POPULARITY
Frumvarpi um sölu á eftirstandandi hlut ríkisins í Íslandsbanka var dreift á Alþingi fyrir páskaleyfi. Fjármálaráðherra fer með söluna en ekki Bankasýsla ríkisins sem annaðist síðustu tvö söluútboð. Mögulegt er talið að fá um hundrað milljarða króna fyrir hlutinn. Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Heimildarinnar, fór yfir málið. Í Berlínarspjalli fjallaði Arthur Björgvin Bollason meðal annars um tímabreytinguna í Þýskalandi og víðast hvar í Evrópu um helgina. Klukkan var færð fram um eina klukkustund eins og jafnan á vorin. Í lok þáttar var fjallað um "undir feldi" sem fólk og fjölmiðlar nota gjarnan í frásögnum af umhugsun eða stórum ákvörðunum sem þarf að taka. I heard it through the grapevine - Marvin Gaye, Strúktúr - Stórsveit Reykjavíkur, Let's get it on - Marvin Gaye, Vindhviður - Stórsveit Reykjavíkur, From heaven to earth - Stórsveit Reykjavíkur.
Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Heimildarinnar, var fyrsti gestur Morgunvaktarinnar í dag og við héldum áfram umfjöllun um áformuð kaup Landsbankans á TM. Síðan Þórður var hér síðast hefur bankaráð Landsbankans birt upplýsingar sem stangast á við upplýsingar Bankasýslunnar. Við fjölluðum líka um kaupmátt ráðstöfunartekna sem heldur áfram að dragast saman, og um það hvað það kostar að bjóða sig fram til forseta Íslands. Berlínarspjall var á sínum stað og Arthúr Björgvin Bollason sagði meðal annars frá nýsamþykktum lögum um kannabisneyslu, óbeit atvinnurekenda á AfD flokknum og svo töluðum við svolítið um fótbolta og áhrif gengis þýska landsliðsins á þjóðarsálina. Nokkur ár eru frá því að tekið var upp styrkjakerfi í námslánum hér á landi og nú stendur til að sníða af vankanta sem komið hafa í ljós, samkvæmt nýju frumvarpi. En stúdentar og fleiri hafa gagnrýnt frumvarpið, ekki síst vegna þess hversu litlu á að breyta. Stúdentaráð Háskóla Íslands hefur sérstaklega lýst yfir vonbrigðum yfir því hvernig staðið er að málum. Rakel Anna Boulter, forseti Stúdentaráðs HÍ, og Gísli Laufeyjarson Höskuldsson lánasjóðsfulltrúi, komu til okkar. Tónlist: Whiteman, Paul - Mississippi Mud. Brimkló - Herbergið mitt. Reinhard Mey - Über den Wolken. Steve Miller Band - The Joker (bonus track wav).
Tilkynning um kaup Landsbankans á TM á sunnudag kom flestum á óvart. Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Heimildarinnar, fór yfir málið og rakti atburðarásina. Arthur Björgvin Bollason fjallaði um stöðu Olafs Scholz, kanslara Þýskalands, sem þykir veik. Hann nýtur lítils stuðnings meðal almennings samkvæmt skoðanakönnunum. Arthur sagði einnig frá Boris Pistorius varnarmálaráðherra sem er rísandi stjarna í þýskum stjórnmálum og þykir líklegur arftaki Scholz. Óveður geisaði á Vestfjörðum í gær og flestir vegir ófærir. Lilja Rafney Magnúsdóttir varaþingmaður og íbúi á Suðureyri sagði frá veðrinu og spjallaði líka um strandveiðar og grásleppu og sitt hvað fleira. I got it bad and that ain't good - Ben Webster, Et nytt møte - Jan Erik Vold, Ku penga penga - Joseph Nangalembe, Love o' love - Nina Simone.
Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Heimildarinnar, fór ítarlega yfir kjarasamningsmál á Morgunvaktinni í dag. Búið er að semja fyrir hönd tugþúsunda, aðrir eru enn eftir, en ríkið hefur sýnt á sín spil. Hið opinbera leggur til 80 milljarða króna pakka, sem þó hefur ekki verið sagt hvernig nákvæmlega verður fjármagnaður. Ræddum einnig um Landsvirkjun og metafkomu fyrirtækisins. Árás var gerð á verksmiðju Tesla bílaframleiðandans fyrir utan Berlín í síðustu viku. Kveikt var í, og bæði verksmiðjan og stór hluti Brandenburgar-fylkis urðu rafmagnslaus með miklum afleiðingum. Arthur Björgvin Bollason sagði okkur frá málinu í Berlínarspjalli eftir morgunfréttirnar klukkan átta. Hann sagði okkur líka frá skólamálum og kröfugöngu á alþjóðlegum baráttudegi kvenna. Katrín prinsessa af Wales kom sér í klandur um helgina þegar hún birti það sem virtist vera sakleysisleg mynd af henni og börnum sínum þremur. Myndin var þó fljótlega tekin úr umferð af helstu fréttaveitum enda talið að átt hefði verið við hana með myndvinnsluforriti og Katrín þurfti síðan að biðjast afsökunar á birtingunni. Við ræddum myndbirtingar og hverju er hægt að treysta við þau Kjartan Þorbjörnsson, Golla, fréttaljósmyndara og Svanhildi Grétu Kristjánsdóttur ráðgjafa og ljósmyndara. Cilla Black - Anyone Who Had a Heart. When sunny gets blue - Kristjana Stefánsdóttir. Ich hab die Schnauze voll von rosa - Suli Puschban
Hagvöxtur mældist 4,1% á síðasta ári, en á síðustu mánuðum ársins hægðist á hagkerfinu. Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Heimildarinnar, fór ítarlega yfir þessar tölur á Morgunvaktinni. Hann ræddi líka um Grindavík og um stöðu kjaraviðræðna. Í síðustu viku birti rússneska ríkissjónvarpið upptöku af samræðum fjögurra háttsettra yfirmanna þýska hersins, þar sem þeir ræða ýmis viðkvæm mál um þátttöku Þjóðverja í stríðinu í Úkraínu. Málið hefur undið upp á sig dag hvern síðan þá, eins og Arthúr Björgvin Bollason sagði okkur nánar frá í Berlínarspjalli. Fæðingartíðni er víða til umfjöllunar. Færri börn fæðast en áður víða í þróuðum ríkjum, en í Japan er vandinn verulega mikill, þar hafa aldrei fæðst færri börn en í fyrra. Þetta 125 milljóna manna land stendur frammi fyrir miklum vandræðum. Kristín Ingvarsdóttir, lektor í japönskum fræðum, fór yfir þessi mál við okkur í síðasta hluta þáttarins. Why do I love you? - Garcia, Whiting. From heaven to earth - Ólafur Jónsson Tónlistarm., Björn Thoroddsen, Stórsveit Reykjavíkur, Ólafur Jónsson, Gillis, Richard. „Wenn das Wasser im Rhein goldner Wein wäre“ - Willy Schneider.
Ríkisstjórnin hefur ákveðið að selja eftirstandandi hlut ríkisins í Íslandsbanka; rúmlega 40 prósent hlutafjár. Stefnt er að því að allir fái að kaupa – ekki sérvalinn hópur eins og síðast. Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Heimildarinnar, fór yfir söluna. Við ræddum líka um Alvotech sem loksins fær að selja samheitalyf sitt í Bandaríkjunum og fórum yfir stöðu mála í kjaraviðræðunum. Vernd og endurheimt votlendis er eitt af áhersluatriðum í aðgerðaáætlun í loftslagsmálum. Á föstudag fengum við til okkar líffræðing sem sagði frá niðurstöðum rannsóknar sem bendir til þess að smærri votlendissvæði hafi ekki síður þýðingu fyrir lífríkið en stór svæði. Við héldum áfram að fjalla um votlendi og til okkar kom Ágústa Helgadóttir líffræðingur og verkefnastjóri endurheimtar votlendis hjá Landi og skógi til okkar. Arthur Björgvin Bollason var með okkur í dag og fjallaði meðal annars um lögleiðingu kannabisneyslu í Þýskalandi, heimspekinginn Kant og áhuga á Íslandi og því sem íslenskt er á Norðursjávarströndum Þýskalands. Hjarta mítt - Eivör Pálsdóttir. Heimaslóð - Alfreð Washington Þórðarson, Eyjaliðið, Gísli Helgason, Arnþór Helgason, Ási í Bæ. Klau og Klaus - An der Nordseekuste. Tarazina - Setona.
Heimilislæknar eru hættir að skrifa út tilvísanir vegna barna í þeim tilvikum þar sem þeir sjálfir hafa enga beina aðkomu að málum þeirra. Þeir segja a.m.k. þrjú ársverk fara í það og telja tíma sínum betur varið. Tinna Karen Árnadóttir læknir á heilsugæslunni í Árbæ fór yfir málið. Arthur Björgvin Bollason kom í þáttinn á mánudegi að þessu sinni og við spjöllum m.a. um Íslandsheimsókn hans með þýskum blaðamanni sem undirbýr greinarskrif um Ísland og íslenska menningu, einkum fornsögunnar. Þá var pólitíska ástandið í Þýskalandi til umfjöllunar og stofnun nýs stjórnmálaflokks á hægri vængnum. Nýtt ár gekk í garð í Kína fyrr í febrúar. Árið í ár er ár drekans. Magnús Björnsson, forstöðumaður Konfúsíusarstofnunarinnar Norðurljósa, sagði frá áramótum í Kína og árinu sem tekur mið af gangi tunglsins. The Sounds of silence - Fílharmóníuhljómsveitin í Prag, The Sounds of silence - Simon & Garfunkel, Nego Maluco - Edu Lobo, Bye bye blackbird - Miles Davis og John Coltrane.
Skiptar skoðanir eru um frumvarp ríkisstjórnarinnar um uppkaup á eignum Grindvíkinga, en frumvarpið er meðal þess sem við ræddum þegar Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Heimildarinnar, kom í þáttinn. Einnig var rætt um aðrar framkvæmdir á Reykjanesi, um kjarasamningsviðræður sem nú hefur verið slitið og um uppgjör stórra fyrirtækja, sem nú tínast inn eitt af öðru. Olaf Scholz kanslari Þýskalands átti fund með Joe Biden Bandaríkjaforseta á dögunum, sem gæti hafa verið þeirra síðasti fundur. Arthúr Björgvin Bollason sagði okkur frá fundinum og ýmsu fleiru í Berlínarspjalli. Háskólinn á Hólum og Háskóli Íslands verða brátt hluti af svokallaðri háskólasamstæðu. Hólmfríður Sveinsdóttir rektor Háskólans á Hólum kom til okkar í síðasta hluta þáttarins og rædd um þetta nýja fyrirkomulag í háskólastarfi hér á landi. Umsjónarmenn eru Eyrún Magnúsdóttir og Þórunn Elísabet Bogadóttir. Litla sæta ljúfan góða - Hljómsveit Ingimars Eydal, Vilhjálmur Vilhjálmsson Þú kysstir mína hönd - Ragnhildur Gísladóttir, Tómas R. Einarsson Jack and Diane - Mellencamp, John .
Við huguðum að Grindvíkingum í þætti dagsins. Ásrún Helga Kristinsdóttir, forseti bæjarstjórnar Grindavíkur, ræddi við okkur. Hún er ein þeirra sem fór inn í bæinn í gær til að sækja eigur sínar. Hún sagði frá erfiðu ástandi á mörgum vígstöðum, mörgum finnist sem þokist of hægt í því að leysa úr málefnum bæjarbúa. Í Berlínarspjalli sagði Arthúr Björgvin Bollason okkur meðal annars frá tíðindum sem bárust út um Þýskaland um helgina, þess efnis að eftir tvö ár er von á nýjum líftæknilyfjum við krabbameini. Fyrirtækið Biontech hefur þróað þessi nýju lyf en það var í fararbroddi við þróun bóluefnis gegn covid-19 á sínum tíma. Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Heimildarinnar rýndi í afkomu nokkurra fyrirtækja á síðasta ári, sagði frá nýju greiðslukerfi sem Seðlabankinn er með í smíðum og frá þróun á íbúðamarkaði. Tónlist: Melanie - Pebbles in the sand. Melanie - Brand new key. Melanie, Hawkins, Edwin Singers - Lay down (candles in the rain). Lindenberg, Udo - Wir ziehen in den Frieden.
Í spjalli um efnahag og samfélag fór Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Heimildarinnar, yfir stöðuna í kjaraviðræðunum. Samningar þorra fólks í aðildarfélögum Alþýðusambandsins renna út um mánaðamót en viðræður hafa legið niðri síðustu daga. Samningafundur er boðaður hjá sáttasemjara á morgun. Enn er útlendingaandúð og harðri þjóðernishyggju mótmælt í Þýskalandi. Arthúr Björgvin Bollason sagði frá í Berlínarspjalli. Hann talaði einnig um nýstofnaðan stjórnmálaflokk og þýska kvikmyndagerð. The long and winding road - Bítlarnir, January - Tríó Sunnu Gunnlaugs, Lauf sem fýkur - Anna Pálína Árnadóttir, Moonlight shadow - Mike Oldfield.
Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Heimildarinnar, spjallaði um efnahag og samfélag á Morgunvaktinni í dag. Málefni Grindavíkur verða rædd, sem og húsaleigumarkaðurinn, kjaraviðræðurnar og hlutabréf. Ólga er í Þýskalandi. Öfgum í stjórnmálum er mótmælt, einkum útlendingaandúð. Verkalýðshreyfingin, kirkjan og fleiri hafa sameinast í andófinu og krafist er aðgerða stjórnvalda til að stemma stigu við ástandinu; óttast er að hryllingur fyrri tíma kunni að endurtaka sig. Arthúr Björgvin Bollason fór yfir þessi mál í Berlínarspjalli. Í síðasta hluta þáttarins var Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, gestur okkar. Við ræddum um málefni Grindvíkinga; um aðgerðirnar sem ríkisstjórnin tilkynnti um í gær og mögulegar útfærslur á þeim. Tónlist: Diamond, Neil - Ain't no sunshine. Sigrún Hjálmtýsdóttir - Valdi skafari. Sigrún Hjálmtýsdóttir - Landsíma-Lína. Kaufmann, Jonas - Con te partiró. Beatles, The - Here comes the sun.
Í spjalli um efnahag og samfélag fór Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Heimildarinnar m.a. yfir fjárhagshlið skemmda á húsum og öðrum mannvirkjum í Grindavík. Hann ræddi líka um yfirstandandi kjaraviðræður sem virðast ganga vel en gildandi samningar renna út um mánaðamót. Á dögunum var upplýst að á fundi sem nýnasistar og félagar í AfD flokknum sátu í nóvember voru ræddar hugmyndir um að vísa öllum innflytjendum í Þýskalandi úr landi. Við þessu var brugðist, m.a. með fjölmennum útifundum og umræðum um hvort vert sé að banna starfsemi AfD. Arthur Björgvin Bollason sagði frá í Berlínarspjalli. Ástir borgarstjórans í Berlín og menntamálaráðherra voru einnig til umfjöllunar og aðdáun Þjóðverja á Alfreð Gíslasyni, þjálfara þýska handboltalandsliðsins. Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir fjármálaráðherra ræddi um stöðu Grindvíkinga, einkum húsnæðismál. Hún sagði margt í skoðun sem skýrast muni fljótlega en hafa þurfi náið samráð við heimamenn um ákvarðanir. Tónlist: I concentrate on you - Ella Fitzgerald, Prende la vela - Rudi Calzado, Gone, gone, gone - Miles Davis.
Í spjalli um efnahag og samfélag fór Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Heimildarinnar m.a. yfir fjármál stjórnmálaflokkanna en þeir hafa flestir skilað ársreikningum til Ríkisendurskoðunar og hún birt. Arthur Björgvin Bollason sagði frá nýstofnuðum stjórnmálaflokki í Þýskalandi, mótmælum bænda vegna afnáms ívilnana og hljóðfæri ársins í Þýskalandi sem er túba. Þá fjallaði hann um knattspyrnusnillinginn Franz Beckenbauer sem lést í gær. Mikið álag hefur verið á starfsfólki Sjúkrahússins á Akureyri að undanförnu vegna mikilla veikinda. Inflúensa, covid og RS-vírus ganga. Hildigunnur Svavarsdóttir, forstjóri SAK, sagði frá. Tónlist: Laughing at life - Billie Holiday, Stars fell on Alabama - Billie Holiday, The Spirit - Pops Mohamed, Tuba jazz solo - Andrey Bykov.
Við fáum nýjan forseta 1. ágúst - Guðni Th. Jóhannesson gefur ekki kost á sér til endurkjörs. Hann upplýsti um ákvörðun sína í nýársávarpinu í gær. Um þá ákvörðun fjölluðum við klukkan hálf níu - sem og áramótaávarp Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra á gamlársdag. Eva Heiða Önnudóttir, prófessor við stjórnmálafræðideild Háskólans, var gestur okkar. Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Heimildarinnar, kom líka til okkar. Við spjölluðum um peninga í dag; meðal annars um þær breytingar sem gengu í gildi á skattkerfinu um áramót, þá fjármuni sem verkalýðshreyfingin vill að ríkið leggi af mörkum svo kjarasamningar takist í góðri sátt og plús og mínus tölur í Kauphöllinni. Þá var Berlínarspjall á sínum stað og í dag fór Arthúr Björgvin Bollason yfir það sem hæst bar í þýsku þjóðlífi á nýliðnu ári og sagði frá væntingum Þjóðverja til nýja ársins. Tónlist: Ragnar Bjarnason, Sigrún Jónsdóttir - Ljúfa vina. Svavar Knútur Kristinsson, Kristjana Stefánsdóttir - Hjá lygnri móðu. Holly, Buddy - Heartbeat. In a sentimental mood ? Duke Ellington & John Coltrane Blue in Green - Miles Davies

