POPULARITY
Bítið á Bylgjunni með Lilju, Sindra og Ómari. Theodóra S. Þorsteinsdóttir, oddviti Viðreisnar í Kópavogi og Helga Jónsdóttir, oddviti Vina Kópavogs, ræddu við okkur um ástandið í Kópavogi. Árni Sverrisson, formaður félags skipstjórnarmanna, fór yfir ýmis mál er varðar sjómenn. Hraðfrétta Fannar og Stefán Einar Stefánsson fóru yfir sviðið. Kristín Tómasdóttir, fjölskyldumeðferðarfræðingur ræddi við okkur um nýja rannsókn um hamingjusöm pör. Sturlaugur Hrafn Ólafsson, Eyjólfur Flóki Freysson, Helgi Þrastarson og Ari Flóki Helgasson eru í 10.bekk í Laugalækjarskóla og halda góðgerðarhlaup á sunnudaginn. Tvíburasysturnar Anna Marta og Lovísa eru konurnar á bak við fyrirtækið Circolo sem framleiðir meðal annars hringinn fræga. Issi Fish and Chips og Óli í Hobbitunum kíktu í heimsókn og ræddu lagið sem Issi var að gefa út.
Góðir hlustendur, Endalínan mætt aftur!Halldór var utan þjónustusvæðis og þess vegna fékk Gunni þá Arnór og Ólaf Helga Jónsson með sér til að fara yfir allt sem hefur gerst síðustu tvær vikur, og það er á nógu að taka!Kynnum einnig til leiks nýjan samstarfsaðila, Comfyballs! Takk fyrir að taka slaginn með okkur!Að sjálfsögðu eru, ásamt comfyballs, Brons, Viking Lite, Hótel KEF og Soho með okkur í liði!
Miðvikudagur 12. febrúar Spilling, öryggi, pólitík, jaðarljóð, klassík, brúarsmíði og heilnæmi Þorvaldur Logason stjórnarformaður Transparency, Jóhann Hauksson blaðamaður og Þorvaldur Gylfason hagfræðingur eru sammála um að mæliskekkja hafi verið gerð varðandi spillingu á Íslandi fremur en að spilling sé á undanhaldi. Valur Ingimundarson prófessor ræðir öryggismál Evrópu í ljósi ummæla og stefnu Donald Trump. Sigurjón Magnús fær til sín reynslubolta að ræða daginn og veginn: Drífa Sigfúsdóttir varaformaður Landssambands eldri borgara, Ólafur Þ. Harðarson prófessor og Arnar Björnsson fréttamaður fara yfir stöðuna. Þorbera Fjölnisdóttir, varaformaður NPA miðstöðvar og Sigríður Jónsdóttir, aktivisti, listakona, liðskonur Tabú, femínískrar fötlunarhreyfingar, koma að Rauða borðinu og segja okkur frá Ljóðakvöldi RVK Poetics #17: Frá hjartarótum: Skrif eftir fatlaðar konur og jaðarsett kyn. Tónlistarnemarnir Sól Björnsdóttir og Sóley Lóa Smáradóttir taka á móti Hildigunni Halldórsdóttir fiðluleikara og Helga Jónssyni slagverkskennara og ræða tónlist og tónlistarkennslu. Auður Aðalsteinsdóttir, forstöðumaður Rannsóknaseturs Háskóla Íslands í Þingeyjarsveit og Svartárkotssysturnar Sigurlína Tryggvadóttir og Guðrún S. Tryggvadóttir, sauðfjár og ferðaþjónustubændur, huldukonur í stjórn Huldu-Náttúruhugvísindaseturs, ræða um brúarsmíðina til framtíðar. Harpa Fönn Sigurjónsdóttir, lögfræðingur og umhverfissinni og Guðrún Birna le Sage, framkvæmdastjóri SUM og verkefnastjóri Pietasamtakanna segja okkur frá Samtökum um áhrif umhverfis á heilsu, helstu ógnum og mikilvægi heilnæms umhverfis fyrir okkur öll.
Sunnudagurinn 15. desember: Synir Egils: Stjórnarmyndun, helstu verkefni og Píratar Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þær Helga Jónsdóttir bæjarfulltrúi, Oddný Harðardóttir fyrrverandi þingkona og Sanna Magdalena Mörtudóttir borgarfulltrúi og ræða stjórnarmyndun, verkefni nýrrar ríkisstjórnar og fréttir vikunnar. Þeir bræður taka stöðunni á pólitíkinni og reyna síðan að átta sig á stöðu Pírata með fólki úr þeirri hreyfingu: Birgitta Jónsdóttir stofnandi Pírata, Lenya Rún Taha Karim formaður Ungra Pírata, Þórólfur Júlían Dagsson sjómaður og Alexandra Briem borgarfulltrúi fara yfir sögu, erindi og framtíð Pírata.
Á föstudaginn fer fram málþing á vegum Mennta- og barnamálaráðuneytisins og Háskóla Íslands um hættuna á misnotkun gervigreindar og tækninýjuna til að brjóta kynferðislega á börnum. Með nýrri tækni blasir við nýr veruleiki sem vekur upp spurningar um það hvernig sé rétt að bregðast við. Sérfræðingar munu tala á málþinginu um það hvernig gervigreind og önnur stafræn tækni er misnotuð til að brjóta á börnum, hverjar birtingamyndir brotanna eru, hvernig tekist er á við slíkt og til hvaða forvarnaraðgerða er gripið. Páll Magnússon, sem starfar hjá fastanefnd Íslands í Genf og stýrir málþinginu, kom í þáttinn ásamt Regínu Jensdóttur, sérfræðingi í mannréttindum barna í Evrópu, en hún heldur erindi á þinginu. Við fræddumst um starfssemi Nýrnafélagsins í dag en markmið þess er meðal annars að styðja alla þá sem veikjast af langvinnum nýrnasjúkdómum og aðstandendur þeirra og að fræða almenning og sjúklinga um nýrnasjúkdóma, meðferð þeirra og félagsleg vandamál sem þeim fylgja. Helga Jóhanna Hallgrímsdóttir formaður Nýrnafélagsins kom í þáttinn. Svo fengum við póstkort frá Magnúsi R. Einarssyni í dag og pólitíkin var til umfjöllunar í upphafi póstkortsins. Magnús sagði frá pólitík sem hann upplifði í ýmsum Evrópulöndum þar sem hann hefur búið. Í seinni hlutanum sagði hann frá athygliverðum rannsóknum bandarísks sagnfræðiprófessors sem hefur rannsakað svefnvenjur fólks á miðöldum. Hann komst að því að fyrir iðnbyltinguna svaf fólk svokölluðum tvífasa svefni. Það þýðir að það vaknaði eftir um það bil þriggja tíma svefn, vakti í tvo tíma og svaf svo aftur í þrjá til fjóra tíma. Tónlist í þættinum í dag: Fyrir þig / Dátar (Rúnar Gunnarsson, texti Þorsteinn Eggertsson) Veldu stjörnu / Ellen Kristjánsdóttir og John Grant (Ellen Kristjánsdóttir, texti Bragi Valdimar Skúlason) Ryðgaður dans / Valdimar (Valdimar Guðmundsson og Ásgeir Aðalsteinsson) Á æðruleysinu / KK (Kristján Kristjánsson) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessu sinni koma þau Helga Jónsdóttir bæjarfulltrúi í Kópavogi, Sunna Sæmundardóttir fréttakona og Viðar Eggertsson leikstjóri og ræða vexti, forseta, söngvakeppni, pólitík og samfélagsmál. Þeir bræður munu taka stöðuna á pólitíkinni og fá síðan Ragnhildi Helgadóttur rektor í spjall um valdsvið forsetans og hversu mikið megi teygja það og toga.
