Podcasts about memfismaf

  • 7PODCASTS
  • 117EPISODES
  • 2h 4mAVG DURATION
  • 1MONTHLY NEW EPISODE
  • Jan 24, 2025LATEST

POPULARITY

20172018201920202021202220232024

Best podcasts about memfismaf

Latest podcast episodes about memfismaf

Mannlegi þátturinn
Tinna Hrafnsdóttir föstudagsgestur og þorramatarspjall

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Jan 24, 2025 53:31

Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Tinna Hrafnsdóttir, leikstjóri, leikkona handritshöfundur og framleiðandi. Hún er annar leikstjóra sjónvarpsþáttanna um Vigdísi Finnbogadóttur, hún gerði kvikmyndina Skjálfta upp úr bók Auðar Jónsdóttur, hún leikstýrði sjónvarpsþáttunum Heima er best auk þess að skrifa handritið ásamt tveimur öðrum og hún hefur leikið í fjölda verkefna á sviði og fyrir framan myndavélina. Við fórum með Tinnu aftur í tímann, á æskuslóðirnar og svo á handahlaupum í gegnum lífið til dagsins í dag. Svo var það matarspjallið með Sigurlaugu Margréti, sem auðvitað var á sínum stað í dag eins og aðra föstudaga. Í dag er bóndadagur, fyrsti dagur í þorra, og það er þorramaturinn sem verður umræðuefnið í dag. Íslenski þorramaturinn komst á alþjóðlegan lista sem er ekki endilega listinn til að vera á, sem við skoðuðum aðeins. Sviðakjammi, sviðasulta, rófustappa, súrir hrútspungar og allt þetta góðgæti sem við elskum en vekja jafnvel furðu hjá öðrum þjóðum. Tónlist í þættinum: Okkar eigin Osló / Valdimar Guðmundsson og Memfismafían (Helgi Svavar Helgason, texti Bragi Valdimar Skúlason) Af því að pabbi vildi það / Jonee Jonee (Jonee Jonee) Morning has Broken / Cat Stevens (Cat Stevens & Eleanor Farjeon) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Mannlegi þátturinn
Maríanna í Portúgal og Ágúst Páll lesandi vikunnar

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Dec 16, 2024 52:39

Maríanna Friðjónsdóttir sjónvarpsframleiðandi og leikstjóri hefur haft vetrarsetu í Portúgal síðustu 9 ár með móður sinni Viktóríu Særúnu Gestsdóttur. Yfir sumartímann hefur Marianna farið heim til Danmerkur þar sem hún bjó í 20 ár og mamma hennar verið á Íslandi en núna hefur Marianna flutt alfarið til Portugal. Við slógum á þráðinn til Mariönnu og fengum að vita hvernig lífið gengur fyrir sig hjá þeim mæðgum í litla þorpinu þar sem þær búa. Svo var það lesandi vikunnar, í þetta sinn var það Ágúst Páll Óskarsson, hann er nemi á þriðja ári í Kvennó og vinnur á bókasafni Mosfellsbæjar. Við fengum að vita hvaða bækur hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Tónlistin í þættinum Jólin eru hér / Sigurður Guðmundsson og Memfismafían (Sigurður Halldór Guðmundsson, texti Bragi Valdimar Skúlason) Er líða fer að jólum / Sigríður Thorlacíus og Sigurður Guðmundsson (Gunnar Þórðarson, texti Ómar Ragnarsson) Hin fullkomnu jól / Hildur Jónsdóttir og Einar Örn Magnússon (Hidur Jónsdóttir) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Mannlegi þátturinn
Áhrif langvinnra veikinda á aðstandendur, Lesandinn Svava O'Brien og Vinkill vikunnar

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Dec 9, 2024 51:55

Hver eru áhrif alvarlegra veikinda á aðstandendur? Langvinn veikindi geta haft víðtæk áhrif, ekki bara á þann sem veikist, heldur líka á þá sem standa honum næst. Niðurstöður erlendra rannsókna benda til að langvinn veikindi hafi margvísleg áhrif á líf og heilsu maka þess sem býr við heilsubrest. Við ræddum við Guðbjörgu Guðmundsdóttur iðjuþjálfa en hún fjallaði um þetta efni í meistararannsókn sinni. Guðjón Helgi Ólafsson leggur vinkil vikunnar upp að kaldhæðni örlaganna, hvernig yfirráð yfir siglingaleiðum verða til þess á stríðstímum, að átök brjótast út og hvernig litlu getur munað að gæfan falli öðrum í vil en upphaflega virðist. Bandarískur nemi í vélaverkfræði, sem seinna verður frægur rithöfundur kemur við sögu og reynslusaga hans af fyrrnefndum átökum. Lesandinn okkar að þessu sinni var Svava O'Brien og hún sagði okkur frá bókunum sem hún er að lesa og hvaða bækur og höfundar hafa haft áhrif á hana í gegnum tíðina. MANNLEGI ÞÁTTURINN - MÁNUDAGUR 9. DESEMBER UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG HELGA ARNARDÓTTIR Tónlist í þættinum: Sigurður Guðmundsson og Memfismafían - Það snjóar. Hljómar - Undrastjarna. Stefán Hilmarsson, Ellen Kristjánsdóttir - Eigðu jólin með mér.

Mannlegi þátturinn
Húmor virkar og staða íslenskrar tungu

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Oct 17, 2024 52:31

Húmor virkar er heiti á fyrirlestri sem farið hefur víðreist um landið og þar er stuðst við meðal annras við niðurstöður viðamikilla rannsókna á virkni húmors á heilsu, sem er umtalsverð, og sem árangursaukandi afl í atvinnulífinu og lífinu almennt. Sveinn Waage er höfundur og flytjandi þessa fyrirlesturs en hann hefur meðal annars starfað sem markaðsstjóri, fyrirlesari og uppistandari. Sveinn fékk beiðni frá Háskólanum í Reykjavík árið 2021 að setja saman námskeið um virkni húmors sem svo þróaðist seinna yfir í samnefndan fyrirlestur. Sveinn kom í þáttinn í dag. Íslensk málnefnd stendur fyrir afmælismálþingi í dag í tilefni af sextugsafmæli nefndarinnar undir yfirskriftinni Í þjónustu tungunnar. Þar verða flutt nokkur erindi þar sem verða meðal annars farið yfir hugleiðingar um stöðu íslenskrar tungu. Jóhannes B. Sigtryggsson, rannsóknardósent við Árnastofnun og er í stjórn Íslenskrar málnefndar, kom í þáttinn og sagði okkur frá störfum málnefndarinnar og fór með okkur yfir stöðu íslenskrar tungu og framtíð hennar. Tónlist í þættinum: Leiðin okkar allra / Hjálmar (Þorsteinn Einarsson, texti Einar Georg Einarsson) Heimförin / Ásgeir Trausti (Ásgeir Trausti Einarsson, texti Einar Georg Einarsson) Undir stórasteini / Sigurður Guðmundsson og Memfismafían (Jón Múli Árnason, texti Jónas Árnason) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Mannlegi þátturinn
Áráttu- og þráhyggjuröskun, Bergrisar og Heimsforeldrar

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Sep 19, 2024 50:00

Við töluðum í dag við Brynjar Halldórsson, klínískan sálfræðing sem er dósent við Háskólann í Reykjavík og sinnir klínísku starfi við geðsvið Landspítalans. Hann fræddi okkur um áráttu- og þráhyggjuröskun. Við töluðum við hann til dæmis um mýturnar tengdar þessu, hverjar eru birtingamyndirnar, hver eru áhrif þeirra, hvað er hægt að gera og af hverju það skiptir máli að fá hjálp við þeim. Eva Rós Ólafsdóttir, fagstjóri hjá Berginu Headspace, kom svo til okkar í dag. Í Berginu er boðið upp á frí viðtöl fyrir öll ungmenni á aldrinum 12-25 ára. Þau geta komið í ráðgjöf eins oft og þau þurfa og ráðgjafarnir eru fagmenntað fólk með fjölbreytta reynslu af störfum með ungu fólki. Bergið er 6 ára og hefur veitt þjónustu í 5 ár og eru nú að safna Bergrisum, sem styðja við starfið með föstum mánaðargreiðslum. Eva Rós sagði okkur frekar frá starfseminni og Bergrisunum í þættinum. Svo er það herferðin „Búðu til pláss“ sem UNICEF á Íslandi hleypti af stokkunum í vikunni í tilefni 20 ára afmælis samtakanna á Íslandi. Þar er verið að leita að heimsforeldrum. Ævar Þór Benediktsson, sendiherra UNICEF og rithöfundur, sem hlaut á dögunum Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur, kom í þáttinn ásamt Birnu Þórarinsdóttur, framkvæmdastjóra UNICEF á Íslandi. Tónlist í þættinum: While You Were Sleeping / Laufey (Laufey Lín Bing Jónsdóttir og Stewart Spencer) Styttur bæjarins / Spilverk þjóðanna (Spilverk þjóðanna) Younger than springtime / Les Baxter (Les Baxter) Gefðu þeim pláss / Dísa og Memfismafían (Bragi Valdimar Skúlason) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Mannlegi þátturinn
Ný bók um þyrlusögu Landhelgisgæslunnar og póstkort

