Podcasts about lev gunnarsson

  • 13PODCASTS
  • 82EPISODES
  • 1h 38mAVG DURATION
  • 1MONTHLY NEW EPISODE
  • May 25, 2025LATEST

POPULARITY

20172018201920202021202220232024

Best podcasts about lev gunnarsson

Latest podcast episodes about lev gunnarsson

Rauða borðið
Synir Egils 25. maí - Stjórnin, stjórnarandstaðan, flóttabörn og mótmæli

Rauða borðið

Play Episode Listen Later May 25, 2025 129:42

Sunnudagurinn 25. maí Synir Egils: Stjórnin, stjórnarandstaðan, flóttabörn og mótmæli Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og stöðuna í stjórnmálum. Að þessu sinni koma þau Helga Vala Helgadóttir lögmaður, Helen María Ólafsdóttir öryggissérfræðingur og Björn Leví Gunnarsson tölvunarfræðingur og fyrrum þingmaður og ræða fréttir vikunnar og stjórnmálaástandið. María Lílja ræðir síðan við Sonju Magnúsdóttur og Svavar Jóhannsson, fósturforeldra Oscars Bocanegra Florez frá Kólumbíu, sem vísa á úr landi. Í lokin fara þeir bræður síðan yfir pólitíkina með sínu nefi.

bj magn sigurj egils helga vala helgad lev gunnarsson
Rauða borðið
Rauða borðið 19. maí: Gaza, geðheilsa, málþóf, óþekkti þingmaðurinn, sósíalismi og torfbær

Rauða borðið

Play Episode Listen Later May 19, 2025 316:24

Rauða borðið 19. maí Gaza, geðheilsa, málþóf, óþekkti þingmaðurinn, sósíalismi og torfbær Ennþá versnar ástandið á Gaza, María Lilja fylgist náið með næstu daga. Í kvöld fær hún til sín Kötlu Ásgeirsdótttur, plötusnúð og aktívista og fara þær yfir nýjustu fréttir. Þá er endurflutt ræða Páls Óskars frá liðinni helgi. Ræðan var frumflutt á baráttufundi fyrir frelsi Palestínu fyrir gesti við Austurvöll. Elín Ebba Ásmundsdóttir varaformaður Geðhjálpar mætti ásamt listamönnunum Ægi Mána Bjarnasyni og Karli Kristjáni Dávíðssyni, auk Kolbrúnar Guðmundsdóttur, konu Karls Kristjáns, að tala um geðheilbrigðismál. Þau segja okkur frá nýrri viðbót í geðheilbrigðisþjónustu, jafningjastuðningsins, ásamt því að fara yfir fordóma, heimilisleysi og fleiri áskoranir sem fólk með geðrænar áskoranir þarf oft að glíma við auk veikinda sinna. Björn Leví Gunnarsson, tölvunarfræðingur, fyrrum þingmaður, útskýrir fyrir okkur mikilvægi málþófsins á Alþingi og ræðir um júróvisjón-atkvæðin, nefndirnar, skautunina, vókið og tilfinningatjáningu, áróður og gagnsæi. Snorri Másson ræðir við Björn Þorláks sem óþekkti þingmaðurinn þessa vikuna. Skoðanir Snorra eru umdeildari en gengur og gerist. Hver er maðurinn á bak við pólitíkina? Eyjólfur Eyvindsson kemur í vikulegt spjall við Maríu Lilju með fréttir af hnattræna suðrinu. Hannes Lárusson myndlistarmaður ólst upp í torfbæ til tíu ára aldurs. Hann lítur íslenska torfbæinn öðrum og jákvæðari augum en margir aðrir Íslendingar eins og fram kemur í samtali hans og Björns Þorlákssonar og vill að torfbærinn fari á heimsminjaskrá UNESCO.

Rauða borðið
Synir Egils 23. mars - Afsögn ráðherra og staðan í pólitíkinni

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Mar 23, 2025 69:27

Sunnudagur 23. mars Synir Egils: Afsögn ráðherra og staðan í pólitíkinni Fjórir gestir koma í þáttinn Synir Egils að þessu sinni. Þau eru: Birta Björnsdóttir yfirmaður erlendra frétta, Svanborg Sigmarsdóttir framkvæmdastjóri Viðreisnar, Jakob Bjarnar Grétarsson blaðamaður og Björn Leví Gunnarsson fyrrverandi þingmaður. Staða Ásthildar Lóu Þórsdóttur munu örugglega rata á góma gestanna. Mörg önnur mál bíða umfjöllunnar og verða því á dagskrá þáttarins.

Rauða borðið
Rauða borðið 17. febrúar: Ræstingar, fjölmiðlar misbeiting valds, Heim og pólitík

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Feb 17, 2025 254:49

Mánudagur 17. febrúar Ræstingar, fjölmiðlar misbeiting valds, Heim og pólitík Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar lýsir fyrir Gunnar Smára hvernig ræstingarfyrirtæki hafa grafið undan lífskjörum ræstingakvenna og í ofan á lag haft af þeim umsamdar kjarabætur. Hiti varð í umræðunni við Rauða borðið vegna Moggans og innflytjendamála í dag þegar Valur Grettisson Heimildinni, María Lilja Ingveldar Þrastardóttir Kemp Samstöðinni og Ólafur Arnarson DV, gestir Björns Þorlákssonar létu gamminn geisa í umræðu um fjölmiðla. Björn Leví Gunnarsson fyrrverandi þingmaður Pírata tekur stöðuna í stjórnmálunum, ræðir við Oddnýju Eir um misnotkun valds og óhjákvæmilega sprengingu. Hrafnhildur Hagalín Guðmundsdóttir leikskáld og Magnús Geir Þórðarson leikstjóri og leikhússtjóri segja frá Heim, nýju verki Hrafnhildar í leikstjórn Magnúsar í spjalli við Gunnar Smára. Vilhjálmur Bjarnason fyrrum þingmaður ræddi um daginn og veginn við Sigurjón Magnús Egilsson og sagði honum sögur.

Bylgjan
Sprengisandur 12.01.2025 - Viðtöl þáttarins

Bylgjan

Play Episode Listen Later Jan 12, 2025 96:34

Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þesaum þætti: Elfa Ýr Gylfadóttir framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar og Björn Leví Gunnarsson fyrrverandi alþingismaður um samfélagsmiðla. Albert Jónsson fyrrverandi sendiherra og Pia Hansson forstöðumaður Alþjóðamálastofnunar um alþjóðamál. Diljá Mist Einarsdóttir alþingismaður og Sigurður Már Jónsson blaðamaður um stjórnmál. Ragnhildur Geirsdóttir forstjóri RB um öryggismál.

Bylgjan
Sprengisandur 08.12.2024 - Viðtöl þáttarins

Bylgjan

Play Episode Listen Later Dec 8, 2024 93:25

Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Már Wolfgang Mixa hagfræðingur um húsnæðismál. Ólafur Þ. Harðarson, próf. emeritus við HÍ, Birgir Ármannsson fráfarandi forseti Alþingis og Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur um kosningar og lýðræðismál. Líf Magneudóttir borgarfulltrúi VG og Björn Leví Gunnarsson fráfarandi þingmaður Pírata um stjórnmál. Guðbjörg Pálsdóttir formaður Félags hjúkrunarfræðinga og Jón Magnús Kristjánsson bráðalæknir um heilbrigðismál.

Rauða borðið
Rauða borðið 2. des - Nýir þingmenn, vinstrið, Píratar og ástandið

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Dec 2, 2024 193:24

Mánudagur 2. desember Nýir þingmenn, vinstrið, Píratar og ástandið Sigurjón Magnús Egilsson fær til sín nýja þingmenn og ræðir við þá um pólitíkina: Ólafur Adólfsson frá Sjálfstæðisflokki, Jón Gnarr frá Viðreisn, Ása Berglind Hjálmarsdóttir frá Samfylkingu og Halla Hrund Logadóttir frá Framsókn. Ögmundur Jónasson fyrrum ráðherra VG fer yfir stöðu vinstrisins og Björn Leví Gunnarsson fyrrum þingmaður Pírata metur hvað fór úrskeiðis hjá þeim flokki. Guðrún Jónína Magnúsdóttir segir okkur svo frá því stúlkur máttu þola á ástandsárunum.

Rauða borðið
Rauða borðið 20. nóv - Kosningar, almenningur, húsnæði og Davíð Þór

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Nov 21, 2024 188:00

Miðvikudagurinn 20. nóvember Kosningar, almenningur, húsnæði og Davíð Þór Gísli Tryggvason lögmaður, Atli Þór Fanndal almannatengill, Kristín Eiríksdóttir skáld og Sunna Sæmundsdóttir fréttakona koma að Rauða borðinu og greina kosningabaráttu sem er uppfull af hneykslum. Almenningur verður spurður og Oddný Eir Ævarsdóttir fær Yngva Ómar Sighvatsson frá Leigjendasamtökunum til að yfirheyra frambjóðendur um húsnæðismál og athuga hvað flokkarnir bjóða upp á sem alvöru lausn í húsnæðiskrísunni miklu. Björn Leví Gunnarsson þingmaður Pírata, Ágúst Bjarni Garðarsson, þingmaður Framsóknar og Guðmundur Hrafn Arngrímsson frambjóðandi Sósíalistaríða á vaðið og takast á við vandann. Í lokin ræðir Sigurjón Magnús Egilsson við Davíð Þór Jónsson prest og oddvita Sósíalista í Suðvesturkjördæmi.

