Podcasts about samhli

  • 19PODCASTS
  • 46EPISODES
  • 1h 11mAVG DURATION
  • ?INFREQUENT EPISODES
  • Oct 10, 2024LATEST

POPULARITY

20172018201920202021202220232024

Best podcasts about samhli

Latest podcast episodes about samhli

Víðsjá
Nóbelsverðlaun í bókmenntum, Listasafn Íslands 140 ára, Miguel Atwood-Ferguson, Undir-rýni

Víðsjá

Play Episode Listen Later Oct 10, 2024 53:21

Við hefjum þáttinn að sjálfsögðu á stórfréttum dagsins, Nóbelsverðlaununum í bókmenntum. Rétt fyrir hádegi var tilkynnt um handhafa verðlaunanna við hátíðlega athöfn og í beinu streymi Sænsku akademíunnar. Nóbelinn í ár hlýtur Suður-kóreski rithöfundurinn Han Kang. Kang, sem fæddist árið 1970, er þekkt fyrir ljóðrænan prósa, sem dregur fram söguleg áföll og afhjúpar viðkvæmni mannlífsins. Hún vakti fyrst alþjóðlega athygli með skáldsögunni Grænmetisætunni, sem kom út árið 2007, og er eina verk Kang sem komið hefur út í íslenskri þýðingu. Jóhannes Ólafsson tók þýðanda hennar, Ingunni Snædal, tali. Annað kvöld leikur Kammersveitin Elja ásamt þverfaglega listamanninum Miguel Atwood-Ferguson á tónleikum í Fríkirkjunni. Tónleikarnir eru hluti af listahátíðinni State of the Art sem haldin er í þessari viku á höfuðborgarsvæðinu, en henni er ætlað að skapa nýjan vettvang til aukins samstarfs milli listamanna og blöndun strauma og stefna. Tómas Ævar ræðir við Miguel Atwood-Ferguson í lok þáttar. Við hlið Fríkirkjunnar stendur Listasafn Íslands og þar stendur líka mikið til, því á laugardaginn opnar þar viðamikil sýning í tilefni af 140 ára afmæli safnsins. Á sýningunni, sem hefur yfirskriftina Innsýn -Útsýn, gefst gestum tækifæri á að berja augum verk eftir hátt í 100 listamenn, mikilsverðar gjafir sem safninu hafa borist og verk sem það hefur keypt í tímans rás. Samhliða kemur út vegleg bók þar sem fjallað er um valin listaverk úr safneigninni, 140 talsins. Við hittum fyrir Ingibjörgu Jóhannsdóttur, safnstjóra Listasafns Íslands, sem segir okkur nánar af bókinni og sýningunni. Þá fáum við rýni frá Kötlu Ársælsdóttur, sem fjallar að þessu sinni um leikverkið Undir, eftir Adolf Smára Unnarsson. Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir

Karfan
Fyrstu fimm: Páll Kolbeinsson

Karfan

Play Episode Listen Later Jun 2, 2024 53:15

Í þessum síðasta þætti af Fyrstu fimm fer KR-ingurinn Páll Kolbeinsson yfir sitt byrjunarlið leikmanna sem hann spilaði með á ferlinum.Páll var á sínum tíma einn besti bakvörður Íslands, en á feril sínum 1981 til 1998 lék hann fyrir tvö lið, KR, Tindastól og University of Wisconsin–Oshkosh Titans í bandaríska háskólaboltanum. Þá lék hann frá 1986 til 1992 43 leiki fyrir íslenska landsliðið. Besta tímabil Páls var líklega 1989-90, en þá var hann valinn leikmaður ársins eftir að hafa leitt sína menn í KR til Íslandsmeistaratitil. Samhliða feril sínum sem leikmaður fór hann einnig að þjálfa, en hjá Tindastóli og KR var hann í nokkur ár þjálfari meistaraflokks.Fyrstu fimm er í boði Kristalls, Tactica, Lykils, Subway og Lengjunnar.

Víðsjá
Svipmynd af klarínettuleikara / Arngunnur Árnadóttir

Víðsjá

Play Episode Listen Later May 29, 2024 55:22

Arngunnur Árnadóttir er tónlistarkona og rithöfundur. Hún byrjaði snemma að læra á hljóðfæri. Eftir að hafa lokið forskóla Tónmenntaskólans í Reykjavík langaði hana að hefja nám á saxófón en vegna fingralengdar var henni frekar ráðlagt að leggja fyrir sig klarínett. Á unglingsárum sínum kom henni til hugar að hætta hljóðfæranámi en á þeim tíma spilaði hún í fyrsta skipti með sinfóníuhljómsveit og komst hún í tæri við töfra flutningsins. Arngunnur stundaði síðan framhaldsnám í klarínettuleik við Listaháskóla Íslands og við Hochschule für Musik Hanns Eisler í Berlín og hefur frá haustinu 2012 gegnt stöðu fyrsta klarínettuleikara Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Samhliða tónlistinni hefur Arngunnur sent frá sér tvær ljóðabækur og eina skáldsögu. Fyrstu ljóðabók sína, Unglingar, byrjaði hún að skrifa í vetrarfríi í Berlín og gaf út í seríu Meðgönguljóða árið 2013. Skáldsagan Að heiman fylgdi þar á eftir og lýsir í meitluðum og stílhreinum prósa tilveru Unnar í Reykjavík og segir frá ferðalagi hennar út á land. Síðast sendi Arngunnur frá sér ljóðabókina Ský til að gleyma, sem fjallar meðal annars um tregablandna eftirsjá eftir tíma og fólki sem rennur ljóðmælanda úr greipum.

Jóns
Inga Hlín Pálsdóttir Framkvæmdastjóri Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins.

Jóns

Play Episode Listen Later Aug 8, 2023 44:50

Inga Hlín Pálsdóttir Framkvæmdastjóri Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins. Inga Hlín kom einnig í viðtal janúar 2021 þar sem við ræddum meðal annars áskoranir ferðaþjónustu fyrirtækja í Covid. Inga Hlín hefur undanfarin ár starfað sem alþjóðlegur ráðgjafi og fyrirlesari. Helstu verkefni hafa snúið að samstarfi fyrirtækja og opinberra aðila, stefnumótun, markaðssetningu, breytingastjórnun og sjálfbærni í tengslum við svæði og borgir. Hún hefur starfað með ýmsum aðilum í tengslum við ráðgjöf og má þar helst nefna Austurbrú, Reykjavíkurborg og Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Samhliða starfaði Inga Hlín hjá norrænu ráðgjafarfyrirtæki á sviði þróunar, nýsköpunar og markaðssetningar svæða. Inga Hlín er með B.Sc. próf í viðskiptafræði frá Viðskiptaháskólanum á Bifröst og M.Sc. próf í alþjóðamarkaðsfræði frá The University of Strathclyde í Skotlandi. Hún starfaði áður í yfir áratug hjá Íslandsstofu og Útflutningsráði, lengst sem forstöðumaður ferðaþjónustu og skapandi greina. Þar stýrði hún meðal annars kynningar- og markaðsstarfi á áfangastaðnum Íslandi í samstarfi við hagaðila og fór allt markaðsstarf fram undir merkjum Inspired by Iceland. Þá stýrði hún samstarfsverkefnunum Ísland allt árið og Iceland Naturally auk þess sem hún sat í stjórn NATA ferðamálasamstarfsins. Markaðsstofa höfuðborgarsvæðisins ses. var stofnuð 3. apríl 2023. Stofnendur stofunnar eru Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og Ferðamálasamtök höfuðborgarsvæðisins. Að undirbúningi stofunnar komu sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu og atvinnulífið í gegnum Ferðamálasamtök höfuðborgarsvæðinu, Samtök ferðaþjónustunnar og Samtök verslunar og þjónustu, auk þess sem stjórnvöld studdu við verkefnið. Eitt af hlutverkum Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins er að vera áfangastaðastofa fyrir höfuðborgarsvæðið. Skilgreining stjórnvalda á áfangastaðastofu er eftirfarandi: „Áfangastaðastofa (e. Destination Management Organisation) [er] svæðisbundin þjónustueining á vegum opinberra aðila og einkaaðila sem hefur það meginhlutverk að styðja við ferðaþjónustu í viðkomandi landshluta og tryggja að hún þróist í takt við vilja heimamanna þar sem sjálfbærni er höfð að leiðarljósi“.