Samkvæmt nýrri mannfjöldaspá Hagstofunnar eru líkur á að landsmenn verði hálf milljón fyrir miðja öldina og 600 þúsund árið 2074. Mannfjöldaspár eru ónákvæm vísindi en gefa vísbendingar um líklega þróun. Ólöf Garðarsdóttir, prófessor í félagssögu við HÍ, ræddi vítt og breitt um mannfjölda og horfurnar fram undan. Búist er við að enn fjölgi í heiminum eftir því sem líður á öldina en þá taki fólki að fækka. Ólöf telur að barneiginum á Íslandi muni fækka í framtíðinni. Arthúr Björgvin Bollason flutti okkur tíðindi frá Þýskalandi. Mikið er fjallað um eldgosið á Reykjanesskaga í þarlendum fjölmiðlum en af öðru sem rætt var voru m.a. mótmælaaðgerðir þýskra bænda á mánudag, þeir óku dráttarvélum sínum til höfuðborgarinnar til að mótmæla fyrirhuguðu afnámi niðurgreiðslu á dísilolíu til landbúnaðar. Í síðasta hluta þáttarins var fjallað um þjóðtrú í tilefni af niðurstöðum nýrrar könnunar sem sýna að dregið hefur úr þjóðtrú landsmanna. Þá voru lesnar tvær sögur úr Þjóðsögum Jóns Árnasonar. Blue moon - Elvis Presley, Tsintskaro - Hamlet Gonashvili, Litli Stúfur - Borgardætur, Tempó prímó - Eyþór Gunnarsson, Gymnopédie no. 1 - Trio Jacques Loussier. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Eyrún Magnúsdóttir.

Ríkisfjármálin voru til umfjöllunar þegar Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Heimildarinnar, kom í vikulegt spjall. Fjárlagafrumvarpið hefur breyst töluvert frá því það var lagt fram og enn eru útgjöld þessa árs aukin, eins og sjá má í frumvarpi til fjáraukalaga. Við ræddum líka um gengi frumkvöðla í viðskiptalífinu vestan hafs, sem er fallvalt, eins og við komumst að. Olaf Scholz er óvinsælasti kanslari Þýskalands frá upphafi mælinga. Arthúr Björgvin Bollason sagði okkur hvernig á því stendur í Berlínarspjalli. Pisa-könnunin var einnig á dagskrá en það er engu minni óánægja með niðurstöður hennar í Þýskalandi en hér. Afskaplega kalt hefur verið í Skagafirðinum undanfarið, svo að þurft hefur að biðja íbúa að spara heita vatnið og láta ekki renna í heita potta. En það er ýmislegt fleira á seyði þar, eins og Sólborg S. Borgarsdóttir, forseti sveitarstjórnar í Skagafirði, ræddi við okkur. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir. Tónlist: It's a blue world - Ray Eberle River - Joni Mitchell Angstfrei - Herbert Grönemeyer Veðrið er herfilegt - Sigurður Guðmundsson og Memfismafían, Andrea Gylfadóttir.

