POPULARITY
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Þorvaldur Flemming var í beinni frá Danmörku. Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, viðskiptafræðingur, flugmaður og áhugamaður um bætt mannlíf um land allt, ræddi við okkur um heilbrigðisþjónustu. Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar og Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokks í Reykjavíkurborg, ræddu leikskólamálin í borginni. Theodór Francis Birgisson, klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni, ræddi við okkur um hvað pör þurfa að ræða áður en þau ganga í hjónaband. Þuríður Blær Jóhannsdóttir leikur aðalhlutverkið í Röskun og Bragi Þór Hinriksson, leikstjóri myndarinnar, settust niður með okkur. Græjuhornið.
Vláda předložila návrh rozpočtu se schodkem 310 miliard korun a kritizuje bývalou vládu Petra Fialy, že v jejich návrhu chyběly některé výdaje. Bývalý ministr financí a někdejší poslanec za hnutí ANO Ivan Pilný se v podcastu PoliTalk otevřeně vyjadřuje jak k předloženému státnímu rozpočtu, tak i ke svému působení v hnutí ANO. Dominantní hnutí české politiky má podle něj strategii vyhrát volby za každou cenu. Proto jej v roce 2021 opustil. Je podle něj Alena Schillerová dobrá ministryně a uniká nám podstata problému veřejných financí?
Veðurlag hefur um margt verið óvenjulegt í vetur. Hér voru hlýindi langt fram eftir hausti en miklar froststillur og þurrkur einkenna byrjun þessa árs. Óvenju hlýtt hefur verið á Grænlandi en óvenju kalt í Danmörku og Norður-, Mið- og Austurevrópu almennt - og líka óvenjuþurrt. Í sunnanverðri álfunni hefur hins vegar gengið á með úrhellisrigningu og miklum flóðum. Að hve miklu leyti má rekja þetta til loftslagsbreytinga og hvernig er það gert? Ævar Örn Jósepsson ræðir við Halldór Björnsson. Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra boðar allsherjarendurskoðun á úthlutunarkerfi almenns byggðakvóta. Þetta er gert með vísan í úttekt Ríkisendurskoðunar, þar sem kerfið er harðlega gagnrýnt. Ágúst Ólafsson fjallar um þetta og ræðir við Örn Pálsson, framkvæmdastjóra Landssambands smábátaeigenda. Forsvarsmenn íþróttafélagsins Aþenu eru ósáttir við hversu langan tíma mennta- og barnamálaráðuneytið hefur tekið sér í að afgreiða kvörtun vegna álits embættis samskiptaráðgjafa Íþrótta- og æskulýðsstarfs á þjálfunaraðferðum körfuboltaþjálfarans Brynjars Karls Sigurðssonar. Þeir telja álitið hafa valdið Brynjari, félaginu og iðkendum óafturkræfum skaða. Freyr Gígja Gunnarsson reifar þetta mál. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred
Innviðaráðherra viðraði áhuga sinn á Fjarðagöngum strax síðasta sumar. Hann virðist hafa slegið Fjarðarheiðargöng út af borðinu í september. Vegagerðin staldraði við hugmyndir ráðherrans um að rannsakaðir yrðu þrír nýir jarðgangakostir á Vestfjörðum. Eyjólfur Ármannsson var ekki búinn að sitja lengi í stól ráðherra þegar starfsmenn ráðuneytisins óskuðu eftir minnisblaði frá Vegagerðinni um forgangsröðun jarðganga. Aðjúnkt við Háskóla Grænlands segir að samskiptin við Danmörku og umræðan um Trump og Bandaríkin hafi tekið dýrmætan tíma frá öðrum þjóðhagslega mikilvægum málum Grænlendinga. Þá hafi þetta haft mikil áhrif á almenning í Grænlandi, börnin ekki síst. Slagurinn við Trump sé ef til vill enn ein birtingarmynd á sjálfstæðisbaráttu Grænlendinga. Meirihluti þeirra sem bjuggu í Grindavík þegar bærinn var rýmdur í hitteðfyrra hefur sest að annars staðar. 10% búa núna í Grindavík. 15% Grindvíkinga sem ekki búa í bænum telja líklegt að þeir flytji þangað aftur í ár, en 73% segjast geta hugsað sér að búa áfram þar sem þeir búa nú, næstu árin. Þetta er meðal þess sem kemur fram í könnun sem Maskína gerði fyrir Grindavíkurnefnd í vetur.
Í þættinum í dag ræða Andri og Ólafur um stöðu Noregs í danska konungsríkinu fyrir 1814.Danska konungsríkið, sem Ísland var hluti af, var fjölþjóðlegt og samsett konungsríki. Ríkið var stóð saman af Danmörku - með nýlendum sínum, Noregi - ásamt hjálendunum Íslandi, Grænlandi og Færeyjum, og hertogadæmunum Slésvík og Holtsetalandi. Noregur og Danmörk gengu í eina sæng á miðöldum og frá 1537 var Noregi stjórnað beint frá Kaupmannahöfn. Með Kílarsamningnum 1814 var Noregur svo færður frá Danmörku til Svíþjóðar frekar skyndilega eftir ósigur Dana í Napóleonsstyrjöldunum.Þrátt fyrir oft hvassa orðræðu norskra þjóðernissinna um "nóttina löngu" 1537-1814 var samband Dana og Norðmanna mjög náið. Ólíkt hjálendunum og nýlendunum var Noregur miðlægur hluti danska Aldinborgarríkisins, enda var samruni fornu konungsríkjanna tveggja langt kominn þegar skilnaðurinn átti sér stað 1814.Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:Soguskodun.com | soguskodun@gmail.comEinnig á Facebook og Youtube. Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.