Hanna Birna Kristjánsdóttir var föstudagsgestur Mannlega þáttarins í dag. Hún er fyrrum innanríkisráðherra, varaformaður Sjálfstæðisflokksins og borgarstjóri í Reykjavík. Eftir að hún sagði skilið við stjórnmálin hefur hún m.a. verið ráðgjafi á aðalskrifstofu UN Women í New York, verið formaður framkvæmdastjórnar Women Political Leaders (WPL) og verið í forsvari fyrir alþjóðlega ráðstefnu kvenleiðtoga sem haldin hefur verið í Hörpu. Hanna Birna er fædd og uppalin í Hafnarfirði og við spjölluðum við hana um æskuna og uppvöxtinn, skólagönguna, námið í Edinborg og svo sagði hún okkur frá því hvað hún er að gera í dag. Matarspjallið var svo auðvitað á sínum stað og það var þungt hljóð í Sigurlaugu Margréti þegar hún ræddi um þróun makkintosh molanna. Svo ræddum við einu sinni sem oftar um purusteikina og hvað þarf til að gera vel heppnaða, stökka puru. Tónlist í þættinum í dag: Klukknahljóm / Þórir Baldursson (erlent lag, útsetning Þórir Baldursson og Gunnar Þórðarson) Hótel Jörð / Vilborg Árnadóttir, Heimir og Jónas (Heimir Sindrason og Tómas Guðmundsson) Áfram stelpur / Áfram stelpur hópurinn - Anna Kristín Arngrímsdóttir, Bríet Héðinsdóttir, Guðrún Alfreðsdóttir, Kristín Á. Ólafsdóttir, Margrét Helga Jóhannsdóttir, Sigrún Björnsdóttir og Steinunn Jóhannesdóttir (Dagný Kristjánsdóttir, Gunnar Edander og Kristján Jóhann Jónsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Í spjalli um efnahag og samfélag ræddi Þórður Snær Júlíusson fyrst um ýmislegt sem varðar konur á vinnumarkaði. Hann sagði svo frá afkomu nokkurra fyrirtækja og horfum í efnahagslífinu. Arthur Björgvin Bollason greindi frá stofnun nýs flokks á vinstri væng þýskra stjórnmála, sagði frá mótmælaaðgerðum vegna átakanna fyrir botni Miðjarðarhafs og fór nokkrum orðum um jafnrétti kynjanna í Þýskalandi. Tónlist: Steinunn Jóhannesdóttir - Í eðli þínu ertu bara reglulega kvenleg, Signý. Sunna Gunnlaugsdóttir - Suddenly autumn. Anna Gréta Sigurðardóttir - Mountain. Margrét Helga Jóhannsdóttir - Einstæð móðir í dagsins önn. Spilverk þjóðanna - Nei sko. Grýlurnar - Ekkert mál. Björk Guðmundsdóttir - Venus as a boy. Emilíana Torrini - Sunny road. Una Torfadóttir - Í löngu máli. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson.

Loftslagsbreytingar ógna innviðum, náttúru og mannslífum á Íslandi og við því þarf að bregðast. Stjórnvöld kynntu á dögunum tillögur að aðlögunaráætlun, Loftslagsþolið Ísland. Hlutverk sveitarfélaganna er stórt í því samhengi. Við ræðum það við Hrönn Hrafnsdóttur, sérfræðing í loftslagsmálum hjá Reykjavíkurborg. Við tölum um Sundabraut. Vegagerðin heldur þessa dagana opna kynningarfundi um þá risastóru framkvæmd. Helga Jóna Jónasdóttir verkefnisstjóri Sundabrautar hjá Vegagerðinni fer yfir áætlanir, stöðuna og framkvæmdirnar. Við heyrum málfarsmínútu frá Önnu Sigríði Þráinsdóttur og í lok þáttar ræðum við ákveðin tímamót, afmæli fyrirbæris sem komið er á unglingsaldur og rótum aðeins í sameiginlegum minningasjóði vegfarenda sem við rákumst á í grennd við Efstaleiti 1 í Reykjavík. Það eru nefnilega 15 ár frá frægu ávarpi Geirs H. Haarde sem lauk með orðunum Guð blessi Ísland.

Höskuldur Kári Schram ræðir við Þorstein Víglundsson forstjóra og fyrrverandi félagsmálaráðherra, Helgu Jónsdóttur bæjarfulltrúa í Kópavogi og fyrrverandi ráðuneytisstjóra og Guðmund Hrafn Arngrímsson formann Leigjendasamtakanna um eldgosið á Reykjanesskaga, fasteigna- og húsaleigumarkaðinn, efnahagsmál og Íslandsbankamálið. Tæknimaður er Joanna Warzycha.

En entrevista con Citlali Sáenz en ausencia de Pamela Cerdeira para MVS Noticias, Helga Jáuregui, analista de datos de Impunidad Cero habla de las ‘Percepciones de Impunidad 2023'See omnystudio.com/listener for privacy information.