Snemma í þættinum var fluttur fyrsti hluti stuttþáttaraðar Árna Snævarr, upplýsingafulltrúa hjá Sameinuðu þjóðunum, um Mannréttindayfirlýsingu SÞ í tilefni þess að 75 ár eru liðin frá samþykkt hennar. Árni ræddi stuttlega við Val Ingimundarson prófessor, Kára Hólmar Ragnarsson lektor og Rósu Magnúsdóttur prófessor. Í spjalli um efnahag og samfélag fjallaði Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Heimildarinnar, m.a. um fyrirfram greiddan arf en mikið hefur verið um slíkt að undanförnu sem sést best á auknum tekjum ríkissjóðs af erfðafjárskatti. Einnig var rætt um aukin framlög ríkisins til sveitarfélaga vegna málaflokks fatlaðs fólks og Kauphallarskráningu Ísfélagsins. Arthúr Björgvin Bollason sagði tíðindi frá Þýskalandi. Tillögur um að gangsetja að nýju kjarnorkuver í Þýskalandi eru efst á baugi í stjórnmálunum enda umdeildar mjög. Úlfar og almenningssamgöngukerfið í Berlín voru einnig til umræðu. Öld var á laugardag frá fæðingu Mariu Callas sem var fremsta sópransöngkona heims á sinni tíð. Ævi hennar var erfið og einkenndist af miklum átökum. Magnús Lyngdal Magnússon, óperuunnandi og tónlistargagnrýndandi Morgunblaðsins, sagði frá Callas. Tónlist: In the mood - Glenn Miller, Buttons and bows - Dinah Shore, Einnig voru leikin brot úr upptökum með Mariu Callas syngja verk eftir Bellini, Verdi og Puccini. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir.

Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Heimildarinnar, spjallaði meðal annars um efnahagsleg áhrif jarðhræringanna á Reykjanesskaga - þau eru talsverð - og um Marel, líkt og síðustu vikur. Við heyrðum líka af íbúum Árneshrepps sem eru orðnir langeygir eftir samgöngubótum. Vegir eru þar gamlir og lúnir og áformum um framkvæmdir sífellt frestað. Eva Sigurbjörnsdóttir oddviti í Djúpavík ræddi um samgöngumálin. Og svo var Arthúr Björgvin Bollason með okkur. Í Berlínarspjalli í dag ræddum við um hremmingar þýsku ríkisstjórnarinnar; tiltekin fjárútlát á þeim bæ voru dæmd ólögleg í hæstarétti á dögunum. Fyrirhuguð brúargerð í Rínardalnum er líka á dagskrá og undurfagur þýskur kórsöngur. Tónlist: Jones, Norah - Wake me up. Sigríður Thorlacius - Englar í heimsókn. Machito and his Afro Cubans, Machito - Novio mio.

Þórður Snær Júlíusson ritstjóri Heimildarinnar fjallaði m.a. um efnahagshorfur næsta árs en Hagstofan hefur gefið út nýja þjóðhagsspá; útlit er fyrir minni hagvöxt. Fjáraukalög ársins eru komin fram og þar standa stóraukin vaxtagjöld upp úr. Við fórum yfir þetta og fleira með Þórði. Stjórnmál og mannlíf voru á efnisskrá Berlínarspjallsins í dag. Arthúr Björgvin Bollason kom til okkar. Við töluðum við Írisi Róbertsdóttur, bæjarstjóra í Vestmannaeyjum, um vatnsleiðsluna til bæjarins sem skemmdist á dögunum. Þetta er alvarlegt mál enda rennur um hana allt neysluvatn Eyjamanna og að auki vatn til húshitunar. Við töluðum líka um það sem vel var gert og það sem betur mátti fara þegar rýma þurfti Vestmannaeyjar í gosinu fyrir 50 árum. Reynslan er til að læra af henni. Tónlist: Mitchell, Joni - Both sides now. Magnús Eiríksson, Kristján Kristjánsson Tónlistarm. - Ómissandi fólk.

Þórður Snær Júlíusson spjallaði um efnahag og samfélag. Við ræddum um hlutabréfaverð sem hefur lækkað nokkuð og útsvar sveitarfélaga sem á að hækka í Garðabæ, sem og um möguleg efnahagsleg áhrif þess ef fer að gjósa í Svartsengi. Mörg verjum við þónokkrum tíma á internetinu - jafnvel mjög miklum. Og ekki er það allt til gagns sem við sækjum þangað. Á fáeinum árum hafa orðið til örfá risastór fyrirtæki sem veita þjónustu á netinu - eða í tengslum við það - og er nú svo komið að þau hafa í raun náð á því ægivaldi og þar með okkur. Þessi fyrirtæki, fimm talsins, eru stærri og valdameiri en nokkurt heimsveldi hefur verið, að mati Margrétar Hugrúnar Gústafsdóttur sem um árabil var blaðamaður og hefur lengi velt fyrir sér samfélagsmiðlum og nemur nú mannfræði við háskólann. Svo var Arthúr Björgvin Bollason á sínum stað eftir Morgunfréttir og sagði okkur frá því sem er efst á baugi í þýsku þjóðlífi. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir. Tónlist: Armstrong, Louis, Oliver, Sy and his Orchestra, Fitzgerald, Ella - Dream a little dream of me. R.E.M. - Leaving New York. Green, Freddie, Young, Snooky, Foster, Frank, Coker, Henry, Grey, Al, Count Basie and his Orchestra, Payne, Sonny, Mitchell, Billy, Basie, Count, Culley, Wendell, Fowlkes, Charlie, Newman, Joe, Jones, Eddie, Jones, Thad, Powell, Benny, Wess, Frank, Royal, Marshall, Williams, Joe - Going to Chicago. Kraftwerk - The model.

Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Heimildarinnar, rýndi meðal annars í nýleg árshlutauppgjör stóru bankanna þriggja, hagnaðurinn er myndarlegur í milljörðum talið - en er hann mikill þegar tekið er tillit til umfangs bankanna? Við veltum því fyrir okkur og töluðum að auki um verðbólgu og fasteignalán. Arthúr Björgvin Bollason sagði okkur frá listmálaranum Caspar David Friedrich sem var í hópi fremstu málara á sinni tíð og hafði áhrif á listamenn í öðrum listgreinum. Hann fjallaði líka um þýska ríkisútvarpið en aldarafmæli þess er fagnað um þessar mundir. Þá sagði hann frá tíðindum úr þýskri pólitík. Meira var fjallað um menningu og listir í síðasta hluta þáttarins, þegar við forvitnuðumst um Listasafn ASÍ - það kom stuttlega við sögu hér í þættinum fyrir helgi. Safninu var komið á fót 1961 þegar Ragnar í Smára færði Alþýðusambandinu að gjöf myndarlegt listaverkasafn sitt. Safnið átti Ásmundarsal við Freyjugötu í 20 ár en seldi fyrir nokkru og hefur síðan verið listasafn á hjólum, eins og það er orðað. Elísabet Gunnarsdóttir safnstjóri var gestur okkar. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir. Tónlist: Ben and The Boys, Best, Denzil, Page, Hot Lips, Drayton, Charlie, Webster, Ben, Hart, Clyde - Tea for two. Sigur Rós - Gold (bonus track wav). Sinfóníuhljómsveit Berlínarútvarpsins - Söngur Sólveigar. Una Torfadóttir - Stundum.

Í spjalli um efnahag og samfélag ræddi Þórður Snær Júlíusson fyrst um ýmislegt sem varðar konur á vinnumarkaði. Hann sagði svo frá afkomu nokkurra fyrirtækja og horfum í efnahagslífinu. Arthur Björgvin Bollason greindi frá stofnun nýs flokks á vinstri væng þýskra stjórnmála, sagði frá mótmælaaðgerðum vegna átakanna fyrir botni Miðjarðarhafs og fór nokkrum orðum um jafnrétti kynjanna í Þýskalandi. Tónlist: Steinunn Jóhannesdóttir - Í eðli þínu ertu bara reglulega kvenleg, Signý. Sunna Gunnlaugsdóttir - Suddenly autumn. Anna Gréta Sigurðardóttir - Mountain. Margrét Helga Jóhannsdóttir - Einstæð móðir í dagsins önn. Spilverk þjóðanna - Nei sko. Grýlurnar - Ekkert mál. Björk Guðmundsdóttir - Venus as a boy. Emilíana Torrini - Sunny road. Una Torfadóttir - Í löngu máli. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson.

Í spjalli um efnahag og samfélag ræddi Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Heimildarinnar, m.a. um kaup íslenskra lífeyrissjóða á rúmlega 1.600 íbúðum af norsku félagi en áður voru þær í eigu Heimavalla og enn áður í eigu Íbúðalánasjóðs. Áform ríkisstjórnarinnar um sölu á eftistandandi hlut ríkisins í Íslandsbanka voru líka rædd og staða ÍL-sjóðs málsins. Olaf Scholz, kanslari Þýskalands, er gagnrýndur í heimalandinu fyrir að hafa hitt emírinn af Katar á dögunum en sá styður Hamas. Scholz er nú kominn til Ísraels en þýsk yfirvöld styðja Ísraelsstjórn. Arthúr Björgvin Bollason sagði frá í Berlínarspjalli. Bókamessan í Frankfurt og sýning um ævi og störf ljóðasöngvarans Wolf Biermann voru einnig til umfjöllunar. Í lok þáttar var rætt við Höllu Jónsdóttur endurmenntunarstjóra en 40 ára afmæli Endurmenntunar HÍ var fagnað á dögunum. Tugir þúsunda hafa setið námskeið Endurmenntunar sér til gagns eða gamans á árunum 40. Tónlist: To you, sveetheart, aloha - Louis Armstrong, Love me or leave me - Lester Young & Teddy Wilson Quartet, I hope that I don?t fall in love with you - Emilíana Torrini. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir.