Nadaljevala se bo minhenska varnostna konferenca, na kateri se je včeraj znova pokazala razlika med Združenimi državami Amerike in Evropsko unijo glede odnosa do Združenih narodov. Mnogi evropski govorniki so poudarili, da se mora stara celina spet postaviti na lastne noge. Francoski predsednik Emmanuel Macron je dejal, da moramo svetu pokazati našo neomajno zavezanost k branjenju lastnih interesov. To se seveda začne z nadaljnjo podporo Ukrajini ter nadaljuje z odpravo neupravičenih carin in zavračanjem neupravičenih zahtev po evropskem ozemlju, je poudaril. V oddaji tudi: - Koalicija umaknila sporni del predloga sprememb za normirance - Fakultete in srednje šole tudi danes vabijo na informativne dneve - Akvarij Piran po obsežni prenovi znova odprt za obiskovalce
Heimsglugginn var að mestu norrænn að þessu sinni. Erna Solberg lætur af formennsku í Høyre, norska íhaldsflokknum. Eftirmaður hennar er Ine Eriksen Søreide, sem hefur verið bæði varnarmála- og utanríkisráðherra. Þá var rætt um grein þar sem Bertel Haarder eggjar norræna stjórnmálamenn lögeggjan til að bregðast við breyttri heimsmynd með stóraukinni samvinnu í varnarmálum. Í lokin var rætt stuttlega um kosningar í Danmörku og Svíþjóð sem verða síðar á árinu.
Inná vellinum er ekki sanngjarnt að bera Ísland og Danmörku við baráttu Davíðs og Golíats. Utan vallar á samlíkingin frekar við; danska handboltasambandið malar gull þessa dagana á meðan HSÍ berst í bökkum. Þýskt íslenskt fyrirtæki vill reisa vinorkuver með 74 vindmyllum í nágrenni við Þórshöfn á Langanes. Hugmyndirnar mælast ekkert sérstaklega vel fyrir hjá íbúum sem hittu fulltrúa fyrirtækisins á íbúafundi í vikunni. Ágúst Ólafsson ræðir við íbúa síðar í þættinum.
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Guðjón Guðmundsson, Gaupi, var á línunni og fór yfir handboltaveisluna. Erla Gerður Sveinsdóttir, heimilislæknir og lýðheilsufræðingur og Dögg Guðmundsdóttir, klínískur næringarfræðingur, ræddu um meðferð offitu hjá fullorðnum. Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, fór yfir víðan völl. Þorvaldur Flemming ræddi við okkur beint frá Danmörku. Elín Ebba Ásmundsdóttir, varaformaður Geðhjálpar, settist niður hjá okkur og dreifði G-vítamíni. Tinna Hrafnsdóttir, leikstjóri ræddi við okkur um nýja, íslenska þáttaröð - Hildi. Valur Hólm frá Elko og Brynjar Örn Sigurðsson, vörustjóri hjá Ofar, ræddu nýjan síma frá OPPO.
Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Ási Friðriks mættu í Rapyd stúdíóið og gerðu upp sigur Íslands á Slóvenínu. Strákarnir Okkar eru komnir í undanúrslit og mæta þar Danmörku á heimavelli á föstudagskvöldið klukkan 19:30. Frábær síðari háflleikur okkar manna gegn Slóveníu. Markvarslan er áfram hausverkur og vonandi lagast hún fyrir Danaleikinn. Óðinn Þór verið frábær og hægra horninu og Gísli Þorgeir er búinn að stýra sóknarleik liðsins eins og herforingi á mótinu. Heil umferð í Olísdeild kvenna á morgun. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
Lækka á sakhæfisaldur í Svíþjóð í þrettán ár fyrir alvarlega glæpi á borð við morð. Rætt hefur verið í nokkur misseri um lækkun sakhæfisaldursins og umdeilt hvort hún skili árangri en sænsk stjórnvöld hafa talið þetta virka í baráttu við skipulögð glæpasamtök, Foxtrott til dæmis, sem æ oftar fái ungmenni og börn til óhæfuverka. Margrét Valdimarsdóttir afbrotafræðingur bendir á að reynslan í Danmörku af lækkun sakhæfisaldurs hafi ekki verið góð. Hefðbundnir fjölmiðlar eiga sér enn hlutverk þegar kemur að djúpri miðlun lýðræðislegrar umræðu og greiningu segir Jón Gunnar Ólafsson, lektor við Háskóla Íslands, ekki ´síst á tímum samfélagsmiðla, gervigreindar, falsfréttaflóðs og upplýsingaóreiðu. Pétur J. Eiríksson, stjórnarformaður Íslensku óperunnar segir það tilbúning að Íslenska óperan hafi dregið til baka vilyrði um gjöf til nýrrar þjóðaróperu því slíkt vilyrði hafi aldrei verið gefið. Íslenska óperan er reiðubúin til að gefa nýrri óperu ósamið verk.
Þáttur vikunnar er seinni hluti viðtalsins við Björn Daníel Sverrisson. Þátturinn byrjar á stuttum hljóðbrotum við fyrrum þjálfara og vini Björns en svo tekur Björn við að segja frá stórkostlegum ferli sínum á Íslandi, Noregi og í Danmörku.Njótið!
Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Einar Örn Jónsson íþróttafréttamaður og fyrrverandi landsliðmaður í handbolta. Hann er staddur í Kristianstad í Svíþjóð, hvaðan hann mun lýsa í beinni útsendingu fyrsta leik íslenska karlalandsliðsins í handbolta á móti Ítalíu á Evrópumótinu sem fram fer í Svíþjóð, Noregi og Danmörku. Þjóðin fylgist alltaf spennt með þegar íslenska landsliðið keppir á stórmótum og væntingarnar eru yfirleitt meiri í handbolta en í flestum öðrum liðsíþróttum, enda hefur landsliðið náð virkilega góðum árangri aftur og aftur. En því fylgir auðvitað pressa og það var gaman að ræða við Einar Örn um þá reynslu sem hann hefur persónulega af því að taka þátt í svona mótum sem leikmaður og svo að lýsa leikjunum ofan úr stúku. Og svo fengum við hann auðvitað til að spá aðeins í gengi strákanna okkar á þessu móti og hann var bara nokkuð jákvæður. Svo var það matarspjallið með Sigurlaugu Margréti. Í þetta sinn voru það hrogn, nætursaltaður fiskur og hvernig á að undirbúa veislu samkvæmt næstum fimmtíu ára gamalli matreiðslubók. Tónlist í þættinum: Flugvélar / Nýdönsk (Jón Ólafsson, texti Björn Jörundur Friðbjörnsson) Gerum okkar besta / Valgeir Guðjónsson og íslenska karlalandsliðið í handbolta 1988 (Valgeir Guðjónsson) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Trump har ikke sluppet Grønland.Efter et skæbnesvangert møde i Det Hvide Hus mellem USA, Danmark og Grønland er konflikten nu sendt videre til en arbejdsgruppe. Men truslen hænger stadig i luften.Samtidig opruster Danmark og allierede Nato-lande militært i Grønland.Så hvor efterlader mødet kampen om Grønlands fremtid? Hvad betyder magtspillet for grønlænderne selv?Jyllands-Postens globale korrespondent, Maya Tekeli, giver status fra Nuuk – midt i det højdramatiske spil om verdens største ø. Gæst: Maya Tekeli, global korrespondent på Jyllands-PostenVært: Jacob GrosenTilrettelæggelse og produktion: Mathias BondeFoto: Mads Claus Rasmussen Der er lånt klip fra TV 2 og DRSee omnystudio.com/listener for privacy information.
