POPULARITY
Meira en helmingur þeirra um 7.200 sem voru á atvinnuleysisskrá í júlí voru erlendir ríkisborgarar. Hlutfallið var þá 53% og hefur sigið upp á við undanfarið - var 48% fyrir ári. Atvinnuþátttaka útlendinga er mikil hérlendis en þetta háa hlutfall þeirra sem eru atvinnulausir var meðal þess sem til var tekið í nýlegri úttekt Efnahags- og framfarastofnunarinnar OECD sem kynnt var í vikunni. Rætt verður við Unni Sverrisdóttur, forstjóra Vinnumálastofnunar. Landsmenn eru áfram almennt jákvæðir og ánægðir með erlenda ferðamenn og ferðaþjónustu í heimabyggð. Þetta sýnir ný könnun Rannsóknarmiðstöðvar ferðamála sem gerð var í vikunni. Ferðaþjónustan er hins vegar ekki einkamál atvinnugreinarinnar og hún má ekki ganga að gestrisni Íslendinga sem vísum hlut. Eyrún Jenný Bjarnadóttir frá Rannsóknarmiðstöð ferðamála fer yfir helstu niðurstöður. Dominique Pelico hefur játað að hafa í rúman áratug mulið svefntöflur og kvíðalyf út í vínglas eða kvöldmat eiginkonu sinnar. Þegar hún missti meðvitund nauðgaði hann henni og bauð ókunnugum mönnum með auglýsingu á vefsíðu að gera slíkt hið sama; þetta voru trukkabílstjóri, smiður, fangavörður, hjúkrunarfræðingur og blaðamaður frá staðarmiðli í franska smábænum Mazan þar sem hjónin bjuggu, svo dæmi séu tekin. Menn á aldrinum 26 til 74 ára, feður og eiginmenn. Rætt verður við Láru Samira Benjnouh
Guðmundur Benediktsson ræðir við Gunnar og Mána um efnahagsmál.
Fimmtudagurinn 27. apríl 1. Fréttir dagsins. 2. Breki Karlsson formaður Neytendasamtakanna, Þuríður Harpa Sigurðardóttir formaður ÖBÍ, Laufey Líndal Ólafsdóttir formaður Pepp, samtaka fólks í fátækt og og Guðmundur Hrafn Arngrímsson formaður Leigjendasamtakanna ræða saman um stöðu almennings á tímum dýrtíðar, vaxtahækkana og lífskjarakreppu. 3. Ásgeir Brynjar Torfason ræðir um óstjórn ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum. 4. Hjalti Hrafn Hafþórsson ræðir um óstjórn ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum.
Máni og Gunnar ræða við mann sem heitir Gunnar og er Birgisson.
Friðrik Dór kostar 250 milljónir. Gunnar og Máni ræða við Friðrik Dór.
Svæðisforingi Hjálpræðishersins segir að svo geti farið að hætt verði að bjóða upp á heitan mat í hádeginu. Þeim sem leita til hersins hefur fjölgað mikið undanfarna mánuði og sjóðirnir eru að tæmast. Arnar Björnsson talaði við Hjördísi Kristinsdóttur. Nauðsynlegt er að bjóða upp á sólarhringsþjónustu fyrir heimilislausar konur, til að minnka líkur á að þær verði fyrir ofbeldi. Ekkert úrræði er til fyrir heimilislausar konur sem eru í neyslu yfir daginn. Alma Ómarsdóttir talaði við Halldóru Dýrleifar- Gunnarsdóttur Bandaríski lögmaðurinn Alex Murdaugh var í dag dæmdur í líftíðarfangelsi fyrir að myrða eiginkonu sína og son. Hann framdi ódæðisverkin þegar upp hafði komist um umfangsmikinn fjárdrátt. Alexander Kristjánsson sagði frá. Þúsundir mótmæltu vanrækslu lestarfyrirtækis í Grikklandi í dag. Að minnsta kosti fimmtíu og sjö fórust í lestarslysi á miðvikudag. ----------------------------------- Fjármálaráðherra segir ríkisendurskoðanda hafa verið skýran um að ekki væri tilefni til að draga hæfi ráðherra í efa við sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka. Með hvaða hætti var reglum stjórnsýslulaga um sérstakt hæfi fullnægt þegar félag í eigu föður fjármálaráðherra keypti hlut í Íslandsbanka? Hlut sem ríkið seldi honum. Þetta er ein þeirra spurninga sem umboðsmaður alþingis krefur fjármálaráðherra svara við í bréfi sem hann sendi Bjarna Benediktssyni í gær og væntir svara í lok mánaðar. Hafdís Helga Helgadóttir tók saman. Efnahagsþvinganir hafa ekki bitið eins fast á Rússa eins og til var ætlast frá því að innrás þeirra í Úkraínu hófst. NATÓ-ríkin hafa ekki undan í vopnaframleiðslu sinni, segir sérfræðingur í fjármálum. Bjarni Rúnarsson talaði við Ásgeir Brynjar Torfason. Jónas Gahr Störe, forsætisráðherra Noregs, hefur beðist afsökunar á því að mannréttindi séu brotin á hópi Sama í landinu. Vindorkuver var reist í óleyfi á beitilöndum þeirra. Þar með höfðu aðgerðasinnar úr röðum Sama betur eftir vikulöng og hávær mótmæli við ráðuneyti í Ósló. Ríkisstjórnin lofar nú bót og betrun. Gísli Kristjánsson sagði frá.

Þriðjungur heimila á Íslandi á í erfiðleikum með að ná endum saman eða tekst það alls ekki, samkvæmt nýrri könnun. Annar þriðjungur nær endum saman en sparar ekki, og svo á þriðjungur ekki í neinum erfiðleikum með að borga reikninga og sparar líka. Önnur könnun sýnir að fjórðungur býst við verri fjárhag á þessu ári en því sem var að líða. Þórður Snær Júlíusson ræddi þetta og fleira í spjalli um efnahag og samfélag. Liðið er ár frá því að ný ríkisstjórn tók við völdum í Þýskalandi með Olafs Scholz í broddi fylkingar. Stjórnin fékk ekki langa hveitibrauðsdaga, og hefur á þessum tíma þurft að takast á við innrás Rússa í Úkraínu og mikla orkukreppu í kjölfarið. Arthúr Björgvin Bollason fór yfir þetta fyrsta ár í Berlínarspjalli dagsins. Sífellt fjölgar í hópi innflytjenda á Íslandi og ekkert sem bendir til annars en að sú þróun haldi áfram. Á að gera kröfu um að fólk sem hingað flytur læri íslensku? Og er fólki gert kleift að gera það með auðveldum hætti? Gígja Svavarsdóttir stýrir The Tin Can Factory eða Dósaverksmiðjunni en þar stíga margir sín fyrstu skref í íslenskunámi. Umsjónarmenn Morgunvaktarinnar eru Guðrún Hálfdánardóttir og Þórunn Elísabet Bogadóttir. Tónlist: Visit to the cinema - Ennio Morricone Með hækkandi sól - Systur Vetrarmorgunn Savanna tríóið The unknown soldier ? The Doors Þorpið - Bubbi Morthens og Mugison

Sandra Sigurðardóttir, markvörður Vals og landsliðsins, var fyrsti gestur þáttarins. Keppnistímabilinu er lokið og urðu Sandra og samherjar hennar í Val bæði Íslands- og bikarmeistarar en framundan er leikur um laust sæti á heimsmeistaramótinu næsta sumar. Sandra byrjaði ung að spila fótbolta á Siglufirði og á að baki 21 tímabil í efstu deild. Efnahagsástandið í heiminum hefur gjörbreyst á skömmum tíma. Fyrir tæpum tveimur árum voru stýri- eða meginvextir víðast hvar undir einu prósenti en á undanförnum mánuðum hafa níu af hverjum tíu seðlabönkum gripið til hækkana. Ásgeir Brynjar Torfason, sérfræðingur í fjármálum, fór yfir stöðuna. Hann er ekki sannfærður um að verðbólga og vextir lækki á næsta ári eins og vonast er eftir. Við hertöku Íslands 10. maí 1940 lögðu Bretar hald á skjöl í fórum ræðismanns Þýskalands í Reykjavík. Frá Bretum komust þau í vörslu tveggja íslenskra ráðuneyta en hafa í rúm 30 ár verið varðveitt í Þjóðskjalasafninu. Í dag verða þessi skjöl afhent forseta Sambandsskjalasafns Þýskalands enda eru þau með réttu eign þýska ríkisins. Njörður Sigurðsson, aðstoðarþjóðskjalavörður, sagði frá þessum skjölum og átaki í heiminum sem miðar að því að koma skjölum í réttar hendur. Tónlist: Þú og ég - Hljómar, My girl - The Temptation, Get ready - The Temptation, Vængjum þöndum - Stefán Hilmarsson, Ain?t to proud to beg - The Temptation. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson.