Bylgjan
Sprengisandur 10.11.2024 - Viðtöl þáttarins

Bylgjan

Play Episode Listen Later Nov 10, 2024 94:18

Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Sigþór Sigurðsson framkvæmdastjóri um innviðamál. Bryndís  Ísfold stjórnmálafræðingur og Þorsteinn Þorgeirsson hagfræðingur um bandarísk stjórnmál. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir og Björn Leví Gunnarsson alþingismenn og Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR um stjórnmál. Valur Gunnarsson rithöfundur um alþjóðamál.

Rauða borðið
Rauða borðið 30. sept - Umboðsmaður Alþingis, píratar, lýðræðið, samgöngur og þýðingar

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Sep 30, 2024 243:08

Fimmtudagurinn 26. september Rauða borðið: Umboðsmaður Alþingis, píratar, lýðræðið, samgöngur og þýðingar Í dag er síðasti dagurinn sem Skúli Magnússon umboðsmaður Alþingis getur talað frjálst. Við ræðum við Skúla um meðal annars Yazan-málið. Björn Leví Gunnarsson þingmaður pírata kemur og ræðir stemmninguna á Alþingi, fortíð og framtíð flokksins. Kristín Vala Ragnarsdóttir, prófessor emerita, Sölvi Halldórsson rithöfundur og kynningarfulltrúi RIFF, Valur Gunnarsson, sagnfræðingur og rithöfundur og Þórhildur Þorleifsdóttir, leikstjóri horfðu á franska heimildarmynd um búsáhaldarbyltinguna og lýðræðistilraun sem ekki er lokið. Þau ræða máli við Oddnýju Eir Ævarsdóttur. Gauti Kristmannsson, prófessor í þýðingafræði við Háskóla Íslands, fræðir okkur um störf þýðandans í tilefni af degi þýðenda. Og við endum á umræðu um samgöngur. Unnar Erlingsson, íbúi á Austurlandi ræðir reiði margra flugfarþega í innanlandsfluginu. Una Margrét Jónsdóttir dagskrárgerðarkona á Rúv og strætófarþegi slær svo botninn í þáttinn með því að lýsa veröld þeirra sem nota almenningssamgöngur á hverjum degi.

Rauða borðið
Rauða borðið 17. sept - Pólitískur skjálfti, mótmæli, breytt veðurkerfi og hávaði

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Sep 17, 2024 179:14

Þriðjudagurinn 17. september Pólitískur skjálfti, mótmæli, breytt veðurkerfi og hávaði Við Rauða borðið í kvöld ræðir Sigurjón Magnús Egilsson við þingmann og blaðamann um stöðu ríkisstjórnarinnar í kjölfar gríðarlegrar ólgu vegna fyrirhugaðrar brottvísunar fatlaða drengsins Yazan. Þeir Björn Leví Gunnarsson pírati og Aðalsteinn Kjartansson blaðamaður verða gestir Sigurjóns. Gunnar Smári Egilsson ræðir við fjölda mótmælenda sem hafa staðið vaktina í andófi gegn brottvísun Yazan. Þau Anna Lára Steindal, Daníel Þór Bjarnason, Kristbjörg Arna Elínardóttir Þorvaldsdóttir, María Lilja Ingveldar-Þrastardóttir Kemp og Pétur Eggerz Pétursson ræða baráttu fyrir mannréttindum og samkennd. Hvert veðurmetið á fætur öðru hefur verið slegið undanfarið. Áleitin spurning er hve mikil áhrif loftslagsbreytingar af mannavöldum hafa á veðrið og aðra þætti mannlegrar tilveru. Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur kemur og ræðir stóru spurningarnar við Björn Þorláks. Rauða borðinu lýkur svo með spjalli við Daða Rafnsson, meðlim samtaka sem berjast gegn óþörfum hávaða við Reykjavíkurflugvöll. Auðmannadekur ber á góma.

Vikulokin
Jóhann Friðrik Friðriksson, Rósa Björk Brynjólfsdóttir og Björn Leví Gunnarsson

Vikulokin

Play Episode Listen Later Jul 27, 2024 57:46

Gestir Vikulokanna eru Jóhann Friðrik Friðriksson þingmaður Framsóknarflokks, Rósa Björk Brynjólfsdóttir fyrrverandi þingmaður VG og Samfylkingarinnar og Björn Leví Gunnarsson þingmaður Pírata. Þau ræddu forsetakosningarnar í Bandaríkjunum, skautun í umræðu um stjórnmál, verðbólgu, verðandi forseta og Brimborg, samræmd próf og Ólympíuleikana í París. Umsjón: Höskuldur Kári Schram Tæknimaður: Kári Guðmundsson

Rauða borðið
Rauða borðið: Stríð breiðist út, þinglok og fatlað fólk í sögunni

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Jun 24, 2024 238:20

Mánudagurinn 24. júní Stríð breiðist út, þinglok og fatlað fólk í sögunni Hilmar Þór Hilmarsson prófessor og Tjörvi Schiöth doktorsnemi ræða stríðið í Úkraínu og skuldbindingar Íslands gagnvart því. Eru stjórnvöld að grafa undan öryggi landsins með stefnu sinni? Í síðasta Þingi Rauða borðsins fyrir sumarfrí verður farið yfir umdeild þingmál sem fóru í gegn á lokametrum vorþingsins. Þingmennirnir Björn Leví Gunnarsson, Inga Sæland og Sanna Magdalena Mörtudóttir borgarfulltrúi fara yfir stöðuna. Sólveig Ólafsdóttir doktor í sagnfræði segir okkur frá ritgerð sinni: Eitt hundrað og eina sögu af jaðri samfélagsins, sem fjallar um fatlað fólk í sögunni.

Rauða borðið
Lögregluárás, elítur, þingið og heimilisofbeldi

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Jun 3, 2024 227:08

Mánudagurinn 3. júní Lögregluárás, elítur, þingið og heimilisofbeldi Við ræðum við fólk sem tók þátt í friðsamri mótmælastöðu við ríkisstjórnarfund en varð fyrir piparúðaárás lögreglunnar. Qussay Odeh, Christa Hlín Lehmann, Daníel Þór Bjarnason, Lukka Sigurðardóttir, Pétur Eggerz og Bergþóra Snæbjörnsdóttir. Við förum síðan í uppgjör á umræðunni fyrir forsetakjör. Nanna Hlín Halldórsdóttir heimspekingur, Björn B. Björnsson kvikmyndagerðarmaður, Ásgeir Brynjar Torfason ritstjóri og Magnea Marinósdóttir alþjóðastjórnmálaræðingur ræða deilur um elítur, valdastéttir og kvenhatur. Í ÞINGINU í umsjón Björn Þorláks kryfja þrír þingmenn þingmál komandi daga og áhrif forsetakjörs á stjórnmálin: Vilhjálmur Árnason í Sjálfstæðisflokki, Björn Leví Gunnarsson. Pírötum og Sigmar Guðmundsson í Viðreisn fara yfir málin. Loks ræðum við samspil jafnréttis og kynbundins ofbeldis við Lindu Dröfn Gunnarsdóttur framkvæmdastýru Kvennaathvarfsins og Ingveldi Ragnarsdóttur ráðgjafi og vaktstýru athvarfsins.

Bylgjan
Sprengisandur 19.05.2024 - Viðtöl þáttarins

Bylgjan

Play Episode Listen Later May 19, 2024 97:33

Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Víðir Smári Petersen dósent við HÍ um dómsmál. Björn Leví Gunnarsson alþingismaður um stjórnmál. Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir alþimgismaður og Drífa Snædal talskona Stígamóta um mansalsmál. Sigurður Már Jónsson blaðamaður og Pawel Bartoszek vara-borgarfulltrúi um forsetakosbningar.

Rauða borðið
Vantraust, ólögmætar kosningar, breyskt fólk og kratar

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Apr 16, 2024 229:50

Þriðjudagurinn 16. apríl Vantraust, ólögmætar kosningar, breyskt fólk og kratar Við byrjum á spjalli við Björn Leví Gunnarsson og Ingu Sælandi um vantrauststillögu á ríkisstjórnina. Síðan koma þeir Guðmundur Gunnarsson og Magnús Davíð Norðdahl og ræða um sigur sinn fyrir Mannréttindadómstólnum. And Björk of course eftir Þorvald Þorsteinsson er komið í Borgarleikhúsið frá Akureyri. Við ræðum við aðstandendur verksins: Grétu Kristínu Ómarsdóttur leikstjóra og leikarana Sverri Þór Sverrisson og Maríu Hebu Þorkelsdóttir um erindi verksins. Í lokin kemur Gylfi Þór Gíslason krati og formaður verkalýðsmálafélags Samfylkingarinnar og ræðir breytingar á flokknum.

Vikulokin
Jóhann Páll Jóhannsson, Diljá Mist Einarsdóttir, Björn Leví Gunnarsson

Vikulokin

Play Episode Listen Later Dec 2, 2023 55:00

Gestir Vikulokanna eru Jóhann Páll Jóhannsson þingmaður Samfylkingarinnar, Diljá Mist Einarsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokks og Björn Leví Gunnarsson þingmaður Pírata. Þau ræddu framsal íslenskra ríkisborgara til útlanda, siðareglur þingmanna, efnahagsmál og þjóðarpúls Gallup um fylgi stjórnmálaflokka. Umsjónarmaður: Höskuldur Kári Schram Tæknimaður: Marteinn Marteinsson

Vikulokin
Jóhann Páll Jóhannsson, Diljá Mist Einarsdóttir, Björn Leví Gunnarsson

Vikulokin

Play Episode Listen Later Dec 2, 2023

Aukaþáttur:Afsögn Bjarna

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Oct 10, 2023 84:52

Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssyni taka á móti gestum og ræða afsögn Bjarna Benediktssonar og stöðuna í pólitíkinni: Meðal gesta: Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Þóra Kristín Ásgeirsdóttir, Ólína Kerúld Þorvarðardóttir, Helga Vala Helgadóttir, Stefán Pálsson og Björn Leví Gunnarsson.