Íhlutun með aðstoð dýra hefur á síðastliðnum áratugum fest sig í sessi víða um heim enda hafa rannsóknir sýnt fram á gagnsemi hennar. Margar starfstéttir nýta sér þessa nálgun og má þar helst nefna iðjuþjálfa, sjúkraþjálfara, kennara, talmeinafræðinga, tannlækna, þroskaþjálfa, hjúkrunarfræðinga, sálfræðinga og félagsráðgjafa. Nærvera dýrsins og þátttaka hefur sýnt hafa jákvæð áhrif á líðan og þátttöku barna. Við fræddumst um sjúkraþjálfun á hestbaki og iðjuþjálfun með hundi í dag þegar þær Guðbjörg Eggertsdóttir sjúkraþjálfari og Gunnhildur Jakobsdóttir iðjuþjálfi komu í þáttinn. Fram undan er ráðstefnan Að styðjast við dýr í starfi með fólki á sunnudaginn í Reykjadal, nánari upplýsingar á heimasíðu æfingastöðvarinnar. Við fengum í dag nýjan pistil, eða öllu heldur vinkil, frá Guðjóni Helga Ólafssyni, skúffuskáldi og þjóðfræðiáhugamanni úr Flóanum. Í dag bar hann vinkilinn að dagbókum og dagbókarskrifum. Og lesandi vikunnar í þetta sinn var Stefán Jón Hafstein. Hann á auðvitað langan feril að baki í fjölmiðlum, vann við útgáfu, var borgarfulltrúi og hefur unnið hjá Þróunarsamvinnustofnun Íslands og fyrir utanríkisráðuneytið svo eitthvað sé nefnt. Og nýlega kom út bók eftir hann, Heimurinn eins og hann er, heimildasaga. Við fengum að vita hvað hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Bækur sem Stefán talaði um í dag: Opið haf e. Einar Kárason Tíminn á leiðinni e. Steinunni Sigurðardóttur Laws & Human Nature e. Robert Greene Náttúran og framtíð okkar e. Ellert Ólafsson Shakespeare á meðal vor e. John Kott Gúlag-eyjaklasinn e. Solzhenítsyn Sjálfstætt fólk e. Halldór Laxness TÓNLIST Í ÞÆTTINUM Áfram stelpur / Anna Kristín Arngrímsdóttir, Bríet Héðinsdóttir, Guðrún Alfreðsdóttir, Kristín Á. Ólafsdóttir, Margrét Helga Jóhannsdóttir, Sigrún Björnsdóttir, Steinunn Jóhannesdóttir og fleiri (Edander, Kristján Jónsson og Dagný Kristjánsdóttir) Chan Chan / Buena Vista Social Club (Francisco Repilado) Hey little One / Glen Campell (Burnette og de Vorzon) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Sólveig Pétursdóttir og Þuríður Helga Jónasdóttir (Solla og Helga) eru búsettar á Hofsósi og stofnuðu Verðandi endurnýtingarmiðstöð. Markmiðið þeirra er gefa hlutum sem stendur til að henda nýtt líf með því að endurnýta þá og draga þannig úr sóun. Í þessum þætti segja þær okkur betur frá því hvað Verðandi Endurnýtingamiðstöð er, hvaða verkefni þær eru að fást við, hvað drýfur þær áfram og hvernig þær sjá framtíðina fyrir sér.
Helga Jóhanna Bjarnadóttir sviðstjóri hjá Eflu: Hvaða fiskur er með mesta kolefnisfótsporið og hvað veldur? Er hægt að draga úr mengun þegar kemur að fiskveiðum- og fiskeldi? Rætt um kolefnisfótspor matvæla. Olgeir Gunnsteinsson sérfræðingur í lekaleit hjá Veitum: Hvaða dulurfulla hljóð er þetta? Hvaðan kemur það og hvað þýðir það? Ef eitthvað? Við komumst að því síðar í þættinum. Ruslarabb um einnota hanska Páll Líndal umhverfissálfræðingur með pistil.

Íslenska söguþingið hefst í dag og stendur til laugardags. Sverrir Jakobsson, prófessor í sagnfræði og formaður þingsstjórnar, ræddi vítt og breitt um sagnfræði sem er í stöðugri framþróun. Í Heimsglugganum sagði Bogi Ágústsson, m.a. frá nýrri skýrslu sem sýnir að sjötta hvert dauðsfall í heiminum megi rekja til mengunar. Hann sagði líka frá vindmyllugarði sem nokkrar Evrópuþjóðir og Evrópusambandið ætla að reisa í Norðursjó, áhrifum verðbólgunnar í heiminum á verð á íslenskum fiski í Bretlandi og þeirri staðreynd að ríkisútvarp Grænlands fær ekki grænlenskumælandi fólk til starfa. Vinir Kópavogs fengu tvo fulltrúa kjörna í bæjarstjórn í kosningunum um síðustu helgi. Helga Jónsdóttir, oddviti framboðsins, sagði frá tilurð þess og ræddi um stjórnmál vítt og breitt. Helga var borgarritari í Reykjavík í tíu ár og seinna bæjarstjóri í Fjarðabyggð og ráðuneytisstjóri í efnahags- og viðskiptaráðuneytinu. Tónlist: Break in to me gently - Brenda Lee, Happy birthday Mr. president - Marilyn Monroe, Lazy - Marilyn Monroe, Sugar sugar - Wilson Pickett. Ingerlaiinnaleqaagut - Nanook. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson.

Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir þingfréttamaður fór yfir líflega viku á Alþingi en það er ekki þingfundur í dag né heldur í næstu viku þar sem þá er kjördæmavika. Á dagskrá Alþingis í vikunni sem er að líða voru meðal annars efnahagsmál, raforkumál, matvælaframleiðsla, netsala á áfengi og sóttvarnir. Kristján Sigurjónsson, ritstjóri Túrista, fjallaði um mikla eftirspurn eftir flugsætum í kringum páskana og svo virðist sem landsmenn þyrsti í sól eftir lægðaganginn að undanförnu. Í ferðaspjalli var einnig komið inn á losun gróðurhúslofttegunda í tengslum við flugreksturinn og tjaldstæði á Norðurlöndunum. Guðbjörg Helga Jónsdóttir neyðarvörður sagði frá starfi neyðarvarða en í dag er 1-1-2 dagurinn. Á hverjum sólarhring berast að jafnaði 400-600 símtöl til Neyðarlínunnar og um síðustu áramót voru þau um eitt þúsund talsins og hafa sjaldan eða aldrei verið jafn mörg á þeim degi. Neyðarverðir þurfa oft að svara fólki á þeirra erfiðustu stundum og mikilvægt að neyðarverðir haldi ró sinni. Ánægjulegustu símtölin eru aðstoð við barnsfæðingar en Guðbjörg hefur sjálf aðstoðað við að taka á móti átta börnum í gegnum síma. Tónlist: Help me make it through the night - Kris Kristofferson Saving all my love for you - Whitney Houston De Temps en Temps - Josephine Baker The lonely shepherd - Gheorghe Zamfir Coward of the county - Graham Boulevard. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Guðrún Hálfdánardóttir.

