefst kostur á að skoða ferlið á vinnustofunum meðan á hátíðinni stendur. Við skruppum á Eyrarbakka og tókum tali listakonuna Ástu Guðmundsdóttur sem stendur á bak við þetta. Við fræddumst svo að lokum um nýjan Leikhússkóla Þjóðleikhússins. Þar munu nemendur læra um allar hliðar á starfsemi leikhússins í þverfaglegu námi, til dæmis hönnun leikmynda, búninga, lýsingar og hljóðs, sýningarstjórn, leikritun og leiklist. Vala Fannell, skólastjóri skólans, kom í þáttinn og sagði frá. Tónlist í þættinum: Flottur jakki / Ragnar Bjarnason (J.K.Thomas, texti Kristján Hreinsson) Waterloo sunset / The Kinks (Ray Davies) For once in my life / Frank Sinatra (Ron Miller og Orlando Murden) Ameríka / Valdimar Guðmundsson og Þorsteinn Einarsson (Bragi Valdimar Skúlason, texti Magnús Eiríksson) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Rauða borðið
Breiðholt, dauðinn, karlmennska og fótbolti

Rauða borðið

Play Episode Listen Later May 16, 2024 149:40

Fimmtudagurinn 16. maí Breiðholt, dauðinn, karlmennska og fótbolti Helgi Gíslason, skólastjóri Fellaskóla, kemur að Rauða borðinu og segir okkur frá skólanum og hverfinu þar sem er hæst hlutfall innflytjenda og fólks sem ekki talar íslensku heima. Salvör Nordal umboðsmaður barna er heimspekingur sem fjallað hefur um heilbrigðiskerfið. Hún ræðir við okkur um um dánaraðstoð. Óbærilegur léttleiki knattspyrnunnar er leikrit um karlmennsku og fótbolta. Leikararnir Sveinn Ólafur Gunnarsson, Ólafur Ásgeirsson og Albert Halldórsson og söngvarinn Valdimar Guðmundsson taka þátt í þeirri sýningu og koma til okkar til að ræða hana, karlmennsku og fótbolta.

Rokkland
Vévaki og Lón á Eurosonic

Rokkland

Play Episode Listen Later Jan 28, 2024 109:53

Hljómsveitirnar Lón og Vévaki eru tvær af fjórum nöfnum frá íslandi sem spiluðu á Eurosonic festival í Hollandi um miðjan janúar. Rokkland var á svæðinu og ræddi við báðar sveitir. Lón er tríó þar sem Valdimar Guðmundsson syngur á ensku aðalega og Vévaki er kvartett sem syngur forn kvæði og ný í fornum stíl. Meðlimir sveitarinnar eru heiðin og færa blót í tónlistarform með tónlist sinni.

Mannlegi þátturinn
Allir geta hjálpað, Ég er þinn elskari og hátíðarheilsuspjall

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Dec 19, 2023

Við heyrðum í þættinum af áhugaverðu verkefni þar sem kvenfélagskonur tóku sig til, þegar upp kom að fjölskyldum sem hingað voru komnar frá Úkraínu vantaði mikið af nauðsynjavörum, og blésu til söfnunar. Landsþing kvenfélaga á Suðurlandi brást skjótt við og á nokkuð skömmum tíma voru sérstakir gjafapokar fylltir af einmitt nauðsynjavörum, tannburstum, tannkremi, sokkum, sjampói og og fleiru. Þær dreyfðu svo um 200 pokum til fjölskyldna þar sem þörfin var svo sannarlega til staðar. Við töluðum við Guðmundu Björnsdóttur Stackhouse, sem var ein þeirra sem stóðu að söfnuninni og Helga Guðnason, forstöðumann Hvítasunnukirkjunnar Fíladelfíu, um þetta verkefni og hvað fólk getur gert til að leggja þeim lið sem þurfa á hjálp að halda. Í nóvember kom út bókin Ég er þinn elskari, í henni eru bréf Baldvins Einarssonar til Kristrúnar Jónsdóttur 1825-1832. Bókin er tvískipt. Annars vegar inngangur þar sem ástarharmsaga þeirra Baldvins og Kristrúnar er rakin og hún sett í fræðilegt samhengi og hins vegar eru prentuð bréf Baldvins til Kristrúnar, færð til nútímamáls og skýringar. Einnig eru í viðauka þrjú bréf sem Baldvin skrifaði sr. Jóni Jónssyni á Grenjaðarstað, föður Kristrúnar, bréf sem skipta máli fyrir samhengi sögunnar. Erla Hulda Halldórsdóttir prófessor í sagnfræði og höfundur bókarinnar kom í þáttinn og sagði nánar frá þessari dramatísku ástarsögu. Jóhanna Vilhjálmsdóttir kom svo í heilsuspjall í dag. Hún velti fyrir sér meðalhófinu um jólin og þar getur núvitund hjálpað. Að flýta sér ekki um of, njóta stundarinnar, hvers munnbita og gefa líkamanum tíma til að vinna úr og melta hátíðarmatinn. Tónlist í þættinum í dag: Aðfangadagskvöld / Helga Möller (Gunnar Þórðarson og Þorsteinn Eggertsson) Ef ég nenni /LÓN og Valdimar Guðmundsson (Zucchero, texti Jónas Friðrik) Hvít jól / Ellý Vilhjálms og Ragnar Bjarnason (Irving Berling og texti Stefán Jónsson) Á jólunum er gleði og gaman / Eddukórinn (lagahöfundur ókunnur, texti Friðrik Guðni Þórleifsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Mannlegi þátturinn
Allir geta hjálpað, Ég er þinn elskari og hátíðarheilsuspjall

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Dec 19, 2023 51:59

Umsjón: Siggi Gunnars, Lovísa Rut og Gígja Siggi og Lovísa voru í góðum gír í Popplandi dagsins. Jólaplata dagsins tekin fyrir sem og plata vikunnar, Jóladraumur með Guðmundi Jónssyni. Svo var opnað fyrir símann og tekið á móti tilnefningum fyrir manneskju ársins. BAGGALÚTUR - Jólin eru okkar (ft. Valdimar Guðmundsson & Bríet). SIGRÚN STELLA - Circles. Lipa, Dua - Houdini. Inspector Spacetime - Smástund. HARRY BELAFONTE - Mary?s Boy Child. Addison Villa - Skál fyrir Vésteini. Ragnhildur Gísladóttir - Það Á Að Gefa Börnum Brauð. Pálmi Gunnarsson, Brunaliðið - Yfir fannhvíta jörð. Ragnhildur Gísladóttir, Brunaliðið - Lítið jólalag. Brunaliðið, Sigrún Hjálmtýsdóttir - Hvít jól. Ragnhildur Gísladóttir, Börn úr Öldutúnsskóla, Brunaliðið - Jóla jólasveinn. Þórhallur Sigurðsson, Brunaliðið - Leppalúði. Brunaliðið, Sigrún Hjálmtýsdóttir - Einmana á jólanótt. Pálmi Gunnarsson, Brunaliðið - Náin kynni (Vitavon). Ragnhildur Gísladóttir, Brunaliðið - Þorláksmessukvöld. Brunaliðið - Óli Lokbrá. Pálmi Gunnarsson, Kór Söngskólans í Reykjavík, Brunaliðið - Faðir vor. THE BLACK KEYS - Howlin' For You. BAGGALÚTUR - Sagan Af Jesúsi. Laufey, Beabadoobee - A Night To Remember. Sivan, Troye - Got Me Started. Loreen - Tattoo. Sigurður Guðmundsson, Sigríður Thorlacius - Gömul kynni. ÁRNASON & GDRN - Sagt er. UNA TORFA & ELÍN HALL - Vegbúi. Kahan, Noah - Stick Season. Allergies, The, Smith, Marietta - Take Another Look At It. Laufey, Jones, Norah - Better Than Snow. Jóladraumur, Íris Lind Verudóttir - Jólin þau koma senn. STEVIE WONDER - The Christmas Song. Dina Ögon - Det läcker. HERRA HNETUSMJÖR & BJÖRGVIN HALLDÓRSSON - Þegar þú blikkar. Superserious - Duckface. BROTHER GRASS - Jól (Jólalagakeppni Rásar 2 - 2010) 1.sæti. BJÖRK & RÓSALIA - Oral. LÓN & RAKEL - Hátíðarskap.