Bylgjan
Sprengisandur 01.10.2023 - Viðtöl þáttarins

Bylgjan

Play Episode Listen Later Oct 1, 2023 98:17

Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Ásgeir Brynjar Torfason ritstjóri Vísbendingar um efnahagsmál. Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra um innflytjendamál.   Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Björn Leví Gunnarsson alþingismaður um stjórnmál.   Fida Abu Libdeh framkvæmdastjóri GeoSilica um konur í atvinnurekstri.

bj gu katr kristj jakobsd hafsteinsd brynjar torfason lev gunnarsson
Bylgjan
Sprengisandur 27.08.2023 - Viðtöl þáttarins

Bylgjan

Play Episode Listen Later Aug 27, 2023 94:09

Kristján Kristjánsson stýrir skeleggri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti:   Orkumál Guðmundur Ingi Ásmundsson forstjóri Landsnets.   Verkalýðsmál Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR.   Stjórnmál Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins.   Stjórnmál Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir þingmaður Viðreisnar og Björn Leví Gunnarsson þingmaður Pírata.

vr bj sj ing stj kristj sigr ingi gunnlaugsd verkal lev gunnarsson landsnets
Bylgjan
Sprengisandur 26.03.2023 - Viðtöl þáttarins

Bylgjan

Play Episode Listen Later Mar 26, 2023 95:58

Kristján Kristjánsson stýrir skeleggri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti:    Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir iðnaðar, háskóla og nýsköpunarráðherra um háskólamál.      Guðmundur Ingi Ásmundsson forstjóri Landsnets um orkudreifingu.      Kristján Þórður Snæbjarnarson forseti ASÍ, Friðrik Jónsson fomaður BHM og Anna Hrefna Ingimundardóttir aðstoðarframkvæmdastjóri SA um efnahagsmál.          Vilhjálmur Árnason alþingismaður og Björn Leví Gunnarsson alþingismaður um rafbyssumálið.

bj gu sn bhm kristj ingi vilhj lev gunnarsson landsnets
Jákastið
#70 Björn Leví Gunnarsson

Jákastið

Play Episode Listen Later Mar 14, 2023 65:51

Gestur minn þessa vikuna er Björn Leví Gunnarsson. Björn er varaformaður þingflokks Pírata, alþingismaður, tölvunarfræðingur og margt fleira. Hann er gjörsamlega frábær og magnaður. Það var yndislegt, gott, gaman, fræðandi og áhugavert að spjalla við Björn. Þú ert frábær! Ást og friður. 

bj hann gestur lev gunnarsson
Bylgjan
Sprengisandur 29.01.2023 - Viðtöl þáttarins

Bylgjan

Play Episode Listen Later Jan 29, 2023 97:54

Sprengisandur 29.01.2023  Kristján Kristjánsson stýrir skeleggri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti:     Lárus Welding fyrrverandi bankastjóri Íslandsbanka um bankahrunið. Ásmundur Einar Daðason mennta- og barnamálaráðherra um þjóðarhöll í íþróttum. Drífa Snædal fyrrverandi forseti ASÍ og Katrín Ólafsdóttir dósent við HR um vinnudeilur og kjaramál.    Björn Leví Gunnarsson alþingismaður og Arnar Þór Jónsson lögmaður um málfrelsi og hatursorðræðu.

bj sn welding katr kristj arnar einar da lev gunnarsson
Vikulokin
Björn Leví, Inga Sæland og Þorgerður Katrín

Vikulokin

Play Episode Listen Later Oct 1, 2022 55:00

Sunna Valgerðardóttir ræðir við Björn Leví Gunnarsson, þingmann Pírata, Ingu Sæland, formann Flokks fólksins, og Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, formann Viðreisnar, um mál vikunnar. Forvirkar rannsóknarheimildir og rafbyssuvæðing lögreglu, þingmálin, Strætó, úrsagnir úr Flokki fólksins og efnahagsástandið eru til umræðu. Tæknimaður er Jökull Karlsson.

land bj str karlsson katr gunnarsd lev gunnarsson sunna valger
Vikulokin
Björn Leví, Inga Sæland og Þorgerður Katrín

Vikulokin

Play Episode Listen Later Oct 1, 2022

Bankaokur, Píratar, Brasilía og orkukreppa

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Sep 19, 2022 117:57

Breki Karlsson kemur að Rauða borðinu og ræðir okur bankanna. Luciano Dutra segir okkur frá spennandi forsetakosningum í Brasilíu í haust og þau Halldóra Mogensen og Björn Leví Gunnarsson koma til að fara yfir tíu ára sögu Pírata. Og meta hvert þeir stefna. Við ræðum um orkukreppuna í Noregi við Eyjólf Ármannsson og undirskriftasöfnun til stuðning við baráttu Erlu Bolladóttur við Maríönnu Friðjónsdóttur. Við förum líka yfir fréttir dagsins og segjum skattafréttir.

brasil bj rau halld mogensen noregi eyj lev gunnarsson breki karlsson
Rauða borðið
Rauða borðið - Fjárlög, leikskólar, mótorhjól og ofskynjunarsveppir

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Sep 13, 2022 116:34

Stjórnarandstaðan gagnrýnir fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar við Rauða borðið: Björn Leví Gunnarsson, Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir og Jóhann Páll Jóhannsson. Er þetta gott frumvarp eða vont? Hættulegt eða skaðlaust? Hörður Svavarsson margreyndur leikskólamaður ræðir leikskólakreppuna, Árný Jóhannesdóttir læknir segir frá ofskynjunarsveppum sem gætu læknað þunglyndi og kvíða og þrír mótorhjólamenn segja frá okri tryggingarfélaganna. Við segjum líka frá pizzum í okurlandinu Íslandi, segjum frá hvernig skattur á lágmarkstekjur óx á nýfrjálshyggjuárunum og förum yfir helstu fréttir dagsins.

Bylgjan
Sprengisandur 28.08.2022 - Viðtöl þáttarins

Bylgjan

Play Episode Listen Later Aug 28, 2022 96:51

Kristján Kristjánsson stýrir skeleggri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Árni Snorrason veðurstofustjóri um freðhvolfið. Stefán Jón Hafstein rithöfundur um heiminn, matinn og misskiptinguna. Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar um verkalýðsmál. Björn Leví Gunnarsson og Njáll Trausti Friðbertsson alþingismenn um flugvallarmál.  

Heimildavarp RÚV
Ef þú giftist - 4.þáttur

Heimildavarp RÚV

Play Episode Listen Later Aug 23, 2022

Eilífðin í augnablikinu Er hægt að segja að hjónabandiið sé tímaskekkja þegar rúmlega 3500 manns velja að ganga í það á hverju ári? Eða þarf að breyta því og aðlaga að nútíma og framtíð? Í fjórða þætti Ef þú giftist sem fjallar um framtíð hjónabandsins er rætt við Hrefnu Friðriksdóttur prófessor, Björn Leví Gunnarsson alþingismann og konu sem er í fjölkæru (polyamorous) hjónabandi. Hjón þáttarins eru Magnús Örn Sigurðsson og Sólveig Ásta Sigurðardóttir. Umsjón: Brynhildur Björnsdóttir.

er bj ef hj magn sigur eil umsj brynhildur bj lev gunnarsson

Vikulokin 23. júlí 2022

Vikulokin

Play Episode Listen Later Jul 23, 2022 55:00

Gestir þáttarins eru Vilhjálmur Árnason þingmaður Sjálfstæðisflokks, Heiða Björg Hilmisdóttir borgarfulltrúi og varaformaður Samfylkingarinnar og Björn Leví Gunnarsson þingmaður Pírata. Umsjón: Höskuldur Kári Schram Tæknimaður: Þorbjörn Gísla Kolbrúnarson

Vikulokin
Vikulokin 23. júlí 2022

Vikulokin

Play Episode Listen Later Jul 23, 2022

23.07.2022

Sprengisandur 01.05.2022 - Viðtöl þáttarins

Bylgjan

Play Episode Listen Later May 1, 2022 96:46

Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Ingibjörg Sólrun Gísladóttir fyrrvrandi utanríkisráðherra um alþjóðamál. Björn Leví Gunnarsson og Bryndís Haraldsdóttir alþingismenn um Íslandsbankamálið. Einar Þorsteinsson Framsóknarflokki, Reykjavík, Ásdís Kristjánsdóttir Sjálfstæðisflokki, Kópavogi og Guðmundur Árni Stefánsson Samfylkingu, Hafnarfirði um sveitastjórnarmál. Erna Bjarnadóttir hagfræðingur um matvælaverð framtiðar.

