POPULARITY
Mánudagur 2. júní Pólland, lýðræði, fjölmiðlar, Palestína, woke, glimmer og blóð Jacek Godek hefur þýtt fjölda íslenskra bóka yfir á pólsku en er líka glöggur samfélagsrýnir. Gunnar Smári slær á þráðinn til Jacek til Gdansk í tilefni af pólsku forsetakosningunum, þar sem frambjóðandi ytra hægrisins sigraði. Kristinn Már Ársælsson prófessor við Duke Kunshan-háskólann í Kína ræðir við Gunnar Smára um hnignun lýðræðis í heiminum og innan samfélaga á Vesturlöndum, ekki síst í Bandaríkjum Trump. Ólafur Arnarson, DV, Lárus Ýmir Óskarsson kvikmyndagerðarmaður og fyrrverandi blaðamaður og Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna, ræða við Björn Þorláks um fjölmiðla, blaðamennsku og samfélagspólitík. Nasista ber á góma. Gunnar Smári slær á þráðinn til Jerúsalem og ræðir við Qussay Odeh, íslenskan Palestínumann sem reynir að fá dvalarleyfi sitt framlengt í Palestínu. Qussay lýsir meiri hörku og kúgun undir hernámi Ísraels og spáir að Palestínumenn muni rísa upp. Bjarki Þór Grönfeldt stjórnmálasálfræðingur ræðir við Gunnar Smára um woke og anti-woke, hvort sú deila eigi sér raunverulegar rætur á Íslandi, en ekki síður um merkingu þess að í gær var tiltölulega fjölmennur fundur á Austurvelli þar sem fólk krafðist stefnubreytingar í málefnum hælisleitenda, vildi færri flóttamenn. Magdalena Lukasiak, ljósmyndarannsóknablaðamaður og hinsegin flóttamaður, fjallar um Glimmer og blóð á heimildasýningu sem er að opna í Núllinu.
Miðvikudagur 14. maí Trump, náttúra, vinstrið, reynsluboltar, norðurslóðir og blíðan Gunnar Smári ræðir við Hilmar Þór Hilmarsson prófessor um ferð Trump til Sádí Arabíu og nágrannalanda og um mögulegar friðarviðræður í Istanbúl á morgun. Björg Eva Erlendsdóttir, framkvæmdastjóri Landverndar, segir Oddnýju Eir hvernig þrengt er að starfi frjálsra félagasamtaka í náttúruvernd. Einar Már Jónsson, sagnfræðingur, rithöfundur og prófessor við Sorbonne-háskóla í París ræðir við Oddnýju Eir um möguleikann á vinstri breiðfylkingu í pólitík dagsins. Reynsluboltar heimsækja Sigurjón Magnús og ræða fréttir dagsins: Erna Indriðadóttir fréttakona, Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri og Páll Ásgeir Ásgeirsson fjallamaður. Magnús Árni Skjöld, dósent og stjórnmálafræðingur við Háskólann á Bifröst, ræðir við Gunnar Smára um Ísland og norðurslóðir í breyttum heimi, ekki síst vegna stjórnmálalegrar óvissu í Bandaríkjum Trump. Trausti Jónsson veðurfræðingur upplýsir í samtali við Björn Þorláks að ef undan er skilinn janúar hafi veður hér á landi verið mjög milt og gott allt árið, svo gott að sætir tíðindum.
On today's show: explosions, infernos, Mount Doom— oh my! From volcanic eruptions to the origins of lava, volcanologist and geochemist Dr Lucy McGee takes us around the world (and deep into its infernos) to chat about when Earth explodes.Find us on Instagram @thegeocoGeoCo connects to you from the traditional country of the Kaurna people of the Adelaide Plains, South Australia. We pay our respects to their Elders past, present, and emerging.Thank you to the Institute of Sustainability, Energy and Resources, The University of Adelaide, for sponsoring this episode of Wonder.Thumbnail image credit: Ása Steinarsdóttir on Unsplash
Rauða borðið 24. mars Skemmdarverk, fjölmiðlar, barnsmissir, sekt, fólk og kvár Friðrik Þór Friðriksson kvikmyndaleikstjóri um gjaldþrot Kvikmyndaskólans, en Friðrik var um tíma rektor skólans. Hvað áhrif hafði skólinn á uppbyggingu kvikmyndagerðar og hver verða áhrifin af hruni hans? Friðrik Þór kemur í spjall við Gunnar Smára. Einyrkjafjölmiðlun og blaðamennska á litlum fjölmiðlum verður til umræðu við Rauða borðið í dag. Mál Ástu Lóu Þórsdóttur verður til umræðu. Þau Frosti Logason, Steingerður Steinarsdóttir og Brynjar Birgisson blaðamenn tala við Björn Þorláks. Laufey Líndal ætlar á næstu vikum að fjalla um barnsmissi frá ýmsum hliðum. Við hefjum umræðuna með frásögn Maríu Pétursdóttur um hennar reynslu og hvernig sú reynsla hefur mótað hana. Lára Magnúsardóttir, sagnfræðingur ræðir um barnamálaráðherramálið í samhengi sakamála sögunnar og hlutverk Ríkisútvarpsins í spjalli við Oddnýju Eir. María og Oddný fara á Eiðistorg og ræða við fólk á förnum vegi um mál málanna. Í tilefni Kváradagsins ræðir María Lilja svo við Reyn Alpha, forseta Trans-Íslands um tímamótin.
Miðvikudagur 19. febrúar Úkraína, reynsluboltar, spilling, ópera, uppskera og kvóti Tjörvi Schiöth doktorsnemi greinir breytta stöðu í Úkraínu og Evrópu eftir stefnubreytingu ríkisstjórnar Trump í samtali við Gunnar Smára. Karl Garðarsson, Guðmundur Þ. Ragnarsson og Steingerður Steinarsdóttir ræða málin við Sigurjón Magnúsi. Víða var komið við, í Úkraínu, hér og þar í Evrópu, í Hvíta húsi Trump, í borgarstjórn og ríkisstjórn. Þórður Snær Júlíusson er gestur Björns Þorlákssonar í umræðu um íslenska spillingu. Þórður er sérfræðingur íslensku efnahagslífi og ræðir það sem hann nefnir strokuspillingu. Þórunn Guðmundsdóttir samdi óperuna Hliðarspor til að framlengja söguna sem hófst í Rakaranum frá Sevilla og hélt áfram með Brúðkaupi Fígarós. Hún segir frá Gunnar Smára frá sýningunni með söngfólki: Hafsteinn Þórólfsson, Þórunn Guðmundsdóttir og Guðrún Brjánsdóttir. Uppskeruhátíð. Listakonurnar Kolbrún Dögg Kjartansdóttir og Margrét M. Norðdahl ræða við Oddnýju Eir um mikilvægi uppskeruhátíða í baráttu fyrir betra lífi. Björn Ólafsson, gamall sjómaður með meiru, ræðir fiskveiðiráðgjöf Hafró við nafna sinn Þorláksson með gagnrýnum hætti.