Samfélagið
Rusl á hafsbotni, stéttamunur í námsvali, nýtt orgel málfar og vísindi

Samfélagið

Play Episode Listen Later Sep 14, 2022

Leiðangrar sem farnir hafa verið á vegum Hafrannsóknastofnunar til að mynda hafsbotninn allt frá árinu 2004 hafa leitt í ljós talsvert af rusli á hafsbotninum í kringum landið. Aðallega veiðarfæri sem flest eru úr plastefnum. Petrún Sigurðardóttir líffræðingur hefur rannsakað þetta. Samhliða framþróun í menntamálum hefur meðal menntunarstig aukist töluvert, semsagt fleiri eru með háskólagráður en áður. Þrátt fyrir það er töluverður munur á menntunarstöðu ólíkra félagshópa og þau sem tilheyra hærri stéttum líklegust til að ljúka meiri menntun. VIð ætlum að ræða við Öddu Guðrúnu Gylfadóttur félagsfræðing sem rannsakaði stéttamun í námsvali á Íslandi meistararitgerð sinni í Oxford skóla. Við fræðumst um nýtt orgel í Grafarvogskirkju. Það verður vígt næsta sunnudag en söfnun hefur staðið yfir í nokkurn tíma. Svona orgel kostar nefnilega skildinginn. Svo verður málfarsmínútan á sínum stað og Edda Olgudóttir spjallar um vísindi. Að þessu sinni um hreyfingu og Parkinson sjúkdóminn.

Samfélagið
Rusl á hafsbotni, stéttamunur í námsvali, nýtt orgel málfar og vísindi

Samfélagið

Play Episode Listen Later Sep 14, 2022 25:00

Betri helmingurinn með Ása
#60 - Þórdís Björk & Júlí Heiðar

Betri helmingurinn með Ása

Play Episode Listen Later Jun 15, 2022 89:36

Í þessum þætti átti ég stórskemmtilegt spjall við listaparið Þórdísi Björk Þorfinnsdóttur og Júlí Heiðar Halldórsson.Dísu og Júlí  er margt til listanna lagt en eru þau bæði útskrifaðir leikarar og hafa tekist á við hin ýmsu verkefni í leiklistarheiminum ásamt því að þau eru bæði mjög áberandi í tónlistarsenunni.Dísa hefur undanfarið verið með annan fótinn á Akureyri þar sem hún hefur tekið þátt í uppfærslum leikrita undanfarin 4 ár hjá leikfélagi Akureyrar ásamt því að slá í gegn með Reykjavíkurdætrum um allan heim og nú síðast í Söngvakeppni sjónvarpsins.Júlí Heiðar hefur einnig látið mikið til sín taka að undanförnu í tónlistarheiminum en lagið sem hann samdi til Dísu “Ástin heldur vöku” hefur svo sannarlega verið að slá í gegn og eru spennandi tímar framundan í mússíkinni hjá honum. Samhliða leiklistinni & músíkinni vinnur hann í Arion banka á daginn svo það má segja að það sé nóg að gera hjá þeim skötuhjúum.Júlí  og Dísa kynntust fyrst í inntökuprófum  í leiklistarskólann en voru þau pöruð saman til að vinna sennu fyrir prufurnar. Samband þeirra var þó aldrei meira en bara vinátta en rómantíkin bankaði ekki almennilega á dyrnar fyrr en 2020 þó svo Júlí  viðurkenni að hann hafi löngu verið orðinn skotinn í Dísu.Í dag eru þau trúlofuð, með tvo ketti og einn hund og sitthvorn strákinn úr fyrri samböndum.Í þættinum fórum við um víðann völl og ræddum meðal annars vináttuna sem þróaðist út í ástarsamband, roadtrippin þeirra til Akureyrar, skapsveiflur, trúlofun þeirra eftir lokasýningu á Skugga Sveini og sögðu þau mér margar skemmtilegar sögur úr þeirra sambandstíð þar á meðal þegar Dísa ætlaði að gefa Júlí  gjöf lífs síns en það fór ekki alveg eins og hún sá fyrir sér.Blush.is -     https://blush.is/Bagel 'n' Co -   https://https://www.bagelnco.is/Dominos  -  https://www.dominos.is/Promennt  -  https://www.promennt.is/is

Crymogæa - Hlaðvarp um sagnfræði

Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri sögu Rússlands á miðöldum og frameftir til þess að skoða hvaðan þetta mikla veldi kemur, en hegðun Rússa sem stórveldi hefur verið mikið í umræðunni síðustu misseri.Stórfurstadæmið Moskva reis undan valdi Mongóla og austrómversku kirkjunnar á 15. öld og þandist hratt út. Rússland varð þegar fram liðu stundir að einu stærsta ríki veraldar. Samhliða þessu varð til keisaraleg hugmyndafræði byggð m.a. á hugmyndinni um þriðju Róm.  Sumir litu svo á að Moskva væri arftaki Konstantínópel sem verndari austurkirkjunnar. Þannig komust Rússakeisarar í hóp þeirra sem gerðu tilkall til þess að vera arftakar Rómarkeisara.

Lestin
Almodóvar, örverubjór og Jóns Ásgeirs-skyrtan hennar Lóu

Lestin

Play Episode Listen Later May 4, 2022

Það er ekki sama hverju maður klæðist. Lóa fann skyrtu á bás í Hringekjunni, búð sem selur notaðar flíkur, sem hafði verið áður í eigu umsvifamikils kaupsýslumanns. Þegar hún klæðist skyrtunni fær hún lánað brot af sjálfsöryggi hans. Í Lestinni í dag söfnum við saman svipuðum sögum fólks af flíkunum sem þau klæðast þegar mikið stendur til. Hönnunarhátíðin Hönnunarmars hófst í dag í Reykjavík. Það er margt um að vera og hönnuðir kynna afurðir sínar víða um borgina. Fatnaðar, nytjahlutir, hugmyndir og matur eru meðal þess sem boðið verður upp á. Við kíkjum í Ásmundarsal þar sem hönnunartvíeykið Grugg og Makk var að setja upp í hádeginu, en þeir ætla að kynna nýjan villibjór sem ræktaður er úr örverum úr nýju hrauni. Spænski kvikmyndagerðarmaðurinn Pedro Almodovar er einn dáðasti leikstjóri Evrópu. Um þessar mundir má sjá 23. kvikmynd Almodóvars, Madres Paralelas, Samhliða mæður, í Bíó Paradís. Kvikmyndagagnrýnandi Lestarinnar Gunnar Ragnarsson er forfallinn aðdáandi og var því spenntur að kíkja á ræmuna.