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Sep 11, 2024 51:38

Hinar stóru og öflugu björgunarþyrlur Landhelgisgæslu Íslands eru flestum auðþekktar þegar þær birtast og hverfa úr augsýn yfir höfuðborgarsvæðinu, þær eru í stöðugum verkefnum í þágu veikra,slasaðra og nauðstaddra. Allt bendir til þess að Lárus Eggertsson hafi verið fyrsti Íslendingurinn sem flaug þyrlu. Lárus sem var fæddur á Akureyri árið 1921 stundaði um tíma þyrluflugnám meðfram þjálfun í björgunarstörfum og köfun hjá bandarísku strandgæslunni á árunum 1944-1946 .Út er komin ný bók um þyrlusögu Íslands-fyrstu 40 árin. Höfundar bókarinnar, Júlíus Ó Einarsson, þjóðfræðingur og fyrrum lögreglumaður, Benóný Ásgrímsson og Páll Halldórsson, tveir af okkar reyndustu þyrluflugmönnum, komu í þáttinn í dag. Við fengum svo póstkort frá Magnúsi R. Einarssyni. Í korti dagsins sagði Magnús fyrst frá ferð í útrýminga- og fangabúðirnar í Auschwitz, sem eru skammt frá Kraká í Póllandi. Auschwitz var langstærst allra útrýmingabúða nasista og hefur verið breytt í minningarreit og safn. Í síðari hluta póstkortsins fjallaði Magnús um sveimhygli sem og muninum á upplifun og reynslu gagnvart forgengilegum hlutum og eignum. Tónlist í þættinum: Það þarf fólk eins og þig / Rúnar Júlíusson (Buck Owens, texti Rúnar Júlíusson) Girl from before /Blood Harmony(Örn Eldjárn Kristjánsson) Undir stórasteini / Sigurður Guðmundsson og Memfismafían (Jón Múli Árnason, texti Jónas Árnason) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Fram og til baka
Tobba Marinós fór í gegnum fimm kostuleg kosningapartí.

Fram og til baka

Play Episode Listen Later Jun 1, 2024 114:00

Upp var runninn kjördagur, þjóðin kaus sér nýja ábúendur á Bessastöðum og bar þátturinn Fram og til baka þennan morguninn keim af því öllu saman. Gestur þáttarins á milli kl. 08-09 var Tobba Marinós, fyrrum fjölmiðlakona sem söðlaði um á vormánuðum og tók við starfi upplýsingafulltrúa í ráðuneyti menningar og viðskipta. Hún sagði hlustendum frá þeim vistaskiptum og bauð hún svo upp á hressandi frásögn af fimm kosningapartíum í Fimmu dagsins. Við héldum ótrauð áfram út frá frásögn Tobbu í að bjóða upp á kosningapartí í Fram og til baka. Hlaðborð var drekkhlaðið af alls konar kræsingum í öllum litum, fast og fljótandi. Hér má sjá hlaðborðið: Fyrri hluti þáttar: Stuðmenn - Út í veður og vind. Fleetwood Mac - The Chain. Besti flokkurinn - Besta lag í heimi Skakkamanage og Prins Póló - Partýþoka. Magnús Eiríksson - Komdu Í Partý. The Smiths - Heaven knows I'm miserable now. Seinni hluti þáttar: Harry Nilson - Coconut. Nýdönsk - Kirsuber. Haukar - Fiskurinn hennar Stínu. Ríó Tríó - Romm og Kóka Kóla. UB40 - Red Red Wine. Jolli & Kóla - Bíldudals grænar baunir. Stuðmenn - Úfó. Prins Póló - Bragðarefur. Presidents of The United States of America - Peaches. Holmes, Rupert - Escape (The Pina Colada Song). Sigurður Guðmundsson og Memfismafían - Síðasti Móhítótinn. R.E.M. - Orange Crush.

Morgunvaktin
Stjórnmál, fjármál og kuldi í Skagafirði

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Dec 12, 2023 130:00

Ríkisfjármálin voru til umfjöllunar þegar Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Heimildarinnar, kom í vikulegt spjall. Fjárlagafrumvarpið hefur breyst töluvert frá því það var lagt fram og enn eru útgjöld þessa árs aukin, eins og sjá má í frumvarpi til fjáraukalaga. Við ræddum líka um gengi frumkvöðla í viðskiptalífinu vestan hafs, sem er fallvalt, eins og við komumst að. Olaf Scholz er óvinsælasti kanslari Þýskalands frá upphafi mælinga. Arthúr Björgvin Bollason sagði okkur hvernig á því stendur í Berlínarspjalli. Pisa-könnunin var einnig á dagskrá en það er engu minni óánægja með niðurstöður hennar í Þýskalandi en hér. Afskaplega kalt hefur verið í Skagafirðinum undanfarið, svo að þurft hefur að biðja íbúa að spara heita vatnið og láta ekki renna í heita potta. En það er ýmislegt fleira á seyði þar, eins og Sólborg S. Borgarsdóttir, forseti sveitarstjórnar í Skagafirði, ræddi við okkur. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir. Tónlist: It's a blue world - Ray Eberle River - Joni Mitchell Angstfrei - Herbert Grönemeyer Veðrið er herfilegt - Sigurður Guðmundsson og Memfismafían, Andrea Gylfadóttir.

bj gu ve pisa berl sn olaf scholz fj sigur arth sigbj umsj skagafir bollason memfismaf andrea gylfad
Morgunvaktin
Stjórnmál, fjármál og kuldi í Skagafirði

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Dec 12, 2023

Þarf að eyða þeirri óvissu sem hægt er fyrir Grindvíkinga

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Nov 14, 2023

Við fylgjumst með gangi mála í og við Grindavík. Hugur okkar er auðvitað hjá fólkinu sem þurfti að yfirgefa heimili sín í flýti á föstudagskvöldið og býr við þessa miklu óvissu sem nú ríkir. Þóra Sigfríður Einarsdóttir sálfræðingur fjallaði um óvissuna; - lífið í óvissu og óöryggi. Við getum ekki sett okkur í þessi spor en við getum reynt að skilja og styðja. Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Heimildarinnar, ræddi um fjármál Reykjavíkurborgar, um deilurnar sem tengjast Marel og Eyri Invest og ný lög sem voru samþykkt á Alþingi í gærkvöldi og snúa að fjármögnun varnargarða fyrir mikilvæga innviði á Reykjanesi. Berlínarspjall með Arthúri Björgvini var á sínum stað. Arthúr Björgvin sagði okkur frá miklum áhuga þýskra fjölmiðla á náttúruhamförunum í Grindavík, frá nýrri íslenskri listasýningu í Berlín og svo ræddi hann 9. nóvember, sem er mikill örlagadagur í Þýskalandi. Umsjón: Þórunn Elísabet Bogadóttir og Björn Þór Sigbjörnsson Tónlist: Clayton, Buck, Grey, Al, Simmons, John, Catlett, Sidney, Carter, Benny and his Chocolate Dandies, Webster, Ben, Carter, Benny - Sweet Georgia Brown. Miles Davis Orchestra, Davis, Miles - My man's gone now. Memfismafían, Sigurður Guðmundsson Tónlistarm. - Orðin mín.

Morgunvaktin
Þarf að eyða þeirri óvissu sem hægt er fyrir Grindvíkinga

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Nov 14, 2023 130:00

Yfir magnaravörður, kakóvinkill og Gunnar lesandinn

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Oct 23, 2023

Gunnar Árnason hljóðmaður er 5 faldur Edduverðlaunahafi og er með yfir 35 ára reynslu í sínu fagi. Nú vill hann deila þessari reynslu og kenna eftirvinnslu hljóðs í kvikmyndum og leiknu sjónvarpsefni. Hann byrjaði sem hljóðmaður á Hótel Sögu og færði sig svo hægt og rólega frá dansleikjum, tónleikum og leikhúsum fyrst yfir í auglýsingar og svo í sjónvarps- og kvikmyndagerð þar sem hann hefur starfað síðustu 20 ár. Gunnar segir að það vantar fólk í fagið, því vilji hann taka þátt í að þjálfa nýliða. Gunnar kom í þáttinn í dag. Við fengum vinkil frá Guðjóni Helga Ólafssyni í dag eins og aðra mánudaga. Í þetta sinn lagði hann vinkilinn við súkkulaði- og kakóbaunaframleiðslu í hverfulum heimi. Svo var það auðvitað lesandi vikunnar, sem í þetta sinn var Gunnar Alexander Ólafsson heilsuhagfræðingur og áhugamaðu um bókmenntir. Og það er ekki ofsögum sagt að segja að hann sé áhugamaður um bókmenntir, því hann lætur sér ekki nægja að lesa mikið af bókum, heldur skrifar hann um þær allar á facebook síðu sinni að lestri loknum. Við fengum hann til að segja okkur frá því hvaða bækur hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Gunnar talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Fátækt fólk e. Tryggva Emilsson. Allt hold er hey e. Þorgrím Þráinsson Saga borgaraættarinnar e. Gunnar Gunnarsson Sextíu kíló af sólskini og Sextíu kíló af kjaftshöggum e. Hallgrím Helgason Þar sem Djöflaeyjan rís, Gulleyjan og Fyrirheitna landið e. Einar Kárason Karlar sem hata konur, Stúlkan sem lék sér að eldinum og Loftkastalinn sem hrundi e. Stieg Larsson Fransí Biskví eftir Elínu Pálmadóttur. Að lokum talaði hann um bækur Halldórs Laxness, glæpasögur Ragnars Jónassonar og bókinaOddaflug eftir Guðrúnu Helgadóttur. Tónlist í þættinum í dag: Honey will you marry me / Stuðmenn (Jakob Frímann Magnússon og Valgeir Guðjónsson) Dirty Old Town / The Pogues (Ewan MacColl) Afi súkkulaði / Egill Ólafsson og Memfismafían (Bragi Valdimar Skúlason) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Mannlegi þátturinn
Yfir magnaravörður, kakóvinkill og Gunnar lesandinn

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Oct 23, 2023 50:00

PCOS, Mannauðsdagurinn og póstkort frá Magnúsi

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Sep 27, 2023

September er alþjóðlegur vitundarvakningarmánuður um PCOS, eða fjölblöðrueggjastokkaheilkenni. Samkvæmt tölfræði gætu 25.000 einstaklingar verið með PCOS á Íslandi, en aðeins um 7.500 af þeim veit af því. Heilkennið er innkirtlaröskun sem veldur óreglu á hormónakerfi líkamans. Guðrún Rútsdóttir, formaður PCOS samtaka Íslands kom í þáttinn og fræddi okkur um PCOS og hvað þarf að hafa í huga til dæmis í sambandi við greiningu og einkenni. Mannauðsdagurinn er 6.október þá mun stærsta ráðstefna mannauðsfólks og stjórnenda á Íslandi fara fram í Hörpu og að þessu sinni er kastljósið á mannlega þættinum, líðan starfsmanna, vinnutími, vinnan og einkalífið, fjölbreytileiki á vinnumarkaði, streita, nýjar kynslóðir á vinnumarkaði ofl. Við ræddum við Adriönnu K Pétursdóttur formann Mannauðs, félags mannauðsfólks, og Helga Héðinsson sálfræðing sem situr í stjórninni í dag. Við fengum svo póstkort frá Magnúsi R. Einarssyni í dag, hann er búinn að vera á ferðalagi undanfarnar vikur, um Spán, Þýskaland og Holland. Hann segir aðeins af hugleiðingum sínum um lönd og þjóðir. Ein grein í þýska vikuritinu Der Spiegel fékk hann til að fara nokkra áratugi aftur í tímann til Hamborgar og þaðan spinnast svo sögur af týnda bassanum hans Paul McCartney sem nú er leitað um heim allan. Tónlist í þættinum Okkar eigin Osló / Valdimar Guðmundson & Memfismafían (Helgi Svavar Helgason og Bragi Valdimar Skúlason) Einsemd / Snorri Helgason (Snorri Helgason og Guðmundur Óskar Guðmundsson) Sólin er komin / Mugison (Örn Elías Guðmundsson) Horfið / Lay Low (Lovísa Elísabet Sigrúnardóttir og Valborg Elísabet Bentsdóttir) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Mannlegi þátturinn
PCOS, Mannauðsdagurinn og póstkort frá Magnúsi

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Sep 27, 2023 50:00

Leikfélag Akureyrar, matreiðslukennsla og Bréf úr sjálfskipaðri útlegð

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Sep 6, 2023

Við höldum áfram okkar árlegu yfirferð um hvað verður á sviðum leikhúsanna í vetur og í dag er komið að því að forvitnast um hvað verður á fjölunum fyrir norðan. Hún kom til okkar Marta Nordal leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar og segir okkur frá því sem er framundan hjá þeim. Bréf úr sjálfskipaðri útlegð er heiti á bók sem var að koma út, þetta er safn esseyja og ljóða sem Gunnlaugur Magnússon, dósent við Uppsalaháskóla (búsettur í Svíþjóð) skrifaði og fjallar um lífið og tilveruna þegar maður velur að búa erlendis, en gleymir hjartanu að hluta heima á Íslandi. Gunnlaugur hefur búið erlendis í 20 ár, er virtur fræðimaður og fyrirlesari á sviði menntavísinda og Í bókinni fjallar Gunnlaugur Magnússon á persónulegan hátt um þemu eins og heimþrá og söknuð, gleði og fögnuð, náttúruna og vatnið, lífið og dauðann." Við ræddum við Gunnlaug. Aldrei hefur jafn viðamikið námsefni verið gefið út í matreiðslu á Íslandi og í nýrri vefbók sem var að koma út. Það eru nokkrir kennarar í Menntaskólanum í Kópavogi sem standa á bakvið útgáfuna en þetta er fyrsti partur af þremur og munu næstu þrep koma á næstu mánuðum og árum. Bókin er aðallega ætluð nemendum í matreiðslu en einnig getur almenningur nýtt sér bókina sem er tímalaus og farið vel yfir grunnþætti matreiðslu. Þeir komu hingað Ægir Friðriksson og Hermann Þór Marinósson matreiðslukennarar við Hótel og veitingaskólann. Tónlist í þætti dagsins: Dina Ögon - Mormor. Hundur í óskilum - Halló Akureyri. Memfismafían, Sigurður Guðmundsson Tónlistarm. - Orðin mín.

Mannlegi þátturinn
Leikfélag Akureyrar, matreiðslukennsla og Bréf úr sjálfskipaðri útlegð

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Sep 6, 2023 50:00

Sigríður Soffía, klifurstöð og leiksýning um virði hluta

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Jun 22, 2023

Við fengum Sigríði Soffíu Nielsdóttur, dansara, danshöfund, listakonu og nú síðast ljóðskáld í spjall í dag. Þetta er Mannlegi þátturinn og hún gaf út ljóðabók sem heitir Til hamingju með að vera mannleg, því urðum við að skoða það aðeins. Í ljóðunum í bókinni fer Sigríður í gegnum reynsluna af því að greinast með krabbamein og að ganga í gegnum erfiða meðferð við meininu og það í heimsfaraldri. Sem dansari og danshöfundur var hún vön því að skapa og túlka sína list með líkamanum, en í þessu tilfelli þurfti hún að nota orðin. Sigríður Soffía sagði okkur frá því hvernig það gekk í þættinum í dag. Í gömlu verksmiðjuhúsunum á Hjalteyri við Eyjafjörð hefur ýmis konar starfsemi byggst upp undanfarin ár. Það nýjasta er aðstaða til klifurs sem er opin almenningi. Klifurstöðin kallast 600Klifur og við fengum tvo meðlimi þaðan, þau Magnús Arturo Batista og Kötu Kristjánsdóttur, í þáttinn til að segja okkur betur frá starfseminni. Verðbólga, vaxtahækkanir og almennar verðhækkanir hafa sett strik í reikninginn hjá flestum í dag. Við forvitnuðumst um sýninguna This Is Not My Money sem verður sýnd í Tjarnarbíói. Í henni eru peningar og fjármál skoðuð og verðmæti og virði hluta. Til dæmis í stað þess að rukka peninga fyrir aðgöngumiðann á sýninguna eru áhorfendur beðnir um að færa leikhópnum einn hlut, gjarnan hlut sem á sér sögu. María Pálsdóttir kom, fyrir hönd hópsins subfrau sem stendur að sýningunni, og sagði okkur meira frá því sem þarna mun fara fram. Tónlist í þættinum: Sumartíð / Guðrún Gunnarsdóttir og Latínudeildin (Ingvi Þór Kormáksson) Síðasti móhítóinn / Sigurður Guðmundsson og Memfismafían (Bragi Valdimar Skúlason) Óbyggðirnar kalla / KK & Magnús Eiríksson (Magnús Eiríksson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GÍGJA HÓLMGEIRSDÓTTIR

Mannlegi þátturinn
Sigríður Soffía, klifurstöð og leiksýning um virði hluta

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Jun 22, 2023 50:00

Kvenheilsuteymi, bíldruslur og Edda Björg lesandinn

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Feb 6, 2023

Kvenheilsa er nýtt teymi innan Heilsugæslu Höfuðborgarsvæðisins og var opnað í haust. Hlutverk teymisins er að sinna sjúkdómum og heilsufarsvanda sem eingöngu eru til staðar hjá konum. Steinunn Zophoníasdóttir ljósmóðir er ein af þeim sem stendur að stofnun þessarar þjónustu og hún kom í þáttinn í dag og við ræddum við hana m.a. um breytingaskeið kvenna en það var eitt af upphafsverkefnum teymisins. Við fengum glænýjan vinkil frá Guðjóni Helga Ólafssyni í dag. Í þetta sinn bar hann vinkilinn að bíldruslum og brostnum draumum í þjóðfræðilegu samhengi. Lesandi vikunnar í þetta sinn var svo Edda Björg Eyjólfsdóttir, leikkona og leikstjóri. Hún leikstýrir sýningunni Venus í feldi sem frumsýnd var nýlega í Tjarnarbíói og hefur fengið virkilega góða gagnrýni. En við fengum að vita hvaða bækur Edda hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Edda talaði um eftirtaldar bækur og höfunda: Útlendingurinn e. Albert Camus Eden e. Auði Övu Ólafsdóttur Loving kindness e. William R. Miller Svo nefndi hún Þórberg Þórðarson, Halldór Laxness, Búlgakoff, Isabel Allende, Gabriel Garxia Marques, Dostojevsky og Suskind. Tónlist í þættinum í dag: Okkar menn í Havana / Sigurður Guðmundsson og Memfismafían (Bragi Valdimar Skúlason og Tómas R. Einarsson) Söknuður / Roof Tops (Ómar Ragnarsson, S. Oldman & D. Penn) Augun þín blá / Sigríður Thorlacius og Uppáhellingarnir (Jón Múli og Jónas Árnasynir) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Mannlegi þátturinn
Kvenheilsuteymi, bíldruslur og Edda Björg lesandinn

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Feb 6, 2023 50:00

Sjónlýsingar, hamingja á vinnustað og Orðalykill

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Jan 11, 2023

Sjónlýsingar eru þjónusta við blinda og sjónskerta sem gefur ítarlegri mynd af því sem er að gerast í umhverfinu. Sjónlýsingar má nota við næstum allar tegundir viðburða; íþróttaleiki, sjónvarpsefni, bíómyndir, leikrit, listasýningar eða hvaðeina. Góð sjónlýsing gefur áhorfendanum betri heildarmynd af því sem er að gerast og einnig upplýsingar um hvað hugsanlega er að gerast í bakgrunni, ef það er mikilvægt fyrir söguþráðinn. Sjónlýsing getur því opnað nýjan heim fyrir áhorfendum sem eru t.d. hætt að geta fylgst með sjónvarpi, eða í leikhúsi, þegar þau sjá ekki lengur hvað er að gerast. Baldur Snær Sigurðsson, tækniráðgjafi Blindrafélagsins, kom í þáttinn og sagði okkur nánar frá sjónlýsingum. Héðinn Sveinbjörnsson ber hinn óviðjafnanlega titil aðalhamingjustjóri og er meðlimur í samtökum sem kalla sig Chief Happiness Officers. Héðinn kom í viðtal í Mannlega þáttinn í ágúst síðastliðnum og sagði okkur frá þessum samtökum, sem stuðla að því að starfsfólk upplifi hamingju á vinnustaðnum, finni tilgang og að það sé metið að verðleikum. Hann sagði okkur þá frá því að verið væri að safna gögnum um hamingju vinnandi fólks á alþjóðavísu og í dag kom hann aftur í þáttinn og kynnti einmitt niðurstöður þessarar könnunar. Við forvitnuðumst að lokum um málörvunarforritið Orðalykill. Það er gagnvirkt forrit sem kennir undirstöðuþætti lesturs og læsis og er afsprengi nýsköpunarfyrirtækisins Mussila. Við höfum fjallað talsvert í þættinum um hættuna sem steðjar að íslenskunni og íslenskukunnáttu yngri kynslóðanna nú á tímum snjalltækja, youtube og tik tok þar sem nánast öll afþreying er á ensku og þær áskoranir sem fylgja svo íslenskukunnáttu hraki ekki enn meira í kjölfarið. Orðalykill er einmitt lestrar- og málörvunarforrit og Jón Gunnar Þórðarson frá Musilla kom í þáttinn og sagði okkur betur frá. Tónlist í þættinum í dag: Afróbít / Samúel Jón Samúelsson Big Band (Samúel Jón Samúelsson) Bíólagið / Stuðmenn (Texti Egill Ólafsson, lag Valgeir Guðjónsson ) Hamingjan er hér / Jónas Sigurðsson (Jónas Sigurðsson) Orðin mín / Sigurður Guðmundsson og Memfismafían (Bragi Valdimar Skúlason) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG MELKORKA ÓLAFSDÓTTIR

gu sj hann afr sigur sveinbj valgeir gu memfismaf
Mannlegi þátturinn
Sjónlýsingar, hamingja á vinnustað og Orðalykill

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Jan 11, 2023 50:00

Íslenskukunnátta snjalltækja, hrakfarir og póstkort frá Berlín

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Dec 29, 2022 50:00

Við töluðum um daginn við Þorkel Steindal ráðgjafa hjá Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu og í spjallinu kom upp að smáforrit sem nýtast blindum og sjónskertum styðja ekki íslensku. Því ákváðum við að kanna hver staðan er í þeim málum og fengum Vilhjálm Þorsteinsson framkvæmdastjóra máltæknifyrirtækisins Miðeind ehf. til að koma í þáttinn í dag. Miðeind hefur verið að þróa og hanna Emblu, sem er raddstýrt snjallforrit sem skilur mæltar íslenskar fyrirspurnir og svarar á íslensku, sem sagt talar með íslenskri röddu. Og það sem meira er er að Miðeind kynnti í nóvember tvær nýjar raddir Emblu sem kallast Guðrún og Gunnar. Vilhjálmur sagði okkur frá því hver staðan er í íslenskukunnáttu tölva og snjalltækja og hvað stendur í vegi þess að til dæmis svona hjálparforrit fyrir blinda og sjónskerta skilji og tali íslensku. Svo fengum við vinkil frá Guðjóni Helga Ólafssyni, síðasta vinkilinn úr Gaulverjabæjarhreppnum í ár. Hann vildi skýra þennan vinkil Hrakfarir og heimskupör, til heiðurs Viggó Viðutan. Að lokum fengum við póstkort frá Magnúsi R. Einarssyni. Í póstkorti dagsins segir Magnús frá jólahátíðinni í Berlín þar sem hann er staddur um þessar mundir. Hann segir þar fátt sem minni á jólin og þau eru ekki eins stór hátíð og heima á Íslandi. Hann segir líka frá grein sem hann las um reykingar en þær hafa aukist að undanförnu í Þýskalandi sem og fleiri löndum, en menn séu ekki fyllilega búnir að gera sér grein fyrir hinum alvarlegu afleiðingum og mengun sem tóbaksiðnaðurinn hefur á umhverfið og andrúmsloftið. Í lokin segir frá áramótahefðum í Þýskalandi en þar er flugeldasala lögleg ólíkt því sem gerist í flestum Evrópulöndum og þess vegna er mikið fjör í Berlín um áramótin. Tónlist í þættinum í dag: Hvað ert?að gera á gamlaárskvöld? / Álfgrímur og Þorgerður Ása (Aðalsteinn Ásberg og Fransk Loesser) Ég færi þér heiminn / Sigurður Guðmundsson og Memfismafían (Sigurður Halldór Guðmundsson og Bragi Valdimar Skúlason) The Christmas Song / Nat King Cole (Mel Tormé & Robert Wells) Mele Kalikimaka / Bing Crosby & The Andrews Sisters (Cole Porter & R. Alex Anderson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON

Mannlegi þátturinn
Íslenskukunnátta snjalltækja, hrakfarir og póstkort frá Berlín

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Dec 29, 2022

36 táknmálsafsteypur, fjármálaráð og áramótaveðrið

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Dec 28, 2022 50:00

Við fengum Júlíus Birgir Jóhannsson í viðtal í dag, en hann missti alla heyrn fyrir 5 árum og sjónin minnkaði mjög mikið, í dag hefur hann einungis 10-15 gráðu sjón á hvoru auga. Ekki er vitað hvað olli þessu heyrna- og sjóntapi hjá Júlíusi, en hann ákvað strax og heyrnin byrjaði að versna að læra táknmál hjá Samskiptamiðstöð heyrnalausra og heyrnaskertra, en tók eftir því þar að mörg áttu erfitt með að skilja táknin á plakatinu sem sýndi öll táknin og hreyfingu þeirra. Hann lagði höfuðið í bleyti og til að gera langa sögu stutta þá bjó hann til afsteypur af höndum að gera öll táknin í íslenska stafrófi táknmálsins, með punktaletri ásamt skrifmáli á fallegri og sterkri undirstöðu og eru allar 36 hendurnar í mismunandi lit, allt til að auðvelda nemendum við að læra táknmálið. Júlíus Birgir sagði okkur sína sögu og sögu táknmálshandanna í þættinum í dag. Lilja Þórhallsdóttir, ráðgjafi hjá Sjónstöðinni kom með Júlíusi sem táknmálstúlkur. Hrefna Björk Sverrisdóttir skrifaði bókina Viltu finna milljón ásamt Grétari Halldórssyni. Í bókinni fara þau yfir mörg ráð til að halda utan um heimilisbókhaldið, grynnka á skuldum, minnka neyslu og í leiðinni spara fé. Í bókinni eru ráð sem tengjast daglegu lífi, hvernig hægt er að gera litlar breytingar sem geta sparað talsverðan pening. Hrefna Björk kom í þáttinn í dag og fór með okkur yfir nokkur góð ráð og hvernig bókin getur nýst lesendum. Svo kom Elín Björk Jónasdóttir veðurfræðingur í sitt vikulega veðurspjall. Snjónum kyngdi niður og víðast hvar á landinu voru hvít jól. Einhverjum fannst jafnvel miklu meira en nóg af snjó þessi jólin, enda hefur færð á vegum víða verið. Elín Björk fór í dag með okkur yfir kuldakastið undanfarið og hvernig spáin er fyrir áramótin. Tónlist í þættinum í dag: Það fæddist barn í Betlehem / Sigurður Guðmundsson og Memfismafían (Bragi Valdimar Skúlason) Gull í mund / Bogomil Font (Blane, Martin og Sigtryggur Baldursson) White Christmas / Dean Martin (Irving Bell) Have Yourself a Merry Little Christmas / Ella Fitzgerald (Hugh Martin og Ralph Blane) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON

Mannlegi þátturinn
36 táknmálsafsteypur, fjármálaráð og áramótaveðrið

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Dec 28, 2022

Guðfinnur Sigurvins föstudagsgestur og jólakæfan

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Dec 9, 2022 50:00

Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Guðfinnur Sigurvinsson. Hann er fyrrverandi starfsmaður fréttastofu RÚV og var dagskrárgerðamaður á Rás 2 og í sjónvarpinu. Hann var aðstoðarmaður þingflokks á alþingi, fór svo í bæjarpólítíkina í Garðabæ og skellti sér svo í Hárakademíuna og klippir nú hár á fólki af miklum móði hjá Rakarastofunni Herramönnum. Við fengum hann til að segja okkur frá æskunni og uppvextinum í Keflavík, menntaskólaárunum á Akureyri, starfi sínu í fjölmiðlum og í Fríhafnarversluninni í Leifsstöð. Í matarspjallinu í dag setti Sigurlaug Margrét á dagskrá jólakæfuna eða juleleverpostej, ekki seinna vænna. Tónlist í þættinum í dag: Majonesjól / Bogomil Font og Stórsveit Reykjavíkur (Carl Sigman og Sigrtryggur Baldursson) Það snjóar / Sigurður Guðmundsson og Memfismafían (Newell, Pattacini og Bragi Valdimar Skúlason) Jólasveinninn kemur í kvöld / Gunnar Gunnarsson (Fred J. Coots) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

rv gu gar newell hann reykjav sigur akureyri keflav bogomil font memfismaf sigurlaug margr
Mannlegi þátturinn
Guðfinnur Sigurvins föstudagsgestur og jólakæfan

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Dec 9, 2022

Siðferði í íþróttum, Heimsglugginn og ferðaþjónusta á Austurlandi

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Nov 17, 2022

Hvaða siðferðiskröfur getum við gert til íþrótta? Er hægt að halda pólitík utan við íþróttir, og er það yfirleitt æskilegt? Heimsmeistaramót karla í knattspyrnu hefst á sunnudag í Katar, og athyglin hefur verið á stjórnvöldum þar í landi, mannréttindabrotum þeirra ekki síst, ekki síður en á fótboltanum sjálfum. Viðar Halldórsson prófessor í félagsfræði ræddi um pólitík og siðferði þegar kemur að íþróttum. Bandarísk stjórnmál eru meðal þess sem Bogi Ágústsson fjallaði um í Heimsglugganum. Rúm vika er frá kosningum og þó ekki sé endanlega ljóst hvernig fór alls staðar er víst að repúblikanar náðu völdum í fulltrúadeildinni og demókratar í öldungadeildinni. Og svo er það Donald Trump, sem ætlar sér aftur í Hvíta húsið eftir tvö ár. Bogi ræddi líka um Brasilíu og um íslenskar bækur um erlend málefni, sem eru óvenju margar þetta haustið. Böð af ýmsu tagi njóta vinsælda ferðamanna enda gott fyrir sál og líkama að hvílast í heitu vatni í fallegu umhverfi. Vök böðin í Urriðavatni á Héraði hlutu á dögunum Nýsköpunarverðlaun Samtaka ferðaþjónustunnar. Baðaðstaðan var tekin í gagnið sumarið 2019 og þar er ýmist hægt að liggja í fjörutíu og einnar gráðu heitri laug eða dýfa sér í vatnið sjálft sem getur verið ískalt. Við forvitnuðumst um Vök og spjölluðum við Aðalheiði Ósk Guðmundsdóttur framkvæmdastjóra. Umsjónarmenn Morgunvaktarinnar eru Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir. Tónlist: Orðin mín - Sigurður Guðmundsson og Memfismafían S.T.A.F.R.Ó.F. - Memfismafían, Óttarr Proppé og Ágústa Eva Erlendsdóttir

Morgunvaktin
Siðferði í íþróttum, Heimsglugginn og ferðaþjónusta á Austurlandi

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Nov 17, 2022 130:00

Selfoss Hlaðvarpið
Selfoss hlaðvarpið #049 - Suðurlandið nötraði við þúsundasta markið

Selfoss Hlaðvarpið

Play Episode Listen Later Sep 30, 2022 64:40

Það var þokkalega létt yfir mönnum þegar þeir settust í Smiðjuhljóðverið fljótlega eftir baráttuna um Bergrisann. Arnar Helgi fékk þakmennin Örn Þrastarson og Árna Geir Hilmarsson ásamt þúsund marka manninum Einari Sverrissyni til að gera upp kvöldið og fara yfir það sem liðið er af vetri. Upphafsstef: Sælan, Skítamórall Lokalag: Vetrarfrí, Prins Póló & Memfismafían ft K.óla

Mannlegi þátturinn
Sundlaugasögur, tilraun í geimnum og haustlægðirnar

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Sep 27, 2022

Heimildamyndin Sundlaugasögur verður frumsýnd á næstunni, en Jón Karl Helgason hefur unnið að henni í níu ár. Hann hefur heimsótt yfir 100 sundlaugar, myndað fólk í sundi og fengið fólk til að segja sér sundlaugarsögur. Elsti þáttakandinn í myndinni var yfir 100 ára og sá yngsti 10 mánaða. Jón Karl kom í þáttinn og sagði okkur frá því af hverju hann hefur svona mikinn áhuga á sundmenningu Íslendinga, því þetta er ekki fyrsta heimildamyndin hans um hana, því árið 2012 frumsýndi hann heimildamyndina Sundið. Sævar Helgi Bragason kom svo til okkar og sagði okkur frá áhugaverðri tilraun sem fór fram í gærkvöldi, þegar gervitunglið DART var látið rekast á smástirni með það fyrir augum að reyna að breyta sporbraut þess. Sævar fylgdist með árekstrinum í beinni útsendingu í gærkvöldi og sagði okkur frá því hvernig gekk og hvernig þessi tilraun getur nýst okkur í framtíðinni til að mögulega bjarga jörðinni. Svo fengum við Elínu Björk Jónasdóttur í mannlegt veðurspjall í dag. Haustið hófst með hvelli um helgina, gular, appelsínugular og rauðar viðvaranir mættu til leiks, líklegast ekki við fögnuð margra. Við ræddum sem sagt haustlægðirnar í veðurspjalli dagsins. Tónlist í þættinum í dag: Lítill fugl / Vilhjálmur Vilhjálmsson (Sigfús Halldórsson og Magnús Stefánsson) Sundhetjan / Sigríður Thorlacius, Bogomil Font og hljómsveit Tómasar R. Einarssonar (Tómas R. Einarsson) Orðin mín / Sigurður Guðmundsson og Memfismafían (Bragi Valdimar Skúlason) Litla lagið / Sigrún Harðardóttir (Erlent lag - Ómar Ragnarsson) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Play Episode Listen Later Sep 27, 2022 50:00

Guðmundur Felix, ÍD 50 ára og fellibylir

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Sep 20, 2022

Nú er liðið rúmt eitt og hálft ár síðan Guðmundur Felix Grétarsson fékk grædda á sig nýja handleggi, í aðgerð sem þykir marka tímamót í læknavísindum. Við heyrðum í Guðmundi í þættinum í dag og könnuðum stöðuna og forvitnuðumst um það hvernig gengur hjá honum í endurhæfingunni, sem er talsvert meiri en við kannski áttum okkur á. Guðmundur var í hádegishléi frá endurhæfingu í Lyon í Frakklandi þegar við náðum í hann. Við erum búin að kynna okkur á síðustu vikum hvað verður á fjölunum í leikhúsunum í vetur og í dag ætlar Erna Ómarsdóttir, listdansstjóri Íslenska dansflokksins, að kom til okkar og sagði okkur frá því hvað veturinn ber í skauti sér hjá dansflokknum sem á hálfrar aldar afmæli í vetur. Við fengum svo Elínu Björk Jónasdóttur veðurfræðing í mannlegt veðurspjall í dag. Hún er uppfull af fróðleik um veðrið og í dag fræddi hún okkur um fellibyli sem eru mjög áhugaverð fyrirbrigði en geta auðvitað valdið gríðarlegri eyðileggingu. Tónlist í þættinum í dag: Síðasti móhítóinn / Sigurður Guðmundsson og Memfismafían (Bragi Valdimar Skúlason) Þá kemur þú / Nýdönsk (Björn Jörundur Friðbjörnsson ) Út í veður og vind / Stuðmenn (Egill Ólafsson og Valgeir Guðjónsson) Veður / Halli Reynis (Haraldur Reynisson) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

bj gu ve sigur egill valgeir gu memfismaf

Play Episode Listen Later Sep 20, 2022 50:00

Hreyfing aldraðra, vinkill Guðjóns og Jakub lesandinn

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Sep 5, 2022

Öll eldumst við, auðvitað mishratt en tíminn virðist líða hraðar eftir því sem maður eldist. Hreyfing verður æ mikilvægari með aldrinum og aftur og aftur kemur í ljós gríðarlegt gildi góðrar hreyfingar fyrir heilsuna. Hvers konar hreyfingu mæla sjúkraþjálfarar með þegar aldurinn færist yfir? Hvað er næg hreyfing og hvað er of mikil hreyfing? Er hægt að hreyfa sig of mikið? Sjúkraþjálfun aldraðra er sérsvið Sólveigar Ásu Árnadóttur, prófessors við Háskóla Íslands. Hún kom í þáttinn í dag og fræddi okkur um mikilvægi hreyfingar þegar við eldumst. Í dag kynntumst við nýjum pistlahöfundi, Guðjóni Helga Ólafssyni. Hann verður með pistla næstu mánudaga í þættinum sem hann kallar vinkla. Guðjón segist vera skúffuskáld og þjóðfræðiáhugamaður úr Flóanum sem hefur stundað í nokkur ár að búa til pistla og birta á samfélagsmiðlum. Hann býr með fjölskyldu sinni á bænum Sviðugörðum í gamla Gaulverjabæjarhreppi en stundar ekki hefðbundinn búskap, heldur nokkrar hænur, ræktar tré og svolítið af kartöflum til heimilis- og einkanota. Við heyrðum fyrsta vinkil Guðjóns Helga í þætti dagsins. Lesandi vikunnar í þetta sinn var Jakub Stachowiak, rithöfundur og bókavörður. Við fengum að vita hvaða bækur hann hefur lesið undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft sérstök áhrif á hann í gegnum tíðina. Tónlist í þættinum í. dag: 1) Barn / Ragnar Bjarnason og Björgvin Halldórsson (Ragnar Bjarnason, Steinn Steinarr) 2) You don?t have to say you love me / Dusty Springfield 3) Lag ljóð / Spilverk Þjóðanna (Spilverk Þjóðanna) 4) Ameríka / Memfismafían og Valdimar Guðmundsson og Þorsteinn Einarsson (Magnús Eiríks, Bragi Valdimar Skúlason) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Play Episode Listen Later Sep 5, 2022 50:00

Bresk stjórnmál, grunnskólar hefjast og eftirlit með vinnandi fólki

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Aug 22, 2022

Flokksmenn í Íhaldsflokknum breska velja nú nýjan leiðtoga og næsta forsætisráðherra Bretlands eftir afsögn Borisar Johnson. Valið stendur á milli Liz Truss utanríkisráðherra og Rishi Sunak fyrrverandi fjármálaráðherra. Niðurstöður fást 5. september ? nema annað þeirra dragi sig í hlé. Hjörtur J. Guðmundsson, sagn- og alþjóðastjórnmálafræðingur, fylgist grannt með baráttunni; hann fór yfir sviðið. Það hefur færst í aukana, að minnsta kosti í Bandaríkjunum, að fylgst sé með vinnandi fólki, það er að segja því sem það gerir í vinnunni. Með hugbúnaði er hægt að skrá og greina ýmislegt. Þetta á að auka skilvirkni og ábyrgð segja sumir ? en það eru alls konar hlutir sem er einfaldlega ekki hægt að mæla. Ásdís Eir Símonardóttir mannauðsstjóri þekkir þessi mál vel og ræddi um frammistöðumælingar ýmiss konar. Grunnskólarnir hefjast víðast hvar á landinu í dag. Það er líklega eftirvænting við morgunverðarborðin; ekki síst á þeim heimilum þar sem búa börn sem eru að hefja grunnskólagönguna. Hrönn Garðarsdóttir skólastjóri er að búa sig undir að taka á móti krökkunum í Grunnskóla Suðureyrar; við slógum á þráðinn til hennar og röbbuðum um skólamál. Umsjónarmenn Morgunvaktarinnar eru Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir. Tónlist: Bráðum vetur ? KK Eilífa tungl - Guðrún Gunnarsdóttir Veldu stjörnu - Ellen Kristjánsdóttir og John Grant Orðin mín - Sigurður Guðmundsson og Memfismafían Sailing to Philadelphia ? Mark Knoffler og James Taylor Esjan - Bríet Það er á vorin ? Between Mountains

Morgunútvarpið
31. des. - Borðhald, útivist, skaupið, Bjarni Thor, svifryk, flugeldar

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Dec 31, 2021 130:00

Þótt jólahaldið sé oftar en ekki með hefðbundnum hætti hjá fólki virðist fólk vera opnara fyrir því að hrista aðeins upp í hlutunum þegar að kemur að áramótunum. Hafdís Helga ræddi við Hönnu Ingibjörgu Arnarsdóttur, ritstjóra Gestgjafans alla leið frá flugvellinum í Oman. Útivist nýtur mikilla vinsælda og sennilega aldrei meiri en eftir að heimsfaraldur lagðist yfir og um áramót setja margir sér markmið um aukna hreyfingu og útivist svo væntanlega er fólk farið að spá í hvað er í boði á nýju ári. Í gærkvöldi kynnti Ferðafélag Íslands nýtt forvitnilegt verkefni undir nafninu Rannsóknarfjélag FÍ. Við heyrðum í Rósu Sigrúnu Jónsdóttur leiðsögumanni og öðrum umsjónarmanni verkefnisins og fengum að vita meira. Reynir Lyngdal leikstjóri Áramótaskaupsins hlýtur að vera með fiðrildi í maga þessa stundina. Við slógum á þráðinn til hans og heyrðum hvernig honum líður. Bjarni Thor Kristinsson óperusöngvari sló í gegn í fyrra með dagbókarfærslum sínum um lífið í Covid, en skrifin hóf hann í sóttkví. Fyrst var um að ræða FB færslur sem síðan urðu að hljóðdagbók á Storytel. Við heyrðum í honum í fyrra, bæði á Ítalíu þar sem hann rétt slapp út fyrir allsherjarlokun og svo í sóttkví hér heima og nú heyrðum við aftur í honum og forvitnuðumst um líf óperusöngvarans í dag, en Bjarni er nýkominn heim frá Þýskalandi þar sem hann var við störf. Einn af fylgifiskum áramótagleðinnar er svifrykið sem fylgir flugeldaskothríðinni. Við fengum Svövu Steinarsdóttur hjá Heilbrigðiseftirlitinu til að fara yfir stöðuna með okkur og hvað ber að hafa í huga. Við hringdum svo vestur á Patreksfjörð og heyrðum í Örnu Margréti Arnardóttur hjá björgunarsveitinni Blakki. Þar er flugeldasalan í fullum gangi og við heyrðum af stemmingunni fyrir vestan. Tónlist: Sigurður Guðmundsson og Memfismafían - Nýársmorgunn. Magnús Þór Sigmundsson - Jörðin sem ég ann. The Beatles - The long and winding road. Sigtryggur Baldursson og Hljómskálagestir - Áramótaheitið. Celeste - Love is back. Friðrik Dór - Hvílíkur dagur. Herbert Guðmundsson - Með stjörnunum. Björgvin Halldórsson - Álfareiðin. Bobby Blue Bland - Aint no love in the heart of the city. Páll Óskar - Gordjöss. U2 - Even better than the real thing.

Morgunútvarpið
22. nóv. - Ættarnöfn, fjárfestingar, SÁÁ, verslun, jólaórói, íþróttir

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Nov 22, 2021 130:00

Föðurnafnasiðurinn er forn á Íslandi, þ.e. að kenna sig við föður og hefur hann einkennt okkur í alþjóðlegu samhengi og gerir enn, sbr. t.d. myllumerkið dóttir sem víða er notað í íþróttasamhengi nútímans. Í seinni tíð hefur hins vegar aukist að fólk kenni sig við móður eða jafnvel báða foreldra, en svo eru líka til ættarnöfn á Íslandi. En það eru ekki allir sem vita að um þau hafa staðið deilur nær sleitulaust frá 19. öld. Páll Björnsson sagnfræðingur hefur ritað bók um þessi mál sem heitir einfaldlega Ættarnöfn á Íslandi, átök um þjóðararf og ímyndir. Við heyrðum í Páli. Láttu peningana vinna fyrir þig er frasi sem stundum heyrist, en venjulegu fólki vex það þó kannski í augum að finna út úr því hvernig það er best gert, en nú hafa athafnakonurnar ungu á bak við Fortuna Invest tekið saman fróðleik fyrir þau sem vilja stíga sín fyrstu skref í fjárfestingum. Við fengum góð fjárfestingarráð frá þeim Rósu Kristinsdóttur og Kristínu Hildi Ragnarsdóttur. Hátt í 700 manns eru á biðlista eftir því að komast að á meðferðarsjúkrahúsinu Vogi en biðlistar hafa lengst mikið á meðan kórónuveirufaraldurinn geisar. Sjúkratryggingar Íslands hafa hafnað beiðni SÁÁ um niðurgreiðslu á fjarþjónustu sem samtökin bjóða upp á, en hún gæti, að þeirra sögn, komið sérstaklega til hjálpar fyrir þau sem búa á landsbyggðinni og vilja leita aðstoðar við fíkn. Einar Hermannsson, formaður SÁÁ, kom til okkar og ræddi málið. Íslendingar hafa orðið varir við vöruskort í hinum ýmsu vöruflokkum og gámaskortur hefur haft áhrif á innflutning til landsins. Þeir Andrés Magnússon framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu og Björn Einarsson framkvæmdastjóri sölu- og viðskiptastýringar hjá Eimskip komu til okkar og fóru yfir stöðuna eins og hún er núna. Nú er rétt rúmur mánuður til jóla, aðventan framundan og margt sem gleður hug og hjarta. En það hlakka ekki allir til jólanna og margir fyllast streitu og kvíða á þessum tíma, nokkurs konar jólaóróa. Á morgun hefjast sérstakar stuðnings samverustundir í Seljakirkju fyrir fólk sem kvíðir jólunum og verða þær í boði á þriðjudagskvöldum fram undir jól. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir prestur kom til okkar og sagði okkur aðeins meira af þessu. Við fórum svo yfir helstu tíðindi úr heimi íþróttanna þegar Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson kom til okkar. Tónlist: Thin Jim and the Castaways - Confessions. Adele - Easy on me. Jón Jónsson - Fyrirfram. Memfismafían og Sigurður Guðmundsson - Mannanafnanefnd. John Mellencamp og Bruce Springsteen - Wasted days. Svavar Knútur - November. Quarashi - Mess it up.

Morgunútvarpið
8. okt. - Sigurhæðir, umhverfismál, líkamsvirðing, fréttaspjall, Bragi

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Oct 8, 2021 130:00

Í mars hófu Sigurhæðir starfsemi sína á Selfossi, en Sigurhæðir er fyrsta samhæfða þjónustan við þolendur kynbundins ofbeldis í sunnlensku nærsamfélagi. Við slógum á þráðinn til Hildar Jónsdóttur, verkefnastjóra Sigurhæða, og forvitnuðumst um starfsemina og hvernig hefur gengið þessa fyrstu mánuði. Bláa Lónið var í vikunni útnefnt Umhverfisfyrirtæki ársins af Samtökum atvinnulífsins. Sjálfbærni, kolefnisjöfnun, umhverfisstefna og rannsóknir eru m.a. þess sem stendur að baki viðurkenningunni. Við fengum Fannar Jónsson gæðastjóra Bláa lónsins til okkar til að fara svolítið yfir það hvernig stórt og vaxandi fyrirtæki tekur umhverfismálin föstum tökum og hverju það skilar. Í kjölfar Kveiksþáttarins á þriðjudagskvöld hefur skapast töluverð umræða um offitu og þau samfélagslegu vandamál því fylgja. Meðal þeirra sem hafa tjáð sig er Tara Margrét Vilhjálmsdóttir, formaður Samtaka um líkamsvirðingu, en samtökin hafa það að markmiði að stuðla að virðingu fyrir fjölbreytileika holdafars auk þess að vinna gegn útlitsdýrkun og fitufordómum í samfélaginu. Tara Margrét kom til okkar og fór yfir umræðuna síðustu daga. Fréttir vikunnar voru á sínum stað eins og vanalega á föstudögum. Að þessu sinni komu til okkar þau Eyþór Arnalds, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, og Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingmaður Pírata, og ræddu hvað bar hæst í vikunni. Í lok þáttar fengum við til okkar góðan föstudagsgest, Braga Valdimar Skúlason, sem nú er á fullu að undirbúa langþráða jólatónleika Baggalúts. En það er ekki það eina, því hann er líka að gefa út ljóðabók sem ber titilinn Jóðl. Bragi Valdimar kom og sagði okkur frá ljóðum og jóðli og jólavertíðinni framundan. Tónlist: Baggalútur - Ég á það skilið. Teitur Magnússon og Bjarni Daníel - Sloppurinn. Bubbi Morthens og Bríet - Ástrós. Coldplay og BTS - My universe. Egill Ólafsson - Ekkert þras. Sigurður Guðmundsson og Memfismafían - Síðasti móhítóinn. Kacey Musgraves - Justified. Daði og Gagnamagnið - 10 years.

Morgunútvarpið
27. sep - Akranes, talning, Ásmundur Einar, pólitíkin, sport og Sigmar

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Sep 27, 2021 130:00

Umsjón: Rúnar Róbertsson og Gígja Hólmgeirsdóttir Akra­nes­kaupstaður hef­ur hrint af stað stóru og metnaðarfullu verk­efni við at­vinnu­upp­bygg­ingu í sveit­ar­fé­lag­inu. Um er að ræða svo­kallaða græna iðngarða í Flóa­hverfi á Akra­nesi. Bæjarstjórinn segir að fyr­ir­séð sé að mörg fyr­ir­tæki muni þurfa að færa sig af höfuðborg­ar­svæðinu af svæðum sem verið sé að skipu­leggja fyr­ir íbúa­byggð. Sam­fara þessu hafi íbú­um fjölgað á Akra­nesi. Við hringdum í Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóra. Uppnám varð seinnipartinn í gær þegar endurtelja þurfti kjörseðlana í Norðvestur kjördæmi því jöfnunarsæti fóru á hreyfingu í kjölfarið og meirihluti kvenna á þingi hvarf. Kristín Edwald, formaður Landskjörstjórnar, kom til okkar og fór yfir málið. Framsóknarflokkurinn er sigurvegari kosninganna að flestra mati enda bætir flokkurinn mestu við sig. Ásmundur Einar Daðason þótti hugrakkur að færa sig í Reykjavíkurkjördæmi norður frá Norðvesturkjördæmi enda ekki á vísan að róa fyrir Framsóknarmenn í borginni undanfarna áratugi. Framsókn fékk t.d. 5,3 prósenta fylgi í kjördæminu fyrir fjórum árum en 12,3 prósent í ár. Við hringdum í Ásmund Einar. Til að ræða úrslit kosninganna og hvernig þær sjá næstu skref fengum við til okkar Evu Heiðu Önnudóttur prófessor í stjórnmálafræðiprófessor og þingfréttamanninn Jóhönnu Vigdísi Hjaltadóttur. Fengum þær til að spá í spilin. Við fórum yfir viðburðarríka helgi í sportinu með Eddu Sif Pálsdóttur af íþróttadeildinni. Og í lokin heyrðum við í Sigmari Guðmundssyni, fyrrum liðsmaður úr Morgunútvarpinu til margra ára, en hann fór inn á þing á síðustu metrunum sem jöfnunarþingmaður. Nóttin tók á hjá Sigmari. Tónlist: Valdimar Guðmundsson og Memfismafían - Okkar eigin Osló Friðrik Dór - Segðu mér Ed Sheeran - Visiting hours KK - Vegbúinn Pnau, Dua Lipa & Elton John - Cold heart (Pnau remix) Megas - (Borðið þér) Orma frú Norma

Morgunútvarpið
31.maí-Prjónagleði, tannréttingar, HR, eldri borgarar, nýsköpun, sport

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later May 31, 2021 130:00

Svokölluð Prjónagleðin verður haldin þar í fimmta sinn á Blönduósi dagana 11. - 13. júní nk. þar sem boðið er upp á fjölbreytt námskeið sem tengjast prjónaskap og spennandi prjónatengda viðburði, svo ekki sé minnst á Garntorgið. Svanhildur Pálsdóttir, viðburða- og markaðsstjóri Textílmiðstöðvar Íslands var á línunni og sagði okkur meira af þessu. Ágúst Ólafur Ágústsson, alþingismaður hefur lagt fram þingmál varðandi tannréttingar barna og að þær verði gjaldfrjálsar líkt og tannlækningar barna, sem voru gerðar að fullu gjaldfrjálsar árið 2018. Tannréttingar eru kostnaðarsamar og telur Ágúst að efnaminni fjölskyldur geti margar hverjar er ekki nýtt sér þær. Hann kom til okkar og fór yfir málið. Á morgun verður boðið upp á opið hús í Háskólanum í Reykjavík, eftir langt og strangt og mikið til lokað Covid ár. Þar geta áhugasamir kynnt sér skólann og námsframboðið og við ætlum að fá Ara Kristinn Jónsson, rektor HR, til okkar í smá spjall um opna daginn og skólastarfið og hvernig hefur gengið að halda því gangandi á tímum heimsfaraldurs. Helgi Pétursson var kjörinn formaður Landssambands eldri borgara á landsfundi sambandsins á Selfossi fyrir skemmstu. Við fengum hann til okkar og ræddum málefni eldri borgara og áherslur þeirra fyrir komandi kosningar. Í þættinum korter í kosningar sem er á dagskrá hér á Rás 2 kl 11 á sunnudögum hafa Baldvin Þór Bergsson og Guðmundur Pálsson verið að skoða stöðuna eftir covid og fá sérfræðinga til að leggja mat á það hvert við stefnum nú þegar kosningar nálgast. Í þættinum í gær var m.a. rætt um nýsköpunarumhverfið við þau Hjálmar Gíslason, framkvæmdastjóra Grid og Stefaníu Guðrúnu Halldórsdóttur sem er framkvæmdastjóri Eyris Venture management sem er sprotasjóður. Í samtalinu ræddi Guðrún meðal annars um hindranir sem íslensk sprotafyrirtæki standa frammi fyrir en þar er það gengið sem er stærsta hindrunin. Við heyrðum smá brot úr þættinum en að sjálfsögðu er hægt að nálgast hann allan í spilaranum okkar á ruv.is. Og svo lokuðum við þættinum í dag með smá spjalli um helstu tíðindi af íþróttum helgarinnar þegar Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson íþróttafréttamaður leit við. Tónlist: Geirfuglarnir - Byrjaðu í dag að elska. Sigurður Guðmundsson - Kappróður. Aretha Franklin - Chain of fools. Helgi Björns - Ekki ýkja flókið. Prefab Sprout - Appetite. Valdimar Guðmunds og Memfismafían - Það styttir alltaf upp. Ríó Tríó - Allir eru að gera það. Hildur - New mistakes. Maneskin - Zitti e buoni.

covid-19 gu grid hj hann nagle reykjav sigur halld ekki selfossi bergsson baldvin helgi bj valdimar gu gunnar sigurbj landssambands memfismaf
Morgunútvarpið
20. okt - Hallgrímur Helga, SÁÁ, ofurkonur, landamæraskimun, vísindi

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Oct 20, 2020 130:00

Hallgrímur Helgason, rithöfundur, var á línunni hjá okkur en hann er núna staddur í Þýskalandi að kynna bókina sextíu kíló af sólskini. Við fjölluðum í gær um áform sem uppi eru um að opna nýtt meðferðarrúrræði fyrir fólk með áfengis og vímuefnavanda. Með því er stefnt að því að útrýma biðlistum og það fylgdi sögunni að um 600 manns bíði nú eftir því að komast í meðferð. Við heyrðum í Valgerði Rúnarsdóttur, yfirlækni á Vogi, um stöðuna þar og spurðum meðal annars um starfsemina þar nú þegar miklar sóttvarnarráðstafanir eru í gildi í samfélaginu. Hugtakið ofurkona er þekkt og gjarna tengt konum sem gera allt og geta allt. En þarf maður að vera alltaf að og með allt á hreinu alltaf til að vera ofurkona og hvaða áhrif hefur það að setja slíkar kröfur á sig? Ungar athafnakonur standa í dag fyrir viðburðinum Ofurkonan þú þar sem markmiðið er að skapa umræðu um óraunhæfar kröfur ofurkonunnar og fræðast um afleiðingar mikillar streitu. Þær Vala Rún Magnúsdóttir formaður UAK og Kristjana Björk Barðdal samskiptastjóri komu til okkar og sögðu okkur meira. Landamæraskimun á Keflavíkuflugvelli hefur gengið vel, en um 150 afbrigði kórónuveirunnar hafa t.d. greinst þar frá því veiran kom til landsins. Þá hafa starfsmenn stöðvað för ferðamanna sem sögðust ætla að vera í sóttkví en áttu bókað flug heim fjórum dögum síðar. Sigurgeir Ómar Sigmundsson, yfirlögregluþjónn á Keflavíkurflugvelli var á línunni og sagði okkur frá starfinu sem er unnið þar. Sævar Helgi Bragason fjallaði um vísindi. Tónlist: Sigríður Thorlacius og Sigurður Guðmundsson - Annað haust U2 - One Laura Marling - Alexandra Genesis - That's all Stuðmenn - Hveitibjörn Valdimar Guðmundsson og Memfismafían - Okkar eigin Osló Peter Gabriel - Solsbury hill Beabadoobee - Worth it Sálin hans Jóns mín - Sól ég hef sögu að segja þér