Miðvikudagur 15. janúar Vopnahlé, reynsluboltar, Carbfix, handbolti og hótanir Í tilefni nýrra frétta um að vopnahlé verði jafnvel tilkynnt í Quatar í kvöld ræðir María Lilja við Dr. Kristján Þór Sigurðsson, mannfræðing og kennara í HÍ um þýðingu vopnahlés á Gaza. Þau ræða síðan um pólitík, kjör eldri borgara, lífið eftir vinnu og fleira við Sigurjón Magnús Egilsson, þau Kristín Ástgeirsdóttir fyrrum þingkona, Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri, Þorsteinn Sæmundsson varaþingmaður og Þröstur Ólafsson hagfræðingur og miðla af langri reynslu og innsýn. Íbúar í Hafnarfirði hafa margir sameinast í andstöðu við stórfellda iðnaðar-uppbyggingu nálægt íbúahverfum. Áformin hafa tekið stökkbreytingum og fjarlægast æ meir vilja almennings. Við fengum tvo íbúa til að koma og lýsa sínu sjónarhorni og segja okkur frá því sem hefur verið kallað Carbfix-klúðrið, þau Björg Helga Geirsdóttir, leikskólastjóri og Davíð Arnar Stefánsson, sjálfbærnifulltrúi Lands og skógar útskýra hvernig hagsmunir íbúa hafa ítrekað verið hundsaðir.Það hefur ekki farið framhjá mörgum Íslendingnum að HM í handbolta hefst á morgun. Einar Jónsson handboltaþjálfari fer yfir stöðuna og spáir í gengi strákanna okkar í spjalli við Björn Þorláksson sem er mikill áhugamaður um handbolta. Þorgerður María Þorbjarnardóttir formaður Landverndar ræðir ýmis umhverfismál og þar á meðal að tugir skemmtiferðaskipa hóta að hætta við komu til landsins vegna innviðagjalds.
Miðvikudagurinn 30. október Kosningar, skattar, verkfall, öryggismál og gervigreind Við byrjum á kosningum: Theodóra S. Þorsteinsdóttir fyrrverandi þingkona og nú bæjarfulltrúi, Erna Hlynsdóttir blaðakona, Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna og Guðmundur Ari Sigurjónsson formaður framkvæmdastjórnar Samfylkingarinnar greina stöðuna. Skattamál verða kosningamál. Stefán Ólafsson prófessor, Indriði H. Þorláksson fyrrum skattstjóra og Skapti Harðarson formaður Samtaka skattgreiðenda ræða allar hliðar skattamála. Egill Helgason og Hulda Lovísa Ámundadóttir, deildarstjórar á Drafnarsteini, koma á verkfallsvaktina. Hilmar Þór Hilmarsson prófessor ræðir öryggismál Evrópu og Úkraínustríðið og Þorsteinn Siglaugsson hagfræðingur ræðir um áhrif gervigreindar á samfélagið.
Miðvikudagurinn 2. október Krakkaþing, elítur, eftirlaunafólk, búddistar og Einar Sigurður Krakkaþing Fíusólar hefur skilað niðurstöðum sínum. Tinna Sigfinnsdóttir framhaldsskólanemi og Guðmundur Brynjar Bergsson grunnskólanemi segja okkur frá þeim ásamt Þórunni Örnu Kristjánsdóttur leikstjóriaog leikkonu. Haukur Arnþórsson, stjórnsýslufræðingur ræðir um íslenskar elítur og elítuhugsun. Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri lifdununa.is og Guðmumdur Þ. Ragnarsson fyrrverandi formaður VM, ræða við Sigurjón Magnús Egilsson um áskoranir sem mæta fólki á eftirlaunaaldri. Gyða Dröfn Tryggvadóttir og Ástvaldur Zenki Traustason ræða um búddismann í amstri dagsins og Einar Sigurður Jónsson segir frá lífi sínu.
Miðvikudagurinn 25. september Forseti, biskup, vinnumansal, Vg, fréttir og hrepparígur Guðrún Karls Helgudóttir biskup og Halla Tómasdóttir forseti koma að Rauða borðinu og ræða vaxandi tilfinningu fyrir að samfélagið hafi sveigt af braut. Adam Kári Helgason, eftirlitsfulltrúi Fagfélaganna og Eflingar, Saga Kjartansdóttir, sérfræðingur á lögfræði- og vinnumarkaðssviði ASÍ, Gundega Jaunlinina, varaformaður Verkalýðsfélagsins Hlífar og Margrét Steinarsdóttir, framkvæmdastjóri Mannréttindaskrifstofu Íslands ræða vinnuframsal, starfsmannaleigur og brot á réttindum launafólks. Halla Gunnarsdóttir varaformaður VR ræðir tillögu sína og annarra fyrir flokksþing, um að stjórnarsamstarfinu verði slitið strax. Sigurjón Magnús Egilsson kemur og ræðir pólitík og fréttir vikunnar við blaðamennina Sigtrygg Ara Jóhannsson og Gunnhildi Örnu Gunnarsdóttur. Í lokin segir dr. Bjarki Þór Grönfeldt stjórnmálafræðingur okkur frá hrepparíg og ólíkan kúltúr milli bæjarfélaga.
Miðvikudagurinn 18. september Niðurskurðarstefna, borgarlína, borgaraleg óhlýðni og Ólympíuleikar Ásgeir Brynjar Torfason ritstjóri Vísbendingar segir okkur frá bók Clöru Mattei hagfræðiprófessor um Auðvaldsskipulagið og svelti- eða niðurskurðarstefnu. Sanna Magdalena Mörtudóttir Sósíalisti og Dóra Björt Guðjónsdóttir Pírati deila um borgarlínu. Margrét Steinarsdóttir, framkvæmdastjóri Mannréttindaskrifstofu Íslands, Anna Lúðvíksdóttir, framkvæmdastjóri Íslandsdeildar Amnesty International og Ólafur Páll Jónsson, prófessor í heimspeki á Menntavísindasviði Háskóla Íslands ræða um gildi mótmæla og borgaralegrar óhlýðni. Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson sagnfræðinemi og íþróttafréttamaður segir okkur frá för íslenskra keppenda og fylgdarliðs á Ólympíuleikana í London 1948.
Fimmtudagurinn 20. júní Bretland, mannúð, sagnaskemmtun og Gaza Halla Gunnarsdóttir varaformaður VR og Sveinn Máni Jóhannesson nýdoktor er hjón og áhugafólk um pólitík, ekki síst bresk stjórnmál. Þau ræða við okkur um komandi kosningar. Sigrún Steinarsdóttir sálfræðingur hlaut nýverið fálkaorðuna fyrir framlag til mannúðarmála. Hún berst gegn fátækt sem hún segir vaxandi vanda. Guðrún Ingólfsdóttir bókmenntafræðingur safnaði textum almennings í bók sem hún kallar Bragðaref, syrpu af kræsingum til að hafa sem húslestur. Í lok þáttar kemur Tjörvi Schiöth doktorsnemi í sagnfræði og ræðir ástandið í Palestínu og Ísrael.