Spegillinn
Fjármálaáætlun og skólaþjónusta

Spegillinn

Play Episode Listen Later Mar 29, 2022

Fjármálaáætlun næstu ára er óraunhæf að dómi stjórnarandstöðunnar og stuðlar ekki að velferð. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, (M) segir hana byggjast á óskhyggju síðasta árs, Ásthildur Lóa Þórsdóttir (F) saknar aðgerða fyrir heimilin. Rússnesk stjórnvöld eru ekki reiðubúin að hleypa mannúðaraðstoð til hafnarborgarinnar Mariupol að svo stöddu. Forseti Frakklands ræddi þessi mál við Pútín Rússlandsforseta í síma í dag. Dagný Hulda Erlendsdóttir tók saman. Breyting á skipulagi og framkvæmd leghálsskimunar í byrjun síðasta árs misfórst að dómi læknafélags Íslands; Svo virðist sem yfirsýn og verkefnastjórnun hafi brugðist hjá heilbrigðisráðuneytinu. Urður Örlygsdóttir tók saman og talaði við Reyni Tómas Geirsson formann vinnuhóps Læknafélagsins. Seðlabankastjóri vill að dregið verði úr verðtryggðum fasteignalánum og helst að lífeyrissjóðir minnki umsvif á lánamarkaði. Hafdís Helga Helgadóttir tók saman af fundi efnahags og viðskiptanefndar. Nýting auðlinda Breiðafjarðar verður í forgrunni Þekkingar- og rannsóknaseturs sem stefnt er að í Stykkishólmi. Elsa María Guðlaugs Drífudóttir talaði við Jakob Björgvin Jakobsson, bæjarstjóra í Stykkishólmi. ------- BJarkey Olsen Gunnarsdóttir, formaður fjárlaganefndar segir að auka þurfi framboð á íbúðalóðum til að bregðast við húsnæðisvandanum. Það sé þó gleðilegt hversu margir fyrstu kaupendur hafi komist inn á markaðinn á seinasta ári. Björn Leví Gunnarsson, (P) segir vandann hafa aukist og röðina inn á húsnæðismarkaðinn einungis hafa lengst. Bjarni Rúnarsson ræðir við þau um nýkynnta fjármálaáætlun. Áhersla í skólaþjónustu sveitarfélaga síðastliðinn aldarfjórðung hefur færst yfir í það að taka frekar á vanda nemenda en að styðja kennara og veita þeim ráðgjöf. Þetta sýna niðurstöður rannsóknar Háskólans á Akureyri. Kristján Sigurjónsson ræðir við Hermínu Gunnþórsdóttur, prófessor við HA. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Jón Þór Helgason. Stjórn útsendingar frétta: Valgerður Þorsteinsdóttir.

Play Episode Listen Later Mar 29, 2022 10:27

Sprengisandur 27.03.2022 - Viðtöl þáttarins

Bylgjan

Play Episode Listen Later Mar 27, 2022 99:37

Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Brynja Huld Óskarsdóttir sérfræðingur í varnar- og öryggismálum og Jón Ólafsson prófessor við HÍ um Úkraínu. Þórdís Kolbrún Reykjafjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra um Úkraínu og utanríkismál. Hildur Sverrisdóttir og Björn Leví Gunnarsson alþingismenn um söæu á Íslandsbanka. Linda Fanney Valgeirsdóttir framkvæmdastýra Alor um orkumál og loftslagsmál.

Bylgjan
Sprengisandur 28.11.2021 - Viðtöl þáttarins

Bylgjan

Play Episode Listen Later Nov 28, 2021 85:57

Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Stjórnmálin: Björn Leví Gunnarsson, Vilhjálmur Árnason, Líneik Anna Sævarsdóttir og Þórunn Sveinbjarnardóttir alþingismenn. Kári Stefánsson forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar um nýtt afbrigði veirunnar og heilbrigðiskerfið. Fida Abu Libdeh stofnandi og framkvæmdastýra Geosilica Guðný Birna Guðmundsdóttir bæjarfulltrúi í Reykjanesbæ og stjórnarformaður HS veitna.  

Spegillinn
23, nóvember 2021, Kjörbréfanefnd og þingsetning

Spegillinn

Play Episode Listen Later Nov 23, 2021 9:37

Ágreiningur er um greinargerð undirbúningsnefndar um rannsókn kjörbréfa. Birgir Ármannsson formaður kjörbréfanefndar telur meirihluta nefndarmanna vilja staðfesta kjörbréf miðað við seinni talninguna. Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata og nefndarmaður í undirbúningskjörbréfanefnd skrifaði ekki undir greinargerðina. Anna Lilja Þórisdóttir talaði við Björn Leví. Bjarni Rúnarsson tók saman. Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands hvatti þjóðina til samstöðu í faraldrinum við þingsetningu í dag. Réttur til að sýkja aðra sé rangsnúinn réttur. Bjarni Pétur Jónsson tók saman. Magnús Lárusson, hrossabóndi efast um að mynd svissneskra dýrverndarsamtaka um blóðtökur úr fylfullum hryssum sýni viðtekin vinnubrögð. Hjördís Rut Sigurjónsdóttir ræddi við hann. Sigríður Björnsdóttir, dýralæknir hjá Matvælastofnun segir það mikil vonbrigði að sjá alvarlega farið á svig við reglur um dýravelferð í myndinni. Þriðjungur atvinnutónlistarmanna í Bretlandi hefur engar tekjur haft frá því að heimsfaraldurinn braust út. Ásgeir Tómasson sagði frá. ------------ Skiptar skoðanir eru í kjörbréfanefnd um staðfestingar kjörbréfa og Þórunn Sveinbjarnardóttir fulltrúi Samfylkingarinnar hallast að því að Alþingi eigi ekki að samþykkja öll kjörbréf á fimmtudaginn; það þýddi þá uppkosningu í Norðvesturkjördæmi. Diljá Mist Einarsdóttir, fulltrúi Sjálfstæðisflokks telur frekar að samþykkja eigi kjörbréfin 63 sem Landskjörstjórn gaf út. Anna Kristín Jónsdóttir talaði við þær. Götulistaverk í Madrid á Spáni hefur enn á ný valdið deilum og sárindum á milli þeirra sem vilja gera upp valdatíma Frankós á síðustu öld og þeirra sem vilja láta kyrrt liggja. Kristján Sigurjónsson segir frá. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Jón Þór Helgason. Stjórn útsendingar fréttahluta: Björg Guðlaugsdóttir.

Spegillinn
23, nóvember 2021, Kjörbréfanefnd og þingsetning

Spegillinn

Play Episode Listen Later Nov 23, 2021

Ein Pæling
#81 Kosningaspjall - Píratar (Viðtal við Björn Leví Gunnarsson)

Ein Pæling

Play Episode Listen Later Sep 12, 2021 62:44

Þórarinn ræðir kosningamál við Björn Leví Gunnarsson. Rætt er um Nýju stjórnarskránna, heilbrigðismál, atvinnumál og fleira.

bj lev gunnarsson
Bylgjan
Sprengisandur 12.09.2021 - Viðtöl þáttarins

Bylgjan

Play Episode Listen Later Sep 12, 2021 96:56

Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Kristján Guy Burgess sérfræðingur í alþjóðamálum og Björn Bjarnason fyrrverandi ráðherra um alþjóðamál. Tómas Guðbjartsson Skurðlæknir á LSP Háskólasjúkrahúsi um heilbrigðismál. Inga Sæland formaður Flokks fólksins, Guðmundur Ingi Guðbrandsson varaformaður VG og Björn Leví Gunnarsson varaforseti Pírata um pólitik og kosningar.

Hlaðvarp Pírata
Lýðræði og ungt fólk í stjórnmálum

Hlaðvarp Pírata

Play Episode Listen Later Sep 6, 2021 22:31

Í þættinum hittum við aldursforseta þingflokks Pírata, Björn Leví Gunnarsson, sem er jafnframt oddviti Pírata í Reykjavík suður, og Lenyu Rún Taha Karim, sem er í baráttusæti listans í Reykjavík norður. Þau ræða ungt fólk og þátttöku þeirra í stjórnmálum, auk þess sem við fáum að kynnast frambjóðendunum persónulega með hraðaspurningum.Ekkert kjaftæði er hlaðvarp Pírata fyrir Alþingiskosningar 2021. Hlustendum gefst kostur á að kynnast frambjóðendum Pírata nánar og heyra hvernig Píratar taka á heitustu málefnum líðandi stundar. Stjórnandi þáttarins er Atli Stefán Yngvason.

Spegillinn
Vandi KSÍ, menningarbylting í íþróttahreyfingunni, ofbeldi í Mexico

Spegillinn

Play Episode Listen Later Aug 31, 2021 30:00

Spegillinn 31. ágúst 2021 Umsjónarmaður: Bergljót Baldursdóttir Þjálfari karlalandsliðs Íslands í fótbolta segist ekki hafa íhugað að hætta vegna stöðunnar sem upp er komin innan KSÍ. Menntamálaráðherra fundaði með stjórn KSÍ síðdegis og segist treysta forystunni til að leysa úr málinu. Rætt við Arnar Þór Viðarsson. landsliðsþjálfara Lilja Alfreðsdóttir, menntamálaráðherra fundaði með fráfarandi stjórn KSÍ í dag. Hún segist ánægð með þær áætlanir sem henni hafi verið kynntar. Hún treysti knattspyrnuforystunni til að leysa úr málinu, en þykir ekki viðeigandi að tjá sig um málefni einstakra starfsmanna. Framkvæmdastjóri NATO varar Talíbana við því að hindra för flóttafólks. Mikilvægt sé að halda Hamid Karzai flugvellinum í Kabúl opnum. Píratar leggja áherslu á lýðræði, nýja stjórnarskrá, róttækar breytingar í sjávarútvegsmálum og vilja uppræta spillingu fyrir komandi kosningar. Rætt við Björn Leví Gunnarsson, hjá Pírötum. Sjötíu og fimm prósent barna á aldrinum 12 til 17 ára hafa verið bólusett við Covid-19. Þrjátíu og þrjár tilkynningar um aukaverkanir hafa borist Lyfjastofnun. Rætt við Guðrúnu Aspelund, yfirlækni hjá Landlæknisembættinu Gróðureldar brenna glatt í Kaliforníuríki Bandaríkjanna. Tugir þúsunda hafa þurft að yfirgefa heimili sín vegna eldanna Samfélagsleg bylting sem átt hefur sér stað undanfarin ár hefur líka náð til íþróttahreyfingarinnar. Stórkostlegar breytingar eiga sér nú stað í íþróttamenningunni, segir prófessor í félagsfræði. Rætt við Viðar Halldórsson, prófessor í félagsfræði. Stjórnvöld í Mexíkó hafa höfðað mál á hendur nokkrum bandarískum byssuframleiðendum fyrir dómstóli í Bandaríkjunum. Þau saka framleiðendurna um að auðvelda sölu á vopnum til eiturlyfjagengja í Mexíkó. Hryllileg ofbeldis- og morðalda hefur gengið yfir landið undanfarin 15 ár. Ragnhildur Thorlacius segir frá Á Covid tímum sjást ekki sextíu rútur við Gullfoss en kannski fleiri bílar Íslendinga en áður var. Sama staða er á vinsælum ferðamannaslóðum annars staðar: heimamenn og innlendir ferðamenn hafa þær fyrir sig. Ýmislegt bendir til að þetta muni breytast þegar dregur úr veirufaraldrinum en áhrif aukinnar umhverfisvitundar á ferðalögum fólks er nýr óvissuþáttur. Sigrún Davíðsdóttir fjallar um veirufaraldurinn og ferðaþjónustu víða um heim.