Lestin
Almodóvar, örverubjór og Jóns Ásgeirs-skyrtan hennar Lóu

Lestin

Play Episode Listen Later May 4, 2022 55:00

Kyndilberar, Fyrrverandi, Kunningjar og Auga mitt er lauf

Víðsjá

Play Episode Listen Later Apr 11, 2022 54:39

Listahópurinn Kunningjar dvaldi fyrr á árinu í litlu slóvakísku þorpi, Batovce, (Batoff tse) þar sem þau settu sig í spor verkfræðinga náttúrunnar, bjóra. Afraksturinn dvalarinnar verður sýndir á Miracles hátíðinni sem fram fer á næsta ári, en þar ganga áhorfendur 60 kílómetra leið á þremur dögum, og verða fyrir hinum ýmsu uppákomum á leiðinni. Snorri Rafn Hallsson ræðir við Hallveigu Kristínu Eiríksdóttur og Arnar Geir Gústafson. Vinir hittast til að kryfja málin í ?symposium?; samræðum með víni, þar sem allt er undir; samböndin, samlífið, draumarnir, áföllin, sjálfshjálparnámskeiðin, samskiptin við tengdó og stjúpbörnin og síðast en ekki síst fyrrverandi! Leiksýningin fyrrverandi var frumsýnt um helgina, Eva Halldóra Guðmundsdóttir. Um helgina hófst söfnun eða hópfjármögnun á Karolinafund fyrir syrpuna Kyndilbera sem dregur fram í dagsljósið persónulegan flutning á kvæðum og tvísöngvum og fangar hina lifandi hefð í náttúrulegu umhverfi. Þegar ljóst varð að ekki væri mögulegt skipuleggja tónleika eða aðra viðburði vegna faraldursins ákvað Vökufélagið að framleiða myndskeiði til þess að halda uppi og varðveita lifandi hefð íslenska sönghefða. Við hringjum í Línus Orra Gunnarsson Cederborg, leikstjóri verkefnisins Kyndilberar og hann segir okkur betur frá. ?Gefðu verkinu tíma, horfðu inn í verkið og þá sér verkið þig? segir myndlistarkonan Elísabet Olka Guðmundsdóttir um nýja sýningu sem opnaði á föstudaginn í Norr 11, Hverfisgötu. Sýningin heitir Auga mitt er lauf, þar mætast ólíkir miðlar, teikningar, skúlptúr og málverk. Myndirnar eru margar unnar úr litlum gifssteypum sem hver og ein er máluð og raðað saman í eina heild, dálítið eins og mósaík. Samhliða sýnir Elísabet Olka draumkenndar abstrakt teikningar þar sem hún leitast við að fanga hughrif skynjunar og hverfulleika hennar. Við hittum Elísabetu í sólinni fyrir utan Norr11. Umsjón: Jóhannes Ólafsson

Víðsjá
Kyndilberar, Fyrrverandi, Kunningjar og Auga mitt er lauf

Víðsjá

Play Episode Listen Later Apr 11, 2022

Spegillinn
Átök um efnavopn í öryggisráði SÞ, áróðursstríð og mataræði Íslendinga

Spegillinn

Play Episode Listen Later Mar 11, 2022

Hart var tekist á um efnavopn í Úkraínu á fundi öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna í dag. Tvær og hálf milljón hefur flúið Úkraínu eftir að innrás Rússa hófst. Gert er ráð fyrir að allt að fjögur þúsund flóttamenn komi hingað til lands. Bjarni Pétur Jónsson tók saman og heyrist í Joe Biden Bandaríkjaforseta, Jóni Gunnarssyni dómsmálaráðherra og Bjarna Benediktssyni fjármálaráðherra. Staðan í uppistöðulónum Landsvirkjunar er lægri en spáð var í byrjun árs og vatnsbúskapur með versta móti. Skerðingar á afhendingu orku verða fram á vor. Hafdís Helga Helgadóttir talaði við Hörð Arnarson forstjóra Landsvirkjunar. Landsréttur staðfesti í dag dóm Héraðsdóms Reykjavíkur í máli Þorsteins Más Baldvinssonar þar sem Seðlabanka Íslands var gert að greiða honum tæpar 2,7 milljónir í skaða- og miskabætur vegna Samherjamálsins svokallaða. Freyr Gígja Gunnarsson sagði frá. Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra telur að landsmenn verði að þrauka faraldurinn, ekki standi til að herða sóttvarnir. Hólmfríður Dagný Friðjónsdóttir tók saman. Vegurinn um Vattarnesskriður, milli Reyðarfjarðar og Fáskrúðsfjarðar, er ófær vegna skriðufalla. Skriður féllu á veginn í morgun en töluvert hefur rignt fyrir austan. Ólöf Ýr Erlendsdóttir tók saman. Verkefnið Römpum upp Ísland hófst formlega í dag, setja á upp eitt þúsund hjólastólarampa um allt land til að bæta aðgengi. Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, var ekki viðstaddur kynningu verkefnisins í Hveragerði eins og til stóð vegna covid-smita á Bessastöðum, en sendi kveðju þaðan. ------------- Samhliða bardögum í Úkraínu geisar áróðursstríð. Fjölmiðlum hefur verið lokað í Rússlandi og varðar fangelsisvist að segja það sem stjórnvöld þar segja falsfréttir af Úkraínu. mótar afstöðu rússnesks almennings, meirihluti hans styður Pútín. Anna Kristín Jónsdóttir ræddi við Elfu Ýr Gylfadóttur, framkvæmdastjóra Fjölmiðlanefndar. Ávaxtaneysla hefur minnkað, en neysla á sykruðum gosdrykkjum hefur dregist saman. Í gær voru kynntar niðurstöður úr landskönnun á mataræði landsmanna. Þar eru bæði góðar og slæmar fréttir. Þjóðin þarf að borða mun meira af grænmeti og ávöxtum svo að vel sé. Bjarni Rúnarsson ræddi við Hólmfríði Þorgeirsdóttur, Jóhönnu Eyrúnu Torfadóttur og Bryndísi Evu Birgisdóttur. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Mark Eldred. Stjórn útsendingar frétta: Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir.

Spegillinn
Átök um efnavopn í öryggisráði SÞ, áróðursstríð og mataræði Íslendinga

Spegillinn

Play Episode Listen Later Mar 11, 2022 9:59

Landspítali hlaðvarp
GEÐVARPIÐ // Rósa María Guðmundsdóttir, sérfræðingur í geðhjúkrun

Landspítali hlaðvarp

Play Episode Listen Later Dec 28, 2021 63:22

"Geðvarpið" er ný sjálfstæð þáttasyrpa innan Hlaðvarps Landspítala. Stjórnandi syrpunnar er hjúkrunarfræðingurinn dr. Helga Sif Friðjónsdóttir. Viðmælandi Helgu Sifjar að þessu sinni er Rósa María Guðmundsdóttir, sérfræðingur í geðhjúkrun og hjúkrunar- og teymisstjóri geðheilsusviðs Reykjalundar.Að loknu stúdentsprófi fór Rósa María í Hjúkrunarskóla Íslands og útskrifaðist þaðan í janúar 1982. Það árið starfaði hún á gjörgæsludeild Landspítala við Hringbraut, en færði sig svo á deild 32C sem þá var bráða- og móttökugeðdeild. Samhliða tók hún vaktir á hinum ýmsu deildum sem tilheyrðu geðsviði Landspítala og kynntist því vel starfseminni á þeim árum. Haustið 1990 hóf Rósa María síðan störf á Reykjalundi þar sem hún hefur starfað að mestu óslitið síðan. Fyrstu árin vann Rósa María á blandaðri deild, en lengst af frá þeim tíma á geðheilsusviði Reykjalundar. Undanfarin tólf ár hefur hún verið hjúkrunar- og teymisstjóri geðheilsusviðsins.Samhliða vinnu sinni hjá Reykjalundi lauk Rósa María BS-prófi við Háskóla Íslands árið 2001 og meistaraprófi í geðhjúkrun árið 2007. Gegnum tíðina hefur hún lært og tileinkað sér ýmis sálræn meðferðarform og má þar nefna hugræna atferlismeðferð (HAM) og klíníka dáleiðslu. Rósa María hefur skrifað greinar, leiðbeint og meðal annars verið með fræðslu um endurhæfingarhjúkrun, HAM og meðferðarform sem stuðla að von. Einnig hefur hún setið í ýmsum nefndum og ráðum.Hlaðvarp Landspítala er aðgengilegt á vef spítalans og helstu samfélagsmiðlum, en einnig í streymisveitunum Spotify og Apple iTunes, ásamt hlaðvarpsveitum á borð við Simplecast, Pocket Casts og Podcast Addict. Það er samskiptadeild Landspítala sem heldur úti Hlaðvarpi Landspítala og þeim sjálfstæðu þáttasyrpum sem tilheyra hlaðvarpsfjölskyldu spítalans. SIMPLECASThttps://landspitalihladvarp.simplecast.com/episodes/gedvarpid-06

Leikjavarpið
Leikjavarpið #31 - Nintendo fréttir, Metroid Dread og SSD diskar í PS5