Í gær var hægur vindur á höfuðborgarsvæðinu, snjóinn hafði tekið upp, göturnar þurrar og eftir hádegi barst tilkynning frá Reykjavíkurborg - styrkur svifryks mældist hár víða um borgina og fólk beðið að draga úr akstri einkabílsins, taka strætó . Við ætlum að ræða svifryk, orsakir þess, áhrif og mögulegar aðgerðir við Svövu S. Steinarsdóttur, heilbrigðisfulltrúa hjá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkurborgar. Náttúrufræðistofnun Íslands hefur tekið saman niðurstöður úr árlegri vetrarfuglatalningu. Í þessari talningu sem fór fram í janúar, sáust hátt í 170 þúsund fuglar af meira en 80 tegundum. Sumir fuglar koma fyrir í tugþúsundatali en aðrir bara einu sinni - eins og grákráka og blessuð heiðlóan. Svenja Auhage fuglafræðingur hjá Náttúrufræðistofnun hefur umsjón með þessum rannsóknum og segir okkur frá þeim. Neytendaspjall við Brynhildi Pétursdóttur, framkvæmdastjóra Neytendasamtakanna. Við ætlum að ræða fjallabaksleið sem fólk virðist stundum fara þegar það vill fá bætur vegna þess að flugferð sem það átti bókaða var seinkað eða henni aflýst. Tónlist: DAMIEN RICE - Volcano (Radio Edit 2004). Rocky trail - Kings of convenience.
21. febrúar 2024 Margrét Steinarsdóttir, framkvæmdastjóri Mannréttindaskrifstofu Íslands fagnar mörgu í heildarsýn í málefnum útlendinga og hælisleitenda en setur spurningarmerki til dæmis við breytingar á viðmiðum um fjölskyldusameiningu, styttingu dvalarleyfa og áform um lokuð búsetuúrræði. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við hana. Mikil eldsumbrot hafa verið á Reykjanesskaga síðustu misseri og ár. Eldgos, neðansjávargos, eru líka vel þekkt á hafsbotninum á Reykjaneshrygg, út af skaganum og Reykjanesi sjálfu, og Eldey, ein stærsta súlubyggð heims, varð til í einu slíku. Ármann Höskuldsson eldfjallafræðingur, sem hefur lengi rannsakað Reykjaneshrygginn, fræðir Ragnhildi Thorlacius og hlustendur um hann. Möguleikar Úkraínumanna til að herja á rússneska innrásarliðið frá sjó aukast talsvert þegar þeir fá í hendur tíu orrustubáta og fleiri hergögn, sem Svíar færðu þeim að gjöf. Andvirði þeirra er 7,1 milljarður sænskra króna, hátt í 95 milljarðar íslenskir. Pål Jonsson varnarmálaráðherra greindi frá gjöfinni á fundi með fréttamönnum í Stokkhólmi. Hann sagði að sænski herinn hefði séð um að velja hergögnin sem send yrðu til Úkraínu. Ásgeir Tómasson segir frá. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred
Samfélag eftir máli heitir nýútkomin bók. Í henni fjallar Haraldur Sigurðsson skipulagsfræðingur um skipulag þéttbýlis á síðustu öld; um stefnur og strauma, hugsjónir og átök. Haraldur var gestur Morgunvaktarinnar, og við blöðuðum í bókinni og spjöllum vítt og breitt um skipulag þorpanna, bæjanna og borgarinnar. Björn Malmquist fréttamaður í Brussel var líka með okkur. Leiðtogar Evrópusambandsríkjanna koma saman seinna í vikunni og ræða meðal annars stækkunarmál sambandsins ? einnig ræddi hann við starfsmann Sambands íslenskra sveitarfélaga í Brussel, Óttar Frey Gíslason. Mannréttindadagurinn var í gær, 10. desember. Þá voru 75 ár liðin frá samþykkt Mannréttindayfirlýsingar Sameinuðu þjóðanna, sem síðan hefur lagt grunn að mannréttindastarfi í heiminum. Við veltum því fyrir okkur í dag hvernig Ísland og Íslendingar umgangast mannréttindaskuldbindingar með Margréti Steinarsdóttur framkvæmdastjóra Mannréttindaskrifstofu Íslands. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir. Tónlist: Lee, Brenda - Weep no more my baby. Þórarinn Ólafsson, Jón Páll Bjarnason, Árni Egilsson, Útlendingahersveitin, Árni Scheving, Pétur Östlund - Get out of town.

Spegillinn 8. ágúst 2023. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Markús Hjaltason. Stjórn útsendingar: Annalísa Hermannsdóttir. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra segir að Ísland verði að standa við skuldbindingar sínar í loftslagsmálum. Mengunarkvótar í skipaflutningum séu hluti af heildarmyndinni og komi ekki á óvart. Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir ræddi við hana. Ítalskir bankar þurfa að greiða 40 prósenta hvalrekaskatt og hlutabréf í þeim hafa hríðfallið eftir að ríkisstjórnin samþykkti álögurnar í gærkvöld. Þórólfur Matthíasson, hagfræðiprófessor segir hægt að leggja slíka skatta á íslenska banka en frekar eigi að horfa til þess kerfisbundinna vandamál sem tengjast fiskveiðikerfinu og smæð íslenska hagkerfisins. Karitas M. Bjarkadóttir talaði við hann. Margrét Steinarsdóttir, fulltrúi í mansalsteymi í Bjarkarhlíð segir mikilvægt að þolendum mansals sé veittur stuðningur, hvort sem þeir séu hælisleitendur eða ekki. Hún tekur undir að það geti verið skaðlegt fyrir fórnarlömb mansals að svipta þau félagslegum stuðningi á borð við húsnæði. Valur Grettisson tók saman. ------------------- Mengunarkvótar Evrópusambandsins á sjóflutninga - sem eiga líka við á Evrópska efnahagssvæðinu - koma Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra ekki á óvart. Hún segir ekki hægt að líkja þeim við álögur á flug. Ísland verði að taka skref til að standa við skuldbindingar sínar í loftslagsmálum. Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir ræddi við Þórdísi. Vöruútflutningur frá Kína hefur ekki verið minni en um þessar mundir frá því að kóvíd-farsóttin brast á. Innflutningur hefur einnig dregist umtalsvert saman. Ásgeir Tómasson tók saman. Heyrist í Nick Marsh viðskiptafréttamanni BBC í Singapúr, Shehzad Qazi, sérfræðingi í kínverskum efnahagsmálum Mikil deigla er í lofthreinsigeiranum nú um stundir segir Stefanía Garðarsdóttir rannsóknastjóri hjá SINTEF orkurannsóknum í Noregi Í Texas á að reisa mikla lofthreinsiverksmiðju á ólíuvinnslusvæði og geyma koltvísýring á vökvaformi þar til fæst leyfi til að dæla honum niður í berg. Ragnhildur Thorlacius tók saman og talaði við Stefaníu. Gautelfur, flæðir yfir bakka sína og vegum í Suður-Svíþjóð og suðurhluta Noregs hefur verið lokað vegna óveðursins Hans sem hefur hringsnúist yfir Skandinavíu. Gísli Kristjánsson fréttaritari í Noregi, segir aðeins hafa dregið úr regni en veðrið sé óvenjulegt á hásumri.