Spegillinn
Vandi KSÍ, menningarbylting í íþróttahreyfingunni, ofbeldi í Mexico

Spegillinn

Play Episode Listen Later Aug 31, 2021

Sprengisandur 15.08.2021 - Viðtöl þáttarins

Bylgjan

Play Episode Listen Later Aug 15, 2021 98:35

Kristján Kristjánson styrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins, Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfisráðherra og Auður Önnu Magnúsardóttir framkvæmdastjóri Landverndar um loftslagsmál en ljóst er að stefnumarkandi ágreiningur er varðandi loftslagsmál. Bjartmar Oddur Þeyr Alexandersson blaðamaður á Stundinni um málefni Sorpu en hann segir moltuframleiðslu Sorpu ekki standast viðmið. Ólafur Þór Gunnarsson, Björn Leví Gunnarsson og Hanna Katrín Friðriksson alþingismenn takast á af krafti um heilbrigðismálin.

bj gu magn gunnarsson kristj alexandersson ingi gu landverndar lev gunnarsson sorpu
Bylgjan
Sprengisandur 23.05.2021 - Viðtöl þáttarins

Bylgjan

Play Episode Listen Later May 23, 2021 97:48

Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Bjarni Már Magnússon prófessor við HR um dómsmál og dómara en hann ræðir meðal annars um ákveðna þöggun innan lögfræðistéttarinnar. Kristrún Frostadóttir hagfræðingur, Birgir Ármannsson alþingismaður og Björn Leví Gunnarsson alþingismaður um efnahagsmál, en skortur virðist vera á samvinnu í opinberum fjármálum. Birgir Jónsson forstjóri Play og Drífa Snædal forseti ASÍ deila um kjör starfsmanna flugfélagsins Play, en Birgir ásakar forstjóra Drífu um ófagleg vinnubrögð. Arnar Sigurðsson innflytjandi og Steinunn Þóra Árnadóttir alþingiskona um áfengissölu og einkarétt en Steinunn segir nýja áfengisvefverslun vinna gegn lýðheilsu.

Spegillinn
Bóluefni, offita barna, gallar í fasteignum

Spegillinn

Play Episode Listen Later Feb 2, 2021 30:00

Spegillinn 2. febrúar Umsjón Bergljót Baldursdóttir Talsvert fleiri skammtar af bóluefni berast til landsins á næstu tveimur vikum en áætlað var. Sóttvarnalæknir vonast eftir að viðræður við Pfizer lyfjafyrirtækið um hjarðónæmisrannsókn skýrist síðar í vikunni. Offita meðal barna er meiri hér á landi en í nágrannalöndunum. Sérfræðilæknir vill skilgreina offitu sem sjúkdóm og kallar eftir aðgerðum stjórnvalda Verkfall hjá 11 flugmönnum Bláfugls, sem eru félagsmenn í Félagi íslenskra atvinnuflugmanna, hófst á miðnætti í fyrrakvöld. Flugfélagið hefur ráðið verktakaflugmenn í þeirra stað. Verkfallsbrot segir stéttafélagið. Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra segir að það séu vonbrigði að tafir hafi orðið á afgreiðslu tekjufalls- og viðspyrnustyrkja en fullyrðir að allur kraftur sem hægt sé að setja í þau mál hafi verið settur í verkefnið. Björn Leví Gunnarsson þingmaður Pírata spurði ráðherra á Alþingi í dag út í seinaganginn, sem hann sagði farinn að stórskaða rekstur og fyrirtæki. Byrjað er að bólusetja heilbrigðisstarfsfólk í Palestínu. Heimastjórnin hefur samið við fjóra lyfjaframleiðendur um bóluefni. Fleiri kvartanir hafa nú borist til Húsnæðis og mannvirkjastofnunar vegna galla í fasteignum en áður. Herdís Hallmarsdóttir, lögfræðingur stofnunarinnar telur að skoða þurfi hvort ekki eigi að setja í lög reglur um að húsnæði sé skoðað og vottað áður en það er selt. Bergljót Baldursdóttir ræddi við hana. Jón Björn Skúlason, framkvæmdastjóri NýOrku segist ekki sjá fyrir sér jumbóþotu fljúga um á rafhlöðum né heldur að frystitogara verði knúnir áfram með rafhlöðum í framtíðinni. Eftirspurn eftir vetni sé að aukast og fyrirspurnir berist frá útlöndum um möguleika á útflutningi á vetni. Arnar Páll Hauksson ræddi við Jón Björn Skúlason Sigrún Davíðsdóttir fjallað um áhugaverðar hliðstæður í íslenskri og írskri brottflutningssögu. Írska sagan er mun sárari og bitrari en sú íslenska. Írar eru jafnframt mjög meðvitaðir um þessa sögu sína og þá einnig um írsku díaspóruna um allan heim. Hver áhrifin af Covid verða á brottflutning á eftir að koma í ljós.

Spegillinn
Bóluefni, offita barna, gallar í fasteignum

Spegillinn

Play Episode Listen Later Feb 2, 2021

Bankasala í kreppu

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Jan 20, 2021 65:12

Við Rauða borðið í kvöld ræðum við mál málanna í dag, fyrirhugaða sölu á Íslandsbanka, við Drífu Snædal forseta Alþýðusambandsins og þingfólkið Ingu Sæland, Björn Leví Gunnarsson og Oddnýju Harðardóttur. Hvers vegna vill ríkisstjórnin selja? Er það góð hugmynd, slæm eða arfavond?

er bj sn hvers oddn lev gunnarsson
Morgunútvarpið
15. des. - Helgihald, umhverfið, grjótkrabbi, þinglaun, vísindi.

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Dec 15, 2020 130:00

Nú þegar fólk getur ekki safnast saman er ljóst að helgihald á aðventunni og um jólin verður með öðru móti. Í Lindakirkju í Kópavogi er starfræktur öflugur kór og tónlistarstarf þar verið í miklum blóma. Ekkert verður þó af hefðbundu tónleikahaldi þessi jólin og þess vegna ákvað Lindakirkja að leggja í veglegt jólalag með myndbandi og öllu tilheyrandi, í þeim tilgangi að gleðja bæði sóknarbörnin og þjóðina alla. Lag og texti eru eftir sóknarprestinn sjálfan, Guðmund Karl Brynjarsson, og við heyrðum aðeins í honum. Jólin og undirbúningur þeirra er með öðrum hætti í þessu veirukófi eins og við öll vitum. En hvaða áhrif hefur það á umhverfið, þessi breytta hegðun um hátíðarnar? Við heyrðum í Vilborgu Einarsdóttur, sem er stofnandi og framkvæmdastjóri Bravoearth. Grjótkrabbi fannst fyrst við Ísland fyrir tæpum 15 árum og fyrir tæpum áratug hófust tilraunaveiðar. Davíð Freyr Jónsson hjá Royal Iceland í Reykjanesbæ hefur verið þátttakandi í þessari sögu frá upphafi og við slógum á þráðinn til hans og heyrðum meira, en nú er íslenskur grjótkrabbi í fyrsta sinn í boði í neytendaumbúðum. Laun forsætisráðherra hækka um 73 þúsund um áramótin, laun annara ráðherra litlu minna, en alls nemur hækkun á þingmenn og ráðherra 3,4 prósentum. Um er að ræða hækkun sem frestað var í vor vegna Covid en Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata, telur að umræðan um þetta hafi ekki átt að fara hátt. Við ræddum við hann í þættinum. Sævar Helgi Bragason mætti í vísindahornið og að þessu sinni kom Bethlehemstjarnan við sögu. Tónlist: Svanhildur Jakobsdóttir - Hvít jól. Ragnar Bjarnason - Er líða fer að jólum. Regína Ósk og kór Lindakirkju - Stjörnubjarta nótt. Stefán Hilmarsson - Dag einn á jólum. Hjálmar - Yfir hafið. Baggalútur - Það koma samt jól. Björgvin Halldórsson - Bróðir segðu mér sögu. Melody Gardot og Sting - Little something. Dean Martin - Let it snow. OMAM - Visitor.

Morgunútvarpið
15. des. - Helgihald, umhverfið, grjótkrabbi, þinglaun, vísindi.

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Dec 15, 2020

Stjórnarandstaða og verkó

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Dec 5, 2020 78:45

2. Desember 2020 Við Rauða borðið í kvöld kemur fólk frá verkalýðshreyfingunni og stjórnarandstöðunni á þingi og ræðir stjórnmálaástandið í vetrarbyrjun, í kreppubyrjun og miðjum faraldi, þegar líða fer að kosningum. Þau sem setjast til borðs eru Drífa Snædal forseti Alþýðusambandsins, Sonja Þorbergsdóttir formaður BSRB, Logi Einarsson formaður Samfylkingarinnar, Inga Sæland formaður Flokks fólksins og Björn Leví Gunnarsson þingmaður Pírata.