Ný ríkisstjórn Liz Truss í Bretlandi stendur í stórræðum. Breyttri efnahagsstefnu hefur verið illa tekið, pundið hefur snarfallið og verðgildi ríkisskuldabréfa sömuleiðis. Englandsbanki, seðlabanki Bretlands, þurfti í gær að grípa til neyðaraðgerða og kaupa ríkisskuldabréf til að halda uppi verði þeirra. Þetta var aðalefni Heimsglugga vikunnar en í lokin ræddu Þórunn Elísabet Bogadóttir og Bogi Ágústsson um skemmdarverk á gasleiðslunum Nord Stream 1 og 2 í Eystrasalti og svokallaða þjóðaratkvæðagreiðslu í fjórum héruðum Úkraínu.

Emil Dagsson ræðir við Dr. Ásgeir Brynjar Torfason. Fjallað er um fjármagnsflæði og hvað gerist þegar settar eru skorður á slíkt flæði, eða þá efnahagsþvinganir. Viðmælandinn Ásgeir Brynjar er doktor í fjármálum frá Gautaborgarháskóla. Áhersla þáttarins er efnahagsþvinganirnar sem Vesturlönd hafa sett á Rússland í kjölfar innrásar Pútíns í Úkraínu.
Ragnheiður Elín Árnadóttir, fyrrverandi alþingismaður og ráðherra, er framkvæmdastjóri Þróunarmiðstöðvar Efnahags og framfarastofnunarinnar, OECD. Hún sagði frá starfsemi OECD og störfum sínum hjá stofnuninni. Eins frá lífinu í París og frönsku pólitíkinni. Bogi Ágústsson fjallaði um frelsi fjölmiðla en það er skert í meirihluta þeirra 180 ríkja sem eru á lista fréttamanna án landamæra. Í Heimsglugganum var einnig fjallað um för Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, til Afríku og túlkun rússneskra fjölmiðla á það hvað séu almennir borgarar þegar kemur að árásum í Úkraínu. Það fer ekki mikið fyrir frelsi fjölmiðla í Rússlandi og víðar í heiminum og staða fjölmiðlafólks afar ótrygg þar. Hrafn Sveinbjarnarson, héraðsskjalavörður í Kópavogi, er að rita bók um Kópavogsfundinn fræga en það eru 360 ár frá því hann var haldinn. Á fundinum var samþykkt að Danakonungur hefði hér öll völd og í hönd fóru rúm 200 ár þar sem Íslendingar höfðu fátt um sín mál að segja. Tónlist: Sailor - Petula Clark, Træ - Guðrið Hansdóttir og Eivør Pálsdóttir, Vorblómin anga - Tríó Guðmundar Ingólfssonar. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Guðrún Hálfdánardóttir.

Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans, fjallaði um áhrif efnahagsþvingana á rússneskt samfélag sem og áhrifin sem þær hafa á ríki heims. Fastlega má gera ráð fyrir því að eldsneytisverð haldi áfram að hækka og hér á landi verði lítrinn af bensíni dýrari en nokkru sinni fyrr. Veggjöld voru einnig rædd, einkum og sér í lagi á höfuðborgarsvæðinu. Fastlega má gera ráð fyrir að 60 milljarða framkvæmdir verði fjármagnaðir með veggjöldum í stað skatts á eldsneyti. Arthúr Björgvin Bollason segir að algjör viðsnúningur hafi orðið á afstöðu Þjóðverja til útgjalda til varnarmála sem og þátttöku í átökum en samþykkt var á aukafundi sambandsþingsins um helgina að leggja Úkraínumönnum lið með sendingu hergagna þangað. Olaf Scholz, kanslari Þýskalands, þykir hafa staðið sig vel í tengslum við innrás Rússlands inn í Úkraínu en það á hinsvegar ekki við um fyrrverandi kanslara jafnaðarmanna, Gerhard Schröder, sem hefur verið harðlega gagnrýndur í heimalandinu vegna náinna tengsla við forseta Rússlands, Vladimír Pútín. Davíð Stefánsson, fyrrverandi ritstjóri Fréttablaðsins, þekkir vel til Rússlands og hann segir að þetta sé ekki stríð rússnesku þjóðarinnar heldur forsetans. Seigla Úkraínumanna sé mikil og það sama á við um rússnesku þjóðina. Það hafi hún sýnt í gegnum tíðina og það verði ekkert öðruvísi núna þegar harðar efnahagsaðgerðir fara að bíta. Davíð segir að innrásin í Úkraínu marki tímamót hvað varðar upplýsingaflæði, innrásin sé nánast í beinni útsendingu. Tónlist: I'd rather go blind - Etta James Island in the sun - Harry Belafonte The Sea Calls - Richard Hawley Sound of Silence - Emiliana Torrini My man's gone now - Nina Simone. Umsjón: Guðrún Hálfdánardóttir.

Spegillinn 23. febrúar 2022. Umsjón: Bjarni Rúnarsson Tæknimaður: Mark Eldred. Öllum samkomutakmörkunum vegna heimsfaraldursins verður aflétt annað kvöld. Starfandi forstjóri Landspítala segir óvissu fylgja afléttingum fyrir heilbrigðiskerfið. Sóttvarnalæknir talar um áfangasigur, en ekki lokasigur. Úkraínudeilan er mesta ógn við öryggi og frið í heiminum í áraraðir, segir framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna. Bandaríkjastjórn varaði Úkraínustjórn við því í morgun að frekari innrás Rússa væri líkleg á næstu tveimur sólarhringum. Formaður utanríkismálanefndar ítrekar að sýna pólitíska samstöðu með vestrænum ríkjum gegn Rússum og formaður Viðreisnar segir yfirgang Rússa vera mestu ógn vestrænna lýðræðisríkja í Evrópu í langan tíma. Mikil samstaða er á Alþingi. Hátt í 40 manns eru á biðlista eftir að komast í kynleiðréttingaraðgerð. Flestir þurfa að bíða í á annað ár eftir að komast í kynleiðréttingu. Ríkisendurskoðun telur tilefni til margs konar sameiningar ríkisstofnana. Þeim hefur fækkað um hátt í 40 prósent frá árinu 1998. Lengri umfjöllun: Viðbrögð leiðtoga margra ríkja, sem hafa fordæmt ákvörðun Vladimirs Pútins forseta Rússlands um að senda hersveitir inn á svæði í austurhluta Úkraínu - svæði sem Rússar hafa lýst yfir að séu nú sjálfstæð alþýðulýðveldi, hafa verið tal um að bæta í efnahagslegar þvingunaraðgerðir gegn Rússlandi. Bandarísk og bresk stjórnvöld hafa til dæmis þegar kynnt aðgerðir sem eiga að torvelda rússneskum stjórnvöldum að afla lánsfjár til að fjármagna hernaðaraðgerðir og rétta skuldastöðu ríkisins. Refsiaðgerðirnar beinast bæði að bönkum og einstaklingum sem teljast til innsta hrings Pútíns. Utanríkisráðherra hefur þegar lýst því yfir að Ísland muni taka þátt í aðgerðum með sínum bandamönnum til að bregðast við ákvörðun Rússlandsforseta og á fundum utanríkismálanefndar Alþingis fyrr í dag var fjallað um viðbrögð Íslands. Voru þingmenn sammála um að ekki yrði unað við að Rússar brytu alþjóðalög og að staðan í Úkraínu væri grafalvarleg. Ísland framfylgir þegar þvingunaraðgerðum sem beinast að 28 ríkjum, hryðjuverkasamtökum og útbreiðslu efnavopna, eins og sjá má á yfirlit utanríkisráðuneytisins um slíka gjörninga. Þar á meðal eru aðgerðir sem beinast gegn Rússlandi og var komið á eftir innlimun Krímskaga árið 2014. Þær snúast um frystingu fjármuna, innflutningsbann á ákveðnum vörum frá Krím og Sevastopol svo nokkuð sé nefnt. Þeim var komið á með reglugerð ráðherra en eru í takt við það sem samþykkt hefur verið á alþjóðavettvangi eins og í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna. Viðbrögð Rússa

