POPULARITY
Í gær var veisla hér í Útvarpshúsinu þegar Menningarviðurkenningar RÚV fyrir árið 2024 voru afhentar að viðstöddum viðurkenningarhöfum og gestum. Veittar voru tvær viðurkenningar úr Rithöfundasjóði og tilkynnt um styrki úr Tónskáldasjóði Ríkisútvarpsins og STEFs á árinu. Mugison fékk Krókinn, verðlaun fyrir framúrskarandi lifandi flutning, og tilkynnt var um valið á orði ársins 2024, sem er hraunkælingarstjóri, eins og komið hefur fram í fréttum. Birnir Jón Sigurðsson hlaut hvatningarverðlaun Rithöfundasjóðs Ríkisútvarpsins, en þetta árið er það Áslaug Jónsdóttir sem er handhafi viðurkenningar Rithöfundasjóðs RÚV. Ásdís segir sjálf að hún sé bókverkakona, en frá 1990 hefur hún ritað og myndlýst fjölda barnabóka, skrifað ljóð og leikrit, auk þess að taka þátt í myndlistar- og bókverkasýningum. Hennar nýjustu sköpunarverk eru ljóðabókin Til minnis og limrubókin Allt annar handleggur, sem komu út árið 2023 og Skrímslaveisla sem kom út í fyrra, en Ásdís er sennilega þekktust fyrir bækurnar um skrímslin sem eru orðnar 11 talsins. Ásdís verður gestur okkar í þætti dagsins. Vínartónleikar Sinfóníuhljómsveitar Íslands fara fram í Eldborg Hörpu í kvöld og næstu tvo daga. Sambærilegir viðburðir fara fram í öllum helstu borgum Evrópu í upphafi árs og tónleikum Vínarfílharmóníunnar er sjónvarpað um heim allan á nýársdag. Vinsældir vínartónleika eru gífurlegar og áheyrendur flykkjast í tónleikasalina til fagna hefðinni og nýju ári í lakkskóm og pallíettukjólum. Margir gætu haldið að rætur slíkra hátíðahalda lægju í menningarblóma 19. aldar. En sagan er talsvert styttri en svo og á sér raunar nokkuð dökkar hliðar. Við heyrum einnig leikhúsrýni í þætti dagsins. Að þessu sinni rýnir Katla Ársælsdóttir í jólasýningu Þjóðleikhússins, Yermu eftir ástralska leikskáldið Simon Stone. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir
Yung Lean er sænskur tónlistarmaður sem er fæddur árið 1996, hann sló í gegn fyrir áratug síðan, varð heimsfrægur aðeins 17 ára gamall. Miðar á tónleika hans í Eldborg í Hörpu, sem fara fram á morgun, seldust upp á þremur dögum. Egill Ástráðsson, er aðdáandi Yung Lean, og einn þeirra sem standa að því að flytja hann inn til landsins, við ræðum áhrif listamannsins og Íslandstenginguna. Árið 2021 fór í loftið á Rás 2 útvarpsþátturinn Ólátagarður. Þátturinn var frá upphafi nátengdur reykvísku grasrótartónlistarsenunni og útgáfuhópnum Post-dreifing. Lifi grasrótin var slagorð þáttarins. Í tæp fjögur ár hafa þáttarstjórnendur grafið djúpt ofan í moldina og kastað upp á borð ýmsum spírum. Þetta er tveggja tíma prógram á sunnudagskvöldum frá átta til tíu, með viðtölum og helling af tónlist sem heyrist ekki annars staðar, demóum og prufuupptökum frá ungum og efnilegu tónlistarfólki. Nú í haust tóku nýir umsjónarmenn við þættinum, Björk Magnúsdóttir og Einar Karl Pétursson. Kolbeinn Rastrick rýnir í tvær nýjar íslenskar bíómyndir, Missi eftir Ara Alexander Ergis Magnússon og Topp 10 möst, eftir Ólöfu B. Torfadóttur.
Hljómsveitin Jethro Tull er í aðalhlutverki í Rokklandi í dag en Jethro Tull heldur tónleika í Eldborg í Hörpu 4. maí nk ? þrettándu tónleikana sína á Íslandi. Hljómsveitin spilaði fyrst í íþróttahúsinu á Akranesi 1992 og hefur svo spilað í Háskólabíói, Laugardalshöll og Hörpu, en síðast þegar Jethro Tull spilaði á Íslandi var það fyrir jólin 2016 í Hallgrímskirkju tvö kvöld í röð? og þá voru sérstakir gestir Marc Almond, KK, Unnur Birna Björnsdóttir, Gunnar Gunnars organisti, og Egill Ólafs og Guðni Már Hennings sem lásu ljóð sitthvort kvöldið. Jethro Tull var að senda frá sér nýja plötu á föstudaginn: RökFlöte, sem er byggð í kringum Norræna Goðafræði ? Völuspá og Ragnarök. Ég spjallað við Ian Anderson forsprakka Jethro Tull í vikunni um nýju plötuna, ferðalög, Akranes, dauðann, Händel, Morrisey ofl. En mann -og dýravinurinn, kántrísöngvarinn og vandræðagemsinn Willie Nelson kemur líka við sögu. Hann verður nefnilega 90 ára á miðvikudaginn og ætlar að fagna því með tvennum tónleikum í Hollywood Bowl í Los Angeles þar sem vinir hans ætla að syngja og spila með honum, fólk eins og Chris Stapleton, Edie Birckell, Kacey Musgraves, Leon Bridges, Lukas Nelson, Lyle Lovett, Margo Price, Miranda Lambert, Nathaniel Rateliff, Neil Young, Nora Jones, Orville Peck, Rosanne Cash, Sheryl Crow, Snoop Dogg, Sturgill Simpson, The Avett Brothers, The Chicks, The Lumineers, Tom Jones, Warren Haynes, Ziggy Marley og fleiri. Við rifjum upp brot úr viðtali við Willie frá á Glastonbury festival árið 2000 þegar ég og Magnús R. Einarsson heimsóttum Willie í rútuna hans eftir vel heppnaða tónleika á Pýramídasviðinu þar. Nýjasta platan hans Willie, I Don't Know a Thing About Love sem kom út í mars er sólóplata númer 73. Hann var tilnefndur í ár til fernra Gramy-verðlauna fyrir þrjár mismunandi plötur.