Gyða Hjartardóttir, félagsráðgjafi kom til okkar í dag, en hún er umsjónar- og ábyrgðaraðili Samvinnu eftir skilnað (SES), sem er heimasíða og verkefni, í rauninni gagnreynt safn þekkingar, verkfæra og námsefnis fyrir foreldra og fagfólk. Um er að ræða stafrænan vef með námsefni sem er ætlað til að hjálpa foreldrum við að takast á við breytingar og áskoranir sem eru algengar í kjölfar skilnaðar eða sambúðarslita. Gyða sagði okkur frá niðurstöðum rannsókna á því hvernig kerfið hefur virkað fyrir þau sem hafa nýtt sér það og svo sagði hún okkur líka frá málþingi um SES, þar sem verða m.a. kynnt til sögunnar ný námskeið fyrir börn. https://samvinnaeftirskilnad.is/ Við fengum vinkil frá Guðjóni Helga Ólafssyni í dag. Í þetta sinn lagði Guðjón vinkilinn að sumardeginum fyrsta. Svo var það lesandi vikunnar, í þetta sinn var það Steingerður Steinarsdóttir, verkefna- og ritstjóri hjá Samhjálp. Við fengum að vita hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Steingerður talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Líkaminn geymir allt e. Bessel Van der Kolk í þýðingu Hugrúnar Hrannar Kristjánsdóttur og Arnþórs Jónssonar Sjáið okkur dansa e. Leilu Slimani. Urta e. Gerði Kristnýju Mark Twain, Halldór Laxness, John Irwing, Margaret Atwood, Ernest Hemingway og Oscar Wilde. Tónlist í þættinum í dag: Með fulla lest / Ríó Tríó (Gunnar Þórðarsson og Jónas Friðrik) Body and Soul / Manhattan Transfer (Green, Heyman, Eyton & Sour) This is another day / Take 6 (Andraé Crouch) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Áhrifavaldurinn og ævintýrakonan Ása Steinarsdóttir mætti til mín í áhugavert og skemmtilegt spjall ásamt sínum betri helmingi ævintýramanninum Leo Alsved.Ása hefur verið að gera rosalega hluti á samfélagsmiðlum síðum þar sem hennar aðal fókus hefur verið ferðamennska og þá sérstaklega á Íslandi. Ása sá tækifæri í að sameina tvö af sínum stærstu áhugamálum, ljósmyndun og ferðamennsku fyrir þónokkru síðan en byrjaði þetta allt á bloggi en er hún í dag einn stærsti áhrifavaldur landsins með rúmlega 600 þúsund fylgjendur á tiktok og hátt í 800 þúsund á Instagram.Leo vinnur í dag í kringum miðlana hjá henni Ásu enda nóg um að vera í allskonar alþjóðlegum samstörfum. Áður fyrr rak Leo þó vinsælt viðburðarfyrirtæki sem sérhæfði sig í siglingar og skíða festivölum.Ása og Leo kynntust einmitt á slíku festivali en fór Ása þá með vinkonu sinni í siglingar festival í Króatíu og var það svo gaman að þær bókuðu strax ferð í skíðafestivalið hjá fyrirtækinu hans Leo. Það var einmitt þar sem hlutirnir fóru að gerast en bauð Ása honum að koma í heimsókn sem hún bjóst þó ekki við að yrði strax nokkrum vikum síðar. Hlutirnir þróuðust hægt hjá þeim enda búsett í sitthvoru landinu. Það var því heilum sex mánuðum eftir þeirra fyrsta stefnumót að þau ákváðu að reyna á að vera par og eru þau í dag gift með eitt barn.Í þættinum ræddum við meðal annars um líf þeirra í áhrifavaldaheiminum, ævintýrin, ferðalög og hver er þeirra uppáhaldsstaður í heiminum, ljósmyndunina, rómantíkina og margt fleira. Svo fengum við að sjálfsögðu að heyra fullt af skemmtilegum sögum úr þeirra sambandstíð þar á meðal þegar Ása stalst í að nota tannburstann hans Leo í heila viku.Þátturinn er í boði:RÓ-CBD - https://www.rocbd.is/Dominos - https://www.dominos.is/Smitten - https://smittendating.com/Augað - https://www.augad.is/
Spegillinn föstudaginn 13. janúar 2023 Umsjónarmaður: Ásgeir Tómasson Tæknimaður: Mark Eldred Stjórn útsendingar: Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir Í dag var gefin út skýrsla um bráðaþjónustu í heilbrigðiskerfinu á Íslandi. Í skýrslunni eru lagðar fram 39 tillögur að breytingum og umbótum sem hægt er að ráðast í á næstu árum á ýmsum sviðum eins og mönnun, sjúkraflutningum, þjónustu utan höfuðborgarsvæðisins. Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra segir mikinn feng í þessari nýju skýrslu. Hægt sé að hrinda mörgum þeirra í framkvæmd hratt og örugglega. Bjarni Rúnarsson ræddi við Willum og Jón Magnús Kjartansson, sérfræðing í bráðalækningum leiddi vinnu teymisins sem gerði skýrsluna. Foreldrar barna í Hafnarfirði sem hafa ekki fengið leikskólapláss geta sótt um heimgreiðslur upp á rúmlega hundrað þúsund krónur á mánuði. Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri telur mikilvægt að fjölga valkostum foreldra. Repúblikanar á Bandaríkjaþingi krefjast þess nú að forsetinn Joe Biden opinberi upplýsingar um alla þá sem hafi sótt hann heim í Delaware, þar sem nokkur leyniskjöl hafa fundist undanfarnar vikur. Bandarískum yfirvöldum hafa borist yfir 350 tilkynningar um fljúgandi furðuhluti síðan í mars 2021. Engar skýringar hafa fundist á um helmingi tilkynninganna. Reykjavíkurborg og félagið Berjaya Land Berhad hafa gert með sér viljayfirlýsingu um gerð skipulags fyrir Kýrhólaflóa við Skálafell þar sem félagið hyggst reisa fimm stjörnu hótel með heilsulind, baðlóni og tengdri starfsemi. Viljayfirlýsingin var kynnt í borgarráði í gær. Kristín Sigurðardóttir sagði frá. Sprenging varð í dag í gasleiðslu nærri bænum Pasvalys í norðurhluta Litháen. Snjór hefur verið fluttur í Geirsnefið við Elliðaárvog í stórum stíl að undanförnu til að greiða leið vegfarenda höfuðborgarsvæðisins. Svava S. Steinarsdóttir heilbrigðisfulltrúi Reykjavíkurborgar segir að reynt sé að draga úr mengun með því að leyfa ekki að snjónum sé sturtað beint í sjóinn. Haukur Holm ræddi við hana. Varaskeifa eða Spare, ævisaga Harrys Bretaprins, hefur slegið öll sölumet. Bókin kom út á þriðjudaginn og á vef The Guardian kemur fram að bókin hafi selst í ríflega 400.000 eintökum í Bretlandi á fyrsta sólarhringnum og 1,4 milljónum eintaka ef Bandaríkin og Kanada eru talin með. Bókin seldist upp á fyrsta degi í Pennanum Eymundssyni. Hálf öld er liðin 14. janúar frá tímamóta tónleikum Elvis Presleys sem sendir voru út um gervihnött frá Hawaii til 36 landa. Talið er að allt að einn og hálfur milljarður sjónvarpsáhorfenda hafi fylgst með þeim.

Við hittum þrjá einstaklinga og einn hund, í þremur landshlutum, sem eru virk í sjálfboðaliðastarfi. Við byrjum á Akureyri þar sem við hittum Sigrúnu Steinarsdóttir Ellertsen sem hefur haldið úti Facebook-síðunni Matargjafir á Akureyri og nágrenni í átta ár. Og frá Akureyri höldum við til Flateyrar en eftir að snjóflóð féll á Flateyri í janúar 2020 ákvað Konráð Ara Skarphéðinsson að þjálfa hundinn sinn, Ask, sem snjóflóðaleitarhund. Að lokum höldum við svo á nytjamarkað Rauða krossins á Egilsstöðum og hittum Berglindi Sveinsdóttur sem stendur þar vaktina. Efni í þáttinn unnu: Þórgunnur Oddsdóttir, Halla Ólafsdóttir og Rúnar Snær Reynisson. Umsjón: Halla Ólafsdóttir.

Þótt jólahaldið sé oftar en ekki með hefðbundnum hætti hjá fólki virðist fólk vera opnara fyrir því að hrista aðeins upp í hlutunum þegar að kemur að áramótunum. Hafdís Helga ræddi við Hönnu Ingibjörgu Arnarsdóttur, ritstjóra Gestgjafans alla leið frá flugvellinum í Oman. Útivist nýtur mikilla vinsælda og sennilega aldrei meiri en eftir að heimsfaraldur lagðist yfir og um áramót setja margir sér markmið um aukna hreyfingu og útivist svo væntanlega er fólk farið að spá í hvað er í boði á nýju ári. Í gærkvöldi kynnti Ferðafélag Íslands nýtt forvitnilegt verkefni undir nafninu Rannsóknarfjélag FÍ. Við heyrðum í Rósu Sigrúnu Jónsdóttur leiðsögumanni og öðrum umsjónarmanni verkefnisins og fengum að vita meira. Reynir Lyngdal leikstjóri Áramótaskaupsins hlýtur að vera með fiðrildi í maga þessa stundina. Við slógum á þráðinn til hans og heyrðum hvernig honum líður. Bjarni Thor Kristinsson óperusöngvari sló í gegn í fyrra með dagbókarfærslum sínum um lífið í Covid, en skrifin hóf hann í sóttkví. Fyrst var um að ræða FB færslur sem síðan urðu að hljóðdagbók á Storytel. Við heyrðum í honum í fyrra, bæði á Ítalíu þar sem hann rétt slapp út fyrir allsherjarlokun og svo í sóttkví hér heima og nú heyrðum við aftur í honum og forvitnuðumst um líf óperusöngvarans í dag, en Bjarni er nýkominn heim frá Þýskalandi þar sem hann var við störf. Einn af fylgifiskum áramótagleðinnar er svifrykið sem fylgir flugeldaskothríðinni. Við fengum Svövu Steinarsdóttur hjá Heilbrigðiseftirlitinu til að fara yfir stöðuna með okkur og hvað ber að hafa í huga. Við hringdum svo vestur á Patreksfjörð og heyrðum í Örnu Margréti Arnardóttur hjá björgunarsveitinni Blakki. Þar er flugeldasalan í fullum gangi og við heyrðum af stemmingunni fyrir vestan. Tónlist: Sigurður Guðmundsson og Memfismafían - Nýársmorgunn. Magnús Þór Sigmundsson - Jörðin sem ég ann. The Beatles - The long and winding road. Sigtryggur Baldursson og Hljómskálagestir - Áramótaheitið. Celeste - Love is back. Friðrik Dór - Hvílíkur dagur. Herbert Guðmundsson - Með stjörnunum. Björgvin Halldórsson - Álfareiðin. Bobby Blue Bland - Aint no love in the heart of the city. Páll Óskar - Gordjöss. U2 - Even better than the real thing.

Kraftlyftingakonan Elsa Pálsdóttir varð í gær heimsmeistari í klassískum kraftlyftingum í undir 76 kílóa flokki kvenna yfir 60 ára. Hún gerði sér einnig lítið fyrir og setti þrjú heimsmet á mótinu, sem haldið er í Halmstad í Svíþjóð. Við slógum á þráðinn til Elsu út til Svíþjóðar og heyrðum meira um þennan magnaða árangur. Fjölmiðlanefnd stendur fyrir árvekniátakinu Stoppa, hugsa, athuga, nú í aðdraganda kosninga þar sem fólk er hvatt til að beita gagnrýnni hugsun þegar greina þarf mismunandi upplýsingar sem verða á vegi fólks í aðdraganda kosninga. Reikna má með að margir séu að kynna sér málin á lokasprettinum fyrir kosningar og við fengum Skúla B. Geirdal verkefnastjóra hjá Fjölmiðlanefnd til að ræða upplýsingaóreiðu, miðlalæsi og fleira sem skiptir máli í þessu samhengi við okkur. Eins og flestir vita er kosningadagur á morgun og þá er að mörgu að hyggja. Yfirkjörstjórnir í öllum kjördæmum hafa haft í nógu að snúast við að undirbúa allt eins vel og mögulegt er, svo öll kjörgögn skili sér á talningarstað. Við heyrðum í Þóri Haraldssyni, formanni yfirkjörstjórnar í Suðurkjördæmi og athuguðum hvernig undirbúningur gengur hjá þeim. Fréttir vikunnar voru líka litaðar af komandi kosningum en gestir okkar að þessu sinni voru þau Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Vikunnar og Haukur Holm fréttamaður á RÚV. Við enduðum svo vikuna á menningarlegum nótum þegar Ólafur Egilsson kom til okkar og sagði okkur frá leiksýningunni Ástu, en Ásta Sigurðardóttir var lifandi goðsögn í bæjarlífi Reykjavíkur um miðbik síðustu aldar. Myndlist hennar og ritverk vöktu aðdáun en líka hneykslun, og oft urðu skilin á milli lífs þessarar hæfileikaríku en breysku konu og höfundarverks hennar óljós segir í kynningu. Við ræddum Ástu. Tónlist: Ellen Kristjánsdóttir og John Grant - Veldu stjörnu. U2 - Angel of Harlem. Hjálmar - Yfir hafið. Leaves - Catch. Flott - Þegar ég verð 36. Matthildur Hafliðadóttir - Perluskel.