Við verðum að horfast í augu við þá staðreynd að okkur Íslendingum hafa verið mislagðar hendur í mörgu þegar kemur að grunnmenntun barnanna okkar. Grunnskólinn er sá dýrasti á Vesturlöndum en börnin standa jafnöldrum sínum í nágrannalöndunum að baki í undirstöðugreinum. Vísbendingar eru um að kulnun í starfi meðal grunnskólakennara sé að aukast sem beinir athyglinni að starfsumhverfi, starfskjörum og umbun kennara. PISA er alþjóðlegt könnunarpróf á vegum Efnahags- og framfarastofnunarinnar [OECD] sem mælir lesskilning 15 ára nemenda og læsi þeirra á stærðfræði og náttúruvísindi. Síðasta könnunin var gerð árið 2018. Niðurstaða bendir til að alvarlegar brotalamir sé að finna í íslensku menntakerfi. Gott, öflugt og fjölbreytt menntakerfi er mikilvægur hornsteinn íslensks samfélags. Menntun er spurning um samkeppnishæfni landsins og þar með lífskjara, ekki síður en mikilvirkasta tæki til jöfnuðar. Grunnskólinn er undirstaða alls í menntamálum þjóðarinnar. Vísbendingar um brotalamir við menntun grunnskólabarna ber að taka alvarlega án þess að mála allt svörtum litum.
Í vikunni fengum við Þorvald Gylfason, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands, til að ræða við okkur um efnahagsþróun í Kína, fortíð og til framtíðar. Margt bar á góma í áhugaverðu spjalli: Ástæður velgengni efnahagsumbótaáætlunar Deng Xiaoping 邓小平, samanburður á hagþróun í Kína og öðrum Asíuríkjum, Kína í alþjóðavæddum heimi og einnig ræddum við framtíð Kína þar sem Þorvaldur spáir að Kínverjum muni farnast vel ef lýðræðisbrestir verði leystir farsællega.
Enn er mikið vatnsveður fyrir austan og hættustig vegna skriðuhættu á Seyðisfirði. Lögreglan áréttar að engin óviðkomandi umferð verði til Seyðisfjarðar meðan hættustigið er í gildi. Heilsugæslan er í startholunum og getur byrjað að bólusetja strax og bóluefni berst til landsins. Þetta segir Óskar Reykdalsson, forstjóri heilsugæslunnar á höfuðborgarsvæðinu. Gert er ráð fyrir því að fyrstu 5000 skammtarnir berist um eða eftir jól. Arnhildur Hálfdánardóttir talaði við hann. Ísland þarf að bæta verulega getu til að greina alþjóðleg mútubrot og merki þess að slík brot eigi sér stað hér á landi. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu starfshóps Efnahags- og framfarastofnunarinnar, OECD, um alþjóðleg mútubrot. Hildur Margrét Jóhannsdóttir tók saman. Svíar búast við að dauðsföllum vegna COVID-19 eigi eftir að fjölga áður en áhrifa bólusetningar fer að gæta . Nú hafa tæplega átta þúsund látið lífið í farsóttinni. Bogi Ágústsson sagði frá. Formenn sjómannafélaga gagnrýna þyrluleysi Landhelgisgæslunnar og segja það ólíðandi ástand. Beðið er eftir aukahlut í TF-GRO sem verður ekki útkallshæf fyrr en annað kvöld. Einar Hannes Harðarson formaður Sjómanna- og vélstjórafélags Grindavíkur segir þyrlurnar björgunartæki sjómanna eins og sjúkrabíla á landi. Í nýju frumvarpi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra er lagt til að tekin verði upp aflamarksstjórn, eða kvóti, við veiðar á grásleppu, sandkola í allri fiskveiðilandhelginni og sæbjúgum. Markús Þór Þórhallsson sagði frá. ------------ Íslandi bjóðast sex bóluefni við COVID-19 með samningum Evrópusambandsins við lyfjaframleiðendur og búið er að semja um kaup á 700 þúsund skömmtum frá Astra Zeneca, Jansen og Pfizer-BioNTech. Það veltur á afgreiðslu Evrópsku lyfjastofnunarinnar sem er komin langleiðina með Pfizer og Moderna bóluefnin. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir greindi frá því í morgun að stokka verði upp í forgangsröðun þeirra sem verða bólusettir, vegna tafa á afhendingu bóluefna. Rúna Hvannberg Hauksdóttir forstjóri Lyfjastofnunar vonar að hægt verði að gefa út leyfi og byrja að bólusetja fyrir jól. Anna Kristín Jónsdóttir tók saman. Talsverður fjöldi Íslendinga virðist telja að hryðjuverkaógnin myndi aukast ef flóttamönnum frá múslimalöndum fjölgar Helmingur landsmanna er hins vegar hlynntur því að hingað komi fleiri flóttamenn. Arna Páll Hauksson talar við Margréti Valdemarsdóttur, lektor við HA Um rannsókn sem sýnir þetta. Tímamörkin á að Bretar geri fríverslunarsamning við Evrópusambandið koma og fara. Nú hefur Evrópuþingið gripið til sinna ráða. Sigrún Davíðsdó

Félagsmálaráðuneytið gerir nú tekjulágum fjölskyldum kleift að sækja styrki upp á 45.000 krónur vegna íþrótta- og tómstundastarfs barna fædd á árunum 2005-2014. Styrkirnir koma til viðbótar hefðbundnum íþrótta- og tómstundastyrkjum sveitarfélaga. Alls verður um 900 milljónum króna varið í verkefnið árin 2020 og 2021. Auður Inga Þorsteinsdóttir, framkvæmdastjóri UMFÍ, segir aðgerðir stjórnvalda mikilvægt innlegg gegn neikvæðum áhrifum COVID-faraldursins og hjálpi til við að gera öllum kleift að vera með og taka þátt í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi. Auður var á línunni. Í gær var haldinn íbúafundur á Flateyri þar sem fulltrúar viðbragðsaðila fóru yfir aðgerðir sem gripið hefur verið til í kjölfar snjóflóðanna 14. janúar sl. og viðbrögð við uppfærðu hættumati og rýmingaráætlun. Helena Jónsdóttir verkefnastjóri á Flateyri var á línunni og sagði okkur frá stöðu mála. Kristjana Arnarsdóttir íþróttafréttamaður hefur dvalið á Spáni og víðar í Evrópu undanfarna mánuði og líkar vel. Hún birti færslu um daginn þar sem hún hvatti fólk til að pakka niður og drífa sig suður á bóginn. Við hringdum til hennar á Spáni og heyrðum af lífinu þar. Skýrsla OECD, Efnahags og framfarastofnunar Evrópu, sem kynnt var á dögunum hefur fallið í grýttan jarðveg hjá iðngreinunum. Lagt er til að löggilding fyrir t.d. ljósmyndara og bakara verði lögð niður. Bakarar segja að OECD virðist hvorki hafa kynnt sér aðstöðu bakaraiðnarinnar né aðgengi að námi og nemasamningum þegar stofnunin lagði til að löggildingin yrði lögð af. Sigurður Már Guðjónsson í Bernhöftsbakaríi segir tillögurnar grófa aðför að gæðum og fagmennsku í landinu og að verið sé að lögleiða fúsk. Við heyrðum í Sigurði. Við kíktum í tæknihornið í dag þegar Guðmundur Jóhannsson heimsótti okkur með tíðindi af tækni og ræddi þar samfélagsmiðla. Tónlist: Ásgeir Trausti - Bernskan. Thin Jim and the Castaways - Leaves still green. Duffy - Warwick Avenue. Queen - Somebody to love. Herbert Guðmundsson - Lífið. Dikta - Thank you. Christine and the Queens - People, Ive been sad. Coldplay - Viva la vida.

