POPULARITY
Norðanóveður er í spánni. Óvissustigi hefur verið lýst yfir á Austurlandi, Austfjörðum og Suðuarusturlandi og gildir langt fram á morgundaginn. Katrín Agla Tómasdóttir, veðurfræðingur tekur undir að þetta sé ekki einsdæmi snemmsumars en mjög óvenjulegt á þessum tíma. Hret á þessum árstíma getur bitnað illa á bændum, þeir þurfa að vera fljótir að stökkva til og koma kindum og nýfæddum lömbum í skjól og huga að gróðri sem kominn er mun lengra kominn en oftast áður. Sigurgeir Hreinsson, framkvæmdastjóri Búnaðarsambands Eyjafjarðar, hvetur bændur til að vera á tánum en vonar hretið núna verði ekki eins slæmt og fyrir ári. Á laugardag var haldinn fundur á Austurvelli á vegum hóps sem nefnist Ísland þvert á flokka á Facebook. Fundarmenn kröfðust aðgerða í útlendingamálum - og fundurinn hefur verið kallaður rasistasamkoma af sumum á samfélagsmiðlum. Nokkur af þeim atriðum sem fólkið á Austurvelli krafðist að yrði breytt eru þegar til skoðunar hjá stjórnvöldum. Einar Jóhannes Guðnason, varaformaður Freyfaxa sem er ungliðahreyfing Miðflokksins og var á fundinum er ekki sáttur við að vera stimplaður rasisti. Ása Berglind Hjálmarsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, beinir gagnrýni sinni að þeim sem töluðu á fundinum.
Hátíðin Reykjavík Fringe Festival fer fram í áttunda sinn þessa vikuna, þar verða margs konar listform og gjörningar ráðandi; uppistand, ljóð, ljósmynda- og leiksýningar - meira að segja burlesque-danssýning þar sem kettir koma við sögu. Við fáum tæknistjóra hátíðarinnar, Juliette Louste, til að ræða við okkur um þessa hátíð sem á rætur sínar að rekja til grasrótarhreyfingar listamanna í Skotlandi fyrir hartnær áttatíu árum síðan. Um helgina var boðað til tveggja mótmæla í miðborg Reykjavíkur – önnur voru á Austurvelli vegum hóps sem heitir Ísland, þvert á flokka, þar sem stefnu stjórnvalda í útlendingamálum var mótmælt – og hin voru eiginleg gagnmótmæli á Ingólfstorgi, þar sem hópur kom saman til að taka afstöðu gegn mótmælunum á Austurvelli og með jaðarsettum hópum. Samfélagið mætti á þau bæði – ræddi við fólkið sem þar var og fylgdist með því sem fór fram. Tónlist í þættinum: AIR - All I Need.
Mánudagur 2. júní Pólland, lýðræði, fjölmiðlar, Palestína, woke, glimmer og blóð Jacek Godek hefur þýtt fjölda íslenskra bóka yfir á pólsku en er líka glöggur samfélagsrýnir. Gunnar Smári slær á þráðinn til Jacek til Gdansk í tilefni af pólsku forsetakosningunum, þar sem frambjóðandi ytra hægrisins sigraði. Kristinn Már Ársælsson prófessor við Duke Kunshan-háskólann í Kína ræðir við Gunnar Smára um hnignun lýðræðis í heiminum og innan samfélaga á Vesturlöndum, ekki síst í Bandaríkjum Trump. Ólafur Arnarson, DV, Lárus Ýmir Óskarsson kvikmyndagerðarmaður og fyrrverandi blaðamaður og Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna, ræða við Björn Þorláks um fjölmiðla, blaðamennsku og samfélagspólitík. Nasista ber á góma. Gunnar Smári slær á þráðinn til Jerúsalem og ræðir við Qussay Odeh, íslenskan Palestínumann sem reynir að fá dvalarleyfi sitt framlengt í Palestínu. Qussay lýsir meiri hörku og kúgun undir hernámi Ísraels og spáir að Palestínumenn muni rísa upp. Bjarki Þór Grönfeldt stjórnmálasálfræðingur ræðir við Gunnar Smára um woke og anti-woke, hvort sú deila eigi sér raunverulegar rætur á Íslandi, en ekki síður um merkingu þess að í gær var tiltölulega fjölmennur fundur á Austurvelli þar sem fólk krafðist stefnubreytingar í málefnum hælisleitenda, vildi færri flóttamenn. Magdalena Lukasiak, ljósmyndarannsóknablaðamaður og hinsegin flóttamaður, fjallar um Glimmer og blóð á heimildasýningu sem er að opna í Núllinu.
Við fjölluðum um nýyrðasmíð gervigreindar í síðustu viku og Eyrún Magnúsdóttir, gervigreindarfréttaritari Samfélagsins, heldur áfram þeirri umfjöllun í dag. Hún ræðir við Huldu Ólafsdóttur og Svanhvíti Lilju Ingólfsdóttur, sérfræðinga í máltækni hjá Miðeind, um nýyrðasmíð gervigreindar og færni hennar í íslensku. Seinna í þættinum fáum við til okkar stofnendur mótmælahreyfingarinnar F.L.Í.S. – eða Fokk Laxeldi í Sjókvíum – sem standa fyrir mótmælum á Austurvelli á morgun. Stofnendurnir eru þrjár stúlkur í tíunda bekk í Laugalækjaskóla. Við setjumst niður með tveimur þeirra, sem og fulltrúa Ungra umhverfissinna til að ræða um loftslagsaktívisma hjá ungu fólki. En í dag er dagur líffræðilegrar fjölbreytni og Stefán Gíslason, pistlahöfundur Samfélagsins, fjallar um það í pistli sínum í dag, sem við fáum að heyra undir lok þáttar.
Við ætlum að bjóða upp á ís í samfélaginu í dag, eða samtal um ís; hafís, klakastíflur, freðna jörð jafnvel hláku. Ingibjörg Jónsdóttir, dósent í landfræði við Jarðvísindadeild Háskóla Íslands, þekkir vel til þessarar höfuðskepnu, vatns á föstu formi og hún kemur til okkar hér rétt á eftir. Mannréttindasamtökin Amnesty International komast í nýrri rannsóknarskýrslu að þeirri niðurstöðu að nægilegur grundvöllur sé til þess að halda því fram að Ísraelsríki hafi framið og haldi áfram að fremja þjóðarmorð á Gaza. Ungliðadeild Íslandsdeildar samtakanna stóð fyrir mótmælum á Austurvelli nú í hádeginu. Við heyrum hljóðið í viðstöddum. Við förum svo í okkar reglulegu heimsókn á Þjóðaskjalasafninu. Bára Stefánsdóttir, skjalavörður rýnir með okkur skjöl tengd Þjóðleikhúsinu. Tónlist og stef í þættinum: Beatles, The - Here comes the sun. JÓNAS SIG & ÓMAR GUÐJÓNS - Baráttusöngur uppreisnarklansins (Tónatal 2021). Guðmundur Pétursson Tónlistarm. - Samfélagið Millistef (úr laginu Tegund). PAUL SIMON - 50 Ways To Leave Your Lover.