Leikjavarpið

Play Episode Listen Later Oct 18, 2021 84:46

Daníel Rósinkrans, Sveinn og Bjössi hjá Gamestöðinni eru mættir til að fjalla um allt það helsta úr heimi tölvuleikja. Í þættinum er ákveðið Nintendo þema þar sem fjallað er um væntanlega Animal Crossing viðbót, Nintendo Online viðbótaráskrift sem gerir áskrifendum kleift að spila gamla N64 og Sega Genesis leiki á Switch og að lokum rýnir Rósinkrans í Metroid Dread sem margir Nintendo-spilarar hafa beðið spenntir eftir.  Auk þess fjalla þremenningarnir um Gotham Knights, Suicide Squad og Back 4 Blood sem kom út í seinustu viku. Tölvuleiknum var streymt á Twitch-rás Nörd Norðursins fyrir nokkrum dögum þar sem nördarnir börðust hetjulega gegn óðum zombískrímslum. Tæknimál koma einnig við sögu þar sem Sveinn upplýsir hlustendur um hvað ber að hafa í huga þegar verið er að uppfæra geymsluplássið á PS5 leikjatölvunni. Umræðuefnið tengist grein sem var nýlega birt á heimasíðu Nörd Norðursins þar sem verð og framboð á SSD diskum fyrir PS5 hér á landi var sérstaklega skoðað. Samhliða þeirri umfjöllun hefur Nörd Norðursins birta leiðbeiningar um hvernig er hægt að bæta við SSD diski við PS5 tölvuna. Allt þetta og meira til í nýjasta þætti Leikjavarpsins!   Efni þáttar: *Back 4 Blood *Animal Crossing viðbót *SSD ævintýri Sveins *Nintendo Online viðbótar áskrift *Gotham Knights og Suicide Squad á DC Fandome *Metroid Dread   Tónlist: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed under Creative Commons: By Attribution 3.0 License creativecommons.org/licenses/by/3.0/ Mynd af Metroid í Metroid Dread (Nintendo)

Landspítali hlaðvarp
GEÐVARPIÐ // Dr. Helga Sif ræðir við Vilborgu G., geðhjúkrunarfræðing og handleiðara

Landspítali hlaðvarp

Play Episode Listen Later Jun 21, 2021 52:07

"Geðvarpið" er ný sjálfstæð þáttasyrpa innan Hlaðvarps Landspítala. Stjórnandi syrpunnar er hjúkrunarfræðingurinn dr. Helga Sif Friðjónsdóttir. Í þessum fjórða þætti fær Helga Sif til sín Vilborgu G., en hún er geðhjúkrunarfræðingur, fjölskyldufræðingur og handleiðari. Helga Sif og Vilborg ræða bakgrunn hennar og víðtæka reynslu og velta vöngum yfir því hvað gerir okkur að góðum meðferðaraðila, innihaldi og áhrifum meðferðarsambandsins sem og nauðsyn ígrundunar á eigin sjálfi til að geta veitt öðrum meðferð að réttum gæðum. Vilborg útskrifaðist sem hjúkrunarfræðingur 1972 og vann á bæklunarskurðdeild Landspítala til 1984. Síðan lá leiðin í skólahjúkrun á vegum heilsugæslunnar og þar kviknaði óbilandi áhugi hennar á að vinna með börnum og ungmennum og fjölskyldum þeirra. Vilborg fór því í uppeldis og kennslufærði við KHÍ og útskrifaðist þaðan 1991. Samhliða vinnu við skólaheilsugæslu tók Vilborg meðal annars þátt í þróun stuðningsúrræðis á vegum Íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkur fyrir unglinga sem stóðu höllum fæti.Árið 1994 var Vilborg ráðin framkvæmdastjóri Kvennaathvarfsins og starfaði þar í 4 ár. Á þeim tíma lauk hún einnig diplómanámi í geðhjúkrun og var leiðandi í því að innleiða í Kvennaathvarfið heildræna nálgun geðhjúkrunar í vinnu með konum og börnum sem voru þolendur heimilisofbeldis. Árið 1999 tók Vilborg við sem deildarstjóri unglingageðdeildarinnnar á Barna- og unglingageðdeild Landspítala (BUGL) . Samhliða þeirri vinnu lauk hún námi í handleiðslu við Endurmenntun Háskóla Íslands. Vilborg var deildarstjóri á BUGL til 2017 og tók virkan þátt í miklum breytingum bæði á starfseminni og þjónustunni. Samhliða deildarstjórastarfinu starfaði hún sem handleiðari í Stuðnings- og ráðgjafateymi Landspítala og kynntist þá nokkuð vel bæði starfsemi annarra deilda sem og spítalans í heild. Vilborg hefur einnig tekið að sér handleiðslu bæði á stofu og í hinum ýmsu fyrirtækjum bæði innan og utan heilbrigðiskerfisins. Árið 2017 hóf hún störf á göngudeild BUGL samhliða því að hafa nýlokið námi í fjölskyldumeðferð. Á göngudeildinni starfaði Vilborg við áfalla- og tengslamiðaða fjölskyldumeðferð bæði samkvæmt hugmyndafræði ABFT (Attachment-Based-Family-Therapy) en þjálfun í því líkani stóð til boða á BUGL á tímabili. Auk þess hefur Vilborg markvisst hlotið þjálfun í öðru nokkuð sambærilegu líkani ARC (Attachment-Recilience and Compitence) sem er ætlað fjölskyldum þegar um er að ræða flókinn áfalla- og tengslavanda. Vilborg lauk störfum á Landspítala vegna aldurs í júní 2020. Hún starfar áfram sem handleiðari á stofu og einnig við að handleiða ýmsa fagaðila innan barnaverndarkerfa í tengslamiðuðum stuðningi við fjölskyldur fósturbarna. Hún kemur einnig að handleiðslu fagteyma í einkarekinni þjónustu við börn/unglinga í flóknum og samsettum vanda. Þá hefur Vilborg í vaxandi mæli verið að handleiða lykilstjórnendur í ýmsum stofnunum/fyrirtækjum sem ekki tengjast heilbrigðis- eða félagsþjónustu. Síðastliðinn áratug hefur Vilborg samhliða öðrum störfum handleitt ýmsa fjölfaglega hópa og einstaklinga sem vilja markvisst styrkja og efla faglega og persónulega þróun sína sem meðferðaraðilar með sérstakri áherslu á gæði meðferðarsambandsins. Sá áhugi vaknaði hjá Vilborgu fyrir 15 árum eftir kynni við hugmyndafræði Dr. Scott D. Miller þar sem áherslan er á breytur sem stýra gæðum samtalsmeðferða óháð meðferðarlíkönum. Áhuginn varð að “brennandi áhuga” sem hefur fylgt henni síðan.Hlaðvarp Landspítala er aðgengilegt á vef spítalans og helstu samfélagsmiðlum, en einnig í streymisveitunum Spotify og Apple iTunes, ásamt hlaðvarpsveitum á borð við Simplecast, Pocket Casts og Podcast Addict. Það er samskiptadeild Landspítala sem heldur úti Hlaðvarpi Landspítala og þeim sjálfstæðu þáttasyrpum sem tilheyra hlaðvarpsfjölskyldu spítalans.SIMPLECASThttps://landspitalihladvarp.simplecast.com/episodes/gedvarpid-04