Rokklandi vikunnar kemur við sögu bandaríska hljómsveitin Wilco sem spilar 3 kvöld í röð í Eldborg í Hörpu núna í vikunni; skírdag, föstudaginn langa og laugardag, og það er uppselt! Svo er það hljómsveitin Kvikindi sem hlaut verðlaun fyrir plötu ársin á Íslensku tónlistarverðlaununum á dögunum - kvikindi kemur í heimsókn. Gítarleikarinn Tommy Emmanuel er að koma til Íslands til að spila í Silfurbergi í Hörpu 16. Apríl. Hann er einn fremsti gítarleikari í heimi, einskonar Hendrix kassagítarsins? Björn Thoroddsen verður gestur á tónleikunum og hann og Þráinn Árni Baldvinsson úr Skálmöld og fleiri tónlistarmenn segja okkur frá Tommy. HEIDRIK heitir tónlistarmaður og myndlistarmaður frá Færeyjum sem bjó í nokkur ár á íslandi fyrir nokkrum árum. Hann gekk í Listaháskóla íslands - hefur gefið út plötur, spilað á HEIMA-hátíðinni í Hafnarfirði. Hann spilaði á Iceland Airwaves síðasta haust með Færeysku glam-kántrí-hljómsveitinni sinni sem heitir Koyboykex, og nú var Heidrik að senda frá sér skemmtilega plötu sem heitir Heidrik Sings the Björk songbook og þar syngur hann lög Bjarkar sem var fyrirmynd hans þegar hann,- var eins og hann segir sjálfur; Lítill hommastrákur í Færeyjum. Þetta er nú það helsta í Rokklandi vikunnar.

Í Rokklandi dagins verðum við að mestu á Spáni með Cesar Andion frá Live Nation og Spanish Wave á Spáni (útflutningsskrifstofu spánskrar tónlistar) og heyrum fullt af tónlist frá Spáni. Við ræddum saman á Eurosonic Festival í Hollandi í janúar. Ólöf Arnalds er með söfnun í gangi á Karolifa Fund fyrir nýrri plötu, Tár í morgunsárið. Við heyrum 2 lög sem verða að finna á plötunni. Ég minnist Burt Bacharach sem lést í vikunni sem leið og heyrum brot af viðtali við hann frá 2016 Þegar hann kom til Íslands og spilaði í Eldborg í Hörpu. Í þáttarlok skoðum við svo aðeins Grammy verðlaunin og bestu kántríplötuna.

Gestur okkar í Svipmynd dagsins er hljómsveitarstjórinn og sópransöngkonan Ragnheiður Ingunn Jóhannsdóttir. Ragnheiður Ingunn var nýlega valin úr yfir hundrað umsækjendum í tveggja ára prógram fyrir unga hljómsveitarstjóra hjá Útvarpshljómsveitinni í Kaupmannahöfn. Á lokatónleikum Óperudaga á laugardaginn mun hún, að öllum líkindum fyrst kvenna í heiminum, syngja og stjórna samtímis þremur glænýjum tónverkum í Eldborg í Hörpu. Þessi hæfileikaríka unga tónlistarkona tók með sér þrjú tóndæmi og segir okkur aðeins frá þeirri óhefðbundnu leið sem hún hefur valið sér á tónlistarbrautinni. Það er nefnilega þetta með hefðina: Hingað til hefur ekki verið hefð fyrir því að konur stjórni sinfóníuhljómsveitum. Þetta virðist smátt og smátt, mögulega, vera að breytast, þó hægt gangi. En í öllu falli er tilefni til að skoða sérstaklega og fjalla um þær konur sem fetað hafa torfæra brautina á hljómsveitarpallinn, og það gerum við í stuttum pistli í fyrri hluta þáttar. Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir

Ásgeir Trausti kom eins og þruma úr heiðskíru lofti inn í íslenskt og reyndar líka alþjóðlegt tónlistarlíf fyrir áratug þegar hann gaf út plötuna Dýrð í dauðaþögn. Platan er ein af fimm mest seldu plötum íslenskrar útgáfusögu. Hinar eru: Gling Gló með Björk og tríói Guðmundar Ingólfssonar (1990), Vísnaplatan Einu sinni var með Gunna Þórðar, Tomma Tomm og Bo Halldorson (1976), Kardimommubærinn (1979) og Dýrin í Hálsaskógi (1967). Í tilefni af 10 ára afmælinu voru tónleikar í Eldborg í Hörpu í gærkvöldi. Það var uppselt og vel heppnað hef ég séð og heyrt í gær og dag. Tónleikarnir voru teknir upp fyrir RÚV - hljóð og mynd. Og það var líka að koma út afmælis&heiðursplata þar sem ýmsir tónlistarmenn og konur flytja nýjar útgáfur af lögunum á plötunni ; K.Óla, BRÍET, Teitur Magnússon, Prins Póló, Árný Margrét, Moses Hightower, GDRN, Hjálmar, Högni Egilsson og Júníus Meyvant. Platan er komin á steymiveitur - en hvað svo? Kemur vinyll? Hvers vegna var þetta gert? Hver átti hugmyndina og hvernig voru listamennirnir valdir? Guðm. Kristinn Jónsson (Kiddi Hjálmur) hægri hönd Ásgeirs allt frá upphafi, tók upp flest lög plötunnar og stýrði verkefninu í Hljóðrita í Hafnarfirði - þar sem hann ræður ríkjum. Kiddi er gestur Rokklands í dag og við ætlum að hlusta saman á plötuna - ég og Kiddi og allir sem vilja.

Í Rokklandi í dag ætla ég t.d. að skjótast áleiðis til Úkraínu með Julian Lennon, U2 og Pink Floyd, en Pink Floyd sendi frá sér fyrsta nýja lagið í 28 ár í vikunni, lag til styrktar baráttunni gegn Rússnesku innrásinni í Úkraínu. Og Bono og Edge úr U2 tóku líka upp lag í vikunni fyrir Úkraínu, og Julian Lennon. Við skoðum það og heyrum í dag. Við heyrum í Adda í Sólstöfum, en hann og Ragnar Sólberg voru að senda frá sér lag saman undir nafninu Isafjord og það er plata á leiðinni. Við heyrum lagið sem heitir Njálssaga sem er undir áhrifum frá Neil Young. En við byrjum á gærkvöldinu sem ég og mamma mín og c.a. 1400 aðrir vörðum í Eldborg í Hörpu á 50 ára afmælishátíð Lifunar með Trúbroti. Á sviðinu voru Gunnar Thordarson og Magnús Jón Kjartansson úr Trúbroti, og Shady Owens. Með þeim voru svo Jón Ólafsson á Hammond, Pétur Grétarsson á slagverk, Matthías Stefánsson á gítar, fiðlu, mandolín ofl og Áshildur Haraldsdóttir flautuleikari sem var frábær viðbót, og svo strákarnir, ungu mennirnir, kjarninn í bandinu. Rokksveitin The Vintage Caravan. Stefanía Svavarsdóttir og Stefán Jakobsson sungu megnið af prógramminu, sem var Lifun í heild sinni eftir hlé, og hin og þessi Trúbrotslög í fyrri hlutanum. Shady söng líka helling, flaug sérstaklega frá Englandi þar sem hún býr til að taka þátt í þessu. Og hún var alveg æðisleg, algjör stjarna! Hún var reyndar búin að vera lasin í vikunni, fékk flensu eftir fyrstu æfingu og það leit út fyrir að hún yrði lítð sem ekkert með, en sem betur fer var hún með, hún var æðisleg. Það geislaði af henni og hún söng af miklu öryggi og það var hrikalega gaman að sjá hana og heyra og þær saman, hana og Stefaníu Svavarsdóttur sem var líka frábær og glæsileg eins og Stebbi Jak sem bar hitann og þungann af söngnum ásamt Stefaníu. Og þetta var í einu orði sagt algjörlega frábært, það var svo gaman að sjá og heyra Vintage Caravan keyra þetta áfram með öllu sínu stuði, einlægri spilagleði og fagmennsku. Ég hef nokkrum sinnum heyrt Lifun og auðvitað aðra Trúbrotsmúsík flutta á sviði, en aldrei svona. Þessir strákar eru með þessa músík í blóðinu, kunna þetta út og inn, afturábak og áfram og ég var eiginlega hlæjandi allan tímann, þetta var algjörlega æðislegt. Allt um þetta og fleira - t.d. smá Rokk í Reykjavík í Rokklandi í dag.