Spegillinn 11. nóvember 2020 Umsjón: Kristján Sigurjónsson Tæknimaður: Hrafnkell Sigurðsson Forsætisráðherra segir að skoða verði málefni Arnarholts ofan í kjölinn. Hún segir málið bæði sláandi og óhugnanlegt. Fjögur af þeim 26 smitum sem greindust í gær tengjast sama fyrirtækinu á Akranesi. Sex starfsmenn þar hafa nú smitast. Líkur eru á að byrjað verði að bólusetja gegn kórónuveirunni í ríkjum Evrópusambandsins einhvern tíma á fyrstu þremur mánuðum næsta árs. Tekist var á um hverjir hefðu forgang í bólusetningu fyrir svínaflensunni fyrir ellefu árum, segir fyrrverandi sóttvarnalæknir. Hann segir líklegt að svipaðri forgangsröðun verði beitt nú í kórónufaraldrinum. Átta af hverjum tíu Bandaríkjamönnum telja að Joe Biden hafi sigrað í nýafstöðnum forsetakosningum. Donald Trump neitar að játa sig sigraðan. Úlfar Lúðvíksson lögreglustjóri á Vesturlandi verður lögreglustjóri á Suðurnesjum og Grímur Hergeirsson, staðgengill lögreglustjórans á Suðurlandi, verður lögreglustjóri í Vestmannaeyjum. Lengri umfjöllun: Skýrsla OECD, Efnahags og framfarastofnunarinnar, á regluverki ferðaþjónustu og byggingaiðnaðar hér á landi, sem kynnt var í gær, hefur vakið blendin viðbrögð hjá Samtökum iðnaðarins. Í skýrslunni er lagt til að endurskoða í heild sinni löggjöf um löggiltar starfsgreinar. Taka eigi til skoðunar að draga úr reglubyrði fyrir smiði, rafvirkja, pípara og fleiri. Svo er beinlínis lagt til að afnema löggildingu bakara og ljósmyndara - þó erfitt sé að sjá beina tengingu þessara starfsgreina við byggingariðnað. Kristján Sigurjónsson ræðir við Björgu Ástu Þórðardóttur yfirlögfræðingi Samtaka iðnaðarins. Framkvæmdastjóri Bónuss segir að talsverður munur sé á kauphegðun fólks nú en í fyrstu bylgju Covid. Viðskiptavinir séu ekki lengur að hamstra klósetpappír eins og gerðist í vor. Í Speglinum í gær kom fram að eftirspurn eftir hinum ýmsu vörum hefur aukist í Covid faraldrinum. Arnar Páll Huksson talar við Guðmund Marteinssson, framkvæmdastjóri Bónus, Sigurð Brynjar Pálsson,forstjóra BYKO og Arinbjörn Hauksson, markaðsstjóri Elko. Í vikunni var greint frá því að bandaríski lyfjarisinn Pfizer og þýska líftæknifyrirtækið BioNTech væru vel á veg komin í rannsóknum á bóluefni gegn kórónuveirunni. Rannsóknir benda til þess að bóluefni þeirra verji níu af hverjum tíu fyrir COVID -19. Pfizer er með stærstu lyfjafyrirtækjum heims en BioNTech er ekki nafn sem hefur verið á hvers manns vörum fyrr en nú. Anna Kristín Jónsdóttir segir frá hjónunum Ugur Sahin (Úr Sjahín) og Özlem Türeci (Ötslem Türetsí) í Mainz sem stof

Í Heimskviðum í dag er fjallaðum mótmæli í Póllandi, samsæriskenningasmiði í Bandaríkjunum og framtíðarhorfur í efnahagsmálum heimsins á tímum heimsfaraldurs. Pólskt samfélag er í uppnámi. Ekki aðeins eru sett met í fjölda kórónuveirusmita og dauðsfalla dag hvern heldur hefur úrskurður stjórnarskrárdómstóls þar í landi um þungunarrof valdið misklíð. Þúsundir hafa virt samkomutakmarkanir að vettugi og mótmælt á hverjum einasta degi síðustu vikuna. Þórunn Elísabet Bogadóttir segir frá. Enginn endi virðist í sjónmáli kórónuveirufaraldrinum og þar með efnahagskreppunni sem fylgdi farsóttinni. Hagfræðingar töldu að efnahagslífið rétti hratt úr kútnum þegar faraldurinn hefði gengið yfir, nú eru tvær grímur farnar að renna á þá og margir spá mun langvinnari kreppu. Bogi Ágústsson fjallar um farsóttarkreppuna og ræðir meðal annars við Jón Daníelsson, prófessor við London School of Economics. Samsæriskenningar lifa góðu lífi á samfélagsmiðlum. Ein þeirra hin svokallaða QAnon sem gengur út á það að Bandaríkjunum - jafnvel heiminum öllum - sé að mestu stjórnað af djöfladýrkandi barnaníðingum - og Donald Trump forseti sé bjargvætturinn. Talið er að milljónir séu hallar undir þennan boðskap og fólk úr þeirra röðum nái jafnvel inn á þing í kosningunum vestanhafs á þriðjudaginn. Ólöf Ragnarsdóttir fjallar um málið. Heimskviður er fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi. Ritstjórar þáttarins eru Guðmundur Björn Þorbjörnsson og Birta Björnsdóttir.

Seint í gærkvöldi þurfti enn einn stjórnmálamaðurinn í Danmörku að taka afleiðingum gjörða sinna, sem komið hafa upp í kjölfar annarrar Mee too bylgju þar í landi. Staðan í dönskum stjórnmálum var meðal umfjöllunarefna í Heimsglugganum, en þar var líka rætt um bandarísk stjórnmál og áhrifaríka minningarathöfn um franska kennarann Samuel Paty, sem fór fram í París í gærkvöldi. Íslenska krónan hefur veikst töluvert á þessu ári - um 20 prósent gagnvart sumum gjaldmiðlum. Veikari króna hefur margvísleg áhrif, þó við séum fæst á leiðinni að kaupa okkur gjaldeyri til að fara til útlanda á næstunni. Efnahagsástandið er almennt erfitt og atvinnuleysið í hæstu hæðum. Við fórum yfir stöðu mála og horfurnar á næstunni með Katrínu Ólafsdóttur hagfræðingi og háskólakennara. Nýr kafli verður skráður í samgöngusögu landsins á sunnudag þegar jarðgöngin milli Dýrafjarðar og Arnarfjarðar verða tekin í notkun. Verkið gekk vel, framkvæmdir hófust sumarið 2017 og tímaáætlunin stóðst, eða svo gott sem. Miklar samgöngubætur fást með göngunum; þau leysa af hólmi fjallveginn um Hrafnseyrarheiði sem margoft á hverjum vetri er ill- eða ófær. Við slógum á þráðinn til Þingeyrar á níunda tímanum og ræddum við Ernu Höskuldsdóttur skólastjóra. Tónlist: Stand by your man - Tammy Wynette, D.I.V.O.R.C.E - Tammy Wynette

Efnahags- og framfarastofnunin OECD kynnti fyrir nokkrum dögum nýja spá sína um efnahagsmál. Þar eru settar fram tvær jafnlíklegar sviðsmyndir fyrir næstu misseri; annars vegar ef það ríður yfir önnur bylgja af kórónuveirusmitum á þessu ári og hins vegar ef það gerist ekki. Komi til annarrar bylgju er gert ráð fyrir að samdráttur á heimsvísu verði 7,6 prósent á árinu og atvinnuleysið 10 prósent. Frá þessu sagði Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans, í vikulegu spjalli um efnahag og samfélag. Hann fór líka yfir það að atvinnuleysi á Íslandi minnkaði í maí og útlit er fyrir að sú þróun haldi áfram í júní. Þó eru líkur á því að atvinnuleysið aukist á ný í haust, þegar uppsagnarfrestir renna út. Skimanir hófust á Keflavíkurflugvelli í gær og völdu allir sem komu til landsins að láta skima sig frekar en að fara í tveggja vikna sóttkví. Sigrún Davíðsdóttir var ein þeirra fyrstu sem kom til landsins og hún sagði frá þeirri upplifun á Morgunvaktinni. Hún bar líka saman frelsið á Íslandi við stöðuna í Bretlandi, og fór yfir ýmislegt fleira sem tengist bresku samfélagi. Meðal annars er þar umræða um kynþáttamisrétti og styttur, en líka um það hvenær skólar geta opnað á nýjan leik. Hvernig verða heimili framtíðarinnar? Verður fólk meira og minna með stýringu á ljósum, hita og heimilistækjum í símanum sínum? Já segir Ingvar Guðjónsson, ráðgjafi hjá Opnum kerfum. Hann segir nokkur ár í það að algengt verði að haga málum þannig að meira að segja ísskápurinn verði snjallvæddur og geti ekki bara sagt heimilisfólki að það vanti mjólk, heldur pantað hana sjálfur úr búð. Tónlist: Þorskacharleston - Bubbi Morthens, October for Skuli Sverrisson - Kvartett Einars Scheving.
Arnar Ingi Jónsson, Daníel Svavarsson og Gústaf Steingrímsson fjalla um nýja hagspá Hagfræðideildar Landsbankans sem gefin var út 15. maí. Samkvæmt spánni mun landsframleiðsla dragast saman um tæplega 9% á árinu 2020 en við taki hægur bati. Mikil óvissa sé þó um efnahagshorfur.
Björg Helgadóttir verkefnisstjóri Reykjavíkurborg: Síðan samkomubann hófst hefur dregið úr umferð um 25-30 prósent á höfuðborgarsvæðinu. Björg fer yfir helstu tölur úr nýjustu umferðartalningu. Ragnar Grímur Bjarnason læknir Barnaspítala Hringsins: Viðbrögð við Covid 19 og afleiðingar fyrir starfsemi spítalans. Friðrik Páll: Milljónir manna hafa þegar misst vinnuna og milljónir missa hana á næstu vikum og mánuðum. Samdráttur er í efnahagslífi heimsins, en hvenær land rís á ný veit enginn.Það fer eftir því hversu fljótt tekst að útrýma veirunni, hugsanlega strax í sumar, en mögulega ekki fyrr en um næstu áramót, jafnvel ekki fyrr en á næsta ári.

Í þessum þætti beinum við sjónum inn á við og hugum að þeim Íslendingum sem hafa ákveðið að flytja úr landi og freista gæfunnar á nýjum slóðum. Ef þeir væru útlendingar að sækjast eftir heimilisfestu hér á landi, þá myndum við oftar en ekki kalla þá „efnahagsflóttamenn“ eða „pólitíska flóttamenn“ - En það gerum við yfirleitt ekki þegar Íslendingar eiga í hlut. Þó hafa Íslendingar oftast einmitt flust til annarra landa ýmist af efnahagslegum ástæðum eða kynferðispólitískum ástæðum. Þeir sem komu fram í þættinum eru: Jóhannes Kjartansson, grafískur hönnuður og ljósmyndari sem búsettur er í Noregi, Inga Jóhannsdóttir, fyrrum heilbrigðisstarfsmaður, sem flust hefur til Spánar, Hörður Torfason, söngvaskáld og leikstjóri og Þorvaldur Kristinsson, bókmenntaritstjóri og rithöfundur. Umsjón: Viðar Eggertsson. (Frá 2017)

Ný umferðarlög sem samþykkt voru í sumar taka gildi um áramótin. Þar verða gerðar ýmsar veigamiklar breytingar og viðbætur frá fyrri lögum og margt sem almenningur þarf að huga að. Þórhildur Elín Elínardóttir hjá Samgöngustofu kom til okkar og fór yfir það helsta í þessu samhengi. Fjórða iðnbyltingin stendur yfir og miklar breytingar hafnar á mörgum sviðum. Róbotar taka yfir störf, gervigreind leysir ráðgjafa af hólmi og drónar munu ferja fólk og varning segja spár. Ólafur Andri Ragnarsson, tölvunarfræðingur og aðjúnkt við Háskólann í Reykjavík, hefur ritað bók um fjórðu iðnbyltinguna og hann sagði okkur meira af þessari framtíðarsýn. Í dag opnar verslunin Orkulindin í Kringlunni og verður opin fram að jólum. Verslunin selur hins vegar ekki neitt en leggur áherslu á að kúpla sig út úr jólaösinni í smá stund. Steinar Þór Ólafsson markaðsstjóri Orkunnar veit meira um þessa skrítnu verslun og hann leit við í morgunkaffi. Offita er meiriháttar lýðheilsuvandamál á Íslandi. Þetta segir í nýrri landsskýrslu OECD, Efnahags- og framfarastofnunarinnar, um heilbrigðismál 2019. Hlutfall fullorðinna sem þjást af offitu hefur aukist síðasta áratuginn, farið úr 12 prósentum árið 2002 í 27 prósent árið 2017. Fimmtungur 15 ára íslenskra unglinga voru yfir kjörþyngd eða of feit á árunum 2013-14, sem var þriðja hæsta hlutfallið í Evrópu. Stofnunin segir að þær aðgerðir sem ríkið hefur gripið til að sporna við vandanum virðast ekki hafa virkað. Tryggvi Þorgeirsson, læknir og lýðheilsufræðingur sem mun leiða nefnd sem skoðar skattlagningu á sykur, var gestur Morgunútvarpsins. Einar Örn Jónsson íþróttafréttamaður kom til okkar og við fórum yfir helstu tíðindi af íþróttum helgarinnar, m.a. dramatíska lokamínútu í úrslitaleik á HM kvenna í handbolta. Tónlist: Baggalútur - Afsakið þetta smáræði. Dolly Parton - Hard Candy Christmas. Auður - 2020 (ft. Valdimar Guðm. og Clubdub). Ragnhildur Gísladóttir - Eitt lítið jólalag. Pálmi Gunnarsson - Gleði og friðarjól. Harry Styles - Two ghost. Pearl Jam - Just breathe. Tom Petty and the Heartbreakers - Christmas all over again.

Við hófum þáttinn á því að taka stöðuna á veðrinu og heyrðum í Rúnari Snær Reynissyni frá aðgerðastjórn Almannavarna á Egilstöðum. Því næst var Brynja Kristjánsdóttir skólastjóri á Hofi í Öræfum á línunni en þar bíða menn eftir versta veðri í manna minnum, en Öræfingar eru þó ýmsu vanir. Eva Björg Ægisdóttir rithöfundur hefur uppskorið ríkulega eftir að hafa sent inn handrit í glæpasagnasamkeppnina Svartfuglinn. Að keppninni standa rithöfundarnir Yrsa Sigurðardóttir og Ragnar Jónasson með útgáfunni Veröld. Eva var gestur okkar í dag en hún hefur landað samningum í þremur löndum, Englandi, Hollandi og Frakklandi, og er fullyrt að útgáfurnar þar ætli að leggja mikla áherslu á báðar bækur hennar sem út eru komnar. Stefán Vagn Stefánsson yfirlögregluþjónn á Norðurlandi Vestra var á línunni, en mikið hefur gengið á í hans umdæmi og við fengum að heyra hvernig gengið hefur í veðurhamnum og hver staðan er eftir nóttina. Forstjóri Landspítalans fundar þessa dagana með starfsfólki og fer yfir ákvarðanir um að fækka stjórnendum, lækka laun yfirstjórnar, lækna og hjúkrunarfræðinga. Á sama tíma bendir OECD, Efnahags- og framfarastofnun Evrópu, á að íslenska ríkið ver minna í heilbrigðiskerfi sitt en 21 ríki innan stofnunarinnar. Sé litið til greiðslu með hverjum landsmanni er hún rétt tæplega helmingi minni en í Noregi. Þar, eins og annars staðar á Norðurlöndum, greiða sjúklingar einnig meira með þjónustunni en hér. Páll Matthíasson, forstjóri Landspítalans, var gestur Morgunútvarpins. Við hringdum í Veðurstofuna og fengum upplýsingar um veðrið á landinu öllu hjá Elínu Björk Jónasdóttur veðurfræðingi sem fór yfir hvernig veðrið mun væntanlega þróast í dag og hvenær reikna má með að óveðrinu sloti. Guðmundur Jóhannsson kom í tæknihornið og ræddi sjálfkeyrandi bíla, Spotify og hlaðvörp. Tónlist: Merry Xmas (War is over) - Krummi og Daníel Ágúst. Baggalútur - Afsakið þetta smáræði. Tryggvi - Allra veðra von. Hjálmar - Hvað viltu gera. Nýdönsk - Alla tíð. Kris Kristofferson - Help me make it through the night. Ísold og Már Gunnarsson - Jólaósk (Jólalagakeppni 2019).

Á dögunum var leikritið Ódysseifur eftir þá Þorleif Örn Arnarsson og Mikael Torfason frumsýnt í Volksbühne-leikhúsinu í Berlín. Þorleifur leikstýrir og systir hans Sólveig er í burðarhlutverki. Arthúr Björgvin Bollason sagði hlustendum frá sýningunni og leikhúsinu. Hann fjallaði líka um baráttuna um formennsku í Jafnaðarmannaflokknum og hreinsun bakka Rínarfljóts en um 10 þúsund Þjóðverjar lögðu þar hönd á plóg um helgina. Lífskjör hér eru með því besta sem þekkist í heiminum samkvæmt greiningu og samanburði OECD, Efnahags- og framfarastofnunarinnar. Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans, dró saman nýja 120 blaðsíðna skýrslu um íslenskt efnahags- og þjóðlíf. Hann sagði okkur líka hvernig eyðilegging olíuhreinsistöðvar í Sádí-Arabíu getur birst í aukinni íslenskri verðbólgu. Og svo er það eignarhald banka, getur verið sniðugt fyrir ríkið að selja Íslandsbanka og leggja vegi fyrir söluandvirðið? Íslenskir frímúrarar halda upp á 100 ára afmæli reglunnar hér á landi á þessu ári. Frímúrareglan hefur alla tíð verið sveipuð nokkurri dulúð, en samkvæmt þeirra eigin lýsingu er markmið þeirra sem gerast frímúrarar að reyna að verða betri þjóðfélagsþegnar til hagsbóta fyrir sjálfa sig, fjölskyldu sína og þjóðfélagið í heild. Íslenskir frímúrarar skipuðu fyrir stuttu fyrsta upplýsingafulltrúa reglunnar, hann er reyndar kallaður erindreki og heitir Eiríkur Finnur Greipsson. Hann kom á Morgunvaktina í dag. Tónlist: All or nothing at all - Diana Krall Wild Horses - Solveig Slettahjell

Nauðsynlegt er að bæta kennslu hér á landi meðal annars með aukinni starfsþjálfun kennara og endurmenntun. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu OECD, Efnahags- og framfarastofnunarinnar, um íslensk efnahagsmál. Stofnunin bendir á að þrátt fyrir að útgjöld til menntamála hafi aukist á síðustu árum hafi það ekki skilað sér í bættum árangri íslenskra nemenda í PISA-könnuninni. Stofnunin spyr enn fremur hvort þörf sé á sjö háskólum í jafn fámennu landi og Íslandi. Höskuldur Kári Schram ræðir við Bjarna Benediktsson og Lilju Alfreðsdóttur. Boris Johnson, forsætisráðherra Breta, talaði um varkárni í dag, ekki að búast við of miklu, á leið til fundar við Jean-Claude Juncker forseta framkvæmdastjórnar ESB. Sjáum hvað setur, sagði Juncker. Þrátt fyrir samningstal hefur Johnson ekki verið að flýta sér til fyrsta fundarins við Juncker og slær áfram úr og í um samingslausa útgöngu. Sumir stjórnmálaskýrendur telja þetta yfirlögð ráð til að ná samningi. Aðrir velta fyrir sér hvort það sé heil brú í viðleitni bresku stjórnarinnar. Sigrún Davíðsdóttir. Tryggingastofnun hefur þegar greidd um 200 öryrkjum leiðréttar bætur vegna endurútreikninga á búsetuhlutfalli. Umboðsmaður Alþingis komast að þeirri niðurstöðu í fyrra að útreikningar stofnunarinnar ættu ekki stoð í lögum. Öryrkjabandalagið sættir sig ekki við að miðað sé við að kröfur fyrnist á fjórum árum. Á næstu vikum verður höfðað mál á hendur ríkinu þar sem þess verður krafist að fresturinn verði 10 ár. Arnar Páll Hauksson segir frá.
Ekki verður samið um starfslok við Harald Johannessen ríkislögreglustjóra að svo stöddu. Þetta segir dómsmálaráðherra. Munnlegur málflutningur í Landsréttarmálinu fyrir yfirdeild Mannréttindadómstóls Evrópu verður 5. febrúar. Þetta kemur fram í bréfi sem málsaðilar fengu í dag. Efnahags- og framfarastofnun Evrópu telur að aukin útgjöld til menntamála hér á landi hafi ekki skilað sér í bættum árangri íslenskra nemenda. Menntamálaráðherra segir mikilvægt að bæta lesskilning og lestrarkunnáttu grunnskólabarna. Endurhæfingarmiðstöðin Ljósið sem styður þá sem fengið hafa krabbamein fær 220 milljónir árlega frá ríkinu. Heilbrigðisráðherra hefur falið Sjúkratryggingum að gera þriggja ára þjónustusamning við Ljósið sem sér um endurhæfingu fyrir þá sem fengið hafa krabbamein. Sameinuðu þjóðirnar vara við yfirvofandi þjóðarmorði á sex hundruð þúsund Róhingjum sem búa enn þá í Mjanmar. Könnunarsafninu á Húsavík verður lokað í næsta mánuði vegna fjárhagsvandræða. Efnahags- og framfarastofnun Evrópu telur að aukin útgjöld til menntamála hér á landi hafi ekki skilað sér í bættum árangri íslenskra nemenda. Menntamálaráðherra segir mikilvægt að bæta lesskilning og lestrarkunnáttu grunnskólabarna. Höskuldur Kári Schram talar við Bjarna Benediktsson og Lilju Alferðsdóttur. Boris Johnson, forsætisráðherra Breta, talaði um varkárni í dag, ekki að búast við of miklu, á leið til fundar við Jean-Claude Juncker forseta framkvæmdastjórnar ESB. Sjáum hvað setur, sagði Juncker. Þrátt fyrir samningstal hefur Johnson ekki verið að flýta sér til fyrsta fundarins við Juncker og slær áfram úr og í um samingslausa útgöngu. Sumir stjórnmálaskýrendur telja þetta yfirlögð ráð til að ná samningi. Aðrir velta fyrir sér hvort það sé heil brú í viðleitni bresku stjórnarinnar. Sigrún Davíðsdóttir. Tryggingastofnun hefur þegar greitt um 200 öryrkjum leiðréttar bætur vegna endurútreiknings á búsetuhlutfalli. Umboðsmaður Alþingis komast að þeirri niðurstöðu í fyrra að útreikningar stofnunarinnar ættu ekki stoð í lögum. Öryrkjabandalagið sættir sig ekki við að miðað sé við að kröfur fyrnist á fjórum árum. Á næstu vikum verður höfðað mál á hendur ríkinu þar sem þess verður krafist að fresturinn verði 10 ár. Arnar Páll Hauksson segir frá. Inn:
Dr. Ágúst Einarsson hefur gert viðamikla úttekt á íslenska heilbrigðiskerfinu og borið það saman við kerfi annarra þjóða innan Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD). Meginniðurstaðan er að Íslendingar verja mun minna fé til heilbrigðismála en samanburðarþjóðirnar. Í ritinu Íslensk heilbrigðismál í alþjóðlegu samhengi er hafsjór tölfræðilegra upplýsinga um heilbrigðismál sem Ágúst sagði frá. Hamond-hátíðin á Djúpavogi stendur þessa dagana en hún hefur verið haldin frá 2006. Gauti Jóhannesson sveitarstjóri sagði frá hátíðinni, mannlífi á Djúpavogi og viðræðum sem nú standa um sameiningu fjögurra sveitarfélaga á Austurlandi. Hljómsveitin Melchior sem stofnuð var 1973 hefur sent frá sér plötuna Hótel Borg. Efni textanna tengist Borginni með einum eða öðrum hætti. Hilmar Oddsson og Karl Roth komu á Morgunvaktina og sögðu frá hljómsveitinni og plötunni. Tónlist: Nobody else but me - Stan Getz Jóhannes Jósefsson - Melchior Alla leið til stjarnanna - Melchior
Fimmtán hafa þegar misst vinnuna í Fjarðabyggð vegna loðnubrests. Bæjarstjórinn segir að sveitarfélagið verði að draga saman seglin, finnist engin loðna. Fjarðabyggð verður fyrir 260 milljóna króna tekjutapi verði algjör loðnubrestur. Rúnar Snær Reynisson ræddi við Karl Óttar Pétursson, bæjarstjóra. Forsvarsmenn Strætós bs segja að fyrirhugaðar verkfallsaðgerðir bílstjóra bitni eingöngu á farþegum og rekstri Strætós en ekki á fyrirtækjunum sem bílstjórarnir starfa hjá. Höskuldur Kári Schram sagði frá og ræddi við Ástríði Þórðardóttur, staðgengil framkvæmdastjóra hjá Strætó. Bandarísk stjórnvöld segja að skjótt verði brugðist við ef öryggi leiðtoga stjórnarandstöðunnar í Venesúela verður ógnað. Hann sneri heim í dag. Ásgeir Tómasson sagði frá. Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra segir að ástand í málefnum geðsjúkra fanga sé óviðunandi. Hún kynnir samning um úrbætur á allra næstu dögum. Helga Vala Helgadóttir þingmaður Samfylkingarinnar spurði heilbrigðisráðherra um erfiða stöðu geðsjúkra fanga: Fangelsismálastofnun hafi ítrekað beint sjónum stjórnvalda að ástandinu og fengið umboðsmann Alþingis til liðs við sig. Þjónusta við fólk með heilabilun er allt of flókin. Mjög margir koma að henni og ekki stefna allir í sömu átt, segir Jón Snædal sérfræðingur í öldrunarlækningum sem tekið hefur að sér að móta heildstæða stefnu í málaflokknum. Bergljót Baldursdóttir ræddi við Jón. ----------- Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir segir að fólk þurfi að hafa það í huga þegar það ferðast með ung börn að mislingafaraldur geisi sums staðar í heiminum. Anna Kristín Jónsdóttir ræddi við Þórólf. Notendastýrð persónuleg aðstoð er óðum að slíta barnsskónum á Íslandi en ekki án vaxtaverkja. Arnhildur Hálfdánardóttir segir frá. Íslendingar og Svisslendingar eru oft á sitt hvorum endanum þegar bornar eru saman hagtölur ríkja Efnahags- og framfarastofunarinnar OECD og það á líka við um verkföll. Á tímabili áttu Íslendingar þar metið á meðan fyrirbærið þekktist varla í Sviss. En hvers vegna fara Svisslendingar ekki í verkföll, Jón Björgvinsson leitaði svara við því.
Ríkisstjórnin var mynduð til að viðhalda ríkjandi ástandi sem hún sjálf kallar stöðugleika, hún er ríkisstjórn kyrrstöðu og íhaldssemi segir Guðundur Andri Thorsson varaþingflokksformaður Samfylkingarinnar. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir að stjórnmálin skuldi þjóðinni breytingar á stjórnarskrá. Flestir farþeganna sem lentu í rútuslysi á Kjalarnesi í gærkvöldi voru í bílbelti, og því fór ekki verr segir Ásgeir Þór Ásgeirsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Jóhann Bjarni Kolbeinsson ræddi við hann. Forsætisráðherra Bretlands ætlar að reyna enn og aftur að fá fram breytingar á samningnum um Brexit, útgöngu Breta úr Evrópusambandinu. Björn Malmquist segir frá. Rauði krossinn hefur vart undan við að tæma fatagáma og flokka föt sem fólk gefur frá sér. Tuttugu feta gámar hjá Sorpu fyllast iðulega á innan við viku. Alma Ómarsdóttir talar við Björgu Kjartansdóttur, sviðsstjóra hjá Rauða krossinum og Guðbjörgu Rut Pálmadóttur flokkunarstjóra Rauða krossins. Ekki er ráðlegt að líta á endurvinnslu sem lausn á þeim mikla vanda sem óhófleg plastnotkun jarðarbúa er. Vandamálið er of mikil notkun á plasti, segir Birgitta Stefánsdóttir sem starfar á sviði loftslagsmála og græns samfélags hjá Umhverfisstofnun. Verð á endurunnu plasti hefur lækkað að undanförnu. Forstjóri RARIK bindur vonir við að leið finnist til að leggja ljósleiðara til Mjóafjarðar næsta haust. Neyðarlínan og landeigandinn hafa ekki náð samkomulagi um lagnaleiðina en RARIK kannar hvort hægt sé að lækka kostnað og minnka rask með því að saga ofan í berg fyrir strengjunum á erfiðustu köflunum. Rúnar Snær Reynisson segir frá. Forseti Sri Lanka segir að barátta stjórnvalda á Filippseyjum gegn eiturlyfjum sé til mikillar fyrirmyndar og að hann hafi í hyggju að fylgja því fordæmi. Alþjóðaglæpadómstóllinn rannsakar hins vegar hvort stjórnvöld á Filippseyjum séu sek um glæpi gegn mannkyni. Jóhann Hlíðar Harðarson segir frá. ------------ Efnahags-, skatta- og atvinnumálanefnd miðstjórnar Alþýðusambandsins leggur til að tekið verði upp fjögurra þrepa skattkerfi í stað tveggja eins og nú er. Miðað er við að skatttekjur ríkisins verði eftir sem áður þær sömu. Horfið er frá kröfunni um að lægstu laun verði skattfrjáls. Forsætisráðherra sagði á Alþingi í dag að von væri á tillögum ríkisstjórnarinnar um skattkerfisbreytingar sem myndu gagnast þeim tekjulægstu. Arnar Páll Hauksson segir frá og heyrist í Katrínu Jakobsdóttur, forsætisráðherra. Í dag kynnti Theresa May forsætisráðherra Breta þinginu næstu skref sín í útgöngu B