Í gær bárust þær fréttir að sinfóníuhljómsveitin Concertgebouw frá Amsterdam sé á leið til landsins og muni halda tónleika í Hörpu þann 10. nóvember næstkomandi. Hljómsveitin, sem af mörgum er talin ein allra besta sinfóníuhljómsveit veraldar, flytur á tónleikunum sjöttu sinfóníur rússnesku tónskáldanna Tsjajkovskís og Sjostakovitsj undir stjórn finnans unga Klaus Mäkelä sem er á meðal eftirsótttustu hljómsveitarstjóra samtímans. Í Víðsjá dagsins verður rætt við Helga Jónsson tónlistarfræðing um þessa stórmerku hollensku sveit sem stendur á traustum sögulegum grunni og vekur hrifningu um heim allan. Einnig verður verður rætt við baritón söngvarann Jóhann Kristinsson sem hafið hefur litla og netta tónleikaferð sína um landið með Vetrarferð Schuberts upp á vasann. Jóhann söng lagaflokk tónskáldins á tónleikum á Akranesi í gærkvöldi ásamt píanóleikaranum Ammiel Bushakevitz. Þeir félagar verða svo á Ísafirði á fimmtudag og í Salnum í Kópavogi á sunnudag kl. 15. Snæbjörn Brynjarsson, leiklistarrýnir Víðsjár, segir hlustendum skoðun sína á sýningunni Rómeo og Júlía hjá Íslenska dansflokknum. Og loks tekur ný rödd til máls í Víðsjá. Þorgerður Ása Aðalsteinsdóttir fer á stjá og ræðir við Magneu Þuríði Ingvarsdóttir heldur úti Facebook síðu Tófan ljóða- og fræðasetur sem er tileinkuð skáldkonum. Þar birtir hún nánast daglega færslur um einstaka skáldkonur þar sem ljóð þeirra eru dregin fram. Yfirleitt eru skáldin sem um ræðir fædd í kringum þar síðustu aldamót og gjarnan eru nöfn þeirra með öllu óþekkt í dag. Þorgerður Ása Aðalsteinsdóttir kíkti í heimsókn til Magneu og fékk að grafast fyrir um tildrög Tófunnar og grúska með henni í ljóðabókunum. Umsjón: Guðni Tómasson og Halla Harðardóttir

Haustsöfnun Barnaheilla hófst í gær og er ætlunin að safna fé til þróunarverkefnis Barnaheilla í Sierra Leone sem leggur áherslu á vernd stúlkna á flótta. Guðrún Helga Jóhannsdóttir, aðstoðarframkvæmdastjóri Barnaheilla er stödd í Sierra Leone og við freistuðum þess að hringja í hana og heyra meira af þessu verkefni. Fyrr í vikunni samþykkti ríkisstjórnin að taka á móti allt að 120 afgönskum flóttamönnum til landsins í ljósi ástandsins þar í landi. Rauði krossinn mun hafa veg og vanda að móttöku fólksins eins og venja er en samtökin héldu jafnframt fund í gærkvöldi fyrir afgangskt fólk sem búsett er hér á landi til að fara betur yfir stöðuna. Áshildur Linnet, teymisstjóri hjá Rauða krossinum, kíkti til okkar upp úr hálf átta. Um helgina fagnar Menningarhúsið Hof á Akureyri 10 plús 1 árs afmæli sínu. Boðið verður upp á alls konar viðburði í húsinu alla helgina og á sunnudaginn verður sérstök hátíðardagskrá í tilefni afmælisins. Við fengum til okkar viðburðastjórann Kristínu Sóleyju Björnsdóttur og forvitnuðumst um hvað verður á boðstólnum í Hofi um helgina. Við renndum yfir fréttir vikunnar eins og venjan er hér á föstudögum. Blaðamennirnir Snorri Másson og Ingunn Lára Kristjánsdóttir komu til okkar upp úr átta, sögðu okkur hvað var helst að frétta og greindu stöðuna í samfélaginu með sínu nefi. Nú eru leikhús landsins byrjuð að kynna komandi leikár og mikil spenna í loftinu, enda hafa sviðslistirnar búið við miklar takmarkanir síðustu 18 mánuði. Í Þjóðleikhúsinu verður fyrsta frumsýningin á stóra sviðinu ný leikgerð af frægustu ástarsögu allra tíma, Rómeó og Júlíu eftir sjálfan Shakespeare, og þar er ætlunin að bjóða ungu fólki að fylla salinn fyrstu sýningarnar. Magnús Geir Þórðarson Þjóðleikhússtjóri kíktiu til okkar og sagði okkur nánar frá þessu höfðinglega boði sem og leikárinu framundan. Tónlist: Tómas Welding - Here they come Leon Bridges - Stream The Moldy Peaches - Anyone Else but You Gus Gus - Polyesterday Pláhnetan - Funheitur (Geimdiskó) Prins Póló - Líf ertu að grínast Cyber - Heiti king Lizzo - Rumors ft. Cardy B Stevie Nicks - Edge of Seventeen

Markús Þórhallsson ræðir við Kristínu Svövu Tómasdóttur, ritstjóra, um innihald vorheftis Sögu 2021. Saga - tímarit Sögufélags kemur út tvisvar á ári, vor og haust. Efni þess er fjölbreytt og tengist sögu og menningu landsins í víðum skilningi. Auk Kristínar Svövu ritstýrir Vilhelm Vilhelmsson Tímaritinu Sögu. Þetta fyrsta hefti 2021 er óvenju þykkt og í því eru fjórar ritrýndar greinar. Grein Barts Holterman byggir á ítarlegri einsögulegri rannsókn á vitnisburði sem kom fram fyrir dómi í Hamborg árið 1602 og varpar athyglisverðu ljósi á alþjóðlega viðskiptahætti á Íslandi við upphaf dönsku einokunarverslunarinnar. Grein Sveins Mána Jóhannessonar er af hugmyndasögulegum toga en þar fjallar hann um repúblikanisma og kannar áhrif hans á hugmyndaheim sjálfstæðisbaráttunnar og kvenfrelsisbaráttunnar á Íslandi á síðari hluta nítjándu aldar. Í þriðju grein heftisins skrifar Þorsteinn Vilhjálmsson um tengsl takmarkana barneigna og mannkynbóta í íslenskri orðræðu á millistríðsárunum. Loks fjallar Helga Jóna Eiríksdóttur um skjalasöfn