Plata Þáttarins er Toys in the Attic með Aerosmith. Hún kom út þennan dag árið 1975. Vinur þáttarins sendir pistil og lag að vanda og óskalagasíminn opnar kl. 20.00 - 5687123. Toys in the Attic er þriðja plata Bandarísku hljómsveitarinnar Aerosmith frá Boston, og platan sem geymir Walk this way, eitt allra þekktasta og kannski þekktasta lag sveitarinnar. Platan hefur líka að geyma lagið Sweet Emotion sem er fyrsta lag plötunnar sem kom út á smáskífu, 19. maí ?75. Walk this way var gefið út á smáskífu í ágúst sama ár. Toys in the Attic er mest selda plata Aerosmith enn þann dag í dag í bandaríkjunum, hefur selst í næstum 10 milljónum eintaka. Árið 2003 lenti platan í sæti 228 yfir 500 bestu plötur sögunnar yfir 500 bestu plötur sögunnar. Walk this way sló í gegn árið 1986 þegar það var endurgert með rapp-tríóinu Run-DMC. Það er eitt fyrsta rapp-lagið sem fór eins og eldur í sinu um allan heim. En toppurinn er að GESTA-UMSJÓNARMAÐUR í fyrsta sinn í sögu þáttarins er Óskar Logi úr Vintage Caravan. Nýjasta plata Vintage Caravan hluat þrjár tilnefningar til íslensku tónlistarveðlaunanna á dögunum og á morgun er sveitin að spila LIFUN og aðra Trúbrotsmúsík í Eldborg í Hörpu ásamt Gunna Þórðar, Magga Kjartans, Shady Owens, Jóni Ólafs, Stebba Jak, Stefaníu Svavars og Pétri Grétarssyni.

Það hefur heldur betur reynt á mannauðsmál í heimsfaraldrinum sem m.a. ýtti úr vör ýmsum breytingum sem enginn átti von á strax. Við ræddum þennan málaflokk í tengslum við alþjóðlega mannauðsdaginn og til þess komu þær Ásdís Eir Símonardóttir og Íris Sigtryggsdóttir úr stjórn Mannauðs, félags mannauðsfólks á Íslandi. Við ræddum íslenskt mál við Önnu Sigríði Þráinsdóttur eins og flesta fimmtudaga og þar kom þróun stafsetningarreglna við sögu. Kringlan kynnti í gær viðamestu breytingar sem gerðar hafa verið á húsinu síðan að það var tengt saman við Borgarkringluna á sínum tíma. Um er að ræða algjöra breytingu á þriðju hæðinni þar sem er að finna bæði Bíóganginn svokallaða og Stjörnutorgið. Kostnaður hleypur á milljarði og mun taka um tvö ár. Sigurjón Örn Þórsson, framkvæmdastjóri Kringlunnar, kom til okkar til að fara yfir málið. Í dag hefst ráðherrafundur Norðurskautsráðsins í Reykjavík eins og flestum er kunnugt. En hvað er til umfjöllunar á þessum fundi, hverjir mæta og hverju skiptir fundurinn t.d. fyrir Ísland? Magnús Geir Eyjólfsson fréttamaður á RÚV kom til okkar og fór yfir málið. Á föstudaginn fara fram tónleikar í Eldborg í Hörpu þar sem hljómsveitin Korda Samfonia, sem verður til úr samfélagslegu tónlistarverkefni, heldur sína fyrstu tónleika. Korda Samfónía er skipuð 35 manns úr ólíkum áttum, samsett af hljóðfæraleikurum Sinfóníuhljómsveitar Íslands, nemendum Listaháskóla Íslands og skjólstæðingum Hugarafls og Starfsendurhæfingastöðva á Vestur og Suðvesturlandi. Sigrún Sævarsdóttir- Griffiths leiðir verkefnið og hún kemur til okkar ásamt Ásu Valgerði Sigurðardóttur sem tekur þátt. Tónlist: Helgi Björnsson - Ég fer á Land Rover frá Mývatni á Kópasker. Michael Kiwanuka - One more night. Á móti sól - Sæt. Gjons tear - Tout lunivers. Madness - It must be love. Kings of Convenience - Rocky trail. Valdís - Breathe. Stefán Hilmarsson - Hvernig líður þér í dag? Bjartmar og Bergisarnir - Á ekki eitt einasta orð.

Hópur sem kallar sig Vini Kópavogs er ósáttur við hvernig staðið er að fyrirhuguðum framkvæmdum við miðbæ Kópavogs og að þar sé fremur hugsað um hag fjárfesta en íbúa. Byggingarmagn muni margfaldast og byggð þéttast mikið en framkvæmdirnar eru upp á tugi milljarða. Helga Jónsdóttir, lögfræðingur og vinur Kópavogs, fór yfir þetta með okkur. Anna Sigríður Þráinsdóttir málfarsráðunautur kom til okkar að venju, en að þessu sinni talaði hún ekki bara um íslenskuna heldur sagði okkur frá verkefni þar sem unnið er að því að kortleggja tungumál allra grunn- og leikskólabarna í landinu. Fyrir 11 mánuðum nánast upp á dag hitti Hulda Sigrúnu Sævarsdóttur-Griffiths í London og ræddi við hana um samfélagsleg tónlistarverkefni sem hún hefur staðið fyrir í London, Los Angeles og víðar, sem m.a. hafa falið í sér að stofna hljómsveitir heimilislausra. Sigrún er nú komin hingað heim og ætlar að stofna eina óvenjulega hljómsveitina enn í Eldborg í Hörpu um komandi helgi. Hún kíkti til okkar í heimsókn og sagði okkur frá. Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata, talaði við okkur um þjóðsönginn en hann ásamt nokkrum öðrum þingmönnum leggur til að heimilt verði að flytja þjóðsönginn í þeirri útgáfu sem fólk kýs sjálft, hvort sem það er í viðskipta eða auglýsingaskyni en í dag er bannað að birta eða flytja þjóðsönginn í annarri mynd en við þekkjum hann núna. Þingmennirnir eru þeirrar skoðunar að ekki sé ástæða til að takmarka tjáningarfrelsi fólks með þessum hætti. Tónlistarveitan Spotify hefur tilkynnt um hækkun á áskriftarleiðum sínum, allt að 27 prósentum. Við veltum fyrir okkur hvað þetta þýðir fyrir rétthafa og flytjendur en umræðan um að þeirra hlutur sé of lítill hefur verið nokkuð áberandi. Eiður Arnarsson framkvæmdastjóri Félags íslenskra hljómplötuútgefenda var á línunni og setti okkur aðeins inn í stöðu mála. Tónlist: Jón Jónsson - Ef ástin er hrein (ft. GDRN). Alicia Keys - Love looks better. Hr. Hnetusmjör - Stjörnurnar. Grafík - Þúsund sinnum segðu já. The Eagles - Heartache tonight. Ragga Gísla, Dísa og Spraðabassarnir - Þorragleðigleðigleðigaman. Robbie Williams - Old before I die. Leon Bridges - Bad bad news. Ed Sheeran - Afterglow.