Poppland
12.12.2023

Poppland

Play Episode Listen Later Dec 12, 2023

08.12.2023

Poppland

Play Episode Listen Later Dec 8, 2023

Umsjón: Matthías Már & Lovísa Rut Matti og Lovísa stýrðu Popplandi þennan föstudaginn, jólagírun inná milli. Lögin í Jólalagakeppni Rásar 2 á dagskrá, Sinead O'Connor minnst sem hefði orðið 57 ára í dag og þessar helstu tónlistarfréttir á sínum stað. BAGGALÚTUR - Jólin eru okkar (ft. Valdimar Guðmundsson & Bríet). NAT KING COLE - The Christmas Song. ÍSLENSKU DÍVURNAR - Hugurinn Fer Hærra. Fleet Foxes - White Winter Hymnal. Tayo Sound, Pixey - Daisy Chain. Aldís Fjóla Borgfjörð Ásgeirsdóttir - Quiet the Storm. Langi Seli og Skuggarnir - Öll heimsins ból. Sivan, Troye - Got Me Started. Youth Lagoon - Prizefighter (bonus track wav). SZA - Snooze (Clean). SHE & HIM - The Christmas Waltz (#1 plata dagsins 9. des 2011). RICHARD HAWLEY - Coles Corner. Kjalar - Jólaboð hjá tengdó. METRONOMY - The Look. Laufey, Jones, Norah - Have Yourself A Merry Little Christmas (bonus track wav). THE BAND - Christmas must be tonight. LAUFEY - From The Start. Ylja - Dansaðu vindur. AMPOP - My Delusions. Hjalti Unnar, Pálmi Gunnarsson - Í tímavél. ROBBIE WILLIAMS - Millennium. O'Connor, Sinead - Drink before the war. Björk Guðmundsdóttir, Rosalia - Oral. ANDRI - Jólin koma snemma í ár. DIDO - Here With Me. Sycamore tree - Heart Burns Down. DIRE STRAITS - Money For Nothing [short Version]. Harlow, Jack - Lovin On Me. Baggalútur - Desember (búinn að öllu). THE BEACH BOYS - Little Saint Nick. ICEGUYS - Þessi týpísku jól. Kahan, Noah - Stick Season. THE BEATLES - While My Guitar Gently Weeps. SIA - Santa's Coming For Us. JÓHANNA GUÐRÚN - Ætla ekki að eyða þeim ein. DUA LIPA - Dance The Night. Addison Villa - Skál Fyrir Vésteini. PAUL MCCARTNEY - Wonderful Christmas Time. PALE MOON - Spaghetti. CELINE DION - Another Year Has Gone By. FRIÐRIK DÓR & LADDI - Skóinn út í glugga.

quiet bj gu matth fj desember sycamore sivan ald lov kahan gunnarsson laufey umsj valdimar gu baggal paul mccartney wonderful christmas time

Saga Jeff Buckley og plötunar Grace

Rokkland

Play Episode Listen Later Feb 26, 2023

Farið yfir sögu Jeff Buckley og fjallað um Grace, einu breiðskífu hans. Einnig eru leiknar upptökur sem gerðar voru á heiðurstónleikum sem fóru fram á Gauki á Stöng í lok árs 2014. Meðal þeirra sem fluttu þar lög eftir Jeff Buckley voru Valdimar Guðmundsson, Eyþór Ingi og fleiri. Umsjón: Matthías Már Magnússon

Rokkland
Saga Jeff Buckley og plötunar Grace

Rokkland

Play Episode Listen Later Feb 26, 2023 115:00

Farið yfir sögu Jeff Buckley og fjallað um Grace, einu breiðskífu hans. Einnig eru leiknar upptökur sem gerðar voru á heiðurstónleikum sem fóru fram á Gauki á Stöng í lok árs 2014. Meðal þeirra sem fluttu þar lög eftir Jeff Buckley voru Valdimar Guðmundsson, Eyþór Ingi og fleiri. Umsjón: Matthías Már Magnússon

KZradio הקצה
ספיישל פיות נורדיות – תכנית 16: חג המולד ושנה חדשה

KZradio הקצה

Play Episode Listen Later Jan 16, 2023 118:17

Kate Havnevik - Winter Wonderland (Norway) Club K - Santa Claus Is Coming to Town (Sweden) The Raveonettes - The Christmas Song (Denmark) Remington Super 60 - Another Christmas Song (Norway) Toad Venom - Merry (Christmas) and Me (Sweden) Delay Trees - Blame It On the Snow (Finland) Frode Fivel - Tv Christmas (Norway) This Heel - Married to the Winter Blues (Sweden) Ellen Krauss - This Time Of Year (Sweden) The New Fever - A Christmas Night (Denmark) Magne Furuholmen - There Goes Another Year (Norway) Amason - Santa's Comin to Free Them (Sweden) Bellman - A Christmas Tale - Bellman (Norway) Flora Cash - Snow, Lights (Sweden-USA) Baggalútur, BRÍET og Valdimar Guðmundsson - Jólin eru okkar (Iceland) Hilma Nikolaisen - Baby Baby (The One And Only Jesus) (Norway) Crying Day Care Choir - It's Almost Time For A Christmas Tree (Sweden) JOYLESS - Shades in the Sun (Norway) Dobbeltgjenger - Blood Money (Norway) Ola Kvaløy - Let Us Make This Up (Norway) Dark Sven - Clone (Sweden) Ásgeir - Snowblind (Iceland) Trentemøller and Dísa - Cops on Our Tail (Denmark, Iceland) Bo Milli - How It Is (Norway) This Heel - Electric Whale (Sweden) Roxy Jules - Light Pink Petals (Denmark) CELIIN - Joker (Norway) Paul Bäcklin - The Distance (Sweden) Siv Jakobsen and Ane Brun - Sun, Moon, Stars (Norway) Michaela Åberg - Way Out (Sweden) Aasma - Going Nowhere (Sweden) Röyksopp feat. Jamie Irrepressible - So Ambiguous (Norway, UK) Crying Day Care Choir - It's Almost Time For A Christmas Tree (Sweden)

moon cops valdimar gu
Mannlegi þátturinn
Aðgengismálstofur, Jólin og sorgin og veðurathuganir