I dagens avsnitt bland annat: Dödliga svampinfektioner allvarligt hot som hamnar i skymundan på grund av coronavirushysteri, privat padelbana upprör i villaområde i Danderyd, inga restprodukter när kläder gjuts av gelé samt utanförskapsområden ett olösligt problem skapat av bidragssystem och immigration https://radio.bubb.la/torsdag-27-maj-2021/ Länkar som diskuterades i dagens sändning: Dödliga svampinfektioner allvarligt hot som hamnar i skymundan på grund av fokuset på coronavirus och sprids mer på grund av åtgärder mot covid-19, jästsvampen Candida auris dödar två tredjedelar av alla som infekteras och är resistent mot de flesta konventionella fungicider Grannar upprörda när privatperson bygger padelbana på egna tomten i villaområde i Danderyd, misstänker att banan kommer användas kommersiellt och attrahera trafik samt leda till ljud- och ljusföroreningar, kommunen uppmanar markägaren att pausa bygget, markägaren fortsätter med hänvisning till att han följt alla regler Kläder gjuts av gelé istället för att sys av tyg, producerar inga restprodukter i tillverkningen och kan enkelt smältas ner och formas till nya plagg, skaparen Valdís Steinarsdóttir vill skapa alternativ till textilindustrin som årligen producerar mer än 60 miljarder kvadratmeter textilavfall när mönster skärs ur större tygstycken Brittiska nyhetskanalen GB News lovar att ej vara politiskt korrekta och att inga ämnen är tabu, vilket gjort vänstern vansinnig trots att kanalen säger sig vara full av mångfald, rekryterar högprofilerade nyhetsankare från BBC, ITV och Sky samt en tidigare Labour-politiker Birgitta Sparf: Utanförskapsområden ett olösligt problem skapat av bidragssystem och immigration, kulturella skillnader gör att ökad resurstilldelning befäster problemen istället för att lösa dem Johan Eklund: Nära 2/3 av Sveriges invånare i arbetsför ålder med ursprung i MENA icke självförsörjande, ekonomiskt och politiskt haveri att 700 000 utrikesfödda inte förtjänar sitt uppehälle
„Þetta mun ekki breytast af sjálfu sér“, segir Ása Steinarsdóttir sem er komin með nóg af kynjamisrétti og úreltum birtingamyndum kvenna í auglýsingaefni. Hún hefur ákveðið að taka slaginn enda með 700 þúsund fylgjendur á samfélagsmiðlum og skapað sér nafn innan ævintýra- og ljósmyndageirans. Ása er ein sú stærsta af örfáum konum í Evrópu sem starfa við efnissköpun á samfélagsmiðlum og hraðast vaxandi kvenkyns ljósmyndarinn. Stofnaði Ása fyrirtækið Bell Collective, sem er samfélag fyrir kvenkyns ljósmyndara og efnisskapara en með því vill Ása brjóta upp staðalmyndina um að konur þurfi að ná árangri út á útlitið. Í 28. hlaðvarpsþætti Karlmennskunnar gefur Ása Steinarsdóttir innsýn í karllægni auglýsingabransans, hvað þurfi að breytast og hvernig hún vill vera fyrirmynd fyrir konur sem hafa áhuga á ljósmyndun.

Allt sem við snertum alla daga, svo kaffikannan, bollinn, tannburstinn, fötin sem við klæðumst, allt manngert í okkar umhverfi hefur verið hannað af einhverjum. Hönnunarmars hefur verið haldinn undanfarin árin - helst í mars, þó ekki í fyrra, og ekki núna heldur, hann verður í maí. En til að halda merkjum marsins á lofti fjöllum við um hönnun í þættinum í dag. Enn eru margir með þær ranghugmyndir að þegar talað er um hönnun, sé einungis átt við fatnað, nytjalist og vefnað og að flestir hönnuðir séu konur, þetta er auðvitað vitleysa. Eftir að Listaháskólinn tók til starfa fyrir um 20 árum hefur alls konar hönnun og nýsköpun rutt sér til rúms hér á Íslandi. Við heyrum í tveimur ungum hönnuðum, Valdísi Steinarsdóttur sem er m.a. að vinna umhverfisvænar umbúðir, Halldór Eldjárn tónlistarmann og forritara, sem er að gera frumlega og óvenjulega hluti. Í stúdíói sitja Hildigunnur Sverrisdóttir deildarforseti í arkitektúr LHÍ og Garðar Eyjólfsson hönnuður og dósent við Listaháskólann.

Upplýsingafyrirtækið Origo vinnur að ýmsum lausnum, m.a. heilbrigðislausnum og nýjasta viðfangsefnið á þeim vettvangi er þróun kerfis í kringum bólusetningar. Kerfið mun m.a. sjá um að boða fólk í bólusetningu, skrá allar bólusetningar í bólusetningargrunn sóttvarnalæknis og fleira. Arna Harðardóttir, viðskiptastjóri heilbrigðislausna Origo, var á línunni og sagði okkur frá þessu. SORPA og Te og kaffi hafa undirritað þróunarsamning um kaup á metani, en hluti af metaninu er framleiddur með niðurbroti á umbúðum frá Te & kaffi og metanið verður svo nýtt sem orkugjafi til að rista kaffibaunir hjá Te & kaffi. Þau Gunnar Dofri Ólafsson, sérfræðingur í samskiptum og samfélagsvirkni frá SORPU og Kristín María Dýrfjörð, einn eigenda Te & kaffi, komu til okkar og útskýra betur um hvað málið snýst. Margir eru einir um jólin og einmana. Hjálparsími Rauða krossins er til staðar fyrir þá sem þess óska. Við fengum smá innsýn í hvernig það starf gengur fyrir sig og hvert skal leita. Við fengum Kristínu S. Hjálmtýsdóttur, framkvæmdarstjóra Rauða krossins, til okkar en Rauði krossinn hefur haft í nógu að snúast á þessu ári. Rekstur sóttvarnarhúsanna og síðan aðkoman að hamförunum fyrir austan svo eitthvað sé nefnt. Þessi leiðindaári lýkur bráðum og margir spenntir að vita hvað nýja árið ber í skauti sér. Lengi hefur verið vinsælt að glugga í Völvuspár og ein sú mest lesna hefur birst í tímaritinu Vikunni. Völvublaðið er enda vinsælasta tölublað hvers árs og það kom út í gær. Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Vikunnar kíkti til okkar í morgunkaffi og gluggaði í spána með okkur til gamans, en þar mun víst ýmislegt krassandi vera að finna. Við heyrðum svo í Jóhanni Hlíðar Harðarsyni suður á Spáni sem færði okkur forvitnilegar fréttir, m.a. af spænskum jólahefðum og jólahappdrætti sem hélt þjóðinni hugfanginni í allan gærdag. Tónlist: Ragnheiður Gröndal - Gleði- og friðarjól. Vera - Hvað ertu að gera á gamlárskvöld. Jóhanna Guðrún - Löngu liðnir dagar. Eivör Pálsdóttir - Dansaðu vindur. Magni og Norðurljósin - Frá borg er nefnist Bethlehem. Boney M - Marys boy child oh my lord. James Brown - Santa Claus go straight to the ghetto.