Sóley Kaldal ræðir mögulegar sviðsmyndir í málefnum Grænlands, en í gær fór fram fundur í Hvíta Húsinu, þar sem ráðherrar frá Danmörku og Grænlandi hittu bandaríska ráðamenn. Jóhannes Bjarki heimsækir sögufrægt hljóðver í Hafnarfirði, Hljóðrita, og ræðir við Jónatan Garðarsson, fyrrum útvarpsmann, Kolbeinn Rastrick rýnir í nýja suður-kóreska bíómynd, No Other Choice.
Þegar starfsmenn danska Víkingaskipasafnsins könnuðu hafsbotninn úti fyrir Kaupmannahöfn fyrir nokkrum árum vegna fyrirhugaðra stórframkvæmda grunaði þá ekki að þar leyndist fjársjóður, skipsflak frá 15. öld. Flakið er talið meðal merkustu fornleifa sem fundist hafa í Danmörku.
Bandarísk stjórnvöld með Donald Trump í fararbroddi hafa undanfarna daga margítrekað áhuga sinn á því að yfirtaka Grænland, hreinlega innlima það í Bandaríkin, og að fáist það ekki í gegn með góðu, þá sé alltaf möguleiki að beita hreinlega hervaldi. Þetta hefur að vonum vakið hörð viðbrögð á Grænlandi og í Danmörku, og mun víðar. En hvað má lesa í þessar mis-herskáu yfirlýsingar Trumps. hvert er planið? Magnús Geir Eyjólfsson ræðir við Albert Jónsson. Bandaríski sjóherinn hertók í dag rússneskt olíuflutningaskip á siglingu frá Venesúela til Rússlands. Skipið siglir undir rússneskum fána, en silgdi til skamms tíma undir fána Gvæjana. Bandaríkjamenn hertóku það eftir rúmlega tveggja vikna eftirför, sem lauk með yfirtöku þess síðdegis í dag. Þá var skipið um 170 sjómílur suður af Kötlutanga, vel innan íslenskrar efnahagslögsögu. Ævar Örn Jósepsson ræðir við Kára Hólmar Ragnarsson dósent við Háskóla Íslands. Nú þegar nærri tuttugu ár eru liðin frá því Kárahnjúkavirkjun og Fljótsdalsstöð voru teknar í notkun, og bygging álvers Alcoa Fjarðaáls fyirgdi í kjölfarið, eru enn næg verkefni við að uppfylla skilyrði, rannsaka áhrif, ræða við samfélög og miðla upplýsingum. Þessu stýrir Árni Jóhann Óðinsson, verkefnastjóri gagnvart nærsamfélagi og náttúru hjá Landsdvirkjun á Austurlandi. Ágúst Ólafsson ræðir við hann. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred
The birth of Jesus is obviously one of the most important Christian narratives. Or is it two of the most important Christian Narratives? Either way, one of the great apologetic claims about nativity is that it fulfilled over three hundred prophesies. This week, we're going to look at what Ken Ham's Answers in Genesis says about some of those prophesies, and see if those claims hold up. Then it's roll-play time. Dan B will do his best to take the place of online apologists who challenge Dan M's claims. Will McClellan actually answer their complaints, or will this be an exercise in straw-manning their arguments? You be the judge! ---- For early access to an ad-free version of every episode of Data Over Dogma, exclusive content, and the opportunity to support our work, please consider becoming a monthly patron at: https://www.patreon.com/DataOverDogma Follow us on the various social media places: https://www.facebook.com/DataOverDogmaPod https://www.twitter.com/data_over_dogma Have you ordered Dan McClellan's New York Times bestselling book The Bible Says So yet??? Learn more about your ad choices. Visit megaphone.fm/adchoices
Gestur í Fimmunni var Ilmur Kristjánsdóttir sem leyfði okkur að heyra fimm jólalög sem hafa fylgt henni í gegnum tíðina. Fyrsta lagið var með Dananum John Mogensen sem söng På loften sidder nissen. Tilefnið var að Ilmur bjó með fjölskyldunni í Danmörku þegar hún var sjö ára og á hlýjar minningar þaðan. Ilmur stendur fyrir átaki um hver jól þar sem kertastjakinn Glóð er seldur til styrktar Rótinni og Konukoti, en Ilmur er einn af stofnendum Rótarinnar. Kertastjakinn er hönnun og smíði Erlings Jóhannessonar gullsmiðs.
Bogi Ágústsson, Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir ræddu í Heimsglugga vikunnar um stöðuna í friðarviðræðum í Úkraínu. Rússar hafa ekki hvikað frá ítrustu kröfum sínum svo litlar líkur virðast á vopnahléi eða friði á næstunni. Í Noregi og Danmörku eiga leiðtogar Jafnaðarmanna og forsætisráðherrar landanna í nokkrum erfiðleikum. Litlu munaði að norska stjórnin félli vegna deilna um fjárlög og staða Mette Frederiksen hefur veikst verulega eftir sveitarstjórnarkosningarnar í nóvember.