Spegillinn
Einn á spítala á 12 tíma fresti

Spegillinn

Play Episode Listen Later Oct 1, 2020 30:00

Að meðaltali tveir COVID sjúklingar leggjast nú inn á Landspítalann á sólarhring að sögn forstjóra spítalans sem segir holskeflu skella á honum. Hann segir brýnt að taka á fráflæðivandanum og sendi í dag út ákall til heilbrigðisstarfsmanna um að leggja spítalanum lið, nú þurfi allar hendur upp á dekk Forseti Íslands hvatti þingmenn við þingsetninguna í dag til að taka tillögur að stjórnarskrárbreytingum til efnislegrar umræðu. Stjórnvöld á Ítalíu vilja framlengja neyðarlög vegna COVID-19 farsóttarinnar til janúarloka. Að óbreyttu falla þau úr gildi um miðjan þennan mánuð. Gert er ráð fyrir að hallinn á fjárlögum næst árs verði 264 milljarðar króna og að samanlagður halli í ár og á næsta ári veriði um 600 miljarðar króna. Fram til ársins 2025 er áætlað að uppsafnaður halli ríkisjóðs nemi um 900 milljörðum króna. Skattar verða um 52 milljöðrum lægri á næsta ári. Efnahagsleg áhrif kórónuveirufaraldursins eru metin á 192 milljarða. Hagstofan spáir 3,9% hagvexti á næsta ári eftir 7,6% samdrátt á þessu ári. Spáin byggist á því að ekki þurfi að grípa til harðra sóttvarnaraðgerða á næsta ári. Heyrist í Bjarna Benediktssyni. Arnar Páll Hauksson talar við Drífu Snædal, Loga Einarsson Þorgerðir Katrínu Gunnarsdóttur, Sigmund Davíð Gunnlaugsson, Björn Leví Gunnarsson og Ingu Sæland. Bandaríkin verða kannski aldrei aftur eins og við þekktum þau, jafnvel þótt Joe Biden sigri í forsetakosningunum í næsta mánuði. Þetta segir Silja Bára Ómarsdóttir stjórnmálafræðingur. Íslendingar þurfi sennilega að fara að svipast um eftir nýjum bandamönnum. Sigríður Hagalín Björnsdóttir talaði við Silju Báru

Spegillinn
Einn á spítala á 12 tíma fresti

Spegillinn

Play Episode Listen Later Oct 1, 2020

24. feb. - Skegg, ástand fasteigna, bollur, Laugardalsvöllur og sport

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Feb 24, 2020 130:00

Fátt er flottara en vel hirt skegg á karlmönnum. Íslensk skeggtíska hefur vakið athygli víða og nú er komið að því að keppast um hver ber það besta, en Íslandsmótið í skeggvexti verður haldið eftir rúman mánuð. Jón Baldur Bogason er yfirumsjónamaður keppninnar og hann var gestur Morgunútvarpsins. Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata, hefur ásamt fimm þingmönnum lagt fram frumvarp um að ástandsskýrslur fylgi íbúðum við sölu. Einnig að hvert hús hafi viðhaldsdagbók, rétt eins og bílar. Telja þingmennirnir að með ástandsskýrslum megi fækka málaferlum vegna fasteignaviðskipta en á árunum 2010-2017 féllu 130 dómar vegna þeirra. Hinn árlegi bolludagur er í dag. Talið er að bolludagurinn hafi borist hingað til lands á síðari hluta 19. aldar. Sandholt bakarí hefur staðið í stórræðum á þessum degi en fyrirtækið er hundrað ára í ár. Bakarameistarinn Ásgeir Sandholt er af fjórðu kynslóð bakara. Við fræddumst um bollur og bakarísmenningu. Knattspyrnusamband Íslands vill að Reykjavíkurborg komi til móts við sambandið með fjárframlagi vegna kostnaðar sem fylgir því að koma Laugardalsvelli í leikhæft ástand fyrir landsleik karlalandsliðsins í umspili um sæti á EM. Kostnaðurinn er um 70 milljónir króna. Við fórum yfir umgjörð vallarins með Guðna Bergssyni, formanni sambandsins, en sambandið skoðar nú fjóra kosti svo völlurinn uppfylli alþjóðlegar kröfur. Við fórum yfir íþróttir helgarinnar með Einar Erni Jónssyni íþróttafréttamanni. Tónlist: Lay Low - Aukalagið. Billie Eilish - No time to die. Axel Ó - Tíminn stendur aldrei kyrr. The Weeknd - Blinding lights. Liam Gallagher - One of us. Auður og Mezzoforte - Hún veit hvað ég vil. U2 - Cedarwood Road. Jónas Sig - Hamingjan er hér.

Uppáhalds rokkplatan
Haraldur Leví Gunnarsson

Uppáhalds rokkplatan

Play Episode Listen Later Feb 24, 2020

Gestur þáttarins að þessu sinni er hljómplötuútgefandinn og plötusalinn Haraldur Leví Gunnarsson frá Hafnarfirði. Hann mætir með uppáhalds ROKKplötuna sem er með hljómsveitinni Nada Surf.

Morgunútvarpið
24. feb. - Skegg, ástand fasteigna, bollur, Laugardalsvöllur og sport

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Feb 24, 2020

Fátt er flottara en vel hirt skegg á karlmönnum. Íslensk skeggtíska hefur vakið athygli víða og nú er komið að því að keppast um hver ber það besta, en Íslandsmótið í skeggvexti verður haldið eftir rúman mánuð. Jón Baldur Bogason er yfirumsjónamaður keppninnar og hann var gestur Morgunútvarpsins. Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata, hefur ásamt fimm þingmönnum lagt fram frumvarp um að ástandsskýrslur fylgi íbúðum við sölu. Einnig að hvert hús hafi viðhaldsdagbók, rétt eins og bílar. Telja þingmennirnir að með ástandsskýrslum megi fækka málaferlum vegna fasteignaviðskipta en á árunum 2010-2017 féllu 130 dómar vegna þeirra. Hinn árlegi bolludagur er í dag. Talið er að bolludagurinn hafi borist hingað til lands á síðari hluta 19. aldar. Sandholt bakarí hefur staðið í stórræðum á þessum degi en fyrirtækið er hundrað ára í ár. Bakarameistarinn Ásgeir Sandholt er af fjórðu kynslóð bakara. Við fræddumst um bollur og bakarísmenningu. Knattspyrnusamband Íslands vill að Reykjavíkurborg komi til móts við sambandið með fjárframlagi vegna kostnaðar sem fylgir því að koma Laugardalsvelli í leikhæft ástand fyrir landsleik karlalandsliðsins í umspili um sæti á EM. Kostnaðurinn er um 70 milljónir króna. Við fórum yfir umgjörð vallarins með Guðna Bergssyni, formanni sambandsins, en sambandið skoðar nú fjóra kosti svo völlurinn uppfylli alþjóðlegar kröfur. Við fórum yfir íþróttir helgarinnar með Einar Erni Jónssyni íþróttafréttamanni. Tónlist: Lay Low - Aukalagið. Billie Eilish - No time to die. Axel Ó - Tíminn stendur aldrei kyrr. The Weeknd - Blinding lights. Liam Gallagher - One of us. Auður og Mezzoforte - Hún veit hvað ég vil. U2 - Cedarwood Road. Jónas Sig - Hamingjan er hér.

Vikulokin
Björn, Rósa Björk, Sigríður

Vikulokin

Play Episode Listen Later Oct 12, 2019 55:00

Gestir þáttarins voru Sigríður Andersen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og formaður utanríkismálanefndar, Rósa Björk Brynjólfsdóttir, þingmaður Vinstri grænna, og Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata. Rætt var um innrás Tyrkja í Sýrland, frumvarp um peningaþvætti sem afgreitt var með hraði í þinginu, Hringborðsumræður um Norðurslóðir og álitaefni þeim tengd og frumvarp Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra um bætur fyrir sýknaða sakborninga í Guðmundar- og Geirfinnsmálum. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson Tæknimaður: Mark Eldred

Vikulokin
Björn, Rósa Björk, Sigríður

Vikulokin

Play Episode Listen Later Oct 12, 2019

Gestir þáttarins voru Sigríður Andersen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og formaður utanríkismálanefndar, Rósa Björk Brynjólfsdóttir, þingmaður Vinstri grænna, og Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata. Rætt var um innrás Tyrkja í Sýrland, frumvarp um peningaþvætti sem afgreitt var með hraði í þinginu, Hringborðsumræður um Norðurslóðir og álitaefni þeim tengd og frumvarp Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra um bætur fyrir sýknaða sakborninga í Guðmundar- og Geirfinnsmálum. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson Tæknimaður: Mark Eldred

Pírataspjallið
Ár í Meirihluta Borgarstjórnar - Dóra Björt

Pírataspjallið

Play Episode Listen Later Jul 9, 2019 61:17

Björn Leví Gunnarsson þingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður fær Dóru Björt fráfarandi forseta borgarstjórnar og fulltrúa Pírata í Reykjavík til sín í spjall um fyrsta árið hennar í borginni.

bj reykjav forseti borgarstj lev gunnarsson
Hlaðvarp Pírata
Ár í Meirihluta Borgarstjórnar - Dóra Björt

Hlaðvarp Pírata

Play Episode Listen Later Jul 8, 2019 61:16

Björn Leví Gunnarsson þingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður fær Dóru Björt fráfarandi forseta borgarstjórnar og fulltrúa Pírata í Reykjavík til sín í spjall um fyrsta árið hennar í borginni.

bj reykjav borgarstj lev gunnarsson
Spegillinn
Spegillinn 21.05.2019

Spegillinn

Play Episode Listen Later May 21, 2019 30:00

Spegillinn 21.05.2019 Umsjón: Pálmi Jónasson Rafiðnaðarsambandið samþykkti nýgerðan kjarasamning mjög nauðmlega. Síðari umræða um þriðja orkupakkann stendur enn á Alþingi. Forseti Alþingis segir að Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata, hafi misnotað dagskrárliðinn störf þingsins með því að fara mjög ósæmilegum orðum um Ásmund Friðriksson Hertri löggjöf um þungunarrof var mótmælt víða í Bandaríkjunum í dag. Á þriðja tug ríkja hafa annað hvort samþykkt eða tilkynnt um breytingar á lögum sem takmarka rétt til þungunarrofs. Meira en tuttugu þúsund störf eru í hættu ef British Steel, næst stærsti stálframleiðandi Bretlands, verður gjaldþrota. Verkamannaflokkurinn leggur til að fyrirtækið verði þjóðnýtt. Það eru sláandi líkindi með íslenska al Thani málinu svokallaða og sakamáli á hendur fyrrum forstjóra Barclaysbankans og þremur öðrum yfirmönnum bankans. En framvinda málanna í löndunum tveimur var mjög ólík. Nýlega kom svo í ljós að yfirmenn í Englandsbanka voru mótfallnir sakamálarannsókn því það gæti stofnað Barclaysbankanum í tvísýnu. Sem þýddi þá að bankar væru hafnir yfir lög og rétt. Sigrún Davíðsdóttir sagðiu frá. Svartolía mun heyra sögunni til eftir næstu áramót. Þá verður ekki heimilt að nota skipaolíu sem inniheldur meira en 0,5% af brennisteini. Mörkin núna eru 3,5%. Um 22% af skipaolíu sem seld var 2016 hér á landi var svokölluð svartolía sem inniheldur hátt hlutfall af brennisteini. Arnar Páll Hauksson segir frá og talar við Guðberg Rúnarsson. Þið hafið sennilega ekki tekið eftir því þegar þið stiguð á baðvigtina í morgun en síðan í gær eru kílóin ekki þau sömu. Járnklumpnum í París sem kílóin og þar með þyngd okkar er miðuð við var þá endanlega skipt út fyrir nýjan stuðul. Jón Björgvinsson segir frá og talar við Þorstein Viljjálmsson, prófessor í eðlisfræði.

Pírataspjallið
Traust til Alþingis - Björn Leví ræðir við Sjálfstæðisflokkinn

Pírataspjallið

Play Episode Listen Later Mar 31, 2019 59:23

Bryndís Haraldsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins kíkir í heimsókn og ræðir traust almennings til Alþingis við Björn Leví þingmann Pírata. Pírataspjallið er vikulegur þáttur um líðandi málefni þar sem umsjónarfólk þáttarins fær til sín gesti og ræða helstu mál vikunar. Umsjón þáttana skipta þau Oktavíu Hrund og Björn Leví á milli sín.Oktavía Hrund Jónsdóttir hefur starfað við öryggisráðgjöf og samskiptatækni en er ötul baráttumanneskja fyrir stafrænum réttindum og fjölmiðlafrelsi.Björn Leví Gunnarsson er stjórnmálamaður og tölvunarfræðingur. Björn var kjörinn á Alþingi fyrir Pírata árið 2016.

Hlaðvarp Pírata
Traust til Alþingis

Hlaðvarp Pírata

Play Episode Listen Later Mar 31, 2019 59:22

Bryndís Haraldsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins kíkir í heimsókn og ræðir traust almennings til Alþingis við Björn Leví þingmann Pírata. Pírataspjallið er vikulegur þáttur um líðandi málefni þar sem umsjónarfólk þáttarins fær til sín gesti og ræða helstu mál vikunar. Umsjón þáttana skipta þau Oktavíu Hrund og Björn Leví á milli sín. Oktavía Hrund Jónsdóttir hefur starfað við öryggisráðgjöf og samskiptatækni en er ötul baráttumanneskja fyrir stafrænum réttindum og fjölmiðlafrelsi. Björn Leví Gunnarsson er stjórnmálamaður og tölvunarfræðingur. Björn var kjörinn á Alþingi fyrir Pírata árið 2016.

bj sj lev traust umsj brynd haraldsd hrund oktav lev gunnarsson hrund j
Pírataspjallið
Höfundarréttarlög Article 13

Pírataspjallið

Play Episode Listen Later Mar 24, 2019 49:57

Oktavía Hrund Jónsdóttir ræðir við Sunnu Rós Víðisdóttur starfsmann þingflokks Pírata og Einar Hrafn Árnason áhugamann um höfundarréttarlög og kosningu Evrópusambandsins um copyright directive. Pírataspjallið er vikulegur þáttur um líðandi málefni þar sem umsjónarfólk þáttarins fær til sín gesti og ræða helstu mál vikunar. Umsjón þáttana skipta þau Oktavíu Hrund og Björn Leví á milli sín.Oktavía Hrund Jónsdóttir hefur starfað við öryggisráðgjöf og samskiptatækni en er ötul baráttumanneskja fyrir stafrænum réttindum og fjölmiðlafrelsi.Björn Leví Gunnarsson er stjórnmálamaður og tölvunarfræðingur. Björn var kjörinn á Alþingi fyrir Pírata árið 2016.Facebook: @podcastpirataNetfang: podcast@piratar.is

internet european union bj lev xp evr article13 umsj hrund oktav kvikmyndir lev gunnarsson hrund j
Hlaðvarp Pírata
Höfundarréttarlög

Hlaðvarp Pírata

Play Episode Listen Later Mar 24, 2019 49:57

Oktavía Hrund Jónsdóttir ræðir við Sunnu Rós Víðisdóttur starfsmann þingflokks Pírata og Einar Hrafn Árnason áhugamann um höfundarréttarlög. Pírataspjallið er vikulegur þáttur um líðandi málefni þar sem umsjónarfólk þáttarins fær til sín gesti og ræða helstu mál vikunar. Umsjón þáttana skipta þau Oktavíu Hrund og Björn Leví á milli sín. Oktavía Hrund Jónsdóttir hefur starfað við öryggisráðgjöf og samskiptatækni en er ötul baráttumanneskja fyrir stafrænum réttindum og fjölmiðlafrelsi. Björn Leví Gunnarsson er stjórnmálamaður og tölvunarfræðingur. Björn var kjörinn á Alþingi fyrir Pírata árið 2016.

bj lev umsj hrund oktav lev gunnarsson hrund j
Pírataspjallið
Loftlagsverkföll ungmenna - Elísabet Brynjarsdóttir

Pírataspjallið

Play Episode Listen Later Mar 21, 2019 27:29

Björn Leví þingmaður Pírata ræðir loftlagsverkföll ungmenna við Elísabetu Brynjarsdóttur formann Stúdentaráðs Háskóla Íslands og talsmann LÍS Landsamtaka íslenskra stúdenta. Pírataspjallið er vikulegur þáttur um líðandi málefni þar sem umsjónarfólk þáttarins fær til sín gesti og ræða helstu mál vikunar. Umsjón þáttana skipta þau Oktavíu Hrund og Björn Leví á milli sín.Oktavía Hrund Jónsdóttir hefur starfað við öryggisráðgjöf og samskiptatækni en er ötul baráttumanneskja fyrir stafrænum réttindum og fjölmiðlafrelsi.Björn Leví Gunnarsson er stjórnmálamaður og tölvunarfræðingur. Björn var kjörinn á Alþingi fyrir Pírata árið 2016.Facebook: @podcastpirataNetfang: podcast@piratar.is

bj lev sabet umsj hrund brynjarsd oktav verkfall lev gunnarsson nemendur hrund j
Hlaðvarp Pírata
Loftlagsverkföll ungmenna

Hlaðvarp Pírata

Play Episode Listen Later Mar 21, 2019 27:28

Björn Leví þingmaður Pírata ræðir loftlagsverkföll ungmenna við Elísabetu Brynjarsdóttur formann Stúdentaráðs Háskóla Íslands og talsmann LÍS Landsamtaka íslenskra stúdenta. Pírataspjallið er vikulegur þáttur um líðandi málefni þar sem umsjónarfólk þáttarins fær til sín gesti og ræða helstu mál vikunar. Umsjón þáttana skipta þau Oktavíu Hrund og Björn Leví á milli sín. Oktavía Hrund Jónsdóttir hefur starfað við öryggisráðgjöf og samskiptatækni en er ötul baráttumanneskja fyrir stafrænum réttindum og fjölmiðlafrelsi. Björn Leví Gunnarsson er stjórnmálamaður og tölvunarfræðingur. Björn var kjörinn á Alþingi fyrir Pírata árið 2016.

bj lev umsj hrund brynjarsd oktav lev gunnarsson hrund j
Morgunútvarpið
Hlíðarfjall, ferðakostnaður, sterk sósa, Sigursteinn og tækni