Spegillinn 29. ágúst 2018 Fréttir: Þó að rekstur flugfélaganna verði erfiðari, þýðir það ekki að hér verði kollsteypa, segir Már Guðmundsson seðlabankastjóri. Gjaldeyrisforðinn sé stærri en nokkru sinni, skuldastaða ríkissjóðs betri en hún hefur verið lengi og eiginfjárstaða bankanna sé góð. Ragnhildur Thorlacius. Eftir 500 daga á hlutdeild endurnýjanlegra orkugjafa í samgöngum hér á landi að vera orðin tíu prósent. Horfurnar á því að markmiðið náist eru ágætar. Árangurinn skrifast þó ekki nema að örlitlu leyti á fjölgun vistvænna bíla. Ísland er næstum best í heimi þegar kemur að nýskráningum rafbíla en enn eru margar hindranir í veginum. Arnhildur Hálfdánardóttir ræðir við Guðna A. Jóhannesson, orkumálastjóra, og Egil Jóhannsson, forstjóra Brimborgar. Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir Tæknimaður: Ragnar Gunnarsson.
Samband íslenskra sveitarfélaga og Samtök orkusveitarfélaga halda málþing um vindorku og orkumannvirki á morgun. Það er auðvitað að mörgu að hyggja ef beisla á vindinn. Fráfarandi sveitarstjóri í Rangárþingi eystra, Ísólfur Gylfi Pálmason, sem verður fundarstjóri á morgun, ræddi áhuga sveitarfélaga á vindorkunni. - Chet Baker og félagar fluttu lagið With the wind and the rain in your hair. - Útganga Breta úr Evrópusambandinu er og verður ekki þrautalaus, eins og fram kom í spjalli Boga Ágústssonar um heimsmálin upp úr hálfátta. Fríverslunarmál og tollar þvælast fyrir og hvernig hátta eigi til á landamærum á Írlandi. Bretar eru klofnir í margar fylkingar vegna Brexit. Bogi talaði líka um nýafstaðna norræna hátíðisdaga - í Danmörku og Svíþjóð. - Hlutverk Tækniþróunarsjóðs er að styðja þróunarstarf og rannsóknir á sviði tækniþróunar sem miða að nýsköpun í íslensku atvinnulífi. Markmiðið er að auka fjölbreytni atvinnulífsins og koma fótum undir þekkingar- og hátæknistarfsemi af ýmsu tagi. En hvernig gengur það - og hvað er í pípunum? Hrund Gunnsteinsdóttir, stjórnarformaður, og Sigurður Björnsson, sviðsstjóri nýsköpunar- og rannsóknasviðs Rannís, ræddu nýsköpunarstarfið og styrkina. - "Efnahagsástandið hér á landi er á flesta mælikvarða mjög gott. Hagvöxtur hefur verið kröftugur og verðbólga lág síðustu ár. Á næstu árum er útlit fyrir að það hægi allnokkuð á hagvexti en verðbólguhorfur eru almennt góðar. Ekki er þörf fyrir sérstaka aðlögun eða lendingu hagkerfisins. Skuldastaða heimila, fyrirtækja, ríkissjóðs og þjóðarbúsins í heild er með besta móti." Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri þjóðhags- og verðbólguspá Hagfræðideildar Landsbankans. Rætt var um ástand og horfur í efnahagsmálum við hagfræðinga bankans: Daníel Svavarsson og Gústaf Steingrímsson.
Þátturinn hófst á spjalli við Frey Eyjólfsson tíðindamann Morgunvaktarinnar í New York. Einkum var rætt um afstöðu Bandaríkjamanna til deilu Ísraela og Palestínumanna og þá ákvörðun bandarískra stjórnvalda að flytja sendiráð sitt í Ísrael frá Tel Aviv til Jerúsalem en einnig hnignandi stöðu gula leigubílsins í stórborginni en þetta einkennismerki hennar til áratuga hefur látið undan fyrir Uber og öðrum slíkum samgöngufyrirtækjum. Rætt var um efnahagsmál vítt og breitt við Jón Bjarka Bentsson, aðalhagfræðing Íslandsbanka, í tilefni af vaxtaákvörðunardegi Seðlabanka Íslands. Jón bjóst við að vextirnir yrðu óbreyttir (sem varð raunin) enda gæfi ástand efnahagskerfisins tilefni til þess. Hann sagði vextina nú sögulega lága. Efnahagsástandið er almennt gott að mati Jóns, hagvöxtur t.d. ágætur, verðbólga lítil og atvinnuástand gott. Enn væri vöxtur í einkaneyslu en öfugt við það sem var fyrir áratug væri hún staðgreidd en ekki tekin að láni. Helga Rakel Rafnsdóttir kvikmyndagerðarkona sagði frá heimildarmyndahátíðinni Skjaldborg sem haldin er í tólfta sinn á Patreksfirði um Hvítasunnuhelgina. Hún talaði líka almennt um heimildarmyndir sem eru af allskonar og ólíku tagi. Þættinum lauk á viðtali Sunnu Valgerðardóttur við þrjá sveitarstjóra í Eyjafirði: EIrík H. Hauksson í Svalbarðsstrandarhreppi, Ólaf Rúnar Ólafsson í Eyjafjarðarsveit og Snorra Finnlaigsson í Hörgársveit, í tilefni af kosningunum 26. maí. Tónlist: Big yellow taxi - Joni Mitchell My funny Valentine - Chet Baker
Formaður velferðarnefndar vill að Bragi Guðbrandsson hætti strax við framboð til Barnaréttarnefndar Sameinuðu þjóðanna. Hann njóti ekki lengur trausts. Félgasmálaráðherra vill bíða niðurstöðu óháðrar úttektar á afskiptum Braga af barnaverndarmáli. Fyrri ljósbogaofn kísilvers PCC á Bakka verður settur í gang í kvöld. Tekist hefur að leysa ýmis vandamál sem komið hafa upp síðustu daga og tafið fyrir gangsetningu. Tollar á fjölmargar tegundir matvöru frá Evrópusambandinu verða lækkaðir eða afnumdir á morgun. Formaður Félags atvinnurekenda segir að neytendur muni finna vel fyrir breytingunum. Efling, VR og Verkalýðsfélags Akraness munu krefjast þess í komandi kjarasamningum að lög verði sett til að tryggja réttindi leigjenda. Eftir margra ára þrengingar sjást loksins vísbendingar um efnahagsbata í Grikklandi, að mati Efnahags- og framfarastofnunarinnar í París. Breskir ráðherrar komast sjaldnast upp með að greina þinginu rangt frá og ,,óvart" er engin afsökun eins og Amber Rudd fyrrum innanríkisráðherra fékk að reyna. Votlendissjóður var formlega stofnaður á Bessastöðum í dag. Fyrsta verkefni sjóðsins verður að endurheimta votlendi í Fjarðabyggð. Ráðherra fyrir velferðarnefnd. Arnhildur Hálfdánardóttir segirf rá og ræðir við Halldóru Mogensen og Ásmund Einar Daðason. Afsögn Amber Rudd innanríkisráðherra Bretlands. Sigrún Davíðsdóttir segir frá. Votlendissjóður stofnaður. Arnar Páll ræðir við Ásbjörn Björgvinsson framkvæmdastjóra sjóðsins.
Morgunvaktin mánudaginn 22. janúar 2018 Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson Þátturinn hófst á Lundúnarspjalli Sigrúnar Davíðsdóttur. Hún sagði fyrst frá gjaldþrota risaverktakafyrirtæksins Carillion sem annast hefur verklegar framkvæmdir en einnig margvíslega þjónustu í umboði hins opinbera. Þrotið vekur upp umræður um slíkt fyrirkomulag og hvort rétt sé að ríkið veiti þjónustuna sjálft í stað þess að útvista henni til einkafyrirtækja. Hún sagði einni frá heimsókn Macrons Frakklandsforseta til May forsætisráðherra Bretlands og óróleika innan forystu Ukip-flokksins. Óli Björn Kárason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, spjallaði um pólitíkina í tilefni þess að þing kemur saman í dag eftir jólaleyfi. Einkum var rætt um efnahagsmál og skatta. Efnahagsástandið er gott en Óli Björn sagði tiltekin merki á lofti um að útflutningsgreinarnar hefðu ekki staðið undir hagvextinum á þriðja ársfjórðungi síðasta árs, sem væri áhyggjuefni. Hann sagði tímabært að endurskoða skattkerfið; koma á einu skattþrepi en stilla það af með stiglækkandi persónuafslætti. Vera Illugadóttir sagði frá stjórnmálunum í indverska fylkinu Tamíl Nadú. Þar búa yfir 70 milljónir manna og dýrkun á kvikmyndastjörnum er útbreidd. Leikarar hafa einmitt látið að sér kveða í pólitíkinni síðustu áratugi og ein skærasta stjarnan á því sviðið sækist einmitt eftir að verða næsti fylkisstjóri. Inga Hlín Pálsdóttir, forstöðumaður hjá Íslandsstofu, sagði frá fyrirhuguðu markaðsátaki í tengslum við þátttöku Íslands á HM í fótbolta í Rússlandi. Stjórnvöld eru reiðubúin að leggja fram 200 milljónir króna gegn því að einkaaðilar leggji fram sömu fjárhæð. Umfjöllunin erlendra fjölmiðla um Ísland í kringum þátttökuna á EM í Frakklandi 2016 var metin á 20 milljarða króna. Tónlist: Vagg og velta - Erla Þorsteins. Hland fyrir hjartað - Jóel Pálsson.