Tilnefningar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og glæpasagnaverðlaunanna Blóðdropans voru kynntar við hátíðlega athöfn í Eddu í gær. Ein þeirra bóka sem tilnefnd er í flokki fræðibóka og rita almenns efnis er Óli K, en hún fjallar um Óla K. fyrsta fastráðna blaðaljósmyndara Íslands. Óli K. fór til Bandaríkjanna í nám á stríðsárunum og hóf svo störf Morgunblaðinu árið 1947 þar sem hann vann í 49 ár. Hann var einn þeirra sem skrásetti sögu landsins og var viðstaddur fjölda mikilvægra atburða í sögu þjóðarinnar, Natómótmælin á Austurvelli, Vestmannaeyjagosið, Kvennafrídaginn, komu handritanna og heimsókn Ellu Fitzgerald til landsins, svo eitthvað sé nefnt. Það er sagnfræðingurinn Anna Dröfn Ágústsdóttir sem ritaði sögu Óla K. og við ræðum við hana í þætti dagsins. Við hugum einnig að erlendum bókmenntum, nánar tiltekið bandarískum bókmenntum. Í síðustu viku fór fram verðlaunaafhending The National Book Award vestanhafs. Verðlaun voru veitt í fimm flokkum en skáldsagnaverðlaunin sem fara gjarnan hæst hlaut höfundurinn Percival Everett fyrir bókina James, sem er endursögn á heimsbókmenntinni Huckleberry Finn eða Stikkilsberja Finni, eftir Mark Twain. Tómas Ævar segir frá bókinni í þætti dagsins. Og við kynnum okkur nýja tónlistarhátíð, Slagharpan syngur. Á hátíðinni er íslensk píanótónlist frá hinum ýmsu tímabilum í forgrunni og flutt. Hátíðin samanstendur af fjöbreyttum viðburðum s.s. tónleikum, fyrirlestrum og kynningum og er opin öllum áhugasömum. Píanóleikararnir Erna Vala Arnardóttir, Peter Mate og Nína Margrét Grímsdóttir standa að hátíðinni og þau Peter og Erna Vala líta við í hljóðstofu til að segja nánar frá henni. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir
Þingveturinn er formlega hafinn og það stefnir í líflegt haust á hinu háa Alþingi. Við fáum Jóhönnu Vigdísi Hjaltadóttur, fréttamann, í heimsókn til að ræða það sem koma skal. Fylking verkalýðsfélaga boðaði til fjöldamótmæla á Austurvelli í gær þar sem krafist var aðgerða í þágu heimilanna. Önnur mótmæli voru haldin í morgun. Kórmótmæli, ekki eins fjölmenn, en ekki síður áhugaverð. Vísindaspjall með Eddu Olgudóttur í lok þáttar - og þar kemur heilinn eitthvað við sögu. Tónlist í þætti: Mammaðín - Frekjukast. Guðmundur Pétursson Tónlistarm. - Samfélagið Millistef (úr laginu Tegund). MUGISON - Haustdansinn. ETTA JAMES - I got you babe.
Óður kommúnistaskríll eða landráð framin í skjóli ofbeldis?
Þórarinn ræðir enn einu sinni við Kristrúnu Frostadóttur, formann Samfylkingarinnar. Að þessu sinni er rætt um hælisleitendamál og hvað Samfylkingin sér fyrir sér að þurfi að gera í þeim efnum. - Hvað finnst Kristrúnu um fyrirhuguð áform Guðrúnar Hafsteinsdóttur um lokaðar flóttamannabúðir?- Hvað fannst Kristrúnu um tjaldbúðirnar á Austurvelli?- Telur Kristrún að grípa þurfi til álíka úrræða og Mette Fredriksen hefur gert í Danmörku?- Hvaða ráðstafanir þarf að gera til þess að taka á móti fólki frá menningarheimum sem eru frábrugðnir evrópskum?Þessum spurningum er svarað hér.Hlaðvarpið í heild má finna á www.pardus.is/einpaeling
Þórarinn ræðir við Guðlaug Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra um stöðu ríkisstjórnarinnar, hælisleitendamálin og orkumálin.Mun VG koma í veg fyrir orkuöflun og mun þessi ríkisstjórn geta komið í veg fyrir orkuskort?Hvað finnst Guðlaugi um tjaldbúðirnar á Austurvelli?Mun Guðlaugur bjóða sig aftur fram í formann Sjálftæðisflokksins?Er Ísland að ljúga að sjálfu sér með fyrirhuguðum loftslagsmarkmiðum?Hlaðvarpið má finna í heild sinni á www.pardus.is/einpaeling
Diljá Mist Einarsdóttir er þingkona Sjálfstæðisflokksins. Þetta er í þriðja skipti sem hún kemur í hlaðvarpið en í þessum þætti er lögð sérstök áhersla á málefni Palestínu, flóttafólks og hælisleitenda. Rætt er um hversu mörgum Ísland getur tekið á móti, tjaldbúðirnar á Austurvelli, rasisma, menningarleg áhrif innflutnings fólks á samfélagið, staðan í Evrópu og hvort að Ísland þurfi að læra af reynslu Breta og Norðurlandanna.Hlaðvarpið má finna í heild sinni á www.pardus.is/einpaeling
Mánudagurinn 22. janúar Aðgerðaáætlun, rasismi og útlendir fangar Hörður Guðbrandsson formaður Verkalýðsfélags Grindavíkur og Páll Valur Björnsson kennari koma að Rauða borðinu og gera upp aðgerðarpakka ríkisstjórnarinnar til að tryggja öryggi Grindvíkinga. Er þetta nóg? Eða nógu skýrt? Hallfríður Þórarinsdóttir mannfræðingur ræðir um rasisma á Íslandi í tilefni af Facebook-færslu Bjarna Benediktssonar utanríkisráðherra og formanns Sjálfstæðisflokksins þar sem hann sagði mótmælastöðu fólks frá Palestínu á Austurvelli vera hörmungin ein. Í lokin kemur Helgi Gunnlaugsson afbrotafræðingur og fjallar um erlenda fanga í íslenskum fangelsum, en um fjölda þeirra hefur verið fjallað í umræðunni og bent á sem dæmi um varasamar afleiðingar fjölgunar innflytjenda
Við ætlum að byrja á ástarleit og einmanaleika, opnum stefnumótaforritið Tinder og förum á trúnó með einhleypu fólki sem hefur notað netið í makaleit. Og rannsóknarspurningin er eftirfarandi: virkar Tinder? Árið 1938 fékk Melitta Urbancic leyfi til að koma til Íslands með börnin sín þrjú þar sem maðurinn hennar, tónlistarmaðurinn Viktor Urbancic, beið þeirra. Ferðalagið reyndist háskaför en áratugum síðar kom í ljós hversu hætt fjölskyldan var komin í raun, jafnvel þegar hún taldi sig komna í skjól. Palestínskir mótmælendur hafa nú dvalið í tjöldum við Alþingishúsið á Austurvelli í þrjár vikur samfleytt. Við tökum stöðuna á tjaldbúðunum. Lagalisti: Rihanna - Love On The Brain El Fanoun - Marj Ibn Amer
Við rennum yfir helstu sigurvegara Golden Globes verðlaunanna, sem fram fóru í Hollywood í gær. Barbie sem hlaut flestar tilnefningar, sópaði fáum verðlaunum að sér. Sigurvegarar gærkvöldsins voru Oppenheimer í leikstjórn Martin Scorsese og Poor Things úr smiðju Yorgos Lanthimos. Um helgina kom fjöldi fólks saman á Austurvelli og talið að á fimmta tug manna hafi varið aðfaranótt sunnudags í tjaldbúðunum sem þar hafa staðið í tæpar tvær vikur. Við höldum áfram að kynnast tjaldbúunum og ræðum við íslenska aðgerðasinna sem hafa tekið þátt í mótmælunum. Svo heyrum við annan þátt úr örseríunni Á samviskunni sem Anna Marsibil Clausen framleiddi 2022. Í þessum þætti verður fjallað um Katrínu Thoroddsen lækni. Hjalti Freyr Ragnarsson valdi bestu íslensku geimveruteknólögin frá árinu sem var að líða.