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Nov 28, 2018 120:00

Snjóframleiðsla er hafin í Hlíðarfjalli og styttist í opnun skíðasvæðisins. Við slógum á þráðinn norður til Stefáns Gunnarssonar svæðisstjóra og tókum stöðuna. Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata, kom til okkar en hann hefur gagnrýnt Ásmund Friðriksson, þingmann Sjálfstæðisflokksins, harðlega vegna endurgreiðslna sem hann fékk vegna ferðakostnaðar og fór fram á að málið yrði rannsakað og tekið fyrir á vegum forsætisnefndar þingsins. Forsætisnefnd segir að ekkert hafi komið fram um að Ásmundur hafi brotið gegn siðareglum þingmanna og því var ekki fallist á beiðni Björns um almenna rannsókn. Björn ætlar engu að síður áfram með málið. William Óðinn Lefever féll fyrir sterku chilli sósunum í Ameríku þegar hann bjó þar og þegar heim var komið á ný saknaði hann þess að fá ekki eitthvað svipað hér á landi. Til að bæta úr því ákvað hann að fara út í framleiðslu sjálfur og vinnur nú að sósugerðinni í Berufirði. Við hringdum austur og heyrðum hvernig gengur. Sigursteinn Másson var atkvæðamikill fjölmiðlamaður á sínum tíma, en hvarf svo af skjánum og úr sviðsljósinu. Hann hefur nú gefið út bók um það sem gerðist í lífi hans, andleg veikindi og baráttuna við kerfið. Sigursteinn kom til okkar í morgunkaffi og sagði okkur meira. Guðmundur Jóhannsson er okkar maður þegar kemur að tækni. Hann mætti í sitt vikulega spjall í dag og talaði um gagnaflutninga utan úr geimnum og samanbrjótanlega síma. Tónlist: Hjálmar - Fyrir þig. Wings - With a little luck. Amy Winehouse - Rehab. Svala - Karma. Todmobile - Stúlkan. Bruce Springsteen - Working on a dream. Nýdönsk - Horfðu til himins. Richard Ashcroft - Surprised by the joy. Pink - A million dreams.

Morgunvaktin
Baráttan fyrir gagnsæi og ábyrgð í stjórnkerfinu

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Jul 6, 2018 130:00

Þátturinn hófst austur í Skógum, þar sem starfrækt er merkilegt byggðasafn Rangæinga og Vestur-Skaftfellinga. Sverrir Magnússon hefur stýrt safninu frá 1999 en lét nýlega af störfum. Sverrir lýsti safnastarfinu. - Það má eiginlega lýsa honum sem kerfishrelli. Svo einbeitur er hann í sókn eftir skýringum á framkvæmd laga og starfsháttum, bæði á Alþingi og í stjórnkerfinu. Þykir mörgum nóg um. Björn Leví Gunnarsson er þingmaður Pírata, sem vilja auka gagnsæi í stjórnmálum og stjórnsýslu. Hann var gestur Morgunvaktarinnar og ræddi kjaradeilu ríkisins og ljósmæðra og almennt um störf Alþingis og kröfuna um aukið gagnsæi. - Mikil spenna ríkir í Svíþjóð fyrir leikinn í 8-liða-úrslitum HM í Rússlandi á morgun þar sem Svíar mæta Englendingum. Við mældum hitastigið í Stokkhólmi eftir 8-fréttirnar, heyrðum í ritstjóra Túrista.is, Kristjáni Sigurjónssyni. Við ræddum auðvitað ferðamálin að venju: Eftirlit með Airbnb, innanlandsflug Norwegian í Argentínu og fyrirhugaðar vetrarferðir héðan til Ítalíu. - Í gær komu hingað heim aftur frá Danmörku tvö af helstu miðaldahandritum Íslendinga: Ormsbók, eitt af höfuðhandritum Snorra Eddu, og Reykjabók Njálu, elsta nær heila handrit sögunnar. Tilefnið er sýningin Lífsblómið - Fullveldi í 100 ár sem opnuð verður í Listasafni Íslands þann 18. júlí í tilefni aldarafmælis sjálfstæðis og fullveldis Íslands. Þar verða handritin tvö í öndvegi. Guðrún Nordal, forstöðumaður Árnastofnunar, veitti handritunum viðtöku í gær. Hún ræddi handritin og varðveislustarfið. - Tónlist: Zaz - Le long de la route, Niels-Henning Örsted Pedersen o.fl - Sumri hallar, sest er sól.

Vikulokin
Birta Björnsdóttir, Anna Sigrún Baldursdóttir, Björn Leví Gunnarsson,

Vikulokin

Play Episode Listen Later Jun 16, 2018 58:00

Gestkvæmt í Vikulokunum. Birta Björnsdóttir fréttamaður tekur stöðuna á leið á völlinn með íslenskum aðdáendum karlalandsliðsins þegar rétt um tveir tímar eru í leikinn gegn Argentínu í Moskvu. Anna Sigrún Baldursdóttir, aðstoðarmaður forstjóra LSH, Björn Leví Gunnarsson þingmaður Pírata og Gunnar Bragi Sveinsson þingflokksformaður Miðflokksins verða svo gestir í hljóðstofu fyrri hluta þáttarins auk þess sem við sláum á þráðinn til Brynhildar Pétursdóttur hjá Neytendasamtökunum. Í síðari hluta þáttarins bætist svo Páll Magnússon þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi í hópinn en honum var á dögunum vikið út fulltrúaráði flokksins í Eyjum; vegna framgöngu hans í nýafstöðnum sveitarstjórnarkosningum.

Vikulokin
Birta Björnsdóttir, Anna Sigrún Baldursdóttir, Björn Leví Gunnarsson,

Vikulokin

Play Episode Listen Later Jun 16, 2018

Gestkvæmt í Vikulokunum. Birta Björnsdóttir fréttamaður tekur stöðuna á leið á völlinn með íslenskum aðdáendum karlalandsliðsins þegar rétt um tveir tímar eru í leikinn gegn Argentínu í Moskvu. Anna Sigrún Baldursdóttir, aðstoðarmaður forstjóra LSH, Björn Leví Gunnarsson þingmaður Pírata og Gunnar Bragi Sveinsson þingflokksformaður Miðflokksins verða svo gestir í hljóðstofu fyrri hluta þáttarins auk þess sem við sláum á þráðinn til Brynhildar Pétursdóttur hjá Neytendasamtökunum. Í síðari hluta þáttarins bætist svo Páll Magnússon þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi í hópinn en honum var á dögunum vikið út fulltrúaráði flokksins í Eyjum; vegna framgöngu hans í nýafstöðnum sveitarstjórnarkosningum.

Hlaðvarp Kjarnans
Kvikan - Fyrir hvað mega þingmenn rukka?

Hlaðvarp Kjarnans

Play Episode Listen Later Mar 4, 2018 26:59

Fríðindagreiðslur til þingmanna, meðal annars vegna aksturs, eru umfjöllunarefni Kviku vikunnar. Gestir þáttarins eru Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis, og Björ Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata. Umsjónarmaður er að venju Þóður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans. Kvikan er hljóðrás af sjónvarpsþætti Kjarnans sem frumsýndur er á Hringbraut á miðvikudögum klukkan 21.

mega bj sn fyrir umsj gestir steingr kjarnans hringbraut lev gunnarsson
Vikulokin
Logi Einars, Þorsteinn Víglunds, Silja Dögg og Björn Leví

Vikulokin

Play Episode Listen Later Mar 3, 2018 58:00

Gestir Helga Seljan eru Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, Þorsteinn Víglundsson, þingmaður Viðreisnar, Silja Dögg Gunnarsdóttir, þingmaður Framsóknar, og Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata.

Vikulokin
Logi Einars, Þorsteinn Víglunds, Silja Dögg og Björn Leví

Vikulokin

Play Episode Listen Later Mar 3, 2018

Gestir Helga Seljan eru Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, Þorsteinn Víglundsson, þingmaður Viðreisnar, Silja Dögg Gunnarsdóttir, þingmaður Framsóknar, og Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata.

Morgunútvarpið
Morgunútvarpið 27.febrúar

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Feb 27, 2018 190:00

Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata, kallar eftir því að fram fari rannsókn á því hvort þingmenn hafi brotið gegn siðareglum vegna akstursgreiðslna. Hann hefur tilkynnt að hann muni leggja fram fleiri fyrirspurnir á Alþingi varðandi greiðslur til þingmanna, líkt og þá sem hann lagði fram varðandi akstursgreiðslur. Hann kemur til okkar. Berglind Björg Þorvaldsdóttir og Arna Sif Ásgrímsdóttir, landsliðskonur í knattspyrnu, sömdu við knattspyrnufélagið Verona, sem leikur í efstu deild á Ítalíu, um að leika með félaginu síðasta sumar. Félagið stóð heldur betur ekki við samninga og þær neyddust til að mynda til að deila rúmi og fengu ekki greidd laun á réttum tíma. Eftir miklar deilur tókst þeim að rifta samningum en eiga enn inni laun hjá félaginu. Við heyrum í Berglindi, sem er í æfingaferð með landsliðinu á Algarve í Portúgal. Nokkuð hefur verið rætt um þingsályktunartillögu um dánaraðstoð, sem áður var nefnt líknardráp, en hún liggur fyrir þinginu. Fram kom á dögunum að landslæknisembættið telur að það sé misráðið að færa umræðunua á þetta mál inná alþingi og enn verra yrði ef heilbrigðisráðuneytinu yrði falið að takast á við verkefnið á meðan önnur og mikilvægari verkefni bíða úrlausnar í heilbrigðisráðuneytinu. Við fáum til okkar þær Ingrid Kuhlman og Silviane Lecoultre til okkar en þær eru frá félaginu Lífsvirðingu sem er félag um dánaraðstoð. Þær hafa báðar persónulega reynslu af dánaraðstoð. Faðir Ingrid var með þeim fyrstu sem fékk dánaraðstoð með löglegum hætti árið 2002 og eiginmaður Silviane fór til Sviss árið 2013 og fékk þar aðstoð við að deyja. Þær segja okkur frá þessu. Sævar Helgi Bragason fer yfir það helsta úr heimi vísindanna.

bj fa verona fram hann eftir febr sviss nokku helgi bragason lev gunnarsson