Morgunvaktin
Verðum að taka á ofbeldi í öllum kimum samfélagsins

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later May 12, 2021 130:00

Við héldum áfram að ræða um metoo mál á Morgunvaktinni í dag. Til okkar komu Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, þingmaður Vinstri grænna, og Guðmundur Andri Thorsson, þingmaður Samfylkingarinnar. Þau sitja bæði í allsherjar- og menntamálanefnd þingsins og við ræddum meðal annars hvað stjórnmálin geta gert í dómskerfinu og menntakerfinu til að breyta þessum málum. 85 manns, mestmegnis ungmenni, létu lífið í árás á skóla í Kabúl í Afganistan á laugardag. Hver ber ábyrgð á ódæðinu er enn óljóst, en árásir og ofbeldi færist í aukana í Afganistan. Fjórir mánuðir eru þar til Bandaríkjaher hverfur frá landinu. Brynja Huld Óskarsdóttir, öryggis- og varnarmálafræðingur með sérhæfingu í hryðjuverkum, starfaði fyrir NATO í Afganistan og ræddi málefni landsins. Mannekla í lögreglu og mjúk löggæsla í dreifbýli? er heiti greinar sem Guðmundur Oddsson, dósent við Félagsvísindadeild, og Andrew Paul Hill, lektor við Félagsvísindadeild, birtu nýverið í fræðiritinu Íslenska þjóðfélagið tímariti Íslenska félagsfræðingafélagsins. Meðal þess sem þeir félagar komust að er að starfandi lögreglumönnum fækkaði um 9% frá árinu 2007 til ársins 2017. Hvergi fækkaði lögreglumönnum jafn mikið í Evrópu milli 2009 og 2018 og hérlendis (29,1%). Samhliða þessari fækkun nær fimmfaldaðist fjöldi erlendra ferðamanna. Þetta var á sama tíma og landsmönnum fjölgaði um 10%. Þá kom í ljós að að helstu áskoranir sem dreifbýlislögreglumenn upplifa eru mannekla, ofurálag, margþætt verkefni, lítil aðstoð og óskýr mörk á milli vinnu og einkalífs. Guðmundur Oddsson var gestur Óðins Svan Óðinssonar, fréttamanns á Akureyri. Umsjón með Morgunvaktinni höfðu Vera Illugadóttir og Þórunn Elísabet Bogadóttir Tónlist: Donna - Ritchie Valens La Bamba - Ritchie Valens

Morgunvaktin
Verðum að taka á ofbeldi í öllum kimum samfélagsins

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later May 12, 2021

Hlaðvarp Kjarnans
Samtal við samfélagið – Netveröld ný og góð?

Hlaðvarp Kjarnans

Play Episode Listen Later Feb 9, 2021 72:38

Fátt hefur haft meiri áhrif á daglegt líf okkar Vesturlandabúa í seinni tíð en stafræna byltingin svokallaða. Stafrænni tækni hefur fleygt fram og meðal annars fært okkur internetið, snjallsíma og samfélagsmiðla. Samhliða hefur tæknin aukið aðgengi og flæði upplýsinga, breytt því hvernig við eigum samskipti, hvernig við leitum að upplýsingum, hvernig skólahaldi er háttað, hvernig við neytum menningarefnis og hvernig fólk hagar sér í tilhugalífinu. Þá er fíkniefnamarkaðurinn er gjörbreyttur með tilkomu stafrænnar tækni. Svona mætti lengi telja en ljóst er að tilkoma stafrænnar tækni hefur haft heilmargt gott í för með sér en einnig ýmislegt misjafnt. Ýmsir hafa til að mynda áhyggjur af óhóflegri og óæskilegri netnotkun ungs fólks. Til að varpa ljósi á þetta viðgangsefni og ýmislegt annað áhugavert fengum við til okkar í hlaðvarpið, Kjartan Ólafsson, lektor í félagsfræði við Félagsvísindadeild Háskólans á Akureyri, en hann stundar meðal annars rannsóknir á netnotkun barna og unglinga.

Mannlegi þátturinn
Ráðgjafafyrirtækið Efri ár og Sigurður lesandi vikunnar

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Jan 11, 2021 55:00

Við hófum þáttinn á að senda út upphaf upplýsingafundar Almannavarna, þátturinn var því styttri sem því nemur. Ragnheiður Gunnarsdóttir er hjúkrunarfræðingur á Landakotsspítala með fjölbreytta reynslu af að vinna að málefnum aldraðra og eldri borgara. Samhliða starfinu á Landakoti rekur hún ráðgjafarfyrirtæki sem heitir Efri ár. Þar vinnur hún með aðstandendum sem eru oft svo ráðalausir þegar kemur að þjónustu og stuðningi við aldraða foreldra og skyldfólk. Við ræddum við Ragnheiði í þættinum í dag. Lesandi vikunnar í þetta sinn var Sigurður Jón Ólafsson, bókasafnsfræðingur. Hann starfaði hjá Borgarbókasafni Reykjavíkur í rúm 30 ár. Sigurður hefur verið virkur hjá Stómsamtökum Íslands í hátt í 30 ár og var ritstjóri og ábyrgðarmaður 40 ára afmælisrits Stómasamtakanna, sem kom út á afmælisdeginum í október í fyrra. Við fengum að vita hvaða bækur hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft áhrif á hann í gegnum tíðina. UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR?

Mannlegi þátturinn
Ráðgjafafyrirtækið Efri ár og Sigurður lesandi vikunnar

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Jan 11, 2021

The Snorri Björns Podcast Show
#77 Ólafur Jóhann Ólafsson - Rithöfundurinn sem lærði eðlisfræði og bjó til PlayStation

The Snorri Björns Podcast Show

Play Episode Listen Later Dec 9, 2020 108:48

Ólafur Jóhann dúxaði bæði Menntaskólann í Reykjavík og Brandeis Univeristy í Boston. Útskrifaður sem eðlisfræðingur fékk hann vinnu hjá Sony og var fljótlega kominn í aðstoðarforstjórastöðu innan fyrirtækisins, þá 28 ára gamall. Vinnandi samhliða Bill Gates og Steve Jobs í tæknihasarnum í Kísildal kom Ólafur saman teymi sem kynnti á markað byltingu á tölvuleikjamarkaði: PlayStation. Sjálfur lætur hann fjarstýringarnar í friði og sest niður eldsnemma morguns til skrifta. Samhliða gríðarlega krefjandi starfi hjá Sony og seinna meir Time Warner (HBO, CNN, Cartoon Network, Warner Bros, Time…) hefur Ólafur starfað sem rithöfundur og gefið út fjölda bóka - nú síðast skáldsöguna Snerting.   Jeffrey L. Bewkes, þáverandi framkvæmdastjóri Time Warner: “I've read all of Olaf's books, and I'm frankly amazed that a guy who I rely on during the day to structure complex digital deals and identify international business opportunities can create novels with such rich characters and intricate plotlines.”

Morgunvaktin
Vinnur að ritun sögu Bjarna Benediktssonar eldri

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Jul 27, 2020 130:00

Rætt var um bækur og bókaútgáfu á tímum nýmiðlunar við Jakob F. Ásgeirsson, rithöfund og útgefanda í bókaforlaginu Uglu. Á vordögum neitaði Penninn Eymundsson að selja nýjar bækur Uglu þar sem þær voru jafnframt fáanlegar á hljóðbókaveitunni Storytel. Samkeppniseftirlitið taldi þá framgöngu brjóta gegn lögum eða góðum viðskiptaháttum og eru bækurnar frá Uglu því aftur fáanlegar í verslununum. Jakob óttast ekki að hætt verði að prenta bækur, hann telur hljóðbókina viðbót sem gefi fleirum en ella færi á að njóta bóka. Samhliða útgáfu fæst Jakob við skriftir. Hann hefur skrifað ævisögur nokkurra manna og vinnur nú að ritun sögu Bjarna Benediktssonar (eldri) sem var m.a. borgarstjóri, alþingismaður og forsætisráðherra. Bjarni hafði mikil áhrif á þróun mála í ungu lýðveldinu en hann var alþingismaður í tæp 30 ár (frá 1942) og ráðherra í 20 (frá 1947). Í Lundúnaspjalli sagði Sigrún Davíðsdóttir m.a. frá nýrri skýrslu þingnefndar um tilraunir Rússa til að hafa áhrif á bresk málefni og heimsókn Johnsons forsætisráðherra til Skotlands. Rúmar þrjár vikur eru fram að Reykjavíkurmaraþoninu. Umsjónarmenn spurðu Torfa H. Leifsson hlaupaþjálfarar hvort mögulegt væri að komast í form á þeim tíma sem er til stefnu. Torfi mælir með að fólk fari rólega í sakirnar og byrji á að hlaupa þrjá kílómetra enda þurfi að þjálfa vöðva, bein og sinar fyrir aukið álag. Tónlist: Gamla Stan - Jacob Gurevitsh Maybelline - Chuck Berry.

Morgunvaktin
Vinnur að ritun sögu Bjarna Benediktssonar eldri

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Jul 27, 2020

Konur í upplýsingatækni, konur í þorskastríðum og Stefán lesandi vikun

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Mar 2, 2020 50:00

WiDS (Women in Data Science) er árleg ráðstefna haldin á vegum Stanford-háskóla í Bandaríkjunum með það að markmiði að styrkja og efla konur í tölvunarfræði og skyldum greinum. Samhliða ráðstefnunni í Stanford er hún haldin á yfir 50 stöðum víða um heim og verður nú haldin í þriðja sinn hér á landi, í Háskólanum í Reykjavík, á eftir kl. 14:00. Við ræddum við Önnu Sigríði Íslind lektor í tölvunarfræðum hjá HR en hún mun á ráðstefnunni fjalla um gagnadrifna heilbrigðisþjónusta og lýðheilsu. Og við ræddum líka við Margréti Hrönn Þóroddsdóttur verkefnastjóra sem sagði okkur nánar frá ráðstefnunni og stöðu kvenna í tölvunarfræðum. Saga Ólafsdóttir sagnfræðingur tók saman í lokaritgerð sinni sögu átta kvenna sem voru giftar eða mæður manna sem voru við vinnu hjá Landhelgisgæslu Íslands í þorskastríðunum og tóku þátt í átökum við Breska flotann fyrir Íslands hönd. Hún dró fram fram þátt þeirra í sögu þorskastríðanna og hvaða áhrif atburðirnir höfðu á líf þeirra. Einnig verður farið yfir baráttu kvenna sem börðust fyrir bættu öryggi og vinnuaðstæðum fyrir hönd sinna manna í lok þorskastríðanna. Saga kom í þáttinn í dag, en fyrirlestur hennar fer fram að Grandagarði 18 kl.20 á miðvikudaginn. Lesandi vikunnar í þetta sinn er nýráðinn útvarpsstjóri Stefán Eiríksson. Hann hóf störf hér í Efstaleitinu í gær, 1.mars og því ekki seinna vænna en að fá hann til okkar að segja frá því hvaða bækur eru á náttborðinu, hvað hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft áhrif á hann í gegnum tíðina. UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Mannlegi þátturinn
Konur í upplýsingatækni, konur í þorskastríðum og Stefán lesandi vikun

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Mar 2, 2020

Fram á við
11. þáttur - Geoffrey Skywalker

Fram á við

Play Episode Listen Later Dec 19, 2019

Í þessum þætti ræðir Jafet Máni við Geoffrey Skywalker sem er fæddur árið 1988. Hann er einn af eigendum Priksins. Samhliða því er hann að vinna með Guðfinni Sölva eða Finna á Prikinu í hinum ýmsum verkefnum og fyrirtækjum. Í þáttunum Fram á við talar Jafet Máni við fólk sem hefur náð langt í sínum geira eða skarað fram úr í íslensku viðskiptalífi svo eftir því sé tekið.

Fólkið á Norðurlandi vestra
Evelyn Ýr Kuhne

Fólkið á Norðurlandi vestra

Play Episode Listen Later Dec 11, 2019 22:53

Evelyn Ýr Kuhne á Lýtingsstöðum í Skagafirði hefur ásamt fjölskyldu sinni byggt upp öfluga ferðaþjónustu með íslenska hestinn, hestaferðir og hestasýningar í forgrunni. Samhliða þessu hefur Evelyn tekið virkan þátt í uppbyggingu ferðaþjónustunnar í landshlutanum og fékk á dögunum viðurkenningu frá Markaðsstofu Norðurlands fyrir störf sín í þágu ferðaþjónustunnar.

marka skagafir samhli
Landspítali hlaðvarp
Ósk Sigurðardóttir: Verkefnastjóri og iðjuþjálfi sem leggur stund á nám við Oxford og þróar aðgengisapp í frístundum

Landspítali hlaðvarp

Play Episode Listen Later Oct 1, 2019 48:36

Ósk Sigurðardóttir er verkefnastjóri hjá verkefnastofu Landspítala, sem hefur verið drifkrafturinn í umbótavegferð Landspítala undanfarin ár og byggir að miklu leyti á straumlínustjórnun (lean). Ósk hefur átt langan og farsælan feril á Landspítala, fyrst sem iðþjuþjálfi en síðustu árin sem verkefnastjóri. Hún státar nú þegar af nokkrum háskólagráðum og vinnur í augnablikinu að einni til viðbótar við Oxford-háskóla. Samhliða rekur Ósk lítið hugbúnaðarfyrirtæki í hjáverkum og þróar þar app eða smáforrit sem heitir TravAble og skráir aðgengi um víða veröld; appið er nú þegar með notendur í 33 löndum. Ef Ósk gæti eflt einn þátt í starfsemi Landspítala, þá myndi hún hlúa sérstaklega að þróun innan spítalans hjá sérstöku nýsköpunarsetri. Ósk fer hér í stuttu máli yfir tilþrifamikinn feril í menntun og starfi -- og segir okkur í leiðinni smávegis frá sjálfri sér.

Morgunvaktin
200 ár frá fæðingu Jóns Árnasonar þjóðsagnasafnara

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Aug 15, 2019 130:00

Í Heimsglugga dagsins fjallaði Bogi Ágústsson um innanmein í grænlenska stjórnarflokknum Siumat en nokkrir þingmenn krefjast afsagnar Kim Kielsen, flokksformanns og formanns grænlensku landsstjórnarinnar. Hann lætur óánægju með störf sín ekki á sig fá og ætlar að sitja sem fastast. Bogi sagði líka frá óvæntum úrslit í forkjöri forsetakosninga í Argentínu og áhyggjum í bæði Bandaríkjunum og Þýskalandi af versnandi efnahagshorfum í heiminum. 74 ár eru í dag síðan Híróhító Japanskeisari lýsti í útvarpsávarpi uppgjöf Japana og þar með lokum heimsstyrjaldarinnar síðari. Þetta var í fyrsta sinn sem Híróhító ávarpaði þjóð sína. Vera rifjaði þessa sögu upp. Á laugardag, 17. ágúst, eru 200 ár liðin frá fæðingu Jóns Árnasonar fræðimanns og þjóðsagnasafnara. Samhliða þjóðsagnasöfnuninni gegndi Jón embættum landsbókavarðar og þjóðminjavarðar og var að auki biskupsritari. Rósa Þorsteinsdóttir, þjóðfræðingur á Árnastofnun, sagði frá ævi og störfum Jóns Árnasonar. Tónlist: From the prison - Richie Havens The Weight - The Band Soma bon uta - Chiemi Eri

Fávitar Podcast
Fávitar Podcast 1. þáttur - Sigga Dögg

Fávitar Podcast

Play Episode Listen Later Jul 8, 2019 64:30

Sigga Dögg kynfræðingur hefur ferðast um landið og frætt Íslendinga um kynlíf síðastliðinn áratug. Samhliða því er hún rithöfundur og fræðir fólk á hinum ýmsu viðburðum. Í þættinum ræddum við meðal annars um kynlíf, líkamshár, samskipti og kynfræðslu. Fávitar er átak gegn stafrænu og annars konar kynferðisofbeldi stofnað af Sólborgu Guðbrandsdóttir. Fávitar Podcast er feminískt hlaðvarp sem ræðir mismunandi vinkla jafnréttis við áhugaverðar fyrirmyndir í íslensku samfélagi. Hægt er að fylgjast nánar með átakinu sjálfu á Instagram-síðunni Fávitar.