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Nov 22, 2022

Við fjölluðum um aðgengismál og algilda hönnun í dag og við fræddumst um samstarfsyfirlýsingu um algilda hönnun sem var undirrituð af forsvarsmönnum 6 félaga og samtaka í vor. Við fengum til okkar Hörpu Ciliu Ingólfsdóttur, byggingarverkfræðing og ráðgjafa, Hebu Hertervig, arkitekt og Stefán Vilbergsson, verkefnastjóra í aðgengishópi ÖBÍ, til að segja okkur frá málstofunum Góð hönnun fyrir alla, þar sem fjallað er um hönnun og byggingu húsnæðis og mannvirkja með tilliti til aðgengis fyrir alla. Jólin og sorgin í erfiðum aðstæðum er heiti á fyrirlestri sem fram fer á morgun og er hluti af mánaðarlegri fyrirlestrarröð Krafts, Ungt fólk og krabbamein. Þau sem hafa upplifað sorg og missi kannast eflaust við að fara kvíða fyrir þegar líða fer að jólum, afmæli eða öðrum tímamótum. Ína Ólöf Sigurðardóttir framkvæmdastjóri Sorgarmiðstöðvarinnar verður með fræðslu ásamt því að miðla af eigin reynslu sem og uppbyggilegum ráðum um hvað getur hjálpað þegar erfiðar aðstæður sem þessar eru til staðar. Inga Bryndís Árnadóttir fræðslu- og hagsmunafulltrúi Krafts kom ásamt Ínu í þáttinn í dag. Elín Björk Jónasdóttir veðurfræðingur kom svo til okkar í dag í sitt vikulega veðurspjall. Í dag fræddi hún okkur um veðurathuganir í sögulegu ljósi, þ.e. upphaf veðurathugana á Íslandi og þær stöðvar sem hafa lengstu samfelldu athugunarsöguna. Tónlist í þættinum í dag: Yfir borgina / Valdimar (Ásgeir Aðalsteinsson og Valdimar Guðmundsson) Fyrsta ástin / Björgvin Halldórsson og Ragnhildur Gísladóttir (Jóhann Helgason og Jón Sigurðsson) Gamla húsið / Ellen Kristjánsdóttir (Þorgeir Ástvaldsson og Bjartmar Guðlaugsson ) I Would Run Away with You / Bambaló (Kristjana Stefánsdóttir) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Mannlegi þátturinn
Aðgengismálstofur, Jólin og sorgin og veðurathuganir

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Nov 22, 2022 50:00

Skátahreyfingin 100 ára, ævisögumálþing og COP27

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Nov 8, 2022

Skátahreyfingin á Íslandi fagnaði um helgina 110 árum frá upphafi starfs á Íslandi og 100 ára afmæli kvenskátastarfssins og auðvitað var það gert með afmæliskvöldvöku. Upphafið var 2. nóvember árið 1907, en þá komu saman nokkrir skátafélagar í Fjósinu, að baki Menntaskólans við Reykjavík. Harpa Ósk Valgeirsdóttir er skátahöfðingi Íslands og hún kom í þáttinn og fór aðeins með okkur yfir sögu skátahreyfingarinnar á Íslandi. Á laugardaginn heldur Félag um átjándu aldar fræði málþing undir yfirskriftinni - Af sjálfsævisögum frá átjándu og nítjándu öld í Þjóðarbókhlöðunni. Teknar verða fyrir fjórar íslenskar sjálfsævisögur frá átjándu og nítjándu öld og þær greindar með augum ævisöguritaranna. Skoðuð verða samskipti söguritaranna við annað fólk, hugmyndafræði sem birtist í sögum þeirra, sjálfsmynd svo og dómar þeirra um annað fólk. Mjög áhugaverð innsýn í lífið á 18. og 19. öld. Margrét Gunnarsdóttir, sagnfræðingur og skjalavörður á Þjóðskjalasafni Íslands og Svavar Sigmundsson, rannsóknarprófessor emeritus við Stofnun Árna Magnússonar, komu í þáttinn og sögðu frá. Elín Björk Jónasdóttir veðurfræðingur kom svo í sitt vikulega veðurspjall og í dag fjallaði hún um loftslagsmálin og COP27 loftslagsráðstefnuna sem stendur nú yfir í Egyptalandi. Tónlist í þættinum í dag: Ameríka / Valdimar Guðmundsson og Þorsteinn Einarsson, úr Hljómskálanum (Bragi Valdimar Skúlason og Magnús Eiríksson) Eitt lag enn / GÓSS (Hörður Gunnar Ólafsson og Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson) Just the way you are / Billy Joel (Billy Joel) Aftur heim til þín / Eyþór Ingi og Lay Low (Jónína Guðrún Eysteinsdóttir og Baldur Hjörleifsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Mannlegi þátturinn
Skátahreyfingin 100 ára, ævisögumálþing og COP27

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Nov 8, 2022 50:00

Sérfræðingurinn Björn Berg Gunnarsson - heimilisbókhaldið

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Oct 13, 2022

Það var sérfræðingur í þættinum í dag, við fræddumst um heimilisbókhaldið, sem sagt þessi daglegu útgjöld, greiðslubyrði, lánamál, sparnað og svo framvegis. Björn Berg Gunnarsson, deildarstjóri greiningar og fræðslu hjá Íslandsbanka, kom í þáttinn einmitt til þess að fræða okkur um þetta. Hann gerði einnig sitt besta til að svara spurningum sem hlustendur höfðu sent inn í pósthólf þáttarins. Spurningarnar snéru til dæmis að breytingum á séreignarlífeyri, sparnaði, að ná endum saman, vaxtahækkanir, verðbólguna og íbúðarmarkaðinn svo eitthvað sé nefnt. Tónlist í þættinum: Yfir borgina / Valdimar (Ásgeir Aðalsteinsson og Valdimar Guðmundsson) Leyndarmál / Ásgeir Trausti (Ásgeir Trausti Einarsson, Einar Georg Einarsson og Júlíus Aðalsteinn Róbertsson) Sjáumst aftur / Páll Óskar (Páll Óskar Hjálmtýsson og Orlande de Lassus) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Play Episode Listen Later Oct 13, 2022 50:00

Hreyfing aldraðra, vinkill Guðjóns og Jakub lesandinn

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Sep 5, 2022 50:00

Öll eldumst við, auðvitað mishratt en tíminn virðist líða hraðar eftir því sem maður eldist. Hreyfing verður æ mikilvægari með aldrinum og aftur og aftur kemur í ljós gríðarlegt gildi góðrar hreyfingar fyrir heilsuna. Hvers konar hreyfingu mæla sjúkraþjálfarar með þegar aldurinn færist yfir? Hvað er næg hreyfing og hvað er of mikil hreyfing? Er hægt að hreyfa sig of mikið? Sjúkraþjálfun aldraðra er sérsvið Sólveigar Ásu Árnadóttur, prófessors við Háskóla Íslands. Hún kom í þáttinn í dag og fræddi okkur um mikilvægi hreyfingar þegar við eldumst. Í dag kynntumst við nýjum pistlahöfundi, Guðjóni Helga Ólafssyni. Hann verður með pistla næstu mánudaga í þættinum sem hann kallar vinkla. Guðjón segist vera skúffuskáld og þjóðfræðiáhugamaður úr Flóanum sem hefur stundað í nokkur ár að búa til pistla og birta á samfélagsmiðlum. Hann býr með fjölskyldu sinni á bænum Sviðugörðum í gamla Gaulverjabæjarhreppi en stundar ekki hefðbundinn búskap, heldur nokkrar hænur, ræktar tré og svolítið af kartöflum til heimilis- og einkanota. Við heyrðum fyrsta vinkil Guðjóns Helga í þætti dagsins. Lesandi vikunnar í þetta sinn var Jakub Stachowiak, rithöfundur og bókavörður. Við fengum að vita hvaða bækur hann hefur lesið undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft sérstök áhrif á hann í gegnum tíðina. Tónlist í þættinum í. dag: 1) Barn / Ragnar Bjarnason og Björgvin Halldórsson (Ragnar Bjarnason, Steinn Steinarr) 2) You don?t have to say you love me / Dusty Springfield 3) Lag ljóð / Spilverk Þjóðanna (Spilverk Þjóðanna) 4) Ameríka / Memfismafían og Valdimar Guðmundsson og Þorsteinn Einarsson (Magnús Eiríks, Bragi Valdimar Skúlason) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Mannlegi þátturinn
Hreyfing aldraðra, vinkill Guðjóns og Jakub lesandinn