Ef netsambandið klikkar fer allt til fjandans, nema viðbúnaður sé til staðar, og það er hann ekki hér í Danmörku,“ sagði ráðherra almannavarna í dönsku ríkisstjórninni eftir að netið lá niðri klukkustundum saman í lok október, vegna bilunar. „Danir og margar aðrar þjóðir hafa sofið á verðinum,“ sagði ráðherrann.
Aðalefni Heimsglugga vikunnar voru dönsk stjórnmál og úrslit sveitarstjórnakosninga þar sem Jafnaðarmenn misstu embætti borgarstjóra Kaupmannahafnar eftir að hafa farið með forystu í höfuðborginni í 123 ár. Fyrst var þó rætt um lög, sem Donald Trump staðfesti í gær, og kveða á um að Epstein-skjölin svokölluðu verði birt. Trump talaði í kosningabaráttunni fyrir því að skjölin yrðu birt, breytti svo um stefnu eftir að hafa tekið við forsetaembættinu á ný og sneri svo aftur við blaðinu um síðustu helgi þegar hann sá fram á að lögin yrðu samþykkt í fulltrúadeildinni þrátt fyrir andstöðu hans.
Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Benedikt S Benediktsson framkvæmdastjóri SVÞ - Samtaka verslunar og þjónustu Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir um skýrslu starfshóps varðandi reglur um dvalarleyfi á Íslandi Símatími Ólafur Magnússon tæknistjóri Nova um 2g og 3g senda Páll Höskuldsson í Noregi um verndartolla í Noregi Sigurður Ingi Jóhannsson um verndartolla ESB Óli tölva og gervigreindin sem beitir hótunum til að lifa af Þorvaldur Flemming Jensen um sveitastjórnarkosningar í Danmörku
Við fræddumst í dag um Lego Serious Play, sem er aðferð fyrir stjórnendur og fyrirtæki til að finna lausnir við áskorunum með hjálp Lego kubba. Steinunn Ragnarsdóttir stjórnunarráðgjafi lærði þessa aðferð í Danmörku og hún sagði okkur betur frá henni í þættinum. Hvatningarverðlaun ADHD samtakanna 2025 hlaut Sara Rós Kristinsdóttir ráðgjafi fyrir ómetanlegt framlag til fræðslu og valdeflingu fólks með ADHD og aðstandendur þeirra. Sara Rós hefur á undanförnum árum verið áberandi í fræðslu ásamt því að vera talskona taugafjölbreytileika. Sjálf greindist hún á fullorðinsárum, sem hefur veitt henni dýpri innsýn og tækifæri til að mæta öðrum af skilningi. Hún nýtir bæði fagþekkingu og eigin reynslu til að brúa bil milli kerfa, fjölskyldna og einstaklinga með valdeflandi nálgun, aðgengi og mannúðlegar lausnir að leiðarljósi. Sara Rós kom í þáttinn í dag. Svo voru það mannlegu samskiptin með Valdimari Þór Svavarssyni ráðgjafa. Í síðustu viku var hann að segja okkur frá langlífum samböndum, hvað þarf til að samband verði langlíft og í dag hélt hann áfram að fara yfir viðvörunarbjöllur, þ.e. það sem getur ógnað langlífi sambandsins og hvernig er hægt að leysa úr því. Tónlist í þættinum í dag: Aftur heim til þín / Eyþór Ingi og Lay Low (Baldur Hjörleifsson og Jónína Guðrún Eysteinsdóttir) Ennþá man ég hvar / GÓSS (Kai Normann Andersen, texti Bjarni Guðmundsson) Í rauðum loga / Þorgerður Ása Aðalsteinsdóttir (Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson) Working in the Coal Mine / Lee Dorsey (Allen Toussaint) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
“Bu Festival Bizim” dördüncü yılında!Açık Dergi'de konuğumuz Beril Sarıaltun ile bir müzik bülteni olarak başlayan yolculuğun festivale dönüşümünü; duyguların yön verdiği, taptaze ve genç sahnenin hikâyesiyle konuşuyoruz.
Óvissan er mikil á húsnæðislánamarkaði, í kjölfar dóms Hæstaréttar Íslands í máli sem höfðað var gegn Íslandsbanka. Stóru viðskiptabankarnir og nokkrir lífeyrissjóðir hafa dregið úr framboði verðtryggðra íbúðalána og í gær sagði Ingólfur Bender aðalhagfræðingur samtaka Iðnaðarins, í samtali við mbl.is, að stjórnvöld yrðu að koma að málinu til að eyða óvissu. Breki Karlsson formaður Neytendasamtakanna kom í þáttinn og fór með okkur yfir stöðuna. Steinunn Sara Helgudóttir, doktor í taugahrörnunarsjúkdómum í Álaborg í Danmörku, er tilnefnd til Kammaprisen 2025, sem eru verðlaun fyrir konur og þeirra störf í nýsköpun og viðskiptum í Danmörku, en hún vinnur við að þróa lyf gegn taugahrörnunarsjúkdómum eins og MND, MS, Parkison og Alsheimer með nýrri aðferðafræði sem vakið hefur mikla athygli. Steinunn sagði okkur betur frá þessu öllu í dag, en hægt er gefa henni atkvæði fyrir Kammaprisen 2025 hér: https://www.facebook.com/kammaprisen Það eru gular og appelsínugular viðvaranir í gangi á suðvestuhorninu og á suðurlandi. Snjórinn var því þema dagsins í veðurspjallinu með Einari Sveinbjörnssyni. Einar fór yfir það í dag og svo talaði hann einnig um einnig um aðdragand snjóflóðsins á Flateyri, veðurstöðuna þá og hvort hugsanlega, eftir á að hyggja, þar hafi verið ein fyrsta birtingarmynd öfgaveðurs sem tengja má við loftslagsbreytingar. Tónlist í þættinum í dag: Dýrð í dauðaþögn / Ásgeir Trausti (Ásgeir Trausti Einarsson, texti Júlíus Aðalsteinn Róbertsson) Fönn, fönn, fönn / Stuðmenn (Egill Ólafsson, texti Egill Ólafsson og Jakob Frímann Magnússon) Þótt falli snjór / Jóhann Sigurðarson (Ágúst Guðmundsson) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
David and Alex sit down with Dan to find out how he dominated LVO with 30 Terminators
Daily audio recordings of CMFI Praise, Prayer and Fasting Crusade. From 13th October to 21st Nov 2025
Special Episode – Tom B, Joe D, and Dan M from Kansas Sept 2025 We at the Palaver were very happy to welcome Tom Brislin, Joe Deninzon, and Dan McGowan of Kansas to our show. It's always a pleasure when we get to touch base with these fine musicians who are doing such a tremendous job of carrying the legacy of Kansas. Our conversation covers the usual breadth of fascinating topics including their connection to the music to their habits on tour. We are always happy to speak with musicians of the quality of Tom, Joe, and Dan. Please enjoy this conversation. X: @progpala Instagram: www.instagram.com/progressivepalaver/ Facebook: www.facebook.com/ProgPala YouTube: www.youtube.com/channel/UCw_Xxit3…cJ_7Z__w/featured Theme music provided by: Dave DeWhitt
Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Hannes Petersen háls-, nef- og eyrnalæknir og prófessor við Háskóla Íslands Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og Þorvaldur Flemming um dróna í Danmörku og víðar Símatími Hans Birgisson fasteignasali á Spáni Þorsteinn M. Kristinsson aðalvarðstjóri lögreglunnar á Suðurlandi Erlingur Erlingsson hernaðarsagnfræðingur Bergljót Gyða Guðmundsdóttir, prófessor við menntavísindasvið HÍ í sálfræði Eyjólfur Eyjólfsson framkvæmdastjóri AXIS. Íslensk húsgagnahönnun og framleiðsla í 90 ár
Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Rúna Hauksdóttir Hvannberg forstjóri Lyfjastofnunnar Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri um dularfullt drónaflug í Danmörku og viðbrögð við því Símatími Guðni Th Jóhannesson fyrrverandi forseti Íslands með leiðsögn á Þingvöllum á sunnudag Arnar Arinbjarnarson stjórnarmaður í Samtökum skattgreiðenda um úttekt á ritlaunum listamanna í 25 ár Davíð Örn Ingason verslunarstjóri hjá Betra bak
Bogi Ágústsson ræddi fyrst við Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunni Elísabetu Bogadóttur um drónaflug í Danmörku sem Troels Lund Poulsen varnarmálaráðherra lýsir sem fjölþáttaárás. Þau ræddu svo vestnorræna samvinnu og breytta afstöðu Færeyinga til sambandsins við Dani. Jafnvel Sambandsflokkurinn vill breytingar og flestir Færeyingar virðast vilja samband sem líkist því sem var með Danmörku og Íslandi 1918-1944. Þá var rætt um stórkarlalegar yfirlýsingar Donalds Trumps Bandaríkjaforseta í vikunni, allt frá lyfjamálum til Úkraínustríðsins.
Draumar eru sammannleg fyrirbæri og draumatúlkun getur hjálpað fólki við að takast á við ýmis viðfangsefni í sínu lífi, hvort heldur sem þau eru tengd tilfinningum, aðstæðum eða jafnvel flóknum úrlausnarefnum og vandamálum. Á námskeiðinu Draumar – spegill sálarinnar sem Arna Ýrr Sigurðardóttir prestur hefur verið með í nokkur ár, byggir Arna á sinni eigin reynslu af því að nota draumavinnu í sálgæslu. Á málþinginu „Hvað ef ég vil vera hér?“ sem fram fer á Höfn í Hornafirði í dag og á morgun er umfjöllunarefnið ungt fólk, byggðafestuna þeirra og framtíð á landsbyggðinni. Á þinginu verður ungt fólk frá Noregi, Svíþjóð, Danmörku og Íslandi og þau munu deila reynslu sinni. Eyrún Fríða Árnadóttir verkefnastjóri HeimaHafnar var á línunni í þættinum og sagði okkur betur frá málþinginu og stöðu ungs fólks á landsbyggðinni. Svo var það Heilsuvaktin með Helgu Arnardóttur. Hafdís Inga Helgudóttir Hinriksdóttir hefur glímt við langvinn veikindi eftir að hún fékk Covid fyrir þremur árum. Hún upplifði algjöra örmögnun, minnisleysi, mæði, heilaþoku, sjón og heyrnartruflanir, meltingartruflanir og fékk einnig sjúkdóminn Potts. Hafdís þakkar vökvagjöfum, háþrýstimeðferðum og lyfjum að hún sé á betri stað en fyrir ári en hún óttast afleiðingar niðurskurðar hins opinbera. Helga talaði við Hafdísi Ingu í Heilsuvaktinni í dag. Tónlist í þættinum í dag: Heitt toddý / Ellen Kristjánsdóttir (erlent lag, texti Friðrik Erlingsson) Draumalandið / Karlakór Reykjavíkur (Sigfús Einarsson, texti Jón Trausti (duln.f. Guðmund Magnússon)) Tico tico / Les Baxter (Les Baxter) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Sumarið 1992 skrifuðu Danir sig í sögubækurnar. Þeir mættu til Evrópumótsins í Svíþjóð án þess að hafa unnið sér rétt til þess að spila í mótinu og enduðu sem Evrópumeistarar. Sigurinn var einstakur og eftir mótið var reglum fótboltans breytt. En þessi ótrúlegi árangur kom ekki úr lausu lofti. Hann átti sér langan og áhugaverðan aðdraganda sem við rákum í þessum þætti þar sem við rýnum í söguna um okkar ástsælu frændur og ferðalag þeirra að óvæntu Evróputitlinum.Langbestu skemmtun!
Kozmik bir yolculuk, kapısı sadece 27'liklere açık gizemli bir kulüp ve orada bizi karşılayan bir rock yıldızı… 111 Hz'in bu bölümünde, popüler kültüre damga vuran 27'ler Kulübü efsanesine giriş yapıyoruz. Peki bu kulüp sadece trajik bir tesadüften mi ibaret, yoksa dehanın ve yaratıcılığın ardında gizlenen acı bir gerçeklik mi var? Ölümsüzleşmiş ikonların hayatlarına ve "eziyet çeken sanatçı" mitine ışık tutarken kalıpların dışına çıkmaya hazır mısınız? Sunan: Barış Özcan Hazırlayan: Gülşah Dim Ses Tasarım ve Kurgu: Metin Bozkurt Yapımcı: Podbee Media ------- Podbee Sunar ------- Bu podcast, Garanti BBVA reklamı içermektedir. Bonus Platinum'un avantajlarını keşfet! Bu podcast, İş Bankası reklamı içermektedir.
Eftir margra ára seinkun og alls kyns vafstur var í apríl 2020 tilkynnt að göngin undir Femern beltið og samnefnt sund sem eiga að tengja Danmörku og Þýskaland saman yrðu tilbúin árið 2029, jafnt fyrir bíla og járnbrautarlestir. Nú er enn einu sinni komið babb í bátinn.
Starfsfólki í 12 Coop verslunum í Danmörku brá í brún þegar verið var að bæta á bananahillurnar fyrir skömmu. Í bananakössunum voru ekki eingöngu bananar heldur einnig mörg hundruð kíló af kókaíni. Notkun á kókaíni hefur þrefaldast í Kaupmannahöfn á tíu árum og sömu sögu er að segja frá mörgum Evrópulöndum.
Helgi byrjaði þáttinn á að rifja upp ferðina hans Hjálmars. Hjálmar notaði Chatgpt allan tímann meðan hann ferðaðist um norðurlöndin. Helgi hringdi í Ljósbrá til að heyra hennar hlið á fjölskylduferð hennar og Hjálmars. Strákarnir komust að því að Danmörk er ógeðslega dýr.IG helgijean & hjalmarorn110 Takk fyrir að hlusta - og munið að subscribe´a! Þættina má finna inni í áskrift á pardus.is!
Hjálmar er kominn heim eftir frí í Danmörku og Svíþjóð með fjölskyldunni. Helgi sagði góða sögu af mömmu vinar hans. Það er enginn jafn fljótur að læra á danska gatnakerfið og Hjálmar. Helgi hjólaði á dönskum hraðbrautum til að heimsækja kærustuna sína.IG helgijean & hjalmarorn110Takk fyrir að hlusta - og munið að subscribe´a!Þættina má finna inni í áskrift á pardus.is!
Hreiðar S. Marinósson Margmiðlunarhönnuður & sérfræðingur í stafrænum auglýsingum. Hreiðar fór til Danmerkur 2003 til að læra margmiðlun, sérstaklega vegna áhuga á vefsíðugerð. Hann lýsir því hvernig hann byrjaði að skapa vefsíður án mikillar tæknilegrar þekkingar, með hjálp vina og forrita eins og Dreamweaver. Námið í Danmörku reyndist mikið meira en bara vefsíðugerð, þar sem markaðssetning og hugmyndavinna voru til staðar, og þar fann hann að hann fann sér áhugamál og tækifæri. Hreiðar dvaldist í Danmörku í níu ár, giftist og stofnaði fjölskyldu. Hann starfaði við markaðssetningu, vefstjórn og reyndi að hafa störfin fjölbreytt. Hann starfaði meðal annars hjá barnavörufyrirtæki, fatafyrirtæki og ýmsum öðrum fyrirtækjum á meðan hann var í Danmörku. Árið 2012 ákvað Hreiðar að snúa heim til Íslands. Áður en hann gat komið sér inn í heim markaðsmála hér á landi starfaði hann við ýmis konar störf, meðal annars sem verslunarstjóri í Toys R Us, og síðan hjá Bílabúð Benna sem vefstjóri og í markaðsstarfi. Hreiðar lýsir hvernig hann komst inn í heim markaðsmála með því að kynnast Kristjáni, sem starfaði hjá Engine. Kristján bauð honum til að byrja þar sem hann fékk tækifæri til að vinna við ýmis verkefni, meðal annars erlend markaðsverkefni, sem reyndist skemmtilegt og gefandi. Hreiðar deilir reynslu sinni af stórum verkefnum, þar sem hann var meðal annars þátttakandi í verkefnum með alþjóðlegum hópum frá Kanada, Suður-Ameríku, Evrópu og Ástralíu. Hann lýsir því sem „sirkusi“ að vinna með svo mörgum og æri krefjandi verkefnum, en segir einnig að þetta hafi verið mjög lærdómsríkt og skemmtilegt. Eftir að hafa unnið hjá Engine fór hann í stutt tímabil í Pipar og síðan í Svartagaldur, þar sem hann starfaði í nokkur ár, meðal annars á tímum eftir hrun. Hann lýsir þessu tímabili sem frábæru og kynntist nýju fólki sem hann á enn góð tengsl við. Hreiðar leggur áherslu á að hann sé maður fárra orða en að hann reyni að skila miklu í starfi. Hann segir að hann hafi alltaf haft áhuga á fjölbreyttum störfum og að hann hafi ekki verið hræddur við nýjar áskoranir. Hreiðar rifjar upp hvernig hann hefur alltaf verið opinn fyrir nýjum tækifærum og hvernig hann hefur nýtt sér þau til að ná fram sínum markmiðum. Hann er þakklátur fyrir þau tækifæri sem hann hefur fengið og segir að reynslan hafi gert hann að manni sem er vel að sér í mörgum þáttum atvinnulífsins, sérstaklega í markaðssetningu.