sýslumanna, þá rannsóknarmöguleika sem þau bjóða upp á og þá skjalfræðilegu greiningu sem liggur slíkri notkun til grundvallar. Í heftinu eru 14 ritdómar og ein ritfregn en einnig skrifar Ólína Þorvarðardóttir svar við ritdómi Viðars Hreinssonar um bók hennar, Lífgrös og leyndir dómar. Á forsíðu að þessu sinni eru gripir sem fornleifafræðingar grófu upp úr gömlum ruslahaug í Hljómskálagarðinum sumarið 2020. Fáir eru jafn meðvitaðir um merkingu og mikilvægi sorps og einmitt fornleifafræðingar og um það skrifar Ágústa Edwald Maxwell forsíðumyndargrein. Sigurður Gylfi Magnússon hefur umsjón með álitamálunum og skrifar ásamt þremur nemendum sínum, Þórhildi Elísabetu Þórsdóttur, Jakobi Snævar Ólafssyni og Svavari Benediktssyni, álitamálapistla um margskonar blekkingar í sögulegu og fræðilegu ljósi. Í þættinum Saga og miðlun fjallar Björn Þór Vilhjálmsson um ritun, heimildir og heimildarvanda íslenskrar kvikmyndasögu sem hefur verið ofarlega á baugi undanfarið. Erla Hulda Halldórsdóttir skrifar grein um verk og hugsjónir Þorgerðar H. Þorvaldsdóttur kynja- og sagnfræðings sem lést síðastliðið sumar. Í viðhorfsgein veltir Helgi Þorláksson fyrir sér hvaða hugtak sé best að nota um stöðu Íslands gagnvart Danmörku fyrr á öldum. Loks skrifar Helga Hlín Bjarnadóttir um athyglisvert bréfasafn lausakonu í Reykjavík á nítjándu öld fyrir þáttinn Í skjalaskápnum. Einnig birtast andmæli við doktorsvörn Kristjönu Kristinsdóttur í sagnfræði við Háskóla Íslands sem fjallar um þróun konunglegrar stjórnsýslu og skjalasöfn lénsmanna á tímabilinu 1541 til 1683. Loks er í heftinu að finna ársskýrslu Sögufélagsins fyrir 2020-2021. Blanda er framleidd af Sögufélaginu og dreift á bbl.is og streymisveitur samkvæmt samkomulagi við Hlöðuna - hlaðvarp Bændablaðsins.
Í fyrsta þætti spjallar Alma við Helgu Jónsdóttir og síðan fáum við að heyra stutt viðtal við Jón Jónsson í Brautarholti sem er tekið af þremenningunum í Vestmannaeyja félaginu Heimakletti árin 1953/1954
Hópur sem kallar sig Vini Kópavogs er ósáttur við hvernig staðið er að fyrirhuguðum framkvæmdum við miðbæ Kópavogs og að þar sé fremur hugsað um hag fjárfesta en íbúa. Byggingarmagn muni margfaldast og byggð þéttast mikið en framkvæmdirnar eru upp á tugi milljarða. Helga Jónsdóttir, lögfræðingur og vinur Kópavogs, fór yfir þetta með okkur. Anna Sigríður Þráinsdóttir málfarsráðunautur kom til okkar að venju, en að þessu sinni talaði hún ekki bara um íslenskuna heldur sagði okkur frá verkefni þar sem unnið er að því að kortleggja tungumál allra grunn- og leikskólabarna í landinu. Fyrir 11 mánuðum nánast upp á dag hitti Hulda Sigrúnu Sævarsdóttur-Griffiths í London og ræddi við hana um samfélagsleg tónlistarverkefni sem hún hefur staðið fyrir í London, Los Angeles og víðar, sem m.a. hafa falið í sér að stofna hljómsveitir heimilislausra. Sigrún er nú komin hingað heim og ætlar að stofna eina óvenjulega hljómsveitina enn í Eldborg í Hörpu um komandi helgi. Hún kíkti til okkar í heimsókn og sagði okkur frá. Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata, talaði við okkur um þjóðsönginn en hann ásamt nokkrum öðrum þingmönnum leggur til að heimilt verði að flytja þjóðsönginn í þeirri útgáfu sem fólk kýs sjálft, hvort sem það er í viðskipta eða auglýsingaskyni en í dag er bannað að birta eða flytja þjóðsönginn í annarri mynd en við þekkjum hann núna. Þingmennirnir eru þeirrar skoðunar að ekki sé ástæða til að takmarka tjáningarfrelsi fólks með þessum hætti. Tónlistarveitan Spotify hefur tilkynnt um hækkun á áskriftarleiðum sínum, allt að 27 prósentum. Við veltum fyrir okkur hvað þetta þýðir fyrir rétthafa og flytjendur en umræðan um að þeirra hlutur sé of lítill hefur verið nokkuð áberandi. Eiður Arnarsson framkvæmdastjóri Félags íslenskra hljómplötuútgefenda var á línunni og setti okkur aðeins inn í stöðu mála. Tónlist: Jón Jónsson - Ef ástin er hrein (ft. GDRN). Alicia Keys - Love looks better. Hr. Hnetusmjör - Stjörnurnar. Grafík - Þúsund sinnum segðu já. The Eagles - Heartache tonight. Ragga Gísla, Dísa og Spraðabassarnir - Þorragleðigleðigleðigaman. Robbie Williams - Old before I die. Leon Bridges - Bad bad news. Ed Sheeran - Afterglow.

Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra segir viðskiptin rauða þráðinn í utanríkisstefnunni. Ingunn Kro og Helga J. Bjarnadóttir stjórnarmenn segja endurheimt votlendis lykilatriði í loftslagsmálum. Kristrún Heimisdóttir lögfræðingur og Björn Ingi Hrafnsson ritstjóri um ólgu í samfélagsumræðu og skotárásir á stjórnmálaflokka en þau segja tilganginn með árásum sé að hræða líftóruna úr fólki. Ásgeir Brynjar Torfason hagfræðingur ræðir um hagkerfið en hann segir eignatilfærslur fylgifisk kreppunnar.
Í þessum þætti fór ég til fyrrverandi skipstjóra og stýrimanns, Jóns Helga eða Jón í Hamri eins og hann er oft kallaður. Hann segir frá brunanum á Sjóla og fer yfir alla sína sögu.
Í þessum fyrsta þætti ársins 2021 eru ryfjuð upp umfjöllun um tvær bækur frá síðasta ári. Annars vegar er hér á ferðinni ein af fyrstu útgáfubókum ársins 2020, Árstíðir eftir Karítas Hrundar Pálsdóttur. Árstíðir er safn stuttra sagna sem einkum eru hugsaðar fyrir þá sem eru að læra íslensku og langar til að lesa áhugaverða bók sem ekki er allt of flókin en heldur ekki einfeldingsleg og býður upp á kynni við ýmislegt það sem áhugavert er og sérstakt í íslenskri hversdagsmenningu. Höfundurinn les upp úr bóki í útgáfuhófinu auk þess sem heyrist í Einari Kára Jóhannssyni einum að eigendum Unu útgáfu sem gefur út. Þá er í þættinum endurtekin samræða um vinsælustu bækurnar á Íslandi nefnilega glæpasöguna, en um hásumar 2020 ræddu þau katrín Jakobsdóttir bókmenntafræðingur og forsætisráðherra, Lilja Sigurðardótttir glæpasagnahöfundur og Pétur Már Ólafsson útgefandi um eðli og inntak sem og viðtökur glæpasagna. Þættinum lýkur svo með tali og tónum afar fámenns útgáfuboðs nýrrar og endurbættrar útgáfu bókainnar Látra-Björg eftir Helga Jónsson. Þar heyrðist Ragnheiður Ólafsdóttir kveða tvær vísur Bjargar og Aðalsteinn Eyþjórsson fór með galdur. Einnig heyrðist í ritstjóra endurútgáfunnar Hermanni Stefánssyni og nokkrir tónar frá strengjakvartett Reykjavík Barokk hópsins sem lék largoþátt strengjakvartetts í a moll, op. 3 nr 3 eftir 18. aldar tónskáldið Magdalenu Lombardini Sirmen. Þá heyrast stutt viðtöl við Hermann, Heimi Frey Hlöðversson og Ólöfu Sigursveinsdóttur.

„Mikið afskaplega eru leiðinlegar svona sérhannaðar bókmenntir fyrir unglinga.“ Eva - Stella í Orlofi (1986) Hver var ekki-uppáhaldsbókin þín? Þrír nördar og bókabéusar, ekki lengur unglingar, en voru það einu sinni, fara yfir titla æsku sinnar (og eldri) og pæla hvað í ósköpunum gekk eiginlega á í unglingabókmenntum. En hver þarf ekki smá Þorgrím í lífið svona endrum og eins? Geðsjúkdómar, kynferðisofbeldi, materíalistísk hugsun, furðuleg áhersla á mat, Sódóma Reykjavík og allir fullir? Já, þú giskaðir rétt, það er kominn tími til að pæla í „Nótt í borginni.“ eftir Helga Jónsson. Rut er kynferðislega aðlaðandi stúlka sem lendir í klónum á brjálæðingi á Mözdu, á meðan að aðrar persónur detta í það með mömmu sinni og pabba til að fagna 17 ára afmælinu hennar. Bara venjulegt föstudagskvöld....
Í þættinum verður sagt frá endurútgáfu bókar Helga Jónssonar um Látrabjörgu sem kom út árið 1949 og það heyrast brot úr upptöku sem gerð var í rafrænum útgáfuföguði bókarinnar. Þar kvað Ragnheiður Ólafsdóttir tvær af vísum Bjargar og Aðalsteinn Eyþjórsson fór með galdur. Einnig heyrðist í ritstjóra endurútgáfunnar Hermanni Stefánssyni og nokkrir tónar frá strengjakvartett Reykjavík Barokk hópsins sem lék largoþátt strengjakvartetts í a moll, op. 3 nr 3 eftir 18. aldar tónskáldið Magdalenu Lombardini Sirmen. Þáheyrast stutt viðtöl við Hermann, Heimi Frey Hlöðversson og Ólöfu Sigursveinsdóttur. Þá er í þættinum rætt við Mariu Ramos um nýja ljóðabók hennar Havana og við Kristján Hrafn Guðmundsson um nýtt smásagnasafn hans Þrír skilnaðir og jarðarför.

Hálf öld er um þessar mundir frá upphafi starfs Rauðsokka-hreyfingarinnar. Ekki var um eiginlegan stofndag að ræða en allt eins má miða við 19. október 1970 þegar fjölmennur fundur var haldinn í Norræna húsinu þar sem kynntar voru hugmyndir um uppbyggingu og vinnutilhögun hreyfingarinnar. Gerður G. Óskarsdóttir, síðar fræðslustjóri, tók þátt í stofnun og starfi Rauðsokkanna á sínum tíma. Hún kom í þáttinn og rifjaði upp kvenfrelsis- og jafnréttisbaráttuna 1970. Óljóst er hvort eiginlegar viðræður Breta og Evrópusambandsins um fríverslun eru enn í gangi. Í síðustu viku rann út frestur sem Johnson forsætisráðherra setti sjálfum sér, án þess að samningar væru í höfn. Sigrún Davíðsdóttir fór yfir stöðu mála í Lundúnaspjalli. Hún sagði einnig frá útbreiðslu Kórónuveirunnar í Bretlandi og hertum aðgerðum stjórnvalda til að ná tökum á ástandinu. Jacinda Ardern er sigurvegari þingkosninganna á Nýja Sjálandi um helgina. Hún og flokkur hennar, Verkamannaflokkurinn, unnu góðan sigur og hlutu meirihluta þingsæta. Ardhern verður því áfram forsætisráðherra Nýja Sjálands. Hún er vinsæl í heimalandinu og hefur vakið athygli fyrir framgöngu sína víða um heim. Tónlist: Í eðli þínu ertu bara reglulega kvenleg, Signý - Steinunn Jóhannesdóttir, Framtíðardraumar - Margrét Helga J'ohannsdóttir, Þyrnirós - Kristín Á. Ólafsdóttir, Áfram stelpur ( í augsýn er nú frelsi) - Áfram stelpur.