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Sep 5, 2022

Morgunútvarpið
3. ág - Tónlist, skjálftar, verðbólguráð og fjölástir

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Aug 3, 2022

Umsjón: Rúnar Róbertsson og Felix Bergsson Valur Gunnarsson, rithöfundur og sagnfræðingur, er á ferð um Úkraínu og sendi okkur pistla þaðan þar sem hann lýsir upplifun sinni. Í dag talaði hann um mikinn fjölda brúðkaupa þessi dægrin í Úkraínu. Sigríður Kristjánsdóttir náttúruvársérfræðingur á Veðurstofunni fór yfir atburði næturinnar á Reykjanesskaganum. Tónlistarhátíðin Seigla fer fram í Hörpu um næstu helgi. Erna Vala Arnardóttir, listrænn stjórnandi hennar stofnaði hana í fyrra með því markmiði að stuðla að frjóu listasamfélagi, styðja við íslenskt tónlistarfólk og skapa tækifæri til að koma þýðingarmiklum verkefnum á sviði tónlistar á framfæri. Þetta árið standa sextán tónlistarflytjendur að baki fimm tónleikum sem fara fram í Eldborg yfir þessa þrjá daga, ásamt tveimur viðburðum í Hörpuhorni á opinni dagskrá hátíðarinnar. Kammer- og söngtónlist eru í fararbroddi á dagskrá hátíðarinnar þetta árið og er áhersla lögð á fjölbreytta og aðgengilega viðburði. Erna Vala kom til okkar til að segja okkur meira. Á Hinsegin dögum ætla þau Aldís Þorbjörg Ólafsdóttir og Unnsteinn Jóhannsson að leiða málstofu undir yfirskriftinni Fjölástir og fjölbreytileikinn. Fjallað verður um ólík sambandsform og góðir gestir munu deila sinni upplifun. Þetta er ein af fjölmörgum málstofum sem boðið er upp á þessa vikuna. Unnsteinn kom til okkar og við ræðum fjölbreytileika í samböndum. Verðbólga í heiminum er að ná hæstu hæðum og talið er að hún nái tveggja stafa tölu fyrr en síðar hér á landi. En hvað getur hinn almenni borgari gert til að forðast áhrif verðbólgunnar? Eru hagfræðingar með einhver ráð handa heimilum landsins þegar verðbólgan veldur kaupmáttarrýrnum og allt verður dýrara? Katrín Ólafsdóttir hagfræðingur og dósent við Háskólann í Reykjavík kom í morgunkaffi. Valdimar Guðmundsson og Ásgeir Aðalsteinsson eru meðlimir í hljómsveitinni Valdimar og hljómsveitinni Lón, það er sem sagt nóg að gera. Þeir félagar komu til okkar í morgunkaffi en Lón eru nýkomnir frá Bandaríkjunum þar sem þeir spiluðu fyrir heimamenn. Þá eru þeir að fara að spila á vestfjörðum í vikunni. Vestra kynntust þeir til að mynda Walter America, en hver er það?

Play Episode Listen Later Aug 3, 2022 130:00

2. ágúst - Skjálftar, Hinsegin dagar, Hlemmur, Act alone, tæknihorn

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Aug 2, 2022

Snarpir skjálftar voru í nótt og við fengum Markús Þórhallsson fréttamann til að fara aðeins yfir tíðindi næturinnar með okkur. Jörð hefur skolfið undanfarna daga, ekki síst í Grindavík og heimamenn endurupplifa aðdraganda gossins í Fagradalsfjalli. Eins og um hefur verið fjallað í fréttum eru vangaveltur uppi um hvert framhaldið verður og við slógum á þráðinn til Fannars Jónassonar bæjarstjóra í Grindavík og heyrðum af viðbrögðum og viðbúnaði heimamanna. Í dag hefjast Hinsegin dagar í Reykjavík og er mikið um dýrðir í dagskránni nú sem endranær. Hátíðin fagnar fjölbreytileikanum með fjölbreyttum viðburðum á sviði menningar og fræðslu. Gunnlaugur Bragi Björnsson, formaður Hinsegin daga, kom til okkar í spjall. Reykjavíkurborg er ennþá borg í mótun, við þekkjum umræður um þéttingu byggðar, mikilvægi grænna svæða, lýsingu, hávaða og umferð, svo eitthvað sé nefnt. Nú eru framundan miklar framkvæmdir við Hlemm, sem hefjast í vikunni með tilheyrandi lokunum næstu misserin. Við fengum Eddu Ívarsdóttur borgarhönnuð til okkar til að fara aðeins yfir þær breytingar sem eru í kortunum og hvernig framkvæmdum verður háttað. Act alone, elsta leiklistarhátíð landsins, verður haldin á ný á Suðureyri núna ágúst og hefst á fimmtudaginn, en hátíðin var fyrst haldin 2004. Dagskráin er einstaklega vegleg og um leið alþjóðleg. Yfir 20 viðburðir og eitthvað fyrir alla í leiklist, dans, tónlist og allskonar list. Sá sem veit allt um málið var á línunni, hann heitir Elfar Logi Hannesson. Guðmundur Jóhannsson kom til okkar í Tæknihornið og í dag einblíndi hann á í hvaða átt samfélagsmiðlar eru að þróast. Tónlist: Una Torfadóttir - En. Pearl Jam - Just breathe. Mannakorn - Einhvers staðar, einhvern tíma aftur. Lay Low - Little by little. Wings - Another day. Bjarni Snæbjörnsson - Næs (Lag Hinsegin daga 2022). Valdimar Guðmundsson - Okkar eigin Osló. Bill Withers - Lovely day. Paolo Nutini - Through the echoes. Prins Póló - Átján og hundrað.

Play Episode Listen Later Aug 2, 2022 130:00

Jóel Pálsson föstudagsgestu og franskt matarspjall

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Jun 3, 2022 50:00

Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Jóel Pálsson tónlistarmaður og framkvæmdarstjóri. Hann hefur verið atkvæðamikill í íslensku tónlistarlífi og hefur tekið þátt í fjölmörgum verkefnum á ólíkum sviðum tónlistar. Hann hefur leikið á fjölda hljómplatna og komið fram í Evrópu, Bandaríkjunum, Kanada og Kína á tónleikum og tónlistarhátíðum. Jóel hefur gefið út 7 hljómplötur í eigin nafni með frumsaminni tónlist. Hann hefur verið meðlimur í Stórsveit Reykjavíkur frá stofnun hennar. Jóel hefur hlotið íslensku tónlistarverðlaunin sex sinnum fyrir plötur sínar og verið tilnefndur til Tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs tvisvar, árin 2011 og 2016. Auk tónlistarstarfa stofnaði Jóel, ásamt eiginkonu sinni Bergþóru Guðnadóttur, hönnunarfyrirtækið Farmers Market ? Iceland. Hann sinnir rekstri þess meðfram tónlistarstörfum sínum. Við fengum hann til að segja okkur frá æsku sinni og uppvexti og ferðalaginu í gegnum lífið til dagsins í dag. Í matarspjalli dagsins hringdum við í Sigurlaugu Margréti þar sem hún er stödd í borg ljóssins, París, og fengum hana til að segja okkur aðeins til dæmis frá herra Fernand, sem gerir heimsfrægt beouf bourguignon og svo velti hún því fyrir sér hvað Frakkar tala um þegar þeir fara út að borða. Sem sagt franskt matarspjall frá París í dag. _________________________________________ Tónlist í þættinum: Tjörn eftir Jóel Pálsson Geigun eftir Jóel Pálsson, texti eftir Þórarinn Eldjárn, söngur Valdimar Guðmundsson Waterfall með hljómsveitinni Hjaltalín, lag eftir Hjört Ingva Jóhannsson og texti eftir Sigríði Thorlacius UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Mannlegi þátturinn
Jóel Pálsson föstudagsgestu og franskt matarspjall

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Jun 3, 2022

25. mars - Íþróttamannvirki, barnafátækt, húsnæðismál, Valdimar o.fl.

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Mar 25, 2022

Ísafjarðarbær og íþróttafélagið Vestri hafa undirritað viljayfirlýsingu vegna byggingar fjölnota íþróttahúss á Ísafirði, en gert er ráð fyrir að heildarkostnaður við verkið verði á bilinu 550 til 650 milljónir króna. Í yfirlýsingunni kemur fram að bygging knatthúss muni skipta íþróttahreyfingunni á svæðinu gríðarlega miklu máli og að öllum sé ljóst að núverandi aðstaða sé ekki viðunandi. Við hringdum vestur og ræddum þessi áform við Guðfinnu Hreiðarsdóttur, formann Vestra. Hvað myndi kosta að losa öll börn á Íslandi undan fjárhagsáhyggjum? Af hverju eru börn rukkuð fyrir leikskóla, skólamáltíðir, tónlistarnám og frístundir? Þessum stóru spurningum verður velt upp á málþingi Velferðarsjóðs barna á morgun undir yfirskriftinni Höfum við efni á barnafátækt? Þar verður m.a. kynnt skýrsla um ójöfnuð meðal íslenskra barna og boðið upp á pallborðsumræður þar sem m.a. forsætisráðherra og borgarstjóri taka þátt. Til okkar komu þau Tinna Laufey Ásgeirsdóttir prófessor og Kári Stefánsson stjórnarformaður Velferðarsjóðs barna. Í nýrri úttekt Alþýðusambands Íslands kemur fram að stjórnvöld hafi á síðustu árum gripið til ráðstafana sem fært hafa beinan húsnæðisstuðning til hinna tekjuhæstu í samfélaginu. Þar segir að tilfærslan hafi meðal annars átt sér stað í gegnum skattfrjálsa ráðstöfun séreignarsparnaðar til niðurgreiðslu húsnæðislána - á sama tíma og markvisst hefur verið dregið úr stuðningi í gegnum vaxtabótakerfið. Við töluðum við Arnald Sölva Kristjánsson, hagfræðing ASÍ, um niðurstöður úttektarinnar. Við fórum yfir fréttir vikunnar með Guðmundi Steingrímssyni, fyrrverandi Alþingismanni og Elísabetu Ingu Sigurðardóttur, fréttakonu á Stöð 2, Bylgjunni og Vísi. Söngvarinn góðkunni Valdimar Guðmundsson kíkti til okkar í morgunkaffi, en hann hefur í nógu að snúast í tónlistinni nú þegar hjól listalífsins eru farin að snúast á ný. Við röbbuðum um lífið og tilveruna og það sem framundan er í tónleikahaldi. Og við héldum áfram í tónlistinni undir lok þáttar og heyrum af Iceland Airwaves tónlistarhátíðinni sem ætlunin er að keyra í gang að nýju í haust. Sindri Ástmarsson dagskrárstjóri Airwaves kom til okkar, en nú þegar hafa fyrstu listamennirnir verið kynntir til leiks. Tónlist: Gus Gus og Vök - Is it true? Elvis Costello - Dont let me be misunderstood. Jón Jónsson - When youre around. Ásgeir Trausti - Sunday drive. Reykjavíkurdætur - Tökum af stað. Valdimar - Sýn. Arlo Parks - Caroline. Start - Seinna meir.

Play Episode Listen Later Mar 25, 2022 130:00

14. des - SEM, Bretar, vinátta, sóknargjöld, takmarkanir og vísindi

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Dec 14, 2021 130:00

Fjöldi samtaka stendur fyrir fjáröflun í aðdraganda jólanna, ýmist með sölu á varningi eða happdrættismiðum. Einn þeirra sem stendur vaktina af miklum krafti í þessum málum er Arnar Helgi Lárusson formaður SEM, samtaka endurhæfðra mænuskaddaðra. Hulda hitti á hann við sölustörf og heyrði í honum hljóðið. Mikil óánægja hefur verið í Bretlandi eftir að fregnir bárust af jólateiti forsætisráðherra í fyrra, á sama tíma og landsmönnum var uppálagt að halda sig heima í sínum litlu jólakúlum. Þá er mikil aukning í Covid smitum og stjórnvöld hafa flýtt áætlunum um örvunarbólusetningu. Við slógum á þráðinn til Sigrúnar Sævarsdóttur-Griffiths í London. Þrátt fyrir að tengslanetið stækki með aldrinum þá virðist verða erfiðara að eignast góða vini þegar maður fullorðnast. Á þetta benti samskiptasérfræðingurinn og pistlahöfundurinn Steinar Þór Ólafsson á í nýlegum pistli í Viðskiptablaðinu þar sem hann spurði sig að því hvernig hægt sé að gera kunningja að vinum. Við ræddum við Steinar og Heru Hallberu Björnsdóttur, verkefnastjóra vinaverkefna Rauða krossins. Lækka á sóknargjaldið til þjóðkirkjusafnaða um 8,8 prósent á næsta ári og verður það fjórtánda árið í röð sem gjöldin eru skert. Biskipsritari spurði í umsögn hvort ekki væri komið nóg og sagði að ríkið þyrfti að hætta að þrengja að lífæð fólksins í landinu. Formaður Siðmenntar gagnrýndi í kjölfarið fyrirkomulag sóknargjalda, sagðist vera komin með nóg af tilkalli þjóðkirkjunnar til fjármuna og félagslegrar stöðu og sagði biskupsritara skrifa sig inn í hlutverk freka kallsins. Við ræddum við þau bæði, Pétur G. Markan biskupsritara og Ingu Auðbjörgu Straumland, formann Siðmenntar. Við töluðum við Steinþór Helga Arnsteinsson, veitingamanni og viðburðahaldara, sem segir sóttvarnayfirvöld níðast á ungu fólki - og telur að hagsmunir þeirra séu ekki teknir inn í myndina. Sævar Helgi Bragason kom til okkar í vísindaspjall með áhugaverðan fróðleik í farteskinu, m.a. um skýstróka og fellibylji. Tónlist: Baggalútur ásamt Valdimar Guðmundssyni og Bríeti - Jólin eru okkar. Erla og Gréta - Jólin eru okkar. Willie Nelson - Pretty paper. Júníus Meyvant - Ástarsæla. Kristín Sesselja - W.A.I.S.T.D.