Pétur Jóhann Sigfússon heldur upp á 20 ára afmæli sitt í grínbransanum um þessar mundir. Sjáið berskjaldaðan, einlægan og umfram allt, fyndinn Pétur Jóhann á þessari einu sýningu í Eldborg í Hörpu þann 9. nóvember. Miðar eru komnir í sölu á harpa.is og tix.is.
Rokkland í dag er tvískipt. Í fyrri hlutanum fjallar umsjónarmaður um spjalltónleika Nick Cave sem voru í Eldborg í Hörpu í gær, og spilar nokkur lög sem hann tók í tónleikunum, meðal annars upptökur úr safni Rásar 2 með Cave frá Broadway í Reykjavík í desember 2002. Í seinni hlutanum er welska tónlistarkonan Cate Le Bon á línunni. Umsjónarmaður talaði við hana í síma í vikunni sem leið. Hún er með tónleika í Hljómahöll í Reykjanesbæ 9. september nk.

Söngvarinn Eiríkur Hauksson fæddist í Reykjavík 4. júlí 1959 og ætlar að halda upp á 60 ára afmælið sitt með íslensku þjóðinni í Eldborg í Hörpu fimmtudaginn 4. júlí. Þar ætlar hann ásamt stórri og flottir hljómsveit að syngja og spila og Þar verður rokkað og rólað um allt! Segir í fréttatilkynningu frá Rigg viðburðum sem standa að tónleikunum. Ferillinn byrjaði inni í bílskur eins og gengur og gerist en Eiki vakti fyrst athygli sem hluti af hljómsveitinni Start þar sem hann söng ásamt Pétri Kristjáns og lagið Sekur af fyrstu og einu plötu Start var af íslenskum fjölmiðlum valið lag ársins 1981. Eiríkur yfirgaf Start 1983 til að spila meira þungarokk þegar hljómsveitin Drýsill varð til, en Drýsill var á þeim tíma þyngsta starfandi hljómsveitin á íslandi. En samhliða þungarokkinu söng Eiki alltaf allskyns annarskonar tónlist -miklu meira popp - söng t.d mikið af lögum eftir Gunna Þórðar um tíma -smelli eins og Gull og Gaggó vest. Hann flutti svo til Noregs fyrir rúmum 30 árum til að ganga til liðs við þarlenda þungarokkssveit sem hét og heitir Artch, en í millitíðinni fór hann í Júróvision fyrstur íslendinga ásamt Helgu Möller og Pálma Gunnarssyni. Eiríkur býr enn í Noregi og tók þátt í Eurovison fyrir Noreg ásamt Just 4 Fun 1991 og svo aftur fyrir Ísland 2007 þegar hann söng lagið Ég les í lófa þínum, Valentine Lost. Eiki söng líka í mörg ár með hljómsveit sem átrúnaðargoðið hans úr æsku, Ken Hensley úr Urian heep setti saman kringum sig og sína músík, hljómsveitina Live Fire og með þeirri sveit túraði Eiki um árabil og söng fyrir stóra hópa af fólki músík Uriah heep sem hann hefur þekkt og sungið allt sitt líf. Eiki hefur lent í hinu og þessu á þeim 60 árum sem hann hefur lifað, sigrast á krabbameini meðal annars. Og hann er gestur Rokklands þessa vikuna og við ætlum að kynnast honum aðeins betur og hlusta á eitthvað af lögunum sem hann hefur sungið gegnum tíðina.

Músíktilraunir eru fyrirferðarmiklar í Rokklandi vikunnar. Við heyrum í hljómsveitunum sem lentu á verðlaunapalli, en þær eru: Hljómsveit fólksins - Karma Brigade 3. sæti - Ásta 2. sæti - Konfekt 1. sæti - Blóðmör Við heyrum upptökur frá þessum hljómsveitum frá úrslitakvöldi Músíktilrauna og þau Árni Matthíasson, Arnar Eggert Thoroddsen og Heiða Eiríksdóttir úr dómnefnd Músíktilrauna tala um sveitirnar. Bandaríska tónlistarkonan Jenny Lewis kemur við sögu og við heyrum nokkur lög af hennar nýjustu plötu sem heitir On the line og er alveg stórfín plata. Hulda geirsdóttir náði í annan Reid bróðirinn skoska úr The Proclaimers í vikunni í síma og við heyrum hvað þeim fór á milli, en Proclaimers eru með tónleika í Eldborg í Hörpu 15. apríl nk. Við heyrum svo í íslensku hljómsveitinni Bagdad Brothers í std. 12 síðasta föstudag.

Bruce Dickinson söngvari Iron Maiden verður með kvöldstund í Eldborg í Hörpu sunnudagskvöldið 16. desember nk. Þar ætlar Bruce að tala fyrst og fremst, segja frá lífi sínu, uppvexti og svo framvegis en hann er skemmtilegur maður og mikill sögumaður og hefur frá mörgu að segja enda hefur líf hans bæði inn og utan sviðs hefur verið með miklum ólíkindum. Hann er ekki bara söngvari Iron Maiden heldur er hann líka flugstjóri, hefur meðal annars flogið talsvert til og frá Íslandi með farþega. Hann bruggar bjór, hefur leikið í kvikmyndum og sjónvarpi og stjórnað útvarpsþáttum auk þess sem hann er fyrrverandi skylmingakappi á heimsmælikvarða. Bruce ætlar að segja sögur í Hörpu, fer yfir fyrstu árin í bransanum og svo meira en 30 ár með Iron Maiden, talar um sólóferillinn, um flug og það sem á daga hans hefur dregið. Eftir hlé tekur Bruce svo á móti spurningum úr sal. Hann er í raun að fylgja eftir útgáfu á bók, æfisögu sinni sem heitir; What Does This Button Do og kom út fyrir skemmstu. Bókina skrifaði hann meðan á Book of Souls heimstúrnum stóð, 2016-17 þar sem sveitin spilaði fyrir troðna íþróttaleikvanga af fólki. Hann handskrifaði bókina, og hann var líka flugstjórinn í túrnum meira og minna, flaug Boeing 747 þotunni sem Iron Maiden leigði hjá flugfélaginu Atlanta fyrir túrinn og fékk nafnið Ed Force One. Bókinni hefur verið vel tekið og hún komst á topp bókalista NYC Times og Sunday Times og var tilnefnd sem Bók ársins í Bretlandi. Rætt er við Bruce í síma í þættinum og skautað yfir fyrstu ár tónlistarferilsins.

Sálin Hans Jóns Míns, ein allra lífseigasta og vinsælasta hljómsveit Íslenskrar tónlistarsögu kveður aðdáendur sína um næstu helgi með þrennum tónleikum í Eldborg í Hörpu. Það verða tvennir tónleikar á laudagradkvöld, klukkan 20 og 22.30. og aukatónleikar föstudaginn 19. október klukkan 19. Í þessum þætti rifjum við upp viðtal við forystusauði Sálarinnar, þá Gumma og Stebba frá því fyrir áratug þegar sveitin fagnaði 20 ára afmæli sínu með útgáfu mikils Sálar-safns sem Sena gaf þá út undir yfirskriftinni; Hvar er Daumurinn. Það voru í það heila þrjár glæsilegar afurðir sem báru allar þetta nafn; Hvar er Draumurinn. Stærstu viðhafnarútgáfunni og þreföldu hljóðdiskaútgáfunni fylgdi 92 blaðsíðna bók, fagurlega skreytt myndum og fróðleik um sögu sveitarinnar frá upphafi til þess tíma, skrifað af Stefáni Hilmarssyni. Sálin er merkileg hljómsveit, og bara það eitt að hafa verið starfandi í 30 ár er stórmerkilegt. Og þessi hljómsveit hefur afrekað svo margt, hún er búin af mikilli eljusemi og metnaði að senda frá sér helling af plötum auk þess að úti um allt fyrir fullu húsi áratugum saman. Og plötur Sálarinnar eru alls ekki ekki allar heðfbundnar smella-plötur, Sálin gerði plötu með Sinfóníuhljómsveit Íslands, hélt tónleika og gerði plötu með Gospelkór Reykjavíkur og samdi söngleik sem sýndur var í Borgarleikhúsinu fyrir fullu húsi mánuðum saman, svo eitthvað sé nefnt.En nú er komið að kveðjustund og af því tilefni tökum við ofan fyrir Sálinni og rifjum upp viðtal sem umsjónarmaður átti við þá Gumma og Stebba hérna í Rokklandi fyrir áratug í sitthvoru lagi. Þeir félagar segja frá áhrifvöldum sínum, frá samstarfinu sem stundum hefur verið gott en stundum ekki og margt fleira.

Hrólfur Jónsson fyrrverandi slökkviliðsstjóri í Reykjavík sagði frá uppvextinum í Hlíðunum, skólagöngu í þróttaferli og ýmsu öðru. Hann stofnaði fjölskyldu snemma á lífsleiðinni en með góðri aðstoð frá ömmunum tókst þetta allt saman. Hann starfaði sem tæknifræðingur um hríð en fór svo í slökkviliðið þar sem hann starfaði í yfir tuttugu ár. Þaðan fór hann til Reykjavíkurborgar og í dag starfar hann hjá Vísindagörðum HÍ. Hrólfur er á kafi í tónlistinni og undirbýr nú stórtónleika í Eldborg í Hörpu föstudaginn 12. október nk. Rakel Pálsdóttir söngkona og þroskaþjálfi sagði frá lífi sínu og starfi bæði í söng og við það sem hún menntaði sig til þroskaþjálfun. Hún hefur margoft tekið þátt í söngvakeppni sjónvarpsins og segir það skemmtilegt verkefni. Rakel sagði líka frá dóttur sinni sem fæddist með klofinn góm og skarð í vör og þeim stóru verkefnum sem fylgja því að eignast barn sem þarf að ganga í gegnum allt það sem dóttir hennar og þau fjölskyldan hafa glímt við.

Sunnudaginn 7. og mánudaginn 8. október verða tónleikar í Eldborg í Hörpu undir yfirskriftinni Celebrating David Bowie. Þetta eru tónleikar Bowie til heiðurs og hans tónlist. Þeir sem verða á sviðinu eru mestmegnis erlendir tónlistarmenn sem hafa spilað með fólki eins Beck, Chick Corea, Tom Waits, Herbie Hancock, Air, Jeff Beck, Brian Eno, Michael Jackson, Elvis Costello, Miles Davis, Nine Iinch Nails, Bob Dylan, Stevie Wonder, Lana Del Rey, Dr. Dre, Burt Bacharach, David Byrne, Red Hot Chili Peppers og The Who svo einhverjir séu nefndir. Sá sem leiðir tónlistarfólkið sem ætlar að spila lög Bowie´s er bandaríski gítarleikarinn Adrian Belew sem sló í gegn þegar hann spilaði með Frank Zappa 1977, og í kjölfarið spilaði hann svo með Bowie. Seinna túraði hann svo með Talking Heads, var lykilmaður þar í nokkur ár, og var svo í rúm 30 ár söngvari og gítarleikari King Crimson. Ótrúlegur gítarleikari sem kom með sérstakan og persónulegan stíl inn í gítar-heiminn á sínum tíma. Adrian Belew verður á línunni í Rokklandi. Wolf Alice sem er fjögurra manna rokkhljómsveit frá London, og Wolf Alice hlaut um síðustu helgi bresku Mercury tónlistarverðlaunin sem veitt eru árlega síðan 1992 bestu plötu ársins. 1992 var það Primal Scream sem hlaut verðlaunin fyrir Screamadelice og Suede með Suede 1993. Portishead fékk verðlaunin 95 og Pulp fyrir Different Class 1996. Sagt verður frá Wolf Alice í Rokklandi. Paul McCartney var í fókus í síðasta Rokklandi og nýja platan hans, Egypt station. Hún var á toppnum á Bandaríska vinsældalistanum í síðustu viku,fór beint á toppinn með 153.000 eintök seld í vikunni, og Eminem var i öðru sæti með 136.000 með plötuna Kamikaze. En þar fyrir neðan í þriðja sæti var í síðustu viku söngkona sem heitir Lauren Daigle með kristilega plötu sem heitir Look up child. Hún var fyrir ofan Drake, Ariana Grande, Post Malone, Nicki Minaj og fleiri með 115.00 eintök seld í vikunni. Þessi plata Lauren Daigle er ekki bara mest selda kristilega platan árið 2018 heldur mest selda plata söngkonu í kristlegu deildinni í meira en 20 ár. Það verður fjallað um hana í þættinum. Chris Cornell, Macy Gray, Florence & the Machine ofl koma líka við sögu.

Þeir Björn Jörundur og Daníel ágúst eru gestir Rokklands og ætla að hlusta á plötuna Himnasendingu með umsjónarmanni. Himnasending er fimmta plata sveitarinnar en áður höfðu komið út: · Ekki er á allt kosið (1989) · Regnbogaland (1990) · Kirsuber (1991) · Deluxe (1991) Hljómsveitin sló í gegn strax með fyrstu plötunni en vegur hennar óx jafnt og þétt með hverri plötu. Þegar komið var að gerð Himnasendingar var ákveðið að fara til Englands og taka hana upp þar og reyna þar fyrir sér í leiðinni, þetta voru ungir menn með stóra drauma. Þeir Björn og Daníel voru rétt rúmlega tvítugir þegar þetta var og búnir að gefa út fjórar stórar plötur og spila um allt land síðan þeir voru 16-17 ára gamlir. Um næstu helgi ætlar Nýdönsk að flytja Himnasendingu, og plötuna sem kom út á eftir henni, Hunang (1993), í heild sinni á tónleikum í Eldborg í Hörpu.

Bubbi hlustar á plötuna Sögur af landi frá 1990 með umsjónarmanni Rokklands og segir frá lögunum og plötunni í Rokklandi vikunnar. En núna á miðvikudaginn, 18. Apríl - síðasta vetrardag mun Bubbi ásamt hljómsveit, flytja í heild sinni í Eldborg í Hörpu tvær af sínum þekktustu plötum; Konu sem kom út 1985 og Sögur af landi sem kom út 1990. Sögur af Landi er ein af mest seldu plötum Bubba og þar eru lög eins og Syneta, Blóðbönd, Fjólublátt flauel og fleiri smellir. Platan var að mestu hljóðrituð og hljóðblönduð í Grjótnámunni 30. júlí - 16. ágúst 1990. Hægri hönd Bubba við gerð plötunnar var sænski upptökustjórinn og tónlistarmaðurinn Christian Falk, en með voru líka Ken Thomas og Hilmar Örn Hilmarsson. Bubbi segir sjálfur að Sögur af landi sé þjóðlagaplata (folkmúsík) og hljóðheimurinn ferðast víða.

Sam Beam heitir hann bandaríkjamaðurinn sem ætlar að spila í kvöld í Eldborg í Hörpu undir nafninu Iron & Wine. hann er gestur Rokklands í dag. Sam Beam hefur verið að gera músík undir nafninu Iron & Wine í uþb 15 ár. Ég reyndi að ná í hann í síma í vikunni, það gekk ekki en ég fékk hann til að heimsækja mig í útvarpshúsið á föstudaginn og við áttum saman gott spjall. Samuel Ervin Beam er 43 ára gamall Bandaríkjamaðurm, fæddur 1974 í Suður Karólínu en ólst að hluta til upp í Florída líka og gekk þar í skóla. Hann býr í dag í Norður Karolínu með eiginkonu sinni og fjórum af fimm dætrum. Á ferli sínum hefur Sam Beam gefið út sex plötur sem Iron & Wine, fjölda stutt- og smáskífa, í bland við plötur með fágætu efni sem gefnar eru út í takmörkuðu upplagi. Til að byrja með deildi hann tónlistinni aðeins með konu sinni og dætrum en stuttu eftir að hann byrjaði að gefa tónlist sína út kolféll almenningur fyrir honum. Tónlistin hefur oft hljómað undir í hinum ýmsu kvikmyndum og þáttum, má þar t.a.m. nefna The O.C., Grey's Anatomy, Twilight, House M.D., Ugly Betty og 90210. Sub Pop útgáfan í Seattle bauð Sam plötusamning og gaf fyrstu plötuna út árið 2002 en þá þegar átti Sam tvær dætur og hann sjálfur var tæplega þrítugur, starfaði sem kennari í kvikmyndaskóla. Mike Bridwell sem er bróðir Ben Bridwell forsprakka hljómsveitarinnar Band of Horses og Sam eru gamlir vinir sem bjuggu saman þegar þeir voru í skóla og Ben bjó líka með þeim um tíma líka. Og það var Mike þessi sem kom upptökum með Sam til Sub Pop útgáfunnar á sínum tíma þegar hann var að reyna að koma hljómsveitinni sem Ben var í á undan Band of Horses, á samning hjá útgáfunni, hljómsveitinni Carissa´s Weird. Fólkið hjá Sub Pop bauð Sam útgáfusamning og síðan er hann búinn að vera að gefa út helling af músík og túra um heiminn þveran og endilangan. Þegar Sam er spurður út í fyrirmyndir og lærimeistara nefnir hann söngvaskáldin stóru; Leonard Cohen, Bob Dylan, Joni Mitchell, Paul Simon, Townes Van Zandt og svo framvegis, fólk orðanna.

Harpa Njálsdóttir hefur stundað rannsóknir á velferð og fátækt á Íslandi um árabil. Í desember skrifaði hún grein í Morgunblaðið þar sem hún beindi sjónum að lífskjörum eldri borgara og þá sérstaklega afleiðingar breytinga á almannatryggingalöggjöfinni sem tók gildi í ársbyrjun 2017. Þá voru frítekjumörk afnumin, það er að segja frítekjumörk atvinnutekna, lífeyrissjóðstekna og fjármagnstekna. Hún vill meina að með þessari breytingu sé gróflega vegið að réttindum fjölda fólks þar sem stór hluti tekna eldri borgara landsins er gerður upptækur með sköttum og skerðingu, sem hún kallar hreina eignaupptöku. Harpa fór yfir stöðuna í þættinum í dag. Við fengum fyrsta póstkort ársins frá Magnúsi R. Einarssyni í París í dag. Þar fjallaði hann um áramótin í París sem hann segir hafa verið mjúk og róleg og svo talaði hann um tónlistina sem hægt er að njóta til dæmis úr hverju horni í neðanjarðarlestakerfinu, sem hann segir að sé í mun meiri gæðum en til að mynda í Lundúnum, enda gilda strangar reglur um það hverjir mega spila fyrir ferðalanga í metrókerfinu í París. Að lokum sagði hann frá aðstæðum heimilislausra og flóttafólks í París um þessar mundir. Endurmenntun Háskóla Íslands hefur lengi boðið uppá ótrúlega fjölbreytt og fróðleg námskeið og á morgun kynnir Sigurður Flosason, tónlistarmaður, stórsveitir og tónlist Swingtímabilsins; 1930 - 1945. Námskeiðið tengist tónleikum Stórsveitar Reykjavíkur í Eldborg í Hörpu 7. janúar nk. en þá flytur Stórsveitin, ásamt glæsilegum gestum, samnefnda efnisskrá; Gullöld Sveiflunnar. Kíkt verður í nótnasöfn hljómsveita á borð við Benny Goodman, Glenn Miller, Duke Ellington, Count Basie o.s.frv. Sigurður kom í þáttinn. Umsjón, Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson