Podcasts about silja b

  • 18PODCASTS
  • 82EPISODES
  • 1h 33mAVG DURATION
  • 1MONTHLY NEW EPISODE
  • Apr 4, 2025LATEST

POPULARITY

20192020202120222023202420252026

Best podcasts about silja b

Latest podcast episodes about silja b

Mannlegi þátturinn
Silja Bára föstudagsgestur og matvöruverslanir erlendis í matarspjallinu

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Apr 4, 2025 52:52

Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Silja Bára R. Ómarsdóttir, nýkjörinn rektor Háskóla Íslands. Silja á langan akademískan feril að baki í stjórnmálafræði og alþjóðastjórnmálum. Flestir þekkja hana sem sérfræðing í bandarískum stjórnmálum og alþjóðamálum og er hún tíður gestur í fjölmiðlum fyrir kosningar úti í heimi. Silja tók BA próf og MA gráðu í Bandaríkjunum en þegar hún var í doktorsnámi í Californiu gerðist alvarlegt atvik í hennar lífi sem hafði mikil áhrif á hana og varð til þess að hún flutti til Íslands og seinkaði doktorsgráðunni sem hún tók þó síðar á Írlandi. Silja sagði okkur frá því og öðru sem hefur mótað hana eins og uppvextinum í Ólafsfirði, bókum sem hún las í æsku og kennslu sem hún segist hafa mikla ánægju af. Hún sagði okkur líka hvernig hún vill sjá Háskóla Íslands fyrir sér sem næsti rektor, en hún tekur við embættinu 1.júlí næstkomandi. Svo var það matarspjallið, Sigurlaug Margrét var stödd við landamæri Spánar og Frakklands og hún ákvað því að tala um matvöruverslanir þar og erlendis yfir höfuð. Á ferðalögum getur verið mjög gaman og að minnsta kosti áhugavert að fara í matvöruverslanir og sjá aðrar vörur en við erum vön hér úti í búð. Sem sagt matvöruverslanir erlendis í matarspjalli dagsins. Tónlist í þættinum í dag: Heim í Búðardal / Ðe lónlí bú bojs (Gunnar Þórðarson, texti Þorsteinn Eggertsson) Purple Rain / Prince (Prince) Just a Girl / No Doubt (Gwen Stefani & Tom Dumont) UMSJÓN HELGA ARNARDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

FM957
Brennslan - 18. mars 2025

FM957

Play Episode Listen Later Mar 18, 2025 64:11

Rikki G sem rektor Háskóla Íslands? Silja Bára í spjalli og Tómas Steindórsson útskýrir fjarveru sína úr stórafmæli Rikka G. Þetta og meira til í Brennslu dagsins.

mars steind silja b
Rauða borðið
Rauða borðið 10. mars: Ríkisútvarpið, rektorskjör, blaðamannaverðlaun, rödd almennings og kukl

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Mar 10, 2025 224:33

Rauða borðið mánudaginn 10. mars 2025 Ríkisútvarpið, rektorskjör, blaðamannaverðlaun, rödd almennings og kukl verður á dagskrá Samstöðvarinnar í kvöld. Við hefjum leik við Rauða borðið með þeim Ragnari Sigurði Kristjánssyni, hagfræðingi hjá Viðskiptaráði og Stefáni Eiríksson útvarpsstjóra. Á RÚV að víkja af auglýsingamarkaði? Er Rúv bleiki fíllinn sem er að lama einkarekna fjölmiðlun í landinu? Björn Þorláks stýrir umræðunni. Gunnar Smári Egilsson ræðir við Silju Báru R. Ómarsdóttur prófessor í stjórnmálafræði, sem hefur boðið sig fram til rektors Háskólans. Háskólinn er á margskonar tímamótum, hvernig vill Silja Bára að brugðist verði við? Við heyrum raddir fólksins í landinu. Oddný Eir Ævarsdóttir ræðir við fólk á förnum vegi um varnarmál Íslendinga og utanríkismál. Þá ber tugþraut einnig á góma. Sunna Kristín Hilmarsdóttir, sem stýrir dómnefnd um blaðamannaverðlaun, ræðir verðlaunin ásamt blaðamönnunum Maríu Lilju, Oddnýju Eir Ævarsdóttur og Birni Þorláks. Afhending verðlaunanna fer fram á miðvikudag. Og María Lilja endar þáttinn með samræðu um kukl við Guðrúnu Tinnu Thorlacius. Þær ræða hulduheima og talnaspeki og spá í tarotspil.

Stundin
Út fyrir boxið #1: Bandaríski fasisminn hefur áhrif á Ísland

Stundin

Play Episode Listen Later Nov 4, 2024

Á sama tíma og einræðisríki rísa upp eiga Íslendingar varnir sínar undir Bandaríkjunum, þar sem stór hluti þjóðarinnar styður stefnu sem líkist sífellt meir fasisma. Silja Bára Ómarsdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur ræðir um fallvaltleika lýðræðisins í Bandaríkjunum og hvernig Íslendingar geta brugðist við hættulegri heimi.

Vikulokin
Silja Bára Ómarsdóttir, Friðrik Jónsson, Þórir Jónsson Hraundal

Vikulokin

Play Episode Listen Later Oct 5, 2024 57:50

Gestir Vikulokanna voru þau Silja Bára Ómarsdóttir, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, Þórir Jónsson Hraundal, lektor í Mið-Austurlandafræðum við Háskóla Íslands, og Friðrik Jónsson, sendiherra í Varsjá og fyrrverandi hermálafulltrúi Íslands hjá NATO. Þau ræddu stöðuna fyrir botni Miðjarðarhafs, forsetakosningar í Bandaríkjunum og innrás Rússa í Úkraínu. Umsjónarmaður: Alma Ómarsdóttir Tæknimaður: Kári Guðmundsson

nato gu bandar umsj silja b hraundal
Samfélagið
Kappræður forsetaframbjóðenda í Bandaríkjunum, ævintýraleiðangur með ísbrjótnum RV Polarstern

Samfélagið

Play Episode Listen Later Sep 10, 2024 30:03

Í kvöld mætast þau Kamala Harris og Donald Trump, forsetaframbjóðendur í Bandaríkjunum, í sjónvarpskappræðum. Þetta verður í fyrsta og líklega eina skiptið sem þau mætast í aðdraganda forsetakosninganna í nóvember. Silja Bára Ómarsdóttir, prófessor í stjórnmálafræði, ætlar að setjast hjá okkur og fara yfir stöðuna fyrir kappræðurnar. Áki Jarl Láruson, stofnerfðafræðingur á Hafró, fór í sumar í ógleymanlegan vísindaleiðangur upp að 80. breiddargráðu með þýska ísbrjótnum Pólstjörnunni, RV Polarstern. Skipið var hlaðið sérhæfðum búnaði til að rannsaka sjávarbotninn og alþjóðlegt teymi vísindamanna vann á vöktum allan sólarhringinn við að rannsaka sæköngulær og fleira forvitnilegt sem kafbátar og botnsleðar drógu úr kafinu. Samfélagið var í styttri kantinum vegna beinnar útsendingar frá þingsetningu.

Bylgjan
Sprengisandur 30.06.2024 - Viðtöl þáttarins

Bylgjan

Play Episode Listen Later Jun 30, 2024 96:01

Kristján Kristjánsson stýrir kraftmikilli umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Eiríkur Bergmann prófessor við Háskólann á Bifröst um stjórnmál. Einar Þorsteinsson borgarstjóri í Reykjavík um húsnæðismál. Marinó G. Njálsson um efnahagsmál. Friðjón Friðjónsson ráðgjafi og Silja Bára Ómarsdóttir prófessor um Bandarókin.

Vikulokin
Silja Bára Ómarsdóttir, Jóhannes Þór Skúlason og Ásrún Kristinsdóttir

Vikulokin

Play Episode Listen Later Jun 29, 2024 57:45

Gestir Vikulokanna eru Silja Bára Ómarsdóttir prófessor í stjórnmálafræði og formaður Rauða krossins, Ásrún Helga Kristinsdóttir forseti bæjarstjórnar Grindavíkur og bæjarfulltrúi fyrir Framsóknarflokkinn og Jóhannes Þór Skúlason framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar. Þau ræddu meðal annars forsetakappræður í Bandaríkjunum, stöðuna í Grindavík og ferðaþjónstunni. Umsjónarmaður: Hólmfríður Dagný Friðjónsdóttir Tæknimaður: Jón Þór Helgason

Þú veist betur
Bandaríkin - Fyrri hluti

Þú veist betur

Play Episode Listen Later Mar 24, 2024 53:48

Ég sver að það var ekki endilega viljandi, en eftir smá pásu frá löndum heimsins með þætti um hjólaskautaat, höldum við áfram og virðumst nánast fara í stafrófsröð. Balkanskagi til Bandaríkjanna. Enda var vopnahléssamningur varðandi Bosníu undirritaður í Daytona í Ohio, svo tengingin er augljós. Eða hvað? Þetta land sem er svo nátengt Íslandi, hafði mikil áhrif á efnahag þjóðarinnar í seinni heimsstyrjöldinni og auðvitað menningu landsins fram eftir 20.öld og til dagsins í dag. Sama hvaða skoðun við höfum á þessu heimsveldi er ekki hægt að neita því að Bandaríkin hafa haft gríðarleg áhrif á stöðu heimsins í dag, það eru forsetakosningar vestanhafs í ár og oft líður manni eins og það muni svo skera úr um hvernig heimurinn muni þróast til framtíðar. En hvað vitum við um Bandaríkin, af hverju eru þau eins og þau eru? Það er ærið verkefni að útskýra en í næstu tveim þáttum ætlum við Silja Bára Ómarsdóttir að gera heiðarlega tilraun til að fara yfir sögu þess, stærstu atburði, núverandi ástand og hugleiðingum um framtíðina.

Vikulokin
Silja Bára, Drífa Snædal og Birna Þórarinsdóttir

Vikulokin

Play Episode Listen Later Feb 24, 2024 57:47

Gestir Vikulokanna eru Silja Bára Ómarsdóttir prófessor í stjórnmálafræði og formaður Rauða krossins á Íslandi, Drífa Snædal talskona Stígamóta og Birna Þórarinsdóttir framkvæmdastjóri Unicef á Íslandi. Þær ræddu útlendingamál, stöðuna í Úkraínu og á Gaza, forsetakosningarnar í Bandaríkjunum og kjaraviðræður. Umsjón: Höskuldur Kári Schram Tæknimaður: Kári Guðmundsson

Morgunvaktin
Líkur á að vopnahlé verði framlengt um nokkra daga

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Nov 27, 2023 130:00

Silja Bára R. Ómarsdóttir, prófessor í alþjóðasamskiptum við Háskóla Íslands og formaður Rauða krossins á Íslandi, var gestur Morgunvaktarinnar. Hún ræddi um vopnahléið á Gaza, sem á að óbreyttu að ljúka í dag en vonir standa til þess að það framlengist um einhverja daga með áframhaldandi lausn gísla. Ísraelsk stjórnvöld hafa hins vegar heitið því að halda áfram árásum sínum um leið og vopnahléinu lýkur. Björn Malmquist, fréttamaður í Brussel, var með okkur. Hann ræddi um fund utanríkisráðherra Atlantshafsbandalagsins næstu daga, um kosningar í Hollandi og svo ræddi hann við Sigríði Mogensen hjá Samtökum iðnaðarins. Sigríður verður formaður ráðgjafanefndar EFTA/EES frá áramótum, en þar sitja fulltrúar atvinnulífs og verkalýðssamtaka. Stórfyrirtækið Marel hefur verið í fréttunum að undanförnu. Fyrst var það reksturinn; hann var ekki nógu ábatasamur, svo voru það skuldavandræði forstjórans og í síðustu viku; viljayfirlýsing um yfirtöku. Við spjölluðum um Marel, ekki þó um áðurnefnt heldur um stofnun fyrirtækisins og söguna fyrstu fimmtán árin. Þessu hefur verið líkt við ævintýri. Gunnar Þór Bjarnason skrifaði bók um stofnun og fyrstu ár fyrirtækisins, og hann kom á Morgunvaktina. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir. Spilverk þjóðanna - Lazy Daisy. Joel, Billy - New York state of mind. Goodman, Benny, Auld, Georgie, Goodman, Benny and his Sextet, Jones, Jo, Basie, Count, Christian, Charlie, Williams, Cootie, Bernstein, Artie - On the alamo.

Morgunvaktin
Líkur á að vopnahlé verði framlengt um nokkra daga

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Nov 27, 2023

Spegillinn
Þjóðaröryggi og ungmennabúðum skellt í lás

Spegillinn

Play Episode Listen Later Mar 22, 2023

Stýrivaxtahækkun Seðlabankans var harðlega gagnrýnd á Alþingi í dag. Ríkisstjórnin þurfi að bregðast við. Umboðsmaður skuldara telur blikur á lofti og ástæða sé til að hafa áhyggjur af þeim sem skulda mikið. Boris Johnson segir að það hefði verið ómögulegt að virða samkomutakmarkanir í Downingstræti 10 vegna þrengsla. Hann kveðst hafa sagt þinginu satt og rétt frá - eftir því sem hann vissi á sínum tíma. Oddviti Vinstri grænna í Hafnarfirði segir fullt tilefni til að krefjast íbúakosningar vegna hugmynda um förgun koldíoxíðs í Hafnarfirði. Félags- og vinnumarkaðsráðherra segir aðgengi fatlaðs fólks að stafrænum lausnum vera ábótavant. Ráðherrar á Norðurlöndunum undirrituðu í dag yfirlýsingu um að bæta þar úr. Þjóðaröryggi snýst um fleira en varnir og varnarmál, þó að þau séu vissulega áleitin þegar barist er í Evrópu. Þjóðaröryggi snýst líka um samfélag, efnahag, umhverfi og stjórnmál segir prófessor í alþjóðasamskiptum . ----- Þjóðaröryggi felur í sér miklu meira en varnir lands þó að umræða um þær sé orðin áleitnari nú en hún hefur verið um langa hríð segir Silja Bára Ómarsdóttir, prófessor í alþjóðasamskiptum við Háskóla Íslands. Hún var þátttakandi á ráðstefnu Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands í dag þar sem varpað var fram þeirri spurningu hvernig nýta megi alþjóðasamstarf til að tryggja öryggi þjóðar á breyttum tímum. Forsætis- og utanríkisráðherra ávörpuðu gesti í upphafi og nýleg heimsókn þeirra beggja til Úkraínu var þeim hugleikin. Utanríkisráðherra ræddi þar um hvað og hvernig Ísland gæti beitt sér þrátt fyrir og í krafti smæðar sinnar. Mikilvægt væri fyrir herlausa þjóð að verða verðugur þátttakandi á alþjóðavettvangi. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Silju Báru Ómarsdóttur prófessor í alþjóðasamskiptum. Í gær var tilkynnt að loka eigi Ungmennabúðum Ungmennafélags Íslands á Laugarvatni. Ástæðan er sú að mygla greindist í húsnæðinu sem búðirnar hafa til umráða, gamli Íþróttakennaraskólinn á Laugarvatni. Dvöl í búðunum er oft mikið ævintýri fyrir börn í 9. bekk. Vikudvöl úti í sveit utan skarkala hversdagsins. Markmið með dvölinni er að styrkja félagsfærni ungmenna, efla vitund þeirra fyrir umhverfi sínu og samfélagi ásamt mikilvægi þess að hafa heilbrigðan lífsstíl að leiðarljósi. Ásta Stefánsdóttir sveitarstjóri Bláskógabyggðar segir að framtíð hússins verði ákveðin á fundi sveitarstjórnar á mánudag. Framkvæmdir yrðu of dýrar og það sé í raun ekki hlutverk sveitarfélaga að eiga og reka húsnæði sem nýtist starfsemi þess ekki. Hún segir líklegt að húsið verði auglýst til sölu á næstunni, en

Play Episode Listen Later Mar 22, 2023 9:46

Trump, vaxtahækkanir og menningararfur

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Mar 22, 2023 130:00

75 ár eru í dag síðan Atómstöðin eftir Halldór Laxness kom út. Af því tilefni var leikið brot úr lestri skáldsins á sögunni. Rúm tvö ár eru síðan Donald Trump lét af embætti Bandaríkjaforseta en enn er hann fréttaefni. Hann stendur í ströngu á mörgum vígstöðvum og hefur lýst yfir framboði á ný. Silja Bára Ómarsdóttir, prófessor í stjórnmálafræði við HÍ, sagði frá þeim málum sem Trump stendur í þessa dagana, fór yfir þau sem tilkynnt hafa þátttöku í forkosningum Repúblikana fyrir næstu kosningar og talaði einnfremur um Biden forseta og Harris varaforseta. Enn er verðbólga víðast hvar í heiminum og vextir hafa verið hækkaðir. Ásgeir Brynjar Torfason, sérfræðingur í fjármálum, fór yfir ástand og horfur. Tilkynnt verður um vaxtaákvörðun í Bandaríkjunum seinna í dag. Meginvextir hér voru hækkaðir um eitt prósentustig meðan á þættinum stóð; sú mikla hækkun kom Ásgeiri Brynjari á óvart. Unnið er að því að fá íslensku sundlaugamenninguna og laufabráðið á skrá UNESCO yfir óáþreifanlegan menningararf. Vera Illugadóttir sagði frá ýmsu sem er á skránni. Tónlist: Do you want to know a secret - Bítlarnir, Don?t cry for me Argentina - Madonna, Anna (Go to him) - Bítlarnir, Ask me why - Bítlarnir, Disco frisco - Guitar Islandico. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson.

familylife FIVE Der Podcast für starke Paare und Beziehungen

Die Liebe verletzt nicht, stellt sich selbst hinten ran, verliert nie die Beherrschung und rechnet Böses nicht an. Alles erträgt sie, steckt nie den Kopf in den Sand.Sie glaubt und hofft immer und hält allem Stand. Diese perfekte Liebe, wie sie in der Bibel im 1. Brief an die Korinther Kapitel 13 beschrieben wird-  ist sie wirklich möglich? Diese Art von Liebe soll alltagstauglich sein? Diese Frage stellt sich Silja Böhm, verheiratet mit Titus, seit langem. In ihrem Lied „Gemeinsam mit dir“ beantwortet sie diese Frage für sich selbst. In unserem Podcast gibst sie Einblicke in ihre Erfahrungen damit. „Gemeinsam mit dir“ auf Youtube hören Gemeinsam mit dir will ich lieben lernen, das Unmögliche wagen - jetzt und hier! In jeden Tag neu unbeschwert starten. Ich will Lieben leben gemeinsam mit dir! Was für ein wunderschönes Ideal – doch wir sind so weit davon entfernt... Doch wir sind unterwegs, ein bisschen haben wir schon gelernt.  Doch fast jeden Tag passiert es aufs Neue – ein Missverständnis nimmt seinen Lauf... Wir schnappen ein und schnappen aus. Hört das denn niemals richtig auf?  Doch die Liebe in unserem Herzen, die macht so vieles wett.Und mit Jesus im Boot ist unsere Liebe komplett. Und gemeinsam mit dir will ich lieben lernen, das Unmögliche wagen, jetzt und hier. In jeden Tag neu unbeschwert starten, Ich will Lieben leben gemeinsam mit dir! Silja ist verheiratet mit Titus. Gemeinsam haben sie drei Kinder. Und falls du – so wie Silja und Titus – diese Liebe anhand von 1.Korinther 13 noch weiter lernen willst, dann nutze dazu unseren Bibelleseplan, den wir in der YouVersion Bibel App veröffentlich haben: https://www.bible.com/de/reading-plans/26755

Morgunvaktin
Kosningar í BNA, fólk flutt á Fiji og þjóðlendur

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Nov 9, 2022 130:00

Fjallað var um niðurstöður þing- og ríkisstjórakosninganna í Bandaríkjunum. Stjórnmálafræðingarnir Silja Bára Ómarsdóttir og Hafsteinn Einarsson fóru yfir stöðu mála. Útlit var fyrir að Repúblikanar riðu ekki jafnfeitum hesti frá kosningunum og spáð var. Hækkunar sjávarborðs vegna loftslagsbreytinga er farið að gæta á Fiji eyjum. Þegar hefur fólk úr nokkrum þorpum verið flutti inn til landsins og áformað er að flytja fólk úr tugum þorpa. Framkvæmdin er flókin, umfangsmikil og kostnaðarsöm eins og Vera Illugadóttir rakti í frásögn. Óbyggðanefnd lýkur senn störfum en hún var sett á fót laust fyrir aldamót. Verkefni hennar er að skera úr um eignarhald á óbyggðum Íslands. Tugir mála hafa ratað fyrir dómstóla. Þorsteinn Magnússon nefndarmaður sagði frá í samtali við Ágúst Ólafsson fréttamann. Tónlist: You?ve really got a hold on me - The Miracles, Palli Hall - Ásgeir Ingvarsson, Óbyggðirnar kalla - Magnús Eiríksson og KK. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir.

Morgunvaktin
Kosningar í BNA, fólk flutt á Fiji og þjóðlendur

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Nov 9, 2022

Mataræði, kosningar í Bandaríkjunum og Heimsglugginn

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Nov 3, 2022

Mataræði okkar flestra fylgir talsverð losun gróðurhúsalofttegunda sem hlýst af framleiðslu matvæla. Það er umhverfisvænna að borða grænmeti heldur en kjöt. Þurfum við að breyta um mataræði umhverfisins vegna, og getum við það? Auður Viðarsdóttir þjóðfræðingur vinnur að rannsókn um málið við Háskóla Íslands. Hún ræddi þessi mál við okkur. Kosið verður til þings í Bandaríkjunum á þriðjudag. Eins og staðan er núna er útlit fyrir að demókrötum farnist ekki sérlega vel. Joe Biden Bandaríkjaforseti ávarpaði þjóðina í gær, og sagði meðal annars að lýðræðið í landinu sé í hættu. Silja Bára Ómarsdóttir prófessor í stjórnmálafræði fór yfir stöðu mála. Bogi Ágústsson talaði frá Stokkhólmi að þessu sinni og sænsk málefni á dagskrá; aðalefnið var hins vegar Grænland og öryggis- og varnarmál á Norður-Atlantshafi. Við heyrðum í Múte B. Egede, formanni grænlensku landsstjórnarinnar. Umsjónarmenn Morgunvaktarinnar eru Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir. Tónlist: Funnel of love - Wanda Jackson Meet me in Stockholm - Wanda Jackson Fritiof i Akadien - Evert Taube Don't try to fool me - Jóhann G. Jóhannsson

Morgunvaktin
Mataræði, kosningar í Bandaríkjunum og Heimsglugginn

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Nov 3, 2022 130:00

Sprengisandur 31.07.2022 - Viðtöl þáttarins

Bylgjan

Play Episode Listen Later Jul 31, 2022 93:07

Kristjan Kristjánsson stýrir skeleggri umræðu um þjóðmálin.   Í þessum þætti: Ásgeir Brynjar Torfason doktor í fjármálum um heimshagkerfið. Silja Bára Ómarsdóttir prófessor við Háskola Íslands um bandarísk stjórnmál. Björn Zoëga stjórnarformaður Landspítalans um Landspítalann. Þráinn Lárusson hótelstjóri um ferðaþjónustu.

bj zo landsp silja b brynjar torfason
Mannlegi þátturinn
Lokaþáttur Nágranna, kórahátíð og Silja Bára lesandinn

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Jun 13, 2022 50:00

Síðasti þáttur sápuóperunnar áströlsku Neighbours eða Nágrannar, var tekin upp síðasta föstudag og er þá lokið 37 ára sögu þáttanna. Það ríkir sorg hjá aðdáendum þáttanna og færsla á facebook vakti athygli okkar í Mannlega þættinum en þar tjáir rúmlega þrítug kona, Agnes Wild, tilfinningar sínar um þessi tíðindi og mátti sjá tár á hvarmi hennar, en hún hefur horft á þættina síðan hún var 14.ára, s.s. alla þætti sem sýndir hafa verið eftir að hún byrjaði að horfa. Framleiðandinn Jason Herbison tilkynnti að margir leikarar myndu snúa aftur í þessari síðustu þáttaröð til að leika sín gömlu hlutverk. Agnes kom í þáttinn og sagði okkur frá sinni ást á Grönnum í dag. Dagana 27.júní - 2.júlí verða tveir stórviðburðir samtengdir hér í Reykjavík; NORDKLANG, norræn kórahátíð, og fagráðstefna norrænna kórstjóra. Þessir viðburðir eru haldnir á 3gja ára fresti í einu Norðurlandanna og eru nú í fyrsta sinn haldnir hér á landi. Opnunartónleikar verða í Norðurljósasal Hörpu 27. júní þar sem 6 af fremstu kórum landsins kynna íslenska kórtónlist fyrir fagfólki Norðurlandanna. Lokatónleikar verða svo í Eldborgarsal Hörpu 2. júlí þar sem kórfólk í 9 mismunandi vinnusmiðjum, undir stjórn færustu kórstjóra Norðurlandanna flytja þá tónlist sem unnið hefur verið að á hátíðinni. Margrét Bóasdóttir formaður Landsambands blandaðra kóra, sagði okkur meira frá þessum viðburðum í þættinum. Lesandi vikunnar í þetta sinn var Silja Bára Ómarsdóttir, nýr formaður Rauða krossins á Íslandi og prófessor við stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands. Við forvitnuðumst um nýja starfið hennar og svo fengum við auðvitað að vita hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Þar komu við sögu Margaret Atwood, Stefan Zweig, Guðrún Helgadóttir og fleiri. --------------- Tónlist í þættinum í dag: Neighbours Theme song / Barry Crocker (Tony Hatch & Jackie Trent) Sölvi Helgason / Mannakorn (Magnús Eiríksson) Litla Gunna og Litli Jón / Hljómsveit Ingimars Eydal (Páll Ísólfsson, Davíð Stefánsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Mannlegi þátturinn
Lokaþáttur Nágranna, kórahátíð og Silja Bára lesandinn

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Jun 13, 2022

Morgunútvarpið
18. maí - Dyrfjallahlaup, fornminjar, þungunarrof, breytingaskeið o.fl

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later May 18, 2022

Dyrfjallahlaupið fer fram í sjötta sinn í ár en hlaupið þykir með skemmtilegri náttúruhlaupum og laðar jafnan að sér sterkan hóp hlaupara. Í ár verður boðið upp á nýjungar og við fengum Olgeir Pétursson sem veit allt um málið til að kíkja til okkar og segja okkur meira. Fornleifafræðingar fundu á dögunum gamlar minjar frá miðöldum við undirbúning kirkjubyggingar í Grímsey. Vegna uppgötvunarinnar mun nýja kirkjan verða byggð annars staðan en áætlað hafði verið. Við töluðum við Örnu Björgu Bjarnadóttur, verkefnastjóra kirkjubyggingar í Grímsey, um minjarnar og stöðu uppbyggingarinnar. Alþjóðlegt bakslag er nú í gangi gagnvart frjósemis- og þungunarrofsréttindum á alþjóðavísu. Í dag fer fram málþing í Háskóla Íslands um réttinn til þungunarrofs. Silja Bára Ómarsdóttir prófessor við stjórnmálafræðideild HÍ ræddi þessi mál við okkur og þá þróun sem átt hefur sér stað. Oddvitar Framsóknar og Samfylkingar ræddu í gær hugsanlegt samstarf í borginni. Samfylking, Píratar og Viðreisn ætla að reyna að mynda meirihluta en Vinstri græn hafa ákveðið að taka ekki þátt í meirihluta í borginni og því blasir við að það eru mögulega tiltölulega flóknar meirihlutaviðræður framundan. Við ræddum þessi mál við Sönnu Magdalegu Mörtudóttur, oddvita Sósíalistaflokksins, Þórdísi Lóu Þórhallsdóttur, oddvita Viðreisnar og Alexöndru Briem frá Pírötum. Allar konur ganga í gegnum breytingaskeiðið en einkenni geta verið mjög breytileg frá konu til konu og erfitt að þróa eina staðlaða meðferð sem hentar öllum. GynaMEDICA er lækninga- og heilsumiðstöð fyrir konur á breytingaskeiði sem býður uppá heildræna meðferð, ráðgjöf og fræðslu og er sú fyrsta sinnar tegundar á Íslandi. Hanna Lilja Oddgeirsdóttir læknir hjá GynaMEDICA kom til okkar og ræddi þetta tímabil sem allar konur ganga í gegnum, en fáir ræða opinskátt. Íslandsmeistarabikarinn í körfubolta fer á loft á Hlíðarenda í kvöld en gífurleg spenna hefur verið í úrslitaeinvíginu á milli Vals og Tindastóls. Við ræddum oddaleikinn og stemninguna í kringum hann við tvo eldheita stuðningsmenn, Jóhann Alfreð Kristinsson, Valsara, og Helga Sæmund Guðmundsson, stuðningsmann Tindastóls. Tónlist: Kaleo - Skinny. Lights on the highway - Ólgusjór. Kate Bush - Running up that hill. Karl orgeltríó - Bréfbátar. Peacemaker - Mono Town. SSSól og John Grant - Finish on top. Stefán Hilmarsson - Vængjum þöndum (Valslagið). Úlfur Úlfur og Sverrir Bergmann - Tindastóll.

Play Episode Listen Later May 18, 2022 130:00

Fámenni, Bretland og Bandaríkin

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Jan 10, 2022 130:00

Vífill Karlsson hjá Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi sagði frá nýrri könnun sem hann vann ásamt Sigurborgu Kr. Hannesdóttur. Í henni var metið hvaða aðdráttarafl hin ýmsu ólíku samfélög á landsbyggðinni byggju yfir. Áherslan var á að skoða fámenn einangruð samfélög en þau síðan borin saman við fjölmenn samfélög á jaðri höfuðborgarsvæðisins og/eða fjölmenn, fjarlægari og e.t.v. einangraðri samfélög. Í ljós kom að íbúar vítt og breitt um landið hafa ólíkar óskir og þarfir og þess vegna eru samfélögin mjög ólík. Íbúar fámennari og einangraðri samfélaga leggja meira upp úr aðgengi að þáttum eins og fjölbreyttri náttúru og friðsæld á meðan gæði grunnskóla, leikskóla og unglingastarfs toga meira í íbúa á jaðri höfuðborgarsvæðisins. Sigrún Davíðsdóttir fór yfir það helsta varðandi kórónuveirufaraldurinn í Bretlandi, handritastuld og flutning stórfyrirtækisins Shell. Silja Bára Ómarsdóttir, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, fjallaði um stöðuna á Bandaríkjaþingi, stöðu Joes Bidens Bandaríkjaforseta og um leið stöðu fyrrverandi forseta landsins, Donalds Trumps. Tónlist: Frostrósir - Diddú og Terem Veldu stjörnu - Ellen Kristjánsdóttir og John Grant Land Of Hope and Dreams - Bruce Springsteen. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Guðrún Hálfdánardóttir.

Morgunvaktin
Fámenni, Bretland og Bandaríkin

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Jan 10, 2022

Frumkvöðlar, herská andspyrna og Suðurskautslandið

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Dec 14, 2021 130:00

Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans, fór yfir velgengi ýmissa fyrirtækja sem falla undir fjórðu stoðina. Frumkvöðlafyrirtæki sem byrjuðu smátt en hafa vaxið og dafnað undanfarin ár. Þórður Snær fjallaði einnig um orkumálin og húsnæðismálin en það er ákveðin vöntun á orku og íbúðum um þessar mundir. Arthúr Björgvin Bollason fjallaði meðal annars um heiftúðuga andspyrnu við bólusetningum í Þýskalandi sem hefur sett ugg að ýmsum. Ekki síst fyrir þær sakir hversu herskáir andstæðingarnir eru. Þeir líkja jafnvel sóttvarnareglum alríkisins við ofsóknir nasista gagnvart gyðingum í þriðja ríkinu. Líflátshótanir eru daglegt brauð, ekki síst í austurhluta landsins. Hafdís Hanna Ægisdóttir, forstöðumaður stofnunar Sæmundar fróða um sjálfbæra þróun við Háskóla Íslands, og Silja Bára Ómarsdóttir, prófessor við stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands, fóru báðar til Suðurskautslandsins árið 2019 og hafa ritað grein um ferðalög sín í Skírni. Þær komu á Morgunvaktina og ræddu meðal annars áhrif loftslagsbreytinga á Suðurskautslandið en loftslagsbreytingar ógna tilvist margra dýrategunda og bráðnun íssins setur jafnvægi sjávar úr skorðum og hækkar yfirborð hans. Eins um alþjóðasamvinnu sem hefur varið Suðurskautslandið fyrir samkeppni og átökum. Suðurskautið hefur verið draumaáfangastaður þeirra beggja allt síðan í barnæsku, ekki síst eru það mörgæsir sem hafa heillað þær. Tónlist: Stúlkan mín - Gunnar Gunnarsson Jólasveinninn minn - Hljómar Erla góða Erla - tríó Guðmundar Ingólfssonar. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Guðrún Hálfdánardóttir.

Morgunvaktin
Frumkvöðlar, herská andspyrna og Suðurskautslandið

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Dec 14, 2021

Zukunftsgestalter
Der interne Marktplatz – Dein Weg zu uns: Folge 4

Zukunftsgestalter

Play Episode Listen Later Oct 22, 2021 11:26

Der Bewerbungsprozess geht auch intern bei Swisscom weiter: Lernende bewerben sich regelmässig über einen digitalen Marktplatz auf ihre Wunschprojekte. Wie das funktioniert, erzählen dir Fabio Gaiardo, Mediamatiker im 3. Lehrjahr und Produzent dieser Mini-Serie, Silja Bürki, Kauffrau im 3. Lehrjahr und Maurice Busch, Mediamatiker im 3. Lehrjahr. Das ist die finale Episode der Mini-Serie «Dein Weg zu uns». In vier Folgen haben wir dir die Bewerbung bei Swisscom näher gebracht. Swisscom Next Generation Produktion & Schnitt: Fabio Gaiardo / Moderation: Cyril Keller

Samfélagið
Viðhorf til alþjóðamála, Spánn og Ísland og umhverfissálfræði

Samfélagið

Play Episode Listen Later Mar 23, 2021 55:00

Silja Bára Ómarsdóttir, prófessor í stjórnmálafræði við HÍ: viðhorf Íslendinga til alþjóðamála. Ný könnun leiðir ýmislegt forvitnilegt í ljós um viðhorf Íslendinga til alþjóðamála. Silja fór yfir helstu atriðin. Erla Erlendsdóttir og Kristín Guðrún Jónsdóttir: Erla og Kristín voru að gefa út nýtt rit; Á fjarlægum ströndum, tengsl Spánar og Íslands í tímans rás og fara meðal annars yfir fjölbreytt samskipti landanna í gegnum tímans rás. Páll Jakob Líndal umhverfissálfræðingur með pistil um samspil náttúru, umhverfis, bygginga og mannsins.

gu krist silja erla jakob l silja b
Samfélagið
Viðhorf til alþjóðamála, Spánn og Ísland og umhverfissálfræði

Samfélagið

Play Episode Listen Later Mar 23, 2021

Silja Bára Ómarsdóttir, prófessor í stjórnmálafræði við HÍ: viðhorf Íslendinga til alþjóðamála. Ný könnun leiðir ýmislegt forvitnilegt í ljós um viðhorf Íslendinga til alþjóðamála. Silja fór yfir helstu atriðin. Erla Erlendsdóttir og Kristín Guðrún Jónsdóttir: Erla og Kristín voru að gefa út nýtt rit; Á fjarlægum ströndum, tengsl Spánar og Íslands í tímans rás og fara meðal annars yfir fjölbreytt samskipti landanna í gegnum tímans rás. Páll Jakob Líndal umhverfissálfræðingur með pistil um samspil náttúru, umhverfis, bygginga og mannsins.

gu krist silja erla jakob l silja b
Morgunvaktin
Árás á þinghúsið og lýðræðið í Bandaríkjunum

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Jan 7, 2021 130:00

Við fjöllum um atburðina í Washington, höfuðborg Bandaríkjanna, í þættinum í dag. Fylgismenn Trumps forseta réðust inn í þinghúsið í gær og komu í veg fyrir að kjör Bidens í nóvember yrði staðfest. Þetta er einstakur atburður í sögu Bandaríkjanna; árás á lýðræðið sögðu Biden og tugir þjóðarleiðtoga, þar á meðal Katrín Jakobsdóttir. Hvað gerðist í Washington í gær, hvers vegna og hverjar verða afleiðingarnar? Við veltum þessu fyrir okkur á Morgunvaktinni í dag ásamt því að greina frá nýjustu tíðindum eftir því sem þau berast en þingfundur hófst á ný í nótt og staðfestingarferlinu er framhaldið. Með okkur á Morgunvaktinni voru Bogi Ágústsson fréttamaður, Silja Bára Ómarsdóttir prófessor í stjórnmálafræði og Ragnheiður Elín Árnadóttir fyrrverandi ráðherra. Tónlist: America - Simon og Garfunkel Times they are a-changin' - Bob Dylan

Morgunvaktin
Árás á þinghúsið og lýðræðið í Bandaríkjunum

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Jan 7, 2021

Tafir á valdaskiptum geta haft mikil áhrif

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Nov 23, 2020 130:00

Þrátt fyrir að tugum dómsmála sem Donald Trump höfðaði vegna kosningaúrslita hafi ýmist verið hafnað eða honum dæmt í óhag hefur Trump ekki viðurkennt ósigur í kosningunum fyrir þremur vikum síðan. Hann neitar að hjálpa til við valdaskipti, sem getur valdið vandræðum - ekki síst þar sem Joe Biden fær ekki aðgang að áformum stjórnvalda um ýmislegt sem viðkemur kórónuveirunni. Er Trump viljandi að reyna að skemma fyrir eftirmanni sínum? Og ef svo er - hvaða afleiðingar getur það haft? Silja Bára Ómarsdóttir prófessor í stjórnmálafræði ræddi það á Morgunvaktinni. Enn eitt vandræðamálið plagar nú Boris Johnson forsætisráðherra Bretlands. Innanríkisráðherra hans, Priti Patel, braut siðareglur ráðherra og lagði starfsfólk í einelti. Þetta er niðurstaða óháðrar rannsóknar, en í fyrsta skipti leiðir slík niðurstaða ekki til afsagnar ráðherra heldur þess sem gerði rannsóknina. Sigrún Davíðsdóttir sagði okkur frá þessu máli og mörgum öðrum í Lundúnaspjalli dagsins. Þegar Joe Biden verður settur í embætti Bandaríkjaforseta í janúar á næsta ári verður hann elsti maður sem tekur við því embætti í sögu Bandaríkjanna - 78 ára. Hann kemst þó ekki á lista yfir tíu elstu þjóðarleiðtoga sem nú eru við völd. Efst á þeim lista trónir Elísabet Bretadrottning, sem verður 95 ára næsta vor. Við fórum yfir aldurhnigna leiðtoga fyrr og síðar með Veru Illugadóttur. Tónlist: It's oh so quiet - Björk Lukta-Gvendur - Björk og tríó Guðmundar Ingólfssonar Pabbi minn - Björk og tríó Guðmundar Ingólfssonar

Morgunvaktin
Tafir á valdaskiptum geta haft mikil áhrif

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Nov 23, 2020

Spegillinn 6.nóvember 2020

Spegillinn

Play Episode Listen Later Nov 6, 2020 30:00

Spegillinn 6.nóvember 2020 Umsjón: Kristján Sigurjónsson Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon Joe Biden er kominn með nokkur þúsund atkvæða forskot á Donald Trump í Pennsylvaníu. Með sigri þar tryggir hann sér embætti Bandaríkjaforseta. Taka verður sóttvarnir mjög alvarlega næstu þrjár vikur segir forsvarsmaður spálíkans háskólans, ekki sé hægt að fagna sigri þótt mörg jákvæð teikn séu á lofti. Logi Einarsson hlaut yfir 96 prósent atkvæða í formannskjöri Samfylkingarinnar. Kosningu lauk nú síðdegis. Aldrei hafa fleiri Covid-smit mælst á einum sólarhring í Svíþjóð eins og þeim síðasta - eða hátt í 4700. Búist er við hertum aðgerðum - jafnvel útgöngubanni. Iðnaðarráðherra segir að mygla í húsum sé stórt og alvarlegt vandamál. Öflugar rannsóknir, prófanir og eftirlit með byggingingarefnum skili árangri í baráttunni við myglu. Lengri umfjöllun: Forsetakosningrnar í Bandaríkjunum. Joe Biden, forsetaefni Demókrata, hefur aukið forskot sitt á Donald Trump forseta í Pennsylvaníu eftir því sem liðið hefur á daginn. Hann hefur einnig forystuna í Arizona, Nevada og Georgíu. Í nokkrum þeirra er þó svo mjótt á munum að fjölmiðlar vestanhafs telja ótímabært að lýsa hann sigurvegara kosninganna. Silja Bára Ómarsdóttir stjórnmálafræðiprófessor metur söðuna, fyrsta verk Bidens ef forsetaskipti verða, framtið Trumps o.fl. Kristján Sigurjónsson talar við hana. Nær fjögur þúsund og sjö hundruð (4.697) Covid-smit hafa greinst í Svíþjóð síðasta sólarhringinn. Það mesta frá upphafi faraldursins. Heilbrigðisstarfsfólk varar við að holskefla sé við það að skella á sjúkrahúsum landsins, sem enn hafi ekki náð sér eftir álag og hálfgert stríðsástand í vor. Kallað er eftir hertum aðgerðum - jafnvel útgöngubanni - og það strax. Kári Gylfason í Gautaborg segir frá. Norska ríkið vill fá jafnvirði 220 milljarða íslenskra króna í bætur fyrir freigátuna Helge Ingstad, sem fórst með slysalegum hætti inni á firði í Noregi fyrir tveimur árum. Það er kostnaðurinn við að missa skip nokkru stærra en varðskipið Þór. Gísli Kristjánsson segir frá.

Rauða borðið
Bandaríkin

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Nov 6, 2020 78:25

Við ræðum stjórnmálaástandið í Bandaríkjunum við Rauða borðið í kvöld. Hvað gerist ef Trump tapar? En ef hann vinnur? Mun Repúblikanaflokkurinn jafna sig á Trump-tímanum? Er Bandarískt samfélag að klofna? Hvaða rullu mun vinstri armur Demókrataflokksins spila í ríkisstjórn Biden? Til að ræða þetta og annað sem tengist kosningunum eftir átta daga setjast við Rauða borðið stjórnmálafræðingarnir Indriði Indriðason og Silja Bára Ómarsdóttir, Magnús Helgason sagnfræðingur og Viðar Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Eflingar. Þau hafa öll búið í Bandaríkjunum og þekkja stjórnmálin þar vel.

Spegillinn
Spegillinn 6.nóvember 2020

Spegillinn

Play Episode Listen Later Nov 6, 2020

Spegillinn 6.nóvember 2020 Umsjón: Kristján Sigurjónsson Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon Joe Biden er kominn með nokkur þúsund atkvæða forskot á Donald Trump í Pennsylvaníu. Með sigri þar tryggir hann sér embætti Bandaríkjaforseta. Taka verður sóttvarnir mjög alvarlega næstu þrjár vikur segir forsvarsmaður spálíkans háskólans, ekki sé hægt að fagna sigri þótt mörg jákvæð teikn séu á lofti. Logi Einarsson hlaut yfir 96 prósent atkvæða í formannskjöri Samfylkingarinnar. Kosningu lauk nú síðdegis. Aldrei hafa fleiri Covid-smit mælst á einum sólarhring í Svíþjóð eins og þeim síðasta - eða hátt í 4700. Búist er við hertum aðgerðum - jafnvel útgöngubanni. Iðnaðarráðherra segir að mygla í húsum sé stórt og alvarlegt vandamál. Öflugar rannsóknir, prófanir og eftirlit með byggingingarefnum skili árangri í baráttunni við myglu. Lengri umfjöllun: Forsetakosningrnar í Bandaríkjunum. Joe Biden, forsetaefni Demókrata, hefur aukið forskot sitt á Donald Trump forseta í Pennsylvaníu eftir því sem liðið hefur á daginn. Hann hefur einnig forystuna í Arizona, Nevada og Georgíu. Í nokkrum þeirra er þó svo mjótt á munum að fjölmiðlar vestanhafs telja ótímabært að lýsa hann sigurvegara kosninganna. Silja Bára Ómarsdóttir stjórnmálafræðiprófessor metur söðuna, fyrsta verk Bidens ef forsetaskipti verða, framtið Trumps o.fl. Kristján Sigurjónsson talar við hana. Nær fjögur þúsund og sjö hundruð (4.697) Covid-smit hafa greinst í Svíþjóð síðasta sólarhringinn. Það mesta frá upphafi faraldursins. Heilbrigðisstarfsfólk varar við að holskefla sé við það að skella á sjúkrahúsum landsins, sem enn hafi ekki náð sér eftir álag og hálfgert stríðsástand í vor. Kallað er eftir hertum aðgerðum - jafnvel útgöngubanni - og það strax. Kári Gylfason í Gautaborg segir frá. Norska ríkið vill fá jafnvirði 220 milljarða íslenskra króna í bætur fyrir freigátuna Helge Ingstad, sem fórst með slysalegum hætti inni á firði í Noregi fyrir tveimur árum. Það er kostnaðurinn við að missa skip nokkru stærra en varðskipið Þór. Gísli Kristjánsson segir frá.

Hlaðvarp Kjarnans
Er friðurinn úti? – 1. þáttur: Hvað er friður/ófriður?

Hlaðvarp Kjarnans

Play Episode Listen Later Oct 12, 2020 21:16

Hvað er friður? Hvernig tengist hugtakið okkur sem einstaklingum og hvaða merkingu leggjum við í það hér á Íslandi? Hvernig tengist friður umræðu um ofbeldi og mismunun? Í þessum þætti ræðir Margrét Marteinsdóttir við Guðrúnu Sif Friðriksdóttur, doktor í mannfræði, Stefán Pálsson, sagnfræðing og Jökul Inga Þorvaldsson, ungmennafulltrúa Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum á sviði barna og ungmenna, um frið og ófrið hér heima og að heiman. Silja Bára Ómarsdóttir, prófessor í alþjóðasamskiptum, flytur pistil um frið og réttlæti í lok þáttar. Þátturinn er hluti af Friðardögum í Reykjavík 2020: Er friðurinn úti? sem haldnir eru á vegum Höfða friðarseturs Reykjavíkurborgar og Háskóla Íslands, í samstarfi við UNICEF á Íslandi, UN Women á Íslandi, Félag Sameinuðu þjóðanna og utanríkisráðuneytið. Umsjónarmaður þáttanna er Margrét Marteinsdóttir, fjölmiðlakona.

Morgunútvarpið
2. okt. - Hjólakeppni, ferðamál, jarðepli, Trump og hégómavísindi

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Oct 2, 2020 130:00

Undanfarnar fjórar vikur hefur hópur íbúa á öldrunarheimilinu Hlíð á Akureyri tekið þátt í hjólreiðakeppninni World Road for Seniors. Keppninni lýkur í dag og hópurinn á Hlíð er meðal þeirra liða sem berjast um efstu sæti keppninnar. Gígja Hólmgeirsdóttir skrapp í gær í heimsókn á Hlíð og ræddi við nokkra úr hópnum, auk þess sem hún ræddi við sjúkraþálfara á heimilinu sem heldur utan um verkefnið. Við slógum á þráðinn til Þórdísar Lóu Þórhallsdóttur, formanns borgarráðs, en ráðið var að samþykkja ferðamálastefnu, núna í miðjum heimsfaraldri á meðan engir ferðamenn eru á ferli. Á morgun verður kartöflunni hampað á heilmikilli jarðeplahátíð austur á landi. Móðir Jörð og Matarauður Austurlands standa að baki þessum viðburði þar sem ræktunarsagan verður rakin og gestum boðið að gæða sér á fjölda kartöfluafbrigða. Eygló Björk Ólafsdóttir hjá Móður jörð var á línunni að austan og sagði okkur meira. Þau tíðindi bárust í nótt að forsetahjón Bandaríkjanna, þau Donald og Melania Trump, hafi greinst með kórónuveiruna. Silja Bára Ómarsdóttir, prófessor við stjórnmálafræðideild HÍ, kom til okkar og ræddi við okkur um hvaða áhrif þetta gæti haft nú í aðdraganda kosninga. Freyr Gígja Gunnarsson mætti í sitt hálfs mánaðarlega hégómavísindahorn og færði okkur fréttir af fræga fólkinu. Tónlist: Stefán Hilmarsson - Líf. Black Pumas - Im ready. Amabadama - Hossa hossa. Billie Eilish - Bad guy. Nýdönsk - Alla tíð. GDRN - Áður en dagur rís (ft. Birnir). Albatross - Já það má. Travis - Writing to reach you. Warmland - Superstar minimal. Bruce Springsteen and the E Str. Band - Letter to you. Miley Cyrus - Midnight sky.

Morgunvaktin
Bandaríkjaforseti með kórónuveiruna

Donald Trump Bandaríkjaforseti og Melania kona hans eru bæði með Covid-19. Frá þessu var greint í morgun. Hvaða áhrif hefur þetta á kosningabaráttuna, nú þegar adeins mánuður er í kosningar í Bandaríkjunum sem sumir segja einhverjar þær allra mikilvægustu í langan tíma. Silja Bára Ómarsdóttir prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands fór yfir stöðuna í bandarískum stjórnmálum. Hún sagði erfitt að sjá fyrir sér að kórónuveirugreiningin hjálpi forsetanum, hann njóti sín best á fjöldafundum og ekki eins vel í gegnum tölvuna. Fjórar farþegaflugvélar fara frá Keflavíkurflugvelli í dag; þar af ein á vegum Icelandair. Félagið fór einungis 64 ferðir í nýliðnum septembermánuði, litlu fleiri en ungverska félagið Wizz air. Já, millilandaflugið er enn í mýflugumynd. Kristján Sigurjónsson, ritstjóri Túrista, fjallaði um flug og fleira í ferðaspjalli vikunnar. Frá því að kórónuveiran tók að breiðast út hér á landi í mars hefur óvissa einkennt líf margra. Það á ekki síst við um tónlistarfólk, sem lenti flest í því að tekjumöguleikar þeirra þurrkuðust út á einni nóttu. Margir tónlistarmenn eru að auki sjálfstætt starfandi og falla illa inn í hefðbundnu kerfin. Ekkert útlit er fyrir að tónleikahald og aðrir viðburðir geti komist í samt horf - að minnsta kosti í náinni framtíð. Sigríður Thorlacius söngkona kom á Morgunvaktina og ræddi um stöðuna. Hún sagðist heppnari en margir, hún hafi fengið smærri verkefni, en þekki hins vegar listafólkið sem hafi verið algjörlega án tekna í marga mánuði. Tónlistarmenn bíði enn eftir aðgerðum. Tónlist: Stolin stef - Sigríður Thorlacius, Here comes the sun - Bítlarnir, Something - Paul McCartney og Eric Clapton, Draumaprinsinn - Góss

Morgunvaktin
Bandaríkjaforseti með kórónuveiruna

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Oct 2, 2020

Einn á spítala á 12 tíma fresti

Spegillinn

Play Episode Listen Later Oct 1, 2020 30:00

Að meðaltali tveir COVID sjúklingar leggjast nú inn á Landspítalann á sólarhring að sögn forstjóra spítalans sem segir holskeflu skella á honum. Hann segir brýnt að taka á fráflæðivandanum og sendi í dag út ákall til heilbrigðisstarfsmanna um að leggja spítalanum lið, nú þurfi allar hendur upp á dekk Forseti Íslands hvatti þingmenn við þingsetninguna í dag til að taka tillögur að stjórnarskrárbreytingum til efnislegrar umræðu. Stjórnvöld á Ítalíu vilja framlengja neyðarlög vegna COVID-19 farsóttarinnar til janúarloka. Að óbreyttu falla þau úr gildi um miðjan þennan mánuð. Gert er ráð fyrir að hallinn á fjárlögum næst árs verði 264 milljarðar króna og að samanlagður halli í ár og á næsta ári veriði um 600 miljarðar króna. Fram til ársins 2025 er áætlað að uppsafnaður halli ríkisjóðs nemi um 900 milljörðum króna. Skattar verða um 52 milljöðrum lægri á næsta ári. Efnahagsleg áhrif kórónuveirufaraldursins eru metin á 192 milljarða. Hagstofan spáir 3,9% hagvexti á næsta ári eftir 7,6% samdrátt á þessu ári. Spáin byggist á því að ekki þurfi að grípa til harðra sóttvarnaraðgerða á næsta ári. Heyrist í Bjarna Benediktssyni. Arnar Páll Hauksson talar við Drífu Snædal, Loga Einarsson Þorgerðir Katrínu Gunnarsdóttur, Sigmund Davíð Gunnlaugsson, Björn Leví Gunnarsson og Ingu Sæland. Bandaríkin verða kannski aldrei aftur eins og við þekktum þau, jafnvel þótt Joe Biden sigri í forsetakosningunum í næsta mánuði. Þetta segir Silja Bára Ómarsdóttir stjórnmálafræðingur. Íslendingar þurfi sennilega að fara að svipast um eftir nýjum bandamönnum. Sigríður Hagalín Björnsdóttir talaði við Silju Báru

Spegillinn
Einn á spítala á 12 tíma fresti

Spegillinn

Play Episode Listen Later Oct 1, 2020

Landsbankinn stærsti hluthafi Icelandair

Spegillinn

Play Episode Listen Later Sep 30, 2020 30:00

Tap Isavía á fyrri hluta ársins nemur hátt í átta milljörðum. Tekjur fyrirtækisins drógust saman um 97% á öðrum ársfjórðungi. Tilkynningar um hópuppsagnir tæplega 300 manns hafa borist Vinnumálastofnun nú fyrir lok mánaðar. Talið er mögulegt að fimm skipverjar togara sem er á leið til Seyðisfjarðar séu smitaðir af kórónuveirunni. Verkefnastjóri á hjúkrunarheimilinu Eir í Grafarvogi segir að litlar heimtur séu úr bakvarðasveit velferðarþjónustunnar. Fimm starfsmenn eru í sóttkví. Landsbankinn er stærsti hluthafinn í Icelandair eftir hlutafjárútboð fyrr í mánuðinum, með sjö og hálfs prósents hlut, og Íslandsbanki er þriðji stærsti hluthafinn, með sex og hálft prósent. Gildi lífeyrissjóður kemst upp á milli þeirra með 6,6 prósenta hlut. Þetta kemur fram í tilkynningu sem Icelandair birti í Kauphöllinni. Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins er fjórði stærsti hluthafinn með rúmra sex prósenta hlut og Brú, lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga, sá fimmti með tæpra fimm prósenta hlut. Foreldrar eiga rétt á að fá greidd laun á meðan þeir annast börn í sóttkví. Smitist börnin fellur þessi réttur úr gildi. Flugvirkjar sem starfa hjá Landhelgisgæslunni hafa boðað verkfall í lok næsta mánaðar. Nýr meirihluti í Múlaþingi vill að Björn Ingimarsson bæjarstjóri á Fljótsdalshéraði verði bæjarstjóri nýja sveitarfélagsins. Flestir eru sammála um að fyrstu kappræður frambjóðendanna í bandarísku forsetakosningunum í nótt hafi verið ómálefnalegar, rætnar og háværar, og hvorugur þátttakandinn hafi grætt á þeim. Silja Bára Ómarsdóttir stjórnmálafræðingur telur að þær geti helst orðið til þess að fæla óákveðna kjósendur frá kjörstað. Það sé Joe Biden og Demókrötum í óhag. Sigríður Hagalín Björnsdóttir talar við Silju Báru Ómarsdóttur. Svo getur farið að allsherjarverkföll hefjist í tveimur álverum í byrjun desember. Í álverinu í Straumsvík og álveri Norðuráls á Grundartanga. Atkvæðagreiðsla hefst á föstudaginn meðal starfsmanna Ísals í Straumsvík um að skæruverkföll hefjist 16. október og allsherjarverkfall 1. desember. Arnar Páll Hauksson talar við Kolbein Gunnarsson og Vilhjálm Birgisson. Eftir fjármálakreppuna 2008, þegar ríkisstjórnir víða um heim tóku á sig skuldir til að bjarga fjármálakerfum landa sinna, var víða tekið á auknum ríkisskuldum með miklum niðurskurði. En það er röng nálgun að líta á opinberar skuldir líkt og skuldir fyrirtækja eða heimila, segja hagfræðingar eins og Stephanie Kelton. Ef ríki skuldar hefur einhver fengið fé og þá skiptir öllu að féð sé vel nýtt, ekki hvort skuldirnar vaxi. Sigrún Davíðsdótti

Spegillinn
Landsbankinn stærsti hluthafi Icelandair

Spegillinn

Play Episode Listen Later Sep 30, 2020

Silja Bára, Silja Dögg og Þórir

Vikulokin

Play Episode Listen Later Jul 18, 2020 55:00

Umsjón: Sigríður Dögg Auðunsdóttir. Gestir: Silja Dögg Gunnarsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, Silja Bára Ómarsdóttir prófessor í stjórnmálafræði auk Þóris Guðmundssonar, fréttastjóra Stöðvar tvö, Vísis og Bylgjunnar

Vikulokin
Silja Bára, Silja Dögg og Þórir

Vikulokin

Play Episode Listen Later Jul 18, 2020

Finnur engan pólitískan áhuga á málefnum eldri borgara

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Jun 19, 2020 130:00

Söngkonan Vera Lynn lést í hárri elli í gær. Jónatan Garðarsson þekkir feril Lynn vel og hefur gert um hana útvarpsþætti. Hann sagði frá ferli hennar, sem var magnaður. Vera Lynn var kona fólksins í Bretlandi og víðar, hún var þjóðargersemi og virt og dáð alla tíð. Það sýnir sig á því að flest bresku dagblöðin minnast hennar myndarlega á forsíðum við andlát hennar. Nú er innan við hálft ár í kosningar í Bandaríkjunum. Þó forsetakosningarnar fái mesta athygli þá verður líka kosið til fulltrúadeildar þingsins og þriðjungur sæta í öldungadeildinni verður undir sömuleiðis. Þá er víða kosið til ríkisþinga, sums staðar ríkisstjóra og borgarstjóra. Ekki er svo langt síðan kórónuveirufaraldurinn og viðbrögðin við honum voru stóra málið sem öllu breytti í kosningabaráttunni, nú hefur mótmælaalda risið hátt í yfir þrjár vikur og breiðst um öll ríki Bandaríkjanna, svo ekki sé minnst á heiminn. Hverju breytir þetta allt saman í kosningabaráttunni? Silja Bára Ómarsdóttir dósent í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands kom á Morgunvaktina og ræddi þetta. Samkeppni ríkir milli ríkja um það fólk sem ætlar að ferðast út fyrir eigin landsteina í sumar. Já, það eru fleiri lönd en Ísland sem vilja fá ferðamenn í heimsókn, eins og Kristján Sigurjónsson, ritstjóri Túrista, sagði frá. Ísland fékk þó góða ókeypis auglýsingu frá CNN í gær, en verst er að erfitt er fyrir Bandaríkjamenn að koma til landsins. Kristján sagði okkur líka frá Midsommar, sem er nú um helgina í Svíþjóð og er jafnstór hátíð og jólin, og frá loforði Lufthansa um að koma farþegum sínum heim sama hvað ef landamæri lokast á ný. Ellilífeyrir hefur ekki hækkað til jafns við - t.d. lægstu laun, þingfararkaup og heildarlaun - samkvæmt samantekt Landssambands eldri borgara. Það er ekki nógu gott - reyndar ótækt segir Þórunn Sveinbjörnsdóttir formaður. Hún kom á Morgunvaktina til að ræða um stöðu eldri borgara, og hún segist ekki finna neinn áhuga á því innan stjórnmálanna að laga þau mál sem eldri borgarar hafi bent á. Tónlist: The white cliffs of Dover - Vera Lynn, Cold beer conversation - George Strait

Morgunvaktin
Finnur engan pólitískan áhuga á málefnum eldri borgara

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Jun 19, 2020

Rauða borðið, 18. maí

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Jun 15, 2020 67:02

Hættum allri sjálfsblekkingu: Óáreittir munu flestir stórir fjárfestar láta sér reisn þeirra sem leggja til vinnuaflið í léttu rúmi liggja og þeir munu ekki leiða baráttuna gegn umhverfishamförum. Við höfum annan valkost: Lýðræðisvæðum fyrirtæki, afmarkaðsvæðum vinnu, hættum að meðhöndla manneskjur sem auðlind og einbeitum okkur saman að því að viðhalda lífi á Jörðinni. Svona endar yfirlýsing sem þrjú þúsund háskólaborgarar um víðan heim sendu frá sér fyrir helgi. Við ræðum innihald þessarar yfirlýsingar við Rauða borðið í kvöld við nokkur þeirra sem skrifuðu undir; þau eru: Eyja Brynjarsdóttir heimspekingur, Íris Ellenberger sagnfræðingur, Gyða Margrét Pétursdóttir kynjafræðingur, Ólafur Páll Jónsson heimspekingur og Silja Bára Ómarsdóttir stjórnmálafræðingur, öll við Háskóla Íslands og Elmar Geir Unnsteinsson heimspekingur við University College í Dyflinni.

Morgunútvarpið
2. júní - Viðey, íbúðaskipti, atvinnulausir nemendur og Bandaríkin

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Jun 2, 2020 130:00

Sumardagskráin í Viðey hefst með fuglaskoðun í kvöld undir leiðsögn Snorra Sigurðssonar fuglafræðings. Snorri kíkti til okkar í morgunkaffi og sagði okkur meira af fjölbreyttu fuglalífi Viðeyjar og með honum kom Ágústa Rós Árnadóttir viðburðarstjóri Borgarsögusafns en það er ýmislegt fleira áhugavert framundan sem hún getur fræddi okkur um. Íbúðarskipti hafa færst í vöxt á undanförnum árum en þannig getur fólk sparað sér háar fjárhæðir sem annars færu í hótelgistingu eða Airbnb gistingu í sumarfríinu erlendis. Heimsfaraldurinn hefur að sjálfsögðu breytt þessu tímabundið, en íbúðarskiptum innanlands fjölgar þess í stað. Snæfríður Ingadóttir spjallaði við okkur um þetta og gaf góð ráð en hún hefur m.a. skrifað bók um þennan möguleika fólks á að skiptast á húsnæði í fríium. Nemendafélag háskólans á Bifröst hefur vakið athygli á því að launþegar sem hafa stundað háskólanám samhliða vinnu og hafa verið í 73,3 prósent námi, eða meira, og missa sína 100 prósent vinnu, eiga ekki rétt á atvinnuleysisbótum. Samkvæmt Vinnumálastofnun flokkast þeir sem námsmenn og eiga að sækja í LÍN. Leifur Finnbogason formaður félagsins segir fólki í raun refsað fyrir dugnað og þetta flókna mál sé ósanngjarnt og þurfi að leysa. Hann kom til okkar og fór yfir málið. Silja Bára Ómarsdóttir, dósent við stjórnmálafræðideild HÍ, kom til okkar og ræddi ástandið í Bandaríkjunum en í gærkvöldi hótaði Donald Trump að beita hervaldi gegn mótmælendum í landinu. Þegar hafa a.m.k. tveir ríkisstjórar sagt að ekki komi til greina að beita hernum en hörð mótmæli hafa staðið yfir víða um landið síðustu daga. Silja Bára fór yfir þetta og hvaða stöðu mótmælin og heimsfaraldurinn geta haft á forsetakosningarnar í haust. Sævar Helgi Bragason var á sínum stað í Vísindahorni vikunnar og fjallaði þar um geimskot og ilminn af útiþurrkuðum þvotti og nýslegnu grasi. Tónlist: Hildur Vala - Tími. Bill Withers - Lovely day. Anouk - Birds. Eric Clapton - Lay down Sally. Jón Jónsson - Dýrka mest. Brimkló - Í óbyggðum. Hera - Process. Sváfnir Sig - Líttu aftur. George Michael - Fast love. Daði - Family man.

family donald trump airbnb sv sn hann ln bandar snorri bifr samkv vinnum silja b ingad helgi bragason nemendur bill withers lovely brimkl george michael fast
Morgunútvarpið
2. júní - Viðey, íbúðaskipti, atvinnulausir nemendur og Bandaríkin

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Jun 2, 2020

Sumardagskráin í Viðey hefst með fuglaskoðun í kvöld undir leiðsögn Snorra Sigurðssonar fuglafræðings. Snorri kíkti til okkar í morgunkaffi og sagði okkur meira af fjölbreyttu fuglalífi Viðeyjar og með honum kom Ágústa Rós Árnadóttir viðburðarstjóri Borgarsögusafns en það er ýmislegt fleira áhugavert framundan sem hún getur fræddi okkur um. Íbúðarskipti hafa færst í vöxt á undanförnum árum en þannig getur fólk sparað sér háar fjárhæðir sem annars færu í hótelgistingu eða Airbnb gistingu í sumarfríinu erlendis. Heimsfaraldurinn hefur að sjálfsögðu breytt þessu tímabundið, en íbúðarskiptum innanlands fjölgar þess í stað. Snæfríður Ingadóttir spjallaði við okkur um þetta og gaf góð ráð en hún hefur m.a. skrifað bók um þennan möguleika fólks á að skiptast á húsnæði í fríium. Nemendafélag háskólans á Bifröst hefur vakið athygli á því að launþegar sem hafa stundað háskólanám samhliða vinnu og hafa verið í 73,3 prósent námi, eða meira, og missa sína 100 prósent vinnu, eiga ekki rétt á atvinnuleysisbótum. Samkvæmt Vinnumálastofnun flokkast þeir sem námsmenn og eiga að sækja í LÍN. Leifur Finnbogason formaður félagsins segir fólki í raun refsað fyrir dugnað og þetta flókna mál sé ósanngjarnt og þurfi að leysa. Hann kom til okkar og fór yfir málið. Silja Bára Ómarsdóttir, dósent við stjórnmálafræðideild HÍ, kom til okkar og ræddi ástandið í Bandaríkjunum en í gærkvöldi hótaði Donald Trump að beita hervaldi gegn mótmælendum í landinu. Þegar hafa a.m.k. tveir ríkisstjórar sagt að ekki komi til greina að beita hernum en hörð mótmæli hafa staðið yfir víða um landið síðustu daga. Silja Bára fór yfir þetta og hvaða stöðu mótmælin og heimsfaraldurinn geta haft á forsetakosningarnar í haust. Sævar Helgi Bragason var á sínum stað í Vísindahorni vikunnar og fjallaði þar um geimskot og ilminn af útiþurrkuðum þvotti og nýslegnu grasi. Tónlist: Hildur Vala - Tími. Bill Withers - Lovely day. Anouk - Birds. Eric Clapton - Lay down Sally. Jón Jónsson - Dýrka mest. Brimkló - Í óbyggðum. Hera - Process. Sváfnir Sig - Líttu aftur. George Michael - Fast love. Daði - Family man.

family donald trump airbnb sv sn hann ln bandar snorri bifr samkv vinnum silja b ingad helgi bragason nemendur bill withers lovely george michael fast
Fríhöfnin
Árin 1978-1988

Fríhöfnin

Play Episode Listen Later Apr 6, 2020

Fjallað er um ýmis fréttamál og fréttaflutning frá fullveldistímanum með dyggri aðstoð fréttafólks og annarra málsmetandi álitsgjafa. Sjónum er beint að innlendum jafnt sem erlendum fréttum sem varpað geta ljósi á hvern og einn áratug aldarinnar 1918 - 2018, auk þess sem hugað verður að þróun fréttaflutnings og miðlun frétta á þessu tímabili. Umfjöllunarefni fjórða þáttar eru fréttir áratugarins 1978 - 1988. Þar verður hugað sérstaklega að fréttum af forsetakjöri Vigdísar Finnbogadóttur árið 1980 og afdrifum Kalda stríðsins sem tók nýja stefnu með leiðtogafundi Ronald Reagan og Mikhail Gorbachev árið 1986 í Höfða og lauk með táknrænum hætti árið 1989 með falli Berlínarmúrsins. Ennfremur verður litið almennt til þróunar fréttaflutnings og miðlunar frétta á þessu tímabili. Gestir þáttarins eru Elísabet Jökulsdóttir, Óðinn Jónsson, Silja Bára Ómarsdóttir og Styrmir Gunnarsson. Umsjón hefur Marteinn Sindri Jónsson.

4. mars - Neytendalög, forval, Bjarni Thor, landlæknir og Kristbjörg

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Mar 4, 2020 130:00

Gunnlaugur Jónsson, framkvæmdastjori Fjártækniklasans, kom til okkar en þar á bæ eru menn óhressir við fyrirhugaðar breytingar á neytendalögum sem ætlað er að koma böndum á smálánafyrirtækin og segja þær í raun og veru íþyngjandi fyrir nýsköpunarfyrirtæki og ekki skila tilætluðum árangri gegn smálánum. Silja Bára Ómarsdóttir, stjórnmálafræðingur, kom til okkar og fór yfir stöðuna í forvali demókrata fyrir bandarísku forsetakosningarnar en svokallaður ofur þriðjudagur, eða Super Tuesday, var í gær þar sem kosið var í fjórtán ríkjum. Eftir kvöldið bendir flest til að það verði annað hvort Joe Biden eða Bernie Sanders sem verði fulltrúi demókrata gegn Donald Trump í kosningunum síðar á árinu. Bjarni Thor Kristinsson óperusöngvari hefur dvalið í ítölsku borginni Parma undanfarnar vikur við æfingar á Pelléas et Mélisande eftir Debussy. Frumsýning er áætluð eftir tíu daga, en undanfarið hefur verið viðburðabann í borginni. Við slógum á þráðinn til norður Ítalíu og heyrðum í Bjarna Thor. Fleiri sýni voru greind í gær, en alls hafa 16 greinst með þessa kórónaveiru hér á landi og eru flest með væg flensueinkenni, samkvæmt kvöldfréttum Sjónvarpsins. Flest þeirra gistu á sama hótelinu á ítalska skíðasvæðinu í Selva. Alma Möller landlæknir var gestur Morgunútvarpsins og hún svaraði spurningum hlustenda. Kristbjörg Sigtryggsdóttir var fyrir skemmstu valin besta leikkona í stuttmynd á Fusion International Filmfestival í London fyrir hlutverk sitt í mynd Ólafar Birnu Torfadóttur, Everything nice. En hver er þessi íslenska verðlaunaleikkona og hvaða mynd er þetta? Við hringdum á Selfoss og heyrðum í Kristbjörgu sem lét draum sinn um leiklistarnám rætast tæplega þrítug og sér ekki eftir því. Tónlist: Rúnar Júlíusson - Það þarf fólk eins og þig. Emilíana Torrini - Me and Armini. Hera - Process. Miley Cyrus - Malibu. Ásgeir Trausti - Upp úr moldinni. The Marcus King Band - Homesick. Stuðmenn- Elsku vinur. Genesis - Follow you, follow me. Bryan Ferry - Slave to love.

Morgunútvarpið
4. mars - Neytendalög, forval, Bjarni Thor, landlæknir og Kristbjörg

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Mar 4, 2020

Kjósendur Demókrata telja Sanders líklegastan til að fella Trump

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Feb 25, 2020 130:00

Enska knattspyrnufélagið Manchester City sem er eitt það stöndugasta í Evrópu hefur verið dæmt brotlegt gegn reglum Knattspyrnusambands Evrópu um fjárhagsmál og fær ekki að taka þátt í Meistaradeild Evrópu næstu tvö tímabil. Félagið hafnar ásökununum og hefur áfrýjað dómnum. Í spjalli um efnahag og samfélag rakti Þórður Snær Júlíusson uppgang félagsins síðustu ár árangur þess hefur verið í jöfnum takti við fjárhagslegan styrk. Morðin í Hanau í Þýskalandi í síðustu viku settu svip á kosningabaráttuna í Hamborg en kosið var til fylkisþings þar um helgina. Arthúr Björgvin Bollason ræddi um kosningarnar í Berlínarspjalli dagsins. Hann talaði líka um tónskáldið dáða Ludwig van Beethoven en þess er minnst með fjölmörgum viðburðum að 250 ár eru frá fæðingu hans. Bernei Sanders er líklegastur til að verða forsetaefni Demókrataflokksins í bandarísku forsetakosningunum í nóvember. Forval er afstaðið í þremur ríkjum og stendur Sanders best að vígi. Slagt gengi Joe Biden, fyrrverandi varaforseta, hefur komið á óvart. Silja Bára Ómarsdóttir, dósent í stjórnmálafræði við HÍ, fór yfir sviðið. Hún sagði m.a. að Demókratar væru líklegir til að víkja frá eigin pólitísku sannfæringu og velja þann frambjóðenda sem þeir teldu líklegastan til að fella Trump forseta. Tónlist: Big Shoe - Johnny Hodges og hljómsveit, Bend one - Johnny Hodges og hljómsveit, Midnight traun to Georgia - Neil Diamond

Morgunvaktin
Kjósendur Demókrata telja Sanders líklegastan til að fella Trump

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Feb 25, 2020

Mikilvægi Íslands hefur aukist

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Sep 5, 2019 130:00

Silja Bára Ómarsdóttir, dósent í alþjóðasamskiptum í stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands, telur að aukin áhersla Kína á norðurslóðir hafi leitt til þess að heimshlutinn og sambandið við Íslands vegi nú þyngra hjá bandarískum stjórnvöldum. Þetta megi sjá á heimsókn Mike Pence, varaforseta Bandaríkjanna í gær og utanríkisráðherrans Mike Pompeo í febrúar. Silja Bára var gestur Morgunvaktarinnar í morgun og hún fjallaði um nýafstaðna heimsókn Pence hingað til lands. Þá reifaði hún baráttuna í Demókrataflokknum um að öðlast tilnefningu flokksins sem forsetaframbjóðandi í kosningunum á næsta ári. Fornleifastofnun Íslands gaf fyrr á þessu ári út skýrsluna Þjórsárdalur - Skráning fornminja úr lofti. Þar eru, eins og nafnið gefur til kynna, raktar helstu niðurstöður verkefnisins sem ber þetta nafn. Í þessari rannsókn voru bæjarstæði í Þjórsárdal mynduð með dróna og þá fundust óþekktar minjar á sex af þessum bæjarstæðum. Ragnheiður Gló Gylfadóttir fornleifafræðingur er annar höfunda skýrslunnar og hún sagði hlustendum frá þessum rannsóknum. Jazzhátíð í Reykjavík var sett í gær í 30. sinn og stendur fram á sunnudag. Ef rýnt er í dagskrá hátíðar er ekki annað að sjá en að hin íslenska jazzflóra sé mjög blómleg, fjöldi íslenskra tónlistarmanna, ungir og aldnir leika á hátíðinni í bland við góða gesti að utan. Sunna Gunnlaugsdóttir, sem situr í stjórn hátíðarinnar, kom á Morgunvaktina og sagði hlustendum frá hátíðinni og islenskum jazzi. Tónlist: Cry to Me - Solomon Burke Les Champs-Elysées - Joe Dassin Bjartar vonir vakna - Öskubuskur Board Games - Mikael Máni Trio Beautiful Love - Anita O´Day

Morgunvaktin
Mikilvægi Íslands hefur aukist

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Sep 5, 2019

Egill, Jökull, Sandra og Silja

Vikulokin

Play Episode Listen Later Aug 10, 2019

Gestir þáttarins voru Sandra Ocares, verkefnastjóri Íslenska byggingavettvangsins, Jökull Sólberg, ráðgjafi hjá Parallel ráðgjöf, Egill Jóhannsson, forstjóri Brimborgar og Silja Bára Ómarsdóttir, dósent í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands. Rætt var um vandræði Félags eldri borgara við afhendingu á íbúðum sem það reisti fyrir félagsmenn, ný bílalán á lægri en vöxtum en gengur og gerist, samgöngumál og orkuskipti bílaflotans, skotvopnaárásir í Bandaríkjunum og tollastríð Bandaríkjaforseta við Kína og horfur í efnahagslífinu fyrir haustið. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon

Bók vikunnar
Með köldu blóði

Bók vikunnar

Play Episode Listen Later Mar 3, 2019

Fjallað um bókina Með köldu blóði eftir Truman Capote í þýðingu Hersteins Pálssonar. Viðmælendur eru Ágúst Borgþór Sverrisson, blaðamaður og Silja Bára Ómarsdóttir, stjórnmálafræðingur. Umsjón: Jóhannes Ólafsson.

Fatasóun, Cohen, málfar, Vigdís Hauks, 64 ár í kór

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Feb 28, 2019 130:00

Vesturbyggð, í samstarfi við Umhverfisstofnun, hratt af stað átaki gegn fatasóun í vikunni með sýningu heimildarmyndarinnar The True Cost. Framundan eru fleiri viðburðir er átakinu tengjast og við slógum á þráðinn vestur og heyrðum í Öldu Hrannardóttur á Patreksfirði sem er tengiliður Vesturbyggðar við verkefnið. Það er óhætt að segja að vitnisburður Michael Cohen, náins samstarfsmanns Donald Trump í áratug, fyrir þingnefnd í gær hafi valdið skjálfta í Washington og víðar. Framburður Cohen gæti reynst forsetanum skeinuhættur og Silja Bára Ómarsdóttir stjórnmálafræðingur fór yfir málið með okkur. Anna Sigríður Þráinsdóttir kemur í sitt vikulega spjall um íslenskt mál og þar komu m.a. tíkallasímar, ljón í og á veginum og kalkipappír við sögu. Vigdís Haukdsóttir, borgarfulltri, kom til okkar en fullyrt hefur verið að hún og nokkrir aðrir borgarfulltrúar gangi allt of langt í gagnrýni sinni á starfsmenn og embættismenn borgarinnar. Fyrrverandi borgarfulltrúi kallaði hana sirkusstjóra í þættinum í gær og komu þau ummæli í framhaldi af færslu Stefáns Eiríkssonar, borgarritari, sem sagði um síðustu helgi að starfsmenn borgarinnar veigri sér við að mæta í vinnu, sitja fundi og klára verkefni vegna óásættanlegrar framkomu kjörinna fulltrúa. Það er óhætt að segja að mikil gróska sé í kóramenningu Íslendinga en fáir geta státað af því að hafa tilheyrt sama kórnum í meira en hálfa öld. Í vikunni bárust þær fregnir að Jón Hallson væri að hætta í Karlakór Reykjavíkur eftir 64 ára starf. Jón, sem er 86 ára, er ekki bara einn reyndasti kórsöngvari þjóðarinnar, heldur getur hann einnig státað af því að hafa tekist að næla sér í konu í karlakór. Jón kom í morgunkaffi til okkar. Tónlist: Júníus Meyvant - Gold laces. Otis Redding - Ive been loving you too long. Magni og Ólöf Jara - Eina nótt. Alice Merton - Learn to live. Úlfur Úlfur - Engar hendur. Michael Kiwanuka - One more night.

donald trump washington stef michael cohen true cost reykjav eir magni vigd framundan engar fyrrverandi anna sigr hauks silja b karlak patreksfir umhverfisstofnun michael kiwanuka one
Mannlegi þátturinn
Ofnæmi, hvað er lýðveldi og Hvað er í matinn?

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Nov 14, 2018 55:00

Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands, Sögufélag og Háskólinn í Reykjavík efna til fundaraðar í nóvember með yfirskriftinni Fullveldi Íslands í 100 ár: Hugsjón og reynd. Fondaröðin tengist útgáfu bókarinnar Frjáls og fullvaldaríki: Ísland 1918-2018 og tilgangur fundanna er að taka til umræðu fullveldishugmyndina í íslenskum stjórnmálum, þýðingu fullveldis fyrir samfélagsþróun á Íslandi og spurninguna um hvort þrengt hafi verið að fullveldi Íslands á síðustu áratugum. Fyrsti fundurinn er í dag og ber hann yfirskriftina: Fullveldið í reynd: Hvaða gagn hafa Íslendingar haft af fullveldinu? Guðmundur Jónsson prófessor í sagnfræði og ritstjóri nýju bókarinnar og Silja Bára Ómarsdóttir dósent í stjórnmálafræði komu í þáttinn. Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir fréttamaður var að gefa út 3ju matreiðslubókina sína, Hvað er í matinn? Í bókinni gefur Jóhanna matarhugmyndir fyrir 9 vikur svo það verður líklega kærkomið fyrir marga að fletta í gegnum hana, enda oft mikil heilabrot um hvað á að vera í matinn á heimilum. Guðrún spjallaði við Jóhönnu í þættinum í dag. Ofnæmi hefur aukist svo mikið á undanförnum árum að það er talað um faraldur í því sambandi. Astmi, heymæði og fæðuofnæmi eykst stöðugt og við því hefur ekki fundist afgerandi lækning. Rannsóknir benda hins vegar til þess að ónæmisfaraldurinn sé afleiðing af auknu þéttbýli í borgum og minnkandi tengslum við náttúrulegt umhverfi. Magnús R. Einarsson fjallaði um þetta í pistli dagsins. Umsjón Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson

Vikulokin
Silja Bára Ómarsdóttir, Valgerður Rúnarsdóttir og Þórhildur Ólafsdótti

Vikulokin

Play Episode Listen Later Aug 25, 2018 60:00

Staða Donalds Trumps Bandaríkjaforseta, rannsókn sem staðfestir skaðsemi áfengis, meðferðarúrræði fyrir ungt fólk sem berst við fíkn, utanvegaakstur, ferðamennska og meðferð við lifrarbólgu var meðal þess sem rætt var í vikulokin við Silju Báru Ómarsdóttiu, lektor við Háskóla Íslands, Valgerði Rúnarsdóttur, forstjóra á Vogi og Þórhildi Ólafsdóttur útvarpskonu. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir Tæknimaður: Ragnar Gunnarsson

sta umsj valger anna krist silja b
Vikulokin
Silja Bára Ómarsdóttir, Valgerður Rúnarsdóttir og Þórhildur Ólafsdótti

Vikulokin

Play Episode Listen Later Aug 25, 2018

Staða Donalds Trumps Bandaríkjaforseta, rannsókn sem staðfestir skaðsemi áfengis, meðferðarúrræði fyrir ungt fólk sem berst við fíkn, utanvegaakstur, ferðamennska og meðferð við lifrarbólgu var meðal þess sem rætt var í vikulokin við Silju Báru Ómarsdóttiu, lektor við Háskóla Íslands, Valgerði Rúnarsdóttur, forstjóra á Vogi og Þórhildi Ólafsdóttur útvarpskonu. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir Tæknimaður: Ragnar Gunnarsson

sta umsj valger anna krist silja b
Samtal
Silja Bára Ómarsdóttir

Samtal

Play Episode Listen Later Jul 8, 2018

um alþjóðamál. Ævar Kjartansson fær Jón Orm Halldórsson, stjórnmálafræðing til liðs við sig í júlí og ágúst til þess að eiga samtal við ýmsa fræðimenn um alþjóðamál. Ýmsar blikur eru á lofti um þessar mundir í alþjóðamálum. Ýmislegt óvænt kemur frá helstu ráðamönnum heimsins og mikið reynir á helstu samninga og sáttmála um mannréttindi og lýðræði. Rætt verður við ýmsa sérfróða um einstök svæði heimsins og eins þá sem starfa við alþjóðastofnanir og þróunarmál. Gestur þáttarins er Silja Bára Ómarsdóttir.

Samfélagið
Öryggismál, ungir þolendur ofbeldis, málfar og gæludýr.

Samfélagið

Play Episode Listen Later Jun 26, 2018 65:00

Silja Bára Ómarsdóttir, aðjúnkt í stjórnmálafræði við HÍ: sýn íslensks almennings á utanríkis- og öryggismál. Hvað telur fólk að ógni öryggi og stuðli að örygg? HAfdís Helgudóttir félagsráðgjafi hjá Bjarkarhlíð: Forsvarsmenn Bjarkarhlíðar sem er miðstöð fyrir þolendur ofbeldis hafa áhyggjur af vaxandi fjölda fólks á aldrinum 18-29 ára sem leitar aðstoðar hjá miðstöðinni en um sjötíu prósent skjólstæðinganna sem þangað leita eru á þessum aldri. Það er hins vegar fagnaðarefni að sífellt fleiri leiti sér aðstoðar vegna ofbeldis í nánum samböndum. Rýnt var ðí hvað unga kynslóðin er að upplifa og mögulega skýringar á því.   Málfarsmínúta Kolbrún Arna Sigurðardóttir, faggæludýrahjúkrunarfræðingur: Gæludýr og sumarfrí

hva hafd silja b
Morgunútvarpið
Morgunútvarpið 26.febrúar

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Feb 26, 2018 190:00

Ákvörðun Ásmundar Einars Daðasonar félagsmálaráðherra um að útefna Braga Guðbrandsson, forstjóra Barnaverndarstofu, sem frambjóðanda Íslands til Barnaréttarnefndar Sameinuðu þjóðanna, hefur verið gagnrýnd um helgina. Ung Vinstri græn segja ólíðandi að hann njóti stuðning ríkisstjórnarinnar, Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingmaður Pírata, sagði í Silfrinu í gær að ríkisstjórnin sé að verðlauna hann fyrir vonda hegðun. Þorsteinn Víglundsson, var félagsmálaráðherra þegar kvartanir og ásakanir barnaverndarnefnda á hendur Braga bárust. Þorsteinn sagði í gær að stuðningur ráðherra og ríkisstjórnarinnar við forstjórann fyrrverandi hljóti að fela í sér stuðningsyfirlýsingu við þau vinnubrögð sem undan var kvartað. Þorsteinn kemur til okkar. Fjölmörg stórfyrirtæki hafa rift samningum og samstarfi við samtök bandarískra byssueigenda, NRA, en samtökin hafa hingað til verið mjög öflug og raun einn allra öflugasti þrýstihópurinn í bandarískum stjórnmálum. Þau hafa barist með kjafti og klóm gegn öllum hugmyndum um að þrengja að möguleikum almennings til að kaupa og eiga vopn og borgað myndarlegar fjárhæðir til bandarískra stjórnmálamanna. Silja Bára Ómarsdóttir, alþjóðastjórnmálafræðingur, segir okkur frá því hvort tekið sé að molna undan samtökunum og þar með að opnast færi tl að breyta skotvoppnalöggjöfinni. Í umsögn sem Landlæknisembættið sendi til Alþingis fyrir helgi, vegna þingsályktunartillögu um dánaraðstoð, segir að það væri misráðið ef Íslendingar færðu umræðu um dánaraðstoð inn á Alþingi. Þingskályktunartillagan kemur frá þingmönnum úr öllum flokkum á Alþingi en í henni er lagt til að heilbrigðisráðherra verði falið að taka saman upplýsingar um dánaraðstoð og þróun lagaramma um hana þar sem hún er leyfð. Einn flutningsmanna tillögunnar, Hanna Katrín Friðriksson, þingmaður Viðreisnar, ræðir þetta við okkur. Líf Magneudóttir hlaut fyrsta sæti í forvali Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs fyrir komandi borgarstjórnarkosningar. Líf, sem hefur verið borgarfulltrúi flokksins síðan Sóley Tómasdóttir hætti í borgarstjórn haust 2016, gaf ein kost á sér í efsta sætið. Hún kemur til okkar. Við förum yfir íþróttaviðburði helgarinnar með íþróttafréttamanni RÚV. Gefið hefur verið út að tvö laganna í lokakeppni Söngvakeppninnar verða flutt á íslensku og verði því flutt á íslensku í Eurovision beri þau sigur úr býtum hér heima. Anna Sigríður Þráinsdóttir og Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir koma til okkar og ræða tungumálin í Eurovision. Þær ætla meðal annars að segja okkur hve oft Íslendingar hafi sungið á ís

Fram og til baka
Fram og til baka 25.02.2018

Fram og til baka

Play Episode Listen Later Feb 25, 2018

Fram og til baka 25.02.2018 Umsjón Felix Bergsson og Margrét Blöndal Lag dagsins - Missing, Everything but the girl frá 1996 Fimman - Silja Bára Ómarsdóttir stjórnmálafræðingur. Fimman hennar voru ferðalög í gegnum tíðina 1 Danmörk, Svíþjóð og Þýskaland í barnæsku 2 Túnis í stúdentsferð með MH. 3 Bílferðir um Bandaríkin. Silja Bára keyrði yfir landið á flutningabíl. 4 Brúðkaup í Rússlandi, nánar tiltekið St. Pétursborg 5 Kína, Víetnam og Malasía með systkinum hennar Viðtal - Eddan 2018. Þórarinn B Þórarinsson blaðamaður spáði í spilin fyrir Edduhátíð kvöldsins Fréttagetraun - enginn sigurvegari því enginn náði að klára þrjár spurningar. Tímaflakk 1966, 1976, 1986, 1996 Tímaflakk dagsins kom niður í þessari síðustu viku febrúar árin 1966, 1976, 1986 og 1996. Ella Fitzgerald kom við á Íslandi en aðsókn á tónleika var dræm og kenndu menn háu miðaverði um. Ella kvartaði líka yfir kuldalegum móttökum áhorfenda. Þá vöruðu balletdansarar við hinum stórhættulega jazzballett og hvöttu foreldra að halda börnum sínum frá svo hættulegri iðju. Elizabeth Taylor skildi enn á ný við Richard Burton, Palme var myrtur og Íslandsmótið í þolfimi fór fram í Höllinni. Allt þetta og miklu meira í Fram og til baka dagsins.

Fram og til baka
Fram og til baka 25.02.2018

Fram og til baka

Play Episode Listen Later Feb 25, 2018 197:00

Morgunútvarpið 8.janúar

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Jan 8, 2018 190:00

Traust þjóðarinnar til stjórnmála er stjórnmálamönnum eðlilega hugleikið og margir hafa undanfarin ár haft orð á því að traust gagnvart stjórnmálamönnum sé við frostmark. Í stjórnarsáttmála nýrrar ríkisstjórnar er því lofað að ráðast í aðgerðir til að bæta úr þessu vantrausti Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hefur skipað starfshóp sem hefur það að markmiði að auka tiltrú almennings á stjórnmálum. Formaður starfshópsins er Jón Ólafsson prófessor í heimspeki við Háskóla Íslands og hann er hingað kominn til að segja okkur aðeins frá því hvaða stóru verkefni hópurinn stendur frammi fyrir og útlistar fyrir okkur hvert viðfangsefnið raunverulega er. Við rýnum líka í efnahagsástandið eins og það er núna og spár um það hvað er framundan í þeim efnum. Er verðbólga í kortunum eða áframhaldandi hagsæld? Hvað þýðir það að vöruskiptahalli sé meiri nú en fyrir ári síðan? Hvað segir það um efnahagsástandið að fjármálaráðherra segi lítið svigrúm til launahækkana í samfélaginu? Hingað koma Katrín Ólafsdóttir, hagfræðingur og lektor við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík, og Stefán Broddi Guðjónsson, forstöðumaður greiningardeildar Arion banka og spá aðeins í spilin fyrir okkur um við hverju Íslendingar mega búast á árinu þegar kemur að efnahagsmálum. Er núna kannski rétti tíminn til að endurfjármagna fasteignalánin, eða hvað? Þórarinn Tyrfingsson, fyrrverandi forstjóri sjúkrahússins á Vogi, er ósáttur við framlög til SÁÁ í fjárlögum ársins 2018. Hann bendir meðal annars á að ef ástand útigangsfólks í Reykjavík sem sé áfengis- og vímuefnasjúkt fari versnandi þurfi að auka framlög til Vogs og stytta biðlista þar. Hann kemur til okkar. Norðmenn eru slegnir yfir hvarfi Janne Jemtland, þrjátíu og sex ára, tveggja barna norskri móður, sem yfirgaf heimili sitt í útjaðri smábæjarins Brumunddal í Noregi aðfaranótt 29. Desember. Til hennar hefur ekkert spurst síðan og hefur lögreglan staðfest að blóð úr henni hafi fundist á tveimur stöðum í jaðri bæjarins. Íbúar hafa tekið þátt í leitinni og einn þeirra er Salvar Geir Guðgeirsson, prestur sem býr í Brumunddal. Við ræðum við hann. Bók Michael Wolff um fyrsta ár Donald Trump Bandaríkjaforseta í embætti, „Fire and Fury“ hefur vakið heimsathygli. Í henni kemur meðal annars fram að margir nánir samstarfsmenn forsetans kalli hann fávita og fífl og að hann hagi sér eins og barn. Trump hefur eftir útkomu bókarinnar lýst því sjálfur yfir að hann sé vel gefinn snillingur í góðu jafnvægi og að bókin sé ósönn. Silja Bára Ómarsdóttir stjórnmálafræðingur ræðir við okkur um bókina. Við förum y