Sunnudagssögur
Jafet Sigfinnsson

Sunnudagssögur

Play Episode Listen Later Dec 12, 2021 75:00

Seyðfirðingurinn Jafet Sigfinnsson ræðir við okkur um sína upplifun af því þegar aurskriða féll á bæinn fyrir ári síðan. Æskuheimili Jafets lenti í miðri skriðunni og hann ásamt fjölskyldu sinni var þar þegar hún féll. Umsjón: Hafdís Helga Helgadóttir Lög spiluð í þættinum: Jólin eru okkar - Baggalútur ásamt Valdimar Guðmundssyni og Bríet Jólasnjór -KK og Ellen Æskujól -Salka Sól

kk sey umsj hafd valdimar gu baggal salka s
Sunnudagssögur
Jafet Sigfinnsson

Sunnudagssögur

Play Episode Listen Later Dec 12, 2021

Seyðfirðingurinn Jafet Sigfinnsson ræðir við okkur um sína upplifun af því þegar aurskriða féll á bæinn fyrir ári síðan. Æskuheimili Jafets lenti í miðri skriðunni og hann ásamt fjölskyldu sinni var þar þegar hún féll. Umsjón: Hafdís Helga Helgadóttir Lög spiluð í þættinum: Jólin eru okkar - Baggalútur ásamt Valdimar Guðmundssyni og Bríet Jólasnjór -KK og Ellen Æskujól -Salka Sól

kk sey umsj hafd valdimar gu baggal salka s
The Week in Iceland
The Week in Iceland, 29 November 2021

The Week in Iceland

Play Episode Listen Later Nov 29, 2021

Alex Elliott is joined this week by Paula Gould, the founder of Float and gather ehf., a business growth consulting firm, and co-founder of WomenTechIceland, a non-profit organisation whose goal is to amplify women innovators from Iceland to the global tech community. Highlights this week include: Iceland's new government, the possibility of another volcanic eruption, the highly controversial blood mare industry, and more. Today's closing song is Jólin eru okkar, by Valdimar Guðmundsson and Bríet.

iceland float valdimar gu
Morgunútvarpið
13. okt. -Heilabrot, slysavarnir, slúður, atvinna fatlaðra og Valdimar

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Oct 13, 2021 130:00

Helgina 22.-24. október nk. verður boðið til heilmikillar skemmtunar á Hótel Hamri við Borgarnes undir heitinu Heilabrot á Hamri. Þar verður boðið upp á alls kyns spurningaleiki, krossgátur, skrafl og ratleik svo eitthvað sé nefnt. Allsherjar nördagleði svo vísað sé í kynningu skipuleggjenda. Ævar Örn Jósepsson fréttamaður, rithöfundur og sitthvað fleira veit allt um málið og hann kíkti við hjá okkur og sagði okkur meira. Landsbjörg heldur ráðstefnuna Slysavarnir 2021 á föstudag og laugardag og þar verða margvísleg málefni um slysavarnir og öryggismál krufin. Við fengum til okkar sérfræðing á þessu sviði, Jónas Guðmundsson, sem starfar hjá Landsbjörg og kemur að ráðstefnunni, til að fara yfir stöðu mála í fjölbreyttum málaflokki slysavarna. Slúður er eitthvað sem við þekkjum flest og vitum að það getur haft margs konar afleiðingar. Sumir eru þó áhugasamari um slúður en aðrir og það á við um Grétu Bergrúnu Jóhannesdóttur, kynjafræðing og doktorsnema við Háskólann á Akureyri. Hún hefur rannsakað samfélagsleg áhrif slúðurs á ungar konur í sjávarþorpum, meðal annars til að skoða hvort og þá hvernig slúður hefur áhrif á búferlaflutninga og búsetuánægju. Við slógum á þráðinn til Grétu Bergrúnar, sem mun einmitt í dag kynna rannsóknir sínar á málþingi í Háskólanum á Akureyri. Um síðustu helgi fór fram ráðstefna um atvinnumál fatlaðra undir heitinu Göngum í takt. Þar kom fram að víða er pottur brotinn í þeim málum og úrbóta og framfara er þörf sem og þegar kemur að menntunartækifærum fatlaðra. Sara Dögg Svanhildardóttir verkefnastjóri hjá Þroskahjálp brennur fyrir þessi málefni og hún kom til okkar og fór yfir stöðuna. Valdimar Guðmundsson tónlistarmaður er með mörg járn í eldinum þessa dagana. Hann er nýbakaður faðir, stofnaði hljómsveitina Lón, skipuleggur margfrestaða afmælistónleika hljómsveitarinnar Valdimars og nú ætlar hann að henda sér inn á jólatónleikamarkaðinn alls óhræddur. Við fengum Valdimar í heimsókn og spjölluðum um lífið og listina. Tónlist: Krummi - Frozen teardrops. Bríet - Sólblóm. Nik Kershaw - The riddle. Klassart - Landamæri. Svavar Knútur og Irish Mythen - Hope and fortune. Big Country - Look away. Lón - Earthquake. HAIM - The steps. Lizzo og Cardi B. - Rumors.

Morgunútvarpið
27. sep - Akranes, talning, Ásmundur Einar, pólitíkin, sport og Sigmar

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Sep 27, 2021 130:00

Umsjón: Rúnar Róbertsson og Gígja Hólmgeirsdóttir Akra­nes­kaupstaður hef­ur hrint af stað stóru og metnaðarfullu verk­efni við at­vinnu­upp­bygg­ingu í sveit­ar­fé­lag­inu. Um er að ræða svo­kallaða græna iðngarða í Flóa­hverfi á Akra­nesi. Bæjarstjórinn segir að fyr­ir­séð sé að mörg fyr­ir­tæki muni þurfa að færa sig af höfuðborg­ar­svæðinu af svæðum sem verið sé að skipu­leggja fyr­ir íbúa­byggð. Sam­fara þessu hafi íbú­um fjölgað á Akra­nesi. Við hringdum í Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóra. Uppnám varð seinnipartinn í gær þegar endurtelja þurfti kjörseðlana í Norðvestur kjördæmi því jöfnunarsæti fóru á hreyfingu í kjölfarið og meirihluti kvenna á þingi hvarf. Kristín Edwald, formaður Landskjörstjórnar, kom til okkar og fór yfir málið. Framsóknarflokkurinn er sigurvegari kosninganna að flestra mati enda bætir flokkurinn mestu við sig. Ásmundur Einar Daðason þótti hugrakkur að færa sig í Reykjavíkurkjördæmi norður frá Norðvesturkjördæmi enda ekki á vísan að róa fyrir Framsóknarmenn í borginni undanfarna áratugi. Framsókn fékk t.d. 5,3 prósenta fylgi í kjördæminu fyrir fjórum árum en 12,3 prósent í ár. Við hringdum í Ásmund Einar. Til að ræða úrslit kosninganna og hvernig þær sjá næstu skref fengum við til okkar Evu Heiðu Önnudóttur prófessor í stjórnmálafræðiprófessor og þingfréttamanninn Jóhönnu Vigdísi Hjaltadóttur. Fengum þær til að spá í spilin. Við fórum yfir viðburðarríka helgi í sportinu með Eddu Sif Pálsdóttur af íþróttadeildinni. Og í lokin heyrðum við í Sigmari Guðmundssyni, fyrrum liðsmaður úr Morgunútvarpinu til margra ára, en hann fór inn á þing á síðustu metrunum sem jöfnunarþingmaður. Nóttin tók á hjá Sigmari. Tónlist: Valdimar Guðmundsson og Memfismafían - Okkar eigin Osló Friðrik Dór - Segðu mér Ed Sheeran - Visiting hours KK - Vegbúinn Pnau, Dua Lipa & Elton John - Cold heart (Pnau remix) Megas - (Borðið þér) Orma frú Norma

Morgunútvarpið
20. ágúst-Hallormsstaðaskóli, heilbrigðismál, Einkunnir, hégómavísindi

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Aug 20, 2021 130:00

Í Hallormsstaðaskóla er kennd Sjálfbærni og sköpun. Í náminu er blandað saman fræðilegri- og verklegri nálgun á sjálfbærni með áherslu á sköpunargleði og nýsköpun. Námið hófst haustið 2019 en vegna Covid varð sá vetur endasleppur, en það náðist að kenna allan síðasta vetur. Sigurður Eyberg er fagstjóri þessa nýja náms og hann var á línunni og sagði okkur frá. Framtíðarsýn í heilbrigðisþjónustu við aldraða verður til umfjöllunar á heilbrigðisþingi sem hefst í dag. Þingið er haldið í beinu streymi þar sem flutt verða margvísleg erindi sem varða þjónustu við aldraða auk þess sem kynnt verða drög að stefnu um heilbrigðisþjónustu við aldraða til ársins 2030. Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra kom til okkar og sagði okkur nánar frá þinginu og þessum nýju stefnudrögum í heilbrigðisþjónustu við aldraða. Á morgunn verður haldinn Einkunnadagurinn í Borgarbyggð. Dagurinn hefur þó ekkert með skólaeinkunnir að gera heldur er dagurinn tileinkaður fólkvanginum í Einkunnum sem er útvistarparadís sem íbúar í Borgarbyggð nýta sér í vaxandi mæli. En fólkvangurinn þarfnast viðhalds og því var ákveðið að blása til Einkunnadagsins þar sem allir sem vilja leggja hönd á plóg eru boðnir hjartanlega velkomnir. Við slógum á þráðinn til Pavle Estrajher hjá Skógræktarfélagi Borgarfjarðar og heyrðum meira af þessu verkefni. Margir sem hafa fengið Covid 19 hafa lýst veikindum til lengri tíma og sumir mánuðum saman. Reykjalundur hefur tekið að sér að sinna endurhæfingu þeirra sem glíma við eftirköst Covid 19 til langs tíma. Stefán Yngvason framkvæmdastjóri lækninga á Reykjalundi var gestur okkar og fór yfir stöðuna. Þá snéri Hégómavísindahornið aftur eftir sumarfrí þegar Freyr Gígja Gunnarsson mætti með nýjustu tíðindi af ríka og fræga fólkinu. Tónlist: Jónas Sig og lúðrasveit Þorlákshafnar - Hafið er svart. Ásgeir Trausti - Leyndarmál. Snorri Helgason- Haustið 97. Simple Minds - Promised you a miracle. Helgi Júlíus og Valdimar Guðmundsson - Hún er mín. Kiriyama Family - Pleasant ship. Unnsteinn Manúel - Lúser. Leon Bridges - Bad bad news. Lauryn Hill - Cant take my eyes off you.

Morgunútvarpið
31.maí-Prjónagleði, tannréttingar, HR, eldri borgarar, nýsköpun, sport

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later May 31, 2021 130:00

Svokölluð Prjónagleðin verður haldin þar í fimmta sinn á Blönduósi dagana 11. - 13. júní nk. þar sem boðið er upp á fjölbreytt námskeið sem tengjast prjónaskap og spennandi prjónatengda viðburði, svo ekki sé minnst á Garntorgið. Svanhildur Pálsdóttir, viðburða- og markaðsstjóri Textílmiðstöðvar Íslands var á línunni og sagði okkur meira af þessu. Ágúst Ólafur Ágústsson, alþingismaður hefur lagt fram þingmál varðandi tannréttingar barna og að þær verði gjaldfrjálsar líkt og tannlækningar barna, sem voru gerðar að fullu gjaldfrjálsar árið 2018. Tannréttingar eru kostnaðarsamar og telur Ágúst að efnaminni fjölskyldur geti margar hverjar er ekki nýtt sér þær. Hann kom til okkar og fór yfir málið. Á morgun verður boðið upp á opið hús í Háskólanum í Reykjavík, eftir langt og strangt og mikið til lokað Covid ár. Þar geta áhugasamir kynnt sér skólann og námsframboðið og við ætlum að fá Ara Kristinn Jónsson, rektor HR, til okkar í smá spjall um opna daginn og skólastarfið og hvernig hefur gengið að halda því gangandi á tímum heimsfaraldurs. Helgi Pétursson var kjörinn formaður Landssambands eldri borgara á landsfundi sambandsins á Selfossi fyrir skemmstu. Við fengum hann til okkar og ræddum málefni eldri borgara og áherslur þeirra fyrir komandi kosningar. Í þættinum korter í kosningar sem er á dagskrá hér á Rás 2 kl 11 á sunnudögum hafa Baldvin Þór Bergsson og Guðmundur Pálsson verið að skoða stöðuna eftir covid og fá sérfræðinga til að leggja mat á það hvert við stefnum nú þegar kosningar nálgast. Í þættinum í gær var m.a. rætt um nýsköpunarumhverfið við þau Hjálmar Gíslason, framkvæmdastjóra Grid og Stefaníu Guðrúnu Halldórsdóttur sem er framkvæmdastjóri Eyris Venture management sem er sprotasjóður. Í samtalinu ræddi Guðrún meðal annars um hindranir sem íslensk sprotafyrirtæki standa frammi fyrir en þar er það gengið sem er stærsta hindrunin. Við heyrðum smá brot úr þættinum en að sjálfsögðu er hægt að nálgast hann allan í spilaranum okkar á ruv.is. Og svo lokuðum við þættinum í dag með smá spjalli um helstu tíðindi af íþróttum helgarinnar þegar Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson íþróttafréttamaður leit við. Tónlist: Geirfuglarnir - Byrjaðu í dag að elska. Sigurður Guðmundsson - Kappróður. Aretha Franklin - Chain of fools. Helgi Björns - Ekki ýkja flókið. Prefab Sprout - Appetite. Valdimar Guðmunds og Memfismafían - Það styttir alltaf upp. Ríó Tríó - Allir eru að gera það. Hildur - New mistakes. Maneskin - Zitti e buoni.

covid-19 gu grid hj hann nagle reykjav sigur halld ekki selfossi bergsson baldvin helgi bj valdimar gu gunnar sigurbj landssambands memfismaf
Morgunútvarpið
3. jan. - Lífshlaupið, sjálfboðaliðar, bjórskóli, Menntadagur og Spánn

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Feb 3, 2021 130:00

Í dag hefst Lífshlaupið, heilsu og hvatningarverkefni Íþrótta og ólympíusambands Íslands. Boðið er uppá vinnustaðakeppni, einstaklingskeppni, grunnskólakeppni og framhaldsskólakeppni. En hvað er þetta og hvernig tekur maður þátt? Hrönn Guðmundsdóttir sviðstjóri hjá Íþrótta- og ólympíusambandinu kom til okkar og sagði okkur frá. Íþróttahreyfingin á Íslandi er byggð upp af sjálfboðaliðum og samanstendur enn mestmegnis af sjálfboðaliðum. Sjálfboðaliðar eru grunnurinn í öllu því íþróttastarfi sem við þekkjum í dag, en það er að verða mun erfiðara að manna þessar sjálfboðaliðastöður. Er sjálfboðaliðinn að deyja út? spyr Margrét Valdimarsdóttir sem situr í stjórn Íþróttabandalags Reykjavíkur í grein á Vísi. Margrét kom til okkar og við rýndum aðeins í stöðuna. Sveinn Waage hefur lengi staðið fyrir bjórskóla þar sem fólk kynnir sér öl af ýmsum gerðum. Á Covid tímum hefur auðvitað ekki verið í boði að safna fólki saman og því hefur hann þurft, líkt og ótal margir aðrir, að færa starfsemi sína yfir á netið. En hvernig stendur maður fyrir rafrænum bjórskóla? Við fengum Svein til okkar í heimsókn. Þær Dóra Jóhannsdóttir og Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir sögðu okkur frá Menntadegi atvinnulífsins sem fer fram á morgun, fimmtudag. Ingibjörg Ösp hefur umsjón með viðburðinum en þátttakendur eru margir og framsögur margvíslegar. Þar á meðal er Dóra Jóhannsdóttir leikkona sem ætlar að tala um mikilvægi skapandi nálgunar í menntakerfinu. Við heyrðum í Jóhanni Hlíðar Harðarsyni á Spáni þar sem hann segir okkur frá jarðskjálftum, samningum Messi og miklum áhuga á spurningakeppnum. Tónlist: Helgi Júlíus og Valdimar Guðmundsson - Þú ert mín. Hreimur - Skilaboðin mín. Hafdís Huld - Synchronised swimmers. Draumfarir - Ást við fyrstu seen (ft. Króli). Emilíana Torrini - Emilíana Torrini. Krummi - Frozen teardrops. Stephen Stills - Love the one youre with. Unnsteinn - Er þetta ást? Alicia Keys - Love looks better.