Katrín Aagestad markaðsstjóri Prís er frá Selfossi og fór í FSU í framhaldsskóla þar sem hún tók þátt í leikriti og nemendafélagsstarfi. Eftir framhaldsskóla fór hún í heimsreisu og byrjaði síðan í viðskiptafræði við HÍ en hætti eftir eitt ár þegar hún komst að því að markaðsfræði og stjórnun voru áhugaverð en hagfræði og bókhald minna. Hún komst inn í leiklistarskóla í Kaupmannahöfn en skólinn lokaði vegna fjármálasjárnar. Kennararnir stofnuðu nýjan skóla en Katrín ákvað að læra multimedia design í staðinn, sem opnaði nýja heimana fyrir hana. Hún kláraði síðan bachelor-nám í vörumerkjaþróun (branding) og kom heim til Íslands eftir fimm ár í Danmörku. Katrín fjallar m.a. óvissu í námi og leið að hennar til að finna sína braut í markaðsmálum. Hennar reynsla sýnir mikilvægi þess að prófa sig áfram, læra af mistökum og finna það sem maður hefur virkilega áhuga á. Vinna hennar hjá Prís sýnir hvernig hægt er að ná árangri með skapandi lausnir þrátt fyrir takmarkaða fjármuni. Katrín byrjaði að vinna hjá Pegasus í kvikmyndaframleiðslu þar sem hún var í starfsnámi. Hún vann sem koordinator með allt að 40 manna teymi, sá um transport, flug, hótel og gistingu. Þetta var "bootcamp í skipulagi" sem nýttist henni vel síðar í markaðsstarfi. Eftir ár hjá Pegasus sótti Katrín um vinnu hjá Nova og var ráðin í markaðsdeildina, fyrst sem "textasmiður" en þróaðist í að vera verkefnastjóri og síðan auglýsingamegin. Hún vann þar með Brandenburg auglýsingastofunni og var meira í kreatífu hlutverki. Hjá Nova lærði hún öguð vinnubrögð með daglegum morgunfundum og vikulegum skipulagsfundum. Hún varð síðan markaðsstjóri með mannaforráð í fyrsta skipti. Meðal herferða sem hún vann að voru "Allir úr" auglýsingin og "Elskum öll" herferðin sem henni þykir sérstaklega vænt um. Í dag vinnur Katrín hjá Prís, lágvöruverðsverslun á Smátorgi 3 í Kópavogi. Fyrirtækið hefur mælst með ódýrasta verðið frá upphafi samkvæmt ÁSÍ og markmið þeirra er að bæta hag almennings með því að lækka matvöruverð á Íslandi. Prís hefur ekki mikið markaðsfé til ráðstöfunar þar sem þeir vilja halda lítilli yfirbyggingu til að geta boðið besta verðið. Þetta þýðir að þeir þurfa að nýta hverja krónu sem best og hugsa snjallt um hvaða miðla þeir nota. Óvænt fyrir Katrínu hefur samfélagsmiðlaefni orðið þeirra besta auglýsingatól. Mest allt efni fer organic og tekur "náttúrlegan flug" án þess að þurfa að fjárfesta miklu í auglýsingum. Þeir búa til efni sem fólk vill horfa á tvisvar frekar en bara einu sinni. Stærsta áskorunin er að brjóta upp venjur fólks - flestir fara alltaf í sömu búð í sömu rútínu. Prís er staðsett uppi á Smátorgi sem er líka hindrun. Þrátt fyrir þetta hefur fyrirtækið vaxið jafnt og þétt síðan það opnaði í ágúst 2022 og er að byggja upp fastan viðskiptavinahóp. Prís er í stöðugri tilraunastarfsemi og prófar mismunandi aðferðir. Þeir fylgjast aðallega með engagement á samfélagsmiðlum sem besta mælikvarðann á árangur. Þeir hafa líka prófað að setja sérstakan fókus á ákveðnar vörur, eins og grillaðan kjúkling, með góðum árangri. Katrín sækir innblástur víða - úr samtölum við aðra, myndlistarsýningum og kreatífri starfsemi utan vinnu. Hún leggur áherslu á mikilvægi þess að hafa skýr markmið og vita nákvæmlega hvernig vörumerkið á að tala, sem gerir það auðvelt að meta hvort hugmyndir passa við stefnuna. Prís vinnur með Sirkus auglýsingastofu og Katrín leggur áherslu á mikilvægi góðs samtals þegar þeir eru að hugsa um næstu skref í vörumerkjasögunni. Katrín hvetur fólk til að prófa eins mikið og mögulegt er til að finna hvað þeim finnst skemmtilegt, þar sem það leiðir til betri árangurs. Hennar eigin markmið er einfalt: "að hafa bara gaman" og taka allar ákvarðanir út frá því hvort verkefnið sé skemmtilegt. Hún leggur líka áherslu á mikilvægi áskorana - þegar engar áskoranir eru til staðar hættir vinnan að vera skemmtileg. Katrín sjálf er ánægð með núverandi stöðu en segist ekki hafa nógu góða hugmynd fyrir eigið fyrirtæki ennþá.
Við heimsækjum plötubúðin, fatabúðina og tónleikarýmið Space Odyssey í Bergstaðastræti. Þar hittum við Pan Thorarensen sem situr bakvið búðarborðið og ráðleggur fólki hvaða sveimtónlist það á að hlusta á hverju sinni. Hann er líka að skipuleggja fjórfalda útgáfutónleika sem fara fram í Iðnó á fimmtudag. Snorri Páll Jónsson flytur pistil um orðin sem eru notuð til að lýsa hinu ólýsanlega: stríð, mannúðarkrísa, þjóðarmorð eða helför. Dularfullt hvarf Au Pair-barnfóstru hjá ríkri fjölskyldu í Danmörku kemur af stað spennandi atburðarás í Netflix-þáttunum Reservatet - sem nefnist Secrets We Keep á ensku. Brynja Hjálmsdóttir rýnir í þættina. Svo heyrum við brot úr gömlu viðtali við Pál Skúlason heimspeking.
Við hittum tónlistarkonuna Fríd, sem er listamannsnafn Sigfríðar Rutar Gyrðisdóttur. Hún hefur alltaf sungið en í Lýðháskóla í Danmörku komst hún að því að hún elskaði líka að semja tónlist. Í maí gaf hún út stuttskífuna Hærra. Svo heyrum við viðtal frá því í desember, Sigurður Ægisson, sóknarprestur á Siglufirði, hefur í hálfa öld grafið upp ótal kenningar um uppruna þessa þekktasta orðatiltækis í heimi.
Dönsk kona hefur sent danska þinginu tillögu sem gerir ráð fyrir að nota megi ösku látinna Dana í skartgripi. Lögum samkvæmt er það bannað í Danmörku en heimilt í mörgum löndum. Margir Danir vilja rýmri reglur varðandi jarðneskar leifar ættingja.
Bu dəfə qonağımız Cəlalə xanımla danışmaqdan, ana dilini bilməkdən və onun düzgün istifadəsindən danışdıq. Dilin əhəmiyyəti qalıbmı?İnnovativ, sürətli və təhlükəsiz! akart ilə ödənişlərin rahatlığını kəşf et. https://akart.az/
Hinn 10. apríl 1940, daginn eftir að Þjóðverjar hernámu Danmörku, sendi bandaríska strandgæslan skip til Grænlands. Um borð voru James K. Penfield, nýútnefndur ræðismaður, og fulltrúi Rauða krossins. Síðar það sama ár hreyfði varautanríkisráðherra Bandaríkjanna hugmyndinni um bandarískar herstöðvar í landinu. Áhugi Bandaríkjamanna á Grænlandi er sem sé ekki nýr af nálinni.
Gísli Pálsson, prófessor emeritus, var gestur Heimsgluggans og ræddi um nýja leikna heimildarþáttaröð Danmarks Radio sem nefnist Slave af Danmark og fjallar um þrælahald á dönsku Jómfrúareyjum og í Danmörku. Ein höfuðpersóna þáttaraðarinnar er Hans Jónatan sem flúði til Íslands í byrjun 19. aldar. Gísli skrifaði bók, Hans Jónatan: maðurinn sem stal sjálfum sér, um ótrúlegt líf Hans Jónatans. Gísli sagði okkur frá Hans Jónatan, rannsóknum sínum á ævi hans, ætt og þrælahaldi í Danmörku. Í lokin var rætt stuttlega um ferðir bandarískra ráðamanna til Grænlands og skoðanaskipti æðstu manna í Washington á samskiptamiðlinum Signal sem þykja þeim ekki til mikils sóma.
Í þættinum verður fjallað um kosningar á Grænlandi, sem sjaldan hafa vakið jafnmikla athygli út fyrir landsteinana og nú, vegna fjölmargra frétta sem borist hafa um allan heim, um viðvarandi ásælni Donalds Trumps, Bandaríkjaforseta, í landið og auðlindir þess. Yfirlýsingar forsetans hafa hleypt illu blóði í ráðamenn á Grænlandi, í Danmörku og víðar á Vesturlöndum, en líka nýjum og auknum krafti í sjálfstæðisbaráttu Grænlands, þar sem stjórnvöld leggja áherslu á að Grænlendingar ráði sér sjálfir og landið sé ekki til sölu. En fyrst eru það nýsamþykktir kjarasamningar kennara og áhrif þeirra á fjárhag sveitarfélaganna Það er ljóst að kjarasamningarnir hafa veruleg áhrif á fjárhag þeirra, sum vilja bíða eftir einhvers konar útspili frá ríkinu en bæjarstjórinn í Kópavogi ætlar strax að taka í gikkinn og hagræða fyrir 470 milljónir í rekstri bæjarins á þessu ári.
Sometimes on this show, big ten-dollar words show up like apotropaic or etiology or deuterocanonical, where, unless you're pretty well-versed in this stuff, you may not know what we're talking about (ok fine- you may not know what Dan M is talking about). This week we're tackling two ten-dollar concepts in one show, so buckle in and bust out twenty bucks! First, we're diving into Gnosticism. We've glanced off this topic several times, but never stopped to talk about what it is. Who were the Gnostics? Where did they come from? What did they believe? Did they know that that's what we would end up calling them? What's with the spelling? Next we're taking a look at a very important manuscript. Codex Sinaiticus--a Latin name for a Greek book about Hebrew people--is a very important manuscript. But why? Where did it come from? What is it? What makes it so vital? ---- For early access to an ad-free version of every episode of Data Over Dogma, exclusive content, and the opportunity to support our work, please consider becoming a monthly patron at: https://www.patreon.com/DataOverDogma Follow us on the various social media places: https://www.facebook.com/DataOverDogmaPod https://www.twitter.com/data_over_dogma Hey! Don't forget to pre-order Dan McClellan's upcoming book The Bible Says So https://static.macmillan.com/static/smp/bible-says-so-9781250347466/?fbclid=IwY2xjawGLTkpleHRuA2FlbQIxMAABHQY4Ahs0Hi289IcnsQMh_0OAVf3oGefyUsWkLjhfB8OF8nio1fmroJbXxA_aem_v_4sISp8Zt43zsKfDjx1aA This episode was sponsored by BetterHelp Learn more about your ad choices. Visit megaphone.fm/adchoices
Bogi Ágústsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir ræddu stöðu alþjóðamála í upphafi nýs árs. Bogi sagði að ekki yrði sagt að 2024 hafi verið gott ár á alþjóðavettvangi: í kosningum fengu popúlskir flokkar víða byr í seglin, umhverfisráðstefna Sameinuðu þjóðanna skilaði engu og stór hluti heimsins virðist kæra sig kollóttan um sífellt hættulegri hamfarahlýnun. 2024 er heitasta ár sem hefur mælst og það berast æ oftar tíðindi af ýmsum öfgafyrirbærum í veðri, illviðrum, flóðum og þurrkum. Þau ræddu horfur fram undan, óvissu um stefnu Donalds Trumps, verðandi Bandaríkjaforseta, bæði í innanríkis- og utanríkismálum sem hefði mikil áhrif á þróun mála í heiminum öllum. Undir lokin ræddu Þórunn og Bogi stöðu Íslands og mat breska tímaritsins The Economist á þróun efnahagsmála. Blaðið birti um áramót töflu þar sem ritstjórn þess metur hvaða lönd stóðu sig best á síðasta ári. Spánn, Írland, Danmörk, Grikkland og Ítalía eru í efstu sætunum á lista blaðsins. Metnir voru þættir á borð við breytingar á þjóðarframleiðslu, hlutabréfaverði, verðbólgu og þróun atvinnuleysis. Samkvæmt þessum mælikvörðum tímaritsins er Ísland í 14. sæti, milli Svíþjóðar og Lúxemborgar. Bandaríkin eru í 20. sæti en Bretland í 31. sæti. Þetta er ekki yfirlit um ástandið heldur breytingar, þegar auðlegð þjóða er metin er Ísland í sjöunda sæti yfir ríkustu þjóðir heims.