Í þessum þætti er farið yfir bókina The Objectivist Parenting eftir Roslyn Ross í fjarbókaklúbbi. Sem fyrr var tæpt á helstu atriðum bókarinnar og svo fjörlegar umræður inni á milli. Við vitum aldrei hverjir mæta á þessa fjarbókaklúbba en það sýnir sig að þegar stjórnartaumunum er sleppt kemur eitthvað frábært upp úr dúrnum. Þessi bók er knöpp og fer ítarlega yfir allt sem Roslyn og aðrir telja vera að atferlisstefnu (e. behaviorism) og hvað megi þá gera í staðinn. Svo skemmtilega vildi til að á meðal þátttakenda var PMTO-meðferðaraðili mættur og því hægt að vega þetta og meta saman, þá stefnu sem enn er kennd í nokkrum sveitarfélögum landsins, bæði í skólum og af heilsugæslum og sem talsmenn virðingarríks uppeldis myndu telja vera afsprengi atferlisstefnu þótt margt geti líka talist vera virðingarríkt í henni. Þarf endilega að kenna foreldrum og kennurum að umbuna börnum fyrir að komast hraðar út um dyrnar eða í háttinn? Er skólakerfið okkar með nægilega mikið svigrúm til að ýta undir sjálfstæði og val barna? Þetta og margt fleira var á meðal þess sem rætt var á þessum frábæra bókaklúbbi. Þátttakendur í umræðum voru Anna Mjöll Guðmundsdóttir, Guðbjörg Björnsdóttir, Gyða Björg Sigurðardóttir, Ólafía Helga Jónasdóttir, Perla Hafþórsdóttir og Sólveig Rós. Þættinum stýrði Guðrún Inga Torfadóttir.
Í Víðsjá í dag verður meðal annars rætt við Víking Heiðar Ólafsson píanóleikara um nýja plötu þar sem hann leikur tónlist eftir frönsku tónskáldin Claude Debussy og Jean-Philippe Rameau, en platan sem kemur út hjá útgáfufyrirtækinu Deutsche Grammophon á morgun er sú þriðja sem Víkingur Heiðar gefur út hjá fyrirtækinu. Í Víðsjá hljómar brot úr ítarlegu viðtali sem Guðni Tómasson átti við Víking en það mun hljóma í heild sinni í páskadagskrá Rásar 1. Þátturinn minnist einnig franska skopmyndateiknarans Alberts Uderzo sem andaðist á þriðjdag, 92ja ára gamall. Þekktastur var Uderzo fyrir að teikna sögurnar um Ástrík, en fyrsta teiknimyndasagan sem fjallar um hann kom út árið 1959. Rætt verður við Einar Fal Ingólfsson ljósmyndara og blaðamann og Halldór Baldursson skopmyndateiknara. Hermann Stefánsson rithöfundur ávarpar hlustendur úr Hljóðstofu B3, og skoðar í dag ómtíma bóka með því að glugga í hið merkilega rit Íslenska þjóðhætti eftir Jónas frá Hrafnagili, nýútkomna bók með sögum um kindur og óútkomin rit af skyldum toga eftir afkastamikinn og merkan en nánast óútgefinn höfund, Helga Jónsson frá Þverá í Dalsmynni. Og hlustendur heyra ljóð fyrir þjóð. Edda Björgvinsdóttir flytur á stóra sviði Þjóðleikhússins ljóðið Eilífð daganna eftir Ingibjörgu Haraldsdóttur. Umsjón: Guðni Tómasson og Eiríkur Guðmundsson
MANNLEGI ÞÁTTURINN MIÐVIKUDAGUR 8.MAÍ 2019 UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON Mánudaginn 29.apríl fékk forseti Íslands, Guðni Th Jóhannesson, afhendan fyrsta K-lykilinn í landssöfnun Kiwanishreyfingarinnar, sem hófst formlega 1.maí. Landsöfnunin er, eins og í fyrra, til styrkar BUGL og Píeta. Hingað komu þær Helga Jörgensdóttir, hjúkunardeildarstjóri á göngudeild BUGL og Soffía Erla Einarsdóttir Verkefnastjóri göngudeild BUGL og sögðu okkur frá þessari söfnun og hvernig hún gagnast Barna- og unglingageðdeild, BUGL, og frá því sem er efst á baugi í starfseminni. Nú er að fara í gang vitundarvakning um Ljósið,endurhæfingu fyrir krabbameinsgreinda og búið er að gera myndband þar sem ljósberar og aðstandendur segja frá reynslunni í kringum krabbameinið og hvernig Ljósið hjálpaði þeim. Aðstandendur Ljóssins vilja með þessu gefa dýpri skilning á starfinu sem þar fer fram. Árangur af endurlífgunum hér á landi er mjög góður. Hjörtur Oddsson, hjartalæknir og formaður Endurlífgunarráðs segir að það megi að einhverju leyti þakka því að um 60 þúsund Íslendingar hafi farið á endurlífgunarnámskeið á liðnum fimm árum. Um 140 endurlífganir eru hér á landi utan sjúkrahúsa á hverju ári Bergljót Baldursdóttir ræddi við hann á Heilsuvaktinni.
Forsvarsmenn fyrirtækja sem stunda undirboð og kennitöluflakk verða settir í tímabundið bann við stjórnun fyrirtækja, samkvæmt tillögum starfshóps sem skipaður var til að taka á vandanum. Einkareknir fjölmiðlar munu eiga rétt á 25% endurgreiðslu af beinum launatengdum kostnaði samkvæmt nýju frumvarpi um stuðning við einkarekna fjölmiðla. Búist er við að framlag ríkisins nemi allt að 400 milljónum á ári. Engar vísbendingar eru um að veiðistofn loðnu sé að stækka og að meiri loðna sé að ganga á miðin við landið. Nýtt sjúkrahótel við Landspítalann var formlega afhent í dag. Búist er að fyrstu sjúklingarnir dvelji þar í byrjun apríl. Efnahagssamdráttur hefur verið á Ítalíu síðastliðið hálft ár, sem þýðir að kreppa er formlega gengin í garð á ný. Rætt um kuldakastið sem gengur yfir landið. Arnar Páll talar við Eiríkur Hjálmarsson, talsmann Veitna og Helga Jóhannesson, framkvæmdastjóra Norðurorku. Fjölskylda á Kjalarnesi gekk með hugmynd í maganum í nokkur ár, og ákvað svo, eftir að byggingareglugerð var rýmkuð, að láta slag standa og reisa 35 fermetra hús í garðinum. Í haust flutti elsti sonurinn, 19 ára, inn. Spegillinn heldur áfram umfjöllun um fólk sem valið hefur óhefðbundnar lausnir í húsnæðismálum. Arnhildur Hálfdánardóttir talar við Magnús H. Ólafsson, Björn Karlsson forstjóra Mannvirkjunarstofnunar og Ólöfu Örvarsdóttur sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs
Eva Margrét Jónudóttir gerði lokaverkefni við auðlinda- og umhverfisdeild Landbúnaðarháskóla Íslands um viðhorf íslenskra neytenda gagnvart hrossakjöti og kauphegðun þeirra á slíku kjöti. Þar kom ýmislegt forvitnilegt í ljós og Eva Margrét kom til okkar og sagði okkur meira. Það eru margir á þönum fyrir jólin en fáir sennilega jafn uppteknir og Gunnar Helgason, rithöfundur, leikari og leikstjóri. Hann var að koma frá Póllandi þar sem kvikmyndin Víti í Vestmannaeyjum var að vinna til enn einna verðlaunanna, en hún er byggð á samnefndri sögu hans. Gunnar er einnig á þönum vegna bókar sinnar um Sigga sítrónu og við spurðum hann hvernig hann kemur þessu öllu fyrir á dagatalinu? Bíó Paradís hefur boðið upp á endursýningar á ýmsum sígildum kvikmyndum undanfarið. Þó slíkt myndefni sé mest allt orðið aðgengilegt á efnisveitum í dag finnst mörgum gaman að rifja upp perlur á stóru tjaldi. Við slógum á þráðinn til Hrannar Sveinsdóttur hjá Bíó Paradís og heyrðum af því sem framundan er í sígildu jólabíói. Það kemur margt áhugavert fram í Hvítbók um framtíðarsýn fyrir fjármálakerfið sem kynnt var í gær, en hún hefur verið lengi í vinnslu. T.d. að nauðsynlegt sé að ríkið losi um eign sína í bönkunum og að nauðsynlegt sé að að setja takmörk á fjárfestingarstarfsemi bankanna. Einnig kemur fram að orð eins og háir vextir, dýrt, okur, glæpastarfsemi, spilling og græðgi eru það sem flestum dettur fyrst í hug til að lýsa bankakerfinu og að einungis 16 prósent bera mikið traust til þess. Katrín Júlíusdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fjármálafyrirtækja, fórr yfir þetta með okkur. Sævar Helgi Bragason kom til okkar eins og alltaf á þriðjudögum, að þessu sinni með vísindabland í poka. Tónlist: KK og Ellen - Yfir fannhvíta jörð. SamSam - Desember. Hall and Oates - Jingle bell rock. Stefán Hilmarsson - Ein handa þér. Weezer - Can't knock the hustle. Chuck Berry - Johnny B. Goode. Cee Lo - What Christmas means to me.
País Islandia Dirección Dagur Kári Guion Dagur Kári Fotografía Rasmus Videbæk Reparto Gunnar Jónsson, Ilmur Kristjánsdóttir, Margrét Helga Jóhannsdóttir, Sigurjón Kjartansson, Arnar Jónsson, Franziska Una Dagsdóttir, Sigurður Karlsson Sinopsis A sus 43 años, Fúsi es un inadaptado, con sobrepeso, que nunca tuvo novia y cuyo único interés son las batallas de la Segunda Guerra Mundial, que reproduce en miniatura en el apartamento en el que vive con su madre. Un día recibe un cupón para acudir a una escuela de baile, donde conoce a Sjöfn, una mujer solitaria, como él, y con profundas heridas psicológicas.
RIFF, alþjóðlega kvikmyndahátíðin í Reykjavík verður sett í 15. sinn 27.sept. Þessi hátíð hefur sett sterkan svip á menningarlíf Reykjavíkur frá árinu 2004, hingað koma árlega erlendir hátíðargestir, fjölmiðlar og heiðursgestir hátíðarinnar sem margir hafa markað djúp spor í kvikmyndasöguna. Börkur Gunnarsson, kynningarstjóri hátíðarinnnar og Guðrún Helga Jónasdóttir, dagskrárstjóri heimildarmynda á RIFF komu í þáttinn og sögðu frá hverju má eiga von á í þetta sinn, heiðursgestum hátíðarinnar og dagskránni. Blábankinn á Þingeyri stóð fyrir vinnustofu í síðustu viku þar sem japanskir gestir sögðu frá því sem þeir hafa kallað skapandi fólksfækkun. Þetta vakti forvitni okkar. Arnar Sigurðsson, Blábankastjóri, var í símanum frá Þingeyri og sagði frá því hvaða fyrirbæri Blábankinn er og hvað kom fram í máli japönsku gestanna. Lesandi vikunnar í þettta sinn var Halldór Bragason gítarleikari. Við heyrðum hvaða bækur eru á náttborðinu hans, hvað hann hefur verið að lesa og hvaða bækur og höfundar hafa haft áhrif á hann í gegnum tíðína. Umsjón: Lísa Pálsdóttir og Gunnar Hansson
Kunstbøker, hva er egentlig det? Vi utforsker emner med et besøk til kunstavdelingen på Ark Egertorget og har slått av en prat med Helga Jóhannesdóttir, ansvarlig for avdelingen. Hun har utfordret oss til å lese en bok om pilegrimsreise i Japan, samt at vi har plukket opp noen andre bøker som kan knyttes til kunst på ulike vis. Hovedbøker: Hvordan komme til Nirvana uten å dø først av Christine Istad og Kari Gjæver Pedersen (Felles) Det felles eide av Eivind Hofstad Evjemo (red.) (Nora) The Medici av Mary Hollingsworth (Linda) Shakespeares Hamlet av K., Oscar, illustrert av Dorte Karrebæk (Tine) Charlotte av David Foenkinos (illustrert utgave) (Felles) Bøker nevnt: Hamlet av William Shakespeare (T) Om du vil besøke kunstavdelingen til Ark Egertorget finner du dem i kjelleren på senteret Eger midt på Karl Johan! --- Leserne er Nora Nordskar Hoel, Linda Aarvik & Tine Waag Fjeldstad. Produsert av Einar Stabenfeldt --- www.bokstabelen.com instagram.com/bokstabelen facebook.com/bokstabelen
Reykvíkingar dagsins í dag ljá Reykvíkingum frá árinu 1918 rödd sína og lesa valda texta frá því ári. Í þessum þætti les Kári Waage tónlistar- og fjölmiðlamaður í Reykjavík úr bréfi sem Jón Jónsson Aðils, þingmaður og dósent í sögu við Háskóla Íslands sendi vini sínum Helga Jónssyni grasafræðingi. R1918 er samstarfsverkefni Listahátíðar í Reykjavík, Landsbókasafnsins og RÚV. Textavinna: Landsbókasafn Íslands-Háskólabókasafn og Bjarni Jónsson.

Reykvíkingar dagsins í dag ljá Reykvíkingum frá árinu 1918 rödd sína og lesa valda texta frá því ári. Í þessum þætti les Ása Fanney Gestsdóttir, söngkona símskeyti til Helga Jónssonar frá Geithellum. R1918 er samstarfsverkefni Listahátíðar í Reykjavík, Landsbókasafnsins og RÚV. Textavinna: Landsbókasafn Íslands-Háskólabókasafn og Bjarni Jónsson.