POPULARITY
Við heyrðum í dag í Sæunni Vigdísi Sigvaldadóttur, þroskaþjálfa á Egilsstöðum og býflugnabónda í Hallormsstaðaskógi. Sæunn er stödd í Seattle í Bandaríkjunum þar sem hún ætlar að læra tæknifrjóvgun býflugnadrottninga. Áætlunin er að gera Ísland sjálfbært í býflugnarækt til þess að draga úr innflutningi á býflugum, sem reynist sífellt erfiðara sökum býsjúkdóma. Við fengum Sæunni í dag til að segja okkur meðal annars frá því hvernig það kom til að hún fór út í býflugnarækt, hvað þarf til þess að fara út í ræktun og hvernig Ísland hentar fyrir býflugnarækt. Hvað tekur við að loknu kvikmyndanámi hérlendis og hvaða tækifæri bíða ungs kvikmyndagerðarfólks? Vigdís Howser Harðardóttir og Alvin Hugi Ragnarsson voru í fyrsta árgangi nýrrar kvikmyndadeildar við Listaháskóla Íslands og útskrifast um miðjan júní, en þau sögðu okkur frá lokaverkefnum sínum ásamt því að ræða kvikmyndasenuna hér á landi og hvernig þau ætla að setja mark sitt á hana. Í framhaldi af því ræddum við stöðu sviðslista á Íslandi og hverjar áskoranir og hlutverk þeirra eru við Friðrik Friðriksson, framkvæmdastjóra Sviðslistamiðstöðvar Íslands, en á föstudaginn fór fram Bransadagur Sviðslistanna í Borgarleikhúsinu þar sem staðan var rædd og þátttakendur deildu hugmyndum og sýn sinni á framtíð sviðslista. Tónlist í þættinum í dag: Býflugan / Geirfuglarnir (Þorkell Heiðarsson) The Birds And The Bees / Jewel Akens (Herbert Newman) Sumarvísa / Þorgerður Ása Aðalsteinsdóttir og Vigdís Hafliðadóttir (Mats Paulson, texti Iðunn Steinsdóttir) Heitt toddý / Ellen Kristjánsdóttir (H. Hendler & R. Flanagan, texti Friðrik Erlingsson) UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG HELGA ARNARDÓTTIR
Kirkjugarðar Reykjavíkur bjóða aðstandendum og umsjónarfólki legstaða upp á fræðsludag á morgun í Fossvogskirkjugarði. Þar munu starfsmenn veita ráðgjöf um umhirðu legstaða og jafnvel einnig ráðleggingar sem gætu nýst í heimagörðum eða við sumarbústaðinn. Heimir Janusarson, garðyrkjufræðingur og starfsmaður Kirkjugarða Reykjavíkur, kom í þáttinn í dag og sagði okkur betur frá þessu og göngu sem hann mun leiða um Fossvogsgarð. Fjölmargir Íslendingar hafa notað ýmis öpp til að bæta lífstíl sinn með því til dæmis að auðvelda sér að ná jafnvægi næringarefna, efla hreyfingu og jákvætt hugarfar. Hjónin Ingi Torfi Sverrisson og Linda Rakel Jónsdóttir heilsu og markþjálfar standa á bak við nýtt íslenskt app á þessum nótum, Lifetrack, og við heyrðum í Inga Torfa í þættinum og fræddumst um það hvernig þetta virkar. Töluverður fjöldi fólks upplifir svokölluð umhverfisveikindi sem koma oft til af myglu í húsnæði. Umhverfisveikindi geta orðið svo alvarleg að fólk getur ekki búið eða unnið í húsnæðinu og verður fárveikt, orkulaust, þjakað af hausverkjum og mikilli vanlíðan. Linda Gunnarsdóttir sjúkraþjálfari og framkvæmdastjóri Heilsumiðstöðvarinnar Endurheimt er ein þeirra sem varð að umbylta sínum lífstíl til að ná heilsu á ný eftir erfið veikindi. Helga Arnardóttir ræddi við Lindu á Heilsuvaktinni í dag. Tónlist í þættinum í dag: Ég leitaði blárra blóma / Hörður Torfason (Hörður Torfason, texti Tómas Guðmundsson) Átján rauðar rósir / Berti Möller og Lúdó og Stefán (Bobby Darrin, íslenskur texti Iðunn Steinsdóttir) Garðurinn minn / Baggabandið (Magnús Þór Sigmundsson) Matthew and Son / Cat Stevens (Yusuf/Cat Stevens) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Kór eldri kvenna, Senjóríturnar, varð til sem afsprengi út frá Kvennakór Reykjavíkur fyrir nokkrum árum og Senjóríturnar voru síðan formlega stofnaðar 2015. Þær hafa reglulega haldið tónleika, tekið þátt í kóramótum og farið í söngferðalög. Það er mikill metnaður í starfi Senjórítanna og á undanförnum árum hafa þær leitað í smiðju þekktra söngvara. Meðal þeirra sem hafa sungið með kórnum eru Raggi Bjarna heitinn, Bragi Valdimar Skúlason í Baggalúti og Bubbi Morthens. Kórinn lagði af stað í enn eina kórferðina fyrir helgi og þær eru komnar til Norður-Írlands á kóramót. Við hittum þær á lokaæfingunni hér heima í Digraneskirkju og það var mikil stemmning og tilhlökkun í hópnum. Rætt var við Unni Ragnars, Ragnheiði Sigurðardóttur, Hildi Bjarnadóttur, Sigrúnu Klöru Hannesdóttur, Silju Aðalsteinsdóttur, Ágota Joó og Vilberg Viggósson. Við fengum svo vinkil frá Guðjóni Helga Ólafssyni í dag. Vinkill dagsins fjallaði að þessu sinni um breytingar á högum fólks þegar nútíminn ríður í hlað, við fengum tilvitnun frá rithöfundinum Helga Valtýssyni og rætt var um neftóbaksfræði sem svo eru kölluð; eða þjóðlegan fróðleik og reyndum að átta okkur aðeins á hvað hugtakið felur í sér. Og að lokum var það lesandi vikunnar. Í þetta sinn var það Jens Pétur Kjærnested, íslenskufræðingur og íslenskukennari. Við fengum að vita hvaða bækur hann hefur verið að lesa undanfarið og svo hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Jens Pétur talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: The Empusium (A Health Resort Horror Story) e. Olgu Tokarczuk Grief is the Thing with Feathers e. Max Porter Os Meses os Dias, Um a Um. (Mánuður, Dagar, hver á eftir öðrum) e. Eugénio de Andrade Undir Eplatrénu e. Olav H. Hauge Skýin eru skuggar e. Jon Fosse Gleðileikurinn