Margre?t Steinarsdóttir framkv.stj. Mannre?ttindaskrifstofu Íslands: Rætt við Margréti í tilefni af alþjóðlega mannréttindadeginum sem ér í dag. Hafrún Kristjánsdóttir deildarstj. HR: Hreyfing í Covid; rannsókn heima og erlendis. Stefán Gíslason: Umhverfisspjall um mannödlina og fyrirferð manngerðra hluta í heiminum.
Hulda brá sér í kirkju í Keflavík til að skoða nýtt orgel sem verið er að leggja lokahönd á. Orgelið telur rúmar 1000 pípur og er fjármagnað af orgelsjóði bæjarbúa. Við heyrðum spjall Huldu við Arnór Vilbergsson organista, Björgvin Tómasson orgelsmið og Margréti Erlingsdóttur rafvirkja. Loftmengun í höfuðborginni fór í síðustu viku yfir heilsuverndarmörk og er notkun nagladekkja þar helst kennt um. Borgin kannar mánaðarlega hlutfall nelgdra og ónelgdra dekkja en í ljós hefur komið, í fyrstu talningu, að fjöldi þeirra sem notar negld dekk minnkar á milli ára. En innlögnum fjölgar á spítala og hjartaslögum og heilablóðföllum fjölgar þegar svifryk er mikið skv. því sem sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun sagði í Silfrinu í gær. Við heyrðum í Svövu S. Steinarsdóttur, heilbrigðisfulltrúa hjá Reykjavíkurborg um loftmengunina. Um næstu helgi opnar skautasvellið á Ingólfstorgi, en það er orðið fastur hluti af jólastemmningunni í miðborginni. En nú eru fjöldatakmarkanir og óvissa með hvað tekur við þeim efnum eftir 2. desember. Hvernig gengur að skipuleggja svona viðburð með þetta í huga? Við heyrðum í Gunnari Lár Gunnarssyni, framkvæmdastjóra Manhattan Events sem stýrir skipulagningunni og uppsetningunni. Nú styttist í jólin og fyrir liggur að jólaverslunin verður með öðrum hætti en venjulega. Meira er verslað á netinu og kaupmenn eru enn í talsverðri óvissu um hversu mörgum þeir mega hleypa inn í búðir sínar á aðventunni. Samtök verslunar- og þjónustu hafa gagnrýnt hvernig sóttvarnarráðstafanir eru í verslunum og Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri samtakanna, var á línunni. Að lokum spjölluðum við aðeins um íþróttir helgarinnar við Evu Björk Benediktsdóttur fulltrúa íþróttadeildarinnar, ræddum kvennaknattspyrnu og landsleiki framundan, Elísabetu Gunnarsdóttur þjálfara o.fl. Tónlist: Teitur Magnússon - Kysstir mig. Elbow - Golden slumbers. Paul Simon - 50 ways to leave your lover. Travis - Writing to reach you. Megas, Ágústa Eva og Senuþjófarnir - Lengi skal manninn reyna. Air - All I need. Stuðmenn - Fljúgðu. Kristín Sesselja - Earthquake. Depeche Mode - Going backwards. Helgi Björns, Salka Sól og Reiðmenn vindanna - Saman (höldum út).
Í dag verður kynnt sameiginleg skýrsla níu frjálsra félagasamtaka um stöðu mannréttinda barna á Íslandi, til Barnaréttarnefndar Sameinuðu þjóðanna. Unnið hefur verið að skýrslunni frá árinu 2018 og Margrét Steinarsdóttir hjá Mannréttindaskrifstofu Íslands var á línunni hjá okkur og sagði okkur meira af efni skýrslunnar og ástæðum þess að hún er gerð. Þrír íbúar á hjúkrunarheimilinu Eir í Grafavogi hafa greinst með kórónuveiruna og einn starfsmaður. Til mikilla viðbragða þarf að grípa þegar smit koma upp á svona viðkvæmum stað og við heyrðum í Þórdísi Huldu Tómasdóttur, verkefnastjóra hjúkrunar- og gæðamála hjá Eir. Listi tónlistartímaritsins Rolling Stone yfir 500 bestu plötur allra tíma hefur valdið svolitlum úlfaþyt og deilum en miklar breytingar eru á listanum frá því síðast. Segja má að gömul brýni eins og Bítlarnir, Rolling Stones og fleiri, séu sett skör neðar en áður og nýrri tónlistarmenn meira áberandi, sem og konur. Arnar Eggert Thoroddsen, doktor í tónlistarfræðum, fór yfir þetta með okkur. Fyrstu kappræður Donald Trump og Joe Biden fóru fram í nótt og óhætt er að segja að mikið hafi gengið á. Frammíköll, dónaskapur og harkaleg orðaskipti voru viðhöfð og virðast sérfræðingar nokkuð sammála um að umræðurnar hafi verið á lágu plani. Friðjón Friðjónsson, áhugamaður um bandarísk stjórnmál, hefur rýnt í það helsta og viðbrögðin við kappræðunum og við spjölluðum við hann. Við heyrðum í Jóhanni Hlíðari Harðarsyni tíðindamanni okkar á Spáni sem sagði okkur af spænskum stjórnmálum, eldri ökumönnum, húðflúrum og Covid stöðunni. Tónlist: Valgeir Guðjónsson - Ástin vex á trjánum. Elton John - Goodbye yellow brick road. Greentea Peng - Hu Man. Sycamore Tree - Home again. 200.000 Naglbítar - Núna og um framtíð alla. Marvin Gaye - Whats going on. Hvanndalsbræður - X (ft. Ása). Kacey Musgraves - High horse. Emilíana Torrini - Blame it on the sun. Biggi Breiðfjörð - Yfir Breiðafjörð. Krummi - Frozen teardrops.