Alþjóðleg friðarráðstefna Höfða friðarseturs stendur í Reykjavík í dag og á morgun. Pia Hansson, forstöðumaður Alþjóðamálastofnunar HÍ og Guðmundur Hálfdánarson stjórnarformaður ræddu um ráðstefnuna, setrið og ástandið í heimininum. Guðmundur ræddi sérstaklega um ástandið fyrir botni Miðjarðarhafs. Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Heimildarinnar, fjallaði um efnahag og samfélag. Hann ræddi m.a. um hríðlækkandi virði Marels, áform Kviku um að selja TM, góðan hagnað í sjávarútvegi. Í Berlínarspjalli sagði Arthúr Björgvin Bollason frá úrslitum fylkiskosninga í Hessen og Bæjaralandi en stjórnarflokkarnir fengu skell. Hann sagði líka frá miklum umræðum í Þýskalandi um innflytjendamál en vaxandi óánægja er með fjölda innflytenda í landinu og stefnu ríkisstjórnarinnar í málaflokknum. Hálendishátíð Landverndar fer fram í Iðnó í Reykjavík annað kvöld. Auður Önnu Magnúsdóttir, fráfarandi framkvæmdastjóri samtakanna, spjallaði um hálendið. Hún vill koma á fót miðhálendisþjóðgarði svo hálendinu verði forðað frá uppbyggingu fyrir ferðaþjónustu og frekari virkjunum. Hún ræddi líka um árin sex í starfi, loftlagsmál og fleira. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson.

Við ræddum fjármálastöðugleika í spjalli við Þórð Snæ Júlíusson, ritstjóra Heimildarinnar. Fjármálakerfið stendur traustum fótum og á heildina litið virðist staða lántakenda vera góð. Það eru þó blikur á lofti, og gríðarlegar fjárhæðir húsnæðislána með föstum vöxtum sem losna á næstu misserum með tilheyrandi hækkunum. Við ræddum líka um fyrirtækið Amaroq Minerals, sem leitar að gulli á Grænlandi og var nýlega fært á svokallaðan aðallista Kauphallarinnar. Arthúr Björgvin Bollason sagði frá umræðum um innflytjendamál í þýska þinginu og víðar í samfélaginu. Hann ræddi líka um Berlínarmaraþonið og nýja sýningu á verkum Edwards Munch. Í síðasta hluta þáttarins voru lýðræðið og sveitarfélögin til umfjöllunar. Arnar Þór Sævarsson, framkvæmdastjóri Sambands íslenskra sveitarfélaga, er á því að sveitarfélögin séu hornsteinn lýðræðisins. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir. Tónlist Fontella Bass - Rescue me. Sting, Shankar, Anoushka - The book of my life. Jones, Norah - Sunrise.

Við töluðum við Hildi Þórisdóttur á Seyðisfirði snemma í morgun. Þar hefur rignt eldi og brennisteini, og appelsínugul viðvörun í gildi. Fjárlagafrumvarpið með sínum 46 milljarða króna halla er komið til meðferðar fjárlaganefndar. Á því verða eflaust gerðar ýmsar breytingar - þannig er jafnan gangurinn í þessu. Þórður Snær Júlíusson fór yfir útlínur frumvarpsins með okkur. Arthúr Björgvin Bollason sagði okkur tíðindi frá Þýskalandi. Verðbólgan þar í landi hefur hjaðnað og búist er við að vöruverð taki að lækka á ný. Við ræddum líka aðgerðir umhverfisverndarsinna og Októberfest. Í dag fer fram í Reykjavík alþjóðleg ráðstefna um skaðsemi áfengis. Gunnar Hersveinn heimspekingur velkist ekki í vafa um ágæti þess að drekka ekki; hann er meðal frummælenda á ráðstefnunni og verður hjá okkur klukkan hálf níu. Við ræddum vítt og breitt um áfengi og áfengisneyslu. Tónlist: Whittaker, Roger - New world in the morning. Jón Rafnsson, Gunnar Gunnarsson Píanóleikari, Anna Pálína Árnadóttir - Lauf sem fýkur. Björgvin Halldórsson, Jón Jónsson Tónlistarm. - Kæri vinur.

Við fjölluðum um fjármál og rekstur hins opinbera. Það gengur ágætlega hjá ríkinu; afkoman er betri en ráð var fyrir gert í fjárlagafrumvarpinu. Aðra sögu er að segja af sveitarfélögunum, mörgum hverjum, þar er reksturinn verri en fjárhagsáætlun sagði til um. Hvernig stendur á því? Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Heimildarinnar, ræddi þetta. Við fjölluðum um sögu alheimsins, hvorki meira né minna; eins og hún blasir við í gegnum sjónauka á Suðurskautslandinu. Þar eru aðstæður þannig að betra er að fylgjast með því sem er á seyði í órafjarlægð úti í geimi en annars staðar. Sigríður Kristjánsdóttir hjá Stjörnuskoðunarfélagi Seltjarnarness og Jón Emil Guðmundsson, formaður Stjarnvísindafélags Íslands, komu til okkar. Arthúr Björgvin Bollason ræddi við okkur um þýsk stjórnmál, þéranir í þýsku máli og Selfoss í þýsku stórblaði í Berlínarspjallinu. Tónlist: Cash, Johnny, Cash, Johnny - Don't take your guns to town. Ragnhildur Gísladóttir, Tómas R. Einarsson - Þrennt. Mannakorn - Stjörnur.

Þórður Snær Júlíusson kom til okkar. Hann ræddi um skýrslu starfshóps viðskiptaráðherra um bankana sem staðfestir það sem við þó vissum; nefnilega að vaxtamunur er hér meiri en á hinum Norðurlöndunum. Já og sektina sem Samkeppniseftirlitið lagði á Samskip, 4,2 milljarða króna. Hvað gerðu skipafélögin eiginlega? Afkoma ríkissjóðs á síðasta ári var einnig til umfjöllunar. Stjórnmál og menning voru til umfjöllunar í Berlínarspjalli. Arthúr Björgvin Bollason sagði okkur meðal annars frá gróskunni í bókaútgáfu Þjóðverja, sem trúa því að bókin muni lifa af í tæknivæddum heimi. Þuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður Öryrkjabandalags Íslands, var gestur okkar í síðasta hluta þáttarins. Við ræddum við hana um nýafstaðna fundaröð um málefni fatlaðs fólks, hvernig horfir vinnan við innleiðingu Samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks við henni? Tónlist: Magnús Jóhann Ragnarsson, GDRN - Morgunsól. Sigríður Thorlacius & Sönghópurinn við Tjörnina, Tómas R. Einarsson - Morgunn. The good, the bad and the ugly - Sinfóníuhljómsveit Íslands

Ríkissjóður stendur miklu betur en áætlað var þegar fjárlög ársins voru samþykkt. Stefnir í að þar muni litlum hundrað milljörðum króna þegar upp verður staðið um áramót. Fjármálaráðherra upplýsti um þetta fyrir helgi og boðaði um leið sparnað í ríkisrekstrinum. Við fórum yfir stöðu og horfur í þessum efnum með Þórði Snæ Júlíussyni, ritstjóra Heimildarinnar. Í sumar hafa verið haldnir samráðsfundir um allt land, með það markmið að gera tillögur að því hvernig bæta má stöðu fatlaðs fólks. Hugmyndin er að fatlað fólk, stjórnvöld og aðrir vinni saman sem jafningjar, og svo verður lögð fram landsáætlun í málaflokknum. Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir er formaður verkefnastjórnar um landsáætlun í málefnum fatlaðs fólks og ræddi þessi mál við okkur. Arthúr Björgvin Bollason var líka með okkur, Berlínarspjall á sínum stað. Þýsk pólitík var einkum til umfjöllunar; erfið sambúð á þýska stjórnarheimilinu og fylkiskosningar í Bæjaralandi eftir fáeinar vikur. Tónlist: Cooke, Sam - Somebody have mercy. Karlakórinn Þrestir, Weisshappel, Fritz - Búðarvísur. Cooke, Sam - Meet me at Mary's place. Anna Gréta Sigurðardóttir - Waiting never ends.

Þórður Snær Júlíusson sagði meðal annars frá því sem fréttanæmt er úr tekjuyfirlitunum sem birt voru í síðustu viku. Við spjölluðum líka um bankastjóraskipti í Kviku og veltum fyrir okkur ákvörðun peningastefnunefndar um vextina. Við töluðum líka um refi, bæði á Íslandi og Grænlandi en Ester Rut Unnsteinsdóttir spendýravistfræðingur hefur rannsakað atferli skolla í báðum löndum. Arthúr Björgvin Bollason ræddi um kannabis og krepputal. Tónlist: Lay Low - By and by. Agnar Már Magnússon, B3, Ásgeir Ásgeirsson Tónlistarm., Erik Robert Qvick - Fals. Amos, Tori - Silent all these years (album version). Una Stef & the SP74 - Tunglið, tunglið taktu mig.

Þórður Snær Júlíusson spjallaði um efnahag og samfélag. Húsnæðismál voru til sérstakrar umfjöllunar; lánin í verðbólgunni, hvítbók stjórnvalda og nýbyggingar. Við ræddum líka um ferðaþjónustu. Í Berlínarspjallinu eftir Morgunfréttirnar sagði Arthúr Björgvin Bollason okkur meðal annars frá ástandi og horfum í þýsku efnahagslífi. Sumir telja blikur á lofti. Nýjasta stjarna Bayern Munchen-liðsins í fótbolta var líka til umfjöllunar, sem og hár kostnaður vegna hársnyrtingnar núverandi og fyrrverandi kanslara - ríkið borgar. Tvö ár eru í dag liðin frá því að Kabúl, höfuðborg Afganistans, væri fallin í hendur talibana. Þar með höfðu þeir náð völdum í landinu öllu. Hvernig er lífið í Afganistan í dag? Við ræddum það við Brynju Dögg Friðriksdóttur, sem starfaði í landinu á vegum Atlantshafsbandalagsins. Orioles, The - Crying in the chapel. Ben Selvin's Studio Orchestra, Waters, Ethel - Heat wave. Rote rosen - Hildegard Knef

With Laxdaela Saga behind us, we turn to the Tale of Bolli Bollason to bring the journey to a proper end. In this fun little story, Bolli Bollason finds himself swept into more than one conflict up in northern Iceland. Does he have the social and political (and warrior) savvy to go there and back again without a scratch? Listen and find out! Warning: Andy goes a bit crazy with the maps and topography in this one. Music Credits: Intro: from “Death Awaits” by Billy Malmstrom Outro: From “Óðinn” by Krauka