Katrín Helga Ólafsdóttir gerði sér ferð á þrenna tónleika milli jóla og nýjárs, hún kíkti í Pipumessu í Tóma rýminu, Vetrarkyrrð á jólum í Landakotskirkju og Kickstart the new year á vegum samlagsins Rask. 'Þetta verður eins og skólaleikrit sem fjallar um vinsælustu krakkana í árganginum og er skrifað af þeim og leikið af þeim,' sagði Jón Trausti Reynisson á Heimildinni í gær. Við hefjum Lestina á nýju ári á fyrstu menningarátökum ársins, sem snúast iðulega um áramótaskaupið. Er nóg að það sé fyndið? Og hvað þarf það að vera annað? Nína Richter og Ásgeir Ingólfsson rýna í skaup ársins 2023, sem og gestir og gangandi á bókasafni Kringlunnar. Lestin heimsækir litlar tjaldbúðir sem reistar voru á Austurvelli milli jóla og nýjárs, beint á móti alþingishúsinu. Í tjöldunum hefur safnast saman flóttafólk frá Palestínu og stuðningsmenn þeirra, fólk sem á það sameiginlegt að hafa búið á Íslandi í einhvern tíma, en á fjölskyldu á Gaza.

Höskuldur Kári Schram ræðir við Ragnar Þór Ingólfsson formann VR, Sonju Ýri Þorbergsdóttur formann BSRB og Njál Trausta Friðbertsson þingmann Sjálfstæðisflokks um stöðu launafólks, hagnað bankanna, verkfallsaðgerðir BSRB, efnahagsmál og boðuð mótmæli á Austurvelli.

Laugardagurinn 6. maí Í Helgi-spjalli við Rauða borðið segir Ragnar Aðalsteinsson baráttusögu sína, hvernig ofbeldi ríkisvaldsins gegn mótmælendur á Austurvelli 30. mars 1949 breytti stjórnmálahugmyndum hans, hversu erfiðlega hefur reynst að fá dómstóla til að viðurkenna félagsleg réttindi fólks, rétt til tjáningar og mótmæla. Ragnar ræðir samfélagið sem hann spratt úr og stöðuna í dag, hnignandi lýðræði, vaxandi ógn vegna ófriðar og loftlagsvár.
Miðvikudagurinn 16. nóvember Bankasala, Krakkar og Skeggi Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir og Jóhann Páll Jóhannsson héldu ræður á mótmælum á Austurvelli gegn Íslandsbankasölunni í vor. Þau koma að Rauða borðinu og ræða skýrslu ríkisendurskoðunar um bankasöluna. Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir segir okkur frá Krakkaveldi, sem er bæði gjörningahópur og pólitískur baráttu barna. Útvarpsþættirnir um Skeggja Ásbjarnarson hafa vakið athygli og óhug. Til að ræða þættina koma tvær konur að Rauða borðinu, Hanna Björg Vilhjálmsdóttir og Sara Stef, Hildardóttir. Svo segjum við fréttir dagsins.
Þeir koma að Rauða borðinu Atli Þór Fanndal framkvæmdastjóri Transparency International á Íslandi og Þórarinn Eyfjörð formaður Sameykis, en þeir héldu ræður á mótmælunum á Austurvelli í vor gegn sölunni á Íslandsbanka. Hvað segja þeir um skýrslu ríkisendurskoðunar. Starfsgreinasambandið hefur vísað kjaradeilu sinni við Samtök atvinnulífsins til ríkissáttasemjara. Vilhjálmur Birgisson formaður SGS segir hvað það merkir. Georg Jónasson segir okkur síðan frá fátækt og hvernig hann vill berjast gegn henni. Og við förum yfir fréttir vikunnar.
Spegillinn 3. nóvember 2022 Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra hefur óskað eftir mati á hvort lög og réttindi fatlaðra hafi verið virt við brottvísun manns í hjólastól til Grikklands í nótt. Magnús Ingvarsson skólameistari í Fjölbrautaskólanum í Ármúla segir starfsfbrottvísun tveggja stúlkna sem voru nemendur þar hafa haft mikil áhrif á starfsfólk. Hólmfríður Dagný Friðjónsdóttir tók saman. Brottvísunum var mótmælt á Austurvelli, Elsa María Guðlaugs Drífudóttir talaði þar við Björgvin Ægi Elísson og Nönnu Hlíf Ingadóttur. Benjamin Netanyahu verður að líkindum aftur forsætisráðherra Ísraels, eftir fjórtán mánaða setu í stjórnarandstöðu. Likud flokkur hans og aðrir hægri flokkar náðu meirihluta í þingkosningum á þriðjudaginn. Björn Malmquist sagði frá. Forseti bæjarstjórnar á Akureyri segir ekki hjá því komist að hækka gjaldskrá bæjarins. Skólamáltíðir, sorphirða og tónlistarnám barna er meðal þess sem verður dýrara. Óðinn Svan Óðinsson talaði við Heimi Örn Magnússon (D) og Hildu Jönu Gísladóttur (S). Ólöf Erlendsdóttir tók saman. Vansvefta íbúar í miðborg Reykjavíkur eru að gefast upp vegna hávaða næturlífsins og selja fasteignir sínar. Sólveig Klara Ragnarsdóttir talaði við Sigrúnu Tryggvadóttur, formann íbúasamtaka miðborgarinnar. --------------------- Loftslag hlýnar hraðar í Evrópu en í öðrum heimsálfum. Meðalhitastig hefur hækkað um hálfa gráðu í álfunni á hverjum áratug frá 1991. Bjarni Rúnarsson ræddi um nýja skýrslu Alþjóðaveðurfræðistofnunarinnar við Önna Huldu Ólafsdóttiu skrifstofustjóra loftslagsþjónustu og aðlögunar á Veðurstofu Íslands og Theódóru Matthíasdóttur, sérfræðing á Veðurstofu Íslands Kjarasamningar á íslenskum vinnumarkaði skipta hundruðum og nær aldrei er búið að semja áður en samningur rennur út. Aðalsteinn Leifsson, ríkissáttasemjari er bjartsýnn á viðræður sem framundan eru en við öllu búinn. Anna Kristín Jónsdóttir ræddi við hann um horfur framundan og gagnagrunn sem opnaður var í dag. Snerting, bók Ólafs Jóhanns Ólafssonar, verður að kvikmynd sem kemur út næsta haust. Við tökur myndarinnar í Gufunesi var meðal annars settur upp japanskur veitingastaður í New York-borg sjöunda áratugarins. Haukur Holm ræddi við Ólaf og Baltasar Kormák leikstjóra. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Mark Eldred. Útsending frétta: Valgerður Þorsteinsdóttir.

Gestir Felix Bergssonar í Fram og til baka eru manneskjur sem hafa vakið athygli fyrir framgöngu í fjölmiðlum og baráttu fyrir mikilvægum málum. Björgvin Páll Gústavsson er sannkölluð þjóðhetja í handboltanum. Hann kemur í fimmuna og segir af fimm liðum sem hann hefur spilað með í gegnum tíðina. Spjallið fer út um víðan (handbolta) völl og við sögu koma erfiðleikar í æsku, ofvirkni og athyglisbrestur, barneignir eftir mikla baráttu og aukið testósterónmagn með hugarró og bættri líðan. Síðari gesturinn er baráttukonan Arna Magnea Danks en hún flutti frábæra ræðu á samstöðufundi hinsegin fólks vegna morðanna hræðilegu í Osló. Arna talar um erfiða lífsreynslu og skilningsleysi samfélags sem stöðugt ýtti henni aftur og aftur inn í skápinn. Hún fer svo með ljóðið sem hún flutti á Austurvelli í síðustu viku.

Til að ræða fréttirnar í kosningaviku koma í Vinnuskúrinn þau Fjölnir Sæmundsson formaður Landssambands lögreglumanna, Steinunn Þórðardóttir formaður Læknafélags Íslands, Sonja Þorbergsdóttir formaður BSRB og Hallfríður Þórarinsdóttir sem verið hefur fundarstjóri á mótmælunum á Austurvelli að undanförnu, en segja má að Austurvöllur sé eitt af almannasamtökum landsins. Við ræðum kosningar og pólitík, dýrtíð og vaxtahækkanir, húsnæðiskreppu og heilbrigðiskerfið en líka Júróvison og kappræður.Samstöðin á FacebookSamstöðin á YouTubeSamstöðin á vefnumAlþýðufélagið styrkir Samstöðina. Alþýðufélagið hefur það markmið að auðga og bæta umræðu í samfélaginu. Allir geta gengið í Alþýðufélagið og styrkt þar með efni og útbreiðslu Samstöðvarinnar. Takk fyrir stuðninginn
Af hverju má ekki vera gaman að mótmæla? Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir hefur mætt undanfarnar helgar á mótmæli á Austurvelli og er þessi spurning hugleikin. Hún veltir fyrir sér nautnaaktivisma út frá hugmyndum Adrienne Maree Brown. Kammerklúbburinn Feima er tónlistarverkefni sem ætlar sér að setja kvenhöfunda og flytjendur í forgrunn. Fyrstu tónleikar þessa hóps sem sprottinn er upp frá hljómsveitinni Elju verða haldnir í Hörpu næsta fimmtudagskvöld. Steinunn Vala Pálsdóttir og Anna Gréta Sigurðardóttir segja okkur af hverju þeim þykir kammertónlist svona skemmtileg. Listahátíðin Documenta hefst í Þýskalandi í næsta mánuði, þetta er ein stærsta og mikilvægasta myndlistarhátið heims, en hún fer aðeins fram á fimm ára fresti. Listrænir stjórnendur hátíðarinnar eru í fyrsta skipti frá landi utan Evrópu, en það er indónesíska listakollektífið Ruangrupa. Við spjöllum við tvo meðlimi hópsins í Lestinni í dag um hrísgrjónageymslur, aðferðafræði hangsins og Documenta 15.

Við ræðum um stjórnmálin og þjóðfélagið í kjölfar bankasölunnar. Hvað merkir það þegar stjórnvöld fara gegn vilja almennings í mikilvægu máli? Hefur það afleiðingar? Og hverjar þá? Til að ræða þetta koma að Rauða borðinu þingmennirnir Björn Leví Gunnarsson xP og Helga Vala Helgadóttir xS og Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR og Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir þjóðfræðingur, sem bæði hafa talað á mótmælunum á Austurvelli á liðnum vikum. Þau velta fyrir sér hvort þjóðin muni læra að lifa við spillinguna eða stjórnvöld að starfa í takt við vilja og þol almennings.Samstöðin á FacebookSamstöðin á YouTubeSamstöðin á vefnumAlþýðufélagið styrkir Samstöðina. Alþýðufélagið hefur það markmið að auðga og bæta umræðu í samfélaginu. Allir geta gengið í Alþýðufélagið og styrkt þar með efni og útbreiðslu Samstöðvarinnar. Takk fyrir stuðninginn!
Við ræðum söluna á Íslandsbanka við Rauða borðið í kvöld. Ásta Lóa Þórsdóttir þingkona og formaður Hagsmunasamtaka heimilanna, Benedikt Sigurðarson fyrrum skólastjóri, Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar og Hallfríður Þórarinsdóttir mannfræðingur og einn af skipuleggjendum mótmæla á Austurvelli á laugardaginn. Hvað gerðist? Er það líðandi? Hvað getur almenningur gert?Samstöðin á FacebookSamstöðin á YouTubeSamstöðin á vefnumAlþýðufélagið styrkir Samstöðina. Alþýðufélagið hefur það markmið að auðga og bæta umræðu í samfélaginu. Allir geta gengið í Alþýðufélagið og styrkt þar með efni og útbreiðslu Samstöðvarinnar. Takk fyrir stuðninginn
Við sáum fréttir af því í vikunni að hitastig á Suðurskautslandinu hefði mælst langt yfir venjulegu hitastigi á þessum árstíma. Á einni stöð munaði hvorki meira né minna en 40 gráðum. Og það er svipað uppi á teningnum við Norður heimskautið - methiti sumstaðar þar sem munar allt að 30 gráðum. Hvað er á seyði? Elín Björk Jónasdóttir veðurfræðingur segir okkur það. Enn og aftur mótmælir ungt fólk á Austurvelli. Alsherjarverkföll fyrir loftslagið eru haldin víða um heim í dag . Íslensk ungmenni verða með og krefja stjórnvöld og stórfyrirtæki um alvöru loftlagsaðgerðir. Finnur Ricart Andrason er ungur umhverfissinni. Málfarsmínútan er á sínum stað í umsjón Önnu Sigríðar Þráinsdóttur. Dýraspjallið er nýr dagskrárliður í Samfélaginu. Að þessu sinni segir Ester Rut Unnsteinsdóttir spendýravistfræðingur hjá Náttúrufræðistofnun Íslands, okkur frá leðurblökum.

Þörf fyrir því að stuða fólk hefur fylgt Snorra Ásmundssyni listamanni alla tíð. ?Ég hef þessa þörf fyrir að trufla fólk. Það er bara mitt hlutverk,? segir hann. Snorri er skírður í höfuðið á látnum bróður sínum og telur að sorgin sem umlukti hann sem barn hafi haft áhrif á ævibrautina. Snorri Ásmundsson myndlistarmaður er sannfærður um að ekkert sé heilagt eða utan marka þegar kemur að listinni. Það hefur sýnt sig í gegnum tíðina og hafa gjörningar hans strokið mörgu fólki öfugt. Hann vakti síðast athygli við hátíðahöld á Austurvelli 17. júní þegar hann hélt eigin fjallkonuræðu af svölum í Pósthússtræti, stuttu áður en hin hefðbundna athöfn hófst. Hann hafði nokkrum dögum áður lýst því yfir að hann yrði fyrsta karlkynsfjallkonan. Lögreglumenn höfðu þar afskipti af gjörningnum og bundu enda á hann. Tveimur árum áður vakti hann reiði vegna gjörnings í Hríseyjarkirkju, þar sem hann hélt messu í trássi við starfsreglur Þjóðkirkjunnar. ?Þetta er eitthvað sem hefur fylgt mér alla tíð, þörf fyrir því að pota og stuða,? segir hann

Í meira en tvær aldir hefur ein helsta táknmynd íslensku þjóðarinnar verið ung og fríð kona, faldbúningsklædd Fjallkona. Og frá því um miðja síðustu öld hafa skrautklæddar fjallkonur flutt ávarp á þjóðhátíðardaginn. Fjölbreytileiki samfélagsins hefur aukist undanfarna áratugi og samhliða því hafa fjallkonurnar orðið fjölbreyttari í útliti og uppruna. En enn hefur það aldrei gerst að sú manneskja sem valin er fjallkonan í Reykjavík hefur verið karlmaður. Snorri Ásmundsson, listamaður, vill breyta þessu, og í gær hafði lögregla afskipti af Snorra vegna fjallkonuávarps hans á Austurvelli. Við ræðum við Snorra um gjörninginn. Davíð Roach Gunnarsson segir frá hljómsveitinni Shabazz Palaces og nýju lagi frá þessari tilraunkenndu rappsveit, Mega Church. Og við förum líka í annars konar í kirkju. Eða raunar kemur kirkjan til okkar. Þeir bræður Baldur og Snæbjörn Ragnarssynir taka sér far með Lestinni í dag en þeir hafa stofnað nýjan söfnuð, Hljóðkirkjuna, sem er þó ekki trúfélag heldur hlaðvarpsstöð. Fanney Benjamínsdóttir hefur verið að velta fyrir sér verum sem standa kyrrar í borgarmyndinni, steinrunnar, allan ársins hring. Hvaða þýðingu hafa styttur af breiskum hetjum í samtímanum?

Á síðustu dögum hafa verið birtar þrjár skoðanakannanir sem sýna að um það bil níu af hverjum tíu hyggjast kjósa Guðna Th. Jóhannesson í forsetakosningunum 27. júní. 90 prósent fylgi er fáheyrt í könnunum sem mæla stuðning við fólk í framboði í lýðræðisríki. Nýjasta könnunin var birt í gær, hana gerði fyrirtækið Maskína, samkvæmt henni ætla 92,4% að kjósa Guðna en 7,6% Guðmund Franklín Jónsson. Þóra Ásgeirsdóttir, framkvæmdastjóri Maskínu, ræddi um skoðanakannanir, hvað gerir þær marktækar og sitthvað fleira. Það reynist flókið að opna landamæri ríkja á ný, eins og bæði Íslendingar og fleiri eru að komast að þessa dagana. Í Noregi er óánægja með að landamærin skuli ekki opnuð fyrir Þjóðverjum, sem eru dýrmætir ferðamann þar eins og víða annars staðar, en búist er við því að mikill fjöldi Þjóðverja fari yfir til Danmerkur í næstu viku þegar það verður leyfilegt. Svíar virðast eingöngu vera velkomnir til Íslands af Norðurlöndunum. Þetta ræddi Kristján Sigurjónsson, ritstjóri Túrista. Eins og margt annað í samfélaginu þetta árið verða hátíðahöld á 17. júní með óhefðbundnu sniði víðast hvar, og sums staðar verða alls engin hátíðahöld. Arna Schram, sviðsstjóri menningar- og ferðamála hjá Reykjavíkurborg og Björg Ágústsdóttir, sveitarstjóri í Grundarfirði, sögðu frá því hvernig hlutunum verður háttað í þeirra bæjarfélögum. Í höfuðborginni verður fátt með hefðbundnum hætti, nema messa og athöfn á Austurvelli. Í Grundarfirði verður fjallkonuávarpið í gegnum fjarfundabúnað. Tónlist: Lets get it on - Marvin Gaye, My friend - Jón Páll Bjarnason

Níu af hverjum tíu landsmönnum segjast ætla að kjósa Guðna Th. Jóhannesson í forsetakosningunum í lok mánaðarins samkvæmt þjóðarpúlsi Gallups. Á fjórða þúsund eru samankomin á samstöðufundi á Austurvelli vegna ástandsins í Bandaríkjunum. Samstöðufundir voru einnig haldnir á Akureyri og Ísafirði í dag. Smitsjúkdómalæknir vill að íhugað verði að sleppa því að skima ferðamenn við komuna til landsins. Skimunin geti verið falskt öryggi. Vísbendingar eru um að þeim sem lenda í greiðsluvandræðum muni fjölga mjög þegar líður á sumarið. Árás lögreglunnar á fjölmiðlafólk undanfarna daga er mikið áfall, ekki síst vegna þess að Bandaríkin eru opinberlega stærsta lýðræðisríki heims. Þetta segir framkvæmdastjóri Alþjóðabandalags blaðamanna. Guðmundur Hálfdánarson, sagnfræðiprófessor við Háskóla Íslands segir að á vissan hátt sé tekist á um stöðu forsetans í kosningabaráttunni vegna komandi forsetakosninga. Guðmundur segir þetta eftir viðtal Spegilsins við Guðmund Franklín Jónsson sem býður sig fram gegn Guðna Th. Jóhannessyni forseta. Hann segir að Guðni hafi fært embættið aftur á þann stað sem það var áður en Ólafur Ragnar Grímsson beitti málskotsréttinum í fyrsta sinn. Arnar Páll Hauksson talar við Guðmund Hálfdánarson. Yfirlæknir á ónæmisfræðideild Landspítalans útilokar ekki að gríðarleg notkun sótthreinsispritts geti valdið varanlegum skaða á ónæmiskerfinu. Handþvottur sé besta vörnin gegn smitsjúkdómum en margir hafi hallað sér full mikið að sprittinu í heimsfaraldrinum. Veirur kunna að verða ónæmar fyrir spritti, en þegar er farið að bera á ónæmi gagnvart öðrum sótthreinsiefnum. Arnhildur Hálfdánardóttir talaði við Björn Rúnar Lúðvíksson. Breska stjórnin var sein að setja á samkomubann vegna COVID-19 veirunnar. Eftir misvísandi upplýsingar hika breskir foreldrar við að senda krakkana í skólann. Samt flykkist fólk á strendur og útisvæði í góða veðrinu, og hagstofustjóri Breta telur ríkisstjórnina beita tölfræðiblekkingum. Sigrún Davíðsdóttir segir frá.

1. Daði Víðisson er í áttunda bekk í Hagaskóla og hann hefur mætt á loftslagsmótmælin á Austurvelli nánast hvern einasta föstudag. (11:39) 2. Eyjólfur Eyjólfsson, óperusöngvari, kynnir og spilar á íslenska langspilið. Eyjólfur er óperusöngvari í mastersnámi í Þjóðfræði. Hann hefur upp á síðkastið verið að vinna með grunnskólakrökkum sem læra að smíða og spila á íslenska langspilið. (42:50) 3. CGFC - sýningin Kartöflur. Þau Birnir Jón Sigurðsson og Ýr Jóhannsdóttir eru meðlimir í fjöllistahópnum CGFC. Á fimmtudaginn frumsýna þau verikið Kartöflur á sviðinu Umbúðalaust í Borgarleikhúsinu. (01:10)
Við heimsækjum elsta hluta Reykjavíkur og ræða um uppbyggingu og breytingar sem þegar hafa verið ákveðnar og það sem mögulega verður. Ég bendi hlustendum á skýrslu Borgarsögusafns númer 126 frá árinu 2005 en þar er sagt frá upphafi byggðar í Kvosinni, við skulum grípa aðeins niður í upphaf hennar.................. Svæðið sem nú afmarkast af Kirkjutorgi, Skólabrú, Lækjargötu, Vonarstræti og Templarasundi, var óbyggt þegar Reykjavík fékk kaupstaðaréttindi árið 1786. Svæðið var þá hluti af Austurvelli, sem upprunalega var tún Víkurbænda og náði frá Aðalstræti austur að Læknum og frá sjónum í norðri suður að Tjörninni. . Skömmu eftir að Reykjavík fékk kaupstaðaréttindi var Dómkirkjunni þó valinn staður suðaustan til á vellinum og var hún reist þar á árunum 1787-1796. Upp úr því fór svæðið sunnan við kirkjuna, þ.e.a.s. reiturinn sem hér um ræðir, smám saman að byggjast. Húsið Skólabrú 2, næsta hús austan við húsaröðina við Kirkjutorg. Húsið teiknaði Rögnvaldur Ólafsson arkitekt og er þetta eitt fárra íbúðarhúsa úr steinsteypu sem hann hannaði. Við hönnun hússins leitaðist Rögnvaldur við að brjótast undan hefðbundinni húsagerð timburhúsanna og móta sjálfstæðan stíl fyrir steinsteypt hús. Húsið er því brautryðjendaverk í hönnun steinsteypuhúsa og hafði mótandi áhrif sem slíkt, en steinsteypt íbúðarhús af þessari gerð, svokallaðar villur, urðu vinsæl hér á landi á öðrum og þriðja áratugi 20. aldar og settu einkum svip á hverfi hinna efnameiri. Húsin Skólabrú 2 og Lækjargata 10, sem standa litlu austar, eru í góðu samræmi við húsaröðina sunnan Dómkirkjunnar. Þessi hús skyggja ekki á kirkjuna ef horft er frá Lækjargötu og hafa bæði mikið gildi fyrir umhverfi hennar og Skólabrúar. Við ætlum einnig að ræða um Lækjargötu 10, en kannaðar hafa verið möguleikar að byggja aftan við það hús, hvort sem af verður eða ekki. Rætt er við Margréti Harðardóttur arkitekt frá Studio Granda og Hjörleif Stefánsson arkitekt. Einnig rætt við Sigurboru Ósk Haraldsdóttur borgarfulltrúa og Ólaf Torfason stjórnarformann Íslandshótela.

Hreinn Loftsson hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur, dómsmálaráðherra. Hreinn var lögmaður í máli gegn Haraldi Jóhannessen ríkislögreglustjóra. Forseti Bandaríkjanna neitar því staðfastlega að hafa brotið af sér í símtali við forseta Úkraínu. Demókratar segja að málið liggi ljóst fyrir enda sé vitað hvað forsetunum fór á milli. Stefnt er að því að Ísland verði leiðandi á heimsvísu í sjálfbærni ferðaþjónustu. Ferðaþjónustan er víða farin að nálgast þolmörk. Aukin samkeppni frá litlum fjármálafyrirtækjum, fjártæknifyrirtækjum og lífeyrissjóðum vó þungt í þeirri ákvörðun stjórnenda Arion banka að segja upp hundrað starfsmönnum. Fulltrúar ungmenna sem efnt hafa til loftslagsverkfalla á Austurvelli á föstudögum urðu fyrir vonbrigðum á fundi með ráðherrum í dag þar sem þau afhentu þeim kröfugerðir. Lýðræðissinnar í Hong Kong eru mættir til mótmæla sem eiga að standa fram á þriðjudag, þegar Kínverjar fagna sjötíu ára afmæli alþýðulýðveldisins. Fjölmiðlanefnd er ekki starfhæf. Skipun nýrrar nefndar hefur frestast þar sem Blaðamannafélag Íslands hefur ekki ákveðið hvort það ætlar að tilnefna sinn fulltrúa. Hvernig verða bankar framtíðar? Verða kannski engir bankar? Undanfarin ár hafa orðið hraðar breytingar í bankageiranum og það eru frekari breytingar framundan. Breytingar sem áttu þátt í því að hundrað starfsmönnum var sagt upp í Arion banka í gær. Arnhildur Hálfdánardóttir talar við Gunnlaug Jónsson. Ólafur Árnason hjá Verkfræðistofunni Eflu hefur verkstýrði hópi fólks sem rýndi í gögn um ástand ferðaþjónustunnar í dag og hvernig best væri að standa að atvinnugreininni í framtíðinni. Kristján Sigurjónsson ræddi við Ólaf í dag. Tyrkneskir sjónvarpsþættir fara sigurför um heiminn og eru orðnir ein helsta útflutningsvara landsins. Vinsældir draumasmiðjunnar í Tyrklandi á heimsvísu nálgast nú ört Hollywood sem í áratugi hefur verið allsráðandi á markaðnum. Pálmi Jónasson segir frá.
Ríkislögmaður fellst ekki á að Guðjón Skarphéðinsson, einn þeirra sem voru sýknaðir í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu, hafi sætt andlegri og líkamlegri raun í gæsluvarðhaldi. Guðjón stefnir ríkinu og krefst bóta upp á 1,3 milljarða króna. Þjóðverjar ætla að verja hundrað milljörðum evra í baráttuna gegn loftslagsbreytingum til ársins 2030. Aðgerða í loftslagsmálum var krafist á 575 stöðum í Þýskalandi í dag. Milljónir barna um allan heim flykktust út á götur borga í dag til að taka þátt í mótmælum vegna loftslagsbreytinga. Nú stendur yfir dagskrá á Austurvelli þar sem vakin er athygli á afleiðingum loftslagshlýnunar. Icelandair Group hefur gert bráðabirgðasamkomulag við Boeing um bætur fyrir hluta þess tjóns sem félagið hefur orðið fyrir vegna kyrrsetningar Boeing 737-MAX vélanna. Stefnt er að því að skrifað verði undir samkomulag ríkis og sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um uppbyggingu samgöngumannvirkja á fimmtudaginn í næstu viku. Samtök evrópskra sjónvarpsstöðva hafa ákveðið að sekta RÚV um fimm þúsund evrur fyrir framgöngu Hatara í Eurovision í vor. Hljómsveitin sýndi borða í fánalitum Palestínu meðan á stigagjöf stóð. Vegasamgöngur hafa raskast í dag vegna vatnavaxta á Vesturlandi. Gul viðvörun Veðurstofunnar gildir fyrir Faxaflóa og Vestfirði en appelsínugul fyrir Breiðafjörð. Milljónir barna um allan heim flykktust út á götur borga í dag til að taka þátt í mótmælum vegna loftslagsbreytinga. Um þrjú hundruð þúsund ungmenni tóku til dæmis þátt í Ástralíu. Fyrirmyndin eins og alþekkt er, skólaskróp Gretu Thunberg sem tók sér stöðu við sænska þinghúsið föstudag einn í ágúst í fyrra og nær alla föstudaga þaðan í frá. Anna Kristín ræddi við ung fólk á Austurvelli, Gunnhildi Fríðu Hallgrímsdóttur, Eyrúnu Dodziakos, Hálfdán Árna Jónsson og Rannveigu Guðmundsdóttir. Formaður Náttúrverndarsamtaka Íslands hvetur forsætisráðherra að lýsa yfir auknum samdrætti í losun gróðurhúsaloftteguna á leiðtogafundi Sameinuðu þjóðanna. Arnar Páll Hauksson tlar við Árna. Jóhannes Þór Skúlason framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar segir að búast megi við áframhaldandi hagræðingu hjá ferðaþjónustufyrirtækjum á næstu misserum en starfsfólki innan greinarinnar hefur fækkað um 2.900 á síðastliðnu ári. Jóhannes segir að spár um samdrátt í komu erlendra ferðamanna hingað til lands hafi að mestu gengið eftir. Höskuldur Kári Schram talat við Jóhannes.
Fyrir 33 árum varð versta kjarnorkuslys sögunnar þegar kjarnakljúfur í Tsjernóbyl í norður-Úkraínu sprakk. Þetta var árið 1986 og þá tilheyrði Tsjernóbyl og Úkraína Sovétríkjunum, sem gerðu allt til þess að fela slysið og umfang þess. Enginn veit hversu mörg mannslíf slysið hefur kostað, en þau gætu verið allt að 400.000. Ný þáttaröð frá HBO lýsir slysinu og afleiðingum þess með raunsönnum hætti. Ásgeir H. Ingólfsson blaðamaður hefur heimsótt Tsjernóbyl. Hann sagði hlustendum Morgunvaktarinnar frá þeirri heimsókn. Spennan hefur farið vaxandi við Persaflóa á síðustu vikum og upp úr sauð um síðustu helgi þegar ráðist var á olíuvinnslustöðvar í Sádi-Arabíu. Uppreisnarhópar Húta í Jemen lýstu árásunum þegar á hendur sér, en Bandaríkjamenn og Sádi-Arabar kenna Írönum um sem sverja af sér allar sakir. Bogi Ágústsson fjallaði um spennuna við Persaflóa og nýja ríkisstjórn Færeyinga í Heimsglugganum. Íslensk stjórnvöld hafa áhyggjur af loftlagsvánni og í gildi er margra liða aðgerðaráætlun í loftlagsmálum til 2030. En ekki er nóg að gert að mati Landverndar og fleiri sem á morgun efna til samkomu á Austurvelli og hefja undirskriftasöfnun þar sem skorað er á ríkisstjórnina að gera betur. En hvað þarf að gera betur? Hvað er hægt að gera betur? Því svara Auður Önnu Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Landverndar, ásamt Sigrúnu Jónsdóttur, varaforseta Landssamtaka íslenskra stúdenta, sem koma að skipulagningu Austurvallar-samkomunnar á morgun. Tónlist: Eden - Andrés Þór Ryðgaður dans - Valdimar

Fjármálaráðherra lét fresta undirritun samkomulags um samgönguuppbyggingu á höfuðborgarsvæðinu. Hann hefur áhyggjur af því að verkefnið verði ríkinu of dýrt. Forsætisráðherra Bretlands segist hóflega vongóður um árangur af fundum hans um Brexit með hátt settum embættismönnum Evrópusambandsins í næstu viku. Landsréttur hefur staðfest sautján ára fangelsisdóm yfir Degi Hoe Sigurjónssyni fyrir morð og morðtilraun á Austurvelli. Hátt í tvö hundruð féllu fyrir hendi einhvers úr fjölskyldu sinni í Bretlandi í fyrra. Breska þingið ætlar að bæta stöðu þolenda heimilisofbeldis. Minna er um erfðagjafir á Íslandi en í nágrannalöndunum, að sögn formanns Almannaheilla. Góðgerðafélög segja að skattalöggjöf mætti vera styrktarsjóðum hagfelldari. Lengri umfjöllun: Breyta ætti sakamálalögum til að leyfa lögreglu að halda mönnum lengur en tólf vikur í gæsluvarðhaldi í flóknari málum. Þetta er mat lektors í refsirétti. Stórt fíkniefnamál sem nú er fyrir dómstólum hefur beint sjónum manna að þessu álitaefni. Donald Trump var Demókrötum hugleikinn í nótt í kappræðum tíu efstu frambjóðenda demókrata í forvali flokksins fyrir forsetakosningarnar á næsta ári. Spjótin beindust líka að Joe Biden sem enn leiðir baráttuna en Elizabeth Warren og Bernie Sanders fylgja fast á hæla hans. Heilbrigðismál, innflytjendamál og utanríkismál bar títt á góma og hvort og þá hversu langt til vinstri flokkurinn á að sveigja. Útlit er fyrir breytingar á Lánasjóði íslenskra námsmanna. Í júlí var sett í samráðsgátt stjórnvalda frumvarp um Stuðningssjóð íslenskra námsmanna sem á að koma í stað LÍN. Helstu breytingar sem þar á að gera auk nafnabreytingarinnar eru að ljúki lánþegar prófi innan tilgreinds tíma verði 30% af námsláni þeirra felld niður; styrkur verði veittur til framfærslu barna lánaþega og lán skuli ávallt að fullu greidd þegar lánþegar eru 65 ára. Þeir sem ljúka námi fyrir 35 ára aldur geti valið hvort endurgreiðslur þeirra séu tekjutengdar eins og raunin er nú, eða þeir greiði með jöfnum greiðslum sem verður þá reglan fyrir þá eldri. Sýnist sitt hverjum um þessar breytingar og má nefna að starfsmenn Lánasjóðsins eru ekki sáttir við breytt nafn og skammstöfun úr LÍN í SÍN. Fulltrúar stúdenta telja ákvæði um vaxtakjör eins og þau eru nú í frumvarpinu varhugaverð. Umsóknum um lán hjá LÍN hefur fækkað mikið undanfarin ár á sama tíma og stúdentum hefur fjölgað. Jóna Þórey Pétursdóttir forseti Stúdentaráðs Háskóla Íslands, segir að það borgi sig ekki fyrir námsmenn að taka lán lengur. Umsjón: Stígur Helgason Tæknimaður: Ragnar Gunnarsson
Rapparinn „Flóni“ lenti í verkfalli norska flugfélagsins SAS á dögunum þegar hann tók skyndiákvörðun um að fara til Amsterdam í einn dag að hitta vin. Ákvörðunin kostaði hann 400.000 kall, segir umboðsmaður hans. „Það þarf að svipta hann fjárræði,“ bætir hann við. Þessi umboðsmaður er enginn annar en Pétur Kiernan. Áhrifavaldurinn. Instagram-fígúran. Stjórnmálaskýrandinn. Hin albjarta rassabora veraldar. Honum hlotnast þessi fágæti heiður, að vera fyrsti karlmaður vikunnar hjá Skoðanabræðrum. Og hann mætir í nýjum Balenciaga strigaskóm, sem eru að sögn aðeins þægilegri en þessir gömlu. Ýmislegt brennur á Skoðanabræðrum þessa fyrstu viku í maí. Eitt hvað heitast: PC-fasisminn. Og hann er vel að merkja jákvætt fyrirbæri, Skoðanabræður eru ekki Harmageddon. Hér er niðurstaðan sú að taka verði aftur upp þann sið að taka fólk af lífi á Austurvelli. Hverja? Þá sem selja læknadóp með hægri og styðja listasöfn með vinstri. Svo víkur sögunni að öðrum sígildum úrlausnarefnum jarðvistarinnar. Hassi og klámi, vændi og verkfræði. Þetta venjulega ting, sem sé. Þessi djús er á vegum Útvarps 101.
Kristinn Rúnar Kristinsson AKA Kryddi kom til okkar í annað sinn. Við fórum yfir frægðarför hans til Dallas þar sem hann hitti átrúnaðargoðið sitt Dirk Nowitzki og elti þar átján ára gamlan draum. Kristinn gaf út bókina Maníuraunir - Reynslusaga strípalingsins á Austurvelli í október 2018 og heldur fyrirlestrana Rússíbanalífið mitt. Bók og bókun fyrirlestra eru á www.kristinnrunar.com.
Umræður um fjármálaáætlun ríkisins voru fyrirferðamiklar á Alþingi. Stjórnarandstaðan heldur því fram að hún sé marklaus, m.a. vegna yfirvofandi kjarasamninga og áhrifa gjaldþrots Wow Air. Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir þingfréttamaður RÚV kom á Morgunvaktina og fór yfir stöðuna í íslenskum stjórnmálum. Hún ræddi einnig um álit siðanefndar Alþingis vegna ummælanna sem féllu á Klausturbar í lok síðasta árs, en álit nefndarinnar var sett á vef Alþingis áður en þingmenn Miðflokksins höfðu fengið tækifæri til þess að skila inn andmælum. Kristján Sigurjónsson, ritstjóri turisti.is ræddi um afleiðingar gjaldþrots Wow Air og einnig hvernig réttarstaða þess fólks sem keypt hefði miða með flugfélaginu væri. Á morgun, 30. mars, eru liðin 70 ár frá því að þúsundir manna komu saman á Austurvelli og mótmæltu inngöngu Íslands í Nató. Þá brutust út einhverjar mestu óeirðir í lýðveldissögunni, lögreglan beitti táragasi á mótmælendur, rúður voru brotnar í Alþingishúsinu og fjöldi manns fékk dóm fyrir þátttöku sína í óeirðunum. Stefán Pálsson sagnfræðingur og Stefán Einar Stefánsson blaðamaður komu á Morgunvaktina og ræddu um þennan atburð og hvernig hlutverk Nató hefði þróast og breyst í áranna rás. Samtök hernaðarandstæðinga ætla að minnast atburðarins á morgun, 30. mars, á Austurvelli frá kl. 13 - 17. Tónlist: João Gilberto, Stan Getz og Astrud Gilberto - The Girl From Ipanema Peter Sarstedt - Where Do You Go To (My Lovely)
Í litlu húsi við Skólavörðustíg er setið og saumað eins og lífið eigi að leysa. Með reglulegu millibili streyma inn litlar mýs í formi fyrirsætna, og máta vor- og sumarlínu fatahönnuðarins Hildar Yeoman fyrir árið 2019. „My witness is the empty sky" - „Auður himinninn er vitni mitt," er yfirskrift línunnar sem ber titilinn The Wanderer eða flækingurinn og verður kynnt í Hafnarhúsinu á föstudag. Lestin kemur við í stúdíóinu í dag og skoða undirbúning tískusýningarinnar; undirbúning ferðalags um auðnir og svartar strendur. Í þættinum verður einnig hugað að mótmælum á Austurvelli í fortíð og samtíð og spurt hvort og þá hvernig mótmælendur virkja arfleifð Jóns Sigurðssonar til að vekja athygli á málstað sínum. Það er hefð fyrir því að mótmæla á Austurvelli, og alltaf skal Jón vera á staðnum, standmynd sem steypt er í eir, grafkyrr, og þögull, og stundum er engu líkara en að þessi táknmynd verði með einhverjum hætti þátttakandi í því sem fram fer á vellinum. Við ræðum við sagnfræðingana Guðmund Hálfdanarson og Pál Björnsson, í þættinum í dag, en báðir þekkja þeir vel til þess hvernig sambandinu milli Jóns Sigurðssonar við þjóðina hefur verið háttað í áranna rás, og hvernig það er nú. Við tölum um virkni Jóns Sigurðssonar í Lestinni í dag. Áslaug Torfadóttir fjallar í þætti dagsins um bresku sjónvarpsþættina Catastrophe. Þættirnir kasta rósrauðu gleraugunum út í hafsauga, segir Áslaug, og skoða lífið, hjónabandið og barnauppeldi í öllum sínum vandræðalega og fyndna fáránleika. Kvikmyndin Sóley eftir listakonuna Rósku og Manrico Pavolettoni, verður sýnd í Iðnó í kvöld. Þetta er einskonar huldumynd, sem frumsýnd var árið 1982, gerist á átjándu öld og fjallar um bónda sem heldur út í óbyggðirnar til að leita að hestum, og kemst þar í tæri við álfkonuna Sóley. Þetta er mynd um draum og þetta er mynd um veruleika, þjóðsagan skammt undan, og jafnvel töfraraunsæið. Þorbjörg Jónsdóttir kvikmyndagerðarkona stendur að sýningu myndarinnar í kvöld, ásamt Lee Lorenzo Lynch, Þorbjörg verður gestur Lestarinnar í dag.
Við töluðum við G. Pétur Matthíasson, upplýsingafulltrúa Vegagerðarinnar, en engin skilti eru við Vaðlaheiðagöng sem upplýsa vegfarendur, ekki síst erlenda ferðamenn, að það er hægt að fara um Víkurskarð og losna þannig við að borga 1.500 króna veggjald. Við spurðum hann um þetta. Í gærkvöldi var saga ungs manns sem svipti sig lífi á geðdeild Landspítala árið 2017 rakin í fréttaskýringaþættinum Kveik. Hafliði Arnar Bjarnason var einn 32 karlmanna sem tók eigið líf þetta ár en í umfjöllun Kveiks kom m.a. fram að ávanabindandi efni eiga oft þátt í því að þoka einstaklingum í átt að svartnættinu. Halldóra Jónsdóttir, yfirlæknir bráðageðdeildar, kom til okkar til að ræða málin. Skólahreystin hefst að nýju í dag, en þessi hreystikeppni grunnskólanna hefur notið mikilla vinsælda, ekki bara meðal grunnskólabarna heldur þjóðarinnar allrar sem fylgist spennt með í sjónvarpinu. Andrés Guðmundsson stofnandi Skólahreysti var á línunni og spjallaði svolítið um Skólahreystina og áhrif hennar. Hælisleiteitendur og No border samtökin hafa að undanförnu mótmælt við Austurvöll. Ekki eru allir sáttir við mótmælin, framgöngu mótmælenda og umgengni þeirra á Austurvelli og við styttuna af Jóni Sigurðssyni. Þessi gagnrýni rataði inn í sali alþingis þegar Ólafur Ísleifsson, þingmaður Miðflokksins tók þetta upp og ganrýndi einnig kostnað við hælisleitendur. Ólafur kom til okkar ásamt Þorsteini Víglundssyni, þingmanni Viðreisnar, sem hefur allt aðra sýn á málið. Guðmundur Jóhannsson kom til okkar og flutti sinn vikulega pistil um tækni. Tónlist: Moses Hightower - Trúnó. Coldplay - Trouble. Hildur - 1993. Beck - Loser. Tom Walker - Just you and I. Little Simz - Selfish (ft. Cleo Sol). The Black Keys - LoHi. Pollapönk - Garðar rannsakar.
Kristinn Rúnar Kristinsson deildi með okkur sögum af baráttunni við geðhvörf. Nú er komin út bók hans, Maníuraunir – Reynslusaga strípalingsins á Austurvelli. Í bókinni segir Kristinn sögur af mikilli hreinskilni, tæpitungulaust og dregur ekkert undan. Bókina er hægt að nálgast á www.kristinnrunar.com.
Í fyrsta hluta þáttarins var litið í dagblöð, brot lesið úr bók Harðar Torfasonar, Bylting, og stuttlega sagt frá Sálinni hans Jóns míns sem hættir um helgina. Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir þingfréttamaður sagði frá störfum Alþingis í vikunni. Til umfjöllunar voru m.a. umræður um peningastefnuna, ferðaþjónustu, uppskiptingu velferðarráðuneytisins og forvarnir. Í ferðaspjalli dagsins sagði Kristján Sigurjónsson frá styrkjum og öðrum ívilnunum sem flugvellir og borgir veita flugfélögum. Háar fjárhæðir, í formi peninga eða afslátta, geta verið í boði fyrir flug til fásóttra áfangastaða, ekki síst í Bandaríkjunum, og hafa íslensku flugfélögin þegið slíkar ívilnanir. Þá sagði frá áhrifum þess að neysla kannabisefna er nú leyfð í Kanada á ferðaþjónustu í landinu. Sérfræðingar telja kannabis hafa aðdráttarafl fyrir landið og að ferðaþjónusta muni njóta góðs af. Þá sagði hann frá stundvísi á flugvöllum en Keflavíkurflugvöllur kemur illa út úr samanburði við flugvelli á hinum Norðurlöndunum. Hörður Torfason, leikstjóri og söngvaskáld, sagði frá bókinni sinni Byltingu - sagan sem breytti Íslandi. Í henni rekur hann aðdraganda útifundanna sem hann stóð fyrir á Austurvelli í kjölfar falls bankanna. tónlist: Þú fullkomnar mig - Sálin hans Jóns míns. Brekkan - Hörður Torfason.
Í dag, þriðjudaginn 17.júlí, þegar þessi upptaka fer í loftið verða mótmæli á Austurvelli kl.15 til stuðningi kjarabaráttu ljósmæðra. Hér stikla ég á stóru um mínar fæðingar- og meðgöngureynslu og hvet ALLA til að mæta í dag! Kraftur í fjöldanum! Sjáumst!

Í tilefni af 100 ára afmæli fullveldis Íslands var efnt til ráðstefnu um rapp og hipp hopp í Veröld - húsi Vigdísar. Þar var fjallað um rapp sem listform og danskir og íslenskir listamenn munu koma fram. Ráðstefnan breyttist síðan í tónleika þar sem bæði íslenskir og danskir rapparar tróðu upp. Við segjum örlítið frá efni fundarins og veltum fyrir okkur íslensku rappi, hvað eru íslenskir rapparar að segja? The Alienist eru nýir spennuþættir sem gerast í New York um aldamótin 1900 þar sem sturlaður raðmorðingi gengur laus. Áslaug Torfadóttir hætti sér í heimsókn og rýnir í þættina í dag. Þjóðhátíðardagur Íslendinga, 17. júní, var í gær. Hátíðarhöld fóru fram um land allt venju samkvæmt og rigningin buldi að hefðbundnum sið. Á Austurvelli voru ræður í pontu, skátar báru fána, Jón Sigurðsson hylltur og Fjallkona klæddi sig skautbúningi og flutti ljóð - Sigrún Edda Björnsdóttir flutti ljóð eftir Lindu Viljhjálmsdóttur. Fjallkonan var þó ekki ein. Í fyrsta sinn í sögunni voru fjallkonurnar í hátíðarhöldum í Reykjavík tvær talsins og önnur þeirra var í dragi. Dragdrottningin Gógó Starr segir langþráðan draum hafa ræst þegar hún brá sér í hlutverk fjallkonunnar og leiddi skrúðgöngu niður í Hljómskálagarðinn. Gógó Starr er gestur Lestarinnar í dag.