Morgunútvarpið
24. des. - Heimilisiðnaður, Björn Valur, jólahald, kirkjugarðar, bíó

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Dec 24, 2020 130:00

Áslaug Sverrisdóttir sagnfræðingur hefur ritað hundrað ára sögu Heimilisiðnaðarfélags Íslands í bókinni Handa á milli. Hulda heimsótti hana og fræddist um íslenskan heimilisiðnað í fortíð og nútíð. Björn Valur Gíslason fyrrum alþingismaður og núverandi skipstjóri snéri nýlega heim til Akureyrar eftir fjögurra mánaða úthald á sjó. Hann stýrir skipinu Emeraude sem gert er út frá Frakklandi og upphaflega stóð til að túrinn yrði tveir mánuðir en alheimsfaraldur Covid-19 setti hressilegt strik í þann reikning. Við hringdum í Björn Val og heyrðum aðeins af ævintýrum hans á sjó. Við fórum líka í heimsókn á Hlíð, öldrunarheimili Akureyrar. Þar spjallaði Gígja Hólmgeirsdóttir við fólk í dagþjálfunardeild, forvitnaðist um starfsemina um jólin og heyrði dýrmætar jólaminningar. Á Íslandi er sterk hefð fyrir því að heimsækja kirkjugarða á aðfangadag og kveikja á kertum við leiði ættingja. Oft verður umferð mikil og við tókum stöðuna hjá Kára Aðalsteinssyni í Kirkjugörðum Reykjavíkur sem var á línunni hjá okkur. Við spáðum svo aðeins í jólabíómyndir og sjónvarpsþætti, núna þegar fólk verður að mestu leyti heima í huggulegheitum um jólin og svo opnuðum við símann og buðum fólki að taka þátt í kosningu á manneskju ársins. Tónlist: Baggalútur - Jólin eru okkar (ft. Valdimar Guðm. og Bríet). Sigurður Guðmundsson - Það snjóar. Paul McCartney - Wonderful Christmas time. KK og Ellen - Meiri snjó. Elín Ey - Jólaljósin. Elly Vilhjálms - Ég sá mömmu kyssa jólasvein. The Pouges and Kirsty McColl - Fairytale of New York. Ragnhildur Gísladóttir og Brunaliðið - Jóla-jólasveinn. David Bowie og Bing Crosby - Peace on Earth / Little drummer boy. Brenda Lee - Rockin around the Christmas tree.

Morgunútvarpið
14. des - Dýraathvarf, Almannavarnir, brunavarnir, þjóðgarður, íþrótti

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Dec 14, 2020 130:00

Líflukka Dýraathvarf er rekin af sjálfboðaliðum og með styrkjum frá almenningi. En hvað nákvæmlega er dýraathvarf og hvernig byrjaði þetta allt saman? Dóra Ásgeirsdóttir sagði okkur nánar af þessu. Rögnvaldur Ólafsson hjá Almannavörnum var á línunni en fréttir helgarinnar benda til þess að almenningur sé farin að sláka á í sóttvörnum. Almannavarnarteymið hefur áhyggjur af stöðunni. Íris Guðnadóttir, brunaverkfræðingur hjá Securitas, sagði okkur frá brunavörnum nú fyrir jólin enda dæmi um að eldur hafi komið upp í húsnæði á aðfangadagskvöld. Síðan eru fyrirtæki að hólfa niður húsnæði sitt vegna Covid, getur það haft áhrif á brunavarnir? Guðveig Lind Eyglóardóttir, ferðamálafræðingur og oddviti framsóknar í Borgarbyggð, var á línunni hjá okkur en hún segir í grein á dögunum að það sé illa ígrunduð ákvörðun og tímaskekkja að líta svo á að stofnun hálendisþjóðgarðs sé jákvæð viðbót við ferðaþjónustu og tæki til verndun náttúrunnar. Hún veltir því upp hvort þjóðgarðurinn sé leið fyrir VG að koma í veg fyrir sjálfbæra orkunýtingu í landinu. Einar Örn Jónsson kom með fréttir af helgarsportinu Tónlist: Baggalútur ásamt Bríeti og Valdimar Guðmundssyni - Jólin eru okkar Stevie Wonder - Someday at christmas Paul McCartney - Wonderful christmastime Sniglabandið - Haltu kjafti Þú og ég - Hátíðarskap Durand Jones og The Indications - Young americans Sverrir Bergmann og Elísabet Ormslev - Það koma alltaf jól Travis ásamt Josephine - Idlewild Bríet - Rólegur kúreki

Morgunútvarpið
11. des.- Jólamarkaðir, stuðningslán, sveinkar, bakstur, hégómavísindi

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Dec 11, 2020 130:00

Jólamarkaðir hafa verið vinælir fyrir hver jól en nú eru ekki venjulega jól og okkur lék forvitni á að vita hver staðan væri á jólamörkuðum í Reykjavík og í Hafnarfirði. Verður þetta eins og fólk þekkir og hvernig er hugað að sóttvörnum? Rúnar fór á stjá og kíkti á Ingólfstorg og talaði þar við Helgu Kristínu Tryggvadóttur verkefnastýru Manhattan marketing, í Hafnarfirði varð Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri fyrir svörum. Við heyrðum í Ragnari Þór Ingólfssyni, formanni VR, en VR hefur lagt til að þau heimili sem hafa orðið fyrir fjárhagslegum skakkaföllum vegna heimsfaraldursins fái aðstoð í formi stuðningslána með aðkomu ríkisins og bankanna. Hugmyndin var kynnt stjórnvöldum fyrir mánuði en Ragnar segir að lítið hafi gerst síðan þá. Egill Sigvaldason á Ólafsfirði hefur til margra ára sankað að sér jólasveinum, úr öllum áttum og af öllum gerðum, og hann er fyrir löngu hættur að hafa tölu á hversu mörgum sveinum hann hefur sankað að sér. Gígja Hólmgeirsdóttir hringdi í Egil og forvitnaðist um alla þessa jólasveina. Við settum á okkur svunturnar og fórum í bakaragírinn því áhrifavaldurinn vinsæli Linda Ben kom við hjá okkur og ræddi jólabakstur af ýmsum gerðum, eða sortum ættum við kannski frekar að segja. Hún var að gefa út bókina Kökur þar sem bæði er að finna uppskriftir og fróðleik. Hégómavísindahornið var á dagskrá þar sem Freyr Gígja Gunnarsson sagði okkur sitthvað áhugavert af fræga fólkinu. Tónlist: Baggalútur - Jólin eru okkar (ft. Valdimar Guðmundsson og Bríet). U2 - Christmas (Baby please come home). Svala og Friðrik Ómar - Annríki í desember. Miley Cyrus - Prisoner (ft. Dua Lipa). Pálmi Gunnarsson - Gleði- og friðarjól. Katla María - Ég fæ jólagjöf. Bogomil Font og Stórsveit Reykjavíkur - Erta þú jólasveinn. Big Country - Chance. Bing Crosby - It's beginning to look a lot like Christmas.