Morgunvaktin
Tæplega níræður karl býður sig fram til forseta Bandaríkjanna

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Jun 11, 2019 130:00

Íslenska fyrirtækið Marel var skráð í Euronext kauphöllina í Amsterdam í síðustu viku. Euronext var stofnuð árið 1602 og er elsta kauphöll veraldar og jafnframt sú stærsta í Evrópu. Samhliða skráningunni voru 100 milljón hlutar í Marel boðnir út sem ruku út og félagið er í dag metið á tæplega 400 milljarða króna. Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans, sagði hlustendum frá þessu íslenska risafyrirtæki. Þær raddir gerast æ háværari á meðal þýskra jafnaðarmanna að formaður ungra jafnaðarmanna, Kevin Kühnert, sé vænlegasti kosturinn sem næsti formaður flokksins. Þessar hugmyndir mæta þó mótstöðu hjá eldri flokksmönnum, sér í lagi forystumönnum flokksins, sem hugnast lítt að tæplega þrítugur „nýgræðingur“ sem aldrei hefur tekið þátt í atvinnulífinu, og er þar að auki óvenju róttækur af þýskum sósíaldemókrata að vera, verði leiðtogi þessa gamla og virðulega stjórnmálaflokks. Arthúr Björgvin Bollason var í Berlínarspjalli á Morgunvaktinni. Vera Illugadóttir sagði hlustendum frá Mike Gravel. Hann er fyrrverandi öldungadeildarþingmaður Demókrata fyrir Alaska og er elstur í þeim sístækkandi hópi Demókrata sem hafa boðað framboð til forseta Bandaríkjanna í kosningunum sem fara fram á næsta ári, hann verður níræður á næsta ári. Hann situr ekki auðum höndum, fer óvenju mikinn á Twitter og öðrum samfélagsmiðlum, sem er kannski ekki skrýtið þegar litið er til þess að kosningabaráttu hans er stjórnað af hópi táninga. Tónlist: Ibrahim Ferrer - Aquellos ojos verdes The Dave Brubeck Quartet - Three To Get Ready Haukur Morthens - Caprí Katarína

Lestin
Sigurður Árni, Morrissey, Slowthai, Bjarmi

Lestin

Play Episode Listen Later May 27, 2019 55:00

Breski söngvarinn og byssukjafturinn Morrissey gaf nýverið út nýja plötu, California Son, sem inniheldur 12 ábreiður af lögum eftir ýmsa tónlistarmenn. Platan kemur út í skugga umdeildra athafna Morrissey. Söngvarinn sýndi öfgahægri-flokknum Britain First táknrænan stuðning í sjónvarpssal. Fjallað verður um alræmda hegðun Morrisseys og möguleg endalok ferilsins í Lestinni í dag. Við komum líka við í Hverfisgalleríi þar sem Sigurður Árni Sigurðsson opnaði sýninguna Leiðréttingar á laugardag, þar notar listamaðurinn ýmsan efnivið sem hann hefur fundið - nafnlausar ljósmyndir og póstkort - og framlengir með blýanti ýmis atriði, bætir inn í eða eykur ákveðnum atriðum við það sem er á upprunalegu myndinni. Samhliða sýningunni kemur út vegleg bók sem helguð er þessari skemmtilegu seríu sem Sigurður hefur unnið að í hjáverkum í um það bil 30 ár. Rapparinn Slowthai frá Northampton á Englandi er um þessar mundir að slá í gegn með fyrstu plötu sinni, Nothing Great About Britain eða Ekkert Stórfenglegt við Bretland. Platan toppar alla helstu listana og stefnir í að hún verði plata ársins í Bretlandi en þetta er í senn persónuleg og pólitísk plata, þar sem breska ríkisstjórnin og jafnvel Drottningin sjálf fá það óþvegið. Við tölum um Slowthai í Lestinni í dag og heyrum nokkur vel valin lög af plötunni. Bjarmi er heiti á nýrri plötu með raftónlistartríóinu Stereo Hypnosis, plata sem unnin er í samvinnu við mann sem heitir Christopher Chaplin, sem er tónlistarmaður og leikari, og já yngsti sonur Charlies Chaplin, hvorki meira né minna. Þetta er raftónlist í hæsta gæðaflokki, plata sem tekin var upp á Hvammstanga á einum degi, í júlí á síðasta ári. Við heyrum í tveimur af meðlimum Sterio Hypnosis í þættinum í dag, gestir okkar verða þeir Pan Thoroddsen og Þorkell Atlason. Og vinasambönd meðleigjenda eru klassískt viðfangsefni gamanþátta enda ýmsar hlægilegar aðstæður sem geta komið upp þegar fólk býr saman. Bandarísku sjónvarpsþættirnir What We Do in the Shadows bæta þó um betur og gefa áhorfendum innsýn í sambúð og daglegt líf hinna lifandi dauðu, sem virðist engu minna flókið og hlægilegt. Áslaug Torfadóttir fjallar um þættina í Lestinni í dag.

Mannlegi þátturinn
Athyglisbrestur, Sterkari út í lífið og hjónin í Bjarnarfirði

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Mar 19, 2019 55:00

Í síðustu viku kom leikarinn Hallgrímur Ólafsson í þáttinn og sagði frá því þegar hann greindist í fyrra, 41 árs, með athyglisbrest og fór á lyf sem hann sagði að hefðu breytt lífinu til hins betra. Þetta hafi verið pússlið sem vantaði, þar sem athyglisbresturinn hafði sett stórt strik í flest allt sem hann gerði áður en hann greindist. En hvað er athyglisbrestur? Hversu stór hluti þjóðarinnar er með athyglisbrest og er mikill fjöldi landsmanna kannski með athyglisbrest en hefur ekki hugmynd um það? Eru lyf of mikið notuð á Íslandi og erum við að greina of marga, í rauninni að ofgreina fólk með athyglisbrest? Dagur Bjarnason geðlæknir kom í þáttinn og fræddi okkur um ADHD og athyglisbrest. Síðastliðin ár hefur fagfólk og hópur rannsakenda tekið eftir auknum neikvæðum áhrifum fjölmiðla á sjálfsmynd og líkamsímynd barna og unglinga. Á þetta sérstaklega við um notkun samfélagsmiðla og þessir miðlar eru í stöðugri þróun og beinast sífellt meira að yngri börnum en þar eykst notkunin jafnt og þétt. Samhliða þessari auknu notkun hefur tíðni kvíða og streitu aukist verulega, einkum meðal stúlkna. Vefsíða undir heitinu Sterkari út í lífið, sem beinist einna helst að foreldrum og þeim sem vinna með börnum og unglingum í daglegu starfi verður opnuð í dag. Steinunn Anna Sigurjónsdóttir sálfræðingur á Litlu Kvíðameðferðarstofunni, kom í þáttinn og sagði frá. Vigdís Esradóttir og hennar maður Einar Unnsteinsson fluttu norður í Bjarnarfjörð og byggðu sér þar hús sem vekur athygli margra. Kristín Einarsdóttir, okkar kona á Ströndum, hitti Vigdísi og bað hana að segja sér og hlustendum söguna af því hvernig það kom til að þau fluttu norður og hvernig lifið gengur fyrir sig í Bjarnarfirðinum. UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Fyrir forvitna
Grænkerar sameinast

Fyrir forvitna

Play Episode Listen Later Nov 2, 2018

Vegansamtökin og Samtök grænmetisæta á Íslandi leggja til á aðalfundum sínum að þau sameinist í eitt stærra félag. Samhliða sameiningunni myndi nýtt félag fá nafn þar sem ríkari áhersla verður lögð á veganisma. Benjamín Sigurgeirsson formaður samtaka grænmetisæta á Íslandi og Birkir Steinn Erlingsson formaður Vegan-samtakanna segja frá þessu.

vegan samt benjam sigurgeirsson samhli
Mannlegi þátturinn
Grænkerar sameinast, kokkalandsliðið og Hitt húsið

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Nov 1, 2018 50:00

Í dag er alþjóðlegi vegan dagurinn. Í næstu viku munu Vegansamtökin og Samtök grænmetisæta á Íslandi leggja til á aðalfundum sínum að þau sameinist í eitt stærra félag. Samhliða sameiningunni myndi nýtt félag fá nafn þar sem ríkari áhersla verður lögð á veganisma. Við fengum þá Benjamín Sigurgeirsson formann samtaka grænmetisæta á Íslandi og Birki Stein Erlingsson formann Vegan-samtakanna í þáttinn. Heimsmeistaramótið í matreiðslu fer fram í Lúxemborg í lok nóvember en það er haldið á fjögurra ára fresti. Á mótinu mætast færustu kokkar heimsins og nú hefur hópurinn verið að leggja lokahönd á matseðla og ferla fyrir keppnina og æfir nú vikulega. Ylfa Helgadóttir er þjálfari liðsins en hún kom í þáttinn ásamt Fanneyju Dóru Sigurjónsdóttur keppanda. Mikil breyting er á ásjónu miðbæjar Reykjavíkur í kjölfar stórframkvæmda, stórhýsi rísa, hótel og verslanir. Til dæmis mun Pósthúsið í Austurstræti loka sínum dyrum eftir áramót, og Hitt húsið mun einnig flytja úr miðbænum. Lísa Páls heimsótti Hitt húsið og ræddi við Makús H. Guðmundsson frostöðumann um flutningana. Umsjón Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson

vegan gu samt benjam mak reykjav hitt sigurj gunnarsd umsj mikil sigurgeirsson heimsmeistaram samhli austurstr gunnar hansson
Mannlegi þátturinn
Geðheilbrigði ungra barna,Björg Ísaksdóttir 90 ára og heimsókn í Pakkh

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later May 31, 2018 57:00

Geðverndarfélag Íslands hefur samþykkt nýja stefnu um geðheilbrigði ungra barna og þar kemur meðal annars fram að umhverfi og áföll hafa mikil áhrif á heilaþroska barns í móðurkviði og fyrstu tvö ár eftir fæðingu, mun meiri áhrif en áður var vitað. Áföllin geta haft áhrif á gott samband barns og foreldra. Bein tengsl eru milli ófullnægjandi tengslamyndunar og erfiðleika barns síðar á lífsleiðinni. Þær Gunnlaug Thorlacius, félagsráðgjafi og formaður Geðverndarfélags Íslands og Anna María Jónsdóttir , geðlæknir og varaformaður félagsins voru hjá okkur eftir nokkara mínútur og sögðu okkur frekar frá þessari nýju stefnu. Í dag opnar í Gallerí Gróttu sýning Bjargar Ísaksdóttur myndlistarkonu í tilefni af 90 ára afmæli hennar sem er einmitt í dag. Björg hefur unnið við búningagerð og hönnun hjá Leikfélagi Reykjavíkur, við Þjóðleikhúsið, í New York og í Svíþjóð, þar sem hún vann m.a. í sænsku konungshöllinni. Samhliða vinnu sinni nam hún fyrst og stundaði svo málun, teikningu og höggmyndagerð. Á sýningunni má sjá bæði ný og eldri verk eftir Björgu, en Lísa Páls hitti hana í gær. Hafnarfjarðarkaupstaður fagnar 110 ára afmæli 1. júní og því verður fagnað með ýmsum hætti í hjarta Hafnarfjarðar. Á morgun opnar Byggðasafn Hafnarfjarðar nýja sýningu í forsal Pakkhússins sem ber nafnið "Þannig byggðist bærinn" þar sem varpað er ljósi á uppbyggingu, þróun og skipulag Hafnarfjarðar á fyrstu árum kaupstaðarins. VIð heimsóttum Byggðasafnið og töluðum við Björn Pétursson bæjarminjavörð Hafnarfjarðar. Umsjón í dag, Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson

Morgunútvarpið
Heilsuefling, Ólöf Magnúsdóttir,Eurovision, Eiður Smári og tæknispjall

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later May 9, 2018 130:00

Lóa Birna Birgisdóttir leiðir verkefni á vegum Reykjavíkurborgar um heilsuefnlingu starfsmanna borgarinnar. Samhliða því er unnið að verkefninu heilsueflandi hverfi í Reykjavík. Lóa Birna var á línunni, úr ræktinni að sjálfsögðu. Við héldum áfram að ræða við oddvita framboðslistanna fyrir borgarstjórnarkosningarnar. Í dag kom til okkar Ólöf Magnúsdóttir sem er í fyrsta sæti á lista Kvennahreyfingarinnar. Ari Ólafsson steig á Eurovision sviðið í gærkvöldi og stóð sig með sóma. Við heyrðum bæði í Ara og lagahöfundinum Þórunni Ernu Clausen. Eið Smára Guðjohnsen þarf varla að kynna fyrir nokkrum Íslendingi en þessi farsæli knattspyrnumaður vinnur nú að ýmsum verkefnum að loknum knattspyrnuferli. Meðal annars hefur Eiður unnið fyrir sjónvarp og nú eru væntanlegir þættir sem Eiður hefur unnið fyrir RÚV um mótherja Íslands á HM í sumar. Eiður Smári heimsótti Morgunútvarpið í dag. Guðmundur Jóhannsson kom í sína vikulegu heimsókn og spjallaði að þessu sinni um Google ráðstefnuna þar sem hin magnaða tækni Google Duplex var m.a. kynnt. Tónlist: Árstíðir - Ljóð í sand. Marvin Gaye & Tammi Terrell - Aint no mountain high enough. Paul McCartney & Stevie Wonder - Ebony & Ivory. America - Sister golden hair. Helgi Björns - Ég skrifa þér ljóð á kampavínstappa. Jón Jónsson - Gefðu allt sem þú átt. Everything but the girl - Missing. Blue Öyster Cult - (Don't fear) The reaper. Loreen - Euphoria.

Morgunvaktin
Karlar ánægðir með kvenkynsstjórnendur

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Apr 16, 2018 130:00

Þátturinn hófst á spjalli Sigrúnar Davíðsdóttur sem að þessu sinni talaði frá Róm. Ekki hefur tekist að mynda nýja ríkisstjórn á Ítalíu en þar var kosið í byrjun mars. Upp úr stjórnarmyndunarviðræðum slitnaði fyrir helgi. Sigrún talaði einnig um afstöðuna í Bretlandi til loftárásanna á Sýrland um helgina en Bretar tóku þátt í þeim ásamt Bandaríkjamönnum og Frökkum. May forsætisráðherra bar málið ekki undir þingið en svarar fyrir það í þinginu í dag. Undir lok spjallsins bar Sigrún svo heimsborgirnar Róm og Lundúnir saman og nefndi fyrst matinn og matarmenninguna sem er alltumlykjandi í þeirri fyrrnefndu. Íslenskir karlar eru almennt mjög ánægðir með kvenkynsstjórnendur samkvæmt rannsókn sem Íris Ósk Valþórsdóttir, stöðvarstjóri bílaleigunnar Avis, gerði í námi sínum í Háskólanum í Reykjavík. Það sem kvenkynsstjórnendur í íslenskum fyrirtækjum eiga sameiginlegt er m.a. jákvæðni, bjartsýni, kröfuharka og óþolinmæði, samkvæmt rannsókn sem Katrín Pétursdóttir, verkefnastjóri hjá Póstinum, gerði í námi við sama skóla. Íris og Katrín sögðu frá niðurstöðum rannsókna sinna og spjölluðu um efnið vítt og breitt. Ófremdarástand hefur lengi ríkt í Líbíu. Múammar Gaddafí var steypt af stóli eftir 42 ára harðstjórn árið 2011 og síðan hefur upplausn ríkt. Í raun eru starfandi tvö þjóðþing í Líbíu og þrjár ríkisstjórnir en fulltrúi Sameinuðu þjóðanna hefur reynt að miðla málum og koma á stjórnfestu og er sá vongóður um að þing- og forsetakosningar geti farið fram síðar á árinu. Vera Illugadóttir sagði frá ástandinu í Líbíu. Mikil uppbygging hefur orðið í Vík í Mýrdal á síðustu árum og enn frekari uppbygging áformuð. Samhliða er unnið að verndun gömlu byggðarinnar í þorpinu sem er frá því kringum 1900. Vigfús Þór Hróbjartsson, skipulags- og byggingafulltrúi Mýrdalshrepps, sagði frá verkefninu sem er unnið undir hatti laga um "verndarsvæði í byggð". Tónlist: Einni þér ann ég - Vilhjálmur Vilhjálmsson Hit the road Jack - Willie Nelson, Norah Jones & Wynton Marsalis.