guðdómlegi e. Dante Alighieri og ævisögu Dante sem heitir Dante: a Life e. Alessandro Barbero Dantes Bone´s e. Gay Raffa þýðingar (og endurútgáfur) Guðbergs Bergssonar á bókmenntum spænskumælandi landa Ingibjörg Haralds og þýðingar hennar úr rússnesku Friðrik Rafnsson og Milan Kundera Pétur Gunnars og Madame Bovary Mánasteinn e. Sjón Tónlistin í þættinum Bíddu pabbi / Vilhjálmur Vilhjálmsson (Peter Callander og Geoff Stevens, texti Iðunn Steinsdóttir) Orðin mín / Senjóríturnar (Bragi Valdimar Skúlason) I'm a Believer / The Monkees (Neil Diamond) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Come with us to East Iceland where we uncover the Icelandic ghost story of the frozen woman named, Bjarna Disa. It's such an intriguing story that there is a book written about her, a song, and a monument! Some say the area of Seyðisfjörður is still haunted by her too... Like what you hear? Give us 5 Stars! And follow us for more... Checkout our website: Eerie Iceland Follow us on: Instagram Find our page on: Facebook Email us: hello@eerieiceland.com Sources & Extras: Source 1 Source 2 Book about Bjarna Disa by Kristín Steinsdóttir Song about Bjarna Disa Hiking Details to see the Memorial Episode By: Vanessa Terrazas Editing By: James Ede (Be Heard | Podcast Production)
Bergur Vilhjálmsson starfar sem slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður og björgunarkafari hjá Slökkviliði höfuðborgasvæðisins. Hann er að fara í gang með styrktarverkefni fyrir Pieta samtökin. Hann ætlar að ganga frá Akranesi, í gegnum Hvalfjörðinn og í Grafarholtið og draga á eftir sér þyngdan sleða eða ýta honum á undan sér. Sleðin er rúm 100 kíló og 100 kíló af lóðum verða á sleðanum og eftir hverja 10 km. mun hann létta af sleðanum 10 kílóum. Þau kíló tákna að hann sé á réttri leið að vinna úr erfiðleikum. Sleðinn táknar erfiðleika sem við erum flest að burðast með í gegnum lífið en það eru til hlutir/verkfæri sem geta gert þessa byrði léttari. Bergur sagði okkur frá aðdraganda göngunnar og svo göngunni sjálfri sem hann hefur á fimmtudaginn kl.14. Sumardagurinn fyrsti er núna á fimmtudaginn og þá verður að venju opið hús í Garðyrkjuskólanum á Reykjum. Gróðurinn blómstrar í garðskálanum og gróðurhúsunum og fyrsta uppskeran af fersku grænmeti er tilbúin. Hægt verður að skoða skoða verkefni nemenda, forseti Íslands veitir garðyrkjuverðlaun ársins, boðið verður upp á kaffi ræktað á Íslandi og fleira. Björgvin Örn Eggertsson, námsbrautarstjóri skógræktar í Garðyrkjuskólanum, kom í þáttinn og sagði okkur betur frá þessu í dag. Hvernig getum við komið meira af grænmeti og ávöxtum inn í fæðið okkar? Nýjustu næringarráðleggingar frá Norðurlöndunum mæla með að við borðum um 500-800 grömm af því daglega til að halda góðri heilsu. Draga ætti úr kjötáti og unnum kjötvörum og auka neyslu á fiski, baunum ásamt öðru jurtafæði. Anna Sigríður Ólafsdóttir prófessor í næringarfræði við Háskóla Íslands gefur okkur góð ráð um hvernig við breytum gömlum venjum og innleiðum nýjar. Helga Arnardóttir ræddi við Önnu Sigríði í Heilsuvaktinni í dag. Tónlist í þættinum Yakketi yak smacketty smack / Change (Jóhann Helgason) Útþrá / Kristjana Arngrímsdóttir (Kristjana Arngrímsdóttir og Elísabet Geirmundsdóttir) Sumarvísa / Þorgerður Ása og Vigdís Hafliðadóttir (Mats Poulson og Iðunn Steinsdóttir) UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Salvör Nordal, Umboðsmaður barna, kom til okkar í dag. Embætti Umboðsmanns barna birti í vikunni upplýsingar um bið barna eftir þjónustu, eins og embættið hefur gert frá því í febrúar 2022, staðið fyrir reglulegri upplýsingaöflun um þann fjölda barna sem bíður eftir þjónustu hjá tilteknum aðilum með það að markmiði að varpa ljósi á stöðuna hverju sinni. Upplýsingarnar hafa verið uppfærðar á sex mánaða fresti, til að fylgjast með þróuninni. Í stuttu máli hafa niðurstöðurnar sýnt að alls staðar mæta börnin biðlistum og í langflestum tilvikum eru biðlistarnir að lengjast. Salvör fór með okkur yfir nýjustu stöðuna í þættinum. Flugfælni er nokkuð sem getur verið afar hamlandi og komið í veg fyrir að fólk ferðist með flugvélum, bæði innanlands og til annara landa. Kvíðameðferðarstöðin í samvinnu við Icelandair býður uppá námskeið fyrir fólk sem vill takast á við flugfælni og virðist gefa góða raun. Í lok námskeiðs er farið með flugi til einhverra af áfangastöðum flugfélagsins, út og heim aftur samdægurs og þáttakendur bera saman bækur sínar eftir á. Ólafía Sigurjónsdóttir sálfræðingur kom til okkar í þáttinn. Við fengum svo póstkort frá Magnúsi R. Einarssyni í dag. Í póstkortinu verður sagt frá rysjóttri tíð og fleiri raunum sem hafa dunið yfir Eyjamenn að undanförnu. Að því loknu er stríðið í Úkraínu til umfjöllunar sem og fleiri mál erlendis eins og kosningabaráttan í Bandaríkjunum þar sem söngstjarnan Taylor Swift er komin í brennidepil. Og í lokin talaði Magnús um hið sérkennilega mál Julian Assange sem bíður í fangelsi eftir örlögum sínum sem ráðast á næstunni fyrir breskum dómstól. Tónlist í þættinum: Presley / Katrín Halldóra Sigurðardóttir (Grafík, texti Rúnar Þórisson) Bíddu pabbi / Vilhjálmur Vilhjálmsson (erlent lag, texti Iðunn Steinsdóttir) Flugvélar / Nýdönsk (Jón Ólafsson og Björn Jörundur Friðbjörnsson) Tell me Margarita / Les Baxter (DR & Les Baxter) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Í dag verður flutt dálítið óvenjulegt erindi í Fræðakaffi á Borgarbókasafninu í Spönginni en yfirskrift þess er Ímynd tengdamæðra og það er þjóðfræðingurinn og skagfirðingurinn Eiríkur Valdimarsson sem mun flytja það. Í fréttatilkynningu segir: Af einhverjum ástæðum eru til ógrynni af bröndurum og skopmyndum þar sem tengdamæður eru gjarnan hafðar að háði og spotti. Þetta skemmtiefni byggir á ímynd sem margir hafa heyrt og séð, að tengdamæður séu uppáþrengjandi, yfirgangs- og afskiptasamar – sumsé býsna erfiðar manneskjur. Eiríkur Valdimarsson keyrði frá Hólmavík til Reykjavíkur og kom í þáttinn til að segja okkur frá tengdamæðrum. Við fengum vinkil í dag frá Guðjóni Helga Ólafssyni. Í þetta sinn lagði hann vinkilinn við hinar ýmsu ástæður þess að maður gengur til liðs við allskonar félagasamtök. Hann segir frá samkomu í einum af þeim fjölmörgu félögum sem hann er í, Hið Íslenzka Fyrritíðarfjelag, en samkvæmt Guðjóni er samkoman gríðarlegt tilhlökkunarefni á hverju ári. Svo var það lesandi vikunnar, í þetta sinn var það Nanna Hlín Halldórsdóttir heimspekingur. Við fengum að vita hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og svo hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Nanna talaði um eftirfarandi bækur: The Expanse, bókasería eftir James S.A. Corey (Daniel Abraham og Ty Franck) The Book of Goose eftir Yiyun Li Sick and Tired: An Intimate History of Fatigue eftir Emily K. Abel Lilith's Brood eða Xenogenesis, þríleikur (Dawn, Adulthood Rides og Imago) eftir Octaviu Butler Að lokum talaði Nanna um bókina Fátækt fólk eftir Tryggva Emilsson Tónlist í þættinum: Átján rauðar rósir / Lúdó og Stefán og Berti Möller (Bobby Darin og Iðunn Steinsdóttir) Kúst og fæjó / Heimilstónar (Elva Ósk Ólafsdóttir, Katla Margrét Þorgeirsdóttir, Vigdís Gunnarsdóttir og Ólafía Hrönn Jónsdóttir) Aska og Gull / Sváfnir Sigurðarson (Sváfnir Sigurðarson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Harsh words are exchanged between siblings as the group prepares for the battle ahead and plans are made to fight Zero and her League of Evil Assholes. It wouldn't be DnP without a full henshin sequence and it's time for Dallas to channel his inner Bard as the Battle for the Neighborhood begins.Find out more at Dungeons and Pop!Other Podcasts in our new Network:D&P - Stories & SteinsD&P - Aberrant AdventuresInfinite Nerd TheoremThree Besties and a GuestieTalk Anything with CassWant to talk to some of the cast and maybe play a oneshot or two? Join us at the Dungeons and Pop Social Club! Want to give us a review, hit us up on Podchaser! Buy us a cup of coffee on Ko-fi!
Okið undan sjálfum mér er hreinskilinn fyrirlestur þar sem leikarinn Björgvin Franz Gíslason lýsir því hvernig hann náði að breyta eigin vinnubrjálæði yfir í innri ró og raunverulega starfsánægju, eins og hann orðar það sjálfur. Hann veltir því upp hvernig maður nær þeim árangri að verða betri starfskraftur með því að eyða færri klukkustundum í vinnunni en meiri tíma með fjölskyldu og vinum. Aðferðirnar sem Björgvin styðst við hafa verið notaðar til að þjálfa afreksíþróttafólk og forstjóra stærstu fyrirtækja heims til að öðlast betri árangri í sínu fagi sem og í lífinu. Björgvin Franz kom í þáttinn og sagði okkur betur frá þessu í dag. Við fengum svo vinkil frá Guðjóni Helga Ólafssyni í dag og í þetta sinn velti hann fyrir sér afleiðingum eldgoss á Suðurnesjum auk þess sem hleðslustöðvar fyrir rafbíla og umgengni við þær fá svolitla athygli, já og Eyvör Pálsdóttir, þó ekki söngkonan. Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var María Hjálmtýsdóttir kynjafræðikennari og barnabókasafnari. Við fengum að vita hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og svo hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. María talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Bold fjölskyldan í klípu e. Julian Clary Serótónínendurupptökuhemlar e. Friðgeir Einarsson Ég verð aldrei ungfrú meðfærileg e. Ingibjörgu Dögg Kjartansdóttur Ten Steps to Nanette e. Hannah Gadsby Backlash e. Susan Faludi Angry White Men e. Michael Kimmel. Kapítóla eftir E.D.E.N. Southworth. Tónlist í þættinum í dag: Relax / Trúbrot (Gunnar Þórðarsson, Magnús Kjartansson og Rúnar Júlíusson) Myndin af þér / Vilhjálmur Vilhjálmsson (Bob Russel, texti Iðunn Steinsdóttir) Take me home country roads / John Denver UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
We continue with a Crest Quest where our favorite DM sets us up to deal with a metahuman threat as the source of the disappearing daughter is revealed! Rascal brings down the floor, Lee does some sweet flips, and Declane draws some attention.Find out more at Dungeons and Pop!Other Podcasts in our new Network:D&P - Stories & SteinsD&P - Aberrant AdventuresInfinite Nerd TheoremThree Besties and a GuestieTalk Anything with CassWant to talk to some of the cast and maybe play a oneshot or two? Join us at the Dungeons and Pop Social Club! Want to give us a review, hit us up on Podchaser! Buy us a cup of coffee on Ko-fi!
We have a new Crest Quest where our favorite DM runs a trio of detectives through a mystery as they investigate the disappearance of a high school girl in a city filled with mystery and dynamic voice overs as we play through a City of Mist one-shot! Rascal does some hacking, Lee applies a little bit of hypnosis, and Declane wonders what's up with the kid's lingo these days.Find out more at Dungeons and Pop!Other Podcasts in our new Network:D&P - Stories & SteinsD&P - Aberrant AdventuresInfinite Nerd TheoremThree Besties and a GuestieTalk Anything with CassWant to talk to some of the cast and maybe play a oneshot or two? Join us at the Dungeons and Pop Social Club! Want to give us a review, hit us up on Podchaser! Buy us a cup of coffee on Ko-fi!
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir þingkona var föstudagsgestur Mannlega þáttarins að þessu sinni og við komum víða við í spjallinu með henni. Hún rifjaði upp æsku sína og hvernig hún ætlaði sér að verða dýralæknir lengi vel, hvað henni leið vel í sveitinni en líka hversu gaman það var að alast upp í Breiðholtinu. En hvernig stóð á því að hún fór í stjórnmálin? Hvers vegna fór hún í lögfræði en ekki leiklist? Við heyrðum allt um það í skemmtilegu spjalli við Þorgerði Katrínu. Í matarspjallinu með Sigurlaugu Margréti töluðum við um sósugerð fyrir jólin. Rjúpusósa, sósa með kalkúninum og hamborgarhryggnum. Ekki vorum við öll sammála um hvað má og hvað ekki í þeim efnum en við vorum þó sammála um að góð sósa getur svo sannarlega gert gæfumuninn. Tónlist í þættinum í dag: Bíddu pabbi / Vilhjálmur Vilhjálmsson (lag Callander & Stevens, texti Iðunn Steinsdóttir) Sister Golden Hair / America (Gerry Beckley) Fairytale of New York / The Pogues & Kirsty MacColl (Jem Finer & Shane MacGowan) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

A very special episode that explains a little bit about why we've been gone for another month with some teasers for the regular episodes that will release in 2 weeks. Find out more at Dungeons and Pop!Other Podcasts in our new Network:D&P - Stories & SteinsD&P - Aberrant AdventuresInfinite Nerd TheoremThree Besties and a GuestieTalk Anything with CassWant to talk to some of the cast and maybe play a oneshot or two? Join us at the Dungeons and Pop Social Club! Want to give us a review, hit us up on Podchaser! Buy us a cup of coffee on Ko-fi!
Við heyrðum í Birni Þorlákssyni í dag, en út er komin bók eftir hann sem heitir Dauðinn. Í bókinni, sem tók fjögur ár að skrifa, fjallar Björn efnislega um dauðann og talar við fólk sem hefur tekist á við feigðina í ýmsum myndum, ræðir við dauðvona fólk og þá sem hafa misst ástvini og fléttar saman við rannsóknir og hugleiðingar. Við töluðum við Björn um bókina í dag. Svo fengum við pabbastráka í heimsókn, sem sagt þá Helga Grím Hermannsson og Hákon Örn Helgason, en þeir eru höfundar og leikarar í sýningunni Pabbastrákar sem sýnd er í Tjarnarbíói. Sýningin fjallar á kómískan hátt um feðgasambönd og gerist á sólarströndinni Playa Buena á Spáni árið 2007. Þar segjast þeir vera að rannsaka sambönd feðga og hvernig kynslóðirnar tjá tilfinningar á mismunandi hátt, en þeir segjast segjast hafa til dæmis sótt innblástur í rómantískar gamanmyndir frá fyrsta áratugi þessarar aldar. Þeir Helgi og Hákon útskýrðu þetta betur fyrir okkur í þættinum. Strjálbýlt land án lestrarsamgangna varð að tileinka sér tækniundur 20.aldarinnar og fátt annað verkfæri hefur átt jafn góða samleið með einstaklingshyggnum Íslendingum en bíllinn, sem tryggði frelsi þeirra til ferðalaga um fagurt landið. Og þegar hann birtist með fjórhjóladrifi opnuðust víðerni hálendisins. Svona skrifar Örn Sigurðsson höfundur bókarinnar Bílar í lífi þjóðar sem var að koma út. Við töluðum við Örn í þættinum i dag, en hann er landfræðingur og bílasagnfræðingur og forstöðumaður korta og bílabókadeildar Forlagsins. Tónlist í þættinum í dag: Heim í Búðardal / Ðe Lónlí blú bojs (Gunnar Þórðarson og Þorsteinn Eggertsson) American Pie / Don McLean (Don McLean) Bíddu pabbi / Vilhjálmur Vilhjálmsson (Peter Callander, Geoff Stevens og Iðunn Steinsdóttir Bílavísur / Björk Guðmundsdóttir og Tríó Guðmundar Ingólfssonar (Holmes og Jón Sigurðsson) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

The gang enters a big battle between the Leader of the Hive and a Pissed-off Angel and things get wild as they have their first cinematic battle! Can they win this fight even as the unkillable beast enters the fray? Or are they doomed to reach the Breaking Point? Find out more at Dungeons and Pop!Other Podcasts in our new Network:D&P - Stories & SteinsD&P - Aberrant AdventuresInfinite Nerd TheoremThree Besties and a GuestieTalk Anything with CassWant to talk to some of the cast and maybe play a oneshot or two? Join us at the Dungeons and Pop Social Club! Want to give us a review, hit us up on Podchaser! Buy us a cup of coffee on Ko-fi!
As the party head down in the eldritch elevator summoned by their choices, they have a little levity before the big battle yet to come as they find themselves meeting an unusual friend. Even as they finish travelling, things get freaky as an unwanted suitor comes calling.Alex confronts a random encounter. Yanick pulls Nick to safety. Haven and 079 lead the party safely through danger.Find out more at Dungeons and Pop!Other Podcasts in our new Network:D&P - Stories & SteinsD&P - Aberrant AdventuresInfinite Nerd TheoremThree Besties and a GuestieTalk Anything with CassWant to talk to some of the cast and maybe play a oneshot or two? Join us at the Dungeons and Pop Social Club! Want to give us a review, hit us up on Podchaser! Buy us a cup of coffee on Ko-fi!
The truth of the Breaking Point is revealed as Pocky reveals what happened to Dallas's little sister and the party makes their decision on which side they stand with when it comes to the inhabitants of the Backrooms.Nick promises a bloody death to their enemy. Dallas asks for a promise. Ghost makes a TAZ reference.Find out more at Dungeons and Pop!Other Podcasts in our new Network:D&P - Stories & SteinsD&P - Aberrant AdventuresInfinite Nerd TheoremThree Besties and a GuestieTalk Anything with CassWant to talk to some of the cast and maybe play a oneshot or two? Join us at the Dungeons and Pop Social Club! Want to give us a review, hit us up on Podchaser! Buy us a cup of coffee on Ko-fi!
The party continues to struggle with the situation they're in as the kid has walked off into the fey realm and the others aren't quite sure how to save them. But a chance meeting and a quest given may give future direction. Dallas scrambles communications. Yanick talks to the Sasquatch. Alex talks shit about royalty.Find out more at Dungeons and Pop!Other Podcasts in our new Network:D&P - Stories & SteinsD&P - Aberrant AdventuresInfinite Nerd TheoremThree Besties and a GuestieTalk Anything with CassWant to talk to some of the cast and maybe play a oneshot or two? Join us at the Dungeons and Pop Social Club! Want to give us a review, hit us up on Podchaser! Buy us a cup of coffee on Ko-fi!
It's been a while since we've had a Soda Break and we figured it would be a nice way let people know what's going on with all the feeds for the last few weeks and the rest of July. Plus, we discuss cosmic horror versus eldritch horror and introduce some new cast members!Other Podcasts in our new Network:D&P - Stories & SteinsD&P - Aberrant AdventuresInfinite Nerd TheoremThree Besties and a GuestieTalk Anything with CassWant to talk to some of the cast and maybe play a oneshot or two? Join us at the Dungeons and Pop Social Club! Want to give us a review, hit us up on Podchaser! Buy us a cup of coffee on Ko-fi!
The party remains divided as even more people are pulled into the Backrooms. What's going on here and did someone just break into my house? More secrets are revealed as they encounter more entities in the world of the Backrooms.Brian takes a forced nap. Asma gets pulled into a game show. Alex finds a squire. Dallas produces pocket sand. Haven makes a new friend.This episode includes a major announcement going forward!Find out more at Dungeons and Pop!Other Podcasts in our new Network:D&P - Stories & SteinsD&P - Aberrant AdventuresInfinite Nerd TheoremThree Besties and a GuestieTalk Anything with CassWant to talk to some of the cast and maybe play a oneshot or two? Join us at the Dungeons and Pop Social Club! Want to give us a review, hit us up on Podchaser! Buy us a cup of coffee on Ko-fi!
The party grows larger as they fall for Malorie's trap and have to deal with two extremely dangerous SCPSs. Answers are coming for the group for why they've been brought here but will they find more questions? Dallas needs some eye drops. Nick takes command. Alex looks for their train ticket. Yanick takes up babysitting.This episode includes a major announcement going forward!Find out more at Dungeons and Pop! Other Podcasts in our new Network:D&P - Stories & SteinsD&P - Aberrant AdventuresInfinite Nerd TheoremThree Besties and a GuestieTalk Anything with CassWant to talk to some of the cast and maybe play a oneshot or two? Join us at the Dungeons and Pop Social Club! Want to give us a review, hit us up on Podchaser! Buy us a cup of coffee on Ko-fi!
Björgvin Franz Gíslason leikari var föstudagsgestur Mannlega þáttarins í dag. Hann hefur komið víða við í skemmtanabransanum, hann sá um Stundina okkar í mörg ár, hann hefur auðvitað leikið í fjölda leiksýninga og í kvikmyndum og sjónvarpi, hann veislustýrir, syngur lögin hans Ragga Bjarna á öldrunarheimilum og nú síðustu ár hefur hann leikið hvert stórhlutverkið á fætur öðru hjá Leikfélagi Akureyrar. Í vetur hefur hann farið með stærsta karlhlutverkið í söngleiknum Chicago fyrir norðan og fékk frábæra dóma fyrir. Við ræddum við Björgvin Franz um lífið og tilveruna, ADHD, Jón Gnarr, Björn Hlyn, Ragga Bjarna og fleira og fleira. Matarspjallið með Sigurlaugu Margréti var svo auðvitað á sínum stað í þættinum. Í dag tókum við aftur upp þráðinn frá því í síðustu viku og héldum áfram að tala um samlokusalöt og einnig komu við sögu kartöflur og rauðmagi. Tónlist í þættinum í dag: Ég bið þig forláts / Raggi Bjarna (J.South og Iðunn Steinsdóttir) A ban I bin /Izhar, Cohen og Alpha Beta (Eurovision lag Ísraela 1978) OK / Langi Seli og Skuggarnir (Axel Hallkell Jóhannesson, Jón Skuggi og Erik Kvick) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Eymundur Lúter Eymundsson var hjá okkur í þættinum í dag. Hann glímdi við mikinn kvíða og félagsfælni frá því í barnaskóla. Kvíðinn hafði áhrif á allt í hans lífi, honum gekk illa í náminu, hann einangraði sig, reiddist sjálfum sér fyrir að líða illa og þorði ekki að segja neinum frá því hvernig honum leið. Hann hætti í framhaldsskóla eftir tvo mánuði, notaði áfengi til að slá á líðanina og þegar hann lagðist til svefns á kvöldin kveið hann fyrir að vakna daginn eftir, kveið fyrir öllum deginum. Kveið fyrir því að þurfa hitta annað fólk. Eymundi líður betur í dag, líf hans tók loksins aðra stefnu þegar hann var að nálgast fertugt og hann sagði okkur sína sögu í þættinum. Geirmundur Valtýsson hljómlistarmaður heldur tónleika á laugardaginn og þeir eru óvenjulegir á þann hátt að hljómsveitin spilar einungis lögin og það fellur í hlut áhorfenda að syngja lögin. Geirmundur sagði okkur frá þessu í dag. Hver var Jón Ólafsson úr Grunnavík og hvað var hann að gera í Kaupmannahöfn á átjándu öld? Félag um átjándu aldar fræði heldur málþing á laugardaginn og meðal annars mun Guðrún Ása Grímsdóttir flytja erindi um fræðastörf Jóns Ólafssonar frá Grunnavík. Þar segir hún frá uppruna hans, erindi hans til Kaupmannahafnar haustið 1726 og stöðu hans og kjörum þar i borg nær ævilangt. Guðrún sagði okkur frá Jóni í þættinum í dag. Tónlist í þættinum í dag Átján rauðar rósir / Lúdó og Stefán (Bobby Darin, Iðunn Steinsdóttir) Lover / Peggy Lee (Richard Rodgers og Lorenz Hart) Nú er ég léttur / Geirmundur Valtýsson (Geirmundur Valtýsson) Rósin/Sigfús Pétursson og Álftagerðisbræður (Friðrik Jónsson og Guðmundur Halldórsson) Sigurður Rúnar Jónsson útsetti og Stefán R Gíslason raddsetti UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Mæðgurnar Sigríður Víðis og Kristín ræða vináttuna, ritlistina og ferðalög

Í dag verður haldið árlegt málþing um krabbameinsrannsóknir á vegum Krabbameinsfélagsins undir yfirskriftinni Enn liggur leiðin fram á við. Álfheiður Haraldsdóttir, sérfræðingur hjá Rannsókna- og skráningarsetri félagsins, sem verður með erindi á málþinginu, kom í þáttinn í dag og sagði okkur frá efni þess, en erindið heitir Brjóstakrabbamein á Íslandi 2000-2020. Þar fjallar hún um samanburð á gæðum skimunar og meinafræðilegum forspárþáttum. Og með Álfheiði kom Halla Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins, en hún sagði okkur betur frá málþinginu í heild. Lifum betur er yfirskrift Umhverfis og Heilsumálþings sem fer fram 7.-9. okt. Við fengum Guðbjörgu Gissurardótturr og Hrefnu Guðmundsdóttur í þáttinn í dag, en þær munu flytja erindi við þetta tækifæri. Það fjallar um hamingjuna, hvort hægt sé að mæla hana og hvað það er sem gerir okkur hamingjusöm. Í síðustu viku fengum við fyrirspurn frá hlustanda af hverju það kemur stundum vond lykt úr niðurföllum, jafnvel í nýjum húsum, og hvað sé hægt að gera við því. Við fengum Böðvar Inga Guðbjartsson, pípulagningameistara, til að aðstoða okkur við að svara því í þættinum. Tónlist í þættinum í dag: Ég vil bara beat músík / Ríó Tríó (Mason, Dixon og Ómar Ragnarsson) Myndin af þér / Vilhjálmur Vilhjálmsson (Bob Russel og Iðunn Steinsdóttir) Þrek og tár / Erla Þorsteinsdóttir og Haukur Morthens (Otto Lindblad og Guðmundur Guðmundsson) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Leikverkið Á eigin vegum var frumsýnt í Borgarleikhúsinu síðastliðið laugardagskvöld. Leikgerðin byggir á skáldsögu metsöluhöfundarins Kristínar Steinsdóttur sem kom út árið 2006, en bókin var tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs og hlaut Fjöruverðlaunin árið 2007. Eva Halldóra Guðmundsdóttir rýnir í verkið. Hallsteinn Sigurðsson myndhöggvari á að baki langan feril prýddan fjölbreyttum verkum. Frá því hann kom úr námi í byrjun sjöunda áratugarins hefur hann unnið þvívíð verk, fyrst og fremst í steypu, stál, járn og ál. Mörg útiverka hans eru kunnugir félagar í borgarlandslaginu, en þekktust eru sennilega álverkin 16 sem standa í Gufunesi. Listamaðurinn hafði sjálfur frumkvæði að þeim garði og gaf borginni síðar öll verkin. Víðsjá heimsótti Café Pysju í Grafarvogi þar sem nú stendur yfir sýning sem kallast Í Hallsteins nafni. Einn fremsti rithöfundur Spánar, Javier Marías, féll frá í síðustu viku, sjötugur að aldri. Marías, sem lengi hefur verið orðaður við bókmenntaverðlaun Nóbels, gaf út sextán skáldsögur og hafa verk eftir hann verið þýdd á 46 tungumál. Marías var einnig afkastamikill þýðandi, auk þess að vera fastur penni í spænska dagblaðinu El País. Gauti Kristmannsson fjallar um Javier Marias í þætti dagsins. Síðustu átt ár hefur Elvar Örn Kjartansson, ljósmyndari, unnið að umfangsmiklu ljósmyndaverkefni þar sem hann hefur heimsótt fyrirtæki og stofnanir á Íslandi og myndað þar ýmis rými. Um er að ræða sto?rt og flo?kið kerfi sem samanstendur af mannvirkjum, stofnunum og þjónustufyrirtækjum og o?teljandi pörtum sem eru innviðir þess. Hvert og eitt þeirra þjo?nar sínum sérstaka tilgangi og sér til þess að þjo?ðfe?lagið nær að ganga sinn vanagang frá degi til dags og við lifum og hrærumst i? því nánast óafvitandi. Víðsjá heimsótti ljósmyndasýninguna Kerfið og við heyrum af því í lok þáttar. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir

Guðrún Ingólfsdóttir doktor í íslenskum bókmenntum hefur í rannsóknum sínum beint sjónum að bókmenntum fyrri alda, einkum frá miðöldum og 18. öld. Það var ekki fyrr en á 19. öld að konur á Íslandi fengu sumar að setjast á formlega skólabekki. Áður fór menntun þeirra einkum fram heima eða þær voru sendar í læri hjá konum, aðallega prestfrúm sem ráku heimaskóla. Handrit í eigu kvenna hafa lengi verið Guðrúnu hugleikin og í bókinni Skáldkona gengur laus (2021) beinir hún sjónum að fjórum skáldkonum frá 19. öld, en í kveðskap þeirra má sjá skýra sjálfsmynd og skýran menningarlegan bakgrunn og merkilega afstöðu til náttúrunnar og ímyndunaraflsins. Guðrún kom í þáttinn í dag og sagði okkur frá því sem hún ætlar að ræða á Borgarbókasafninu í Menningarhúsinu í Spönginni í dag undir yfirskriftinni Guðhræðslan, náttúran, greddan. Við fengum í dag nýjan vinkil frá Guðjóni Helga Ólafssyni, nýjum pistlahöfundi þáttarins. Hann er að eigin sögn skúffuskáld og þjóðfræðiáhugamaður úr Flóanum sem hefur stundað í nokkur ár að búa til pistla og birta á samfélagsmiðlum. Guðjón býr með fjölskyldu sinni á bænum Sviðugörðum í gamla Gaulverjabæjarhreppi en stundar ekki hefðbundinn búskap, heldur nokkrar hænur, ræktar tré og svolítið af kartöflum til heimilis- og einkanota. Pistlana kallar hann vinkla og í vinkli dagsins fjallaði hann um hljóð og óhljóð, jafnvel hávaða. Lesandi vikunnar í þetta sinn var Guðrún Óla Jónsdóttir, blaða- og söngkona. Við fengum að vita hvað hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Tónlist í þættinum í dag: Átján rauðar rósir / Lúdó og Stefán (Bobby Darin, Iðunn Steinsdóttir) Ég vil fara upp í sveit / Ellý Vilhjálms (Bonagura, Sciorilli, Danpa og Jón Sigurðsson) Gestir út um allt / Hrekkjusvín (Valgeir Guðjónsson og Pétur Gunnarsson) Ég leitaði blárra blóma / Hörður Torfason (Hörður Torfason og Tómas Guðmundsson) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Spaudos apžvalga.Eglės Baliutavičiūtės žvilgsnis į dvi knygas – Kristín Steinsdóttir romaną „Šviesė“ ir Danielos Fischerovos pasaką vaikams „Blogykla”.Pasakojimas apie daugeliui totorių susižavėjimą keliantį generolą Motiejų Sulkevičių.Jono Jurkūno sukurta garsinė opera-pasivaikščiojimas „Nidos mokyklos kronika“ pretenduoja į tarptautinį „Sound Walk September 2021“ apdovanojimą.Lietuvos restauratorių sąjunga teigia, kad remontuojant Montvilos kolonijos pastatą, padaryta galimai neatitaisoma žala. Kaip situaciją vertina Kultūros paveldo departamentas?Penktadienį prasidedantis „Kultūros forumas 2021“ kviečia diskutuoti apie kultūros ir švietimo bendradarbiavimo svarbą.Paskelbtas 2022 „Grammy“ apdovanojimų sąrašas. Apie kokias tendencijas galime kalbėti?Ved. Marius Eidukonis
Fyrsta textíllab á Íslandi opnaði í Textílmiðstöð Íslands á Blönduósi fyrir helgi. Þar á að efla rannsóknir og stuðla að verðmætasköpun meðal annars, en við hringdum norður og heyrðum í Elsu Arnardóttur forstöðumanni Textílmiðstöðvarinnar og fengum að vita meira. Um 200 manngerða hella er að finna á Suðurlandi og þeirra á meðal eru all nokkrir á Ægisíðu við Hellu. Þar geta ferðamenn nú skoðað nokkra þeirra með leiðsögn og Hulda skellti sér í heimsókn þangað um helgina, skoðaði hellana og ræddi við Halldóru Steinsdóttur leiðsögumann og Baldur Þórhallsson einn þeirra sem standa að uppbyggingu og rekstri hellana. Við forvitnuðumst um nýjan vef, sundlaugar.com, þar sem notendur geta haldið utan um og séð hvaða sundlaugar á landinu þeir eiga eftir að heimsækja, ætli þeir á annað borð að fara í allar sundlaugar landsins. Finnur Magnússon sagði okkur frá. Hallgrímur Helgason, rithöfundur, kom til okkar en honum er brugðið eftir fréttir Kjarnans og Stundarinnar síðustu daga sem leiddu í ljós að svonefnd skæruliðadeild Samherja hafði hann í sigtinu og fletti honum meðal annars upp í opinberum skrám. Hann segir það svakalegt að njósnað sé um heimili sitt og eignum hans flett upp. Guðmundur Jóhannsson opnaði dyrnar að tæknihorninu upp úr hálfníu og bauð okkur að kíkja inn í leit að fróðleik úr heimi tækninnar. Þar fór hann yfir nýjustu kynningu Google. Tónlist: Bjarni Arason - Þegar sólin sýnir lit. Cease tone, Rakel og Jói Pé - Ég var að spá. Kristín Sesselja - W.A.I.S.T.D. (what am I supposed to do). Kacey Musgraves - High horse. The Charlatans - Cant get out of bed. Paul Weller - No tears to cry. Van Morrison - Only a song. Tómas Welding - Here they come. Valdimar - Stundum.

Þátturinn er tileinkaður bókum sem komu út fyrir jólin og hún Gyða Sigfinnsdóttir bókmenntafræðingur og verkefnastjóri kom til mín í spjall.Að þessu sinni spjölluðum við um Eldana eftir Sigríði Hagalín, Fjarvera þín er myrkur eftir Jón Kalman, Bölvun múmíunnar eftir Ármann Jakobsson, Yfir bænum heima eftir Kristínu Steinsdóttur og (M)Ein eftir Ásdísi Höllu Bragadóttur.Hér finnur þú Skúffuskáld á Instagram og FacebookSendið póst á netfangið skuffuskald@lubbipeace.com með ábendingar og vangaveltur.
Lykkjustund.is er vefsíða sem Nanna Einarsdóttir rafmagnsverkfræðingur hefur sett upp en hún hefur unnið í hugbúnaðarþróun síðastliðin sjö ár, og prjónað jafnlengi. Lykkjustund sameinar þessar tvær ástríður, segir hún en hún setti vefsíðuna í loftið á meðan samkomubanninu stóð í vor. Um er að ræða reiknivél sem hún forritaði til að aðstoða prjónafólk með algenga útreikninga tengda prjónaskapnum. Við hringdum í Nönnu í þættinum og fræddumst um prjón og t.d. prjónfestu. Þórður Halldórsson býr á bænum Laugarholti í Skjaldfannardal við Ísafjarðardjúp. Hann hefur á hverju sumri síðan 1990 og þar til í sumar farið með hópa fólks í hestaferðir yfir Drangajökul og í Reykjarfjörð nyrðri. Kristín Einarsdóttir, okkar kona á Ströndum, hitti Þórð heima hjá honum og hestunum hans og bað hann að segja frá þessum mögnuðu ferðum. Lesandi vikunnar í þetta sinn var leikkonan Maríanna Clara Lúthersdóttir. Hún er líka þýðandi, þýddi bókina Mitt (ó)fullkomna líf eftir Sophie Kinsella og er nú að skrifa leikgerð ásamt Sölku Guðmundsdóttur, upp úr bók Kristínar Steinsdóttur Á eigin vegum. Við fengum að heyra hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft áhrif á hana í gegnum tíðina. UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

ÍA hefur verið í fremstu röð í íslenskri knattspyrnu í 70 ár. Á ýmsu hefur gengið en viðfangsefni þáttarins eru nokkur einkennileg mál í sögu félagsins. Svaðilför á sjó, ólöglegir leikmenn og fleira. Viðmælendur: Hörður Helgason, Steindóra Steinsdóttir og Sturlaugur Haraldsson. The post Örsögur first appeared on .
ÍA hefur verið í fremstu röð í íslenskri knattspyrnu í 70 ár. Á ýmsu hefur gengið en viðfangsefni þáttarins eru nokkur einkennileg mál í sögu félagsins. Svaðilför á sjó, ólöglegir leikmenn og fleira. Viðmælendur: Hörður Helgason, Steindóra Steinsdóttir og Sturlaugur Haraldsson.

This episode: Microbes in low-oxygen zones in the ocean consume significant amounts of methane anaerobically! Download Episode (5.2 MB, 7.6 minutes) Show notes: Microbe of the episode: Mojiang henipavirus News item Takeaways Methane is a much more potent greenhouse gas than carbon dioxide. Fortunately there's not as much of it in the atmosphere, but even smaller amounts can have significant effects on the climate. One source of methane is low-oxygen zones in the ocean, where certain kinds of archaea make methane as part of their energy metabolism. This study found that other anaerobic microbes in the same areas consume much of this methane, preventing it from reaching the atmosphere. Journal Paper: Thamdrup B, Steinsdóttir HGR, Bertagnolli AD, Padilla CC, Patin NV, Garcia‐Robledo E, Bristow LA, Stewart FJ. 2019. Anaerobic methane oxidation is an important sink for methane in the ocean’s largest oxygen minimum zone. Limnol Oceanogr 64:2569–2585. Other interesting stories: Correlated microbiome metabolites with compounds in blood of twins (paper) Bacteria inhibit soil fungi via airborne chemicals (paper) Email questions or comments to bacteriofiles at gmail dot com. Thanks for listening! Subscribe: Apple Podcasts, Google Podcasts, Android, or RSS. Support the show at Patreon, or check out the show at Twitter or Facebook.
Pönk, Elísabet drottning, vélmenni, heimilistæki, tannburstinn og margt fleira kemur fyrir í þættinum.
Karen Helga Steinsdóttir býr í Víkum á Skaga í Skagabyggð ásamt Jóni manni sínum og syni þeirra. Svo eiga þau von á öðru barni í sumarlok. Auk þess að reka sauðfjárbú er Karen sveitarstjórnarmaður og líklega með yngri slíkum á landinu aðeins 24 ára gömul. Karen segir okkur frá lífinu í Víkum og hvernig það er að vera sveitarstjórnarmaður í 97 manna sveitarfélagi.
Þóra Jónsdóttir sagði frá uppvextinum í Reykjavík, Laugalækjaskóla og Iðunni Steinsdóttur kennara sem hafði mikil áhrif á hana. Hætti í Versló og fór í fjölbraut í Breiðholti og kláraði stúdentspróf þaðan. Stofnaði heimili og var að vinna á ýmsum stöðum, söng með nokkrum hljómsveitum en ákvað að drífa sig í háskólanám árið 2007 og fór í lögfræði í HÍ. Starfar nú hjá Barnaheill og sem söngkona en hún ákvað loksins árið 2014 að koma út úr skápnum sem tónlistarmaður og fara að sinna þeirri list betur. Hefur hljóðritað tvö lög með Pálma Sigurhjartarsyni píanóleikara og er að undirbúa tónleikar sem verða á skírdag í Fríkirkjunni í Reykjavík. Sigurður K. Kolbeinsson sagði frá uppvextinum í Reykjavík og skólagöngu sem gekk vel alveg þar til hann kom í MS en þá voru það önnur verkefni sem tóku hug hans allan svo sem eins og félagslífið og veitingastaðurinn Hollywood. Sigurður starfar nú bæði á Íslandi og í Danmörku, bæði við ferðatengda þjónustu og á sjónvarpsstöðinni Hringbraut en ný þáttaröð hans og Friðþjólfs Helgasonar fer í sýningu eftir páska og er tileiknuð 65+ hópnum. Hann ræddi líka viðhorfin til lífsins, áhrifavalda og margt fleira.

Reykvíkingar dagsins í dag ljá Reykvíkingum frá árinu 1918 rödd sína og lesa valda texta frá því ári. Í þessum þætti les Vélaug Steinsdóttir, fyrrum fulltrúi hjá Veðurstofu Íslands, úr bréfi Þorbjargar Olgeirsdóttur sem hún skrifaði syni sínum Hauki Gíslasyni sem bjó í Danmörku. R1918 er samstarfsverkefni Listahátíðar í Reykjavík, Landsbókasafnsins og RÚV. Textavinna: Landsbókasafn Íslands-Háskólabókasafn og Bjarni Jónsson.