Hjúkrunarfræðingar samþykktu miðlunartillögu ríkissáttasemjara, sem gerir ráð fyrir því að afmarkaður hluti launaliðar verði lagður í gerðardóm, og kjarasamningur hefur að öðru leyti komist á. Þetta varð ljóst um helgina, eftir að verkfalli hjúkrunarfræðinga var afstýrt á síðustu stundu fyrir tíu dögum. Guðbjörg Pálsdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, hefur staðið í ströngu. Það hafa hjúkrunarfræðingar upp til hópa reyndar gert í kórónuveirufaraldrinum, sem jók sýnileika þeirra og meðvitund um mikilvægið, segir Guðbjörg. Hún segir báða kostina sem hjúkrunarfræðingar stóðu frammi fyrir hafa verið slæma. Umræður um aðbúnað erlends verkafólks hér á landi hafa komið upp, enn á ný má segja, eftir skelfilegan eldsvoða í Vesturbæ Reykjavíkur í síðustu viku þar sem þrennt lést. Í gær var svo greint frá því í íslenskum fjölmiðlum að íslensk stjórnvöld uppfylla ekki lágmarksskilyrði um aðgerðir gegn mansali, samkvæmt nýrri skýrslu. Margrét Steinarsdóttir, framkvæmdastjóri Mannréttindaskrifstofu Íslands, kom á Morgunvaktina til að ræða þessi mál. Hún segir mikið um það að brotið sé á réttindum erlends verkafólks hér á landi, og ábyrgðin sé meira sett á herðar einstaklinganna en vinnuveitenda. Það þurfi samstillt átak til að breyta þessu. Íslendingar virðast hafa tekið vel þeirri hvatningu að ferðast innanlands í sumar og meira hefur verið að gera hjá hótelum og á tjaldstæðum víða um landið en búist var við. Þá eru erlendir ferðamenn aðeins farnir að skila sér í hvalaskoðun og ýmsa afþreyingu. Hins vegar eru tekjur í ferðaþjónustunni mun minni en áður því í flestum tilfellum er fólk að nýta sér tilboð og afslætti á mestallri þjónustu. Ágúst Ólafsson á Akureyri talaði um þetta við Björn H. Reynisson verkefnastjóra hjá Markaðsstofu Norðurlands. Tónlist: Hegge - New Bromance, Prateek Kuhad - Tune kaha
Umsjón: Snærós Sindradóttir og Rúnar Freyr Gíslason Rithöfundur Harry Potter bókanna, J.K.Rowling hefur verið mikið á milli tannanna á fólki undanfarnar vikur vegna skoðanna sinna á transfólki. Í gær greindi Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir, aktívisti og rithöfundur sem meðal annars var á lista BBC yfir áhrifamestu konur Bretlands í fyrra, að hún hefði sagt skilið við umboðsskrifstofu sína þar í landi en JK Rowling er einnig hjá téðri umboðsskrifstofu og neitaði stofan að taka afstöðu til málsins. Við heyrum undan og ofan af málinu í símtali við Uglu til London. Og við höldum okkur í Bretlandi því í dag eru fjögur ár síðan bretar kusu um útgöngu sína úr Evrópusambandinu, betur þekkt sem Brexit. Dóra Sif Tynes lögfræðingur og sérfræðingur í Brexit kíkir til okkar og fer aðeins yfir hvað hefur gengið á undanfarin fjögur ár og hver staðan er í dag. Hönnunarmars er loksins að fara af stað á morgun en hátíðinni var frestað í mars vegna kórónufaraldursins. Álfrún Pálsdóttir kynningarstjóri hátíðarinnar og Valdís Steinarsdóttur hönnuður kíkja og segja okkur hvað fyrir augu ber næstu dagana. Í gær sendu ríflega fimmtíu starfsmenn SÁÁ frá sér harðorða yfirlýsingu gegn framboði Þórarins Tyrfingssonar til formanns stjórnar samtakanna. Þórarinn kemur til okkar. Og föstu liðirnir okkar eru farnir í smá sumarfrí en við verðum samt á skemmtilegu nótunum hér í lok þáttar þegar Katla Margrét Þorgeirsdóttir leikkona kíkir og ræðir daginn, veginn og sumarið. Gaman að því.
Treysta þarf varnir bankanna gegn peningaþvætti, segir Unnur Gunnarsdóttir, forstjóri Fjármálaeftirlitsins. Brotalamir í vörnunum séu þó ekki mjög alvarlegar. Tryggvi Aðalsteinsson ræðir við hana. Ekkert bendir til þess að kveikt hafi verið í húsi sem brann til kaldra kola í Grímsnesi í gærkvöldi af ásetningi segir Elís Kjartansson lögreglufulltrúi á Suðurlandi Umráðamaður hússins var handtekinn á staðnum í gær en sleppt í dag. Jóhann Bjarni Kolbeinsson ræddi við Elís. Vetrarælupest og öndunarfærasýkingar hrella margan þessa dagana; miklu fleiri leita til heilsugæslunnar um þetta leyti en á sumrin segir Óskar Reykdalsson, forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Kristín Sigurðardóttir ræddi við Óskar. Ásrún Brynja Ingvarsdóttir tók saman. Tæplega 100 fjölskyldur á Norðurlandi hafa þegið matar- og fjárhagsaðstoð fyrir jólin frá facebookhópnum Matargjöfum Akureyrar og nágrennis. Óðinn Svan Óðinsson ræddi við Sigrúnu Ósk Jakobsdóttur og Sigrúnu Steinarsdóttur sem halda úti hópnum. Boeing flugvélasmiðjurnar bandarísku tilkynntu í dag að Dennis Muilenburg forstjóri hefði látið af störfum. David Calhoun, stjórnarformaður fyrirtækisins, verður eftirmaður hans á forstjórastóli. Á Þorláksmessu taka ýmsir frá stund til að fara í Friðargöngu.Eygló Jónsdóttir er einn skipuleggjenda göngunnar í Reykjavík sem samstarfshópur friðarhreyfinga stendur að og hún hefur mætt þar áratugum saman og ætlar að ganga aftur að ári. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir Tæknimaður: Ragnar Gunnarsson Stjórn útsendingar: Björg Guðlaugsdóttir
Tímaritið Vikan verður 80 ára í næsta mánuði, fyrsta tölublað kom út þann 21. nóvember árið 1938. Frá upphafi hefur efni blaðsins verið fjölbreytt, þjóðlegur fróðleikur, mannleg efni, framhaldsögur og smásögur, myndasögurnar, lesendabréfin, eða Pósturinn svokallaði, og fleira og fleira. Steingerður Steinarsdóttir, ritstjóri Vikunnar, kom í þáttinn og fór yfir sögu blaðsins. Við heyrðum brot úr útvarpsþættinum Landaöldin frá árinu 1967, en sá þáttur kom í beinu framhaldi af þáttum um bannárin. Í þessum þætti ræðir Stefán Jónsson við Guðlaug Jónsson lögregluþjón og tvo landabruggara og hlustendur eru varaðir við píphljóðum á nokkrum stöðum sem notuð voru til að fela nöfn nokkurra sem koma við sögu. Við heyrðum brot úr samtalinu við Guðlaug lögregluþjón og síðan annan af landabruggurunum. Elfar Logi Hannesson, sýnir í kvöld einleik sinn um Sigvalda Kaldalóns í Hannesarholti. Rakin er í verkinu litrík saga tónskáldsins og fluttar helstu perlur hans. Elfar kom í þáttinn í dag. Umsjón Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson