POPULARITY
Þriðjudagur 7. janúar Sprúttsalar, Færeyjar, loftlagsmál, umhverfi og byggðamál Vegna hávaða af framkvæmdum er þáttur kvöldsins snöggsoðinn (og í sumum viðtölum má heyra bornið í fjarska). Árni Guðmundsson forvarnarfulltrúi ræðir ólöglega áfengissölu og siðlausa áfengisframæleiðendur og Carl Jóhan Jensen rithöfundur segir fréttir fra Færeyjum, títt af bókmenntum og pólitík. Árni Finnsson hjá Náttúruverndarsamtökum Íslands auglýsir eftir fleiri talsmönnum umhverfisverndar og Andrés Skúlason ræðir umhverfis- og byggðamál.
Helgi Jónas Guðfinnsson á um margt áhugaverðan feril. Hann varð Íslandsmeistari í körfubolta með Grindavík bæði sem leikmaður og þjálfari og varð svo í haust Íslandsmeistari í fótbolta sem lykilmaður í þjálfarateymi Breiðabliks. Hann var atvinnumaður í körfubolta, spilaði sinn fyrsta leik í efstu deild í knattspyrnu 26 ára, hannaði Metabolic æfingakerfið og hefur skrifað bækur! Það er augljóst að Helgi Jónas er djúpur í þekkingu sinni á styrktarþjálfun, við ræddum þesskonar þjálfun og margt fleira. Við Turnarnir þökkum Nettó, Netgíró, Hafinu Fiskverslun, Fitness Sport, Budvar, Visitor og Lengjunni fyrir frábært samstarf á árinu. Ykkur kæru vinir fyrir hlustunina og skilaboðið. Áfram veginn. Njótið
Mánudagurinn 25. nóvember Kosningar, umhverfi, ungir kjósendur, sósíalismi, strandeldi og sirkus Esther Bíbí Ásgeirsdóttir bassaleikari, Hrönn Sveinsdóttir bíóstjóri, Kristjana Guðbrandsdóttir fjölmiðlakona og Borgar Magnússon tónskáld fara yfir stöðuna í pólitíkinni, nú þegar kosningabaráttan er komin á yfirsnúning. Fjórir nemendur úr MR sem eru að fara að kjósa í fyrsta sinn, þau Uni Níls Gunnlaugsson, Freyja Rúnarsdóttir, Björn Diljan Hálfdánarson og Herdís Sigurðardóttir Busson, ræða um misheppnaðar tilraunir stjórnmálaflokkanna til að ná til unga fólksins. Þorgerður María Þorbjarnardóttir formaður Landverndar og Árni Finnsson formaður stjórnar Náttúruverndarsamtaka Íslands segja okkur fréttir frá nýjustu alþjóðaráðstefnum á sviði umhverfis- og loftslagsmála. Þorsteinn Bergsson oddviti Sósíalista í Norðaustri segir frá sér og sósíalismanum. Ísadóra Ísfeld Finnsdóttir og Ida Karólína Harris eru ungir umhverfissinnar sem hyggjast beita verkfallsaðgerðum og ganga úr tíma á föstudaginn til að mótmæla laxeldi í sjó. Birta Benónýsdóttir sirkuskona segir okkur frá sirkuslífinu.
Miðvikudagur 23. október Pallborð ungliða, pólitíkin, stjórnmálaafl innflytjenda, leikhús og forn vinnumenning Við hefjum leik á umræðu ungs fólks, heyrum hvað þeim finnst að stjórnmálaflokkar ættu að setja á oddinn nú fyrir kosningarnar. Þau Jósúa Gabríel Davíðsson, Valgerður Birna, Karl Héðinn Kristjánsson og Viktor Pétur Finnsson ræða málin með Birni Þorláks umsjónarmanni í beinni útsendingu. Að þeirri umræðu lokinni koma þau Oddný G. Harðardóttir þingmaður, Vigdís Hauksdóttir fyrrum þingmaður, Björg Eva Erlendsdóttir fyrrum fréttamaður og Sigmundur Ernir, sem er bæði fyrrum ritstjóri og fyrrum þingmaður og ræða ýmsa anga stjórnmálanana og bregðast að einhverju leyti við orðum unga fólksins. Jasmina Vajzovic ætlar svo að segja okkur frá höfnun og útilokun sem hún upplifði eftir röðun á lista Viðreisnar. Hún upplýsir um hugmyndir um stofnun nýs stjórnmálaflokks, sem aðeins yrði skipaður innflytjendum. Gunnar Smári fjallar um Óskalandið, gamandrama í Borgarleikhúsinu, og ræðir við leikstjórann Hilmi Snæ Guðnason og leikarana Esther Talíu Casay og Vilhelm Neto. Einnig kynnum við nýlega bók um forna búskaparhætti, Bjarni Guðmundsson kennari er höfundur hennar og segir hann okkur frá bókinni og efni hennar.
Rauða borðið: Dagskrárvald, Gaza, tónlistaruppeldi, andófs-usli. Rauða borðið heldur áfram að taka stöðuna og setja málefni á dagskrá kosninganna. Er allt mögulegt? Oddný Eir stýrir samræðu kvöldsins í beinni útsendingu sem hefst klukkan átta og er í tveimur liðum: Fyrst mæta til leiks þau Jón Ólafsson, heimspekingur og prófessor, Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir, Auðunn Arnórsson, og Sigurjón Magnús Egilsson. Síðan mæta þau Kristín Ómarsdóttir, Árni Finnsson, Ásgeir Brynjar Torfason og Atli Ingólfsson. Björn Þorláksson ræðir svo við þau Herdísi Önnu Jónsdóttur og Þóri Jóhannsson um tónlistarlegt uppeldi í hinu bjarta norðri. María Lilja Ingveldar-Þrastardóttir Kemp segir okkur nýjustu hörmungarfréttir í Radíó Gaza og Oddný Eir ræðir svo við Gunnar Þorra Pétursson um andófs-uslann í Meistaranum og Margarítu eftir Bulgakov.
Mánudagurinn 14. október Ástandið í stjórnmálunum, rímnaskáld og ferðakapítalismi Við höldum áfram að greina ástandið í pólitíkinni með gestum: Vilhjálmur Árnason þingmaður, Halla Gunnarsdóttir varaformaður VR, Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR, Halldóra Mogensen þingkona, Drífa Snædal talskona Stígamóta, Gísli Tryggvason lögmaður og Björn Jón Bragason sagnfræðingur meta stöðuna. Mun allt fara samkvæmt vilja Bjarna Benediktssonar? Á næstu dögum kemur út bók um skáldverk Sigurðar Breiðfjörðs og hvernig Jónas Hallgrímsson hjólaði í rímur skáldsins og bar hvorugur barr sitt á eftir að mati höfundar. Óttar Guðmundsson geðlæknir ritar bókina og ræðir verk sitt. Hjörleifur Finnsson, heimspekingur og fyrrverandi frumkvöðull í ferðaiðnaði fer í gegnum óheillaþróun ferðamála á Íslandi og sýnir hvernig ferðamálin eru í heljargreipum stórkapítalismans.
Þriðjudagurinn 24. september Freki karlinn, aðgerðarleysi í loftlagsmálum, Brasilía, innanlandsflug, Sýslumaður dauðans og ull Við hefjum þáttinn á umræðu um karla með Bjarna Karlssyni; Bergsteinn Sigurðsson blaðamaður, Atli Þór Fanndal starfsmaður Pírata og Páll Baldvin Baldvinsson leikstjóri ræða karlmennsku og einkum freka karlinn. Árni Finnsson formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands., Auður Önnu Magnúsdóttir fyrrum framkvæmdastjóri Landverndar, Guðmundur Steingrímsson doktorsnemi í umhverfis- og auðlindafræði og Þorbjörg María Þorbjarnardóttir formaður Landverndar gagnrýna aðgerðaráætlun stjórnvalda í loftlagsmálum. Luciano Dutra segir okkur frá pólitíkinni í Brasilíu og Ólína Freysteinsdóttir íbúi á Akureyri frá hækkun á innanlandsflugi. Við ræðum leikritið Sýslumaður dauðans við höfundinn Birni Jón Sigurðsson, leikstjórann Stefán Jónsson, aðalleikarann Harald Ara Stefánsson og leikhússtjórann Brynhildi Guðjónsdóttur. Og í lokin segir Hulda Brynjólfsdóttir bóndi og eigandi Uppspuna okkur frá ullarvikunni.
Í vikunni gaf Hið íslenska bókmenntafélag út bókina Tónar útlaganna eftir Árna Heimi Ingólfsson. Þar er farið yfir sögu þriggja hámenntaðra tónlistarmanna sem flúðu heimalönd sín í Evrópu snemma á síðustu öld, fluttu til Íslands og höfðu veruleg áhrif á íslenskt menningarlíf, þá Róbert Abraham Ottóson, Heinz Edelstein og Victor Urbancic. Við gluggum í bókina og gröfum upp gamlar upptökur í þætti dagsins. Einnig er rætt við Markús Þór Andrésson um yfirlitssýningu á verkum Hreins Friðfinnssonar sem opnar í Hafnarhúsinu á laugardag og við heyrum pistil frá Mirru Elísabetu Valdísardóttur um viðveru Palestínu á Feneyjatvíæringnum.
Þriðjudagurinn 10. september Framhaldsskólinn, orkuskortur og orkuþjófnaður, Ítalía og ferðaiðnaður Við förum yfir mótmæli dagsins og ræðum svo stöðu framhaldsskólanna. Sandra Hlín Guðmundsdóttir, náms- og starfsráðgjafi við Borgarholtsskóla og varamaður í stjórn Félags framhaldsskóla, Anton Már Gylfason, formaður Félags stjórnenda í framhaldsskólum og áfangastjóri við Borgarholtsskóla, Guðjón Hreinn Hauksson, formaður FF og áður kennari við Menntaskólann á Akureyri og Ingibjörg Karlsdóttir, sérfræðingur á skrifstofu FF og áður kennari við Menntaskólann í Kópavogi koma að Rauða borðinu og greina hvað er vel gert og hvað illa í framhaldsskólum. Snæbjörn Guðmundsson jarðfræðingur og formaður Náttúrugriða og Árni Finnsson formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands ræða orkumál við Oddnýju Eir Ævarsdóttur, sem síðan ber sjónarmið þeirra undir Sigurð Hannesson framkvæmdastjóra Samtaka Iðnaðarins. Roberto Luigi Pagani aðjúnkt við HÍ segir okkur frá stjórnmálum á Ítalíu og reyndar líka af íslenskukennslu fyrir útlendinga. Og í lokin kemur Edward H. Huijbens, prófessor í menningar-landfræði við Wageningen háskóla, og ræðir ferðaiðnaðinn.
Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Árni Finnsson formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands um loftslagsmál. Ásmundur Einar Daðason barna- og menntmálaráðherra um menntamál. Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari um dómsmál. Ingibjörg Þórðardóttir fyrrverandi fréttastjóri CNN um uppþot og óeirðir í Bretlandi.
Föstudagurinn 21. júní Vikuskammtur: Vika 25 Í Vikuskammt við Rauða borðið í dag koma þau Björgvin Þór Þórhallsson kennari, Jovana Pavlović mannfræðingur, Viktor Pétur Finnsson formaður SUS og Zúzanna Korpak nemi í hagnýtri siðfræði og þjálfari og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af þinglokum, hraunrennsli, þjóðhátíð og pólitískum átökum.
Miðvikudagurinn 29. maí: Forsetakjör, Nató og kolefnalosun Við byrjum á umræðu um forsetakosningar og elítuna: Hallgrímur Helgason rithöfundur og málari, Oddný Eir Ævarsdóttir heimspekingur og rithöfundur, Magnús Scheving höfundur, leikstjóri og framleiðandi og Ester Bíbí Ásgeirsdóttir tónlistarkona ræða átökin í kringum kosningarnar, sem herðast og herðast. Við ræðum öryggisstefnu íslands í háskalegum heimi við Viðar Þorsteinsson framkvæmdastjóra félagssviðs Eflingar, Tjörvi Schiöth doktorsnema og Andrés Ingi Jónsson þingmann Pírata. Og í lokin kemur Árni Finnsson formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands og fjallar um afleiðingar þess að ekkert plan sé í gangi hjá íslenskum stjórnvöldum hvað varðar losun gróðurhúsalofttegunda.
Við lítum inn í Marshallhúsið í gallerí Þulu, þar sem systurnar Ingibjörg og Lilja Birgisdætur sýna ný verk á sýningunni Hlutskipti. Litaðar ljósmyndir, skúlptúrar, vidjóverk og síðast en alls ekki síst ilmur byggður á Ajaxlykt er meðal þess sem þær systur hafa skapað upp úr umbreytingaferli sem hófst með myglufundi og búslóðaflutningum. Með verkunum umbreyta listakonurnar farganinu sem fylgir endalausum hlutum og buguninni sem getur fylgt flutningum í fegurð sem þær sækja í náttúruna. Bandaríska tónlistarkonan Adrianne Lenker gaf út plötuna Bright Future í síðustu viku. Öll lögin eru lifandi flutningur tekinn upp á hrátt segulband sem fangar áhrifarík augablik og miðla nærveru tónlistarmannanna á einstakan hátt. Við komum kynnum okkur plötuna í síðari hluta þáttar. Hildigunnur Sverrisdóttir arkitekt verður með okkur í þætti dagsins og að þessu sinni er hún með hugan við myndlist Hreins Friðfinnssonar. Einnig heyrum við brot úr þætti Jóhannesar Ólafssonar um Auði Haralds sem verður í Páskadagskrá Rásar 1. Heyrum rödd Auðar úr safni ásamt glefsum úr viðtali Jóhannesar við Dagnýju Kristjánsdóttur og Hólmfríði Helgu Sigurðardóttur. Umsjón: Tómas Ævar Ólafsson og Halla Harðardóttir
Víðsjá dagsins er helguð Hreini Friðfinnssyni. Hreinn fæddist á Bæ í Dölum í febrúar 1943. Hann útskrifaðist frá Handíða- og myndlistaskóla Íslands 1960 og fluttist stuttu síðar til Amsterdam. Hann var einn af stofnendum SÚM hópsins og hefur oft verið kallaður einn af frumkvöðlum hugmyndalistar hér á landi. Hreinn vann með i8 gallerí hér á landi og fleiri galleríum víðsvegar um Evrópu, en hann sýndi reglulega vítt og breitt um heiminn. Hreinn var fulltrúi Íslands á Feneyjartvíæringnum 1993, árið 2000 voru honum veitt virtustu myndlistarverðlaun Finnlands, Ars Fennica verðlaunin, og fyrr í þessum mánuði féll heiðursviðurkenning Myndlistarráðs í skaut Hreins. Hreinn kvaddi þennan heim á hjúkrunarheimili í Amsterdam þann 6.mars síðastliðinn. Viðmælendur í þættinum eru Hrafnhildur Helgadóttir, Sigurður Guðmundsson, Styrmir Örn Guðmundsson, Ragnheiður Gestsdóttir, Ólöf Kristín Sigurðardóttir, Emma Heiðarsdóttir og Börkur Arnarson. Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson.
Við hittum Styrmi Örn Guðmundsson myndlistarmann við verkið Klett eftir Hrein Friðfinnsson í þætti dagsins. Verkið var fyrst sett upp í Berlín 2017 en er nú til sýnis í Ásmundarsal. Hreinn fæddist á Bæ í Dölum 1943 og útskrifaðist frá Handíða- og myndlistaskóla Íslands 1960. Hann var einn af stofnendum SÚM hópsins og er oft kallaður einn af frumkvöðlum hugmyndalistar hér á landi. Hann fluttist til Amsterdam 1971 þar sem hann hefur búið allar götur síðan. Og þar starfaði Styrmir Örn með honum í rúman áratug. Í hádeginu var tilkynnt um þrettán tilnefningar til Bókmenntaverðlauna Evrópusambandsins og meðal tilnefninganna er bók Maríu Elísabetar Bragadóttur Sápufuglinn. Við tökum Maríu tali um verðlaunin og bókina í þætti dagsins. Einnig rýnir Nína Hjálmarsdóttir í söngleikinn Eitruð lítil pilla sem var frumsýndur var í Borgarleikhúsinu um liðna helgi. En við hefjum þáttinn á því að tilkynna hvaða listamenn eru tilnefndir til Myndlistarverðlauna Íslands.
Sunnudagurinn 18. febrúar Synir Egils: Pólitískar vendingar og Gaza Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða helstu fréttir og pólitík við gesti. Að þessi sinni koma Viktor Pétur Finnsson, formaður Sambands ungra Sjálfstæðismanna, Björg Eva Erlendsdóttir framkvæmdastjóri Landverndar og Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar og ráða í stöðuna. Þeir bræður munu líka greina ástandið á þinginu og á eftir vindum við okkur í Háskólabíó og hlýðum á stórfund til stuðningi Palestínu.
Vladimir Zelensky Úkraínuforseti átti á miðvikudag fund með öllum forsætisráðherrum Norðurlandanna. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra sat fundinn fyrir Íslands hönd og átti einnig einkafund með forsetanum. Gísli Kristjánsson, útsendari Spegilsins, var á staðnum og ræddi við Katrínu. Nær 200 aðildarríki Sameinuðu þjóðanna náðu í morgun samkomulagi á 28. loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, COP 28, sem haldin var í olíuríkinu Dúbaí í Sameinuðu arabísku furstadæmunum, undir lok heitasta árs í sögu veðurmælinga. Forseti ráðstefnunnar, Al Jaber soldán og framkvæmdastjóri ríkisolíufyrirtækis Dúbaí, sagði þetta tímamótasamþykkt, enda væri hún sú fyrsta sinnar tegundar, þar sem minnst er á jarðefnaeldsneyti yfirhöfuð. Helga Barðadóttir, formaður íslensku sendinefndarinnar í Dúbaí, og Árni Finnsson, formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands, taka bæði undir þetta, hvort með sínum hætti. Ævar Örn Jósepsson tók saman. Rudy Giuliani, fyrrverandi lögmaður Donalds Trumps, stendur við fullyrðingar sínar um að mæðgur sem störfuðu á kjörstað í Georgíuríki í forsetakosningunum í Bandaríkjunum fyrir þremur árum hafi reynt að hnekkja úrslitunum með svindli. Hann hefur verið sakfelldur fyrir orð sín. Réttarhöld standa yfir í Washingtonborg þar sem ákveða á skaðabætur sem hann þarf að greiða mæðgunum. Árni Tómasson segir frá.

Mánudagurinn 11. desember Skólinn, pólitík í USA, samfélagið, Samfylkingin og loftslagið Við höldum áfram að greina skólakerfið. Ragnar Þór Pétursson kennari í Norðlingaskóla kemur og greinir vanda kerfisins, orsök og leiðir út. Við ræðum við Guðmund Hálfdanarson sagnfræðing um stjórnmál í Bandaríkjunum og hvaða áhrif þau hafa á stríð og frið í heiminum. Vigdís Grímsdóttir rithöfundur var að senda frá sér ævintýri um ójöfnuð og segir okkar hvernig samfélagið virkar á hana. Það er komið að Samfylkingunni í viðtölum okkar við þingflokksformenn. Logi Einarsson segir okkur frá því fyrir hvað hún stendur og hvað hún vill. Í lokin kemur Árni Finnsson, formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands, og greinir stöðuna á Cop28.
Hádramatík – háfantasía – há … r … já, hár! Final Fantasy XVI er til umræðu í þætti vikunnar. ENN á ný erum við í nýju stúdíói (þó í sama rými, bara aðeins til hægri) og án Gunnars. Í hans stað kemur FF nördinn og altmultigtmaðurinn Geir Finnsson. Hann hefur verið heltekinn af seríunni síðan um aldamótin síðustu og ræðir leikinn í þaula við Arnór Stein. Bardagakerfi, karakterar, vondukallar og tónlist. Þetta og MARGT fleira í stút fullum þætti. Smá höskuldarviðvörun fylgir þættinum. Við ræðum plottið nokkuð djúpt og einnig um nokkra karaktera. Þér hafið verið viðvöruð. Þátturinn er í boði Elko Gaming og Serrano
Spegillinn 17. ágúst 2023 Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Kormákur Marðarson Stjórn fréttaútsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir Reykjavíkurborg vísar réttindalausum hælisleitendum frá neyðarskýlum borgarinnar, þar sem sveitarfélögin telja sér óheimilt að veita þeim aðstoð. Valur Grettisson ræðir við Einar Þorsteinsson. Fyrrverandi fulltrúi í peningastefnunefnd Seðlabankans segir ólíklegt að bankinn sé hættur að hækka vexti. Ýmislegt hafi þróast í rétta átt, en það dugi ekki til því enn sé mikil spenna í hagkerfinu. Benedikt Sigurðsson ræðir við Katrínu Ólafsdóttur. Leiðtogar ECOWAS bandalagsins funda nú í Gana vegna ástandsins í Níger. Her landsins framdi valdarán í lok júlí og heldur forseta landsins í stofufangelsi. Sameinuðu þjóðirnar hafa áhyggjur af stöðunni. Ástrós Signýjardóttir segir frá. Yfirmaður Sorphirðudeildar Reykjavíkur veltir því fyrir sér hvað teljist eðlilegt heimilissorp og hversu miklar kröfur sé hægt að gera til sorphirðu sveitarfélaga. Hnökrar hafa verið á innleiðingu nýs sorphirðukerfis. Arnhildur Hálfdánardóttir ræðir við Atla Ómarsson. Isavia vill að um þrjú þúsund tré í Öskjuhlíð verði tafarlaust felld. Aðflug sé of krappt og trén ógni flugöryggi. Formaður borgarráðs segir að tekið verði á málinu formlega. Rætt við Einar Þorsteinsson og Sigrúnu Björk Jakobsdóttur. Ari Páll Karlsson tók saman. ------ Mannekla og mikil starfsmannavelta á leikskólum og hjá mörgum umönnunarstéttum endurspeglar það að rangt var gefið í upphafi að mati formanns BSRB. Ekki gangi að velferðarkerfið grundvallist á vinnu kvenna á afsláttarkjörum. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Sonju Ýr Þorbergsdóttur. Talsfólk umhverfisverndarsamtaka segja litlar sem engar líkur á að loftslagsmarkmið stjórnvalda náist úr þessu. Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir ræðir við Árna Finnsson, formann Náttúruverndarsamtaka Íslands, og Ævar Örn ræðir við Ágústu Þóru Jónsdóttur, varaformann Landverndar. Forsetaframbjóðendum í Simbabve hefur fækkað mjög frá síðustu kosningum árið 2018. Þá gáfu 23 kost á sér en þeir eru nú aðeins 10. Forseta- og þingkosningar fara fram í landinu 24. ágúst.

Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Vilhjálmur Árnason alþingismaður og Alexandra Briem borgarfulltrúi um Reykjavíkurflugvöll. Ágúst Bjarni Garðarsson alþingismaður og Björt Ólafsdóttir framkvæmdastjóri um fasteignamarkaðinn. Teitur Björn Einarsson alþingismaður og Árni Finnsson formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands um hvalveiðar. Logi Einarsson alþingismaður og Bryndís Haraldsdóttr alþingismaður um Evrópuráðið/stjórnmál.
Undirbúningur fyrir leiðtogafund Evrópuráðsins fer að ná hámarki, en sá stóri fundur fer fram 16.-17. maí í Hörpu. Forsætisráðherra og utanríkisráðherra Íslands eru gestgjafar fundarins enda gegnir Ísland formennsku í Evrópuráðinu. Það er mikil og ströng öryggisgæsla vegna fundarins og eitt sem hefur komið fram í fjölmiðlum undanfarið er auknar líkur á hvers kyns netárásum. Og þá borgar sig að vera undirbúinn. Guðmundur Arnar Sigmundsson er forstöðumaður Cert-ís, netöryggissveitar Fjarskiptastofu. Við ætlum að velta fyrir okkur kolefnisbindingu og kolefnisjöfnun og hverju það a að skila. Það er töluvert deilt um þessi mál, þau tengjast mikið inn í umræður um skógrækt og landgræðslu og hvaða stefnu Íslendingar eiga að taka í þeim efnum. Árni Finnsson formaður náttúruverndarsamtaka Íslands og einn stofnfélaga VÍN - sem eru vinir íslenskrar náttúru og Hreinn Óskarsson hjá skógræktinni, skógfræðingur og sviðsstjóri þjóðskóga líta þessi mál ólíkum augum. Við tölum við þá. Málfarsmínútan verður á sínum stað og sömuleiðis dýraspjallið. Að þessu sinni ætlum við að ræða við Vigdísi Freyju Helmútsdóttur plöntuvistfræðing sem sinnir afar forvitnilegum rannsóknum á því hvernig plöntum líður í hlýnandi heimi.

Guðni Finnsson er viðmælandi í þessum þætti af Norðfirðingahlaðvarpinu. Tónlist hefur verið hluti af hans lífi í langan tíma og hefur hann afrekað margt og komið víða við. Þátturinn er unninn í samvinnu við SÚN.
Í janúar 2023 fór umsjónarmaður Sagna af landi í ferðalag um nokkra firði Austurlands. Við hefjum ferðalagið á Djúpavogi þar sem við lítum í kaffi til þeirra Willam Óðins Lefever og Grétu Mjallar Samúelsdóttur, sem reka þar fyrirtæki sem býr til sterkar sósur. Því næst er ferðinni heitið á Breiðdalsvík þar sem við hittum hjónin Helgu Hrönn Melsteð og Ingólf Finnsson, sem reka bifreiðaverkstæði og ferðaþjónustu auk þess að sinna sjúkraflutningum. Já það eru margir hattar á þeim hjónum. Að lokum förum við til Stöðvarfjarðar og fræðumst um Sköpunarmiðstöðina, listamiðstöð sem byggðist upp í gamla frystihúsinu niðri við höfnina og laðar núna að skapandi fólk úr öllum áttum og öllum heimshornum. Við ræðum við Unu Sigurðardóttur og Lukasz Stencel. Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
Við ætlum að ræða friðlýst svæði og þjóðgarða, en starfshópur skilaði inn fyrir áramót skýrslu þar sem stöðu þessara svæða og áskorunum er lýst. Árni Finnsson hjá náttúruverndarsamtökum Íslands var formaður starfshópsins, og hann ætlar að ræða við okkur um helstu lykilþætti sem þarna komu fram, meðal annars hvað varðar mögulega fjölgun og stækkun friðlýstra svæða, þanþol svæðanna hvað varðar ágang, skipulag og umsjón - sem og fýsileika gjaldtöku. Svo veltum við fyrir okkur fjarkennslu og möguleikum hennar við Háskóla Íslands. Nú eru boðið upp á nokkur hundruð námskeið í fjarkennslu við skólann og áform um að fjölga þeim. Hólmfríður Árnadóttir, er verkefnisstýra fjarnáms við Háskóla Íslands. Hún ætlar að ræða þessi mál við okkur á eftir. Málfarsmínúta verður á sínum stað og svo kemur Edda Olgudóttir til okkar í sitt reglubundna vísindaspjall.

Árleg loftlagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna hófst í gær. Árni Finnsson formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands er á leiðinni, en hann hefur sótt þessar samkomur oft í gegnum tíðina. Hvaða væntingar hefur hann til þessa fundar - og hvað eigum við að vera að hlusta eftir? Þorsteinn Kári Jónsson, forstöðumaður sjálfbærni og samfélagstengsla hjá Marel: Marel hefur ásamt nokkrum íslenskum fyrirtækjum unnið með aðferðafræði sem sett er upp fyrir fyrirtæki sem vilja vinna sín loftslagslagmarkmið út frá vísindum Parísarsáttmálans og kallast Science Based Targets. Við fáum að forvitnast um hvernig svona vinna gagnast atvinnulífinu og samfélaginu öllu. Málfarsmínúta Við tökum svo neytendaspjall í lok þáttar, og ræðum við ritstjóra Neytendablaðsins, Brynhildi Pétursdóttur, um þau áform Svíþjóðar að reikna ?alla? neysludrifna losun inn í losunarbókhald landsins. Á Íslandi er það þannig að ef þú kaupir bíl, eða flík, eða hvaðeina sem er innflutt - eins og flest hér nú er - þá verður kolefniskostnaðurinn við framleiðsluna eftir í upprunalandinu. Þannig að mælingarnar taka í raun ekki fyllilega á allir neyslu okkar. Þetta hefur verið gagnrýnt, bent á að rík lönd axla í raun ekki fyllilega ábyrgð á neyslu sinni og því sé ekki gætt að loftlagsréttlæti. Kæmi til greina að breyta þessu hér á landi - og þar með neysluhegðun landans?

Heimildarmyndin Atomy er sýnd á RIFF, alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Reykjavík. Myndin fjallar um Brand Karlsson sem er frumkvöðull, listamaður og ötull baráttumaður fyrir réttindum fatlaðra en hann lamaðist af óþekktum ástæðum fyrir 10 árum og hefur verið bundinn við hjólastól síðan. Hann komst í samband við heilara í Nepal sem hét því að hjálpa honum að öðlast hreyfigetu og ganga aftur. Í heimildarmyndinni fáum við að fylgja Brandi til Nepal og fylgjast með meðferðinni og ferlinu. Við fengum þá Brand og Loga Hilmarsson leikstjóra myndarinnar til að segja okkur frá myndinni í þættinum. Hvað er sameiginlegt með höndum 1500 Íslendinga? Kl. 17:30 í dag fer fram fyrirlestur í Veröld, húsi Vigdísar um rannsóknina Hendur Íslands sem staðið hefur frá árinu 2016 og telur rúmlega 1500 þátttakendur og þ.a.l. skráningu á rúmlega 3000 höndum. Kynntar verða niðurstöður sem verkefnið hefur nú þegar leitt í ljós en markmiðið með verkefninu er að sjá hvað einkennir Íslendinga öðru fremur og hvort það megi lesa í persónuleika íslensku þjóðarinnar í gegnum hendur og lófa fólks. Við fengum Jönu Napoli, 76 ára samfélagsfrumkvöðul frá Bandaríkjunum, sem stendur að rannsókninni og Freyju Eilífu sem aðstoðar Jönu, til þess að segja okkur betur frá þessari rannsókn og íslenskum höndum. Annað kvöld verður í beinni útsendingu í sjónvarpinu söfnunarþáttur fyrir Rauða krossinn: Verum vinir. Sveinbjörn Finnsson er sjálfboðaliði í flóttamannaverkefni Rauða krossins og situr í stjórn Rauða krossins á höfuðborgarsvæðinu kom í þáttinn í dag. Hann sagði okkur frá þjónustunni sem flóttamönnum er veitt, hvernig hún gengur fyrir sig, hvers vegna hún skiptir máli og hvers vegna hann er sjálfboðaliði. Tónlist í þættinum í dag: Án þín / Sigríður Thorlacius og Heiðurspiltar (Jón Múli og Jónas Árnasynir) Án þín / Bubbi Morthens og Katrín Halldóra Sigurðardóttir (Bubbi Morthens) Heimþrá / Erla Þorsteinsdóttir (Freymóður Jóhannsson) Think it over / Ringo Starr (Buddy Holly & Norma Petty) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Elín Björk Jónasdóttir veðurfræðingur og Árni Finnsson formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands um loftslagsmál. Jón Steinar Gunnlaugsson hæstaréttarlögmaður og Helgi Gunnlaugsson prófessor í afbrotafræði um fíkniefnamál. Kristrún Frostadóttir alþingismaður um Samfylkinguna og formannsframboð. Hildur Björnsdóttir og Skúli Helgason borgarfulltrúar um leiðskolamál í Reykjavík.
Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon. Lögregla rannsakar tvö af stærstu fíkniefnamálum sem upp hafa komið hér á landi. Grunur leikur mörg hundruð milljóna peningaþvætti og sakborningar skipta tugum. Bjarni Pétur Jónsson tók saman. Rætt við Margeir Sveinsson, aðstoðaryfirlögregluþjón og Huldu Elsu Björgvinsdóttur, sviðsstjóra ákærusviðs. Bandarískt fyrirtæki hyggst byggja upp starfsemi á Akranesi og Grundartanga til að berjast gegn loftslagsbreytingum. Því getur fylgt mikil atvinnuuppbygging og breytingar á Akranesi segir Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri á Akranesi. Nokkrar vikur tekur að þjálfa úkraínska hermenn áður þeir geta beitt bandarískum eldflaugakerfum sem draga helmingi lengra en þau sem úkraínski herinn á fyrir. Þórgnýr Einar Albertsson tók saman. Viðskipti með hlutabréf í Ölgerð Egils Skallagrímssonar fara rólega af stað, eftir að fyrirtækið var skráð á aðalmarkað í Kauphöllinni í morgun. Verð hlutarins hefur sveiflast eilítið í kringum opnunarverðið, sem var um 10 krónur á hlut. Sigurður Kaiser tók saman og ræddi við Andra Þór Guðmundsson, forstjóra Ölgerðarinnar. Sérstakur Úkraínudagur var haldinn í Grenivíkurskóla í síðustu viku. Þar söfnuðust rúmar 400 þúsund krónur sem renna til neyðarsöfnunar Rauða krossins vegna stríðsins í Úkraínu. Amanda Guðrún Bjarnadóttir ræddi við Þorgeir Rúnar Finnsson skólastjóra Grenivíkursskóla. Færa á til og fresta á næsta ári opinberum verkefnum, sem nema um 9 milljörðum króna .Samkomulag virðist í höfn milli flokkanna á þingi en Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra ákvað að fresta frumvarpi sínu um útlendinga til haustsins til að liðka fyrir samningum um þingfrestun. ---------- Sóttvarnalæknir býst við að fleiri greinist með apabólu á næstu vikum. Tveir hafa þegar greinst og verða í einangrun næstu vikur, apabóla er ekki bráðsmitandi en smitast helst við nána og langvarandi snertingu. Hólmfríður Dagný Friðjónsdóttir ræddi við Þórólf Guðnason, sóttvarnalækni. Fólk með þroskahömlun á oft erfitt með að tala sínu máli og gerir sér jafnvel ekki alltaf grein fyrir því að þeir séu beittir ofbeldi eða vanvirðingu segir Árni Múli Jónasson framkvæmdastjóri Þroskahjálpar. Engin ástæða sé til að ætla að sögur af illri meðferð á stofnunum séu bara úr fortíðinni. Hafdís Helga Helgadóttir ræddi við Árna. Allt skal upp á borðið, segir Múte B. Egede formaður Landsstjórnar Grænlands, eftir að hafa skrifað undir yfirlýsingu með Mette Frederiksen forsætisráðherra Dana í Þórshöfn í Færeyjum. Koma á fót nefnd til að skoða samband Grænlands

Hrafnhildur Halldórsdóttir spjallar við Óskar Finnsson veitingamann um lífsstarfið, fjölskylduna ástríðuna fyrir matargerð, búsetu í Bretlandi og á Spáni og uppvextinum á Seyðisfirði. Hann ræddi veitingaflóru landsins, árin á Argentínu og því hvernig hann berst af miklu æðruleysi við banvænan sjúkdóm. Hann sagði frá hvernig hann tekst á við hvern dag með því að hugsa vel um heilsuna og matarræðið og hvernig honum líður best innan um vini og kunningja og fjölskyldunnar.

Ný ríkisstjórn Vinstri grænna, Framsóknar og Sjálfstæðisflokks var kynnt í gær og stjórnarsáttmáli gefinn út. Tveir nýjir ráðherrar eru í ríkisstjórninni; Willum Þór Þórsson sem verður heilbrigðisráðherra og Jón Gunnarsson sem verður dómsmálaráðherra hálft kjörtímabilið og þá tekur Guðrún Hafsteinsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins á Suðurlandi við. Jón kom til okkar og ræddi um helstu verkefnin framundan. Íbúar í Hrunamannahreppi hafa verið að lenda í vandræðum með tölvu- og símasamband. Ástæðan er þó ekki tæknilegs eðlis eða veðurfarsleg heldur hefur músagangur herjað á ljósleiðarakerfi í sveitarfélaginu. Við heyrðum í Jóni G. Valdimarssyni, sveitarstjóra, um músafaraldur sem virðist hafa víðtæk áhrif. Hugmyndir Vinstri grænna um miðhálendisþjóðgarð féllu í grýttan jarðveg hjá samstarfsflokkunum á síðasta kjörtímabili, eins og allir þekkja. Við kynningu nýs stjórnarsáttmála í gær kom í ljós að þó unnið verði áfram í átt að verndun á miðhálendinu hafi ríkisstjórnarflokkarnir ákveðið að taka tvö skref afturábak og endurskoða málið á kjörtímabilinu. Við fengum til okkar Árna Finnsson, formann Náttúruverndarsamtaka Íslands, til að segja okkur hvernig málefni hálendisins blasa við honum í upphafi þessa ríkisstjórnarsamstarfs. Upp úr klukkan átta komu fulltrúar stjórnarandstöðunnar í hljóðver, þau Andrés Ingi Jónsson þingmaður Pírata og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir formaður Viðreisnar og gáfu okkur sín viðbrögð við stjórnarsáttmálanum sem kynntur var af forsvarsmönnum ríkisstjórnarinnar í gær. Það er alltaf skemmtilegt að spá í jólabókaflóðið. Guðrún Sæmundsen, rithöfundur, tekur þátt í flóðinu með sálfræðitryllinum Rósa sem hún gefur út sjálf með aðstoð almennings - en hún fjármagnaði bókina í gegnum karolinafund. Og íþróttir helgarinnar voru á sínum stað. Eva Björk Benediktsdóttir íþróttafréttakona komtil okkar með fulla íþróttatösku af áhugaverðum molum. Tónlist: Bréfbátar - Karl Olgeirtríó Breaking the girl - RHCP Moth to a Flame - Weeknd & Swedish House Mafia You Oughta Know - Alanis Morissette Við gætum reynt - Magni og Ágústa Eva Supersonic Rockets Shits - Kinks Let Somebody Go - Coldplay

Ný ríkisstjórn og nýr stjórnarsáttmáli verða kynnt í lok næstu viku ef markmið formanna stjórnarflokkanna ganga eftir. Þetta segir Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins. Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir talaði við hann. Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri segir að ekki verði brugðist við áætluðum hallarekstri borgarinnar með niðurskurði og gjaldskrárhækkunum. Höskludur Kári Schram tók saman. Árni Finnsson, formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands segir að ræða Katrínar Jakobsdóttur, forsætisráðherra á Loftslagsþingi Sameinuðu þjóðanna í Glasgow í gær hafi verið þunn í roðinu. Alvarlegir ofbeldisglæpir hafa verið framdir í Tigray-héraði í Eþíópíu undanfarna mánuði, að sögn mannréttindastjóra Sameinuðu þjóðanna. Ár er liðið síðan stjórnarherinn var sendur þangað til að afvopna frelsishreyfingu héraðsins. Ásgeir Tómasson sagði frá. Hvorki Miðflokkurinn né Sósíalistaflokkur Íslands ná manni inn á þing samkvæmt nýjum þjóðarpúlsi Gallups. Píratar bæta við sig rúmum tveimur prósentustigum frá kosningum. Höskuldur Kári Schram tók saman. -------------- Katrín Jakobsdóttir Forsætisráðherra segir kórónuveirufaraldurinn hafa sýnt fram á bæði styrkleika og veikleika norræns samstarfs. Alexander Kristjánson sagði frá og talaði við hana. Umræður um varnarmál hafa verið áberandi á þingi Norðurlandaráðs í Kaupmannahöfn. Sigurður Ingi Jóhannsson samstarfsráðherra Norðulanda segir þau eiga þar vel heima. Jens Stoltenberg aðalframkvæmdastjóri Atlandshafsbandalagsins ávarpaði þingið og ræddi meðal annars um ógnir sem að steðja. Anna Kristín Jónsdóttir tók saman. Árið 2030 má reikna með því að um 5% eigna Lífeyrissjóðs verslunarmanna verði skilgreindar sem loftslagsvænar. Tómas Njáll Möller, yfirlögfræðingur sjóðsins segir að fjárfestingakostirnir þurfi að breytast, eigi sjóðurinn að verða grænni. Arnhildur Hálfdánardóttir talaði við hann. Hvergi í Evrópu er vændi eins umfangsmikið og á Spáni. Sósíalistaflokkur Spánar hefur nú heitið því að uppræta það. Jóhann Hlíðar Harðarson sagði frá. Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir. Tæknimaður: Markús Hjaltason

Það voru hrein forréttindi að fá að sitja með Óskari Finnssyni matreiðslumanni. Óskar glímir við krefjandi verkefni í lífinu og fór með okkur á allan skala tilfinninga. Óskar er sönn fyrirmynd í að njóta hvers dags - og smæla framan í heiminn.IG: helgijean & hjalmarorn110Takk fyrir að hlusta - Munið að subscribe'a.
Sjávarútvegsdagurinn er haldinn í Hörpu í dag. Yfirskrift dagsins í ár er: Vel í stakk búinn og vísar til þess að sjávarútvegur og fiskeldi komust nokkuð klakklaust í gegnum erfitt ár í fyrra og eru þess albúin að takast á við framtíðina. Meðal ræðumanna er Herra Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands. Við hringdum í Jónas Gest Jónasson meðeiganda Deloitte, sem er einn þeirra sem heldur ræðu, til að fá að vita það helsta og hvað á að ræða. Það styttist í 26. loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna sem hefst nú í lok október í Glasgow, Skotlandi. Sagt hefur verið að ráðstefnan verði úrslitastund fyrir heiminn og nauðsynlegt sé að árangur náist. Við hér í Morgun- og Síðdegisútvarpinu á Rás 2 ætlum því að nota tímann fram að ráðstefnunni til að draga fram hinar ýmsu hliðar á loftslagsumræðunni. Við byrjuðum á að fá til okkar Rafn Helgason, sérfræðing á sviði loftslagsmála hjá Umhverfisstofnun, og Árna Finnsson, formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands en Árni er reynslubolti þegar kemur að Loftslagsráðstefnum en Rafn er að fara í fyrsta skiptið. Kynfræðingurinn Sigga Dögg hefur undanfarin ár opnað umræðuna um kynlíf upp á gátt en hún setur unað, jafnrétti, húmor og jákvæðni í aðalhlutverk þegar kemur að kynlífi. Sigga Dögg kom til okkar og fór yfir þessi mál eins og henni einni er lagið. Ert þú með geðveikan mannauð, spyr Silja Björk Björnsdóttir í grein sem birtist bæði á Vísi og kaffið.is. Þar veltir hún því fyrir sér hvort starfsmaður með geðveikindi eigi ekki að fá sömu meðferð og t.d. starfsmaður með sykursýki eða frjókornaofnæmi. Hún segir sig ekki vera verri starfskraft þó hún sé þunglynd. Við fengum Silju Björk til okkar í hljóðverið fyrir norðan til þess að segja okkur betur frá þessu. Og Sævar Helgi Bragason kom til okkar í Vísindahornið í lok þáttar. Tónlist: Ásgeir Trausti - Leyndarmál The Eagles - Tequila sunrise Thin Jim & the Castaways - Confession Friðrik Dór - Hvílíkur dagur Land og synir - Von mín er sú A-ha - Crying in the rain Bjartmar og Bergrisarnir - Velkomin á bísann The Beatles - Lucy in the sky with diamonds Big country - Chance

Enn er hættustig á Seyðisfirði og í Kaldakinn í Þingeyjarsveit og búist við aukinni úrkomu á þessum svæðum í kvöld. Ekki voru allir íbúar skráðir í þeim húsum sem þurfti að rýma á Seyðisfirði. Kvensjúkdómalæknir sem stóð að rannsókn um tilkynntar aukaverkanir í tengslum við bólusetningu gegn Covid-19 óttast mest að umræðan um tengsl við bólusetningar komi í veg fyrir að konur fari til læknis. Erlendum ferðamönnum verður heimilt að koma til Indlands að nýju frá miðjum október. Landamærin hafa að mestu verið lokuð í hálft annað ár. Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra hefur kallað eftir kröfum um sanngirnisbætur fyrir misgjörðir á opinberum stofnunum fyrir fötluð börn. ---- Samkvæmt nýrri eldsneytisspá er ljóst að stjórnvöld þurfa að bretta upp ermar til að ná markmiðum sínum í loftslagsmálum. Í viðræðum stjórnarflokkanna, sem nú standa yfir, er ljóst að tekist er á um hvað leiðir á að fara á næstu árum. Kjörtímabili næstu ríkisstjórnar lýkur 2025 þegar langt verður liðið á tímabilið sem Parísarsamningurinn kveður á um. Landvernd, Náttúrverndarsamtök Íslands og Ungir umhverfissinnar segja í yfirlýsingu að ekkert bendi til þess að Ísland muni standa við skuldbindingar sínar gagnvart Parísarsamkomulaginu. Samtökin krefjast þess að ný ríkisstjórn girði sig í brók og leggi fram skýr tímasett og mælanleg markmið. Arnar Páll Haukson talar við Auði Önnu Magnúsardóttur og Árna Finnsson. Flokksþingi Íhaldsflokksins lauk í gær með hlátrasköllum undir hressilegri ræðu Borisar Johnsons forsætisráðherra og flokksleiðtoga. En forsætisráðherra nefndi hvorki vanda eins og vöru- og eldsneytisskort, né að einmitt í gær voru félagslegarbætur skertar. Bæði innan flokksins og utan velta menn fyrir sér hvort kjósendur meðtaki bjartsýnistal forsætisráðherra. Sigrún Davíðsdóttir segir frá.

Ingi Tryggvason formaður kjörstjórnar í Norðvesturkjördæmi: skipulag kosninga og talning atkvæða í þessu víðfeðma kjördæmi Sigríður Dögg Auðunsdóttir, ritstjóri kosningavöku RÚV: hvað gerist og hvernig á að gera það? Hjörleifur Finnsson gerði meistaraverkefni í haf og strandsvæðastjórnun um hnúðlax og greindi hvort hann væri vágestur eða velkominn. EInar Þorleifsson, hjá Náttúrustofu Norðurlands vestra: útlensk blóm vaxa á íslenskum ferðamannstöðum, svo virðist sem ferðamenn flytji með sér frjókorn frá heimalöndum sínum.

Þá er komið að níunda og síðasta þættinum í sumarþáttaröð Sagna af landi, þar sem flutt hafa verið valin innslög frá liðnum vetri fyrir ykkur hlustendur að njóta í sumar. Við rifjum fyrst upp frásögn Óskars Þráins Finnssonar á Ólafsfirði þegar hann segir frá slysi sem hann varð fyrir þegar hann starfaði sem vitavörður. Heyrum einnig sagnfræðinginn Jón Hjaltason segja frá akureyríska kímniskáldinu Káinn. Að lokum er rætt við Ólafíu Herborgu Jóhannsdóttur um merkilega sögu strandaða togarans Clyne Castle. Viðmælendur í þættinum voru Óskar Þráinn Finnsson, Jón Hjaltason og Ólafía Herborg Jóhannsdóttir. Efni í þáttinn unnu Gígja Hólmgeirsdóttir og Rúnar Snær Reynisson. Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir.

Flestir þekkja það að borða skötu á Þorláksmessu, en fæstir tengja skötuát við sumarið, nema kannski Ásmundur Friðriksson sem hefur undanfarin ár staðið fyrir skötumessu að sumri í þeim tilgangi að afla fjár til góðra málefna. Skötumessan í ár fer fram á morgun og við slógum á þráðinn til Ásmundar og forvitnuðumst aðeins um þessa óhefðbundnu skötuveislu. Hnúðlaxi hefur fjölgað í íslenskum ám undanfarin ár og þeir sem til þekkja segja að eiga megi von á enn meiri aukningu í ár. En hvað er hnúðlax og af hverju er hann ekki velkomin í árnar? Hjörleifur Finnsson ráðgjafi í umhverfisvernd hefur rannsakað stjórnun framandi tegunda á Íslandi út frá hnúðlaxinum og hann var á línunni hjá okkur að vestan og sagði okkur meira af stöðunni. Guðrún Bjarnadóttir hefur rekið jurtalitunar vinnustofuna Hespuhúsið um nokkurra ára skeið, fyrst í Borgarfirði og nú í Ölfusinu. Auk þess að lita garn og taka á móti gestum hefur hún fært út kvíarnar og gaf út jurtalitapúsl fyrir síðustu jól sem sló í gegn og nú hefur hún gefið út Flóruspilið. Við heyrum í Guðrúnu og forvitnumst um verkefni Hespuhússins. Í gær kom út grein í vefútgáfu vísindaritsins Nature Genetics þar sem vísindamenn Íslenskrar erfðagreiningar sýna hvernig 243 erfðabreytileikar, þar af 64 áður óþekktir, hafa áhrif á stærð barna við fæðingu, annars vegar í erfðamengi móður og hins vegar í gegnum erfðamengi fósturs. Tengsl fæðingarþyngdar við sjúkdóma hafa lengi verið þekkt en deilt hefur verið um hversu mikið þau tengjast erfðaþáttum einstaklingsins og að hversu miklu leyti þau tengjast aðstæðum fósturs á meðgöngu og þar með erfðaþáttum móður. Þau Kári Stefánsson og Valgerður Steinþórsdóttir frá Íslenskri erfðagreiningu komu til okkar og fræddu okkur um þetta mál. Íslenska sumarið hefur verið gott víða undanfarið, en því miður ekki alls staðar. Sigurður Þ. Ragnarsson, kallaður Siggi stormur frá því hann sinnti starfi veðurfréttamanns á Stöð2 fyrir nokkrum árum, var á línunni hjá okkur. Á Facebook síðu Sigga má sjá pælingar hans um ýmislegt sem tengist veðrinu. Við ræddum við hann þar sem hann er í Borgarfirðinum og spurðum hvort hann sér nokkuð í kortunum um að þau landssvæði sem hafi verið sumarsvelt hingað til fái líka að njóta? Tónlist: Hipsumhaps - Á hnjánum. Jet Black Joe og Sigríður Guðnadóttir - Freedom. E.L.O. - Dont bring me down. Unnsteinn Manuel - Lúser. Roxette - Sleeping in my car. Jón Jónsson - Gefðu allt sem þú átt. Stjórnin - Hleypum gleðinni inn. Sigurður Guðmundsson - Kartöflur. Police - Wrapped around your fingers.

Útlendingastofnun hefur svipt hóp palestínskra hælisleitenda, sem til stendur að endursenda til Grikklands, húsnæði og tekið af þeim fæðisgreiðslur. Sergey Lavrov utanríkisráðherra Rússlands kom til landsins síðdegis. Hann fundar í kvöld með utanríkisráðherra Bandaríkjanna Alþýðusamband Íslands hvetur landsmenn til að sniðganga flugfélagið Play og krefst þess að gerður verði raunverulegur kjarasamningur við flugfreyjur. Þetta kemur fram í ályktun miðstjórnar ASÍ í dag. Bandaríkjaforseti þrýstir á stjórnvöld í Ísrael að draga úr árásum á Gaza-svæðið með það að markmiði að koma á vopnhléi. Eldflaugum var skotið á Ísrael frá Líbanon í dag. Eldgosið við Fagradalsfjall hefur nú staðið yfir í tvo mánuði. Hraunflæðið hefur síðustu vikur verið tvöfalt meira en það var í upphafi. Það þarf að slaka á fasteignamarkaðinum, sem ber merki ofsa að mati Ásgeirs Jónssonar seðlabankastjóra. Peningastefnunefnd bankans ákvað í morgun að hækka stýrivexti um 0,25%. Það hækkar vexti á óverðtryggðum lánum með breytilegum vöxtum. Haukur Holm fréttamaður ræddi við seðlabankastjóra að afloknum blaðamannafundi í bankanum og spurði af hverju peningastefnunefndin hefði ákveðið að hækka vexti. Haukur Holm talaði við Ásgeir Jónsson seðlabaknastjóra. Formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands vonar að á ráðherrafundi Norðurskautsráðsins á morgun verði tekin ákvörðun um að bannað verði að nota svartolíu á norðurslóðum. Hann bindur vonir við að Ísland stuðli að því að í ráðherraályktun fundarins verði kafli um svartolíubann. Arnar Páll Hauksson ræddi við Árna Finnsson. Norðmenn ætla ekki að afglæpavæða minni skammta af eiturlyfjum. Erna Solberg forsætisráðherra lenti í minnihluta með frumvarp sitt í Stórþinginu. Miðað var við 5 grömm af sterkari efnum og 15 af hassi en þingmenn sögðu nei. Norski forsætisráðherra ætlar að gera málið að kosningamáli í haust og bæta við auknu frjálsræði í sölu á áfengi. Gísli Kristjánsson sagði frá.

MANNLEGI ÞÁTTURINN - MIÐVIKUDAGUR 18.NÓV 2020 UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR Elli - Dagur í lífi drengs með ADHD er ný íslensk barnabók gefin út af ADHD samtökunum. Hún er byggð á raunverulegum atburðum í lífi níu ára íslensks drengs sem er með ADHD. Megininntak bókarinnar er að gefa raunsanna innsýn í líf barna með ADHD og benda á að það er vel hægt að líta á ADHD með jákvæðum hætti. Við fengum til okkar í viðtal höfund bókarinnar, Ara H.G. Yates, og Elías Bjarnar Baldursson, sem er drengurinn sem deilir sögu sinni í bókinni, en hann er 15 ára í dag. Heilbrigðistækni af ýmsu tagi hefur tekið gríðarlegum framförum undanfarið ekki síst eftir að heimsfaraldurinn fór af stað. Á heilsuvaktinni í dag ræddi Bergljót Baldursdóttir við Hólmar Örn Finnsson persónuverndarfulltrúa embættis Landlæknis um hvað gott er að hafa í huga þegar fólki er boðið að nota smáforrit, fjarheilbrigðisþjónustu eða aðra heilbrigðistækni. Hann benti meðal annars á að heilbrigðisupplýsingar eru verðmæti. Á hverju ári berast um 120 tonn af ýmsum óæskilegum úrgangi í hreinsistöðvar Klettagarða og Ánanausta í Reykjavík. Það þýðir að hálft kíló af rusli fer í klósettin eða niðurföll á hvern íbúa á höfuðborgarsvæðinu! Þá er óupptalið hvað safnast í fráveitukerfi annars staðar á landinu. Stærsta vandamálið eru blautþurrkur og/eða sótthreinsiklútar, auk smokka, tannþráðar og eyrnapinna. Á morgun er alþjóðlegur dagur klósettsins og því tilefni til að minna á hvað má fara í klósettið og hvað ekki. Við ræddum við Hólmfríði Þorsteinsdóttur sérfræðing hjá Umhverfisstofnun.

Fiskeldi er viðspyrna atvinnulífsins á Austurlandi og Vestfjörðum. Þetta segir Einar K. Guðfinnsson hjá Samtökum fyrirtækja í svávarútvegi. Hann segir að fiskeldi hafi tekið miklum breytingum á undanförnum árum og greinin komi til með að þróast mikið á komandi árum. Einar K. Guðfinnson var gestur Karls Eskils Pálssonar í Landsbyggðum á N4.
Grindvíkingurinn Helgi Jónas var hálfgert undrabarn í körfubolta. Hann þótti á tímabili einn efnilegasti unglingur Evrópu og gerðar voru til hans miklar væntingar. Um tvítugt var hann kominn í atvinnumennsku þar sem hann sem hann bjóst við að upplifa drauma sína. Hið þveröfuga gerðist og andlegt fall blasti við Helga. Hann burðaðist með kvíða og depurð án þess að ræða það um árabil á meðan hann vann titla og hlaut verðlaun í íþrótt sinni með heimaliðinu Grindavík. Síðan hefur hann talað opinskátt um sína erfiðleika sem ættu að reynast ungu fólki mikil lexía. Helgi ræðir hér opinskátt um ástar- og stundum haturs samband sitt við körfuboltann. Hvernig hann hóf sína andlegu vegferð, hvernig hann sneri sér að líkamsrækt og stofnaði Metabolic sem nú á hug hans allan.
Þorbjörg Hafsteinsdóttir Ingveldardóttir sagði frá lífi sínu og starfi. Hún ólst upp í miðbæ reykjavíkur en flutti til Danmerkur 19 ára gömul. Hún hefur búið þar og starfað í yfir 40 ár en Þorbjörg á þrjár dætur sem allar búa í Danmörku. Hún sagði frá lífi sínu þar, ferðalögum á framandi slóðir, áhuganum á næringu og heilsu og starfinu sínu í því fagi. Hún hefur gefið út fjölmargar bækur og í dag býr hún bæði hér á landi og í Danmörku heldur námskeið og fyrirlestra, skrifar bækur og hjálpar fólki að ná betri heilsu. Einar Torfi Finnsson leiðsögumaður sagði frá uppvextinum í Kópavogi, gönguskíðamennsku, björgunarsveitarstörfum og starfi sínu sem leiðsögumaður. Hann sagði frá fjölskyldunni og áhugamálunum sem eru tengd útivist.

Vit práta við Jóhannes Finnsson, ið saman við konu síni Kristianu úr USA er trúboðari í Dar es Salaam í Tansania. Tey eiga tvey ára gamla sonin, Dánjal Óla.Jóhannes arbeiðir sum tónleikalærari á HOPAC (Haven of Peace Academy), ið er ein altjóða skúli við næmingum bæði úr Tansania og børnum hjá trúboðarum í landinum. Kristiana hevur útbúgvið seg innan mentanir og mentanarmunir og arbeiðir við fólkum við rørslutarni.Jóhannes greiðir frá, hví tey eru farin allan vegin til Tansania í missiónstænastu, hvat tey fáast við, um landið, mál og mentan, og um avbjóðingar og gleðir í gerandisdegnum.
Í síðasta þætti Loftslagsþerapíunnar skoðum við pólitíkina í kringum loftslagsmálin og spyrjum okkur hvort hún sé hluti af lausninni eða standi í vegi fyrir henni. Við fikrum okkur fram og til baka frá grasrótinni að Parísarsamkomulaginu og leitum lausna, alls staðar á öllum tímum sólarhringsins. Það er eðlilegt að festast í ómöguleikanum þegar kemur að loftslagsmálunum, en lausnirnar eru til, í alvöru. Meðal viðmælenda í þættinum eru Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, Unnur Brá Konráðsdóttir og Eggert Benedikt Guðmundsson, sem saman leiða samstarfsvettvang stjórnvalda og atvinnulífs í loftslagsmálum, Auður H. Ingólfsdóttir, alþjóðastjórnmálafræðingur, Halldór Þorgeirsson, formaður loftslagsráðs stjórnvalda, meðlimir í grasrótarhópi Landverndar, Justine Vanhalst, sameindalíffræðingur, Vigdís Hauksdóttir, borgarfulltrúi Miðflokksins, Árni Finnsson, formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands og Geirharður Þorsteinsston, talsmaður Extinction Rebellion á Íslandi. Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir.

Í síðasta þætti Loftslagsþerapíunnar skoðum við pólitíkina í kringum loftslagsmálin og spyrjum okkur hvort hún sé hluti af lausninni eða standi í vegi fyrir henni. Við fikrum okkur frá grasrótinni og að Parísarsamkomulaginu og leitum lausna, alls staðar á öllum tímum sólarhringsins. Það er eðlilegt að festast í ómöguleikanum þegar kemur að loftslagsmálunum, en lausnirnar eru til, í alvöru! Meðal viðmælenda í þættinum eru Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, Unnur Brá Konráðsdóttir og Eggert Benedikt Guðmundsson, sem saman leiða samstarfsvettvang stjórnvalda og atvinnulífs í loftslagsmálum, Auður H. Ingólfsdóttir, alþjóðastjórnmálafræðingur, Halldór Þorgeirsson, formaður loftslagsráðs stjórnvalda, meðlimir í grasrótarhópi Landverndar, Justine Vanhalst, sameindalíffræðingur, Vigdís Hauksdóttir, borgarfulltrúi Miðflokksins, Árni Finnsson, formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands og Geirharður Þorsteinsston, talsmaður Extinction Rebellion á Íslandi. Á næstunni verða lengri útgáfur viðtala og ítarefni sem ekki komst að í þáttunum sett inn á hlaðvarpið, viðtalið við Katrínu Jakobsdóttur þar á meðal.

Würden Sie Ihr größtes Geheimnis auf einen Zettel schreiben und es einem Unbekannten schicken – ohne genau zu wissen, was der anschließend damit anstellt?
Alfreð Örn Finnsson var vígður sem prestur nú í september og tekur við í Austfjarðaprestakalli í nóvemberbyrjun. Hann er þegar kominn austur og sér nú um fermingarfræðslu á Eiðum. Alfreð var lengi í handbolta, spilaði og þjálfaði hér heima og í Noregi og verið hjá HSÍ undanfarin ár. Hann var á línunni. 28 ára gamall franskur maður sem lamaðist fyrir fjórum árum gengur nú á ný með hjálp stoðgrindar sem hann stýrir með heilabylgjum. Frá þessu greinir læknatímaritið Lancet og að í fyrsta sinn hafi tekst að virkja heilabylgjurnar með þessum hætti. En stjórnum við tækninni eða mun hún á endanum stjórna okkur? Úlfhildur Dagsdóttir, rithöfundur og bókmenntafræðingur, hefur rýnt í þessa tækni í gegnum árin og er gestur Morgunútvarpsins. Bandaríska fimleikadrottningin Simone Biles hefur farið á kostum í forkeppninni á HM í áhaldafimleikum í Stuttgart. Hún hefur fengið tvö stökk nefnd eftir sér sem þykja engu lík og við ætlum að slá á þráðinn til Sólveigar Jónsdóttur, framkvæmdastjóra fimleikasambandsins, sem stödd er í Stuttgart og forvitnast um Simone Biles. Það vakti athygli í síðustu viku þegar greint var frá nýrri rannsókn sem leiðir í ljós að Ísland er þriðja besta landið á jörðinni til að gera að athvarfi fyrir mannkynið ef þess gerist þörf í næsta heimsfaraldri. Þar er lagt til að eyríki verði gert að athvarfi ef þörf verður á og ísland skoraði hátt vegna staðsetningar og náttúruauðlinda. Þórólfur Guðnason, sóttvarnarlæknir, kom til okkar. Við fórum yfir íþróttir helgarinnar.

Róbert Guðfinnsson athafnamaður og frumkvöðull á Siglufirði er gestur Karls Eskils Pálssonar í Landsbyggðum. Róbert hefur byggt upp öfluga ferðaþjónustu á Siglufirði og líftæknifyrirtækið Genís.
Þröstur Friðfinnsson er gestur Karls Eskils Pálssonar í Landsbyggðum.
Óskar Finnsson er meðal fremstu veitingamanna á Íslandi og rak fyrsta alvöru steikhús landsins, Argentínu. Óskar hefur ástríðu fyrir matargerð og hefur starfað við hana víðsvegar um heiminn.
Sala Íslandsbanka til erlends banka er meðal tillagna í hvítbók um framtíðarsýn fyrir fjármálakerfið sem kynnt var í dag, einnig að varnarlína verði lögð svo bankakerfið geti ekki þanist út óhindrað. Birgir Þór Harðarson segir frá. Álagið á Landspítalanum er Ölmu Möller landlækni áhyggjuefni, hún segir það sé stjórnvalda að greiða úr það vanti bæði starfsfólk á spítalann og hjúkrunarheimili. Kristín Sigurðardóttir ræðir við Ölmu. Helga Þórisdótir, forstjóri Persónuverndar segir eðlilegt að stofnunin taki afstöðu til Klaustur-upptökunnar. Fjórir þingmenn Miðflokksins, sem sátu á Klausturbar hafa ráðið sér lögmann sem sendi Persónuvernd erindi um upptökuna. Hólmfríður Dagný Friðjónsdóttir ræddi við Helgu. Meirihluti samgöngunefndar Alþingis ætlar að leggja til að veggjöld verði tekin upp um allt land og fjármagnið verði notað til vegagerðar. Þingmaður Pírata segir að það að ætla að keyra þetta í gegnum þingið þegar vika er eftir af þingstörfum sé merki um fljótfærni. Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir ræddi við Jón Gunnarsson (D) formann samgöngunefndar og Björn Leví Gunnarsson (P). Sveitarfélagið Norðurþing veitti hvalaskoðunarfyrirtækinu Norðursiglingu vaxtalaust og óverðtryggt lán fyrir vangoldnum farþegagjöldum. . Guðbjartur Ellert Jónsson sveitarstjórnarfulltrúi, sem var áður framkvæmdastjóri fyrirtækisins, telur að sveitarfélagið tapi á öðrum tug milljóna króna vegna þessa. Jón Þór Kristjánsson, ræðir við ------ Forsætisráðherra Bretlands frestaði í dag Brexit-atkvæðagreiðslu sem ráðgerð var í breska þinginu á morgun. Fyrirsjáanlegt var að samningurinn hefði verið felldur. Theresa May forsætisráðherra skipti um skoðun sólarhring fyrir atkvæðagreiðsluna en þvertók fram á síðustu stundu fyrir að henni yrði frestað. Sigrún Davíðsdóttir segir frá og heyrist í Theresu May. Brottreknir þingmenn Flokks fólksins fá ekkert af framlögum ríkisins til flokksins. Hins vegar fá þeir rúma milljón hvor árlega í sérfræðiaðstoð. Arnar Páll Hauksson segir frá. Bandaríkin vinna markvisst gegn því að árangur náist á loftslagsráðstefnunni í Póllandi segir Árni Finnsson, formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands sem er nýkominn þaðan. Bandaríkin, Rússland og Sádi Arabía komu í veg fyrir að svört skýrsla vísindanefndar Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytinar fengi þar hljómgrunn. Vonast er til að á ráðstefnunni verði hægt að breyta fyrirheitum sem gefin voru á loftslagsráðstefnunni í París fyrir þremur árum í áþreifanlegar aðgerðir. Bergljót Baldursdóttir ræðir við Árna Finnsson. Umsjónarmaður: Anna Kristín Jónsdóttir. Tækni
Jónas Sigurðsson hefur verið einn vinsælasti og mest áberandi tónlistarmaður landsins undanfarinn áratug. Hann hefur átt fjölmara smelli hérna hjá okkur í útvarpinu og nýjasta platan hans; Milda Hjartað, er fjórða breiðskífan sem hann sendi frá sér. Fyrsta platan; Þar sem malbikið svífur mun ég dansa, kom út 2007, Allt er eitthvað 2010, og Þar sem himin ber við haf 2012. Allt eru þetta stórfínar plötur, og sú nýja er þar ekki undanskilin. Eins og alltaf er Jónas með topp mannskap með sér á plötunni; Arnar Gíslason á trommur, Guðni Finnsson á bassa, Ómar Guðjónsson á gítar og Tómas Jónsson á píanó. Stjórn upptöku og upptaka var í höndum Ómars Guðjónssonar, Bassa Ólafssonar og Jónasar, en hljóðblöndun gerðu þeir Árni Bergmann Jóhannsson í Klitmøller í Danmörku og Guðmundur Kristinn Jónsson. Fyrsta lagið af plötunni sem Jónas sleppti út í heiminn heitir Dansiði, og það fór á dögunum í toppsæti vinsældalista Rásar 2. Jónas er gestur Rokklands að þessu sinni og segir frá plötunni og pælingunum á bakvið hana. Mark Knopfler fyrrum leiðtogi Dire Straits var líka að senda frá sér plötu. Hún heitir Down the road Wherever og er níunda sólóplatan hans. Mark á sjálfur útgáfufyrirtækið sem gefur út. Það heitir Grove og Universal/Virgin EMI dreyfir. Platan kom út á CD, deluxe CD, 2LP og í lúxus pakkningu, en þar er bæði vinill og deluxe CD, og líka fjögurra laga vinyl EP með aukalögum og fleira dót. Sumir láta sér Spotify duga en aðrir vilaj allan pakkann, allt sem hægt er að fá. Við heyrum lög af plötunni hans Mark í þættinum og líka lög af nýrri jólaplötu frá Eric Clapton.

Það eru tímamót framundan í stjórnmálalífi Þýskalands. Angela Merkel, sem verið hefur kanslari frá 2005 og leitt Kristilega demókrata síðustu 18 árum, er að búa sig og þjóðina undir breytingar. Hún lætur af flokksformennsku í desember en vill gegna kanslaraembættinu til 2021 en ekki er víst að það gangi eftir. Það hefur hægt og bítandi fjarað undan þessum áhrifaríka leiðtoga, nú síðast töpuðu Kristilegir í fylkiskosningum í Hessen. Arthúr Björgvin Bollason ræddi stjórnmálin í Þýskalandi og kynnti til sögunnar þá sem helst eru nefndir sem hugsanlegir formannskandídatar. Við heyrum líka að deilu um uppruna karrípylsunnar, eða currywurst, sem kalla má þjóðarrétt Þjóðverja. - Loftslagsmálin eru stærsta viðfangsefni stjórnmála þessarar aldar. Það þarf að draga úr útblæstri svo um munar. Íslensk stjórnvöld boða aðgerðir; meðal annars megum við ekki kaupa nýja dísil- og bensínbíla eftir 2030. En hver er hlutur bíla í heildarlosun í heiminum? Árni Finnsson, formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands, ræddi losunarmálin og sagði að hér væri miklvægast að draga úr losun frá bilum en líka hætta offramleiðslu á kjöti. - Eftir 8-fréttirnar fóru umsjónarmenn yfir nokkrar heimsfréttir og rifjuð var upp kvikmyndin Brokeback mountain og leikið lag úr myndinni. - Húsnæðisþing fer fram í dag. Að því standa Íbúðalánasjóður og velferðarráðuneytið og yfirskriftin er “Húsnæði fyrir alla,“ sem er nú ekki raunin. Fjallað verður um húsnæðismál og stöðu þeirra frá ólíkum sjónarhornum og kynnir ráðherra húsnæðismála skýrslu um stöðu og þróun. Sérstöku ljósi verður brugðið á leigumarkaðinn og meðal annars kynnt ný könnun á viðhorfum leigjenda, og rannsókn á húsnæðisaðstæðum erlends verkafólks í Reykjavík. Una Jónsdóttir hjá Íbúðalánasjóði og Svandís Nína Jónsdóttir hjá Reykjavíkurakademíunni ræddu húsnæðismálin. - Tónlist: Emmylou Harris - A love that will never grow old.
This week's episode is a special LIVE panel discussion from the IntraFish Seafood Investor Forum in Reykjavik in early October. Listen in while Editorial Director Drew Cherry discusses the opportunities and challenges facing Iceland's burgeoning salmon farming industry. Panelists included: Grétar Finnsson, CFO, Laxar Fiskeldi; Gudmundur Gislason, CEO, Ice Fish Farm; Kristian Mattiasson, CEO, Arnarlax; Stein Ove Tveiten, CEO, Arctic Fish; and Rögnvaldur Gudmundsson , CEO, AkvaFuture.
Við byrjuðum í Þýskalandi þennan miðvikudaginn. Arthúr Björgvin Bollason í Berlín sagði frá viðleitni Angelu Merkel Þýskalandskanslara til að miðla málum í Sýrlandsdeilunni. Merkel er sögð hafa hug á að nýta samband sitt við Pútín til að finna lausn á þessari erfiðu deilu. Hún er eins og Katrín Jakobsdóttir hér heima ekki eindregin í stuðningi við hernaðaraðgerðir Bandaríkjamenn, Breta og Frakka. - Íslendingar eru enn fjarri því að ná markmiðum Parísarsamkomulagsins í loftslagsmálum. Lítið hefur miðað á síðustu árum, tíminn hefur ekki verið nýttur vel. Nú er beðið aðgerðaáætlunar nýrrar ríkisstjórnar. Fleiri umhverfismál valda áhyggjum, ekki síst mengun í hafinu. Árni Finnsson, formaður Náttúruverndarsamtaka íslands, ræddi þessi mál en brást fyrst við fréttum af því að hvalveiðar hefjist að nýju í sumar.- Shinzo Abe, forsætisráðherra Japans, er í opinberri heimsókn í Bandaríkjunum og fundaði með Trump Bandaríkjaforseta í gær. En heima fyrir á Abe í miklum erfiðleikum, þar sem hann og ekki síst eiginkona hans hafa verið bendluð við lífseig spillingarmál. Er nú jafnvel talið að forsætisráðherrann endist ekki út kjörtímabilið. Vera Illugadóttir sagði frá þessu. - Flutt var lagið I´m through with love, fyrst söng Marilyn Monroe það að hluta en síðan lék Keith Jarrett sína útfærslu á píanó. - Eiríkur Björn Björgvinsson hættir sem bæjarstjóri Akureyrar í vor. Hann var ráðinn sem ópólitískur bæjarstjóri fyrir átta árum og leit að yfir farinn veg með Sunnu Valgerðardóttur og rýndi í spilin fyrir komandi kosningar.
Danska ríkisstjórnin kynnir á morgun áætlun sem ætlað er að draga úr afbrotum í vandræðahverfum í borgum og bæjum, svonefndum gettóum. Áætlunin gerir ráð fyrir að refsingar fyrir brot sem framin eru í slíkum hverfum verði tvöfaldar, miðað við samskonar brot í öðrum hverfum. Lagasérfræðingar segja slíkar hugmyndir brot á lögum um jafnrétti. Borgþór Arngrímsson sagði frá þessu, yfirvofandi verkfalli opinberra starfsmanna og mynd um ævi John Mogensen, sem söng lag sitt Der er noget galt i Danmark. Það er ekki sjálfgefið að búa við lýðræði og mannréttindi. Ríkjum sem hægt er að tengja við lýðræðislega stjórnarhætti og virðingu fyrir mannréttindum hefur fækkað. Afturför hefur orðið í ýmsu sem varðar frelsi og réttindi þegnanna mjög víða. Uppgangur öfgahreyfinga vekur mönnum ugg. Herdís Kjerúlf Þorgeirsdóttir, lögmaður og fyrsti varaforseti Feneyjanefndarinnar, ræddi baráttuna fyrir mannréttindum og lýðræði. Hún segir mikilvægt að skilja fremur en að fordæma. 32 ár eru í dag síðan Olof Palme, forsætisráðherra Svíþjóðar, var skotinn til bana á götu í miðborg Stokkhólms. Samkvæmt nýrri rannsókn sænsks fréttaskýringaþáttar voru alvarlegir gallar á upphaflegri rannsókn lögreglunnar, og lögreglumenn jafnvel beitt brögðum til að fella ógæfumanninn Christer Pettersson, sem var dæmdur fyrir morðið og síðar sýknaður. Vera Illugadóttir sagði frá málinu. Við heyrðum í Olof Palme og líka brot af samtali lögreglumanns við hugsanlegt vitni. The Modern Jazz Quartet flutti lagið Come rain or come shine. Húsnæðisúrræði fyrir fólk með fjölþættan vanda hafa verið til umræðu á Akureyri að undanförnu. Bæjaryfirvöld vilja byggja smáhýsi fyrir hóp fólks sem þrífst illa í fjölbýlishúsum, en hefur gengið erfiðlega að finna þeim stað. Íbúar í einu hverfinu mótmæltu byggingaráformum, sögðu að óreglufólk ætti ekki að vera innan um barnafjölskyldur. Jón Þór Kristjánsson ræddi málið við Jón Hróa Finnsson, sviðsstjóra búsetusviðs Akureyrarbæjar, og Kristján Jósteinsson, félagsráðgjafa hjá Starfsendurhæfingu Norðurlands.